Skip to main content

Anna Lóa Marinósdóttir - Sálmaskrá

Page 1

Anna Lóa Marinósdóttir Fædd 24. nóvember 1945 Dáin 13. nóvember 2020

Útför fer fram í Vídalínskirkju þriðjudaginn 24. nóvember 2020


Forspil

Snert Hörpu mína Atli Heimir Sveinsson / Davíð Stefánsson Söngur: Katrín Halldóra

Bæn

Ave María Sigvaldi Kaldalóns Söngur: Jóhanna Guðrún

Ritningalestur Ég leit eina lilju í holti, hún lifði hjá steinum á mel. Svo blíð og svo björt og svo auðmjúk en blettinn sinn prýddi hún vel. Ég veit það er úti um engi mörg önnur sem glitrar og skín. Ég þræti ekki um liti né ljóma, en liljan í holti er mín. þessi lilja er mín lifandi trú, þessi lilja er mín lifandi trú. Hún er ljós mitt og von mín og yndi, þessi lilja er mín lifandi trú. Og þó að í vindinum visni á völlum og engjum hvert blóm og haustvindar blási um heiðar með hörðum og deyðandi róm, og veturinn komi með kulda og klaka og hríðar og snjó, hún lifir í hug mér sú lilja og líf hennar veitir mér fró. Þessi lilja er mín lifandi trú, þessi lilja er mín lifandi trú. Hún er ljós mitt og von mín og yndi, þessi lilja er mín lifandi trú. Þorsteinn Gíslason / Skarpheiður Gunnlaugsdóttir Söngur: Páll Rósinkranz


Guðspjall Undir háu hamra belti höfði drúpir lítil rós. þráir lífsins vængja víddir vorsins yl og sólarljós. Ég held ég skynji hug þinn allan hjartasláttinn rósin mín. Er kristallstærir daggardropar drjúpa milt á blöðin þín. Æsku minnar leiðir lágu lengi vel um þennan stað, krjúpa niður kyssa blómið hversu dýrðlegt fannst mér það. Finna hjá þér ást og unað yndislega rósin mín. Eitt er það sem aldrei gleymist, aldrei það er minning þín. Friðrik Jónsson / Guðmundur Halldórsson Söngur: Jóhanna Guðrún


Mamma Guð þig leiði sérhvert sinn sólar vegi alla. Verndar engill varstu minn, vissir mína galla. Hvar sem ég um foldu fer, finn ég návist þína. Aldrei skal úr minni mér, mamma, ég þér týna. Ljóð: Jón Sigfinnsson Söngur: Jóhanna Guðrún

Minningarorð Snowman

Sia Söngur: Jóhanna Guðrún


Bæn - Faðir vor Heyr mína bæn Heyr mína bæn mildasti blær, berðu kveðju mína yfir höf, syngdu honum saknaðarljóð. Vanga hans blítt, vermir þú sól vörum mjúkum kysstu hans brá, ástarorð, hvísla mér frá. Syngið þið fuglar ykkar fegursta ljóðaval, flytjið honum í indælum óði ástaljóð mitt. Heyr mína bæn, bára við strönd, blítt þú vagga honum við barm, þar til svefninn sígur á brá. Draumheimi í dveljum við þá. daga langa, saman tvö ein. Heyr mínar bænir og þrá. Höfundur lags: Mario Panzeri Höfundur texta: Ólafur Gaukur Söngur: Katrin Halldóra

Moldun Drottinn er minn hirðir Davíðssálmur Söngur: Jóhanna Guðrún og Páll Rósinkranz

Blessun


Útspil

Líttu sérhvert sólarlag Bragi Valdimar Skúlason Söngur: Jóhanna Guðrún og Páll Rósinkranz

Prestur: Jóna Hrönn Bolladóttir Píanó: Þórir Úlfarsson Gítar: Davíð Sigurgeirsson Söngur: Jóhanna Guðrún, Katrín Halldóra og Páll Rósinkranz Umsjón útfarar: Frímann og Hálfdán útfararþjónusta

Fjölskylda Önnu Lóu vill koma á framfæri þökkum til starfsfólks og lækna á Kvennadeild Landspítalans 21A

Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu mun því miður ekki vera hægt að bjóða uppá veitingar að lokinni athöfn en vill fjölskyldan koma á framfæri þökkum til allra sem hafa verið með okkur í dag hvort sem það er við athöfnina í Vídalínskirkju eða í gegnum streymið.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook