Skip to main content

Högg - leikskrá

Page 1

EFTIR JAMES GRAHAM Byggt á bók Jacobs Dunne Right from Wrong 1


„Högg er tileinkað minningu James Hodgkinson og allra fórnarlamba eins hnefahöggs. James helgaði líf sitt því að hjálpa og líkna öðrum. Þau 28 ár sem hann lifði voru skýr vitnisburður um lífsviðhorf hans og gildismat – hann var sjálfboðaliði, leiðbeinandi, sérmenntaður bráðatæknir. Hann var elskaður af fjölskyldu sinni og vinum og endurgalt þá ást. Leikhúsið getur og á að vera staður sem skapar samkennd, og eykur skilning. Von okkar er sú að heiðra minningu James og draga upp mynd af þeim manni sem hann var.” James Graham, leikskáld

James Hodgkinson lést 9. ágúst 2011

2


Högg eftir James Graham byggt á bókinni Right from Wrong eftir Jacob Dunne Þýðing: Kristján Þórður Hrafnsson

Þjóðleikhúsið 2026 - 2027

3


Verkið er byggt á sannri sögu en sumar persónur og atburðir lúta lögmálum skáldskaparins. Leikritið Högg eða Punch var upphaflega skrifað fyrir Nottingham Playhouse og var heimsfrumsýnt þar. Sýningarréttur: Curtis Brown. Tónlistin í sýningunni er eftir Gísla Galdur Þorgeirsson, en einnig heyrast stef úr þekktum lögum eftir Jóhann Helgason, Þorkel Sigurbjörnsson, A. P. Berggreen og fleiri. Sérstakar þakkir: Arnar Pálsson sálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun ríkisins, Hjalti Jónsson sálfræðingur, Kristín Skjaldardóttir félagsráðgjafi hjá Domus Mentis Geðheilsustöð, Þóra Sigfríður Einarsdóttir sálfræðingur hjá Domus Mentis Geðheilsustöð, Helgi Gunnlaugsson, prófessor í afbrotafræði við Háskóla Íslands og Exton.

Leikskrá Ritstjórn: Melkorka Tekla Ólafsdóttir. Hönnun og uppsetning: Jorri. Ljósmyndir: Jorri. Ljósmynd af Jacob Dunne: The Guardian / Stephen Burke Prentun: Prentmet Oddi. Útgefandi: Þjóðleikhúsið. Myndir í leikskrá eru teknar á æfingu og eru því ekki heimild um endanlegt útlit sýningarinnar. Sýningarlengd er um tvær klukkustundir og fjörutíu mínútur. Eitt hlé. Viðvörun: Blikkandi ljós eru notuð í sýningunni. Boðið er upp á umræður með þátttöku listafólks eftir 6. sýningu. Textun á ensku og íslensku á 7. sýningu.

Þjóðleikhúsið 78. leikár, 2026–2027. Frumsýning á Stóra sviðinu 16. október 2026. Þjóðleikhússtjóri: Magnús Geir Þórðarson.

4


5


Leikarar Jacob Jakob van Oosterhout

Clare, Nicola og fleiri hlutverk Selma Rán Lima

Joan og fleiri hlutverk Unnur Ösp Stefánsdóttir

Raf og fleiri hlutverk Kristinn Óli S. Haraldsson

David og fleiri hlutverk Guðjón Davíð Karlsson

Derek og fleiri hlutverk Jónmundur Grétarsson

Móðir Jacobs og fleiri hlutverk Edda Björg Eyjólfsdóttir

Sam, Tony og fleiri hlutverk Sigurbjartur Sturla Atlason

Faðir Rafs, lögreglumaður og fleiri hlutverk Hallgrímur Ólafsson

Wendy, amma og fleiri hlutverk Þuríður Blær Jóhannsdóttir

Listrænir stjórnendur Leikstjórn Magnús Geir Þórðarson

Lýsing Björn Bergsteinn Guðmundsson

Leikmynd Ilmur Stefánsdóttir

Tónlist Gísli Galdur Þorgeirsson

Búningar Filippía I. Elísdóttir

Hljóðhönnun Aron Þór Arnarsson Gísli Galdur Þorgeirsson

Dans og sviðshreyfingar Conor Doyle

Framleiðslu- og sýningarstjórn Sýningarstjórn Elísa Sif Hermannsdóttir

6

Framleiðslustjórn Máni Huginsson


Aðrir aðstandendur

Aðstoðarmaður leikstjóra Ebba Katrín Finnsdóttir

Yfirsmiður Arturs Zorģis

Starfsnemi – Nord universitet í Noregi Þula Katrín Helgudóttir Þórðardóttir

Yfirumsjón með leikmyndarmálun og áferð Valur Hreggviðsson

Deildarstjóri sviðs- og ljósadeildar Kjartan Þórisson

Yfirumsjón á sviði Siobhán Antoinette Henry

Yfirumsjón búninga Sólveig Spilliaert

Yfirumsjón leikmuna Ásta S. Jónsdóttir

Yfirumsjón leikgerva Silfá Auðunsdóttir

Samsetning tæknikeyrslu Anna Kristín

Teymisstjórn leikmyndagerðar Jasmina Luiza Wojtyla

Hljóðmaður Bragi Fannar F. Berglindarson

Starfsfólk á sýningum Sýningarstjórn Elísa Sif Hermannsdóttir Elín Smáradóttir Ljósastjórn Anna Kristín Davíð Þrastarson Hljóðstjórn Aron Þór Arnarsson Bragi Fannar F. Berglindarson Umsjón með sviði og leikmunum Siobhán Antoinette Henry Kristmundur Elías Baldvinsson

Búningavörður Marín Mist Magnúsdóttir Eltiljós Anna María Antonsdóttir Þórey Hjaltadóttir Þórhallur Arnórsson Amanda Eir Steinþórsdóttir Leikgervadeild Elín Hanna Ríkharðsdóttir Emilíanna Valdimarsdóttir Unnur Día Karlsdóttir Guðbjörg Guðjónsdóttir Jóhanna Hjaltalín

Annað starfsfólk við sýninguna Málmsmíði Ævar Uggason Hljóðdeild Kristján Sigmundur Einarsson Smiðir Matija Mihaljenovic Stefán Örn Stefánsson Leikmyndarmálun og áferð Tóta Kolbeinsdóttir Eyrún Arna Ingólfsdóttir Kristján Thorlacius

Búningadeild Berglind Einarsdóttir Ásdís Guðný Guðmundsdóttir Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir Eva Lind Weywadt Oliversdóttir Leikgervadeild Ingibjörg G. Huldarsdóttir Birna Magnea Sigurðardóttir Ása María Guðbrandsdóttir Þóra Guðbjörg Benediktsdóttir Leikmunadeild Eyrún Arna Ingólfsdóttir Sturla Magnússon

7


8


9


Eitt umtalaðasta breska leikrit undanfarinna ára Leikritið Högg eða Punch eftir breska leikskáldið James Graham er eitt umtalaðasta breska leikrit undanfarinna ára. Verkið var upphaflega skrifað að beiðni Nottingham Playhouse og var frumsýnt þar í leikstjórn Adam Penford í maí árið 2024. Sýningin vakti strax gífurlega athygli og fékk frábærar viðtökur. Hún var endurfrumsýnd í Young Vic í London í mars árið 2025. Vegna góðs gengis sýningarinnar var hún flutt í Apollo Theatre á West End í september 2025. Adam Penford setti sýninguna upp með sama listræna teymi en nýjum leikhópi hjá Manhattan Theatre Club í Samuel J. Friedman Theatre á Broadway í New York haustið 2025. Nýtt sýningatímabil verksins hefst í Nottingham árið 2027, og sýningin mun fara í leikferð um Bretland. Í undirbúningi er ný gerð af sýningunni, sérstaklega ætluð ungu skólafólki, auk þess sem unnið er að sjónvarpsaðlögun af verkinu. Þjóðleikhúsið er fyrsta leikhúsið sem fær heimild til uppsetningar verksins eftir uppfærslur Adams Penford í Bretlandi og Bandaríkjunum, en sýningar eru í undirbúningi víða. Leikritið Punch hlaut hin virtu Olivier-verðlaun fyrr á þessu ári, auk þess sem Julie Hesmondhalgh hlaut verðlaunin fyrir leik sinn í hlutverki Joan. Sýningin hlaut einnig fjölda tilnefninga til ýmissa leiklistarverðlauna, og má þar nefna WhatsOnStage-verðlaunin, Tony-verðlaunin, Outer Critics Circle-verðlaunin og Theatre World- verðlaunin. Sýningin hlaut nú í haust Sky Arts-leiklistarverðlaunin. Leikritið er byggt á sjálfsævisögulegri bók Jacobs Dunne, Right from Wrong: My Story of Guilt and Redemption, sem kom út árið 2022. Bókin vakti strax gífurlega athygli og hefur haft mikil áhrif víða í bresku samfélagi. Jacob Dunne ólst upp í harkalegu umhverfi í Nottingham í Bretlandi. Sem ungur maður lifði hann fyrir viðurkenningu félaganna og spennuna sem fylgir drykkju, fíkniefnaneyslu, djammi og slagsmálum um helgar. Eitt örlagaríkt laugardagskvöld, þegar hann var 19 ára gamall, blandaði hann sér í ágreining í miðborg Nottingham og sló ókunnugan ungan mann, James Hodgkinson, einu höggi. James skall í götuna og lést nokkru síðar af völdum höfuðhöggsins við fallið. Jacob Dunne var dæmdur til tveggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir alvarlega líkamsárás sem leiddi til dauða og sat í fangelsi í fjórtán mánuði. Þegar hann losnaði úr fangelsi veittist honum erfitt að finna lífi sínu tilgang og stefnu og fátt annað blasti við en gamla lífernið. Það sem átti hins vegar eftir að breyta lífi hans var þátttaka í ferli sem kallast á ensku restorative justice og hefur fengið heitið uppbyggileg réttvísi á Íslandi, en frá þessu ferli er sagt á öðrum stað hér í leikskránni. Sú þátttaka kom upprunalega þannig til að foreldrar unga mannsins sem dó, þau Joan Scourfield og David Hodgkinson, óskuðu eftir því að fá að skrifa Jacob bréf, til að spyrja hann ákveðinna spurninga í þeim tilgangi að skilja betur hvað hafði gerst. Bréfaskriftirnar leiddu svo til þess að aðilarnir hittust og hófu samskipti. Ferlið átti eftir að hafa mikil áhrif á þau öll, ekki síst Jacob sem ákvað að umbreyta lífi sínu. Jacob ákvað að vinna upp það sem hann hafði misst úr í skóla og lauk að endingu háskólanámi í afbrotafræði. Hann hefur beitt sér fyrir því að vekja fólk til vitundar um hættuna sem eitt höfuðhögg getur skapað, haldið fyrirlestra víða, komið fram í fjölmiðlum, gert útvarpsþætti og unnið að ráðgjöf í stefnumótun innan réttarkerfisins og mennta-

10


kerfisins. Hann lauk nýlega við gerð útvarpsþáttaraðarinnar Turning Point. Listrænir stjórnendur Nottingham Playhouse fóru þess á leit við hið þekkta og virta breska leikskáld James Graham að hann skrifaði leikrit byggt á bókinni Right from Wrong. Í verkum sínum fjallar Graham gjarnan um mikilvægar samfélagslegar spurningar. Eitt frægasta verk hans, Dear England, hefur líkt og Punch sterka samfélagslega vísun en í forgrunni þess er breska landsliðið í knattspyrnu og umfjöllunarefnið er þjóðarsjálfsmynd, hugmyndir um karlmennsku, ósigrar, fortíðarþrá og samfélagsleg spenna. Í leikritinu Höggi tekst James Graham á við margvíslegar spurningar í gegnum persónulegar sögur varðandi ofbeldi, karlmennsku og opinberar stofnanir; skóla-, félags-, dómog réttarkerfið. En einnig um möguleikana á einhvers konar endurlausn einstaklingsins, því að byrja nýtt líf, breyta sjálfum sér til betri vegar. Graham vann að leikritinu í náinni samvinnu við Jacob Dunne og foreldra James Hodgkinson, Joan og David, og þau hafa fylgst náið með ferli sýningarinnar. Viðhorf þeirra er í anda þess sem Joan talar um í verkinu að mannslífi hafi verið sóað, án nokkurrar ástæðu, svo hvaða vit sé í því að sóa öðru mannslífi. Verkið hefur vakið miklar umræður í bresku samfélagi, meðal annars innan réttarkerfisins og félagslega kerfisins. Eitt af því sem verkið beinir athygli að er úrræði sem kallast uppbyggileg réttvísi, ferli fyrir þolendur og gerendur sem stjórnað er af fagaðilum með það að markmiði að auka skilning og fá fólk til að taka ábyrgð. Í tengslum við bresku sýninguna hafa aðstandendur hennar staðið fyrir umræðum af ýmsu tagi og fræðsluverkefnum, í þeim tilgangi að auka vitund um afleiðingar ofbeldis meðal ungs fólks, og skapa vettvang til að ræða ofbeldi, missi, afleiðingar skyndiákvarðana, ábyrgðartilfinningu og geðheilbrigði ungs fólks. Jacob, Joan og David hafa öll beitt sér fyrir vitundarvakningu um afleiðingar ofbeldis og hættuna sem felst í því að kýla einhvern, jafnvel aðeins einu höggi. Þau koma stundum fram saman í fjölmiðlum og á ráðstefnum og fundum. Þau hafa m.a. starfað með bresku góðgerðarsamtökunum Remedi sem leiddu þau saman í upphafi. Samtök þessi voru stofnuð árið 1996 og starfa samkvæmt hugmyndafræði uppbyggilegrar réttvísi eða restorative justice. Samtökin leitast við að skapa öruggan vettvang þar sem þolendur og gerendur geta, undir leiðsögn og með stuðningi sérþjálfaðra fagaðila, átt samtal um brot og afleiðingar þeirra í þeim tilgangi að dýpka skilning, axla ábyrgð, lina sorg, losna út úr vítahring ofbeldis og finna leiðir til betra lífs. Melkorka Tekla Ólafsdóttir

Þjóðleikhúsið stendur fyrir umræðum með þátttöku listafólks eftir 6. sýningu verka og boðið verður upp á fleiri umræður í tengslum við sýningarnar á Höggi. Einnig hefur fræðsludeild leikhússins unnið efni fyrir ungt fólk og skóla í tengslum við sýninguna, sem er meðal annars miðlað í gegnum Kennaraklúbb leikhússins. Fræðslupakki um sýninguna er fyrirliggjandi prentaður og jafnframt aðgengilegur á vef leikhússins. Sjá nánar á leikhusid.is/kennaraklubbur-thjodleikhussins

11


12


13


Jacob Dunne er breskur stefnumótunarsérfræðingur, rithöfundur, dagskrárgerðarmaður og ráðgjafi. Störf hans snerta í senn réttarkerfið, menntakerfið og kerfisbreytingar. Endurminningabók hans, Right From Wrong, er grunnurinn að leikverkinu Höggi (Punch) eftir James Graham, sem hefur unnið til fjölda verðlauna og verið sýnt bæði á West End og Broadway. Af störfum hans fyrir útvarp má nefna hina verðlaunuðu útvarpsþáttaröð The Punch á vegum BBC Radio 4, auk hinnar nýju útvarpsþáttaraðar Turning Point. Jacob er einn af upphafsmönnum hins svokallaða Common Ground Justice Project, bresks landsátaks sem snýst um að hlusta á sjónarmið ólíkra hópa til fá fram hvaða leiðir almenningur er sammála um að geti nýst til að draga úr afbrotatíðni og byggja upp traust. Hann hefur einnig komið á laggirnar úrræði sem aðstoðar skóla, starfsfólk réttarkerfisins, vinnustaði og samfélagshópa við að styrkja tengsl og stuðla að jákvæðri hugarfarsbreytingu með aðferðum uppbyggilegs ferlis. Fyrr á þessu ári skipaði breska dómsmálaráðuneytið Jacob Dunne sérstakan talsmann uppbyggilegrar réttvísi hvað varðar málefni ungs fólks innan réttarkerfisins. Vefsíða Jacobs Dunne er jacobdunne.co.uk, en þar má fræðast um störf hans.

14


James Graham hefur fest sig í sessi sem eitt áhrifamesta breska leikskáld samtímans. Leikrit hans Dear England, sem fjallar um einstæðan árangur þjálfarans Gareth Southgate í starfi sínu með breska landsliðinu í knattspyrnu, hlaut Olivier-verðlaunin og gekk fyrir fullu húsi í Breska þjóðleikhúsinu árið 2023. Í kjölfarið var sýningin flutt yfir á West End og einnig sýnd víðs vegar um Bretland fyrir samtals rúmlega 250 þúsund áhorfendur. Sýningin hlaut tvenn Olivier-verðlaun. Fjögurra þátta sjónvarpssería sem höfundur skrifaði upp úr leikverkinu fyrir BBC var sýnd í aðdraganda heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu 2026 og hlaut frábæra dóma. Leikrit James Ink var frumsýnt í Almeida-leikhúsinu árið 2017 og flutt yfir á West End síðar sama ár. Verkið var sýnt á Broadway árið 2019 og hlaut tilnefningu til Tony-verðlaunanna sem besta nýja leikritið. Höfundur hefur aðlagað leikritið að hvíta tjaldinu, en kvikmynd byggð á því verður frumsýnd síðar á þessu ári í leikstjórn Danny Boyle með Guy Pearce, Claire Foy og Jack O’Connell í aðalhlutverkum. Leikritið Högg (e. Punch) vann Olivier-verðlaunin sem besta nýja leikritið árið 2026, en það var frumsýnt í Nottingham Playhouse árið 2024 og fékk frábærar viðtökur. Það var síðar sýnt í Young Vic leikhúsinu í London í mars 2025, og gekk svo fyrir fullu húsi á West End og Broadway. Verkið er byggt á sannri sögu um samband Joan Scourfield og David Hodgkinson við Jacob Dunne, mann sem varð syni þeirra, James Hodgkinson, að bana. Sýningin vakti mikla umræðu í Bretlandi um uppbyggilega réttvísi. Aðlögun fyrir sjónvarp er í bígerð. Meðal annarra verka James Graham má nefna söngleikinn Tammy Faye sem hann skrifaði ásamt Elton John og Jake Shears. Söngleikurinn var frumsýndur í Almeida-leikhúsinu árið 2022 og svo sýndur á Broadway árið 2024. Leikritið sem upphaflega skipti sköpum á ferli James Graham er This House en það var leikið í Breska þjóðleikhúsinu árið 2012, og var svo sett upp aftur á West End árið 2017 og fékk þá tilnefningu til Olivier-verðlaunanna. Í almennri kosningu á vegum hins þekkta leikhúsforlags Methuen var verkið valið besta leikrit annars áratugar 21. aldarinnar. James er höfundur sjónvarpsþáttaraðarinnar Sherwood, en þriðja þáttaröðin er nú væntanleg. Sögusvið þáttanna er æskuslóðir James sjálfs, hið svokallaða Red Wall samfélag í Ashfield. Sherwood vann bæði Royal Television Society-verðlaunin sem besta þáttaröðin í flokknum drama og tvenn BAFTA verðlaun. Önnur þáttaröð Sherwood kom út árið 2024 og hlaut lofsamlega dóma. Meðal annarra sjónvarpsverkefna James Graham má nefna: Quiz (ITV og AMC, 2020), sem var leikstýrt af Stephen Frears og var einn vinsælasti sjónvarpsþáttur Bretlands í flokki dramatískra verka það árið; og Brexit: The Uncivil War, sýnt á Channel 4 og HBO, sem hlaut tilnefningu til Emmy- og BAFTA-verðlaunanna, með Benedict Cumberbatch í aðalhlutverki.

15


16


17


Uppbyggileg réttvísi á Íslandi Leikverkið Högg er byggt á sönnum atburðum og fjallar á áhrifamikinn hátt um afleiðingar alvarlegs ofbeldis, sorg, ábyrgð og leit að svörum. Jafnframt kynnir verkið leið sem enn er mörgum lítt kunn hér á landi, uppbyggilega réttvísi (e. restorative justice). Uppbyggileg réttvísi er nálgun sem beinir sjónum að þeim skaða sem orðið hefur, þörfum þeirra sem urðu fyrir honum og ábyrgð þess sem olli skaðanum. Sjónarhornið færist þannig frá því að horfa einungis á brotið sjálft yfir í að skoða hver varð fyrir skaða, hvaða afleiðingar hann hafði, hverjar þarfir þeirra sem hlut eiga að máli eru og hvað sé hægt að gera til að bæta úr. Uppbyggileg réttvísi getur tekið á sig ólíkar myndir eftir eðli máls og þörfum þeirra sem að því koma. Ferlið getur verið flókið og krefst vandaðs undirbúnings, sérþekkingar og sérstakrar áherslu á öryggi og þarfir þátttakenda. Uppbyggileg réttvísi getur hins vegar skapað rými til að spyrja spurninga, fá svör, lýsa afleiðingum þess sem gerðist og fá viðurkenningu á þeim skaða sem varð. Jafnframt getur hún gefið þeim sem olli skaðanum tækifæri til að horfast í augu við afleiðingar gjörða sinna og axla ábyrgð. Á Íslandi er uppbyggileg réttvísi enn lítið þekkt og ekki orðin kerfisbundinn hluti þjónustu. Þó hefur verið unnið með slík mál hér á landi undanfarin ár. Kristín Skjaldardóttir félagsráðgjafi og Þóra Sigfríður Einarsdóttir sálfræðingur hjá Domus Mentis Geðheilsustöð, hafa sérhæft sig í uppbyggilegri réttvísi og unnið með flókin og viðkvæm mál, auk þess að sinna fræðslu um nálgunina. Högg varpar ljósi á hversu flókið og vandmeðfarið uppbyggilegt ferli getur verið, en sýnir jafnframt fram á möguleika þess til að skapa rými fyrir svör, ábyrgð og leið áfram. Þjóðleikhúsið á hrós skilið fyrir að taka þetta erfiða og viðkvæma viðfangsefni til umfjöllunar og fyrir þann metnað og fagmennsku sem einkennt hefur undirbúning verksins. Slík nálgun skiptir máli þegar fjallað er um reynslu sem snertir fólk með jafn djúpstæðum hætti og hér er gert.

Kristín Skjaldardóttir félagsráðgjafi og Þóra Sigfríður Einarsdóttir sálfræðingur

18


19


20


21


Ráðgjöf og aðstoð Í leikhúsi er fjallað um ólíka kima tilveru okkar, og sú umfjöllun getur verið ágeng fyrir áhorfendur, auk þess sem ákveðin tegund leikhústækni getur vakið viðbrögð sem trufla suma áhorfendur. Þess vegna birtum við á vefsíðu leikhússins viðvaranir fyrir hverja leiksýningu. Sjá leikhusid.is/vidvaranir. Ef efni leiksýningarinnar Högg vekur upp flóknar spurningar eða erfiðar tilfinningar eða minningar hjá þér og þú vilt leita stuðnings eða ráðgjafar bjóða m.a. eftirfarandi aðilar upp á aðstoð: 112 Neyðarlínan er opin allan sólarhringinn. Sími: 112. Uppbyggileg réttvísi. Domus Mentis Geðheilsustöð. Þar starfa sérfræðingar í uppbyggilegri réttvísi. dmg.is. Bjarkarhlíð Þjónustumiðstöð sem veitir þolendum ofbeldis ráðgjöf, stuðning og upplýsingar. bjarkarhlid.is Sorgarmiðstöð Veitir fræðslu, ráðgjöf og stuðning fyrir fólk sem glímir við sorg og missi. sorgarmidstod.is SÁÁ Veitir meðferð, ráðgjöf og stuðning fyrir fólk með áfengis-, vímuefna- og fíknivanda. saa.is Pieta Veitir meðferð og stuðning fyrir fólk sem tekst á við sjálfsvígshugsanir og sjálfsskaða og aðstandendur þeirra. pieta.is Bergið Headspace Lágþröskulda ráðgjafar- og stuðningssetur fyrir ungt fólk á aldrinum 12-25 ára. bergid.is Birta Landssamtök Veita foreldrum og aðstandendum stuðning eftir skyndilegt fráfall barns eða ungmennis. birtalandssamtok.is Bryndísarhlíð Sérhæfð áfalla- og ofbeldismóttaka Landsspítala - öruggur staður þar sem börn og ungmenni geta leitað sér aðstoðar. bryndisarhlid.is Púlsinn Bráða- og viðbragðsteymi fyrir börn og unglinga sem beita eða hóta ofbeldi og fjölskyldur þeirra. reykjavik.is/pulsinn Barnaheill Frjáls félagasamtök sem vinna að vernd og eflingu réttinda barna með fræðslu, forvörnum og hagsmunagæslu. barnaheill.is Barna- og fjölskyldustofa Opinber stofnun sem styður og samhæfir þjónustu í þágu barna, fjölskyldna og barnaverndar um land allt. bofs.is Barnahús Veitir þjónustu, greiningu og meðferð fyrir börn sem grunur er um að hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi, heimilisofbeldi eða öðru ofbeldi. island.is/s/bofs/barnahus Flotinn – flakkandi félagsmiðstöð Vettvangsteymi sem sinnir forvarnar- og stuðningsstarfi meðal unglinga utan hefðbundins opnunartíma félagsmiðstöðva. instagram.com/flotinn SAMAN-hópurinn Forvarnahópur sem hvetur foreldra til virkrar þátttöku í lífi barna sinna og styður lýðheilsu og vímuvarnir. samanhopurinn.is Geðhjálp Hagsmunasamtök sem veita ráðgjöf og standa vörð um réttindi fólks með geðrænan vanda og vinna að eflingu geðheilsu. gedhjalp.is Heimilisfriður Meðferðar- og þekkingarmiðstöð sem hjálpar einstaklingum sem glíma við ofbeldi í nánum samböndum. heimilisfridur.is Stígamót Ráðgjafar- og fræðslumiðstöð sem veitir þolendum kynferðisofbeldis stuðning og ráðgjöf. stigamot.is Kvennaathvarfið Veitir konum og börnum sem búa við heimilisofbeldi öruggt skjól, ráðgjöf og stuðning. kvennaathvarf.is Rauði krossinn Mannúðarsamtök sem veita neyðaraðstoð, félagslegan stuðning og fjölbreytta hjálparþjónustu innanlands og erlendis. raudikrossinn.is Afstaða Hagsmunasamtök sem styðja fanga og aðstandendur þeirra og vinna að betri endurhæfingu og farsælli endurkomu í samfélagið. afstada.is SÁTT – félag um sáttamiðlun Fagfélag sem kynnir og eflir sáttamiðlun sem leið til að leysa ágreining á uppbyggilegan hátt. satt.is Virknihús Endurhæfingarúrræði Reykjavíkurborgar sem styður fólk til aukinnar virkni, náms, atvinnuþátttöku og bættra lífsgæða. reykjavik.is/virkni-og-endurhaefing/virknihus

22


23


Jakob van Oosterhout

útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands vorið 2024. Hann er fastráðinn við Þjóðleikhúsið og hefur farið með burðarhlutverk í tveimur söngleikjum hér, Ormstungu og Stormi. Hann leikur einnig í Hetjum hafsins og Rými fyrir ást í Þjóðleikhúsinu í vetur. Hann hefur áður leikið hér í Línu Langsokk, Frosti og Láru og Ljónsa. Hann lék meðal annars í sjónvarpsþáttaröðinni Felix og Klöru. Jakob var tilnefndur til Grímunnar fyrir leik sinn í Ormstungu.

24

Unnur Ösp Stefánsdóttir

útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ 2002 og hefur starfað við leikhús og kvikmyndir sem framleiðandi, leikari og leikstjóri. Hún hefur m.a. starfað í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, hjá LA, Vesturporti, Lyric Hammersmith og Young Vic. Unnur er fastráðin við Þjóðleikhúsið og leikur í vetur í einleik sínum Salka - ástin og dauðinn sem sýndur er í Landnámssetrinu í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Unnur Ösp samdi ásamt Unu Torfa söngleikinn Storm og leikstýrði sýningunni, og samdi og lék einleikinn Saknaðarilm í Þjóðleikhúsinu. Unnur hefur farið með burðarhlutverk meðal annars í Ellen B., Íbúð 10B, Framúrskarandi vinkonu, Dúkkuheimilinu, Njálu, Brotum úr hjónabandi, Hamskiptunum, Faust og Elsku barni. Unnur stóð að sjónvarpsseríunni Föngum og lék m.a. í Verbúðinni og Ófærð. Hún leikstýrði m.a. og skrifaði Vertu úlfur og leikstýrði Sem á himni, Mamma Mia!, Kæru Jelenu og Fólkinu í blokkinni. Hún hefur hlotið fjölda leiklistarverðlauna, m.a. Grímuna fyrir leik, leikstjórn og handrit, Edduverðlaun, Stefaníustjakann og Menningarverðlaun DV. Sýning Unnar Aspar Saknaðarilmur hlaut Grímuverðlaunin sem sýning ársins, auk þess sem Unnur Ösp hlaut verðlaunin fyrir leikrit ársins og leik í aðalhlutverki. Hún hlaut jafnframt Grímuna fyrir leik í Elsku barni og Dúkkuheimili, og sem höfundur og leikstjóri fyrir Vertu úlfur. Hún hefur hlotið fálkaorðuna og verið valin bæjarlistamaður Garðabæjar.


Guðjón Davíð Karlsson

útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ 2005. Hann hefur leikið í fjölda verkefna í leikhúsi, sjónvarpi og kvikmyndum, samið leikrit og handrit sjónvarpsmynda og leikstýrt í leikhúsi og sjónvarpi. Hann er fastráðinn við Þjóðleikhúsið og leikur í Ormstungu í vetur. Hann lék hér nýlega í Eltum veðrið, Yermu, Frosti, Verkinu, Hvað sem þið viljið, Jólaboðinu og Nashyrningunum. Hann var fastráðinn við Leikfélag Akureyrar 2005, Borgarleikhúsið 2008 og Þjóðleikhúsið 2015. Í Þjóðleikhúsinu samdi hann, í samvinnu við Birgittu Haukdal, Láru og Ljónsa og leikstýrði sýningunni. Hann leikstýrði og samdi Slá í gegn, samdi Fjarskaland og leikstýrði Jólagjöf Skruggu og Útsendingu. Hann lék m.a. í kvikmyndunum Lof mér að falla og Algjör Sveppi (1-4), sjónvarpsþáttunum Verbúðinni og í sjónvarpsþáttaröðunum Vigdísi, Dönsku konunni og Reykjavík Fusion. Hann hlaut Edduna fyrir barnaefni ársins 2014 og var tilnefndur fyrir Verbúðina. Hann var tilnefndur til Grímunnar fyrir Frost, Loddarann, Húsið og Jónsmessunæturdraum.

Edda Björg Eyjólfsdóttir

útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands árið 1998. Hún hefur leikið í fjölda leiksýninga í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu og á vettvangi sjálfstæðra leikhópa. Meðal þeirra sýninga þar sem hún hefur farið með veigamikil hlutverk eru Hamingjudagar, Ríkharður III, Kartöfluæturnar, 4:48 Psychosis, Vígaguðinn, Kardemommubærinn, Leg, Túskildingsóperan, Fjalla-Eyvindur, Lúkas, Natan, Sjöundá og Haukur og Lilja. Hún hefur einnig leikið í fjölda sjónvarpsþáttaraða og kvikmynda, þar á meðal Mávahlátri, Íslenska draumnum, Héraðinu, Saumaklúbbnum og Fullu húsi, auk þess sem hún hefur oft tekið þátt í Áramótaskaupinu.

25


Hallgrímur Ólafsson

útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ 2007 og hefur leikið í fjölda sýninga hjá Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu og LA. Hann er fastráðinn við Þjóðleikhúsið og leikur hér í vetur í Hetjum hafsins og Ormstungu. Hann lék hér m.a. í Eltum veðrið, Jólagjöf Skruggu, Eddu, Stormi, Jólaboðinu, Frosti, Ást Fedru, Sem á himni, Hvað sem þið viljið, Rómeó og Júlíu, Kardemommubænum, Atómstöðinni, Slá í gegn, Einræðisherranum, Súper, Samþykki, Risaeðlunum, Djöflaeyjunni, Álfahöllinni, Móðurharðindunum og Leitinni að jólunum. Hjá LR lék hann m.a. í Gauragangi, Elsku barni, Fjölskyldunni, Hótel Volkswagen og Gullregni, og hjá LA m.a. í Óvitum og Ökutímum. Meðal verkefna í kvikmyndum og sjónvarpi eru Gullregn, Fangavaktin og Stelpurnar. Hann hlaut Grímuverðlaunin fyrir Íslandsklukkuna og var tilnefndur fyrir Rómeó og Júlíu, Hotel Volkswagen og Gullregn.

26

Jónmundur Grétarsson

lauk BFA-gráðu í leiklist frá Academy of Art University of San Francisco árið 2014. Hann leikur í Höggi og Rými fyrir ást í Þjóðleikhúsinu í vetur. Hann lék hér nýlega í Gæðablóð og var jafnframt einn höfunda verksins. Hann lék í Rómeó og Júlíu, Karitas og Latabæ í Þjóðleikhúsinu. Jónmundur er einn af stofnendum Elefant leikhópsins og hann lék í tveimur samstarfsverkefnum Þjóðleikhússins og Elefant, Smán og Íslandsklukkunni. Síðarnefnda sýningin hlaut fjölda tilnefninga til Grímunnar. Hann lék í Bústaðnum í Tjarnarbíói og var framleiðandi sýningar Elefant á verkinu Þegar ég sé þig sé ég mig í Borgarleikhúsinu. Jónmundur hefur leikið í fjölmörgum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum, bæði hérlendis og erlendis. Hann lék m.a. í Systraböndum sem hlaut Edduverðlaunin fyrir besta leikna sjónvarpsefnið.


Kristinn Óli S. Haraldsson

útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands 2025. Hann er fastráðinn við Þjóðleikhúsið og leikur í Ormstungu og Línu Langsokk í vetur. Hann er einn af höfundum skólasýningar Þjóðleikhússins Laxness… hver er það? og leikur í sýningunni. Hann samdi tónlist ásamt Jóa P. fyrir Orra óstöðvandi. Kristinn Óli er einn af eigendum Afturámóti sem hefur haldið úti sumarleikhúsi í Háskólabíói síðustu ár og lék þar meðal annars í Hlið við hlið, Með allt á hreinu og Ber er hver. Hann lék m.a. í Litlu hryllingsbúðinni, Benedikt búálfi og Jóla Lólu hjá Leikfélagi Akureyrar og We Will Rock You í Háskólabíói. Kristinn Óli fór með hlutverk í kvikmyndinni Agnes Joy. Hann hefur jafnframt getið sér orð sem tónlistarmaður undir nafninu Króli og hefur sent frá sér fimm plötur. Hann hefur fimm sinnum hlotið Hlustendaverðlaunin og fjórum sinnum fengið Íslensku tónlistarverðlaunin. Hann samdi og flutti lokalag áramótaskaupsins árið 2018.

Selma Rán Lima

útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands árið 2024. Hún er fastráðin við Þjóðleikhúsið og leikur í Hetjum hafsins, Línu Langsokk og Ormstungu í vetur. Hún lék hér í Heim og fór með hlutverk Möggu Messi í Orra óstöðvandi, og tók við hlutverkum í Frosti. Hún fór hún meðal annars með aðalhlutverk í verðlaunastuttmyndinni Bókaskipti.

27


Sigurbjartur Sturla Atlason

útskrifaðist af leikarabraut LHÍ árið 2016. Hann er fastráðinn við Þjóðleikhúsið og leikur í Höggi, Línu Langsokk og Ormstungu í vetur. Hann lék titilhlutverkið í Hamlet í Borgarleikhúsinu. Hér í Þjóðleikhúsinu hefur hann leikið í Rómeó og Júlíu, Ást Fedru, Framúrskarandi vinkonu, Eddu, Stormi og fleiri sýningum. Meðal kvikmynda og sjónvarpssería sem hann hefur leikið í eru Ófærð 2, Lof mér að falla, Eiðurinn og Tár úr malbiki. Sigurbjartur er einnig þekktur sem tónlistarmaðurinn Sturla Atlas. Hann var útnefndur bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2016. Þá var hann tilnefndur til Grímunnar bæði fyrir leik og tónlist í sýningunni Rómeó og Júlíu.

28

Þuríður Blær Jóhannsdóttir

útskrifaðist af leikarabraut LHÍ árið 2015. Hún leikur í Höggi í Þjóðleikhúsinu í vetur. Hún lék hér í Taktu flugið, beibí!, Frosti, Draumaþjófnum, Eddu og Ást Fedru. Meðal hlutverka Blævar í Borgarleikhúsinu eru Nína í Mávinum, titilhlutverkið í Sölku Völku og strákurinn í Himnaríki og helvíti. Blær hefur einnig farið með burðarhlutverk í ýmsum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum, m.a. Villibráð, Ráðherranum, Flateyjargátunni, Svaninum og Heima er best. Hún kemur reglulega fram með rapphljómsveit sinni Reykjavíkurdætrum. Blær var tilnefnd til Grímunnar fyrir leik sinn í Himnaríki og helvíti og Helgi Þór rofnar.


29


30


31


Magnús Geir Þórðarson

er menntaður leikstjóri frá Bristol Old Vic Theatre School, og er með meistaragráðu í leikhúsfræðum frá University of Wales, Aberystwyth og MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Magnús Geir var leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar 20042008, leikhússtjóri Borgarleikhússins 2008-2014 og útvarpsstjóri RÚV 2014-2019. Hann hefur gegnt starfi þjóðleikhússtjóra frá ársbyrjun 2020. Leikstjórnarverkefni Magnúsar skipta tugum og hefur hann leikstýrt sýningum af ýmsu tagi, m.a. dramatískum verkum, gamanleikjum, söngleikjum og óperum. Meðal leikstjórnarverkefna hans eru Heim í Þjóðleikhúsinu, Úti að aka, Nei, ráðherra, Gauragangur, Krýning Poppeu, Dido og Eneas og Stone Free í Borgarleikhúsinu, Svartur köttur, Litla hryllingsbúðin, Fullkomið brúðkaup og Óliver hjá Leikfélagi Akureyrar, Sweeney Todd hjá Íslensku óperunni, Eldað með Elvis, Hedwig og Veðmálið í Loftkastalanum og Rúm fyrir einn, Þúsund eyja sósa, Leitum að ungri stúlku og Stjörnur á morgunhimni hjá Leikfélagi Íslands í Iðnó.

Conor Doyle

er leikstjóri og danshöfundur. Hann er einn stofnenda og listrænn stjórnandi ONE HUNDRED, leikhóps sem sérhæfir sig í upplifunar- og þátttökuleikhúsi. Hann sá um sviðshreyfingar í Framúrskarandi vinkonu í Þjóðleikhúsinu ásamt Emily Terndrup og samdi dans og sviðshreyfingar fyrir myndband í sýningu Þjóðleikhússins Vertu úlfur. Conor lærði kóreógrafíu og dans við The London Contemporary Dance School. Hann hefur starfað með hinum heimsþekkta leikhópi Punchdrunk frá árinu 2006 sem flytjandi, leikstjóri og höfundur sviðshreyfinga. Hann var meðleikstjóri og meðkóreógraf í Sleep No More í New York, Shanghai og Seoul og The Drowned Man í London. Nýlega þróaði Conor og leikstýrði í samstarfi við Riot Games Arcane Immersive, umfangsmikilli upplifunarsýningu sem sameinar tónlist, dans og frásagnarlist og byggist á vinsælu Netflix-seríunni Arcane. Meðal sýninga hans á vegum ONE HUNDRED eru Narcissist, The 31 Show og Lost in Play 2. Hann hefur einnig starfað fyrir alþjóðleg vörumerki á borð við Dior, Valentino og Patek Philippe. Á árunum 2014-2016 var Conor listrænn stjórnandi viðburða hjá McKittrick Hotel í New York. Hann hefur einnig m.a. komið fram í sýningum hjá The Young Vic, National Theatre í London og Glyndebourne Opera House.

Ilmur Stefánsdóttir

útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1995 og lauk mastersnámi í myndlist frá Goldsmiths College árið 2000. Hún hefur haldið fjölda einka- og samsýninga og lagt stund á gjörningalist. Hún hefur hannað leikmyndir og búninga fyrir fjölda sýninga í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu og víðar. Hún er hluti af listrænu teymi Þjóðleikhússins. Hún gerir leikmynd fyrir Rými fyrir ást í Þjóðleikhúsinu í vetur. Hún leikstýrði hér sýningunni Taktu flugið, beibí! sem hún gerði einnig leikmynd fyrir og gerði hér m.a. leikmynd fyrir Íbúð 10B, Ormstungu, Eltum veðrið, Storm, Múttu Courage, Sem á himni, Draumaþjófinn, Framúrskarandi vinkonu og Rómeó og Júlíu. Hún er einn stofnenda CommonNonsense. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir myndlist og störf í leikhúsi, m.a. Grímuverðlaunin fyrir Ríkharð lll, Bláa hnöttinn, Njálu, Dúkkuheimili og Hreinsun. 32


Filippía I. Elísdóttir

hefur starfað við á annað hundrað sýninga sem búninga- og sviðsmyndahönnuður, listrænn ráðgjafi og höfundur gjörninga. Sem búninga- og sviðsmyndahönnuður hefur hún unnið við leiksýningar, óperur og kvikmyndir, jafnt á Íslandi sem erlendis, og hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín. Í vetur gerir hún hér leikmynd og búninga fyrir Nýtt eldhús eftir máli ásamt Elínu Hansdóttur. Meðal nýlegra verkefna hennar hér eru Óresteia, Salka-Ástin og dauðinn, Heim, Taktu flugið, beibí!, Ást Fedru, Mútta Courage, Saknaðarilmur, Aspas, Sem á himni, Vertu úlfur, Framúrskarandi vinkona, Nashyrningarnir, Súper og Húsið. Hún gerði nýlega leikmynd og búninga fyrir Hamlet og búninga fyrir Ungfrú Ísland í Borgarleikhúsinu. Hún hlaut Grímuna fyrir Ungfrú Ísland, Ást Fedru, Ríkharð III, Töfraflautuna, Ofviðrið, Sweeney Todd, Virkjunina, Woyzeck, Engla alheimsins og Dúkkuheimili. Hún hlaut Stefaníustjakann árið 2010 og Fálkaorðuna árið 2016.

Björn Bergsteinn Guðmundsson

hefur lýst fjölda sýninga hjá Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Íslenska dansflokknum, Leikfélagi Akureyrar, Hafnarfjarðarleikhúsinu, Íslensku óperunni, Badisches Staatstheater og ýmsum leikhópum. Hann starfaði eitt leikár í Konunglega leikhúsinu í Kaupmannahöfn. Hann hannaði lýsingu í mörgum sýningum þegar hann var fastráðinn í Þjóðleikhúsinu á árunum 1982-2005. Hann er nú yfirljósahönnuður Þjóðleikhússins. Meðal nýjustu verkefna hans eru Óresteia, Íbúð 10B, Heim, Saknaðarilmur, Mútta Courage, Ellen B., Ex, Ekki málið, Draumaþjófurinn, Sem á himni, Framúrskarandi vinkona, Rómeó og Júlía, Nashyrningarnir og Vertu úlfur í Þjóðleikhúsinu og Ríkharður III og Níu líf í Borgarleikhúsinu. Hann hefur hlotið fjölda viðurkenninga og margoft hlotið Grímuverðlaun fyrir lýsingu ársins, nú síðast fyrir Vertu úlfur.

Gísli Galdur Þorgeirsson

útskrifaðist úr hljóðtækninámi frá Rytmisk Musikkonservatorium í Kaupmannahöfn árið 2015. Hann hefur verið meðlimur í ýmsum hljómsveitum og samið tónlist og hljóðmyndir fyrir kvikmyndir, leikverk, sjónvarpsþætti, auglýsingar, útvarpsleikhús og innsetningar. Í Þjóðleikhúsinu samdi hann tónlist og gerði hljóðmynd fyrir Íbúð 10B, Heim, Ellen B., Ex, Sjö ævintýri um skömm, Atómstöðina-endurlit, Jónsmessunæturdraum, Óvin fólksins, Gott fólk, ≈ [um það bil], Svartan hund prestsins, Alla syni mína, Gerplu og Rambó 7. Meðal annarra leiksýninga sem hann hefur unnið við eru Mávurinn, Húmanimal, Verði þér að góðu og ÚPS! Meðal hljómsveita sem Gísli hefur unnið með og verið meðlimur í eru Trabant, Quarashi, Ghostigital, Motion Boys og Human Woman. Hann hefur hlotið nokkrar tilnefningar til Grímunnar og hlaut verðlaunin fyrir hljóðmynd í Húmanimal.

33


Aron Þór Arnarsson

starfar við hljóðdeild Þjóðleikhússins og hefur hannað hljóðmynd fyrir ýmsar leiksýningar. Meðal verkefna hans hér eru Óresteia, Íbúð 10B, Heim, Eltum veðrið, Saknaðarilmur, Edda, Ekki málið, Ellen B., Ex, Nokkur augnablik um nótt, Aspas, Sem á himni, Ásta, Framúrskarandi vinkona og Kafbátur. Hann hefur unnið sem upptökustjóri og hljóðmaður í rúma tvo áratugi. Meðal þeirra tónlistarmanna og hljómsveita sem hann hefur unnið með eru Björk, Of Monsters and Men, GusGus, John Grant, The Brian Jonestown Massacre, Hjaltalín, HAM, Stuðmenn, Valdimar, Leaves, Trabant, Apparat Organ Quartett, Singapore Sling, Kimono, Úlpa, Jóhann Jóhannsson, Barði Jóhannsson, Hljómar, Mannakorn, KK, Magnús Eiríksson og RASS. Hann hlaut ásamt öðrum Grímuverðlaunin fyrir hljóðmynd í Einræðisherranum, og var tilnefndur ásamt öðrum fyrir Ellen B., Kafbát og Atómstöðina.

Kristján Þórður Hrafnsson

er skáld, rithöfundur, þýðandi og bókmenntafræðingur. Hann nam bókmenntir við The New School for Social Research í New York 1988-1989 og lauk B.A.– prófi í almennri bókmenntafræði frá HÍ 1992. Hann lauk Maîtrise-prófi í frönskum bókmenntum frá Université de Paris-Sorbonne – Paris IV 1995. Hann hefur fengist við öll helstu form skáldskapar og sent frá sér fjölda frumsaminna skáldverka, ljóðabækur, skáldsögur, leikrit og kvikmyndahandrit. Auk þess hefur hann þýtt yfir tuttugu leikrit úr ensku og frönsku, allt frá Shakespeare til samtímahöfunda, sem hafa verið sett á svið í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Íslensku óperunni og hjá sjálfstæðum leikhópum, eða flutt í útvarpi. Meðfram vinnu við skáldverk sín og þýðingar hefur hann skrifað um bókmenntir í blöð, tímarit og safnrit, og annast ritstjórn og útgáfu bóka. Hann hefur unnið til verðlauna fyrir skáldverk sín og tvisvar verið tilnefndur til Grímunnar sem leikskáld ársins.

34


35


36


Starfsfólk Þjóðleikhússins Magnús Geir Þórðarson, þjóðleikhússtjóri Tinna Lind Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri skipulags, framleiðslu og ferla Jón Þ. Kristjánsson, framkvæmdastjóri samskipta, markaðsmála og upplifunar Þóra Gréta Þórisdóttir, framkvæmdastjóri fjármála Finnur Bjarnason, óperustjóri Melkorka Tekla Ólafsdóttir, leiklistarráðunautur Melkorka Gunborg Briansdóttir, listrænn ráðunautur Richard Schwennicke, tónlistarstjóri Óperunnar Sváfnir Sigurðarson, markaðsfulltrúi Sonja M. Scott, mannauðsstjóri Einar Aðalsteinsson, verkefnastjóri fræðslu - og samfélagsmála Vala Fannell, verkefnastjóri fræðslu - og samfélagsmála - í leyfi Hans Kragh, þjónustustjóri Björn Bergsteinn Guðmundsson, yfirljósahönnuður Ilmur Stefánsdóttir, leikmynda- og búningahöfundur Leikarar Almar Blær Sigurjónsson Atli Rafn Sigurðarson Birta Sólveig Söring Þórisdóttir Björn Thors Ebba Katrín Finnsdóttir Edda Arnljótsdóttir Eygló Hilmarsdóttir Guðjón Davíð Karlsson Hallgrímur Ólafsson Hilmar Guðjónsson Ilmur Kristjánsdóttir Jakob van Oosterhout Jónmundur Grétarsson Kjartan Darri Kristjánsson Kristín Þóra Haraldsdóttir Kristinn ÓIi S. Haraldsson Oddur Júlíusson Ólafía Hrönn Jónsdóttir Pálmi Gestsson Selma Rán Lima Sigurbjartur Sturla Atlason Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, í leyfi Unnur Ösp Stefánsdóttir Vigdís Hrefna Pálsdóttir, í leyfi Þröstur Leó Gunnarsson Örn Árnason Söngvarar Gunnar Björn Jónsson Hildigunnur Einarsdóttir Kristín Einarsdóttir Mäntylä Kristján Jóhannesson Framleiðslu- og verkefnastj. Óperunnar Jara Hilmarsdóttir Sýningarstjórn Elín Smáradóttir Elísa Sif Hermannsdóttir María Dís Cilia Máni Huginsson, framleiðslustjórn

Hljóð Kristján Sigmundur Einarsson, deildarstjóri Aron Þór Arnarsson Þóroddur Ingvarsson Bragi Fannar Berglindarson Brett Smith Þóroddur Ingvarsson Leikgervi Ingibjörg G. Huldarsdóttir, deildarstjóri Ása María Guðbrandsdóttir Hildur Ingadóttir Silfá Auðunsdóttir Þóra Guðbjörg Benediktsdóttir Búningar Berglind Einarsdóttir, deildarstjóri Ásdís Guðný Guðmundsdóttir Eva Lind Weywadt Oliversdóttir Sólveig Spilliaert Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir Ljós Kjartan Þórisson - deildarstjóri Haraldur Leví Jónsson Hermann Karl Björnsson Jóhann Bjarni Pálmason Ýmir Ólafsson Leikmyndaframleiðsla Jasmina Wojtyla, teymisstjóri Arturs Zorģis, yfirsmiður Matija Mihaljenovic Stefán Örn Stefánsson Leikmunaframleiðsla Bjarni Þór Sigurbjörnsson, teymisstjóri - í leyfi Valur Hreggviðsson, málari Ásta Sigríður Jónsdóttir Mathilde Anne Morant, í leyfi

Þjóðleikhúsið er sameign íslensku þjóðarinnar. Allt frá árinu 1950 hefur leikhúsið skapað ógleymanlega leikhústöfra. Árlega setur leikhúsið upp fjölda nýrra sýninga, stendur fyrir fræðslustarfi, nýsköpun og tilraunastarfsemi, heldur í leikferðir um landið og sinnir höfundastarfi, auk óperustarfsemi á vegum hinnar nýstofnuðu Óperu.

Upplifun, þjónusta, miðasala og móttaka Friðdóra Haukdal Magnúsdóttir, miðasölustjóri Fanney Edda Felixdóttir Halla Eide Kristínardóttir Svið Kjartan Þórisson, deildarstjóri Ásdís Þórhallsdóttir, umsjón minni sviða Guðmundur Erlingsson, umsjón minni sviða Alex John George Hatfield , yfirmaður sviðstækni Siobhán Antoinette Henry Eglé Sipaviciute Jón Stefán Sigurðsson Kristmundur Elías Baldvinsson Sigurður Hólm Lárusson Tómas Sturluson Bókhald og laun Aðalheiður Arna Rafnsdóttir, fjármálastjóri Sigurveig Sólmundsdóttir, bókhaldari Tina Einarsson, launafulltrúi Eldhús Karolina Zielaskowska, matreiðslumaður Anna Powazka, aðstoðarmaður Umsjón fasteigna Sveinbjörn Helgason, húsvörður Ina Selevska, ræsting Jurate Zofija Gliaudeliene, ræsting Margarita Albina, ræsting Riina Kaunio, bakdyravörður Björn Jónsson, bakdyravörður Ofangreindir starfsmenn eru fastráðnir við Þjóðleikhúsið eða starfa þar samkvæmt árssamningi á yfirstandandi leikári, en auk þeirra vinna fjölmargir aðrir starfsmenn í leikhúsinu.

Þjóðleikhúsráð Halldór Guðmundsson, formaður Þóra Einarsdóttir, varaformaður Erling Jóhannesson Katrín Gunnarsdóttir Kristinn Sigmundsson Valgerður G. Halldórsdóttir Vigdís Jakobsdóttir

37


38


39


Þjóðleikhúsið Miðasölusími: 551 1200 Netfang miðasölu: midasala@leikhusid.is www.leikhusid.is 40


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Högg - leikskrá by Þjóðleikhúsið - Issuu