Skip to main content

Högg - fræsðupakki

Page 1

Fræðslupakki


Leikstjórn: Magnús Geir Þórðarson Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir Búningar: Filippía I. Elísdóttir Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson Sviðshreyfingar: Conor Doyle Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson Hljóðhönnun: Aron Þór Arnarsson

Efnisyfirlit Almennt bls. 3 Um sýninguna

bls. 4

Sönn saga

bls. 5

Almennar umræður

bls. 6

Helstu persónur

bls. 8

Eitt högg: val og afleiðingar

bls. 9

Að tilheyra

bls. 10

Ábyrgð og fyrirgefning

bls. 11

Höggið á sviði

bls. 12

Sviðsetningin bls. 13

2

Sönn saga á sviði

bls. 14

Algengar spurningar

bls. 15

Uppbyggileg réttvísi

bls. 16

Stuðningur og úrræði

bls. 18

Fræðsludeild Þjóðleikhússins

bls. 19


Almennt Þessi fræðslupakki er gefinn út af Þjóðleikhúsinu í tengslum við uppfærslu hússins á leikritinu Högg eftir James Graham í þýðingu Kristjáns Þórðar Hrafnssonar. Verkið byggir á bókinni Right From Wrong eftir Jacob Dunne. Högg var frumsýnt 16. Október 2026. Helstu þemu eru: • Eitt högg: val og afleiðingar • Að tilheyra • Ábyrgð og fyrirgefning Námsmarkmið fræðslupakkans: • Aukinn skilningur á verkinu, helstu þemum þess og persónum. • Aukinn skilningur á leikhúsi sem listformi og á því hvernig sönn saga verður að leikverki. • Aukinn skilningur á réttarkerfinu og uppbyggilegri réttvísi. • Aukin færni í að ræða ofbeldi, ábyrgð og samkennd af virðingu.

Aldurshópur Efnið í fræðslupakkanum hentar nemendum á unglingastigi og í framhaldsskóla. Verkefnin henta hverju aldursstigi mögulega misvel. Hver og einn kennari ákveður hvað hentar sínum bekk og er frjálst að nota efnið til að vinna eigið fræðsluefni og verkefni í tengslum við sýninguna. Til kennara Högg byggir á sönnum atburðum og fjallar um ofbeldi, dauða og sorg. Sumir nemendur kunna að tengja efnið eigin reynslu. Við mælum með að kennarar undirbúi nemendur fyrir sýninguna og gefi tíma til umræðu að henni lokinni.


Um sýninguna Högg er breskt leikrit eftir James Graham, eitt fremsta leikskáld Bretlands um þessar mundir. Graham er þekktur fyrir verk sem spegla samfélagið sem við búum í, svo sem leikritið Dear England, sem hlaut Olivier-verðlaunin sem besta leikritið árið 2024, og sjónvarpsþáttaröðina Sherwood. Eitt högg Verkið segir sanna sögu Jacobs Dunne, ungs manns frá Nottingham sem slær ókunnugan mann einu höggi á djamminu með þeim afleiðingum að maðurinn lætur lífið. Það segir líka sögu Joan og David, foreldra mannsins. Í stað þess að snúa baki við manninum sem tók son þeirra frá þeim leita þau svara, og leiðir þeirra liggja saman á óvæntan hátt.

Þótt viðfangsefnið sé þungt er Högg líka fyndið, hlýlegt og vongott verk um ábyrgð, samkennd og möguleikann á að breytast. Sönn saga Leikritið var unnið í nánu samstarfi við Jacob, Joan og David og var frumsýnt í Nottingham, heimaborg Jacobs, árið 2024. Síðan hefur það verið sýnt í London við góðar viðtökur.


Sönn saga

Tímalína

James Hodgkinson var 28 ára nemi í sjúkraflutningum frá Southampton. Hann var sjálfboðaliði hjá Childline, hjálparsíma fyrir börn, og leiðbeindi ungu fólki. Í frítíma sínum stundaði hann skíði, sjóbretti og fallhlífarstökk. Foreldrar hans, Joan og David, lýsa honum sem umhyggjusömum fjölskyldumanni sem lifði lífinu til fulls

•

2011: Jacob er dæmdur í 30 mánaða fangelsi fyrir manndráp (e. manslaughter). Joan og David áfrýja dómnum en hann er staðfestur.

•

Eftir 14 mánuði: Jacob losnar úr fangelsi. Hann er reiður, á engar framtíðaráætlanir og er í mikilli hættu á að brjóta af sér aftur.

Í júlí 2011 var James staddur í Nottingham ásamt föður sínum, bróður og vinum til að horfa á krikketleik. Um kvöldið lenti hópnum saman við hóp ungra manna á torginu Old Market Square í miðbænum. Jacob Dunne, ungur maður úr Engjahverfinu (The Meadows), kom hlaupandi á staðinn eftir símtal frá vini og sló James einu höggi. James féll í jörðina og lést níu dögum síðar. Það var fallið sem varð honum að bana.

•

Næstu tvö og hálft ár: Joan og David vilja svör og leita til samtakanna Remedi, sem vinna að uppbyggilegri réttvísi. Spurningar og svör ganga á milli þeirra og Jacobs með aðstoð sáttamiðlara.

•

Fundurinn: Jacob, Joan og David hittast loks augliti til auglitis. Ein spurning þeirra situr eftir í Jacob: Hvað ætlarðu að gera núna?

•

Árin á eftir: Jacob fer aftur í nám og lýkur háskólagráðu í afbrotafræði.

•

2020: The Punch, útvarpsþáttaröð um sögu Jacobs er flutt á BBC Radio 4.

•

2022: Bók Jacobs, Right From Wrong, kemur út.

•

2024–2025: Leikritið Punch eftir James Graham er frumsýnt í Nottingham og fer síðan á svið í London.

•

2026: Högg er frumsýnt í Þjóðleikhúsinu.

James Hodgkinson Sýningin er tileinkuð minningu James Hodgkinson og allra sem hafa látist af völdum eins höggs. James var 28 ára þegar hann lést. Starf hans snerist um að hjálpa öðrum, og fjölskylda hans og vinir minnast hans með ást.

5


Almennar umræður Gott er að byrja á því að rifja upp söguþráðinn og leyfa nemendum að ræða upplifun sína af sýningunni og spyrja spurninga. Eftirfarandi spurningar má nýta til umræðna sem styðja við skilning nemenda og virkja þá til samtals og gagnrýninnar hugsunar.

Almennt

Að stýra umræðunni:

Um hvað er leikritið Högg? Hvað manstu helst úr sýningunni? Hvaða augnablik sat mest í þér? Hvers vegna? Kom eitthvað þér á óvart? Var eitthvað sem þér fannst óskýrt? Hvernig leið þér gagnvart Jacob í upphafi? Hvaða fimm orð myndir þú nnota til að lýsa sýningunni?

Umræðan er boð, ekki krafa. Nemendur mega hlusta án þess að taka til máls. Ræðið persónurnar og verkið frekar en að biðja nemendur um að deila eigin reynslu. Takið við því sem nemendur segja án þess að leiðrétta tilfinningar þeirra. Þögn þýðir ekki endilega áhugaleysi. Sumir þurfa tíma til að melta það sem þeir sáu.

Ræðið listræna þætti sýningarinnar:

Upplýsingar um stuðning og úrræði eru á bls. 18.

Jacob talar oft beint til áhorfenda. Hvaða áhrif hafði það á þig? Margir leikaranna léku fleiri en eitt hlutverk. Hvernig vissir þú hver var hver? Hvernig var tónlistin og hljóðmyndin? Hvernig fannst þér leikmyndin og ljósin? Hvernig breyttist hraði og andrúmsloft sýningarinnar eftir því sem leið á hana? Hvað, ef eitthvað, hefðir þú viljað hafa öðruvísi?

6


7


Helstu persónur Í verkinu koma fram margar persónur. Flestar eru byggðar á raunverulegu fólki, en sumar eru skáldaðar eða settar saman úr fleiri en einni manneskju.

Jacob

Joan og David

Mamma

ungur maður frá Nottingham

foreldrar James Hodgkinson

móðir Jacobs og Sams

Wendy skilorðsfulltrúi Jacobs

Clare

Raf

Derek

Nicola

ung kona frá Nottingham,

vinur Jacobs úr

kennari Jacobs

sáttamiðlari hjá aðlögunar-

Engjahverfinu.

Spurningar Gott er að draga fram helstu persónur verksins áður en áfram er haldið í umræðum. Eftirfarandi spurningar geta hjálpað nemendum að ná góðri heildarsýn á aðalpersónurnar.

Hver er Jacob? Hvernig er líf hans í upphafi verksins? Hvað skiptir hann mestu máli? Hvernig breytist Jacob í gegnum verkið? Hver eða hvað hefur mest áhrif á þá breytingu? Hver eru Joan og David? Hvað vilja þau fá að vita? Bregðast Joan og David eins við missinum? Hvað er líkt og hvað ólíkt?

8

Hver er Nicola og hvert er hlutverk hennar í sögunni? Hverjir í lífi Jacovbs hafa góð áhrif á hann og hverjir slæm? Breytist það? James sjálfur birtist aldrei á sviðinu. Hvernig kynnumst við honum samt? Hvers vegna heldur þú að sú leið hafi verið valin?


Eitt högg Í verkinu fylgjumst við með röð ákvarðana, stórra og smárra, sem leiða að kvöldinu á torginu, og með þeim ákvörðunum sem teknar eru eftir á. Eftirfarandi eru hugmyndir að umræðuefni með nemendum: Val og afleiðingar Hvers vegna svarar Jacob símanum og hleypur af stað? Jacob segist ekki hafa hugsað, bara farið. Hvað þýðir það að bregðast við án þess að hugsa? James lést af fallinu, ekki af högginu sjálfu. Breytir það einhverju í þínum huga? Val eftir á Í seinni hluta verksins taka persónurnar nýjar ákvarðanir: Joan og David velja að leita svara. Jacob velur að hitta þau. Hvaða ákvarðanir eftir höggið breyttu mestu fyrir persónurnar? Hvort er erfiðara, að taka góða ákvörðun í hita leiksins eða að horfast í augu við slæma ákvörðun eftir á? Til að kafa dýpra Jacob ætlaði ekki að drepa neinn. Á það að skipta máli fyrir dóminn? Fyrir fjölskyldu James? Fyrir Jacob sjálfan? Hvers vegna heldur þú að margir geri sér ekki grein fyrir því að eitt högg getur verið banvænt?

Jacob: Torgið troðfullt af fólki, McDonald’s, Yates við hliðina, fólk streymir út, ég sé hvað er í gangi, og ég stoppa ekki eina sekúndu, hugsa ekki neitt, bara hleyp. Æði beint inn í þvöguna – strákarnir hafa umkringt hóp af einhverjum gaurum, einhverjir gaurar, fullt af þeim, einn gaur beint fyrir framan mig og ég hugsa ekki neitt. Bara læt vaða … Það hægist á tímanum. Jacob hefur hnefann á loft og byrjar að sveifla honum eitt óbærilega langt augnablik … Ljósin dofna.


Að tilheyra Allar manneskjur hafa þörf fyrir að tilheyra einhverju. Fyrir Jacob er það vinahópurinn úr Engjahverfinu. Hópurinn gefur honum öryggi og stöðu, en hann fylgir líka óskrifuðum reglum sem erfitt er að brjóta. Hér fyrir neðan eru hugmyndir að umræðuefni:

Vinahópurinn Hvað fær Jacob út úr því að vera hluti af hópnum? Hvaða óskrifuðu reglur gilda í hópnum? Hvað gerist ef maður fer ekki eftir þeim? Hvenær verður mikilvægara að ganga í augun á vinunum en að gera foreldrum sínum til geðs? Hverjir standa með Jacob þegar hann fer í fangelsi? Kom það þér á óvart? Hverfið Engjahverfið er einangrað frá restinni af borginni og lögreglan á erfitt með að komast þar um. Hvernig hefur umhverfið áhrif á líf ungs fólks í verkinu? Hvað þarf ungt fólk til að finnast það eiga heima einhvers staðar?

Að tilheyra aftur Seinna í verkinu kemur nýtt fólk inn í líf Jacobs. Hvað gefur það honum sem gamli hópurinn gerði ekki? Er hægt að tilheyra fleiri en einum hópi í einu? Til að kafa dýpra: Hvaða hugmyndir um það að vera „alvöru karlmaður“ birtast í verkinu? Hvernig hafa þær hugmyndir áhrif á þær ákvarðanir sem strákarnir taka? Hvaðan fá strákar slíkar hugmyndir í dag?

10


Ábyrgð og fyrirgefning Hvað þýðir það að taka ábyrgð á einhverju sem ekki er hægt að taka til baka? Og er hægt að fyrirgefa það? Verkið gefur ekki eitt svar. Joan og David missa sömu manneskjuna og ganga í gegnum sama ferlið, en komast að ólíkri niðurstöðu. Undir lok verksins spyr Jacob Joan og David hvort það sé mögulega hægt að fyrirgefa:

Að axla ábyrgð Hvað þýðir það að axla ábyrgð? Er nóg að segja „fyrirgefðu“? Hvenær axlar Jacob ábyrgð á því sem hann gerði? Hvað þurfti til? David segir að Jacob verði að lifa með því að hafa orðið James að bana. Hvað felst í því? Að fyrirgefa Joan getur fyrirgefið en David ekki. Skilur þú afstöðu þeirra beggja? Joan óttaðist að það að fyrirgefa væri eins og að segja að James væri ekki „þess virði“. Hvað á hún við? David fyrirgefur ekki en tekur samt í hönd Jacobs. Hvað segir handabandið?

Til kennara Verkið segir ekki til um hvort rétt sé að fyrirgefa. Það er ekkert rétt eða rangt svar við því hvort við getum fyrirgefið þeim sem hefur gert okkur mein.

Mæður drengjanna Þegar Jacob er handtekinn hugsar mamma hans strax til móður James: „Aumingja móðir hans, ég get ekki hætt að hugsa um það sem hún er að ganga í gegnum, að missa son sinn.“ Seinna segist Joan sjá eftir því að hafa ekki farið til mömmu Jacobs í réttarsalnum. Hvað eiga mæðurnar tvær sameiginlegt? Hvers vegna heldur þú að Joan sjái eftir þessu? Til að kafa dýpra: Skuldar sá sem verður fyrir broti gerandanum fyrirgefningu? Skuldar gerandinn þeim eitthvað? Er hægt að bera virðingu fyrir einhverjum án þess að fyrirgefa honum?

Joan: Já, sko ... Ég held að alveg í upphafi, þá hefði ég ekki einu sinni velt því fyrir mér hvort ég gæti reynt að fyrirgefa þér. Ákveðin rödd innra með mér sagði alltaf, „ef ég fyrirgef Jakobi, þá er eins og ég ...” Væri það þá ekki eins og James væri ekki - þess virði að ... En eftir starf okkar saman, og eftir að hafa fengið útrás fyrir ... þá held ég að ég geti fyrirgefið þér ... David: Ég get bara í einlægni ekki fyrirgefið þér ... að hafa tekið hann frá mér -


Höggið á sviði Hvernig sviðsetur maður sögu sem gerist á brú, í fangelsi, á krám, í réttarsal og á fundum milli fólks? Og hvernig sýnir maður ofbeldi á sviði?

Handritið

Verkefni: Eitt augnablik

Í handritinu hefst sagan á kvöldinu sem James lést. Sjálft höggið kemur ekki fyrr en í lok fyrri hluta, eftir að áhorfendur hafa kynnst Jacob og lífi hans. Áður en höggið fellur stendur í sviðslýsingum: „Það hægist á tímanum. Jacob hefur hnefann á loft og byrjar að sveifla honum eitt óbærilega langt augnablik… Ljósin dofna.“

Veldu eitt augnablik úr sýningunni sem sat í þér. Það getur verið höggið, þögnin, eitthvað fyndið eða eitthvað sorglegt. Lýstu augnablikinu í nokkrum setningum. Hvað gerðist á sviðinu? Hvernig var það framkvæmt? Skoðaðu leik, hreyfingu, ljós, hljóð, leikmynd og búninga.

Spurningar fyrir umræður: •

Hvernig var höggið sýnt í sýningunni?

•

Hvers vegna heldur þú að áhorfendur fái ekki að sjá höggið strax í upphafi?

•

Hvaða áhrif hafði augnablikið eftir höggið á þig?

•

Hvernig breyttust hraði, hljóð og ljós á milli fyrri og seinni hluta sýningarinnar?

Hvaða áhrif hafði það á þig? Hvers vegna heldur þú að það hafi verið gert svona?

Til kennara Verkefnið hentar sem stutt skriflegt verkefni eða sem umræða í hópum. Eldri nemendur í leiklist geta unnið það sem lengri greiningu.


Sviðsetningin Högg byggir á raunverulegum atburðum og raunverulegu fólki. Að setja slíka sögu á svið kallar á margar ákvarðanir: hvað á að sýna, hvað ekki, og hvernig. Högg byggir á raunverulegum atburðum og raunverulegu fólki. Að setja slíka sögu á svið kallar á margar ákvarðanir: hvað á að sýna, hvað ekki, og hvernig.

13


Sönn saga á sviði Leikrit er ekki heimildarmynd. Til að segja söguna á einu kvöldi þarf höfundurinn að velja, sleppa og stundum skálda.

Raunverulegt og skáldað Flestar persónur verksins eru byggðar á raunverulegu fólki. Sumar eru skáldaðar eða settar saman úr fleiri en einni manneskju, til dæmis Raf og Clare. Verkið var unnið í samstarfi við Jacob, Joan og David.

James James sést aldrei á sviðinu. Við kynnumst honum í gegnum það sem foreldrar hans segja um hann, og í atriði þar sem Joan og David hlusta á gömul talskilaboð frá honum.

Spurningar fyrir umræður •

Jacob man ekki hvað maðurinn hét, og leikarinn stingur upp á nöfnum. Hvers vegna heldur þú að höfundurinn hafi skrifað það inn í verkið?

•

Jacob segir söguna. Hvaða áhrif hefur það á hvernig við sjáum hana?

•

Hvers vegna heldur þú að James sjáist aldrei á sviðinu?

•

Hvað þarf að hafa í huga þegar skrifað er leikrit um raunverulegt fólk sem er enn á lífi?

Jakob segir frá partíi heima hjá félaga sínum. Jakob: Hann hét ... fokk, ég man ekki nafnið á honum. (Við leikarann). Þú gætir alveg heitið ... Mick? Nick? Leroy? Leikarinn: Öö, „Leroy”? Ég veit ekki alveg með það sko ... kannski Tommy, Timmy, Tony? Jakob: Tony? (Það passar, já.) Tony.

14

Tony: Gott mál. (Hefur umbreyst). Ókey, ég er Tony!


Algengar spurningar Hvers vegna fékk Jacob svona stuttan dóm? Lengd dóms segir ekkert um hversu mikils virði líf er. Dómarar fara eftir lögum og viðmiðum sem segja til um hversu langur dómur skuli vera. Jacob var dæmdur í Bretlandi fyrir manndráp, ekki morð, og hlaut 30 mánaða dóm. Dómurinn var mildaður vegna þess að Jacob var undir 21 árs aldri og játaði brotið. Hann sat 14 mánuði í fangelsi. Joan og David áfrýjuðu dómnum, en hann var staðfestur þar sem hann var í samræmi við viðmið í breskum lögum.

Hvernig fóru skilaboðin á milli áður en þau hittust? Sáttafulltrúar hittu Joan og David og miðluðu spurningum þeirra til Jacobs, og svör hans til baka. Þeir sögðu ekki aðeins frá því hvað var sagt heldur líka hvernig. Í verkinu segir Nicola til dæmis við Joan og David: „Einn af varnarháttum Jacobs er að forðast augnsamband.“ Slíkar upplýsingar hjálpuðu öllum að undirbúa fundinn, svo að þar gætu allir talað og að hlustað yrði á alla.

Er rétt að gera leikrit úr sögu þar sem maður lést? Verkið byggir á einu máli, en það hefur vakið umræðu um uppbyggilega réttvísi, réttarkerfið og stöðu ungs fólks. Verkið var unnið í samstarfi við Jacob, Joan og David. Frá frumsýningu hefur verið lögð rík áhersla á opna á samtal og fræðslu, meðal annars með vinnustofum fyrir ungt fólk og umræðum eftir sýningar. Höfundurinn og framleiðendur sýningarinnar í London hafa heitið því að tekjur þeirra af sýningunum þar renni til þess að kynna verkið og boðskap þess fyrir ungu fólki.

Getur eitt högg virkilega orðið manni að bana? Já. Eitt högg getur valdið alvarlegum áverkum, annaðhvort af högginu sjálfu eða af fallinu á eftir, þegar sá sem verður fyrir högginu fellur og höfuðið skellur í jörðina eða á eitthvað hart. Jacob sló James einu höggi á kjálkann, en það var fallið sem varð James að bana. Í verkinu útskýrir Wendy það fyrir Jacob: „það var höggið þegar höfuð hans skall í jörðina sem ... sem dró hann til dauða.“

15


Uppbyggileg réttvísi Joan og David vita ekki hvað gerðist kvöldið sem James lést, og enginn hefur svarað spurningum þeirra. Þau leita því til aðlögunar- og endurhæfingarmiðstöðvainnar sem vinnur að uppbyggilegri réttvísi (e. restorative justice). Í gegnum það ferli eiga Joan og David í samskiptum við Jacob.

Hvað er uppbyggileg réttvísi? Uppbyggileg réttvísi snýst um samskipti. Brotaþoli og gerandi fá tækifæri til að eiga samskipti með aðstoð sérþjálfaðs sáttamiðlara. Brotaþoli getur fengið svör við spurningum sínum og sagt frá því hvaða áhrif brotið hafði á líf hans. Gerandi fær tækifæri til að horfast í augu við afleiðingar gjörða sinna. Þátttaka er alltaf sjálfviljug. Ólík form Sáttamiðlari getur flutt spurningar og svör á milli aðila, skriflega eða munnlega, án þess að þeir hittist. Aðilar geta líka hist á sáttafundi, en aðeins eftir vandlegan undirbúning. Sáttamiðlari er þá viðstaddur allan tímann. Í verkinu virðist ferlið ganga hratt fyrir sig. Í raunveruleikanum liðu meira en tvö og hálft ár frá fyrstu samskiptum þar til Joan, David og Jacob hittust.

16


Á Íslandi Hér á landi er sáttamiðlun á vegum lögreglunnar. Við hvert lögregluembætti á að vera verkefnastjóri sáttamiðlunar. Hún er notuð í minni háttar málum, svo sem þjófnaði, eignaspjöllum og minni háttar líkamsárásum. Gerandi þarf að hafa játað brotið, og bæði gerandi og brotaþoli þurfa að samþykkja að málið fari í sáttamiðlun.

Spurningar fyrir umræður •

Hvers vegna vilja Joan og David taka þátt? Hvað vonast þau til að fá út úr ferlinu?

•

Hvers vegna heldur þú að Jacob segi já?

•

Hvers vegna skiptir máli að þátttakan sé sjálfviljug?

Orðskýringar Brotaþoli (eða þolandi): sá sem verður fyrir broti. Gerandi: sá sem fremur brot. Manndráp og morð: í verkinu er Jacob dæmdur fyrir manndráp, ekki morð. Í breskum lögum er það kallað manslaughter þegar maður veldur dauða annars án þess að ætla sér að drepa. Skilorðsfulltrúi: starfsmaður sem fylgist með og styður þann sem hefur verið látinn laus úr fangelsi. Sáttamiðlari: hlutlaus aðili sem undirbýr og stýrir samskiptum brotaþola og geranda. .

17


Stuðningur og úrræði Högg fjallar um ofbeldi, dauða og sorg. Sumir nemendur kunna að tengja efnið eigin reynslu eða reynslu fólks sem þeim stendur nærri. Hér eru úrræði sem nemendur og kennarar geta leitað til.

Ef þú þarft að tala við einhvern Hjálparsími og netspjall Rauða krossins: 1717. Opið allan sólarhringinn, gjaldfrjálst og nafnlaust. 1717.is Bergið headspace. Gjaldfrjáls ráðgjöf fyrir ungt fólk á aldrinum 12–25 ára. bergid.is Barnasími Umboðsmanns barna: 800-5999. Fyrir börn og ungmenni undir 18 ára. Gjaldfrjálst. barn.is Sorgarmiðstöð. Stuðningur og ráðgjöf fyrir þá sem hafa misst ástvin, og fyrir þá sem styðja syrgjendur. sorgarmidstod.is, s. 551-4141 Í skólanum. Námsráðgjafar, skólahjúkrunarfræðingar og umsjónarkennarar eru til staðar.

Ef einhver er í hættu eða hefur orðið fyrir ofbeldi Neyðarlínan: 112. Ef þú verður vitni að slagsmálum eða annars konar ofbeldi skaltu hringja í 112. Netspjall á 112.is. Bjarkarhlíð. Miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, 18 ára og eldri. bjarkarhlid.is, s. 553-3000

Ef einhver nákominn er í fangelsi Afstaða. Félag sem styður fanga og aðstandendur þeirra. afstada.is

18


Fræðsludeild Þjóðleikhússins Eitt af mikilvægum verkefnum Þjóðleikhússins er að kveikja á, efla og byggja upp áhuga ungs fólks á leiklistinni, leikhúsforminu og erindi leikhússins til samfélagsins. Við viljum hreyfa við ungu fólki um land allt, vekja ástríðu og áhuga. Þessu verkefni þjónar fræðsludeild Þjóðleikhússins. Leiklistin er mikilvægt mótvægi við þá tæknibyltingu sem nú er allsráðandi. Í leiklistinni felast tækifæri til þess að rækta hæfni- og leikniviðmið sem gæti hallað á, svo sem samhyggð, samvinnu, lausnaleit, sjálfstæða hugsun og skilning á sjálfum sér og manneskjunni.

Helstu verkefni fræðsludeildarinnar Skólasýningar fyrir grunnskóla um allt land. Markmiðið er að öll börn sem útskrifast úr grunnskóla hafi séð þrjár sýningar frá Þjóðleikhúsinu á grunnskólaferlinum, eina á hverju námsstigi. Ein sýning á ári fer í hringferð um landið. Kennaraklúbbur Þjóðleikhússins. Þjóðleikhúsið er í virku sambandi við kennara á öllum skólastigum og við viljum efla það samband enn frekar. Markmið klúbbsins er að auka og efla samskipti leikhússins við skólastofnanir landsins. Leikhússkóli Þjóðleikhússins fyrir ungt fólk á aldrinum 18–22 ára. Námskeið fyrir áhugaleikfélög og framhaldsskóla til að efla áhugaleiklist um land allt. Skoðunarferðir fyrir ólíka hópa á öllum skólastigum og þvert á aldur. Hægt er að bóka skoðunarferðir

Verkefnastjóri fræðsludeildar er Vala Fannell, en starfsemi deildarinnar er unnin af öllu starfsfólki hússins með einum og öðrum hætti. Við erum ávallt til í að heyra nýjar hugmyndir, ábendingar og umsagnir um starfið. Slík erindi skulu berast á netfangið vala.fannell@leikhusid.is Upplýsingar um hópatilboð fyrir skólahópa fást hjá miðasölu: midasala@leikhusid.is Framleitt af fræðsludeild Þjóðleikhússins 2026

19


Þjóðleikhúsið Miðasölusími: 551 1200 Netfang miðasölu: midasala@leikhusid.is www.leikhusid.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Högg - fræsðupakki by Þjóðleikhúsið - Issuu