Vor 2021
Ágætu leikhúsgestir. Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomna í Frumleikhúsið. Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að við erum að ganga í gegnum skrítna tíma og þar er leikhúslífið engin undantekning. Það er okkur því mikils virði að geta loksins boðið gestum uppá leikhúsupplifun í Frumleikhúsinu, leikhúsupplifun sem átti að fara í loftið haustið 2020. Leikfélag Keflavíkur hefur í gegnum árin átt stóran þátt í menningarlífi bæjarbúa og boðið uppá tvær leiksýningar á ári, tekið þátt í uppákomum á vegum bæjarins og vakið athygli víða. Það er ekki að ástæðulausu að grínfarsinn „Beint í æð“ varð fyrir valinu þetta leikárið. Okkur langaði einfaldlega að fá fólk til að gleyma sér eina kvöldstund í hlátri og gleði á þessum tíma takmarkana. Þetta verk „Beint í æð“ hefur áður verið sýnt hjá áhuga- og atvinnuleikhúsum við frábæra aðsókn og hlotið mikið lof gagnrýnenda. Verkið er þýtt af okkar ástkæra leikara og snillingi Gísla Rúnari sem lést árið 2020 langt um aldur fram. Leikstjóra sýningarinnar, Jóel Sæmundsson, þekkjum við vel eftir að hann kom okkur í Þjóðleikhúsið með sýninguna „Mystery boy“ sem áhugaverðustu áhugaleiksýningu ársins árið 2018. Við vissum að hann væri góður kostur fyrir þetta verk og sjáum sko ekki eftir því samstarfi. Það er einlæg ósk okkar allra sem að þessari sýningu stöndum að hún höfði til hláturtauga fólks, lyfti brúnum og brosi allra sem leggja leið sína í Frumleikhúsið. Hendum frá okkur áhyggjum, setjumst niður og leyfum gríninu að taka völdin! Góða skemmtun! -Stjórn Leikfélags Keflavíkur
Kæru leikhúsgestir, verið hjartanlega velkomin á Beint í æð. Hvað er hægt að segja annað en „Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur“.Við manneskjur erum félagsverur og þráum að upplifa og vera í kringum skemmtilegt fólk og njóta þess að hlæja og aldrei meir en á tímum sem þessum. Núna hefur þú, áhorfandi góður, tækifæri til að gleyma 2020 í eina kvöldstund og bara fá að hlæja með öðru skemmtilegu fólki því öll vitum við að þeir sem fara í leikhús, sérstaklega á farsa, eru líka ótrúlega skemmtilegt fólk alveg eins og þú! Þegar ég fékk beiðni um að koma og leikstýra hjá Leikfélagi Keflavíkur, þá þurfti ég ekki að hugsa mig lengi um. Því þvílík gleði og forréttindi að fá að leikstýra jafn metnaðarfullu og hæfileikaríku leikfélagi. Hæfileikar í hverju horni. Aðstaðan sem leikfélagið hefur upp á að bjóða er eflaust ein besta sem áhugaleikhús hafa uppá að bjóða. Árið í ár er búið að vera skrýtið ár, svo ekki sé meira sagt. En eins og skáldið sagði “this too shall pass” og betri tímar eru framundan. Ég hvet ykkur til að vera dugleg að mæta á sýningar hjá Leikfélagi Keflavíkur núna sem og í framtíðinni því þið eruð með eitt besta og metnaðarfyllsta áhugaleikfélag landsins. Ég sem körfuboltastrákur hef alltaf litið á og tengt Reykjanesbæ (íþróttafélögin Keflavík og Njarðvík) sem íþróttabæ, en þegar ég fékk að kynnast öllu þessu frábæra fólki og sjá hvað fólkið í bænum er duglegt að mæta á sýningar, þá er Reykjanesbær núna í mínum huga Leikhúsbær! Njótið kæru gestir og takk fyrir að styðja við leikhúsið í ykkar heimabæ! Þegar þessi pistill var skrifaður þá var árið 2020. Því miður náðist ekki að sýna sýninguna á því ári en ef þetta sýnir ekki metnaðinn hjá leikfélaginu, þá veit ég ekki hvað. Þegar auðveldast hefði verið að pakka saman og hætta þá efldust þau öll sem eitt og ákváðu að taka slaginn og klára þetta með stæl. Núna eru þau tilbúin að taka á móti ykkur með lítinn patta, ég meina pakka, fullan af hlátri og gleði fyrir ykkur! P.s. Ef þér fannst gaman á sýningunni láttu alla þína vini vita! Og ef þér fannst leiðinlegt, láttu þá alla óvini þína vita af henni!
Hlutverkalisti Jón Borgar: Sigurður Smári Hansson Grettir Sig: Jón Bjarni Ísaksson Díana Thors: Sólborg Guðbrandsdóttir Grímur Briem: Unnar Már Pétursson Jórunn: Hulda Björk Stefánsdóttir Frímann: Andri Sævar Arnarsson Súsanna: Tara Sól Sveinbjörnsdóttir Páll Óskar: Júlíus Viggó Ólafsson Loftur: Ingvar Elíasson Manfreð: Guðlaugur Ómar Guðmundsson Gróa: Brynja Ýr Júlíusdóttir Hjúkrunarnemi: Sandra Dís Arnarsdóttir
Jón Bjarni
Hulda Björk
Tara Sól
Unnar Már
Sigurður Smári
Brynja Ýr
Guðlaugur Ómar
Sólborg
Andri Sævar
Sandra Dís
Ingvar
Júlíus Viggó
Fólkið á bakvið tjöldin Leikstjóri: Jóel Sæmundsson Höfundur: Ray Cooney Þýðandi: Gísli Rúnar Jónsson Aðstoðarmenn leikstjóra: Kristín Rán Júlíusdóttir Sandra Dís Arnarsdóttir Ljósahönnun og hljóðvinnsla: Þórhallur Arnar Vilbergsson Ljósakeyrsla: Jóhanna Jeanne Caudron Jóhann Helgi Gíslason Þórhallur Arnar Vilbergsson Leikmunir: Hópurinn Búningar: Hópurinn Hár og förðun: Hópurinn Leikmyndahönnun: Davíð Örn Óskarsson Sviðsvinna: Sigurður Smári Hansson Arnar Helgason Unnar Már Pétursson Ingvar Elíasson Jón Bjarni Ísaksson Júlíus Viggó Ólafsson Sýningarstjórar: Kristín Rán Júlíusdóttir Sandra Dís Arnarsdóttir Ljósmyndir: Davíð Örn Óskarsson Umbrot leikskrár: Grafíksmíði
Stjórn L.K. 2020-2021 Formaður: Sigurður Smári Hansson Varaformaður: Hulda Björk Stefánsdóttir Gjaldkeri: Brynja Ýr Júlíudóttir Ritari: Guðlaugur Ómar Guðmundsson Meðstjórnandi: Ingvar Elíasson Varamenn: Arnar Helgason Unnar Már Pétursson
Sérstakar þakkir Benedikta S. Benediktsdóttir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Lögreglan á Suðurnesjum Guðný Kristjánsdóttir Reykjanesbær Blikksmiðja Á.G. Slippfélagið