2026–2027
Forsíða
Þjóðleikhúsið
Sýningin er að hefjast! Kæru leikhúsgestir, við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í Þjóðleikhúsið okkar allra. Á leiksviðum okkar er velt upp stórum spurningum um lífið, tilvistina, ástina, hefndina og fyrirgefninguna en við spyrjum líka hvort ný borðplata í eldhúsið færi okkur hamingju og hvort fegursta röddin geti sprottið upp úr dýpsta myrkrinu. Við ætlum að hlæja og gráta saman, við ætlum að skemmta okkur, ögra viðteknum viðhorfum og vonandi sjá nýjar hliðar á tilverunni. Hér fá hvorki símar né samfélagsmiðlar að trufla okkur og tvístra. Leikhúsið er nefnilega staður þar sem við komum saman og upplifum það sem fram fer á sviðinu í sameiningu sem ein heild. Síðasta leikár var sögulegt. Margar sýningar sættu tíðindum, heilluðu jafnt áhorfendur sem gagnrýnendur og sópuðu að sér viðurkenningum. Stofnuð var ný Ópera sem er hluti af Þjóðleikhúsinu og fyrstu söngvararnir hafa verið ráðnir. Leikhús þjóðarinnar fagnaði 75 ára afmæli og ríkisstjórnin tilkynnti að langþráður draumur um nýbyggingu yrði að veruleika með nýju sviði og æfingasölum, en hún mun rísa fyrir árið 2030. Á nýju leikári er, sem fyrr, megináherslan á frumsköpun og ný íslensk verk. Við höldum áfram að taka áhættu og sækja fram. Við bjóðum nýju, stórkostlegu hæfileikafólki í hóp okkar öflugustu og reyndustu listamanna. Við bjóðum upp á einstakt úrval sýninga fyrir börn og ungt fólk, vinnum með sagnaarfinn á nýstárlegan hátt og hlúum að grasrótinni. Nýja leikritahátíðin okkar, Guli dregillinn, hefur fest sig í sessi, og Leikhússkólinn einnig. Við munum auka enn frekar þjónustu við skóla landsins, meðal annars í gegnum hinn nýja Kennaraklúbb. Þjóðleikhúsið býður upp á textaðar sýningar og hefur aukið aðgengi að sýningum með ýmsum hætti. Besta leiðin til að vera með okkur í vetur er í gegnum leikhúskort. Þú velur þær sýningar sem þig langar mest að sjá – og færð öruggt sæti á besta verðinu. Unga fólkið getur fengið opið kort á frábærum kjörum. Sýningin er að hefjast í leikhúsi okkar allra. Njótum þess saman!
Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri
PISSU DÚKKUR
HARRÝ OG HEIMIR
SALKA - ÁSTIN OG DAUÐINN
ÓRESTEIA
PISSUDÚKKUR
LÁRA OG LJÓNSI
JÓLIN Á SUÐUPUNKTI
HREIÐRIÐ
Á RAUÐU LJÓSI
AFI
GAGNKYN HNEIGÐ L A N D SÁTA K
PN U
LAXNESS... HVER ER ÞAÐ?
UNDIR SÖMU STJÖRNU
AFI
ÐU
GAGNKYNHNEIGÐ - LANDSÁTAK
Geysivinsælt opið kort fyrir 13-25 ára á fáránlega góðu verði! 4
Allt um það á bls. 49.
NA
UM
RÆ
M
O
Ævintýri í uppsiglingu
SJÁ NÁNAR
Jim Cartwright
TAKTU LAGIÐ
GIUSEPPE VERDI
LÍNA LANGSOKKUR
FALSTAFF
NÝTT ELDHÚS EFTIR MÁLI
TAKTU LAGIÐ, LÓA
RÝMI H E T J U R H A F S I N S
FYRIR ÁST EFTIR JAMES GRAHAM Byggt á bók Jacobs Dunne Right from Wrong
RAGNAR BRAGASON
HETJUR HAFSINS
RÝMI FYRIR ÁST
HÖGG
ORMSTUNGA
Þú velur þínar sýningar Ýmis fríðindi fylgja leikhúskortinu, sjá leikhusid.is. Áminning með SMS berst þér nokkrum dögum fyrir sýningarnar þínar. Ekkert mál að breyta á vefnum með 24 klst. fyrirvara með því að opna staðfestingarpóst sem sendur er í kjölfar miðakaupa. Verð kortsins fer eftir miðaverði þeirra sýninga sem þú velur.
30% afsláttur
af fjórum eða fleiri sýningum
25 ára og yngri fá enn meiri afslátt eða 50%.
Settu saman þitt leikár á leikhusid.is
Sýningar á besta verðinu!
Leikstjórn: Magnús Geir Þórðarson
HÖGG
eftir James Graham byggt á bók Jacobs Dunne, Right from Wrong
STÓ R A SV I Ð I Ð
Frumsýning í október 2026
Sönn saga um átakanlega lífsreynslu og von í myrkri
Þýðing: Kristján Þórður Hrafnsson Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir Búningar: Filippía I. Elísdóttir Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson Sviðshreyfingar: Conor Doyle Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson Hljóðhönnun: Aron Þór Arnarsson
Eitt augnablik sem breytir öllu Líf hins 19 ára gamla Jacobs snýst um djamm, hasar og spennu. Eitt örlagaríkt laugardagskvöld blandar hann sér í ágreining í miðbænum og kýlir ókunnugan ungan mann með skelfilegum afleiðingum. Hann er dæmdur í fangelsi fyrir manndráp og þegar hann er látinn laus blasir fátt annað við en gamla lífernið. Þegar Joan og David, foreldrar unga mannsins sem dó, óska eftir því að fá að komast í samband við Jacob til að spyrja hann nokkurra spurninga byrjar líf hans að taka breytingum sem engan hefði getað órað fyrir.
Högg er einstaklega áhrifamikið leikrit, persónuleg saga sem speglar um leið nútímasamfélagið á óvæginn hátt. Verk um blindu, mennsku og möguleikann á breyta lífi sínu til góðs. Verkið hefur hreyft rækilega við áhorfendum og vakið mikilvægar umræður víða. Verkið er tileinkað James Hodgkinson og öllum sem hafa látið lífið eftir að hafa verið slegnir einu höggi. Það er byggt á sannri sögu en sumar persónur og atburðir lúta lögmálum skáldskaparins.
Olivier Award Critics' Circle Theatre Award Standard Theatre Award
The Telegraph
WhatsOnStage
The Times
Margverðlaunað, kraftmikið og einstaklega áhrifamikið nýtt leikrit sem á brýnt erindi
Högg er meistaralega skrifað glænýtt leikrit sem hefur hlotið einstakar viðtökur, meðal annars á West End og á Broadway, eftir hið margverðlaunaða breska leikskáld James Graham. Verkið er byggt á sannri sögu, frásögn ungs manns, Jacobs Dunne, sem ólst upp í harkalegu umhverfi í Nottingham í Bretlandi.
Leikrit ársins
Leikarar: Nafn Eftirnafn, Nafn Eftirnafn, Nafn Eftirnafn, Nafn Eftirnafn, Nafn Leikarar: Jakob Van Oosterhout, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Ebba Katrín Finnsdóttir,
6
Eftirnafn, Nafn Eftirnafn, Nafn Eftirnafn, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Hallgrímur Ólafsson, Jónmundur Grétarsson, Kristinn Óli S. Haraldsson, SJÁ NÁNAR
Nafn Nafn Sturla Eftirnafn. Selma Rán Eftirnafn, Lima, Sigurbjartur Atlason.
EFTIR JAMES GRAHAM Byggt á bók Jacobs Dunne Right from Wrong
NÝTT ELDHÚS EFTIR MÁLI
Leikstjórn: Björn Thors
eftir Friðgeir Einarsson
KAS S STÓ RIAN N SV I Ð I Ð
Frumsýning í september 2026
Friðgeirskur húmor, frygð og fantasía!
Þegar Daníel missir vinnuna fer athygli hans öll smám saman að beinast að eldhúsinnréttingunni. Og möguleikarnir á úrbótum eru svo margir og heillandi! En Daníel veitist erfitt að vekja ástríðu konu sinnar, Soffíu, gagnvart verkefninu. Hann gleymir sér löngum stundum yfir kynórum um starfsfólk innréttingabúða og ekki bætir úr skák þegar búsáhöldin lifna við og leggja orð í belg. Fantasía og raunveruleiki renna saman á grátbroslegan hátt í þessu nýja leikriti eftir Friðgeir Einarsson. Í senn bráðfyndið og alvarlegt verk um tilbreytingarleysi hversdagsleikans, einmanaleikann og löngun eftir að mynda tengsl. Hvað er það í raun sem við viljum í lífinu? Þegar búið er að gera allt, ná öllum markmiðum, hvað þá?
Sýn Friðgeirs Einarssonar á hversdagsleikann er í senn næm, nöpur og fyndin. Hann hefur komið víða við í íslensku leikhúslífi síðustu ár, sem leikskáld, leikari og einn af meðlimum leikhópsins Kriðpleirs. Nýtt eldhús eftir máli er fyrsta leikritið sem Friðgeir skrifar fyrir leikhóp Þjóðleikhússins, en það var flutt á leikritahátíð Þjóðleikhússins Gula dreglinum. Gáskafullur könnunarleiðangur um íslenskan hversdagsleika.
„Ég hef látið mig dreyma um að snerta borðplötuna. Bókstaflega látið mig dreyma.“
Getur draumaeldhúsið breytt lífi þínu? Stórskemmtilegt og lúmskt verk um hversdagsleikann og knýjandi þörf okkar fyrir tilgang og nánd.
8
Leikmynd og búningar: Elín Hansdóttir og Filippía I. Elísdóttir Sviðshreyfingar: Margrét Bjarnadóttir Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson Tónlist: Árni Rúnar Hlöðversson og Örvar Þóreyjarson Smárason
Leikarar: Hilmar Guðjónsson, Ilmur Kristjánsdóttir, SJÁ NÁNAR
Ólafur Ásgeirsson, Salka Gústafsdóttir.
ORMSTUNGA
Leikstjórn: Gísli Örn Garðarsson
eftir Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson
STÓ R A SV I Ð I Ð
Sýningar hefjast að nýju í ágúst 2026
Margrómuð og geysivinsæl stórsýning
Handrit og söngtextar: Hafsteinn Níelsson og Ólíver Þorsteinsson Tónlist: Hafsteinn Níelsson Meðhöfundur tónlistar og tónlistarstjórn: Jóhannes Damian R. Patreksson Danshöfundur: Liam Steel Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir Búningar: María Th. Ólafsdóttir Lýsing: Garðar Borgþórsson Hljóðmynd: Þóroddur Ingvarsson og Brett Smith
Söngleikur fyrir allar kynslóðir! Orka og ferskleiki söngleikjaformsins mæta átakaþrungnum heimi Íslendingasagnanna. Ormstunga er glænýr íslenskur söngleikur, í senn spennandi, fyndinn og hjartnæmur, byggður á Íslendingasögunni Gunnlaugs sögu ormstungu. Barátta ungu skáldanna birtist hér á nýjan og ferskan hátt, þar sem hljóðnemar koma í stað sverða. Höfundarnir, Hafsteinn Níelsson og Ólíver Þorsteinsson, eru af yngstu kynslóð leikhúslistafólks og komu eins og stormsveipur inn á Stóra sviðið. Með frumlegum, nútímalegum og óvæntum hætti ná þeir að blása nýju lífi í menningararf okkar.
12 Grímutilnefningar Sýning ársins Leikrit ársins Leikstjóri ársins Leikmynd ársins Söngvari ársins Söngvari ársins
Leikari í aðalhlutverki Leikari í aðalhlutverki Leikari í aukahlutverki Leikkona í aukahlutverki Tónlist og hljóðmynd Dans og sviðshreyfingar
Sýningin Ormstunga getur gefið áhorfendum tækifæri til að endurnýja kynnin við kæra Íslendingasögu eða uppgötva kraftinn sem býr í fornbókmenntum okkar. Fjölmargir leikarar Þjóðleikhússins koma fram í þessari stórsýningu sem margt af okkar færasta leikhúslistafólki tók þátt í að skapa. Saga um drauma, ástir og ill örlög.
Morgunblaðið Visir.is
„Þau munu muna eftir mér! Það sem eftir er!“
Söngleikurinn Ormstunga sló eftirminnilega í gegn á síðasta leikári og var sannkallaður viðburður í íslensku menningarlífi. Áhorfendur af öllum kynslóðum hrifust af þessum kraftmikla og nýstárlega söngleik - og ungir sem aldnir streymdu í leikhúsið. Sýningin hlaut 12 tilnefningar til Grímuverðlaunanna, og hefur engin sýning hlotið fleiri tilnefningar í sögu Grímunnar.
Leikarar: Jakob Van Oosterhout, Kristinn Óli S. Haraldsson, Rán Ragnarsdóttir, Almar Blær Sigurjónsson, Atli Rafn Sigurðarson, Birta Sólveig Söring Þórisdóttir, Edda Arnljótsdóttir, Eygló Hilmarsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Hallgrímur Ólafsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Kjartan Darri Kristjánsson, Nick Candy, Ólafur Ásgeirsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Selma
10
Rán Lima, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Sigurbjartur Sturla Atlason, Þröstur Leó Gunnarsson, Örn Árnason. SJÁ NÁNAR
Hljómsveit: Baldvin Hlynsson, Árni Freyr Jónsson, Vignir Rafn Hilmarsson, Sólrún Mjöll Kjartansdóttir.
HETJUR HAFSINS
Leikstjórn: Ragnar Bragason
eftir Ragnar Bragason
STÓ R A SV I Ð I Ð
Frumsýning 26. desember 2026
Nýtt og áhrifamikið leikrit eftir Ragnar Bragason
Leikmynd: Elín Hansdóttir Búningar: Helga Rós V. Hannam Lýsing: Þórður Orri Pétursson Tónlist: Jelena Ćirić Hljóðhönnun: Þóroddur Ingvarsson Dramatúrg og aðstoðarleikstjóri: Melkorka G. Briansdóttir
Í litlu samfélagi á Vestfjörðum fléttast örlög fjölskyldna saman, mótuð af sjóslysum og missi. Þrátt fyrir brotsjói lífsins blómstra ástin og lífsgleðin - þar til örlagastund rennur upp á ný. Rithöfundurinn Lea leiðir okkur í þorpið þar sem hún ólst upp, aftur til sjöunda áratugarins, þegar hún var lítil stelpa og vinkonurnar gátu í laumi fylgst með brasi fullorðna fólksins og séð ýmislegt sem kannski enginn átti að sjá. Samskipti fólksins eru mörkuð af hörku og blíðu, söknuði og þrá, harmi og draumum. Yfir þorpslífinu grúfir sársauki fortíðarinnar, í þögninni sem umlykur allt.
En vinnan heldur áfram, færibandið stöðvast aldrei og spurningar vakna um hverjar séu í raun hetjur hafsins. Ragnar Bragason er þekktur fyrir fjölda leiksýninga, kvikmynda og sjónvarpsþáttaraða sem hafa hlotið margvísleg verðlaun. Má þar nefna Felix & Klöru, Gullregn, Málmhaus og Vaktaseríurnar. Rætur Ragnars liggja í sjávarþorpi á Vestfjörðum og hér leitar hann til upprunans.
Magnþrungin saga um lífsbaráttu og áföll sem mótað hafa kynslóðir
Sagan sem hefur ekki verið sögð
Þegar aftakaveður skellur á og enn á ný berst neyðarkall frá báti í háska bíða konur og börn í landi á milli vonar og ótta.
Leikarar: Kristín Þóra Haraldsdóttir, Almar Blær Sigurjónsson, Atli Rafn Sigurðarson, Edda Arnljótsdóttir, Eygló Hilmarsdóttir, Guðrún S. Gísladóttir, Hallgrímur Ólafsson, Hilmar Guðjónsson,
12
Jakob van Oosterhout, Pálmi Gestsson, Selma Rán Lima, Þröstur Leó Gunnarsson, Gyða Dröfn Kristmannsdóttir, SJÁ NÁNAR
Hildigunnur Atladóttir, Garðar Eyberg.
H E T J U R H A F S I N S
RAGNAR BRAGASON
TAKTU LAGIÐ, LÓA
Leikstjórn: Þóra Karítas Árnadóttir
eftir Jim Cartwright
STÓ R A SV I Ð I Ð
Þýðing: Auður Jónsdóttir Leikmynd: Finnur Arnar Arnarson Búningar: María Th. Ólafsdóttir Lýsing: Ásta Jónína Arnardóttir Tónlistarstjórn: Guðmundur Óskar Guðmundsson Hljóðhönnun: Kristján Sigmundur Einarsson
Frumsýning í febrúar 2027
Hver er eiginlega að syngja? Lóa er ung stúlka sem reynir að láta lítið fyrir sér fara á heimili drykkfelldrar og kjaftforrar móður sinnar. Hún leitar skjóls í herbergi sínu til að hlusta á gömlu plöturnar sem látinn faðir hennar átti og voru líf hans og yndi. Þar getur hún verið í friði, horfið inn í heim tónlistarinnar og sungið eins og söngstjörnur fortíðarinnar. Þegar nýr kærasti móður hennar kemst fyrir tilviljun að því að Lóa býr yfir ótrúlegum sönghæfileikum er hann ekki lengi að koma auga á gróðamöguleikana. Taktu lagið, Lóa er hrífandi saga um leitina að sinni eigin rödd. Um hið brothætta andspænis hinu harða, um varnarleysi æskunnar, stormasamt samband móður og dóttur, óvænta vináttu og töframátt tónlistarinnar.
14
Eitt af meistaraverkum breska leikskáldsins Jims Cartwright, sem samdi meðal annars leikritin Stræti, Bar Par og Stone Free. Verkið var frumflutt árið 1992 og hlaut Evening Standard- og Olivierverðlaunin sem besta leikrit ársins. Taktu lagið, Lóa var áður sýnt fyrir um 30 árum í þýðingu Árna Ibsen við miklar vinsældir á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins með Ólafíu Hrönn Jónsdóttur, Kristbjörgu Kjeld og Pálma Gestssyni í aðalhlutverkum. Verkið er sett reglulega upp víða um heim og samnefnd kvikmynd frá árinu 1998 hlaut mikið lof.
Nútímaklassík sem hefur heillað áhorfendur víða um heim með hrífandi tónlist úr öllum áttum
Varnarleysi, grimmd og töframáttur tónlistarinnar
Leikarar: Birta Sólveig Söring Þórisdóttir, Ilmur Kristjánsdóttir, Björn Thors, SJÁ NÁNAR
Kjartan Darri Kristjánsson, Þröstur Leó Gunnarsson og fleiri.
Jim Cartwright
ÓRESTEIA
eftir Benedict Andrews byggt á þríleik Æskílosar
KAS S I N N
Sýningar í janúar og febrúar 2027
Sýning ársins 2026 Þetta fjögurra klukkustunda meistaraverk heillaði jafnt leikhúsgesti sem gagnrýnendur og uppselt var á allar sýningar á síðasta leikári. Boðið verður upp á nokkrar aukasýningar í byrjun árs 2027. Drottningin Klítemnestra hefur engu gleymt. Þegar Agamemnon konungur snýr sigurreifur heim úr tíu ára herferð eru móttökurnar blóði drifnar. Óresteia er nýtt og einstaklega kraftmikið leikverk eftir Benedict Andrews, innblásið af sígildum þríleik Æskílosar. Verk Æskílosar hefur talað með máttugum hætti til mannkynsins kynslóð eftir kynslóð og efni þess á við okkur óþægilega brýnt erindi í dag.
16
SJÁ NÁNAR
Þýðing: Kristín Eiríksdóttir Leikmynd: Elín Hansdóttir Búningar: Filippía I. Elísdóttir Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson Tónlist: Bára Gísladóttir Hljóðhönnun: Bára Gísladóttir og Aron Þór Arnarsson Aðstoðarleikstjóri og dramatúrg: Melkorka G. Briansdóttir
4 Grímuverðlaun Sýning ársins Leikrit ársins Leikmynd ársins Leikkona í aðalhlutverki
Tímamót í íslensku leikhúsi Enn á ný færir margverðlaunaði leikstjórinn Benedict Andrews okkur magnþrungið meistaraverk. Í fyrstu sýningu hans í Kassanum birtast okkur vægðarlaus átök innan fjölskyldu og skelfilegar afleiðingar stríðs og blóðhefnda. Þjóðleikhúsið teflir fram hópi fimm framúrskarandi leikara sem ögra sjálfum sér á nýjan hátt í krefjandi sviðsetningu. Líkamleg nánd leikaranna, hrá fegurð textans og áhrifamáttur myndmáls og tónlistar bjóða upp á einstaka listræna upplifun.
Morgunblaðið
Visir.is
Magnþrungið meistaraverk
Óresteia er án efa ein magnaðasta sýning síðari ára í íslensku leikhúsi. Hún hlaut Grímuverðlaunin sem sýning ársins 2026, auk þess sem sýningin hlaut verðlaunin í flokkunum leikrit ársins, leikmynd ársins og leikkona ársins í aðalhlutverki. Sýningin hlaut alls 10 tilnefningar til Grímunnar.
Leikstjórn: Benedict Andrews
Leikarar: Nafn Eftirnafn, Nafn Eftirnafn, Nafn Eftirnafn, Nafn Eftirnafn, Nafn Eftirnafn, Nafn Eftirnafn, Leikarar: Atli Rafn Sigurðarson,Eftirnafn, Ásthildur ÚaNafn Sigurðardóttir, Ebba Katrín Finnsdóttir, Nafn Eftirnafn, Hilmir Snær Guðnason, NínaNafn Dögg Eftirnafn. Filippusdóttir.
RÝMI FYRIR ÁST
Leikstjórn: Stefán Jónsson
eftir Tyrfing Tyrfingsson
Leit að ást, vatnsrúm og potturinn hennar Grýlu Rými fyrir ást er glænýtt leikrit eftir Tyrfing Tyrfingsson en síðasta leikrit hans í Þjóðleikhúsinu, Sjö ævintýri um skömm, sló rækilega í gegn og hlaut Grímuverðlaunin fyrir besta leikrit ársins. Stefán Jónsson hlaut jafnframt Grímuna fyrir leikstjórn sína á verkinu, og hér leiða þeir Tyrfingur og Stefán saman hesta sína að nýju í krassandi og óvenjulegri sýningu.
Sex manneskjur leita að nánd, í óvenjulegum aðstæðum, eftir óvenjulegum leiðum. Úr verða grípandi, frumlegar og ögrandi sögur sem fléttast saman á óvæntan hátt. Hvað tekur listafólk sem rekur gistiheimili í Reykjavík til bragðs þegar heimurinn virðist vera að hrynja? Er alvöru gullfiskur í vatnsrúminu? Og hvað eru Grýla og Leppalúði að gera í leikriti eftir Tyrfing Tyrfingsson? Hvernig getum við skapað rými fyrir ást í lífi okkar? Og getum við mögulega skapað rými fyrir ást í leikhúsinu? Stóra sviðinu verður umbylt fyrir sýninguna. Komdu og upplifðu sýningu í „musterinu“ ólíka öllu því sem þú hefur þar áður séð og heyrt!
Svona hefur þú aldrei upplifað Stóra sviðið áður!
STÓ R A SV I Ð I Ð
Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir Búningar: Filippía I. Elísdóttir Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson Hljóðhönnun: Brett Smith
Frumsýning í apríl 2027
Bráðskemmtilegt nýtt verk eftir Tyrfing
18
Leikarar: Atli Rafn Sigurðarson, Ebba Katrín Finnsdóttir, Jakob van Oosterhout, SJÁ NÁNAR
Jónmundur Grétarsson, Pálmi Gestsson og fleiri.
RÝMI FYRIR ÁST
LÍNA LANGSOKKUR
Leikstjórn: Agnes Wild
eftir Astrid Lindgren
STÓ R A SV I Ð I Ð
Sýningar hefjast að nýju í ágúst 2026
„Hei sala hó sala hoppsasa!“
Leikgerð: Staffan Götestam Tónlist: Georg Riedel, Jan Johansson, Anders Berglund Söngtextar: Astrid Lindgren Þýðing: Þórarinn Eldjárn Leikmynd: Finnur Arnar Arnarson Búningar: Eva Björg Harðardóttir Tónlistarstjórn: Karl Olgeir Olgeirsson Dans og sviðshreyfingar: Elma Rún Kristinsdóttir Brúðumeistari: Bernd Ogrodnik Lýsing: Ásta Jónína Arnardóttir Hljóðhönnun: Brett Smith og Þóroddur Ingvarsson
4 Grímuverðlaun Barnasýning ársins Leikstjóri ársins Búningar ársins Leikari í aukahlutverki
Þekkir þú hana Sigurlínu Rúllugardínu Nýlendínu Krúsímundu Efraímsdóttur Langsokk? Það er hún sem er með hest á veröndinni hjá sér, apa á öxlinni og bakar pönnukökur í matinn! Hún býr ein á Sjónarhóli, á fulla tösku af sjóræningjapeningum og neitar að læra fargnöldrunartöfluna! Hún á ekki í vandræðum með að leika á Glám og Glúm, dansar við frú Prússólín og tekur Adolf sterka í bóndabeygju! Já, allir elska hana Línu Langsokk! Uppátæki hennar eru engu lík! Lína Langsokkur heillaði börn og fullorðna upp úr skónum á síðasta
Sýning ársins
leikári og var valin barnasýning ársins bæði á Grímuverðlaunahátíðinni og Sögum – verðlaunahátíð barnanna! Sýningin hlaut einnig Grímuverðlaunin í flokkunum leikstjórn, búningar og leikari í aukahlutverki en engin barnasýning hefur hlotið fleiri verðlaun á Grímunni. Í haust heldur Lína upp á hundruðustu sýningu á verkinu!
Heimildin
Sprellfjörug og litrík sýning fyrir prakkara á öllum aldri!
Barnasýning ársins!
Morgunblaðið
Sterkasta stelpa í heimi lætur ekkert stöðva sig! Leikarar: Birta Sólveig Söring Þórisdóttir, Almar Blær Sigurjónsson, Atli Rafn Sigurðarson, Ebba Katrín Finnsdóttir, Edda Arnljótsdóttir, Eygló Hilmarsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Jakob van Oosterhout, Kjartan Darri Kristjánsson, Kristinn Óli S. Haraldsson, Nick
20
Candy, Oddur Júlíusson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pálmi Gestsson, Selma Rán Lima, Sigríður Eyrún SJÁ NÁNAR
Friðriksdóttir, Sigurbjartur Sturla Atlason, Þröstur Leó Gunnarsson og barnahópur.
GAGNKYNHNEIGÐ – LANDSÁTAK
Leikstjórn: Eva Rún Snorradóttir, Eva Björk Kaaber, Vilborg Ólafsdóttir
eftir Kviss búmm bang
KAS S STÓ RIAN N SV I Ð I Ð
Frumsýning í apríl 2027
Leikmynd og búningar: Tinna Ottesen Listræn ráðgjöf: Ragnheiður Skúladóttir Kviss búmm bang í samstarfi við Þjóðleikhúsið
Opnum umræðuna um gagnkynhneigð!
Sviðslistahópurinn Kviss búmm bang býður upp á skemmtidagskrá þar sem þjóðinni gefst færi á að fræðast ítarlega um hina rómuðu gagnkynhneigð. Boðið verður upp á atriði úr samfélagi gagnkynhneigðra, slóðir þeirra heimsóttar og hulunni svipt af merkilegri sögu gagnkynhneigðar, uppruna og merkingu. Hvaðan sprettur gagnkynhneigð? Hvers vegna kemur hún fram? Kemur okkur eitthvað við hvað þetta fólk er að gera í svefnherberginu? Sviðslistahópurinn Kviss búmm bang er skipaður þeim Evu Rún Snorradóttur, Evu Björk Kaaber og Vilborgu Ólafsdóttur, sem hafa bakgrunn meðal annars í sviðslistum, bókmenntum, myndlist og gjörningalist. Hópurinn hefur vakið mikla athygli jafnt innanlands sem utan frá því að hann tók til starfa árið 2009, og hefur meðal annars verið boðið á virtar listahátíðir á borð við Wiener Festwochen, Baltic Circle og SPRING
22
Festival í Utrecht. Sýningar Kviss búmm bang einkennast af leikgleði, tilraunamennsku og óvæntum uppákomum, og brjóta upp sýn okkar á hversdagsleikann með skemmtilegum hætti. Áhorfendur verða gjarnan þátttakendur í sýningum hópsins, enda tengjast þær beint daglegu lífi og spurningum um samfélag okkar. Nú stígur Kviss búmm bang í fyrsta sinn á leiksvið í Þjóðleikhúsinu. Við bjóðum þær hjartanlega velkomnar!
Fyrsta sýning Kviss búmm bang í Þjóðleikhúsinu
Ekkert minna en landsátak dugar!
Flytjendur: Eva Rún Snorradóttir, Eva Björk Kaaber, Vilborg Ólafsdóttir og fleiri. SJÁ NÁNAR
Verkefnið var styrkt af Sviðslistasjóði.
GAGNKYN HNEIGÐ
PN U
NA
UM
RÆ
M
O
L A N D SÁTA K
ÐU
FALSTAFF
Hljómsveitarstjórn: Alexander Joel Leikstjórn: Brynhildur Guðjónsdóttir
eftir Giuseppe Verdi Libretto: Arrigo Boito
E L D BO STÓ R A RG SV I Ð I Ð
Þýðing: Sólveig Sigurðardóttir
Frumsýning 6. mars 2027
og Þórhallur Auður Helgason Leikmynd: Börkur Jónsson Búningar: Helga I. Stefánsdóttir Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson Tónlistar- og kórstjórn: Richard Schwennicke
Fyrsta stóra uppfærsla hinnar nýju Óperu verður gamanóperan Falstaff eftir Giuseppe Verdi og er það í fyrsta sinn sem þetta meistaraverk er sýnt á Íslandi. Verkið er byggt á persónum úr leikritum eftir William Shakespeare og fjallar um spaugilegar tilraunir aðalsmannsins Falstaffs til að draga tvær efnaðar konur á tálar og hafa síðan fé af eiginmönnum þeirra. Þær sjá fljótt í gegnum blekkingar kauða og taka til sinna ráða. Falstaff er fjörug og leiftrandi ópera um breyskleika og blekkingar, afbrýðisemi og hégómagirnd.
Óperan verður flutt á íslensku í nýrri þýðingu eftir Sólveigu Sigurðardóttur og Þórhall Auð Helgason, en þýðingar þeirra fyrir óperusýningar Óðs hafa vakið mikla athygli. Sýningin er sett upp í Eldborg í Hörpu í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands og mun fullskipuð hljómsveit sjá um hljóðfæraleik.
Ólafur Kjartan Sigurðarson fer með titilhlutverkið, en hann er einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar og hefur um árabil farið með burðarhlutverk á óperusviðum víða um heim. Í öðrum hlutverkum er fastur hópur söngvara hinnar nýju Óperu ásamt fleiri framúrskarandi söngvurum og kór.
Getur bragðarefurinn Falstaff mögulega haft betur gegn þessum klóku konum?
Frumflutningur á meistaraverki Verdis á Íslandi
„Þá var ég grannur, þá var allt í blóma. Þetta var áður en ég kynntist rjóma.“ Söngvarar: Ólafur Kjartan Sigurðsson, Kristján Ingi Jóhannesson, Kristín Einarsdóttir Mäntylä, Álfheiður Erla
24
Guðmundsdóttir/Harpa Ósk Björnsdóttir, Hildigunnur Einarsdóttir, Karin Björg Torbjörnsdóttir, Gunnar Björn SJÁ NÁNAR
Jónsson, Þorsteinn Freyr Sigurðsson, Eggert Reginn Kjartansson, Ragnar Pétur Jóhannsson og kór.
GIUSEPPE VERDI
ÓPERA ANSV I Ð I Ð STÓ
Langþráður draumur um Óperu verður að veruleika Með stofnun nýrrar Óperu innan Þjóðleikhússins er stigið stórt skref til að efla óperulist á Íslandi. Óperan tekur til starfa á leikárinu með sýningum, tónleikum og fjölbreyttum verkefnum um land allt.
Finnur Bjarnason óperustjóri segir að framundan sé regluleg og samfelld óperustarfsemi á Íslandi með föstum kjarnahópi söngvara. Markmið Óperunnar sé „að skapa ný tækifæri fyrir íslenska söngvara, þróa öflugt og fjölbreytt starf og færa áhorfendum óperuupplifun á heimsmælikvarða.“ Jafnframt verði stutt við grasrótarstarfsemi af ýmsu tagi. Finnur tekur fram að starfsemi Óperunnar nái til alls landsins. „Auk sýninga í Hörpu og Þjóðleikhúsinu mun Óperan standa fyrir viðburðum víða um land í samstarfi við listafólk og menningarstofnanir á hverjum stað. Starfið hefst með opnunarviðburði á Akureyri, Undir sömu stjörnu, og í kjölfarið verða sýningar á Eskifirði, í Reykjanesbæ, í Skálholti og að lokum í Reykjavík.” Frumflutningur á Falstaff á Íslandi Finnur nefnir að mikil tilhlökkun ríki vegna frumflutnings á Íslandi á gamanóperunni Falstaff eftir Giuseppe Verdi í Hörpu. „Það er einstakur fengur að fá til liðs við okkur listafólk á borð við leikstjórann Brynhildi Guðjónsdóttur og hljómsveitarstjórann Alexander Joel, auk annars framúrskarandi tónlistar- og sviðslistafólks sem kemur
26
að sýningunni. Og það er sérstakt ánægjuefni að óperan verður flutt á íslensku.“ Sönghópur Óperunnar „Nýr sönghópur, skipaður framúrskarandi söngvurum, mun gegna lykilhlutverki í uppsetningum, tónleikahaldi og fræðsluverkefnum Óperunnar,“ segir Finnur, „og móta listrænt yfirbragð hennar á komandi árum.” Í fyrsta sönghópnum eru Kristín Einarsdóttir Mäntylä, sópran, Harpa Ósk Björnsdóttir, sópran, Hildigunnur Einarsdóttir, mezzósópran, Gunnar Björn Jónsson, tenór, Kristján Ingi Jóhannesson, baritón, og Ragnar Pétur Jóhannsson, bassi. „Þau munu öll koma fram í flutningnum á Falstaff og fjögur þeirra taka þátt í opnunarviðburði Óperunnar. Einnig hlökkum við til að taka þátt í aðventudagskrá Þjóðleikhússins en þar munu söngvararnir okkar slást í hóp leikara og heimsækja dvalarheimili á aðventunni.”
Tímamót í íslensku menningarlífi
„Nýr sönghópur gegnir lykilhlutverki“
Fræðsla, nýsköpun og ferðasýningar Finnur leggur áherslu á það hlutverk Óperunnar að leggja sitt af mörkum til framþróunar óperuformsins og sinna nýsköpun og fræðslu samhliða fjölbreyttu sýningarhaldi. „Við munum standa fyrir óperusmiðjum, vinnusmiðjum fyrir tónskáld og höfunda og fleiri þróunarverkefnum. Þá munum við styðja við grasrótarverkefni og standa fyrir minni sviðsetningum af ýmsu tagi.”
Fræðslustarfið nær einnig til yngstu kynslóðarinnar. „Við hyggjumst ferðast um landið í skólana til að kynna óperulistina fyrir nýjum hópum og efla áhuga og þátttöku komandi kynslóða. Auk þess er fyrirhugað samstarf við Listaháskólann og aðrar menntastofnanir um óperuuppfærslu þar sem ungt listafólk fær að láta ljós sitt skína.”
Óperan mun leggja sitt af mörkum til að efla þekkingu á óperuforminu, jafnt meðal listafólks og almennings. „Við stöndum fyrir sérstökum námskeiðum fyrir listafólk sem hefur hug á að kynnast óperuforminu betur og spreyta sig á því. Einnig verður óperuformið og saga þess kynnt almenningi, meðal annars með námskeiðahaldi í samstarfi við Endurmenntun HÍ.“
Óperuakademían stofnuð Óperan og Listaháskóli Íslands, í samstarfi við marga af söng- og tónlistarskólum landsins, taka höndum saman um stofnun Óperuakademíunnar. Markmiðið er að standa fyrir metnaðarfullu starfi í þágu menntunar og starfsþjálfunar ungs tónlistarog sviðslistafólks á Íslandi. Fyrsta verkefnið verður uppsetning á óperunni Draumur á Jónsmessunótt eftir Benjamin Britten í júní 2027, þar sem söngog hljóðfæranemum býðst að taka þátt í faglegri óperuuppsetningu. Skráning í áheyrnarprufur fer fram í gegnum Opna Listaháskólann.
„Ópera er ægifagurt og áhrifamikið listform“ Brynhildur Guðjónsdóttir leikstýrir óperunni Falstaff. Hún á að baki þriggja áratuga reynslu sem leikari, leikskáld, leikstjóri og leikhússtjóri og er handhafi fjölda Grímuverðlauna. Hún leikstýrði meðal annars Mannsröddinni hjá Íslensku óperunni en leikstýrir nú í fyrsta sinn óperu í Eldborg í Hörpu. Hvað er það við Falstaff sem heillar þig? Tilkomumikil og leikræn tónlistin, Shakespeareískur húmorinn og stórfenglegt persónugalleríið! Hver er skemmtilegasta áskorunin við að setja upp þetta verk? Að láta orðmargt og snilldarlegt libretto Arrigo Boito, í frábærri þýðingu Sólveigar og Þórhalls, heyrast í margradda fúgum! Að laga uppsetninguna að tónleikasal sem hvorki er með sviðsramma né fortjald, en það krefst útsjónarsemi vegna þess að söguframvinda gamanóperunnar kallar á ákveðna sjónræna þætti. Að dansa á tónlistarlegri hnífsegg Verdis - keyra ekkert í kaf og ná hinu fullkomna jafnvægi!
Hvað er það við óperuformið sem dregur þig að því? Ó, þetta heillandi fyrirbæri sem sameinar öll listform: tónlist, leiklist, dans og myndlist. Ég er heilluð af rómantískri stærð hugmyndanna, expressjónískri víðáttu tilfinninganna og tærleika frásagnarstílsins. Ekki má svo gleyma valdi virtúósa söngvara á hljóðfærinu sínu og krafti lifandi flutnings sinfóníuhljómsveitar. Ópera er ægifagurt og áhrifamikið listform og óperan Falstaff er full af lífskrafti og leiftrandi gleði.
UNDIR SÖMU STJÖRNU
Hljómsveitarstjórn: Richard Schwennicke Handrit og leikstjórn: Ólafur Egill Egilsson
Opnunarviðburður Óperunnar
Ástarstjarna yfir Hraundranga og kvöldstjarna Wagners Opnunarviðburður Óperunnar – víða um land Sama ár og þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson orti ljóð sitt um „Ástarstjörnu yfir Hraundranga“ samdi Richard Wagner óperuaríu til „Kvöldstjörnunnar“ sunnar í Evrópu. Skyldi það hafa verið sama tindrandi himinstjarnan sem kveikti hugmyndir beggja? Í þessari veglegu söngdagskrá er saga óperunnar rakin, allt frá hirðsölum Ítalíu að Íslands ströndum. Söngvarar Óperunnar flytja okkur nokkrar fegurstu perlur óperusögunnar en leikarar Þjóðleikhússins leiða áhorfendur í gegnum söguna. Fróðleik og skemmtun er hér fléttað saman á léttleikandi hátt.
Frumsýnt verður í Hofi á Akureyri en síðan farið víða um landið og að endingu sýnt í Þjóðleikhúsinu í Reykjavík. Auk einsöngvara Óperunnar og leikara Þjóðleikhússins koma fram á opnunarviðburðinum í Hofi Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, kór Akureyrarkirkju og Kammerkór Norðurlands, en viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar. Viðburðurinn verður einnig fluttur á Eskifirði í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Austurlands og menningarstofu Fjarðabyggðar, í Reykjanesbæ í samstarfi við Norðuróp og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og í Skálholti í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Suðurlands.
Saga óperunnar sett í samhengi við menningarsögu Íslands
H O FROAGSV V ÍI ÐA STÓ Ð I ÐR U M L AN D
Frumsýning í Hofi 18. október 2026
Sýningar Hof á Akureyri, 18. október Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði, 25. október Hljómahöllin í Reykjanesbæ, 1. nóvember Skálholtsdómkirkja, 8. nóvember Þjóðleikhúsið, 15. nóvember
28
Söngvarar: Kristín Einarsdóttir Mäntylä, Hildigunnur Einarsdóttir, Gunnar Björn Jónsson og Kristján Ingi Jóhannesson. SJÁ NÁNAR
Leikarar: Örn Árnason og Ólafía Hrönn Jónsdóttir.
STÓ RA SV I Ð L AN D S BYG GIÐÐI N
Þjóðleikhúsið og landsbyggðin Boðssýningar fyrir börn og unglinga
Þjóðleikhúsið fer í leikferðir um landið og stendur fyrir sýningarhaldi, meðal annars með skólasýningum fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Sjá bls. 33. Hin nýstofnaða Ópera fer einnig í hringferð um landið með sýningu fyrir grunnskóla.
Leikferðir
Þjóðleikhúsið fer í leikferð til Akureyrar í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar með hina geysivinsælu sýningu Á rauðu ljósi í nóvember og desember. Einnig verður sýning Þjóðleikhússins, Gæðablóð, sem vakti mikla athygli á liðnu vori, sýnd á nokkrum stöðum á landsbyggðinni.
Áhugasýning ársins
Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins er valin á hverju leikári og sýnd í Þjóðleikhúsinu á vordögum í samstarfi við Bandalag íslenskra leikfélaga.
30
SJÁ NÁNAR
Námskeið fyrir áhugaleikfélög og leikfélög framhaldsskóla
Þjóðleikhúsið styður við starfsemi áhugaleikfélaga og framhaldsskólaleikfélaga landsins með námskeiðahaldi. Boðið verður upp á námskeið í ljósahönnun, hljóðhönnun, framleiðslu og sýningarstjórnun. Námskeiðin eru haldin yfir helgi og ná yfir bæði laugardag og sunnudag. Þátttakendum býðst að fara á leiksýningu í Þjóðleikhúsinu sömu helgi.
Opnunarviðburður Óperunnar um land allt
Óperan ferðast víða um land með opnunarviðburðinn Undir sömu stjörnu sem frumsýndur verður í Hofi á Akureyri. Sjá bls. 28-29.
SALKA — ÁSTIN OG DAUÐINN eftir Unni Ösp Stefánsdóttur byggt á skáldsögu eftir Halldór Laxness
Leikmynd og búningar: Filippía I. Elísdóttir Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson Hljóðhönnun: Aron Þór Arnarsson Tónlistarráðgjöf og útsetningar: Davíð Þór Jónsson
3 Grímutilnefningar Sýning ársins Leikrit ársins Leikkona í aðalhlutverki
Morgunblaðið
Landnámssetur Íslands í Borgarnesi í samstarfi við Þjóðleikhúsið.
Einleikur Unnar Aspar á Söguloftinu heillar áhorfendur
Salka hrífur alla Einleikur Unnar Aspar vakti djúpstæða hrifningu áhorfenda og gagnrýnenda á síðasta leikári og var tilnefndur til þrennra Grímuverðlauna. Salka Valka er ein eftirminnilegasta persóna Halldórs Laxness. Í sýningunni þræðir Unnur Ösp sig í gegnum sögu hennar, umvafin tónlist úr plötusafni Halldórs Laxness sem var skáldinu innblástur við skrif bókarinnar. Sýningin er samstarfsverkefni Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi og Þjóðleikhússins í tilefni af tuttugu ára afmæli setursins árið 2026. Einleikurinn, sem sýndur er á Söguloftinu, er byggður á fyrri hluta skáldsögu Halldórs Laxness, Sölku Völku, Þú vínviður hreini.
„Ég varð algjörlega agndofa... þetta eru svo miklir töfrar!“ RÁS 1, Endastöðin
„Í rauninni væri einfaldast að segja að þessi flutningur sé kraftaverk, svo einstakur er hann í innlifun leikkonunnar, einlægni hennar og djúpum skilningi á verkinu og persónum þess.“ TMM
SJÁ NÁNAR
Leikari: Unnur Ösp Stefánsdóttir.
L AN D N Á M S S E T R I Ð
Sýningar hefjast að nýju í september
Leikstjórn: Björn Thors
Á RAUÐU LJÓSI
eftir Kristínu Þóru Haraldsdóttur
Höfundur og leikstjóri: Kristín Þóra Haraldsdóttir
STÓ R A SV I Ð I Ð og MA K
Sýningar hefjast að nýju í október 2026 Leikferð til Akureyrar í nóvember og desember
Ekkert lát á vinsældunum!
Gamansýning um stress
Stressaðu þig ennþá meira með Stínu! Þessi geysivinsæla gamansýning um stress eftir Kristínu Þóru Haraldsdóttur hefur nú þegar verið leikin fyrir fullu húsi í Kjallaranum og á Stóra sviðinu 122 sinnum – fyrir ótal stressaða og stresslausa áhorfendur! Stína talar til okkar á bráðfyndinn hátt, en af einlægni og hispursleysi, um stress, streitu, seiglu, aumingjaskap og dugnað. Kvöld eftir kvöld veltast áhorfendur um af hlátri og þekkja sjálfa sig í sögu Stínu. Gamansýning um stressið sem fylgir því að vera manneskja.
Verið hress, alltaf með stress, bless!
32
Leikari: Kristín Þóra Haraldsdóttir SJÁ NÁNAR
UNGA FÓLKIÐ
Unga fólkið boðið velkomið Við bjóðum unga fólkið sérstaklega velkomið í Þjóðleikhúsið og opnum töfraheim leiklistarinnar fyrir börnum og unglingum með framúrskarandi leiksýningum og fjölbreyttum verkefnum. Við kveikjum áhuga á leikhúsinu og nærum ástríðu nýrra kynslóða með fjölbreyttum og vönduðum leiksýningum fyrir börn á öllum aldri. Við aukum aðgengi ungs fólks og ólíkra hópa að leikhúsi, m.a. með boðssýningum fyrir skólabörn, leikferðum um allt land, leikhúskortum og skoðunarferðum um leikhúsið. Leikhússkóli Þjóðleikhússins hefur nú sitt þriðja starfsár. Börnum um allt land boðið á leiksýningar Leiksýningar í skólum á næstu árum miða að því að öll börn sem útskrifast úr grunnskóla hafi þrisvar á skólagöngu sinni, á ólíkum námsstigum, séð leiksýningu á vegum Þjóðleikhússins þeim að kostnaðarlausu. Síðast ferðaðist leikhúsið með sýninguna Orra óstöðvandi um landið. Sýningin var sýnd fyrir 12.000 börn á miðstigi, var tilnefnd til Grímunnar sem barnasýning ársins og var valin sýning ársins á Sögum – verðlaunahátíð barnanna árið 2025. Í vetur mun unglingastig grunnskóla fá að sjá bráðskemmtilega nýja leiksýningu sem byggð er á höfundarverki Halldórs Laxness og fræðast má nánar um á bls. 35.
Skoðunarferðir fyrir skólahópa og starfskynningar Þjóðleikhúsið býður upp á skoðunarferðir um leikhúsið fyrir skólahópa til að gefa þeim kost á því að kynnast töfraheimi leikhússins og fræðast um bygginguna, störfin baksviðs og sögu leikhússins. Einnig er tekið á móti nemendum í starfskynningu. Gæðablóð í skólum Sýning Þjóðleikhússins, Gæðablóð, þar sem leikararnir deila reynslu sinni af því að alast upp sem litaðir einstaklingar á Íslandi, vakti mikla athygli á síðasta leikári. Nú hafa Þjóðleikhúsið, List fyrir alla og RÚV tekið höndum saman um að gefa ungu fólki víða um land kost á því að njóta þessa verks með því að taka það upp og standa fyrir sýningum á upptökunni í skólum landsins. Nýr Kennaraklúbbur og vandað fræðsluefni Kennaraklúbbur Þjóðleikhússins hefur hlotið frábærar viðtökur kennara um land allt. Í gegnum klúbbinn eflir leikhúsið sambandið við kennara á öllum skólastigum og samskipti við skólastofnanir landsins. Meðlimir fá send fréttabréf um starfsemina, fá aðgang að margvíslegu fræðsluefni og boð á sérstök kennarakvöld í Þjóðleikhúsinu og hlýða á erindi frá ólíkum listamönnum hússins. Þjóðleikhúsið kappkostar að bjóða skólahópum bestu möguleg kjör á leikhúsmiðum fyrir hópferðir – t.d. eru Ormstunga og Salka nú vinsælar skólasýningar. Vertu með og skráðu þig í klúbbinn á leikhusid.is/kennaraklubbur-thjodleikhussins.
L E I KRHAÚ SSV S KÓ STÓ I Ð ILÐI N N
Leikhúsfólk framtíðarinnar Leikhússkóli Þjóðleikhússins hefur nú í haust þriðja starfsár sitt, en hann býður upp á einstakt tækifæri fyrir ungt fólk á aldrinum 18-22 ára til að kynna sér leikhúsið frá ólíkum hliðum og efla færni sína.
Leikhússkólinn býður upp á faglega eins árs leikhúsmenntun, þar sem nemendur kynna sér hin ólíku störf í leikhúsinu, meðal annars hönnun leikmyndar, búninga, lýsingar og hljóðmyndar, sýningarstjórn, leikritun og leiklist. Nemendur öðlast þannig víðtæka þekkingu á listforminu og fá tækifæri til að kynnast sjálfum sér sem listafólki, skerpa sýn sína og efla færni og áhuga. Undir lok vetrar mynda nemendur leikhóp og þróa leiksýningu sem sýnd er að vori á fjölum Þjóðleikhússins. Auglýst er eftir umsóknum í skólann á vormisseri.
34
SJÁ NÁNAR SJÁ NÁNAR
Skólastjóri og aðalkennari er Vala Fannell, en Einar Aðalsteinsson sér um kennslu ásamt henni í vetur. Auk þess fræðir listafólk og starfsfólk úr Þjóðleikhúsinu nemendur um ólíka þætti leikhússtarfsins, m.a. Ilmur Stefánsdóttir (leikmyndahönnun), Filippía I. Elísdóttir (búningahönnun), Björn Bergsteinn Guðmundsson (ljósahönnun), Brett Smith (hljóðhönnun), Elísa Sif Hermannsdóttir (sýningarstjórnun), Melkorka Gunborg Briansdóttir (leikritun) og Melkorka Tekla Ólafsdóttir (leiklistarsaga).
LAXNESS... HVER ER ÞAÐ?
Bráðskemmtileg ný skólasýning fyrir 13-15 ára
Af hverju dýrka allir þennan Laxness?
Leikstjórn: Vala Fannell
S KÓ L ASÝ N I N G
eftir Kristin Óla S. Haraldsson, Vilhjálm B. Bragason, Völu Fannell og Hjalta Rúnar Jónsson
...HVER ER ÞAÐ?
Halldór Laxness? Hver var þessi gaur, af hverju er hann svona merkilegur og skiptir í alvörunni máli að lesa þetta stöff? Þjóðleikhúsið býður nemendum á efsta stigi grunnskóla upp á bráðfyndna og fjöruga nýja leiksýningu, þar sem sitthvað fróðlegt og furðulegt um Nóbelsskáldið Halldór Laxness og verk hans verður sett á svið! Sýningin er byggð á ævi og verkum skáldsins og er unnin af leikhúslistafólki sem hefur starfað mikið með ungu fólki og skapað list fyrir ungt fólk um árabil. Frásögnin einkennist af húmor, tónlist gegnir mikilvægu hlutverki og efniviðurinn verður skoðaður frá sjónarhóli yngri kynslóða.
Leikarar: Kristinn Óli S. Haraldsson, Selma Rán Lima, Eygló Hilmarsdóttir, Sigurbjartur Sturla Atlason, Almar Blær Sigurjónsson. SJÁ NÁNAR
Ljósmynd: Jón Kaldal
HREIÐRIÐ
eftir Miðnætti
L I T LR AASV I ÐI Ð I ÐI Ð STÓ SV
Einstök leikhúsupplifun fyrir þau allra yngstu
36
Sýningar hefjast að nýju í september 2026
Tungumál leikhússins í sýningu án orða
Leikstjórn: Agnes Wild Leikmynd, búningar og brúður: Eva Björg Harðardóttir Tónlist: Sigrún Harðardóttir Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason Hljóðhönnun: Aron Þór Arnarsson Miðnætti í samstarfi við Þjóðleikhúsið.
Litlir ungar í leikhúsi Yndislega ungbarnasýningin Hreiðrið bræddi hjörtu áhorfenda á síðasta leikári, og var meðal annars tilnefnd til Grímuverðlaunanna sem barnasýning ársins. Litla sviðinu er umbylt fyrir sýninguna og rýmið útbúið sérstaklega fyrir litla áhorfendur sem geta skriðið öruggir um mjúkt og litríkt svæðið. Í sýningunni eru fá orð sögð og notast er við tjáskiptaaðferðina tákn með tali. Þess vegna hentar sýningin vel börnum með ólík móðurmál og heyrnarskertum börnum. Kjörin fyrsta leikhúsupplifun! Leikhópurinn Miðnætti hefur skapað sér nafn fyrir frumlegar og vandaðar sýningar fyrir yngstu áhorfendurna, svo sem Tjaldið, Á eigin fótum og Geim-mér-ei, auk hinnar dásamlegu sýningar Blómin á þakinu sem hópurinn skapaði fyrir Þjóðleikhúsið. Aldursviðmið: 3ja mánaða til 3ja ára. Sýningarlengd er um 40 mínútur og boðið er upp á leikstund að lokinni sýningu.
Leikarar: Jóhann Axel Ingólfsson, Ylfa Marín Haraldsdóttir. SJÁ NÁNAR
Verkefnið var styrkt af Sviðslistasjóði.
LÁRA OG LJÓNSI – JÓLASAGA eftir Birgittu Haukdal
Leikgerð: Guðjón Davíð Karlsson Leikmynd og búningar: María Th. Ólafsdóttir Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason Tónlist: Birgitta Haukdal Hljóðhönnun: Elvar Geir Sævarsson Myndbandshöfundur: Signý Rós Ólafsdóttir
Geysivinsæl og falleg sýning á aðventunni Hvað getur hafa orðið af Ljónsa?
Leiksýning byggð á vinsælum bókum Birgittu Haukdal um Láru og Ljónsa. Sýningin hefur reglulega yljað ungum sem eldri áhorfendum um hjartaræturnar á aðventunni í Þjóðleikhúsinu og sýningar hafa selst upp á svipstundu. Verkið gerist á aðventunni og jólasveinarnir eru farnir að tínast til byggða og gefa börnum í skóinn. En eina nóttina hverfur Ljónsi, uppáhalds mjúkdýrið hennar Láru sem, eins og flestir vita, er enginn venjulegur bangsi. Hvað getur hafa orðið af Ljónsa? Getur verið að hvarf hans tengist jólasveinunum á einhvern hátt? Aldursviðmið: 2ja til 6 ára.
Leikarar: Helga Salvör Jónsdóttir og fleiri. SJÁ NÁNAR
STÓ R A SV I Ð I Ð
Sýningar í nóvember og desember 2026
Leikstjórn: Guðjón Davíð Karlsson
AFI – ÆVINTÝRI Í UPPSIGLINGU
Leikstjórn: Agnes Wild
eftir Agnesi Wild og Örn Árnason
Leikmynd og búningar: Eva Björg Harðardóttir Tónlist: Sigrún Harðardóttir Hljóðhönnun: Aron Þór Arnarsson
Æsispennandi ferðalag um framandi slóðir
Afi er bestur! Glæný og fjörug fjölskyldusýning þar sem Afi, sem fyrst birtist sjónvarpsáhorfendum fyrir réttum 40 árum, snýr aftur í töfrandi og ævintýralegri sýningu fyrir börn frá 3ja ára aldri og fjölskyldur. Við sláumst í för með Afa í æsispennandi ferðalag um framandi slóðir þar sem ekkert er eins og það sýnist. Afi – Ævintýri í uppsiglingu er hjartnæm og bráðskemmtileg leiksýning sem vekur hlýjar minningar og gleður.
38
SJÁ NÁNAR
Þær Agnes leikstjóri, Eva Björg leikmyndaog búningahöfundur og Sigrún tónhöfundur hafa áður meðal annars skapað hinar margrómuðu sýningar Blómin á þakinu og Hreiðrið í Þjóðleikhúsinu. Agnes leikstýrði Grímuverðlaunasýningunni Línu Langsokk í Þjóðleikhúsinu á síðasta leikári. Aldursviðmið: 3ja ára og eldri.
Hinn eini sanni Afi er loksins mættur í Þjóðleikhúsið
L I T L A SV I Ð I Ð
Frumsýning í janúar 2027
Leikarar: Örn Árnason, Helga Salvör Jónsdóttir, Jónmundur Grétarsson.
AFI Ævintýri í uppsiglingu
GULI DREGILLINN
Leikritahátíð Þjóðleikhússins í Kassanum í apríl
L E I KRRA I TA HIÁÐTI Ð ÍÐ STÓ SV
Leikritahátíð Þjóðleikhússins haldin í þriðja sinn Eftir tvær geysivelheppnaðar hátíðir verður Guli dregillinn á sínum stað á komandi leikári Hin nýja leikritahátíð Þjóðleikhússins, Guli dregillinn, hefur fest sig í sessi. Í þriðja sinn kynnum við þrjú glæný og spennandi íslensk leikrit. Markmið hátíðarinnar er að auka stuðning hússins við íslenska leikritun enn frekar og veita fleiri höfundum rými og aðstöðu til að skrifa leikverk í skapandi samtali við Þjóðleikhúsið. Ekki síst býður Guli dregillinn áhorfendum að kynnast nýjum íslenskum leikritum sem gætu átt sér framhaldslíf ýmist innan eða utan veggja Þjóðleikhússins. Handritin lifna við í formi æfðs leiklestrar, við ræðum við höfundana um verkin og fögnum síðan saman í lok hátíðar. Verið með okkur á næsta Gula dregli og kynnist því nýjasta og ferskasta í íslenskri leikritun! Höfundar á Gula dreglinum 2027 Brynja Hjálmsdóttir hefur komið víða við á ritvellinum, gefið út tvær ljóðabækur, skáldsöguna Friðsemd og er höfundur leikritsins Ókyrrð sem kom út hjá Unu útgáfuhúsi árið 2022. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir verk sín, en þetta er í fyrsta sinn sem leikrit eftir hana verður flutt á fjölum Þjóðleikhússins. Í verkum Brynju ólgar gáskafullur og hrífandi kraftur sem kemst nú í snertingu við leikhúsgesti í fyrsta sinn.
40
SJÁ NÁNAR
Ragnar Ísleifur Bragason er löngu orðinn íslenskum leikhúsgestum kunnur sem meðlimur leikhópanna Kriðpleir og 16 elskendur. Ragnar er þekktur fyrir einstakan húmor, meinfyndna sýn á hversdagsleikann og sjarmerandi sviðsframkomu. Ragnar starfaði sem leikskáld Borgarleikhússins á árunum 2024-26, en þetta er í fyrsta sinn sem hann sest í höfundastól í Þjóðleikhúsinu og skrifar verk fyrir leikhóp hússins. Sigurður Ámundason er myndlistarmaður sem hefur á undanförnum árum borið með sér ferska vinda inn í íslenskt sviðslistalíf með leikritunum Hið ósagða og Rómantísk gamanmynd, en bæði þessi verk hlutu tilnefningar til Grímunnar sem leikrit ársins. Einstök og frumleg nálgun Sigurðar, sem stígur inn í leikhúsið á forsendum gjörninga- og kvikmyndalistarinnar, hefur hrifið leikhúsáhugafólk með ferskleika sínum og fyndni, en ekki síður dýpt og mannskilningi.
H Ö F U N DASTA R F
Kraftmikið höfundastarf í Þjóðleikhúsinu Að undanförnu hefur Þjóðleikhúsið lagt höfuðáherslu á frumsköpun og nýja íslenska leikritun. Leikhúsið leggur áherslu á að efla íslenska leikritun og styður höfunda á ólíkum aldri og með ólíkan bakgrunn með margvíslegum hætti. Við tökum handrit og hugmyndir að leikritum á ólíkum vinnslustigum til skoðunar, köllum reglulega eftir leikritum af ólíku tagi, kaupum tilbúin verk og ráðum höfunda til að skrifa ný verk. Verk í þróun, frumsköpun, nýjar sögur og leikrit sem tala til samtímans Ávallt eru fjölmörg spennandi verkefni á ýmsum stigum í þróun í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Nú eru leikverk eftir höfundana Hafstein Níelsson, Ólíver Þorsteinsson, Hrafnhildi Hagalín, Tyrfing Tyrfingsson, Mazen Maarouf, Ebbu Katrínu Finnsdóttur, Unu Þorleifsdóttur, Birni Jón Sigurðsson og fleiri í þróun í leikhúsinu okkar. Vinnustofa höfunda Leikhúsið býður völdum höfundum sem eru að þróa spennandi verk vinnuaðstöðu í Þjóðleikhúsinu í 1-2 mánuði í senn. Höfundar fá aðgang að skrifstofu og býðst að eiga samtal við dramatúrga og annað listafólk hússins. Á þessu leikári munu höfundar af Gula dreglinum nýta sér vinnustofu höfunda, en einnig Gígja Hilmarsdóttir og Anna Rós Árnadóttir.
Söngleikjasmiðja Mikil gróska er um þessar mundir í söngleikjagerð á Íslandi, sem meðal annars má sjá vott um í hinum geysivinsæla söngleik Þjóðleikhússins Ormstungu, sem saminn er af ungum höfundum á þrítugsaldri. Þjóðleikhúsið bregst við þessum mikla áhuga með því að bjóða upp á námskeið og höfundasmiðjur í söngleikjagerð, en hvort tveggja verður auglýst í byrjun leikárs. Falk Richter og Benedict Andrews skrifa fyrir Þjóðleikhúsið Tveir heimsþekktir leikhúsmenn eru nú með leikverk í smíðum sem verða frumflutt í Þjóðleikhúsinu. Falk Richter, sem er einn eftirsóttasti leikstjóri og leikskáld í Evrópu um þessar mundir, vinnur nú að nýju leikverki fyrir Þjóðleikhúsið, sem hann mun leikstýra hér haustið 2028. Jafnframt vinnur hinn heimsþekkti leikstjóri og leikskáld Benedict Andrews, sem hlaut Grímuverðlaunin á síðasta leikári fyrir leikrit sitt Óresteiu, að nýju verki fyrir Þjóðleikhúsið. Heyrðu í okkur Handrit, hugmyndir að leikritum eða óskir um vinnustofu má senda á leikritun@leikhusid.is.
BELONGING? Spennandi blanda af uppistandi og öðrum atriðum frá fjölbreyttum hópi flytjenda.
Bls. 45
TÓMA RÝMIÐ Tilraunavettvangur sviðslistafólks úr ólíkum áttum.
Bls. 46
PISSUDÚKKUR Bráðfyndið nýtt íslenskt leikrit um konur og bókaklúbba þar sem allt getur gerst.
Bls. 45
KJALLARAKABARETT Kokteill af búrleski, kabarett, sirkus, dragi og ,,alls konar fullorðins“ fyrir fólk sem hlær hátt!
Bls. 46
Klassabúllan í Kjallaranum iðar af lífi í vetur Í klassabúllunni í Leikhúskjallaranum er boðið upp á fjölbreytta, þétta og krassandi dagskrá, allt frá búrleski til opins dansgólfs, frá tilraunakvöldum til frumsýningar nýs íslensks leikverks. Það er aldrei að vita hvað kemur upp úr suðupotti Kjallarans. Vertu með, taktu drykkina með þér inn í sal og slepptu fram af þér beislinu í gleðinni!
Listrænn stjórnandi: Melkorka Gunborg Briansdóttir.
42
SJÁ NÁNAR
ÖSKU(F******)BUSKA Nýtt dansverk í vinnslu, innblásið af ævintýrinu um Öskubusku og stjúpsysturnar.
Bls. 46
IMPROV ÍSLAND Improv heldur áfram að kitla hláturtaugar Kjallaragesta öll miðvikudagskvöld.
Bls. 47
HARRÝ OG HEIMIR Þríeykið ástsæla heldur áfram að leysa svakaleg svakamál í Leikhúskjallaranum.
Bls. 44
JÓLIN Á SUÐUPUNKTI Raddbandið reynir aftur að redda jólunum, nú enn stressaðra en áður.
Bls. 47
SÖNGLEIKURINN KABARETT Á Kabarettklúbbnum Kit Kat getur þú gleymt öllum áhyggjum! Verðlaunasöngleikurinn snýr aftur.
Bls. 44
DJ BENWAH: THERAPY Leikstjórinn Benedict Andrews tryllir gesti Þjóðleikhúskjallarans sem plötusnúður.
Bls. 47
KJA L L A R I N N
Harrý og Heimir MORÐ SKULU STANDA Nýjasta sýningin um Harrý og Heimi sló sannarlega í gegn í Leikhúskjallaranum á síðasta leikári, með troðfullum sýningum. Harrý og Heimir eiga að baki fjölda sprenghlægilegra sakamálaleikrita í útvarpi, geysivinsælu leiksýninguna Með öðrum morðum og kvikmyndina Morð eru til alls fyrst. Nú er Leikhúskjallarinn, með alla sína reykmettuðu skugga og skúmaskot, orðinn vettvangur æsilegra rannsókna þeirra. Ekki missa af sýningum haustsins!
Leikstjórn: Þröstur Leó Gunnarsson Höfundar og leikarar: Karl Ágúst Úlfsson, Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason
Söngleikurinn Kabarett SLÓ RÆKILEGA Í GEGN OG NÚ ER ENGIN LEIÐ AÐ HÆTTA Leikhús ókunnuga fólksins sýndi stórsöngleik í Kjallaranum á síðasta leikári, allar sýningar fylltust og sýningin hlaut Grímuverðlaunin fyrir dans- og sviðshreyfingar. Ódauðleg klassík sem fjallar á ögrandi hátt um samfélag á heljarþröm. Leikstjórn: Bjartur Örn Bachmann Höfundar: John Kander, Fred Ebb og Joe Mastroff Dans og sviðshreyfingar: Júlía Kolbrún Sigurðardóttir, Sally Cowdin Leikarar: Almar Blær Sigurjónsson, Tómas Howser, Una Ragnarsdóttir, Júlía Hannam, Magnús Loftsson, Stefán Þór Þorgeirsson, Sigríður Ásta Olgeirsdóttir og fleiri.
44
Belonging? AÐ VERA INNFLYTJANDI Á ÍSLANDI ER FYNDNARA EN ÞÚ HELDUR Þjóðleikhúsið býður listafólki með ólíkan bakgrunn, úr ólíkum menningarkimum að láta ljós sitt skína í Kjallaranum. Fjórum sinnum yfir leikárið mun viðburðaröðin Belonging? bjóða upp á blöndu af uppistandi og öðrum atriðum frá fjölbreyttum hópi flytjenda, þar sem innflytjendur á Íslandi deila sprenghlægilegum sögum úr sínum reynsluheimi og spyrja hvort þau geti nokkurn tíma tilheyrt samfélaginu á þessari eyju. Dagskráin fer fram á ensku.
Belonging? features immigrant comedians with a rotating cast doing stand-up in English and sharing the funny sides of being a foreigner in Iceland. All four shows over the theatre season ask the same question: „Can we ever really belong on this island?"
Listrænn stjórnandi: Daniel Byung-chan Roh
Pissudúkkur ABSÚRD GAMANLEIKUR MEÐ DRAMATÍSKUM UNDIRTÓNI Þær eru búnar að vera saman í bókaklúbbi í 35 ár. Og nú á að halda upp á það með því að taka fyrir heimsfrægu verðlaunabókina Pissudúkkur eftir Helen Johnson. En hvernig er hægt að ræða bók sem bara sumar hafa lesið, aðrar til hálfs eða jafnvel alls ekki? Bráðfyndið nýtt íslenskt leikrit sérstaklega skrifað fyrir hóp leikkvenna sem tilheyra þriðja aldursskeiðinu, sem fjallar meðal annars um listina að lesa og hlusta. Leikhópurinn Leikhúslistakonur 50+ sem stendur að sýningunni hlaut tilnefningu til hvatningarverðlauna Grímunnar vorið 2026.
Höfundur og leikstjóri: Hlín Agnarsdóttir Leikmynd og búningar: Helga Björnsson Leikarar: Edda Þórarinsdóttir, Guðbjörg Thoroddsen, Júlía Hannam, Lilja Þórisdóttir, Rósa Guðný Þórsdóttir, Vilborg Halldórsdóttir, Þórey Sigþórsdóttir.
KJA L L A R I N N
Ösku(f*****)buska ÆVINTÝRI, BALLETT, UPPISTAND, PÍANÓTÓNLEIKAR OG HREINSUNARELDUR
Tóma rýmið
Verk í vinnslu eftir Ernu Ómarsdóttur, Sögu Kjerúlf Sigurðardóttur og Höllu Ólafsdóttur í samstarfi við RDF. Á sviðinu eru þrír dansarar og tveir píanóleikarar sem leiða okkur inn í óreiðukennda leit að von á meðan við elskum að hata að vera þvinguð í einvíð form. Eða skó.
TILRAUNAVETTVANGUR SVIÐSLISTAFÓLKS
Hljóðfæraleikur: Erna Vala Arnardóttir og Romain Þór Denuit.
Á undanförnum árum hafa meðlimir Tóma rýmisins staðið fyrir tilraunakvöldum þar sem sviðslistafólk úr ólíkum áttum sýnir brot úr verkum í vinnslu og gerir tilraunir. Nú tekur Tóma rýmið yfir Kjallarann og býður áhorfendum að sjá það allra ferskasta í íslenskum sviðslistum! Listrænn stjórnandi: Hallveig Kristín Eiríksdóttir
Kjallarakabarett Kjallara kabarett SEINT, SVEITT OG SEIÐANDI
Sjötta leikárið í röð fyllir Kjallarakabarett Þjóðleikhúskjallarann af ögrandi, fjölbreyttum og ferskum listamönnum, hlátri, seiðandi stemningu, glettni og glöðum gestum. Sex Kabaretthelgar í vetur er boðið upp á kokteil af búrleski, kabarett, sirkus, dragi og „alls konar fullorðins“ fyrir fólk sem hlær hátt! Hver sýning er ólík annarri og stór hópur listamanna víðsvegar að úr heiminum kemur fram. Sýningin er svo sannarlega bönnuð börnum og hentar ekki þeim sem óttast undur mannslíkamans. Listrænir stjórnendur: Margrét Erla Maack & Gógó Starr
46
Improv Ísland
SPRENGHLÆGILEG KVÖLDSKEMMTUN
Spunasýningar Improv Ísland á miðvikudagskvöldum hafa fest sig í sessi meðal skemmtilegustu viðburða íslenskrar sviðslistasenu. Hver sýning er í senn frumsýning og lokasýning á fersku gríni sem verður til á staðnum. Improv hlaut tilnefningu til hvatningarverðlauna Grímunnar vorið 2026.
Jólin á suðupunkti RADDBANDIÐ REYNIR AÐ REDDA JÓLUNUM!
Eftir vel heppnaða frumraun síðasta vetur mæta ofurkonurnar í Raddbandinu aftur í Leikhúskjallarann stressaðri, þreyttari og með enn fleiri bolta á lofti. Ná þær að töfra fram yndisleg jól fyrir fjölskylduna í tæka tíð eða tryllast þær á sjálfsafgreiðslukassanum í Bónus? Fjörug kvöldstund þar sem tónlist, leikhús og dans renna saman á galsafenginn hátt! Höfundar og leikarar: Auður Finnbogadóttir,
Listrænn stjórnandi: Sara Rut Arnardóttir
Rakel Björk Björnsdóttir og Viktoría Sigurðardóttir.
We need to dance. We need disco. We need THERAPY.
DJ Benwah: Therapy Boogie oogie oogie until you just can’t boogie no more! Benedict Andrews er fyrst og fremst þekktur sem leikstjóri og leikskáld í fremstu röð, en á þessu leikári mun hann líka trylla gesti Þjóðleikhúskjallarans sem plötusnúður undir nafninu DJ Benwah. Valin kvöld í vetur mun hann þeyta skífum fram á nótt, eftir að sýningum á Stóra sviðinu lýkur. Descend into the basement. A single strobe. A cloud of smoke. Underground disco. Dirty house music. DJ Benwah (Benedict Andrews) + special guest DJs.
F R ÆRÐAS LSV A IÐIÐ STÓ
Umræður, fræðsla og textun Við opnum heim leikhússins og bjóðum upp á fræðslu af ólíku tagi • Umræður með þátttöku listamanna eftir 6. sýningu á uppfærslum leikhússins fyrir fullorðna. • Textun á ensku og íslensku á 7. sýningu valinna verka, sjá nánar á leikhusid.is. • Leikhússkóli Þjóðleikhússins fyrir ungt fólk. Sjá bls. 34. • Starfskynningar. • Námskeið fyrir áhugaleikfélög. Sjá bls. 30. • Leikhús- og óperunámskeið í samstarfi við Endurmenntun HÍ. Sjá á leikhusid.is og Endurmenntun.is
Skoðunarferðir
Þjóðleikhúsið býður upp á skoðunarferðir um leikhúsið fyrir hópa til að gefa þeim kost á því að fræðast um leikhúsið og starfsemi þess, þeim að kostnaðarlausu. Dagsetningar skoðunarferða má finna á heimasíðu leikhússins þar sem jafnframt er hægt að bóka þær.
JARÐSKJÁLFTAR Í LONDON eftir Mike Bartlett
Frumsýning í Kassanum í maí 2027
Útskriftarhópur leikarabrautar Listaháskóla Íslands Benedikt Erlingsson leikstýrir útskriftarárgangi leikaranema Listaháskóla Íslands vorið 2027. Lokaverkefni nemenda að þessu sinni er leikritið Jarðskjálftar í London sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu í London árið 2010. Jarðskjálftar í London er magnþrungið verk um loftslagsbreytingar, spillingu stórfyrirtækja, fjölskyldutengsl og ábyrgð einstaklingsins gagnvart samfélaginu.
48
Útskriftarhópur: Ágúst Örn Börgesson Wigum, Baldur Björnsson, Freysteinn Sverrisson, Guðjón Ragnarsson, Gúa Margrét Bjarnadóttir, Kolbeinn Sveinsson, Lísbet Sveinsdóttir, Óskar Snorri Óskarsson, Rán Ragnarsdóttir, Sigríður Ragnarsdóttir. Leikstjórn: Benedikt Erlingsson Þýðing: Heiðar Sumarliðason
SJÁ NÁNAR
O P I Ð KO RT
Opið kort fyrir 13-25 ára
Sjáðu allt - eins oft og þú vilt!
Opið áskriftarkort á fáránlega góðu verði, 1.590 kr. á mánuði! • Geysivinsælt áskriftarkort fyrir 13-25 ára. • Áskrift í 10 mánuði. • 1.590 kr. á mánuði. • Þú bókar miða samdægurs. • Þú getur komið aftur og aftur á allar uppsetningar
Þjóðleikhússins. (Gildir ekki á sýningar í Þjóðleikhúskjallaranum eða samstarfssýningar). • Gildir aðeins fyrir eiganda kortsins.
Þú getur séð allar uppsetningar Þjóðleikhússins og mátt koma aftur og aftur! 25 ára og yngri geta einnig keypt Leikhúskort með 50% afslætti af miðaverði.
SJÁ NÁNAR
TITILL SÝNINGAR
Leikstjórn: Nafn Eftirnafn
eftir Nafn Eftirnafn
G JA R FA STÓ AKO SVRT IÐIÐ
Leikmynd: Nafn Eftirnafn
Frumsýning mánuður 2026
Búningar: Nafn Eftirnafn Tónlist: Nafn Eftirnafn Lýsing: Nafn Eftirnafn Hljóðhönnun: Nafn Eftirnafn Sviðshreyfingar: Nafn Eftirnafn
jóladagskrá fyrir aldraða sem hefur notið Aðventustund á Skemmtileg mikilla vinsælda. Leikarar og söngvarar ferðast um og dvalarheimilum gleðja þá sem eiga óhægt um vik að skella sér í leikhús.
Upplýsingar
Aðgengi
Gjafakort er gjöf sem gefur! Gjafakort Þjóðleikhússins er ávísun á ógleymanlega kvöldstund! Þau sem þú vilt gleðja velja sér þá leiksýningu sem þau eru spenntust fyrir. Hægt er að auka við gjöfina með veitingum fyrir sýningu og í hléi. Einnig er hægt að velja tiltekna upphæð til að setja á gjafakortið. Þú getur keypt gjafakortin okkar vinsælu á vefnum eða í síma 551 1200.
Frábær gjöf fyrir starfsmannahópinn
Aðgengi hreyfihamlaðra að Þjóðleikhúsinu hefur verið stórbætt á liðnum árum og stöðugt er unnið að úrbótum í aðgengismálum í leikhúsinu.
• Fyrir heyrnarskerta: Tónmöskvar fyrir Stóra sviðið fást afhentir í veitingasölu fyrir allar sýningar. Táknmálsaðgengi að ákveðnum sýningum. • Fyrir áhorfendur með taugafrávik: Boðið verður upp á aðgengilegar sýningar, svokallaðar „afslappaðar sýningar“ (relaxed performances) þar sem er hugað sérstaklega að þeim sem eru skynsegin (neurodivergent) og geta verið viðkvæmir fyrir ýmiss konar skynáreiti. Í tengslum við skynvænt sýningarhald leikhússins er gert kynningarefni til að auðvelda viðkomandi aðgengi að sýningunum. • Á heimasíðu leikhússins má sjá ljósmyndir af aðgengi að ólíkum sviðum hússins.
• Kveikjuviðvaranir fyrir allar sýningar er að finna á vef leikhússins. • Textun á íslensku og ensku á 7. sýningu á völdum sýningum. • Bílastæði fyrir hreyfihamlaða og lyfta: Stóra sviðið og Kjallarinn; bílastæði fyrir framan aðalbyggingu við Hverfisgötu og lyfta austan megin. Kassinn; bílastæði og rampur fyrir framan húsið við Lindargötu. Nánar á vef leikhússins. • Fyrir sjónskerta: Boðið er upp á sjónlýsingu á valdri sýningu á leikárinu.
Þjóðleikhúsblaðið, leikárið 2026 - 2027
Útgefandi: Þjóðleikhúsið Þjóðleikhússtjóri: Magnús Geir Þórðarson Ábyrgðarmaður: Jón Þorgeir Kristjánsson Ritstjórn: Melkorka Tekla Ólafsdóttir, Melkorka Gunborg Briansdóttir, Magnús Geir Þórðarson, Jón Þ. Kristjánsson, Sváfnir Sigurðarson, Finnur Bjarnason Hönnun og útlit: ENNEMM og markaðsdeild Þjóðleikhússins Ljósmyndir: Anton B. Alfreðsson, Ari Magg, Atli Thor, Elena Otto, Jorri, Jón Kaldal, Owen Fiene og fleiri. Prentun: Prentmet-Oddi Þjóðleikhúsið, Hverfisgötu 19 SJÁ NÁNAR
Gjafakort í Þjóðleikhúsið er tilvalin gjöf fyrir starfsmannahópinn. Hægt er að fá tilboð á gjafakortum fyrir hópinn þinn með því að senda póst á midasala@leikhusid.is.
Fylgdu okkur! Facebook
Þjóðleikhúsið
Póstlistinn
Vefurinn
Leikarar:leikhusid.is/postlisti Nafn Eftirnafn, Nafn Eftirnafn, Leikhusid leikhusid.is
Nafn Eftirnafn, Nafn Eftirnafn, Nafn Eftirnafn, Nafn Eftirnafn, Nafn Eftirnafn, Miðasala: 551 1200, midasala@leikhusid.is, www.leikhusid.is Nafn Eftirnafn, Nafn Eftirnafn.
Gerðu kvöldið enn eftirminnilegra með því að gleðja bragðlaukana fyrir sýningu eða í hléi. Auðvelt er að panta veislubakka eða aðrar veitingar fyrirfram þegar þú kaupir leikhúsmiðann og veitingarnar bíða þín tilbúnar á fráteknu borði. Hópar geta borið fram sérstakar óskir um veitingar með því að senda okkur línu á midasala@leikhusid.is. Að auki býðst að sjálfsögðu fjölbreytt úrval drykkja og veitinga á leikhúsbarnum. Sjáðu úrval veitinga í boði á leikhusid.is.
Pantaðu veitingar fyrirfram Ef þú hefur þegar keypt miða og vilt bæta veitingum við þá gerir þú eftirfarandi: Skref 1 Opnaðu bókunarstaðfestingu sem þér barst í tölvupósti eftir miðakaup og smelltu á „Skoða bókun.“ Skref 2 Smelltu á „Panta veitingar“ og bættu við pöntunina þína öllu sem hugurinn girnist. Athugið að pantanir þurfa að berast í síðasta lagi 48 klst. fyrir sýningu.
VEITINGAR FYRIR HÓPA Hópurinn þinn getur borið fram sérstakar óskir um veitingar. Sendu okkur línu á midasala@leikhusid.is
VEITINGAR
Ljúffeng upplifun fyrir öll skynfæri!
Miðasala | 551 1200 | midasala@leikhusid.is | leikhusid.is