Skip to main content

Fréttabréf KFUM og KFUK september 2014

Page 1

2. tölublað 2014

Fréttabréf KFUM og KFUK

Uppbyggjandi æskulýðsstarf Nú er að hefjast vetrarstarf KFUM og KFUK. Æskulýðsstarfið að vetri samanstendur af 27 deildum víðsvegar um landið og skiptast þær niður í yngri deildir fyrir 9-12 ára og unglingadeildir fyrir 13-16 ára. Í vetur er nokkuð um nýjar deildir og má nefna sérstaklega tvær nýjar unglingadeildir á höfuðborgarsvæðinu, önnur í Guðríðarkirkju í Grafarholti og hin í Bústaðakirkju. Þá verður endurvakin yngri deild fyrir 9-12 ára í Fella- og Hólakirkju og í Seljakirkju í Reykjavík verður

boðið upp á Leikjafjör fyrir 9-12 ára og er það í fyrsta sinn sem þar verður sameinað starf fyrir bæði stráka og stelpur. Líkt og undanfarin ár eru það sjálfboðaliðar sem bera hitann og þungann af vetrarstarfinu. Um níutíu leiðtogar fara fyrir deildunum en ennþá er pláss fyrir nokkra til viðbótar og því biðjum við áhugasama um að setja sig í samband við æskulýðsfulltrúa félagsins. Það er gefandi og þroskandi að taka þátt í því að leiða starf KFUM og KFUK og við höfum sannarlega mikilvægu

hlutverki að gegna í íslensku samfélagi. KFUM og KFUK vill með æskulýðsstarfi sínu mæta hverjum einstaklingi af umhyggju og virðingu og leitast við að bjóða upp á tækifæri til þroska til líkama, sálar og anda. Kynntu þér öflugt starf KFUM og KFUK í vetur og taktu þátt í því með okkur að láta aðra vita af því fjölbreytta starfi sem er í boði.

www.kfum.is 1


Fylgt úr hlaði

Tómas Torfason, framkvæmdastjóri KFUM og KFUK

Til eru þeir sem halda því fram að kristileg

boðun eigi ekki erindi til barna og unglinga.

Á síðustu misserum hefur þeim orðið nokkuð

ágengt að innræta þá skoðun sína í íslenskan almenning, sem í sakleysi sínu og án gagnrýni tekur undir sönginn.

En hvað er kristileg boðun? Kristileg boðun er miðlun á boðskap og lífsgildum Jesú Krists.

Hvað í þeim boðskap á ekki erindi til barna og unglinga?

Skaðar það einhvern að læra söguna um

miskunnsama Samverjann? Er það óæskilegt að fólk horfi fyrst á bjálkann í eigin auga

áður en það dæmir flísina í auga náungans? Kannski eru það orð Jesú: „Sá ykkar sem

syndlaus er kasti fyrstur steini ....“ sem fara fyrir brjóstið á fólki.

Þau lífsgildi sem Kristur boðar ýta undir

náungakærleik. Þau hvetja þig til þess að líta í eigin barm áður en farið er að dæma aðra. Óháð því hve sterka trúarsannfæringu þú

berð í brjósti, er auðvelt að sjá samfélagslegt mikilvægi þess að börn og unglingar læri og

tileinki sér þau lífsviðhorf sem Kristur kennir. Kristileg boðun er miðlun á lífsviðhorfum

og gildum sem styrkja einstaklinga, hvetja

til kærleika og bæta samfélag. Viðhorf sem íslensk börn og unglingar þurfa að fá að heyra.

Kristilegur boðskapur er þungamiðjan í öflugu æskulýðsstarfi KFUM og KFUK. Fjölbreyttu barna- og unglingastarfi sem byggir upp einstaklinga og leggur grunn að betra samfélagi. Æskulýðsstarfi sem miðlar

lífsskoðunum kenndum við Jesú Krist.

Við í KFUM og KFUK höfum hlutverki að gegna í íslensku samfélagi.

Hlutverki að miðla þessum boðskap - að

fræða börn og unglinga um boðskap Jesú Krists.

Kristileg boðun á nefnilega mikið erindi til barna og unglinga.

Á heimsþingi KFUM í sumar, sem haldið var í Colorado í Bandaríkjunum, var meðal annars unnið að stefnumótun fyrir Heimssamband KFUM til næstu fjögurra ára. KFUM og KFUK á Íslandi átti tvo fulltrúa á þinginu.

Valdefling ungs fólks á heimsþingi KFUM í Colorado Í sumar fóru á Heimsþing KFUM í Colorado, til næstu fjögurra ára undir yfirskriftinni „Our Jóhann Þorsteinsson, sviðsstjóri æskulýðssviðs Way“ en þar er byggt ofan á þann grunn sem og Daníel Bergmann, æskulýðsleiðtogi og lagður var með stefnumörkun 2011-2014 sem „Change Agent“ fulltrúi KFUM og KFUK á bar yfirskriftina „New Way“. Megininntakið í Íslandi. Á heimsþinginu var boðið upp á stefnumörkuninni snýr að valdeflingu ungs áhugaverða dagskrá þar sem meðal annars fólks og er þar horft til þess að skapa ungu var unnið í 59 tuttugu manna hópum að fólki rými þar sem tækifæri gefast til vaxtar og stefnumörkun fyrir Heimssamband KFUM til þroska, tækifæri sem vonandi verða ungu fólki næstu ára. Hverjum umræðuhóp var stýrt af til hvatningar að láta gott af sér leiða fyrir aðra þremur „Change Agent“ fulltrúum og einum og ganga á undan í viðleitni til að gera heiminn reyndum leiðtoga. Bæði Jóhann og Daníel tóku að betri stað fyrir okkur öll. Það var stórkostlegt þátt í undirbúningi fyrir þessa hópavinnu og tækifæri fyrir okkur að fá að taka þátt í þessu tóku þátt í að leiða sitt hvorn hópinn. átjánda heimsþingi KFUM og vonandi getum við Í hópavinnunni var áhugavert að fá að heyra í framtíðinni stutt við bakið á fleirum til að fara hvað er efst á baugi í starfi félagsins í ólíkum og upplifa þá einingu og þann kraft sem finna löndum og talsverð umræða skapaðist um má innan stórfjölskyldu KFUM og KFUK um hvert erindi okkar er í samfélaginu í dag. heim allan. Eins og gefur að skilja var talsverð breidd í þeim verkefnum og áherslum sem KFUM og KFUK fæst við um heim allan en þó mátti greina þann grunntón að félagið vill leitast við að efla og styðja ungt fólk til vaxtar og þroska og hvetja ungt fólk til að sýna samfélagslega ábyrgð og virkni. Til að stuðla að þessu Agent“ sem „Change verkefni okkar hefur KFUM í sumar i ing sþ gu im un a he í ap ann tók þátt KFUM vill sk Daníel Bergm Heimssamband KFUM Heimssamband di. an Ísl á UK KF r og þroska. fulltrúi KFUM og gefast til vaxta gefið út stefnumörkun r sem tækifæri fólki rými þa

2


Viðburðadagatal

Glæsilegur hópur leiðtoga sér um æskulýðsstarf í vetur fyrir KFUM og KFUK.

Markviss leiðtogafræðsla og skemmtilegt ungmennastarf í vetur Deildastarfi KFUM og KFUK er haldið uppi af stórum og glæsilegum hópi leiðtoga sem starfa af hjarta fyrir félagið. Hópurinn samanstendur af einstaklingum á ýmsum aldri. Yngsti hópurinn er ungmenni á aldrinum 15-17 ára, þau kallast ungleiðtogar og eru að stíga sín fyrstu skref undir leiðsögn reyndari leiðtoga. Mikilvægur þáttur í leiðtogastarfinu er leiðtogaþjálfunin en hún verður á sínum stað í vetur. Framundan eru ýmis námskeið sem boði fyrir rustundir eru í gera leiðtogana hæfari og sterkari. gskrá og samve Skemmtileg da . nu rfi Allir leiðtogar á vegum KFUM og og börnin í sta leiðtogana jafnt KFUK sækja námskeiðið Verndum þau, þar sem farið er yfir einkenni reyndari leiðtogar í sólarhring til að fræðast og ofbeldis og vanrækslu gegn börnum og hvernig læra hver af öðrum. bregðast skuli við ef grunur um slíkt vaknar. Upphaf deildastarfsins leggst vel í leiðtogana Leiðtogahelgin 24 stundir verður svo haldin í sem eru í startholunum, tilbúnir að takast á við Kaldárseli í október en þar koma saman nýir og verkefni vetrarins. Dagana 11. og 25. ágúst voru haldnir undirbúningsfundir eða Kick-off í húsi KFUM og KFUK fyrir leiðtogana þar sem þeir gátu komið með hugmyndir að nýjum verkefnum eða dagskrárliðum sem þeir vildu sjá í vetur. Þeim gafst einnig tækifæri á að bera saman bækur sínar og undirbúa dagskrár deildanna, farið var yfir verkefni vetrarins, námskeið og ferðalög sem framundan eru og önnur mikilvæg mál.

September - 3. Verndum þau námskeið á Ísafirði - 8. Vetrarstarf hefst í æskulýðsdeildum - 9. Verndum þau námskeið á Selfossi - 11. Verndum þau námskeið á Akureyri - 12.-14. Heilsudagar karla í Vatnaskógi - 16. Verndum þau námskeið á Holtavegi 28 - 17. Litli Kompás námskeið í Keflavík - 19.-21. Mæðgnaflokkur í Vindáshlíð - 24. Litli Kompás námskeið á Egilsstöðum - 26.-28. Samráðshelgi - 27. Kristsdagur í Hörpunni Október - 2. AD KFUM fundir hefjast - 2.-5. NOSA á Holtavegi - 3. Skipulagsdagur á Vinagarði - 7. AD KFUK fundir hefjast - 8. Litli Kompás námskeið á Selfossi - 9. Litli Kompás námskeið í Reykjavík - 10.-12. Skólamót KSS í Vatnaskógi - 16. Verndum þau námskeið í Hraunbæ 123 - 17.-18. Leiðtoganámskeið (24 stundir) í Kaldárseli - 22. Litli Kompás námskeið á Akureyri - 24.-26. Landsmót ÆSKÞ á Hvammstanga Nóvember - 5. Hæfileikasýning YD á Holtavegi - 7.-8. GLS-námskeið - 15. Jól í skókassa – síðasti skiladagur - 17. Afmæli leikskólans, Vinagarður - 29. Basar KFUK Desember - 5. Jólasamvera leiðtoga - 6. Jólatréssala í Vindáshlíð - 11. Aðventufundur AD KFUM og KFUK - 16. Tónleikar Karlakórs KFUM - 28.-31. Flugeldasala KFUM og KFUK

Leiðtogarnir er u á ýmsum ald ri en allir sitja Verndum þau námskeiðið og fá góða fræ ðslu í gegnum félagsins. leiðtogaþjálfun 3


Hægt að höggva ekta sumarbúða jólatré í Vindáshlíð Á hverju ári býðst að velja og fella sitt eigið jólatré í skógi sumarbúðanna Vindáshlíð. Þetta er kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur til að njóta staðarins saman og styrkja sumarbúðirnar í leiðinni. Það eina sem þarf að hafa með sér er góð sög. Jólatréssala Vindáshlíðar verður laugardaginn 6. desemer kl. 11-15. Inni í skála verður boðið upp á heitt súkkulaði og kaffi.

KFUM og KFUK tekur þátt í Kristsdegi í Hörpunni Laugardaginn 27. september verður svonefndur Kristsdagur haldinn í Hörpu í Reykjavík. Um er að ræða bænadag eða bænahátíð þar sem fólk úr fjölmörgum kirkjudeildum safnast saman til að biðja fyrir landi og þjóð og lofa og tigna Drottin okkar og frelsara, Jesú Krist. Dagskráin í Eldborg hefst kl. 10 og stendur til 12 en þá er hlé til 14 og dagskráin heldur áfram til kl. 16. Á sama tíma verður barnadagskrá í Silfurbergi, þ.e. öðrum sal Hörpunnar. Loks verða lofgjörðartónleikar í Eldborg kl. 18-20. Á ganginum fyrir framan Eldborg verða sýningarborð fyrir kristilegt starf og kirkjulega starfsemi. Matsala verður á staðnum svo það er kjörið að setjast niður með vinum og kunningjum og eins er hægt að nýta rúmt matarhléið til að fara annað. Á ganginum verða ýmsar kynningar á kristilegu starfi og þar á meðal KFUM og KFUK á Íslandi. Nánar má fræðast um Kristsdaginn á vefsíðu hans, www.kristsdagur.is og á www.facebook.com/kristsdagur.

Nýr framkvæmdastjóri KFUM og KFUK á Íslandi Kæra félagsfólk, Þann 11. ágúst sl. tók Tómas Torfason við sem framkvæmdastjóri félagsins og hefur síðustu vikurnar verið að setja sig inn í þau fjölmörgu verkefni sem undir hann heyra. Tómas er félagsfólki af góðu kunnugur. Hann þekkir innviði starfsins vel og var formaður félagsins í sjö ár. Vil ég hér nota tækifærið og bjóða Tómas innilega velkominn til starfa og hvetja félagsmenn til að biðja fyrir honum og öðru starfsfólki félagsins. Fyrir hönd stjórnar KFUM og KFUK á Íslandi, Auður Pálsdóttir, formaður 4

Mikil og flott umgjörð var um hátíðina Global Week 2014. Margt var í boði meðal annars leiðtogaþjálfun þar sem listin að segja sögur var kennd.

Ísak Henningsson segir frá:

Fjölmenningarleg ferð leiðtoga á KFUM viðburði í Noregi Ég lagði af stað til Noregs fullur eftirvæntingar taka þátt í TT hátíðinni, kristni hátíð fyrir 1500 en um leið örlítið kvíðinn. Aldrei áður hafði ég KFUM og KFUK unglinga í Noregi. Margir farið erlendis án þess að þekkja sálu en sem þátttakendur gerðu það. Hlutverk okkar var að betur fer hitti ég tvær vinkonur mínar úr KSS vera skemmtileg og fjölmenningarleg. Við sáum á flugvellinum og kom í ljós að við vorum öll um Global Café þar sem við seldum Fairtrade á leiðinni til Osló. Þvílík tilviljun! Eða hvað? vörur og fræddum norska unglinga um Stop Ég róaðist að minnsta kosti við að hitta þær. Poverty og Free Palestine. Risastór umgjörð var Þær voru á vegum Changemakers á meðan um hátíðina og kvöldvökur í risastórum sal inni ég var á vegum KFUM og KFUK. Þegar ég í helli, kallaður Fjellhallen þar sem við meðal hitti svo hópinn minn kom í ljós að þetta voru annars sáum um dans á opnunarhátíðinni. 50 ungmenni frá 14 mismunandi löndum, t. d. Ég var vægast sagt leiður við brottför en þó Madagascar, Kenýu, Sri Lanka og Armeníu. þakklátur og með endurnýjaðan lífskraft, tilbúinn Hópurinn gisti eina nótt á farfuglaheimili í Osló til að takast á við ný verkefni heima fyrir. og svo var farið í skoðunarferð um borgina áður en haldið var til Gjøvik, þar sem Global Week 2014 yrði haldið. Á Global Week hlustuðum við á marga áhugaverða fyrirlestra, m. a. um Stop Poverty og Free Palestine verkefnin og fórum í leiðtogaþjálfun og lærðum listina að segja sögur sem mér fannst áhugaverðast. Einnig deildum við menningu landa okkar á menningarkvöldi sem var hápunktur ferðarinnar að mínu mati. Það var unun að sjá alla mismunandi dansana, tónlistina og siði frá 14 löndum! Á meðan Global Week stóð yfir gistum di á og KFUK á Íslan við í lýðháskóla niður við strönd stærsta var fulltrúi KFUM i. reg Ísak Henningsson No í tíð há stöðuvatns í Noregi. Ekki slæmt! og skemmtilegri fjölmenningarlegri Eftir Global Week var okkur boðið að


Föngulegur hópur unglinga og leiðtoga í starfi KFUM og KFUK á Íslandi sótti Norrænt KFUM og KFUK mót í Svíþjóð í sumar.

Velheppnað norrænt KFUM og KFUK mót í Svíþjóð Dagana 18. – 29. júlí fór 41 þátttakandi og leiðtogi á vegum KFUM og KFUK í Mosfellsbæ, Keflavík og Vestmannaeyjum, þar af 10 Mosfellingar, 6 Keflvíkingar og 25 Vestmannaeyingar, á Norrænt mót KFUM og KFUK sem haldið var á Norrbyskär í Norður-Svíþjóð. Norrbyskär, á sér merka sögu en frá lokum 19. aldar og fram á miðja þá tuttugustu var á eyjunni starfrækt afkastamikil sögunarmylla sem sá um að afgreiða timbur vítt og breytt um heiminn. Í dag er eyjan nánast einungis í byggð yfir sumartímann en þar eiga fjölmargir falleg og velviðhaldin sumarhús. KFUM í Umeå á eina húsaþyrpinguna sem samanstendur af 7-9 húsum og fallegri kapellu. Ferðin hófst á að flogið var til Kaupmannahafnar en þar fór hópurinn í Tívolí og gisti svo eina nótt áður en lest var tekin til Stokkhólms og svo frá Stokkhólmi norður til borgarinnar Umeå sem er menningarborg Evrópu þetta árið. Þegar komið var til Umeå snemma morguns þann 21. júlí tók starfsmaður KFUM í Umeå, Ola Bengtsson á móti okkur og gekk með okkur í KFUM heimilið þar sem við fengum ríkulega útilátinn morgunverð. Að því loknu var okkur ekið í ferjuna sem sigldi okkur svo út í Norrbyskär.

Mótið gekk með besta móti, margt skemmtilegt var hægt að dunda við og umhverfið fallegt. Veðrið lék við okkur en allan tímann var heiðríkja og um og yfir 30 gráðu hiti. Þátttakendum var skipt niður í fjóra hópa og hélt hver hópur sér út allt mótið. Það var gott fyrirkomulag sem varð til þess að krakkarnir okkar eignuðust góða félaga frá hinum löndunum. Dundur sem í boði var fyrir hópana var t.d. seglbátasiglingar, kanóróður (þar sem undirritaður lét henda sér útbyrðis), skotfimi með boga og örvar, stálsmiðja, listasmiðja og háloftabraut. Háloftabrautin hafði einkar mikinn sjarma að mati undirritaðs. Hver og einn fékk hjálm og batt sjálfur á sig öryggisvögguna, klöngraðist svo upp í 6 metra hæð þar sem hann fór skjálfandi í gegnum átakanlegar þrautir og endaði með að sveifla sér í rólu niður á jörðina. Þar létu þó sænsku leiðtogarnir ekki við sitja heldur fóru með hópinn í gegnum mikilvæga verkefnavinnu að brautinni lokinni. Í henni fólst að þátttakandinn velti fyrir sér hver mörk hans voru og hversu stór þægindahringur hans var. Farið var skref fyrir skref í gegnum hvaða áhrif brautin hafði á þátttakandann og hvort og þá hversu mikið brautin stækkaði þægindahringinn. Íslendingar voru leiðandi í helgistundum allt mótið ásamt Dönunum. Við hófum stundirnar með léttum söng sem leystur var af með stuttri og hnitmiðaðri hugvekju. Að því loknu var sungið fram eftir kvöldi eins lengi og fólk toldi við. Mótstjórinn Nils Hultin flutti áhrifaríka hugvekju til vina sinna sem stödd voru í Útey í Noregi þremur árum áður og upplifðu hörmungarnar þar. Hann fjallaði sérstaklega um það að samstaða fólks hafi sigrað þá sundrung sem ódæðið átti Safnast var saman í krin gum Guðs or að skapa og að það kristallaðist í okkur starfi KFUM ð eins og ve og KFUK til nja er í að styrkja lík þá stundina þar sem við vorum stödd ama, sál og anda. á eyju ekki ólíkri Útey og ekki í ólíkum

Mótið heppnaðist einstaklega vel og var fjölmargt í boði fyrir þátttakendur, meðal annars háloftabraut í skóginum.

erindagjörðum og fólkið sem þar hafði verið þennan örlagaríka dag. Finnskir ungleiðtogar sáu um hreint frábæra stund sem einkenndist af leikritum og djúpri hugleiðingu um tengsl okkar við Drottin og hvernig við náum sambandi við hann. Að mótinu loknu fór hópurinn aftur til Kaupmannahafnar og var þar í þrjá daga. Farið var með hópinn í skemmtigarðinn BonBon-Land sem staðsettur er rétt fyrir utan borgina og fengu svo krakkarnir að ganga frjáls um Strikið og Fisketorvet í leit að varningi til þess að taka með sér heim til Íslands. Gert var vel við sig í mat og drykk þar sem Maggi dóni, Böggi kóngur og Frú Jensen á buffhúsinu voru sótt heim en þau eru höfðingjar heim að sækja. Ekki var annað að sjá og heyra en að þátttakendur og leiðtogar hafi verið gríðarlega ánægðir með ferðina sem skipulögð var af Hreiðari Erni Zoëga Stefánssyni sem á 35 ára reynslu að baki í þessum norrænu mótum. Fararstjórar hafa eftir ferðina fengið fjöldann allan af símhringingum og tölvupóstum frá foreldrum sem lýsa ánægju sinni og barna sinna með hve vel tókst til. Gísli Stefánsson Æskulýðsfulltrúi Landakirkju og starfsmaður KFUM og KFUK í Vestmannaeyjum 5


Öflugt sumar í sumarbúðum KFUM og KFUK

Í sumar voru tæplega 3.000 þátttakendur í sumarstarfi félagsins og mátti sjá mikla gleði í öllum sumarbúðunum.

Sumarbúða gleðin heldur áfram í vetur því að KFUM og KFUK e r með æskulýðss tarf á ýmsum stö ðum og þar má finn a leiðtoga sem voru fo ringjar í sumarstarfi nu!

ær eð fráb m r a um v sel gaf ung m e Kaldár s ið a sín ámske að stíg á Leikjan i r æ l. m tækif úðadvö b r a krökku m u kref í s fyrstu s

6

Ölver var m eð tvo leikjaflo kka þar sem áh ersla var á að hó purinn færi mikið í úti og inni leiki og svo má ekki gle yma Krílaflokki s em er fyrir allra yn gstu börnin.


Vatnaskógur bauð í fyrsta skipti upp á Töframannan ámskeið þar sem kennd vo ru töfrabrögð inn á milli báts ferðanna og fótboltakeppn anna.

r shlíð va i þar Í Vindá kapand S n in r u flokk gu rnar fen u lk ú t s sem nýtt eitthvað a p a k s að ort degi, hv m ju r e v áh num ar í geg v ð a þ sem ða yndlist e m , t s li leik . sönglist

Lögð var áh ersla á að hafa gott s tarfsfólk se m tók á móti b örnunum m eð bros á vör o g kærleik í hjarta!

i Á Hólavatn pp á var boðið u kk fyrir Meistaraflo linga og hressa ung nnars var meðal a aferð á farið í sveit bóndabæ. r 9-12 ára Barnastarf fyri í boði í vetur! fyrir 13-16 ára Unglingastarf í boði í vetur! w.kfum.is

Sjá nánar ww

7


Framkvæmdir hafa átt sér stað á leikskólalóðinni sem heppnuðust vel. Börnin eru ánægð með nýju rólurnar og telja sig geta rólað hátt upp í geim.

Sólin brosir við leikskólanum Vinagarði Á leikskólanum Vinagarði er lífið að komast í fastar skorður eftir sumarfrí. Stór hópur elstu barna útskrifaðist í sumar. Ný börn hafa hafið leikskólagöngu og aðlögun hefur gengið vel. Leikskólinn er eftirsóttur og biðlistinn er alltaf langur. Í sumar voru gerðar lagfæringar á lóð leikskólans. Settur var hiti í stéttar og hellulagt í kringum húsin og einnig á milli leikskólabyggingar og aðalstöðva. Framkvæmdin heppnaðist vel og það er gaman að hafa umhverfið svona snyrtilegt. Einnig voru gerðar endurbætur á rólum, uppistöðurnar málaðar og skipt var um sjálfar rólurnar. Börnin eru hæst ánægð með þessar flottu rólur og að þeirra sögn er hægt að róla hátt upp í geim. Sumarið hefur verið okkur gott. Þrátt fyrir rigninguna í júní var hlýtt og gaman að vera úti og í ágúst hefur sólin brosað við okkur og við höfum getað notið útiverunnar léttklædd. Að lokum langar okkur að deila með ykkur bæn eftir Margareta Melin, sem við förum með á hverjum morgni:

Þú vekur mig, faðir, til nýs dags. Það er þér að þakka að hjarta mitt slær. Hjálpaðu mér að lifa í dag að vilja þínum. (Bænabók barnanna bls. 125)

María Sighvatsdóttir, leikskólastjóri 8

Vatnafjör á Sæludögum í Vatnaskógi.

Sæludagar í Vatnaskógi tókust vel Sæludagar fóru fram í Vatnaskógi um verslunarmannahelgina í fínu veðri og gengu vel fyrir sig. Um 1.000 manns á öllum aldri heimsóttu Vatnaskóg þessa helgi. Margir nýttu sér tjaldsvæðin til gistingar, en einnig var gist í skálum staðarins auk þess sem fjölmargir komu í dagsheimsóknir. Dagskrá helgarinnar hófst á fimmtudags­ kvöldinu, en margar skemmtilegar uppákomur og viðburðir voru í boði fyrir Sæludagagesti. Skógarmannakvöldvökur í íþróttahúsinu voru vel sóttar og líflegar, gospelsmiðjur voru fyrir börn og fullorðna, og Söng- og hæfileikasýning barnanna var á sínum stað. Jóhanna Guðrún og Davíð Sigurgeirsson komu fram á kvöldvökunni á laugardagskvöldið og tóku upp þráðinn í Café Lindarrjóðri síðar sama kvöld. Einar Mikael töframaður sýndi listir sínar á sunnudagskvöldinu. Dansleikur

Góð stemmning ríkti hjá gestum Sæludaga 2014 og hátíðin heppnaðist vel.

með hljómsveitinni Fónem gerði mikla lukku. Á laugardagskvöldinu var hægt að kaupa lambalæri til styrktar nýbyggingunni í Vatnaskógi. Ýmsar íþróttakeppnir fóru fram, m.a. keppni í frjálsum íþróttum, Wipe Out og fleiru, að ógleymdu kassabílarallýi, vatnafjöri, gönguferðum og spennandi fræðslustundum. Stórskemmtilegt brúðuleikhús um Gilitrutt var sýnt sem börn af yngstu kynslóðinni kunnu sérstaklega vel að meta. Guðsþjónusta var á sunnumorgninum í umsjá sr. Guðmundar Karls Brynjarssonar og helgistund með altarisgöngu var á sunnudagskvöldinu í umsjá sr. Páls Ágústs Ólafssonar ásamt fjölmörgum öðrum dagskrárliðum. Gestir voru ánægðir með helgina í Vatnaskógi og góð stemmning ríkti og utandyra þar í hvívetna. Skógarmenn KFUM nna in ði dagskrá bæ mu skemmtileg ssu sinni ko þakka öllum gestum Sæludaga þe Að . Fjölbreytt og gi kó as og Davíð ludaga í Vatn n Jónsdóttir rú kærlega fyrir komuna og þátttökuna. einkennir Sæ uð G a nn ha rs fram Jó meðal anna n. so rs ei rg Sigu


Gleði, umhyggja og vinátta myndaðist á milli barnanna á leikjanámskeiðum KFUM og KFUK.

Leikjanámskeið sumarsins stútfull af börnum og gleði Í sumar bauð KFUM og KFUK upp á leikjanámskeið á höfuðborgarsvæðinu sem og í Reykjanesbæ eins og undanfarin ár. Námskeiðin tókust afar vel enda ekki annað hægt með úrvals starfsfólki og yndislegum börnum. Leikjanámskeið var haldið í Lindakirkju vikurnar 9. júní – 4. júlí og var hvert námskeið viku í senn. Fullt var á öll námskeið og komust færri að en vildu. Dagskráin var þétt og hver stund nýtt til hins ýtrasta. Þar má helst nefna ferðir í Árbæjarsafn, Húsdýragarðinn,

Úrvals starfsfólk vann á leikjanámskeiðum KFUM og KFUK. Færri komust að en vildu enda frábær dagskrá í boði.

siglingu og leikjafjör í Viðey, Þjóðminjasafnið, bæjarferð og heimsókn í Hallgrímskirkju þar sem börnin fengu meðal annars að sjá Hallgrímskirkju byggða úr LEGO og einnig var farið upp í Hallgrímskirkjuturninn. Ekki má gleyma lokapartýum sem haldin voru í höfuðstöðvum KFUM og KFUK á föstudögum. Þar voru grillaðar pylsur, börnin sprelluðu í hoppuköstulum, boðið var upp á andlitsmálun, útileiki og spil. Allir morgnarnir hófust á rólegri stund með biblíulestri, fræðslu, söng og bæn. Börnin voru sæl og glöð með námskeiðin og mörg þeirra sóttu fleiri en eitt námskeið. Samstarfið við kirkjuna gekk mjög vel og er umhverfi kirkjunnar yndislegt. Veðrið var frábært fyrstu vikuna en eftir hana voru pollafötin og hlýr fatnaður nauðsyn því sumarið fór í einhvers konar verkfall. Dagskrá leikjanámskeiðanna í Reykjanesbæ var fjölbreytt og var farið á Slökkvisafnið, Landnámsdýragarðinn, Keflavíkurkirkju, Ungmennagarðinn við 88húsið, Skrúðgarðinn og buslutjörnina, Narfakotsseyla, Slökkvilið Suðurnesja, Félagsmiðstöðina Eldingu og svo mætti lengi telja. Á föstudögum var hátíð í félagsheimilinu, ýmist inni eða úti þar sem veðurtíðin var blaut og vindasöm. Það má með sanni segja að gleði, umhyggja og vinátta hafi myndast á milli barnanna og er það það sem við viljum sjá á leikjanámskeiðum okkar. Starfsfólk leikjanámskeiðanna fékk mikið lof frá foreldrum og er KFUM og KFUK þakklátt fyrir störf þeirra og þá alúð sem þau lögðu í starf sitt á námskeiðunum.

Þrátt fyrir erfitt ástand í Úkraínu heldur verkefnið „Jól í skókassa“ áfram eins og verið hefur.

Söfnun fyrir „Jól í skókassa“ er hafin „Jól í skókassa“ er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Síðustu ár hafa fjölmargir lagt verkefninu lið og mörg þúsund jólagjafir verið sendar með gámi til Úkraínu. Þrátt fyrir erfitt ástand í Úkraínu og ólgu í austurhluta landsins undanfarna mánuði eru aðstandendur Jól í skókassa í óða önn að skipuleggja söfnunina í haust eins og undanfarin tíu ár. Stjórn verkefnisins fylgist vel með málum í Úkraínu og er í reglulegu sambandi við tengiliði þar. Söfnunin er hafin en lokaskiladagur á höfuðborgarsvæðinu er laugardaginn 15. nóvember 2014 í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK á Holtavegi 28. Skiladagar fyrir landsbyggðina verða kynntir síðar á heimasíðu okkar en að jafnaði er það viku fyrr en í höfuðborginni. Það var frábært að sjá hve margir sáu sér fært að taka þátt í þessu einstaka verkefni í fyrra. Heilu leikskólarnir komu í nokkrum strætóferðum með fullar hendur af gjöfum og allir með bros út að eyrum. Gleðin sem kemur af því að taka þátt og gleði barnanna af að fá jólagjafir (jafnvel í fyrsta sinn) er svo mikil. Með slíkum gjöfum er þeim sýndur kærleikur Guðs í verki. Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að öll börnin fái svipaða jólagjöf er mælst til þess að ákveðnir hlutir séu í hverjum kassa. Bæklingur kemur út von bráðar sem hægt verður að nálgast á Holtavegi 28 en annars eru nánari upplýsingar um Jól í skókassa á vefsíðu okkar www.kfum.is.

9


Sjálfboðaliði fer á vit ævintýranna til KFUM í Þýskalandi

Sjálfboðaliðinn

Dagrún Linda Barkardóttir er sjálfboðaliði hjá KFUM í München.

Dagrún Linda Barkardóttir, sjálfboðaliði í æskulýðsstarfi KFUM og KFUK, hélt í ágúst til Þýskalands þar sem hún starfar í eitt ár sem sjálfboðaliði hjá KFUM (CVJM) í München. Hún er þar ásamt hópi sjálfboðaliða sem félagið tekur á móti á hverju ári. Meðal verkefna hennar eru þrif á farfuglaheimili CVJM, mæting og þátttaka á samkomum og þátttaka í námskeiðum. Dagrún kemur einnig að heimilislífinu þar sem hún býr með 10 öðrum stúlkum sem einnig eru sjálfboðaliðar. Allt í allt eru 20 sjálfboðaliðar sem allir hjálpa til við að styrkja starfið hjá CVJM München á einhvern hátt. Við óskum henni góðs gengis og Guðs blessunar í starfinu fyrir KFUM í München.

Forystufólk KFUM og KFUK kemur saman á samráðsþingi Á hverju ári koma saman stjórn KFUM og KFUK á Íslandi, stjórnir starfsstöðva félagsins á landinu, skipulagshópar, forstöðufólk félagsdeildanna og starfsfólk KFUM og KFUK til að vinna saman og skipuleggja starf félagsins fyrir árið 2015. Þetta árið verður þingið haldið í Vindáshlíð helgina 26.-28. september. Samráðsþingin eru mikilvægur vettvangur fyrir forystusveit félagsins til þess að hittast og ræða stefnumarkandi mál sem varða félagið. Að þessu sinni verður sjónum beint að hvað felst í traustum innviðum félagsins. Nánari upplýsingar um samráðsþingið er að fá hjá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588-8899. Skráning fer fram á www.sumarfjor.is.

10

Salvar Geir Guðgeirsson Nafn: Salvar Geir Guðgeirsson Aldur: 40 ára. Hvar hefur þú starfað innan KFUM og KFUK? Ég hef starfað í Vatnaskógi síðan 1994 og sit núna í stjórn Skógarmanna KFUM. Einnig hef ég unnið í nokkrum flokkum í Kaldárseli og einum flokki á Hólavatni sl. fimm sumur. Ég hef verið leiðtogi og forstöðumaður í mörgum deildum í vetrarstarfi KFUM og KFUK frá árinu 1999, þ.á m. á tveimur stöðum úti á landi. Einnig hef ég tekið virkan þátt í verkefninu Jól í skókassa í mörg ár og sit núna í stjórn Jól í skókassa. Hver er atvinna þín? Ég starfa sem aðstoðarvarðstjóri og neyðarvörður hjá Neyðarlínunni, betur þekkt sem 1-1-2. Annars er ég guðfræðingur að mennt og stefni að prestskap þegar færi á því gefst. Hvenær byrjaðir þú í KFUM og KFUK? Ég gekk formlega inn í félagið árið 1994 eða 1995, á svipuðum tíma og ég byrjaði að vinna sem foringi í Vatnaskógi en þá hafði ég verið virkur í KSS í nokkur ár. Í æsku hafði ég dvalið í einum flokki í Ölveri og fjórum í Vatnaskógi auk þess sem ég mætti á örfáa fundi hjá KFUM í Maríubakka þegar ég var 10-12 ára. Getur þú deilt með okkur einni góðri minningu úr starfi félagsins? Eina bjarta og fallega sumarnótt þegar ég og Lalli herbergisfélagi minn og vinur gengum til náða í Gamla skála í Vatnaskógi urðum við varir við ókunnar mannaferðir við vestari ós Eyrarvatns. Eins og okkar er von og vísa skunduðum við á staðinn og ætluðum

nú aldeilis að góma þessa veiðiþjófa. Í ljós kom að þetta voru tveir ungir menn ásamt stúlku og könnuðust þeir strax við okkur því einhverjum árum fyrr höfðu þeir dvalið í flokki hjá okkur. Þeir sögðu að þeir hefðu verið miklir grallarar og mjög fyrirferðarmiklir drengir en ávallt mætt á kapellustundirnar fyrir svefninn og upplifað þar einstæða ró og hegðað sér vel þar. Minningarnar úr Kapellunni voru þær dýrmætastu sem þeir áttu úr Vatnaskógi. Við kvöddum þessa ungu menn með virktum eftir gott spjall og óskuðum þeim góðrar veiði í næturkyrrðinni og lögðumst þreyttir en glaðir á koddann með frábæran vitnisburð um ávöxt af starfinu í Vatnaskógi. Getur þú gefið lesendum gott ráð? Ekki setja mjólk í Soda Stream tæki, hún verður að froðu, vondri á bragðið. Þetta lærði ég í eldhúsinu í Vatnaskógi þegar ég og aðrir foringjar stálumst í tæki ráðskonunnar. Eins og gefur að skilja var hún ekki glöð með uppátækið. Hvað hefur sjálfboðaliðastarfið gefið/gert fyrir þig? Saga KFUM og KFUK og sumarbúðanna er uppfull af frásögnum af fólki sem gaf vinnu sína fyrir það sem stóð hjarta þeirra næst. Það er frábært að fá að taka við keflinu frá fyrri kynslóðum og leggja hönd á plóg á akri Drottins og fá tækifæri til að sá dýrmætum frækornum, orði Drottins. Þessi hugsjón skiptir mig miklu máli og það hefur alltaf gefið mér mikið að fá að vera vitnisburður um kærleika og fyrirgefningu Jesú Krists, í orði og verki. Hver er eftirlætis ritningarstaður þinn? Hér er texti sem ég hef vanið mig á sem forstöðumaður að ræða og útskýra fyrir starfsfólki mínu í sumarbúðunum undanfarin ár. Hann er hvatning og góð áminning um það að við sinnum mismunandi verkefnum en það er Guð sem gefur vöxtinn: „Þegar einn segir: „Ég fylgi Páli,“ en annar: „Ég fylgi Apollós,“ eruð þið þá ekki eins og þið voruð áður? Hvað er þá Apollós? Já, hvað er þá Páll? Þjónar sem hafa leitt ykkur til trúar og það eins og Drottinn hefur gefið hvorum um sig. Ég gróðursetti, Apollós vökvaði en Guð gaf vöxtinn. Þannig skiptir það engu hver gróðursetur eða hver vökvar. Það er Guð sem skiptir máli, hann gefur vöxtinn. Sá sem gróðursetur og sá sem vökvar eru eitt. En sérhver mun fá laun eftir erfiði sínu. Því að samverkamenn Guðs erum við, Guðs akurlendi, Guðs hús eruð þið.“ (I. Kor. 3:4-9).


Stjórnarpistill

Félagshúsið okkar að Holtavegi Björgvin Hansson, stjórnarmaður í KFUM og KFUK á Íslandi.

Undanfarin 6 ár hefur viðhaldi á húsnæði okkar að Holtavegi 28 verið í algjöru lágmarki og nánast einungis bráðnauðsynlegasta viðhaldi sinnt. Það er með húsnæðið okkar eins og allt annað að það verður að hlúa að því og sinna til að viðhalda verðmætunum og góðu ástandi. Félagið hefur einbeitt sér að því að hlúa að því andlega á þessum árum og gert mjög vel þrátt fyrir að þröngt sé í búi, en nú er að koma að hinu veraldlega. Það verður sjaldan of oft sagt hversu mikilvægt er fyrir okkur að hafa góðan miðpunkt fyrir okkar starfsemi eins og félagshús okkar að Holtavegi er. Sem betur fer eru innan okkar félaga mjög kröftugir aðilar sem eru duglegir að rétta fram hjálparhönd þegar á þarf að halda og oft á tíðum af sínu eigin frumkvæði með símtali á skrifstofuna til að athuga hvort ekki þurfi að laga

eitthvað í húsinu. Sumarbúðirnar okkar njóta sem betur fer sömu forréttinda að það er fullt af fólki sem er tilbúið til að koma á staðinn og vinna í þágu staðarins og þiggja næringu og góðan félagsskap að launum. Það hefur ýmist verið gert með skipulögðum „vinnuflokkum“ eða menn tekið sig saman og mætt á staðinn í einhver fyrirfram ákveðin verkefni. Nú þarf að sinna ýmsu viðhaldi bæði stóru og smáu á Holtaveginum. Höfum við verið að ræða okkar á milli í Húsráði hvort ekki sé hægt að gera eitthvað svipað varðandi Holtaveginn, þ.e.a.s. vera með skipulögð verkefni og hóa saman mannskap til að ganga í þessi verkefni í heilan dag. Munurinn á Holtavegi og t.d Vatnaskógi er að það er ekki hægt að úthluta endalausum verkefnum þar sem svæðið er minna og verkefnin afmarkaðari, en samt ætti að vera hægt að gera minni útgáfu af þannig degi. Það sem liggur fyrir á næstunni er t.d. að laga leka í þakglugga í tengibyggingunni, það er eitthvað sem ekki er hægt að gera á sjálfboðaliða degi vegna umfangs verkefnisins. Það er búið að finna aðila í það verkefni og það verður vonandi unnið nú með haustinu. Þessi leki hefur valdið skemmdum á veggjum inni,

sem og skemmdir eftir leka sem stöðvaður var í fyrra sem olli skemmdum fyrir framan sr. Friðriksstofu. Vinnan við að spartla og mála er eitthvað sem tilvalið er fyrir 2-3 aðila sem eru tilbúnir að taka það að sér þegar komið hefur verið í veg fyrir lekann. Flísar eru að losna af veggjum á salernum í kjallara og þörf á að taka allar lausar flísar af veggjum og flísaleggja aftur, þetta er einnig tilvalið fyrir einhverja 2-3 aðila að taka að sér að framkvæma í sameiningu, ekki þarf að bíða eftir neinu til að hefja þetta verk. Í vetur verða örugglega fleiri smáverkefni sem þarf að vinna og vonast ég til að hægt verði að virkja félagsmenn í að ganga í þau verkefni með okkur til að viðhalda húsinu okkar til að það geti haldið áfram að sinna sínum tilgangi um ókomna framtíð. Ef einhver er tilbúinn til að taka að sér þessi verkefni og draga með sér góða menn þá má viðkomandi endilega hafa samband við skrifstofuna og við komum því efni sem til þarf á staðinn og aðstoðum á hvern hátt sem þarf. Björgvin Hansson

Sestu og lestu hvað Guð hefur að segja við þig í dag Í starfi mínu sem leikskólakennari er rím einn þáttur til málörvunar. Þegar ég hugsa um rím koma orðin sestu - lestu upp í hugann, ég heyrði þau sögð í hugleiðingu á samkomu í KFUM og KFUK fyrir löngu síðan. Ragnhildur Gunnarsdóttir Þau voru hvatning til að gefa sér tíma í næði og lesa Guðs orð. Síðan þá hafa þau oft verið mér góð áminning um það. Ég var svo lánsöm að alast upp við það að Guðs orð var lesið daglega á heimilinu. Foreldrar mínir hvöttu mig til þess að lesa Biblíuna og læra biblíuvers. Faðir minn, Gunnar Sigurjónsson var predikari og mjög biblíufróður maður. Biblían hans sem hann hafði gjarnan í jakkavasanum var honum sem handbók lífsins og bar þess vitni að vera mikið lesin svo slitin var hún.

Þessi hvatning og góða fyrirmynd var frábært veganesti út í lífið og hefur verið mér ljós á lífsins vegi. Í orði sínu mætir Guð okkur sem einstaklingum. Þar finnum við hvatningu, styrk, uppörvun, blessun, huggun, leiðsögn o.s.frv. Í Hebreabréfinu 4:12 stendur „Því að orð Guðs er lifandi og kröftugt“. Þetta hef ég fengið að reyna. Orðið mætir manni á mismunandi og nýjan hátt, í alls konar kringumstæðum. Það nærir trúna svo hún styrkist og dafnar. Í Guðs orði mætum við líka Jesú. Biblían er full af frásögum af Jesú þegar hann gekk um á jörðunni og mætti fólki. Maríu sem sat við fætur hans og hlustaði, Sakkeusi sem var einmana, lamaða manninum sem vinir hans komu með til Jesú, fólki sem þráði að heyra meira um Guð, lærisveinunum sem fylgdu honum daglega og svo mætti lengi telja. Jesús mætir fólki enn í dag. Hver einstaklingur er mikilvægur og dýrmætur í augum hans „Óttast þú ekki því að ég frelsa þig, ég kalla á þig með nafni, þú ert minn.“ (Jes. 43,1. )

Einu sinni sagði lítil stúlka í leikskólanum: „Guð býr okkur til, fyrst málar hann andlitið.“ Andlitið er svo mikilvægt. Það segir hver við erum. Jesús þekkir andlit okkar en hann sér lengra, hann þekkir hjarta okkar. Hann veit hvers við þörfnumst og hvað við þurfum að heyra. Starf KFUM og KFUK á meðal barna og unglinga er mjög mikilvægt ekki síst nú til dags. Það gefur þeim tækifæri til að kynnast Jesú, að heyra að þau megi trúa á hann og taka við honum sem frelsara sínum. Sem samverkamenn Jesú getum við horft með eftirvæntingu til nýs vetrar þar sem hann fær að leiða okkur. Sjá hvaða tækifæri og verkefni hann felur í sér. Stoppaðu í erli dagsins, sestu og lestu hvað Guð hefur að segja við þig í dag. Stoppaðu við fætur Jesú. „Verið hljóð og hlýðið á mig.“ segir Drottinn (Jes.41.1). Ragnhildur Gunnarsdóttir

11


Skyldunámskeið fyrir sjálfboðaliða og starfsmenn KFUM og KFUK

Mikið úrval af fallegum prjónuðum flíkum og fylgihlutum er í boði á basar KFUK.

Einstakir handgerðir munir og heimabakað góðgæti til sölu á basar KFUK Á hverju ári gefst fólki kostur á að koma á basar KFUK og gera einstök kaup rétt fyrir jólahátíðina. Basarinn er haldinn laugardag fyrir fyrsta sunnudag í aðventu, sem er að þessu sinni 29. nóvember, á Holtavegi 28 í húsi KFUM og KFUK og hefst kl. 14:00. Undirbúningur og vinna KFUK kvenna fyrir basarinn er nú þegar hafinn og verður fjölbreytt og flott úrval í boði í lok nóvember. Mikið er af jólaskrauti unnið af mikilli alúð til að skreyta heimilið með en þó er líka mikið af fallegum vörum sem hægt er að gefa í jólagjafir. Ekki má heldur gleyma jólabakstrinum sem hægt er að klára einfaldlega með því að koma á basar KFUK og kaupa þær girnilegu smákökur og tertur sem verða þar í boði á góðu verði, og þar gildir reglan fyrstir koma fyrstir fá! Basar KFUK hefur verið árlegur viðburður hjá

Tilvalið er að kíkja í kaffi og kakó í félagshús KFUM og KFUK og gera góð kaup á jólagjöfum í leiðinni. 12

Hægt er að gera góð kaup og klára jólabaksturinn með því að kaupa heimabakaðar kökur og smákökur á basar KFUK.

félaginu og mikilvæg fjáröflunarleið. Við viljum hvetja allt félagsfólk og velunnara til að taka þátt hvort sem það er með því að gefa af tíma sínum með því að búa til og koma með muni og heimabakað í vikunni áður en basarinn er haldinn eða með því að koma og versla og taka með sér stóran hóp af fólki. Kakó-, kaffi- og vöfflusala verður í boði á meðan á basarnum stendur og því tilvalið að koma, gera góð kaup, styrkja félagið og komast í jólaskap í upphafi aðventu.

Í haust verður námskeiðið Verndum þau í boði á fjórum stöðum á landinu; Ísafirði, Selfossi, Akureyri og Reykjavík. Námskeiðið er á vegum Æskulýðsvettvangsins (ÆV) sem KFUM og KFUK á Íslandi er hluti af og er skyldunámskeið fyrir þá sem starfa með börnum og ungmennum innan aðildarfélaga ÆV. Á námskeiðinu er farið yfir hvernig bregðast skuli við grun um ofbeldi eða vanrækslu í garð barna og unglinga. Hvert einasta barn sem kemur í starf KFUM og KFUK er dýrmæt sköpun Guðs og á skilið að komið sé fram við það af kærleika. Nánari upplýsingar um námskeiðin er að fá hjá Þjónustumiðstöð félagsins.

Námskeið um notkun Litlakompás verða í boði í haust Litli-kompás, handbók um mannréttinda­ menntun fyrir börn á aldrinum 7-13 ára, kom út á árinu. Æskulýðsvettvangurinn og Félag fagfólks í frítímaþjónustu munu standa fyrir fimm námskeiðum í notkun á bókinni með stuðningi frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Kennari á námskeiðinu er Jóhann Þorsteinsson sem er sviðsstjóri æskulýðssviðs KFUM og KFUK á Íslandi. Námskeiðin verða haldin í Keflavík, Egilsstöðum, Selfossi, Reykjavík og Akureyri. Öllum er velkomið að skrá sig en þátttökugjald er 1.000 kr. Nánari upplýsingar er að fá hjá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK.

Fréttabréf KFUM og KFUK á Íslandi - 2. tbl. 2014 Ritstjórar: Berglind Ósk Einarsdóttir. Ábyrgðarmenn: Berglind Ósk Einarsdóttir og Tómas Torfason. Að blaðinu unnu: Berglind Ósk Einarsdóttir, Tómas Torfason, Gyða Karlsdóttir, Ársæll Aðalbergsson, Jóhann Þorsteinsson, Petra Eiríksdóttir, Hjördís Rós Jónsdóttir, Björgvin Hansson, Salvar Geir Guðgeirsson, Ragnhildur Gunnarsdóttir, María Sighvatsdóttir, Daníel Bergmann, Birgir Ásgeirsson, Ísak Henningsson, Gísli Stefánsson, Inga Vigdís Baldursdóttir, Auður Pálsdóttir og fleiri. Útgefandi: KFUM og KFUK á Íslandi, Holtavegi 28, Reykjavík. Umbrot: Halldór Elías Guðmundsson. Prentun: Ísafoldarprentsmiðja


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Fréttabréf KFUM og KFUK september 2014 by KFUM og KFUK á Íslandi - Issuu