Skip to main content

Jólablað Keflavíkur 2019

Page 1

Jólin 2019 48. árgangur

Keflavík íþrótta- og ungmennafélag


Íþróttamaður Keflavíkur 2018 Í hófi aðalstjórnar í félagsheimili félagsins þann 28. desember 2018 voru íþróttamenn deilda heiðraðir. Íþróttakona og íþróttakarl Keflavíkur 2018 eru Thelma Dís Ágústsdóttir körfuknattleikskona og Ágúst Kristinn Eðvarðsson taekwondomaður. Hverjir verða það í ár ?????

Viðurkenningar veittar á aðalfundi félagsins 2019 Gull-heiðursmerki Keflavíkur var veitt þeim Birgi Ingibergssyni og Sveini Júlíusi Adolfssyni. Starfsbikar Keflavíkur var veittur Ólafi Ásmundssyni. Starfsmerki UMFÍ var veitt Fal Helga Daðasyni.

Viðurkenningar veittar á aðalfundum deilda 2018 Gullmerki var veitt Kristjáni Þór Karlssyni. Gullmerki Keflavíkur er veitt fyrir 15 ára stjórnarsetu. Silfurmerki var veitt Guðmundu Róbertsdóttur og Stefaníu S. Kristjánsdóttur. Silfurmerki Keflavíkur er veitt fyrir 10 ára stjórnarsetu. Bronsmerki voru veitt þeim Baldri Kristmundssyni, Berki Þórðarsyni, Davíð Óskarssyni, Dúa Sigurðssyni, Hákoni Hákonarsyni, Jóni G. Benediktssyni, Lindu Hlín Heiðarsdóttur, Lúðvík Rúnarssyni, Ragnhildi Ingólfsdóttur, Svandísi Þorsteinsdóttur og Þóru Guðrúnu Einarsdóttur. Bronsmerki Keflavíkur er veitt fyrir 5 ára stjórnarsetu.

Umhverfisdagur Keflavíkur er fastur liður hjá félaginu Það er okkar markmið að vel sé gengið um keppnissvæði og nærumhverfi félagsins, þau séu ætíð snyrtileg og okkur til sóma. Keflavík stóð fyrir umhverfisdegi miðvikudaginn 24. apríl. Yfir eitthundrað sjálfboðaliðar tóku þátt í deginum sem var frábær. Eftir að búið var að fara yfir svæðin og týna upp rusl var endað með grilli í félagsheimili okkar. Aðalstjórn vill þakka öllum þeim sem tóku þátt í þessu verkefni, einnig þökkum við okkar samstarfsaðilum fyrir gott samstarf en það voru Samkaup/Nettó, Myllan, Ölgerðin, körfuknattleiksdeild Keflavíkur og Reykjanesbær.

Landsmót UMFÍ 50+ á Neskaupstað Landsmótið var þriggja daga íþróttaveisla á Neskaupstað 28. - 30. júní 2019. Á mótinu voru yfir 30 íþróttagreinar í boði auk skemmtunar og fróðleiks. Allir gátu því fundið eitthvað við sitt hæfi.

Íþróttaveisla UMFÍ Íþróttaveisla UMFÍ sem haldin verður í Kópavogi helgina 26.-28. júní 2020. Íþróttaveislan verður skemmtileg þriggja daga lýðheilsuhátíð þar sem áhersla verður á íþróttir, skemmtilega hreyfingu og frábæran félagsskap. Boðið verður upp á tugi íþróttagreina og fjölda viðburða tengda hreyfingu. Mótshaldarinn er UMSK. Hér er um að ræða gamla landsmótið sem nú er að fá nýjan blæ.

22. Unglingalandsmót á Höfn í Hornafirði 2019 22. unglingalandsmótið var haldið á Höfn í Hornafirði um verslunarmannahelgina. USÚ var mótshaldarinn.

Aðalstjórn Keflavíkur 2019 - 2020. Ljósm.: Oddgeir Karlsson. Aðalstjórn hvatti deildir félagsins til að senda iðkendur á mótið og senda fjölmennt lið til þátttöku. Aðalstjórn greiddi þátttökugjöld þeirra sem kepptu undir merkjum Keflavíkur. Þrjátíu og þrír keppendur voru skráðir undir merkjum Keflavíkur.

23. Unglingalandsmót á Selfossi 2020 Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið 30. júlí - 2. ágúst á Selfossi. Unglingalandsmótin sem eru ein af skrautfjöðrum Ungmennafélagshreyfingarinnar eru haldin árlega og ætíð um verslunarmannahelgina. Mótin eru fyrst og síðast íþrótta- og fjölskylduhátíð þar sem unglingarnir eru í fyrirrúmi en þátttakendur eru á aldrinum 11 – 18 ára. Ýmiskonar verkefni eru einnig í boði fyrir yngri sem eldri, þannig að engum ætti að leiðast á unglingalandsmóti. Fyrir þá sem velja unglingalandsmótið er það tryggt að þeir koma í vímuefnalaust umhverfi. Aðalstjórn félagsins hvetur alla til að taka þátt í mótinu. Aðalstjórn hefur greitt þátttökugjöld okkar þátttakenda á mótinu.

51. Sambandsþing UMFÍ á Laugarbakka Sambandsþing UMFÍ var haldið 11. – 13. október á Laugarbakka. Keflavík átti þrettán fulltrúa en fimm fulltrúar voru skráðir til þings. Breyting var gerð á lögum UMFÍ og nú geta íþróttabandalögin gerst aðilar ef þau óska þess. Þrjú bandalög voru með inngöngubeiðni sem var samþykkt. Íþróttabandalag Reykjavíkur, Akraness og Akureyrar eru nú sambandsaðilar að UMFÍ.

Keflavík 90 ára Keflavík fagnaði níutíu ára afmæli þann 29. september. Boðið var til afmælisveislu í íþróttahúsinu við Sunnubraut. Deildir voru með sýningar og boðið upp á skúffuköku, kaffi, svala og kristal. KKÍ heiðraði nokkra einstaklinga. Reykjanesbær, Þróttur í Vogum, Ungmennafélag Grindavíkur, knattspyrnufélagið Víðir og UMFÍ færðu félaginu heillaóskir og blómvönd auk áletraðs disk og peningagjafar frá UMFÍ. Stjórnendum deilda og ráða var svo boðið til hátíðarkvöldverðar.

Betra félag / Betri deild Keflavík íþrótta- og ungmennafélag varð fyrst allra fjölgreinafélaga til að hljóta viðurkenningu ÍSÍ sem fyrirmyndarfélag. Allar deildir félagsins hafa hlotið gæðaviðurkenningu ÍSÍ. Þessi viðurkenning er mikils virði fyrir hverja deild og félagið í heild sinni. Það fullvissar foreldra, styrktaraðila og bæjaryfirvöld um að íþróttastarfið innan Keflavíkur sé rekið eftir ákveðnum gæðakröfum, sem er gott fyrir okkur foreldra sem eigum börn sem stunda íþróttir innan Keflavíkur.

Innheimtu- og skráningarkerfi Keflavík notar innheimtu- og skráningarkerfið Nora og er það að finna á heimsíðu okkar. Öllum deildum félagsins stendur til boða að nýta sér kerfið og eru flestar deildir að nota Nora-kerfið.

Heimasíða Keflavíkur Keflavík heldur úti heimasíðu í samstarfi við Dacoda. Fréttir frá deildum birtast á forsíðunni og einnig inn á svæði viðkomandi deildar. Undir aðalstjórn er hægt að fylgjast með starfi aðalstjórnar. Fundagerðir eru settar þar inn ásamt öðrum upplýsingum. Slóðin er http://www.keflavik.is Tölvupósturinn er vistaður hjá Microsoft 365 að tilstuðlan Tactica og póstfangið er keflavik@keflavik.is

Facebook síða Keflavíkur Keflavík er með Facebook síðu fyrir félagið í heild sinni sem ber nafnið Keflavík íþrótta- og ungmennafélag en þar eru fréttir og viðburðir settir inn. Aðalstjórn Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags sendir öllum bæjarbúum, félagsmönnum og öðrum velunnurum félagsins óskir um gleðileg jól og farsældar á komandi ári um leið og við þökkum öllum sem lagt hafa félaginu lið á liðnum árum. Áfram Keflavík Einar Haraldsson formaður Keflavíkur

Útgefandi: Keflavík íþrótta- og ungmennafélag Ábyrgðarmaður: Einar Haraldsson • keflavik@keflavik.is, 421 3044 • Forsíðumynd: Vilhjálmur Ólafsson við ísklifur í klettum undir Eyjafjöllum. Umbrot og prentun: Stapaprent ehf. • stapaprent@gmail.com sími 421 4388

2

Jólablað 2019


GJAFAKORT NETTÓ – einföld og góð gjöf

t r o k a Gjaf Þú getur keypt gjafakort Nettó í öllum okkar verslunum – hvar sem er á landinu. Kortið er einfalt og þægilegt í notkun. Þú getur verslað gjafakortið beint á kassa fyrirhafnarlaust. Það hefur aldrei verið einfaldara.

Jólablað 2019

3


Verðlaunahafar allra flokka.

Uppskeruhátíð yngri flokka Knattspyrnudeildar Keflavíkur

L

okahóf yngri flokka Keflavíkur í knattspyrnu var haldið í íþróttahúsinu við Sunnubraut laugardaginn 21. september. Þar komu saman iðkendur, foreldrar þeirra og aðrir gestir til þess að gera upp tímabilið 20182019. Að vanda voru veitt verðlaun fyrir góðan árangur og ástundun og happdrættið var á sínum stað. Ellabikarinn var veittur í fjórða sinn til minningar um Elís Kristjánsson heitinn. Bikarinn fór að þessu til Stefáns Jóns Friðrikssonar í 3. flokki sem er fyrirmyndar iðkandi hjá yngri flokkum knattspyrnudeildar. Amalía Rún Fjeldsted og Kara Petra Aradóttur fengu einnig viðurkenningar fyrir þátttöku með U15 ára landsliðinu. Í lok hófsins var boðið upp á grillaðar pyslur og drykki sem runnu ljúft niður.

Verðlaun/ viðurkenning Drengjaflokkar 5. flokkur yngri Mestu framfarir Amir Maron Ninir Besti félaginn Elvar Ingi Ólafsson Leikmaður ársins Rúnar Leó Hólmarsson 5. flokkur eldri Mestu framfarir Dagur Stefán Örvarsson Besti félaginn Viktor Logi Sighvatsson

4

Jólablað 2019

Leikmenn ársins Jóhann Elí Kristjánsson og Viktor Árni Traustason 4. flokkur yngri Mestu framfarir Gabríel Máni Sævarsson Besti félaginn Andrés Kristinn Haraldsson Leikmaður ársins Tómas Orri Place 4. flokkur eldri Mestu framfarir Arnþór Ingi Arnarsson Besti félaginn Ólafur Hrafn Einarsson Leikmaður ársins Benóný Haraldsson 3. flokkur yngri Mestu framfarir Jón Ólafur Skarphéðinsson Besti félaginn Tómas Ingi Magnússon Leikmenn ársins Axel Ingi Jóhannsson og Stefán Jón Friðriksson 3. flokkur eldri Mestu framfarir Óttar Geir Þorgeirsson Besti félaginn Guðjón Pétur Stefánsson Leikmaður ársins Sigurður Orri Ingimarsson

Verðlaunahafar yfir alla drengjaflokka Mestu framfarir Sigurður Orri Ingimarsson Besti félaginn Birkir Freyr Andrason Besti markvörður Rajko Rajkovic Besti varnarmaður Jökull Máni Jakobsson Besti miðjumaður Guðjón Pétur Stefánsson Besti sóknarmaður Björn Bogi Guðnason Besti leikmaðurinn Jökull Máni Jakobsson

Stúlknaflokkar

5. flokkur yngra ár Mestu framfarir Sara Lind Edvinsdóttir Besti félaginn Brynja Arnarsdóttir Leikmaður ársins Alma Rós Magnúsdóttir 5. flokkur eldra ár Mestu framfarir Máney Dögg Másdóttir Besti félaginn Salóme Kristín Róbertsdóttir Leikmaður ársins Hanna Gróa Halldórsdóttir 4. flokkur yngra ár Mestu framfarir Sóldís Embla Ingibjargardóttir Besti félaginn

Aldís Ögn Arnardóttir Leikmaður ársins Aníta Bergrán Eyjólfsdóttir 4. flokkur eldra ár Mestu framfarir Íris Dagmar Kristinsdóttir Besti félaginn Helga Vigdís Thordersen Leikmaður ársins Esther Júlía Gustavsdóttir 3. flokkur Mestu framfarir Helga Rut Guðjónsdóttir Besti félaginn Kamilla Ósk Jensdóttir Leikmaður ársins Ester Grétarsdóttir Verðlaunahafar yfir alla stúlknaflokka Mestu framfarir Ester Grétarsdóttir Besti félaginn Gyða Dröfn Davíðsdóttir Besti markvörður Irma Rún Blöndal Tryggvadóttir Besti varnarmaður Ragnhildur Rán Árnadóttir Besti miðjumaður Kristrún Blöndal Tryggvadóttir Besti sóknarmaður Elfa Karen Magnúsdóttir Besti leikmaðurinn Gunnhildur Hjörleifsdóttir


3. flokkur drengja.

4. flokkur stúlkna.

6. flokkur drengja.

5. flokkur drengja.

7. flokkur drengja ásamt þjálfurum.

6. flokkur stúlkna.

Óskum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða

TSA

ehf.

Brekkustíg 38 • 260 Reykjanesbær • tsa.is

Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár

TOYOTA

Reykjanesbæ Njarðarbraut 19 • 260 Reykjanesbær

8. flokkur.

7. flokkur stúlkna.

Sími 420 6600

Óskum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða

Njarðarbraut 11a - 260 11a Njarðvík - Sími 421 1118 Njarðarbraut - 260 Njarðvík

TJÓNASKOÐUN • RÉTTING • SPRAUTUN

Verðlaunahafar yfir alla yngri flokka.

Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls árs.

Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

Elvar Ingi - besti félaginn 5. flokkur yngri drengja.

Salóme Kristín - besti félagi 5. flokks yngri stúlkna.

Smári Helgason afhenti Stefáni Jóni Friðrikssyni Ella bikarinn 2019.

N ja r ð a r b r a u t 1 5 • www.ny s p r autun.is

Jólablað 2019

5


Taekwondo:

Keflvikingar á verðlaunapalli

Árið 2019 hefur verið mjög afdrifaríkt fyrir taekwondo deild Keflavíkur

og veitingum frá deildunum. Loks geta deildirnar státað af aðstöðu sem ýtir undir metnaðarfullt starf deildanna. Í byrjun árs tóku fimm þjálfarar hjá deildinni svartbeltispróf. Eyþór Jónsson og Andri Sævar Arnarsson náðu prófi fyrir 2. gráðu svartbelti og Daníel Arnar Ragnarsson, Ágúst Kristinn Eðvarðsson og Kristmundur Gíslason náðu fyrir 3. gráðu svartbelti. Árangur á mótum var líka mjög góður á árinu

F

yrir rúmu ári fór deildin í nýja aðstöðu á Smiðjuvöllum. Aðstaðan hefur verið bætt smám saman og er nú nálægt því að komast í það form sem lagt var upp með í flutningunum. Aðstaðan er nú með því betra sem finnst á landinu. Taekwondo deild Keflavíkur er fjölmenningarfélag. Deildin fékk styrk til að vinna verkefni fyrir iðkendur af fjölbreyttum uppruna og tók sig til, gerði auglýsingar og fræðsluefni á mörgum tungumálum ásamt því að setja upp þjóðfána allra þeirra sem æfa hjá deildinni en í dag æfa 16 mismunandi þjóðerni hjá deildinni og yfir 20% iðkenda eru af erlendu bergi brotnir. Formleg opnun aðstöðu Bardagahallar Reykjanesbæjar var á vormánuðum. Þá var bæjarstóra, stjórnum og góðum gestum fagnað með sýningum

6

Jólablað 2019


eins og síðustu ár. Þrjú bikarmót voru á árinu og voru Keflavíkingar með næstbesta árangur allra liða landsins á mótunum, á eftir liði Aftureldingar sem eru núverandi Íslands- og bikarmeistarar. Í byrjun árs var Reykjavik International Games mótið haldið. Taekwondo var þar með í keppni eins og síðustu ár. Keflvíkingar náðu góðum árangri á mótinu og í lok keppninnar var Eyþór Jónsson úr Keflavík valinn keppandi mótsins. Norðurlandamótið í taekwondo var haldið á Íslandi á árinu en hvert af Norðurlöndunum heldur mótið á fimm ára fresti. Mótið var haldið í Reykjanesbæ líkt og fyrir fimm árum. Keflvíkingar áttu fámennt og gífurlega öflugt lið á mótinu en allir Keflvíkingarnir sýndu yfirburði í sínum bardögum og unnu allt sem þeir gátu unnið. Kristmundur Gíslason var Norðurlandameistari í -80kg flokki fullorðna, Ágúst Kristinn Eðvarðs-

son vann -58kg flokk fullorðna og var einnig valinn besti keppandi mótsins af um 350 keppendum. Þá vann Eyþór Jónsson -68kg flokk unglinga

en mætti þar Andra Sævari Arnarssyni einnig úr Keflavík í úrslitunum þar sem þeir höfðu sigrað alla sína erlendu andstæðinga á leiðinni og var því Andri í 2. sæti. Þá var Jón Steinar Mikaelsson einnig Norðurlandameistari í ungmennaflokki. Tveir keppendur frá taekwondo deild Keflavíkur kepptu á Heimsmeistaramóti fullorðna sem haldið var í Manchester í maí. Það voru þeir Kristmundur Gíslason og Ágúst Kristinn Eðvarðsson. Þetta var fyrsta heimsmeistaramót Ágústs í fullorðinsflokki en þriðja hjá Kristmundi. Báðir áttu sína takta á mótinu en duttu því miður úr leik í fyrstu umferð. Sumarið var með besta móti. Fjöldi námskeiða var í boði og öll námskeið seldust upp eins og árið á undan og var þetta besta þátttaka í sumarnámskeiðum hjá deildinni frá upphafi, en öll námskeið fylltust hjá krökkunum. Haustið byrjaði af krafti. Strax í upphafi kom fjöldi nýrra iðkenda að æfa hjá deildinni og barnahópar fylltust líkt og hefur gerst síðustu ár. Fjöldi þeirra sem æfðu á árinu 2019 fór vel yfir 200 í þeim fjölbreyttu æfingum og námskeiðum sem deildin býður uppá. Það er í fyrsta sinn í sögu deildarinnar sem slíkt gerist og ljóst að framtíðin er björt fyrir þetta öfluga félag. Í september hélt deildin opnar æfingabúðir með tveimur pólskum landsliðsmönnum, þeim Bartosz og Mikolaj. Æfingabúðirnar voru vel sóttar en fjöldið iðkenda með uppruna frá Póllandi æfa hjá deildinni sem og öðrum taekwondo deildum á landinu. Andri Sævar Arnarsson og Eyþór Jónsson voru báðir valdir til að keppa á Evrópumóti unglinga sem haldið var á Spáni í október. Þrátt fyrir ágætis undirbúning þá duttu þeir báðir úr leik í fyrstu umferð eftir keppni við sterka keppendur frá Króatíu og Serbíu. Það voru mikil vonbrigði en þeir eiga þó eitt ár eftir í unglingaflokki og bindum við vonir um betri árangur á næsta ári. Íslandsmótið í taekwondo var haldið í haust. Keflvíkingar mættu með nokkuð fámennt lið miðað við það sem hefur verið síðustu ár og árangurinn lét ekki á sér standa. Nánast allir keppendur Keflavíkur unnu sína flokka. Auk þess var Kristmundur Gíslason valinn besti bardagamaður mótsins. Þegar þetta er skrifað eru í það minnsta þrjú mót eftir á árinu sem deildin tekur þátt í. Það er bikarmót sem haldið verður í Reykjanesbæ í nóvember og svo stefnir öflugur hópur iðkenda til Manchester í Englandi á mót og eru margir að taka þátt í sínu fyrsta erlenda móti í bland við reyndari keppendur. Svo verður haldið jólamót Keflavíkur með nýjar rafbrynjur sem deildin fékk í haust, en þær brynjur hafa bylt því hvernig hægt er að æfa á skemmtilegan hátt hjá deildinni. Deildin hlakkar mikið til að takast á við næstu tímabil. Aldrei hafa jafnmargir æft hjá deildinni og mjög góður efniviður er í félaginu. Það verður gaman að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér með þessar komandi kynslóðir.

Jólablað 2019

7


drögum 28. des.

Vinnur þú Íí milljólaleiknum? Milljólaleiknum? 28 heppnir spilarar vinna heila milljón hver 28. desember. Þú kaupir 10 raðir eða meira í Lottó, Vikinglotto eða Eurojackpot til að komast í pottinn. Möguleikarnir aukast með áskrift því þá ferðu í pottinn í hverri viku þangað til við drögum!

8

Jólablað 2019 Nánar á lotto.is


VERKFRÆÐISTOFA SUÐURNESJA

Verkfræðistofa Suðurnesja óskar Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs

Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.

Viðurkennt þjónustuverkstæði

Grófin 14a, 230 Reykjanesbæ, sími 4216901

Sendum viðskiptavinum og landsmönnum öllum hugheilar jóla- og nýárskveðjur

Umhverfisvæn orkuframleiðsla í 40 ár Njótið jólana í birtu og yl frá umhverfisvænni framleiðslu www.hsorka.is

Jólablað 2019

9


Framtíðin er svo sannarlega björt í kvennaboltanum

Natasha fyrirliði.

Sveindís Jane lykilleikmaður. Varnamaðurinn Kristrún. okkar stelpum og erum við harðákveðin að fara æru Keflvíkingar upp strax að ári. Draga verður lærdóm af sumrinu, Hjá okkur í 2. fl. og mfl. kvenna hefur hugsa jákvætt, horfa fram á við og fara á fullt. Síðtímabilið verið mjög súrt og sætt á köflastliðin tvö ár höfum við notað fjallgöngu á hæstu um. tinda heims sem okkar leiðarljós fyrir hvern leik, Í fyrra vorum við í samstarfi við ÍBV með 2. fl. við náðum ekki á síðasta topp og þurftum frá að en í sumar þá héldum við sjálf út flokknum. Það hverfa að þessu sinni en mætum reynslunni ríkari var vitað í upphafi að sumarið gæti orðið erfitt og klárum verkið. Það tók Vilborgu Örnu nokkrar þar sem fjöldinn í flokknum var ekki mikill og tilraunir að sigra Everest! undantekningalaust þurfti að fá lánaðar stelpur Við höfum verið svo lánsöm síðastliðinn fjögur úr yngri flokkum en 2. fl. endaði í neðsta sæti í ár að hafa Gunna og Hauk sem þjálfara liðsins. B deildinni. Það er mikil gróska í yngri flokkum Árangur okkar og sú liðsheild sem ríkir í liðinu er félagsins og því mun 2. fl. koma sterkur inn þeirra óeigingjarna vinna og ástríða fyrir fótbolta fljótlega, uppbygging krefst þolinmæði. og að ná árangri. Við í meistaraflokki ætluðum okkur frá byrjun Okkur í kvennaráði langar að þakka þeim sérað berjast fyrir því að halda okkur í deild þeirra staklega fyrir afburða samstarf og hlökkum til að bestu og höfðum fulla trú á því verkefni. Stelpurnar okkar voru vinnusamar og grjótharðar í verkefninu en því miður dugði trúin ekki eingöngu því svo virtist sem lukkudísirnar höfðu algjörlega yfirgefið okkur. Leik eftir leik var stöngin ÚT. Við vorum oft á tíðum betri aðilinn með fullt af færum sem við því miður náðum ekki að nýta okkur. Til marks um þetta höfum við ítrekað átt leikmenn í lið umferðarinnar á hinum ýmsu miðlum sem fjalla um fótbolta og eftir síðustu umferð vorum við í 3. sæti eftir sumarið yfir liðin með flest „M“ hjá Mogganum og okkar frábæru leikmenn Natasha og Sveindís eru í 2. og 3. sæti eftir sumarið! Það er enginn vafi í okkar huga að við eigum fullt erindi í efstu deild, við höfum enn fulla trú á

K

10

Jólablað 2019

Á æfingu í Tyrklandi.

halda áfram baráttunni með þeim næstu árin. Framtíðin er svo sannarlega björt í kvennaboltanum því það bætist bara í hópinn ungar stúlkur sem eru valdar til að leika í yngri landsliðum Íslands. Þær Sveindís, Íris, Katla, Amelía og Kara Petra hafa allar verið virkar með landsliðunum á þessu ári. Einnig má geta þess að markmaðurinn okkar hún Aytac er einnig í landsliði Azerbaijan. Ýmislegt var gert á tímabilinu annað en að keppa í fótbolta. Við héldum okkar árlega Geo silica mót í febrúar þar sem um 470 stúlkur í 5.-7. flokki kvenna létu til sín taka. Þátttakendum fjölgar ár frá ári og er þetta stór liður í því að hlúa að knattspyrnukonum framtíðarinnar. Í apríl var farið í æfingarferð til Tyrklands sem var skemmtileg upplifun. Eins og venjan er var vel tekið á því á æfingum og margt annað gert til að þétta hópinn. Ógleymanleg ferð til að undirbúa líkama og sál og skapa góðar minningar í góðum félagsskap. Frábært konukvöld var í apríl og að venju skemmtu allir sér konunglega og þvílíkur stemmari í hópnum. Mig langar sérstaklega að þakka stelpunum mínum, ég er mjög stolt af ykkur. Einnig vil ég þakka þjálfurunum, stuðningsmönnum sem voru frábærir í sumar, styrktaraðilum og stjórn knattspyrnudeildar sem hefur unnið þétt með okkur á tímabilinu og er ég þess fullviss um að við verðum enn sterkari árið 2020. Benedikta Benediktsdótir. Formaður Kvennaráðs.


Óskum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls árs.

Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

Fitjabraut 30, 260 Reykjanesbær - www.bilnet.is - Sími 420 0040

Búnar að sigra alla leikina.

Vinabæjarmót í Noregi

V

inabæjarmót í knattspyrnu var haldið í Kristiansand í Noregi í sumar og fór stúlknalið frá Keflavík og drengjalið frá Njarðvík fyrir hönd Reykjanesbæjar. Níu stúlkur frá Keflavík fóru ásamt þjálfara og liðsstjóra. Lagt var af stað 23. júní til Kristiansand, stelpurnar voru mjög glaðar og spenntar fyrir ferðalaginu. Eftir tvö flug og langa rútuferð var kærkomið að komast á leiðarenda. Við gistum á heimavist rétt fyrir utan Kristiansand. Þar var vel tekið á móti okkur og aðstaðan algjörlega til fyrirmyndar. Fótboltavöllurinn var í nokkurra mínútna fjarlægð frá okkur og því stutt að fara til að keppa. Stelpurnar spiluðu við lið frá Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Einn til tveir leikir voru spilaðir á dag og stóðu stelpurnar sig frábærlega á fótboltamótinu. Þær lögðu sig allar fram, skemmtu sér vel og spiluðu flottan fótbolta. Þær voru algjörlega til fyrirmyndar bæði innan sem og utan vallar. Þær sigruðu alla sína fótboltaleiki og unnu þar af leiðandi mótið. Til að fagna síðasta sigrinum tóku stelpurnar hið víðfræga HÚH fyrir framan stúkuna þar sem Njarðvíkurstrákarnir hvöttu þær áfram. Mikill vinskapur myndaðist á milli hópanna og skemmtu þau sér við að fara í strandblak, spila fótbolta, hoppa fram af klettum ofan í stöðuvatn sem var steinsnar frá okkur. Við fórum einn daginn í bæjarferð inn í Kristiansand þar sem farið var í dýragarð,

rölt um miðbæinn, kíkt í búðir og á McDonalds, farið á ströndina að vaða og notið dagsins. Eftir skemmtilega, lærdómsríka og góða ferð var kærkomið að komast heim með mikla reynslu í farteskinu.

Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.

KJG

KEÓ

Kristín Geirmundsdóttir og Kristín Erla Ólafsdóttir, tannlæknar og starfsfólk Hafnargata 45 • Sími 421 8686

Á flugvellinum á leiðinni út

Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.

Gera sig tilbúnar fyrir fyrsta leik. Besti samanlagði árangurinn hjá Reykjanesbæ og Keflavíkurstúlkur unnu mótið.

Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár

Haf narg ata 20 • Sími 4 20 4000 • studlaberg.i s

Jólablað 2019

11


Meistaraflokkur karla:

Knattspyrnan er á vegferð S tjórn knattspyrnudeildar Keflavíkur á sér þann draum að gera bæði Keflavíkurliðin samkeppnishæf við bestu knattspyrnulið landsins og að stytta langþráða bið eftir bikar suður með sjó. Að lyfta bikar á loft er ólýsanlega góð upplifun sem við Keflvíkingar þekkjum vel og þessa tilfinningu viljum við endurvekja sem oftast í framtíðinni. Hjá okkar félagi er mikil sigurhefð og löng saga um velgengi. En þegar rýnt er í söguna þá hafa velgengnistímabil okkar einkennst af því þegar vel hefur tekist að byggja upp sterkan kjarna af leikmönnum sem hafa sterkar taugar við Keflavíkurmerkið. Um þessa vegferð ríkir mikill metnaður hjá stjórn knattspyrnudeildar Keflavíkur, en við erum jafnframt vel meðvituð um að þetta getur tekið tíma og það mun reyna á þolinmæði okkar stuðningsmanna. En við erum engu að síður lögð af stað og ætlum okkur að byggja og ala upp stóran og sterkan kjarna af leikmönnum sem eru tilbúnir að leggja sig fram fyrir Keflavík. Það eru ýmsar leiðir færar til að stytta biðina og koma Keflavík aftur á meðal sterkustu knattspyrnuliða á Íslandi. Fyrst þurfum við að sjá til þess að efniviðurinn sé til staðar hjá félaginu. Þar skiptir mestu að við höfum nógu marga iðkendur í barna- og unglingastarfinu, að í þjálfarateyminu sé nægileg þekking, þrautsegja og metnaður til að ná þeim árangri sem við sækjumst eftir og loks að við séum að byggja upp nógu stóran hóp af afrekshugsandi fólki í meistarflokkunum. Þá skiptir það ekki síður miklu máli að hafa góða umgjörð og aðstöðu fyrir æfingar, að fjölga stuðningsmönnum og loks að afla fjármagns til starfsins. Allt eru þetta hlutir sem stjórn félagsins er nú að vinna markvisst að og sækist eftir stuðningi allra sannra Keflvíkinga við það. Síðasta sumar reyndi svolítið á þolinmæði okkar stuðningsmanna, en á sama tíma var ekki annað hægt en að dást af okkar þjálfurum og leikmönnum fyrir það hvað þeir lögðu mikið á sig. Uppskeran í

12

Jólablað 2019

Natasha Anasi og Magnús Þór og voru valin best eftir sumarið. Ásamt Benediktu Benediktsdóttur og Hermanni Helgasyni.

Marki fagnað gegn Þór Akureyri.


lokin reyndist fremur rýr, en þegar upp var staðið þá vantaði ekki mikið uppá að hún væri góð. Keflavíkurstelpurnar lögðu allt í sölurnar á síðasta tímabili, en höfðu ekki árangur sem erfiði. Uppskera þeirra voru rýr 13 stig í 5 leikjum í Pepsí deild og 13 tapleikir, þar af voru 6 tapleikir á heimavelli. Hlutskipti þeirra var því að fara niður um deild, sem voru vonbrigði í ljósi þess hve litlu munaði. En aðeins vantaði 2 sigurleiki í viðbót til að halda sér uppi í deild þeirra bestu. Keflavíkurstrákarnir voru í framför allt sumarið, þótt árangurinn hafi verið brokkgengur. Uppskáru þeir 34 stig í 14 leikjum í Inkasso deild, og 8 tapleikjum, þar af voru 4 tapleikir á heimavelli. Hlutskipti þeirra var 5. sætið í deildinni sem var í samræmi við væntingar. Enn og aftur vantaði lítið uppá, því þá vantaði aðeins 3 sigurleiki til að komast aftur í deild þeirra bestu. Lærdómurinn af þessu er að hver einasti leikur skiptir máli og ef vel á að fara þá verða tapleikir á heimavelli að vera algjör undantekning. Ef við lítum um öxl til síðasta tímabils, þá töpuðu Keflavíkurliðin of mörgum heimaleikjum og hver veit hvað hefði gerst ef árangurinn heima hefði verið betri. Krafa okkar stuðningsmanna er að öllum liðum kvíði fyrir því að koma í heimsókn á okkar heimavöll því að þar megi þau reikna með tapi. Þar höfum við stuðningsmenn hlutverki að gegna og

Marki fagnað gegn Val hjá stelpunum.

Stelpurnar fagna marki gegn ÞórKA. getum skipt sköpum ef við fjölmennum á leiki og styðjum liðin okkar. Í leikmannahópi síðasta tímabils var stór hópur

af efnilegum Keflvíkingum sem sýndi það best hve mikið af efnivið er nú til staðar. Meðalaldur kvennaliðsins var um 22 ár á meðan meðalaldur Íslandmeistara Vals var 28 ár. Meðalaldur karlaliðsins var 21 ár á meðan meðalaldur Íslandsmeistara KR var 29 ár. Bestu lið landsins höfðu því um 6 – 8 ára forskot á okkar lið í reynslu, sem segir okkur að framtíðin getur orðið björt hjá Keflavík ef við höldum áfram á sömu baut. Með sama leikmannahóp og sömu framfarir þarf ekki að vera langt að bíða meiri árangurs. Árangur á knattspyrnuvellinum er góð blanda af draumum og drifkrafti. Til þess að draumarnir rætast verðum við að treysta á að drifkrafturinn sé til staðar þegar á reynir. Við eigum allt undir því komið að allir sem vettlingi geta valdið séu tilbúnir að leggja sitt af mörkum til að láta drauminn rætast. Ég trúi því að að allir sannir Keflvíkingar deili þessum draumi með okkur og styðji okkur á þessari vegferð knattspyrnudeildarinnar. Áfram Keflavík Sigurður Garðarsson, formaður

Strákarnir fagna sigurmarkinu í Ólafsvík.


Villtur dans í Gautaborg A

ð uppskera eins og sáð er til er alltaf svo gaman og það var þannig í tilfelli tæplega 40 drengja í 3. flokki sem héldu til Gautaborgar á Gothia Cup í sumar. Ungir piltar, sumir hverjir með fyriráætlanir um glæstan fótboltaferil, aðrir sem elska leikinn en stefna annað til framtíðar og svo enn aðrir sem sækjast í skemmtilegan leik samhliða góðum og samheldnum félagsskap. Nokkurn veginn svona var samsetning þessara bráðhressu drengja sem höfðu eytt vetrinum í æfingar og fjáraflanir til þess að uppskera geggjaða viku á Gothia Cup með öllu sem því fylgir. 13. júlí rann upp bjartur og fagur og hópurinn safnaðist saman í hinni víðfrægu flugstöð Keflavíkur. Ferðalagið á áfangastað gekk ljómandi vel og var hópurinn mættur skömmu fyrir náttmál í Lerlyckeskolan í Svíþjóð. Hópurinn var keyrður þangað af viðkunnanlegum íslenskum bílstjóra sem kvaddi okkur með þeim orðum að láta nú engan vera einan úti og alls ekki eftir myrkur, þetta hverfi væri frægt í Gautaborg fyrir alls kyns vandamál og vandræðagang. Það sló nú aðeins á fjörið í hópnum við þessar fréttir en áralöng sambúð okkar Keflvíkinga með fólkinu í póstnúmeri 260 var okkur gott veganesti næstu daga. Eftir svefnlausa nótt kom sólin upp og sáum við nú þá að það var aðeins orðum ofaukið að tala um hverfið á slæmum nótum, þetta var allt saman ljómandi fínt. Eins og sannra Keflavíkinga er siður þá fór hópurinn strax í það að undirbúa sig fyrir fótboltaveislu vikunnar. Staðgóðir málsverðir eru lykilatriði þar og einhverra hluta vegna þá eru margir piltar á unglingsaldri sannfærðir um að máltíð á McDonalds sé morgun-, hádegis- og kvöldmatur meistaranna. Það var því farið í að sannreyna það. Næstu dagar einkenndust af nýjum áskorunum. Í stað þess að keppa við Gróttu í 10 gráðum á

14

Jólablað 2019

þvölu gervigrasi fengu okkar menn að spreyta sig á nýjum andstæðingum við nýjar aðstæður en lið eins og Bubamara Zagreb, Winchester College og Tyreso FF Röd voru í riðlunum með Keflavík. Riðlakeppnin hjá okkar liðum gekk upp og ofan, margir leikir voru nokkuð jafnir og gátu sigrarnir lent hvoru megin sem var. Keflavík eldra endaði í þriðja sæti síns riðils. Keflavík 1 vann sinn riðil með yfirburðum, 17 mörk í plús, og Keflavík 2 endaði í fjórða og neðsta sæti síns riðils. Á Gothia Cup tekur útsláttarkeppni við af riðlakeppni og þar er það ekki alltaf hjartað og hugurinn sem sem skiptir máli, heppnin ræður þar oft

för og miskunnarleysi hins fallega leiks opinberar sig. Keflvíkingar áttu svo sannarlega eftir að upplifa það. Keflavík 1 mætti knáum piltum úr bæ sem kenndur er við garða, eða svokölluðum Garðabæ, í fyrsta útsláttarleiknum sínum. Hörkuleikur þar sem allt var gefið í verkefnið. Keflvíkingar þurftu að sætta sig við tap í þessum leik sem varð svo enn grátlegra þegar fram í mótið sótti því mótherji þeirra endaði á því að standa uppi sem sigurvegari í þeirra aldursflokki á mótinu. Nokkuð ljóst að þetta lið hefði farið ansi langt í mótinu ef sigur hefði unnist í þessum slag. Keflavík 2 mætti í sínum útsláttarleik brjálæðingunum í Reading Rage frá Bandaríkjunum. Fróðlegt var að fylgjast með þeim leik af hliðarlínunni og þá sérstaklega þeim menningarmun sem fylgir áhangendum á kappleikjum. Keflvíkingar áttu það til að hlaða í einstaka tæklingar ala Einar Orri og fór það svo fyrir brjóstið á Bandaríkjamönnum á hliðarlínunni að öllum hömlum var varpað til hliðar. Dagsfarprúðar húsmæður og feður úthúðuðu bæði leikmönnum og dómurum og þegar verst lét héldu Svíar í stúkunni fyrir eyru barna sinna og Íslendingar fóru með bænir. Leiknum lauk með 1-0 sigri reiða fólksins frá Reading og enn eitt Keflavíkurliðið úr leik. Keflavík eldri mætti fornfrægu sænsku félagi í sínum útsláttarleik en þar var um hörkuleik að ræða. Rólegt var nú framan af en undir lok leiksins dró til tíðinda, sænska liðið skoraði þá mark sem lyktaði ansi mikið af rangstöðu. Við þetta fílefldust okkar menn og ákváðu Siggi Orri og Björn Bogi að nú skyldu þeir skora sitthvort markið sem þeir og gerðu, 2-1 sigur niðurstaðan og áfram gakk. Síðar sama dag var komið að því að taka Buckinghamshire RTC í bakaríið, sýna þeim hvar Davíð keypti ölið og allt það. Leikvangurinn var Backa-


vallen og varð þar úr hörku fótboltaleikur sem lauk með sigri drengjanna frá Buckinghamskíri 1-0 og þar með öll okkar lið úr leik á mótinu. En það var ekki bara fótboltinn sem efldi unga menn í þessari ferð, það var margt annað brallað og ekki hvað síst var gaman að kynnast ungu fólki frá öðrum löndum, m.a. voru á sama gististað og Keflavík lið frá Afríku, Svíþjóð og auðvitað frá öðrum bæjum á Íslandi að ógleymdum frábærum RKV stelpum sem gistu í sama skóla og Keflavíkurliðin. Ferðir sem þessar skipta miklu máli með tilliti til þess að þróa og þroska fótboltahæfileika hvers og eins en ekki er verðmæti þeirra síður fólgið í því að efla félagsfærni drengjanna, styrkja vinskapinn og þroska andann samhliða því að öðlast aukinn skilning á því hvað felst í því að vera sannur Keflavíkingur. Öllum þeim sem studdu drengina til ferðarinnar eru færðar bestu þakkir. Áfram Keflavík. Fararstjórn 3. flokks drengja á Gothia Cup 2019

ÚRVALIÐ Í JÓLAPAKKANN ER HJÁ OKKUR

FARTÖLVUR BORÐTÖLVUR SPJALDTÖLVUR SNJALLSÍMAR HEIMILISTÆKI STÓR OG SMÁ SJÓNVÖRP HEYRNATÓL HÁTALARAR

Reykjanesbæ HAFNARGATA 40 - S: 422 2200

Jólablað 2019

15


Frábær fótboltavika í Gautaborg Þ ann 13 júlí sl. fóru 27 stúlkur úr 4. flokki RKV, sem er sameinað lið Reynis Sandgerði, Keflavíkur og Víðis Garði, í langþráða keppnisferð til Gautaborgar. Til að ferðin gæti orðið að veruleika þurftu stúlkurnar að standa fyrir margskonar fjáröflunum, þær seldu happdrættismiða, fiskmeti, týndu rusl, söfnuðu dósum, héldu maraþon og sitthvað fleira til að safna fyrir ferðinni. Án foreldra, annarra ættingja og vina væri erfitt að fara í slíkar ferðir og kunna þær öllum þeim sem styrktu þær fyrir ferðinni bestu þakkir. Loksins rann dagurinn upp, stúlkurnar og fararstjórarnir hittust í flugstöðinni, spennan leyndi sér ekki og gleðin var við völd. Eftir innritun var tekinn hringur í FLE og svo haldið um borð. Flugferðin gekk vel og allur farangur skilaði sér blessunarlega til Gautaborgar. Næst lá leiðin í Lerlyckeskolan en þar gistum við ásamt nokkrum öðrum liðum, m.a. drengjaliðum Keflavíkur og KR. Húsverðir skólans tóku á móti okkur og voru einstaklega hjálpsamir og hressir, sáu um að kaffiþyrstir fararstjórar fengju nóg koffín og svo spiluðu þeir fótbolta á skólalóðinni við krakkana þegar tími gafst til. Eftir að hafa komið okkur fyrir í skólastofunum var boðið upp á kvöldsnarl sem nokkrir foreldrar höfðu útbúið og svo var það koddinn. Sunnudagurinn tók á móti okkur með sól og hlýju og stúlkurnar voru snöggar á fætur. Allur matur var borinn fram í öðrum skóla spölkorn frá og þangað héldum við. Eftir snæðing var strætó tekinn á mótssvæðið svo hægt væri að ganga frá lokaskráningu en þar var einnig hægt að versla ýmsan varning tengdan mótinu, s.s. merkta boli, lyklakippur og derhúfur og nokkuð líklegt að gerð hafi verið góð kaup þar! Ákveðið var að kynna okkur miðborgina en þegar dömurnar ráku augun í McDonalds var ekki annað í stöðunni en að gefa þeim að borða, svo var kíkt í nokkrar búðir og borgin skönnuð. Eftir kvöldmat var spilaður fótbolti og pókó við krakkana í skólanum, svo var farið í háttinn því það var ræs snemma næsta dag. Stúlkurnar kepptu með tvö lið á mótinu, annað í 14 ára aldursflokki en hitt í 13 ára. Bæði lið áttu leiki við sænsk lið á mánudeginum, leikirnir gengur ágætlega og náði yngra liðið í jafntefli en það eldra liðið tapaði naumlega. Næst á dagskrá var opnunarhátíðin, hún fór fram á Ullevi leikvanginum sem tekur 50 þúsund áhorfendur í sæti. Hátíðin og umgjörðin var virkilega flott en stúlkurnar okkar voru fulltrúar Íslands til að ganga inn á leikvanginn en eitt lið frá hverju landi er valið í það verkefni. Stór hópur foreldra voru meðal áhorfenda sem fögnuðu þeim sérstaklega, virkilega skemmtileg upplifun sem gaman verður að segja frá. Þreyttar en sælar

Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða

stúlkur sofnuðu fljótt enda leikir snemma næsta dag. Eldra liðið hóf leik á móti norsku liði og annað tap leit dagsins ljós. Yngra liðið rétt náði á völlinn eftir ævintýralega lestarferð í ranga átt en þar beið amerískt akademíu lið sem tók stigin þrjú. Eftir svekkelsi dagsins var ekkert annað í stöðunni en að hressa sig við og skella sér í Lysebjerg en það er frábært tívolí sem gerði slæman fótboltadag frábæran. Eftir nokkra klukkutíma í fallturni, rússíbönum og risa rólu var haldið heim á leið. Á miðvikudeginum voru svo síðustu leikirnir í riðlunum, eldra liðið náði jafntefli á móti sínum andstæðingum og yngra liðið sigraði sína. Bæði liðin tóku 3. sæti í sínum riðlum. Það þýddi að bæði lið fóru í svokölluð B-úrslit. Þar féll eldra liðið úr keppni í 32 liða úrslitum eftir spennandi vítaspyrnukeppni við Breiðablik en það yngra tapaði naumlega sínum leik í 16 liða úrslitum á móti sænsku liði. Bæði lið höfðu þá lokið keppni á mótinu, fótboltareynslunni ríkari, en þess má til gamans geta að bæði liðin lentu í riðli með sigurvegurum mótsins í þessum aldursflokkum. Það sem eftir lifði ferðar var nýtt í strandferð, gokart, búðarráp, Lysebjerg, McDonalds og samverustundir með öðrum krökkum í skólanum. Vikan leið aðeins of hratt, stúlkurnar voru félaginu til mikils sóma og það var afar ánægjulegt að taka þátt í þessu ferðalagi með þeim. Umgjörð mótsins var virkilega flott og nokkuð ljóst að margar minningar söfnuðust í bankann þessa viku. Fararstjórar 4. flokks kvenna á Gothia Cup 2019

Óskum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls árs.

Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

Iðavöllum 6 • Sími 421 4700 • www.vikuras.is

16

Jólablað 2019


Keppnistímabil 2. flokks - Hvað þarf til?

F

yrirsögnin að þessu sinni, Hvað þarf til? er eitthvað sem undirritaður veltir mikið fyrir sér þegar kemur að þjálfun. Vangaveltur sem við verðum að velta fyrir okkur þegar einstaklingar mæta til æfinga, við erum ekki í þeirri stöðu að geta valið í hóp og einungis hugað að ala upp fótboltamenn fyrir meistaraflokk líkt og klúbbar víðsvegar um Evrópu. Að mínu mati er verkefnið mun veigameira en svo, hlutverkin eru svo fjölþætt í fótboltauppeldinu og margir þættir sem hafa áhrif. Líta má á keppnistímabilið hjá 2. flokki síðastliðið ár með mörgum mismunandi gagnrýnis augum, eitthvað sem við eigum ætíð að vera tilbúin til að gera. Gagnrýni er ekkert nema af hinu góða, svo lengi sem jákvæð uppbygging eigi sér stað í framhaldinu. Íslenska er frábært tungumál, sem ég ætla nú ekki að kryfja neitt sérstaklega hér en ef við rýnum í orðið og brjótum það aðeins niður þá kemur skilningurinn, minn skilningur, að rýna til gagns. Þannig að hvatningin er, verum aldrei hrædd við rýna til gagns. Því miður kom það í okkar hlut að fara niður um deild sem er aldrei skemmtilegt en ef við lítum á þau markmið sem við setjum okkur sem klúbbur, eins og má lesa um síðar í pistlinum, þá höfum við náð mörgum öðrum markmiðum. Við stöndum vörð um forvörn, alls skiluðu sér 18 einstaklingar upp úr flokknum, þar af margir sem koma til með að taka þátt í meistaraflokksbolta á komandi keppnisári. Það voru 8-9 einstaklingar sem æfðu og spiluðu með meistaraflokk Keflavíkur og Víðis en það samstarf var sett á koppinn fyrir tímabilið. Við áttum þrjá landsliðsmenn og svona mætti lengi telja. Menn úr bæjarfélaginu sem og innan klúbbsins spyrja undirritaðan um árangur og af hverju flokkurinn sé ekki að ná árangri en spyrjum okkur frekar og veltum fyrir okkur, hvað sé árangur? Þessari spurningu er ekki svo auðsvarað og því leyfum við henni bara að fljóta aðeins um, leika lausum hala. Nýráðinn þjálfari meistaraflokks karla segir í góðum pistli sínum að ástríða sé lykillinn að árangri, á meðan annar segir að samstaða sé lykillinn. Fyrst og fremst þarf að skilgreina orðið áður en lyklarnir eru sóttir. Hlutverk þjálfara sem uppalanda eru svo fjölbreytt og margþætt; ala upp fótboltamann fyrir meistaraflokk, búa til félagsanda, skapa sannan

Keflvíking, fórn fyrir félagið með sjálfboðavinnu, styrkja einstaklinginn þannig að hann sé tilbúinn til þess að mæta þeim verkefnum sem bíða hans, ekki bara inn á vellinum heldur einnig utan vallar og halda í heiðri forvörninni sem fótbolti og þátttaka í hópíþrótt getur svo sannarlega verið. Listinn er langt frá því að vera tæmandi. Eins og þið sjáið, elsku lesendur, þá er þjálfarastarfið svo langt um meira en bara að mæta til æfinga, þjálfa og fara svo heim. Starf þjálfarans er hugsjón – það er ástríða og fórn. Reynslusögur þjálfara sem hafa þor til að nálgast þjálfun á annan hátt, stíga út fyrir þægindarammann, gefa meira af sjálfum sér en jafnvel er ætlast til af þeim og hafa kjark, þor til að fara leiðir sem eru jafnvel ekkert endilega vinsælar má finna víðsvegar, t.a.m. á hvíta tjaldinu. Orðatiltækið carpe diem er tekið úr latínu og með beinni þýðingu „GRÍPTU DAGINN“, má finna í einni slíkri kvikmynd. Upprunann má rekja til rómverska skáldsins Hóratíus sem var uppi nokkrum árum fyrir Kristburð og var eitt helsta skáld rómverskar kveðskapar. Hugsa nú að flest okkar muni eftir orðatiltækinu úr Hollywood-myndinni, sem leikarinn Robin Williams gerði svo ódauðlega með leik sínum í kvikmyndinni Dead Poet Society. Fyrir ykkur sem ekki hafið séð myndina, sem vakti mikla athygli á sínum tíma, þá er tilvalið að ná sér í popp og kók, hlamma sér í sófann og njóta myndarinnar. Get lofað ykkur því að þið sjáið sko ekki eftir þessum tveimur klukkustundum. Í stuttu máli þá fjallar myndin um leiðbeinanda, leikinn af Robin Williams heitnum, sem ræður sig sem kennara við skóla einn í Bandaríkjunum. Það sem er sérstakt

við þennan kennara er að hann hefur kjark, þor til þess að gera hlutina öðruvísi, kryddar kennsluna með óhefðbundnum kennsluaðferðum sem koma eins og ferskir vindar inn í skólann. Hann leggur áherslu á að einstaklingurinn þori að stíga út fyrir kassann, hugsi sjálfsætt, fylgi sannfæringu sinni og hafi kjark til að gera mistök, sem hann gerir svo sannarlega sjálfur. Innleiðing kennarans á orðunum carpe diem í kvikmyndinni er eftirminnileg og ekki minnst áhugaverð, að grípa daginn. Sjá öll tækifæri sem dagurinn hefur upp á að bjóða og notafæra þau sér í vil. Hver dagur, hver æfing, hvert augnablik býður upp á tækifæri, það er okkar að sjá þau, grípa og notfæra til að þroska líkama og sál. Allar þær umbreytingar sem eiga sér stað innra með okkur við þessa nálgun þroskar einstaklinginn og gerir hann undirbúnari til þess að takast á við verkefnin sem mæta honum. Einkunnarorð 2. flokks Keflavíkur þetta keppnisárið eru:

METNAÐUR – DUGNAÐUR GÆÐI – GLEÐI Tel að það felst mikill árangur í því ef einstaklingar hópsins hafa þessi orð í hávegum, ná að tileinka sér þau og hafa trú á að orðin skili þeim árangri sem þeir leggja í þau. Njótið komandi tíðar og „carpe diem“ til ykkar allra Fótboltakveðja Unnar Stefán Sigurðsson þjálfari 2. flokks Keflavíkur

Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.

Jólablað 2019

17


Óskum íþróttafólki svo og öðru Suðurnesjafólki

gleðilegra jóla

og farsældar á nýju ári

ÍS-SPOR VERÐLAUNAGRIPIR

S ími 5 8 8 3 2 4 4 - i s s p o r. i s

Óskum félagsmönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsæls komandi árs

Jólakveðja – Bestu gjafirnar Kr ossmóa 4 a - S í m i 5 3 5 6 0 2 5

Óskum félagsmönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsæls komandi árs

Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis Kr ossmóa 4 a - S í m i 4 2 1 5 7 7 7

Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls árs.

Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

Bolafæti 3, 260 Reykjanesbæ, sími 421 4117

18

Jólablað 2019

H

ugleiðing mín þegar styttist í jólin, þar sem flestir taka við gjöfum og gefa þær, er sú að á hverjum einasta degi eigum við þess öll kost að gefa sjálfum okkur gjafir sem eru þær allra bestu sem fyrirfinnast, taka ekkert geymslupláss og kosta okkur ekki eina einustu krónu. Þær snúast allar um það að vera sífellt að leggja inn í eigið líf og byggja okkur upp. Síðan í byrjun árs 2016 hef ég umgengst hundruð Keflvíkinga í störfum mínum fyrir meistaraflokk karla, Afreksbraut Fjölbrautaskólans og yngri flokka og það er auðvelt að sigta út hvaða leikmenn búa yfir skilningi á þessu. Tveir leikmenn karlaliðsins hafa farið í atvinnumennsku og einn hefur sett leikjamet yfir fjölda leikja í unglingalandsliðunum. Flestum stelpnanna sem hafa verið í unglingalandsliðunum undanfarið hef ég notið þeirrar sönnu ánægju að kynnast í gegnum æfingar Afreksbrautar FS, með Gunna Jóns. Ég gæti nefnt mun fleiri leikmenn meistaraflokks og ekki síður unglingana sem stunda æfingar Bláa liðsins á morgnana, fyrir skóla. Fyrrnefndir leikmenn eru frábær dæmi um leikmenn sem helga sig sinni iðkun af ákveðni, stillingu og þolinmæði, og glata ekki jafnaðargeðinu eða sýninni á markmið sín, þrátt fyrir hæðir og lægðir í genginu innan vallar. Þau hafa öll æft mikið aukalega, meira en meðalmaðurinn og í framhaldi af því, náð lengra en hann. Þau vita sem er, að með því að leggja sig fram á hverjum degi með viljann og ástríðuna að vopni, eru þau að leggja inn, gefa sjálfum sér gjafir sem munu bera ávöxt, fyrr eða síðar. Sá sem umgengst svona fólk á hverjum degi, getur ekki annað en dáðst að eljunni og ástríðunni sem rekur þau áfram. Engar efasemdir, engar kvartanir, engar afsakanir og engar fingrabendingar. Verkin tala og

forskotið í samkeppninni finnst, auk þess að búa yfir miklum hæfileikum, í því að vita og kunna allt sem að þeirra hlutverki snýr, læra jafnt af töpum og sigrum og eflast á hverjum degi. Skilaboðin sem ég vonast til að lesendur taki út úr lestri þessarar greinar eru fyrst og fremst þau að umrætt knattspyrnufólk hafði ekkert fleiri þjálfara eða betri æfingaaðstæður en aðrir leikmenn í umhverfinu, heldur lagði meira á sig en flestir aðrir, þau vildu þetta meira en aðrir og gáfu því sjálfum sér þær gjafir á hverjum degi að leggja sig fram af heilum hug, varðandi allt sem snéri að ástundun. Sem þjálfari veit ég alltaf nákvæmlega hvað ég mun fá frá þessu fólki, þegar það mætir til æfinga, alveg sama hvernig veðrið er eða hvað stendur á dagatalinu eða klukkunni. Ég fæ að upplifa hreinræktaða ástríðu fyrir leiknum, fulla athygli, þolinmæði, metnað og forvitni um hvernig þau geti orðið örlítið betri en þau voru í gær. Frammistaða þessa fólks er ekki fullkomin á hverjum degi frekar en hjá öðrum, langt því frá, en framlagið bregst ekki. Um leið og ég óska öllum Keflvíkingum gleðilegra jóla og alls hins besta á komandi ári með þökkum fyrir þau liðnu vil ég benda á að Samúel Kári Friðjónsson ber öll sömu einkenni og hér eru nefnd fyrir ofan. Það skynja ég þegar ég tala við hann og það hef ég séð í þau skipti sem hann kemur og æfir með okkur og skilur til dæmis alla eftir í rykinu, þegar kemur að hlaupaæfingum. Arnór Ingva þekki ég minna, persónulega en ævintýralegt sigurmark hans gegn Austurríki fyrir framan tugi þúsunda á Stade de France á EM 2016 í öllu sínu samhengi er ljóslifandi sönnun þess að nákvæmlega ekkert er ómögulegt fyrir þau sem sækja fast og ákveðið að sínum markmiðum. Og láta ekkert stoppa sig. Eysteinn Húni Hauksson.


Framtíðin er björt

þegar horft er fram á við

Þ

egar horft er til baka er nokkuð ljóst að framtíðin er björt þegar horft er fram á við. Árið 2009 virkjuðum við loftaðstöðuna okkar á Sunnubrautinni í Vatnaveröld aftur eftir að hafa verið í pásu frá smáþjóðaleikunum 1997, en þá með unglingastarfsemi í huga. Sú aðstaða er uppi á lofti en árið 2016 fengum við núverandi aðstöðu til að iðka loftgreinar á fyrstu hæðinni í Vatnaveröld. Á aðeins þremur árum höfum við bætt aðstöðuna til muna og erum við búnir að koma upp einni fullkomnustu aðstöðu á landinu til að iðka loftskotgreinar. Frá bandavélum í rafrænar gildrur og skotherma. Skothermar gera yngri en 15 ára kleift að æfa hjá okkur. Skothermarnir sem við höfum eru ótrúleg viðbót við þjálfunina þar sem þeir segja þér frá öllum ferlinum, frá því þú lyftir upp byssunni þangað til þú hefur lokið skotferlinum, þ.e.a.s. lagt niður byssuna og skoðað árangurinn. Þannig er hægt að greina hin ítarlegustu atriði sem enginn þjálfari gæti gert með berum augum.

Frumkvöðlar á ýmsum sviðum Það má segja að við í Skotdeildinni séum miklir frumkvöðlar á hinum ýmsu sviðum. Við vorum fyrstir allra skotíþróttafélaga/deilda til að hljóta Fyrirmyndarstimpil ÍSÍ. Við vorum fyrstir til að byggja aðstöðu fyrir liggjandi skotíþróttir á landinu. Við vorum fyrstir til að kenna skotíþróttir sem valfag í grunnskólum. Við vorum fyrstir til að setja upp lýsingu fyrir skotmörk á riffilvellinum. Við vorum fyrstir af okkar kollegum til að setja upp veðurstöð á skotsvæðinu okkar þar sem hægt er að fara á netið og fylgast með veðrinu í rauntíma og aftur í tímann á heimasíðunni okkar. Að því sögðu ætlum við ekki að staldra við þar, við erum með í framtíðarsýninni okkar áherslur þar sem við horfum til umhverfissjónarmiða sem þekkjast hvergi annars staðar, þannig að þið fylgist spennt með. Við ætlum að skoða það að lýsa upp haglabyssuvellina þannig að hægt sé að nýta kvöldstyllur og skjóta leirdúfur.

Íslandsmeistaramót 300 metrar liggjandi.

Íslandsmeistarar í 300 metrum liggjandi Liðakeppni.

Kíkirinn stilltur.

Íslandsmeistaramót 300 metrar skotmörkum stillt upp.

Unglingastarfsemin Skotdeild Keflavíkur hefur boðið unglingum upp á fríar æfingar líkt og undanfarin ár. Unglingarnir okkar borga ekki félagsgjöld, æfingagjöld, keppnisgjöld né þurfa að útvega sér skot, skífur eða loftbyssur né loftriffla til að æfa loftgreinarnar. Fjölgun er á unglingum sem stunda æfingar frá því í fyrra og miðað við fjöldann sem hefur verið að mæta undanfarið er framtíðin spennandi.

50m BR.

Íslandsmeistarar

Sunnudagsmessa Formanns

Íslandsmeistarar á árinu eru fimm talsins. Liðakeppni í 300 metrum liggjandi. Theodór Kjartansson, Bjarni Sigurðsson og Árni Þór Erlendsson. Í

Þegar ég ber saman árin frá árinu 2009 til 2019 þá hafa borgandi félagsmenn farið frá tölunni 249 upp í rúmlega 700. Það er þó nokkur aukning á

loftriffli unglingsdrengja er Magnús Guðjón Jensson Íslandsmeistari, en hann varð einnig Íslandsmeistari í loftskammbyssu unglingsdrengja.

borgandi félagsmönnum. En með aukningu í félaginu þá kallar það á aukna vinnu við ýmislegt. Það er skotið meira, umgengni er meiri og það þarfnast allt aukins viðhalds. Á árinu voru t.d. skotnir miklu fleiri leirdúfuhringir en gengið hefur undanfarin ár. Við þökkum æfingarstjórum kærlega fyrir sem stóðu vaktina með einstakri prýði og þurftu lítil sem engin afskipti, þeir tóku meira að segja aukaæfingar þegar þannig lá við. Það var yndislegt að sjá lífið sem blómstraði á skotsvæðinu okkar á Hafnarheiðinni í öllum greinum í sumar. Að sjálfsögðu með fjölgun í félaginu koma fleiri beiðnir um allt milli himins og jarðar. Margar ótrúlega flottar og aðrar því miður langt frá því. Það er greinilega meðbyr á ýmsum stefnum en því miður ekki alls staðar. Það þurfa ekki alltaf allir að vera sammála og það er hollt og gott að fá gagnrýni sem hægt er að rýna til gagns. En þeir sem eru tilbúnir að gagnrýna verða að vera tilbúnir að taka rýninni sem út kemur og virða þegar Stjórn hefur kveðið á. Virkjuð var siðanefnd deildarinnar til að taka á þeim málum sem þess krefjast. Það er ekki annað hægt en að dást að þessari frábæru uppbyggingu sem átt hefur séð stað í þessu félagi sem er að verða fertugt á næstu misserum í þessari mynd, en endurvakið upprunalega sem Skotfélag Keflavíkur. En þess má geta að Skotfélag Keflavíkur rann saman ásamt nokkrum öðrum íþróttafélögum árið 1994 í Keflavík Íþrótta og ungmennafélag þá sem Skotdeild Keflavíkur. Keflavík Íþrótta og ungmennafélag varð 90 ára þann 29. september síðastliðinn og óskum við í Skotdeild Keflavíkur öllum félagsmönnum, iðkendum, þjálfurum, stjórnarmönnum og sjálfboðaliðum innilega til hamingju með daginn. Á hátíðinni sem var haldin í íþróttahúsinu við Sunnubraut hjó ég eftir því í ræðu sem formaður KKÍ hélt að hann hrósaði sjálfboðaliðunum innilega og talað um hversu margir eru alltaf tilbúnir að gagnrýna starf sjálfboðaliðans, en aldrei hrósa honum. Hann taldi upp hversu margir sjálfboðaliðar kæmu að einum körfuboltaleik. Ég horfi á okkar greinar og sé það sama, allt sem við erum að áorka í öllum greinum og á svæðum er okkar sjálfboðaliðum að þakka. Oft eru málin þannig eðlis að það þurfi að kaupa út vinnuna, þar sem erfiðara er að fá sjálfboðaliða í lið með sér. En ég ætla að tileinka hverfandi ári sjálfboðaliðanum og þakka öllum sem lögðu hönd á plóg með sinni vinnu. Kveðja Bjarni Sigurðsson formaður Skotdeildarinnar. Frá æfingu í loftsalnum.

Skotdeilin með kynnigu á Paralimpycs deginum.

Jólablað 2019

19


Viðtal: Sævar Sævarsson

K

eflavík, íþrótta-og ungmennafélag, fagnaði 90 ára afmæli sínu 29. október sl. í miklu afmælishófi í Blue-höllinni. Við það tilefni heiðruðu Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, og Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir, varaformaður KKÍ, nokkra Keflvíkinga fyrir mikil og góð störf fyrir körfuboltann á sama tíma og félaginu og sjálfboðaliðum þess var þakkað fyrir mikilvægan þátt í íslenskum körfubolta. Ein af þeim sem var sérstaklega heiðruð var Björg Hafsteinsdóttir, fyrrum leikmaður Keflavíkur og A-landsliðs Íslands, en hún hlaut gullmerki KKÍ. Björgu Hafsteinsdóttur er líklega óþarfi að kynna en saman mynduðu hún og Anna María Sveinsdóttir eitt hættulegasta tvíeyki körfuboltasögunnar.

Upphafsárin í Keflavík Björg er borin og barnfædd í Keflavík, þar sem hún segir að hafi verið frábært að alast upp. Björg bjó á Faxabrautinni fyrir ofan íþróttahúsið og var mikið af íþróttakrökkum í hverfinu. „Við lékum okkur mikið úti, ýmist í fótbolta eða körfubolta og oftast á kvöldin var farið í eina-krónu eða eitthvað slíkt. Við héldum öll með Liverpool og ég held að allir í þessum hóp geri það enn.“ Vinsældir körfuboltans jukust mikið á þessum árum. Hér og þar í bænum fóru að spretta upp körfur sem krakkarnir nýttu sér. Björg byrjaði snemma að æfa körfubolta, eða 10 ára gömul. Í þá daga var ekki eins mikið framboð af íþróttagreinum og var til að mynda enginn körfubolti fyrir ungar stelpur. Það kom þó ekki í veg fyrir að Björg byrjaði að æfa íþróttina sem hún hafði kolfallið fyrir. „Það voru engar æfingar fyrir stelpur á þessum árum og þegar ég var 10 ára æfði ég með strákunum í minnibolta. Fljótlega byrjaði þó Helgi Hólm með æfingar fyrir stelpur og myndaðist strax góður kjarni sem æfði með Keflavík. Stelpunum fór stöðugt fjölgandi og brátt voru komnar nógu margar stelpur til að manna alla yngri flokka félagsins“. Þó svo að körfuboltinn hafi alltaf verið númer eitt hjá Björgu æfði hún einnig fótbolta, þar sem hún spilaði bæði á kantinum og svo síðar í marki, og handbolta. „Ég var aldrei sleip í handbolta – það voru of miklar snertingar og pústrar í þeirri íþrótt fyrir minn smekk.“ Björg spilaði upp alla yngri flokka með Keflavík þar sem Jón Kr. Gíslason þjálfaði og kenndi henni mikið. Strax í yngri flokkum fór að myndast sigurhefð hjá Keflavíkurstúlkum, hefð sem virðist engan enda ætla að taka. „Við vorum mjög sigursælar í yngri flokkum og ég hef ekki tölu á titlunum sem við unnum þar.“ Fyrsti meistaraflokksleikur Bjargar var þann 10. október 1984 þar sem hún skoraði 7 stig í sigurleik gegn KR á útivelli.

Bakvörður með einstaka skothæfileika Björg þótti frábær leikstjórnandi og bakvörður. Styrkleikar hennar á vellinum voru án efa góð boltameðferð, leikskilningur, elja og yfirburðar skottækni skottækni sem enn þann dag í dag er rómuð og ungir körfuboltamenn ættu að kynna sér og tileinka. Svo öflug var Björg fyrir aftan þriggja stiga línuna að um tíma átti hún öll metin yfir flestar þriggja stiga körfur, þ.e. flestar þriggja stiga körfur í efstu deild, í bikarúrslitum, í lokaúrslitum og í landsleikjum en aðeins metið yfir flesta þrista í bikarúrslitaleik (23) stendur enn. Birna Valgarðsdóttir, fyrrum leikmaður Keflavíkur, sló hin metin og er Helena Sverrisdóttir nú farin að slá met Birnu. Björg var fyrst allra kvenna til að skora 100, 200 og 300 þriggja stiga körfur í efstu deild, fyrst til að skora 50 þriggja stiga körfur fyrir íslenska kvennalandsliðið, fyrst til að skora 50 þriggja stiga körfur í úrslitakeppni, fyrst til að skora 30 þriggja stiga körfur í lokaúrslitum og fyrst til að skora 20 þriggja stiga körfur í bikarúrslitum. Það verður því ekki annað sagt en að Björg hafi verið sannkölluð þriggja stiga maskína líkt og fyrrgreind met bera merki.

20

Jólablað 2019

Það er líf eftir

körfuboltann - Viðtal við Björgu Hafsteinsdóttur, fyrrum leikmann Keflavíkur og A-landsliðs Íslands

Ef frá eru taldir nokkrir mánuðir með KR árið 1992 lék Björg allan sinn feril með Keflavík en á ferli sínum lék Björg einnig 33 leiki með A-landsliði Íslands. En hvernig atvikaðist það að þessi mikli Keflvíkingur fór í KR? „Ég nam sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands á þessum tíma og var á mínu öðru ári. Það ár er talið það erfiðasta í sjúkraþjálfaranáminu svo mér þótti skynsamlegra að spila með liði á höfuðborgarsvæðinu. Keflvíkingurinn Stefán Arnarson, sem getið hafði sér gott orð sem yngri flokkaþjálfari í Keflavík, var að þjálfa KR á þessum tíma og því söðlaði ég um og klæddist svart/hvítu treyjunni um hríð. Ég stundaði nám í Verzlunarskólanum og útksrifaðist þaðan 1989 og hafði því verið að keyra á milli í fimm ár. Ég byrjaði að æfa með KR um haustið en Keflavíkurhjartað og tengslin við stelpurnar í Keflavík voru svo sterk að ég var komin aftur til baka til uppeldisfélagsins í nóvember.“

Saman mynduðu Björg Hafsteinsdóttir og Anna María Sveinsdóttir, æskuvinkona Bjargar sem hún kynntist í gegnum körfuboltann um fermingaraldur, stórhættulegt tvíeyki sem fá lið áttu roð í. Var uppskeran eftir því, átta bikarmeistaratitlar og sjö Íslandsmeistaratitlar. Á ferli sínum spilaði Björg 227 leiki í efstu deild og úrslitakeppni. En af öllum þeim úrslitaleikjum sem Björg spilaði í gegnum tíðina er bikarúrslitaleikurinn 1997 sá eftirminnilegasti. „Bikarúrslitaleikurinn 1997 er líklega sá leikur sem stendur upp úr. Við vorum með frábært lið en við vorum rosalega lélegar í þessum leik. Við áttum í raun ekkert skilið og vorum við undir allan leikinn. Við vorum í raun alltaf mjög lélegar þegar við lentum undir í leikjum og áttum alltaf erfitt með þá leiki. Í þetta skiptið náðum við þó á einhvern ótrúlegan hátt að knýja fram framlengingu og vinna loks leikinn þar. Það er skrítið að segja frá því, í ljósi þess hve illa við


spiluðum, að þetta sé í raun sætasti sigurinn á ferlinum og sá leikur sem við stelpurnar tölum kannski hvað oftast um. Ég verð eiginlega enn þá stressuð að horfa á þennan leik en ég á hann á videóspólu og kíki stundum á hann.“ Björg sjálf spilaði ágætlega í þessum leik og skoraði meðal annars mikilvæga þriggja stiga körfu í

framlengingunni sem tryggði Keflavík í raun sigurinn. Það þótti henni auðvitað extra sætt. Á þessum tíma var karlalið Keflavíkur líka ógnarsterkt og minnist Björg þess einnig hversu sætt það var þegar bæði liðin tóku bikarinn á sama degi enda hafi fögnuðurinn í bæjarfélaginu þá verið þeim mun meiri og auðvitað hafi verið skemmtilegra að geta fagnað með öllum félögunum. Það sem kannski fáir vita er að Björg spilaði ekki bara bikarúrslitaleiki með Keflavík í körfubolta því árið 1991 „slysaðist“ 2. deildar lið Keflavíkur í bikarúrslit í knattspyrnu eftir frækinn sigur á Breiðabliki í undanúrslitum þar sem Björg gerði sér lítið fyrir og varði tvær vítaspyrnur í vítaspyrnukeppni. Úrslitaleikurinn fór þó ekki eins vel og töpuðu Keflavík 1-6 gegn sterku liði ÍA. Björg segir að vonbrigðin hafi nú ekkert verið svo mikil enda hafi þær ekki gert ráð fyrir að gera miklar rósir „Okkur var eiginlega alveg sama. Það var svo geggjað að komast í úrslitaleikinn að við fögnuðum bara vel og innilega inn í klefa með kampavíni þátt fyrir þessi úrslit.“ Á körfuboltaferli sínum skoraði Björg samtals 2887 stig, þar af mest 41 stig í einum og sama leiknum - gegn ÍR árið 1994. Þá setti hún niður 441 þriggja stiga körfur á ferlinum, þar af mest sjö slíkar í einum leik árið 1991. Það ár var líklega besta tímabil Bjargar enda var hún þá valin besti leikmaður í efstu deild kvenna. Björg lagði körfuboltaskóna á hilluna frægu eftir tímabilið 1996-1997. „Síðasti leikur minn fyrir Keflavík verður seint settur ofarlega í minningarbankann. Við höfðum ekki tapað leik á tímabilinu, urðum deildarmeistarar og lentum á móti Grindavík í 4-liða úrslitum. Í því einvígi náðum við okkur hins vegar aldrei á strik og töpuðum 2-0. Við vorum þar með komnar í sumarfrí og ákvað ég stuttu síðar að skrá lokastrikið í sandinn á mínum körfuboltaferli.“ En hvað olli því að Björg ákvað að segja þetta gott á þessum tímapunkti? „Þarna hafði ég stofnað mitt eigið fyrirtæki, Sjúkraþjálfun Bjargar, auk þess að vinna á sjúkrahúsinu í Keflavík eftir kl. 16:00 og fara svo á æfingar eftir það. Þetta var ekki að ganga upp og eitthvað þurfti að gefa eftir.“

Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.

Jón Björn Sigtryggsson, Benedikt Jónsson og starfsfólk tannlækningastofunnar Tjarnargötu 2, 230 Keflavík

Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls árs.

Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár

Iðavöllum 3 • 230 Keflavík • Sími 420 2020

Við Suðurnesjamenn í Rafholti óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Björg og Falur hafa rekið saman sjúkraþjálfun Suðurnesja í nokkur ár við góðan orðstír.

Jólablað 2019

21


Lífið eftir körfuboltann Engin eftirsjá var hjá Björgu með þá ákvörðun að leggja skóna á hilluna. Strax tímabilið eftir tóku hún og Anna María Sveinsdóttir við sem þjálfarar Keflavíkurstúlkna. Þess má til gamans geta að umrætt tímabil var erlendi leikmaðurinn í liði Keflavíkur Jenny Boucek, sem í dag starfar sem aðstoðarþjálfari Dallas Mavericks í NBA deildinni, en þær halda enn þann dag í dag mjög góðu sambandi. Umrætt tímabil unnu Keflavíkurstúlkur allt sem í boði var. Ekki amalegt upphaf á þjálfaraferlinum sem átti þó eftir að standa stutt, eða þetta eina tímabil. Um haustið 1998 eignuðust Björg og Ágúst Þór Hauksson, eiginmaður hennar, Thelmu Dís sem var fyrsta barn þeirra hjóna. „Ég var alltaf sátt við að hætta. Ég vissi að sem sjúkraþjálfari gat ég haldið áfram að tengjast körfuboltanum í Keflavík enda átti ég eftir að starfa sem sjúkraþjálfari fyrir meistaraflokksliðin í Keflavík í mörg ár.“ Reglulega les maður um íþróttamenn sem gengur misjafnlega að aðlagast lífi utan íþrótta, hver svo sem ástæða þess er að viðkomandi hafi þurft að hætta – aldur, meiðsli eða annað. Fyrir Björgu var sú aðlögun aldrei erfið. „Ég get ekki sagt að aðlögunin hafi verið erfið. Það er nefnilega svolítið skemmtileg staðreynd að það er líf eftir körfuboltann.“ Sú staðreynd á svo sannarlega við í tilfelli Bjargar því ekki verður annað sagt en hún hafi haft nóg fyrir stafni eftir að ferlinum lauk, hvort sem um ræðir fjölskyldulífið eða fyrirtækjareksturinn. Hún og Ágúst Þór eiga tvö börn, þau Thelmu Dís og Andra Fannar, og hafa þau átt hug þeirra hjóna allan. „Thelma Dís fæðist um haustið 1998 en tímabilið áður hafði ég og Anna María þjálfað Keflavík saman. Thelma fékk körfuboltagenin frá mömmu sinni og hefur þar að leiðandi mikill tími fjölskyldunnar farið í að fylgjast með henni, bæði í gegnum yngri flokka Keflavíkur og síðar meistaraflokk.“ Andri Fannar fæðist árið 2004 en hann fæddist með fötlun sem á læknamáli kallast „Charge Syndrome“. Björg segir að strax frá upphafi hafi þau Ágúst ákveðið að taka þeirri staðreynd og þeirri baráttu sem fram undan var með opnum og jákvæðum huga. „Við vorum ákveðin í upphafi að gera eins vel úr þessu og hægt var, m.a. að læra táknmál en Andri fæddist með Charge Syndrome sem gerir það að verkum að hann er heyrnarlaus. Börn sem eru með Charge Syndrome geta verið misjafnlega fötluð og með tilliti til þess má segja að við séum heppin með Andra, ef svo má að orði komast. Þegar hann var yngri vissum við lítið hvað framtíðin bæri í skauti sér varðandi færni hans almennt. Sem dæmi gleymi ég aldrei þegar hann var

Æskuvinkonurnar Björg og Anna María hafa haldið góðum vinskap frá því þær kynntust. Það er alltaf stutt í fjörið þegar þær hittast, hvort sem það er á Íslandi eða í Mexíkó.

Björg og Thelma Dís hafa handfjatlað og kysst mikið af gulli í gegnum tíðina enda sigursælar með eindæmum. Hér kyssa þær bikar sem afhentur er besta leikmaðnni í efstu deild en báðar hafa þær hlotið þann heiður, Björg 1991 og Thelma 2017. pínulítill á skiptiborðinu og ég kem með sokk til að klæða hann í og hann lyftir upp fætinum. Þetta eitt, sem er smáatriði fyrir flesta, var mjög stórt í mínum huga því þarna sá ég að hann skildi hvað ég var að gera og það gladdi mig gríðarlega.“ Verkefnin tækluð af jákvæðni og með opnum hug Það verður seint sagt sjálfgefið að ala upp fatlað barn og getur það reynt mikið á fjölskylduna sem heild og þá einstaklinga sem hana skipa. Björg segir þó að allir glími við einhver vandamál eða erfið verkefni í lífinu en misjafnt sé hvernig aðilar takist á við þau og útkoman þar að leiðandi misjöfn. „Þetta snýst um það hvort þú ætlir að láta verkefnin stoppa þig eða hvort þú ætlir að takast á við þau. Við ákváð-

Björg vann á ferli sínum átta bikarmeistaratitla og sjö Íslandsmeistaratitla en þjálfarar hennar voru goðsagnir á borð við Sigurð Ingimundarson og Jón Kr. Gíslason.

22

Jólablað 2019

Það var fljótt ljóst að Björg var mörgum kostum gædd þegar kemur að körfuboltaiðkun. Hér er hún ung að aldri í leik með Keflavík. um að vinna strax í þeim málum sem við gátum og ákváðum að fara í þessa vegferð með opnum og jákvæðum hug. Við höfum auðvitað rekist á marga veggi, t.d. í skólakerfinu, og það þekkir fólk sem elur upp fötluð börn eða börn sem eru á einhverju rófi að þetta er eilíf barátta. Það er hins vegar mikilvægt að vinna rétt í þeirri baráttu. Það er líklega margt sem ég hefði gert öðruvísi ef ég væri að upplifa þetta allt á ný en maður hefur hins vegar lært mikið með árunum og auðvitað þroskast mikið. Aðalatriðið í þessu öllu er þó að Andra Fannari líður vel í dag, hann er glaðlyndur, með húmor og á köflum stríðinn sem hjálpar honum mikið. Hann er hins vegar mjög illa settur félagslega, á í raun enga vini og ég held hann hafi síðast fengið boð í bekkjarafmæli þegar hann var í 5. bekk sem okkur foreldrunum sárnar mjög en hann pælir lítið í því. Ég held að hluti af ástæðunni fyrir því hversu vel hefur tekist til með hans uppeldi sé sú staðreynd að við lærðum táknmál strax í upphafi svo við gætum öll átt í góðum samskiptum og tjáð okkur hvert við annað.“ Ekki þarf að fjölyrða um þá staðreynd hvað fyrrgreindir þættir vega þungt þegar kemur að uppeldi á fötluðum einstakling. Andra Fannari var alltaf tekið með opnum hug og mikilli ást og umhyggju


af öllum í fjölskyldunni. Frá upphafi hefur fjölskyldan fengið mikinn stuðning, sérstaklega frá foreldrum Bjargar, þeim Eydísi og Hafsteini, sem hafa alltaf verið boðin og búin að hjálpa til. Þá er samband systkinanna Thelmu og Andra Fannars mjög kært og eru þau virkilega góðir vinir. Thelma Dís, þessi rólega og yfirvegaða stelpa, einkenni sem Björg segir að komi frá föður hennar, hefur ávallt stutt vel við bróður sinn og verið honum og fjölskyldunni mikið innan handa. Björg og Ágúst pössuðu sig þó ávallt að Thelma Dís myndi aldrei finna fyrir því í sínu uppeldi eða körfuboltaiðkun að hún nyti ekki sama stuðnings og tíma frá foreldrum sínum og aðrir krakkar þrátt fyrir fötlun Andra Fannars „Við fjölskyldan studdum gríðarlega við bakið á Thelmu Dís öllum stundum. Við mættum á alla hennar leiki og mót ásamt Andra sem þótti virkilega gaman að fylgjast með systur sinni spila. Hann hvatti hana reglulega til dáða, gladdist með henni þegar vel gekk en svo átti hann það nú alveg líka til að skamma hana þegar illa gekk eða liðið var að tapa.“ Í dag býr Thelma Dís í Bandaríkjunum, nánar tiltekið í Muncie í Indiana, þar sem hún stundar nám í Ball State University samhliða körfuboltaiðkun. Að sjá á eftir Thelmu til Bandaríkjanna í skóla reyndist Björgu erfitt, sérstaklega dagurinn sem hún yfirgaf landið fyrst. Fram að því hafði hún verið róleg yfir þessu öllu en svo var bara eins og eitthvað þyrmdi yfir hana þennan morgunn þegar hún gerði sér grein fyrir því að stelpan væri að fara. Hún var þó fljót að jafna sig og í dag fylgist hún með dóttur sinni úr fjarska með gleði. „Hún er auðvitað farin að búa bara þarna úti. Hún er í íbúð með tveimur öðrum, er með sinn eigin bíl og þetta er geggjað. Henni líður vel, hefur þroskast mikið og stendur sig frábærlega bæði í skólanum og körfuboltanum. Þetta er auðvitað erfitt en hún er að standa sig vel. Sjálf gæti ég ekki búið erlendis því ég gæti ekki verið frá fjölskyldu og vinum. Ég dáist að henni fyrir þetta.“

Strax í yngriflokkum fóru Björg og Keflavíkurstúlkur að sanka að sér titlum.

Vatnsendahlíð í Skorradal þar sem Björg og fjölskylda hyggjast verja meiri tíma í framtíðinni.

Tengsl sjúkraþjálfunar og íþrótta gerði útslagið Björg hefur getið sér gott orð sem sjúkraþjálfari í Keflavík. Fyrirtæki Bjargar hefur vaxið og dafnað frá því hún stofnaði Sjúkraþjálfun Bjargar árið 1996. Í upphafi var starfsemin í 100 m2 húsnæði með tvo sjúkraþjálfara en í dag er fyrirtækið rekið í 500 m2 húsnæði þar sem starfa níu sjúkraþjálfarar og tvær aðstoðarkonur. Í ferlinu seldi Björg 50% hlut í fyrirtæki sínu til Keflvíkingsins Fals Helga Daðasonar og breyttu þau nafninu við það tilefni í Sjúkraþjálfun Suðurnesja. Ætla má að rösklega 99% þeirra keflvísku íþróttamanna sem kennt hafa sér meins vegna íþróttaiðkunar sinnar hafi rekið þar inn nefið á einhverjum tímapunkti. Samstarf þeirra Bjargar og Fals Helga hefur gengið vel en þau eiga það sameiginlegt að vera miklir Keflvíkingar. Hafa þau bæði starfað sem sjúkraþjálfarar félagsins, Björg fyrir körfuboltann en Falur fyrir fótboltann. Björg segir starf sjúkraþjálfarans vera skemmtilegt en einnig gríðarlega krefjandi. „Ég kann ákaflega vel við mig í þessu starfi. Mér þykir gaman að kynnast nýju fólki og reyna að hjálpa því með sín vandamál. Það gefur mér mikið.“ Björg kveðst alltaf hafa verið viss um að sig langaði annað hvort að læra mörg tungumál og/ eða læra eitthvað um líkamann. Hún skoðaði bæði hjúkrunarfræði og lyfjafræði en tengsl sjúkraþjálfarans við íþróttir var það sem gerði útslagið. „Það var „klásus kerfi“ í skólanum og þurftu nemendur að leggja mikið á sig til að komast í gegn. Háskólaárin voru strembin en með góðu skipulagi náði ég að klára námið samhliða því að spila körfubolta.“ Það verður ekki annað sagt en maður öðlist meiri virðingu fyrir þessum mikla Keflvíking þegar maður heyrir hana tala um ferilinn, námið og þær fórnir sem hún hefur þurft að færa – oft á tíðum með hags-

Þeir voru ansi margir titlarnir sem Björg og Anna María lyftu saman í gegnum tíðina. muni annarra en hennar sjálfrar að leiðarljósi. Lítið dæmi um slíkt er afstaða hennar til fyrirliðabandsins sem hún bar með stolti. „Ég fórnaði ýmsu fyrir körfuboltann og einnig fyrir skólann. Þannig afsalaði ég mér fyrirliðabandinu í raun vegna anna í skólanum. Á skólaárunum hafði ég aðstöðu í íbúð í Reykjavík og samdi um það að fá frí á æfingum á mánudögum til að fækka ferðunum suður og nýta tímann í lærdóm. Ég sýndi því auðvitað skilning enda var ég á því að það væri ekki hægt að hafa fyrirliða sem ekki mætti á allar æfingar. Ég þurfti líka oft að fórna landsliðsverkefnum vegna skólans, bæði þegar ég var í Verzló og í Háskólanum.“

Kvennakarfan í Keflavík Frá því Björg hætti í körfubolta hafa aðrar keflvískar

stelpur, þar á meðal Thelma Dís dóttir Bjargar, tekið við keflinu og haldið áfram að hala inn titlum fyrir félagið. Félagið er í dag sigursælasta körfuboltafélag landsins, sé litið til titlasöfnunar í öllum flokkum, og þar bera kvennaflokkar félagsins höfuð og herðar yfir önnur félög. Björg segir stöðuna á kvennakörfunni í Keflavík vera frábæra. Hún telur að það sé ekkert eitt sem hafi úrslitaáhrif þegar kemur að árangri Keflavíkur, þar komi margar hendur að, hvort sem það eru frábærir þjálfarar, leikmenn eða fólkið sem heldur um stjórnartaumana hverju sinni. „Það hefur verið mjög gott utanumhald um kvennakörfuna. Það að viðhalda árangri getur verið erfitt en þegar ungar

stúlkur horfa á fyrirmyndirnar sínar vinna titla þá er það mjög hvetjandi – þú ætlar að vera þarna eftir nokkur ár. Þjálfunin hefur líka verið markviss. Hjá mér voru það Jón Kr. Gíslason og Siggi Ingimundar sem standa upp úr og eru goðsagnir í mínum augum en í seinni tíð er það Jón Guðmunds. Ég held ég móðgi engan þegar ég nefni Jón sérstaklega. Ég var á hliðarlínunni í öll þau ár sem hann þjálfaði Thelmu Dís og aldurinn í kringum hana. Hann mótaði þessar stelpur og gerði þær að betri leikmönnum og betri manneskjum. Ég gleymi því til dæmis aldrei þegar Thelma kom heim með miða frá Jóni um að hún ætti að laga til í herberginu sínu, sem hún að sjálfsögðu gerði því Jón hafði sagt henni að gera það.“ Björg vill meina að almennt sé kvennakarfan á Íslandi á ágætri leið. Þó mikið hafi áunnist á undanförnum árum segir hún hins vegar að ávallt sé hægt að gera betur og það sé áhyggjuefni hve fá félög sendi lið til leiks í meistaraflokki. Þannig er til að mynda Keflavík bæði með A- og B-lið í tveimur efstu deildum á meðan stórt félag eins og Stjarnan teflir ekki fram liði. „Stelpur í dag æfa mun meira og þá er mun meira um styrktarþjálfun en þegar maður var sjálfur í boltanum. Það eru að koma upp nokkrar stúlkur sem verða afburðaleikmenn en ég vil sjá þær mun fleiri. Mér finnst helst vanta uppá að stúlkur séu með betri boltatækni. Okkur vantar til dæmis góða leikstjórnendur. Í flestum liðum í efstu deild eru fengnir erlendir leikmenn í stöðu leikstjórnanda svo þetta verður útundan. Ég vil segja við ungar stúlkur sem vilja komast í landsliðið seinna að ef þú hefur burði til að vera góður leikstjórnandi, æfðu þig með boltann, æfðu þig meira en hinar og þá átt þú góðan möguleika á landsliðssæti því leikstjórnendastaðan er okkar veikasti hlekkur.“ Óhætt er að fullyrða að í dag sé mun meiri umfjöllun um íþróttir kvenna í fjölmiðlum, betra utanumhald hjá félagsliðum og landsliðum auk þess sem gerðar er auknar kröfur þess efnis að komið sé fram við konur og karla á sama hátt. Hún telur þetta

Jólablað 2019

23


Knattspyrnumaðurinn og Keflvíkingurinn Kristinn Guðbrandsson var fyrsti skjólstæðingur Bjargar eftir útskrift.

Þeim átti bara eftir að fjölga titlunum hjá þessum stúlkum. jákvæða þróun og styður hana heilshugar þó auðvitað megi alltaf gera betur. Ekki verður hjá því komist að ræða peningahlið íþróttanna og þann mikla mun milli karla og kvenna sem tíðrætt er um á sama tíma og krafa um jafnrétti og jafnræði umlykur samfélagið. „Mér finnst alltaf erfitt að ræða peningahliðina í íþróttum. Sjálf fékk ég aldrei greitt fyrir að spila og bað aldrei um það. Engin af okkur stelpunum í gullaldarliðinu fékk borgað fyrir að spila. Þegar leikmenn fá greitt er komin ákveðin pressa á þá að standa sig því líta má á þetta sem vinnu“. Björg segir að því miður virðist sem fullt af leikmönnum séu enn að spila vegna þess að þeir fái greitt en ekki vegna áhuga eða gleði. „Mér finnst í raun alltof miklir peningar í íþróttum. Ég hefði til að mynda vilja gera meira úr því þegar „Litlu slátrararnir“ urðu Íslandsmeistarar 2017 (Litlu slátrararnir er viðurnefni sem ungt lið Keflavíkur fékk vegna ungs aldurs, vasklegrar framgöngu á vellinum og þeirrar staðreyndar að íþróttahús Keflavíkur gekk undir heitinu „sláturhúsið“ um hríð). Þar fékk enginn leikmaður greitt fyrir að spila og var unun að fylgjast með þeim. Þær unnu hug og hjörtu landsmanna og allir héldu með þeim. Þetta gladdi Keflavíkurhjartað mitt mjög mikið og sýndi um leið hversu miklu er hægt að áorka án þess að

Rokkgoðsögnin og Keflvíkingurinn Rúni Júl. söng og spilaði í 30 ára afmæli Bjargar og Önnu Maríu. Ekki slæmt!

Bikarnum lyft að loknum eftirminnilegasta leik Bjargar. beinar peningagreiðslur komi til. Ég hef líka áhyggjur af því að þeim leikmönnum fjölgi sem ekki eru tilbúnir að vinna fyrir félagið sitt nema fá borgað fyrir það. Mér finnst miklu frekar að við eigum frá unga aldri að ala upp meiri félagsmenn, ala upp unga iðkendur sem eru tilbúnir að starfa fyrir félagið og læri að meta mikilvægi þess án þess endilega að fá greitt fyrir þá vinnu.“

Körfuboltinn aldrei langt undan Þó Björg hafi hætt beinum afskiptum sínum af körfubolta árið 1998 hefur hún starfað mikið í kringum

24

Jólablað 2019

körfuboltann frá því hún hætti. Líkt og áður sagði var hún lengi sjúkraþjálfari hjá meistaraflokksliðunum í Keflavík. Í mörg ár var hún sjúkraþjálfari landsliðsins og síðastliðin ár hefur hún starfað í kvennaráði Keflavíkur. „Allur þessi tími og öll þessi verkefni hafa verið mjög skemmtileg. Ég hef miklar taugar til körfuboltans og Keflavíkur og hef þar af leiðandi alltaf verið tilbúin að hjálpa til og gefa af mér.“ En hvað er það helsta sem situr eftir þegar Björg lítur yfir farinn veg? „Það eru ótrúlega margar minningar sem sitja eftir. Auðvitað var gaman að taka þátt í öllum þessum sigurleikjum og vinna til allra þessara verðlauna en það sem situr þó mest eftir er fólkið og tengslin sem mynduðust. Á þessum tíma erum við körfuboltakrakkarnir öllum stundum í íþróttahúsinu og fengum bara að vera þar vegna góðvildar fólksins sem þar vann. Þarna myndaðist vinskapur og virðing fyrir þeim sem störfuðu í íþróttahúsinu og í kringum klúbbinn og landsliðin. Að vera hluti af þessari körfuboltafjölskyldu er ótrúlega dýrmætt. Í dag á ég mína bestu vini úr körfuboltanum, þarna mynduðust órjúfanleg tengsl við fullt af fólki sem munu fylgja manni alla ævi, vinátta og gleðilegar minningar sem maður er enn að njóta í hvaða formi sem það svo sem er.“ Þegar farið er yfir farinn veg vakna ósjálfrátt spurningar um framtíðina og því ekki úr vegi að spyrja Björgu hvernig hún sjái framtíðina fyrir sér. Síðastliðið sumar keyptu þau hjónin meirihluta í jörðinni Vatnsendahlíð í Skorradal, þar sem pabbi Ágústar býr. Björg kveðst þó ekki hafa hugsað sér að flytja þangað þó það sé ákveðin pressa að flytja úr Njarðvík, hverfi sem hún kallar Suðurbæ, en þar hefur Björg búið undanfarin ár. „Við erum nú ekki að flytja alfarið í sveit þó við höfum keypt okkur þessa jörð. Við munum hins vegar koma til með að eyða meiri tíma þar en áður. Á jörðinni er enn þá búskapur með fé og nokkrar hænur auk sumarbústaðalands svo það er klárlega spennandi verkefni í vændum þar.“, segir Björg sem fengið hefur viðurnefnið „Óðalsbóndi“ í vinahópnum sínum. „Annars vona ég auðvitað fyrst og fremst að við fjölskyldan höldum góðri heilsu og við náum að njóta framtíðarinnar heilsuhraust. Ég vinn mikið með fólki sem hefur tapað heilsunni og þekk því vel hversu mikilvægt það er að hafa góða heilsu til að geta notið lífsins til hins ítrasta. Við munum halda áfram að fylgjast með Thelmu Dís standa sig í skólanum, körfuboltanum og öðru sem hún tekur sér fyrir hendur og styðja hana í því. Við munum halda áfram að koma Andra Fannari á legg og það er okkar markmið að gera hann að sjálfstæðari einstaklingi sem getur séð um sig sjálfur og verið nýtur þjóðfélagsþegn. Að öðru leyti sjáum við bara fram á að halda áfram að njóta með fjölskyldu og vinum þess góða sem lífið hefur upp á að bjóða.“ Með þessum orðum kveðjum við stórskyttuna, margfalda Íslands- og bikarmeistarann, sjúkraþjálfarann og umfram allt fjölskyldukonuna Björgu Hafsteinsdóttur. Björg er svo sannarlega sannur Keflvíkingur og sem slíkur hefur hún áunnið sér virðingu fyrir baráttu, hjartagæsku og elju á öllum þeim vígstöðum sem drepið hefur hún fæti, jafnt innan vallar sem utan.


Íþrótta- og ungmennafélag

óskar íþróttafólki svo og öðru Suðurnesjafólki gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári

Hugheilar óskir um gleðiríka jólahátíð og farsæld á nýju ári

Minnum á dagskrá kirkjunnar um aðventu og jól Sjá nánar www.keflavikurkirkja.is þar sem einnig eru upplýsingar um annað starf í kirkjunni.

Kirkjuvegi 25 • 230 Keflavík • Sími 420 4300 • www.keflavikurkirkja.is

Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár

Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.

Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár

Krossmóa 4a, 260 Reykjanesbæ • Sími 440 2450

Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár

Jólablað 2019

25


1.-2. bekkur stúlkna

9. fl. drengja

1.-2. bekkur drengja

9. fl. stúlkna

Mb. 10 ára stúlkna

10. fl. drengja

10. fl. stúlkna

Barna- og unglingaráð Körfuknattleiksdeildar Annáll og uppskera keppnistímabilið 2018-2019 Árangur keppnisliða 2018-2019 Keflavík sendi lið til keppni í öllum aldursflokkum á Íslandsmóti yngri flokka eða 15 flokka alls. Í unglingflokki drengja spilaði sameinað lið Keflavíkur og Grindavíkur. Í MB flokkum voru send b- og c-lið til keppni. Í bikarkeppni KKÍ sendi Keflavík lið í öllum aldursflokkum eða 7 lið alls en þátttökurétt á 9. flokkur og eldri. Uppskera á Íslandsmóti og í bikarkeppni yngri flokka var glæsileg stúlknamegin, eins og svo oft áður, en hjá drengjunum náðust engir titlar í hús þetta tímabilið en á því verður vonandi breyting innan skamms. Af 22 titlum sem keppt var í yngri flokkunum vann Keflavík 2 Íslandsmeistaratitla í 8. fl. st. og stúlknaflokki auk þess að vinna til silfurverðlauna í 3 flokkum eða MB10 st., MB11 st. og 9. fl. stúlkna. MB11 drengja náði svo 3ja sæti á Íslandsmótinu sem og 7. flokkur stúlkna. Í bikarkeppninni unnum við 2 bikarmeistaratitla í 9. fl. st. og stúlknaflokki. Keflvíkingar eru sem fyrr, það félag í körfubolta á Íslandi sem hefur unnið til flestra verðlauna í yngri flokkunum, eða alls 233 Íslands- og bikarmeistaratitla. Iðkendur í 1.-4. bekk keppa ekki á Íslandsmóti en þau hafa verið dugleg við að sækja minniboltamót félaganna sem í boði eru fyrir þennan aldurshóp og öll fóru þau að sjálfsögðu á Nettómótið sem er auðvitað mót mótanna. Fjölliðamót, sem hluti af Íslandssmótum yngri flokkanna, hefur verið stór þáttur í starfssemi félagsins. Vel

26

Jólablað 2019

á annan tug móta voru haldin í Keflavík tímabilið 2018-2019 og þar koma fjölmargir félagsmenn að dómgæslu, ritaraborðum, afgreiðslu í sjoppu o.s.frv. Barna- og unglingaráð hefur lagt mikla áherslu á að skorasta ekki undan því að halda slík fjölliðamót í Blue-höllinni í Keflavík og vanda til verka eins og kostur er.

Nettómótið 2019 Barna- og unglingaráð stóð að venju í samstarfi við U.M.F.N. að framkvæmd Nettómótsins helgina 2.-3. mars 2019 en mótið hefur fyrir löngu tekið sér sess sem stærsta körfuboltamót á Íslandi. Engin breyting varð þar á þetta árið en um var að ræða 29. mót félaganna. Á endanum reyndust keppnisliðin vera 272 frá 25 félögum og leiknir voru 685 leikir á 15 leikvöllum í 6 íþróttahúsum, en u.þ.b. 1.300 keppendur léku á mótinu, þeir yngstu 5 ára. Næsta Nettómót verður haldið helgina 7. og 8. mars 2020 og gert er ráð fyrir því að það mót verði einstaklega veglegt í tilefni 30 ára afmælisárs mótsins. Nettómótið er haldið með góðum styrk frá Nettó og svo hefur Reykjanesbær lánað út öll íþróttamannvirki, sem og grunnskóla til gistingar fyrir iðkendur. Auk þess koma fjölmörg önnur fyrirtæki í Reykjanesbæ að mótinu með beinum og óbeinum styrkjum. Gríðarleg sjálfboðavinna fer fram í kringum mótið við undirbúning, dómgæslu, mótstjórn, aðstöðu- og veitingamál o.s.frv. en þá vinnu er án efa hægt að mæla í þúsundum klukkustunda. Unglingaráð vill nota tækifærið

og færa öllum okkar félagsmönnum bestu þakkir fyrir óeigingjarnt framlag á þessu Nettómóti í þágu körfunnar og félagsins. Útilokað er að standa að slíkri stórframkvæmd án breiðrar þátttöku þar sem allir leggjast á eitt.

Unglingalandsliðsfólk Körfuknattleiksdeildar 2019 Fjölmargir iðkendur Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur voru valdir í æfingahópa yngri landsliðanna fyrir komandi verkefni sumarsins en þrettán Keflvíkingar vour valdir í lokahópa U15, U16, U18 og U20. Í mars tilkynntu þjálfarar val sitt á U15 ára lokahópum sumarsins. Alls voru valdir 18 leikmenn hjá stúlkum og drengjum sem skipuðu tvö 9 manna lið sem tóku þátt á Copenhagen Invitational mótinu í Farum í Danmörku 21.-23. júní. Úr Keflavík voru Agnes María Svansdóttir, Agnes Perla Sigurðardóttir, Anna Lára Vignisdóttir og Bergþóra Káradóttir valdar í hópinn. Þetta er 12. árið sem þetta mót er haldið og hafa leikmenn öðlast dýrmæta reynslu í gegnum árin með því að hefja landsliðsferilinn sinn á þessu móti. Þjálfarar U16 ára og U18 ára stúlkna og drengja völdu sín 12 manna landslið. Valið var úr 16-17 manna æfingahópi sem áfram voru varamenn liðanna ef upp kæmu forföll af einhverjum ástæðum. Í U16 var Eygló Nanna Antonsdóttir valin sem varamaður. Í U18 ára voru alls fjórar stúlkur valdar í 12 manna hópinn úr Keflavík en það voru

þær Anna Ingunn Svansdóttir, Edda Karlsdóttir, Eva María Davíðsdóttir og Hjördís Lilja Traustadóttir. U16 og U18 liðin fóru fyrst á Norðurlandamótið í Finnlandi að venju og í kjölfarið á EM mót FIBA. U20 ára landslið kvenna hélt út til Kosóvó þann 1. ágúst til að taka þátt í B-deild Evrópumóts FIBA. Þar kepptu þær í A-riðli með Króatíu og Ísrael. Í þessum hópi voru fimm stúlkur frá Keflavík. Það voru þær Birna Valgerður Benónýsdóttir, Eydís Eva Þórisdóttir, Kamilla Sól Viktorsdóttir, Þóranna Kika Hodge-Carr og Katla Rún Garðarsdóttir.

Lokahóf yngri flokka 2019 VIÐURKENNINGAR Börnum í 1.-4. bekk voru afhent viðurkenningarskjal fyrir þátttöku í starfi körfuknattleiksdeildarinnar fyrir veturinn, með hvatningu til að taka þátt í sumaræfingum og áframhaldandi æfingum næsta vetur. 1. og 2. bekkur stúlkna Þjálfarar Irena Jónsdóttir og Katla Rún Garðarsdóttir 3. og 4. bekkur stúlkna Þjálfari Helena Jónsdóttir 1. og 2. bekkur drengja Þjálfari Sindri Kristinn Ólafsson 3. og 4. bekkur drengja Þjálfari Kolbeinn Skagfjörð Jósteinsson


Mb. 11 ára drengja

7. fl. stúlkna

8. fl. stúlkna

8. fl. drengja

Drengjaflokkur

Stúlknaflokkur

7. fl drengja

Mb. 11 ára stúlkna

Einstaklingsviðurkenningar, veittar iðkendum MB 10 ára og eldri:

Mestar framfarir: Lilja Bergmann Tryggvadóttir Besti varnarmaðurinn: Sóldís Embla Ingibjargardóttir Besti leikmaðurinn: Dzana Crnac

Minnibolti 10 ára stúlkna Þjálfari Lidia Mirchandani Villar Mestar framfarir: Sigurbjörg Diljá Gunnarsdóttir Besti varnarmaðurinn: Ásdís Lilja Guðjónsdóttir Besti leikmaðurinn: Alma Rós Magnúsdóttir Minnibolti 11 ára drengja Þjálfari Richardo González Dávila Mestar framfarir: Dagur Stefán Örvarsson Besti varnarmaðurinn: Viktor Árni Traustason Besti leikmaðurinn: Jóhann Elí Kristjánsson Minnibolti 11 ára stúlkna Þjálfari Lidia Mirchandani Villar Mestar framfarir: Vilborg Ronja Ragnarsdóttir Besti varnarmaðurinn: Kamilla Anísa Aref Besti leikmaðurinn: Hanna Gróa Halldórsdóttir 7. flokkur drengja Þjálfari Jón Guðmundsson Mestar framfarir: Jökull Eyfjörð Ingvarsson Besti varnarmaðurinn: Jakob Máni Magnússon Besti leikmaðurinn: Gabríel Aron Sævarsson 7. flokkur stúlkna Þjálfari Brittany Dinkins

Sannir Keflvíkingar

8. flokkur drengja Þjálfari Jón Guðmundsson Mestar framfarir: Daníel Rebakin Besti varnarmaðurinn: Grétar Haraldsson Besti leikmaðurinn: Kristján Fannar Ingólfsson 8. flokkur stúlkna Þjálfari Brittany Dinkins Mestar framfarir: Júlía Rún Árnadóttir Besti varnarmaðurinn: Brynja Hólm Besti leikmaðurinn: Jana Falsdóttir 9. flokkur drengja Þjálfari Jón Guðbrandsson Mestar framfarir: Leó Máni Phu Besti varnarmaðurinn: Aðalgeir Ingimundarson Besti leikmaðurinn: Logi Ágústsson 9. flokkur stúlkna Þjálfari Kristjana Jónsdóttir Mestar framfarir: Hjördís Arna Jónsdóttir Besti varnarmaðurinn: Anna Lára Vignisdóttir Besti leikmaðurinn: Agnes María Svansdóttir 10. flokkur drengja Þjálfari Jón Guðbrandsson

Mestar framfarir: Vilhjálmur Vilhjálmsson Besti varnarmaðurinn: Einar Gunnarsson Besti leikmaðurinn: Stefán Júlían Sigurðsson 10. flokkur stúlkna Þjálfari Kristjana Jónsdóttir Mestar framfarir: Anna Þrúður Auðunsdóttir Besti varnarmaðurinn: Urður Unnardóttir Besti leikmaðurinn: Eygló Nanna Antonsdóttir Drengjaflokkur Þjálfari Richardo Gonzales Davila Mestu framfarir: Guðbrandur Helgi Jónsson Besti varnarmaðurinn: Bjarki Freyr Einarsson Besti leikmaðurinn: Andri Þór Tryggvason Stúlknaflokkur Þjálfari Hörður Vilhjálmsson Mestu framfarir: Lovísa Íris Stefánsdóttir Besti varnarmaðurinn: Eva María Lúðvíksdóttir

Besti leikmaðurinn: Anna Ingunn Svansdóttir

Mesti Keflvíkingurinn Einnig voru veitt sérverðlaun fyrir það sem við kjósum að kalla Sannir Keflavíkingar. Þessi verðlaun voru veitt þeim einstaklingum sem hafa lagt mikið af mörkum til félagsins. Þeir mættu vel á æfingar, eru góðir liðsfélagar, hjálpa til á ritaraborði og við dómgæslu á mótum og voru ávallt tilbúnir að koma þegar á þurfti að halda. Þeir eru fyrirmyndir að góðum félagsmanni. Þessir einstaklingar eru: Bergur, Nói, Siggi Hólm, Arnór Daði, Anna Þrúður, Ásta Rún, Ásthildur, Bergþóra Kára, Birgir Örn, Leó Máni, Bjarki Fannar, Fjóla Dís og Kristín Embla.

Lokaorð Barna- og unglingaráð vill að lokum þakka öllum þjálfurum sem störfuðu fyrir félagið í vetur fyrir frábært starf auk fjölmargra foreldra og annarra félagsmanna sem lögðu hönd á plóginn með óeigingjörnu framlagi og störfum í þágu unga fólksins. Áfram Keflavík. Barna- og unglingaráð KKDK

Jólablað 2019

27


Óskum viðskiptavinum okkar ánægjulegra stunda yfir hátíðarnar

Gleðileg jól

farsælt komandi ár, þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða BÓKHALDSÞJÓNUSTAN SÆVAR REYNISSON VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR

Hafnargötu 27 - Sími 421 1420 & 894 3837

Rafverktaki

Tækniþjónusta SÁ ehf.

Iðavellir 3a - Sími 892 8483

VÍSIR

Félag skipstjórnarmanna á Suðurnesjum

28

Jólablað 2019

stapaprent

Prentþjónusta


Mynd/SkúliSig.

K

æru Keflvíkingar Körfuboltinn í Keflavík hefur farið vel af stað þetta tímabilið. Við sendum þrjú lið til keppni í meistaraflokki. Meistaraflokkur kvenna er með lið í úrvalsdeild og annað í fyrstu deild. Farið var af stað í vetur með tvö lið enda eins og mörgum er ljóst eigum við mikið af frábærum og efnilegum stúlkum í Keflavík. Stúlkurnar í A liðinu okkar er í 4. sæti í úrvalsdeildinni og eru einungis með einn erlendan leikmann í liðinu á meðan önnur lið eru með tvo til fjóra erlenda leikmenn í sínum liðum. Þjálfarar meistaraflokks kvenna og stjórn tóku þá ákvörðun að vera með einn erlendan leikmann í vetur til þess að gefa ungum heimastúlkum tækifæri til að spila í deild þeirra bestu. Litið er svo á að þetta sé verkefni næstu tveggja til þriggja ára til þess að komast aftur í fremstu röð. B liðið okkar leikur í 1. deild og sitja þær í fyrsta sæti þegar

Körfuknattleiksþetta er skrifað, sem deild Keflavíkur er er frábær árangur. rekin af sjálfboðaliðFramtíðin er okkar í um og hefur stjórn kvennaboltanum! KKDK fengið mikinn Karlaliðið hefur farliðstyrk undanfarið. ið vel af stað í upphafi Það skiptir miklu móts. Hjalti Þór Vilmáli að gott fólk vilji hjálmsson og Finnur gefa tíma sinn til þess Jónsson þjálfarar liðsað starfa fyrir félagið ins eru að gera góða okkar. Svona félag hluti saman. Karlaliðið er ekki bara rekið af er með þrjá erlenda stjórn heldur öllum leikmenn í vetur. Ekk- Ingvi Þór Hákonarson þeim sem koma að ert annað var í boði formaður KKDK félaginu og leggja sitt þar sem við höfum af mörkum. ekki verið að skila af okkur eins Til að halda úti meistaraflokkum mikið af heimamönnum í karlaliðið reiðum við okkur á fyrirtækin á undanfarin ár eins og við hefðum viljað gera. Mikil vinna er í gangi og ætlum við að snúa við blaðinu og skila heimamönnum upp í meistaraflokk karla. Við gerum okkur grein fyrir að sú vinna tekur tíma. Það er von okkar að í nánustu framtíð munum við sjá fullt af Keflvíkingum í meistaraflokki karla.

svæðinu ásamt þeim fjáröflunum sem leikmenn og stjórn vinna að. Vil ég skora á öll þau fyrirtæki sem vilja veita okkur stuðning að hafa samband við deildina. Við erum í samstarfi við mörg fyrirtæki á svæðinu og án þeirra væri þetta ekki hægt. Ég vil þakka ykkur kærlega fyrir ykkar framlag sem er ómetanlegt. Nú líður senn að jólum og viljum við hjá stjórn Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur senda ykkur kæru Keflvíkingar hinar bestu jóla- og áramótakveðjur. Kær jóla- og áramótakveðja Ingvi Þór Hákonarson Formaður KKDK

Mynd/SkúliSig.

Jólablað 2019

29


Keflavíkurbókin Á

haustmánuðum gengu félagarnir og þjálfararnir Sindri Kristinn Ólafsson og Sigurður Friðrik Gunnarsson með þá hugmynd að fjölga þyrfti yngstu iðkendum körfuknattleiksdeildarinnar á heimaleiki meistaraflokkanna. Upp úr því fæddist Keflavíkurbókin, stimpilbók þar sem iðkendur, Sannir Keflvíkingar, fá stimpil í viðeigandi reit fyrir þann heimaleik sem sóttur er. Mánaðarleg verðlaun eru fyrir bestu mætingar í hverjum flokki auk þess sem sérstök verðlaun verða veitt í lok tímabils fyrir þá sem eru með

Verðlaunahafar í októbermánuði

bestu heildarmætinguna yfir árið á leiki karla og kvenna. Það er óhætt að segja að bókin hafi slegið í gegn og hafa Sannir Keflvíkingar verið iðnir við að mæta á leiki hjá báðum kynjum, safna stimplum og draga foreldra/forráðamenn með sér á góða skemmtun fyrir alla fjölskylduna í Blue höllinni. Bókin þjónar ekki einungis þeim tilgangi að fá fleira fólk á heimaleiki og mynda þar með betri stemmingu, heldur dregur hún alla fjölskylduna nær félaginu okkar og eykur þar með tengingu milli félags, foreldra og iðkenda. Leikmenn meistaraflokkanna

Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur býðst 25% afsláttur af árskortum á heimaleiki félagsins og því mikill hvati til að fylgja börnunum á leiki og eiga uppbyggilega samverustund í því frábæra umhverfi sem íþróttaleikir eru.

verða sýnilegri sem fyrirmyndir fyrir yngri leikmenn félagsins og báðum kynjum er gert jafnhátt undir höfði en til þess að vera samkeppnishæfur um bestu mætinguna þarf að mæta á karlaleiki sem og kvennaleiki. Foreldrum og forráðamönnum iðkenda

3.-4. bekkur drengja

Verðlaunahafar í októbermánuði

Óskum Suðurnesjamönnum

gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða. Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.

Óskum viðskiptavinum okkar, sem og Suðurnesjamönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða

A D L E G U FL

S ALA

8

UT 10 GBRA

IÐ

K-HÚS

HRIN

eildar

pyrnud

ur Keflavík Knatts

OPNUM 28.DESEMBER OPIÐ 28., 29. & 30.DESEMBER FRÁ KL.10.00-22.00 OPIÐ GAMLÁRSDAG FRÁ KL.10.00-16.00 Við treystum á íbúa Reykjanesbæjar að styðja vel við bakið á okkur. Allur hagnaður deilist á milli karla,kvenna og unglingadeilda knattspyrnudeildar Keflavíkur

SÖLUUMBOÐ ÖSKJU Á REYKJANESI Sími 420 5000 30

Jólablað 2019


Gerðu heimilið snjallt og öruggt fyrir jólin með Snjallöryggi Kynntu þér snjallara öryggiskerfi á snjalloryggi.is eða í síma 570 2400 ta íkurfrét m V r u k i e al sju Skafmið ana á Suðurne og versl

a k k u l a l Jó Næstum

0 0 60 ! r a g n ni

vin

Jólalukk20a19

Sími 421 4777

Óskar Suðurnesjamönnum

gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári

r i n a l s r e v 0 irtæki

Skafmiðaleik ur Víkurfrét ta og verslana

á Suðurnesj um

2 þjónustufyr og

Jólablað 2019

31


Strákafimleikar:

Hrafnkell Máni Másson er 9 ára strákur sem æfir fimleika 4 og hálfan tíma á viku 1. Hvenær byrjaðir þú að æfa fimleika? Haustið 2018 2. Af hverju fórst þú í fimleika? Mig hefur langað að æfa síðan ég var 4 ára því systir mín æfði en ég þorði ekki. 3. Voru margir strákar í fimleikum þegar þú byrjaðir? Kannski svona 12 í mínum hóp 4. Hvert er þitt uppáhaldsáhald? Stökk

5. Áttu þér einhver áhugamál fyrir utan fimleikana eða hvað gerir þú þegar þú ert ekki í fimleikahúsinu? Áhugamálin mín eru fuglar og risaeðlur, þegar ég er heima þá er ég bara að leika mér. 6. Áttu þér fyrirmynd í fimleikum? Máney Dögg systir mín 7. Ef þú ættir að lýsa Villa í nokkrum orðum hvernig væri það? Skemmtilegur, pínu strangur og góður.

Atli Viktor Björnsson er 16 ára drengur sem æfir fimleika 15 tíma á viku. Atli er fimleikamaður Keflavíkur 2018 1. 2.

Hvenær byrjaðir þú að æfa fimleika? Held að ég hafi verið sex ára þegar ég byrjaði að æfa. Af hverju fórst þú í fimleika? Systir mín var að æfa fimleika þá og fannst það spennandi. 3. Voru margir strákar í fimleikum þegar þú byrjaðir? Já alveg nokkrir en fáir sem hafa haldið áfram. 4. Hvert er þitt uppáhaldsáhald? Svifrá. 5. Áttu þér einhver áhugamál fyrir utan fimleikana eða hvað gerir þú þegar þú ert ekki í fimleikahúsinu?

32

Jólablað 2019

Ég hef áhuga á tölvuleikjum og boltaíþróttum og eyði frítímanum mínum í að læra og að vera með vinum mínum. 6. Heldur þú að þú eigir eftir að þjálfa fimleika í framtíðinni? Já það getur vel verið. 7. Áttu þér fyrirmynd í fimleikum? Nei í rauninni ekki. 8. Ef þú þarft að lýsa Villa í nokkrum orðum hvernig væri það? Skemmtilegur, jákvæður, góður þjálfari og ákveðinn.


Villi þjálfari

H

já fimleikadeild Keflavíkur er meðal annars boðið upp á að æfa áhaldafimleika karla. Undanfarin ár hefur verið aukning meðal drengja hjá deildinni. Í vetur eru 5 hópar þar sem drengir á aldrinum 5-16 ára æfa fimleika undir dyggri stjórn Vilhjálms Ólafssonar en hann er þjálfarinn í öllum þessum hópum og eru það um 55 drengir. Villi, eins og hann er kallaður, byrjaði að þjálfa 17 ára og þá sem aðstoðarþjálfari en 18 ára var hann kominn með sinn hóp. Hefur hann þjálfað hjá deildinni í 13 ár. Hann byrjaði sjálfur að æfa fimleika hjá deildinni 16 ára, en það var kærasta bróður hans sem hvatti hann til að prófa. Hann prófaði fyrst hópfimleika en færði sig

svo yfir í áhaldafimleika, en þá voru þeir tveir strákarnir sem æfðu fimleika. Hans uppáhaldsáhald var karlatvíslá en skemmtilegast finnst honum að þjálfa gólf og svifrá. Hann er mikil fyrirmynd hvort sem það er í fimleikasalnum eða þegar hann iðkar eitthvað af þeim fjölmörgu áhugamálunum sem hann á fyrir utan fimleikana, má þar nefna surf, veiði, vélsleðar, krossarar, klifur, snjóbretti, golf, kayakar, ferðast og skoða eins mikið og hægt er. Einnig hefur hann mikinn áhuga á ljósmyndun og er hann duglegur að taka myndir sem tala sínu máli. Bestu kveðjur Linda

Jólablað 2019

33


Sundárið 2019

S

Framtíðarsundmenn.

unddeild Keflavíkur og Sunddeild Njarðvíkur eru eins og undanfarin ár í góðu samstarfi undir merkjum Sundráðs ÍRB. Saman eigum við eitt fremsta sundlið landsins og stóran hóp af sundmönnum í landsliðsverkefnum bæði hjá unglingum og fullorðnum. Við höfum átt farsælt ár og höfum haldið áfram uppbyggingu á okkar góða sundhóp. Töluverðar breytingar hafa orðið á elsta hópnum okkar, en nokkrir af elstu sundmönnunum okkar hafa farið í nám bæði hér heima og erlendis. Eydís Ósk Kolbeinsdóttir er á farin til Bandaríkjanna. Þar mun hún stunda nám á skólastyrk við Fresno State University í Kaliforníu, samhliða því að framlengja sundferilinn sinn. Skólinn er með lið í fyrstu deild í NCAA. Við hjá ÍRB óskum henni góðs gengis og vonumst til að fá að njóta krafta hennar á næstu misserum. Árið er búið að vera mjög gott fyrir félagið. Margir ungir og efnilegir sundmenn eru að koma inn í elstu hópana okkar og munu eflaust styrkja liðið á komandi árum. Einnig er mjög góður gangur í yngri hópum. Með tilkomu Stapaskóla kemur ný sundlaug og vonumst við til að geta fjölgað iðkendum í þeim hluta bæjarins. Í maí höldum við lokahóf þar sem við komum saman, skemmtum okkur, borðum góðan mat og veitum sundmönnunum okkar viðurkenningar fyrir árangur sinn. Æfingadagarnir og fréttabréfið okkar er allt á sínum stað og eru allar upplýsingar um starfsemina á heimasíða okkar www.keflavik.is/sund. Samstarf Sunddeildanna tveggja er forsenda fyrir þeim góða árangri sem liðið er að ná. Með þessu samstarfi skapast tækifæri fyrir iðkendur sem annars væru ekki til staðar. Við getum með þessu móti boðið upp á þjálfun eins og hún gerist best hér á landi og þótt víðar væri leitað. Helgina 7. - 9. desember 2018 fór fram í Oulu í Finnalandi Norðurlandameistaramótið í sundi. Sjö sundmenn ÍRB kepptu á mótinu. Það voru: Eva Margrét Falsdóttir, Karen Mist Arngeirsdóttir, Fannar

Snævar Hauksson, Stefanía Sigurþórsdóttir, Eydís Ósk Kolbeinsdóttir, Gunnhildur Björg Baldursdóttir og Birna Hilmarsdóttir. Skemmst er frá því að segja að sundfólkið stóð sig afar vel á mótinu, var annað hvort að bæta sig eða alveg við sína bestu tíma. Afar góð stemming var hjá landsliðinu á NM og ferðin bæði

lærdómsrík og skemmtileg. Í desember útnefndi Sunddeild Keflavíkur þau Stefaníu Sigurþórsdóttur og Þröst Bjarnason sem sundkonu og sundmann ársins og Már Gunnarsson var valin íþróttamaður NES. Á verðlaunaafhendingu ÍRB á síðasta degi ársins var Þröstur Bjarnason valinn sundmaður Reykjanesbæjar 2018 og Már Gunnarsson valinn íþróttamaður fatlaðra 2018. Helgina 18. - 20. janúar kepptu sjö sundmenn frá ÍRB á Leinster Meet í Dublin Sundfólkið okkar stóð sig mjög vel á mótinu. Ferðin var afar vel heppnuð og skemmtileg í alla staði, en um leið lærdómsrík og krefjandi, því hver mótshluti var mjög langur og hlé á milli mótshluta nánast ekkert. Þeir sem kepptu á mótinu voru: Diljá Rún Ívarsdóttir, Ásta Kamilla Sigurðardóttir, Hafdís Eva Pálsdóttir, Karen Mist Arngeirsdóttir, Gunnhildur Björg Baldursdóttir, Birna Hilmarsdóttir og Aron Fannar Kristínarson. Helgina 25. - 27. janúar kepptu sundmenn úr Framtíðarhóp og Afrekshóp á “Reykjavík International Games” (RIG). Þetta var fyrsta mót tímabilsins í 50m laug hjá öllum nema þeim sem fóru til Dublin. Bætingar voru í nánast öllum sundum og margir í úrslitum. Jafnframt var gaman að sjá að karlamegin er liðið að bæta sig verulega og bjart framundan þar. Á þessu móti náði Eva Margrét Falsdóttir lágmörkum fyrir Norðurlandamót Æskunnar (NÆM) í bæði 100 og 200m bringusundi. Helgina 8. – 10. febrúar tókum við þátt í Gullmóti KR. Góður gangur var hjá okkar fólki. Mörg flott sund og í úrslitum í Super Challenge áttum við sex af átta sveinum og fjórar af átta í meyjaflokknum. Á þessu sama móti setti Már Gunnarsson þrjú Íslandsmet. Hann bætti metið í 100m flugsundi, það met er frá 1995, og um leið sló hann metið í 50m flugsundi með frábærum millitíma. Einnig bætti hann metið í 200m flugsundi. Helgina 9. - 10. febrúar fór fram svæðamót GLVC.

Góðir félagar.

Gunnhildur, Diljá og Birna.

Eva Margrét.

34

Jólablað 2019

Már nýbúinn að slá heimsmet.

Fjóla, Rebekka og Sunneva .


Fannar og Aron.

Liðið á bikar. Þar kepptu Íris Ósk Hilmarsdóttir og Þröstur Bjarnason fyrir McKendree University. Mótið er frekar sterkt og sundmenn keppast við að ná lágmörkum inn á meistaramótið sem fram fer í mars. Írisi og Þresti gekk báðum vel á mótinu. Íris var að bæta alla sína tíma og komst í A-úrslit í 200y baksundi þar sem hún endaði sjöunda. Þröstur vann sinn fyrsta einstaklingssigur á GLVC móti í 500y skriðsundi. Skólinn var svo með mjög sterka A-sveit í 4 x 200y boðsundi sem Þröstur tilheyrði og þeir unnu sigur í þeirri grein. Helgina 16. – 17. mars tókum við þátt í Ásvallamótinu í Hafnarfirði. Þar náði Eva Margrét Falsdóttir tveimur lágmörkum á NÆM í 200m fjórsundi og 400m fjórsundi. Á sama móti setti Már Gunnarsson Íslandsmet, fyrst í 200m baksundi og svo í 1500m skriðsundi. Um miðjan marsmánuð fór fram Meistaramót háskóla í II. deild í sundi í Indianapolis í Bandaríkjunum. Við áttum þar einn fulltrúa á þessu gríðarlega sterka móti, Þröst Bjarnason, sem keppti fyrir hönd McKendree University. Þröstur keppti í 200, 500, 1000 og 1650y skriðsundi ásamt því að vera í boðsundsveit skólans í 4x200y skriðsundi. Þröstur stóð sig mjög vel á þessu móti og setti skólamet í 500y og 1650y skriðsundi. Helgina 5. – 7. apríl fór fram Íslandsmeistara mót í 50m laug. Þar stóð okkar fólk sig mjög vel. Átta Íslandsmeistaratitlar, sjö silfur og sjö brons, þrjú telpnamet, lágmark á EMU og fimm ÍRB met var útkoma helgarinnar. Sundmenn okkar sem urðu Íslandsmeistarar voru: Kristófer Sigurðsson: Gull í 100m skriðsundi. Þröstur Bjarnason: Gull í 400m skriðsundi og gull í 200m skriðsundi. Á þessu móti setti Eva Margrét Falsdóttir telpnamet í 100m og 200m bringusundi og í 200m fjórsundi. Ásamt því að ná lágmörkum á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar (EYOF) og Evrópumeistaramót unglinga (EMU). Íslandsmeistaramót fatlaðra fór fram samhliða ÍM 50 hjá SSÍ. Már varð Íslandsmeistari í 400m skriðsundi, 50m og 100m baksundi, 200m fjórsundi og 50m flugsundi. Már sem keppti þá í flokki S12 bætti Íslandsmet í 100m baksundi og 50m flugsundi. Í apríl hélt McKendree University lokahóf deildarinnar, þar fékk Þröstur Bjarnason titilinn „Ironman of the team“ fyrir mikinn dugnað og hörku á æfingum og í keppni en þetta er annað árið í röð sem Þröstur hlýtur þennan titil. Helgina 25. – 28. apríl keppti Már Gunnarsson á British Open í Glasgow, þar setti hann þrjú Íslandsmet. Í 100m baksundi og jafnframt Íslandsmet í 50m baksundi á millitíma og einnig Íslandsmet í 50m skriðsundi. British Open var afar fínt mót hjá Má en hann keppti þar í fyrsta skipti sem S11 (sem er alveg blindur) og útkoman var: ÓL lágmark í 200m fjórsundi, 50m og 400m skriðsundi og 100m baksundi. Jafnframt náði hann HM lágmarki í öllum þessum greinum ásamt 100m skriðsundi. Helgina 17. – 19. maí fór fram okkar árlega Landsbankamót í Vatnaveröld. Mótið gekk í alla staði mjög vel en tæplega 400 sundmenn tóku þátt. Eitt Íslandsmet

féll á mótinu. Þar var að verki Már Gunnarsson í 50m baksundi í flokki S11 (blindir) og einnig voru fjögur mótsmet sett. Að loknu Landsbankamótinu héldum við okkar árlega Lokahóf. Þar voru gerð upp afrek ársins 2018 sem og sundársins 2018-2019. Afar skemmtilegt kvöld þar sem fjölmargar viðurkenningar og verðlaun voru veitt. Mætingin var frábær og stemmingin góð. Dagana 28. - 30. maí fóru fram Smáþjóðaleikar í Svartfjallalandi. Tveir sundmenn frá okkur kepptu á Smáþjóðaleikunum. Það voru þeir Kristófer Sigurðsson og Þröstur Bjarnason og með þeim í för var Steindór Gunnarsson þjálfari. Sigurþór Sævarsson alþjóðlegur dómari dæmdi á mótinu. Þröstur Bjarnason vann brons í 200m skriðsundi og brons í 4 x 200m skriðsundi. Kristófer Sigurðsson vann brons í 4 x 200m skriðsund og gull í 4 x 100m fjórsundi sem einnig var nýtt landsmet. Helgina 31. maí – 2. júní fór Birna Hilmarsdóttir á vegum SSÍ til Prag og tók þátt í sundmóti þar í borg. Með í ferðinni var einnig Hilmar Örn Jónasson sem fararstjóri SSÍ. Skemmst er frá því að segja að Birna stóð sig með stakri prýði á mótinu og náði best þriðja sæti í 800m skriðsundi. Helgina 21. - 24. júní var AMÍ haldið hér hjá okkur í Reykjanesbæ. Við fengum fjórtán Aldursflokkameistara titla á þessu móti. Í ár áttum við færri titla en oft áður en unnum mjög mörg verðlaun í heildina og það var það sem skilaði liðinu öðru sætinu á eftir SH. Við erum gríðarlega stolt af sundmönnunum okkar eftir AMÍ. Þeir gerðu allt sem var lagt upp með og miklu meira en það. Samstaðan, gleðin, keppnisharkan, hvatningin og einbeitingin sem einkenndi okkar fólk var stórkostleg. Enn og aftur áttum við frábæran lokadag, en þar spilar inn einbeiting, skipulag og góð hvíld. Við áttum næst fjölmennasta liðið í ár en stefnum á að verða stærri, sterkari, betri og hraðari á næsta ári. Öll framkvæmd mótsins var frábær og eiga stjórnarfólk og foreldrar mikið hrós skilið. Svona mót er mikil framkvæmd og það að eiga fólk sem er tilbúið í svona mikið sjálfboðaliðastarf er stórkostlegt. Allar hendur klárar fyrir liðið og allir samtaka. Reykjanesbær og starfsfólk sundlaugarinnar eiga einnig mikið hrós skilið og Reykjanesbær sem íþróttarbær getur verið afar stoltur af okkar fólki. Takk fyrir frábæra AMÍ helgi kæru sundmenn fararstjórar og foreldrar. Dagana 9. - 15. september keppti Már Gunnarsson á Heimsmeistaramóti fatlaðra í London. Már sem keppir í flokki S11 (blindir) gerði sé lítið fyrir og vann bronsverðlaun í 100m baksundi en þess má geta að Már var eini Norðurlandabúinn sem vann til verðlauna á mótinu. Már setti nokkur Íslandsmet á þessu móti en það var í: 50m skriðsundi, 100m baksund en þar setti hann tvö met. 100m skriðsund, 50m flugsundi, 100m flugsundi og 400m skriðsund þar sem hann tvíbætti metið, fyrst í undanrásum og svo í úrslitum. Helgina 13. – 14. september keppti Eva Margrét Falsdóttir á Norðurlandamóti æskunnar (NÆM) sem fram fór í Vejle. Hún náði sér ekki á strik á mótinu en reynsl-

an sem þessi unga og efnilega sundkona fær á svona stóru móti er mikil og mjög mikilvægt að fá tækifæri eins og þetta til að bæta í reynslubankann. Helgina 27. – 28. september fór fram Bikarkeppni SSÍ hér í Reykjanesbæ. Sundfólkið okkar stóð sig afar vel. Kvennaliðið hafnaði í öðru sæti í fyrstu deildinni og karlaliðið í fjórða sæti. Árangur kvennaliðsins er afar eftirtektarverður. Þegar síðasti hlutinn fór af stað þá voru þær í þriðja sæti og örfá stig sem skildu okkur, Breiðablik og sameinað lið Reykjavíkur að. Stelpurnar stigu þá allt í botn og lönduðu öruggu öðru sæti. Á þessu móti náði Eva Margrét Falsdóttir frábærum árangri í 200m bringusundi og bætti átta ára gamalt telpnamet í greininni um rúmlega sekúndu og náði lágmarki á Norðurlandameistaramótið (NM) í sundi, jafnframt náði hún lágmarki á NM í 100m bringusundi. Helgina 19. - 20. október fór fram í Ásvallalaug Extramót SH. Þar setti Már Gunnarsson Íslandsmet í flokki S11 (blindir) í 100m fjórsundi. Helgina 8. – 10. nóvember fór fram í Ásvallalaug Íslandmeistaramót í 25m laug. Mótið er bæði Íslandsmót fatlaðra og ófatlaðra. Sundfólk ÍRB vann alls til sex Íslandsmeistaratitla, fékk þrjú silfur og fjögur brons. Þeir sem urðu Íslandsmeistarar á mótinu voru: Eva Margrét Falsdóttir í 400m fjórsundi, hennar fyrsti Íslandsmeistaratitill. Hún setti einnig telpnamet 200m bringusundi. Már Gunnarson í 50, 100 og 200m baksundi og einnig setti hann heimsmet í flokki S11 (blindir) í öllum þremur sundunum sínum. Þrír sundmenn ÍRB náðu lágmörkum á NM sem fram fer í Færeyjum 29. nóvember - 01. desember. Í febrúar og nóvember höldum við Speedomótin okkar. Þá koma sundmenn 12 ára og yngri saman einn laugardag og keppa fyrir og eftir hádegi ásamt því sem við bjóðum upp á mat í hádeginu. Keppendur á þessum mótum eru um 200. Öll umgjörð mótsins hefur verið til mikillar fyrirmyndar fyrir félagið og eiga foreldrar og stjórnarfólk mikið hrós skilið fyrir flott mót og samhent vinnubrögð við undirbúning, mönnun og frágang við mótið. Við tókum einnig þátt í mörgum öðrum mótum félagsliða þar sem sundmenn okkar komu að venju vel fyrir, stóðu sig vel og voru sjálfum sér og félagi okkar til mikils sóma. Hægt er að sjá úrslit þessara móta hér http://keflavik.is/sund/keppni/urslit/. Það er mikil vinna við að halda úti þessu öfluga starfi. Bæði hvað varðar rekstur á félaginu, vinnu á sundmótum og aðrar uppákomur sem félagið stendur fyrir. Vert er að þakka því góða fólki sem í mörg ár hefur unnið ötult starf fyrir félagið og stendur sig ávallt með sóma. Nýr þjálfari, Sveinbjörn Pálmi Karlsson, hefur hafið störf fyrir félagið og bjóðum við hann velkominn til starfa. Hann er öflug viðbót við okkar margreynda hóp sund- og þrekþjálfara. Við viljum þakka þeim ásamt starfsfólki Vatnaveraldar og okkar helstu styrktaraðilum, Landsbankanum, HS Orku, HS Veitum, Reykjanesbæ, Nettó, Speedo og Sigurjóni í Sigurjónsbakaríi og öllum öðrum sem lögðu hönd á plóg. Það eru forréttindi að fá að taka þátt í þessu starfi og ekki hægt að segja annað en að framtíðin sé björt. Formaður Sunddeildar Keflavíkur Hilmar Örn Jónasson

Jólablað 2019

35


Óskum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Óskum

DYNAMO REYKJAVÍK

Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða

ÞORVALDUR H. BRAGASON EINAR MAGNÚSSON ÞÓRIR HANNESSON TANNLÆKNAR OG STARFSFÓLK

S K Ó L AV E G I 1 0 • 2 3 0 K E F L AV Í K

Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða. Sími 420 2500

www.skolamatur.is

Skólamatur ehf. | Iðavellir 1 | 230 Reykjanesbær

Óskum Suðurnesjamönnum

gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.

Margnota og umhverfisvænt er merkilegast í dag

Gefðu tré með hverri gjöf. Nánari upplýsingar á bros.is Bros auglýsingavörur Norðlingabraut 14 Sími 569 9000 Smiðjuvöllum 6 • 230 Keflavík • Sími 421 3500 • www.retting.is

Óskum viðskiptavinum okkar, sem og Suðurnesjamönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári

Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.

Stofnað 1971

Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða Vinur við veginn 36

Jólablað 2019

Gleðilega hátíð! Við óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum árið sem er að líða.


Viðburðaríkt ár hjá blakdeildinni V eturinn 2018-2019 hefur verið afar viðburðaríkur hjá blakdeild Keflavíkur frá því að síðasta tölublað jólablaðsins kom út. Kjörísbikarinn og Íslandsmótið stóðu upp úr og ekki má gleyma að blakdeild Keflavíkur hélt eitt af stærstu íþróttamótum landsins í Reykjanesbæ. Karlaliðið datt út í fyrstu umferð í Kjörísbikarnum eftir tap gegn Laugvetningum eftir góða baráttu. En kvennaliðið kom sér í þriðju umferð Kjörísbikarsins eða 8 liða úrslit. En þetta var í fyrsta sinn sem lið frá Keflavík kemst áfram í þriðju umferð og væntalega ekki í síðasta skipti. Í vikunni fyrir aðra umferð Íslandsmótsins sem haldin var í janúar sl. fékk kvennaliðið þær fréttir að vegna mannlegra mistaka spilaði einn leikmaður kvennaliðsins öllum óafvitandi ólöglega í fyrstu umferð mótsins og einnig leik í annarri umferð Kjörísbikarsins. Þetta þýddi að kvennaliðið sem hafði komið sér í 8 liða úrslit bikarsins var dottið úr leik. Enn fremur þýddi þetta að kvennaliðið hóf aðra umferð í janúar með 0 stig. Eftir góða keppnishelgi voru sterku stelpurnar okkar grátlega nálægt því að komast í A úrslit á Íslandsmóti en það hafðist því miður ekki. Staða karlaliðsins eftir Íslandsmótið í janúar hefði mátt vera betri, en þeir voru í 7. sæti með 7 stig. Hópurinn átti meiri kraft inni og einnig höfðu nýir leikmenn bæst við frá því í janúar. Það var því spennandi að fylgjast með hvernig síðasta umferð vetrarins færi og hvort viðbótin myndi hjálpa til við að komast svolítið ofar. Þriðja og síðasta umferð Íslandsmótsins fór fram í mars hjá bæði kvenna- og karlaliðinu. Eftir frekar slakar fyrri tvær umferðir á Íslandsmótinu hjá karlaliðinu þurfti margt að ganga upp hjá þeim í þriðju umferð vetrarins. Raunin varð sú að þriðja umferð gekk vel hjá þeim og kláruðu þeir Íslandsmótið með glæsibrag og héldu sér því í 2. deild. Kvennaliðið náði einnig að halda sér í 4. deildinni eftir þriðju umferð vetrarins á Íslandsmótinu. Þann 25. – 27. apríl stóð blakdeild Keflavíkur fyrir gríðarlega stóru verkefni hér í Reykjanesbæ. Þessa daga var 44. Öldungamót Blaksambands Íslands haldið í fyrsta skiptið hér í bæ en mótið var haldið í samstarfi við blakdeild Þróttar í Reykjavík sem hefur haft reynslu af skipulagningu slíkra móta. Mótið bar nafnið Rokköld 2019 sem var vel við hæfi þar sem það var haldið í Rokkbænum sjálfum. Öldungamótið í blaki er eitt af stærstu íþróttamótum landsins ár hvert og voru þátttakendur um 1.400 sem komu alls staðar að af landinu. Um 165 karla- og kvennalið mættu og er mótið fyrir 30 ára og eldri. Vel skipulögð skemmtidagskrá var í boði fyrir þátttakendur alla keppnisdagana. Langflestir þátttakendur gistu í bænum frá 24. – 28. apríl og munu hafa á þeim tíma án efa nýtt sér alla þjónustu og afþreyingarmöguleika sem Reykjanesbær hafði upp á að bjóða. Mikill vöxtur hefur verið í blakíþróttinni hér á landi undanfarinn áratug en eflaust eru ekki margir sem vita að blak hefur verið spilað í Keflavík frá því skömmu eftir að Íþróttafélag Keflavíkur var stofnað árið 1969. Lengi vel voru leikmenn aðallega kennarar en fyrir sex árum tóku nokkrir áhugamenn um blakíþróttina sig saman og stofnuðu blakdeild Keflavíkur. Á þeim árum hefur deildin þroskast og dafnað og hefur barna- og unglingastarfið vaxið samhliða því. Mikill metnaður hefur verið lagður í Öldungamót undanfarinna ára og allt kapp lagt á að framkvæmd mótsins

Undirbúningshópur Öldungamótsins

Öflugt kvennalið í ár og spennandi tímar framundan.

Strákarnir kláruðu 3. umferð Íslandsmótsins með glæsibrag og héldu sér því í 2. deild.

Martyna Kryszewska var valin í úrtakshóp U19 kvenna og Bjarni Þór Hólmsteinsson var valinn í úrtakshóp U17 karla.

Þessar flinku konur eru tilbúnar í leiki dagsins í síðustu umferð Íslandsmótsins.

fari vel fram þetta árið þannig að upplifun okkar gesta af Reykjansbæ var sem jákvæðust. Haustið byrjaði heldur rólega. Sumarið fór í að leita að þjálfara fyrir kvennaliðið og barnastarfið. Útlitið virtist ekki vera gott því allir þjálfarar hafa nóg að gera bæði í þjálfun og að spila blak því jú eins og við vitum að blak er mjög vaxandi íþrótt á öllu landinu. Þegar svo allir vegir virtust lokaðir þá fengust þær fréttir að körfuboltadeild Keflavíkur hafði ráðið til sín erlendan leikmann til að spila með karlaliðinu. Heppnin var með okkur því konan hans flutti með honum til Íslands, Keflavíkur og hún hafði spilað blak með háskólaliði í Bandaríkjunum og hefur orðið fylkismeistari. Viðræður hófust strax að fá hana til að þjálfa kvennaliðið og börnin. Samningar náðust og réð blakdeild Keflavíkur McKenzey Williams til sín. Ásamt því að sinna þjálfun þá spilar hún einnig með kvennaliðinu sem var gífurlegur styrkur fyrir kvennaliðið. Barnastarfið byrjaði vel og aukning hefur orðið á iðkendum hjá börnum á aldrinum 6 - 15 ára. Ásamt því fór deildin aftur á stað með nýliða-/öldungaæfingar og vonast deildin að fá fleiri yngri blakara og áhugasama blakara inn með þeim æfingum. En börn eldri en 15 ára spila með meistaraflokki líkt og árið á undan. Tveir Keflvíkingar voru valdir í úrtakshópa yngri landsliða Íslands í blaki. Martyna Kryszewska var valin í úrtakshóp U19 kvenna og Bjarni Þór Hólmsteinsson var valinn í úrtakshóp U17 karla. Hóparnir æfðu helgina 27.-29.

september þar sem skorið var niður og landsliðshóparnir endanlega valdir. Bæði eru að koma upp úr barna- og unglingastarfi Keflavíkur í blaki og eiga bæði 15-20 leiki með meistaraflokkum síns félags þrátt fyrir ungan aldur. Fyrsta umferð Íslandsmótsins byrjaði af krafti í október. Kvennaliðið vann alla sína leiki og tróna þær á toppnum. Karlaliðið mætti með sterkt lið og enduðu í öðru sæti eftir fyrstu umferð. Önnur umferð fer fram í janúar og verður spennandi að sjá hvert liðin stefna. Bjarni Þór Hólmsteinsson var valinn í U17 landsliðið og var brotið blað í 6 ára sögu Blakdeildar Keflavíkur. Bjarni Þór hefur ekki æft blak í langan tíma og þó hann sé að koma úr barnastarfi Keflavíkur þá keppti hann síðasta vetur með meistaraflokki karla. Hann er hávaxinn og sterkur leikmaður með blak í blóðinu enda móðir hans, Sæunn Svana Ríkharðsdóttir, lykilleikmaður hjá kvennaliði Keflavíkur. U17 landsliðið fór um miðjan október á NEVZA mótið sem haldið var í Ikast í Danmörku og þar hefur Bjarni Þór skapað ómetanlegar minningar. Bæði karla og kvennaliðið skráðu sig til leiks í Kjörísbikarnum. Kvennaliðið byrjaði á að mæta Þrótti í Vogum í útileik. Konurnar náðu með naumindum sigur 3-2. En Þróttur í Vogunum er nýtt öflugt lið. Karlarnir áttu heimaleik er þeir spiluðu á móti UMFL og náðu einnig með naumindum sigur 3-2. Bæði liðin komin í aðra umferð sem var haldin viku seinna. Karlarnir byrjuðu með heimaleik á móti Hamri og hafði Hamar betur og karlaliðið okkar því dottið úr Kjörísbikarnum. Tveimur dögum seinna áttu konurnar sinn heimaleik á móti Völsungi, en Völsungur hafði betur og er kvennaliðið okkar einnig dottið úr Kjörísbikarnum. Það eru spennandi tímar hjá blakdeildinni og hörkumót eftir áramót og hvetjum við alla að fylgjast vel með blakdeildinni. Fyrir hönd blakdeildar Keflavíkur Guðrún Jóna Árnadóttir

Jólablað 2019

37


Badmintondeild:

Árið 2019 var gott ár í badminton

Á

rsins 2019 verður minnst sem mjög góðs árs fyrir badmintondeildina. Ekki að hún hafi farið á mikið flug eða þanist út af iðkendum heldur vegna stöðugleika. Stöðugleika sem varið hefur það sem liðið er á árið. Tilraun sem gerð var skilaði árangri sem haldist hefur. Fjölskylduæfingar í stað þess að einblína á að finna staka spilara. Töluvert margir hafa sótt æfingar hjá okkur í Heiðarskóla þar sem við

höfum okkar æfingaraðstöðu á laugardögum frá kl. 12:30 til kl. 14:00 eins og mörg árin hér á undan. Fjölskyldur hafa nú tekið við af einstaklingum við iðkunina en auðvitað eru allir velkomnir, einir sem og í hópi vina og ættingja. Aðal markmiðið er að ná upp stöðugum rekstri með góðum hópi þar sem iðkendur geta komið saman og alltaf fengið að taka í spaða. Því þó fólk hafi ekki með

sér meðspilara er alltaf séð til þess að enginn fari óþreyttur heim, nóg af einstaklingum til að spila við hvort sem það eru börn eða fullorðnir. Við verðum þó að koma því algjörlega til skila að okkar markmið er að ná upp hópi iðkenda sem þegar fram líða stundir getur tekið þátt í keppnum á vegum badmintondeildarinnar á landsvísu. Því enn í minnisbankanum lifir alltaf vitneskjan um það að við áttum hér mjög öfluga keppnishópa sem sóttu stíft keppnir um allt land. Við áttum líka landliðsfólk í greininni. Haldin voru hér stærstu og öflugustu byrjendamót fyrir unga badminton iðkendur af öllu landinu. Við horfum því björtum augum til framtíðar og setjum markið hátt og vonarstuðulinn líka að Keflavík ungmenna og íþróttafélag verði aftur leiðandi á þessu sviði. Stjórn Badmintondeildar þakkar aðalstjórn enn og aftur fyrir þeirra stuðning og hvatningu um að halda ótrauð áfram þrátt fyrir að á móti blási. Við í stjórn Badmintondeildarinnar viljum senda iðkendum og öllum stuðningsaðilum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi badminton ár og sérstakar óskir til stjórnarmanna Keflavíkur ungmenna og Íþróttafélags fyrir umburðarlyndið. Bestu kveðju Íslandi allt Dagbjört Ýr Gylfadóttir Gjaldkeri badmintondeildar Keflavíkur

Óskum viðskiptavinum og landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar

hsveitur.is 38

Jólablað 2019


Skemmtun fyrir alla fjölskylduna Opnunartími: OPIÐ: 6:45 - 20:006.30 virka- 20.30 daga, 8:00 - 18:00 um helgar Mánud. - föstud. Laugard. og sunnud. 9.00 -17.30 Sími: 420 1500

frítt fyrir börn

fjölskyldusundlaug

Jólablað 2019

39


Ekki gefa bara eitthvað, gefðu frekar hvað sem er. Með gjafakorti Landsbankans er ekkert mál að velja réttu jólagjöfina. Þú ákveður upphæðina og sá sem þiggur velur gjöfina. Þú færð gjafa-

JÓNSSON & LE’MACKS

•

jl.is

•

SÍA

kortið í næsta útibúi.

Landsbankinn

landsbankinn.is

410 4000


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Jólablað Keflavíkur 2019 by Keflavik - Issuu