
5 minute read
Vera Design og Kraftur
Vera Design hóf samstarf við Kraft árið 2023 þegar Íris hannaði skartgripalínu fyrir Kraft sem minnir fólk á að lífið er núna. Skartgripirnir eru eins og annað skart frá Vera Design veglegir, tímalausar og kynlausir. Allur ágóði skartsins rennur beint til Krafts en skartgripirnir eru seldir hjá Vera Design, Krafti og hjá langflestum sölustöðum Vera Design. Við tókum þær Írisi Björk Tanyu Jónsdóttur og Ingu Dóru A. Gunnarsdóttur að tali, Íris er hönnuður og stofnandi Veru Design og Inga er sölustjóri.


Hvað er Vera Design?
„Ég stofnaði Vera Design fyrir 12 árum síðan en þá hafði ég fest kaup á allri hönnun Guðbjarts heitins Þorleifssonar gullsmiðs og listamanns. Ég hafði þá borið Infinity armbandið eftir Guðbjart í þó nokkurn tíma og alltaf haft armbandið í miklu uppáhaldi og fundið orku og kraft frá þessari hönnun. Það kemur svo á daginn að systir mín sem er gift syni Guðbjarts hafði komið að hönnun armbandsins með Guðbjarti sem er skemmtileg tilviljun. Frá því að ég stofnaði Vera Design og fram á síðustu daga Guðbjarts þá kenndi hann mér mikið og var mjög ánægður með hvernig ég væri að koma skartinu á framfæri og þá hönnun sem ég hélt áfram með út frá hans gripum,“ segir Íris Björk.
Vera Design gengur út á að hanna tímalausa skartgripi fyrir alla, sem geta erfst á milli kynslóða og eiga við á öllum stundum lífsins.
Með mikilli vinnu og í samstarfi við frábæra söluaðila þá hefur Vera Design vaxið hratt og örugglega í þessi 12 ár þar sem grunnurinn er alltaf sá sami í bland við nýja hönnun.
Alls kyns hugmyndir á lofti Íris Björk er athafnakona sem hefur víða komið við á lífsleiðinni í rekstri, skrifum og hönnun svo eitthvað sé nefnt. Hún hefur rekið vinsælar fataverslanir og hannað fjöldann allan af fasteignum. Í heimi Vera Design er því margt annað en skartgripir sem hafa litið dagsins ljós, eins og sængurföt, kerti og ilmir til að nefna nokkur dæmi.
Inga Dóra gekk til liðs við Vera Design sumarið 2022 en hún hefur áralanga reynslu úr heimi skartgripa og sér hún alfarið um alla sölu og útstillingar á vörunum hjá söluaðilum Vera Design bæði hér á Íslandi og í Færeyjum. „Ég get ekki sagt það nógu oft og hátt að Inga Dóra setti kórónuna á drottninguna Veru með sinni aðkomu og natni,“ segir Íris Björk brosandi. En samkvæmt þeim stöllum þá eru mjög spennandi tímar framundan hjá Vera Design, með allskonar nýjungum og uppákomum.
Af hverju ákváðuð þið að fara í samstarf við Kraft?
„Ástæðan fyrir samstarfi við Kraft er sú að þær Þórunn og Aðalheiður frá Krafti höfðu samband við okkur þar sem þær höfðu tekið mikið eftir bænahringjunum sem Vera Design hefur verið með lengi með æðruleysisbæninni. Þær spurðu hvort Vera Design væri til í að skoða samstarf sem við vorum mjög ánægðar með og mikill heiður að þær hafi valið Vera Design,“ segir Íris Björk.

Þær þekktu til félagsins fyrir samstarfið í gegnum vinkonur og aðstandendur sem hafa gengið í gegnum veikindi, sem og af auglýsingum og „Lífið er núna“ perluarmbands umfjöllunum og sölu á þeim armböndum.
Þær þekkja báðar þó nokkra sem hafa greinst með krabbamein. „Ég á nokkrar vinkonur sem hafa þurft að glíma við það og tvær konur sem ég þekkti ágætlega létust í fyrra og á þessu ári, segir Íris Björk. „Já ég hef ekki reynslu af krabbameini persónulega en það eru margir í kringum mig sem hafa barist við þennan óvæga sjúkdóm með misjöfnum útkomum,“ bætir Inga við.
Hvað einkennir skartgripalínu Vera Design og Krafts?
„Ég vildi hanna línu sem er tímalaus, fjölnota og hentar öllum. Það er hægt að nota hálsmenin á þrjá vegu og það er hægt að snúa einni týpunni af armböndum við og breyta þannig um lit en það er svart á einni hliðinni og mildur orange litur á hinni sem er einkennislitur Krafts. Tímalaust skart sem allir geta borið með boðskap sem á við alla alltaf, „Lífið er núna“.
Salan á Krafts línunni hefur gengið mjög vel og vonum framar. Það sem er mikilvægt er að þetta er ekki tímabundin skartgripalína eða tímabundið samstarf heldur er um að ræða skartgripalínu sem er komin til að vera hjá Vera Design og Krafti. Íris Björk mun hanna nýja gripi inn í línuna um ókomin ár. „Eins og núna í byrjun árs 2024 í tilefni af 25 ára afmælis Krafts þá hannaði Íris nýtt teninga armband í takmörkuðu upplagi. Sama hvernig á teninginn er litið þá er Lífið Núna,“ segir Inga.

„Við erum svo stoltar af því hversu mikið hefur safnast fyrir Kraft á einu ári. Inga fór alla leið og fór í söluferð hringinn í kringum landið og nú eru 25 sölustaðir um allt land sem selja línuna og hafa safnast tæpar 21 milljónir króna til Krafts á þessum tíma. Það er svo gott að gefa af sér og við trúum því báðar að allt sem maður lætur frá sér kemur til baka á endanum í þeirri mynd sem maður gefur. Svo það er mikilvægt að gefa vel og fallega,“ segir Íris Björk.
Þær stöllur horfa mjög björtum augum á framtíðina og á áframhaldandi samstarf við Kraft um ókomna tíð. „Við munum halda áfram að styrkja það mikilvæga og flotta starf sem Kraftur stendur fyrir. Við erum auðmjúkar, þakklátar og stoltar af þessu samstarfi,“ bæta þær við að lokum.