a n í l á P n ú r b l o K Pistlahöfundur Kringlunnar & Markaðsstjóri Slippfélagsins
“Á Tískudögum Kringlunnar er markmiðið að færa tískuna af skjánum, út í rýmið og leyfa okkur að sjá hana, heyra og finna.”
Hittumst í tískunni Tíska snýst ekki bara um það sem við klæðumst. Hún snýst líka um hvernig okkur líður, hvernig við tjáum okkur og stundum einfaldlega um gleðina sem felst í því að koma saman, sýna sig og sjá aðra. Það er eitthvað við það að sjá flík á manneskju í stað þess að sjá hana á skjá. Að fá að snerta efnið í stað þess að lesa agnarsmátt letur um innihald þess. Að máta flík eða flíkur sem þú féllst óvænt fyrir og upplifa það á eigin skinni hvernig þér líður í flíkinni áður en þú fjárfestir í henni. Tískan hefur, eins og svo margt annað í lífinu, færst mikið yfir á skjáinn. Við skrollum, vistum, pöntum og fáum hugmyndir frá fólki hinum megin á hnettinum. Það er auðvitað stórkostlegt að hafa allan þennan heim við fingurgómana, geta sótt hugmyndir og innblástur beint úr sófanum á meðan enn ein hauslægðin líður hjá. En kannski höfum við líka aðeins gleymt því hvað tíska getur verið félagsleg. Að koma saman, máta og hlæja. Fá innblástur frá manneskjunni sem stendur við hliðina á okkur og sjá hvernig hún setur saman hluti sem okkur hefði aldrei dottið í hug að para. Hvetja vinkonu til að prófa litinn sem hana langar í en þorir ekki að kaupa og sjá svo svipinn þegar hún horfir í spegilinn og ljómar, bæði yfir litnum og eigin hugrekki. Hvað gerir góða þjónustu Það hljómar kannski eins og lítið atriði að vera boðin góðan daginn þegar maður gengur inn um dyrnar. Að mæta brosi. Að einhver gefi sér tíma til að hlusta, sækja aðra stærð eða segja af einlægni: „Prófaðu frekar þetta snið, ég held að það gæti hentað þér betur.“ En þetta eru ekki endilega lítil atriði, þetta er það sem góð þjónusta snýst um.
Undanfarin ár hafa kennt okkur ýmislegt um þörfina fyrir mannleg samskipti og hlýju. Við getum gert ótrúlega margt án þess að tala við nokkurn mann. Pantað mat, keypt föt, bókað ferðalag og sótt pakkann okkar í hólf eða á pósthús. Og stundum er það nákvæmlega þægindið sem við þurfum. En það kemur aldrei í staðinn fyrir manneskjuna. Persónuleg og góð þjónusta situr nefnilega eftir. Við munum kannski ekki endilega hvað við keyptum þegar frá líða stundir en við munum hvernig okkur leið, það er einmitt það sem Tískudagarnir í Kringlunni snúast um.
Tískan í bland við persónulegan stíl Stefnur og straumar eru skemmtilegir. Þeir gefa okkur hugmyndir, hrista aðeins upp í fataskápnum og stundum koma þeir okkur verulega á óvart. En þeir eru sannarlega hvorki lög né reglur. Við þurfum ekki öll að vera í sömu gallabuxunum, sama jakkanum eða sama litnum bara af því að einhver ákvað að það væri málið þessa stundina. Persónulegur stíll verður nefnilega áhugaverður þegar við tökum það sem er að gerast í tískunni og gerum það að okkar. Kannski tekur þú kögrið sem virðist einfaldlega neita að fara aftur heim og parar það við gömlu gallabuxurnar þínar. Kannski prófar þú nýtt snið en heldur þig við litina sem þú elskar. Kannski tekur þú bara eitt lítið trend inn í fataskápinn - og lætur restina eiga sig. Og svo eru það auðvitað trendin sem tekur því varla að pakka niður. Halló, tiger og zebra mynstur enn eitt árið! Rétt þegar maður heldur að nú sé komið að því að setja dýramynstrið aftast í skápinn birtist það aftur eins og heil dýrahjörð í formi aukahluta, fatnaðar og jafnvel innanstokksmuna. Kannski er það einmitt ágæt áminning um það hversu lítið vit er í því að taka tískuna of alvarlega og temja sér heldur að fylgja eigin tískuinnsæi, ef svo má að orði komast.
Litir eru meira en bara litir Svo eru það litirnir. Fyrir okkur sem búum á landi þar sem veturinn virðist slá einhvers konar met í fjölda grárra tóna finnst mér þeir skipta sérstaklega miklu máli. Við vitum hvað gerist þegar sólin lætur loksins sjá sig. Fólk fyllir göturnar, brosin verða aðeins breiðari og það er eins og einhver hafi skrúfað upp innra ljósið okkar sömuleiðis. Af hverju ættum við þá ekki að leyfa fataskápnum að hjálpa aðeins til? Bleik peysa getur létt lundina. Rauður varalitur getur breytt deginum. Grænn jakki getur gert gráan mánudag töluvert líflegri, nú eða litríkur trefill. Svo ég tali nú ekki um gular flíkur, en gulur er einn af þeim litum sem við munum sjá í vetur í ýmsum tónum en hann jafnast án efa við andlega vítamínsprautu. Við þurfum ekki að bíða eftir sumrinu til þess að upplifa liti eða leyfa okkur liti. Við þurfum heldur ekki að bíða eftir „rétta tilefninu“ til að klæðast einhverju sem lætur okkur líða vel. Það er því kannski tímabært að velta því enn frekar fyrir sér. Hvað lætur okkur líða vel!
Verum aðeins hugrakkari Tíska á nefnilega að vera skemmtileg. Hún má vera litrík, látlaus, klassísk, skrýtin, kvenleg, karllæg, töff, sportleg eða allt þetta á sama tíma. Hún má breytast og þróast með okkur, allri reynslunni okkar. Það fallegasta við persónulegan og lifandi stíl er einmitt að það getur enginn stolið stílnum þínum. Því hann er bara þinn. En þú getur án efa veitt öðrum innblástur með hverju svo sem þú ákveður að raða saman og klæðast. Þess vegna vona ég að við notum Tískudaga Kringlunnar ekki bara til að skoða hvað er nýtt, heldur líka til að koma saman, fá innblástur, tala um tísku og líðan, máta eitthvað óvænt, mæta fólki, þiggja ráð, gefa hrós, hvetja hvert annað. Og kannski ganga út með aðeins meira hugrekki en við gengum inn með. Prófaðu litinn. Mátaðu flíkina sem þú heldur að sé „ekki þú“. Taktu einhvern sem þér þykir vænt um með þér í Kringluna. Spjallaðu við manneskjuna í búðinni. Settu kögrið við eitthvað sem þú átt fyrir. Og ef tiger-mynstrið lætur hjartað slá aðeins hraðar? Ekki pakka því niður. Höldum saman í mennskuna, hún fer aldrei úr tísku.
s n r ö j b l a ð A Tinna n e s u a l C a n n &A
“Á Tískudögum Kringlunnar er markmiðið að færa tískuna af skjánum, út í rýmið og leyfa okkur að sjá hana, heyra og finna.” Þegar tískan fær að lifna við Þær Tinna Aðalbjörns og Anna Clausen, sem margir þekkja í tískuheiminum til margra ára, sameina nú krafta sína þar sem þær halda utan um tískusýningu Tískudaga Kringlunnar.
Anna sem er ein af þekktari fagkonum íslensk tískulífs hefur starfað sem ritstjóri, stílisti og listrænn stjórnandi og unnið með alþjóðlegum tískutímaritum á borð við Vouge. Tinna Aðalbjörns státar sig sömuleiðis af margra ára reynslu sem bæði listrænn stjórnandi og "casting director". Við tókum Tinnu tali um tískuhjartað, gæsahúðina, draumaflíkurnar - og trendin sem hún vonar innilega að þurfa aldrei að upplifa aftur. Fyrir henni byrjar góður stíll þó ekki á nýjasta trendinu heldur sjálfstrausti, persónuleika og hugrekkinu til að fara eigin leið.
Sagan kemur fyrst Fyrir Tinnu snýst góð tískusýning ekki bara um falleg föt á fallegu fólki. Hún þarf að segja sögu, skapa stemningu og helst framkalla smá gæsahúð. „Á Tískudögum Kringlunnar er markmiðið að færa tískuna af skjánum, út í rýmið og leyfa okkur að sjá hana, heyra og finna.“ Þegar byrjað er að skapa heila tískusýningu er freistandi að halda að fyrsta skrefið sé að velja fötin. Tinna segir ferlið hins vegar byrja annars staðar. Fyrst þurfi að finna söguna. „Fyrir mér byrjar þetta á því að segja sögu sem gengur upp frá A til Ö. Út frá henni verða svo lúkk, tónlist og öll umgjörðin til.“ Hún segir söguna einmitt mikilvæga þegar ólíkar verslanir Kringlunnar koma saman á einum sýningarpalli. „Hver þeirra hefur sinn karakter, sína viðskiptavini og sína fagurfræði, en verkefnið er að láta ólíka heima mynda eina sterka heild.“
Gæsahúð er alltaf gott merki Þegar ljósin kvikna og fyrsta módelið stígur inn á sýningarpallinn vill Tinna að gestir upplifi meira en bara það sem þeir sjá. „Fyrst og fremst vil ég að öllum líði vel - en helst vil ég að fólk fái smá gæsahúð þegar tónlistin byrjar og fyrsta módelið gengur inn.“ Það er stemningin sem getur gert tískusýningu að einhverju meira en röð af fallegum fötum. Hún þarf að finnast á pallinum, í salnum og jafnvel baksviðs. Þar ríkir þó örlítið önnur tegund af spennu. Þegar Tinna er spurð hvað hún óttist helst að fari úrskeiðis stendur ekki á svarinu „Að módelin nái ekki að skipta nógu hratt um föt á milli atriða og sviðið standi allt í einu autt. Það sem lítur áreynslulaust út úr salnum getur því verið ansi vel skipulagt fyrir aftan tjöldin.“
Að sjá, heyra og finna tískuna Kannski liggur þó stærsta ástæðan fyrir því að halda tískusýningu í dag í einhverju enn einfaldara. Á tímum þar sem stór hluti tískuheimsins okkar býr í símanum finnst Tinnu mikilvægt að við gleymum ekki að mæta. „Tískusýning snýst fyrir mér um að halda í það að sjá, heyra og finna. Að mæta á staðinn, hitta annað fólk og sýna sig. Að þetta verði ekki allt bara online.“ Þegar talið berst að hausttískunni 2026 er það fjölbreytileikinn sem heillar Tinnu mest og ekki síst hversu sterkt vintage er komið inn. Við erum ekki bara að horfa fram á við heldur líka aftur, finna gömul form, flíkur og hugmyndir og gera þær að okkar. Eftir mörg ár í kringum tísku er það líka annað sem Tinna tekur sífellt betur eftir: gæðunum. Henni finnst áberandi hversu misjöfn efni og frágangur eru orðin og að stundum vanti þá dýpt og vandvirkni sem áður þótti sjálfsögð. „Það sem kveikir enn í tískuhjartanu mínu eru því ekki endilega nýjustu trendin heldur hönnuðirnir sem halda fast í handverkið; hugsa um efnið, sniðið og fráganginn og vilja að flíkin fari vel gerð alla leið frá verksmiðjunni, inn í verslunina og þaðan heim með manneskjunni sem ætlar að klæðast henni.“
Tísku yfirheyrsla
Hvað er góður stíll í þínum augum? Sjálfstraust. Að halda í sinn eigin stíl, treysta honum og vera óhrædd við að fara eigin leið.
Hverjar eru þínar helstu tískufyrirmyndir? Gwen Stefani er mitt helsta tísku-icon og hefur verið það síðan ég var unglingur. Ég elska líka stílinn hennar Irinu Shayk og svo finnst mér Miley Cyrus alltaf flott. Hún þorir að fara sínar eigin leiðir og er aldrei föst í sama stílnum.
Best klædda manneskjan sem þú þekkir? Pattra vinkona mín er alltaf með frábæran stíl og kann að setja saman ólíka hluti og liti. Mér hefur líka alltaf fundist Anna Clausen hafa einstakan stíl. Hún er óhrædd við að fara sína leið og gerir einhvern veginn allt fallegt sem hún klæðist.
Hvað ráðleggurðu konu sem finnst hún hafa týnt stílnum sínum? Að fá stílista til að renna með sér yfir fataskápinn. Stundum þarf ekki nema klukkutíma og fersk augu til að sjá fötin sín upp á nýtt og læra að setja þau öðruvísi saman.
Hvaða tískutímabil hefðir þú viljað upplifa? 70s. Klárlega.
Trend sem má alls ekki koma aftur? Lágar buxur með G-strenginn upp úr!
Stærstu tískumistök Tinnu? Nákvæmlega það sama. Að vera í svo lágum gallabuxum að maður gat varla sest niður án þess að nærbuxurnar sæjust. Okkur þótti þetta auðvitað alveg stórkostlega flott á sínum tíma.
Trend sem þú myndir endurvekja strax á morgun? Skirt suits.
Hvað verður „hlutur haustsins“? Fallegir fylgihlutir - töskur, klútar og hattar.
Hvað er á draumalistanum fyrir haustið? Chloé skirt suit, suit frá Sævari, jakki og kjóll frá Isabel Marant og leðurstígvél frá Gia Borghini.
gar n i n r u p s Hraða
Vintage eða nýtt? Bæði Minimalismi eða maximalismi? Bæði Svart eða litur? Bæði Háir hælar eða sneakers? Hælar Gull eða silfur? Gull Oversized eða aðsniðið? Aðallega aðsniðið Kögur eða loð? Kögur Tiger eða hlébarði? Hvorugt! Fullkomið outfit eða fullkominn fylgihlutur? Fullkomið outfit Fylgja trendinu eða brjóta reglurnar? Brjóta reglurnar
Ralph Lauren Trench Kápa
Ralph Lauren BLZ Shoulder Taska
Ralph Lauren Peysa
Ralph Lauren Gallajakki
Golden Goose New Tex Belti
Ralph Lauren Bomber Jakki
Ralph Lauren Peysa Fleece
Ralph Lauren Woven Flare Buxur
Golden Goose Francy Shearling Skór
ir t æ m i Tækn tís ku SALOMON Lífsstílslína Salomon blandar tísku og notagildi á ómótstæðilegan hátt. Þeir leyfa þér að halda frá kaffihúsinu upp á næsta tind. Með áherslu á bæði frammistöðu og stíl bjóða þeir upp á þægindi og endingu sem henta fyrir hvaða undirlag og aðstæður sem er.
XT EVR M Strigaskór
XT EVR M Strigaskór
XT-EVR GTX M Strigaskór
XT-EVR W Strigaskór
XT-EVR W Strigaskór
XC Edge W Strigaskór
Mikael
Verslunarstjóri
1
Útilíf
Hvenær varð útivistarfatnaður að tísku? Útivistarfatnaður komst fyrst í sviðsljósið sem tískufyrirbæri árið 2017 undir tískuheitinu GROPCORE (Good Old Rasins and Peanuts) sem vísar í hið fræga „Trail mix“ sem margir fjallagarpar tóku með sér í göngur. Hérna heima má segja að útivistartískan hafi verið lengur við lýði vegna hinnar skemmtilega óútreiknanlegu veðráttu okkar. The North Face hefur ávallt farið vel með landann í gegnum tíðina, alveg frá síðustu aldamótum til dagsins í dag.
2 3
Hvaða útivistarflík er orðin jafn sjálfsögð á kaffihúsi og uppi á fjalli? Glacier ¼ zip flíspeysa frá The North Face er algjör klassík sama hvaða aðstæðum þú ert í.
4
Hvaða þrjá hluti ætti hver Íslendingur að eiga fyrir haustið? Gammosíur eða föðurland, dúnúlpu og flotta húfu í stíl
Hvað skiptir mestu þegar góð útivistarflík er valin: efni, snið, ending eða útlit? Í dag má auðveldlega fækka flokkum í tvo með því að sameina efni og endingu annars vegar og snið og útlit hins vegar. Framleiðendur á borð við The North Face og Salomon leggja mikið upp úr því að flíkurnar bæði endist og líti vel út. Það má sjá út frá efnisvali og hönnun á flíkunum frá þeim. Þau eru góð í að blanda saman klassískum línum og sniði með vali á nýstárlegu efni með framúrskarandi endingu.
5 6
Hvaða outdoor-trend finnst þér sérstaklega skemmtilegt núna? Crop-skeljar svokallaðar eru mikið inn í augnablikinu og einstaklega skemmtilegur því að þessi nútímasýn á klassíska flík er viss þversögn við hið sígilda notagildi skelja í gegnum tíðina. Blandaðu jakkanum við nýjustu útgáfuna af „Eye jacket“-gleraugunum frá Oakley og þá ertu komin(n) með skemmtilega flírulegt lúkk.
Ef þú fengir aðeins einn jakka fyrir íslenskan vetur, hvaða jakki yrði fyrir valinu? Dryvent Zip-in jakkinn eða 1996 Retro Nuptse dúnúlpan frá The North Face. Algjör klassík!
7
Hvað verslaðir þú þér síðast í Útilíf? Dryzzle-regnstakkinn frá The North Face úr útivistarverslun Útilífs í Skeifunni.
ngar i n r u p s a Hrað
Dúnn eða ull? Ull, ótrúlega fjölhæft! Fjall eða borg? Fjall, skemmtilegast að uppgvöta nýja staði. Litur eða svart? Litur, leiðilegt að falla inn í þvöguna.
a s í L a n n A
Samfélagsmiðlastjóri
Spúútnik
Hvernig myndirðu lýsa fatastílnum þínum? Frekar afslappaður en oft með smá attitude. Ég elska vintage flíkur með karakter og para þær saman við eitthvað aðeins einfaldara. Outfitformúlan mín er oft oversized flíkur á móti einhverju aðeins gellulegra.
Hvað gerir flík að fjársjóði? Þegar maður veit að maður mun líklega aldrei sjá nákvæmlega sömu flík aftur. Ég elska þegar föt hafa smá sögu og karakter.
Hver er besta vintage flík sem þú hefur nokkurn tíma rekist á? Maison Margiela köflóttir tabi-hælaskór sem ég fann í vintage-búð í New York. Því miður voru þeir of litlir og ég þurfti að skilja þá eftir.
Hvaða áratugur átti bestu tískuna? 90s alveg klárlega, sá stíll höfðar mest til mín. Mér finnst eitthvað við tískuna þá sem var svo effortless og cool án þess að reyna of mikið. Fullkomnar gallabuxur, leður, litlir toppar, stórir jakkar og góðir skór. En svo á ég það líka til að taka innblástur frá 70s tískunni.
Hvaða trend úr fortíðinni ertu mest hissa á að sé komið aftur? Ég hef svo gaman af því að sjá gömul trend koma aftur svo ég tek því yfirleitt alltaf með opnum örmum en ætli ég sé ekki mest hissa á endurkomu skinny jeans. Eftir að hafa verið í oversized og baggy silhúettum svo lengi hélt ég að við værum búin að loka þeim kafla fyrir fullt og allt. En það er líka það skemmtilega við tísku - allt kemur aftur.
Er einhver tíska sem má alls ekki koma aftur? Ég held eiginlega ekki. Það er yfirleitt bara spurning um hver klæðist henni og hvernig. Flík sem mér finnst alveg hræðileg ein og sér getur allt í einu orðið uppáhaldsflíkin mín þegar ég sé einhvern gera eitthvað óvænt við hana.
Hvað ætti fólk að skoða sérstaklega þegar það leitar að góðri second hand flík? Ekki festa sig of mikið í stærðinni eða hvaða merki stendur á miðanum. Skoða efnið, sniðið og gæðin og prófa hluti sem maður myndi venjulega ekki velja. Bestu second hand kaupin mín hafa oft verið eitthvað sem leit ekkert sérstaklega vel út á herðatrénu.
Hefur þú einhvern tímann selt flík og séð eftir henni? Já, það voru vintage Levi’s 501 gallabuxur sem voru í fullkomnum lit og sniði, fullkomlega víðar á mig. Sakna þeirra á hverjum degi.
Ef þú mættir fara aftur í tímann og ræna fataskáps eins einstaklings, hver væri það? Cher, án þess að hika. Ég myndi ræna öllum fataskápnum hennar.
Hvað ætlar verslunin Spúútnik að bjóða okkur upp á á tískudögum? Troðfull búð af vintage gersemum. Eitthvað sem þú finnur kannski hvergi annars staðar.
a n n Ti
Framkvæmdastjóri & eigandi Hrím
1
Hvernig myndirðu lýsa þínum heimilisstíl í dag? Ég er að gera upp 80" hús úti á Seltjarnarnesi núna og er að vinna mikið með skemmtilega liti þar, eins og að blanda saman ljósbláu og terracotta. Reykt eik á gólfin og litríkar flísar í forstofunni. Ég er mjög hrifin af svona smá „iðnaðarstíl“, krómaðar hillur og svo SMEG appelsínugul gaseldavél. Stíllinn minn er fyrst og fremst skemmtilegur og litríkur. Selettivörurnar njóta sín mjög vel á heimilinu mínu í bland við rólegar og hlýjar vörur frá Ferm living og gamla fjölskyldumuni.
2 3
Hvaða straum sérðu sterkastan á heimilum Íslendinga akkúrat núna? Hlýlegir náttúrulegir tónar hafa verið allsráðandi en ég finn að það er að minnka aðeins hægt og rólega og fólk er að fara meira í sterkari liti og dekkri við. Speglar og lampar hafa verið mjög vinsælir hjá okkur og skrautmunir frá Seletti sem lífga svo sannarlega upp á heimilið.
7
Er eitthvað sem þig dreymir sérstaklega um að eignast þetta haustið? Ég er að fá afhenda afmælisgjöfina mína í haust sem er appelsínugul SMEGgaseldavél. Það er draumur sem er að verða að veruleika.
8
Hver verður jólagjöfin í ár? Lampi sem hægt er að hlaða. Mér finnst það svo nytsamlegt og falleg gjöf.
9
Er eitthvað sem fólk er farið að þora meira í þegar kemur að litum, formum og mynstrum? Já, fólk elskar að hafa spegla sem lífga upp á heimilið, Seletti-speglarnir eru mjög skemmtilegir. Það er verið að vinna með líkamsform og aðeins verið að ögra.
4
5
Hver er „litli svarti kjóllinn“ í innanhússhönnun, hluturinn sem klikkar aldrei?
Hvaða fimm hlutir geta breytt stemningunni á heimilinu án þess að það þurfi að gera allt upp? Plaköt í fallegum viðarrömmum, lítill USBlampi, ilmkerti, teppi og svo vera óhrædd við að mála veggi í litum.
Mér finnst mjög mikilvægt að hafa lampa sem gerir hlýja stemningu. Við erum með svo fallega hlaðanlega lampa sem er svo gott að geta haft úti um allt hús og mjúkt teppi er algjört must inn í haustið. Svo lífga þau upp á sófann.
Hvaða trend ertu fegin að sjá hverfa og hvaða gamli straumur mætti gjarnan koma aftur? Ég er mjög glöð að svart/hvítt fór og við tóku hlýir jarðlitir. Þá helst í vösum og lömpum. Er mjög glöð að sjá að 80" er að koma sterkt inn aftur núna. Stál, gler, litríkir fylgihlutir og húsgögn.
6
Ef þú mættir velja eina vöru úr Hrím heim til þín í dag, hvað færi með þér? Ég er að flytja núna í stærra hús og er vandræðalega spennt að fá mér LOKSINS gulan Seletti SHIT-stól. Mig langar í ALLT frá Seletti en læt þetta duga sem innflutningsgjöf frá mér til mín.
10
Hvað munu gestir Tískudaga sjá frá Hrím? Nýja klúta sem við erum að framleiða með Sævari Markúsi fyrir Hrím sem heita DULA. Svo eru öll flottu íslensku fatamerkin okkar með gott úrval hjá okkur sem við munum sýna vel frá.
Tískuvika
20%
af töskum og fylgihlutum
14-19. september afsláttur gildir af völdum vörum
Ralph Lauren Jakki
Ralph Lauren Gallabuxur
Ralph Lauren Skyrta
Ralph Lauren Skyrta
Ralph Lauren Skyrta
Ralph Lauren Bomber Jakki
Ralph Lauren Peysa Fleece
Hugo Flip Suit Twill Buxur
Ralph Lauren Buxur
k r jö B a l jó F
Verslunarstjóri
Hvernig myndirðu lýsa fatastílnum þínum?
Levi’s
Ég myndi lýsa honum sem klassískum og hversdagslegum en hann fylgir líka tískubylgjunum. Ég elska góðar grunnflíkur og mér finnst gallabuxur vera algjör grunnur í fataskápnum mínum. Flík sem hægt er að nota bæði hversdags og þegar maður vill dressa sig aðeins upp.
Hvað gerir gallabuxur að réttu gallabuxunum? Það er ekki til eitt „rétt“ snið fyrir alla. Réttu gallabuxurnar eru þær sem henta þínum líkama og þínum stíl og að mínu mati skiptir mestu máli að manni líði vel í þeim.
Hvaða Levi's snið er stjarnan hjá ykkur núna? Í kvennasniðunum er 501 90’s orðið mjög vinsælt, ásamt bootcut og víðari sniðum eins og XL straight. Í herrasniðum heldur 501 áfram að vera vinsælt en víðari snið eru byrjuð að taka yfir líkt og 555, 568 og 501 Loose.
Hvaða gallabuxnatísku myndir þú helst vilja endurvekja og hvaða tímabil má alveg vera áfram í fortíðinni? Ég hef verið mjög hrifin af 90’s stílnum og mér finnst hann vera orðinn algjör klassík. Ég elska líka 70’s flare-gallabuxurnar, sérstaklega við fallega hæla. Það sem má hins vegar mín vegna vera áfram í fortíðinni eru skinny-gallabuxurnar.
Manstu eftir fyrstu Levi's-buxunum þínum? Já, ég man vel eftir mínum fyrstu Levi’s buxum og átti þær í mörg ár. Nú á ég töluvert fleiri pör og langar alltaf í fleiri! Ég elska að eiga nokkur mismunandi snið til að velja úr eftir tilefnum.
Skinny, straight, wide eða flare, hvar erum við stödd í gallabuxnaheiminum? Straight og wide snið eru mjög vinsæl núna og „relaxed fit“ er greinilega komið til að vera. Það er gaman að sjá að tískan fer alltaf í hringi og margt sem var vinsælt hér áður fyrr er farið að njóta vinsælda á ný.
Hver eru algengustu mistökin sem við gerum þegar við veljum okkur gallabuxur? Að festast of mikið í ákveðinni stærð eða ákveðnu sniði. Sama stærð getur verið ólík eftir sniðum og efni. Einnig er gott að hafa í huga að gallabuxur gefa oft aðeins eftir með notkun, þannig að það getur verið góð regla að velja þær aðeins þrengri í upphafi, svo lengi sem þær eru ekki óþægilegar.
Hvort velur þú: splunkunýjar fullkomnar gallabuxur eða gamlar, mjúkar og vel slitnar sem hafa fylgt þér árum saman? Gamlar og mjúkar, ég elska þegar gallabuxur hafa mótast með tímanum og verða enn þægilegri eftir því sem maður notar þær meira. Ég elska hins vegar líka að prófa ný snið, breyta til og fylgja tískunni.
Hvaða þrjár flíkur dreymir þig um að eignast úr versluninni þetta haustið? Góðar klassískar gallabuxur í dökkbláu, flottan gallajakka í stíl og góða oversized skyrtu. Ég elska að byggja upp haustfataskápinn með góðum grunnflíkum sem hægt er að nota á marga mismunandi vegu.
s u a l a Tím n u n n ö h VAGABOND Tímalaus hönnun, vönduð gæði og skandinavískur stíll. Vagabond sameinar klassískt útlit og nútímaleg trend í skóm sem henta jafnt hversdeginum sem og sérstökum tilefnum. Með áherslu á falleg smáatriði, þægindi og sterka hönnun eru skórnir frá Vagabond fullkomin viðbót við hvaða dress sem er. Finndu þitt næsta uppáhalds par í Kaupfélaginu.
Fay Ökklaskór
Kelsey Ökklaskór
Aleya Ballerínur
Steven Mokkasínur
Vaka
Verslunarstjóri Lindex í Kringlunni
1
Hverju eru konur að leita mest eftir hjá ykkur akkúrat núna?
2
Fólk er mikið byrjað að leita að þessu sem einkennir haustið. Hlýjar peysur, kápur og ný föt fyrir börnin.
4
Er einhver gömul „tískuregla“ sem konur mættu gjarnan hætta að fara eftir? Það eiga ekki að vera neinar reglur í tísku. Fólk á að geta klætt sig eins og það vill, þægindi og stíll eiga að vera í fókus. Klæddu þig í það sem þú vilt án þess að pæla í hvað öðrum finnst.
Hvaða flík finnst þér að allar konur ættu að eiga í fataskápnum?
3
Góð kápa sem virkar fyrir öll tilefni og hin fullkomna hlýja peysa til að henda sér í, hugguleg og þægileg.
5
Hvaða trend þessa hausts finnst þér sérstaklega falleg?
Hvaða litir verða mest áberandi í fatnaði þetta haustið? Brúnn heldur áfram að vera áberandi. Auk þess eru rauður og blár að koma sterkir inn líka.
6
Litirnir í ár eru einstaklega fallegir, það eru þessir klassísku sem allir geta klætt sig í en svo eru líka þessir skæru litir inn á milli, t.d. rauður og blár, sem eru alltaf fallegir. Dýramynstur er enn þá sterkt í haust, það er ekki að fara neitt. Auk þess eru þægindin alltaf vinsæl á þessum tíma.
„Það er ekkert sem heitir að klæða sig rétt, sama hvað er í tísku, þér á bara að líða vel.“
Hvernig finnum við jafnvægið milli þess að fylgja tískunni og klæða okkur þannig að okkur líði vel? Þetta er nákvæmlega það sem Lindex stendur fyrir. Þér á að líða vel í fötunum þínum. Það er alltaf hægt að fylgja straumnum aðeins en alltaf gaman þegar það er að minnsta kosti ein flík sem brýtur upp á lookið og segir öðrum eitthvað um þig og þinn stíl. Það er ekkert sem heitir „að klæða sig rétt“, sama hvað er í tísku, þér á bara að líða vel.
r u r ö v r a j Ný ! ð i t s u a h fyrir
ý n ð u G a d l u H Framkvæmdastjóri & eigandi Optical Studio
Hvernig myndirðu lýsa þínum persónulega stíl og hvaða hlutverki gegna gleraugu í honum? Ég myndi segja að stíllinn minn sé kvenlegur, litaglaður og sportlegur. Ég elska liti, pils og kjóla en mér finnst líka gaman að brjóta kvenlegan stíl upp með strigaskóm eða einhverju aðeins sportlegra. Ég fylgi ekkert endilega einum ákveðnum stíl eða trendum heldur vel fyrst og fremst það sem mér finnst fallegt og líður vel í - og mér finnst gaman að blanda ólíkum hlutum saman. Gleraugu eru mjög stór hluti af þessu hjá mér. Ég lít á þau sem tískuvöru og fylgihlut, alveg eins og tösku, skó eða skartgripi. Ég skipti mikið um gleraugu eftir því hverju ég er í og mér finnst þau geta breytt heilu looki.
Eru gleraugu/sólgleraugu orðin jafn mikil tískuvara og töskur, skór eða skartgripir? Algjörlega. Og kannski enn frekar að sumu leyti, því gleraugun sitja í andlitinu og geta gjörbreytt ásýndinni. Mér finnst við líka vera komin svolítið frá þeirri hugsun að maður eigi bara „gleraugun sín“. Af hverju ætti maður að nota sömu gleraugun við allt þegar maður myndi aldrei gera það við skó, tösku eða skartgripi? Ég elska að geta valið gleraugu eftir fötunum, tilefninu eða bara skapinu þann daginn.
Hvað finnst þér Íslendingar mættu þora meira þegar kemur að vali á gleraugum? Að velja ekki alltaf öruggasta parið. Fólk setur stundum upp umgjörð sem er aðeins öðruvísi en það er vant og fyrsta viðbragðið er: „Þetta er allt of mikið fyrir mig.“ Mér finnst mikilvægt að festast ekki alltaf í sama farinu og þar getur verið gott að fá álit frá okkur sem lifum og hrærumst í gleraugnageiranum. Oft sjáum við eitthvað sem viðkomandi hefði sjálfur aldrei tekið úr hillunni en fer honum ótrúlega vel. Ég tek líka eftir ákveðinni hjarðhegðun hér heima, þar sem margir fara í sama trendið á sama tíma. Mér finnst persónulegra miklu skemmtilegra þegar fólk velur gleraugu út frá sínum eigin stíl og persónuleika frekar en því sem allir eru með.
Hvernig finnur maður umgjörðina sem passar manni? Eigum við að horfa á andlitsfall, liti, persónuleika eða einfaldlega það sem okkur langar í? Auðvitað skipta andlitsfall, stærð, litir og hlutföll máli en ég er ekki mjög hrifin af of ströngum reglum um að ákveðin andlitsform eigi bara að nota ákveðin gleraugu. Persónuleikinn skiptir ekki síður máli. Mér finnst besta prófið oft einfaldlega vera að setja gleraugun upp og horfa í spegil. Ef þér líður vel í þeim og finnst þú flott/ur þá er mjög líklegt að þú hafir fundið réttu gleraugun. Stundum þarf líka að prófa eitthvað sem maður hefði aldrei sjálfur tekið úr hillunni.
Er einhver klassísk umgjörð sem fer aldrei úr tísku? Já, falleg svört acetat-umgjörð fer held ég aldrei úr tísku. Hún er svolítið eins og litli svarti kjóllinn, getur verið mjög klassísk en líka ótrúlega töff eftir því hvernig hún er hönnuð. Tortoise/havana er líka nánast tímalaust og svo góð, fíngerð málmumgjörð. Þegar hönnunin og gæðin eru góð þarf umgjörðin ekki endilega að fylgja einhverju ákveðnu trendi. Svo eru það líka Lindberggleraugun, þau eru algjör klassík og detta aldrei úr tísku. Fullkomin hönnun og ótrúlega létt og þægileg. Við höfum selt þau í 35 ár og verið eitt af söluhæstu merkjunum okkar.
Hvaða gleraugnatíska úr fortíðinni ertu ánægð með að sjá aftur og er eitthvað sem má gjarnan vera áfram í fortíðinni? Ég elska vintage-áhrifin sem eru komin aftur - stór form, seventies-gleraugu og umgjarðir með mikinn karakter. Mér finnst skemmtilegt þegar gleraugu fá að vera svolítið „of mikið“. Ég sakna minna tímabilsins þegar gleraugun áttu helst að vera svo lítil og ósýnileg að enginn tæki eftir þeim og glerin voru næstum því minni en augun. Mér finnst skemmtilegra þegar gleraugun fá að njóta sín og vera hluti af heildarlúkkinu. Það þýðir samt alls ekki að gleraugu þurfi alltaf að vera áberandi. Látlaus og minimalísk gleraugu geta verið ótrúlega flott, til dæmis Lindberg-gleraugun eða umgjörðarlaus gleraugu. Þá finnst mér líka skemmtilegt að leika mér með smá lit í glerjunum og gefa þeim þannig meiri karakter.
Ef þú mættir velja þér þrjú draumapör úr Optical Studio fyrir haustið - hvaða gleraugu yrðu fyrir valinu? En ég myndi velja þrjú mjög ólík pör: eitt fallegt og fágað par sem gengur nánast við allt, líklegast Lindberg-gleraugu án ramma í kringum glerin, með örlitlum brúnum tón í glerinu. Mjög látlaus en samt með karakter. Svo myndi ég velja eitt miklu djarfara statement-par, til dæmis frá Chrome Hearts. Svo þriðja parið myndi líklegast vera Miu Miu eða Dior. Í sólgleraugum þá elska ég Dior-spöngina þessa dagana, en hún er einmitt þetta svona út fyrir rammann, bleik og hönnuð þannig að hún virkar sem spöng í hárið. Þegar maður færir sólgleraugun upp á höfuðið verða þau í raun að ótrúlega fallegu hárskrauti. Svo eru Balenciaga líka með svo flott sólgleraugu, smá statement alltaf í þeim.
Hver er mesta gleraugna-tískufyrirmynd þín hérlendis og erlendis? Þetta er erfið spurning því ég á eiginlega ekki eina ákveðna gleraugna-tískufyrirmynd. En mér finnst Dua Lipa, Rhianna, Sabrina Carpenter, Beyoncé og Hailey Bieber allar flottar gleraugna tískufyrirmyndir hver á sinn hátt. Mér finnst alltaf flottast þegar maður sér að manneskjan er ekki bara að elta trend heldur hefur fundið eitthvað sem verður hluti af hennar eigin karakter.
Halda auðmanna-gleraugun áfram sigurgöngu sinni? Já, ég held það. Þessi fágaði „old money“ stíll hefur verið mjög sterkur og fólk er hrifið af nettari formum, fallegum málmumgjörðum og gleraugum þar sem gæðin fá að tala. En mér finnst líka vera meiri leikgleði að koma aftur. Ég held því að við sjáum áfram auðmannagleraugun en samhliða þeim miklu meira af litum og statement-formum. Sem er fullkomið.
Ef þú þyrftir að eiga sömu gleraugun næstu tíu árin - myndirðu velja eitthvað klassískt eða fara alla leið í statement? Þetta væri erfitt val. Ef við erum að tala um gleraugnaumgjörð þá myndi ég velja Lindbergumgjörð án ramma í kringum glerið því þá gæti ég breytt um gler og glerjalögun á þessum tíu árum en haldið sömu umgjörðinni samt. Jafnvel sett lit í kanntana á glerjunum og skapað þannig ramma. Þau eru líka svo létt og þægileg að ef ég þyrfti alltaf að vera með ein gleraugu myndi ég velja þau. Ef ég ætti að vera með ein sólgleraugu næstu tíu árin myndi ég líklegast velja Chrome Hearts. Chrome Hearts gleraugu eru í raun dýrgripur sem fellur aldrei úr gildi, heldur alltaf klassanum sínum og virði. Þannig að ég myndi líklegast velja eitthvað tímalaust í grunninn en með nógu miklum karakter til að ég yrði ekki leið á því. Ég held að ég gæti aldrei valið alveg „öruggu“ gleraugun.
Hvað ætlar Optical Studio að sýna okkur á Tískudögum? Við ætlum fyrst og fremst að sýna hvað gleraugu geta gert mikið fyrir heildarútlitið. Mig langar að fólk horfi á gleraugu á sama hátt og skó, tösku eða skartgripi - þau geta verið punkturinn yfir i-ið en þau geta líka verið aðalatriðið í lookinu. Við ætlum að sýna fjölbreytt gleraugu frá merkjunum okkar, allt frá fáguðum og klassískum umgjörðum yfir í miklu sterkari statement-gleraugu. Vonandi fær fólk smá innblástur til að prófa eitthvað sem það hefði kannski ekki sjálft valið - og þora aðeins meira næst þegar það velur sér gleraugu.
r a g n i n r u p HraðasStór eða nett umgjörð? Stór
Svört eða litrík umgjörð? Litrík Klassísk gleraugu eða stælar? Stælar Gull eða slilfur? Gull Ofurstór sólgleraugu eða nett? Stór
d n i L a r a S
Eigandi Júník
Ef þú ættir að lýsa stíl Júník sem persónu, hvernig væri hún? Hún væri sjálfsörugg, skemmtileg og með puttann á púlsinum. Hún elskar að klæða sig upp, blandar flottum grunnflíkum við eitthvað djarfara og er óhrædd við að vekja athygli. Hún klæðir sig fyrst og fremst fyrir sjálfa sig og finnst tískan eiga að vera skemmtileg.
Þrjár best klæddu konur landsins? Gurrý Jóns, Sólrún Diego og Lína Birgitta. Þær eru allar með flottan og persónulegan stíl sem gaman er að fylgjast með.
Hvaða flík eða trend ertu mest spennt fyrir þetta haustið? Ég er sérstaklega spennt fyrir barrel-buxum, hermannamynstri, axlapúðum og oversized leðurjökkum. Ég elska flíkur með karakter og flott snið sem gera jafnvel einfalt dress spennandi.
Hverju finnst þér við Íslendingar mættum vera aðeins djarfari í að klæðast? Mig langar að sjá fleiri í háum stígvélum við stuttbuxur, pils eða stutta kjóla. Það er svo flott samsetning og alveg hægt að nýta hana á haustin með sokkabuxum og góðri kápu yfir.
Hvaða fimm flíkur er nauðsynlegt að eiga í fataskápnum? Flottan leðurjakka, góða kápu, gallabuxur sem sitja vel, leðurbuxur og einfaldan bol með einhverju fallegu smáatriði. Með þessum fimm flíkum er hægt að setja saman ótrúlega mörg dress og færa þau auðveldlega úr hversdagslegu yfir í sparilegt.
Hver eru verstu tískumistök sem þú hefur sjálf gert? Það fyrsta sem kemur upp í hugann eru tannlæknagrænar, niðurþröngar gallabuxur! Það var tímabil þar sem slíkar buxur í öllum mögulegum áberandi litum voru málið og ég tók greinilega fullan þátt. Ef það trend snýr aftur fær það að fara fram hjá mér!
Hvaða trend sórstu að þú myndir aldrei klæðast en endaðir svo í? Ég ætlaði aldrei að fara í víðar og oversized flíkur. Núna fer ég varla í annað! Maður á greinilega aldrei að segja aldrei þegar kemur að tísku.
Hvernig leggjast tískudagarnir í ykkur og hvað hafa þeir að segja? Þeir leggjast mjög vel í okkur! Það er alltaf sérstaklega skemmtileg stemning þegar haustvörurnar koma inn og við fáum að sýna hvað er nýtt. Tískudagarnir eru frábært tækifæri til að hitta viðskiptavini, veita innblástur og hjálpa fólki að prófa eitthvað nýtt. Fyrir okkur snýst þetta líka um persónulegu þjónustuna og gleðina sem fylgir því að finna flík sem manni líður virkilega vel í.
r a g n i n r u p Hraðas
Gull eða silfur? Gull. Hælar eða strigaskór? Hælar. Svart eða litur? Svart.