Skip to main content

Gæðablóð - leikskrá

Page 1


Gréta Kristín Ómarsdóttir tók þátt í þróun verksins og fyrri hluta handritsskrifa.

Tónlistarupptökur

Hljóðfæraleikur

Kristofer Rodríguez Svönuson

Baldvin Snær Hlynsson

Unnsteinn Manuel Stefánsson

Daníel Helgason

Hljóðupptaka

Kristofer Rodríguez Svönuson

Baldvin Snær Hlynsson

Unnsteinn Manuel Stefánsson

Hljóðblöndun

Kristofer Rodríguez Svönuson

Leikskrá

Ritstjórn: Melkorka Tekla Ólafsdóttir.

Hönnun og uppsetning: Jorri.

Ljósmyndir: Jorri

Prentun: Prentmet Oddi.

Útgefandi: Þjóðleikhúsið.

Myndir í leikskrá eru teknar á æfingu og eru því ekki heimild um endanlegt útlit sýningarinnar.

6. sýning: Umræður eftir sýningu.

7. sýning: Textun á ensku og íslensku.

Sýningarlengd er um ein klukkustund. Ekkert hlé.

Sérstakar þakkir: Björn Bergsteinn Guðmundsson, Gréta Kristín Ómarsdóttir, Mac Klenin Odio Ramirez, Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar, Juliette Louste, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, Filippía I. Elísdóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Sigurður Guðjónsson, Guðmundur Ingi Þorvaldsson.

Ljósmynd af birkiskógi á baktjaldi leikmyndar er af gömlu póstkorti sem gefið var út af O. Johnson & Kaaber, að því er talið er um 1910.

Seglagerðin sá um leiktjaldasaum og Logo Flex sá um prentun.

Ljósmynd af Reykjavík sem notuð er í sýningunni er eftir Ragnar Th. Sigurðsson.

Sýnt er brot úr myndbandsupptöku af uppfærslu

Baltasars Kormáks á Bugsy Malone í Loftkastalanum árið 1997.

Þjóðleikhúsið

77. leikár, 2025–2026.

Frumsýning á Stóra sviðinu 12. mars 2026.

Þjóðleikhússtjóri: Magnús Geir Þórðarson.

Gæðablóð

eftir

Davíð Þór Katrínarson

Jónmund Grétarsson

Unnstein Manuel Stefánsson

Þóru Karítas Árnadóttur

Tónlist

Kristofer Rodríguez Svönuson

Þjóðleikhúsið 2025 - 2026

Aðrir aðstandendur

Aðstoðarmaður ljósahönnuðar

Anna Kristín

Aðstoð við sviðshreyfingar

Ernesto Camilo Aldazábal Valdés

Aðstoðarmaður hljóðhönnuðar

Bragi Fannar F. Berglindarson

Yfirumsjón búninga

Sólveig Spilliaert

Yfirumsjón leikgerva

Ingibjörg G. Huldarsdóttir

Starfsfólk

Sýningarstjórn

Elín Smáradóttir

Sviðsmaður

Siobhán Antoinette Henry

Leikmunavörður

Mathilde Anne Morant

Ljósastjórn

Anna Kristín

Ásta Jónína Arnardóttir

Yfirumsjón á sviði

Siobhán Antoinette Henry

Teymisstjóri leikmyndadeildar

Jasmina Luiza Wojtyla

Yfirsmiður

Arturs Zorģis

Teymisstjóri leikmunadeildar

Bjarni Þór Sigurbjörnsson

Yfirumsjón leikmuna

Mathilde Anne Morant

á sýningum

Hljóðstjórn

Bragi Fannar F. Berglindarson

Hljóðnemaverðir

Jóhannes Sigurðsson

Anna Róshildur Benediktsdóttir Bøving

Leikgervadeild

Ása María Guðbrandsdóttir

Hildur Ingadóttir

Ingibjörg G. Huldarsdóttir

Þóra Guðbjörg Benediktsdóttir

Annað starfsfólk við sýninguna

Staðgengill deildarstjóra ljósa-

og hljóðdeildar

Juliette Louste

Yfirmaður sviðsbúnaðar

Alex John George Hatfield

Staðgengill sviðsstjóra

Sigurður Hólm Lárusson

Sviðsdeild

Kristmundur Elías Baldvinsson

Alex John George Hatfield

Ljósadeild

Ýmir Ólafsson

Haraldur Levi Jónsson

Jóhann Bjarni Pálmason

Leikmunadeild

Ásta S. Jónsdóttir

Valur Hreggviðsson

Umsjón með textun

Anna Kristín

Leikmyndadeild, smiður

Ingvar Guðni Brynjólfsson

Búningadeild

Ásdís Guðný Guðmundsdóttir

Berglind Einarsdóttir

Eva Lind Weywadt Oliversdóttir

Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir

Leikarar

Jónmundur Grétarsson

Davíð Þór Katrínarson

Unnsteinn Manuel Stefánsson

Listrænir stjórnendur

Leikstjórn

Þóra Karítas Árnadóttir

Leikmynd og búningar

Ingibjörg Jara Sigurðardóttir

Lýsing

Ásta Jónína Arnardóttir

Tónlistarstjórn

Kristofer Rodríguez Svönuson

Hljóðhönnun

Kristján Sigmundur Einarsson

Framleiðslu- og sýningarstjórn

Sýningarstjórn

Elín Smáradóttir

Framleiðslustjórn

Máni Huginsson

Hvaðan ertu?

Rappari úr Vesturbænum, fyrrum knattspyrnumaður úr Garðabænum og tónlistarmaður úr miðbænum sameina krafta sína í sýningu þar sem þeir segja sögur úr eigin lífi.

Á undanförnum árum hefur leikhúslistafólk með fjölbreyttan bakgrunn miðlað sögum sínum með áhrifamiklum hætti í Þjóðleikhúsinu og veitt okkur öllum nýja innsýn í hinn margbreytilega veruleika okkar. Má þar nefna sýningar á borð við Góðan daginn, faggi, Á rauðu ljósi og Taktu flugið, beibí! sem frumsýndar voru í Kjallaranum og í Kassanum. Að auki höfum við sviðsett sannar sögur úr lífi samtíðarfólks, eins og í sýningunum Vertu úlfur og Saknaðarilmi.

Listamennirnir Davíð Þór, Jónmundur og Unnsteinn eiga það sameiginlegt að vera rammíslenskir en geta hver um sig rakið uppruna sinn til tveggja heimsálfa. Í sýningunni Gæðablóð deila þeir reynslu sinni á Stóra sviðinu og sviðsetja sprenghlægileg og grafalvarleg atvik úr eigin lífi sem afhjúpa samfélagið á óvæntan hátt.

Davíð Þór Katrínarson útskrifaðist úr Stella Adler Academy of Acting í Los Angeles árið 2015. Hann hefur starfað í öllum atvinnuleikhúsum landsins og leikið í fjölda uppsetninga, m.a. í Ræmunni og Ríkharði III í Borgarleikhúsinu, And Björk of course hjá Leikfélagi Akureyrar og Íslandsklukkunni í uppsetningu leikhópsins Elefant í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Hann hefur einnig leikið í fjölmörgum innlendum og erlendum sjónvarps- og kvikmyndaverkefnum. Davíð er jafnframt tónlistarmaður og kemur fram undir listamannsnafninu Svarti Laxness. Hann er meðlimur í hljómsveitinni Hatara. Davíð var tilnefndur til Grímuverðlaunanna fyrir leik sinn í Íslandsklukkunni og Ræmunni.

Jónmundur Grétarsson

lauk BFA-gráðu í leiklist frá Academy of Art University of San Francisco árið 2014. Hann lék í Rómeó og Júlíu, Karitas og Latabæ í Þjóðleikhúsinu. Jónmundur er einn af stofnendum Elefant leikhópsins og hann lék í tveimur samstarfsverkefnum Þjóðleikhússins og Elefant, Smán og Íslandsklukkunni. Síðarnefnda sýningin hlaut fjölda tilnefninga til Grímunnar. Í vetur

lék Jónmundur í Bústaðnum í Tjarnarbíói og var framleiðandi sýningar Elefant á verkinu Þegar ég sé þig sé ég mig í Borgarleikhúsinu. Jónmundur hefur leikið í fjölmörgum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum, bæði hérlendis og erlendis. Hann lék m.a. í Systraböndum sem hlaut Edduverðlaunin fyrir besta leikna sjónvarpsefnið.

Unnsteinn Manuel Stefánsson er tónlistarmaður en hefur einnig starfað töluvert við dagskrár- og heimildamyndagerð og gerð tónlistarmyndbanda. Hann stundaði nám á sviðshöfundabraut LHÍ og nám í handritaskrifum fyrir sjónvarp í DFFB kvikmyndaskólanum í Berlín. Unnsteinn hefur starfað með hljómsveitinni Retro Stefson frá árinu 2006 en hefur líka gefið út töluvert af tónlist undir eigin nafni. Unnsteinn lék í Íbúð 10B hér í Þjóðleikhúsinu í vetur. Hann hefur tekið þátt í ýmsum verkefnum í leikhúsi sem tónskáld, tónlistarstjóri, hljóðhönnuður og handritshöfundur. Hér í Þjóðleikhúsinu sá hann um hljóðmynd fyrir Íslandsklukkuna og var aðstoðarmaður tónlistarstjóra í Rómeó og Júlíu. Hann sá um tónlistarstjórn og hljóðmynd í sýningunni Ungfrú Ísland í Borgarleikhúsinu, og lék í sýningunni. Hann hefur unnið að margvíslegum verkefnum á sviði listmenntunar fyrir ungt fólk, auk þess sem hann hefur lagt ýmsum góðgerðar- og samfélagslegum verkefnum lið og var m.a. verndari UN Women á Íslandi og sat í stjórn Barnaheilla. Unnsteinn hlaut Grímuverðlaunin fyrir bestu hljóðmynd fyrir Íslandsklukkuna. Þá hefur hann þrívegis hlotið Edduverðlaunin og þrívegis Íslensku tónlistarverðlaunin. Hann hlaut Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2024.

Kristofer Rodríguez Svönuson er íslensk-kólumbískur slagverksleikari og tónskáld. Kristofer útskrifaðist úr FÍH árið 2014 og hefur stundað slagverksnám í Kólumbíu, á Kúbu og Spáni. Hann er jafnframt menntaður grunnskólakennari og hjúkrunarfræðingur. Kristofer hefur starfað með mörgum af fremstu tónlistarmönnum landsins, þar á meðal Mugison, Júníusi Meyvant, Ásgeiri Trausta, Ragnheiði Gröndal, Tómasi R. Einarssyni, Reykjavík Big Band og Samúel Jón Samúelsson Big Band. Hann gaf út plötuna Primo, sem var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2020. Árið 2024 var hann útnefndur bæjarlistamaður Kópavogs. Watachico er nýjasta tónlistarverkefni Kristofers og er plata væntanleg á þessu ári.

Þóra Karítas Árnadóttir útskrifaðist með leiklistargráðu frá Webber Douglas Academy of Dramatic Art í London árið 2006. Hún leikstýrði hér í Þjóðleikhúsinu einleiknum Orð gegn orði. Þóra Karítas hefur starfað sem leikkona hjá Þjóðleikhúsinu, Leikfélagi Akureyrar og með sjálfstæðum leikhópum. Hún framleiddi og lék einleikinn Ég heiti Rachel Corrie í samstarfi við Borgarleikhúsið og lék í Fool for Love í Austurbæ. Hún leikstýrði sýningunni Samdrættir í Tjarnarbíói. Þóra lauk BA gráðu í guðfræði og MA gráðu í ritlist frá HÍ. Hún hefur sent frá sér tvær bækur, Mörk – saga mömmu, sem var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna, og skáldsöguna Blóðberg. Þóra ferðaðist til Malaví á vegum UN Women fyrir söfnunarþáttinn Stúlka – ekki brúður á RÚV og hún heimsótti Angóla árið 2021 á vegum Sjónvarps Símans og Republik Films vegna þáttaraðarinnar Hver ertu? Þóra er eigandi Silfra Productions ehf. sem framleiðir heimildaþætti fyrir sjónvarp og vinnur að nýrri heimildaþáttaröð fyrir RÚV. Þóra var tilnefnd til Grímunnar fyrir leikstjórn á Samdráttum og fyrir leik í Fool for Love. Hún var tilnefnd til Edduverðlaunanna fyrir leik í sjónvarpsþáttunum Ástríði.

Ingibjörg Jara Sigurðardóttir

lauk meistaraprófi sem leikmyndahöfundur frá Universität der Künste í Berlín árið 2014. Hún hefur gert leikmyndir og búninga fyrir m.a. Schaubühne og Sophiensäle í Berlín, WLB Stuttgart-Esslingen, Opera Zuid í Maastricht, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Borgarleikhúsið í Reykjavík. Einnig hefur hún verið aðstoðarleikmyndahöfundur hjá m.a. Karl-Ernst Herrmann og Herbert Fritsch við Berliner Ensemble, Deutsches Schauspielhaus Hamburg, Deutsche Oper Berlin og Konunglega leikhúsið í Kaupmannahöfn. Ingibjörg hefur jafnframt, í samstarfi við Visionis, hannað sýningar fyrir Náttúruminjasafn Íslands, Borgarsögusafn Reykjavíkur, Hönnunarsafn Íslands og Nordatlantens Brygge í Kaupmannahöfn. Sýning Náttúruminjasafns Íslands, Vatnið í íslenskri náttúru, hlaut Red Dot hönnunarverðlaunin árið 2019 og var tilnefnd til Evrópsku safnaverðlaunanna árið 2022. Nú síðast gerði Ingibjörg leikmynd og búninga við Ritual í Eldborg í Hörpu, í samstarfi við Marvöðu og Yo-Yo Ma.

Ásta Jónína Arnardóttir stundaði nám við Kvikmyndaskóla Íslands 2017-2018 og hefur starfað sem ljósahönnuður, myndbandshönnuður og tæknimanneskja við Þjóðleikhúsið frá árinu 2017. Í vetur hannar hún hér lýsingu fyrir Línu Langsokk og myndband fyrir Íbúð 10B. Hún hannaði hér lýsingu og myndband fyrir Storm og Ást Fedru, lýsingu fyrir Taktu flugið, beibí!, Eddu, Íslandsklukkuna og Fullorðin og myndband fyrir Eltum veðrið, Frost, Múttu Courage, Orð gegn orði, Nokkur augnablik um nótt og Þitt eigið leikrit II Tímaferðalag. Hún sá um lýsingu fyrir Ífígeníu í Ásbrú og Óbærilegan léttleika knattspyrnunnar í Tjarnarbíói. Hún starfar einnig sjálfstætt við kvikmyndatöku og klippingu, og hefur tekið fjölda stuttmynda sem hafa verið sýndar á hátíðum víða um heim og unnið til verðlauna. Hún hlaut Grímuverðlaunin fyrir lýsingu í Ást Fedru.

Kristján Sigmundur

Einarsson

lauk hljóðtækninámi frá SAE institute í London árið 2011. Hann hefur starfað sem hljóðmaður við Þjóðleikhúsið frá árinu 2013 og hannað hljóðmyndir fyrir fjölda sýninga, meðal annars Þetta er gjöf, Orð gegn orði, Ást Fedru, Draumaþjófinn, Sem á himni og Sjö ævintýri um skömm. Hann hlaut Grímuverðlaunin fyrir hljóðmynd ársins fyrir Ást Fedru og ásamt Eggerti Pálssyni fyrir Ofsa og hefur auk þess verið tilnefndur til Grímuverðlauna fyrir Segulsvið og Engilinn. Kristján hefur starfað við fjölda hljóðverkefna utan leikhússins og hefur leikið með ýmsum hljómsveitum.

Starfsfólk Þjóðleikhússins

framkvæmdastjóri samskipta, markaðsmála og upplifunar

deildarstjóri yfirljósah.

Svið

Ásdís Þórhallsdóttir, leiksviðsstjóri

Guðmundur Erlingsson, umsjón minni sviða

Eglé Sipaviciute, umsjón Litla sviðsins

Siobhán Antoinette Henry, yfirumsjón á Stóra sviðinu

Alex John George Hatfield , yfirmaður sviðstækni

Jón Stefán Sigurðsson, í leyfi

Kristmundur Elías Baldvinsson

Sigurður Hólm Lárusson

Tómas Sturluson

Bókhald og laun

Guðrún Ingólfsdóttir, bókhaldari

Steinunn Þorsteinsdóttir, launafulltrúi

Eldhús

Marian Chmelar, matreiðslumaður

Karolina Zielaskowska, aðstoðarmaður

Umsjón fasteigna

Sveinbjörn Helgason, húsvörður

Ina Selevska, ræsting

Jurate Zofija Gliaudeliene, ræsting

Margarita Albina, ræsting

Riina Kaunio, bakdyravörður

Björn Jónsson, bakdyravörður

teymisstjóri

Upplifun, þjónusta, miðasala og móttaka miðasölustjóri

Ofangreindir starfsmenn eru fastráðnir við Þjóðleikhúsið eða starfa þar samkvæmt árssamningi á yfirstandandi leikári, en auk þeirra vinna fjölmargir aðrir starfsmenn í leikhúsinu.

Þjóðleikhúsráð

Halldór Guðmundsson, formaður

Þóra Einarsdóttir, varaformaður

Erling Jóhannesson

Katrín Gunnarsdóttir

Kristinn Sigmundsson

Valgerður G. Halldórsdóttir

Vigdís Jakobsdóttir

Lögin í sýningunni

Spegilmynd

Kristófer Rodríguez Svönuson, Jónmundur Grétarsson, Davíð Þór Katrínarson og Unnsteinn Manuel Stefánsson

Blá ljós, hvítt dóp

Kristófer Rodríguez Svönuson og Davíð Þór Katrínarson

Bergnuminn

Kristófer Rodríguez Svönuson, Unnsteinn Manuel Stefánsson og Þóra Karítas Árnadóttir

Fjólublár

Unnsteinn Manuel Stefánsson

Þjóðleikhúsið

Miðasölusími: 551 1200

Netfang miðasölu: midasala@leikhusid.is www.leikhusid.is

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook