NÝR SÖNGLEIKUR EFTIR MEL BROOKS Handrit MEL BROOKS THOMAS MEEHAN
Tónlist og textar á ensku MEL BROOKS
Upprunaleg leikstjórn og kóreógrafía SUSAN STROMAN Í sérstöku samkomulagi með StudioCanal Þessi áhugamannauppsetning er sett upp í samkomulagi með Music Theatre International (Europe). Öll viðurkennd gögn til framkvæmdar eru einnig afhent af MTI Europe. www.mtishows.co.uk
Þýðing handrits og leikgerð
Vala Kristín Eiríksdóttir Þýðing söngtexta
Birkir Blær Ingólfsdóttir Tónlist og undirspil veitt af The MT Pit L.L.C. themtpit.com
Þægilegri bankaþjónusta í Arion appinu Arion appið er besta bankaappið á Íslandi.* Í appinu getur þú: • fundið PIN númerin þín • dreift greiðslum • skoðað launaseðla • fryst týnt kreditkort og margt fleira. Náðu í appið í Google Play og App Store
*Samkvæmt könnun MMR
Kæru Verzlingar og leikhúsgestir, gleðilegt Nemendamót! Loksins er 76. Nemendamót Verzlunarskólans runnið upp. Við í Nemendamótsnefndinni byrjuðum strax í lok mars að leita að söngleik til þess að setja upp og finna listræna stjórnendur. Allt gekk samkvæmt áætlun þar til að okkar helstu leikstjórakandídatar gátu ekki tekið verkið að sér á seinustu stundu. Sem betur fer vorum við komin með dansstjóra, hana Unni Elísabetu og söngstjóra, Margréti Eir. Við vorum vægast sagt hæstánægð með þær báðar. Okkar allra seinasti séns fyrir leikstjórastöðuna var ung leik kona sem við samþykktum að hitta á háalofti Súfistans í Hafnafirði. Vala Kristín var ráðin á staðnum. Eftir mikla hugsun var ákveðið að setja upp söngleikinn The Producers. Þar tókum við áhættu, því söngleikurinn inniheldur meira en 20 laganúmer, rúmlega 200 búninga og hefur aldrei verið settur upp á Íslandi. Við tókum sýninguna að okkur með það í huga að þetta væri án efa erfitt verkefni. Listrænir stjórnendur voru ekki eina vandamálið sem að nefndin stóð frammi fyrir svona snemma á ferlinu. Vegna breytinga hafði Austurbæjarbíó lokað hurðinni á okkur og því hófst leitin að húsnæði. Full af bjartsýni höfðum við samband við Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið og Háskólabíó. Háskólabíó tók okkur að sér með opnum örmum og fljótt var það samþykkt að söngleikurinn okkar yrði settur þar upp. Í lok september voru prufur og 38 manna sviðslistahópur var settur á laggirnar og samanstóð af leikurum, söngvurum, dönsurum og kór. Ferlið sem tók við var viðburðaríkt, en mesti hausverkur nefndarinnar voru 20 stykki af göngugrindum sem við enduðum á að panta frá Bretlandi. Við komust fljótt af því að þessi sýning er mest krefjandi verkefni sem allir sem koma að sýningunni hafa tekið að sér, hvort sem að það sé leikstjóri, nefndin eða sviðslistahópurinn. Því vona ég að þið njótið sýningarinnar jafnvel og við nutum þess að setja hana upp á svið.
Máni Huginsson
Formaður Nemendamótsnefndar 2017 - 2018
Nemendamótsnefnd 2017-2018 Björn Markaðsstjóri
Eygerður
Helga María
Karen
Fjármálastjóri
Katrín
Margrét
Tómas Helgi
Listrænir stjórnendur Vala Kristín
Unnur Elísabet
Leikstjóri
Dansstjóri
Vala Kristín Eiríksdóttir útskrifaðist úr Verzlunarskóla Íslands árið 2011 þar sem leiklistarbakterían kviknaði fyrir alvöru. Þaðan lá leiðin í leikaranám sviðslistadeildar Listaháskóla Íslands og útskrifaðist hún þaðan árið 2015. Síðan þá hefur hún verið í fullu starfi sem leikkona við Borgarleikhúsið. Hún var leikkona og annar tveggja handritshöfunda sketsaþáttanna Þær Tvær sem voru framleiddir af 365 miðlum. Vala leggur stund á “longform improv” eða spuna með Improv Ísland sem sýnir vikulega í Þjóðleikhúskjallaranum. Framleiðendurnir eru fyrsta leikstjórnar verkefni Völu Kristínar.
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir stundaði nám við Konunglega sænska ballettskólann í Stokkhólmi og útskrifaðist þaðan árið 2003. Unnur hefur starfað með Íslenska dansflokknum til fjölda ára en vinnur núna í Borgarleikhúsinu. Unnur hefur sjálf tekið þátt í rúmlega 11 söngleikjum og hefur samið þó nokkur af verkum sjálf. Fyrir tveimur árum samdi hún dansinn við þáverandi söngleik Verzlunarskólans, Moulin Rouge, og í fyrra samdi hún dansinn við Fútlúsz.
Margrét Eir
Birkir Blær
Söngstjóri
Þýðing söngtexta
Margrét Eir Hönnudóttir hefur starfað sem atvinnusöngkona og leikkona á Íslandi í yfir 20 ár. Hún hefur unnið með helstu tónlistarmönnum landsins, sungið inn á margar plötur sem sólósöngvari og bakrödd. Hún hefur komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands og verið hluti af Frostrósum frá upphafi. Af verkefnum Margrétar í leikhúsi má nefna Hárið, Rent, Oliver hjá LA og Vesalingana og Mary Poppins svo eitthvað sé nefnt. Margrét hefur leikstýrt bæði í menntaskólum og áhugaleikúsum. Hún vinnur einnig við að talsetja teiknimyndir.
Juliette Louste Tæknistjóri
Aron M. Ágústsson Ljósahönnuður
Elmar Þórarinsson Grafísk hönnun
Þórður G. Þorvaldsson Hljóðhönnun
Sviðslistahópur
Ingi Þór
Rán
Max Bialystock
Lea Bloom
Berglind
Vilberg
Francesca Liebkind
Roger DeBris
Agla Bríet Ulla
Höskuldur Þór Carmen
Mikael Emil Scott
Kjalar
Vignir Daði
Rannveig Eva
Agnes
Kevin
Andrea
Shirley Markovitz
Frú Banks
Brian
Haltu mér slepptu mér
Selma
Kristín Hekla
Kór
Svava Sól Kór
Kór
Karen Rut Kór
Kolbrún María Dansari
Sigurbjörg Nanna Kór
Helgi Tómas Söngvari
Tómas Arnar Dansari
Kristófer Baldur Dansari
Óli Gunnar Dansari
Viktor Pétur Dansari
Eiður Snær Dansari
Kári
Dansari
Pétur Már Dansari
Elfa Dís Dansari
Bára Dís
Eyrún Inga
Dansari
Dansari
Brynja Dansari
Magdalena Dansari
Silvía Stella Dansari
Harpa Dansari
Helena Lind
Iðunn
Dansari
Dansari
Ólöf Edda Dansari
Andrea Marín Dansari
BORÐAPANTANIR: 575 7575
BOR
A
VERZL INGur INN*
Pantaðu með tölvupósti vers lingur @ fabrikka n.is
@
KAN.I
RANSK
VERS
NGUR
K
ARI +
1.50
krón 0 ur
LI
S
G
R + GO
S
F
WWW.FABRIKKAN.IS
FABRI
létt máltíð í hádeginu
Sérhannaður borgari og aðeins í boði fyrir Verzlinga!
80 gr. hágæðaungnautakjöt í Brioche brauði með bræddum osti, stökku beikoni, Boston káli og Chili-Bó sósu sem er glæný og sérhönnuð sósa fyrir Verzlinginn. Borinn fram með frönskum og gosi að eigin vali. Borgari + franskar + gos
Skiptu í sætar franskar fyrir
1.500 kr. / 150 kr. Engar áhyggjur af tímanum. Sendu okkur tölvupóst á verslingur@fabrikkan.is og segðu okkur hve margir koma og klukkan hvað. Verzlingarnir verða tilbúnir þegar þið mætið. *Gildir frá 11:30-16:00 alla daga fyrir nemendur Verslunarskólans gegn framvísun nemendaskírteinis. Verslingurinn var hannaður í nánu samráði við nemendafélagið.Gildir eingöngu á Fabrikkunni í Kringlunni og ekki með öðrum tilboðum.
Undirnefndir Aðstoð á sýningu
Ebba Björg Ísberg (formaður) Sunneva Þorsteinsdóttir Sunna Þórðardóttir Eva Margit Wang Atladóttir Arndís Úlla Björnsdóttir Árdal Ísold Ylfa Schweitz Jakobsdóttir (mækadama) Diljá Sól Jörundsdóttir Ólöf Kristrún Pétursdóttir
Aðstoðarmaður leikstjóra
Dísa Jakobsdóttir
Annáll
Búninganefnd
Geir Zoëga (formaður) Tinna Sigurðardóttir Teitur Snær Tryggvason Egill Orri Árnason Lóa Yona Fenzy Daði Ómarsson Leifur Þorsteinsson Róbert Vilhjálmur Ásgeirsson Daníel Hjörvar Guðmundsson
Katla Einarsdóttir (formaður) Sigurbjörg Birta Pétursdóttir Thelma Mogensen Hlín Björnsdóttir
Leikgervi
Leikskrá
Aðalheiður Þorvaldsdóttir (formaður) Lea Rut Sigursteinsdóttir Írena Björt Magnúsdóttir Magnea Mist Ólafsdóttir Júlía Hrönn Petersen Mirra Kristín Ólafsdóttir Yrja Björk Reynisdóttir Anna Pálína Sigurðardóttir Ásta Sóley Hilmisdóttir Karitas Bjarkadóttir
Jóhana Lind & Katrín Ása Kristinsdætur og Agnes Gunnarsdóttir (formenn) Baldvin Pálsson Daði Helgason Geir Zoëga Daníel Hjörvar Guðmundsson Arnór Björsson
Ljósmyndanefnd
Markaðsnefnd
Birna Kristinsdóttir (formaður) Sigurjón Björn Torfason Birta María Birnisdóttir Baldvin Pálsson
Svava Rún Sigurðardóttir Birta Karen Tryggvadóttir Þórdís Huld Atladóttir Ásta Margrét Stefánsdóttir Kristín Rós Björnsdóttir Sóley Friðrika Hauksdóttir Hlín Björnsdóttir Ólöf Rún Ingadóttir
PR
Ræstingarnefnd
Erlingur Sigvaldason (formaður) Lea Rut Sigursteinsdóttir Ragnhildur Ragnheiðardóttir Aðalheiður Þorvaldsdóttir Styr Orrason Skarphéðinn Vernharðsson
Alexandra Björk Magnúsdóttir (ræstingastjóri) Marta María Stephensen (klósettstjóri) Dagur Kárason Auðunn Ingason Þorsteinn Björn Guðmundsson Jóhann Karl Valdimarsson Jón Steinar Benediktsson
Skreytinganefnd
Spotljós
Katrín Ása & Jóhanna Lind Kristinsdætur og Agnes Gunnarsdóttir (formenn) Eyvör Halla Jónsdóttir Alexandra Elíasdóttir Elísabet Friðriksson Eygló Fanndal Sturludóttir. Írena Björt Magnúsdótti Thi Thu Thao Vu Kristín Rós Björnsdóttir Edda Björg Heitmann
Rebekka Berta Hansen Haukur Ingi Tómasson María Björk Pálsdóttir Ella María
Sviðsmynd
Sýningarstjórar
Magnea Mist Ólafsdóttir Júlía Hrönn Petersen Rebekka Berta Hanson
Signý Ósk Sigurðardóttir Bjarki Steinar Viðarsson Kjartan Ragnarsson Rakel Jónsdóttir
Tæknimenn
Tjaldameistari
Snorri Beck Magnússon Máni Magnússon
Helga Bryndís Einarsdóttir
FRAMLEIÐENDURNIR Um leikritið
Lea Bloom er endurskoðandi sem hatar vinnuna sína og dreymir um að vera framleiðandi og framleiða söngleiki á Broadway. Einn daginn fer hún að endurskoða bókhaldið hjá Broadway-framleiðandanum Max Bialystock. Hann var áður fyrr álitinn konungur Broadway en núna floppa allar sýningarnar hans. Þegar Lea skoðar bókhaldið uppgötvar hún að undir réttum kringumstæðum gæti framleiðandi hagnast meira á sýningu sem floppar en sýningu sem slær í gegn. Max grípur gæsina og dregur Leu með sér í ferðalag að finna versta leikritið, versta leikstjórann, verstu leikarana og sjálfur ætlar hann að múta gömlum konum til að safna tveimur milljónum dollara. Saman stefna Max og Lea að því að setja upp gulltryggt flopp á Broadway. Af stað fer viðburðarík atburðarás sem inniheldur æstan nasista, steríótýpíska samkomu samkynhneigðra, gullfallega sænska stúlku og tugi gamalla, kynlífsþyrstra kvenna.
Fyrsta bíómyndin árið 1968
Broadway söngleikurinn árið 2001
Endurgerð á fyrstu bíómyndinni árið 2005
Uppsetning NFVÍ á söngleiknum árið 2018
VIÐTAL
Ræstingarnefnd
Mest krefjandi verkefni sem þið munuð takast á við?
Það er ekkert verkefni krefjandi fyrir okkur.
Eru þið náin í nefndinni?
Ástin leynist hér í ræstingarnefnd þannig já svo sannarlega.
Af hverju varð Ræstingarnefndin fyrir valinu?
Við höfum öll brennandi áhuga á þriflistum
Hvað er það besta við Ræstinganefnd?
Eitthvað að lokum?
Vinsamlegast farið vel með salinn takk.
Virðing sem maður fær sem meðlimur nefndarinnar
NÝTT ÁR Ð I M K R A NÝ M E N G IN B IN D IN G
Sjö stöðvar Þrjár sundlaugar reebokfitness.is
VELKOMIN Í HR Opið fyrir umsóknir til 5. júní
„Það sem heillar mig mest við námið er að maður lærir eitthvað sem hægt er að nýta sér á öllum sviðum samfélagsins. Reynsla mín af laganáminu í HR er upp á 10,5 til þessa og fer aðeins hækkandi.”
Brynjar Freyr Garðarsson Stúdent frá Verzlunarskóla Íslands 2015 Nemi í lagadeild
@haskolinnireykjavik
@haskolinn #haskolinnrvk
@haskolinn
OPIÐ ER FYRIR UMSÓKNIR Í BAKKALÁRNÁM FRÁ 19. JANÚAR TIL 9. APRÍL
ARKITEKTÚR FATAHÖNNUN GRAFÍSK HÖNNUN VÖRUHÖNNUN MYNDLIST SVIÐSHÖFUNDABRAUT HLJÓÐFÆRALEIKUR HLJÓÐFÆRAKENNSLA SKAPANDI TÓNLISTARMIÐLUN SÖNGUR TÓNSMÍÐAR Nánari upplýsingar um námsbrautir, inntökuferli og umsóknir eru á lhi.is
n r o k l
l u G
e inu: ack t Eir: „W r t d n é u r arg í so din ck“ - M d ö r u ra d af Tölv ersal t bön h d “ e n h „R my bitc r ow ta á eá s a n v k m u i l t án ðh ing etta t: Spr Eir: “Þ stoltir: ka a tta“ - R í s l n e renn jössi: a t j n g þ g é a o r m É fl u „ ðir ka “B arg nd að s Nef undir. loka gu - M osa gla i!” ólki r a f i l t i f g r e n p E fi late ðs Allir rét: “N gæ in a jár fug lay? g d sön flott!” r p n a f r á ðar M g Ne ndu þ bor aru t ég mjö öru?!” f e a s e g l ” ð lv „N r!“ He rnig Bor nn? “Í a uma Hve takka ar. ð að jössi: „ H “ k a „ : k t þ a ay ríe um i kr - B aB á pl ður rvörur Óke a erfitt “ Agl aður æ r u m Um mjólku fing tt að sleg Ýtir i ngæ r ógeð tta, þó a ö s ekk egg?“ þe kenn t á etta e i a é r n r k n g æ ek Mar eit að þ m að l megið rður ha u v ið Ég ið verð tt og þ r fer ve fi v r e n e b tu e é s m e a t s ur.” þet a um, r aft u n ð Má forma i ekk
Gull
korn
Viðtöl við leikara Ef þú myndir þurfa að giftast einum í sviðslistahópnum, hver yrði fyrir valinu? Myndi gifast öllum í Keep it gay, sérstaklega Vilberg Fyndnasta atvik sem hefur gerst á æfingu? Örugglega þegar við vorum á söngæfingu og það kom “rehersal tracks” og Margrét Eir sagði “we know you Bitch” Hvernig er að hafa Völu sem leikstjóra? Það er bara frábært. Stendur sig hrikalega vel og ekki að sjá að hún sé að gera þetta í fyrsta skiptið. Hvernig myndiru lýsa karakternum þínum í sýningunni? Fekking Slay queen Lýstu söngleiknum í einu orði? Stórt
Mikael Emil
Scott danshöfundur
Helgi Tómas Söngvari
Ef þú myndir þurfa að giftast einum í sviðslistahópnum, hver yrði fyrir valinu? Kjalar , nei sko hann er husband material rawr Fyndnasta atvik sem hefur gerst á æfingu? Þegar Unnur stoppaði dansæfingu til að geta lesið skilaboðin sem Karen sendi henni, Karen sagði henni að fokka sér í rassgatið. Hvernig er að hafa Völu sem leikstjóra? Súper næs, manni líður alltaf vel í kringum hana. Hvernig myndiru lýsa karakternum þínum í sýningunni? Guð er með svo marga, en minn aðal er mjöööög góður með sig því hann er fkn stjarna!!! Lýstu söngleiknum í einu orði? MAGNAÐ
Ef þú myndir þurfa að giftast einum í sviðslistahópnum, hver yrði fyrir valinu? Vigni, hann nennir alltaf að skutla mér heim. Fyndnasta atvik sem hefur gerst á æfingu? Þegar Ingi lamdi óvart Eyrúnu í hausinn og var í þvílíkum móral alla æfinguna Hvernig er að hafa Völu sem leikstjóra? Erum ótrúlega heppin að hafa Völu því hún hefur svo jákvæða áhrif á hópinn Lýstu söngleiknum í einu orði Stórfenglegt
Silvía Stella Dansari
Ef þú myndir þurfa að giftast einum í sviðslistahópnum, hver yrði fyrir valinu? Vá hef ekki hugmynd allir svo yndislegir haha Fyndnasta atvik sem hefur gerst á æfingu? Alltaf eitthvað fyndið og skemmtilegt að gerast á æfingu, erfitt að velja eitt Hvernig er að hafa Völu sem leikstjóra? Það er æðislegt að hafa Völu sem leikstjóra, hún er svo frábær og skemmtileg og ótrúlega fyndin Lýstu söngleiknum í einu orði? Stórkostlegt
Andrea Marín Dansari
Ef þú myndir þurfa að giftast einum í sviðslistahópnum, hver yrði fyrir valinu? Ég myndi giftast Pétri Má því hann leikur Gunther, eiginmann minn, í sýningunni og það hefur veitt mér þá innsýn í ástarlífið sem ég gæti átt. (Vona að þú skiljir Styr) Fyndnasta atvik sem hefur gerst á æfingu? Þegar Rannveig klýndi tyggjóinu sínu á poppið mitt þannig ég kyngdi blauta tyggða tyggjóinu hennar. Ógeðslegt en fyndið Hvernig er að hafa Völu sem leikstjóra? Ég dýrka Völu! Það er ekkert smá gott að vinna með henni hún er svo mikið æði! Hvernig myndiru lýsa karakternum þínum í sýningunni? Franzesca er mjög óútreiknanleg. Hún skiptir um skap á 0.1 og þess vegna er fólk frekar hrætt við hana. Svo er hún líka bara skrýtin - nasisti sem elskar Hitler Lýstu söngleiknum í einu orði? Skrautlegt !!
Berglind
Francesca Liebkind
Ingi Þór
Ingi þór er Verzlingur á seinasta ári, hann býr í Breiðholtinu (neðra) og hefur gaman af góðum borðspilum, en hvað er það sem gerir Inga algerlega framúrskarandi? Jú, hann er Quadnem og ekki nóg með það heldur er hann allra seinasti Quadneminn! Þið eruð eflaust að velta fyrir ykkur: „Hvað er Quadnem“ en það er til ósköp einfalt svar við því. Quadnem er einhver sem hefur verið í árlega söngleik Verzó 4 sinnum. Það er talinn mikill heiður innan veggja Verzlunarskóla Íslands að vera kallaður Quadnem, enda ótrúlegt afrek. En að vera seinasti Quadneminn er enn betra. Sjáið til. Eftir að ‘99 árgangurinn kom í Verzló var tekið upp hið svokallaða “3 ára kerfi” en það þýðir að nemendur sem eru
fæddir árið 1999 eða seinna munu aðeins vera í skólanum í 3 ár. Þetta gerði ‘98 árganginn að seinasta árganginum sem er 4 ár í Verzló og þ.a.l. Seinasta árganginn sem gæti innihaldið Quadnem. Og eini aðillinn sem tók þátt í söngleiknum öll sín 4 ár af öllum ‘98 árgangninum var Ingi Þór motherfucking Þórhallsson. Nú skulið þið njóta nærveru hans á sviðinu þar sem þið munið aldrei aftur, í sögu heimsins, upplifa annan Quadnem. Nú munu bara einhverjir aumkunaverðir Þrenem eða tvenem eða jafnvel bara einnem taka við. Við vorum nógu heppin að fá að taka exclusive viðtal við manninn.
Hvað var eftirminnilegasta leikritið?
Eftirminnilegasta leikritið? þetta er helvíti erfið spurning þar sem öll ferlin hafa verið svo gífurlega ólík. Ætli Moulin Rouge sé samt ekki eftirminnilegast eins og er. Það gæti vel breyst eftir þetta ferli samt. Þetta ferli hefur verið hvað mest krefjandi held ég, en öll frábær á sinn hátt.
Uppáhalds hlutverkið þitt og afhverju?
Ég hugsa að mitt uppáhalds hlutverk sé Max Bialystock sem ég fer með í ár. Hann er virkilega skemmtilegur karakter sem ég hef gaman af að leika. Max er svolítið úti um allt sem einstaklingur og þar af leiðandi er mikið í gangi og miklar breytingar í skapi og slíkt, sem mér finnst virkilega skemmtilegt.
Besti meðleikari? Þeir eru margir en þeir sem koma helst upp í hugann eru Rán Ragnars, Teitur Gissurar og Helgi Valur, virkilega skemmtilegt fólk sem alltaf er hægt að flippa eitthvað með. Margar skemmtilegar hugmyndir sem fæddust í ferlunum með þeim.
Óvænt uppákoma/klúður á sýningu
Einu sinni átti ég að fara í splitt og hlaupa svo af stað út í kant á sviðinu, ég missti jafnvægið á leiðinni upp úr splittinu, datt og rúllaði yfir allt sviðið. Virkilega skemmtileg upplifun.
Hvað er framhaldið?
Framhaldið er eitthvað sem er óvissa eins og er, en það væri samt mjög gaman að nýta sér reynsluna og halda eitthvað áfram í leiklistinni.
Nemó leikrit sem þú hefðir vilja að væri sett upp?
Það eru mörg sem koma til greina en þau sem ég hefði verið feitt til í að setja upp eru Jersey Boys, Vesalingarnir og Hamilton. Rosa stór production sem gaman hefði verið að láta reyna á.
Fyrirmyndir í lífinu? Það eru nokkrar sem koma til en þær helstu eru Lin-Manuel-Miranda og Tom Hanks
Austurbær vs Háskólabíó?
Virkilega góð spurning sem erfitt er að svara. Staðirnir eru mjög ólíkir í heild sinni. Ef við byrjum á því að taka fyrir Austurbæ þá eru hans helstu kostir að hann er mjög heimililegur og skemmtilegur staður til að vera á. Mikil saga fylgir húsinu og maður er alltaf að komast að einhverju nýju. Hvað varðar galla á Austurbæ þá voru þeir einnig nokkrir. Búningsaðstaðan og allt baksviðs var ekki upp á marga fiska og hefði mátt vera skemmtilegra svæði, en mikill sjarmi yfir því engu að síður. Háskólabíó er allt annað dæmi þannig séð. Það er nýbúið að taka allt í gegn og aðstaðan er geggjuð. Hins vegar finnst mér persónulega vanta þennan persónulega sjarma í húsið sem gerir það að verkum staðir verða heimilislegir eins og í Austurbæ. Heilt yfir mjög flott hús. Mitt uppáhald verður samt held ég alltaf Austurbær. Margar góðar minningar þaðan og ekkert sem toppar East Town.
Þegar þú varst busi, hvað heillaði þig við Nemó? Afhverju vildiru fara í Nemó prufur?
Skemmtilegt tækifæri sem ég vildi ekki missa af. Félagar mínir höfðu verið í þessu árin áður og mig langaði að prófa líka. Það gekk síðan bara allt upp og ég ákvað að reyna aftur árin eftir.
Hvað viltu segja við komandi nemóstjörnur eins og þig?
Bara henda sér í prufur og sjá hvernig fer. Þetta er virkilega skemmtilegt og svakalega góð reynsla fyrir hvern sem er. Þetta er einnig fullkomin leið til að henda sér út í djúpu laugina.
Söngtextar Frumsýningin // Sætavísur og kór SÆTAVÍSUR Frumsýningin! Nú er frumsýningin! Nýja Bialystock-sýningin. Er hún flopp eða stöngin inn? Lófatakið nú hljóðnað er, brátt birtast gestirnir hér. Þett’ eru menningar-spekingar. Nú spyrjum við hvernig var! GESTIR Honum tókst það á ný! Já, tókst það á ný! Max Bialystock tókst það á ný!
Ég er í sjokki, sálin í fokki. Þett’ er í sér-flokki!
Allt plottið sökkar, öll lögin afleit. Hann jarðaði Shakespeare í skrípa-trúðs grafreit.
Versta sem ég hef séð!
Ég gat ekki meira.
Ég fór að skæla, langað’ að æla. Þetta var þvæla. Versta sem ég hef séð!
SÆTAVÍSUR Hvað er að heyra?
Þetta sjóv var svo vont að ég grét. Margt er drasl en þetta var met!
GESTIR Þett’er algjört sjokk. Þennan drullusokk má hengja! Þennan Max Bialystock! Þvílíkt flopp!
Max Bialystock tókst það á ný.
Ef þú hefur lúkkið // Ulla ULLA Ef þú hefur - lúkkið. Tjaldaðu í túttu-sjóv. Fólk’ snobbar fyrir hógværð og velsæmi en velsæmi er snar-ofmetið dæmi. Ef þú hefur - lúkkið, hristu settið, sýndu hvað þú átt. Láttu bossann blasa við, reynd’að hneyksla almættið! Þú mátt opna allt upp á gátt! Ef þú hefur - þokka. Sýndu þína helgu dýrgripi. Leikhúsgestir þykjast vera dúllur
en dreymir alla um að horf’ á júllur. Ef þú hefur - neistann. Ekki hika við að kveikja í. Þú skalt nota þennan kropp! Gera alla menn kjaftstopp! Ef þú lúkkar, flaggaðu því. Þegar ég var ennþá lítil stúlka þá sagði mamma réttilega að fyrst Drottinn gaf mér Paradísar-útlit þá ber mér skylda til að nota það. Nootaa þaaað!
Ef þú hefur - töfra! Leggðu álög þín á þennan heim! Sumir vilja’ð ég sé proper dama en dem hvað mér er drullu-fokking-sama! Ef þú hefur - gefðu, enga nísku, gefðu öllum smakk! Enga feimni, ekkert stress, sýndu stolt þitt Evudress. Ef þú lúkkar - ef þú lúkkar ef þú lúkkar - hrópaðu: “Húrraa!”
Við tvö getum // Max og Lea MAX Hvað sagði Jón Sigurðsson þegar Ísland var í steik? Hvað segir landsliðið í fótbolta fyrir hvern einasta leik? Hvað sagði Alan Mac Masters þegar hann fann upp ristavél? Og þetta veistu vel! Við tvö getum, já, við getum! Beint á toppinn, þú og ég. Við tvö getum, já, við getum! Getum orðið stórkostleg. Allt sem dreymdi þig í hljóði bíður bara eftir þér. Allsber karlmannaher þakinn rauðum glimmer. Bræðir þig, afklæðir þig og faðmar að sér. Við tvö getum! Já, við getum! Núna dugar ekkert hik. Því við getum, fullum fetum! Þett’ er okkar augnablik. Framleiðandi! Enginn vandi! Upprennandi snillingur. Jú, við getum. Við tvö getum. Þetta verður tryllingur. Hvað segir þú Bloom?
LEA Hvað segi ég? Loksins get ég orðið Broadway stórstjarna. Hvað segi ég? Loksins get ég lifað draum allra barna. Hvað segi ég? Hvað segi ég? Um þetta boð atarna? Ég get ekkert. Ég get ekkert. Ég get ekkert. Ekki ég. Ég er lúði. Ég er klúður. Ég er skræfa ótrúleg. Á öllum hjartans ástarmálum hef ég bara ekkert lag. Karlmannaher, þakinn rauðum glimmer að veiða mig, matreiða mig, ég myndi fá slag. LEA Herra Bialystock, hættu í smá. Hvað ert‘ að spá? Sko af og frá því allir sjá að ég er núll og nix. Herra Bialystock, ég lúði er og kveif alger. Ég segi þér það verður ekkert gagn af mér. Ég... get... ekkert.
MAX Við tvö getum! Já við getum. Getum hagnast þúsundfalt. Já við getum! Við tvö getum. Drukkið viskí, ekki malt. Kommon Lea Kæra pía! LEA Þú sérð Rio, ég sé þrot! MAX Jú, við getum. LEA Ég get ekkert. MAX Jú, við getum. LEA Ég get ekkert MAX Jú, við getum. LEA Ég get hundrað prósent ekki tekið þátt og verið með þér. Því að þetta er afbrot!
Ég þrá’ að framleiða leikrit // Lea, kór og endurskoðandi ENDURSKOÐENDUR Tilgangslaust... Tilgangslaust.... Rosa tilgangslaust. Tilgangslaust... Tilgangslaust... Rosa rosa rosa rosa rosa rosa rosa tilgangslaust.
Setja upp snilldarlegt leikrit og trylla kórus-skvísurnar.
ENDURSKOÐANDI Ó, ég lif’ í heimi debit, afskriftum og kredit og von’ að ég kom’ út í plús.
Ég þrá’að framleiða leikrit, mæt’ á frumsýningarkvöld. Horfa á mitt eigið leikrit, fá mitt nafn á ljósaspjöld.
ENDURSKOÐENDUR Von’ að ég kom’ út í plús.
SKVÍSUR Já hún vill framleiða leikrit verða Broadway konungur. Já, hún vill framleiða leikrit græða heilar formúgur.
LEA Starf mitt er andlaust fjárhald með summur og brot. Mitt andlega líf er bókhald og summan er þrot. Ég átti gamlan draum gróf hann í brjósti mér. Það veitir mér sælustraum að segja hver hann er. Ég þrá’að framleiða leikrit, vera stjarna á Broadway. Framleiða stórfenglegt leikrit, drekka kokteil uns ég dey. Ég þrá’að framleiða leikrit vekja lukku alls staðar.
Ég þrá’að framleiða leikrit og sofa til klukkan þrjú. Framleiða fabjúlöss leikrit og segja þú, þú, þú... Ekki þú!
Já hún vill framleiða leikrit, kyssa drottningar á kinn. Já hún vill framleiða leikrit og eiga besta ferilinn. LEA Ég þrái að! Ég þrái að! Ég þrá’að gera heimsins mesta, best’og frábærasta Broadway-leikhús-sjóv! SKVÍSUR Og hún mun bara bjóða
hefðarmeyjum út! LEA Ég verð bar að setja upp leikrit, drekka kampavín af stút. Ég þrá’að framleiða leikrit ná að meika það mjög feitt! Það verða dúndur-sjóv svo fólkið veinar og skrifar um mig lærðar greinar. Ég þrá’að framleiða leikrit! Því nú er ég ekki neitt. ENDURSKOÐENDUR Tilgangslaust. Tilgangslaust. Tilganslaust. Rosa rosa rosa rosa rosa rosa tilgangslaust. LEA Ég þrá‘ að framleiða leikrit... LEA - UPPHÆKKUN Ég ætl’að setja upp leikrit! Feta frægðarinnar veg! Ég ætl‘ að framleiða leikrti! Halló Broadway, hér kem ég!
Der guten tag hopp-klopp // Fransesca FRANCESCA Guten Tag, hopp, hopp! Guten Tag, klopp, klopp! Auch du lieber und, ó, Guð!
Oh, wie essen und fressen und tanze und trinken. Danse und drykka uns hausarnir klikka!
Guten Tag, klapp, klapp! Guten Tag, slapp, slapp! Auch du lieber, hvílíkt stuð!
Guten Tag, hopp, hopp! Guten Tag, klopp, klopp! Guten Tag, mín skvísí-pæ!
Und við hoppum hopp und við kloppum klopp und við drekkum væn eins og swæn!
Vertu hýr! // Roger, Carmen og sérfróða stuðdeildin ROGER Leikhúsgestir elska stuð! Með ykkar sorgar-tuð er ves að selja sýninguna dýrt. Það þarf að vera ljómi! Glimmerskraut og blómi! Það þarf að vera ... hvaða orð? Sama hvað þú setur á svið, vertu smart, hafðu skart, vertu hýr! Er það sag’ um stríð eða frið? Hafðu dans, elegans, vertu hýr! CARMEN Fólkið vill fjör ef það kaupir sig inn. Enginn vill enda með tár út á kinn ROGER OG CARMEN Settu fjörið í fjórtánda gír! Simbi kæmi heim, ef Skari opnar champagne! Vertu hýr! Vertu hýr! Vertu hýr... SÉRFRÓÐA STUÐDEILDIN Hafðu prjál. Vertu brjál.
Vertu hýr. Hafðu flæði. Vertu æði. Vertu hýr. Sérfróða stuðdeildin hugar að því að allt verði tip top! Hjá herra DeBris. Vertu hýr. Vertu hýr. Vertu hýr. Það þarf glimmer! Nokkuð ljóst! Pallíettur! Og brjóst! Aðalreglan er einföld og skýr: Vertu léttur! Vertu nettur! Vertu hýr! Roger brýtur blað sögunnar! Roger brýtur blað sögunnar! ROGER Ég... sé... Óóótal skvísur í röð allar klæddar í stormsveitar-dress! Leður-stígvél, ólar og tól. Allt að ske, jafnvel B D, S, M! Ég sé þýska hermenn marsera um leikna af kórdrengjum í gam-
mósíum. Og bíðið við! Þeir vinna stríðið! Og öll dansatriðin verða fersk og fyndin! Tveir þrír spark hopp! Þrír tveir spark hopp! Einn tveir þrír spark hopp! Vertu bjútí, vertu kjútí, vertu... ALLIR Ef þú vilt heilla og hitta í mark, vertu hýr, vertu hýr, vertu hýr! Ekki neinn Hamlet eða harmleikja-slark! Vertu hýr, vertu hýr, vertu hýr! CARMEN Söngleikir toppa allt heimspeki-þvaður. Harmleikir floppa og enginn er glaður. ALLIR Svo gleymdu Ibsen og verkum Shakespeare! ROGER Ég skrifa! ALLIR Vertu hýr!
samsungmobile.is
samsungaislandi
Svo birtist Bialy // Max, kór og Lea. MAX Nú bíður mín að vera suðrænn og seiðandi og reyra mallann með límbandi og vera funheitur ástar-fjandi. Nú verð ég sá sem fer fjárfesta ofan á. Ég punda einhverjar aftan frá ég gef þeim allt sem að þær þrá. Þær vor’ að frík’ út, það var akút og svo birtist Bialy! Það var þurrkur, eilíft myrkur og svo birtist Bialy! Þessar dísir þurfa djöful. Ég set bensín á glæðurnar. Ég þeim spilli tæli’og trylli. Ef ég lít þær á og brosi smá þá bilast læðurnar. Þær vor’í dvala, kynlífs-kala og svo birtist Bialy! Enginn losti, allt í frosti og svo birtist Bialy! Því þær báðu, bænir kváðu
og Drottinn elskar alla sem þjást! Svo hann sendi! Þeim Bialy! Alveg skíðlogandi af ást! GAMLAR KONUR Já við báðum, bænir kváðum. En svo birtist Bialy! Allt var búið spil og súrt að vera til. Við héldum að ást myndi aldrei fást á okkar matseðil. Lífið bauð upp á sárafátt. Við áttum að þjást og sitja og sauma er okkur dreymdi bara um drátt! Já við báðum, bænir kváðum. Drottinn elskar alla sem þjást og hann sendi einn Bialy sem er skíðlogandi af ást. Ég var í dvala, kynlífs-kala og svo birtist Bialy! Enginn losti allt í frosti og svo birtist Bialy! Mega rómó pínu dónó. Drottinn elskar alla sem
þjást! Sjá Bialy! Heill, Bialy! Hann kom askvaðandi sá ástar-fjandi! Svo sjarmerandi og fullnægjandi! Ég verð barnshafandi Hann er skíðlogandi af ást. MAX & LEA Við tvö getum! KÓR Já þau geta! ALLIR Kveðjum hversdagsleikans húm! MAX & LEA Við tvö getum! KÓR Fullum fetum! ALLIR Sigrað heiminn, hvissbamm-búmm! KÓR Þeirra sjarma! Þeirra karma! Gista frægðarinnar rúm! KÓR Besta teymi! Hér í heimi! ALLIR Þau Bialystock og Bloom!
Haben sie gehört das deutche band? // Fransesca FRANSESCA Haben sie gehört das Deutsche Band? Mit a bang! Mit a boom! Mit a bing-bang bing-bang boom! Aaah, haben sie gehört das Deutsche Band? Mit a bang! Mit a boom! Mit a bing-bang bing-bang boom!
Rússneskir söngvar og franskt úú-la-la! Stenst eigi snúning þýsku úúm-pah-pah! Við syngjum haben sie gehort das Deutsche Band? Mit a zetz! Mit a zap! Mit a zing! Pólskur polki er viðbjóðslegri’en skrattinn en allt sem ég bið um er
einungis Schweigen - reigen - schone - schutzen - schmutzen sauerbraten! Við syngjum: Haben sie gehört das Deutsche Band? Mit a zetz! Mit a zap! Mit a zing! Þessi heimsins besta tónlist er svo fullkomin tónlist að ég spring!
Frumsýningin - Endurtekning // Sætavísur SÆTAVÍSUR Frumsýningin! Nú er frumsýningin! Nýja Bialystock-sýningin. Er hún flopp eða stöngin-
inn? Öll sviðsljósin kvikna og skvaldrið er hætt. Menningar-löggan og elítan mætt. Hér er spennan að taka öll
völd því Sólskin á Hitler er frumsýnt í kvöld.
HÚRRA! HÚRRA! HÚRRA! Geiri Smart. Smartasti sælkerastaðurinn í bænum. Skapandi eldhús í einstaklega fallegri umgjörð. Engar reglur í matargerðinni, bara alls konar tækifæri sem ferskustu og mest spennandi hráefnin færa kokkunum okkar. Hugsaðu út fyrir matseðilinn. Hverfisgata 30 | 528 7050 | geirismart.is | geiri@geirismart.is
Sólskin á Hitler // Hitler, kór, hershöfðingi Það var vandi’í Þýskalandi þvílík sorgarsaga. Þjóðin var í þrot-ástandi, þetta varð að laga. Hver gat séð um það? Og þjóðinni bjargað? Við fundum mann sem pottþétt kann að kom’okkur af stað! HERSHÖFÐINGI Og nú er... Sólskin á Hitler og Þýskaland. Þjóðin er komin í stuð. Nú færðu enga afslætti ef þúrrt af röngum kynþætti. Sólskin á Hitler og Þýskaland. Þýska er tíska á ný. Sólskin á Hitler og Þýskaland. Spennið beltin, nú gefum við í! Sólskin á Hitler og Þýskaland. Stormur á Pólland og Frans. Sólskin á Hitler og Þýskaland! Og nú bjóðum, við Evrópu’í dans! ALLIR Sólskin á Hitler og Þýskaland! HITLER Heil ég!
Heil á moi! Ég mun endurskrifa mannkynssöguna! Heil á mig! Meistarinn! Ég verð heiti glaðleiti harðstjórinn! Ég gerallt fyrir okkar móðurstorð! Ég skal jafnvel fremja pínku þjóðarmorð. Hyllið mig! Mína skál. Ég skal pimp’upp ykkar þýsku þjóðarsál. KÓR Pimp’upp þýska þjóðarandann! HITLER Hyllið mig! KÓR Pimp’upp þýska þjóðarandann! HITLER Hyllið mig! KÓR Hann mun pimp’upp okkar þýsku þjóðarsál! HITLER Ég var bara meðal-jónsi einmana á kvöldin. Síðan hringdi Þriðja ríkið afhenti mér völdin! Þjóðin átti bágt ég þurftað sýna mátt og hernam Frans með elegans! og nú er þjóðin sátt!
Þett’er enginn vandi í stjórnmála-standi. Þá vinna alltaf þessir sem passa’að vera hressir! Hyllið mig! Strax maður! Ég er þýskur Palli Óskar vopnaður! Ég fer beint á tindinn nýja heimsmyndinn eeer ég! Ekkert nöldur-væl, allir, segið heil við mig! Frábæra mig! Ooooog núúú eeer... ALLIR Sólskin á Hitler og Þýskaland. Herganga er núna inn. Sprengingum rignir yfir allt Þjóðverjar munu lifa allt. Sólskin á Hitler og Þýskaland Núna er kafbátatíð Sólskin á Hitler og Þýskaland Svo að... Bráðum við förum! Við hljótum að fara! Þú veist að við förum! Ég sver að við förum! Þú veist að við förum í stríð! Aaaaa...!
Svikinn // Max MAX Eins og Kain myrti Abel og þannig lékstu mig. Í baki mínu standa hvassir hnífar eftir þig. Svikinn! Svo fokkin’ vonsvikinn. É’ er Samson, þú Delilah þín ást var bara blöff. Ég, læstur inní klefa, þú í Ríó voða töff. Svikinn! Svo vangefið svikinn. Foookk hvað ég var blekktur. Guuuð, hvað ég er svekktur. Ég átt’ að hafa varann á því ég var tekinn aftan frá.
Nei hey, þett’er hérn’inni. Hvernig hófst þett’allt? Hún trommað’inn í líf mitt með sitt svikamyllu-plott. Þú græðir miklu meira ef að leikritið er flopp. “Já við getum, við tvö getum” “Ég get ekkert” “Jú við getum” “Ég get ekkert” Farvel Max! Hjálpaðu mér að græða! Komin aftur, Max. “Kommon, Lea, við tvö getum!”
algert grey?” Næsti! Litli timbur-kall Næsti! Hún leikur hitler! “Frumsýningin!” Toj toj, toj toj, toj toj. Brjóttu fót! Ég braut fót! “Sólskin á Hitler og Þýskaland!” Óvænt snilldarverk! “Sólskin á Hitler og Þýskaland!” Endalaus aðsókn! “Hvernig gekk þett’ upp? Hvernig gekk þett’ upp?”
Ég var þinn Óþelló hengdur upp á þráð. Þú varst sjálf Íago með lævís hermdar-ráð. Dapurleikinn! Hjartað kremst eftir svikin.
Skref eitt: finnum leikrit! Leita, finna, snerta, kyssa! Halló, herra Liebkind “Guten Tag, hop clop “Guten Tag, hop clop” Adolf Elizabeth Hitler? “Guten Tag, hop clop “Guten Tag, hop clop!”
Láttu mig fá þær! Feitabollu feiti! Láttu mig fá þær! Feitabollu feiti! Feita-bolla Feita-bolla Feita-bolla Feita-bolla
Ég alltaf kóngur var nú minni ég á trúð. Herkapteinn með engan her. Nammilaus sælgætisbúð.
Skref tvö, finna leikstjóra! “Vertu hýr, vertu hýr, vertu...” Tveir þrír, spark, hopp, hopp, hopp, spark, hopp
Herfan þín! Skjóttu leikara! Hefuru séð þá borða?
Nú fer ég bakvið lás og slá og enginn vill mig framar sjá. Ég á engan sem vill mig gleðja engan til að kyss’og kveðja.
Ulla! Oooh wah wah woo-woowah-wah!
Þú rææændir fortíð minni.
Skref fjögur, ráða leikara! “Einn villtur trúbador, er
Skref þrjú, safna pening! “Og svo birtist Bialy!”
Svo flúðir þú til Ríó komin trygg í fjarlæg lönd. Ég er fastur hér en þú að ríða niðrá strönd. Eins og Julius Sesar! vanmat alltaf Brutus Ekki gat mig grunað að þú breyttist í minn Judas! Frægðarsólin
En hann // Lea LEA Mér leið eins og illa gerðu drasli en hann...! Lífið mitt það einkenndist af basli en hann...!
... birtist eins og stjörnuskin um nætur Tilvera mín stefndi oní skurð. Hann reisti mig á fætur, fyllti heiminn af fegurð. Ég var alltaf tilfinningaflækja en hann kenndi mér í hamingjuna’að
krækja því hann Haaann birtist og kenndi mér allt sem að hann kann. Aldrei verður nokkurn tíma annar eins ... og hann.
Ástfangarnir // Kór, Lea og Max FANGAR Jafnvel einangrun er ekkert mál því ástin sefar/styrkir okkar sál. Ástfangarnir! Svo ástfangnir Við erum ástfangarnir! Ástfangarnir Svo ástfangnir að hjörtu vor svífa frjáls. Ástfangarnir! Sálin lifir frjáls bakvið rimla stáls. Jafnvel einangrun er ekkert mál því ástin sefar/styrkir okkar sál. Ástfangarnir svo ástfangnir að sálin syngur og hjartað springur. Við erum ástfangarnir!! Því ástin styrkir/sefar okkar sál!
ULLA Og ég syng syng! Syng syng! KÓR Ástfangarnir! Svo ástfangnir að hjörtu vor svífa frjáls. Ástfangarnir! Sálin lifir ROGER frjáls bakvið rimla stáls. DÖMUR Rimla stáls! FANGAR - DANSARAR Jafnvel einangrun er ekkert mál því ástin sefar/styrkir okkar sál. Ástfangarnir svo ástfangnir að sálin syngur og hjartað springur. Við erum ástfangarnir!! Ást! Ást! Ást! Ástfangarnir!
MAX/LEA Lea og Max sloppin út strax komin í mega geim Lea og Max Stórlaxa-krakkz skriðtækla þennan heim. Við getum sett alls konar drasl á svið samt missir Broadway andlitið. Þó handritið sé fullkomið er ekkert mál að sanna, það verður basl og algjört drasl án framleiðendanna! Beint upp á topp ekki neitt stopp! Besta teymi, hér í heimi, við erum Lea og Max! ALLIR Framleiðendurnir, Lea og Max!
Bless bless! Þakkir fyrir að kíkja við Hérna endar víst leikritið. Nú er mál að drulla sér út. Skiljið’ekki neitt? Nú er sjóvið kapút.
Ef þú skemmtir þér, þá segðöllum frá. Ef ekki máttu helst bara deyja smá. Gaman að sjá þig og hafðu
það gott Adios, au revoir, wiedersehen, ta-ta-ta Bless bless ... farðu ... ááá brooott!
Þekktu þinn rétt! Allir eiga rétt á sanngjörnum launum, veikindadögum, frídögum, yfirvinnu, eftirvinnu, kaffitímum og orlofi. Allir eiga rétt á að farið sé eftir kjarasamningum, óháð þjóðerni og uppruna. Við berjumst fyrir þínum kjörum og hjálpum þér að þekkja rétt þinn. Kynntu þér réttindi þín á vr.is
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | VR.IS
Útgefandi N.F.V.Í. Ábyrgðarmaður Máni Huginsson Forsíða Stefanía Elín Linnet Ljósmyndir Ljósmyndanefnd Nemó 17-18 Lára Margrét Arnarsdóttir Stefanía Elín Linnet Myndvinnsla Lára Margrét Arnarsdóttir Stefanía Elín Linnet Umbrot og hönnun Lára Margrét Arnarsdóttir Prentun Prentmet
Sérstakar þakkir Andri Pétur Hafþórsson Borgarleikhúsið Elmar Þórarinsson Gabriel Brynjar Bjarkason Hársnyrtistofa Hámark Háskólabíó Iðnó Tómas Sturluson Karl Olgeirsson Kvasir 17-18 Lára Margrét Arnarsdóttir Margrét Gunnarsdóttir Sólveig María Sölvadóttir Spútnik Stefanía Elín Linnet Stúdío Sýrland Yellow Þorvaldur Kolbeins Þórður Gunnar Þorvaldsson
FRAMTÍÐIN ER ÓKANNAÐ SVÆÐI Við vísum veginn
LEX LÖGMANNSSTOFA
Borgartúni 26 105 Reykjavík Fax 590 2606
Sími 590 2600 lex@lex.is www.lex.is
Háskólinn á Akureyri óskar þér góðrar skemmtunar!
BETRI HLJÓMUR
SoundLink Micro Bluetooth
MDR-1000X
ATH-M50 Iron Man
Verð: 15.900 kr.
Verð: 49.990 kr.
Verð: 29.900 kr.
Tilboðsverð: 12.901 kr.
Tilboðsverð: 37.493 kr.
Tilboðsverð: 19.900 kr.
Borgartúni 37, 105 Reykjavík
Kaupangi, Akureyri
netverslun.is