Skip to main content

Jólablað 2009

Page 1

J贸lin 2009 38. 谩rgangur

J贸labla冒 2009

1


Fréttir af félaginu 2009 17. júní Menningarráð Reykjanesbæjar gerði samning við íþróttafélögin Keflavík og Njarðvík um framkvæmd 17. júní hátíðarhalda í Reykjanesbæ. Framkvæmd hátíðarhaldanna tókst vel og að þessu sinni fór dagskráin fram á torginu fyrir framan Sparisjóðinn í Keflavík bæði að deginum til og kvöldinu. Framkvæmdastjóri 17. júní nefndar Keflavíkur og Njarðvíkur var Einar Haraldsson.

Viðurkenningar á aðalfundi Veittar voru viðurkenningar (starfsmerki) fyrir stjórnarsetu og í fyrsta skiptið var veitt gullmerki félagsins. Fögur gullmerki voru veitt þeim Einari Haraldssyni, Kára Gunnlaugssyni aðalstjórn, Birgir Ingibergssyni sund-aðalstjórn og Jónasi Þorsteinssyni badmintondeild. Gullmerki er veitt fyrir 15 ára stjórnarsetu. Fjögur silfurmerki voru veitt þeim Sveini Adolfssyni aðalstjórn, Guðsveini Ólafi Gestssyni, körfuknattleiksdeild, Grétari Ólasyni knattsp.- körfuknattleiksdeild og Dagbjörtu Ýr Gylfadóttur badmintondeild. Silfurmerki Keflavíkur er veitt fyrir 10 ára stjórnarsetu. Sjö bronsmerki veitt þeim Oddi Sæmundssyni knattspyrnudeild, Einari H. Aðalbjörnssyni sundknattspyrnudeild, Evu Björk Sveinsdóttur, Herdísi Halldórsdóttur, Sveinbjörgu Sigurðardóttur fimleikadeild, Guðmundi Jóni Bjarnasyni sunddeild og Ingunni Gunnlaugsdóttur badmintondeild. Bronsmerki Keflavíkur er veitt fyrir 5 ára stjórnarsetu. Starfbikar félagsins var veittur Birni Víkingi Skúlasyni. Tvö heiðursmerki úr silfri voru veitt þeim Jóhanni Gunnarssyni og Kristni Óskarssyni. Lilja Dögg Karlsdóttir var sæmd Starfsmerki UMFÍ. Aðalstjórn óskar öllum þeim sem hlutu viðurkenningu til hamingju með viðurkenninguna.

26. Landsmót UMFÍ Akureyri Landsmót UMFÍ er klárlega stærsti viðburður hreyfingarinnar hverju sinni. Mótið var haldið á Akureyri 9. – 12. júlí 2009. Það voru liðin eitt hundrað ár frá fyrsta landsmóti. Fyrsta mótið var haldið árið 1909, en síðan 1940 hafa þau verið haldin 3ja hvert ár með undantekningum. Á Landsmótum er keppt í mörgum greinum íþrótta auk ýmissa starfsíþrótta eins og dráttarvélarakstri, starfshlaupi, línubeitingu auk annarra greina. Fjöldi keppenda er um 2000 og þeir sem koma og fylgjast með eru frá 12 til 20.000, en hefur mest farið upp í 25.000 manns árið 1965 á Laugarvatni. Það sem gerir mót þetta að stórviðburði á Íslandi er hinn mikli fjöldi keppenda og áhorfenda auk mikillar fjölbreytni í keppnisgreinum. Að þessu sinni var ekki mikil þátttaka frá okkur því miður, en tuttugu og fjórir keppendur tóku þátt.

12. Unglingalandsmót UMFÍ Sauðárkrók 12. Unglingalandsmót UMFÍ var haldið á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina Mikill hugur var hjá mótshöldurum, og margar uppákomur í gangi. Mótið heppnaðist vel í alla staði. Félagið hefur aldrei átt svo marga keppendur en þeir voru að þessu sinni 80 og stóðu þeir sig allir vel. Sett var upp sameiginlegt tjald sem var samastaður þeirra sem tóku þátt í mótinu.

45. Sambandsþing UMFÍ í Reykjanesbæ Sambandsþing UMFÍ var haldið í sal Fjölbrautarskóla Suðurnesja 10. og 11. október 2009. Einar Haraldsson var kosinn í stjórn UMFÍ. Félagið er aðili að UMFÍ og því sækja fulltrúar félagsins sambandsþing og sambandsráðsfundi UMFÍ reglulega. Einar Haraldsson var þingforseti og Kári Gunnlaugsson var formaður kjörnefndar.

2

Jólablað 2009

Íþrótta- og leikjaskóli Keflavíkur Stjórn Keflavíkur íþrótta- og ungmennfélags 2009. Efri röð frá vinstri: Guðjón Axelsson, Sigurvin Guðfinnsson, Þórður M. Kjartansson, Birgir Ingibergsson. Fremri röð frá vinstri: Sveinn Adólfsson, Einar Haraldsson, Kári Gunnlaugsson og Bjarney S. Snævarsdóttir.

13. Unglingalandsmót í Grundafirði 2010 Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið í Grundafirði dagana 30. júlí - 2. ágúst 2009. Mikill hugur er hjá mótshöldurum, og margar uppákomur í gangi. Unglingalandsmótin, sem eru ein af skrautfjöðrum Ungmennafélagshreyfingarinnar eru haldin árlega og ætíð um verslunarmannahelgina. Unglingalandsmótin eru fyrst og síðast íþrótta- og fjölskylduhátíð þar sem unglingarnir eru í fyrirrúmi en þátttakendur eru á aldrinum 11 – 18 ára. Ýmiskonar verkefni eru einnig í boði fyrir yngri sem eldri þannig að engum á að leiðast á unglingalandsmóti. Fyrir þá sem velja unglingalandsmótið er það tryggt að þeir koma í vímuefnalaust umhverfi. Aðalstjórn félagsins vill hvetja deildir til að senda okkar fólk á mótið. Undanfarin ár hefur aðalstjórn greitt þátttökugjöldin fyrir okkar iðkendur.

Íþróttamaður Keflavíkur 2009 Í hófi þann 29. desember 2009 í félagsheimili félagsins kl. 20:00 verða íþróttamenn félagsins heiðraðir og einn þeirra hlýtur síðan sæmdarheitið íþróttamaður Keflavíkur 2009. Allir velunnarar félagsins eru velkomnir. Guðmundur Steinarsson knattspyrnumaður er Íþróttamaður Keflavíkur 2008. Hver verður það í ár ?????

Betra félag / Betri deild Keflavík íþrótta- og ungmennafélag varð fyrst allra fjölgreinafélaga til að hljóta viðurkenningu ÍSÍ sem fyrirmyndarfélag. Allar deildir félagsins, sem þess eiga kost, hafa hlotið gæðaviðurkenningu ÍSÍ. Þessi við-

urkenning er mikils virði fyrir hverja deild og félagið í heild sinni sem segir að íþróttastarfið innan Keflavíkur sé rekið eftir ákveðnum gæðakröfum. Það fullvissar foreldra, styrktaraðila og stjórnvöld sem ætti að vera mjög gott fyrir okkur foreldra sem eigum börn sem stunda íþróttir. Okkar deildir hafa verið að endurnýja handbókina og fá nýja vottun frá ÍSÍ, en vottunin var til fjögurra ár í senn.

Breyttar forsendur Skjótt skipast veður í lofti og á það við efnahagsástandið hér á landi. Þessar breytingar kom við okkur sem erum að halda úti íþróttastarfi hér í bæ. Minni tekjur frá okkar stuðningsaðilum og minni aðgang að fjármagni. Okkar deildir hafa tekið á þessum málum með því að skera niður. Ekki stendur til að skera niður í yngriflokka starfinu því að er jú mikilvægt að halda því úti og jafnvel að efla það en frekar. Nú skiptir máli að standa saman og standa með sýnu félagi. Í ljósi þess efnahagsástands og þrengingar í að ná í fjármagn hefur aðalstjórn félagsins ákveðið að vera ekki að sækja auglýsingar í jólablaðið heldur að bera kostnaðinn sjálf og senda okkar dyggu stuðningsfyrirtækum jólakveðju hér í blaðinu og óska eftir því að leita megi til þeirra á komandi árum. Aðalstjórn Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags sendir öllum bæjarbúum, félagsmönnum og öðrum velunnurum félagsins óskir um gleðileg jól og farsældar á komandi ári um leið og við þökkum öllum sem lagt hafa félaginu lið á liðnum árum. Einar Haraldsson formaður Keflavíkur

80 ára afmæli félagsins Keflavík íþrótta- og ungmennafélag varð áttatíu ára 29. september 2009. Afmælisins var minnst með því að öllum iðkendum foreldrum og velunnurum félagsins var boðið í skúffuköku í íþróttahúsinu við Sunnubraut B-sal á sjálfan afmælisdaginn. Stjórnendur félagsins ásamt mökum var boðið um kvöldið í félagsheimili okkar. Sett var upp sögusýning í félagsheimili okkar sem var opnuð að viðstöddum gestum þann 4. október og stóð hún opin í þrjár vikur. Það voru fjögurhundruð og sextíu manns sem sóttu sýninguna. Áttíu ára saga félagsins var formlega kynnt á opnun sögusýningar. Helga Steinunn Guðmundsdóttir ritari ÍSÍ sæmdi þá Einar Haraldsson og Kára Gunnlaugsson gullmerki ÍSÍ og þá Birgir Ingibergsson og Jónas Þorsteinsson silfurmerki ÍSÍ.

A

ðalstjórn Keflavíkur gerði samning við ÍT um rekstur á íþrótta- og leikjaskóla í Reykjanesbæ sumarið 2009. Umsjón skólans í höndum Einars Haraldsson. Rut Sigurðardóttir og Sæunn Sæmundsdóttir voru ráðnar leiðbeinendur skólans og sáu þau um skipulagningu hans. Þetta var fimmtánda árið í röð sem aðalstjórn Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags, heldur utan um skólann, sem er ætlaður fyrir börn á aldrinum 6-11 ára.

Útskrift - lokadagur Á lokadegi hvors námskeiðs var haldin glæsileg grillveisla þar sem foreldrum og systkinum var einnig boðið. Þar voru til sýnis listaverk sem börnin höfðu gert á sköpunardeginum og fengu börnin sín listaverk til að fara með heim. Börnin fengu hinar ýmsu gjafir ásamt viðurkenningarskjali með upplýsingum um árangur þeirra í nokkrum greinum s.s. boltakasti, sippa, langstökki, hlaupi ofl.

Markmið

Þátttaka vinnuskólans

• • • •

Sér til aðstoðar höfðu leiðbeinendurnir unglinga frá Vinnuskóla Reykjanesbæjar sem stóðu sig með ágætum. Það verður að segjast alveg eins og er að án aðstoðar vinnuskólans væri þyngra að reka íþrótta- og leikjaskólann. Á fyrra námskeiði voru þó heldur margir aðstoðarmenn miðað við fjölda barna á námskeiðinu. Vinnuskóli Reykjanesbæjar var mjög liðlegur við útvegun á aðstoðarfólki og á hann bestu þakkir skilið.

• •

Kynna þátttakendum sem flestar íþróttagreinar. Efla félagsþroska og samskiptahæfni. Auka hreyfifærni og bætt líkamsþrek. Þátttakendur kynnist náttúru sveitarfélagsins og nágrannasveitarfélaga betur og upplifi umhverfi sitt á nýjan hátt. Kynna börnum atvinnuhætti og ýmis fyrirtæki og stofnanir. Stuðla að aukinni útiveru barna og hvetja þau til að nýta umhverfið til margbreytilegra leikja.

Tími og tímabil Starfrækt voru tvö þriggja vikna námskeið í sumar. Það fyrra frá 15. júní til 3. júlí og það seinna frá 6. júlí til 24. júlí. Boðið var upp á að vera annað hvort fyrir hádegi frá kl 9-12 eða eftir hádegi frá kl. 13-16.

Þátttaka – fjöldi Þátttökugjaldið var niðurgreitt um helming vegna styrks sem Íþrótta- og leikjaskóli Keflavíkur hlaut frá Velferðarsjóði barna. Þátttökugjaldið var kr. 3500. Styrkurinn var einnig notaður í að bjóða börnunum upp á einn ávöxt á dag. Þátttaka í skólanum í ár var með ágætum samtals tóku 101 barn þátt. Þ.e. á fyrra námskeiðið voru 24 börn fyrir hádegi og 26 börn eftir hádegi en á seinna námskeiðinu voru 18 börn fyrir hádegi og 33 eftir hádegi.

Mælingar á árangri barna Þegar börnin útskrifast úr íþrótta og leikjaskólanum fá þau í hendur viðurkenningarskjal sem sýnir árangur þeirra í einstökum greinum. Þeir sem hafa verið í íþrótta og leikjaskólanum áður getað borið árangur sinn saman milli ára. Foreldrar/forráðamenn hafa oft spurt okkur hvernig þeirra barn standi miðað við heildina þegar þau sjá skjalið sem sýnir árangur barna þeirra.

Samstarfsaðilar Mikið af fólki, fyrirtækjum og stofnunum aðstoðaði Íþrótta- og leikjaskólann á einn eða annan hátt. Fólkið á þessum stöðum var í öllum tilfellum tilbúið að að-

stoða á alla mögulega vegu og kann Keflavík Íþróttaog ungmennafélag þeim bestu þakkir. Helstu samstarfsaðilar sumarið 2009 voru: Sundmiðstöðin við Sunnubraut, Reykjaneshöll, Sláturfélag Suðurlands, Vinnuskóli Reykjanesbæjar, Vífilfell, Nýja Bakarí, SBK, Nettó, Velferðarsjóður barna og Reykjanesbær (ÍT), en Reykjanesbær styrkti Íþrótta og leikjaskólann auk þess sem hann útvegaði skólanum aðstöðu.

Myndir og heimasíða Að þessu sinni voru teknar hátt í 700 myndir af nemendum skólans við hina ýmsu iðju. Þær voru settar inn á heimasíðu skólans þar sem foreldrar/forráðamenn, jafnt sem nemendur, gátu skoðað þær. Slóðin á myndasafnið er: http://keflavik.is/myndir/ Þar er einnig er hægt að sjá skýrslur skólans frá árinu 1999. Teljum við að þetta sé þáttur af því að auka og um leið bæta samstarf skólans við foreldra/forráðamenn.

Að lokum Undirritaður vill þakka öllum þeim sem komið hafa að starfsemi skólans með einum eða öðrum hætti fyrir gott samstarf. Einar Haraldsson

Flugeldasala Knattspyrnudeildar Keflavíkur Iðavöllum 7

Nýjar og spennandi vörur

Opnum 28. desember Opið 28., 29. og 30 desember milli kl. 10:00 og 22:00 Opið gamlársdag milli 10:00 og 16:00

Við teystum á Íbúa Reykjanesbæjar að styðja vel við bakið á okkur Flugeldasala Knattspyrnudeildar Keflavíkur Iðavöllum 7

Útgefandi: Keflavík íþrótta- og ungmennafélag • Ábyrgðarmaður: Einar Haraldsson • keflavik@keflavik.is, 421 3044 • Blaðamaður: Eðvarð T. Jónsson edvardj@gmail.com, 772 4878 • Umbrot og prentun: Stapaprent ehf. • stapaprent@simnet.is, 421 4388 • Forsíðumynd: Stapaprent

Jólablað 2009

3


Frá lokahófi yngri flokka U

ppskeruhátíð Barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar Keflavíkur var haldin í íþróttahúsinu við Sunnubraut laugardaginn 26. september. Á hátíðinni var farið yfir knattspyrnuárið og voru veittar viðurkenningar til fjölmargra efnilegra knattspyrnumanna. Auk þess að veita verðlaun til þeirra sem skáru fram úr í hverjum flokki fyrir sig voru veitt verðlaun til þeirra sem skáru fram úr yfir alla yngri flokkana.

Heildarfjöldi iðkenda: 31

Vetrarmót: Við tókum þátt í Faxaflóamótinu með tvö lið og endaði A-liðið í 7. sæti. Alls tóku tíu lið þátt í mótinu. Eftir níu leiki vorum við með þrjá sigra og sex töp. Markatalan var 22-23. Þetta var ágætis árangur hjá strákunum. B-liðið endaði í 5. sæti af 10 liðum. Eftir níu leiki var liðið með fimm sigra og fjögur töp. Markatalan var 48-23. Eins og hjá A-liðinu var þetta ágætis árangur hjá strákunum

Á síðasta ári æfðu 402 strákar og stelpur í 10 flokkum með Keflavík. Sex þjálfarar eru starfandi fyrir Barna- og unglingaráð en yfirþjálfari drengjaflokkana er Zoran Daníel Ljubicic og yfirþjálfari stúlknaflokkana er Elís Kristjánsson. Formaður Barna- og unglingaráðs er Smári Helgason.

Sumarmót: Íslandsmót

VERÐLAUNAHAFAR - LOKAHÓF 2009 - STRÁKAR

Bestu leikmenn yngri flokka Keflavíkur.

7. flokkur yngri

4. flokkur eldri

Besta mæting: Garðar Franz Gíslason / Helgi Bergmann Hermannsson / Ævar Helgi Arngrímsson

Mestu framfarir: Björn Elvar Þorleifsson / Ási Skagfjörð Þórhallsson Besta mæting: Eyþór Guðjónsson / Arnþór Ingi Guðjónsson Besti félaginn: Ólafur Ingvi Hansson / Brynjar Freyr Garðarsson Leikmaður ársins: Elías Már Ómarsson

Besta mæting: Bergþór Örn Jensson

6. flokkur yngri Besta mæting: Guðmundur Freyr Sigurðsson

6. flokkur eldri Besta mæting: Arnór Snær Sigurðsson

5. flokkur yngri Mestu framfarir: Atli H. Brynleifsson Besta mæting: Andri Már Ingvarsson Besti félaginn: Magnþór Breki Ragnarsson Leikmaður ársins: Samúel Traustason / Brynjar Bergmann Björnsson

5. flokkur eldri Mestu framfarir: Viktor Mattíasson Besta mæting: Eiður Snær Unnarsson Besti félaginn: Markús Már Magnússon Leikmaður ársins: Sindri Ólafsson

4. flokkur yngri Mestu framfarir: Leonard Sigurðsson / Einar Þór Kjartansson Besta mæting Jón Tómas Rúnarsson Besti félaginn: Friðrik Daði Bjarnason Leikmaður ársins: Samúel Kári Friðjónsson

VERÐLAUNAHAFAR - LOKAHÓF 2009 - STELPUR 7. flokkur Besta mæting: Árdís Inga Þórðardóttir

6. flokkur Besta mæting: Anita Lind Daníelsdóttir

3. flokkur yngri

5. flokkur

Mestu framfarir: Arnór Svansson / Unnar Már Unnarsson Besta mæting: Bergþór Ingi Smárason Besti félaginn: Magnús Ari Brynleifsson / Helgi Þór Jónsson Leikmaður ársins: Emil Ragnar Ægissson / Þorbjörn Þór Þórðarson

Mestu framfarir: Berta Svansdóttir / Thelma Rún Matthíasdóttir Besta mæting: Þóra Kristín Klemensdóttir / Íris Ósk Hilmarsdóttir Besti félaginn: Björk Lind Snorradóttir / Birgitta Hallgrímsdóttir Leikmaður ársins: Þóra Kristín Klemensdóttir

3. flokkur eldri

4. flokkur

Mestu framfarir: Daníel Gylfason Besta mæting: Jón Örn Arnarson Besti félaginn: Eyþór Ingi Júlíusson Leikmaður ársins: Lukas Maleza

Mestu framfarir: Sara Lind Ingvarsdóttir Besta mæting: Heiðrún Sjöfn Þorsteinsdóttir Besti félaginn: Bryndís Sigurveig Jóhannesdóttir Leikmaður ársins: Heiðrún Sjöfn Þorsteinsdóttir

ALLIR FLOKKAR

3. flokkur

Mestu framfarir: Eyþór Ingi Einarsson, 3. fl. Besti félaginn: Aron Ingi Valtýsson, 3. fl. Besti markvörður: Bergsteinn Magnússon, 3. fl. Besti varnarmaður: Davíð Guðlaugsson, 3. fl. Besti miðjumaður: Arnór Ingvi Traustason, 3. fl. Besti sóknarmaður: Theodór G. Halldórsson, 3. fl. Besti leikmaðurinn: Ásgrímur Rúnarsson, 3. fl.

Mestu framfarir: Hulda Matthíasdóttir / Sara Stefánsdóttir Besta mæting: Guðrún Sigmundsdóttir / Ólöf Rún Halldórsdóttir Besti félaginn: Ólöf Stefánsdóttir Leikmaður ársins: Bryndís Þóra Ásgeirsdóttir / Guðrún Þorsteinsdóttir

ALLIR FLOKKAR

Íþrótta- og ungmennafélag óskar íþróttafólki og öllum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári! 4

Jólablað 2009

Yfirlit yfir starfsárið 2008- 2009 4. FLOKKUR:

Góður árangur náðist í mörgum flokkum og ber þar hæst að 3. flokkur A varð Íslandsmeistari, bikarmeistari og Faxaflóameistari og 3. flokkur B varð Íslandsmeistari og Faxaflóameistari. Þá voru fjölmargir leikmenn bæði strákar og stelpur kallaðir til æfinga og kepni með yngri landsliðum Íslands.

7. flokkur eldri

Knattspyrnan - 3. og 4. flokkur

Mestu framfarir: Ingibjörg Anna Gísladóttir, 4. fl. Besti félaginn: Eva Sif Gunnarsdóttir, 3. fl. Besti markvörður: Arna Lind Kristinsdóttir, 3. fl. Besti varnarmaður: Marsibil Sveinsdóttir, 3. fl. Besti miðjumaður: Sigríður Sigurðardóttir, 3. fl. Besti sóknarmaður: Arndís Sjólaug Ingvarsdóttir, 3. fl. Besti leikmaðurinn: Sigurrós Eir Guðmundsdóttir, 3. fl. Elís Kristjánsson knattspyrnuþjálfari yngri flokka.

Keflavík spilaði í A-riðli í ár. A-liðið endaði í sjöunda sæti af 12 liðum. 11 leikir; 4 sigrar og 7 töp og markatalan 15-33. Liðið spilaði góðan og skemmtilegan bolta á köflum. B-liðið endaði í sjötta sæti af 12 liðum. 11 leikir; 4 sigrar, 1 jafntefli og 6 töp og markatalan 35-41. Liðið sýndi oft skemmtileg tilþrif í leikjum sínum.

3. FLOKKUR: Heildarfjöldi iðkenda: 29

Vetrarmót: Við tókum þátt í jólamótinu með tvö lið. Þau gerðu sér bæði lítið fyrir og unnu. Í Faxaflóamótinu tókum við þátt með tvö lið A og B. Bæði liðin unnu sína riðla með yfirburðum og enduðu sem Faxaflóameistarar.

ReyCup

Sumarmót:

Við sendum 2 lið á ReyCup A og B lið. A-liðið endaði þar í fjórða sæti og þess ber að geta að liðið vann liðið Herfölge frá Danmörku í riðlakeppninni, liðið stóð sig með mikilli prýði og varð félagi sínu til mikils sóma. B liðið endaði í 13. sæti og stóð sig ágætlega.

Íslandsmót

Annað: Elías Már Ómarsson fór í Knattspyrnuskóla KSÍ að Laugarvatni. Þjálfarar: Zoran Daníel Ljubicic og Haukur Benediktsson

Keflavík spilaði í A-deild Íslandsmótsins með bæði A- og B-lið. A-liðið endaði í 1. sæti með 30 stig. Spilaðir voru fjórtán leikir og úrslitin urðu níu sigrar, þrjú jafntefli og tvö töp. Markatalan var 54-18. Liðið sigraði svo Hauka 3-0 í undanúrslitum og Fjölni 30 í úrslitaleik og varð því Íslandsmeistari. B-liðið endaði líka í 1. sæti með 26 stig, spilaði fjórtán leiki, vann átta sigra, tvö jafntefli og fékk fjögur töp.

Markatalan var 60-24. Liðið sigraði síðan Gróttu 5-0 í undanúrslitum og Þrótt Reykjavík 2-1 í úrslitaleik og varð því einnig Íslandsmeistari.

Bikarkeppni KSÍ Sigruðu FH í 1. leik í Hafnarfirði 1-0 Sigruðu Hauka í 2. leik í Keflavík 1-0 Sigruðu Fjölni í undanúrslitum í Grafarvogi 4-3 Sigruðu Breiðablik í úrslitaleik í Kópavogi 2-1 Liðið okkar þar af leiðandi einnig VisaBikarmeistari.

Gothia Cup í Svíþjóð Við fórum með tvö lið 27 stráka á alþjóðlega mótið Gothia Cup í Svíþjóð. Þar spiluðum við með eldra lið B16 (Boys 16) og yngra lið B15 (Boys 15). B16 ára liðið endaði efst í sínum riðli og fór því áfram í A úrslit. Þar fór liðið alla leið í 16 liða úrslit og endaði því 9-16 sæti af 184 liðum. B15 ára liðið endaði í 3ja sæti í sínum riðli og fór því áfram í B úrslit, þar fór liðið alla leið í undanúrslitaleikinn en

tapaði honum 1-3 fyrir liðinu sem vann B úrslitakeppnina. Það má því segja að liðið hafi endað í 87-88 sæti af 216 liðum. Þess ber að geta að af 27 strákum voru einungis tíu strákar á yngra ári, en reglurnar voru þannig að við máttum bara nota tvo eldri stráka allt mótið sem þýðir að B15 ára liðið spilaði á tólf leikmönnum allt mótið.

Annað: Eftirtaldir fóru á úrtaksæfingar KSÍ í sínum aldursflokkum: Aron Ingi Valtýsson, Arnór Ingvi Traustason, Ásgrímur Rúnarsson, Daníel Gylfason, Eyþór Ingi Einarsson, Lukas Maleza, Theodór Guðni Halldórsson, Bergsteinn Magnússon og Emil Ragnar Ægisson. Ásgrímur spilaði landsleiki fyrir Íslands hönd í sumar en hann og Arnór Ingvi eru einmitt á leiðinni til Wales í fyrramálið til að spila landsleiki og óskum við þeim góðs gengis þar. Þjálfarar: Zoran Daníel Ljubicic og Haukur Benediktsson. Haukur Benediktsson

Knattspyrnan – 5. flokkur 5. flokkur Æfingasóknin var mjög góð allt árið en alls hafa um 60 einstaklingar prufað fyrir sér í fótbolta þetta árið. Meðal æfingasókn hefur verið um 45 einstaklingar. Eins og utanfarin ár er mótalistinn er nokkuð langur í ár. Við héldum þó aðeins eitt mót í Reykjaneshöllinni og að auki hélt Njarðvík mót í höllinni, sem við sóttum. Eins má nefna að við fengum nokkur lið úr nágreninu í heimsókn. Faxaflóamótið hófst svo í apríl. Þar er spilað í riðlum líkt og á Íslandsmótinu og gekk bara nokkuð vel. Þjálfarinn var mjög sáttur við spil drengjanna og endaði Aliðið í 3. sæti. Í lok maí hófst svo Íslandsmótið, þar sem fyrsti leikur var á móti Fylki. Við vorum með 4 lið í Íslandsmótinu. Frammistaða drengjanna og árangurinn á Íslandsmótinu er mjög ásættanlegur. Voru í A-riðli sem var gífurlega sterkur að þessu sinni. Þrátt fyrir góða spilamennsku þá rétt misstum við af úrslitakeppninni. Í byrjun júlí var svo farið til Akureyrar á N1-mót KA. Held að Keflavík hafi aldrei farið með jafn stóran hóp til Akureyrar, eða alls 50 þátttakendur og annað eins af for-

eldrum. Í alla staði var þetta glæsilegt mót. Í byrjun ágúst var svo farið með 4 lið til Selfossar á Olísmótið. Og án þjálfarans, sem var í leyfi. Þess má geta að 3 lið af 4 unnu til verðlauna.

Síðasta mót ársins var svo Suðurnesjamótið, sem haldið var í Reykjaneshöllinni í lok ágúst. Gekk prýðilega þar, þar sem annað A-liðið varð Suðurnesjameistari. Líkt og með 6. flokkinn þá voru ýmsar skemmtilegar uppákomur í vetur, þar sem upp úr stendur er svakaleg gistinótt í Fjörheimum, þar sem hápunktur kvöldsins var án ef hermannadraugasagan. Saga sem gleymist seint. En einnig fórum við í ýmsar keppnir sem var keppt í á æfingatíma. Jólakeppnin var á sínum stað sem og páskaeggja keppnin. Þar að auki var valinn leikmaður mánaðarins við upphaf hvers mánaðar, bæði hjá yngra og eldra árinu. Einnig voru drengir á eldra mjög duglegir við að sækja bolta á heimaleikjum Keflavíkur í Pepsídeildinni í sumar. Að lokum viljum við þakka þeim foreldrum sem aðstoðuðu okkur á árinu, sérstaklega þeim sem hjálpuðu með skipulag Olísmótsins. Eins viljum við þakka unglingaráði, fyrir alla hjálpina og það starf sem þau gera. Unnar og Óskar

Jólablað 2009

5


Guðmundur Jón Bjarnason, formaður Sunddeildar Keflavíkur:

Sundárið 2009 – formannsannáll

S

undárið 2009 var með hefðbundnu sniði. Það reyndist erfitt að fylgja eftir gríðarlega góðum árangri frá því í fyrra þar sem sundlið ÍRB vann flest sem hægt var að vinna. Það má segja að þetta hafi verið nokkurs konar silfurár, silfur á Aldursflokkameistaramóti Íslands (AMÍ), silfur hjá kvennaliði ÍRB á Bikarkeppni Sundsambands Íslands, brons hjá karlaliði ÍRB á Bikarkeppninni og ívið lakari árangur en í fyrra í einstaklingsgreinum á Íslandsmótinu í 50 metra laug í vor. Þessi frammistaða var út af fyrir sig ágæt en við teljum okkur geta gert betur og setjum jafnan markið á sigur í liðakeppnum og sterka útkomu í einstaklingsgreinum á öllum mótum. Ef við hugum að helstu atburðum ársins þá er gaman að minnast fyrst á Páskamót sundmanna 12 ára og yngri sem haldið var í Vatnaveröld í mars. Mótið tókst einkar vel, sundmenn nutu sín vel og höfðu foreldrar og forráðamenn gaman af líflegu, snaggaralegu og skemmtilegu móti. Í annáli sem þessum er okkur gjarnan tíðrætt um okkar eldri sundmenn og afrekssundmenn sem keppa á þeim mótum sem mest eru í sviðsljósinu. Við leggjum kapp á að hlúa vel að okkar yngstu sundmönnum, þannig tryggjum við áframhaldandi sterkt sundlið í Reykjanesbæ og búum börnum í Reykjanesbæ góðan aðbúnað í sundíþróttinni, sem er ómetanlegt fyrir okkar bæjarfélag líkt og íþróttaiðkun ungmenna almennt. Þess má geta að fjöldi nýrra sundmanna á nýliðnu hausti var mikill. Við fögnum því. Á sama tíma höfum við þó áhyggjur að því að íþróttaiðkun barna og ungmenna hér í bæ gæti verið meiri, ekki síst meðal yngri árganga í grunnskólum. Á Íslandsmótinu í 50 metra laug sem haldið var í Laugardalslauginni í mars unnu sundmenn ÍRB 11 Íslandsmeistaratitla. Þar af vann Davíð Hildiberg Aðalsteinsson 4 titla, en hann hefur á þessu ári stimplað sig inn sem einn allra besti baksundsmaður landsins. Þá bar einnig til tíðinda að Birkir Már Jónsson vann 200 m skriðsund með miklum yfirburðum á góðum tíma, en Birkir nemur og syndir í Bandaríkjunum, líkt og þau Erla Dögg Haraldsdóttir og Árni Már Árnason. Þau hafa öll staðið sig með miklum sóma í sínum skólum og hafa öll sett þar skólamet á árinu. Ólöf Edda Eðvarðsdóttir gerði sér lítið fyrir og setti glæsilegt Íslandsmet meyja í 200 metra bringusundi og endaði í 4. sæti. Frábært sund hjá Ólöfu sem er eingöngu á tólfta aldursári. Bikarkeppni Sundsambands Íslands fór fram í 50 metra lauginni í Vatnaveröld í Reykjanesbæ þriðja árið í röð. Mótahald tókst að venju mjög vel, þökk sé öflugu foreldrastarfi. Aðbúnaður sundmanna var til fyrirmyndar í okkar glæsilegu laug og í gistingu og mat í Holtaskóla. Sem fyrr nutum við góðs stuðnings frá Reykjanesbæ, frá starfsfólki Vatnaveraldar, frá Holtaskóla og frá okkar helstu styrktaraðilum, Sparisjóðnum, Nettó og Sigurjóni bakara og kunnum við þeim öllum bestu þakkir. Eins og fram kom hér á undan þá hafnaði kvennalið ÍRB í öðru sæti á eftir Ægi og karlaliðið í þriðja sæti á eftir SH og Ægi. Það hefur verið ágætis uppgangur hjá bæði Ægir-ingum og SH-ingum undanfarin ár. Við fögnum meiri samkeppni og munum ótrauð nýta hana til að knýja okkur til dáða. Markverðasta árangri okkar fólks náði Ólöf Edda Eðvarðsdóttir en hún gerði sér lítið fyrir og setti tvö íslensk meyjamet í sama sundinu, 200 m bringusundi. Hún setti met í 100 m bringusundi með millitímanum 1:23,06 og seinna metið var lokatíminn í 200 m sundinu en þar synti hún á tímanum 2:52,21. Sundfólkið okkar lét að sér kveða utan laugar sem

6

Jólablað 2009

Yngstu keppendurnir á Sparisjóðsmótinu tóku þátt í hinum sívinsæla sjóræningjaleik.

Ólöf Edda Eðvarðsdóttir með ein af sjö gullverðlaunum sínum á AMÍ 2009. innan. Sundkonurnar María Ása Ásþórsdóttir og Soffía Klemenzdóttir voru í sigurliði Heiðarskóla í Skólahreysti 2009. Þar setti María Ása Íslandsmet í armbeygjum og Soffía í hraðakeppni, ásamt Eyþóri Inga Einarssyni. Auk þess setti Eyþór Ingi Júlíusson Íslandsmet í upphífingum í undankeppninni. Glæsilegur árangur. Það voru ekki bara yngri sundmenn sem létu að sér kveða á árinu. Sigmar Björnsson sýndi flott tilþrif á Íslandsmeistaramóti Garpa sem fram fór í Kópavogi dagana 1. - 2. maí. Þar krækti Sigmar sér í Íslandsmeistaratitil bæði í 100m bringusundi og 200m bringusundi. Sparisjóðsmót ÍRB var haldið þriðja árið í röð í maí og að venju var það stórt í sniðum enda eitt fjölmennasta mót sem haldið er ár hvert. Mótið hófst með keppni yngstu sundmannanna á föstudegi og var svo framhaldið á laugardegi og sunnudegi. Áður en keppni yngstu sundmanna hófst þá léku eldri sundmenn listir sínar. Skemmst er frá því að segja að

Davíð Hildiberg Aðalsteinsson efstur á palli eins og svo oft á þessu ári. Þessi mynd var tekin á Sprengimóti Óðins á Akureyri í september. sundparið og Ólympíufarar ÍRB settu bæði ný glæsileg Íslandsmet. Erla Dögg Haraldsdóttir synti 50 m bringusund á 31,61 sem var bæting á meti Hrafnhildar Lúthersdóttir síðan í nóvember 2008 um 6/10 úr sek. Því næst synti Árni Már Árnason og setti einnig Íslandsmet, synti 50 m bringusund á 27,52. Þar bætti hann met Jakobs Jóhanns Sveinssonar síðan í nóvember 2008 um rúmlega 3/10 úr sekúndu. Mótið var gríðarlega fjölmennt eða um 500 keppendur frá 14 félögum og var mikil og góð stemming á mótinu. Eurovision lög hljómuðu á bakkanum og yndisleg veðurblíða var í Reykjanesbæ. Þess má reyndar geta að það hefur jafnan verið veðurblíða hér í bæ undanfarin ár þegar stórmót hafa verið haldin í Vatnaveröld og þau hafa verið allnokkur. Félagar okkar í sundhreyfingunni eru farnir að átta sig á því að munnmælasögur þess efnis að hér sé misviðrasamt og belgingsveður hljóti að vera á misskilningi byggðar. Ýmis tilþrif litu dagsins ljós á Sparisjóðsmótinu. Bryndís Rún Han-

sen sundfélaginu Óðni náði lágmörkum fyrir Evrópumeistaramót unglinga með frábæru sundi í 200 m fjórsundi. Pálmi Guðlaugsson sunddeild Fjölnis setti tvö Íslandsmet í flokki fatlaðra S6. Hann setti Íslandsmet í 400 m skriðsundi og 200 m baksundi og jafnframt náði hann lágmörkum á EM 50. Fjölmargir sundmanna ÍRB bættu sína tíma og náðu margir lágmörkum á Aldursflokkameistaramótið, AMÍ, ásamt því að fjölmörg ný Sparisjóðsmótsmet litu dagsins ljós. Stigahæstu sundmenn 13 - 14 ára voru Júlía Rún Rósbergsdóttir Óðni fyrir 200 m skriðsund og Daníel Hannes Pálsson Fjölni fyrir 200 m skriðsund. Stigahæstu sundmenn 15 ára og eldri voru Erla Dögg Haraldsdóttir ÍRB fyrir 200 m bringusund og Árni Már Árnason ÍRB fyrir 200 m bringusund. Sem fyrr nutu stjórnir, foreldrar og þjálfarar góðs stuðning við mótahaldið frá okkur stuðningsaðilum og þá ekki síst hjá okkar aðalstyrktaraðila, Sparisjóðnum í Keflavík, sem hefur stutt okkur ötullega í gegnum tíðina. Okkar yngri sundmenn kepptu líkt og undanfarin ár á Akranesleikunum í byrjun júní. Krakkarnir stóðu sig með sóma jafnt í lauginni sem utan hennar. Það var flott stemming í hópnum og virkilega gaman á Skaganum. Fulltrúar ÍRB stóðu sig virkilega vel á Smáþjóðaleikunum í júní. Árni Már, Birkir Már, Davíð Hildiberg, Erla Dögg og Sindri Þór unnu samtals 16 gullverðlaun, hvorki meira né minna. Auk þess setti Sindri Þór Íslandsmet og mótsmet í 200 m flugsundi. Lið ÍRB lenti í öðru sæti í stigakeppni liða á AMÍ árið 2009 eftir mikla keppni við lið Ægis allt frá fimmtudagsmorgni og fram á sunnudagskvöld. Eftir samfellda sigurgöngu í fimm ár þá urðum við að lúta í grasi fyrir baráttuglöðum Ægiringum sem hafa beðið eftir þessum titli síðastliðin þrettán ár. Við óskum þeim til hamingju með sigurinn en hyggjumst ekki leyfa þeim að hafa þennan bikar lengi því stefnan er sett á að endurheimta hann strax að ári liðnu. Ólöf Edda Eðvarðsdóttir átti frábært mót. Hún var stigahæsta 11-12 ára meyjan og vann sjö af þeim átta greinum sem hún keppti í. Auk þess setti hún allt í allt átta innanfélagsmet og var jafnframt örskammt frá aldursflokkametunum í sömu greinunum. Hún setti bæði ÍRB og Keflavíkurmet í eftirtöldum greinum. Í 200 m fjórsundi, 400 m fjórsundi og 200 m bringusundi þar bætti hún met Jóhönnu Júlíu Júlíusdóttur frá 2008 og í 100 m bringusundi þar bætti hún met Erlu Daggar Haraldsdóttur frá 2000. Glæsilegt hjá Ólöfu Eddu. Jóhanna Júlía Júlíusdóttir átti einnig frábært mót og á lokahófi SSÍ þá var hún valin í unglingalandslið SSÍ til keppni á Ólympíudögum Evrópuæskunnar sem fram fór í Tampere í Finnlandi í júlí. Nýtt sundtímabil hófst með krafti í lok ágúst og

ÍRB hópurinn á AMÍ 2009 tekur einn „Davíð“, þ.e.a.s. þá stellingu sem Davíð Hildiberg hefur slegið í gegn með í vinsælli sjónvarpsauglýsingu.

Elfa Ingvadóttir (til vinstri) og Diljá Heimisdóttir eftir áheitasund á Ljósanótt.

Badda og Óli Þór á góðri stundu á AMÍ á Akureyri í sumar. Þetta er síðasta myndin af Óla Þór sem við eigum í okkar myndasafni.

byrjun september. Á Ljósanótt þreyttu elstu sundmennirnir áheitasjósund þegar þau syntu frá Víkingaskipinu inn í Keflavíkurhöfn og má segja að það hafi gefið tóninn fyrir flotta byrjun á tímabilinu. Sundmenn ÍRB hafa staðið sig vel á fyrstu mótum vetrarins. Ólöf Edda Eðvarðsdóttir tók upp þráðinn þar sem hún skildi við hann á síðasta tímabili og er búinn að vera iðinn við að slá bæði innanfélagsmet og Íslandsmet. Á innanfélagsmóti í október bætti hún t.a.m. 16 ára gamalt Íslandsmet Láru Hrundar Bjargardóttur í flokki meyja í 200 m bringusundi í 25metra laug. Ólöf Edda synti á tímanum 2:45,41 sem er frábær tími, tími Láru var 2:46,87. Á svokölluðu World Cup móti í Svíþjóð í annarri viku nóvember bætti Sindri Þór Jakobsson Íslandsmetið Arnar Arnarsonar í 200 metra flugsundi þegar hann synti á 1:58,45. Í haust var höggvið stórt skarð í íslenskt sundlíf þegar Ólafur Þór Gunnlaugsson féll frá fyrir aldur fram eftir snarpa sjúkralegu. Fáir, eða nokkrir, hafa gert meira fyrir sundíþróttina á Íslandi heldur en Óli Þór. Hann var afrekssundmaður á sínum tíma og síðan litríkur þjálfari sem þjálfaði fjölda barna og unglinga af eldmóði og hugsjón, þar á meðal marga af okkar ÍRB sundmönnum og má með sanni segja að Óli Þór á stóran hlut í velgengni ÍRB á undanförnum árum. Óli Þór var einn af þessum einstaklingum sem „flutti fjöll“. Hann átti stóran þátt í uppgangi ungbarnasunds hér á landi, hann bjó til sundfélög og reif upp önnur og hann lagði grunninn af ýmsu því sem vel hefur tekist til með í sundhreyfingunni hér á landi, til að mynda Aldursflokkameistarmótinu. Óli Þór mun lifa í minningu okkar sem skapmikill ljúflingur og hugsjónarmaður. Sunddeildir Keflavíkur og Njarðvíkur hafa nú starfað saman í 8 ár undir merkjum ÍRB. Samstarfið hefur verið einkar gott og vaxið og þroskast ár frá ári og í raun vaxið meira en sem nemur þeim samningslega stakki sem því var upphaflega sniðið. Fyrir um ári síðan viðruðu undirritaður og tveir fyrrverandi formenn Sunddeildar Keflavíkur hugmyndir sem miðuðu að því að treysta samstarfið og skapa því aukið vaxtarrými. Málið er þó ekki einfalt þar sem deildirnar eru hvorar fyrir sig tengdar sínum félögum, sem aftur eru hluti af ÍRB. Keflavík og UMFN hafa í gegnum tíðina unnið gott starf á vettvangi sundíþróttarinnar. Það er trú undirritaðs og flestra þeirra sem hann hefur rætt við í sundhreyfingunni í Reykjanesbæ, í Keflavík og í Njarðvík, að við munum best ávaxta þessa góðu vinnu með því að starfa saman, sundfólki í Reykjanesbæ í nútíð og framtíð til heilla. Það er því mikilvægt að samstarfið fái tækifæri og svigrúm til að halda áfram að þroskast og dafna.

Einar Þór Ívarsson á AMÍ 2009 á Akureyri, Einar Þór hefur sýnt góð tilþrif á árinu.

Jólablað 2009

7


Skotdeild Keflavíkur E Keflvískar konur voru sigursælar á síðasta TSH móti.

Ágúst Kristinn og Victoria.

Taekwondodeild Keflavíkur Á rið 2009 hefur verið bæði viðburðarríkt og gjöfult fyrir taekwondodeild Keflavíkur. Deildin hefur þroskast hratt frá þeim tíma sem hún tók til starfa. Iðkendum hefur fjölgað jafnt og þétt á milli ára og keppnisfólkið hefur náð mjög góðum árangri. Þessi fjölgun kallar á meira umfang í rekstri og stjórnun deildarinnar sem hefur legið að mestu á herðum þjálfurum og stjórn deildarinnar.

Iðkenndum hefur fjölgað í ár eins og undanfarin ár. Ástundun er orðin mikil í öllum aldurshópum og skiptist nokkuð vel á milli kynja. Almennt æfingartímabili er um níu mánuðir á ári og er þá tekið æfingarhlé yfir sumarmánuðina. Æft er alla daga vikunnar og stökum sinnum um helgar. Í haust flutti deildin æfingarstarfssemi sína í íþróttarhúsið við Ásbrú. Batnaði aðstaða deildarinnar til muna við þessar breytingar og tækifæri gafst til að bæta við fleiri hópum en húsnæðisskortur hefur staðið deildinni fyrir þrifum og hamlað því að hún hafi geta bætt við sig iðkendum. Taekwondodeildin fékk endurnýjun sem fyrirmyndadeild innan ÍSÍ á aðalfundi Ungmennaog íþróttarfélags Keflavíkur. Deildin á marga efnilega iðkendur sem eiga framtíðina fyrir sér og sjáum við fram á bjarta tíma á komandi árum. Á næsta ári heldur deildin upp á tíu ára afmæli sitt. Keppnisfólk deildarinnar gerði það gott á árinu. Stærsti viðburður ársins var tvímælalaust Norðurlandamót 2009 sem var haldið í Reykjavík að þessu sinni í byrjun ársins. Erum við mjög ánægð og stolt með þann árangur sem okkur félagsmenn náðu á því móti. Af öðrum ólöstuðum stóð Rut Sigurðardóttir sig frábærlega vel, og varð Norðurlandameistari kvenna í sínum þyngdarflokki, en þetta er í þriðja sinn sem hún vinnur þennan titil. Helgi Rafn Guðmundsson og Arnór Freyr Grétarsson gerðu það einnig gott á þessu móti og fengu silfurverðlaun í sínum flokki og Jón Steinar Brynjarsson nældir sér í bronsverðlaun. Í lokahófi Norðurlandamótsins fékk Helgi Rafn Guðmundsson, yfirkennari Keflavíkurdeildarinnar, viðurkenningu frá ÍSÍ sem taekwondo-maður ársins 2008. Þetta er enn ein skrautfjöður á ferli þessa frábæra íþróttamanns, sem einnig hefur verið fyrirliði landsliðs Ís-

8

Jólablað 2009

Þröstur Ingi Smárason var nemandi ársins.

Feðgarnir Marel og Örn. lands og er einn af okkar helstu keppendum bæði hérlendis sem og erlendis. Í mars á þessu ári var haldið Íslandsmeistaramót í baradaga á Selfossi. Jón Steinar Brynjarsson varði Íslandsmeistaratitil sinn frá fyrra ári í léttari þyngdarflokk unglinga. Antje Müller varð Íslandsmeistari í flokki kvenna 30+ ára en hún var einnig valin besti keppandinn á mótinu. Brian Jóhannesson var í öðru sæti í 80 kg flokki karla hærri belti og Dýrleif Rúnarsdóttir var í þriðja sæti í flokki kvenna 30+ ára. Í apríl varð Taekwondo deild Keflavíkur TSH bikarmeistari. Kjörinn var nemandi ársins hjá SsanYongTaekwondo samtakanna og hlaut Keflvíkingurinn Þröstur Ingi Smárason þann titil. Var hann einnig valinn nemandi ársins hjá taekwondo-deild Keflavíkur. Keflavíking-

ar hafa verið sigursælir á öllum TSH mótum ársins. Lengi væri hægt að telja upp góðan árangur margra keppenda sem voru sumir hverjir að stíga sín fyrstu skref sem keppnismenn/-konur þó svo að allir hafi ekki unnið til verðlauna.. Á vormánuðum ákvað stjórn Taekwondo-deildar Keflavíkur að veita kennurum deildarinnar, Helga Rafni og Rut, viðurkenningu og fjárhagsstyrk fyrir frábæra frammistöðu á síðastliðnum misserum, bæði sem kennarar og keppendur og fyrir þeirra framlagi til íþróttarinnar. Rut og Helgi eiga glæsta ferla að baki þó ung séu. Rut er farsælasti kvennakeppandi Íslands í taekwondo og Helgi hefur verið meðal fremstu keppenda Íslands í karlaflokki undanfarin ár. Með þessari viðurkenningu vildi stjórn Taekwondo-deildar Keflavíkur sýna þeim þakklætisvott fyrir frábæra frammistöðu og þann einstaka árangur sem þau hafa náð með deildina. Í vor útskrifaðist Rut sem íþróttafræðingur frá Háskólanum í Reykjavíkur og er Helgi Rafn í því námi núna. Það er því fengur í því að hafa hæfa og vel menntaða kennara með góða alhliða þekkingu og reynslu í íþróttinni. Umfang deildarinnar er orðið það mikið að ekki hefst að halda úti þetta stórri og öflugri deild nema með samstilltu átaki margra. Fyrst og fremst er það áhugi og ástund þeirra sem iðka þessa íþrótt sem skiptir sköpum. Mörg dæmi eru um að börn og foreldrar æfi saman þessa skemmtilegu íþrótt og hefur það aukist í haust. Aðkoma og stuðningur foreldra og forráðamanna skiptir höfuðmál hvort sem það er um að ræða æfingartíma eða keppnisferðlög. Ekki verður sá ómældi tími sem þjálfarar leggja á sig í íþróttasalnum sem og utan hans sem ráðgjafar og tenglar við foreldra og stjórn félagsins, sem passar upp á það að allt gangi eins vel og þeim er unnt. Því allt þetta kallar á fjárútlát heimilanna hvort sem það er í íþróttagallakaup eða ferðakostnaður á mót. Því er stjórnin sátt við rekstrarniðurstöðu ársins þ.e. að hafa rekið deildina réttu megin við núllið. Vill stjórnin þakka bæjaryfirvöldum Reykjanesbæjar sem og öðrum bæjabúum fyrir velvild í garð íþróttarinnar. Því með áframhaldandi krafti og stuðningi lítur stjórnin björtum augum til næstu ára. Stjórnin

nn einu glæsilegu ári hjá Skotdeild Keflavíkur fer að ljúka, og þó við höfum keppt lítið sem ekkert á árinu þá erum við aldeilis búnnir að taka aðstöðuna okkar í gegn og erum enn að byggja upp aðstöðuna fyrir félagsmenn sem telja nú 249 menn og konur. Og auðvitað hefur ástandið í landinu ekki bætt hag þeirra sem stunda skotfimi af einhverju kappi þar sem skot og skotfæri hafa hækkað hátt í 100%. En þá er einmitt gaman að segja frá því að við erum að fara virkja loftgreinarnar hjá okkur því það er miklu ódýrara að skjóta með loftbyssum. Ætlum við fyrst og fremst að koma á legg unglingastarfsemi í loftgreinunum til að byrja með. En góð undirstaða er að byrja í loftgreinum fyrir þá sem vilja verða góðir í skotíþróttum. Verið er að græja aðstöðuna í Sundmiðstöðinni í Reykjanesbæ. Félagið mun kaupa 3 loftriffla sem verða notaðir fyrir unglingastarfsemina þannig að unglingar þurfa ekki að láta forráðamenn kaupa fyrir sig loftriffla, og geta þeir svo keypt hjá okkur skot sem verða svo skilin eftir hjá okkur að æfingu lokinni.

Ingvar ritari tekur miðið

Skotborðin gerð klár fyrir steypu. Við tókum riffilhúsið í „make-over“ eins og sumir vilja kalla það, og skiptum um lúgur, skotborð og fjölguðum um fjögur skotborð, klæddum veggi og loft og steyptum í gólfið, nú við settum upp klósettaðstöðu, kaffiaðstöðu, nýja rotþró og kyndum nú upp kofann svo fátt eitt sé nefnt. Og viljum við þakka félagsmönnum fyrir skilninginn og þolinmæðina á meðan breytingunum stóð. Einnig vil ég afsaka það að ekki er pláss fyrir fríhendis skotfimi inni í riffilhúsinu, en við erum að vinna að úrbótum í því máli. Herrifflamót byssuvinafélagsins var haldið 23. maí hjá Skotdeild Keflavíkur. Eitt Skeet mót var einnig haldið eða Keflavík Open eins og það heitir. Endaði Árni Pálsson úr skotdeild Keflavíkur þar í 2. Sæti í 3ja flokk. Og svo má ekki gleyma að auðvitað ætlum við að halda hið árlega áramóta-mót í Skeet á gamlársdag.

Mikið verk var unnið á árinu sem er að líða og erum við með nóg að verkefnum í sigtinu fyrir næstkomandi ár. Ætlunin er að koma upp sporting-velli fyrir leirdúfuskotfimi, og ætlum við að leggjast yfir það í janúar að fara yfir stöðuna hversu mikið fyrirtæki þetta er og hvernig við viljum hafa þetta endalega þó auðvitað grunnhugmyndin sé komin. Við opnuðum Trapp-völlinn í október á laugardögum og framan að því hafði Skeet æfingar verið á mánudögum og fimmtudögum frá því í apríl. Skammbyssuæfingar eru alltaf hálfsmánaðarlega hjá okkur í aðstöðu lögreglunar við Patterson-völlinn og hefjast þær á slaginu 20:00 annan hvern miðvikudag. Það hefur verið tekið á svo miklu þetta ár að eflaust er ég að gleyma einhverju og sjálfsagt ekki bara einu atriði. En ég vil í lokin fyrir hönd Skotdeildar Keflavíkur þakka fyrir frábært ár, megi það næsta verða betra og vonandi förum við að keppa meira, og komum Skotdeild Keflavíkur aftur á blað sem stórri og skæðri skotsveit. Einnig vil ég þakka öllum sem tóku þátt í uppbyggingunni með okkur í ár, stórir sem smáir, fyrirtæki eða einstaklingar, sjálfboðavinna eður ei. Eitt eru allir sammála um sem ég hef hitt, að þetta er stórkostleg aðstaða hjá okkur núna og hafa menn meira segja sagt við mig að þetta sé besta riffilaðstaðan á landinu í dag. Höldum áfram að hlúa vel

Frá Keflavík Open 2009: Jóhannes SFS, Garðar SFS, Þorgeir SR, Örn SR og Árni SK. að aðstöðunni og hugsum vel um hana því þetta er okkar eign og þetta hefur kostað mikla vinnu og mikinn tíma að komast þetta langt. Fyrir hönd Skotdeildar Keflavíkur, Bjarni Sigurðsson Formaður Skotdeildar Keflavíkur.

Jólablað 2009

9


Annáll unglingaráðs KKDK Starfsárið 2008-2009 Í þessari grein verður gert grein fyrir því helsta sem gerðist hjá körfuboltakrökkum í Keflavík veturinn 2008-2009. Tímabilið hófst í september 2008 og því lauk með lokahófi í maí 2009. Óhætt er að segja að veturinn hafi verið viðburðarríkur og árangur góður. Öflugt unglingastarf byggist á duglegum og hressum krökkum, góðum þjálfurum og áhugasömum foreldrum. Áfram Keflavík.

Íslandsmót 2008 – 2009 Keflavík sendi lið til þátttöku í öllum flokkum í báðum kynjum allt frá MB 10 ára og upp í unglingaflokk. Árangur var mjög góður og þá sérstaklega hjá stúlkunum eins og tímabilið á undan.

Stúlkur Minnibolti stúlkna 10 ára urðu Íslandsmeistarar 2009. Lokamótið fór fram í Akademíunni 4. og 5. apríl en þær höfðu unnið sér rétt til þess. Stúlkunar unnu mótið sannfærandi eins og hin mótin þrjú sem voru haldin yfir veturinn. Þær töpuðu ekki leik á Íslandsmótinu. Sannarlega glæsilegur árangur hjá þeim. Áfram Keflavík.

Stúlknaflokkur varð Íslandsmeistari 2009 með því að sigra Snæfell 56-41 í úrslitaleik sem fór fram í DHL-Höllinni 26. apríl 2009. Staðan í leikhléi var 32-20 fyrir Keflavík.

7. flokkur stúlkna Íslandsmeistari 8. flokkur stúlkna varð Íslandsmeistari 2009. Síðasta fjölliðamótið var haldið í Toyotahöllinni og Akademíunni 13. og 14. mars 2009. Stelpurnar léku fjóra leiki á þessu móti og unnu þá alla. Þetta er í fyrsta skipti sem árgangur 1995 verður Íslandsmeistari en stúlkunar hafa lent í öðru sæti síðustu tvö ár. Sætur sigur hjá stúlkunum. Einnig er gaman að segja frá því að stúlkunar unnu alla sína leiki um veturinn, 16 samtals. Úrslitaleikurinn á síðasta mótinu var á móti Grindavík en bæði lið höfðu unnið alla sína leiki. Leikurinn var í járnum fram að leikhléi þar sem staðan var 1410 fyrir Keflavík. Strax í 3 leikhluta tóku okkar stelpur góða rispu og komust í 2816 og áttu Grindvíkingar engin svör eftir það. Í 4 leikhluta spiluðu okkar stelpur mjög grimma vörn og kláruðu leikinn með stæl 40-20. Þjálfari stúlkanna var Einar Einarsson.

MB stúlkna 10 ára Íslandsmeistarar Minnibolti stúlkna 11 ára urðu Íslandsmeistarar 2009. Stúlkurnar voru taplausar þegar fjórða og síðasta fjölliðamót vetrarins fór fram í Toyotahöllinni 28. og 29. mars 2009. Þær voru staðráðnar í að halda áfram á sömu braut og léku afar vel og sigruðu alla sína andstæðinga með yfirburðum. Tímabilið var frábært sem hafði einkennst af stöðugum framförum. Þjálfari stúlkanna var Jón Guðmundsson.

MB stúlkna 11 ára Íslandsmeistarar 7. flokkur stúlkna varð Íslandsmeistari 2009. Síðasta mót vetrarins fór fram í Toyotahöllinni 28. og 29. mars 2009. Stúlkurnar voru í algjörum sérflokki og töpuðu ekki leik allan veturinn. Mikil efni þarna á ferð og flottar stelpur. Áfram Keflavík. Þjálfari stúlkanna var Einar Einarsson. Sigurður Þorsteinsson var aðstoðarþjálfari. Siggi er þessi sem er lengst til vinstri á myndinni.

10

Jólablað 2009

8. flokkur stúlkna Íslandsmeistarar 2009 Stelpurnar í A-liði 10. flokks urðu Íslandsmeistarar 2009 þegar þær lögðu B-liðið í úrslitaleik 50-40 í DHL-Höllinni þann 19. apríl 2009. Ótrúlegt að eiga bæði liðin í úrslitaleiknum og taka gull og silfur í sama flokki en að sama skapi góður vitnisburður um þá breidd sem er að finna í yngri flokkum kvenna í Keflavík. B-liðið lagði Hauka að velli í undanúrslitum 47-30 en A-liði vann stórsigur á Grindavík 74-34. Varnarleikurinn var í fyrirrúmi þegar A og B liðin mættust í úrslitaleiknum og eftir frekar jafnan fyrri hálfleik reyndist A-liðið sterkara og landið frekar öruggum sigri. Til hamingju með titilinn og tímabilið stelpur.

10. flokkur stúlkna Íslandsmeistarar. Alið fremri og B-lið aftar. Þjálfarar Jón og Kolli.

Stúlknaflokkur Íslandsmeistarar Stúlkur samantekt Íslandsmót 2008/2009: Unglingaflokkur, 4. sæti. Stúlknaflokkur, Íslandsmeistarar 10. flokkur, A-lið Íslandsmeistarar, B-lið í 2. sæti 9. flokkur, 2. sæti. 8. flokkur, Íslandsmeistarar. 7. flokkur, Íslandsmeistarar. MB 11 ára, Íslandsmeistarar. MB 10 ára, Íslandsmeistarar.

Drengir MB 10 ára drengja stóð sig mjög vel. Þeir voru ávallt í A-riðli en síðasta fjölliðamótið var haldið í Njarðvík 28. og 29. mars 2009. Strákarnir unnu einn leik á síðasta mótinu en töpuðu tveimur. Einn leikur fór jafntefli, 30-30 á móti Stjörnunni. MB 11 ára stóð sig einnig mjög vel allan veturinn. Þeir voru ávallt í A-riðli og tóku þátt í loka fjölliðamótinu sem var haldið í Grindavík 4. og 5. apríl 2009. Sigurvegarinn á því móti myndi hreppa Íslandsmeistaratitilinn. Okkar drengir börðust hetjulega en því miður þá töpuðu þeir öllum leikjunum. Þeir koma til baka reynslunni ríkari.

Þeir voru nálægt því fyrsta mótinu að tryggja sig upp í B-riðil. Það mót var haldið í Kennaraháskólanum. Næstu tvö mót voru haldin á Stykkishólmi og síðan í Vestmannaeyjum. Það má því segja að strákarnir hafi verið á faraldsfæti á tímabilinu. 10. flokkur komst í undanúrslit og lék þar við KR. KR sigraði 54-49 eftir að Keflavík hafði leitt leikinn að mestum hluta. 11. flokkur byrjaði tímabilið í B-riðli en á öðru fjölliðamótinu sigruðu þeir Briðilinn og unnu sér sæti í A-riðli. Þar héldu þeir sér út veturinn og voru í Ariðli þar sem keppt var um fjögur sæti í undanúrslitum. Því miður urðu strákarnir að láta sér lynda 5. sætið en góður vetur að baki. Drengjaflokkur barðist að krafti allan veturinn um laust sæti í 8 liða úrslitum. Liðum í drengjaflokki var skipt upp í tvo riðla. Riðillinn var sem strákanir voru í var mjög jafn. Einungis fjögur sig skildu að liðið í 2. sæti og því sem var í 6. sæti. Strákanir höfnuðu í 5. sæti í sínum riðli og voru hársbreidd frá því að tryggja sig inn í átta liða úrslitin. Unglingaflokkur karla varð Íslandsmeistari 2009 með því að bera sigurorð af FSu 102-78 í úrslitleik sem var háður í DHL-Höllinni 26. apríl 2009. Staðan í hálfleik var 57-38 Keflavík í vil. Leikurinn hófst á sannkallaðri flugeldasýningu en bæði lið voru dugleg að skora og hraðinn var mjög mikill frá upphafi til enda. Allan seinni hálfleikinn skiptust liðin á körfum og það mikla áhlaup sem FSu þurfti á að halda til að komst nær Keflavíkingum kom aldrei og Suðurnesjamenn unnu sanngjarnan sigur.

Bikarkeppni 2007 – 2008 Keflavík sendi lið í öllum flokkum stelpna og drengja í bikarkeppni yngri flokka KKÍ en keppnin 9. flokk og eldri. Öll stelpuliðin komustu í úrslit nema í unglingaflokki. Drengjaflokkur komst í undanúrslit en töpuðu fyrir Skallagrími 54-50 í Borgarnesi. Unglingaráð körfuknattleiksdeildar Keflavík sótti um að halda bikarúrslitahelgina. Bikarúrslitin eru ávallt haldin á sama stað ein helgi þar sem spilaðir eru 9 úrslitaleikir á tveimur dögum. Keflavík varð fyrir valinu og í hönd fór mikil undirbúningur þannig að umgjörðin yrði hin glæsilegasta. Úrslitahelgin var haldin helgina 28. feb og 1. mars 2009. Árangur okkar fólks var glæsilegur. Sigur í öllum leikjum sem við tókum þátt í. Bikarmeistarar í 9. og 10. flokki stúlkna ásamt stúlknaflokki. Unglingaflokkur drengja varð einnig bikarmeistari. Bikarhelgin gekk mjög vel og var Keflavík til sóma.

Mótsstjórinn Jón Ben til hægri á mynd ásamt Sveini Björns.

Samkaupsmótið 2009 Stærsta körfuboltamót vetrarins, Samkaupsmótið 2009 var haldið 7. og 8. mars. Unglingaráð körfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur standa fyrir mótinu í samvinnu við Samkaup og Reykjanesbæ. Þetta var í 19. skiptið sem mótið var haldið. 836 þátttakendur mættu til leiks, mynduðu 131 keppnislið og spilaðir voru 313 leikir um helgina. Unglingaráð þakkar þátttakendum fyrir frábæra frammistöðu og sinn þátt í að gera þetta mót að einstakri upplifun. Umgengni var til fyrirmyndar og mótið gekk vel í alla staði.

7. flokkur drengja byrjaði veturinn í Briðli en á fyrsta mótinu urðu þeir fyrir því að falla niður í C-riðil. Eftir áramót tókst þeim að vinna sig sæti aftur í B-riðli með góðum sigri á þriðja fjölliðamóti vetrarins í Vodafone-höll þeirra Valsmanna. Fáir drengir fæddir 1996 eru að æfa körfubolta í Keflavík og hafa þeir fengið stuðning hjá yngri drengjum til keppni á þessum mótum. 8. flokkur drengja byrjaði tímabilið í B-riðli en á þriðja fjölliðamóti vetrarins tókst þeim ætlunarverk sitt, að komast upp í A-riðil og taka þátt í lokamótinu. Lokamótið fór fram í Njarðvík 13. og 14. mars 2009. Strákarnir stóðu sig mjög vel meðal þeirra bestu. Niðurstaðan varð 5. sæti í lok vetrar. Góður árangur hjá þeim. 9. flokkur lék í C-riðli allan veturinn.

Drengjaflokkur

Lokahóf yngri flokka Lokahóf unglingaráðs var haldið í Toyotahöllinni föstudaginn 8. maí kl. 18:00. Veittar voru viðurkenningar fyrir tímabilið auk þess sem var rennt yfir árangur allra flokka ásamt því að starf vetrarins var kynnt og einnig það sem framundan var. Að sjálfsögðu var síðan tendrað í grillinu í eilitlu Keflavíkurroki og viðstöddum boðið upp á pylsur og gos. Eftirfarandi viðurkenningar voru veittar á lokahófinu:

Mb10 ára

Mb11 ára Besti leikmaður Sigurþór Ingi Sigurþórsson Mikilvægasti Knútur Ingvarsson Mestu framfarir Benedikt Jónsson

7. flokkur Besti leikmaður Máni Kumasi Mikilvægasti Tryggvi Ólafsson Mestu framfarir Birkir Örn Skúlason

Besti leikmaður Atli Freyr Ásbjörnsson Mikilvægasti Tómas Orri Grétarsson Mestu framfarir Jóhann G. Blöndal

10. flokkur Besti leikmaður Andri Þór Skúlason Mikilvægasti: Andri Daníelsson Mestu framfarir Ragnar Gerald Albertsson

9 ungmenni úr yngri flokkum Keflavíkur voru valin í ungmennalandslið KKÍ sem tók þátt í Norðurlandamótinu 2009. Mótið fór fram í maímánuði í Solna í Svíþjóð. Flest ungmennin voru í U16 kvenna eða alls sex leikmenn sem er helmingur liðsins. Þetta voru þær Árný Sif Gestsdóttir, Árnína Lena Rúnarsdóttir, Eva Rós Guðmundsdóttir, María Ben Jónsdóttir, Sigrún Albertsdóttir og Telma Lind Ásgeirsdóttir. Andri Þór Skúlason og Andri Daníelsson léku með U16 karla og Lóa Dís Másdóttir um U18 kvenna.

Besti leikmaður Hörður Axel Vilhjálmsson Mikilvægasti Sigurður Gunnar Þorsteinsson Mestu framfarir Axel Margeirsson Best greiddi Magni Ómarsson

Mb10 ára Besti leikmaður Marvin Harrý Guðmundsson Mikilvægasti Reynir Þór Reynisson Mestu framfarir Ísak Freyr Ólafsson

Landsliðsfólk

Unglingaflokkur

Stúlkur

9. flokkur Frá Norðurlandamótinu 2009. Þar átti Keflavík 6 stelpur af 12 í U16, eða helming liðsins.

Besti leikmaður Guðmundur Auðun Gunnarsson Mikilvægasti Almar Stefán Guðbrandsson Mestu framfarir Alfreð Elíasson

Drengir

Besti leikmaður Aron Freyr Kristjánsson Mikilvægasti Aron Ingi Albertsson Mestu framfarir Hilmir Gauti Guðjónsson

Drengir samantekt Íslandsmót 2008/2009 Unglingaflokkur, Íslandsmeistari. Drengjaflokkur, 5. sæti í A-riðli. 11. flokkur, 5. sæti 10. flokkur, 3-4 sæti. 9. flokkur, C-riðill. 8. flokkur, 5. sæti. 7. flokkur, B-riðill MB 11 ára, 5. sæti. MB 10 ára , 3. sæti.

Besti leikmaður Andri Þór Skúlason Mikilvægasti Sigurður Vignir Guðmundsson Mestu framfarir Gísli Steinar Sverrisson

8. flokkur

Unglingaflokkur karla Íslandsmeistarar

MB drengja 11 ára 2008-2009

11. flokkur

Besti leikmaður Kristrós Jóhannsdóttir Mikilvægasti Elfa Falsdóttir Mestu framfarir Karitas B. Jóhannsdóttir

Mb11 ára Besti leikmaður Kristrún Björgvinsdóttir Mikilvægasti Laufey Harðardóttir Mestu framfarir Karen Jónsdóttir og Irena Sól Jónsdóttir

7. flokkur Besti leikmaður Sara Rún Hinriksdóttir Mikilvægasti Elínora G. Einarsdóttir Mestu framfarir Hafdís Hildur Gunnarsdóttir

8. flokkur Besti leikmaður Ingunn Embla Kristínardóttir Mikilvægasti Thelma Hrund Tryggvadóttir Mestu framfarir Andrea Björt Ólafsdóttir

9. flokkur Besti leikmaður Eva Rós Guðmundsdóttir Mikilvægasti Aníta Eva Viðarsdóttir Mestu framfarir Ingunn Embla Kristínardóttir

Bronshafar á NM 2009, Andri Þór og Andri Dan.

Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki Ungmenni úr körfunni í Keflavík ásamt forráðamönnum þeirra fjölmenntu á unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Unglingalandsmótin eru góð blanda af fjölbreyttri íþróttakeppni þar sem þátttakendur á aldrinum 11-18 ára eru í fyrirrúmi. Samhlið er boðið upp á margvíslega afþreyingu, leiki og skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Keflavíkingum er alltaf að fjölga á hátíðinni enda er reynslan sú að þeir sem mæta í fyrsta skipti vilja ólmir koma aftur að ári. Krakkarnir okkar voru til fyrirmyndar og stóðu sig ákaflega vel. 3 gull og 4 silfur. Unglingaráð óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Fyrir hönd unglingaráðs. Skúli Jónsson, ritari. Áfram Keflavík.

10. flokkur og stúlknaflokkur Besti leikmaður Eva Rós Guðmundsdóttir Mikilvægasti Árný Sif Gestsdóttir Mestu framfarir Sigrún Albertsdóttir

Jólablað 2009

11


leggja mikið á okkur, koma með meira hjarta inn í leikinn og berjast fyrir bæinn okkar, áhorfendurnar og stuðningsmennna.

Gæðafótbolti Við fengum á þessum tíma líka inn góða leikmenn sem voru mjög mikilvægir. Einn þeirra var Stefán Gíslason, sem er nú hjá Bröndby. Síðan komu Haraldur Guðmundsson, Hólmar Örn Unnarsson, allt heimamenn, ungir og mjög efnilegir stákar. Einnig má nefna Jónas Sævarsson, Hörður Sveinsson, Magnús Þorsteinsson, allt afburða leikmenn sem höfðu reynt sig í útlöndum og staðið sig mjög vel. Það var spilaður gæðafótbolta og ég hafði reynsluna svo allt small þetta saman. Við æfðum betur, vorum duglegri á vellinum og vissum alltaf hvað við vildum. Þetta var 2003. Við vorum strax komnir á fljúgandi ferð. Við vorum í fyrsta sæti í fyrstu deild en fórum strax upp í úrvalsdeildina 2004. Lentum þar í fimmta sæti, en áttum að fara lengra. Við unnum bikarinn það árið, fengum ekki á okkur mark.

Fjölskyldan

Zoran Daníel Ljubicic þjálfari:

Fótboltafjölskyldan í Heiðarhvammi í Keflavík: Gordana Anna, Bojan Stefan, Stefan Alexander og Zoran Daníel Ljubicic.

Agi, geta og liðsandi skipta öllu máli M

ér kom fótboltinn mjög undarlega fyrir sjónir eins og hann var spilaður fyrst eftir að ég kom til Íslands. Leikmennirnir voru ekki að spila vel, hvorki taktískt né tæknilega. Þeir spiluðu bara langa boltann eins og á Englandi. Þessu vorum við ekki vanir heima í Sarajevo í Júgóslavíu. Þar spiluðum við boltann á jörðinni með mörgum snertingum. Þetta var mjög erfitt í byrjun og ég verð að viðurkenna að ég var frekar ráðvilltur gagnvart þessu. Ég fékk síðan einn júgóslavneskan leikmann með mér og við fórum að reyna að kenna strákunum í HK þar sem ég hóf leikmannsferil minn hér á Íslandi. Þeir voru viljugir og tilbúnir að læra, lærðu fljótt og vel, og við urðum fínir vinir.

Frá stríðinu til Íslands Þetta segir Zoran Daníel Ljubicic, þjálfari yngri flokkanna í Keflavík og leikmaður í meistaraflokki um langt árabil. Hann var ekki beint sáttur við spilamennskuna sem hann kynntist fyrst eftir að hann kom til Íslands fyrir tæpum tuttugu árum. Daníelsnafnið tók hann sér eftir að hann varð íslenskur ríkisborgari “Ég kem frá Sarajevo í Bosníu-Hersegóvínu,” segir Zoran í samtali við Jólablað Keflavíkur. „Ég byrjaði að spila fótbolta 11 ára gamall í litlu félagi skammt fyrir utan Sarajevo. Sautján ára gamall gekk ég til liðs við FK Sarajevo og ári seinna skrifaði ég undir fyrsta atvinnumannasamninginn. Eftir það ég var í eitt ár atvinnumaður hjá liði í Penang í Malasíu. Síðan hófst styrjöldin 1992 og borgin mín, Sarajevo, ein fegursta borg í Evrópu, varð illa úti. Ég átti góðan vin

12

Jólablað 2009

á Íslandi, Tomislav Bosnak, sem spilaði með Víking ásamt öðrum Júgóslava, Jani Zilnik. Bosnak spurði mig hvort ég væri til í að koma til Íslands. Ég hugsaði málið og og ákvað svo að skella mér hingað á vit nýrra ævintýra. Ég vissi ekkert um Ísland áður en ég kom hingað en hafði þó heyrt um leiðtogafundinn í Höfða og skákeinvígi Fischers og Spassky. Ég vissi líka að hér var fiskur.”

Hvað var ég að gera á miðjunni? „Leikmannsferill minn á Íslandi var ekki flókinn. Ég byrjaði að spila með HK í Kópavogi en þeir voru þá í fjórðu deild. Ég spilaði tvö ár með liðinu og við náðum því langþráða takmarki að komast í fyrstu deild. Þá ákvað ég að breyta til og fór til Vestmannaeyja þar sem ég spilaði með ÍBV. Þaðan hélt ég til Grindavíkur og lék þar með meistaraflokki UMFG í fjögur ár. Þaðan lá leiðin til Keflavíkur.” Það var gríðarlega erfitt að aðlagast íslenska fótboltanum. Við vorum vanir að spila á grasi, en hér spiluðu menn á gervigrasi og notuðu allt aðrar aðferðir en við áttum að venjast. Við fórum þó brátt að venjast þessari spilamennsku sem okkur fannst þó frekar frumstæð. Ég var yfirleitt á miðjunni og spurði oft sjálfan mig: Hvað er ég að gera á miðjunni, ég fæ aldrei boltann? En smám saman aðlagaðist maður fótboltalega. Leikmennirnir urðu teknískari og þolimóðari með hverju árinu. Langi boltinn fór að heyra til undantekninga. Við vorum innan við tíu leikmenn frá gömlu Júgóslavíu í boltanum hér, kannski 1-2 í hverju félagi. Júgóslavía var stórt land 22 milljónir, þar voru mjög góðir fótboltamenn og við vorum framarlega á

Ég fór síðan í eitt ár sem þjálfari hjá Völsungi á Húsavík og lék einnig með liðinu. Kom svo aftur heim, fjölskyldan var áfram hér í Keflavík og krakkarnir í skóla. Kona mín og samlandi heitir Gordana Anna og vinnur í leikskólanum Garðasel. Ég á tvo stráka, Stefan Alexander 10 ára, og Bojan Stefan 17 ára. Þeir eru báðir í boltanum, sá yngri í 5. flokki en sá eldri æfir með 2. flokki og meistaraflokki og hefur spilað nokkra leiki með þeim. Eldri strákurinn byrjaði í fyrra 16 ára gamall og fékk að spila 4-5 leiki með meistaraflokki.

Fjölgaði snarlega á æfingum Þegar ég kom hingað aftur frá Húsavík hringdi Smári Helgason formaður Unglingaráðs hringdi í mig og spurði hvort ég væri tilbúinn að taka að mér að þjálfa 3. og 4. flokk. Ég sagði strax já því ég hef gaman að vinna með krökkum. Fyrsta árið var erfitt. Ég

3. flokkur karla í Keflavík með þjálfurunum Hauki Benediktssyni og Zoran Ljubicic. 3. flokkur vann fullt hús á síðasta keppnistímabili. A-liðið varð Íslandsmeistari, bikarmeistari og Faxaflóameistari. B-liðið varð Íslandsmeistari og Faxaflóameistari. kom með mínar reglur og viðmið í fótboltanum og setti krökkunum strangar agareglur. Það kom þeim á óvart. Margir þeirra voru óvanir og fyrsta árið var því tæknilega erfitt. Það mættu ekki margir á æfingar. Við vorum bara með 6-10 leikmenn í 3. flokk á æfingu sem er náttúrulega til skammar fyrir bæ eins og Keflavík. En síðan fór að fjölga. Það er nefnilega þannig að krakkar venjast aga og þeir vilja hafa aga og reglur. Í dag er ég með mjög marga á æfingum. Í 4. flokk eru til dæmis 40 krakkar að æfa, í 3. flokk 2628 og hjá 2. flokk mæta í kringum 30 á æfingar. Það segir mér ýmislegt. Við höfum líka unnið marga titla og á síðasta ári vann 3. flokkur vann allt sem hægt

listanum hjá FIFA og UEFA, áttum fjöldann allan af góðum og eftirsóttum leikmenn.

Öldungurinn í liðinu Þegar ég kom til Keflavíkur 1998 spilaði ég fyrst með sem leikmaður og var síðan fyrirliði í þrjú ár, eini útlendingurinn í liðinu. Það voru miklu betri leikmenn hér í Keflavík en maður hafði vanist hjá HK. Þeir voru færari og efsta deildin mun sterkari. Ég var hér í þrjú ár. Kjartan Másson var þá þjálfari og sá í mér leiðtogaefni auk þess sem ég hafði mestu reynsluna. Ég var öldungurinn í liðinu, gat næstum verið pabbi þeirra margra. Þetta voru flestir hverjir ungir leikmenn en mjög góðir. Keflavík var ekki framarlega á þessum tíma, liðið var fyrir miðju í deildinni eða neðar.

Meira „hjarta” í leikinn Fyrstu árin vorum við með mjög gott lið, en okkur vantaði meiri heppni og stöðugleika til þess að ná betri árangri. Tvö fyrstu ár voru mjög erfið, það komu upp fjárhagsleg vandamál í félaginu og eitt árið duttum við niður í fyrstu deild. Það var ósanngjarnt - við höfðum verið að spila mjög vel en vorum óheppnir og klúðruðum mörgum dauðafærum. Það vantaði kannski meiri trú á lliðsheildina, trúna á að við gætum gert virkilega góða hluti á vellinum. Kannski vantaði líka fleiri leikmenn sem vildu taka á sig meiri ábyrgð. Við vorum með ungt lið og tiltölulega óreynt en síðan fór þetta að þróast í rétta átt. Við settumst niður og ræddum saman af hjartans einlægni um hvað við vildum og hvert við ætluðum. Við vildum

var að vinna á Íslandi. Það var einstakur árangur og kannski einsdæmi á Íslandi. Auk þess er komin betri tenging milli meistaraflokks og yngri flokkanna á síðustu tveimur árum. Ég er persónulega mjög ánægður með hvernig þetta starf hefur þróast. Ég er með 2., 3. og 4. flokk núna og við erum komnir í teymi með meistaraflokki, stúderum leiki með þeim, greinum þá og fylgjumst vel með.

Agi er einfalt mál Agi og liðsandi skipta öllu máli í fótboltanum. Ég legg mikið upp úr þessu tvennu því ég veit að öðruvísi er ekki hægt að ná neinum árangri. Margir telja að það sé erfitt að beygja sig undir aga en agi á alls ekki að vera erfiður. Málið er í rauninni afskaplega einfalt. Ég vil að allir mæti stundvíslega á hverja einustu æfingu og þegar þú mætir þá hefst æfing og þá á að gera það sem þjálfarinn segir manni. Svo þegar æfingin er búin má slaka á, grínast og hafa það skemmtilegt. Agi er það sem vantar hjá Íslendingum. Krakkar á Íslandi vilja vinna undir aga en vandamálið liggur oft hjá foreldrunum, ekki krökkunum sjálfum. Þetta er mín perónulega skoðun.

Leikskilningur og tækni

Boltinn er vinur þeirra Í umfjöllun um sigurleik Keflavíkur 2004 í Morgunblaðinu sagði Víðir Sigurðsson meðal annars: „Á góðum degi eru Keflvíkingar með skemmtilegasta lið landsins. Allir miðju- og sóknarmenn þeirra búa yfir góðri tækni, hraða og miklum leikskilningi. Boltinn er „vinur“ þeirra, þeim líður vel með hann á tánum, þeir vilja vera með hann og spila hratt. Þegar það gengur upp standast fáir þeim snúning og KA-menn áttu fá svör að þessu sinni. Þeir réðu illa við hinn útsjónarsama Zoran Daníel Ljubicic, sem lagði upp tvö markanna og stjórnaði leik liðsins vel með hinn sívinnandi Jónas Guðna Sævarsson sér við hlið. Sóknarmennirnir voru stöðugt ógnandi, sérstaklega Þórarinn, sem hefur leikið mjög vel seinni hluta tímabilsins og er einn alskemmtilegasti framherji hérlendis um þessar mundir. Leikinn, snöggur og með bullandi sjálfstraust. Vörnin, sem hefur verið köflótt í sumar, lenti sjaldan í vandræðum og fyrir aftan hana var hinn ungi Magnús Þormar öryggið uppmálað í markinu.“

Ég vil einbeita sér meira að tækninni. Íslenskir leikmenn eru líkamlegir sterkir en það sem vantar hjá þeim er leikskilningur og tækni. Það er að þessu sem við verðum að einbeita okkur. Krakkarnir eru fljótir að læra. Það þarf auðvitað að vera ákveðin geta til staðar, en allir geta lært bætt sig eitthvað, bæði þeir sem eru slakir og þeir sem eru góðir. Spurningin er að endurtaka hlutina aftur og aftur og aftur. Allt snýst um endurtekninguna - þetta vita allir knattspyrnumenn. Það hefur fjölgað verulega hjá okkur á æfingum og það segir okkur að við séum á réttri leið. Mitt hlutverk sem þjálfara er að búa til betri leikmenn og fá fleiri heimamenn í meistaraflokk. En í þessum bransa veit maður aldrei hvað getur gerst. Menn eru líka alltaf að leita að nýjum áskorunum. Ég tel að samt að við höfum verið að gera hér mjög góða hluti - ég veit til dæmis ekki hvort nokkuð lið á Íslandi hefur náð viðlíka árangri og strákarnir í þriðja flokki í fyrra. Ég vil gjarnan nota tækifærið og hrósa þessum strákum sem vorum tilbúnir í allt sem ég lagði fyrir þá. Vilji og sjálfsagi voru til staðar, þeir voru stundvísir, vissu nákvæmlega hvað þeir vildu, allt flottir stákar, bæði að utan og innan. Allir þessir þættir stuðla að árangri. Framtíðin er björt fyrir keflvíska fótboltann.“ etj.-

Jólablað 2009

13


Keflavík - Foxborough – Ferðasaga 7. og 8. flokks körfuboltastúlkna

Þ

ann 6. júní 2009 lögðu 24 stúlkur af stað til USA að keppa í körfubolta undir merkjum Keflavíkur. Þetta voru stúlkur í 7. og 8. flokki, en báðir þessir flokkar voru nýkrýndir Íslandsmeistarar. Þjálfari stúlknanna síðustu ár hefur verið Einar Einarsson. Byrjað var að safna fyrir ferð um 18 mánuðum fyrr en haustið 2008 var ákveðið að sumarið 2009 yrði farið í keppnisferð erlendis. Mörgum fannst þetta glapræði að leggja út í svona ævintýri miðað við aðstæður í þjóðfélaginu. Á bak við þessar stelpur stendur öflugur hópur foreldra sem lagði mikla vinnu í fjáraflanir og voru til í allt milli himins og jarðar til að gera þessa ferð að veruleika. Foreldrar, stúlkurnar og jafnvel systkini tóku að sér sjoppu á turneringum, seldu grænmetisbakka, lakkrís, og hinn margfræga klósettpappír og járnabundu í grenjandi rigningu svo eitthvað sé nefnt. Það þurfti að vinna fyrir hverri krónu enda enga styrki að fá. Góð stemning myndaðist í hópnum og fór það þannig að samtals 52 stykki af Íslendingum, 24 körfuboltastúlkur, foreldrar og systkini fóru í ferðina. Eftir að hafa skoðað ýmsa möguleika var ákveðið að halda á vit ævintýra vestur um haf og fara á mót sem haldið er af Lady Gators, www.ladygatorsaau. org. Lagt var á stað á miðvikudegi og mætti hópurinn fullur eftirvæntingar í Leifsstöð. Ferðin til Boston gekk vel, en leiðin frá Boston til Foxborough tók mis-

langan tíma fyrir ökumenn og farþega, en allir skiluðu sér á hótelið fyrir rest. Á fimmtudeginum var vaknað snemma því þennan

daginn var farið til Springfield, ekki til að hitta gulu fjölskylduna heldur til að kíkja í Basketball Hall of Fame, www.hoophall.com. Þetta safn er mikil upplifun fyrir alla áhugamenn um körfubolta hvort sem það er að fræðast eða leika sér. Sagan endurtók sig frá kvöldinu áður, menn voru mislengi að komast á áfangastað. Föstudagurinn var frjáls og viti menn stelpurnar vildu fara í búðir. Tókst þeim að fara í gegnum “mall” og “outlet” á mettíma og fóru létt með að bæta á sig pokum og pyngjum. Þennan dag átti enginn í vandræðum með aksturinn og allir skiluðu sér á réttum tíma á rétta staði. Laugardagur og sunnudagur voru keppnisdagar. Stúlkurnar kepptu við bandarískar stelpur í þeirri íþróttagrein sem Bandaríkjamenn þykja bestir í. Keflavík var með þrjú lið, tvö í 7. flokki og eitt í 8. flokki. Þegar skráning í mótið fór fram og hin liðin vissu af íslenskum liðum vildu þau öll spila við eskimóana. Hvert lið spilaði fjóra hörku leiki þessa helgi. Stelpurnar stóðu sig með miklum sóma og unnu 8 leiki af 12. Mikið þurfti að hafa fyrir þessum leikjum, en allar stelpurnar spiluðu og stóðu allar fyrir sínu. Sumar fengu mikla athygli frá þjálfurum annara liða og hver veit nema það skili einhverju í framtíðinni fyrir þær. Á mánudeginum var farið í skemmtigarð fyrir norðan Boston, www.canobie.com, en mótið fór fram í Foxborough fyrir sunnan Boston. Og viti menn, einhverjir voru helmingi lengur á leiðinni í skemmtigarðinn en aðrir. Það merkilega er að það voru alltaf sömu bílarnir sem villtust og komu löngu löngu seinna á áfangastað, engin nöfn nefnd hér! Skemmtigarðurinn sló í gegn, stór og mikill garður með fjöldan allan af tækjum til að leika sér í og ekki skemmdi fyrir að engar raðir voru í tækin og því hægt að taka vel á því. Þriðjudagurinn fór í heimferð hjá flestum úr hópnum en einhverjir fóru á aðrar slóðir í landi Obama. Aldrei þessu vant komust allir á áfangastað á réttum tíma. Það er óhætt að segja að þessi ferð hafi kostað svita og púl. En það var hverrar mínútu virði. Öll fjáröflunin, æfingarnar og ferðin þjappaði hópnum saman. Stelpur, þið voruð ykkur sjálfum og Keflavík til sóma í þessari ferð, alveg frábærar.

Heldur voraði hægt þetta árið

Þ

á er komið að árlegu uppgjöri í starfsseminni, á síðasta ári skall á okkur samdráttur sem við vorum að vona að myndi jafna sig fljótlega, heldur hefur gengið þó hægar í átt til bata í þeim efnum. Fækkun í hópi iðkenda verið heldur meiri en æskilegt er, sem haft hefur þær afleiðingar að tímafjöldi æfinga hefur dregist saman. En nóg um það - lifum enn í þeirri von að þetta sé botninn og hægt verði að horfa uppá við með hækkandi sól. Árið gekk þó að mestu samkvæmt venju, hjá deildinni æfingar og mótsferðir í bland við skemmtan í leik og starfi. Í febrúar vorum við með furðufataæfingu svona í tilefni af öskudegi svona aðeins til að brjóta þetta hefðbundna upp. Þetta tókst vonum framar og mættu mjög margir í skemmtilegum og skrautlegum búningum, og fylgja nokkrar myndir þessum skrifum. Farið var á Íslandsmót, sem haldið var í Mosfellsbæ þetta árið nokkuð fjölmennur hópur fór og gisti þar þessa keppnisdaga sem voru 6, 7 og 8 mars. Næsta uppákoma var svo um páska, þegar mætt var til síðustu æfingar í Heiðarskóla fyrir páska komum við að lokuðum dyrum, því húsinu hafði verið lokað vegna viðgerða. Þetta kom ekki að sök því við drifum okkur bara út á fótboltavöllinn við Heiðarskólann og lékum okkur þar, og að leik loknum fengu þeir sem mættir voru allir páskaegg frá deildinni. Hefðu nú samt fleiri mátt mæta því allnokkur egg gengu af.

Farið var í heimsóknir bæði til KR og í Hafnarfjörð með hóp keppenda, enda nauðsynlegt að halda góðum samskiptum við aðra þá er þetta stunda, enda vel tekið á móti keppendum. Og þá var komið að sumarfríi sem stóð fram til september, þegar vetrarstarfið hófst aftur. Hið árlega Sparisjóðsmót var svo haldið 31 október og mættu á það um 150 iðkendur frá 8 félögum, mótið var haldið í Íþróttahúsinu við Sunnubraut (Toyota höllinni). Og tókst það í alla staði mjög vel. Sendum við Sparisjóðnum þakkir fyrir hans stuðning, og starfsfólki íþróttahússins einnig þakkir fyrir góðar móttökur. Ekki má nú ljúka þessu spjalli án þess að senda íþróttamanni deildarinnar kveðjur, en hann var kjörinn eftir síðustu skrif. Þetta árið var það Karen Guðnadóttir og óskum við henni til hamingju. Stjórn Badmintondeildarinnar sendir svo öllum iðkendum íþrótta og stuðningsmönnum bestu óskir um gleðileg jól og ánægjulegt komandi ár. Æfingar eru þrisvar í viku, tvisar í Heiðarskóla á mánudögum og miðvikudögum kl. 16:00-17:00, og einu sinni í viku í Akurskóla á fimmtudögum kl. 16:15-18:30 og frá kl. 18:30-19:30 þá geta eldri iðkendur og foreldrar komið og tekið í spaða og haft gaman af. f.h. stjórnar Dagbjört Ýr Gylfadóttir gjaldkeri

F.h. ferðalanga – Tryggvi Þór Bragason og Björgvin Ingimarsson

14

Jólablað 2009

Jólablað 2009

15


Fjör á landsmóti V

ið fórum 10 stelpur úr fimleikunum til Akureyrar að keppa á landsmótinu í sumar. Það voru þær: Heiðrún Rós, Helga Dagný, Eva Berglind, Kristín, Selma Kristín, Berglind Björk, Louisa Ósk, Brynja, Olga Ýr og Elva Dögg. Þetta var alveg frábær upplifun fyrir okkur allar. Við fórum á föstudegi og komum heim á sunnudegi. Á föstudeginum var opnunarhátíðin. Það var mjög fínt á henni og var hlegið mikið. Þegar henni var lokið var farið uppá tjaldsvæði, þar vorum við búnar að koma okkur fyrir í tjöldum og fellihýsi. Þegar við komum uppá tjaldsvæði var farið snemma í háttinn

því að við þurftum að vakna snemma um morguninn til að fara að keppa. Á laugardeginum vöknuðum við allar um 9. Þá var farið til Evu formanns í smá bruns og var það hinn æðislegasti morgunmatur. Eftir að við vorum búnar að borða morgunmatinn var farið að gera í hárið og mála sig fyrir mótið. Við mættum í íþróttahúsið á Akureyri milli 1 og 2 leitið og var byrjað á því að hita upp. Þegar það var búið var síðan byrjað á áhöldum og svo byrjaði keppnin. Okkur gekk ágætlega á trampólíni og dansi, ég hreinlega get ekki sagt að dýnan hafi verið sú besta, hún var eiginlega bara hlægileg. Við gerðum 3 umferðir þar og voru fyrstu 2 mjög góðar en sú 3 var rosalega skrautleg. Margar flugu á rassinn og var hlegið mikið eftir á. En þegar mótið var búið var það verðlaunahafhendingin. Við fenguð að sjálfsögðu pening, en það var samt 3. sætið. Eftir það var farið í sturtu og gert sig tilbúin til að borða. Óli Bjarna eldaði handa okkur rosalega góðan kjúkling og eftir það fóru yngri stelpurnar niður í bæ en þær eldri urðu eftir og fóru seinna niður í bæ. Svo komu yngri stelpurnar heim og sátu og töluðu saman um allt og drukku heitt kakó og borðuðu nammi. Alveg til að ganga 3 held ég, þá voru þær reknar að sofa. Á sunnudags morguninn var síðan lagt af stað heim. Ég get ekki sagt annað en að þessi ferð hafi verið frábær og tekist æðislega og held ég að við höfum allar skemmt okkur konunglega. Það var mikið hlegið og haft gaman sem hópur. Og því viljum við Team Gym þakka fyrir æðislegt mót og góða skemmtun. Við myndum ekki hika við að fara aftur og upplifa svona skemmtilega ferð þrátt fyrir aldursmuninn á okkur. Fyrir hönd landsmótsfara úr TeamGym Louisa Ósk Ólafsdóttir

Knattspyrna - 6. - og 7. flokkur

Yngri flokkar kvenna – knattspyrna

6. flokkur kvenna

5. flokkur kvenna

4. flokkur kvenna Sigurrós Eir Guðmundsdóttir var á úrtaksæfingum U17 landsliðsinns og þær Arna Lind Kristinsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir á æfingum U16 ára. Sigríður lék síðan sinn fyrsta opinbera landsleik í sumar gegn Færeyjum. Þá léku Sigurrós Eir Guðmundsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Marsibil Sveinsdóttir og Arna Lind Kristinsdóttir sína fyrstu leiki með meistaraflokki í efstu deild kvenna og stóðu sig virkilega vel.

3. flokkur kvenna

uðum þessum leikjum. Við getum engum um kennt að ná ekki settu takmarki nema okkur sjálfum sem er svekkjandi því við vorum með besta liðið í þessum riðli. Það sem hægt er að læra af þessu er að vanmat á andstæðing veit ekki á góð úrslit og að rétt hugarfar hefur mikið að segja þegar mætt er til leiks. Við sendum líka eitt 7 manna lið til keppni á Íslandsmótinu og lentum í 3. sæti í okkar riðli. Flokkurinn taldi 24 leikmenn. Æfingasókn var gríðarlega góð allt tímabilð og undantekning ef við vorum færri en 20 á æfingu. Liðið datt út í fyrstu umferðbikarkeppni KSÍ gegn Stjörnunni. Farið var með tvö 11 manna lið á ReyCup. Þar náð b-liðið í bronsverðlaun.

Elís Kristjánsson, þjálfari yngri flokka kvenna og 7. fl. drengja.

6. flokkur kvenna Í fyrsta skipti náðum við að vera með 6. flokkstúlkna. Þær tóku þátt í Símamótinu í Kópavogi og Hnátumóti KSÍ. Á Símamótinu stóðu þær sig mjög vel, náðu að fara í úrslitakeppnina á hnátumótinu og lentu þar í fjórða sæti.

5. flokkur kvenna Flokkurinn tók þátt í Faxaflóamótinu Símamótinu og Íslandsmótinu.Á Íslandsmótinu tefldum við fram A og B liði. Ekki var hægt að ætlast til of mikils hjá stelpunum enda flestar á yngra ári, en þær stóðu sig samt nokkuð vel. Þrátt fyrir að vera með 27 stelpur í upphafi tímabils reyndist oft erfitt að manna tvö lið og þurftu stelpur í 6. flokk nokkuð oft að spila með.

4. flokkur kvenna

7. flokkur.

7. flokkur Iðkendafjöldinn í 7. flokk var 46, þar af voru 12 á eldra ári og 24 á yngra ári. Æfingasókn var heilt yfir nokkuð góð, sérstaklega hjá yngra árinu. Stærstu verkefni flokksins í sumar voru Kaupþingsmótið á Akranesi og Króksmótið sem fram fór á Sauðárkróki. Þetta er í fyrsta sinn sem flokkurinn sótti Króksmótið og komu heim með tvo bikara.

6. flokkur Knattspyrnuárið 2008 og 2009 er búið að vera virkilega viðburðaríkt. Um miðjan september í fyrra vorum um 45 knattspyrnumenn sem mættu mér í anddyrinu á Reykjaneshöllinni. Mest fór æfingasókn upp í 55 einstaklinga en að meðaltali voru þeir rétt undir 40, sem er virkilega ásættanlegt.

16

Jólablað 2009

6. flokkur í Eyjum. Eins og utanfarin ár er mótalistinn er nokkuð langur í ár. Við héldum þó aðeins eitt mót í Reykjaneshöllinni og að auki hélt Njarðvík mót í höllinni, sem við sóttum. Eins fengum við nokkrar skemmtilegar heimsóknir frá Reyni/Víði, Njarðvík, HK, FH og Eyjapeyjum. Faxaflóamótið var svo fyrsta mótið þar sem leikið var úti, nánar tiltekið á Stjörnuvelli í Garðabæ í maí. Þar vorum við með 4 lið, A-, B-, C- og D-lið. Til Vestmannaeyja fór svo eldra árið í lok júní. Flottur hópur, 18 knattspyrnumenn ásamt stórum hóp foreldra. 2 lið voru skráð til keppni að þessu sinni, A-, og C-lið. Virkilega flott mót hjá ÍBV og líklega það flottast á landinu, fyrir þennan aldurshóp. Til þess að gera mjög langa sögu mjög stutta, þá voru allir sínu félagi til fyr-

irmyndar. Allir stóðu sig vel innan vallar sem utan. Enduðu bæði liðin um miðja deild. Um miðjan júlí var svo farið í Pollamót KSÍ. Undankeppnin fyrir A- og Bliðin var haldin á Smárahvammsvelli í Kópavoginum. Við vorum í riðli með ÍBV, Breiðablik og Víkingi. C- og D-liðin spiluðu á Víkingsvellinum í Víkinni, stóð sig mjög vel og komast C-liðið upp úr riðlinum og fóru í úrslitakeppnina sem haldin var á ÍR-vellinum. Endaði svo C-liðið í 5. sæti á Íslandsmótinu, sem er mjög ásættanlegur árangur. Yngra árið fór svo í ágúst til Sauðárkróks á Króksmótið. Þangað fórum rúmlega 15 drengi og 2 lið. Það sama má segja um Króksmótið og Shellmótið í Eyjum, virkilega flott mót og til fyrirmyndar í alla staði. Síðasta mót ársins var svo Suðurnesjamótið, sem

haldið var á Njarðvíkurvelli í köldu haustveðri. Fótbolti var nú ekki það eina sem við gerðum okkur til skemmtunar á þessu. Við vorum með opið hús í Fjörheimum oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Þar var einnig gist eina helgina og þar hef ég trú á að draugasögurnar séu enn í minnum drengjanna. En einnig fórum við í ýmsar keppnir sem var keppt í á æfingatíma. Jólakeppnin og páskaeggjakeppnin standa þar upp úr. Að auki var valinn leikmaður mánaðarins, bæði hjá yngra og eldra árinu, þar sem vegleg verðlaun eru í boði. Eins hittumst við fyrir hvern heimaleik Keflavíkur í Pepsí-deildinni og gengið inn á með liðinum fyrir leikina. Unnar, Elli og Óskar

Flokkurinn var nokkuð fjölmennur í upphafi vetrar og í byrjun sumars, en er sól fór að hækka á lofti fækkaði töluvert í hópnum. Margar kusu einfaldlega að eyða sumrinu í annað en fótbolta. Þegar Íslandsmótið hófst stóðum við uppi með 14 stelpur, nánast allar á yngra ári og að byrja í ellefu manna bolta. Ákveðið var að draga ekki flokkinn út úr ellefu manna boltanum, heldur að keyra á þessum stelpum og láta síðan stelpur í 5. flokk spila með. Í flestum leikjum þurfti að nota útileikmann í marki þar sem flokkurinn var markmannslaus og enga hægt að fá til að gerast alfarið markvörður 4. flokks. Þegar sumarfríin og ferðalögin byrjuðu þá var oft fámennt á æfingum, stundum ekki nema sjö á æfingu og fór niður í að vera fjórar. Það kom líka á daginn að við áttum verulega á brattann að sækja á Íslandsmótinu. Þrátt fyrir lítinn leikmannahóp tók flokkurinn einng þátt á ReyCup í Reykjavík. Heiðrún Sjöfn Þorsteinsdóttir fyrirliði 4. flokks sótti knattspyrnuskóla KSÍ á Laugarvatni.

3. flokkur kvenna Markmið okkar í sumar var að komast upp úr B-riðli. Eftir fyrri hluta móts stóðum við nokkuð vel á stigatöfluni. Við áttum í harðri baráttu við Fylkir/Leiknir um að komast í úrsiltakeppnina. Til að mynda sigrum við báða leikina gegn þeim en eigum tvo heimaleiki gegn lakari liðum sem búið er að sigra áður en dómari flautar til leiks. Aðkoma með slíkt hugarfar í leik er bara ávísun á tap, enda gerðist það. Við töp-

Frá verðlaunaafhendingu meistaraflokks kvenna á lokahófi. Stúlkurnar með bikarana eru f.v.: Anna Rún Jóhannsdóttir besti félaginn, Rebekka Gísladóttir knattspyrnukona ársins og Agnes Helgadóttir efnilegasti leikmaðurinn. Ljósm. Jón Örvar.

„Misstum heilt byrjunarlið“ Það var ljóst síðasta haust þegar bankahrunið varð að rekstur meistaraflokks kvenna yrði mjög erfiður. Það var mun erfiðara að ná samningum við styrktaraðila og ljóst að við yrðum að minnka verulega allan kostnað. Það var strax ákveðið að segja upp öllum samningum við erlenda leikmenn og síðan voru margar stelpur sem m.a. höfðu verið kjölfestan í liðinu árið á undan sem ákváðu að kveðja og fara í önnur félög. Það má eiginlega segja að við höfum misst heilt byrjunarlið. Þá ákvað Þórður Þorbjörnsson að hætta sem formaður meistaraflokksráðs kvenna og tók undirritaður við af honum. Í þjálfaramálum hafði Ásdís Þorgilsdóttir tekið við liðinu seinni part sumars 2008 en hún ákvað að vera ekki áfram með liðið og í lok árs í fyrra var Elvar Grétarsson ráðinn og stýrði hann liðinu í sumar. Þrátt fyrir að hafa misst allan þennan fjölda af leikmönnum var stefnan samt sett á að reyna að halda liðinu uppi og var ákveðið að styrkja liðið með tveimur erlendum leikmönnum. Það er óhætt að segja að mikil óheppni hafi elt liðið alveg frá byrjun. Báðir erlendu leikmennirnir meiddust og léku ekki meira með liðinu og þá lentu nokkrir aðrir leikmenn í meiðslum. Það þarf ekki að hafa mörg orð um árangur lisðins í sumar en liðið hafnaði í neðsta sæti og vann ekki leik. Liðið féll og mun leika í 1. deild næsta sumar. Þrátt fyrir þetta sýndu stelpurnar ótrúlega eljusemi við æfingar og að keppa alla leiki þrátt fyrir þetta mótlæti og voru alltaf glaðar og kátar og sýndu mikinn þroska þrátt fyrir ungan aldur margra þeirra. Ákveðið var að slíta samningnum við þjálfarann og var Steinar Ingimundarson ráðinn þjálfari en þar er á ferðinni mjög reyndur þjálfari og eru gerðar miklar væntingar til hans. Æfingar eru hafnar á fullu og eru stelpurnar búnar að kveðja það keppnistímabil sem búið er og munu ekki líta í baksýnisspegilinn, heldur fram á við og er í þeirra hópi mikill metnaður fyrir næsta keppnistímabili. Í lokin vil ég þakka leikmönnum, þjálfara, stjórn kvennaráðs og stjórn knattspyrnudeildar fyrir samstarfið á árinu. Andrés K. Hjaltason

Jólablað 2009

17


FIMLEIKAJÓL JÓL Á

rleg jólasýning Fimleikadeildar Keflavíkur verður sunnudaginn 13. desember. Sýningin samanstendur af fimleikaatriðum sem eru fléttuð inn í sögu sem fjallar um leitina að hinni fullkomnu jólagjöf. Litla Jóni langar að gefa Gunnu sinni hina fullkomnu jólagjöf en það reynist honum þrautin þyngri og hann lendir í ótrúlegustu ævintýrum útum allan heim. Sýningarnar verða 2 sama dag með sama fyrirkomulagi og á síðasta ári svo allir áhorfendur komist að, en í fyrra var fullt út úr dyrum á báðum sýningunum.

Karfan:

HAUSTIÐ Fimleikadeild Keflavíkur státar af glæsilegum íþróttamönnum og afar öflugu starfi, sérstaklega sé litið til stærðar bæjarfélagsins. Mótatímabilið er að fara af stað bæði í áhaldafimleikum og trompi en aðal keppnistímabilið í fimleikum er frá janúarlokum og fram í maí ár hvert. Team Gym liðið okkar í trompi keppir í meistaraflokki á mótaröðinni í vetur, þar sem liðin tryggja sér meðal annars þátttökurétt á Evrópu og Norðurlandamótun og er deildin sérstaklega stolt af því að eiga glæsilegt lið sem stendur jafn framarlega. Á haustmóti FSÍ núna í nóvember gekk TeamGym liðinu alveg ágætlega og lenti í 2. sæti. Á síðasta móti á vegum Fimleikasambands Íslands, haustmóti FSÍ sem fram fór helgina 7. - 8. nóvember 2009, varð Eydís Ingadóttir í 1. sæti í keppni í 4. þrepi. Frábær árangur sem og hjá öllum okkar fulltrúum á mótinu.

NÝ ÆFINGAAÐSTAÐA Það stefnir í að fimleikarnir fái glæsilega jólagjöf þetta árið. Bæjaryfirvöld og starfshópur á vegum deildarinnar hafa unnið að flutningi á starfsemi félagsins yfir í íþróttahús íþróttaakademíunnar undanfarnar vikur og mánuði og síðustu endarnir vonandi að

Meistaraflokkur karla og kvenna

Þ Þórunn María Garðarsdóttir á Möggumóti.

Eydís Ingadóttir.

smella saman. Gangi áætlanir upp og takist að fjármagna síðasta hluta verkefnisins mun fimleikadeildin hefja nýtt ár í nýju húsi og loksins sjá fyrir endann á tímabili sem markast af lélegri aðstöðu og rými sem er löngu sprungið. Mikil vinna hefur farið fram svo leysa megi málið á sem hagkvæmastan hátt og til að skila sem bestri nýtingu á rýminu. Nýja húsið mun bjóða uppá, talsvert fleiri starfsstöðvar sem gerir okkur kleift að nýta rýmið betur, eykur afköst þjálfara og iðkenda og á án nokkurs efa eftir að skila verulegum árangri hjá iðkendum á næstu árum.

Við þetta tækifæri viljum við hvetja alla þá sem áhuga hafa á samstarfi við fimleikadeildina um hin ólíkustu verkefni eða telja sig með einhverjum hætti eiga heima undir breiðri regnhlíf fimleikanna til að hafa samband við okkur. Það vill enginn opna jólapakkann of snemma en nefndin er bjartsýn, stolt af góðum árangri starfsins undanfarnar vikur og full tilhlökkunar þar sem loksins hyllir undir alvöru fimleikaaðstöðu í Reykjanesbæ.

Keflvískir afreksmenn í 80 ár

Jólagjöf

í þ ró t t a m a n n s i n s Ítarleg umfjöllun um íþróttalífið í Keflavík prýdd fjölda mynda Fáanleg í: Félagsheimili Keflavíkur Hringbraut 108, K-markaðinum við Krossmóa, Reykjaneshöllinni, versluninni Kóda, K-sport og Sundmiðstöðinni við Sunnubraut

18

Jólablað 2009

Meistaraflokkar karla 1989 og 2009.

að er óhætt að segja að 2008-2009 tímabilið hafi verið með óvenjulegri tímabilum sem Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur upplifað síðari ár. Tímabilið hófst með svipuðum hætti og fyrri tímabil, karla- og kvennalið fengu liðstyrk erlendra leikmanna. Steven Gerrard og Jesse Pellot-Rosa voru mættir til að styrkja karlaliðið, en Takesha Watson var mætt til að spila með kvennaliðinu. Fljótlega kom það þó í ljós að íslensku bankarnir stóðu á brauðfótum og algjört hrun efnahagsins staðreynd. Stjórn KKDK sá fram á það að laun erlendra leikmanna myndu tvöfaldast og var því sú ákvörðun tekin að senda alla erlendu leikmennina heim. Nú var stóra stundin runnin upp fyrir íslensku leikmennina, en það var ljóst að bæði karla- og kvennalið myndu einungis skarta íslenskum leikmönnum út tímabilið. Margir stuðningsmenn fögnuðu þessari ákvörðun, en aðrir bölvuðu henni þegar leið á tímabilið. Tímabilið hófst með Powerade-bikarkeppninni, en strákarnir duttu út gegn KR í 4ja liða úrslitunum. Stelpurnar mættu KR-stúlkum í úrslitaleik og höfðu betur. Fyrsti, og eins og síðan átti eftir að koma í ljós, síðasti bikarinn á tímabilinu leit dagsins ljós. Þessi sömu lið kvenna mættust einnig í úrslitaleik Subwaybikarkeppninnar, en þar höfðu KR-stúlkur betur og hömpuðu bikarnum. Strákarnir duttu því miður út í 8-liða úrslitum gegn sterku liði KR, en KR-ingar töpuðu óvænt úrslitaleiknum gegn Stjörnumönnum. Strákarnir stóðu sig með prýði á tímabilinu og enduðu í 4. sæti deildarinnar. Nú fengu allir íslensku leikmennirnir að blómstra og augljóst var að margir höfðu þroskast mikið sem leikmenn þegar tímabilinu lauk. Erkifjendurnir í Njarðvík, með flóttamanninn Magnús Gunnarsson í fararbroddi (broskall), mættu strákunum í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Keflvíkingar höfðu betur í báðum viðureignunum og fóru áfram á 2-0 sigri í 4ja liða úrslitin. Þar mættu þær hins vegar KR-ingum sem voru með feikilega sterkt lið á tímabilinu. KR-ingar sigruðu þrjá leiki í röð og gerðu þar með vonir Keflavíkurdrengja um titil að engu. Síðasta viðureignin mun vera lengi í manna minnum, en leikurinn var fjór-framlengdur og endaði eins og fyrr sagði með sigri KR-inga. Hetjulegri baráttu Keflvíkinga var lokið, en þeir höfðu fengið liðstyrk Jesse Pellot-Rosa sem reyndist algjör gullmoli í þessari úrslitakeppni. Stelpurnar höfnuðu í öðru sæti deildarinnar og ljóst var að þær myndu mæta KR-stúlkum í 4ja liða úrslitum. Þar urðu þó ákveðnir brestir í leik liðsins og endaði það með 3-0 tapi. Þetta voru mikil vonbrigði, en Keflavíkur-stúlkur höfðu átt fast sæti í úrslitunum síðustu ár. Takesha Watson var fengin til að styrkja liðið í úrslitakeppninni en hún stóð því miður ekki undir væntingum. Lokahóf KKDK var haldið með pompi og prakt í apríl. Jón Ólafsson var heiðursgestur kvöldsins og lék

Eftirfarandi leikmenn voru verðlaunaðir á lokahófi KKDK: Stelpur: Besti leikmaður: Birna Valgarðsdóttir Besti varnarmaður: Pálína Gunnlaugsdóttir Mestu framfarir: Hrönn Þorgrímsdóttir Strákar: Besti leikmaður: Sigurður Þorsteinsson Besti varnarmaður: Jón Nordal Hafsteinsson Mestu framfarir: Elvar Sigurjónsson

hann á alls oddi. Fyrir lokahófið mætti Keflavíkurlið karla 2009 Keflavíkurliðinu frá 1989 í bráðfjörugum leik. Aukakílóin og stirðleikinn áttu stóran þátt í tapi 1989 liðsins þrátt fyrir að þeir gerðu sitt bestu í að sýna snilldartakta á köflum. Sigurður Ingimundarson ítrekaði að þeir væru að spila eftir reglum frá 1989, en í þá daga var greinilega oft gefið 4 stig fyrir þriggja stiga körfu, 3 víti ef fyrsta vítið fór ekki ofan í og þar fram eftir götunum. Þrátt fyrir þessa forgjöf, þá voru lokatölur 74-72 fyrir ungu strákunum. Sjúkraliðar voru tilbúnir með súrefni fyrir eldri mennina eftir leik og fullyrtu margir þeirra að körfuhringirnir höfðu þrengst frá því þegar þeir spiluðu á sínum tíma.

Lið ársins: Pálína Gunnlaugsdóttir, Birna Valgarðsdóttir, Bryndís Guðmundsdóttir, Sigurður Þorsteinsson og Hörður Axel Vilhjálmsson. Nú er nýtt tímabil gengið í garð og hafa bæði lið fengið góðan liðstyrk erlendis frá. Sigurður Ingimundarson kvaddi herbúðir Keflvíkinga í sumar, ásamt Ingibjörgu Vilbergsdóttur. Nú horfum við fram á veginn og vonum að allir bæjarbúar haldi áfram að styðja við bakið á okkur með því að mæta á leiki og hvetja liðin til dáða. Við óskum bæjarbúum gleðilegrar hátíðar og þökkum stuðninginn á árinu sem er að líða. Áfram Keflavík! Kveðja, Stjórn Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur

Getraunir 1x2 230 Þeir sem tippa hjá Íslenskum Getraunum og merkja við 230 eru um leið að styðja við bakið á barna og unglingastarfi Knattspyrnudeildar Keflavíkur. Á netinu Mestur hluti seldra raða fer fram á netinu. Slóðin er 1x2.is. Þar spila fjölmargir, annaðhvort einir eða sem hópur. Við hvetjum þá auðvitað til að merkja við 230. Fyrirtækjaleikurinn Fyrirtækjaleikurinn var á sínum stað hann var þó með minna sniði en oft áður. 8 fyrirtæki kepptu sín á milli vikulega í 7 vikur að þessu sinni. Fasteignasalan Stuðlaberg varð sigurvegari með Halldór Magnússon fremstan í flokki. Þau fyrirtæki sem kepptu að þessu sinni voru auk Stuðlabergs: HS veitur, Myllubakkaskóli, Áfangar, Sparisjóðurinn, Vöruhús Fríhafnar, FC Makarúha og Sjúkraþjálfun Suðurnesja. Þess má geta að þetta er í annað sinn sem Stuðlaberg sigrar í þessum leik. Við þökkum þessum fyrirtækjum fyrir þátttökuna. Að lokum Viljum við þakka þeim fjölmörgu sem hafa tippað hjá Íslenskum Getraunum og merkt við 230, fyrir sitt framlag og óskum þeim gleðilegra jóla og gæfuríkt komandi ár. Barna & unglingaráð Knattspyrnudeildar Keflavíkur

Jólablað 2009

19


Knattspyrna - meistaraflokkur karla

E

ins og venjulega var tíminn fram að áramótum í rólegri kantinum hjá okkur. Það voru hins vegar margir sem yfirgáfu liðið. Margar og mismunandi ástæður lágu að baki þess að svo stór hópur fór frá félaginu. Nýja árið gekk svo í garð og æfingar hófust að nýju eftir jólafrí. Ný andlit leikmanna fóru svo að sjást með reglulegu millibili þrátt fyrir niðurskurð og þá ekki bara hjá leikmönnum heldur líka þjálfurunum því þau Einar Ásbjörn og Ásdís Þorgilsdóttir bættust við þjálfarateymið.

Lengjubikarinn hófst svo í febrúar og byrjuðum við vel unnum fyrstu 3 en þeir 2 síðustu töpuðust, sem gerði það að verkum að við fórum ekki upp úr riðlinum okkar. Það var svo sem ákveðin blessun í því þar sem margir leikmenn voru með flensueinkenni á þessum tíma og veitti ekki af hvíldinni. Nú, liðið komst á fætur og safnaði sér fyrir æfingaferð til Portúgals sem að tókst mjög vel. Verulega góðar aðstæður eru til æfinga á Albufeira svæðinu þar sem liðið dvaldi í vikutíma. Er heim var komið liðu dagarnir hratt og það styttist óðfluga í mótið, það kom í ljós að fjölmiðlar

sem og aðrir sparkspekingar höfðu mikla trú á liðinu fyrir mótið og samkvæmt öllum spám var útlit fyrir árangursríkt sumar hjá Keflavík. Eitthvað höfðu sérfræðingar lesið skakkt í spilin, viljandi, eða óviljandi. Liðið byrjaði ágætlega, reyndar frábærlega, með sigri gegn FH en það varð þó fljótt ljóst að það vantaði einhvern neista sem hafði verið árið áður hjá liðinu og það virtist vanta þennan neista svo til í allt sumar. Liðið komst aldrei á það flug sem að til var ætlast og niðurstaða í deild, 6. sæti, var alls ekki það sem liðið ætlaði sér í upphafi. Það var þó sú niðurstaða sem ákveðnir sérfræðingar höfðu varað við að gæti orðið. Þátttaka liðsins í Evrópukeppninni var ekki beint til frægðar þar sem leikið var við lið milljarðamærings á Möltu, Valletta liðið. Í fyrstu umferð tapaðist fyrri leikurinn ytra 3-0 þar sem engan veginn tókst að halda boltanum innan liðsins enda var liðið verulega laskað en marga af eldri leikmönnum vantaði í leikinn. Við náðum þó 2-2 jafntefli hér heima í mun skárri leik. Liðið spjaraði sig vel í Visa-bikarnum og komst alla leið í undanúrslit þar sem við duttum út fyrir Breiðablik sem vann svo bikartitilinn á endanum. Í heildina má segja að tímabilið hafi kannski ekki verið dans á rósum, en þegar rýnt er í tölfræði og annað má sjá að það voru þessi h***... jafntefli endalaust sem gerðu okkur lífið leitt. Við vorum með besta heimavöllinn í sumar ásamt Íslandsmeisturum FH, við eigum ennþá flottustu stuðningsmenn landsins og það að við skulum vera ótrúlega óánægðir með árangurinn i sumar, sýnir að það er mikill metnaður í liðinu og að menn vilja ná lengra. Stórsigur, 6-1, vannst þó í seinasta leiknum í deildinni heima gegn ÍBV. Kvaddi liðið því

Afhending á silfurmerkjum KSÍ. stuðningsmenn sína með stæl og reyndar þjálfara sinn líka því rétt var búið að flauta seinasta leik okkar af þegar stjórnin tók ákvörðun um að skipta um mann í brúnni og þeir voru ekki lengi að finna arftaka. Willum Þór er næsti þjálfari sem ætlað er að skila þeim stóra í hús. Hins vegar verður mikil eftirsjá í Kristjáni Guðmundssyni. Hann var búinn að vera þjálfari liðsins lengur en nokkur annar, eða í hálfan áratug. Hann var búinn að vinna ómetanlegt starf innan klúbbsins

og þeir eru ófáir leikmennirnir sem eiga honum mikið að þakka hvar þeir eru staddir í dag í lífinu. Það eru leikmenn í atvinnumennsku, leikmenn sem eru reglulega í landsliðinu og leikmenn sem álitnir eru með sterkari mönnum í íslensku deildinni sem hafa fengið að stíga sín fyrstu skref hjá honum. Þeir hafa fengið að sýna hvað í þeim býr og fengið þann tíma sem þeir hafa þurft til að blómstra. Það eru svona hlutir sem ekki eru metnir til fjár. Kristján, þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir félagið (og mig líka). Það hafa verið forréttindi að fá að starfa undir þinni handleiðslu. Gangi þér sem allra best í því sem að þú tekur þér fyrir hendur í framtíðinni og vonandi eigum við (og ég) eftir að sjá þig sem oftast á Keflavíkurvelli á komandi árum. Áfram Keflavík Kossar og knús ! Jón Örvar Arason Forráðamaður Keflavík FC

Erindi við „Knattspyrnuna“ í Keflavík Símun Samuelsen, knattspyrnumaður ársins 2009.

Velkomnir Þór og Willum Þór! Knattspyrnudeild Keflavíkur bíður þjálfarana Willum Þór Þórsson og Þór Hinriksson velkomna til starfa hjá félaginu. Willum Þór skrifaði undir tveggja ára samning. Willum Þór er farsæll þjálfari og hefur unnið allt sem hægt er að vinna hér á landi. Willum hefur þjálfað Þrótt R, Hauka, KR og Val og vann Íslandsmeistaratitla með KR 2002 og 2004 og með Val 2007. Þór Hinriksson verður aðstoðarþjálfari, en þeir félagar hafa unnið náið saman síðan 2005 hjá Val. Við hjá knattspyrnudeildinni bjóðum þá félaga velkomna til okkar og óskum þeim velfarnaðar í starfi. Þeir hafa nú þegar hafið störf þegar þetta er skrifað og er almenn ánægja með þeirra störf hér, hvort heldur er hjá leikmönnum eða öðrum. Jón Örvar Arason, Keflavík FC Kristján Guðmundsson.

20

Jólablað 2009

É

g undirritaður er alinn upp í Vesturbæ Reykjavíkur og hlaut mitt íþróttauppeldi í KR, sem ég er á margan hátt mjög þakklátur fyrir. Eitt af því sem ég hef lært að meta með tíð og tíma og vonandi auknum þroska er hversu duglegir forráðamenn félagsins og fyrstu þjálfararnir okkar voru að innprenta okkur gömul og góð gildi, eins og ástundun og kurteisi. Ítrekað vorum við minntir á að bera virðingu fyrir andstæðingunum. Að bera virðingu fyrir andstæðingunum? Fannst það nú ekki alveg rökrétt þá, þar sem hann var jú andstæðingur eða mótherji. En í þessari mótsagnakenndu staðreynd felst einmitt mikilvægi þessara skilaboða. Ef enginn væri andstæðingurinn eða mótherjinn, yrði lítið úr keppninni og harla fátt um fína drætti á báða bóga. Því öflugri sem andstæðingurinn er því stærri verður áskorunin og verkefnið ögrandi og skemmtilegt. Þannig öðlast andstæðingurinn þá virðingu sem hann á skilið með því að kalla fram það besta í okkur. Og með því að takast á við það öðlumst við um leið sjálfsvirðingu. Einn þessara mótherja var Keflavík. Á unglingsárum atti ég kappi við harðvítuga sveit Keflvíkinga í knattspyrnu og körfuknattleik og, já, handknattleik. Margir þeirra urðu seinna meir meistaraflokksmenn i afreksliðum Keflavíkur og landsliðsmenn í sínum greinum. Þegar ég fer yfir nöfnin í huganum er listinn orðinn lengri en svo að sanngjarnt væri að byrja á honum. Mér fannst það alltaf sérstök upplifun að keppa við Keflvík á þeirra heimavelli, alltaf sérstök stemmning, eitthvað sem jafnvel er erfitt að lýsa

en gaf þetta aukapúst sem íþróttamaðurinn leitar gjarnan eftir. Einhvers konar blanda af tilhlökkun og spennu, sem er í senn notaleg og óþægileg, þrúgandi og gefandi. Keflavík átti líka sitt gullaldarlið eins og KR og Skaginn. Gullaldarliðum fylgir einhver dulúð og það er eins og einhver ljómi þessa tíma skilji eftir sig óuppfyllta þörf sem fylgir komandi kynslóðum, spor sem komandi kynslóðir vilja feta, eða bara hefð sem við erum stolt af? Þessar hugrenningar mínar skrifa ég nú sem þjálfari Keflavíkur og þegar kallið kom frá Keflavík var enginn vafi í mínum huga. Vegferðin okkar er hafin og ég hlakka til samstarfsins við alla þá sem koma að málum knattspyrnunnar í Keflavík. Willum þór Þórsson

Jólablað 2009

21


Metþátttaka Keflvíkinga á 12. Unglingalandsmóti UMFÍ

U

nglingalandsmót UMFÍ, hið 12. í röðinni, var haldið á Sauðárkróki um s.l. verslunarmannahelgi en þessi mót eru frábær blanda af fjölskylduhátíð og fjölbreyttri íþróttakeppni þar sem þátttakendur á aldrinum 11-18 ára eru í fyrirrúmi. Samhliða er boðið upp á margvíslega afþreyingu, leiki og skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Þátttaka Keflvíkinga sló nýtt met að þessu sinni en alls voru ríflega 80 keppendur skráðir til leiks að þessu sinni sem var u.þ.b. 60% aukning á milli ára. Flestir voru skráðir til leiks í körfubolta en einnig voru margir sem kepptu í fótbolta og sundi auk þess sem nokkrir iðkendur spreyttu sig í bæði skák og frjálsum íþróttum. Algjört met var slegið í körfuknattleikskeppni mótsins að þessu sinni því alls voru leiknir 186 leikir á mótinu í ár en 2008 voru þeir 84. Keflavík sendi 6 kvennalið og 4 karlalið til leiks í öllum aldurflokkum og varð uppskeran 3 gull og 4 silfur. Árangur körfuknattleiksliðanna varð annars eftirfarandi;

Stelpur:

Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla, árs og friðar! Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða 11-12 ára stelpurnar sigruðu í sínum aldursflokki.

11-12 ára – 1. sæti 13-14 ára – 2. sæti (voru með tvö lið og kepptu í fótbolta líka og urðu í 6. sæti þar) 15-16 ára – 1. og 2. sæti (voru með tvö lið) 17-18 ára – 1. sæti (allar 15-16 ára þessar stelpur)

Vátryggingafélag Íslands hf. | Hafnargötu 57 | 230 Reykjanesbæ | Sími 560 5390 | vis.is

S ÍA •

PIP PA R \ T BWA

11-12 ára – 2. sæti 13-14 ára – 2. sæti (töpuðu samt ekki leik, en leikið var í tveimur riðlum, án úrslitaleiks) 15-16 ára – Náðu ekki í medalíu 17-18 ára – Sama lið og spilaði í 15-16 ára en náðu ekki í medalíu. Í knattspyrnukeppni mótsins voru þrjú lið frá Keflavík skráð til leiks auk þess sem nokkrir kepptu í blönduðum liðum. 11-12 ára strákarnir urðu í 8. sæti og körfuboltastelpurnar 13-14 ára náðu 6. sæti sem fyrr segir. Keflavík hafði einnig skráð lið í flokki 1518 ára stúlkna en vegna forfalla í þeirra liði á síðustu stundu fengu þær liðsstyrk frá tveimur öðrum liðum. Það kom þó ekki að sök og sigruðu þær mótið með glæsibrag.

9 0 920 000 0

Strákar:

13-14 ára strákarnir urðu að láta sér lynda silfur þrátt fyrir að tapa ekki leik. Með þeim er Pétur Guðmundsson þjálfari. Fjölmargir sundmenn komust á verðlaunapall og verður þar fyrst að geta Baldvins Sigmarssonar, 12 ára kappa, sem keppti í sex greinum og vann gull í þeim

15-16 ára stelpurnar unnu gull og silfur í sínum flokki og gull í flokki 17-18 ára.

22

Jólablað 2009

öllum. Hann tók þátt í sínu fyrsta unglingalandsmóti 2008 og keppti þá í fjórum greinum og hirti þá einnig gullið í þeim öllum. Sannarlega kraftmikill piltur þar á ferðinni. M.a. sundmanna sem unnu gull og fleiri málma voru Björgvin Theodór Hilmarsson, Íris Ósk Hilmarsdóttir, Hermann Bjarki Níelsson og Vilberg Andri Magnússon. Þrátt fyrir kaflaskipt veður þessa helgi má segja að veðurguðirnir hafi verið okkur nokkuð góðir þegar helst þurfti á að halda og skemmtu bæði iðkendur og foreldrar sér vel. Næsta Unglingalandsmót UMFÍ fer fram á Grundarfirði um næstu verslunarmannahelgi og eru bæði iðkendur og foreldrar hvattir til að fjölmenna á mótið. Það er klárt mál að þetta er ódýrasta skipulagða fjölskylduskemmtunin sem í boði er þessa helgi. Keflavík býður öllum keppendum á vegum félagsins greiðslu þátttökugjalda á mótinu, en þau eru 6.000 kr. fyrir hvern keppanda. Eitt gjald er borgað fyrir hvern keppanda sem gildir sem þátttökugjald í allar greinar. Frítt er í sund og á tjaldsvæðin og tekið skal fram að foreldrar borga ekkert mótsgjald. Unglingalandsmótin eru vímuefnalaus hátíð og þeir sem velja þessi mót eru meðvitaðir um þær reglur sem gilda og virða þær. Sjáumst að ári. Jón Ben Einarsson

oryggi.is

Hollráð gegn innbrotum Hurðir og gluggar Hafið hurðir ætíð læstar og glugga lokaða og krækta aftur. Fleiri hollráð gegn innbrotum er að finna á oryggi.is

Hringdu í

570 2400

og fáðu ókeypis öryggisráðgjöf heim! m!

Jólablað 2009

23


F í t o n / S Í A

Fólkið í landinu hefur alltaf verið okkar fjárfesting Starfsfólk Sparisjóðsins óskar viðskiptavinum sínum ásamt landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. Í stað þess að senda viðskiptavinum okkar jólakort í ár látum við andvirði þeirra renna í Velferðasjóð Suðurnesja. Við ætlum að halda áfram að veita þeim okkar bestu mögulegu þjónustu á nýju ári. Það er engin tilviljun að ánægðustu viðskiptavinirnir eru hjá Sparisjóðnum.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Jólablað 2009 by Keflavik - Issuu