Haust 2019
ÁHUGI ER ALLT SEM ÞARF Áhugi er allt sem þarf. Og elja. Og ástríða. Og reyndar kapp, en líka forsjá. Það sem ég er að reyna að segja er að áhugi skiptir öllu máli, því hann felur í sér allt sem á eftir er talið. Listin sprettur úr lífi okkar, hún sýnir okkur líf okkar í nýju ljósi og um leið auðgar hún líf okkar með því að auka skilining okkar á sjálfum okkur, með því að vekja spurningar, með því að veita svör, með því að rugla okkur í ríminu - nú, eða einfaldlega með því að fá okkur til að hlæja, gráta, reiðast, skella okkur á lær, en líka velta vöngum. Og þetta hefur verið hlutverk listarinnar allt frá upphafi og þar hefur áhugafólk gegnt lykilhlutverki. Áhugafólk hefur haldið listinni lifandi allt frá því að fyrsti áhugalistamaðurinn markaði fyrsta listaverkið á hellisvegg eða sló fyrst priki í jörðina í föstum takti eða hermdi í fyrsta sinn eftir fugli eða fiski, eða hvað það nú var sem gerðist fyrst. Enginn greiddi honum eða henni fyrir viðvikið, en gjörningurinn markaði tímamót í mannksynssögunni. Allar götur siðan hefur listin auðgað líf mannskynsins, hvort sem umrætt mannkyn hefur verið meðvitað um það eða metiið það að verðleikum. Við sem söfnumst saman hér í Frumleikhúsinu í kvöld vitum hins vegar öll sem eitt að samfélag án listar er snautt samfélag, dauft samfélag - já, eiginlega dautt samfélag. Þó að ég hafi átt að heita atvinnumaður í sviðslistum í bráðum 40 ár verð ég að fá að monta mig af því að hafa allan þann tíma líka verið áhugamaður. Og reyndar miklu lengur. Rætur mínar liggja í upptroðslum á bekkjaskemmtunum, í áhugaleiksýningum sem fram fóru í bílskúrum, skólasölum og félagsheimilum löngu áður en ég vissi að starf leikarans væri raunverulegt starf. Ég er alltaf þakklátur fyrir uppeldið sem ég fékk sem áhugaleikari og ber alla tíð djúpa virðingu fyrir þeim sem sinna leiklistinni af einskærum áhuga, elju, ástríðu og kappi. En líka forsjá. Það er mér sannur heiður að hafa fengið tækifæri til að vinna með þeim lífsþyrsta hópi sem nú myndar kjarnann í Leikfélagi Keflavíkur. Fyrir gamlan ref úr herbúðum atvinnuleikhússins er það ómetanlegt að komast enn á ný í tengsl við grasrótina og finna áhugann sem kveikir líf í öllu sem hún kemst í snertingu við. Þar á meðal mér sjálfum. Ég lifna við. Ég tendrast upp. Svei mér þá ef ég verð ekki eins og fló á skinni. Karl Ágúst Úlfsson leikstjóri
Ágætu leikhúsgestir Nú er komið að enn einni sýningunni hjá okkur og það er engin smá sleggja! Við í stjórn leikfélagsins vorum frá fyrsta fundi ákveðin í því að setja upp farsa eftir 6 ára pásu frá þeim frábæra leikstíl. Eftir litla umhugsun ákváðum við að sett yrði á svið Leikfélags Keflavíkur hið bráðfyndna verk “Fló á skinni” í þýðingu Gísla Rúnars sem sló í gegn hjá Leikfélagi Akureyrar árið 2008. Við vissum strax að þetta yrði krefjandi verkefni og þar af leiðandi þyrftum við að ráða leikstjóra sem hefði mikla reynslu af leik og gríni, þá hugsuðum við með okkur “hvaða aðilar hafa mestu reynsluna í gríni á Íslandi?” og svarið var mjög einfalt....SPAUGSTOFAN! Blessunarlega var Karl Ágúst laus og til í að taka á þessu verkefni með okkur og það hefur verið mikill heiður og forréttindi að fá að vinna með honum síðastliðnar vikur. sviðsmyndin er eins sú flóknasta sem gerð hefur verið í Frumleikhúsinu, allavegana sem að ég man eftir, og hafa fleiri tugir klukkustunda farið í smíði og uppsetningu hennar og heppnaðist hún svona líka vel þó ég segi sjálfur frá! Ég vil að lokum þakka öllum þeim sem hafa aðstoðað okkur í allri þeirri vinnu sem fylgir uppsetningu á þessu verki og óska þér kæri leikhúsgestur góðrar skemmtunar. Fyrir hönd Leikfélags Keflavíkur, Sigurður Smári Hansson
Fólkið á bakvið tjöldin Leikstjóri: Karl Ágúst Úlfsson Höfundur: Georges Feydeau Þýðandi: Gísli Rúnar Jónsson Aðstoðarmenn leikstjóra: Brynja Ýr Júlíusdóttir og Sandra Dís Arnarsdóttir Ljósahönnun: Þórhallur Arnar Vilbergsson Ljósakeyrsla: Arnór Sindri Sölvason Hljóðvinnsla: Júlíus Freyr Guðmundsson og Arnór Sindri Sölvason Leikmunir: Hópurinn Búningahönnun: Ásdís Erla Guðjónsdóttir Leikmyndahönnun: Davíð Örn Óskarsson Sviðsvinna: Sigurður Smári Hansson, Jón Bjarni Ísaksson, Ingvar Elíasson, Svanur Kristjánsson og hópurinn Sviðsmenn: Sýningarstjóri: Ljósmyndir og grafísk hönnun: Umbrot leikskrár:
Unnar Már Pétursson og hópurinn Brynja Ýr Júlíusdóttir Davíð Örn Óskarsson Grafíksmíði
Hlutverkalisti Jóhannes Ringsted/Klemmi: Jón Bjarni Ísaksson Saga Ringsted: Jóhanna Jeanne Caudron Jóhann S. Ringsted: Guðsteinn Fannar Ellertsson Miroslaw Slowacki: Guðlaugur Ómar Guðmundsson Þórgunnur Konráðs: Guðrún Elva Níelsdóttir Finnur Bollason: Sigurður Smári Hansson Erlendur Karl: Andri Snær Sölvason Eiður: Arnar Ingi Tryggvason/Arnar Helgason Tína: Rakel Halldórsdóttir Sveinbjörg: Hulda Björk Stefánsdóttir Ella: Sólborg Guðbrandsdóttir Þrándur: Elmar Aron Hannah Helmut Edelstein: Ingvar Elíasson
Stjórn Leikfélags Keflavíkur 2019-2020 Formaður:
Sigurður Smári Hansson
Varaformaður:
Hulda Björk Stefánsdóttir
Gjaldkeri:
Jón Bjarni Ísaksson
Ritari:
Brynja Ýr Júlíusdóttir
Meðstjórnandi:
Þórhallur Arnar Vilbergsson
Varamenn:
Arnar Helgason og
Guðlaugur Ómar Guðmundsson
Saman hugum við að heilsunni Opið Virka daga 9-20 Helgar 12-19 Hólagötu 15 260 Reykjanesbæ S: 421-3393 /reykjanesapotek
/reykjanes.apotek
reykjanesapotek.is
Svipmyndir frá æfingum
Andri Snær Sölvason
Elmar Aron Hannah
unnar már Péturssin
Jón Bjarni Ísaksson
Jóhanna Jeanne Caudron
Rakel Halldórsdóttir
Arnar Ingi Tryggvason
Lei hópur
eik purinn
Guðlaugur Ómar Guðmundsson
Ingvar Elíasson
Guðrún Elva Níelsdóttir
Hulda Björk Stefánsdóttir
Arnar Helgason
Sólborg Guðbrandsdóttir
Guðsteinn Fannar Ellertsson
Sigurður Smári Hansson
Sérstakar þakkir Bjarni Róbert Jónsson Freymóður Jensson Geimsteinn Kompan - Nytjamarkaður Fjölsmiðjunnar Lindex Rauði Krossinn Sjón Gleraugnaverslun Lubbi Peace
Til taks OFT Á KVÖLDIN FÆ ÉG ÞESSA FLUGU’ Í HÖFUÐIÐ FINNST ÉG VERÐA’ SJÁ ÞIG STRAX TEK UPP SÍMANN ÞVÍ ÉG ÞOLI ENGA BIÐ ÞRÁI AÐ ÞÚ SÉRT TIL TAKS TIL TAKS Á ÖLLUM TÍMUM DAGS MEÐ FIÐRILDI Í MAGANUM OG FIÐRING HÉR OG ÞAR Í FRAMAN EINS OG REYKTUR LAX ALLAN DAGINN VON’AÐ ÞÚ VEITIR JÁKVÆTT SVAR VERÐIR EINS OG ÉG TIL TAKS TIL TAKS Á ÖLLUM TÍMUM DAGS ÞVÍ AÐ INNST HÉR INNI ER ÉG EINS OG FLÓ Á SKINNI OG Í SÁLU MINNI VÆLIR RÁMUR SÓLÓ SAX OG Í NÁVIST ÞINNI VERÐ ÉG EINS OG FLÓ Á SKINNI OG MÉR FINNST ÉG FINNI ÓLGUNA SEM ER TIL TAKS TIL TAKS Á ÖLLUM TÍMUM DAGS ÉG SENDI TIL ÞÍN ESSEMMESS OG ÍMEIL EÐA SNAPP OG ÁFRAMSENDI OG FAX OG SPYR ÞIG FEISBÚKK GEGNUM ALVEG GLÆNÝTT APP Í ANGIST HVORT ÞÚ SÉRT TIL TAKS TIL TAKS Á ÖLLUM TÍMUM DAGS ÉG VIL ÞAÐ SÉ Á HREINU AÐ ÉG HRÆÐIST EKKI NEITT HÆÐNISGLÓSUR ALLS KYNS PAKKS ÉG ELSKA ÞIG SVO OFBOÐSLEGA HEITT OG ÆVINLEGA VERÐ ÉG TIL TAKS TIL TAKS Á ÖLLUM TÍMUM DAGS ÞVÍ AÐ INNST HÉR INNI ER ÉG EINS OG FLÓ Á SKINNI OG Í SÁLU MINNI VÆLIR RÁMUR SÓLÓ SAX OG Í NÁVIST ÞINNI VERÐ ÉG EINS OG FLÓ Á SKINNI OG MÉR FINNST ÉG FINNI ÓLGUNA SEM ER TIL TAKS TIL TAKS Á ÖLLUM TÍMUM DAGS