Sögurnar sem Jesús sagdi Fræðsluefni KFUK og KFUM haustið 2009
Sögurnar sem Jesús sagði
Sögurnar sem Jesús sagði Fræðsluefni KFUM og KFUK
Útgefandi: Umsjón: Uppsetning: Yfirlestur:
2
KFUM og KFUK Holtavegi 28, Reykjavík Henning Emil Magnússon Rakel Tómasdóttir Jóhann Hjaltdal Þorsteinsson
Fræðsluefni KFUK og KFUM haustið 2009
Efnisyfirlit bls 4 bls 5 bls 6
bls 8 bls 10 bls 12 bls 16 bls 18 bls 20 bls 22 bls 26 bls 28 bls 30
Fylgt úr hlaði Hefðir og venjur Uppbygging fræðsluefnisins Hugleiðingar Sögurnar sem Jesús sagði 1. Sáðmaðurinn 2. Fjársjóður og perla 3. Skuldugi þjónninn 4. Týndur sauður 5. Fjársjóður þinn 6. Talentur 7. Miskunnsami Samverjinn 8. Biðjið, leitið, knýið á 9. Týndur sonur 10. Farísei og tollheimtumaður
Mrk 4.1-20 Matt 13.44-46 Matt 18.21-35 Matt 18.12-14 Matt 6.19-21 Matt 25.14-30 Lúk 10.25-37 Matt 7.7-11 Lúk 15.11-32 Lúk 18.9-14
3
Sögurnar sem Jesús sagði
Fylgt ur hladi Síðastliðin tvö ár hefur Fræðsluefni KFUM og KFUK fjallað annars vegar um sögurnar sem Jesús kunni og hins vegar um ævi Jesú. Fyrir jól hafa verið teknar fyrir sögur úr Gamla testamentinu en á vorin hefur kenning og ævihlaup Jesú verið í brennidepli. Fræðsluefnið sem leiðtogar fá nú í hendurnar fjalla um sögurnar sem Jesús sagði. Jesús sagði mikið af sögum og þær eru eftirminnilegar. Hann notaði sögur til að koma boðskap sínum frá sér. Það var ekki tilviljun. Dæmisögur hafa lengi átt söér fastan sess í vestrænni menningu. Það virðist ná betur til fólks að segja þeim sögu en að fjalla um hluti í kennisetningum. Ef fólk heyrir sögu getur það rifjað upp söguna síðar. Sagan lifir með því og hughrifin af sögunni geta verið ólík eftir því sem áheyrandi eldist og þroskast. Í fræðsluefninu er að finna fjölmargar hugmyndir sem tengjast sögunum. Þar má nefna leiki, leikrit, sögur og hlutbundna kennslu svo eitthvað sé nefnt. Ætlunin með því er að virkja börnin til þátttöku í því sem fram fer. Þannig er einnig stuðlað að því að fræðslan sé lifandi, fjölbreytt og spennandi. Sögurnar eru valdar með það fyrir augum að efni þeirra skarast. Sú skörun getur verið margvísleg. Boðskapurinn getur verið áþekkur eða söguefnið gæti verið skylt. Þetta er hugsað til þess að hugmyndirnar taki sér frekar bólfestu í hjarta barnanna. Sem dæmi um þessa skörun má nefna að bæði má finna sögur um týndan sauð og týndan son, fjallað er um fjársjóð í tveimur sögum, tvær sögurnar eru bænasögur, bæði er fjallað um kærleika Guðs og kærleika manns, svo eitthvað sé nefnt. Mikilvægt er að huga að þessu þegar fræðslan er skipulögð. Örfá orð um dæmisögur Margt er hægt að læra af því að skoða dæmisögur Jesú, m.a. hvernig hann kom boðskap sínum til skila. Jesús valdi sögur í stað flókinna hugtaka og fræðilegra útlistana. Sögurnar eru engu að síður úthugsuð kenning Jesú. Þær eru ekki eingöngu hugsaðar sem góðar sögur til þess að ná athygli áheyrenda. Þær eru ekki upphitun heldur allur pakkinn. Í þeim er að finna tilganginn með starfi Jesú, boðun Guðs ríkis. Það er hægt að læra margt um bæði hvað og hvernig á að boða. Jesús virðist ekki hafa flutt flóknar hugleiðingar heldur lagt áherslu á að koma boðskap sínum til skila á einfaldan og skýran hátt. Sögurnar voru yfirleitt úr umhverfi áheyrendanna þannig að þeir áttu auðvelt með að tileinka sér þær. Sögurnar fjölluðu m.a. um ræktun gróðurs, kindur, dagleg störf fólks, veislur og peninga. Þær sögðu líka frá samskiptum milli fólks og hópa: Sauður týnist, Samverji miskunnar sig yfir mann, farísei lítur niður á tollheimtumann, týndur sonur snýr aftur og þjónn fær uppgefna skuld. Umhverfi sagnanna kom áheyrendum ekki á óvart en stundum kom atburðarrásin þeim á óvart. Það hefur t.d. komið á óvart að Samverjinn skyldi hjálpa og vera sá miskunnsami, einnig hefur hegðun föðurins, sem hleypur á móti syni sínum og kyssir hann þegar hann snýr til baka eftir að hafa sóað eigum sínum í óhófsömum lifnaði, komið á óvart. Ýmislegt sem kom upphaflegum áheyrendum á óvart finnst okkur ekki skrýtið. Okkur finnst hugsanlega eitthvað skrýtið sem upphaflegu áheyrendunum þótti eðlilegt. Í leiðbeiningum boðunarefnisins er að finna upplýsingar sem hjálpa við skilning á dæmisögunum þannig að auðveldara sé að miðla þeim áfram til barnanna. Það er ósk mín að þetta efni nýtist vel í starfinu. Það er í raun ómögulegt að búa til fræðsluefni sem hentar öllum. Í fyrsta efninu sem ég setti saman líkti ég fræðsluefninu við flugvélamódel þar sem allt er til staðar en enn á eftir að líma hlutina saman þannig að þeir myndi heild. Sú líking á enn við. Það er leiðtoganna að gera eitthvað úr þessu. Það er þeirra að búa til eitthvað úr mörgum misstórum bútum þannig að í lokin sé útkoman góð og flugvélamódelið til prýði. Í þessi þrjú ár sem ég hef fengist við fræðsluefnið hef ég fundið að félagsfólk hefur lifandi áhuga á því. Ég er mjög ánægður þegar fólk hefur haft samband og komið með hugmyndir og jákvæða gagnrýni. Í þessu hefti aðstoðaði konan mín, Bylgja Dís Gunnarsdóttir, mig með því að útbúa margar góðar hugmyndir sem fylgja efninu. Ég kann henni hinar bestu þakkir.
Með ósk um góðan starfsvetur og Guðs blessun, Henning Emil Magnússon 4
Fræðsluefni KFUK og KFUM haustið 2009
Hefdir og venjur i starfinu Hefðir og venjur Það getur verið afar mikilvægt að halda í hefðir og venjur. Þær veita öryggi og hjálpa börnunum að læra hver er viðeigandi hegðun á fundum. Það gefur leiðtogum og börnum einnig tilfi nningu fyrir samfellu í starfi nu, þ.e.a.s. allir vita að hverju þeir ganga. Hefðir eins og bænasöngur, upphafsbæn, trúarjátning eða hugleiðingasöngur geta líka öll þjónað þeim tilgangi að undirbúa huga þátttakenda undir það sem í vændum er. Auk þess veita hefðir leiðtogum bæði aðhald og hjálp við skipulagningu samverustunda. Hefðir og venjur geta einnig orðið til þess að traust foreldra og annarra sem fylgjast með starfi nu aukist. Áður en samverustund er lögð í Guðs hendur með bæn er gott að syngja bænasöng. Áður en hugleiðing hefst er gott að syngja hugleiðingasöng, á eftir honum má kveikja á kertum og fara um leið með minnisvers. Á eftir hugleiðingu er tilvalið að fara með Faðir vor. Á sumum starfsstöðum er lokasöngur. Það er góð hefð. Það er mikilvægt að starfsfólk KFUM og KFUK sé samhent í því að skapa hefðir með því að bera virðingu fyrir þeim. Þá skilja börnin enn frekar mikilvægi þeirra. Það er mikilvægt að muna að hefðir skipta máli fyrir félög eins og KFUM og KFUK. Hluti af því sem er heillandi við starfi ð er að vissar hefðir halda sér og sameina foreldra og börn þegar rætt er um starf okkar.
5
Sögurnar sem Jesús sagði
Uppbygging frædsluefnisins 1. Boðskapur
Boðskapur hugleiðingar er gefinn upp í einni setningu. Það er ekki að ástæðulausu. Mikilvægt er fyrir leiðtogann að íhuga vel boðskapinn og láta hann vísa sér veginn við undirbúninginn. Það er ekki hægt að leggja áherslu á of margt, það verður eingöngu til þess að ekkert sitji eftir.
2. Aðkoma
Það er alltaf gott ef tekst að fanga vel athygli áheyranda í upphafi hugleiðingar. Gott er að vísa til einhvers úr reynsluheimi barnanna en það hjálpar þeim að tengjast boðskap hugleiðingarinnar. Stundum er hægt að nota leiki eða annað efni úr hugmyndabanka sem aðkomu. Einnig er mikilvægt að huga að því hvernig hugleiðingarnar tengjast innbyrðis.
3. Hugleiðing og skýringar
Langflestar hugleiðingarnar eru þannig uppbyggðar að fyrst er atburðarrás sögunnar rakin og síðan eru ýmsar upplýsingar sem leiðtoginn getur nýtt sér við undirbúninginn, en þær eiga ekki alltaf erindi í hugleiðinguna. Þær upplýsingar eru gefnar upp undir yfirskriftinni Skýringar. Yfirleitt er frásagan í brennidepli. Mikilvægt er að koma henni vel til skila þannig að hún lifi sem lengst með barninu. Hugið vel að undirbúningnum, vandið orðaval og gætið þess að útskýra þau orð sem börnin skilja ekki. Hugið vel að fjölbreytni þegar sögurnar eru sagðar. Það er hægt að nota glærur, filmuræmur, loðmyndir, leikræna tjáningu, helgileiki og hlutbundna kennslu til að styðja við frásöguna. Hægt væri að byrja á loðmyndahugleiðingu, því næst að nota glærur og á þriðja fundinum að reyna leikræna tjáningu, svo dæmi sé tekið.
4. Samantekt
Í lokin skal draga saman aðalatriði hugleiðingarinnar. Munið að boðskapurinn á að móta uppbygginguna. Samantektin á ekki að koma með ný atriði, heldur minna á það sem mikilvægast er í hugleiðingunni: Boðskapinn og hvernig hann hefur áhrif á líf barnanna.
5. Minnisvers
Gott er að festa sér í minni orð úr Biblíunni. Tilvalið er að rifja upp vers sem þegar hafa verið lærð áður en nýtt er kynnt til sögunnar. Auk þess eru hugmyndir í lok efnisins um það hvernig er hægt að kenna minnisvers með skemmtilegum og einföldum leikjum.
6
6. Hugmyndabanki
Yfirleitt fylgja einhverjar hugmyndir með hugleiðingunum. Sumar af þessum hugmyndum henta vel sem aðkoma að frásögunni. Skoðið efnið vel og sjáið hvernig þið getið nýtt ykkur það sem best. Það getur skipt miklu máli hvort það fylgi hugleiðingu eða sé notað sem aðkoma. Stundum er efnið frekar miðað við annað kynið en þá má aðlaga það og breyta um kyn ef það þjónar tilgangi. Ef efnið er fjörugt þá er mikilvægt að fara ekki í það rétt fyrir hugleiðinguna þar sem reynt er að skapa helgi fyrir íhugun Guðs orðs.
7. Leslisti fyrir leiðtoga
Gefnir eru upp nokkrir ritningarstaðir sem leiðtoginn er hvattur til að lesa við undirbúning hugleiðingar. Ritningarstaðirnir hafa þann tilgang að varpa ljósi á hugleiðingartextann. Stundum skýrast tengslin á milli Gamla og Nýja testamentisins þegar þeir eru lesnir. Ritningartextarnir gegna því svipuðum tilgangi og skýringarnar, að hjálpa leiðtoganum að átta sig betur á textunum.
8. Starfsgagnalisti
Gott er að hafa ólíkar leiðir í huga við miðlun frásagnanna. Efninu fylgir yfirlit yfir filmuræmur (F), loðmyndir (L) og glærur (G). Það þarf að gæta þess að skoða efnið áður en það er notað og sjá hvernig það tengist hugleiðingarefninu. Ekki er alltaf sjálfsagt að hugleiðing fræðsluefnisins og uppröðun starfsgagnanna lúti sömu röð. Leiðtoginn þarf því að bera þetta tvennt saman og taka eigin ákvarðanir. Ef einhver velur að notast við loðmyndir skal bent á að eftirfarandi baksvið eru til fyrir loðmyndirnar: LB-1 LB-2 LB-3 LB-4 LB-5 LB-10
Útimynd 1 Má nota við margar sögur úr Gamla og Nýja testamentinu Útimynd 2 Má nota við margar sögur úr Gamla og Nýja testamentinu Nótt úti við Gott baksvið fyrir sögur sem gerast að kvöldi eða nóttu Innanhússmynd Ríkmannlegt herbergi eða salur í höll Innanhússmynd Gott baksvið fyrir ýmsar frásögur guðspjallanna, sem gerast innandyra Salur
Fræðsluefni KFUK og KFUM haustið 2009
9. Bæn
Bæn þarf að skipa miðlægan sess í öllu okkar starfi . Mikilvægt er að huga að því hvernig við notum bænina á fundum félaganna. Hvernig stuðlum við að auknu bænalífi ? Kennum við Faðir vor? Notum við bænasöng? Eru börnin hvött til þess að biðja sjálf? Í fræðsluefninu má fi nna ýmislegt efni til að auka áhuga og skilning á bæninni.
10. Söngvar
Tillögur að söngvum fylgja efninu. Söngvarnir eru endurteknir reglulega þannig að vonandi mótast kjarni söngva sem börnin ná að tileinka sér. Varla þarf að taka fram að þessar tillögur eru ekki bindandi. Vonandi verða leiðtogar duglegir að bæta við þennan lista og velja lög eftir efni og aðstæðum. Stundum hefur verið notast við misserissöng. Gaman væri að nota Guð þú gætir mín æ í slíkum tilgangi. Tillögur að söngvum:
Bænasöngvar: 10 88
Bæn sendu beðna Kæri faðir, kenndu mér að biðja
Söngvar sem tengjast efninu: 13 42 55 82
Drottinn er minn hirðir Fús ég, Jesús, fylgi þér Hér gengur góður hirðir Jesús mönnum öllum ann
Söngvar frá fyrri önn: 16 106 123
Ef ég væri fi ðrildi Ótal, óteljandi fuglar Við setjumst hér í hringinn
Nýir söngvar: 113 131
Stjörnur og sól Þú ert þýðingarmikil(l)
Misserissöngur: 50
Guð þú gætir mín æ
7
Sögurnar sem Jesús sagði
1
Sádmadurinn
- Orð Guðs
Boðskapur: Guðs orð er lifandi og hefur áhrif á þann sem tekur við því.
Minnisvers: Ég geymi orð þín í hjarta mínu, svo að ég syndgi ekki gegn þér. (Sálm 119.11)
Aðkoma: Hægt er að nota fræðslustund nr. 2 úr Stund í snatri. Hægt er að tengja hana við þemahugmynd boðunarefnisins.
Hugleiðing
Leslisti fyrir leiðtoga
1. Öllum þykir gaman að heyra góða sögu. Þegar Jesús gekk um á jörðinni og kenndi um Guð og ríki hans sagði hann oft sögur þannig að fólk skildi betur hvað hann átti við. Þessar sögur eru kallaðar dæmisögur. Í vetur ætlum við að heyra nokkrar þeirra og sjá hvað við getum lært af þeim.
Ritningarstaðir um orð Guðs Sálm 119.105 Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum Heb 4.12 Því að orð Guðs er lifandi og kröftugt 1Pét 1.25 En orð Drottins varir að eilífu Lúk 11.28 Já, því sælir eru þeir, sem heyra Guðs orð og varðveita það Jes 55.10-11 Eins og regn og snjór fellur af himni Sálm 33.6 Fyrir orð Drottins voru himnarnir gerðir Ef 6.17 Guðs orð sem hluti af alvæpni Guðs Jak 1.21 Takið á móti hinu gróðursetta orði 1.Pét 1.23 Endurfædd fyrir orðið sem hefur borið á vöxt Kól 1.5-6 Orðið ber ávöxt og vex Mark 3.20-30 Viðbrögð fræðimanna við starfi Jesú Mark 10.17-31 Viðbrögð manns við starfi Jesú Mark 8.31-33 Mannsonurinn á margt að líða
2. Fyrsta sagan er afar einföld. Sáðmaður gengur út með pokann sinn að sá sæði. Sumt fellur hjá götunni, annað í grýtta jörð, hluti af sæðinu lendir meðal þyrna en sumt fellur í góða jörð og ber mikinn ávöxt. Við vitum að ef planta á að vaxa þarf hún m.a. góðan jarðveg. Ef hún á að dafna þarf fræið að ná fótfestu í góðum jarðvegi. 3. Jesús útskýrir síðan söguna fyrir lærisveinum sínum. Mismunandi jarðvegur táknar hvernig fólk tekur á móti orðinu sem sæðið stendur fyrir. Það sem fellur hjá götunni, í grýtta jörð og meðal þyrna eru tákn fyrir fólk sem heyrir orðið en vegna þess að Satan tekur orðið frá þeim. Þau hafa annað hvort enga rótfestu eða áhyggjur heimsins eru of miklar og þá ber orðið ekki ávöxt hjá þeim. En sæðið sem féll í góða jörð merkir þá sem heyra orðið og taka á móti því. 4. Hvernig getum við verið góður jarðvegur? Hvernig getum við verið móttækileg fyrir Guðs orði og hlúð vel að því sem við heyrum. Í Biblíunni er rætt um að geyma orð Guðs í hjartanu. Við getum geymt orðið í hjartanu með því að gefa því gaum og íhuga það. Með því að hlusta á hugleiðingar á fundum og með því að lesa sjálf. Það er einnig mikilvægt að biðja Guð að hjálpa okkur að skilja orð hans.
8
Söngvar 88 50 131 42 82 123
Kæri faðir, kenndu mér að biðja Guð þú gætir mín æ Þú ert þýðingarmikil(l) Fús ég, Jesús, fylgi þér Jesús mönnum öllum ann Við setjumst hér í hringinn
Fræðsluefni KFUK og KFUM haustið 2009
Skýringar
Hugmyndabanki
Að kenna úr bát Í Biblíutextanum kemur fram að mannfjöldinn hafi verið mikill og þess vegna varð Jesús að stíga í bát og kenna úr honum. Jesús er hér að tala til margra og þess vegna velur hann að nota dæmisögu sem allir geta skilið. Það er mikilvægt að greina á milli þess hvort talað er til innsta hrings eða til alls almennings.
Gróðursetning. Fræðslustund nr 2 úr Fræðslustund í snatri er tilvalin til að kynna efnið til sögunnar. Stundin gefur ýmis tækifæri til að ræða um hvernig hægt sé að bera ávöxt. Það er hægt að hafa gróðursetninguna sér og vísa til hennar í hugleiðingunni eða hefja hugleiðinguna með henni.
Hlýðið á! Hver sem eyru hefur að heyra, hann heyri! Jesús hvetur áheyrendur til að hlýða á það sem hann hefur fram að færa. Hann endar á því að segja að hver sá sem eyru hefur að heyra, hann heyri. Það eru þeir sem heyra sem bera ávöxt. Að heyra er að varðveita orðið í hjartanu. Sáðmaður Starf sáðmannsins var mikilvægt því afkoma fólks byggði á uppskeru. Allir, nema þeir sem voru mjög ríkir, áttu mikið undir því að uppskeran myndi takast vel. Sáðmaðurinn gekk um og sáði úr poka sem hékk um háls hans. Það var ekki óvanalegt að sæðið skyldi falla í ólíkan jarðveg þar sem það þurfti að þekja sem mest af jarðveginum. Þrátt fyrir að heimur sáðmannsins sé okkur á vissan hátt fjarri í dag þá skildu áheyrendur Jesú söguna vel og þekktu til starfa sáðmannsins. Þess vegna skildu þeir það sem Jesús átti við. Orðið og jarðvegurinn Æskulýðsstarf KFUM og KFUK er sáningarstarf. Það er verið að sá orðinu í von um að það falli í góðan jarðveg en ekki í grýtta jörð. Jesús var að sá orðinu með starfi sínu og vonaðist til þess að tekið yrði á móti því. Hann upplifði sjálfur mismunandi viðbrögð þeirra sem hann ræddi við. Fræðimenn sökuðu hann um að vera haldinn illum anda, sumir gengu hryggir í burt eftir að hafa rætt við hann og einhverjir þurftu fyrst að huga að einhverju öðru. En margir tóku á móti og báru ávöxt. Það er alltaf í valdi áheyrenda að bregðast við orðinu. Jesús valdi að nota ekki vald til að koma á ríki sínu heldur sáði hann orði sínu í von um að það næði bólfestu í hjörtum þeirra sem hlýddu á. Þegar sæði er sáð er það nánast lítilfjörlegt en þegar ávöxturinn kemur í ljós er árangurinn kraftaverki líkastur.
Hvernig grær og vex garðurinn þinn? Það sem þarf: Bakki með mold og poki með fræjum. Sýndu fræin. Talaðu um stærð þeirra og lögun. Hvað þarf til að þau vaxi? Þau munu ekki vaxa án moldar, vökvunar (raka) eða birtu. Þessir þrír hlutir hafa samt sem áður ekki þann mátt í sér að láta fræin vaxa. Þau vaxa vegna þess að Guð hefur búið þau út með vaxtarsprota. Lesið saman dæmisöguna sem Jesús sagði í Markúsarguðspjalli: Jesús sagði að Guðs ríki væri eins og plöntun þessara fræja. Við vitum ekki hvað gerist en Guðs fræ í hjörtum okkar vex og vex. Guðs fræ í heiminum er að vaxa og vaxa. Guð hefur gefið ríki sínu vaxtarsprota sem þýðir að því er ætlað að vaxa. Leikur: Poppuppskera Hvað þarf: Mikið af poppkorni, plastskeiðar fyrir allan hópinn, ílát fyrir „uppskeruna“ t.d. pokar eða kassar. Ryksugu til að taka til í lokin! Ryðjið til í salnum svo að þið hafið mikið pláss. Segið börnunum að við ætlum að þykjast að vera sáðmenn að sá á akrinum okkar. Gefið hverju barni lófafylli af poppkorni og leyfið þeim að dreifa því á gólfið; sá því á akurinn. Skiptið börnunum í 2-4 bóndafjölskyldur og látið hverja fjölskyldu fá ílát sem er geymt í einhverju horninu í salnum. Látið hvert barn fá skeið. Segið börnunum að þegar stjórnandinn gefur merki (klappar saman lófunum) þá eiga þau að byrja að safna uppskerunni í ílát sinnar fjölskyldu en þau mega aðeins nota skeiðarnar til þess. Leggið áherslu á samvinnu og að aðeins megi nota skeiðarnar, ekki hendur og fætur. Þegar búið er að safna allri uppskerunni er hægt að bera saman uppskeru hverrar fjölskyldu og e.t.v. útnefna einhvern sigurvegara. Á eftir er tilvalið að fá sér popp (annað en það sem var á gólfinu!) og djús. (Leikur úr Everyone´s a winner) Skemmtilegt fundarefni Hvernig væri að kaupa fræ og leyfa krökkunum að gróðursetja og vökva þegar þau koma á fundi og fylgjast með uppskerunni. Það gæti haldið sögunni um sáðmanninn lifandi í huga þeirra. Leikrit Í bókinni Lifandi leikur eftir Hreinn S. Hreinsson (til á Holtavegi) er leikrit sem heitir Sáðmaður gekk út að sá. Hvernig væri að leika eða leiklesa það?
9
Sögurnar sem Jesús sagði
2
Fjársjódur og perla - Um Guðs ríki Matt 13.44-46
Boðskapur: Að tilheyra Jesú jafnast á við að finna fjársjóð.
Minnisvers: Ég geymi orð þín í hjarta mínu, svo að ég syndgi ekki gegn þér. (Sálm 119.11)
Aðkoma: Spyrjið börnin út í það hvað sé talið dýrmætt. Segið síðan að í dag ætlið þið að segja sögu sem Jesús hafi sagt um fjársjóð og perlu. Ef þið hafið notað annað hvort fjársjóðsleit eða skartgripagerð sem fundarefni eins og stungið er upp á í hugmyndabankanum þá er tilvalið að tengja hugleiðinguna við þá atburði.
Hugleiðing 1. Í síðustu viku heyrðum við af manni sem var að sá í akur. En það er líka hægt að finna eitthvað verðmætt í akrinum ef við förum að grafa í jörðina. Eitt sinn vildi Jesús útskýra fyrir þeim sem voru að hlusta hversu dýrmætt himnaríki og Guðs ríki væri. 2. Jesús sagði sögu af manni sem fann fjársjóð í jörðu. Hann varð svo glaður að hann fór og seldi allt sem hann átti til þess að geta keypt jörðina þar sem fjársjóðurinn lá. 3. Jesús sagði líka sögu af kaupmanni sem leitaði að perlum. Eitt sinn fann hann dýrmæta perlu og þá seldi hann allt sem hann átti til þess að geta eignast hana. 4. Jesús sagði þessar sögur til þess að sýna okkur að lífið með honum er dýrmætara en allt annað. Það að tilheyra honum jafnast á við að finna fjársjóð. Lærisveinar Jesú vissu þetta því að þegar þeir mættu honum yfirgáfu þeir allt til þess að geta verið með honum og hlýtt á hann.
10
Fræðsluefni KFUK og KFUM haustið 2009
Leslisti fyrir leiðtoga
Hugmyndabanki
Fil 3.7-8 2Kor 4.17 Matt 7.6 Okv 2.4 Okv 3.13-15 Job 28.18
Skemmtilegt fundarefni Hvernig væri að hafa fjársjóðsleit (ratleik) á þessum fundi? Í fjársjóðnum geta verið minnisvers fyrir hvern og einn og smá gotterí og svo tengist það sögunni um fjársjóðinn og perluna.
Páll hefur fundið sinn fjársjóð Annað dæmi um viðhorf Páls Þekkt vers um perlur Silfur og fjársjóður í Gamla testamentinu Perlur, gull, silfur og dýrgripir Dýrmætara en perlur
Skartgripagerð Hvernig væri að hafa skartgripagerð á þessum fundi? Bæði drengir og stúlkur hafa gaman af að gera hálsmen, armbönd og eyrnalokka og það tengist sögunni um dýrmætu perluna.
Skýringar Að grafa eitthvað verðmætt í jörð Palestína var á milli Mesapótamíu og Egyptalands og var því í stöðugri hættu varðandi innrásir. Þá tíðkaðist að grafa verðmæti sín í jörðu til að vernda þau. Sá sem átti verðmætin lést síðan hugsanlega í orrustu og þá urðu verðmætin eftir á jörðinni. Eflaust er verið að vísa til þess í fyrri sögunni. Perlukafararnir Kafarar leituðu að perlum í Rauða hafinu, Persaflóa og Indlandshafi. Perlurnar þóttu mjög dýrmætar og voru notaðar í hálsmen og skreytingar. Hin þekkta egypska prinsessa Kleópatra var sögð eiga eina perlu sem var metin á stjarnfræðilega upphæð.
Söngvar 10 50 113 13 106 16
Bæn sendu beðna Guð þú gætir mín æ Stjörnur og sól Drottinn er minn hirðir Ótal, óteljandi fuglar Ef ég væri fiðrildi
11
Sögurnar sem Jesús sagði
3
Skuldugi ojónninn
- saga um fyrirgefningu Matt 18.21-35
Boðskapur: Guð er fús að fyrirgefa okkur. Við eigum einnig að vera fús að fyrirgefa öðrum. Aðkoma: Það er hægt að nota fræðslustund nr. 85 úr bókinni Stund í snatri. Hún er í hugmyndabankanum. Eins væri sniðugt að nota hljóðsöguna, þá kynnast börnin sögunni enn betur og tengja betur við boðskap hennar.
Minnisvers: Ég geymi orð þín í hjarta mínu, svo að ég syndgi ekki gegn þér. (Slm 119.11)
Hugleiðing 1. Sagan sem Jesús segir er svar við spurningu frá Pétri, leiðtoga lærisveinahópsins: „Drottinn, hve oft á ég að fyrirgefa bróður mínum ef hann misgerir við mig?“ Pétur kemur sjálfur með uppástungu. Honum líst vel á að fyrirgefa einhverjum sjö sinnum. Svar Jesú er: „Ekki segi ég þér sjö sinnum heldur sjötíu sinnum sjö.“ Síðan segir hann sögu sem útskýrir fyrirgefninguna betur. 2. Konungur ákveður að þjónarnir eigi að standa í skilum og einn er færður fyrir hann sem skuldar 10.000 talentur. Hann getur ekki borgað og þess vegna skipar konungur að hann skuli seldur ásamt fjölskyldu sinni upp í greiðslu á skuldinni. 3. Þjónninn fellur honum til fóta og grátbiður hann um að gefa sér meiri tíma til að safna peningum til að greiða skuldina. Þá gerist hið óvænta. Konungurinn kennir í brjósti um hann og gefur honum upp skuldina. Getið þið ímyndað ykkur fögnuðinn. Að fá allt strikað út. Skuldin er ekki lengur til. 4. Þjónninn hittir einn samþjón sinn sem skuldaði honum 100 denara. Hann ræðst að honum með kverkataki og skipar honum að borga skuldina. Samþjónn hans bregst við á líkan hátt og hann hafði gert frammi fyrir konungnum og biður hann um að gefa sér frest. En þjónninn er greinilega fljótur að gleyma góðvild konungsins því hann krefst þess að skuldaranum sé varpað í fangelsi þar til skuldin er greidd. 5. Þeir sem verða vitni að atburðinum finnst sorglegt að horfa upp á hegðun þjónsins og láta konunginn vita. Konungur bregst skjótt við og lætur færa þjóninn aftur fyrir sig og segir: „Illi þjónn, alla þessa skuld gaf ég þér upp, af því að þú baðst mig. Bar þér þá ekki einnig að miskunna samþjóni þínum, eins og ég miskunnaði þér?“ Konungurinn reiddist og afhenti þjóninn böðlunum.
Söngvar 88 50 131 42 82 123 55
Kæri faðir, kenndu mér að biðja Guð þú gætir mín æ Þú ert þýðingarmikil(l) Fús ég, Jesús, fylgi þér Jesús mönnum öllum ann Við setjumst hér í hringinn Hér gengur góður hirðir
6. Sögunni fylgir síðan eftirfarandi áminning: „Þannig mun og faðir minn himneskur gera við yður, nema þér fyrirgefið af hjarta hvert öðru.“ 12
Fræðsluefni KFUK og KFUM haustið 2009
Skýringar Sjötíu sinnum sjö Þessa tölu má ekki skilja bókstaflega! Það á ekki að fyrirgefa 490 sinnum heldur vísar talan til þess að fyrirgefningin á að vera án enda. Það á ekki að halda bókhald yfir fyrirgefninguna. Hægt er að finna í bókmenntum Rabbína tillögu um að fyrirgefa eigi þrisvar sinnum. Þess vegna má segja að Pétur hafi verið rausnarlegur þegar hann nefndi sjö skipti. Þegar Jesús segir sjötíu sinnum sjö má finna tengsl við sögu úr Gamla testamentinu. Þar segir Lamek: „Verði Kaíns hefnt sjö sinnum, þá skal Lameks hefnt verða sjö og sjötíu sinnum!“ (1Mós 4.24). En þar er verið að tala um hefnd, Jesús snýr þessu við og orðin eiga við fyrirgefninguna. Talentur og denarar Talentur áttu frekar við þyngd en myntir. Tíu þúsund talentur er gríðarlega stór upphæð. Ein talenta var afar verðmæt og jafnaðist á við 6000 denara, en denari var daglaun verkamanns. Þannig að tíu þúsund talentur gætu verið laun verkamanns í 164.000 - 193.000 ár, eða 375 tonn af peningum. Aðalatriðið er að upphæðin er svo stór að ekki var nokkur leið að greiða skuldina. Denararnir 100 eru því smáræði samanborið við talenturnar 10.000. Að kenna í brjósti um Jesús kennir í brjósti um mannfjöldann. Sömu sögu er að segja af konungnum í dæmisögunni, hann kennir í brjósti um skulduga þjóninn. Það er eitthvað í fari þjónsins sem framkallar meðaumkun í brjósti konungsins. Það er þessi meðaumkun sem kallar Jesú til starfa. Hann lítur á mannfjöldann líkt og sauði sem engan hirði hafa. Tenging við Faðir vor Fyrirgef oss vorar skuldir svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum. Sagan gæti verið útskýring á þessum hluta bænarinnar. Við eigum að fyrirgefa vegna þess að við stöndum í þökk við Guð sem hefur fyrirgefið okkur í Jesú Kristi. Það sem kemur á óvart í sögunni er að konungurinn kennir í brjósti um þjóninn og gefur upp skuldina. Þetta er það stórkostlega við náð Guðs. Þess vegna eigum við í þakklæti að fyrirgefa samþjónum okkar. Við getum glaðst yfir því á hverjum degi að okkur hefur verið gefin upp skuld sem við hefðum aldrei getað greitt.
Leslisti fyrir leiðtoga Matt 5.44 Matt 6.12 1Jóh 4.19 Jóh 3.16 Jóh 15.12 Lúk 6.36 1Mós 4.24
Elskið óvini yðar Fyrirgef oss vorar skuldir Við elskum, því að Guð elskaði okkur að fyrra bragði. Því svo elskaði Guð heiminn Þetta er mitt boðorð Verið miskunnsöm, eins og faðir yðar er miskunnsamur. Tenging við Gamla testamentið
13
Sögurnar sem Jesús sagði
Hugmyndabanki
Skuldugi þjónninn
Hlutbundin kennsla Ef valið er að nota stund 85 úr Stund í snatri sem aðkomu þá þarf að gæta þess að gera áheyrendur ekki of pirraða þannig að það komi niður á boðskap hugleiðingarinnar.
Hljóðsaga Undirbúningur: Reynið að finna óhefðbundna og hefðbundna hljóðgjafa (e.t.v. fá lánuð skólahljóðfæri í skólum). Ljósritið eintök af sögunni hér að neðan fyrir börnin og merkið með yfirstrikunarpenna fyrir hvert barn hvaða línur það á að lesa (það þarf ekki alltaf að vera sama barnið sem les fyrir konunginn o.s.frv.). Þeir sem ekki lesa texta geta verið í „hljómsveitinni“ eða „kórnum“. Reynið að virkja öll börnin í að taka þátt. Í textanum í sögunni eru nokkur orð sem koma fyrir oftar en einu sinni og þá á alltaf að heyrast sama hljóðið. Endilega breytið ef ykkur dettur eitthvað annað í hug. PENINGAR (hringl í peningum - setjið smápeninga í nokkrar dollur sem eru svo hristar). KONUNGUR (kór settur saman af nokkrum börnum hrópa „hann lengi lifi“). FANGELSI (hurðaskellir) . VERÐIR (nokkrir krakkar stappa niður fótum). FYRIRGEFNING (strokið yfir strengi á gítar eða nokkrar nótur leiknar á píanói eða ...). Einnig þarf að heyrast fótatak á einum stað og gráthljóð á einum.
Fræðslustund nr. 85: Sjö sinnum sjötíu: Það sem þarf: Nokkrar auðar glærur, glærupenna og myndvarpa (þetta má líka gera með skjávarpa og word skjali). Settu auða glæru á myndvarpann og byrjaðu að skrifa textann á þekktum söng. Láttu eins og þú hafir ekki haft tíma til að undirbúa þig fyrir stundina. Gerðu fljótfærnismistök, hentu glærunni til hliðar og byrjaðu á nýrri. Gerðu fimm glærur á sama hátt í snatri. Sýndu óþolinmæði þína með alls konar hljóðum og athugasemdum á meðan á þessu stendur. Haltu þessu áfram þangað til að hópurinn verður örlítið eða mikið pirraður og óþolinmóður. Biddu þá einhvern um að lesa fyrir þig ritningartextann. Haltu áfram á meðan á lestrinum stendur, hættu svo um leið og lestrinum lýkur. Er einhver orðinn óþolinmóð(ur)? Hvað sagði Jesús að við ættum að fyrirgefa hvert öðru oft? Við verðum oft önug og pirruð við hvort annað, en eins og Guð hefur fyrirgefið okkur svo ber okkur að fyrirgefa náunganum. Hvort sem syndirnar eru stórar eða smáar. Settu nú tilbúna glæru með söngnum, sem þú hefur verið að reyna að skrifa, á myndvarpann og syngið saman. (Söngurinn gæti t.d. verið Ver mér nær, ó, Guð). Hlutbundin kennsla 2 Ósýnilegt blek Við þessa frásögn er t.d. hægt að nota blek sem hverfur. Þannig blek er hægt að kaupa í flestum leikfangabúðum. Klipptu úr lérefti hjarta eða eitthvað annað sem gæti táknað samvisku mannsins. Sprautaðu síðan ósýnilega blekinu á hjartað og láttu það tákna syndina, ósættið, eða einhvern atburð sem krefst fyrirgefningar. Á meðan þú ert að tala um fyrirgefninguna hverfur blekið. Leggðu áherslu á hvað Jesús hefur gert fyrir okkur. Annað sem þú getur gert með blekið er að láta það tákna syndina í lífi okkar. Settu dálitla slettu í lófann þinn og spenntu síðan greipar og talaðu um á hvern hátt við getum komið með allt til Guðs, líka það sem við höfum gert rangt. Þegar þú ert búinn að biðja hann fyrirgefningar, þá opnar þú lófana og þá er blekið horfið. Talaðu um að fyrirgefning Guðs sé algjör. Hlutbundin kennsla 3 Límbönd Það er hægt að nota mismunandi tegundir af límbandi. Talaðu um á hvern hátt við notum límband, t.d. til að líma blöð, myndir og annað sem hefur rifnað. Talaðu um á hvern hátt kærleikurinn sé eins og límband. Ef við sýnum kærleika hylur hann misgjörðir eins og límbandið og lagar samband okkar við Guð, vini okkar og ættingja. (Úr boðunarefninu Samræður um rétt og rangt sem KFUM og KFUK gaf út vorið 2003)
14
Sögumaður: „Einu sinni var konungur (kór: „Hann lengi lifi“) sem bjó í höll með mörgum vörðum (stappkórinn stappar) og þjónum. Einn þjónanna skuldaði konungnum (kór: „Hann lengi lifi“) mikla peninga (peningadollur hristar) og átti að borga peningana (peningahristur) til baka eins fljótt og hann gæti. En þjónninn átti ekki peninga (peningahristur) og gat ekki borgað. Konungurinn (kór: „Hann lengi lifi“) sagði“: Konungur: „Hendið honum í fangelsi“ (Hurðaskellir). Sögumaður: „Verðirnir (stappkórinn stappar) komu og ætluðu að taka þjóninn en hann lagðist á hnén grátandi (kór grætur) og sagði“: Þjónninn: „Herra, fyrirgefðu mér (fyrirgefningarhljóð) ég á enga peninga núna (peningahristur) en ég skal borga þér eins fljótt og ég get. Ekki setja mig í fangelsi“ (hurðaskellur). Sögumaður: „Konungurinn (kór: „Hann lengi lifi“) vorkenndi þjóninum og sagði“: Konungur: „Þú þarft ekki að fara í fangelsi (hurðaskellur) og þú þarft ekki að borga mér peningana (peningahristur). Ég fyrirgef þér (fyrirgefningarhljóð) þú skuldar mér ekkert“. Sögumaður: „Þjóninn gekk heim til sín glaður í bragði (fótatak). Á leiðinni hitti hann félaga sinn sem skuldaði honum einhvern smá pening (peningahristur), hann sagði við hann reiður“: Þjónninn: „Borgaðu mér peningana (peningahristur) sem þú skuldar mér annars kalla ég á verðina (stappkórinn stappar) og læt setja þig í fangelsi (hurðaskellur)“. Félaginn: „Gef mér smá tíma, ég borga þér peningana (peningahristur) ekki setja mig í fangelsi“(hurðaskellur). Sögumaður: „En þjónninn hlustaði ekki á félaga sinn og lét varpa honum í fangelsi (hurðaskellur). Konungurinn (kór: „Hann lengi lifi“) heyrði af þessu og sendi verði sína eftir þjóninum (stappkór stappar). Hann sagði við hann: Konungur: „Ég fyrirgaf þér (fyrirgefningarhljóð). Hvers vegna gastu ekki fyrirgefið félaga þínum? (fyrirgefningahljóð) Vegna þess að þú gast ekki fyrirgefið honum (fyrirgefningarhljóð) sendi ég þig í fangelsi“ (hurðaskellur). Sögumaður: „Jesús segir okkur að fyrirgefa hvert öðru og þá muni Guð fyrirgefa okkur“ (fyrirgefningarhljóð). (Bylgja Dís Gunnarsdóttir)
Fræðsluefni KFUK og KFUM haustið 2009
Frásaga: Sjötíu x sjö Eiríkur og Finnur voru bræður. Finnur var nýlega orðinn níu ára, en Eiríkur var tveimur árum yngri. Eitt af því sem Finnur fékk á afmælisdaginn sinn var stór og falleg blaðra. Dag nokkurn fékk Eiríkur hana lánaða, en þegar hann hafði leikið sér með hana dálitla stund vildi Finnur fá hana aftur. En Eiríkur vildi leika sér lengur með hana, og þá - já, þá var ekki að sökum að spyrja. Bræðurnir byrjuðu að slást af fullri hörku. Eiríkur sá að blaðran lá á gólfi nu og gerði sér lítið fyrir og sparkaði af alefl i í hana. Hann hafði hugsað sér að sparka henni í burtu, en í stað þess sprakk hún með háum hvelli. Slagsmálin hættu. Eiríkur var greinilega miður sín. Hann hafði ekki ætlað sér að sprengja blöðruna. Honum lá við gráti þegar hann sagði við Finn: „Finnur, þú mátt ekki verða reiður út í mig. Ég ætlaði ekki að gera þetta. Viltu fyrirgefa mér?“ Finnur stóð fyrst stjarfur, en þegar hann sá hve aumlega Eiríkur bar sig, svaraði hann um hæl: „Já, ætli það ekki. Ég skal fyrirgefa þér í þetta sinn, en þú getur verið viss um að ég muni launa þér þetta seinna.“ Eiríkur fór út og Finnur byrjaði heimalærdóminn. Mamma var í eldhúsinu að strauja. Hún hafði heyrt hvað þeim bræðrum hafði farið á milli, því dyrnar voru opnar í hálfa gátt. Henni þótti sárt að heyra drengina sína rífast, en verst þótti henni að Finnur skyldi ekki vilja fyrirgefa Eiríki heilshugar. „Finnur!“, kallaði mamma hans úr eldhúsinu, „geturðu sagt mér hvað 70 x 7 eru mikið?“ „Ég verð ekki lengi að reikna það“, sagði Finnur, „bíddu aðeins, - fjögurhundruð og níutíu. - En hvers vegna ertu að spyrja að því, mamma?“ „Æ, mér datt bara dálítið í hug“, svaraði móðir hans. Finnur sat hugsi. 70 x 7, 70 x 7? Hann hafði fyrir stuttu verið að reikna þetta sama dæmi. Jú, nú mundi hann. Það var á fundi í kirkjunni fyrir nokkrum vikum síðan. Þar var verið að tala um Pétur sem spurði Jesú hversu oft hann ætti að fyrirgefa þeim sem gerði eitthvað rangt gagnvart honum. Nú skyldi hann hvers vegna móðir hans bað hann um að reikna hvað 70 x 7 væri mikið. Hann vissi að hún vildi að hann fyrirgæfi Eiríki. En það var hægara sagt en gert. Leifar af sprunginni blöðru lágu á gólfi nu. Finnur hafði aldrei átt svo góða blöðru áður. Það var líka enginn smá hvellur þegar hún sprakk! - 70 x 7. Leiðtoginn í kirkjunni hafði sagt að það merkti að við ættum að fyrirgefa öðrum af öllu hjarta. Finnur reis á fætur og fór út. Hann kom hvergi auga á Eirík. Kannski hann sé í „króknum“?, hugsaði Finnur. „Krókurinn“ var leynistaður þeirra bræðra. Þar var alltaf hálfdimmt, en engu að síður ágætt að vera, einkum í rigningu. Þar áttu bræðurnir sér líka ýmis leyndarmál. Ágiskun Finns reyndist rétt. Innst í „króknum“ sat Eiríkur. Hann hnipraði sig saman þegar hann sá Finn. Nú var sennilega komið að skuldadögum. - Og það var rétt. En reyndar á allt annan hátt en Eiríkur óttaðist. Stundarfjórðungi síðar sá móðir drengjanna Finn og Eirík vera að leika sér úti í garði. Þeir voru báðir glaðir og ánægðir. Þegar hún kallaði á þá í kvöldmat, kallaði Finnur á móti: „Nú skil ég hvers vegna þú baðst mig að reikna út hvað 70 x 7 væri mikið, og nú er ég búinn að fyrirgefa Finni fjögurhundruð og níutíu sinnum!“ (Mya Hallesby)
15
Sögurnar sem Jesús sagði
4
Tyndur saudur
- Umhyggja góða hirðisins Matt 18.12-14
m ð eru s: Vi r e ð v is pu Minn uðs, skö ra G óð g ð í l i t sm sú e J i t í Kris (Ef 2.10) . verka
Boðskapur: Guð ber umhyggju fyrir okkur. Aðkoma: Tilvalið er að nota leikinn úr hugmyndabankanum sem aðkomu. Einnig væri hægt að útskýra hlutverk fjárhirða og hvernig þeir báru umhyggju fyrir sauðum sínum.
Hugleiðing 1. Þegar Jesús gekk um hér á jörðinni og boðaði fagnaðarerindið um Guðs ríki voru margir sem höfðu starf af því að gæta kinda. Við höfum áður heyrt af því að Jesús sagði sögu af sáðmanni sem var líka þekkt starf á þessum tíma. Jesús vildi að þeir sem hlýddu á sig skildu það sem hann var að segja. 2. Eitt sinn sagði hann sögu af manni sem gætti hundrað sauða en einn þeirra villtist frá. Hvað gerði þá fjárhirðirinn? Hugsaði hann kannski: „Þetta er eingöngu einn, ég á enn níutíu og níu eftir?“ Nei, hann skilur níutíu og níu sauði eftir og fer og leitar að þessum eina sem er týndur. Hann hættir ekki fyrr en hann finnur hann og kemur fagnandi til baka með sauðinn á herðum sér. 3. Sagan á að sýna okkur að Guð ber umhyggju fyrir okkur. Honum þykir hvert og eitt okkar mikilvægt. Hann gleymir okkur aldrei og er alltaf að hugsa til okkar og vill eiga samfélag við okkur. Við getum líka lært af þessu að við eigum að hugsa vel hvort um annað og sýna hvert öðru umhyggju.
16
Leslisti fyrir leiðtoga
Söngvar
Sálm 23 Jóh 10.1-18 Jóh 17.20-23 Jes 40.11 Jes 53.6 Esk 34 Ef 2.11-18
10 50 13 55 113 16 106
Drottinn er minn hirðir Jesús er góði hirðirinn Úr fyrirbæn Jesú Eins og hirðir Vér fórum allir villir vegar sem sauðir Hjörð Guðs og hirðar Eitt í Kristi
Bæn sendu beðna Guð þú gætir mín æ Drottinn er minn hirðir Hér gengur góður hirðir Stjörnur og sól Ef ég væri fiðrildi Ótal, óteljandi fuglar
Fræðsluefni KFUK og KFUM haustið 2009
Skýringar Hundrað sauðir Að eiga hundrað sauði var talið gott. Það að eiga þrjú hundruð sauði var talið óvenju mikið. Að eiga hundrað var yfi r meðallagi ef miðað er við gamlar heimildir. Hirðar töldu alltaf sauði sína reglulega til að koma í veg fyrir að nokkur þeirra týndist. Týndur sauður Ef sauður týnist frá hjörðinni verður hann máttvana af hræðslu. Hann leggst fyrir og neitar að hreyfa sig. Það er ástæðan fyrir því að fjárhirðirinn tekur hann upp og ber hann til baka á herðum sér. Skildi hann níutíu og níu eftir? Að öllum líkindum hefur fjárhirðirinn skilið sauðina eftir hjá öðrum fjárhirði eða farið með þá aftur í þorpið áður en hann leitaði að týnda sauðnum. Fjárhirðar Sumir litu niður á fjárhirða þar sem þetta hefur samsvarað láglaunastétt okkar daga. En ekki má gleyma því að starfsgreinin átti sér merka sögu. Davíð konungur var fjárhirðir og Guði er oft líkt við hirði lýðs síns í Gamla testamentinu. 23. Davíðssálmur fjallar um þetta starf og þar er Guði líkt við góðan hirði.
Hugmyndabanki Jarm! Hópurinn (kindurnar) sest niður og allir snúa í sömu átt. Sá sem „er hann“ (fjárhirðirinn) kemur fremst og snýr baki í kindurnar. Foringinn gengur síðan á milli kindanna og klappar einhverri á höfuðið, að því loknu gengur hann út úr hópnum og þá á kindin að jarma. Um leið og fjárhirðirinn heyrir hljóðið má hann snúa sér við og reyna að giska á hver jarmaði (hann má aðeins giska einu sinni). Ef giskað er rétt skiptast þeir á hlutverkum. Ef það reynist erfi tt að fi nna þann sem jarmaði má hafa tvær eða þrjár kindur sem jarma í einu og þá aukast líkurnar á að giskað sé á rétt. Skiptið um fjárhirði eftir þrjár umferðir. (Leikur 57 úr Theme Games 2 eftir Lesley Pinchbeck) Feluleikir Hvernig væri að fara í feluleik eða eina krónu eða jafnvel að fela hlut? Það er alltaf skemmtilegt og það tengist sögunni um týnda sauðinn.
17
Sögurnar sem Jesús sagði
5
i nn Fjársjódur 1oi
- Hvað er mikilvægast? Matt 6.19-21
Boðskapur: Í augum Guðs erum við mikilvæg hvert og eitt . Aðkoma: Tilvalið er að nota leikinn úr hugmyndabankanum. Hægt er að ræða hann fyrst og hafa síðan hugleiðinguna í framhaldi af umræðunum.
s: uðs, isver Minn m smíð G ú til ru es Við e í Kristi J .10) ð u f 2 p E ö sk ka. ( a ver r ð ó g
Hugleiðing 1. Hvað skiptir mestu máli í lífi nu? Jesús útskýrði það með því að tala um fjársjóð. Hann vildi nefnilega að þau sem fylgdu honum söfnuðu sér fjársjóði. Hvernig fjársjóði? 2. Jesús hvatti okkur til að safna himneskum fjársjóðum frekar en jarðneskum. Hvað átti hann við með því? Allt sem við söfnum okkur hér á jörðu getur orðið tjóni eða þjófnaði að bráð en himneskir fjársjóðir eyðast aldrei. Það er ekki hægt að stela þeim frá okkur. Þeir verða heldur ekki að ryði eins og sumir jarðneskir fjársjóðir. 3. Hvað skiptir okkur raunverulega máli? Jesús sagði að þar sem hjarta okkar væri þar væri einnig fjársjóður okkar. Hann vildi að ekkert yrði okkur mikilvægara en að fylgja sér og hjálpa til við að fl eiri myndu tilheyra honum. Ef við verðum of upptekin af einhverju jarðnesku þá getur það farið að stjórna okkur. Getið þið nefnt dæmi um eitthvað slíkt? Jesús vildi að hinir himnesku fjársjóðir væru keppikefl i okkar.
Söngvar 88 50 131 42 82 123 55
18
Kæri faðir, kenndu mér að biðja Guð þú gætir mín æ Þú ert þýðingarmikil(l) Fús ég, Jesús, fylgi þér Jesús mönnum öllum ann Við setjumst hér í hringinn Hér gengur góður hirðir
Fræðsluefni KFUK og KFUM haustið 2009
Leslisti fyrir leiðtoga
Skýringar
1Kor 9.24-27 Matt 6.11 Matt 6.33 Jak 5.2-3 Kól 3.1-2
Má maður þá ekki eiga neitt?
Óforgengilegur sigursveigur Vort daglegt brauð Leitið fyrst ríkis hans og réttlætis Jakob var sammála bróður sínum Páll líka
Nei, því er ekki þannig farið. Jesús er ekki að segja að við megum ekki eiga neitt. En engu að síður leggur hann mikla áherslu á að eignir okkar stjórni okkur ekki. Þær mega ekki verða mikilvægari en trúin. Eins er mikilvægt að huga að því að við eigum að nota eignir okkar í þágu ríkis Guðs. Það er einnig hluti af því að safna sér frekar himneskum fjársjóðum. Peningar og eignir eru forgengilegir hlutir en trúin á Guð er óforgengileg.
Hugmyndabanki Dýrmætur fjársjóður Undirbúningur: Finndu til um 20 myndir úr blöðum, tímaritum eða innkaupalistum af hlutum sem börn vilja gjarnan eiga. Hafðu líka tvær eða þrjár myndir sem geta táknað vináttu eða fjölskyldu og svo mynd af orðinu FRELSI (hugsanlega sem þú skrifar sjálf/ur). Þú getur líka haft alvöru hluti og myndir í bland. Gaman væri ef þú gætir tekið hlutina/myndirnar upp úr einhvers konar kistu eða fallega skreyttum kassa sem gefur til kynna að þetta sé nokkurs konar fjársjóður. Sýndu börnunum hlutina/myndirnar og ræðið um þær. Segið þeim svo að við ætlum að ímynda okkur að við værum föst á eyðieyju og við mættum aðeins velja þrjá af þessum hlutum til að hafa hjá okkur, hvað myndu þau velja? Haltu áfram að sýna þeim hlutina og leyfðu þeim að segja hvað þau vildu hafa og hvers vegna. Þegar allir hafa fengið tækifæri til að tjá sig, farðu þá í gegnum hlutina aftur og spurðu hvers er hægt að vera án og hvers ekki? Til umhugsunar: Flestir eru tilbúnir að vera án langflestra hluta en ekki án vina og frelsis. Hvernig sýnum við í daglegu lífi okkar hvað er mikilvægast í lífi okkar? Hver er raunverulegur fjársjóður okkar og er hjarta okkar þar? (Leikur 71 úr Theme games 2 eftir Lesley Pinchbeck )
19
Sögurnar sem Jesús sagði
6
Talenturnar
- Ávöxtun hæfileika Matt 25.14-30
Boðskapur: Lífið er Guðs gjöf og við eigum að nota hæfileika okkar til dýrðar Guði og öðru fólki til blessunar.
um ið er s: V uð r e v is öp Minn uðs, sk ðra G gó ð l í i út sm i Jes 10) t s i r íK f 2. a. (E verk
Aðkoma: Hægt er að útfæra söguna sem leikþátt og tala síðan út frá henni. Ef sá kostur er valinn að hafa hæfileikakeppni á fundinum þá verða tengslin augljós. Einnig er sniðugur leikur í hugmyndabanka sem nota má sem skemmtiefni á fundinum.
Hugleiðing
Leslisti fyrir leiðtoga
1. Húsbóndinn kallar saman þjóna sína og felur þeim eigur sínar. Einn fær fimm talentur, annar tvær og sá þriðji eina. Sá sem fær fimm talentur, ávaxtar fé sitt og fær aðrar fimm. Sá sem fékk tvær ávaxtar fé sitt og fær tvær til viðbótar. Sá þriðji ákvað að grafa talentuna í jörð.
Ef 2.10 Matt 5.13-16 2Kor 9.8 Matt 25.23 Okv 9.9
2. Húsbóndinn kemur til baka og biður þjónana að gera skil. Hann fagnar báðum sem ávöxtuðu fé sitt og segir við þá: „Gott, þú góði og trúi þjónn. Yfir litlu varstu trúr, yfir mikið mun ég setja þig. Gakk inn í fögnuð herra þíns.“ 3. Sá sem faldi talentuna segir húsbónda sínum að hann hafi óttast hann og því ákveðið að grafa talentuna. Síðan afhendir hann honum talentuna aftur. Húsbóndinn ávítar hann og bendir honum á þann augljósa kost að hann hefði átt að ávaxta féð í banka á meðan hann var í burtu. Þar næst skipar hann þjónum sínum að taka af honum talentuna og færa þeim sem hefur tíu. Að lokum er þjónninn rekinn út í ystu myrkur.
Söngvar 10 50 113 13 106 16 20
Bæn sendu beðna Guð þú gætir mín æ Stjörnur og sól Drottinn er minn hirðir Ótal, óteljandi fuglar Ef ég væri fiðrildi
Við erum smíð Guðs Þér eruð salt jarðar Guð er þess megnugur að veita ykkur ríkulega allar góðar gjafir Yfir litlu varstu trúr, yfir mikið mun ég setja þig Gefðu hinum vitra, fræddu þann réttláta
Fræðsluefni KFUK og KFUM haustið 2009
Skýringar Talentur Talentur voru ekki mynt heldur vísaði nafnið frekar til þyngdar. Talentur voru líkt og pokar af silfri. Verðgildi þeirra var misjafnt en alltaf mikið. Oft er miðað við 6000 denara, en denari var daglaun verkamanns. Hugsanlega er þá ein talenta laun fyrir næstum því 20 ár. Af þessu er hægt að sjá að upphæðirnar í sögunni eru háar. Enska orðið talent fyrir hæfileika á rætur sínar í þessari sögu. Sagan er því oft túlkuð þannig að pokarnir standi fyrir gjafirnar og hæfileikana sem okkur eru gefin. Ráðsmennska og ábyrgð Munurinn á því hvernig síðasti þjónninn bregst við og þeir fyrri er vendipunkturinn í sögunni. Að grafa pening í jörð var eitthvað sem þekktist á þessum tímum þannig að áheyrendum sögunnar ætti ekki að hafa komið hegðun þjónsins á óvart. En húsbóndinn bendir á þann kost að leggja féð í banka. Þjónninn var að svíkjast um og viðhorf hans var rangt. Hann vildi ekki taka áhættu, hann ákvað að gera ekki neitt. Hann sýndi því ábyrgðarleysi og reyndist ekki trúr köllun sinni. Kristið fólk á að fara vel með allt sem því er trúað fyrir. Það getur verið mismikið sem fólki er falið en alltaf er jafn mikilvægt að fara vel með gjafir sínar og hæfileika. Leggið áherslu á að rækta það sem þau hafa heyrt á fundum. Hvernig geta þau látið það vaxa og dafna? Tengsl við söguna um fjársjóðinn og perluna Einn af þjónunum gróf sínar talentur í jörð. Eins og fram kom í skýringum við söguna um fjársjóðinn og perluna var þetta þekkt leið ef maður vildi vernda eigur sínar.
Hugmyndabanki Leikmunir Til þess að gera söguna lifandi fyrir áheyrendum er tilvalið að fá einhverja til að leika þjónana þrjá. Talenturnar geta verið pokar fullir af „silfri“. Þjónarnir koma inn til að taka á móti talentunum og síðan eru þeir kallaðir inn aftur til að gera skil. Hægt er að nota textann úr Biblíunni. Skemmtilegt fundarefni Hvernig væri að hafa hæfileikakeppni/sýningu á þessum fundi, þá fá allir að njóta sín og það tengist efni fundarins svo vel. Hægt væri að nota sem fyrirmynd þekktar hæfileikakeppnir. Leiklist Í bókinni Lifandi leikur eftir Hrein S. Hákonarson (er til á Holtavegi) er leikrit tengt talentunum. Hvernig væri að leika eða leiklesa það? Gefa og þiggja Áhöld: Ílát fyrir alla - hafið ílátin mismunandi af stærð og gerð t.d. vatnskönnur, fötur, skyrdósir, eggjabikara, potta, skálar, krukkur, bollar, mjólkurkönnur, pela, tómar mjólkurfernur o.s.frv. Hafið eitt stórt ílát fullt af vatni (stóra vatnskönnu eða pott) og merkið utan á ílátið hvert vatnið nær (t.d. með túss eða límbandi). Fyrri umferð Allir þátttakendur setjist í hring. Eitt barnið fær ílátið með vatninu og tómu ílátin skiptast á milli hinna. Foringinn útskýrir leikinn og þegar hann hefur sagt „einn, tveir og NÚ“ byrjar barnið með vatnsílátið að hella í ílát þess sem
er honum á vinstri hönd og sá hellir í ílát þess sem er honum á vinstri hönd og svo koll af kolli. Vandinn er að ílátin eru misstór og því þarf að hella misoft þar til allt vatnið hefur verið selflutt. Tilgangur leiksins er að láta vatnið ganga allan hringinn þar til það kemur aftur í ílátið sem það var í og þá verður athugað hversu vel gekk að láta ekkert vatn fara til spillis með því að athuga hvort það nái ennþá upp að merkingunni. Leggið áherslu á einbeitingu og samvinnu. Seinni umferð Látið alla skipta um ílát og nú skulum við sjá hvort við getum gert þetta að keppnisgrein! Skiptið í tvö lið (eða fleiri ef þið eruð með stóran hóp) og hvort lið myndar eina röð í þetta sinn. Í upphafi þarf að vera nákvæmlega jafnmikð vatn í ílátunum hjá báðum liðum (t.d. 2 lítrar). Skemmtilegast er ef ílátin á endanum eru frekar lítil því sá sem er á endanum þarf að hlaupa með vatnið til þess sem er fremst í röðinni og það getur verið vandasamt verk að fara margar ferðir án þess að sulla niður. Það lið vinnur sem getur flutt til baka sem mest af vatninu á sem stystum tíma. Til umhugsunar: Ræðið um að gefa og þiggja. Öll ílátin voru mismunandi en öll sinntu sínu hlutverki. Eins erum við öll misjöfn og getum gefið mismikið af tíma okkar, peningum, vináttu, hæfileikum o.fl. Þó að við séum misjöfn og höfum mismikið að gefa skiptir mestu máli þegar upp er staðið að gefa það sem maður getur. (Leikur 42 úr Theme Games 2 eftir Lesley Pinchbeck)
21
Sögurnar sem Jesús sagði
7
Miskunnsami Samverjinn - Hver er náungi okkar? Lúk 10.25-37
þú kalt ka s lu s l E rs: f öl isve i nn, a Minn , Guð þi sálu þinn tin ri ú t l l o Þ a r . , D u m þínu a þín hjart m huga ga þinn n llu og ö lska náu ig. (Matt e þ t l n a a sk jálf og s s n i e ) 7,39 22.3
Boðskapur: Jesús vill að við reynumst öllu fólki sannir náungar. Aðkoma: Hægt er að nota einhvern af leikjunum sem nefndir eru hér að neðan. Einnig fylgja tveir nýir leikþættir sem hjálpa til við að færa söguna til nútímans.
Hugleiðing 1. Það er mikilvægt að börnin viti að Jesús var að svara spurningunni sem lögvitringurinn bar fram: „Hver er þá náungi minn?“ Jesús hafði sagt honum að til að öðlast eilíft líf þá þyrfti hann að elska Guð og náungann eins og sjálfan sig. Í framhaldi af því vildi hann vita hver væri náungi hans. Sagan er sögð til að útskýra hver sé náungi manns. 2. Maður nokkur fór frá Jerúsalem ofan til Jeríkó. Maðurinn fær harkalega meðferð hjá ræningjunum og liggur hjálparvana eftir. 3. Bæði presturinn og levítinn sveigja framhjá frekar en að hjálpa honum. Síðan kemur Samverji sem kennir í brjósti um manninn og hjálpar honum. 4. Hann sveigir ekki framhjá heldur fer til hans, gerir að sárum hans, flytur hann á gistihús, kemur honum í öruggar hendur og greiðir fyrir hann og ábyrgist. 5. Jesús spyr í framhaldinu hver af þeim þremur reyndist manninum náungi. Þegar lögvitringurinn hefur svarað segir Jesú honum að breyta eins og Samverjinn.
22
Söngvar 88 50 131 42 82 123
Kæri faðir, kenndu mér að biðja Guð þú gætir mín æ Þú ert þýðingarmikil(l) Fús ég, Jesús, fylgi þér Jesús mönnum öllum ann Við setjumst hér í hringinn
Fræðsluefni KFUK og KFUM haustið 2009
Hugmyndabanki Leikur Þekkirðu náungann? Tvö börn eru valin til að taka þátt hverju sinni. Látið þau snúa bakinu hvort í annað og segðu áheyrendum að þú ætlir að komast að því hve vel þau þekki hvort annað. Það er tilvalið að velja vini en þó svo að þátttakendur þekkist ekki vel þá er engu að síður gaman að leiknum. Leikurinn gengur þannig fyrir sig að stjórnandinn spyr annað barnið í einu spurninga sem því ber að svara með já eða nei. Barnið svarar ekki munnlega heldur gefur já til kynna með uppréttum þumli en nei er táknað með því að láta þumalinn vísa niður. Hitt barnið á einnig að gefa sitt svar með þumlinum, eftir því sem það heldur að það fyrra svari. Eins og áður segir verða þau að snúa baki hvort í annað og ekki er leyfilegt að kíkja. Stig eru veitt ef börnin veita sama svar. Sem dæmi um spurningar má nefna: Ertu með blá augu? Ertu í einhverju rauðu? Finnst þér kjötbollur góðar? Búið til spurningar jafnóðum og takið mið af þátttakendum hverju sinni. Látið leikinn ganga hratt fyrir sig. Skiptist á að spyrja þátttakendur þriggja til fjögurra spurninga í einu og leyfið síðan fleirum að spreyta sig. Eftir leikinn má spyrja þátttakendur hvort það var erfitt að hugsa um einhvern annan allan tímann. Oft þykir okkur erfitt að hugsa um aðra og sýna þeim væntumþykju. Jesús sagði að við ættum að elska náunga okkar. (Ef valið er að nota þennan leik sem aðkomu þá er fínt að segja í framhaldinu að eitt sinn hafi maður spurt Jesú: „Hver er náungi minn?“) (Leikur nr. 55 úr bókinni Theme Games 2 eftir Lesley Pinchbeck) Leikur Hver er þar? Áhöld: Trefill eða eitthvað til að binda fyrir augun. Allir sitja í hring. Bundið er fyrir augun á sjálfboðaliða (sem situr einnig í hringnum), síðan er kallað: „Skiptið!“ Þá eiga allir að færa sig til og velja sér annan stað í hringnum. Þegar allir eru sestir spyr sjálfboðaliðinn: Hver er þar? og bendir annað hvort til vinstri eða hægri. Sá sem bent er á gefur frá sér hljóð, kallar: Hjálp! tvisvar sinnum. Sjálfboðaliðinn reynir að þekkja hljóðið og giska á hver sé við hliðina á honum. Ef honum tekst ekki að giska rétt þá snýr hann sér að þeim er situr hinum megin við hann og endurtekur leikinn. Ef sjálboðaliðanum tekst ekki að giska rétt í hvorugt skiptið þá er aftur kallað: „Skiptið!“ og leikurinn heldur áfram. Ef giskað er rétt þá eru höfð hlutverkaskipti, bundið er fyrir augun á þeim sem komið var upp um og hinn tekur sæti hans í hópnum. Ef sjálfboðaliðanum tekst ekki að giska rétt í tveimur umferðum þá er tilvalið að skipta um hlutverk. Látið leikinn ganga hratt fyrir sig. Umræða: „Hversu auðvelt var að þekkja náunga sinn?“ Hugsanlega var auðveldara að þekkja suma en aðra. „Hver er náungi?“ „Er það einhver sem býr í sömu götu og við?“ „Einhver sem er í sama bekk og við?“ „Hvað kenndi Jesús um náunga?“ (Leikur nr. 79 úr bókinni Theme games 2 eftir Lesley Pinchbeck)
Leikur: Keppni í kassaburði Áhöld: Hæfilega þungur kassi, t.d. pappakassi í hæfilegri stærð með bókum eða eitthvað álíka. þannig að börnin geti borið hann en þurfi að nota báðar hendur. Fyrri umferð: Einstaklingar spreyta sig (2-3) í að bera kassann fram á gang og inn i salinn á ný og eiga að opna og loka á eftir sér dyrunum. Stjórnandi leiksins tekur tímann og athugar hver reynist fljótastur. Tímar skráðir á spjald eða töflu þannig að allir geti séð. Líklegt er að þetta taki nokkra stund þar sem leggja þarf kassann frá sér þegar opna og loka á dyrum. Síðari umferð: Tveir og tveir spreyta sig í samvinnu að bera kassann fram á gang og aftur til baka. Tíminn tekinn og skráður á spjaldið. Líklegt er að nú gangi mun fljótar að bera kassann fram og til baka, þar sem nú getur annar opnað fyrir hinum o.s.frv. Sigurvegarar fái smá viðurkenningu ef vill. Samræður um árangurinn í keppninni og þó einkum lögð áhersla á hve miklu betur það gekk fyrir tvo og tvo að hjálpast að við kassaburðinn, heldur en þegar einn og einn þurfti að bera. Í framhaldi af þessu er rætt um hjálpsemi í daglegu lífi. Börnin spurð hvort þau hafi einhvern tíma þarfnast hjálpar eða séð einhvern hjálparþurfi og hjálpað. Börnin fái að tjá sig um málið. (úr Þemafundum eftir Gunnar Jóhannes Gunnarsson) Skemmtilegt fundarefni Hvernig væri að fá einhvern í heimsókn á þennan fund sem kann eitthvað fyrir sér í skyndihjálp? Þá getum við lært hvernig er best að hlúa að fólki í neyð eins og Samverjinn gerði. Hægt er að leita til Rauða krossins og Hjálparsveitanna.
Leslisti fyrir leiðtoga Matt 7.12 Jóh 13.34 Matt 25.40 Matt 19.19b Jes 1.6
Gullna reglan Nýtt boðorð gef ég yður Allt sem þér gerðuð einum mínum minnsta bræðra Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig Opin sár og mjúk olía
23
Sögurnar sem Jesús sagði
Skýringar Gyðingar og Samverjar Það sem kemur mest á óvart í sögunni er að Samverjinn skyldi miskunna sig yfir manninn. Sambandið á milli Gyðinga og Samverja var ekki gott. Þetta ósætti átti sér langa sögu. Þegar Assýringar herleiddu norðurríkið (Samaríu) á 8. öld f. kr. þá settust ýmis þjóðarbrot þar að og fengu nafnið Samverjar. Gyðingar litu niður á þá m.a. vegna hjáguðadýrkunar. Samverjar reistu síðan musteri á Garísímfjalli. Það var litið alvarlegum augum af Gyðingum sem réðust gegn Samverjum u.þ.b. 128 f. kr. og eyddu musterinu. Samverjar vanhelguðu musteri Gyðinga með beinum látinna manna á milli 6-9 e. kr. Það hafði ýmislegt gengið á og hatrið var mikið á milli þessara hópa. Þess vegna verður það enn merkilegra að Samverjinn geri miskunnarverkið. Hvernig er hægt að heimfæra þennan klofning yfir á okkar tíma þannig að börnin skilji og tengi við hugmyndina? „Hver er þá náungi minn?“ Lögvitringurinn er að ræða við Jesú um boðorð úr Gamla testamentinu. Hann vill fá skilgreiningu á hver sé náungi hans. Gyðingar voru duglegir við að skilja sig frá öðrum hópum vegna óhreinleika þeirra eða hjáguðadýrkunar, þess vegna má gera ráð fyrir því að lögvitringurinn hafi viljað fá skilgreiningu sem útilokaði einhverja hópa. Jesús snýr þessu við með því að láta Samverjann gera miskunnarverkið. Lögvitringurinn getur í lokin ekki nefnt Samverjann heldur segir: „Sá sem miskunnarverkið gerði á honum.“ Krafa Jesú er því sú sama hér og í fjallræðunni að við eigum að elska óvini okkar. Leiðin frá Jerúsalem til Jeríkó Leiðin frá Jerúsalem til Jeríkó er tæplega 30 kílómetrar. Þessi leið var þekkt fyrir að vera hættuleg vegna ræningja. Það var gott fyrir ræningja að liggja í leynum og sæta færis. Áheyrendur Jesú hafa þekkt til óttans sem fylgdi því að fara einn um þennan veg, oftast var reynt að ferðast í hópum. Presturinn og levítinn Prestar og levítar þjónuðu í musterinu í Jerúsalem. Þeir bjuggu margir í grennd við Jeríkó og þurftu því að fara þessa leið til vinnu. Presturinn gat afsakað sig með helgileikalögunum úr 3Mós 21. En aðalatriðið er að þeir kusu að sveigja fram hjá frekar en að hjálpa manninum. Krafa Jesú var sú að menn létu lögmálið eða reglur ekki stöðva sig í því að veita hjálp, það sést t.d. í kenningu hans um hvíldardaginn. Hjálpin sem Samverjinn veitti Í fyrsta lagi kenndi hann í brjósti um hann og sýndi það með því að ganga til hans í stað þess að sveigja fram hjá. Hann gerði að sárum hans. Viðsmjörið er ólífuolía og var notað til að lina sársaukann, líkt og smyrsl. Vínið var notað til hreinsunar á sárinu. Hjálp hans nær síðan lengra þar sem hann fer með hann á gistihús og þegar hann þarf að halda leið sinni áfram þá fær hann eigandanum pening með loforði um að greiða fyrir hann á bakaleiðinni aukakostnað ef einhver væri. Tveir denarar hafa að öllum líkindum dugað til langrar dvalar fyrir manninn, hugsanlega í einn til tvo mánuði. Samverjinn gerir meira en hann þarf, hjálpin sem hann veitir er til fyrirmyndar.
24
Frรฆรฐsluefni KFUK og KFUM haustiรฐ 2009
25
Sögurnar sem Jesús sagði
8
Bidjid, leitid, knyid á - Verum staðföst í bæninni Matt 7.7-11
Minnisvers: Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum. Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. (Matt 22.37,39)
Boðskapur: Guð vill heyra bænir okkar. Aðkoma: Tilvalið er að nota efni úr hugmyndabankanum eða bænaþema sem fylgir með sem aukaefni. Fjölmargar hugmyndir er að finna þar.
Hugleiðing
Skýringar
1. Jesús fór oft afsíðis að biðja. Hann vildi að allir sem trúðu á hann skildu hversu mikilvægt það sé að biðja bænirnar sínar. Hann kenndi lærisveinum sínum að biðja bæn sem við þekkjum enn í dag og heitir Faðir vor.
Steinn, brauð, höggormur og fiskur Einhverjir ritskýrendur hafa rætt möguleika á því að steinn líkist brauði og höggormur fiski, þ.e.a.s. tegund áls sem gegnir latneska heitinu Clarias lazera, og fannst m.a. í Galíleuvatni. Það getur vel átt við rök að styðjast en augljósast er þó að horfa á andstæðuna sem birtist í því sem stillt er saman. Brauð og fiskur er eitthvað sem veitir okkur næringu en höggormur og steinn eru hættulegir hlutir.
2. Jesús vildi að við myndum biðja stöðugt. Hann hvatti okkur til þess með því að segja: Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yrður mun upp lokið verða. Jesús vildi að við skyldum að okkar hlutverk er að biðja Guð um hluti. Hann vildi líka að við vissum að Guð heyrir bænirnar okkar. Guð svarar öllum bænum en hann svarar þeim ekki öllum með já, stundum segir hann nei. Stundum biður hann okkur um að bíða. Þess vegna þurfum við að vera stöðug í bæninni. 3. Til að útskýra þetta betur tók hann dæmi. Hann spurði hvort einhver faðir myndi gefa barni sínu stein ef það myndi biðja um brauð eða höggorm ef það myndi biðja um fisk. Það væri nú mjög ólíklegt. Jesús vildi kenna okkur að foreldrar vilja okkur vel en Guð vill okkur enn betur og því getum við verið óhrædd að biðja hann um allt sem okkur liggur á hjarta. Guð vill fá að heyra bænir okkar og svara þeim.
26
Söngvar 10 88 50 113 13 106 16
Bæn sendu beðna Kæri faðir, kenndu mér að biðja Guð þú gætir mín æ Stjörnur og sól Drottinn er minn hirðir Ótal, óteljandi fuglar Ef ég væri fiðrildi
Fræðsluefni KFUK og KFUM haustið 2009
Hugmyndabanki Við Guð erum vinir eftir Kari Vinje Ævintýrið um óskirnar tíu úr bók Kari Vinje hefur oft verið notað í umfjöllun um eðli bænarinnar. Tilvalið að lesa það upp á fundinum og ræða síðan aftur um það í hugleiðingunni. Frásögn Frægur erlendur prestur, sem hét Moody, fór eitt sinn með litla dóttur sína, sem hét Emma, í verslun til að kaupa brúðu handa henni. Um leið og þau voru komin inn í búðina fór Emma og valdi sér litla, ódýra brúðu. „Ég vil fá þessa dúkku,“ sagði hún og faðmaði brúðuna að sér. Þessi brúða var ekki nærri því eins stór og falleg og sú sem faðir hennar hafði ætlað að kaupa handa henni. En vegna þess að Emma valdi sér þessa brúðu sjálf, þá keypti Moody hana og gaf dóttur sinni. Litla, ódýra brúðan lenti fljótlega úti í horni með ýmsu dóti sem Emma var hætt að leika sér með. Dag einn sagði faðir hennar að hann hefði viljað kaupa miklu fallegri og vandaðri brúðu en þá sem Emma valdi sjálf. „Af hverju gerðir þú það ekki?“ spurði Emma. „Af því að þú vildir ekki leyfa mér að gera það,“ svaraði pabbi hennar. Þá sá Emma eftir því að hafa haldið fast við eigin vilja. Eftir það lét hún alltaf pabba sinn um að ákveða það sem hann ætlaði að gefa henni. Pabbi hennar þurfti að ferðast mikið og þegar hann spurði hana hvað hann ætti að kaupa til að gefa henni þegar hann kæmi heim svaraði Emma: „Færðu mér bara það sem þú velur sjálfur að gefa mér, pabbi minn.“ Hún hafði lært að treysta kærleika föður síns og vissi að hann elskaði hana. (Söguna er m.a. að finna í boðunarefni Landssambands KFUM og K frá 1995-1996)
Leikur: Láttu það ganga Setjist í hring (á gólfinu eða á stólum). Útskýrið að þið ætlið að láta ýmsar athafnir ganga hringinn. Hvaða athafnir sem er má nota svo lengi sem þær eru ekki dónalegar eða meiði neinn. Leiðtoginn byrjar með því að klappa næsta manni til vinstri á öxlina. Sá lætur klappið ganga þar til allir eru búnir að klappa einhverjum. Gefðu svo öllum í hringnum númer 1-2-3, 1-2-3 o.s.frv. Allir sem eru svo númer 1 mega koma athöfn af stað þegar þú klappar saman höndum. Þá ættu misjafnar athafnir að fara af stað út um allt í hringnum þannig að þrír og þrír eru að gera sömu athöfnina. Leyfið svo þeim sem eru númer 2 og 3 að koma með sínar athafnir. Í byrjun getur verið gott að gefa þeim hugmyndir af athöfnum t.d. strjúka nefið, klappa á höfuðið, halda í eyrað, skella saman skóm, gefa fimm, leiðast, krækja saman höndum, klappa á læri o.s.frv. Til umhugsunar: Ræðið um hvernig athafnirnar voru endurgoldnar. Hvernig kemur hegðun okkar gagnvart öðrum til baka til okkar? Ef við brosum til annarra, hvernig koma þeir þá fram við okkur? Ef við uppnefnum aðra, hvernig er líklegt að þeir komi fram við okkur? Samkvæmt þessu hvernig er þá best að koma fram við aðra?
Leslisti fyrir leiðtoga Lúk 11.5-8 Lúk 18.1-8 Lúk 18.9-14 Fil 4.13 Jóh 14.13-14 Jóh 15.7 Jak 1.5 1.Jóh 5.14-15
Vinur biður um brauð Rangláti dómarinn Farísei og tollheimtumaður Allt megna ég fyrir hjálp hans sem mig styrkan gerir Og hvers sem þér biðjið í mínu nafni Ef þér eruð í mér Góð hvatning Ef við biðjum um eitthvað eftir hans vilja
Sjá líka ritningarstaði um bæn úr Lúkasarguðspjalli í aukaefni.
27
Sögurnar sem Jesús sagði
9
Tyndur sonur - Kærleikur Guðs
Lúk 15.11-32
Boðskapur: Guð er kærleiksríkur Guð sem tekur á móti þeim sem játa synd sína með útbreiddan faðm.
lt þú a ska k ls E s: af öllu isver Minn Guð þinn, þinni og , lu Drottin ínu, allri sá ú skalt þ .Þ a m t r u n g hja ga þí u eins o h n öllum a þin .37,39) g n u ná att 22 elska ig. (M þ n a sjálf
Aðkoma: Hafið þið týnt einhverju sem ykkur þótti vænt um? Stundum finnum við hluti aftur og þegar það gerist þá verðum við glöð. En í dag ætla ég að segja ykkur sögu af manni sem týndist og við ætlum að heyra hvernig fór fyrir honum.
Hugleiðing
Söngvar
1. Maður á tvo syni og sá yngri biður um að fá arf sinn greiddan út strax. Honum er veitt ósk sín. Faðirinn skiptir eigunum á milli þeirra. Yngri sonurinn heldur til útlanda og lifir óhófsamlega. Hann eyðir öllu fé sínu.
88 50 131 42 82 123
2. Þegar hann hefur eytt öllu fylgir hungursneyð í kjölfarið og hann líður skort. Hann fær vinnu sem svínahirðir og verður það hungraður að hann langar til að leggja sér afganga til munns sem ætlaðir eru svínunum.
Kæri faðir, kenndu mér að biðja Guð þú gætir mín æ Þú ert þýðingarmikil(l) Fús ég, Jesús, fylgi þér Jesús mönnum öllum ann Við setjumst hér í hringinn
3. Þá áttar hann sig skyndilega og ákveður að snúa aftur til föður síns. Hann sér að hann mun hafa það betur sem daglaunamaður hjá föður sínum, heldur en hungraður í útlandinu. Hann skilur að hann er ekki lengur þess verðugur að vera sonur föður síns. 4. Hann leggur af stað. Faðir hans sér hann, kennir í brjósti um hann, hleypur til hans og kyssir hann. Þegar sonurinn segist hafa syndgað og sé ekki þess verður að vera sonur föður síns þá bregst faðirinn við með því að klæða hann í skikkju og skó og blása til mikillar veislu. Af hverju? „Því að þessi sonur minn var dauður og er lifnaður aftur. Hann var týndur og er fundinn.“ 5. Eldri sonurinn, sem er staddur úti á akri, heyrir af veisluhöldunum og reiðist. Faðirinn reynir að hughreysta hann: „Barnið mitt þú ert alltaf hjá mér, og allt mitt er þitt.“ Hann útskýrir síðan tilefni veislunnar fyrir honum, að bróðir hans sé fundinn og lifnaður aftur.
28
Leslisti fyrir leiðtoga Post 3.19 Lúk 19.10 Sálm 103.3 3Mós 11.7-8 5Mós 14.8 Okv 29.3 Sálm 51 Ef 2.1,5 Ef 5.14
Takið því sinnaskiptum og snúið ykkur til Guðs Því að Mannssonurinn er kominn að leita að því týnda og frelsa það. Hann fyrirgefur allar misgjörðir þínar Um svín Enn af svínum Ef yngri sonurinn hefði kannast við þennan ritningarstað ... Iðrun Davíðs Dauði og endurlífgun Þá mun Kristur lýsa þér
Fræðsluefni KFUK og KFUM haustið 2009
Skýringar Arfurinn Yngri sonurinn átti að fá 1/3 af arfinum en sá eldri 2/3 og jörðina. Að biðja um að fá arfinn var ekki óþekkt. En með því að fara erlendis og eyða honum er hann að fara yfir strikið, hefði hann sýnt ábyrgari hegðun væri hugsanlegt að allt hefði blessast. Ef hann hefði nýtt arfinn til að skapa sér framtíð sem hefði hjálpað fjölskyldunni hefði hugsanlega verið horft fram hjá framhleypni hans. Gyðingar og svín Niðurlæging sonarins er algjör þegar hann gerist svínahirðir og hefur hug á að leggja sér til munns matarafganga þeim ætlaðan. Í hugum gyðinga voru svín óhrein dýr. Til var orðatiltæki sem hljómaði svona: „Bölvaður sé sá er svín ræktar.“ Hann kemst ekki neðar. Að koma til sjálfs síns og snúa aftur Hann áttar sig á stöðu sinni, hann kemur til sjálfs síns. Hann áttar sig á því að þetta er ekki hlutskipti hans, honum ber að vera hjá föður sínum. Hann snýr því aftur. Hann skildi að hann var búinn að fyrirgera sonarrétti sínum. Hann átti ekki neina kröfu á hendur föður sínum heldur þurfti hann að treysta á náð föðurins. Þetta er staða allra manna. Þeir þurfa að átta sig á stöðu sinni gagnvart skapara sínum og ákveða síðan að snúa aftur, taka afturhvarfi. Kenndi í brjósti um hann Faðirinn kenndi í brjósti um hann. Oft lýsir þessi tilfinning afstöðu Jesú. Eitthvað hreyfist innra með honum þegar hann sér að lýðurinn eða einstaklingurinn virðist vera án hirðis eða leiðsagnar. Skikkja, hringur, skór og alikálfur Þvílíkar móttökur! Skikkjan, hringurinn og skórnir eru til að undirstrika stöðu sonarins. Hann er ekki þræll, hann hefur stöðu frjáls manns. Alikálfinum var slátrað þegar mikið stóð til. Hann var geymdur fyrir brúðkaup og aðrar stórveislur. Þvílíkar móttökur! Dauður og lifandi, týndur og fundinn Ástæða veisluhaldanna voru lífgjöf sonarins, hann var kominn í leitirnar. Hann hafði bæði verið dáinn og týndur. Fagnaðarefnið er að hann hafði snúið aftur. Eða eins og segir í sögunni af týnda sauðnum: „Ég segi yður, þannig verður meiri fögnuður á himni yfir einum syndara, sem gjörir iðrun, en yfir níutíu og níu réttlátum, er ekki hafa iðrunar þörf.“
Hugmyndabanki Pálínuboð Tilvalið er að minnast hinnar miklu veislu sem faðirinn hélt týnda syninum með því að hafa Pálínuboð. Pálínuboð er þannig framkvæmt að allir úr hópnum koma með veitingar með sér til að halda veislu fyrir deildina. Leikræn tjáning Þessi leikur er góður í yngri deildir en getur einnig virkað frábærlega með eldri krökkum. Hvernig væri að búa til listsýningu úr sögunni um týnda soninn? Og hvernig væri ef listaverkin væru búin til úr okkur sjálfum? Allir hafa farið í myndastyttuleik, þar sem allir hreyfa sig í takt við tónlist og þegar tónlistin stoppar frjósa allir eins og myndastyttur í mismunandi stellingum. Ræðið við börnin um það hvernig myndastyttur væri hægt að búa til úr sögunni um týnda soninn. Faðirinn að athuga hvort sonurinn sé að koma heim er einfalt að leika eftir. Sonurinn að gefa svínunum þarf fleiri börn til að útbúa o.s.frv. Einnig væri hægt að „leika“ málverk úr sögunni t.d. andlitsmynd af alikálfinum eða af afbrýðisömum bróður. Myndastyttur er hægt að horfa á frá öllum sjónarhornum en ekki málverk og því er best að leikendur stilli sér upp við vegg fyrir málverkin og láti allt snúa fram sem mikilvægt er að sjáist. Verið opin fyrir hugmyndum sem börnin gætu komið með t.d.gæti eitt listaverkið verið vélmenni sem getur gert eina hreyfingu og talað eina setningu (á mjög vélrænan hátt að sjálfsögðu). Skiptið börnunum í tvo hópa og gefið hvorum ákveðinn stað í salnum til að útbúa listsýninguna. Gott væri ef einhver fullorðinn væri með hverjum hópi til aðstoðar og hvatningar og jafnvel leikstýringar. Hóparnir bjóða svo hvor öðrum að skoða listsýninguna sína og þá fer sá fullorðni í hlutverk leiðsögumanns sem gengur á milli verkanna, kynnir þau og útskýrir t.d. (tveir krakkar faðmast annar er niðurlútur en hinn glaður) þá gæti
leiðsögumaðurinn sagt: „Þessi fallega höggmynd úr granít kallast Faðir og sonur hittast á ný. Við sjáum að sonurinn er niðurlútur því hann er fullur iðrunar en faðirinn umvefur hann og horfir til himins í gleði sinni.“ Öll börnin sem leika listaverkin verða að vera alveg kyrr og reyna að túlka eins vel og þeir geta með andlitssvip og stellingum. Það er um að gera fyrir leiðsögumanninn að vera í karakter, jafnvel setja á sig hatt eða gleraugu og vera svolítið fyndinn en mikilvægast er að koma smáatriðum úr sögunni vel til skila á þennan hátt. Börnin sem eru að skoða sýninguna verða að sýna verkunum virðingu. Hvetjið þau til að skoða þau frá öllum hliðum og tjá sig um þau. Sniðugt væri að taka myndir af öllum listaverkunum og setja á veggspjald og hafa nöfn á listaverkunum undir til minningar um skemmtilegan atburð. (Bylgja Dís Gunnarsdóttir) Minnisleikur Undirbúningur Finnið u.þ.b. 15-20 hluti (blýant, póstkort, leikfangabíl, yddara og fleira slíkt) á bakka og breiðið klút yfir. Hafið skeiðklukku við höndina. Leikurinn: Fáið nokkra sjálfboðaliða (3-4), sendið alla fram nema þann sem byrjar leikinn. Leikurinn gengur út á að reyna að leggja alla hlutina á minnið sem eru á bakkanum en þau fá aðeins 20 sek. til að horfa áður en dúkurinn er breiddur yfir aftur. Þá snýr viðkomandi sér fram og telur upp allt sem hann man. Sá sem man flest vinnur. Hafið bakkann staðsettan þannig að allir fundargestir geti séð á hann en þeir mega að sjálfsögðu ekki hjálpa sjálfboðaliðanum. Til umhugsunar: Þessi leikur getur virkað vel á undan sögunni um týnda soninn. Við erum oft gleymin en Guð gleymir okkur aldrei, jafnvel þó að við gleymum honum. 29
Sögurnar sem Jesús sagði
10
Farisei og tollheimtumadur - saga um bæn Lúk 18.9-14
Boðskapur: Sá sem hefur sjálfan sig upp mun auðmýktur verða en sá sem lítillækkar sjálfan sig mun upphafinn verða.
Minnisvers: Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum. Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. (Matt 22.37,39)
Aðkoma: Hægt er að nota helgileikinn úr hugmyndabankanum. Einnig er hægt að nota hugmyndir úr bænaþemanu sem finna má í aukaefni.
Hugleiðing
Söngvar
1. Jesús sagði margar sögur um bæn. Við höfum þegar heyrt eina og í dag heyrum við aðra. Sagan fjallar um það með hvaða hugarfari við eigum að vera í bæninni.
10 50 113 13 82 123 55
2. Tveir menn fóru í musterið að biðja. Annar var farísei. Hinn var tollheimtumaður. Faríseinn var álitinn mjög trúrækinn og réttlátur en fólk leit niður á tollheimtumenn. 3. Faríseinn þakkaði Guði fyrir að hann væri betri en annað fólk, alveg örugglega betri en tollheimtumaðurinn. Hann var ekki jafn öruggur með sig og faríseinn. Tollheimtumaðurinn þorði vart að horfa upp. Hann laut höfði og sagði: Guð, vertu mér syndugum líknsamur! Hvor gerði það sem þóknaðist Guði? 4. Jesús endaði söguna á því að segja: „Tollheimtumaðurinn fór heim til sín sáttur við Guð, hinn ekki, því að hver sem upphefur sjálfan sig mun auðmýktur verða en sá sem lítillækkar sjálfan sig mun upphafinn verða.“ 5. Þessi saga hefur eflaust komið mörgum á óvart sem hlustuðu en Jesús vildi leggja áherslu á að í bæn á maður að vera auðmjúk(ur) frammi fyrir Guði.
30
Bæn sendu beðna Guð þú gætir mín æ Stjörnur og sól Drottinn er minn hirðir Jesús mönnum öllum ann Við setjumst hér í hringinn Hér gengur góður hirðir
Fræðsluefni KFUK og KFUM haustið 2009
Hugmyndabanki
Skýringar
Helgileikur: Faríseinn og tollheimtumaðurinn Hægt er að útfæra þennan helgileik á ýmsan hátt, hafa einn eða fleiri lesara og leikara eftir því sem hópurinn gefur tilefni til. Til dæmis mætti hafa tvo hópa, annar leikur það sem á við tollheimtumanninn og hinn það sem á við faríseann.
Fasta og tíund faríseans Faríseinn sagði að öllum líkindum satt og rétt frá. Hann fastaði tvisvar í viku og gaf tíund af öllu sem hann átti. Það var nóg fyrir Gyðinga að fasta einu sinni á ári, á friðþægingardaginn. Faríseinn í sögunni gengur líka enn lengra í að gjalda tíund en lögmálið í Gamla testamentinu kveður á um. Hann sagði því rétt frá en hugarfarið var ekki tilhlýðilegt í bæn.
Tveir menn fóru upp í helgidóminn að biðjast fyrir (Halda uppi höndum, láta þær síðan falla) Annar var farísei sem var hreykinn af því hversu góður hann var. (Rétta upp hægri hönd, láta hana síðan falla.) Faríseinn hrósaði sér af því hversu góður hann væri. Hann sagði: „Guð, ég þakka þér, (Rétta hægri hönd til himins og horfa upp.) að ég er ekki eins og aðrir menn sem gera alls kyns ljóta hluti, (Hrista höfuðið.) eða eins og þessi tollheimtumaður. (Benda á vinstri handlegginn.) Ég hlýði lögunum og gef mikið fé til annarra.“ (Hneigja höfuðið og klappa sjálfum sér á öxlina með hægri hendi, láta handlegginn falla.)
Tollheimtumenn Það hefur komið áheyrendum á óvart að tollheimtumaðurinn væri sá sem fór réttlátur úr musterinu. Tollheimtumenn voru mjög óvinsælir. Það var ekki að ástæðulausu. Á þessum tímum var bæði til bein og óbein skattheimta. Beina skattheimtan laut að persónulegum skatti og landskatti. Sá skattur var innheimtur af hinu opinbera. Óbeina skattheimtu gátu menn fengið að annast með því að taka þátt í uppboði. Þannig að þeir sem buðu yfirvöldum best fengu réttinn. Þeir gátu síðan látið greiða sér þá upphæð sem þeir settu upp og þannig tryggt að þeir ættu nóg eftir að hafa greitt til yfirvaldanna. Þetta fyrirkomulag var að sjálfsögðu mikil byrði á efnahagi Palestínu. Þeir sem voru trúaðir greiddu auk skatta tíund. Það hefur verið áætlað að margir fátækir landeigendur hafi þurft að greiða 35-40% í þessi gjöld. Jesús leggur áherslu á að tollheimtumaðurinn sýndi rétt hugarfar í bæninni.
en maðurinn sem var of montinn af sjálfum sér og talaði ruddalega um annað fólk, (Rétta út hægri handlegg og benda niður.)
Vondu gæjarnir Þú ert nú meiri faríseinn! Farísei er annað orð yfir hræsnara. Þeir voru líka vondu gæjarnir í guðspjöllunum, er það ekki annars? Þeir voru alltaf að þvælast fyrir Jesú, reyna að leiða hann í gildru. Þeir voru alltaf að sýna hversu trúaðir þeir voru, þeir voru gráðugir og sáu til þess að Jesús var krossfestur. Eitt sinn var leiðtogi í sunnudagaskóla að biðja eftir að hafa sagt og útskýrt söguna af faríseanum og tollheimtumanninum. Í bæninni mátti m.a. heyra eftirfarandi setningu: „Góði Guð, þakka þér fyrir að ég er ekki eins og faríseinn í sögunni!“ Þessi leiðtogi hefur nú verið meiri faríseinn! Farísear voru ekki vondu gæjarnir. Sagnfræðingurinn Jósefus talaði vel um þá. Þeir höfðu mikil áhrif meðal almennings og þóttu til fyrirmyndar í trúarlífi sínu. Þeir komu ekki nálægt því þegar Jesús var krossfestur. Einhverjir úr flokki farísea tóku síðan trú á Jesú og voru hluti af söfnuði frumkirkjunnar. Mikilvægt er að kenna ekki faríseunum um allt sem aflaga fer. En í sögu dagsins er verið að gagnrýna viðhorf faríseans til bænarinnar. (Tilvalið er að lesa meira um faríseana í bók Simon Jenkins Biblían frá grunni, bls 192 og 194-195.)
Því að hver sem upp hefur sjálfan sig, mun auðmýktur verða, (Klappa á öxlina með hægri hendi, lækka hana síðan og benda niður.)
Leslisti fyrir leiðtoga
En tollheimtumaðurinn stóð langt frá í helgidóminum (Lyfta hægri handlegg til himins en hneigja höfuðið.) Hann skammaðist sín svo fyrir að svindla að hann barði sér á brjóst og sagði: (Berja brjóstið með lokuðum lófa, vinstri hönd.) „Guð, vertu mér syndugum líknsamur!“ (Halda lófanum að brjóstinu, höfuð beygt.) Þegar Jesús hafði lokið sögunni sagði hann: „Þessi maður, sem játar syndir sínar, hann er nær Guði (Lyfta vinstri handlegg.)
En sá sem auðmýkir sjálfan sig, mun upp hafinn verða.“ (Benda niður með vinstri handlegg, lyfta honum síðan upp og benda til himins.) (Eftir E. Cutting, birtist áður í Guð talar við krakka í KFUM og KFUK, 2001)
Lúk 1.51b-53 Lúk 5.32 Lúk 15.7 Fil 3.9 Matt 18.4 Matt 23.12
Hluti af lofsöng Maríu Ekki kominn til að kalla réttláta heldur syndara Fögnuður yfir einum réttlátum Trúin á Krist gefur réttlætið Hver sem auðmýkir sig Sama stef 31
Sögurnar sem Jesús sagði
32
Fræðsluefni KFUK og KFUM haustið 2009
Heimildaskrá Beagles, K. (Ritstj.), 2005: Power Points. Silver Spring, Sabbath School. Bock, D.L., 2005: The Gospel of Mark. (Cornerstone Biblical Commentary. Rit 11. Ritstj. P. W. Comfort). Carol Stream, Tyndale House Publishers. Danes, S. & C. Danes, 1989: Mark - A Gospel for Today. Oxford, Lion Educational. Fee, G.D. & D. Stuart, 2003: How to Read the Bible for All Its Worth. Grand Rapids, Zondervan. France, R.T., 1985: Matthew. (Tyndale New Testament Commentaries). Leicester, Inter Varsity Press. Gunnar Gunnarsson, 1982: Þemafundir. (Leiðtogahefti Landssambandsins nr. 2). Reykjavík, Landssamband KFUM og KFUK á Íslandi. Hreinn S. Hákonarson, 1995: Lifandi leikur-tuttugu leikþættir handa börnum og unglingum. Reykjavík, útgefið af höfundi. Jenkins, S., 2005: Biblían frá grunni. Reykjavík, Skálholtsútgáfan. Jeremias, J., 1963: The Parables of Jesus. London, SCM. McGrath, A.E., 2005: The NIV Bible Companion. London, Hodder & Stoughton. Morris, L., 1988: Luke. (Tyndale New Testament Commentaries). Leicester, Inter Varsity Press. Pinchbeck, L., 2002: Theme Games 2. Bletchley, Scripture Union. Relf, S., 1998: Fræðslustund í snatri. (Þýtt og staðfært: Hreiðar Örn Stefánsson og Sólveig Ragnarsdóttir). Reykjavík, Skálholtsútgáfan. Sandemo, H., 1974: Biblíuhandbókin þín. Reykjavík, Örn og Örlygur. Silva, M., 1986: The place of historical reconstruction in New Testament Criticism. (Í Hermeneutics, Authority and Canon, Carson, D.A. og Woodbridge, J.D. (Ritstj.) Leicester, IVP. Shockey, L. (Ritstj.), 1995: Everone’s a winner-Games for Children’s Ministry. Colorado, Group. Smith. L. & W. Raeper, 1989: Luke - A Gospel for Today. Oxford, Lion Educational. Turner, D.L., 2005: The Gospel of Matthew. (Cornerstone Biblical Commentary. Rit 11. Ritstj. P. W. Comfort). Carol Stream, Tyndale House Publishers. Wenham, D., 1989: The Parables of Jesus. (The Jesus Library. Ritstj. M. Green). Downers Grove, Inter Varsity Press.
33
Sögurnar sem Jesús sagði
orír leikir til ad kenna
minnisvers
Gálgaleikur til að kynna og læra minnisvers Ýmsar skemmtilegar leiðir má nota til að læra minnisvers, gálgaleikurinn er ein þeirra. Teiknið upp á töflu strik fyrir hvern staf í minnisversinu (aðskiljið líka orð). Börnin skiptast svo á að nefna bókstafi. Ef þau giska rétt, fyllið þá inn á strikin bókstafinn sem þau nefndu allstaðar sem hann kemur fyrir. Ef þau giska vitlaust, skrifið þá bókstafinn til hliðar og teiknið stig af stigi gálgann, ef þau ná ekki að giska rétt áður en karlinn hangir á gálganum hafa þau tapað. Að kenna minnisvers Skrifið minnisversið sem á að læra upp á töflu. Látið öll börnin sitja fyrir framan töfluna og lesa minnisversið saman hátt og skýrt. Látið síðan þann sem er lengst til hægri í röðinni fá svamp til að stroka út eitt orð að eigin vali. Eftir að hafa strokað út orð þá lætur hann þann næsta í röðinni fá svampinn og sest aftast. Eftir að eitt orð hefur verið strokað út á hópurinn að fara aftur hátt og skýrt með minnisversið (einnig orðið sem strokað var út). Þá er næsta orð strokað út. Aftur er farið með minnisversið og sá þriðji í röðinni strokar út næsta orð. Að lokum verður búið að stroka öll orðin út en hópurinn ætti að kunna minnisversið. Þetta er einföld og skemmtileg leið til að gera minnisversið enn eftirminnilegra í gegnum leik. (byggt á leik 38 úr Theme Games 2 eftir Lesley Pinchbeck) Gefið gaum að orði Drottins Fáið einn (eða fleiri) sjálfboðaliða og biðjið hann um að vinna eitthvað verk fyrir ykkur um leið og hann hlustar á þig kenna hópnum minnisversið. Verkefnið þarf að vera skýrt og krefjast athygli það gæti t.d. verið að flokka saman sokka úr stórri hrúgu af sokkum, útbúa samlokur á ákveðinn hátt, sópa drasl upp af gólfinu eða eitthvað annað sem ykkur dettur í hug. Hafið í huga aldur barnanna þegar þið veljið verkefnið og leggið áherslu á að það sé leyst vel af hendi. Síðan skuluð þið kenna börnunum í salnum minnisvers fundarins með því að endurtaka það orð fyrir orð í nokkur skipti og láta þau hafa eftir á meðan sjálfboðaliðinn vinnur verkið sitt. Þegar sjálfboðaliðinn hefur lokið verkefninu sínu gefið honum þá gott klapp og biðið hann svo um að fara með minnisversið, honum mun þykja það mun erfiðara en börnunum sem sátu og hlustuðu. Hvers vegna? Hafið þið eitthvern tímann reynt að læra og horfa á sjónvarpið á sama tíma? Talið um mikilvægi þess að gefa gaum að orði Drottins. Gætið þess að gera ekki lítið úr barninu sem er valið. Leikurinn er ekki hugsaður til þess. Það er sniðugt að taka fleiri en einn upp þannig að þeir geti háð keppni sín á milli. (Byggt á leik 62 úr Theme Games 2 eftir Lesley Pinchbeck)
34
Fræðsluefni KFUK og KFUM haustið 2009
Adrir leikir Speglar Parið tvo og tvo saman. Börnin eiga að snúa að hvort öðru, einn byrjar að hreyfa sig mjööööög hægt og hinn hermir eftir eins og hann væri spegill sem sá sem stjórnar hreyfingunum sé að spegla sig í. Mikilvægt er að útskýra fyrir börnunum að til að þetta virki þurfi að róa sig niður og hreyfa sig mjög hægt. Tilgangurinn er að gefa „speglinum“ mjög góðar vísbendingar um hreyfingarnar svo hann geti fylgt nákvæmlega eftir en alls ekki reyna að koma honum á óvart með snöggum hreyfingum. Fyrir þann sem horfir á, á að vera erfitt að sjá hver sé að stjórna. Eftir svolitla stund skipta börnin um hlutverk. Til umhugsunar: Þegar við eigum góð samskipti við annað fólk gengur öll samvinna mjög vel. Þegar við lítum á annað fólk er eins og við séum að líta í spegil því að við erum öll sköpun Guðs og jöfn frammi fyrir honum. Hver er ég? Leiðtoginn límir miða (A5) á bakið á hverju barni án þess að það viti hvað stendur á miðanum. Markmiðið er að fatta hvað stendur á miðanum sínum. Börnin ganga um salinn og spyrja hvort annað já eða nei spurninga eins og: „Er ég matur?“ „Er ég biblíupersóna?“ „Er ég hjálpsamur?“ o.s. frv. Sá sem spurður er les aftan á þann sem spurði og svarar með já eða nei. Ef einhver er óviss um hverju hann á að svara má hann leita til leiðtogans. Aðeins má spyrja hvern einu sinni. Þegar liðnar eru um 5 mínútur leyfið þá börnunum að segja hvað þau voru, ef einhverjir eru enn óvissir má gefa þeim vísbendingar. Reglurnar eru: Það má bara svara með já eða nei (eða pass) Það má bara spyrja hvern einstakling einu sinni Það má ekki lesa upphátt hvað stendur á miðunum Undirbúningur: Áður en fundurinn byrjar þarf að skrifa hluti/nöfn á miðana og finna til lím sem festist á fötum t.d. málningarlímband. Það eru endalausir möguleika hvað hægt er að skrifa. Gott getur verið að velja þrjá flokka t.d. matur, biblíupersónur og dýr. Matur: Pítsa, kjúklingur, hamborgari, slátur ... Biblíupersónur: Miskunnsami Samverjinn, týndi sonurinn, María mey, Nói, Jesús ... Dýr: Sebrahestur, kengúra, api, könguló ... (Leikur úr Everyone´s a winner, bls.16)
35
Sögurnar sem Jesús sagði
Ad segja sögur Þar sem yfirskrift þessa boðunarefnis er Sögurnar sem Jesús sagði er tilvalið að hafa nokkra leiki við höndina sem hvetur okkur til að segja sögur og leika okkur með orð.
Lýsingarorðasaga
Fáið börnin til að nefna lýsingarorð og skrifið þau inní eyðurnar í sögunni hér að neðan eða búið til ykkar eigin. Lesið svo fyrir hópinn.
Ræða 1 (Kristbjörg Gísladóttir)
Mig hefur í allan vetur langað til að halda örstutta ræðu fyrir ykkur en hef aldrei látið verða af því. En nú er stundin runnin upp. Áður en ég flyt ræðuna þarf ég að fá smá aðstoð frá ykkur því ég var svo mikið að flýta mér að semja ræðuna að ég gleymdi öllum lýsingarorðum. Þið eigið að koma með einhverjar uppástungur. Kæru__________fundarmenn! Mér er það ______________ánægja að flytja ykkur_____________vinir, þessa _______________ræðu. Þegar ég kom í fyrsta sinn í þetta ____________hús, leið mér strax vel, því að ég vissi að hingað koma bara þeir sem eru ______________. Mér er sérstaklega minnisstæður _________________ fundurinn í þessu _________________ félagi. Þá var samskonar _________________ hópur í salnum eins og núna. Sumir voru í ___________________ fötum en aðrir með _______________ húfur. _______________leiðtoginn sem stjórnaði ________________ fundinum var með rosalega _____________eyru og ________________nef, og sá sem lék á gítarinn/píanóið var með mjög ________________hár. Þessi ræða er senn á enda, enda eru ________________áheyrendurnir orðnir _______________ af leiðindum. Þakka ykkur fyrir _____________________ hljóð.
Ræða 2
Háttvirtu _____________fundargestir. Það er mér __________________ánægja að bjóða _____________ og ________________ KFUM stráka/KFUK stelpur velkomna(r) til þessarar __________________ hátíðar, fyrir hönd hinna _______________ leiðtoga deildarinnar sem munu sjá um hina _______________ dagskrá þessa fundar. Mun margt _______________ líta dagsins ljós á þessum _____________ degi, í þessum ________________ mánuði. Það er ósk okkar að þið ____________________ pörupiltar/stúlkukindur og ______________ gæjar/skvísur kunnið að stilla hlátri ykkar í hóf svo hið _______________ þak hrynji ekki yfir oss svo hinn ___________________ forstöðumaður fái ekki áfall og hið ________________ tryggingafélag fari ekki á hausinn. Þá er bara að segja “gjörið svo vel” og hefst þá ________________ liður fundarins.
36
Fræðsluefni KFUK og KFUM haustið 2009
Veidimadurinn - látbragdssaga
Þessi saga hefur lengi verið í gangi í félaginu. Hér er hún eins og hún birtist á leikjavefur.is. Heimild fengin frá Guðrúnu Sigurðardóttur. Leiðtogi segir söguna og börnin taka þátt í látbragðinu. Einu sinni voru hjón sem bjuggu í litlu húsi langt, langt í burtu í einhverju landi sem við vitum ekki hvað heitir. Einn góðan veðurdag vaknaði maðurinn eldsnemma og sagði við konuna sína: „Jæja, heillin. Nú ætla ég að fara að skjóta tígrisdýr og gefa þér feldinn af því í kápu.“ Síðan klæddi hann sig, lét nesti í bakpoka, setti á sig bakpoka, smeygði kíki á aðra öxlina og byssu á hina, kyssti konuna sína og svo hélt hann af stað. (Þessar athafnir eru stundum leiknar með látbragði en stundum alveg sleppt. Þá er bara sagt: „Svo tók hann sig til og hélt af stað“). Hann gekk af stað eftir veginum (slá taktinn með höndunum á lærin) og af því að það hafði rignt um nóttina þá voru pollar á veginum. Þegar hann gekk í pollunum þá heyrðist svona ... (höndunum nuddað saman svo smellur í - athuga vel að missa ekki úr göngutaktinum eftir svona útúrdúra). Þegar hann hafði gengið dágóða stund kom hann að töluvert stórri hæð. Hann var ekkert þreyttur en samt gekk hann hægar (draga úr göngutaktinum) og þegar hann kom efst á hæðina, þá hljóp hann niður hinum megin (höndum slegið á læri í hlaupatakti). Nú hélt hann áfram eftir veginum þangað til hann kom að stórri brú og þegar hann gekk yfir brúna þá heyrðist ... (slá með höndunum í göngutakti á brjóstkassann) og svo hélt hann áfram eftir veginum. Hann gekk lengi, lengi þangað til hann kom að geysilega stóru fjalli. Hann gekk af stað upp fjallið (draga smátt og smátt úr göngutaktinum) og nú fór hann að þreytast. Sólin skein og hann varð sveittur (þurrka svitann) en hann var að verða kominn upp á tindinn (mjög hægt). Loksins náði hann upp og þá hljóp hann niður hinum megin (hlaupataktur - hratt). Þegar hann kom niður hélt hann áfram eftir veginum þangað til hann kom að óskaplega stóru vatni (stoppa-skima). Það var engin brú, enginn bátur. Hvað átti hann nú að gera? Jú, hann stakk sér og synti yfir (sundtök með höndunum). Þegar hann kom yfir settist hann á vatnsbakkann og hellti vatni úr skónum sínum, vatt sokkana sína (leika) og af því að hann var orðinn svangur og þyrstur þá ákvað hann að fá sér bita af nesti sínu (leika - taka kíkinn, byssuna, bakpokann. Taka upp mat, tyggja, drekka. Mikið eða lítið gert úr þessu eftir aðstæðum). Loksins var hann búinn, stóð upp (teygja sig - setja á sig bakpokann - byssuna- kíkinn) og lagði af stað eftir veginum (göngutaktur). Eftir langa göngu kom hann að svo gríðarlega háu fjalli að við höfum aldrei séð annað eins. Hann lagði samt af stað upp en þetta var erfitt (hægt, þurrka svitann, sýna hvað þetta er erfitt). Þegar hann kom upp á tindinn hljóp hann niður aftur (slá á læri með hlaupatakti). Þá var hann líka kominn út í stóra, stóra skóginn. Hann stansaði, hlustaði, tók upp kíkinn og kíkti (hægt - hljótt). Ó, þarna sá hann tígrisdýrið. Hann tók upp byssuna, miðaði og BANG (leika) - en hann hitti ekki og tígrisdýrið kom hlaupandi. Hann hljóp af stað (sama leið til baka, nema nú er reynt að hlaupa og gera allar hreyfingar hratt. Hann verður óskaplega þreyttur á fjöllunum en tígrisdýrið er á hælum hans svo hann reynir að sperra sig). Loks kemur hann að garðshliðinu heima hjá sér. Hann stekkur yfir girðinguna, hleypur inn í hús, skellir aftur hurðinni. - Þá hægt og rólega miðar hann út um gluggann (leika) - BANG og tígrisdýrið liggur dautt fyrir utan.
37
12 34
56 78
9 10