Vor 2020
LEIKSTJÓRI: INGRID JÓNSDÓTTIR
HÖFUNDUR: ÓLAFUR GUNNAR GUÐLAUGSSON
ENN Á NÝ Nú er komið að enn einni barnasýningunni hjá okkur! Ávaxtakarfan og Dýrin í Hálsaskógi slógu bæði met á sínum tíma undir leikstjórn Gunnars Helgasonar. Það þótti því gráupplagt að setja upp enn eitt barnaleikritið, en að þessu sinni í leikstjórn Ingridar Jónsdóttur. Benedikt búálfur, eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson, varð fyrir valinu eftir örlitla umhugsun, enda skemmtileg og fjörug sýning sem býður upp á mikla möguleika. Prufur voru haldnar í desembermánuði og æfingar hófust af fullum krafti í janúar og hafa gengið glimrandi vel. Leikhópurinn samanstendur af frábæru ungu fólki, reynsluboltum í bland við nýliða sem eru að stíga sín fyrstu skref á sviði. Þá spilar hljómsveitin sem skipuð er leikfélagsfólki stóran þátt í sýningunni. Við fengum til liðs við okkur frábæra búningahönnuði, danshöfund, sviðsmyndahönnuð, ljósahönnuð og fleiri sem hafa staðið sig einstaklega vel og erum við óendanlega þakklát fyrir þá aðstoð sem þetta fólk hefur lagt til við þessa uppsetningu. Þar sem að æfingarnar gengu svona vel ákvað stjórn Leikfélags Keflavíkur að það þyrfti aðeins að bæta á frumsýningarpressuna og stressið með því að ráðast í allsherjarframkvæmdir hér í húsinu, eins og sjá má. Við lögðum nýtt parket, skiptum um klósett og klósettbása ásamt því að baksviðs aðstaða leikara var betrumbætt. Fleiri framkvæmdir eru á dagskrá á komandi árum og því verður skemmtilegt fyrir ykkur, kæru leikhúsgestir, að fylgjast vel með leikfélaginu næstu misseri. Þetta tók á, en er allt vel þess virði. Þess vegna óskum við þess að þið leikhúsgestir góðir, skemmtið ykkur við að sjá álfheima lifna við og berið upplifun ykkar út í kosmósið. Takk fyrir og góða skemmtun. Fyrir hönd Leikfélags Keflavíkur, Brynja Ýr Júlíusdóttir, ritari
TAKK Þetta er í fyrsta skipti sem ég leikstýri í Frumleikhúsinu hjá Leikfélagi Keflavíkur og er ég mjög þakklát fyrir að þau treystu mér til þess að koma Benedikt Búálfi á svið. Þetta er búið að vera virkilega skemmtilegt, áreynslulaust, jákvætt, hugmyndaríkt, gleðilegt og gefandi samstarf. Ég trúi og veit að við erum með góða sýningu því allir sem taka þátt eru svo hæfileikaríkir. Ég býð áhorfendur velkomna, unga sem aldna. Góða skemmtun. Takk elsku leikararnir mínir og dansarar. Mikið er ég stolt af ykkur. Takk fyrir mikla þolinmæði og takk fyrir ykkar yndislegu jákvæðni. Þið eruð bara í einu orði sagt FRÁBÆR. Takk elsku Jóhanna mín (danshöfundur). Ég hefði ekki getað gert þetta án þín. Þú ert æðisleg í alla staði. Takk elsku hljómsveit. Smári, Ingvar, Davíð, Ómar. Þið eruð snillingar. Þið eigið líka skilið þolinmæðisverðlaun. Takk elsku búningakonurnar mínar. Hildur, Guðríður og Sara. Takk fyrir ykkar ómældu vinnu sem er svo flott. Takk elsku Þórhallur og Davíð fyrir ykkar vinnu. Takk Jóhann Smári fyrir að ljá okkur rödd þína. Takk elsku Brynja mín fyrir ALLT. Takk fyrir mig elsku Frumleikhús. Kossar til ykkar allra. Ingrid Jónsdóttir, leikstjóri
HLUTVERKALISTI
Benedikt búálfur: Jón Ragnar Magnússon Dídí mannabarn: Helga Rut Guðjónsdóttir Jósafat mannahrellir: Unnar Már Pétursson Daði dreki: Tara Sól Sveinbjörnsdóttir Aðalsteinn álfakonungur: Gunnar Gústav Logason Brynhildur álfadrottning: Brynja Ýr Júlíusdóttir Tóti tannálfur: Þórhildur Erna Arnardóttir Sölvar súri: Guðlaugur Ómar Guðmundsson Álfar: Andri Sævar Arnarsson Hafdís Eva Pálsdóttir Klaudia Kuleszewicz Magnús Már Newman Hljómsveitin Píanó: Sigurður Smári Hansson Gítar: Guðlaugur Ómar Guðmundsson Bassi: Davíð Máni Stefánsson Trommur: Ingvar Elíasson
FÓLKIÐ Á BAKVIÐ TJÖLDIN Leikstjóri: Ingrid Jónsdóttir Höfundur: Ólafur Gunnar Guðlaugsson Lagahöfundur: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson Textahöfundur: Andrea Gylfadóttir Danshöfundur: Jóhanna Jeanne Caudron Hljómsveitarstjóri: Sigurður Smári Hansson Tæknistjóri: Þórhallur Arnar Vilbergsson Ljósahönnun: Vignir Hreinsson Hljóðvinnsla: Þórhallur Arnar Vilbergsson Keyrslumenn: Elmar Aron Hannah Yngvi Þór Geirsson Búningahönnun: Hildur Harðardóttir Búningagerð: Guðríður Hafsteinsdóttir, Hildur Harðardóttir Sara Dögg Gylfadóttir Hár og förðun: Birgitta Ösp Smáradóttir Jóhanna Jeanne Caudron Snezana Medic Ríta Kristín Haraldsdóttir Hópurinn Hvíslarar: Ríta Kristín Haraldsdóttir Jóhanna Jeanne Caudron Leikmyndahönnun & grafík: Davíð Örn Óskarsson Sviðsvinna: Davíð Örn Óskarsson Arnar Helgason Hópurinn Sýningarstjóri: Ríta Kristín Haraldsdóttir Ljósmyndir: Davíð Örn Óskarsson Umbrot leikskrár: Grafíksmíði
LEIKARAR
Guðlaugur Ómar
Unnar Már
Andri Sævar
Klaudia
Gunnar Gústav
Tara Sól
Brynja Ýr
Magnús Már
Jón Ragnar
Hafdís Eva
Helga Rut
Þórhildur Erna
HLJÓMSVEITIN
Tónlistin, sem samin er af Þorvaldi Bjarna spilar stórt hlutverk í sýningunni sem þið eruð um það bil að verða vitni að og til þess að gera það enn stærra þá tókum við þá ákvörðun að hafa tónlistina lifandi með því að hafa hljómsveit á sviðinu. Hljómsveitarmeðlimirnir eru ekki af verri endanum enda þarf ekki að fara langt til þess að finna færa tónlistarmenn á Suðurnesjunum. Við vonum að tónlistin komist vel til skila og geri þetta ævintýri “Ævintýralegt”. Sigurður Smári Hansson Hljómsveitarstjóri og píanóleikari. Hefur verið virkur í starfi leikfélagsins frá árinu 2011 og tók við sem formaður árið 2018, lærði á trompet í nokkur ár frá 6 ára aldri en er sjálflærður á nokkur önnur hljóðfæri. Hann er meðlimur í sönghópnum Vox felix auk þess að starfa sem trúbador.
Ingvar Elíasson Trommuleikari Tiltölulega farinn að skríða sín fyrstu skref sem trommari þannig séð. Æfði á trommur í 2 ár þegar hann var yngri. Hefur svo verið að æfa óslitið síðan 2018. Hann hefur ekkert trommað neitt fyrir utan tónlistarskólauppákomur fram að þessu. Guðlaugur Ómar Guðmundsson Gítarleikari Er sjálflærður á gítar. Hann hefur starfað sem trúbador með hléum í gegnum tíðina og tekið að sér ýmis tilfallandi verkefni. Fyrrum kórfélagi í Vox Felix og virkur félagi leikfélagsins síðastliðin misseri. Davíð Máni Stefánsson Bassaleikari Er í bassanámi í Tónlistaskóla Reykjanesbæjar og hefur stundað það í 2 ár. Stefnir á MÍT eftir grunnpróf. Hann er líka í hljómsveitinni “DEMO” og er sjálflærður gítarleikari.
Sérstakar þakkir Bauhaus Draumaland Kvennakór Keflavíkur Jóhann Smári Sævarsson Fjölskyldur allra fyrir þolinmæði á æfingar ferlinu.
Stjórn Leikfélags Keflavíkur 2019-2020 Formaður: Sigurður Smári Hansson Varaformaður: Hulda Björk Stefánsdóttir Gjaldkeri: Jón Bjarni Ísaksson Ritari: Brynja Ýr Júlíusdóttir Meðstjórnandi: Þórhallur Arnar Vilbergsson Varamenn: Arnar Helgason og Guðlaugur Ómar Guðmundsson
væntanlegt...
bluebill.is
notaðir bílaleigu bílar til sölu