Skip to main content

Afmælisblað Krafts - 20 ára

Page 1

Ég skil þig


Í Stuðningsnetinu er fjöldi reyndra einstaklinga sem sjálfir hafa greinst með krabbamein eða eru aðstandendur. Þeir eru tilbúnir að veita þér jafningjastuðning. Þeir skilja þig.

Kynntu þér málið nánar með því að taka mynd af QR kóðanum með snjallsíma.


Stjórn Krafts

Elín Sandra Skúladóttir Formaður

Arnar Sveinn Geirsson Gjaldkeri

Starfsfólk Krafts

Atli Már Sveinsson Þjálfari FítonsKrafts

Elín Kristín Klar Umsjónamaður StelpuKrafts

Hrefna B. Sigvaldadóttir Viðburðar- og fjáröflunarfulltrúi

Hulda Hjálmarsdóttir Framkvæmdarstjóri

Birkir M. Birgisson Varaformaður

Davíð Gränz Varamaður

Anna María Miloz Varamaður

Ragnheiður Guðmundsd. Ritari

Kristín Þórsdóttir Markþjálfi

Laila S. Pétursdóttir Markaðs- og kynningarfulltrúi

Sigríður Þorsteinsdóttir Meðstjórnandi

Sóley Kristjánsdóttir Varamaður

Pála M. Gunnarsdóttir Jógakennari

Ragnheiður Davíðsdóttir Verkefnastjóri

Sara Ómarsdóttir NorðanKraftur

Þorri Snœbjörnsson Sálfræðingur


Efnisyfirlit

Frá Líknardeildinni til lífsins. Bls. 13 Ágústa Erna Hilmarsdóttir var við dauðans dyr þegar hún ákvað að taka málin í sínar eigin hendur. Tólfan setti Íslandsmet. Bls. 17 Benni Bongó lýsir því hvernig það var að slá Íslandsmet í perlun. Mitt eigið Everest. Bls. 24 G. Sigríður Ágústsdóttir lét krabbameinsgreiningu ekki hafa áhrif á sig og gekk í grunnbúðir Everest. Foreldri með krabbamein. Bls. 44 Arnar Sveinn Geirsson og Marín Rós Eyjólfsdóttir ræða um þá reynslu að eiga krabbameinsveika móður. Karlmenn leita sér síður stuðnings. Bls. 62 Birkir Már Birgisson, sem greindist með krabbamein, segir karlmenn í hans sporum síður leita sér stuðnings.

Greinar Ég skil þig. Bls. 20 Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur, fjallar um gildi jafningjastuðnings og Ragnheiður Davíðsdóttir talar við ungt fólk sem þegið hefur jafningjastuðning og veitt hann. Litið um öxl. Bls. 32 Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts, tekur saman það sem áunnist hefur í málefnum krabbameinsveikra síðastliðna áratugi. Endurhæfing alla leið. Bls. 56 Ólafur Björnsson, sjúkraþjálfari sem greindist með krabbamein, fjallar um endurhæfingarmál krabbameinsgreindra og það sem betur má fara í þeim efnum. Baráttan við ófrjósemi. Bls. 67 Ragnheiður Guðmundsdóttir fjallar um ófrjósemi af völdum krabbameinsmeðferðar og ræðir við ungt fólk sem hefur reynslu af því.

Annað efni Stjórn og starfsfólk. Bls. 2

Fokk ég er með krabbamein. Bls. 36

Efnisyfirlit. Bls. 3

Skapa fötin manninn? Bls. 38

Leiðari. Bls. 4

Festival Krafts. Bls. 42

Áfangar í sögu Krafts. Bls. 6

Vefverslun Krafts. Bls. 54

Hvað gerir Kraftur? Bls. 8

Nýjungar í starfsemi Krafts Bls. 60

Leggðu Krafti lið. Bls. 11

Deilum reynslunni. Bls. 66

Perlubikarinn. Bls. 19

Perlaðu með Krafti. Bls. 72

Kraftur 20 ára. Bls. 30

NorðanKraftur. Bls.74

Litið um öxl. Bls. 32

Hlaðvarp Krafts. Bls. 75

Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, Skógarhlíð 8, 105, Reykjavík, símar 540-1945 og 866-9600. Stuðningssími 866-9618. www.kraftur.org, kraftur@kraftur.org. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Ragnheiður Davíðsdóttir. Umbrot og hönnun forsíðu: Bára Kristgeirsdóttir. Forsíðuljósmynd: Þórdís Reynisdóttir. Prentun: Prentmet.

Bls. 5

Viðtöl


Bls. 6

Leiðari

Þið eruð krafturinn – Kraftur er til fyrir ykkur Elín Sandra Skúladóttir formaður Krafts


Texti– Elín Sandra Skúladóttir

Öll þessi ár hafa krabbameinsgreindir eldhugar og aðstandendur þeirra verið í lykilhlutverkum í starfsemi Krafts. Þetta fólk hefur lagt mikið á sig í baráttu fyrir hagsmunamálum okkar og hefur í sameiningu myndað þann kraft sem býr í félaginu. Við sem störfum fyrir Kraft njótum þeirra forréttinda að vera vitni af þeirri góðvild sem almenningur og fyrirtæki sýna félaginu. Fólk hleypur, perlar, hjólar, rokkar, hnýtir og spilar bingó, svo fátt eitt sé nefnt, allt í þágu félagsmanna Krafts sem í einu erfiðasta verkefni lífsins sýna styrk sem flestir telja að þeir búi ekki yfir. Krabbameinsmeðferð er erfitt verkefni. Það er hlutverk Krafts að létta félagsmönnum leiðina, í gegnum verkefnið, svo þeir hafi tíma og orku til að sinna því sem mestu máli skiptir. Undanfarin misseri hafa verið Krafti sérstaklega gæfurík. Félagið hefur vaxið og dafnað og hefur nú fjárhagslega burði til þess að takast á við stærri verkefni en áður. Kraftur fór á liðnu starfsári í stefnumótunarvinnu. Í henni kom berlega í ljós að ungu krabbameinsgreindu fólki á landsbyggðinni er ekki nægilega vel sinnt. Það er því forgangsverkefni Krafts að auka þjónustu á landsbyggðinni við unga krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Þrátt fyrir að Kraftur eflist þá hafa undanfarin misseri einnig verið félaginu erfið. Margir félags-

menn okkar hafa fallið frá og það er sárt fyrir okkur öll að kveðja, en eftir lifa minningar um góða félaga. Í minningu Bjarka Más Sigvaldasonar, sem lést þann 27. júní eftir sjö ára baráttu við krabbamein, stofnaði Kraftur Minningarsjóð Krafts. Tilgangur sjóðsins er að styrkja aðstandendur til að standa straum af útfararkostnaði þegar félagsmaður Krafts fellur frá vegna krabbameins eða afleiðingum þess. En sem betur fer lifa flestir krabbamein af. Þrátt fyrir þakklætið sem fylgir því að lifa þá fylgja því jafnframt stórar áskoranir. Því leggur Kraftur áherslu á að veita félagsmönnum sínum stuðning áfram, til dæmis með sálfræðiþjónustu og stuðningshópum. Á þessum tímamótum vil ég nota tækifærið og þakka stofnendum Krafts fyrir ómetanlegt framlag í þágu krabbameinsgreindra og aðstandenda þeirra, og öllum þeim sem hafa styrkt félagið með fjárframlögum, kaupum á varningi eða með öðrum hætti. Síðast en ekki síst færi ég hlýjar þakkir, öllum þeim félagsmönnum og sjálfboðaliðum sem hafa lagt Krafti lið með óeigingjarnri vinnu. Til hamingju með 20 ára afmælið kæru félagsmenn, þið eruð krafturinn sem knýr félagið áfram og Kraftur er til fyrir ykkur.

Bls. 7

Í ár eru liðin 20 ár frá stofnun Krafts. Félagið var stofnað af nokkrum ungum frumkvöðlum sem fannst vanta hagsmunafélag fyrir unga krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Síðan þá hefur félagið vaxið og dafnað.


TÖ LU B L A

Ð

K AF

ÚT

K

R

BÓKIN LÍFSKRAFTUR KEMUR ÚT O -SÍÐU OK

2007

KEMUR

Ó A

FT

S T UN EKI Ð Í NOTK

FYRSTI AÐALFUNDUR KRAFTS

NAR FACEB P O

TS

2000

F Y R S TA L Ó G

FYRSTA HEIMASÍÐA KRAFTS FER Í LOFTIÐ

R

A ST

R

FY

KRAFTUR STOFNAÐUR

KRAFTU R

Bls. 8

Áfangar í sögu Krafts

2004 FIMM ÁRA AFMÆLI KRAFTS FYRSTI LAUNAÐI STARFSMAÐURINN RÁÐINN

TÍU ÁRA AFMÆLI KRAFTS. FYRSTI FRAMKVÆMDASTJÓRINN RÁÐINN. STUÐNINGSNET KRAFTS SETT Á LAGGIRNAR.


FIMMTÁN ÁRA AFMÆLI KRAFTS. STYRKTARTÓNLEIKAR Í HÖRPU. NEYÐARSJÓÐURINN STOFNAÐUR. NÚVERANDI LÓGÓ KRAFTS TEKIÐ Í NOTKUN. SÁLFRÆÐIÞJÓNUSTA BYRJAR. VIÐTALSTÍMAR KRAFTS HEFJAST Á LANDSPÍTALANUM.

VERSL F E

V

20 19

Ð

2018

ÍSLANDSMET Í PERLUN ARMBANDA Í HÖRPU

2017

OPNU

FYRSTA ÁTAKIÐ. SHARE YOUR SCAR FÍTONSKRAFTUR STOFNAÐUR

U

TS

2015

R N K AF

TUTTUGU ÁRA AFMÆLI KRAFTS MINNINGARSJÓÐUR KRAFTS STOFNAÐUR LÍFIÐ ER NÚNA HLAUPIÐ

Bls. 9

2014

Áfangar í sögu Krafts


Hvað gerir Kraftur?

Þegar maður er ungur og greinist með krabbamein þá skiptir svo miklu máli að vita hvert maður getur leitað

Kraftur er fyrir ungt fólk á aldrinum 18-40 ára sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur á öllum aldri alveg frá 16 ára og upp úr. Kraftur hefur alla tíð byggt starf sitt á jafningjastuðningi þar sem áhersla er lögð á að þú getir hitt fólk í svipuðum sporum sem skilur hvað þú ert að ganga í gegnum. Kraftur býður líka upp á viðburði þar sem við fáum fólk til að koma saman og njóta líðandi stundar meðal jafningja. Félagsmenn okkar geta fengið ýmiss konar stuðning hjá félaginu svo sem jafningjastuðning, alhliða ráðgjöf, sálfræðiþjónustu og markþjálfun sér að kostnaðarlausu. Kraftur býður upp á endurhæfingu í formi hreyfingar og útivistar með FítonsKrafti, FítonsYoga og gönguhópnum Að klífa brattann. Kraftur stendur einnig fyrir fræðslu, gefur út efni og heldur fræðslufyrirlestra. Að auki heldur Kraftur úti hagsmunagæslu og hjálpar félagsmönnum að fá upplýsingar um réttindi sín og styrkir félagsmenn sína einnig fjárhagslega.


Kraftur

813

Árlega greinast að meðaltali einstaklingar á aldrinum 18-40 ára með krabbamein

4

félagsmenn eru í Krafti og af þeim eru 55% krabbameinsgreindir og 45% eru aðstandendur

stuðningsfulltrúanámskeið voru haldin víðsvegar um land

NorðanKraftur tók til starfa til að sinna félagsmönnum á Norðurlandi

Að meðaltali nýta sér

félagsmenn þjónustu Krafts í hverjum mánuði

Bls. 11

STAÐREYNDIR ÚR STARFSEMI KRAFTS 2018-2019


Bls. 12

Leiรฐari


Leggðu Krafti lið

Bls. 13

Kraftur er alfarið rekið af velvilja fólks og fyrirtækja í landinu og væri það ógjörningur fyrir félag eins og okkar að styðja við bakið á ungu fólki sem greinist með krabbamein ef ekki væri fyrir ykkar hjálp.

Hvernig getur þú hjálpað okkur að hjálpa öðrum? Við stöndum í þakkarskuld við þá 1.200 styrktaraðila sem nú leggja Krafti lið í hverjum mánuði. Það að berjast við lífshættulegan sjúkdóm er einstaklega krefjandi og því ómetanlegt að félagsmenn geti fengið andlegan, líkamlegan, félagslegan og fjárhagslegan stuðning á tímum sem þessum. Þú getur lagt okkur lið með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðili með því að fara inn á www.kraftur.org - Styrkja Kraft. Þinn stuðningur skiptir máli Kynntu þér málið nánar með því að taka mynd af QR kóðanum með snjallsíma.

Með því að leggja Krafti lið með mánaðarlegum greiðslum hjálpar þú ungum krabbameinsgreindum einstaklingum og aðstandendum að fá:

Sálfræðiþjónustu Markþjálfun Stuðning meðal jafningja Fræðslu og viðburði Endurhæfingu í formi hreyfingar og útivistar Fjárhagslegan stuðning


Viðtal– Ragnheiður Davíðsdóttir

„Mér var sagt að þessi tegund krabbameins væri það erfið viðureignar að þegar komin væru meinvörp væri þetta orðin vonlaus barátta. Þetta voru skelfileg tíðindi og ég fylltist mikilli hræðslu við dauðann“ Árið 2010 var Ágústu Ernu Hilmarsdóttur ekki hugað líf vegna krabbameins sem var langt gengið. Meinið fannst fyrst í brjósti 2008 en dreifði sér síðar víða í eitla og lifur. Þar sem hún var orðin það mikið veik virtist fátt annað blasa við en líknandi meðferð. Ágústa ákvað með hjálp góðra vina að leita óhefðbundinna leiða í þeirri von að takast mætti að vinna bug á krabbameininu. Í dag er Ágústa laus við krabbameinið og gott betur, því draumur hennar um að eignast barn rættist einnig. Sigurinn á krabbameininu þakkar Ágústa einna helst efni sem hún fékk frá Bandaríkjunum, fæðubótarefni sem hún telur hafa gefist vel í baráttunni við krabbamein þrátt fyrir að læknavísindin viðurkenni það ekki. Einnig þakkar hún breyttu mataræði og trúnni á að sigrast á veikindunum. Í einstöku viðtali ræðir Ágústa í fyrsta sinn baráttu sína við krabbameinið og þá örlagaríku ákvörðun að leita annarra leiða en þeirra sem viðurkenndar eru af læknavísindunum, til að freista þess að læknast. „Ég var 35 ára (2008), hjúkrunarfræðingur að mennt, og rak mitt eigið fyrirtæki, Hrif, sem sérhæfði sig í alhliða heilsueflingu hjá fyrirtækjum, þegar ég greindist með krabbamein. Ég fann fyrir verkjum en aðallega miklum stingjum í vinstra brjósti og fór í skoðun hjá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins.

Bls. 15

Ágústa Erna Hilmarsdóttir var við dauðans dyr þegar hún tók málin í sínar eigin hendur. Ágústa Erna er ein af stofnendum Krafts. Hún sá um aðstandendanefnd Krafts og var stuðningsaðili fyrir bæði krabbameinsveika sem og aðstandendur. Ágústa er stolt af því að hafa komið að stofnun Stuðningnets Krafts sem hefur reynst mörgum vel í baráttu þeirra við krabbamein og var hún með stuðningssímann í 5 ár 24/7. Auk þess starfaði hún sem hjúkrunarfræðingur á blóðlækningadeild á krabbameinssviði í þrjú ár þar sem hún kom að aðstandendahjúkrun.


Bls.16

Frá Líknardeildinni til lífsins

í ljós kom að ég var með krabbamein í öðru brjóstinu. Við brjóstnámið fannst einnig krabbamein í vefjum í brjóstinu. Þetta var svokallað „tripple negative“ brjóstakrabbamein og var mér sagt að ef það dreifði sér þá væri ekki hægt að ráða niðurlögum þess,“ segir Ágústa og kveðst í kjölfarið hafa farið í lyfjameðferð sem olli miklum aukaverkunum. „Ég var hreint út sagt alveg ómöguleg, með sífellda verki. Eftir lyfjameðferðina var ég að reyna að ná heilsu á ný og endurhæfa mig. Ég fór á Heilsustofnunina í Hveragerði og dvaldi þar í allt að átta vikur. Snemma árs 2010 fór ég að finna fyrir bólgu yfir brjóstinu, á öxl og hálsi. Ég hafði áður fengið áverka á háls í bílsslysi og kenndi því um til að byrja með. Þegar þetta lagaðist ekki, fór ég til læknis sem þreifaði mig en taldi ekkert vera óeðlilegt. Ég fór svo aftur til krabbameinslæknis stuttu síðar og óskaði þá eftir ómskoðun, enda var mig farið að gruna að þetta gæti verið krabbameinið komið aftur. Læknirinn taldi að ég hefði tognað í vatnsleikfimi. Hann neitaði mér um ómskoðun en þegar mér versnaði stöðugt og bólgurnar ágerðust og ég var hætt að geta sofið fyrir verkjum, fór ég aftur fram á ómskoðun, sem var þá samþykkt. Niðurstöður ómskoðunar og sýnatöku sýndu að ég var komin með meinvörp í holhönd, um og yfir viðbeinið, upp hálsæðina og í lifrina.“

„Mér var meira að segja ráðlagt að þiggja ekki seinni meðferðina – heldur reyna að lifa því stutta lífi sem ég ætti eftir til fulls“

Ágústa talar um að þetta hafi verið mikið áfall. „Mér var sagt að þessi tegund krabbameins væri það erfið viðureignar að þegar komin væru meinvörp væri þetta orðin vonlaus barátta. Þetta voru skelfileg tíðindi og ég fylltist mikilli hræðslu við dauðann. Ólýsanlega sárt var að hafa ekki eignast barn og geta það ef til vill aldrei. Ég ákvað þó að fá lyf sem slökkva á hormónakerfinu til þess að eiga möguleika á að halda í hormónakerfið og eignast barn síðar, ef ég lifði þetta af.“ Ágústa talar um seinni lyfjameðferðina sem hún segir hafa verið mun erfiðari en þá fyrri auk þess sem hún fór einnig í geislameðferð. „Meðferðin skilaði ekki tilætluðum árangri. Mér var meira að segja ráðlagt að þiggja ekki seinni meðferðina – heldur reyna að lifa því stutta lífi sem ég ætti eftir til fulls. Ég fór auðvitað ekki eftir því og síðar í ferlinu hitti ég þann lækni aftur sem bað mig þá afsökunar á þessum orðum sínum.“ Ágústa er baráttukona og neitaði að gefast upp – þrátt fyrir að læknar hennar væru ekki bjartsýnir – sem sýnir sig e.t.v. best í því að hún var sett strax á líknandi meðferð þegar hún greindist með meinvörpin og á tímabili töldu þeir vænlegast fyrir hana að leggjast inn á Líknardeildina í hvíldarinnlögn í fimm vikur. „Ég ákvað því að reyna allt til að sigrast á krabbameininu. Ég skipti um mataræði og fór á basískt mataræði sem hefur áhrif á sýrustig/ pH-gildi líkamans sem á að hjálpa til að „svelta“ krabbameinsfrumurnar. Á tímabili lifði ég nánast á ýmiss konar basískum drykkjum og það var ekki laust við að læknar og hjúkrunarfólk hefði miklar áhyggjur af mér. En hverju hafði ég að tapa?“ spyr Ágústa brosandi. Og víst hafði hún engu að tapa og þess vegna tók hún því fegins hendi þegar hún frétti af efni sem e.t.v. gæti hjálpað henni; efni sem frændi hennar sagði henni frá. „Hann hafði heyrt af bandarískum manni sem hafði læknað sjálfan sig af krabbameini með ákveðnu efni sem hann hafði þróað sjálfur,“ segir Ágústa og lýsir þessu efni sem fæðubótarefni sem hafi þann eiginleika að styrkja ónæmiskerfið og mynda um leið nokkurs konar hjúp utan um krabbameinsæxlið sem kæfi það í sumum tilfellum. „Með góðri aðstoð varð ég mér úti um skammt af þessu efni. Eftir að hafa tekið inn efnið í nokkurn tíma fann ég að eitthvað var að gerast inni í mér. Ég fann „hreyf-


Viðtal– Ragnheiður Davíðsdóttir

Ágústa segir að viðbrögð margra krabbameinslækna hafi verið einkennileg og sumir hafi ekki farið leynt með vantrú sína. Þannig hafi krabbameinslæknirinn hennar á þessum tíma ekki getað samglaðst henni – heldur einbeitt sér að því að rengja hana og gera lítið út þeirri leið sem hún valdi án þess þó að geta gefið neina skýringu á brotthvarfi meinvarpanna. „Foreldrar mínir mættu með mér í þennan læknatíma sem endaði með því að við gengum út. Læknirinn kvaddi okkur ekki og síðan heyrðum við ítrekað af því hvernig talað var „illa“ um þetta ferli mitt, af ákveðnum læknum. Það að fá ekki stuðning eða að þeir samglöddust mér og okkur ekki, hafði veruleg áhrif á mig. Því eins og ég hef ávallt sagt þá er sama hvaðan gott kemur! Það sem skipti öllu máli var að ég var laus við meinin.“ Ágústa segist vita um eina aðra íslenska konu, sem einnig var komin á líknandi meðferð með lokastig krabbameins, sem tók sama efni og losnaði við meinið. Hún segist þó ekki geta fullyrt hvort það eitt og sér hafi læknað hana. „Ég trúi því að þetta efni hafi hjálpað mér enda hefur enginn, eftir því sem ég best veit, læknast af þessari tegund krabbameins á

því stigi sem það var hjá mér, fyrr eða síðar,“ segir hún. Sjálf segist hún fara varlega í að mæla með eða draga úr gildi þess sem hún gerði, enda hafi hún engar forsendur til að meta hvort það gagnist öðrum. „Ég ákvað að láta á það reyna hvort þetta efni myndi hjálpa mér – enda hafði ég, eins og ég hef margoft sagt, engu að tapa og allt að vinna. Læknarnir voru búnir að segja að ekkert væri hægt að gera fyrir mig enda var meðferð lokið í nóvember þetta ár. Verst af öllu var þegar vonin var aftur og aftur tekin frá mér. Vonin er það eina sem við, sem berjumst við illkynja sjúkdóma, eigum og hana má aldrei taka af okkur.“ En eitthvað hefur efnið kostað. Ágústa segir að það hafi sannarlega ekki verið ódýrt en hún hafi verið svo lánsöm að vera vel tryggð þegar hún veiktist og það hafi gert henni kleift að standa straum af kostnaðinum. Hún veit ekki hvað þetta kostar í dag og bendir á að erfitt sé að meta líf sitt til fjár. En þrátt fyrir að krabbameinið sé á bak og burt í líkama Ágústu hafa veikindin og meðferðirnar tekið sinn toll. „Lyfjameðferðirnar höfðu slæm og varanleg áhrif á heilsu mína. Ég þjáist sífellt af verkjum og magnleysi auk þess sem ég var greind með áfallastreituröskun. Ég hef ekki getað farið aftur út á vinnumarkaðinn og á fullt í fangi með að standa undir sjálfri mér, hef að jafnaði um 20% orku. Ég sæki mér alla þá aðstoð sem í boði er, s.s. sjúkraþjálfun, sálfræðimeðferð og fleira og horfi jákvætt á lífið, þrátt fyrir allt.“ Sólargeislinn í lífi Ágústu er án efa Klara Líf, 5 ára dóttir hennar, sem fæddist árið 2014. „Kraftaverkabarnið mitt,“ segir Ágústa og brosir. „Ég kynntist Gísla kærastanum mínum árið 2012 og við vorum að undirbúa tæknifrjóvgunarferli þegar ég varð ólétt. Hún er lífsblómið mitt og gefur lífi mínu aukinn tilgang,“ segir hún og geislar af gleði. Hún segist verja miklum tíma í sumarbústað í Skorradal þegar hún hefur heilsu til og þar eigi fjölskyldan sínar bestu stundir. Þá njóti hún mikilla samvista við aðra fjölskyldumeðlimi og góða vini og nefnir þar sérstaklega foreldra sína og systkini sem staðið hafa þétt við bakið á henni alla tíð.

Bls. 17

ingu“ undir húðinni og fannst ég meira að segja heyra einhvers konar smelli auk þess sem verkirnir jukust eða breyttust. Þann 16. febrúar 2011 fór ég í segulómskoðun á Akureyri, þar sem ég var á Kristnesi í hvíldarinnlögn/endurhæfingu. Þá kom í ljós að engin meinvörp voru sjáanleg. Ég man vel eftir því þegar mér voru færðar fréttirnar á Kristnesi. Heilbrigðisstarfsfólkið kom til mín náfölt í framan og sagðist hafa heldur betur fréttir að færa, það sæjust engin meinvörp. Ég held hreinlega að ég hafi fengið taugaáfall þarna. Ég gat hvorki glaðst né grátið og dofnaði upp. Þegar ég kom svo til Reykjavíkur fór ég til krabbameinslæknisins míns sem trúði þessu ekki og sendi mig aftur í segulómskoðun. Sú skoðun skilaði sömu niðurstöðu,“ segir Ágústa. „Læknirinn minn trúði þessu ekki en gat þó enga skýringu gefið á brotthvarfi krabbameinsins. Reyndar fannst aftur mein í lifrinni í júlí þetta ár en ég hafði hætt að taka fæðubótarefnið. Ég hélt því bara áfram að taka það og fjórum mánuðum síðar voru meinvörpin í lifrinni horfin. Ég tók efnið þó engu að síður áfram í 16 mánuði, því ég þorði ekki að hætta, en hætti svo alveg í nóvember 2013. Síðan hafa ekki fundist meinvörp, en ég á þó alltaf skammta til vonar og vara.“


Frá Líknardeildinni til lífsins

Bls.18

Klara Líf er lífsblómið mitt og gefur lífi mínu aukinn tilgang.

„Þessi lífsreynsla mín hefur sannarlega breytt mér á ýmsan hátt,“ segir hún aðspurð um breytt lífsviðhorf. „Það eitt að standa frammi fyrir dauðanum er eitthvað sem breytir manni til frambúðar. Það að sigrast á dauðanum er svo önnur lífsreynsla sem í raun er ekki hægt að lýsa. Það að eignast síðan barn eftir allt þetta, toppar alla aðra lífsreynslu. Það að gefast aldrei upp og trúa á lífið, gaf mér barnið mitt. Klara Líf hefði aldrei orðið til ef ég hafði gefist upp,“ segir Ágústa Erna Hilmarsdóttir að lokum og býður uppá jurtate innan um ilmandi björkina í sælureitnum í Skorradal.


Viðtal- Laila S. Pétursdóttir

Í janúar 2018 settu landsmenn Íslandsmet með því að perla 3.972 armbönd á fjórum tímum í Hörpunni. Þegar liðsmenn Tólfunnar heyrðu af þessu létu þeir sko ekki deigan síga og í anda Tólfunnar hópuðu þeir saman stuðningsmönnum íslenska landsliðsins í fótbolta til að gera gott betur. Við fengum þáverandi formann Tólfunnar Benjamín Hallbjörnsson til að segja okkur aðeins frá. „Við fréttum af þessu Íslandsmeti í perlun og auðvitað urðum við að gera betur. Það var bara ekkert annað í stöðunni. HM andinn var þarna í fullu fjöri og við náttúrulega í essinu okkar á sama tíma og fengum aðstöðu nema hvar annars staðar en í Laugardalsstúkunni til að perla armbönd. Svo tók bara við að fá landann til að mæta á svæðið,“ segir Benni Bongó eins og hann er alltaf kallaður. Viðstaddir hvattir með trommum og Hú-inu fræga Öllu var til tjaldað þann 12. maí 2018 og var bekkjum og stólum raðað upp í Laugardalsstúkunni og fyrr en varði var fólk farið að streyma á viðburðinn sem stóð yfir frá klukkan tólf til fjögur. „Þetta var náttúrulega sturlað gaman. Þarna komu saman alveg óteljandi einstaklingar í landsliðstreyjum og kepptust við að ná Íslandsmeti í perlun armbanda sem er náttúrulega alveg magnað. Við fengum fullt af listamönnum upp á svið þar á meðal Hreim, Stefaníu Svavars, Karlakórinn Esju og svo var Sóli Hólm kynnirinn sem stóð sig náttúrulega eins og hetja í að hvetja okkur öll áfram á meðan á perluninni stóð og láta okkur vita hvað við ættum langt í land,“ segir Benni enn fremur. Mikil stemning var á svæðinu og að sjálfsögðu hvatti líka Tólfan sjálf fólk áfram með því að fá alla til að taka nokkur HÚ saman undir stjórn Benna og félaga með trommum og tilheyrandi stuði. Landsliðsþjálfarar öttu kappi „Rúsínan í pylsuendanum var svo að Heimir Hallgrímsson, þáverandi landsliðsþjálfari karlaliðsins og Freyr Alexandersson, þáverandi landsliðsþjálfari kvennaliðsins mættu líka á svæðið til að perla með viðstöddum ásamt fleiri landsliðsmönnum. Þeir skelltu sér svo upp á svið og tóku einvígi í perlun armbands. Þeir kepptust sum sé um það hvor væri fljótari að perla eitt armband og enginn annar en Gummi Ben lýsti keppn-

Benni Bongó og félagar hans í Tólfunni kepptu af kappi í perlun.

Bls. 19

„Við fréttum af þessu Íslandsmeti í perlun og auðvitað urðum við að gera betur“


Bls.20

Tólfan setti Íslandsmet

inni. Ég held ég hafi hreinlega verið spenntari yfir þessu heldur en sumum leikjum sem ég hef horft á í fótbolta. Nei, ég segi svona. En það var alveg geggjað að fylgjast með þessu,“ segir Benni hlæjandi. Keppnin milli þjálfaranna var mjög jöfn og fyrst var haldið að Freyr hefði unnið en svo varð niðurstaðan jafntefli. Þjálf­ar­arn­ir stóðu svo fyr­ir upp­boði á arm­ bönd­un­um og þar hafði Heim­ir bet­ur en hann náði að selja sína afurð á 60.000 krón­ur á meðan Freyr fékk 15.000 krón­ur fyr­ir sitt, sem er engu að síður glæsi­leg­ur ár­ang­ur. Þegar síga fór á seinnihlutann af perluviðburðinum var orðin mikil spenna á svæðinu og ljóst var að það yrði afskaplega tæpt að Tólfan og aðrir viðstaddir myndu hreinlega ná að slá Íslandsmetið. Allir sem vettlingi eða perlu gátu valdið perluðu eins hratt og þeir mögulega gátu. „Ég er að segja þér þetta var rosalegt en þar sem það voru nú svo mörg skemmtileg atriði sem þurfti að fylgjast með og einvígi þjálfarana trufluðu okkur aðeins við að perla þá fengum við ofurlitla framlengingu svona eins og íþróttaviðburðum er einum lagið“, segir Benni. Íslandsmetið náðist á lokametrunum í 15 mínútna framlengingu en þegar klukkan sló var búið að perla 3.983 armbönd og lokatölur enduðu í 4.233 þegar öll armbönd voru komin á talningarborðið.

Fyrirsætur í fánalitunum Armböndin sem voru perluð eru í fánalitunum og getur fólk keypt þau til styrktar Krafti en að auki sýnir fólk samstöðu með íslensku íþróttafólki þegar það ber armböndin. „Þetta byrjaði með samstarfi Tólfunnar og Krafts. Tólfan tók sig meira að segja til og vorum við nokkur fyrirsætur hjá Krafti til að sýna hversu glæsileg armböndin eru,“ segir Benni enn fremur. En nú hefur Benni fært sig yfir í Sérsveitina sem er stuðningslið íslenska handboltans og að sjálfsögðu sýna armböndin líka stuðning með þeim. „Armböndin í fánalitunum eru ekkert bara til að sýna samstöðu með fótboltafólki heldur í raun öllu íþróttafólki eða ég myndi í raun segja öllum Íslendingum. Við sýnum samstöðu og stolt með því að bera armböndin í fánalitunum með þessari flottu áletrun sem minnir okkur svo sannarlega á að lífið er núna. Svo er fólk að styrkja Kraft í leiðinni sem ég hef svo séð að er að gera virkilega frábæra hluti fyrir skjólstæðinga sína og ég gæti hreinlega ekki verið stoltari að taka þátt í þessu verkefni og bera þetta glæsilega armband“, segir Benni að lokum.


Perlubikarinn

Kraftur þeyttist landshorna á milli með perlur og bönd en alls tóku ellefu íþróttafélög og sveitarfélög þátt í keppninni. Það voru svo Sunnlendingar og HSK sem hrepptu Perlubikarinn 2018 en þau perluðu 2.308 armbönd á fjórum tímum. Í öðru sæti urðu Akureyringar og íþróttafélagið Breiðablik lenti í því þriðja.

Yfir 18.000 armbönd voru perluð í Perlubikarnum og eru þau öll seld til styrktar Krafti. Hugmyndir eru uppi um að vera jafnvel með Perlubikarinn 2020 og gera Perlubikarinn að farandsgrip.

Farandsbikar perlukeppninnar er mikil listasmíð en hann er hannaður af Móeiði Helgadóttur.

bikarinn

Kraftur var í brjáluðu keppnisskapi í tilefni af HM og stóð líka fyrir Perlubikarnum 2018 sama sumar. Þá voru íþróttafélög, sveita- og bæjarfélög hvött til að etja kappi í perlun armbanda innan ákveðins tímaramma og skoruðu þau á önnur lið að reyna að perla fleiri armbönd en þau. Lögðu fjölmargir kappsamir einstaklingar hönd á perlu og voru viðburðir haldnir víðsvegar um land.

Bls. 21

Perlu


Bls.22

Jafningjastuðningur

„Ég skil þig“ Stuðningsnetið stendur öllum til boða sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra. Þetta getur átt við um nýgreindan einstakling, þá sem eru að hefja meðferð, eru í meðferðarferlinu eða hafa lokið meðferð og vilja ræða við þjálfaðan stuðningsfulltrúa sem staðið hefur í svipuðum sporum. Aðstandendur krabbameinsgreindra geta leitað til Stuðningsnetsins hvenær sem er, sama hvar í ferlinu ástvinur þeirra er staddur. Sálfræðingur Krafts og Ráðgjafarþjónustunnar sér um að útvega þeim sem óskar eftir jafningjastuðningi stuðningsfulltrúa sem mætir þörfum hvers og eins. Sálfræðingur Krafts og Ráðgjafarþjónustunnar sér um þjálfun stuðningsfulltrúa en rannsóknir hafa sýnt að til að veita sem bestan stuðning þarf að tryggja að stuðningsfulltrúi fái þjálfun og kynningu á ákveðnum eiginleikum og þáttum. Á námskeiðinu fá stuðningsfulltrúar þjálfun í virkri hlustun, að segja frá reynslu sinni á viðeigandi hátt og veita upplýsingar um úrræði í samfélaginu fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur. Stuðningsfulltrúar eru á aldrinum 20 ára til 80 ára og um er að ræða breiðan hóp fólks; konur og karla, dætur og syni, maka, ekkjur og ekkla, vini, foreldra aðstandendur og einstaklinga sem sigrast hafa á krabbameini. Miðað er við að eitt til tvö ár séu liðin frá því að meðferð lauk áður en viðkomandi getur sótt stuðningsfulltrúanámskeið eða að umsækjandi sé búinn að vinna úr sinni eigin reynslu og tilfinningum varðandi veikindi sín og meðferðina og þeim breytingum sem fylgdu í kjölfarið.

Rannsóknir hafa sýnt að jafningjastuðningur hefur margvísleg jákvæð áhrif eins og að minnka þunglyndi og kvíða, flýta fyrir aðlögun að krabbameinsferlinu, aukna trú einstaklingsins á eigin getu að takast á við sjúkdóminn og meiri bjartsýni. Rannsóknir hafa einnig sýnt að lífsgæði krabbameinsgreindra aukast við að fá stuðning frá fólki sem glímt hefur við sömu eða svipuð vandamál og eru niðurstöður óháðar kyni viðkomandi eða tegund krabbameins og gagnast því öllum. Jafnframt hefur verið sýnt fram á að jafningjastuðningur minnkar álag á aðstandendur. Jafningjastuðningurinn er hugsaður sem viðbót við hefðbundna meðferð við krabbameini. Þá hafa rannsóknir sýnt að það séu ákveðnir þættir sem eru mikilvægir í jafningjastuðningi og er lögð áhersla á að þjálfa stuðningsfulltrúa á þeim sviðum. Niðurstöður íslenskrar rannsóknar voru sambærilegar niðurstöðum erlendra rannsókna á þessu sviði. Meira en helmingur þátttakenda taldi sig hafa haft mjög mikinn eða mikinn ávinning af jafningjastuðningnum og um 70% taldi jafningjastuðninginn hafa bætt aðlögun sína breyttum aðstæðum.


Texti- Þorri Snæbjörnsson og Ragnheiður Davíðsdóttir Bls. 23

Rannsóknir hafa sýnt að jafningjastuðningur hefur margvísleg jákvæð áhrif eins og að minnka þunglyndi og kvíða, flýta fyrir aðlögun að krabbameinsferlinu, aukna trú einstaklingsins á eigin getu til að takast á við sjúkdóminn og meiri bjartsýni.

Stuðningsnetið samanstendur nú af rúmlega 100 einstaklingum á aldrinum 20 til 80 ára sem hafa annað hvort greinst með krabbamein eða verið aðstandendur. Allir stuðningsfulltrúar hafa fengið þjálfun í að veita stuðning með því að ljúka námskeiði hjá Stuðningsnetinu og fá reglulega endurmenntun og handleiðslu. Flestir stuðningsfulltrúar koma af höfuðborgarsvæðinu en einnig hafa stuðningsfulltrúar verið þjálfaðir á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi. Stuðningsfulltrúar eru bundnir trúnaði og þeir geta veitt jafningjastuðning í gegnum síma, tölvupóst eða með því að hitta viðkomandi. Á síðu félaganna, www.kraftur.org og www. krabb.is, má finna frekari upplýsingar. Einnig er hægt að senda tölvupóst á salfraedingur@kraftur.org eða hringja í stuðningssímann, 866-9618 alla virka daga kl. 8:30–16:30. Hægt er að hafa samband við framkvæmdastjóra Krafts á skrifstofutíma í síma 866-9600. Hægt er að kynna sér Stuðningsnetið nánar með því að skoða myndböndin á heimasíðu Krafts þar sem einstaklingar segja frá reynslu sinni af Stuðningsnetinu (undir Stuðningsnetið og reynslusögur).


Bls.24

Jafningjastuðningur

Erna Sigríður Sigurðardóttir, lögfræðingur, er einn fjölmargra stuðningsfulltrúa í Stuðningsneti Krafts og Ráðgjafarþjónustunnar. Hún greindist fyrst með krabbamein árið 2010 og síðan tvisvar aftur, árin 2011 og 2012. Í febrúar árið 2016 sótti hún námskeið hjá sálfræðingi Krafts og hefur verið virkur stuðningsfulltrúi síðan. Erna talar um að mjög vel hafi verið staðið að námskeiðinu og efnið hafi nýst sér mjög vel í störfum sínum sem stuðningsfulltrúi. En hvaða gildi telur hún jafningjastuðning hafa umfram annan stuðning, t.d. frá heilbrigðisstarfsfólki? „Það að geta rætt við einhvern sem hefur gengið í gegnum svipaða reynslu og þú sjálfur er ómetanlegt. Þá getur einnig verið gott að spjalla við einhvern annan en fjölskyldumeðlim um erfiðar hugsanir sem maður á með sjálfum sér. Oft eru þetta hugsanir sem maður þorir ekki að segja upphátt af ótta við að þær muni hræða líftóruna úr þeim sem standa manni næst. Slíkar hugsanir getur maður opinberað fyrir þeim sem hafa reynsluna og það er afar mikilvægt.“

„Jafningjastuðningur hefur gefið mér mikið“

Aðspurð hver sé hennar reynsla af að veita jafningjastuðning segist hún upplifa að svipaðar spurningar komi upp hjá fólki sem sækir sér stuðning, bæði á meðan á meðferð stendur og ekki síður eftir að henni lýkur. „Það getur verið gott að finna að einhver annar hafi gengið í gegnum svipaða reynslu og unnið sig í gegnum þetta ferli með einum eða öðrum hætti. Hvernig sem fólk síðan kýs að vinna sig í gegnum þessa reynslu er hins vegar mjög persónubundið og maður verður jafnframt að bera virðingu fyrir því að við erum ekki öll eins. Það er ekki mitt hlutverk að segja fólki hvernig því á að líða eða hvað það eigi að gera, heldur snýst þetta aðallega um að vera til staðar, fordómalaust og hlusta. Þá er það mjög mismunandi hversu mikinn stuðning fólk þarf og tíðni samtala er eitthvað sem maður þarf að meta út frá hverjum og einum,“ segir Erna. En hvers þarf að gæta þegar svona stuðningur er veittur? „Það getur verið vandasamt að meta hversu mikið þú átt að deila með viðkomandi varðandi þína eigin líðan og upplifun. Reynsla mín er sú að þeir sem sækja sér stuðning í netið vilji fá að heyra hvernig mitt ferðalag hefur verið. Það er eðlilegt, enda gengur Stuðningsnetið út á jafningjastuðning. Viðkomandi þarf því að geta skynjað að stuðningsfulltrúinn hafi skilning á því hvernig honum líður einmitt af því að stuðningsfulltrúinn hafi sjálfur upplifað svipað í sínu ferli. Slík samstaða fæst ekki nema að deila upplifuninni. Að því sögðu þarf samt að hafa í huga að hlutverk stuðningsfulltrúans er að styðja viðkomandi og hlusta á hans upplifun en ekki demba allri sinni sögu á hann. Það getur oft verið örfín lína þarna á milli. Þá þarf einnig að hafa í huga að stuðningsfulltrúar eru ekki krabbameinslæknar eða sálfræðingar. Ef samtalið er orðið þess eðlis að viðkomandi þarf að leita sér sérfræðiþekkingar þá á maður að sjálfsögðu að leiðbeina honum þangað“.

Erna Sigríður Sigurðardóttir er einn af stuðningsfulltrúum Stuðningsnetsins.

Að lokum segist Erna ekkert nema góða reynslu af Stuðningsnetinu að segja. „Plúsinn í þessu öllu saman er að ég er að kynnast frábæru ungu fólki sem er að standa sig vel í erfiðum aðstæðum. Það gefur mér mikið og hjálpar mér að vinna áfram í mínu bataferli.“


Jafningjastuðningur

„Ég fór eftir að konan mín var oft búin að ráðleggja mér að fara og leita aðstoðar á minni, þá óútskýrðu, líðan og tilfinningum. Strax og hún greindist fór hún, í fylgd systur sinnar, í viðtal hjá stuðningsaðila. Þegar lyfjameðferðin var hafin, um það bil þremur mánuðum eftir greiningu, fór ég sjálfur til að hitta fagaðila í Stuðningsnetinu eftir hvatningu hennar. Í raun og veru vissi ég ekkert út í hvað ég var að fara og það hvarflaði að mér að þetta væri ekkert fyrir mig - ég þyrfti ekki á þessu að halda. Ég ákvað bara að fara af því konan mín var búin að græja þetta. Ég fór fyrir hana á fyrsta fundinn af því að mér fannst betra að hafa það þannig - svona fyrir sjálfan mig,“ segir Pétur en viðurkennir að hann sjái ekki eftir því. „Mér finnst það, eftir á að hyggja, alveg frábært. Mjög nauðsynlegt fyrir báða aðilana, það er þann sem veitir stuðninginn og þann sem þiggur hann. Það var allavega mín upplifun. Reynsla mín af þessum jafningjastuðningi er jákvæð en ég var þó verulega langt frá því í upphafi. Ég var alveg klár á því að ÉG þyrfti ekki á einhverju svona að halda,” segir hann og getur þess að hann og stuðningsfulltrúi hans hafi talast reglulega við í síma til að byrja með. „Við hittumst líka í nokkur skipti. Ég hringdi ef ég þurfti að tala og hann hringdi í mig með reglulegu millibili. Mér fannst þetta frábært - að heyra reynslusögu annars einstaklings í sambærilegum kringumstæðum og ég var í, akkúrat á þeim tíma sem við töluðumst við. Það var afar gagnlegt að átta sig raunverulega á því að maður væri ekki einn og hvað það skipti sjálfið miklu máli að geta rætt um sína líðan. Þegar ég hugsa til baka um mína líðan fannst mér ekkert vera að hjá mér og ég myndi bara „redd'essu!.“

þeim forsendum sem það hefur og fyrir það er lagt hverju sinni og gerir það vel. Ég get ekki lastað heilbrigðisstarfsfólk á nokkurn hátt. Heilbrigðisstarfsfólk á Íslandi gerir eins vel og það getur í sinni vinnu út frá fyrirfram gefnum forsendum og tilmælum yfirvalda. Kerfislega getum við bætt okkur, til dæmis hvað varðar utanumhald á þeim stuðningi sem er í boði,“ segir Pétur og nefnir sem dæmi að taka þurfi mið af félagslegri stöðu viðkomandi eins og í hans tilfelli sem aðstandanda og fjögurra barna föður barna á ólíkum aldri. „Mér fannst stuðningur og viðtöl sem við og eldri börnin þrjú fengum, frábær. En hann hefði mátt koma fyrr en var í okkar tilfelli.“ Aðspurður hvort hann mæli með jafningjastuðningi eftir að hafa nýtt sér hann segir Pétur ákveðinn: „Allan daginn! Ég hefði aldrei farið nema af því að ég var bara bókaður í þetta af konunni minni. Ég er bara svo þakklátur núna. Mér finnst það skipta svakalega miklu máli að geta talað um hlutina og útskýrt tilfinningar. Ég vissi ekki hvað ég átti að segja þegar ég fór fyrst. Ég hafði ekki hugmynd um það hvernig ég átti að útskýra eða segja frá hvort eða hvernig mér liði. Ég hafði ekki hugmynd um allt það sem ég veit núna. Það var svo margt sem ég var að burðast með innra með mér, eins og reiði og aðrar álíka tilfinningar. Það var eitthvað sem ég komst að smátt og smátt og lærði með leiðsögn að tala um. Fyrir mér skipti Stuðningsnetið, hvernig sem á það er litið, miklu máli. Ég er þakklátur þessari reynslu þrátt fyrir allt. Hefur klárlega gert mig að betri manni og sterkari einstaklingi.“

„Stuðningsnetið gerði mig að betri og sterkari einstaklingi“

En hvað fannst þér þessi persónulegi jafningjastuðningur hafa umfram annars konar stuðning, t.d. frá heilbrigðisstarfsfólki? „Þessi stuðningur er þarna fyrir þig og tækifæri fyrir þig að koma á þínum eigin forsendum og ræða - og eða ekki ræða - um það sem þig vantar eða langar að ræða. Eflaust fær maður ekki svör við öllu en þetta er vissulega vettvangur til að hafa góða, jákvæða og vinalega umræðu um þig í núinu. Bara það að kenna, eða leiðbeina, mér að muna eftir núinu hjálpaði mér mikið. Heilbrigðisstarfsfólk vinnur sína vinnu út frá

Pétur Helgason hefur nýtt sér Stuðningsnetið og hvetur aðra í sömu sporum til þess að leita eftir jafningjastuðningi.

Bls. 25

Pétur Helgason er einn þeirra fjölmörgu sem sótt hafa jafningjastuðning í Stuðningsnetinu sem aðstandandi en eiginkona hans, Brynhildur Arna Jónsdóttir, greindist með brjóstakrabbamein árið 2018.


Bls.26

Viðtal- Ragnheiður Davíðsdóttir

„Mitt eigið Everest“


Mitt eigið Everest

Bls. 27

Sirrý ásamt vinkonu sinni Vilborgu Örnu.

„Þegar ég greinist með krabbamein, og hafði lokið meðferðum, hugsaði ég um allt sem ég átti eftir að gera í lífinu en hafði ekki enn framkvæmt. Ég hef alltaf verið með mikla ástríðu fyrir hvers konar útivist og ekki síst fjallgöngum. Eftir að ég lauk lyfjameðferðinni leið mér mjög illa og vissi sem var að ég hafði enga stjórn á krabbameininu, þ.e. framvindu þess og lífshorfum. Þess vegna ákvað ég að takast á við verkefni sem ég hafði fulla stjórn á sjálf og ákvað að ganga í grunnbúðir Everest í Nepal og sé ekki eftir því.“ Það er G. Sigríður Ágústsdóttir, sem oftast gengur undir nafninu Sirrý, sem hér svarar því hvernig henni datt í hug að takast á við þessa erfiðu göngu sem er um 130 km og tók tólf daga. Sirrý fór með Vilborgu Örnu Gissurardóttur, sem rekur ferðaskrifstofuna Tindar travel, og þremur öðrum góðum vinkonum sínum í þessa ævintýraferð.

„Það hvarflaði aldrei að mér að ég væri með krabbamein. Ég var hraust og stundaði reglulega útivist og lifði heilbrigðu lífi“ Sirrý greindist með krabbamein í legi árið 2010. „Ég trassaði alltaf að fara í krabbameinsskoðun en eftir að ég eignaðist son minn þetta ár, fann ég ákveðin einkenni. Ég reyndi að harka af mér en sex mánuðum eftir að ég fæddi son minn fór ég til læknis og þá kom í ljós að ég var með stórt krabbameinsæxli við legið. Það hvarflaði aldrei að mér að ég væri með krabbamein. Ég var hraust og stundaði reglulega útivist og lifði heilbrigðu lífi,“ segir Sirrý sem í kjölfarið gekkst undir krabbameinsmeðferð. Sirrý greindist síðan aftur með krabbamein og fór þá í gegnum aðra krabbameinsmeðferð. „Það var eftir seinni meðferðina sem ég ákvað að takast á við verkefni sem ég hefði sjálf fulla stjórn á. Ég var vön að ganga á fjöll og var oft ein á ferð. Þá var ég engum háð og stjórnaði ferðinni sjálf á mínum eigin forsendum. Ég ákvað því að takast á við það verkefni að ganga í grunnbúðir Everest. Það var kannski ekki alveg tilviljun að þessi ferð varð fyrir valinu. Mér fannst það táknrænt að takast á við „mitt eigið Everest“ og ekki sakaði að ég var í för með Vilborgu Örnu, vinkonu minni og fyrirmynd, sem er einn reyndasti fjallafari okkar,“ segir hún brosandi.


Bls.28

Mitt eigið Everest

„Mér fannst táknrænt að takast á við mitt eigið Everest,” segir Sirrý sem hér er með vinkonum sínum Kolbrúnu Björnsdóttur og Guðrúnu Rögnu Hreinsdóttur.

Sirrý lýsir því að fyrst hafi þær stöllur flogið til Kathmandu í Nepal þar sem þær stoppuðu í nokkra daga áður en þær flugu til Lukla þaðan sem þær lögðu upp í gönguna. „Þá vorum við þegar komnar í 2860 metra hæð og fundum vel fyrir þunna loftinu sem síðan átti eftir að ágerast því við enduðum í rúmlega 5364 metra hæð. Við vorum með innlenda leiðsögumenn og jakuxar ferjuðu þyngsta farangurinn. Við gengum um 7-14 kílómetra, oftast u.þ.b. 6 klukkutíma á dag og gistum á nóttunni í svokölluðum tehúsum, sem eru litlir fjallakofar sem heimamenn hafa tekjur af að reka fyrir þá sem ganga á fjallið. Þetta er engin lúxusgisting og oft fór hitastigið niður fyrir frostmark á nóttunni. Verst var þó að geta ekki farið í bað þessa tólf daga,“

segir hún og útskýrir að vatn hafi verið af skornum skammti auk þess sem engin aðstaða hafi verið til að þvo sér. „Við urðum að drekka um 4-6 lítra af vatni á dag og gæta vel að því að borða reglulega. Ég passaði vel uppá þetta allt en drakk þó aldrei vatn eftir klukkan sex á daginn þar sem ég vildi ekki þurfa að fara út og pissa um miðja nótt. Það er líka afar mikilvægt að sofa og hvílast vel við þessar aðstæður en það er oft erfitt að sofa í þessu þunna lofti. Það gekk þó sæmilega vel hjá mér,“ segir hún og minnist þess þegar könguló stökk á hana eina nóttina og beit hana. Hún bætir því þó við að hún hafi ekki kippt sér upp við nálægð hinna ýmsu skordýra sem urðu á vegi hennar.


Efnisyfirlit

Bls. 29


Bls.30

Mitt eigið Everest

Aðspurð um einhver vandamál eða óhöpp á leiðinni, neitar Sirrý því utan þess sem hún viðurkennir að hún hafi fengið svæsna sogæðabólgu í vinstri fótinn á leiðinni til baka. „Gangan niður tekur aðeins þrjá daga og á leiðinni fékk ég þessa sogæðabólgu og að ráði ferðafélaga minna var ákveðið að ég myndi ekki reyna að ganga á leiðarenda þar sem ég var orðin mjög slæm í fætinum. Það var því kallað á þyrlu sem kom og sótti mig,“ segir hún og staðhæfir að þyrluferðin hafi e.t.v. verið toppurinn á ferðinni. „Það var hreint með ólíkindum að fljúga með þyrlu yfir fjallatoppana í þessu stórbrotna landslagi og ógleymanleg lífsreynsla,“ segir hún brosandi. Sirrý var alls 21 dag í ferðinni og víst er að við höfum aðeins tæpt á því helsta. Sirrý segist fráleitt vera hætt að takast á við áskoranir – enda segist hún „lifa í voninni“ eins og hún orðar það enda sé vonin eitt mikilvægasta aflið sem krabbameinsveikt fólk eigi. Hún segist þegar vera farin að undirbúa næsta verkefni eða áskorun, eins og hún orðar það. „Á næsta ári verða fimm ár liðin frá því ég greindist aftur með krabbamein og margir segja að sá tímapunktur sé mælikvarði á að maður sé kominn yfir krabbameinið. Ég hef því ákveðið að ganga þvert yfir Vatnajökul í apríl og freista þess að safna fyrir Kraft og Styrktarfélagið Líf sem eiga að njóta góðs af. Í maí, sama ár, ætla ég síðan að ganga á Hvannadalshnjúk með konum sem vilja koma með mér. Verkefnið hef ég nefnt „LífsKraft“ og undirbúningur fyrir það er þegar kominn á fullt skrið.“ Víst er að Sirrý lætur áföllin í lífinu ekki stoppa sig í að láta drauma sína rætast. En hvernig lýsir hún ávinningnum af þessum göngum í baráttunni við krabbameinið?


Mitt eigið Everest

Bls. 31

„Þessi verkefni eru staðfesting á því að hugarfar og markmiðasetning er afar stór hluti af því að gefa lífinu gildi og eins og ég sagði fyrr, er það ég sem er við stjórnvölinn og enginn annar. Það að sigrast á áskorunum er stórkostleg tilfinning og þær áskoranir eru mitt eigið Everest“

Í maí á næsta ári ætlar Sirrý að ganga á Hvannadalshnjúk og býður þeim konum sem vilja slást í hópinn að koma með.


Tuttugu ár eru liðin síðan Kraftur var stofnaður. Á afmælisárinu fagnar félagið allt árið með því að vera með mánaðarlega viðburði og fræðslu til að vekja fólk til umhugsunar um málefni ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda.

Við erum 20 ára!

12. jan. Afmælisár Krafts byrjaði með pompi og prakt þegar „Lífið er núna” festivalið fór fram á Hótel Hilton 12. janúar síðastliðinn þar sem 70 félagsmenn komu saman til að fræðast, ögra sjálfum sér og hitta aðra í svipuðum sporum. Einnig var dagurinn haldinn sem áminning um að njóta líðandi stundar og skapa góðar minningar þar sem veikindin geta verið mjög krefjandi tími fyrir alla.

4. feb.

Útgáfudagur bókarinnar Fokk ég er með krabbamein. Um er að ræða endurútgáfu bókarinnar LífsKraftur sem fyrst kom út árið 2003. Bókin er sniðin að þörfum ungs fólks, bæði þeirra sem greinst hafa með krabbamein og aðstandenda þeirra. Texti hennar var endurskoðaður og lagfærður og aukin áhersla lögð á myndir. Bókin er 228 blaðsíður og er gefin þeim sem á þurfa að halda.

20. feb. Kraftur Podcast fer í loftið. Viðtalsþættir um hvaðeina sem tengist ungu fólki og krabbameini. Sjá umfjöllun annars staðar í blaðinu.

20. mars

Örráðstefnan Fokk, ég er með krabbamein í Stúdentakjallaranum. Um 100 manns mættu og hlustuðu á erindin sem voru frá Hildi Björk Hilmarsdóttur og Daníel Reynissyni, frumkvöðlum Krafts, Signe Thydal, verkefnastjóra Ungkræft, systurfélags Krafts í Danmörku og Huldu Hjálmarsdóttur, framkvæmdastjóra Krafts. Nokkrir Kraftsfélagar sögðu einnig frá reynslu sinni af krabbameini.

Fræðsluvefur Krafts opnaður. Vefurinn er byggður á bókinni LífsKraftur sem hefur svör við flestum spurningum sem koma upp í huga fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum þess. Fræðsluvefurinn er „lifandi”, þ.e. með gagnkvæma virkni. Hægt er að senda inn spurningar sem svarað er með aðstoð sérfræðinga.

20. apr.


Kraftur 20 ára

„Lífið er núna” hlaupið var haldið á þremur stöðum á landinu, þ.e. á Fáskrúðsfirði, Ísafirði og í Reykjavík. Í höfuðborginni var hlaupið frá Háskólanum í Reykjavík og gat fólk valið að fara 1,5 km skemmtiskokk eða 5 km hlaup með tímatöku. Yfir 300 manns tóku þátt í hlaupinu og var stemningin frábær auk þess sem veðrið lék við hlauparana.

Bls. 33

19. maí

1-31. júl.

20. jún. Hið árlega sumargrill var haldið í Guðmundarlundi í Kópavogi. Öllu var til tjaldað á afmælisárinu. Um 200 manns komu og nutu frábærrar skemmtunar með öðrum Kraftsfélögum. Sirkus Íslands var á svæðinu með andlitsmálningu, blöðrudýr og kandífloss fyrir yngstu kynslóðina og Leikhópurinn Lotta steig á svið. Reiðskólinn Hestalíf var með hesta og að sjálfsögðu voru hoppukastalar á svæðinu. Tuddinn grillaði svo ofan í mannskapinn dýrindis hamborgara. Að lokum skemmtu GDRN og hinn eini sanni Páll Óskar viðstöddum.

„Krabbamein fer ekki í frí.” Allan júlímánuð stóð Kraftur fyrir vitundarvakningunni Krabbamein fer ekki í frí til að vekja athygli á því að þó fólk fari í sumarfrí þá fer krabbamein ekki í frí. Kraftur tók því saman á einn stað hvernig opnun var hjá hinum ýmsu þjónustuaðilum fyrir fólk sem greinist með krabbamein og aðstandendur svo fólk viti hvert það getur leitað. Kraftur stóð auk þess fyrir vikulegum viðburðum í júlí fyrir félagsmenn sína þar sem markmiðið var að koma saman, stunda útivist og njóta líðandi stundar.

24. ágúst Opnun ljósmyndasýningar Krafts við Hörpu. Ljósmyndasýningin er samstarfsverkefni Kára Sverriss, ljósmyndara, og Krafts þar sem spurningunni „Skapa fötin manninn“ er varpað fram. Á sýningunni var tískufatnaði blandað saman við ör en allar fyrirsæturnar hafa það sameiginlegt að hafa greinst með krabbamein og bera þess merki.

20. sep. Núvitundarpartý í Hörpu. Kraftur, í samstarfi við Yoga Shala og Yoga Moves, stóð fyrir núvitundarviðburði í Norðurljósasal Hörpu. Þar var fólki boðið að koma saman og fá útrás í dansi, jóga, hugleiðslu og tónheilun. Fram komu DJ. Margeir, YAMAHO, Tómas Oddur jógakennari, Ingibjörg Stefáns jógakennari og fleiri góðir gestir.

20. okt. Frumsýning heimildarmyndar um Kraft og afmælisveisla í Bíó Paradís á Hverfisgötu.

23. nóv. Nýtt afmælisarmband lítur dagsins ljós. Um er að ræða sérstaka útgáfu af perluarmbandi í nýjum litum sem fer í sölu þennan dag.

Jóla, jóla. Kemur í ljós þegar nær dregur!

20. des.


Bls.34

Litið um öxl

Í ljósi þess að Kraftur fagnar 20 ára afmæli sínu lítum við um öxl og skoðum hvað hefur áunnist í þjónustu við krabbameinsgreinda síðustu 20 árin. Í sögulegu samhengi er þetta ekki langur tími en það kemur á óvart hversu mikið hefur gerst á stuttum tíma og hvað þjónustan hefur þróast hratt og til batnaðar. Vissulega eru hlutir sem standa út af þar sem við getum gert betur. Því þurfum við alltaf að spyrja okkur hvernig við getum komið sem best til móts við sjúklinginn og fjölskyldu hans.


Grein– Hulda Hjálmarsdóttir

Bls. 35

Það eru 1.600 manns sem greinast með krabbamein á hverju ári​. Í árslok 2016 voru á lífi 14.491 einstaklingur með krabbamein​. Á síðustu 60 árum hafa fimm ára lífshorfur meira en tvöfaldast. Það þýðir að tvöfalt meiri líkur eru á að þú lifir í fimm ár frá greiningu krabbameins. Því er spáð að næstu 15 árin verði aukning nýgreininga um 30% sem fyrst og fremst stafar af hærri lífaldri fólks. Upp úr 2030 verða þá um 2.300 einstaklingar sem greinast árlega ​á Íslandi. Þetta gefur okkur þá niðurstöðu að þeim fjölgar stöðugt sem greinast, læknast og sem lifa lengur. Það þýðir því ekki að sofna á verðinum og þurfa heilbrigðisyfirvöld að horfa á þá staðreynd að um stækkandi hóp krabbameinsgreindra verður að ræða og gera þarf viðeigandi ráðstafanir til að koma til móts við þessa aukningu. Skiptir þar miklu máli að innleiða Krabbameinsáætlunina svo að við höfum heildræna stefnu í málaflokknum. Það er okkur öllum landsmönnum hjartans mál að við getum boðið upp á bestu mögulegu heilbrigðisþjónustu sem við getum fengið. Þess vegna skiptir máli að við rýnum til gagns og bendum á það sem betur má fara og fögnum litlu og stóru sigrunum sem verða á leiðinni. Saman getum við boðið upp á framúrskarandi heilbrigðisþjónustu fyrir krabbameinsgreinda. En það krefst samvinnu Landspítala, félagasamtaka og hins opinbera. Kraftur berst fyrir réttindum félagsmanna sinna og erum við engan veginn hætt. Krabbamein er í dag ekki lengur dauðadómur og vekur ekki eins mikinn ótta og áður. Viðhorf fólks var þannig að annað hvort myndi fólk lifa eða deyja og ekkert þar á milli. Síðustu 20 ár hefur þetta breyst með betri greiningarúrræðum, betri lyfjum og meiri vitneskju um framgang krabbameina. Nú þekkjum við mörg dæmi þess að fólk lifi árum og áratugum saman með sjúkdómnum. Krabbamein er ekki lengur tabú að tala um og hefur það áunnist með aukinni fræðslu og vitundarvakningu um krabbamein og afleiðingar þess. Hér koma áhugaverðar staðreyndir um framgang þjónustu við krabbameinsgreinda síðastliðin 20 ár Hulda Hjálmarsdóttir framkvæmdarstjóri Krafts


Hvað hefur áunnist?

1987

Heimahlynning​fyrir krabbameingreinda sett á laggirnar.

1988

Krabbameinsdeild 11E á Landspítalanum opnuð.

1995

Krabbameinsfélagið byrjaði að veita símaráðgjöf til krabbameinsgreindra og aðstandenda.

1999

Kraftur​, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, var stofnað. Líknardeild​Landspítalans var sett á laggirnar í Kópavoginum og er hún fyrsta sérhæfða líknardeildin á Íslandi.

2005

Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess, opnuð.

2007

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins lítur dagsins ljós sem veitir fólki ráðgjöf og stuðning og heldur utan um alla stuðningshópa Krabbameinsfélagsins.

2009

Kraftur stofnar formlegt stuðningsnet​fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Þar eru reynsluboltar, krabbameinsgreindir og aðstandendur, þjálfaðir undir handleiðslu fagaðila til að veita öðrum jafningjastuðning.

2011

Fjölskyldubrúin sett á laggirnar af félagsráðgjöfum á Landspítalanum til að hjálpa foreldrum að takast á við veikindin með börnunum sínum.

2014

Neyðarsjóður Krafts stofnaður til að hjálpa ungu fólki sem lendir í fjárhagsörðugleikum vegna veikinda sinna. Þar sem þá var ekkert þak á því sem fólk þurfti að greiða vegna læknis- og lyfjakostnaðar.

2014/15

Samtök eins og Kraftur, Ljósið og Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins setja á laggirnar endurgjaldslausa sálfræðiþjónustu til að mæta þörf vegna skorts á sálfræðiþjónustu á Landspítalanum.

2016

Miðstöð síðbúinna afleiðinga er stofnuð fyrir einstaklinga sem fengu krabbamein sem börn eða unglingar.

2017

Ný reglugerð tók gildi þar sem sett var greiðsluþak á kostnaðarþátttöku sjúklinga.

2018

Jáeindaskanni tekinn formlega í notkun. Jáeindaskanninn er mjög mikilvægt greiningartæki sem er notað til að greina krabbamein og fylgjast með framgangi þess. Áður þurfti fólk að fara til Danmerkur í jáeindaskanna þar.

2019

Nýtt sjúkrahótel er formlega opnað á lóð Landspítalans. Ný reglugerð er varðar frjósemisverndandi úrræði og tæknifrjóvgun tekur gildi þar sem Sjúkratryggingar Íslands greiða allt að 65% hlut fyrir krabbameinsgreinda. Krabbameinsáætlun loksins samþykkt en enn er unnið að innleiðingu hennar.


Samhæfð stefna í málaflokknum.

Stefnu frá heilbrigðisyfirvöldum sbr. Krabbameinsáætlun. Hvernig á að þjónusta þennan stækkandi hóp einstaklinga? Hér skiptir mjög miklu máli að innleiða þá krabbameinsáætlun sem búið er að samþykkja og hafa hana að leiðarljósi í þjónustu og stuðningi við krabbameinsgreinda.

Endurhæfingu er ábótavant. Ýmis úrræði eru í boði en ekki er horft á endurhæfingu sem hluta af krabbameinsmeðferð sem gerir það tilviljunarkennt hvort sjúklingur fái endurhæfingu við hæfi. Því er nauðsynlegt að endurhæfing sé tekin inn sem sjálfsagður hluti meðferðar og sjúklingur fái endurhæfingarmat í upphafi greiningar og meðferðar sbr. Krabbameinsáætlun.

Það vantar fleiri sérfræðinga. Við eigum fullt af frábæru starfsfólki sem er með víðtæka reynslu og þekkingu á sviði krabbameinslækninga en það er áhyggjuefni hversu fáir krabbameinslæknar eru starfandi á Landspítalanum og vantar okkur fleiri sérfræðinga til að koma til móts við þennan stækkandi hóp. Við þurfum að huga að því hvernig við ætlum að fá læknana okkar heim að námi loknu.

Það vantar góðan spítala. Starfsemi Landspítalans er löngu búin að sprengja utan af sér. En blessunarlega er byrjað að byggja nýjan spítala eftir miklar vangaveltur um staðsetningu hans.

Greiðsluþátttaka sjúklinga. Við viljum að greiðsluþátttaka sjúklinga verði á pari við Norðurlöndin, þ.e. að sálfræðiþjónusta, tannlækningar og tæknifrjóvgun verði niðurgreidd af Sjúkratryggingum eins og önnur heilbrigðisþjónusta.

Bráðamóttöku fyrir krabbameinssjúklinga. Nauðsynlegt er að fá bráðamóttöku fyrir krabbameinssjúklinga sem þeir geta leitað til eftir dagopnun annarrar læknisþjónustu. Það getur verið hættulegt fyrir ofnæmisbælt krabbameinsveikt fólk að umgangast annað veikt fólk sem það getur smitast af. Í dag er eina úrræðið bráðamóttakan í Fossvogi.

Faglegan tengilið fyrir sjúklinga. Æskilegt væri að fá sérstakan faglegan tengilið sjúklinga sem leiðir fólk í gegnum ferlið og hjálpar því að fóta sig í nýjum aðstæðum. Einstaklingur sem sjúklingur getur ávallt leitað til og þekkir kerfið. Hann væri leiðbeinandi og tryggir það að sjúklingur sé að nýta sér alla þá þjónustu sem er í boði fyrir hann og fylgir honum eftir.

Hvað er ábótavant?

Eins og fyrr greinir megum við ekki sofna á verðinum. Fullt af sigrum hafa áunnist síðastliðin 20 ár en enn eigum við langt í land með ýmsa hluti. Um er að ræða stækkandi hóp krabbameinsgreindra og er því mikilvægt að við horfum til þeirra hluta sem mega betur fara og vinna markvisst að þeim.


Fokk ég er með krabbamein

Í tilefni 20 ára afmælis félagsins var brugðið á það ráð að gefa LífsKraft út í nýrri og nútímalegri mynd. LífsKraftur er handbók um flest sem viðkemur krabbameini og þær hugleiðingar sem fólk hefur um krabbamein. Allir sem greinast með krabbamein á aldrinum 18-45 ára og fjölmargir fleiri fá bókina afhenta sér að kostnaðarlausu en hún liggur einnig frammi á öllum spítölum landsins. LífsKraftur inniheldur hagnýtar upplýsingar fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein, aðstandendur þeirra og vini. Tilgangur útgáfunnar er að safna saman á einn stað upplýsingum, fræðsluefni og bjargráðum sem koma að gagni fyrir ungt fólk með krabbamein og aðstandendur. Velferðarráðuneytið styrkti Kraft við útgáfu bókarinnar en fjölmargir aðrir lögðu félaginu lið með skrifum og ráðgjöf og færir Kraftur þeim öllum sínar bestu þakkir. Hægt er að nálgast bókina á vefsíðu Krafts, www.kraftur.org eða fá hana afhenta á skrifstofu félagsins, Skógarhlíð 8. Einnig er hægt að fá bókina senda heim gegn greiðslu sendingarkostnaðar. Fræðsluvefur Krafts Í apríl opnaði Kraftur fræðsluvef sem byggir á bókinni. Þar setjum við inn þær spurningar sem geta skotist upp í huga fólks er lýtur að því að greinast með krabbamein, krabbameinsmeðferðum, samskiptum og öðru. Sumum finnst betra að leita á netinu en að lesa bók svo fræðsluvefurinn hentar þeim mjög vel. Það eru margar spurningar sem kvikna þegar maður greinist með krabbamein og þá er gott að geta leitað upplýsinga á vefnum. Fræðsluvefurinn er „lifandi“ vefur með gagnkvæma virkni. Notendur geta skráð sig inn og geymt greinar og svör í sínu eigin viðmóti til minnis eða lesturs síðar. Hægt er að senda inn spurningar sem við svörum með aðstoð sérfræðinga. Greinarnar og svörin eru með merkingar (e. Tags) svo að notendur ættu auðveldlega að geta fundið tengd efni.


Fræðsla

Bls. 39

Smelltu mynd af QR kóðanum með snjallsímanum þínum til að fá upplýsingar.


Bls.40

Leiรฐari


Skapa fötin manninn?

Bls. 41

Skapa fötin manninn? Hér má sjá hluta hinna einstöku ljósmynda frá ljósmyndasýningunni „Skapa fötin manninn?” sem stillt var upp framan við Hörpu og er samstarfsverkefni Kára Sverriss ljósmyndara og Krafts. Eins og sjá má var tískufatnaði blandað saman við ör en allar fyrirsæturnar eiga það sameiginlegt að hafa greinst með krabbamein og bera þess merki.


Bls.42

Leiรฐari


Efnisyfirlit

Bls. 43


Bls.44

Festival Krafts

Fyrsti viðburðurinn á afmælisári Krafts var Lífið er núna Festival Festivalið var fyrsti viðburður sinnar tegundar hér á Íslandi en þetta var sannkölluð veisla þar sem Kraftur bauð uppá margvíslegar vinnustofur um daginn og partý um kvöldið. Alls mættu 70 manns á festivalið og komust færri að en vildu. Þessi viðburður var félagsmönnum að kostnaðarlausu. Aðeins þurfti að greiða 2.500 krónu staðfestingargjald. Öll dagskrá, veitingar og skemmtiatriði voru í boði Krafts og greiddi félagið ferðakostnað og gistingu fyrir þá sem komu utan af landi. Það er skemmst frá því að segja að festivalið lukkaðist eins og best verður á kosið – enda dagskráin afar vönduð og aðstaða á Hótel Hilton til fyrirmyndar. Laugardeginum gátu þátttakendur varið með því að taka þátt í spuna með Improv Ísland, Gong streisulosun, núvitundarnámskeiði, sjálfstyrkingu með KVAN, hlusta á fyrirlesstur um jákvæða sálfræði, læra dans og margt fleira. Um kvöldið var boðið uppá glæsilegan kvöldverð og skemmtun eftir að Kraftsfélagar höfðu slakað á í Hilton Reykjavík Spa. Festivalið féll í afar góðan jarðveg hjá þátttakendum og má því gera ráð fyrir að það verði endurtekið síðar. Mikið fjör var á festivalinu Þar sem Bjartar sveiflur héldu uppi stuðinu um kvöldið.


Festival Krafts

Bls. 45


Bls.46

Foreldri með krabbamein

Því hefur stundum verið haldið fram að krabbamein sé fjölskyldusjúkdómur – enda hafa veikindi eins í fjölskyldunni mikil áhrif á aðra ástvini – ekki síst börn þess krabbameinsgreinda. Kraftur ræddi við tvö ungmenni sem bœði eiga þá sameiginlegu reynslu að mæður þeirra greindust með krabbamein og létust síðar. Hvaða áhrif hafði það á líf þeirra, hvernig tókust þau á við lífið í skugga veikindanna og ekki síður sorgina? Á hvern hátt hefur þessi lífsreynsla breytt lífi þeirra og lífsviðhorfum? Hér tala þau Arnar Sveinn Geirsson og Marín Rós Eyjólfsdóttir.


Viðtöl- Ragnheiður Davíðsdóttir

Bls. 47

Arnar Sveinn Geirsson „Nú erum við mamma að vinna saman,” segir Arnar Sveinn Geirsson, sem missti móður sína úr krabbameini þegar hann var 11 ára. „Ég varð talsvert hræddur þegar ég var spurður að því hvaða minningar ég ætti um mömmu. Hvernig ég hugsaði um hana. Hræðslan kom af því að þegar ég fór að hugsa út í það reyndist mér það mjög erfitt. Erfitt á þann hátt að ég mundi hreinlega mjög lítið.” Þetta eru orð Arnars Sveins Geirssonar, 28 ára, sem missti móður sína, Guðrúnu Helgu Arnarsdóttur úr

krabbameini þegar hann var aðeins 11 ára. Síðan í byrjun árs 2018 hefur hann einbeitt sér að því að vinna úr áfallinu sem móðurmissirinn var. Í fimmtán ár forðaðist hann allar minningar um mömmu sína til þess að afbera söknuðinn. Öll þessi ár setti hann upp grímu jákvæðni og gleði og taldi það vænlegustu leiðina til að geta verið hamingjusamur.


Bls.48

Foreldri með krabbamein / Arnar Sveinn

„Elskaði ég hana ekki nóg? Sakna ég hennar ekkert? Er ég búinn að gleyma henni?” „Undir niðri leið mér mjög illa og sú líðan helgaðist af því að ég leyfði mér ekki að finna til og forðaðist allar tilfinningar. Ég var ekki tilbúinn að taka á móti lífinu og öllum þeim tilfinningum sem því fylgja. Ég var endalaust með samviskubit yfir því að syrgja ekki mömmu; samviskubit sem átti engan rétt á sér,” segir Arnar Sveinn. Fyrir ári ákvað hann að takast á við þessar tilfinningar og um leið miðla reynslu sinni til annarra í formi fyrirlestra þar sem hann fjallar á opinskáan hátt um áhrif dauða móður sinnar á barns- og unglingsárin og líf sitt fram að þessu. „Ég er fæddur á Spáni árið 1991 þar sem pabbi minn, Geir Sveinsson, spilaði handbolta. Á þessum árum bjuggum við líka í Frakklandi og Þýskalandi en við mamma vorum samt alltaf með annan fótinn á Íslandi,” segir Arnar Sveinn. „Mamma greindist með brjóstakrabbamein þegar ég var 2 ára árið 1993 og auðvitað man ég ekkert eftir því. Árið 1998 greindist hún aftur með krabbamein og þá voru komin meinvörp í lifrina. Ég var sjö ára og man lítið eftir því – enda var mamma alltaf ákveðin í að vera ekki sjúklingur og lét veikindin ekki hafa áhrif á líf fjölskyldunnar og síst af öllu mig. Ég á því engar minningar um veika mömmu. Við mamma vorum afar náin og miklir vinir – enda vorum við mikið saman. Mamma var mikil tilfinningavera á meðan pabbi var agaði íþróttamaðurinn. Þau mynduðu því gott teymi. Ég var einkabarn foreldra minna svo lengi og við mamma vörðum miklum tíma saman á meðan pabbi var að æfa og spila handbolta,” segir Arnar brosandi og heldur áfram: „Mamma var á fullu nánast fram í andlátið og til marks um það vann hún daglega að málefnum Krafts þar sem hún var í stjórn og aðeins þremur vikum áður en hún dó tók hún þátt í útgáfuhófi LífsKrafts, sem hún vann að hjá félag-

inu, og leit þá mjög vel út og virtist bara hress. Þar var hún með systur mína, Ragnheiði, á fyrsta ári en þau pabbi ættleiddu hana skömmu áður.” Nokkrum vikum síðar, eða þann 16. maí 2003, lést Guðrún Helga móðir Arnars Sveins á Landspítalanum, aðeins 37 ára. Arnar verður fjarrænn á svip og þegir lengi áður en hann svarar því hvernig hann tók þessum sáru tíðindum. „Ég man að pabbi kom til mín nokkrum dögum fyrir andlát mömmu, þar sem ég sat inni í eldhúsi, og sagði mér að mamma kæmi aldrei aftur heim. Ég missti allan mátt og hágrét á eldhúsgólfinu með pabba. Þarna hafði mamma verið inni á spítalanum í nokkra daga, en ég hafði ekki ennþá viljað fara þangað þar sem ég var alltaf að bíða eftir að hún kæmi heim. En þarna var orðið ljóst að hún kæmi ekki aftur heim svo að ég fór beinustu leið upp á spítala. Fjórum dögum síðar dó hún. Dagurinn sem mamma dó er svolítið í þoku hjá mér. Pabbi sat á rúmstokknum hjá mér þegar ég vaknaði og sagði mér tíðindin. Ég á einhverjar minningar frá jarðarförinni en þær eru óljósar, rétt eins og tímabilið á eftir.” Arnar Sveinn hefur talað opinskátt um tilfinningar sínar eftir móðurmissinn. Hann segist lengi hafa flúið þær með því að ýta þeim frá sér jafn óðum og þær komu upp. „Ég ákvað að vera sterkur, jákvæður og glaður fyrir alla í kringum mig. Ég vildi ekki að aðrir hefðu áhyggjur af mér. Ég ákvað að hugsa sem minnst um mömmu til þess að forðast söknuðinn. Með því bældi ég á sama tíma niður allt sem hétu minningar. Ég fór ekki í kirkju, nema tilneyddur, forðaðist spítala, fór ekki í kirkjugarðinn og þóttist meira að segja ekki muna eftir dánardegi mömmu. Hægt og rólega fór ég að gleyma öllum minningum og átti því engin svör þegar ég var spurður út í


Efnisyfirlit

Bls. 49

Við mamma vörðum miklum tíma saman á meðan pabbi var að spila handbolta.

minningar sem tengdust mömmu. Það kallaði fram samviskubit og hræðslu. Minningarnar voru fáar. Hugsanirnar hlutlausar. Hvers konar sonur er ég, að muna ekki eftir eigin móður? Hvers konar sonur er ég, að geta ekki rifjað upp alls konar minningar um mömmu? Elskaði ég hana ekki nóg? Sakna ég hennar ekkert? Er ég búinn að gleyma henni?” Allar þessar spurningar spruttu upp hjá Arnari Sveini og talsvert fleiri til. Því fleiri sem spurningarnar urðu, því meiri sem sjálfsgagnrýnin varð, því skýrara varð þetta fyrir honum. „Í mínum augum var ég hræðilegur sonur sem hélt ekki uppi minningu mömmu. Hélt ekki uppi heiðri hennar. Ég skammaði sjálfan mig fyrir það að hugsa ekki nóg til hennar. Ég fékk samviskubit yfir því að ég færi ekki að gráta alltaf þegar ég talaði um hana. Yfir því að ég saknaði hennar ekki öllum stundum. Á sama tíma var ég að berjast við að vera jákvæður og glaður. Dæmið gekk ekki upp. Ég sá því ekki neitt annað í stöðunni en að hætta að sakna. Hætta að gráta. Þannig væri lang best að tækla þetta til þess að geta verið jákvæður og glaður og hamingjusamur. Og það gerði ég. Og hægt og rólega fór ég að gleyma.” Árin liðu og Arnar Sveinn taldi sig vera hamingjusaman. Hann var á kafi í íþróttum, gekk vel í skólanum og átti góða vini og gott samband við fjölskylduna. Hann segist hafa átt sér drauma og sett sér markmið en engu að síður komu erfiðar hugsanir, söknuður og erfiðar tilfinningar sem bönkuðu uppá reglulega. „Ég skildi þetta ekki. Hvernig gat það verið að mér liði illa þegar mér fannst ég vera að gera allt hárrétt í leitinni að hamingjunni? Ég var með fimmtán ára reynslu í að leita hennar og taldi mig hafa gert allt rétt, ræktað fjölskyldu og vini, menntað mig, náð mér í góða vinnu, lifað heilbrigðu lífi og verið sæmilega góð og heiðarleg manneskja,” segir Arnar Sveinn og bætir við að hann hafi á tímabili verið farinn að ímynda sér að það væri eitthvað að honum. „Ég hef verið í tveimur þriggja ára samböndum með frábærum konum þar sem ég taldi mig einnig vera fullkominn kærasta. Fyrstu tvö árin

í þessum samböndum gekk allt vel en þegar ástin óx og sambandið var að fara yfir á næsta stig, bakkaði ég. Ég fjarlægði mig og var í rauninni bara leiðinlegur, kannski vegna þess að ég vildi forðast þær aðstæður að ég gæti farið að elska eina manneskju það mikið að ég gæti ekki misst hana.” Það var ekki fyrr en vinur og samstarfsmaður Arnars Sveins grunaði að hann þyrfti á einhvers konar hjálp að halda og spurði hvort hann vildi hitta konuna sína sem er sálfræðingur. Á þessum tímapunkti var hann tilbúinn til þess, eftir árangurslausa sálfræðitíma árin á undan. „Hún hjálpaði mér að komast á betri stað, tala um líðan mína og nota þau úrræði sem ég hef til að vinna með.” Þar með hófst ákveðið tilfinningalegt endurreisnarstarf í lífi Arnars Sveins sem enn stendur yfir. „Auðvitað hjálpar það til að hugsa vel um sig, vera í góðri vinnu og í góðu sambandi við fjölskyldu og vini og allt hitt sem skiptir mann máli. En á endanum er það þannig að hamingjan kemur að innan. Hún kemur ekki nema við séum sjálf tilbúin í að vera hamingjusöm. Að innra með okkur sé friður


Bls.50

Foreldri með krabbamein / Arnar Sveinn

til þess að takast á við það að vera hamingjusöm. Af því að það að vera hamingjusamur tekur á. Það tekur á af því að við þurfum að vinna fyrir því, af því að hamingjan er ekki bara bundin við veraldlega hluti eða tikkuð box á tékklistanum. Hún er bundin við okkur sjálf. Setjum fókusinn á það hvernig okkur líður, en ekki hvernig eitthvað á að láta okkur líða. Leiðum hugann að og einblínum á það sem er að gerast innra með okkur. Einbeitum okkur að vinnunni sem þarf til þess að vera hamingjusöm. Tékklistinn má vera þarna. Höfum hann endilega til staðar en gleymum því ekki að hann er ekki tæmandi.”

„Ég sakna hennar enn mjög mikið og á mínar erfiðu stundir og erfiðu daga“ Arnar Sveinn heldur áfram: „Minning mín af mömmu á að vera nákvæmlega eins og hún er. Hún á ekki að vera á neinn ákveðinn hátt. Minningin á bara að vera. Ég hugsa um hana þegar hún kemur til mín. Ég sakna hennar þegar söknuðurinn kviknar. Ég græt ef ég vil gráta. Ég gef henni rými til þess að fylgja mér. Ég leyfi henni og minningunum um hana að fylgja mér. Ég á að vera óhræddur við að sakna, hlæja, gráta og hugsa um hana. Og hægt og rólega fór ég að muna. Muna hversu mikið hún gaf mér og hversu mikið ég gaf henni. Muna hvað hún skildi mikið eftir. Muna hvað ég elskaði hana og að ég mun alltaf elska hana. Muna að ég sakna hennar alveg ofboðslega. Muna að söknuðurinn mun aldrei fara. Muna að ég er svo langt í frá búinn að gleyma henni.” Og víst er að Guðrún Helga, móðir Arnars Sveins, hefur haft margvísleg áhrif á líf hans og gerir enn. Hann heldur nú fyrirlestra um reynslu sína víða um land og talar þar á opinskáan og einlægan hátt um móðurmissinn og hvernig hann tókst á við sorgina og söknuðinn. Hann hefur einnig tekið sæti í stjórn Krafts og fetar þannig í fótspor móður sinnar sem sat lengi í stjórn félagsins. „Ég sakna hennar enn mjög mikið og á mínar erfiðu stundir og erfiðu daga. En ég finn einnig fyrir henni oft og tíðum og einkanlega þegar ég er að halda fyrirlestrana. Ég veit hún er með mér og held hún sé mjög stolt af mér og þeirri vinnu sem ég hef verið í. Síðan er auðvitað ótrúlega gott og fallegt að hugsa til þess að við séum núna að vinna saman,” segir Arnar Sveinn að lokum.


Viðtöl- Ragnheiður Davíðsdóttir

Bls. 51

Marín Rós Eyjólfsdóttir „Mamma var aldrei sjúklingur – hún var bara mamma,” segir Marín Rós Eyjólfsdóttir sem missti móður sína úr krabbameini fyrir tæplega tveimur árum. Marín Rós Eyjólfsdóttir missti móður sína, Arndísi Höllu Jóhannesdóttur, úr krabbameini í febrúar 2018. Marín Rós á yngri systur og voru þær 20 og 17 ára þegar mamma þeirra lést. Sjálf var hún aðeins 14 ára þegar móðir hennar veiktist en þá bjó fjölskyldan í San Diego í Bandaríkjunum þar sem faðir hennar,

Eyjólfur Rúnar Stefánsson, var starfandi á þeim tíma. Marín Rós hefur verið virkur félagi í Krafti undanfarin ár og segir hér frá þeirri lífsreynslu að horfa uppá móður sína með lífsógnandi sjúkdóm og þurfa að kveðja hana, alltof snemma.


Bls.52

Foreldri með krabbamein / Marín Rós

„Viðhorf hennar var alltaf að þetta væri bara eitt af verkefnunum sem okkur væri falið í þessu lífi og það væri ekkert að gera nema bara að brosa, njóta og berjast af fullum krafti“ Við byrjum á að ræða viðbrögð hennar þegar mamma hennar greindist. „Ég man að mamma sagði mér einn daginn, þegar hún var að skutla mér í skólann, að hún ætlaði til læknis og að hana grunaði að e.t.v. væri hún með krabbamein. Ég kippti mér svo sem ekki mikið upp við það því ég vissi að við myndum alltaf finna út úr því saman. Ég veit að það er kannski erfitt að trúa því en ég man ekki eftir því þegar mamma sagði mér að hún hafi verið að greinast. Kannski var það vegna þess að á þeim tíma var ég viss um að þetta væri ekkert mál. Hún myndi bara fara í meðferð og svo væri það bara búið og við myndi taka næsta verkefni. Það sem mér þótti erfiðast var að segja öðrum frá því að hún hefði verið að greinast. Mamma og pabbi buðust til þess að tala við einhvern í skólanum mínum fyrir mig svo ég hefði einhvern að leita til ef ég þyrfti á því að halda en ég vildi það ekki, ég vildi gera það sjálf. Ég talaði við leiklistarkennarann minn og ég man að það þótti mér erfitt. Þá fyrst fannst mér þetta vera raunverulegt,” segir Marín Rós. Hún segir móður sína hafa gengist undir fyrstu meðferðina á háskólasjúkrahúsinu í La Jolla í San Diego. Sú meðferð hafi gengið vel og móðir hennar talin vera laus við krabbameinið. „Þá vorum við á leið heim til Íslands, dönsuðum „Happy dance” og skelltum á samfélagsmiðla í tilefni þess,“ segir hún og bætir við að veikindi móður hennar hafi ekki

sett mikið strik í reikninginn við Ameríkudvölina. „Viðhorf hennar var alltaf að þetta væri bara eitt af verkefnunum sem okkur væri falið í þessu lífi og það væri ekkert að gera nema bara að brosa, njóta og berjast af fullum krafti,“ segir Marín Rós og brosir. Skömmu eftir að fjölskyldan flutti aftur til Íslands greindist Arndís á ný með krabbamein sem að þessu sinni hafði dreift sér í eitlakerfið og síðar í lungun. En skildi Marín Rós hafa gert sér grein fyrir alvarleika veikinda hennar? „Ég held að ég hafi alltaf gert mér grein fyrir alvarleikanum en ég leyfði mér ekki að hugsa um það. Við þurftum að vera sterk fyrir mömmu alveg eins og hún var sterk fyrir okkur. Það pirraði mig líka alltaf þegar fólk skildi ekki af hverju ég var pirruð eða leiðinleg við mömmu, „mamma þín er veik, vertu góð við hana,“ var iðulega sagt við mig. Jú, vissulega var mamma mín veik en hún var samt mamma mín og mömmur geta verið pirrandi – sama hvort þær eru veikar eða ekki,“ segir Marín og kveðst alltaf vera þakklát fyrir að hafa aldrei misst það. „Að hafa ekki misst mömmu mína fyrr en hún dó,“ útskýrir hún. „Einu sinni fyrir kannski tveimur árum fékk ég t.d. blöðrubólgu og hringdi í mömmu og grenjaði úr verkjum sem var kannski ekki það sem ég hefði átt að


Viðtöl- Ragnheiður Davíðsdóttir

Bls. 53

Frá vinstri Eyjólfur og Arndís ásamt dætrum sínum Rakel og Marín Rós.

gera því ég vissi að hún var miklu verkjaðri en ég. Það breytti ekki þeirri staðreynd að hún var mamma mín og ég var lasin og mig langaði bara að hringja í mömmu mína og láta hana segja mér að hætta þessu væli og að allt yrði í lagi,“ segir Marín Rós og brosir við minninguna. „Ég er svo þakklát fyrir að mamma hafi bara verið mamma en ekki veika mamma. Það er ekki síst henni að þakka þar sem hún vildi ekki láta okkur upplifa sig sem sjúkling. Hún var lifandi og það átti að koma fram við hana eins og hún væri það ekki eins og hún væri dauðvona, sem hún reyndar var aldrei í mínum augum. Hún var bara mamma.“ Við ræðum um andlega líðan hennar og sú spurning vaknar hvort Marín Rós hafi fengið einhverja hjálp á meðan mamma hennar var veik, t.d. sálfræði-

aðstoð eða jafningjastuðning. „Já, en það var ekki fyrr en fimm árum eftir að mamma greindist sem ég fór að hitta sálfræðing. Það var erfitt fyrir mig að taka það skref því mér fannst ég ekki þurfa hjálp. Það var á endanum mamma sem pantaði tímann og fór með mér í fyrsta sinn. Ég var ekki sátt til að byrja með enda fannst mér enginn skilja mig og enginn geta sagt mér hvað ég átti að gera eða hvernig mér átti að líða. En ég var mjög heppin með sálfræðing sem hjálpaði mér mikið þegar ég loksins leyfði honum það.“ Arndís naut mikils stuðnings fjölskyldu sinnar auk þess sem vinahópur hennar myndaði stuðningshóp sem stóð þétt við bakið á henni. En þrátt fyrir jákvætt


Bls.54

Viðtal

„Ég veit ekki hversu oft ég hef viljað hringja í hana eftir að hún dó út af furðulegustu hlutum en aðallega bara til að spjalla“

„Hún var ekki tilbúin, ég var ekki tilbúin, það var það enginn og kannski er það aldrei neinn í svona aðstæðum. Mér fannst verst þegar við gengum út af sjúkrahúsinu og keyrðum heim, að það voru bílar á götunum, fólk á gangi, lífið hélt áfram eins og ekkert hafði í skorist. Ég skildi ekki af hverju göturnar voru ekki auðar. Það sem tók við voru mjög erfiðir tímar.

segir mikið tómarúm og sorg hafa tekið við eftir jarðarförina. „Lífið frá dauða mömmu hefur verið skrítið og mun sennilega alltaf verða það. Mamma var ekki bara mamma okkar systra, hún var vinkona okkar og sama hvað það var þá virtist mamma alltaf hafa einhver svör, misgóð en hún var alltaf tilbúin að gera sitt besta til að finna út úr hverju sem er með okkur. Ég veit ekki hversu oft ég hef viljað hringja í hana eftir að hún dó út af furðulegustu hlutum en aðallega bara til að spjalla. Eftir að ég flutti til Reykjavíkur hringdi mamma mjög oft, yfirleitt oftar en einu sinni á dag. Oftast var það bara til að spjalla, heyra hvernig dagurinn minn hefði verið eða eitthvað því um líkt. Það pirraði mig stundum hvað hún hringdi oft og ætlaðist til þess að ég myndi halda samtalinu uppi en núna finnst mér síminn ekki hringja nógu oft.

Jarðarförin hennar veitti mér hlýju því þangað mætti fleira fólk en ég hefði getað ímyndað mér þrátt fyrir brjálað veður og leiðindi,“ segir Marín Rós og

Ég vildi að hún myndi hringja og ætlast til þess að ég myndi bara tala. Það sem kom mér líka á óvart var hversu erfitt það var að hætta að hafa áhyggjur. Ég

hugarfar og baráttuanda, kom að því að krabbameinið hafði betur og hún lést þann 2. febrúar 2018. Marín Rós segir viðbrögðum sínum einna best hægt að lýsa sem vonleysi og reiði. „Ég veit samt ekki hvort það er hægt að skilgreina það sem reiði. Ég var vissulega reið en ég var reið yfir því að hafa ekkert getað gert. Þetta var reiði og vonleysi. Að þurfa bara að standa hjá og geta ekkert gert. Mér fannst ég eins og illa gerður hlutur,” segir hún og heldur áfram.


Foreldri með krabbamein / Marín Rós

Hvernig birtist söknuðurinn þegar frá leið? „Mér finnst einhvern veginn ekki svo langt um liðið og söknuðurinn er alltaf jafn mikill. Ég sakna þess að láta eins og vitleysingur með mömmu. Ég græt meira en ég gerði áður en ég hlæ líka mun meira og hærra. Því það er það sem skiptir máli. Mikill hlátur og smá grátur voru einkunnarorð mömmu og ég reyni að lifa eftir þeim. Það er vissulega erfitt að sakna svona mikið en ég er líka meðvitaðari um fólkið sem ég á. Mér finnst erfitt að segja til um einhverja eina birtingarmynd söknuðarins, hann birtist einhvern veginn í öllu. Mér finnst samt ekki vont að sakna. Ég er bara heppin að hafa eitthvað til að sakna. Það þýðir að stundirnar sem við áttum voru þess virði að sakna og ég er þakklát fyrir þær.“ Marín neitar því þó ekki að sumir dagar séu erfiðari en aðrir en segir það ekki vera neina sérstaka daga. „Erfiðir dagar koma og fara og það er eðlilegt held ég. Ég myndi ekki segja að jólin hafi verið erfið. Það var falleg stund sem við áttum saman og hugsuðum til mömmu. Við lögðum á borð fyrir hana hjá okkur til að minnast hennar sem mér fannst fallegt og svo kveiktum við á kerti og fórum í messu. Mér fannst það gott. Áramótin voru kærkomin stund. Árið 2018 var það erfiðasta sem ég hef upplifað hingað til og það var yndislegt að geta sagt skilið við það og leyft sér að hlakka til nýs árs. Við höfum ákveðið að reyna að gera alltaf eitthvað sem mömmu þótti skemmtilegt á afmælinu hennar eins og t.d. að fara í leikhús, henni fannst það æðislegt en dánardeginum hennar vil ég helst bara gleyma.“ Hvernig hefur þessi lífsreynsla haft áhrif á líf þitt og lífsviðhorf? „Ég átta mig frekar á því hvað lífið er dýrmætt og geri allt sem ég get til þess að njóta þess. Ég hef þó fundið að ég er lífshræddari en ég var. Mér fannst ég alltaf svo ódauðleg en ég er það ekki, ekki frekar en þú. Það er ótrúlega erfitt að takast á við það að átta sig á því að maður er dauðlegur og að þrátt fyrir að maður sé góður og fari varlega geti allt gerst.

Ég verð stundum reið þegar ég sé fólk leika sér að lífinu því það er svo margt fólk sem er að berjast fyrir því. Þegar ég hugsa um mömmu í dag sé ég hana fyrir mér standandi í stiganum í húsinu okkar í San Diego með skærbláa hárkollu, sem var partur af grímubúningi sem ég hafði notað á hrekkjavöku, að reyna að fá mig með sér í búðina og mig eins og kleinu að kafna úr gelgju sem vildi ekki láta sjá mig með henni með þessa hárkollu. Ég sé okkur fyrir mér sitjandi í sitt hvoru horninu á sófanum að prjóna og horfa á Gilmore girls og hlægja okkur máttlausar. Ég er svo þakklát fyrir þessar minningar og það er ekkert sem ég myndi ekki gera fyrir eitt asnalegt hláturskast eða eitt símtal í viðbót,” segir Marín Rós og segir að það muni alltaf verða stór hola í lífi sínu þar sem mamma hennar eigi heima. „Hún á heima þar og enginn mun nokkurn tímann breyta því. Ég veit að hún er og verður alltaf hjá mér. “

Bls. 55

fann mér ótrúlegustu hluti til að hafa áhyggjur af og geri enn, ég áttaði mig á því að ég var búin að hafa stanslausar áhyggjur í sex ár og ég hreinlega vissi ekki hvað ég ætti að gera annað.“


Bls.56

Vefverslun Krafts

Lífið er núna, er sá boðskapur sem Kraftur vill standa fyrir og með hjálp þeirra sem velja að kaupa og nota vörur merktar „Lífið er núna” er hægt að bera boðskapinn ennþá lengra út í samfélagið. kraftur.org/vefverslun

Allt byrjaði þetta með einu appelsínugulu armbandi, þegar vefverslun Krafts var opnuð í janúar 2017 samhliða opnun nýrrar vefsíðu. Markmiðið var að auka vitund á málstaðnum en einnig til að auðvelda almenningi að styðja við félagið með því að kaupa armband í litum Krafts. Þó svo að armböndin okkar séu okkar vinsælasta og þekktasta vara þá hefur vefverslunin verið í stöðugri þróun og margar skemmtilegar og fallegar vörur hafa bæst við flóruna. Rétt tæplega 20 mismunandi vörur eru í boði í vefversluninni og þar af eru um 10 merktar „Lífið er núna”, en verða vonandi fleiri með tímanum, því eitt af markmiðum vefverslunar Krafts er að bjóða aðeins upp á hágæða vörur og eins umhverfisvænar og mögulegt er. Í gegnum vefverslunina hefur Kraftur náð til fjölda fólks og nota margir vörurnar daglega og dreifa þannig boðskapnum áfram og vekja um leið athygli á málstað ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum. Vörurnar eru oft kveikja að samtölum og forvitnilegum spurningum en einnig geta þær veitt þeim sem standa í þessum sporum styrk við að sjá aðra bera boðskapinn áfram. Vinsældir armbandanna og tilkoma vefverslunarinnar hafa gert það að verkum að Kraftur hefur getað stóraukið þá þjónustu sem býðst ungu fólki og aðstandendum og einnig gert félaginu kleift að sinna betur unga fólkinu á landsbyggðinni með stofnun NorðanKrafts á Akureyri.

Gjöf sem gefur

Ein af vinsælustu vörum Krafts síðasta árið hefur verið „Lífið er núna” armböndin sem hafa verið perluð í tugþúsundum eintaka af frábærum sjálfboðaliðum og margir af okkar þekktustu Íslendingum bera. Armböndin náðu heimsathygli í kringum HM í fótbolta 2018 sem sýnir sig í því að við fáum pantanir víða að úr heiminum enn þann dag í dag.


Vefverslun Krafts

Bls. 57


Bls.58

Endurhæfing alla leið

„Eftir stórar aðgerðir er líkamleg endurhæfing nauðsynleg og í flestum tilfellum er æskilegt að hún hefjist sem fyrst eftir aðgerð til að sporna við líkamlegri afturför og flýta fyrir bata“

Þegar fólk greinist með krabbamein stendur það frammi fyrir stóru verkefni. Frá greiningu hefst ferli meðferðar sem oft tekur marga mánuði. Mikið er einblínt á veikindin sjálf og beina meðferð við þeim. Aðrir þættir lífs krabbameinsgreindra fá ekki jafn mikla og skipulagða athygli. Þó hafa orðið framfarir í þeim þáttum undanfarin ár. Þörf er á frekari framför í endurhæfingarmálum krabbameinsgreindra. Sjálfur greindist ég með mergæxli í febrúar 2018 eftir að hafa fengið samfallsbrot í hrygg. Við tók aðgerð á hryggnum, geislameðferð og miklar takmarkanir á líkamlegri getu næstu mánuði. Fljótlega eftir greiningu tók einnig við lyfjameðferð sem stóð yfir í sex mánuði til undirbúnings fyrir stofnfrumumeðferð með eigin stofnfrumur. Meðferðin við krabbameininu sjálfu er mjög stöðluð og skipulag gott, en því miður er ekki hægt að segja það sama um endurhæfinguna. Við greiningu tekur við mikið óvissuástand þess sem greinist. Sem betur fer eiga flestir einhverja að til að sitja með sér og taka við upplýsingum um þá möguleika sem eru í boði. Það að hafa einhvern með sér í ferlinu er nauðsynlegt, m.a. vegna þess að eftir slíkt áfall er hugur manns mjög reikandi og geta lyf einnig haft mikil áhrif á hugræna getu, minni o.fl. Því geta þær upplýsingar sem maður fær farið inn um annað eyrað og út um hitt.

Ólafur S. Björnsson, sjúkraþjálfari og krabbameinssjúklingur.

Eftir stórar aðgerðir er líkamleg endurhæfing nauðsynleg og í flestum tilfellum er æskilegt að hún hefjist sem fyrst eftir aðgerð til að sporna við líkamlegri afturför og flýta fyrir bata. Það sama má segja um veikindin sjálf. Ýmis meðferðarúrræði eru í boði fyrir krabbameinsgreinda á Íslandi og margir góðir aðilar sem starfa að því á mismunandi stöðum. Samhæfing meðferðarúrræða virðist hins vegar vera lítil og utanumhald til að hafa yfirsýn yfir allar meðferðir fyrir hönd sjúklingsins ekki til staðar. Vegna skorts á skipulagi og endurhæfingaráætlun


Grein- Ólafur S. Björnsson

Í mínu tilfelli hófst skipuleg endurhæfing ekki fyrr en ég komst inn á Reykjalund að loknum krabbameinsmeðferðum rúmum 8 mánuðum eftir greiningu. Í innlögnum á LSH fékk ég sjúkraþjálfun og hvatningu til grunnhreyfingar á eigin vegum. En eftir að heim var komið var engin endurhæfing önnur en sálfræðiaðstoð sem ég hafði sjálfur borið mig eftir. Vegna eigin þekkingar og reynslu taldi ég alltaf að endurhæfing vegna hryggaðgerðarinnar hefði átt að hefjast nokkuð fljótlega eftir aðgerð en vegna skorts á skipulagi og samtali voru upplýsingarnar sem ég fékk mjög misjafnar og mér ráðlagt að forðast líkamlega áreynslu fyrstu 2-3 mánuðina. Þær ráðleggingar héldu svo áfram og endaði það á að mér var ráðið frá því að stunda þjálfun í fjóra mánuði áður en ég tók sjálfur ákvörðun um að byrja þjálfunina og hætti að spyrja. Þjálfunin stóð þó stutt þar sem veikindi vegna lyfjameðferðar voru farin að gera meira vart við sig á þeim tíma og það styttist hratt í stofnfrumumeðferð sem var áætluð tveimur mánuðum síðar. Ég komst að því tíu mánuðum frá greiningu að líkamleg enduhæfing átti að hefjast um átta vikum eftir hryggaðgerðina en ég var ekki látinn vita af því og því byrjaði það ferli aldrei. Það var því tilfinnanlegur skortur á samtali fagfólks og skipulagi í mínu ferli. Sjálfur sóttist ég eftir sálfræðiaðstoð í byrjun ferlisins sem ég fékk í gegn um Kraft. Krabbameinsdeild Landsspítalans bauð mér upp á sálgæslu og félagsráðgjöf á meðan ég var þar inni liggjandi í byrjun sjúkdómsferlisins.

Á meðferðartímabilinu vissi ég að það stóð til að sækja um endurhæfingu á Reykjalundi sem hæfist eftir stofnfrumumeðferðina.

Mikil aðsókn er á Reykjalund og biðtími eftir meðferð þar er oft langur. Þeir sem gangast undir stofnfrumumeðferð hafa fengið forgang til að komast þar inn á fyrstu mánuðum eftir meðferðina en þó byggir það á því að sótt sé um dvölina tímanlega. Fór það svo að ég þurfti að ganga sjálfur eftir þessari umsókn. Ég var svo óheppinn að hún týndist einhvers staðar á leiðinni sem olli því að ég komst seinna að en ég hafði áætlað. Hefði ég ekki fylgst sjálfur með hefði sú seinkun eflaust orðið mun meiri. Þó batatími eftir þessar meðferðir sé nokkuð svipaður hjá flestum í mánuðum talið er mikill munur á því fyrir sjúklinginn sjálfan að byrja snemma í endurhæfingu sé hann fær um það. Getur munurinn milli einstaklinga hvenær þeir eru tilbúnir líkamlega verið talinn í vikum og mánuðum. Framfara á þessu sviði er þörf og er endurskoðun um breytingar til batnaðar í endurhæfingarmálum fyrir krabbameinssjúklinga hafin að einhverju leyti. Hver niðurstaðan verður á enn eftir að koma í ljós en von mín er að skipulag verði aukið til muna með auknu utanumhaldi, samtali og samstarfi fagfólks innan sjúkrahúsanna, sem og samstarfi sjúkrahúsanna við aðra endurhæfingaraðila. Endurhæfing ætti að hefjast formlega við greiningu krabbameins þar sem byrjað er á að greina þörf viðkomandi á endurhæfingu og gera drög að áætlun sem yrði svo endurskoðuð reglulega. Endurhæfing er ekki aðeins líkamleg og þarf hún því að vera fjölþátta þar sem einnig er tekin inn sálræn/ geðræn endurhæfing auk félagslegrar. Aðstæður sjúklings eru mjög misjafnar og þarfir þeirra því líka.Til að þetta geti orðið, þarf helst að vera einn aðili eða teymi sem heldur utan um endurhæfingarmál sjúklinga og fylgir því eftir að viðkomandi fái viðeigandi endurhæfingu í upphafi og beini sjúklingnum á rétta staði. Ef samstarf er gott milli stofnana og félaga sem bjóða endurhæfingu ætti þetta að geta gengið vel. Mikilvægi líkamlegrar endurhæfingar er gríðarlegt og getur breytt miklu um hvernig bataferlið gengur. Sé ekkert gert eftir aðgerðir verður mikil líkamleg afturför og færnistap, og það sama má segja um lyfjameðferðir. Því meiri sem afturförin er, því lengri tíma tekur endurhæfing eftir meðferðina, endurhæfingin verður erfiðari, veikindatímabilið lengra og mikil hætta á að árangurinn verði minni. Sé sálrænt og/eða félagslegt ástand á sama tíma slæmt hefur það áhrif á aðra þætti endurhæfingarinnar.

Bls. 59

er misjafnt hvaða þjónustu hver aðili fær og líkur á því að sjúklingar missi jafnvel af mikilvægum þáttum endurhæfingar.


Grein- Ólafur S. Björnsson Á sjúkdómsferlinu hitti ég og kynntist mörgu frábæru heilbrigðisstarfsfólki á mismunandi sviðum sem allt lagði sig að fullu fram við að sinna starfi sínu vel og veita mér sem besta þjónustu. Þetta fólk á þökk og hrós skilið fyrir sín störf.

Faglegt utanumhald um sjúklinginn varðandi fjölþátta endurhæfingu frá greiningu getur gert það að verkum að endurhæfing verði sem markvissust og með sem mestum árangri. Þannig komist sjúklingur í sem bestu ástandi í gegnum sín veikindi og komist út á vinnumarkaðinn.

Draumastaðan væri að við greiningu kæmi til teymi sem mæti stöðu sjúklingsins og endurhæfingarþörf. Út frá þeirri vinnu yrðu möguleg úrræði kynnt sem henta sjúklingnum og hans aðstöðu og gerð endurhæfingaráætlun. Þeirri áætlun væri svo ýtt af stað og viðkomandi stýrt á rétta staði á réttum tíma. Sjúklingurinn ætti tengilið sem væri vel inni í málum hans og því væri alltaf hægt að leita til sama aðilans sem gæti haft milligöngu sé breytinga þörf. Samtöl væru regluleg og breytingar á endurhæfingaráætlun kæmu út frá þeim og jafnvel endurmati á sjúklingnum og þörfum hans á ákveðnum tímum ferilsins.

Undirritaður býr svo vel að vera sjálfur sjúkraþjálfari og gat því sinnt sinni líkamlegu endurhæfingu að einhverju leyti sjálfur þó það sé alltaf skynsamlegra að láta aðra sjá um sín mál þegar maður er í þessari aðstöðu. Eins og fyrr sagði fékk ég ansi miklar upplýsingar strax í byrjun ferlisins sem ég var fljótur að gleyma. Þegar nokkrir mánuðir voru liðnir á veikindin var mér bent á að ég gæti leitað til Ljóssins. Það hafði ég ekki vitað áður. Ég leitaði þó aldrei þangað, en eftir á að hyggja hefði það alltaf verið skynsamlegra. Gott hefði verið að vita af þessu fyrr og jafnvel hefði ég fengið stýringu í einhverskonar ferli strax í byrjun. Skipulag Reykjalundar í endurhæfingarmálum er frábært en endurhæfingin þar hófst seint á sjúkdómsferlinu og því þörf á að önnur endurhæfingarúrræði séu frá upphafi. Einnig er þörf á að sótt sé um endurhæfingu þar tímanlega svo mögulegt sé að komast að á hentugum tíma m.t.t. líkamlegrar getu. Samtal og samstarf misjafnra aðila sem koma að misjöfnum þáttum endurhæfingar einstaklingsins myndi alltaf skila markvissari endurhæfingu, meiri og betri árangri en að hver vinni í sínu horni. Án utanumhalds og stýringar er einnig mikil hætta á að sjúklingur fari á mis við mikilvægan þátt sinnar endurhæfingar. Einhverja leið þarf einnig að finna til að sinna þeim sjúklingum sem búa á landsbyggðinni þar sem lítil þjónusta er í boði. Ekki hafa allir tök á að sækja þjónustu um langar leiðir. Að lokum er ekki hægt að ætlast til að fólk hafi almennt sjálft þekkingu á hvernig endurhæfing skuli fara fram eða hafi fulla þekkingu á hver þörfin sé. Hvað þá að fólk geti sjálft skipulagt endurhæfingarferlið sitt. Því er það skoðun mín að mikil þörf sé á breytingu og auknu skipulagi endurhæfingar krabbameinssjúkra sem myndi leiða til mikillar framfarar í heilbrigðiskerfinu okkar.

Eftir að meðferðinni lýkur er svo áætlun um langtíma eftirfylgni vegna hugsanlegra síðbúinna heilsufarskvilla til staðar sem kemur í veg fyrir að sjúklingurinn gleymist þegar meðferð er lokið. Endurhæfing alla leið!

Bls. 61

Það er hagkvæmt fyrir þjóðfélagið að halda fólki vinnufæru sem lengst og að veikindatímabil séu sem styst, þó vissulega þurfi fólk tíma til að jafna sig nægilega vel til að geta snúið til baka eftir slíkar meðferðir.


Nýjungar í starfsemi Krafts

Eins og fram hefur komið hefur starfsemi Krafts aukist verulega undanfarin ár og ýmsar nýjungar litið dagsins ljós, bæði hvað varðar þjónustu við félagsmenn og aðstöðu starfsmanna. Stærri skrifstofa – betri aðstaða. Um mitt ár 2018 fékk Kraftur stærra og hentugra húsnæði í kjallara húss Krabbameinsfélags Íslands. Félagið flutti úr litlu skrifstofunni á 1. hæðinni í 40 fermetra húsnæði sem var sérstaklega innréttað fyrir félagið. Þar er aðstaða fyrir 3-4 starfsmenn, lítið sérherbergi fyrir viðtöl og nægilegt rými til að halda stjórnarfundi.

StelpuKraftur StelpuKraftur er stuðningshópur fyrir ungar konur á aldrinum 18 til 45 ára sem greinst hafa með krabbamein. Hópurinn hittist annan hvern mánudag klukkan 17:00 í húsnæði Krafts að Skógarhlíð 8. Umsjón með hópnum hefur Elín Kristín Klar ráðgjafi.Hægt er að óska eftir inngöngu á Facebook síðu hópsins sem ber sama nafn.

StrákaKraftur StákaKraftur er stuðningshópur fyrir unga karlmenn á aldrinum 18-45 ára sem greinst hafa með krabbamein. Hópurinn hittist annan hvern þriðjudag klukkan 20:00, ýmist í húsakynnum Krafts í Skógarhlíð eða á öðrum fyrirfram ákveðnum stöðum. Umsjónarmenn StrákaKrafts eru Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur Krafts og Birkir Már Birgisson, félagsmaður í Krafti. Hægt er að óska eftir inngöngu á Facebook síðu hópsins sem ber sama nafn.


Nýjungar

Gönguhópurinn Að klífa brattann var settur á laggirnar í apríl 2019 og hefur það markmið að bjóða uppá tvær göngur í mánuði. Kraftskonurnar Ragnheiður Guðmundsdóttir og Sirrý Ágústsdóttir leiða gönguhópinn en þær hafa báðar notað útivist og fjallgöngur sér til endurhæfingar og sjálfseflingar í veikindum sínum. Göngurnar henta öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér göngur og íslenska náttúru og njóta þess að vera í hópi meðal jafningja. Sjá nánar á Facebook síðu hópsins sem ber sama nafn.

Lífið er núna hvíldarhelgar Í október 2018 ákvað Kraftur að bjóða félagsmönnum sínum, upp á hvíldarhelgi með yfirskriftinni Lífið er núna. Um er að ræða endurnærandi og uppbyggjandi helgi í fögru umhverfi sem samanstendur af samveru jafningja, fjölbreyttri fræðslu, slökun, skemmtun og hvíld. Fyrsta helgin var haldin á Kríunesi við Elliðavatn og þótti takast svo vel að ákveðið var að halda slíkar helgar reglulega. Vorið 2019 var Lífið er núna hvíldarhelgin á Úlfljótvatni. Þessar helgar eru félagsmönnum að kostnaðarlausu utan þess sem hver þátttakandi greiðir staðfestingargjald að upphæð kr. 2.500.

Minningarsjóður Krafts Minningarsjóður Krafts var stofnaður á árinu í minningu góðs félaga, Bjarka Más Sigvaldasonar, sem lést 27. júní 2019 eftir 7 ára baráttu við krabbamein. Sjóðurinn var stofnaður til að heiðra minningu hans og þeirra góðu gilda sem hann stóð fyrir, þ.e. að láta veikindin ekki stjórna lífi sínu heldur lifa fyrir daginn í dag. Tilgangur sjóðsins er að styrkja aðstandendur til að standa straum af útfararkostnaði þegar félagsmaður Krafts fellur frá vegna krabbameins eða afleiðinga þess. Úthlutunarreglur og umsóknareyðublað má finna á www.kraftur.org

FítonsYoga FítonsYoga eru blandaðir jógatímar. Annars vegar er lögð áhersla á að styrkja líkamann og hugann með jóga flæði. Hins vegar er lögð áhersla á teygjur, slökun og hugleiðslu. Jógakennari er Pála Margrét Gunnarsdóttir. Tímarnir eru bæði fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur. Nánari upplýsingar á www.kraftur.org

Bls. 63

Að klífa brattann


Bls.64

Karlmenn leita sér síður stuðnings

„Við erum öll félagsverur og þurfum á stuðningi og ráðgjöf að halda þegar svona alvarleg veikindi banka uppá. Ég leitaði mér hjálpar og sé ekki eftir því. En ég hefði samt kosið að fá meiri og betri upplýsingar um þetta mikla og erfiða ferli sem framundan var, strax og ég greindist“

Birkir Már var einn þeirra sem tók þátt í átaki Krafts, „Krabbamein kemur öllum við.”


Bls. 65


Bls.66

Karlmenn leita sér síður stuðnings

Birkir Már Birgisson er fertugur fjölskyldufaðir í Reykjavík sem greindist með krabbamein í ristli árið 2017. Birkir er einnig varaformaður Krafts og umsjónarmaður StrákaKrafts. Hann segir karlmenn oft eiga erfiðara með að leita sér stuðnings og hjálpar og það sé oft ekki fyrr en maki eða annar aðstandandi hafi frumkvæðið sem þeir stíga það skref. Þá segir hann skorta nokkuð á að við greiningu fái krabbameinsgreindir upplýsingar um annað en það sem viðkemur krabbameinsmeðferðinni sjálfri. Birkir segir það hafa komið sér á óvart hvað þetta var langt og erfitt ferli.

„Það sem mér finnst vanta fyrir karla er að það sé farið betur út í hvað þetta er langt og mikið ferli, þ.e. hvað maður á eftir að upplifa og hvers konar þrautarganga þetta verður“

„Það sem mér finnst vanta er að það sé farið betur út í hvað þetta er langt og mikið ferli, þ.e. hvað maður á eftir að upplifa og hvers konar þrautarganga þetta verður,” segir hann og kveðst aldrei hafa getað ímyndað sér hvað það eru margar erfiðar þrautir í þessu ferli sem hann segist hafa verið lengi að vinna úr. „Ég nefni sem dæmi það eitt að segja öllum frá þessu, makanum, börnunum, foreldrum og vinum. Hvernig gerir maður það? Svo er það öll biðin, símtölin og niðurstöður úr myndatökum.” Hann segist t.d. lítið hafa sofið síðustu þrjá dagana áður en hann átti að mæta til læknisins til að fá að vita niðurstöður síðustu rannsóknar. „Lítill og óreglulegur svefn getur farið ansi illa með hausinn á manni. Svo sækja allar þessar erfiðu upplifanir á mann lengi eftir á,” segir hann og nefnir sérstaklega hversu erfitt það var að segja börnunum sínum frá krabbameininu. „Það er ekkert grín að þurfa að tilkynna börnunum sínum að maður sé með krabbamein. Það tókst ekki fyrr en í þriðju tilraun hjá mér. Samtals tók það mig þrjá daga að koma þessu út úr mér við börnin og það komst lítið annað að í hausnum á mér á þeim tíma en hver viðbrögðin yrðu. Þetta var erfitt verkefni sem ég hafði aldrei hugsað út í að ég þyrfti að takast á við,” segir Birkir og nefnir líka að það hafi ekki síður tekið á að hringja í foreldra sína og vini og segja þeim frá þessu þar sem allir vissu að það væri frétta að vænta. „Öll símtölin í pabba og mömmu til að segja þeim fréttir tóku mikið á. Í hvert skipti sem ég hringdi í þau og sagði þeim nýjustu fréttir úr rannsóknum kom bara þögn og svo heyrði ég þau bara gráta af gleði. Þó svo að þetta séu gleðistundir eru þetta ofboðslega erfiðar stundir sem geta sótt að manni lengi á eftir.” Birkir nefnir einnig hversu erfitt það sé fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur að bíða lengi eftir niðurstöðum úr rannsóknum eða myndatökum. „Þegar ég greindist var það um páska. Ég þurfti að bíða nokkra daga til að komast í myndatöku til að fá niðurstöðu hvort meinið hefði dreift sér í lifur og lungu. Svo var bið á meðan lesið var úr niðurstöðunum og önnur bið eftir næsta tíma hjá lækninum til að fá þær. Ég hef heyrt frá mörgum að þessi bið fari mjög illa með fólk og sitji lengi í því. Þarna bíður maður kannski í tíu daga til að fá að vita hvort maður eigi ef til vill bara örfá ár eftir. Þessi bið er óbærileg,” segir hann og minnist þess þegar hann gekk inn ganginn á spítalanum til að


Viðtal- Ragnheiður Davíðsdóttir

Bls. 67

hitta lækninn sinn til að fá fréttir af því hvort meinið hefði dreift sér. „Ef það hefði dreift sér í lifrina, eins og lækninn grunaði vegna bletta sem sáust í fyrstu myndum, hefði ég kannski bara átt 2-5 ár eftir. Fyrir mig sem átti þrjú börn og eitt aðeins 7 mánaða var þetta hrikaleg bið. Að bíða og hugsa hvort maður sé kannski að fara að yfirgefa þennan heim og vita að 7 mánaða dóttir manns eigi ekki eftir að muna eftir pabba sínum er erfiðara en orð fá lýst,” segir hann alvarlegur í bragði. „Í einni myndatökunni sem ég fór í vissi ég að það yrði farið yfir myndirnar á föstudegi en samt átti ég ekki tíma til að fá niðurstöðurnar fyrr en á mánudegi. Til hvers þarf að láta fólk þjást aukalega yfir helgi? Þetta þarf að bæta,” segir Birkir og kveðst ætla að beita sér fyrir því. Aðspurður segist hann ekki hafa leitað sér stuðnings fyrr en kona hans hreinlega dró hann af stað. „Ég hef orðið var við að karlar eiga oft erfiðara með að opna sig um þessi mál en konur og byrgja frekar inni tilfinningar sínar en þær. Það er líka oft auðveldara fyrir karlmenn að tjá sig við kynbræður sína og ég var þar engin undantekning,” segir hann og nefnir hversu miklu máli það skipti að fyrsta upplifun þeirra af stuðningi sé jákvæð. „Þegar ég kom t.d. í fyrsta skiptið í Ljósið sá ég ekkert annað en fullorðið fólk, aðallega konur sem voru að vinna handavinnu. Mér leist ekkert á það en sem betur fer átti ég eftir að kynnast betur því góða starfi sem þar er unnið síðar og nýta mér það. Mér fannst vanta stað þar sem karlmenn gætu hist og dundað eitthvað saman á daginn. Smíðað eitthvað, spilað borðtennis eða pool. Eitthvað til að drepa tímann á daginn í þessari löngu meðferð. Stað þar sem væri hægt að hittast alla virka daga og stundum bara til að mæta og fá sér kaffi og spjalla. StrákaKraftur hjá Krafti er mín hugmynd að miklu leyti. Mig langaði að búa eitthvað til sem væri sérsniðið fyrir stráka. Ég finn það bara með að sjá um þennan hóp að ég þarf stundum að draga þá til að mæta á hittinga. Kannski þurfa konur þessara einstaklinga líka að koma þeim af stað í þetta ferli því þær vita að mennirnir þeirra geta verið þverir og erfiðir og munu ekki mæta sjálfviljugir í þetta,” segir hann brosandi. „En það er gaman eftirá. Þá sé ég að kvöldin hafa gengið vel og menn ganga léttari og sáttari frá þeim. Bara að einn mæti og geti hitt einhvern úr hópnum með sömu eða svipaða reynslu, geti rætt það og búið til vináttu út frá því,

þá er tilgangnum náð. Mér fannst ég skulda Krafti og Ljósinu svo mikið eftir allt sem þau gerðu fyrir mig. Núna sit ég í stjórn Krafts og er á mínu öðru ári og ég ætla ekki að hætta þar fyrr en mér finnst ég hafa borgað mína skuld að fullu til baka.” Birkir segir ef til vill erfitt fyrir marga karlmenn að stíga fyrsta skrefið í þá átt að leita sér stuðnings en þegar það sé stigið, sé allt miklu auðveldara. Sjálfur segist hann hafa nýtt sér alls kyns hópa og námskeið í Ljósinu og mætt í sálfræðitíma til sálfræðings Krafts auk þess sem hann nýtti sér Stuðningsnetið og fékk þar ómetanlegan jafningjaStuðning. „Við erum öll félagsverur og þurfum á stuðningi og ráðgjöf að halda þegar svona alvarleg veikindi banka uppá. Ég bar gæfu til þess að leita mér hjálpar og sé ekki eftir því. En ég hafði samt kosið að fá meiri og betri upplýsingar um þetta mikla og erfiða ferli sem framundan var, strax og ég greindist.”


Deilum reynslunni KRA

Bls.68

FTU

R

W

FOLLO

FOL

FOLLOW

KRAFTUR

LOW

TUR

KRAF

OW FOLL

KRAFTUR FOLLOW

R AFTU

KR

999 likes Jón Jóns son #lífid

ernu

na

999 likes dernuna Jón Jónsson #lífi

na kes 999 li idernu n #líf ónsso Jón J

rnuna

kes lífide 999 li on # ónss

999 likes Jón Jóns son #lífid ernuna

Jón J

Deilum

Þú getur fylgst með á Instagram https://www.instagram.com/krafturcancer/ Vilt þú deila þinni reynslu - hafðu samband við okkur á kraftur@kraftur.org

reynslunni

Að sýna frá reynsluheimi okkar félagsmanna getur reynst öðrum dýrmætt. Undanfarna mánuði hefur Kraftur lánað félagsmönnum sínum aðgang að Instagramreikningi félagsins þar sem þeir hafa deilt frá sinni reynslu undir myllumerkinu #instagramtakeover #hvunndagshetja #deilumreynslunni. Þar deila félagsmenn sinni reynslu í máli og myndum og leyfa þar með öðrum að fá innsýn inn í það að vera ungur að greinast með krabbamein eða vera aðstandandi. Sögur okkar félagsmanna eru ólíkar þar sem enginn gengur í gegnum þetta ferli eins. Við reynum að velja ólíkar sögur svo fólk fái að sjá mismunandi hliðar af þessum heimi. Með þessu móti geta félagsmenn deilt ráðum til annarra sem eru í svipaðri stöðu á mannamáli. Jafningjastuðningur og jafningjafræðsla er það sem Kraftur hefur ætíð staðið fyrir og með þessum móti getum við gert vitneskjuna aðgengilega fyrir almenningi.


Baráttan við ófrjósemi

Bls. 69

Möguleg ófrjósemi er oft jafn mikið áfall og greiningin sjálf

Texti: Ragnheiður Guðmundsdóttir

Það getur reynst erfitt fyrir þá sem aldrei hafa greinst með krabbamein að setja sig í spor þeirra sem standa í eða hafa staðið í þeirri baráttu. Hvað þá ungs fólks í blóma lífsins sem átti sér einskis ills von. Það er margt sem fer í gegnum huga einstaklings á leið í krabbameinsmeðferð, enda afleiðingar krabbameins víðtækar og snerta marga þætti lífsins. Fyrir aðstandendur og vini, sem horfa á hlutina utanfrá, sjá margir aðeins þennan hræðilega óvin sem krabbameinið er en huga síður að afleiðingum þess, t.d. mögulegri ófrjósemi. Oft er sú staðreynd að ófrjósemi sé mögulegur fylgikvilli lyfjameðferðar jafn mikið áfall og greiningin sjálf. Í rauninni er þetta svolítið eins og að strá salti í opið sár. Rannsóknir hafa sýnt fram á að ófrjósemi veldur mun meira álagi en flestir gera sér grein fyrir. Þegar rætt er við fólk sem hafði bæði lent í því að missa einhvern nákominn og átt við ófrjósemi að stríða, kom í ljós að ófrjósemin olli því miklu meira álagi, þó hvort tveggja hafi tekið mikið á. En krabbameinsgreindir eiga þó von með hjálp tækninnar.


Bls.70

ร frjรณsemi


Baráttan við ófrjósemi

Ungur maður sem greindist með beinkrabbamein aðeins 15 ára gamall og þurfti að frysta sæði áður en krabbameinsmeðferð hófst, lýsir upplifun sinni svona. Hann er í dag 28 ára gamall. „Þetta var mjög erfitt, þá sérstaklega þar sem ég var bara unglingur. Það kom svolítið í hlut mömmu og pabba að halda utan um það að ég sendi sæði til frystingar. Mér fannst það dálítið erfitt. Mér fannst það eiginlega það versta. Þegar ég greinist var þetta bara svona ráðstöfun fyrir lyfjameðferð. Þetta var bara eitthvað sem ég átti að gera og síðan fara með þetta sæði í frystingu. Og það var soldið erfitt þar sem ég var ekki með bílpróf og gat ekki gert neitt sjálfur. Og það voru bara foreldrar mínir sem gáfu mér eitthvert glas og ég átti bara að skila því innan einhvers tíma og fara með það í frystingu. Það var mjög erfitt, það var eiginlega það erfiðasta við þetta. Og síðan er alltaf þessi hræðsla sem nagaði mann. Að frjósemin fari. Þetta er svolítið eins og að sparka löppunum undan manni og síðan pælir enginn í því sérstaklega af því það eru allir með hugann við veikindin og hvernig ég hafi það. Í allri lyfjameðferðinni nagaði þetta mig. Þangað til að ég eignaðist dóttur án aðstoðar. Það var svolítill léttir og maður horfði alveg á það sem kraftaverk. Þegar maður veit svo að maður getur þetta, þá er ákveðnum þunga létt af manni. Manni líður eins og maður sé að sigra krabbameinið algjörlega, þó maður náttúrulega fórni alltaf einhverju. Pínu litlir sigrar skipta svo ofboðslega miklu máli þegar maður safnar þeim öllum saman. Fólk þarf að skilja það að í framhaldinu af krabbameinslyfjameðferð er það manni ótrúlega mikilvægt, að geta eignast börn.“ Þessum unga manni finnst, rétt eins og svo mörgum öðrum, að það eigi að vera svo sjálfsagt að krabbameinsgreindir geti farið í frjósemisaðgerðir án þess

að hafa fjárhagsáhyggjur. Það kosti þá allt sem þeir eiga og meira til. „Maður á að fá alla nauðsynlega aðstoð með þetta. Krabbamein er alltaf ömurlegt, alveg sama hvernig á það er litið. Að þetta sé ekki alveg öruggt er skrítið. Að tapa frjósemi er að tapa svo miklu – jafnvel þó að maður vilji halda heilsu fyrst og fremst,“ segir hann. „Það er ömurlegt að fólk sem þarf á þessu að halda hafi ekki efni á því. Það er bara reiknað með því að maður sætti sig við að verða ófrjór. Þetta eru ekki upphæðir sem fólk á að þurfa að punga út. Þann 28. maí 2019 gaf heilbrigðisráðuneytið frá sér tilkynningu um breytingu á reglugerð varðandi greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands, þar sem hlutdeild þeirra í kostnaði við frjósemisaðgerðir var aukin. Breytingarnar eins og þær voru birtar á vef heilbrigðisráðuneytisins eru eftirfarandi:

Hlutdeild sjúkratrygginga hækkar úr 30% í 65% vegna annarrar meðferðar í glasa- eða smásjárfrjóvgun. Fyrir þriðju og fjórðu meðferð í glasa- eða smásjárfrjóvgun verður greiðsluþátttaka sjúkratrygginga 65% en hún var engin fyrir. Hlutdeild sjúkratrygginga vegna fyrstu meðferðar í glasa- eða smásjárfrjóvgun hækkar úr 5% í 65% ef um er að ræða ófrjósemisvandamál vegna lyfjameðferðar, geislameðferðar eða beinmergflutnings. Hjá öðrum verður greiðsluþátttakan óbreytt, það er að segja 5% við fyrstu meðferð. Sjúkratryggingar munu eftir reglugerðabreytinguna taka þátt í kostnaði við frystingu á fósturvísum.

Bls. 71

„Það er ömurlegt að fólk sem þarf á þessu að halda hafi ekki efni á því. Það er bara reiknað með því að maður sætti sig við að verða ófrjór“


Bls.72

Baráttan við ófrjósemi Með þessari nýju reglugerð, leggur ríkissjóður aukið fjármagn í málaflokkinn, eða u.þ.b. 40 milljónir til frjósemisaðgerða þannig að sem flestir geti notið góðs af. Reglugerðin er ekki aðeins sigur fyrir alla þá sem þurfa á frjósemisaðgerðum að halda, heldur er þetta stór sigur fyrir marga krabbameinsgreinda sem greinast ungir enda geta krabbameinsmeðferðir í mörgum tilvikum leitt til ófrjósemi. Margir krabbameinsgreindir eru illa staddir fjárhagslega þar sem fjárhagur þeirra skerðist allverulega vegna veikindanna, jafnframt sem þeir þurfa að standa undir lyfja- og lækniskostnaði. Það eitt að þurfa ekki að hafa áhyggjur af háum kostnaði við þessa óvæntu frjósemisaðgerð, léttir þungu fargi af annars mjög áhyggjufullum einstaklingum. Ung kona með ólæknandi krabbamein og unnusti hennar fóru í fyrsta frjósemisferlið í desember 2018, áður en reglugerðinni varð breytt og þurftu þá að greiða hana að fullu, fengu engan styrk, en fengu tvo fósturvísa. Þau notuðu annan þeirra strax en hinn settu þau upp í febrúar á þessu ári, en meðferðin virkaði í hvorugt skiptið. Þau greiddu 480 þúsund fyrir meðferðina og 260 þúsund fyrir að láta setja fósturvísinn upp. Ekkert var niðurgreitt af þeirri meðferð en þau fengu styrk frá Eflingu upp á 100 þúsund og einnig styrk frá Krafti. Þau segjast aldrei hafa getað byrjað í þessu ferli ef ekki hefði verið fyrir fjárstyrk frá Krafti og Eflingu. Seinni meðferðin hefði átt að falla undir nýju reglugerðina. Engu að síður var þetta unga par að lenda í vandræðum með að fá niðurgreiðsluna í gegn. Þar sem þessi reglugerð var svo ný og ekki komin reynsla á hana, þá var Livio (fyrirtækið sem sér um frjósemisaðgerðir á Íslandi) ekki tilbúið að veita þennan nýja löggilda afslátt af hræðslu við að Sjúkratryggingar Íslands myndu ekki greiða sinn hlut á móti. Livio gaf þeim því aðeins 30% afslátt í staðinn fyrir 65%. Þegar þau hringdu svo í Sjúkratryggingar vissu starfsmenn þar ekki um þessa nýju reglugerð. Þau lögðu því sjálf út fyrir þessum umframkostnaði þar sem hvorki Livio né Sjúkratryggingar Íslands þorðu að taka þá áhættu. Hún segir að eftir næstu meðferð, sem þau munu þurfa að greiða 190 þúsund fyrir miðað við 65% afslátt, verði þau búin að greiða rúma milljón króna úr eigin vasa á einu ári til þess eins að láta draum sinn rætast um að eignast barn – enda ljóst að hún þurfi að gangast undir margar lyfjameðferðir, svo lengi sem hún lifir.

Hún heldur áfram: „Það kom í fréttunum í fyrra grein um að nú yrðu frjósemisaðgerðir niðurgreiddar fyrir krabbameinsgreinda. Það var stórt framfaraskref, enda var ég og unnusti minn á þeim tíma í þessari meðferð. Þá hringi ég í Sjúkratryggingar Íslands til að fræðast aðeins betur um þessa nýju reglugerð sem verið var að samþykkja. Hvernig hún gengi fyrir sig, hvort þetta væri aðeins niðurgreiðsla á annarri meðferð, eða einnig þriðju, fjórðu og fimmtu meðferð. Starfsmaður Sjúkratrygginga Íslands virtist koma alveg af fjöllum og vissi ekkert um hvað ég var tala um og engu var líkara en engin samskipti væru á milli heilbrigðisráðuneytisins og Sjúkratrygginga,” segir hún. Hún tekur þó fram að starfsmenn Sjúkratrygginga séu allir að vilja gerðir. „Starfsfólk Sjúkratrygginga hefur alltaf gert allt sem það getur fyrir mig. Ég hef ekkert út á það að setja. En ég hef oft lent á vegg þegar ég leita eftir upplýsingum og fæ oft á tilfinninguna að þau bara viti ekki svarið. Flestir sem þurfa upplýsingar um greiðsluþátttöku hringja í Sjúkratryggingar og ég get ekki annað en fundið til með þeim sem þangað leita ef svörin eru svona.“ Hún vill einnig fá að vita hvort það séu einhver takmörk á því hversu oft þau geti farið í meðferð á þessum afslætti. „Mér finnst að það þurfi að skilgreina þetta betur. Því tilfellin eru mismunandi, eins og í okkar tilfelli. Við erum að reyna að varðveita frjósemi því ég veit að hjá mér er yfirvofandi krabbameinsmeðferð. Segjum sem svo að það sé að fara að gerast á næsta ári og fáum að nota fósturvísi. Málið er að það liggur bara á hjá okkur að fá þennan fósturvísi. Það liggur líka á að ljúka meðgöngunni sem fyrst. Ástæðan er sú að við þurfum ekki bara að búa til fósturvísi, við þurfum að koma barni í heiminn áður en við förum að rústa líkama mínum,” segir hún og áréttar að þau séu ekki búin að gefast upp á því að reyna að eignast barn og ætla í eina meðferð í viðbót fyrir næstu lyfjameðferð. Eins og fram hefur komið virðist þessi ófrjósemisþáttur oft týnast í stóra samhengi krabbameinsins. Jafnvel heilbrigðisstarfsmenn virðast ekki alltaf vera mjög meðvitaðir um hversu mikilvæg frjósemi er ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein. Það virðist koma fyrir aftur og aftur að sjúklingar eru ekki upplýstir um áhættuna á ófrjósemi áður en krabbameinsmeðferð hefst, né að þeim séu kynntir allir mögulegir valkostir því tengt.


Grein- Ragnheiður Guðmundsdóttir

„Nei, ég hafði ekki hugmynd um að meðferðin gæti haft áhrif á frjósemina og mér var heldur ekki sagt það alveg strax, heldur frétti ég það fyrst eftir að ég greindist og þurfti því að fresta fyrstu lyfjagjöfinni því mig langaði að frysta egg eins og mér var ráðlagt að gera.” Það var þó ekki krabbameinslæknirinn hennar sem sagði henni frá þeirri áhættu á ófrjósemi sem mögulega fylgir krabbameinsmeðferð, heldur hjúkrunarfræðingur þegar hún mætti í viðtal í annað skiptið. „Það var sem sagt búið að ákveða dag sem ég átti að byrja meðferð. En svo seinna var mér sagt þetta í viðtali við lækni og þá þurfti að fresta meðferðinni því ferlið hjá Livio tók að mig minnir tvær vikur.“ Hún lýsir líðan sinni þannig eftir að hafa fengið þær fréttir: „Mér leið mjög illa þar sem ég hef alltaf elskað börn og verið barnapía. Langar meira en allt að geta eignast barn náttúrulega. En ég veit samt að þótt að ég yrði ófrjó þá get ég alltaf ættleitt eða farið aðrar leiðir. En það var samt sem áður erfitt að líta á björtu hliðarnar á þessum tímapunkti.“ Hún segir þó að líkurnar á ófrjósemi í meðferðinni séu ekki svo miklar en hún vildi samt sem áður fara í eggheimtuferlið. Því miður náðist ekkert egg til frystingar. „Ég myndi klárlega segja þær fréttir hafi verið þær erfiðustu að kyngja, hingað til. Ég var búin að leggja á mig mikla fyrirhöfn, sprauta mig tvisvar á dag og fór þrisvar í skoðun hjá Livio sem er alls ekki þægilegt. Svo var eggheimtan sjálf alveg hrikalega sársaukafull þrátt fyrir verkjalyf og annað sem manni er gefið. Ég grét allan tímann á meðan verið var að stinga í eggjastokkana og því urðu það skelfileg vonbrigði, eftir allan þennan sársauka, að heyra að ekkert egg hafi náðst. Alveg ótrúlega erfiður dagur. Þetta var alla vega dagurinn sem ég grét mest.“ Þessi unga kona var hinsvegar heppin að því leyti að reglugerðin sem kvað á um 65% afslátt fyrir krabbameinsgreinda var komin í ferli þá. Hún tekur það fram að henni þyki það mikilvægt að þessi reglugerð sé til staðar þar sem margir vilji eignast barn. „Það er glatað þegar svona sjúkdómur kemur inn og mögulega eyðileggur fyrir þér möguleikann á barneignum. Og þetta er alveg ótrúlega dýrt ferli og eitthvað sem væri varla mögulegt að þurfa að greiða fyrir að fullu þegar maður er að ganga í gegnum þessi veikindi.“

Eins og komið hefur fram hér í þessari grein, þá er frjósemi mikilvægur þáttur í mannlegri tilveru og ekki síður fyrir krabbameinsgreinda en aðra. Það er því mikilvægt að hlúð sé að frjósemi þeirra sem þurfa að fara í krabbameinsmeðferð á barneignaraldri þannig að fólk geti haldið í vonina í myrkrinu sem fylgir því að takast á við krabbamein

Bls. 73

Ung kona um tvítugt sem greindist með Hodkins eitlakrabbamein í janúar á þessu ári hafði ekki hugmynd um það þegar hún greindist að krabbameinsmeðferð gæti haft áhrif á frjósemi hennar.


Perlaðu með Krafti

Bls. 75

Perlaðu Ótal fyrirtæki og stofnanir, félagasamtök, skólar, íþróttafélög og aðrir hópar í samfélaginu hafa óskað eftir að aðstoða Kraft við perlun og sér enn ekki fyrir endann á þeim beiðnum.

Markmið viðburðanna er að gefa fólki tækifæri til að leggja málefninu lið, njóta líðandi stundar og skapa andrúmsloft þar sem gleði og stemming er ríkjandi. Viðburðirnir hafa verið mis stórir en allt frá því að vera 20 manna hópar upp í að vera fleiri hundruð manns. Við hjá Krafti erum sjálfboðaliðum og samfélaginu óendanlega þakklát fyrir að taka þátt í þessu með okkur og þiggjum með þökkum boð frá fyrirtækjum, skólum og stofnunum um að halda perluviðburð. Perlunin sjálf er auðveld og á færi flestra. Vegna umfangs óskum við eftir að lágmarksfjöldi þátttakenda sé 25 manns og fyrirvari sé a.m.k. 7 dagar eða meira; sérstaklega ef um mjög stóra hópa er að ræða. Fyrir vinnustaði og hópa sem eru staðsettir út á landsbyggðinni þarf lágmarksfjöldi að vera 50 manns. Allt sem til þarf eru borð og stólar, góð lýsing, gleði og góð stemming.

Þeir sem vilja leggja hönd á perlu geta nálgast upplýsingar á heimasíðu Krafts www.kraftur.org eða sent póst á hrefna@kraftur.org.

Krafti

með

Haldnir hafa verið fjölmargir perluviðburðir víðsvegar um landið þar sem margir hafa komið saman og lagt hönd á perlu. Á starfsárinu fóru starfsmenn Krafts og dyggir sjálfboðaliðar um víðan völl með perlurnar og var meðal annars perlað í Stykkishólmi, á Selfossi, Ísafirði, Flúðum og Reyðarfirði, svo eitthvað sé nefnt.


Bls.76

NorðanKraftur

NorðanKraftur er stuðningshópur fyrir ungt fólk (45 ára og yngri) sem greinst hefur með krabbamein, óháð því hvaða meðferð var gefin vegna sjúkdómsins, hvort meðferð sé lokið eða hvenær meðferð lauk. NorðanKraftur er samstarfsverkefni Krafts og Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Hópurinn er starfræktur frá Akureyri. Nú hefur fulltrúi NorðanKrafts, Sigríður Þorsteinsdóttir, sest í stjórn Krafts og er sérstaklega ánægjulegt að fá fulltrúa landsbyggðarinnar sem einn stjórnarmanna. Þá hefur Sara Ómarsdóttir, verið ráðin í 30% starfshlutfall og mun hún halda utan um starfsemi NorðanKrafts á Akureyri. NorðanKraftur hittist annan hvern miðvikudag í vetur. Boðið verður uppá skemmtilega viðburði þar sem við kom-um saman og hittum aðra í sambærilegum sporum. NorðanKraftur er með sérstaka Facebook síðu og hægt er óska eftir inngöngu í hópinn þar. Dagskrá hópsins er auglýst inn á heimasíðu Krafts og á heimasíðu Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Sara Ómarsdóttir er nýráðinn starfsmaður NorðanKrafts


Hlaðvarp Krafts

Bls. 77

KR

Hlaðvarpið heitir Fokk ég er með krabbamein og er það vísun í LífsKraft, handbók fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur sem Kraftur gaf út á dögunum. Í hlaðvarpi Krafts er talað um hlutina eins og þeir eru á hreinskilinn hátt. Hlaðvarpið er hluti af afmælisársdagskrá Krafts sem felur í sér spennandi viðburði í hverjum mánuði. Kraftur hefur hlaðið niður nýjum þætti á u.þ.b. tveggja vikna fresti á árinu í samstarfi við Herbert Geirsson hjá Primatekinu. Reynsluheimur félagsmanna er dýrmætur fyrir aðra sem lenda í sambærilegum sporum sem og þá sem vilja fá raunverulega mynd af því hvernig er að vera í þessum sporum hvort sem um er að ræða krabbameinsgreinda eða aðstandendur. Í fyrsta þættinum spjalla þau Hildur B. Hilmarsdóttir og Daníel Reynisson, forsprakkar Krafts ásamt Huldu Hjálmarsdóttur, framkvæmdastjóra, um stofnun Krafts og mikilvægi jafningjastuðnings fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Þættirnir taka á ólíkum málefnum tengdum ferlinu, en dæmi um umræðuefni má nefna: Að greinast, Ófrjósemi, Hvernig er best að tala um krabbamein við börn, Er dauðinn tabú, Kynlíf og krabbamein, Krabbamein og baráttan við kerfið, Útlitsbreytingar eftir krabbameinsmeðferð, Sjónarmið astandenda og fjölmargt fleira.

A

IN

Þann 20. febrúar 2019 setti Kraftur nýtt podcast/ hlaðvarp í loftið sem er í raun fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Í hlaðvarpinu er rætt opinskátt um krabbamein á mannamáli, bæði frá sjónarhorni þeirra sem greinst hafa með krabbamein, aðstandenda og annarra.

B BAME

þættir eru aðgengilegir á vefsíðu Krafts: http://www.lifidernuna.is/podcast/ Einnig er hægt að nálgast þættina á Spotify og helstu podcast veitum, bæði fyrir Android og IPhone.

Súsanna Sif Jónsdóttir og Arnar Sveinn Geirsson eru meðal þeirra sem tjá sig um reynslu sína í hlaðvarpinu. Kynntu þér málið nánar með því að taka mynd af QR kóðanum með snjallsíma.


Bls.78

Styrktaraรฐilar Krafts


Kraftur 2019

Bls. 79

2/23/2017

verifone­logo­primary­pos­2color_highres.jpg (3512×1576)

http://global.verifone.com/media/4241840/verifone­logo­primary­pos­2color_highres.jpg

1/1


Reykjavík Danica sjávarafurðir ehf Yrki arkitektar ehf Hótel Leifur Eiríksson ehf Zymetech ehf. HB Grandi hf. Faxaflóahafnir sf. Atelier Arkitektar slf. Hamborgarabúlla Tómasar Geirsg ehf Elísa Guðrún ehf Hereford-Steikhús ehf. Reykjavíkurborg Argos ehf, arkitektastofa Stefáns og Grétars Gjögur hf. Bati - sjúkraþjálfun ehf. Sér ehf Landsvirkjun Betra líf - Borgarhóll ehf. Verzlunarskóli Íslands ses. Guðmundur Arason ehf. Vilhjálmsson sf Hagkaup K.F.O. ehf. Arkís arkitektar ehf. Umbúðamiðlun ehf Rolf Johansen & Co ehf. Tannlækningar ehf Kósk ehf. Landssamband lögreglumanna Verkhönnun ehf Tannréttingar sf. Léttfeti ehf. PricewaterhouseCoopers ehf. SAMEYKI stéttarfélag í almannaþjónustu Henson Sports Europe á Ísl ehf Samiðn,samband iðnfélaga Trivium ráðgjöf ehf Íslensk endurskoðun ehf Landsbréf hf. Tónskóli Sigursv D. Kristinss Stúdíó Stafn ehf. Stjá Sjúkraþjálfun ehf. Lögfræðistofa Reykjavíkur ehf Hjá GuðjónÓ ehf. Kjöthöllin ehf Kvika banki hf. KOM ehf., kynning og markaður Efling stéttarfélag Bandalag starfsm ríkis og bæja VA arkitektar ehf Tösku- og hanskabúðin ehf. Blómagallerí ehf. Ragnar V. Sigurðsson ehf Unit ehf. InterCultural Ísland ehf. Tengi ehf Félag skipstjórnarmanna Veiðivon ehf Tannval ehf. Fasteignasalan Miklaborg ehf Félag ísl hjúkrunarfræðinga Blaðamannafélag Íslands Jónatansson & Co,lögfræðist ehf Óskirnar þrjár ehf. PFAFF hf. THG Arkitektar ehf. Fastus ehf. Glófaxi ehf. Tanngo slf Tort ehf Bókaútgáfan Hólar ehf Fiskbúð Hólmgeirs ehf Læknasetrið ehf Wurth á Íslandi ehf. Matborðið ehf Kópavogur Hreint ehf. Teledyne Gavia ehf. Norm X ehf. Loft og raftæki ehf. Vatnsvirkinn ehf. Svansprent ehf Bílaklæðningar ehf. Rafholt ehf Hljóðbókasafn Íslands Exton ehf. RS ehf.

Seltjarnarnes Hlér ehf.

Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja Skorri ehf. Ísold ehf Verslunartækni ehf. Ósal ehf Hreinsitækni ehf. Vagnar og þjónusta ehf Orka ehf Félag vélstjóra og málmtæknim Aðalverkstæðið ehf Steinsmiðjan Rein ehf. Áfengis-/tóbaksverslun ríkisins Rarik ohf. Bifreiðaverkstæði Svans ehf Höfðabílar ehf. GB Tjónaviðgerðir ehf. Íslandspóstur ohf. Skolphreinsun Ásgeirs sf Við og við sf. Landsnet hf. Dýragarðurinn ehf Merking ehf. Margt smátt ehf. Fjárhald ehf Hafnarfjörður Útfararþjónusta Hafnarfj.slf. Hafnarfjarðarhöfn DGJ Málningarþjónusta ehf Verkþing ehf Ópal Sjávarfang ehf Hraunhamar ehf. Endurskoðun Helga Númasonar ehf Flúrlampar ehf. Íslenskir endurskoðendur, ráðgjöf ehf. Icetransport ehf. VSB-verkfræðistofa ehf. Leanbody ehf.

Garðabær Sámur sápugerð ehf Loftorka Reykjavík ehf. Vélsmiðja Þorgeirs ehf. Sparnaður ehf. Geislatækni ehf, Laser-þjónustan Nýþrif ehf AH Pípulagnir ehf Sjóklæðagerðin hf. Hjallastefnan ehf. Metatron ehf Garðabær

Bifreiðaverkstæði Kópavogs ehf. GR Verk ehf Init ehf Betra bros ehf dk Hugbúnaður ehf. Retis lausnir ehf. Vaxa ehf Tannlæknastofa Gunnars Leifssonar slf. V.Þ. Vilhjálmsson slf. Vídd ehf

Akranes Smurstöð Akraness sf. Norðanfiskur ehf. Sjúkraþjálfun Georgs

Mosfellsbær Vélsmiðjan Sveinn ehf Rafgæði ehf Glertækni ehf Nonni litli ehf. Fótbolti ehf. Höfðakaffi ehf. Afltak ehf.

Suðurnesjabær Lagnir og þjónusta ehf Sunnugarður ehf

Grindavík Stakkavík ehf. Lagnaþjónusta Þorsteins ehf. Slysavarnadeildin Þorbjörn Vísir hf.

Reykjanesbær Bergraf ehf. Netaverkstæði Suðurnesja ehf DMM Lausnir ehf. Maron ehf. Dacoda ehf.

SE ehf Reykjavík Warehouse ehf. Dverghamrar ehf. Geymsla Eitt ehf Byggingafélagið Sakki ehf Verkalýðsfélagið Hlíf Hvalur hf.

Bls.80

Styrktaraðilar Krafts


Bolungarvík Bolungarvíkurkaupstaður Sigurgeir G. Jóhannsson ehf Rafverk Alberts Guðmundss ehf Endurskoðun Vestfjarða ehf.

Ísafjörður Vestri ehf Orkubú Vestfjarða ohf. Hamraborg ehf

Reykhólahreppur Þörungaverksmiðjan hf.

Hellissandur Hópferðabílar Svans Kristófers ehf Sjávariðjan Rifi hf Hraðfrystihús Hellissands hf Esjar ehf.

Ólafsvík Litlalón ehf Steinunn hf

Stykkishólmur Hárstofan Stykkishólmi ehf Sæferðir ehf. Sæfell hf.

Borgarnes Samtök sveitarfélaga á Vesturla PJ byggingar ehf.

Akureyri Tannlæknastofa Árna Páls Halldórssonar Sjúkrahúsið á Akureyri Ljósco ehf. Tónsport ehf Bókend ehf Dýralæknaþjónusta Eyjafjarðar ehf Eining-Iðja Samherji Ísland ehf.

Siglufjörður Fjallabyggð Skíðasvæðið Skarðsdal, Siglufirði L-7 ehf Siglósport

Sauðárkrókur K-Tak ehf Iðnsveinafélag Skagafjarðar Steinull hf. Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra Útgerðarfélagið Sæfari ehf.

Skagaströnd Trésmiðja Helga Gunnarssonar ehf

Blönduós Trésmiðjan Stígandi ehf Stéttarfélagið Samstaða

Hvammstangi Bílagerði ehf

Drangsnes Útgerðarfélagið Gummi ehf

Tálknafjörður ESG-veitingar ehf.

Egilsstaðir Tréiðjan Einir ehf Bókráð, bókhald og ráðgjöf ehf.

Vopnafjörður Sundleið ehf

Laugum Dalakofinn Laugum

Húsavík Val ehf. Fjallasýn Rúnars Óskarssonar ehf

Ólafsfjörður Ósland ehf.

Dalvík Vélvirki ehf.

Grímsey Sigurbjörn ehf.

Grenivík Grýtubakkahreppur

Bjarni Fannberg J ónasson ehf. Molta ehf. Eyjafjarðarsveit B. Hreiðarsson ehf A.J. Byggir ehf. Baldur Halldórsson ehf. Tengir hf. Fóðurverksmiðjan Laxá hf. Vélaleiga HB ehf Húsprýði sf. Bifreiðaverkstæði Bjarnhéðins ehf. Blikkrás ehf

Selfoss Bílasala Suðurlands ehf Prentverk Selfoss ehf. Eðalbyggingar ehf. Bifreiðaverkstæðið Klettur ehf Ræktunarsamband Flóa/ Skeið ehf Baldvin og Þorvaldur ehf

Höfn í Hornafirði Króm og hvítt ehf Sveitarfélagið Hornafjörður Árnanes ehf JÖKLAVERÖLD ehf

Breiðdalsvík Bifreiðaverkstæði Sigursteins ehf Dýralæknirinn á Breiðdalsvík Dal-Björg ehf.

Neskaupstaður Síldarvinnslan hf.

Eskifjörður Fjarðaþrif ehf Egersund Ísland ehf.

Reyðarfjörður Hafnarsjóður Fjarðabyggðar

Seyðisfjörður Brilljantín ehf. Seyðisfjarðarkaupstaður

Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf Austfjarðaflutningar ehf Gunnarsstofnun Klausturkaffi ehf

Vestmannaeyjar Suðurprófastsdæmi Ós ehf Vestmannaeyjabær Frár ehf Vinnslustöðin hf. Skipalyftan ehf. Eyjablikk ehf.

Kirkjubæjarklaustur Bær hf.

Vík Arcanum ferðaþjónusta ehf.

Hvolsvöllur Héraðsbókasafn Rangæinga Gamla fjósið ehf

Hella Hestvit ehf

Flúðir B.R. Sverrisson ehf Fögrusteinar ehf

Þorlákshöfn Sveitarfélagið Ölfus Gluggaiðjan Ölfusi ehf.

Hveragerði Hveragerðissókn Raftaug ehf.

Hátak ehf. Ferðaþjónustan Gullfossi ehf. Flóahreppur Svavar Á Sveinsson Kvenfélag Hraungerðishrepps

Bls. 81

Akraneskaupstaður Heilbrigðisstofnun Vesturlands Meitill - GT Tækni ehf Eyrarbyggð ehf.

Kraftur 2019


Þvílíkur kraftur! Apótekarinn er stoltur styrkaraðili Krafts stuðningsfélags.

PIPAR \ TBWA

•

SÍA

- lægra verð

Höfuðborgarsvæðið

Austurver Bíldshöfði

Domus Medica Eiðistorg

Fjarðarkaup Glæsibær

Hamraborg Helluhraun

Höfði Mjódd

Mosfellsbær Salavegur

Skipholt Smiðjuvegur

Vallakór

Landsbyggðin

Akureyri Hafnarstræti

Akureyri Hrísalundur

Hella Hveragerði

Hvolsvöllur Keflavík

Fitjar Reykjanesbæ Selfoss

Vestmannaeyjar Þorlákshöfn

Akranes Dalvík

apotekarinn.is


Efnisyfirlit

Bls. 83

Sæktu um Kraft dælulykil og styrktu félagið af hverjum lítra. www.kraftur.org

Atlantsolía | Lónsbraut 2 | 220 Hafnarfjörður | Sími 591-3100


01. TBL. Kraftur, 2019 Kraftur er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Tímarit Krafts inniheldur viðtöl, greinar, viðburði og fræðandi efni varðandi krabbamein.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Afmælisblað Krafts - 20 ára by Kraftur, stuðningsfélag - Issuu