Skip to main content

Jólablað 2007

Page 1

J贸lin 2007 36. 谩rgangur

Lj贸smynd: Oddgeir Karlsson


Fréttir frá aðalstjórn Íþrótta- og leikjaskóli Keflavíkur Keflavík gerði samning við íþrótta- og tómstundaráð Reykjanesbæjar um rekstur á íþrótta- og leikjaskóla fyrir börn á aldrinum 6 – 11 ára sem starfræktur var þrettánda árið í röð. Umsjónarmaður skólans var Einar Haraldsson. 17. júní M e n n i n g a r r á ð Reykjanesbæjar gerði samning við íþróttafélögin Keflavík og Njarðvík um framkvæmd 17. júní hátíðarhalda í Reykjanesbæ. Framkvæmd hátíðarhaldanna tókst vel og að þessu sinni fór dagskráin fram í Skrúðgarðinum að deginum til og á Tjarnartorgi um kvöldið. Engin dagskrá var í Stapa. Framkvæmdastjóri 17. júní nefndar Keflavíkur og Njarðvíkur var Einar Haraldsson. 25. Landsmót UMFÍ Kópavogi Landsmót UMFÍ er klárlega stærsti viðburður hreyfingarinnar hverju sinni. Mótið var haldið í Kópavogi 5. – 8. júlí 2007 við frábærar aðstæður á 100 ára afmæli UMFÍ. Fjögur lið voru skráð til keppni í knattspyrnu og körfu karla og kvennaflokki. Karfan varð í öðru sæti bæði í karla og kvenna en urðu landsmótsmeistarar í körfu með 180 stig. 13 sundmenn voru skráðir til keppni og gerðu sér lítið fyrir og unnu allt sem í boði var. 10. Unglingalandsmót á Hornafirði Unglingalandsmót UMFÍ var haldið á Hornafirði dagana 3.- 5. ágúst 2007. Mótið heppnaðist vel í alla staði. Félagið átti að þessu sinni 23 keppendur á unglingalandsmótinu og stóðu þeir sig vel. 11. Unglingalandsmót Þorlákshöfn 2008 11. Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið í Þorlákshöfn um verslunarmannahelgina 2008. Mikill hugur er hjá mótshöldurum og margar hugmyndir í gangi. Unglingalandsmótin, sem eru ein af skrautfjöðrum ungmennafélagshreyfingar innar, eru

2

haldin árlega og ætíð um ve r s l u n a r m a n n a h e l g i n a . Unglingalandsmótin eru fyrst og síðast íþrótta- og fjölskylduhátíð þar sem unglingarnir eru í fyrirrúmi en þátttakendur eru á aldrinum 11 – 18 ára. Ýmis konar verkefni eru einnig í boði fyrir yngri sem eldri þannig að engum á að leiðast á unglingalandsmóti. Fyrir þá sem velja unglingalandsmótið er það tryggt að þeir koma í vímuefnalaust umhverfi. Aðalstjórn félagsins vill hvetja deildir til að senda okkar fólk á mótið. Undanfarin ár hefur aðalstjórn greitt þátttökugjöldin fyrir okkar iðkendur. Nýtt félagsheimili Keflavíkur Aðalstjórn hefur verið að vinna að því að nýtt félagsheimili verði byggt ofan á búningsklefa íþróttahússins á Sunnbrautinni. Undirbúningsvinna er nú í fullum gangi. Stefnt er því að nýtt og glæsilegt félagsheimili verið tilbúið vorið 2009. Hvatningarverlaun og starfsmerki UMFÍ Keflavík hlaut hvatningarverlaun UMFÍ 2007, en þau eru veitt fyrir öflugt og metnaðarfullt íþrótta- og ungmennastarf á breiðum grunni. Það var Björn B. Jónsson formaður UMFÍ sem afhenti félaginu hvatningarverlaunin og heiðraði þau Birgir Má Bragason og Sesselju Birgisdóttur með starfsmerki UMFÍ. Viðurkenningar veittar á aðalfundi félagsins Veittar voru viðurkenningar (starfsmerki) fyrir stjórnarsetu og voru sjö bronsmerki veitt þeim Elínu Kjartansdóttur, Klemenzi Sæmundssyni, Sigr íði Björ nsdóttur sunddeild, Ólafi Birgi Bjarnasyni, Halldóri Leví Björ nssyni, Hjörleifi Stefánssyni, knattspyrnudeild og Þorsteini Marteinssyni skotdeild. Tvö silfurmerki voru veitt þeim, Þorgrími St. Árnasyni körfuknattleiksdeild og Guðjóni Axelssyni aðalstjórn. Starfsbikar félagsins var veittur þeim hjónum Lindu Gunnarsdóttur og Jóni

Aðalstjórn Keflavíkur 2007 - 2008 Efri röð frá vinstri: Guðjón Axelsson, Þórður M. Kjartansson, Sigurvin Guðf innsson, Birgir Ingibergsson og Sveinn Adolfsson. Neðri röð frá vinstri: Kári Gunnlaugsson, Bjarney S. Snævarsdóttir og Einar Haraldsson.

Kr. Magnússyni. Geirmundur Kristinsson sparisjóðsstjóri í Sparisjóði Keflavíkur var heiðraður með gullmerki félagsins en þetta er í fyrsta skiptið sem gullmerki er veitt. Aðalstjórn óskar þeim sem hlutu viðurkenningar til hamingju með þær. Betra félag / Betri deild Keflavík íþróttaog ungmennafélag varð fyrst allra fjölgreinafélaga til að hljóta viðurkenningu ÍSÍ sem fyrirmyndarfélag. Allar deildir félagsins, sem þess eiga kost, hafa hlotið gæðaviðurkenningu ÍSÍ. Þessi viðurkenning er mikils virði fyrir hverja deild og félagið í heild sinni sem segir að íþróttastarfið innan Keflavíkur sé rekið eftir ákveðnum gæðakröfum. Íþróttamaður Keflavíkur 2007 Í hófi þann 27. desember 2007 í félagsheimili félagsins kl. 20:00 verða íþróttamenn félagsins heiðraðir og einn þeirra hlýtur sæmdarheitið íþróttamaður Keflavíkur 2007. Allir velunnarar félagsins eru velkomnir. Guðjón Árni Antoníusson er Íþróttamaður Keflavíkur 2006. Hver verður það í ár ? Heimasíða Keflavíkur Keflavík íþróttaog ungmennafélag heldur úti heimasíðu í samstarfi við Dacoda og hefur hún verið í stöðugri uppfærslu. Sett hefur verið inn dagatal á síðuna og

þar getur fólk fylgst með því sem er að gerast í félaginu hverju sinni. Inni á síðunni er að finna allar deildir félagsins og birtast fréttir frá deildum á forsíðunni. Undir aðalstjórn er hægt að fylgjast með starfi aðalstjórnar. Fundargerðir eru settar þar inn ásamt öðrum upplýsingum. Slóðin er www.keflavik.is netfangið er keflavik@keflavik.is 45. Sambandsþing UMFÍ á Þingvöllum Félagið er aðili að UMFÍ og því sækja fulltrúar félagsins sambandsþing og

sambandsráðsfundi UMFÍ reglulega. Sambandsþing UMFÍ var haldið á Þingvöllum 20. og 21. nóvember. Aðalstjórn Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags sendir öllum bæjarbúum, félagsmönnum og öðrum velunnurum félagsins óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári um leið og við þökkum öllum sem lagt hafa félaginu lið á liðnum árum. Einar Haraldsson formaður Keflavíkur

xäääÊÛ }>À

✔ ,' mATSJØNVARP FRÈ 2ÚNNING ✔ &ARTÚLVA FRÈ 4ÚLVULISTANUM ✔ .INTENDO 7II LEIKJATÚLVA FRÈ /RMSSON ✔ %VRØPUFER¦IR ME¦ )CELANDAIR ✔ RIGGJA BRENNARA GRILL FRÈ +ASKØ OG MARGIR mEIRI GL SILEGIR VINNINGAR


Hafnargötu 62 • 230 Keflavík • Sími 421 4777 Netfang: langbest@simnet.is • www.gi.is/langbest urval-imynd-jol.pdf

29/11/06

9:04:19

C

M

Y

CM

MY

CY

CMY

K

3


Íþrótta- og leikjaskóli Keflavíkur Aðalstjórn Keflavíkur gerði samning við ÍT um rekstur á íþrótta- og leikjaskóla í Reykjanesbæ sumarið 2007. Umsjón skólans var áfram í höndum Einars Haraldssonar, en hann hefur haft umsjón með honum síðastliðin ár. Rakel Guðnadóttir og Guðjón Árni Antoníusson voru ráðin leiðbeinendur skólans og sáu þau um skipulagningu hans. Þetta var þrettánda árið í röð sem aðalstjórn Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags, heldur utan um skólann, sem er ætlaður fyrir börn á aldrinum 6-11 ára. Það er því komin góð reynsla á skólann og var dagskráin byggð á henni. Markmið 1. Kynna þátttakendum sem flestar íþróttagreinar. 2. Efla félagsþroska og samskiptahæfni. 3. Auka hreyfifærni og bætt líkamsþrek. 4. Þátttakendur kynnist náttúru sveitarfélagsins og nágrannasveitarfélaga betur og upplifi umhverfi sitt á nýjan hátt. 5. Kynna börnum atvinnuhætti og ýmis fyrirtæki og stofnanir. 6. Stuðla að aukinni útiveru barna og hvetja þau til að nýta umhverfið til margbreytilegra leikja. Tími og tímabil Starfrækt voru tvö þriggja vikna námskeið í sumar. Það fyrra frá 11. júní til 29. júní og það seinna frá 2. júlí til 20. júlí. Boðið var upp á að vera annað hvort fyrir eða eftir hádegi, annars vegar frá

4

kl. 9-12 og hins vegar frá kl. 13-16. Þátttaka – fjöldi Þátttaka í skólanum í ár var minni en árið á undan. Alls voru 84 börn á fyrra námskeiðinu, þ.e. 17 börn fyrir hádegi og 67 börn eftir hádegi (árið áður voru 113 börn, 30 fyrir hádegi og 83 eftir hádegi). Á því seinna voru alls 44 börn, þ.e. 9 börn fyrir hádegi og 35 börn eftir hádegi (árið áður voru 47 börn, 15 fyrir hádegi og 32 eftir hádegi). Dagskráin Bæklingi með dagskrá námskeiðsins og hagnýtum upplýsingum fyrir foreldra var dreift við innritun. Ákveðið var að hafa seinna námskeiðið með svipuðu sniði og það fyrra. Annars er alltaf erfitt að fella út atriði sem takast vel. Bækistöðvar Bækistöðvar íþróttaog leikjaskólans voru í Íþróttahúsinu við Sunnubraut að þessu sinni. Börnin mættu þar við upphaf hvers dags og þar endaði alltaf dagurinn. Skrifstofa Keflavíkur íþróttaog ungmennafélagsins að Hringbraut 108 var einnig notuð undir fundi og aðra skipulagsstarfsemi. Starfsfólk og forstöðumenn Íþróttahússins og Sundmiðstöðvar við Sunnubraut eiga mikið lof skilið fyrir liðlegheit, enda var þetta fólk ávallt tilbúið að aðstoða á allan hátt. Mælingar á árangri barna Þegar börnin útskrifast úr

íþrótta- og leikjaskólanum fá þau í hendur viðurkenningarskjal sem sýnir árangur þeirra í einstökum greinum. Þeir sem hafa verið í íþrótta- og leikjaskólanum áður geta borið árangur sinn saman milli ára. Foreldrar/ forráðamenn hafa oft spurt okkur hvernig þeirra barn standi miðað við heildina þegar þau sjá skjalið sem sýnir árangur barna þeirra. Gjafir til þátttakenda Á fyrra námskeiðinu voru börnin leyst út með ýmsum gjöfum. Vífilfell gaf hverju barni merktan stuttermabol og vasaútvarp. Einnig fengu börnin handbókina Göngum um Ísland. Á seinna námskeiðinu voru gjafirnar af öðrum toga. Hver nemandi fékk að gjöf derhúfu frá Vífilfell, handbókina Göngum um Ísland og Keflavíkur

límmiða í bílinn. Þegar farið var í fjársjóðsleitina voru faldir skopparaboltar í Grænásbrekkunni við Bolafót, sem börnin þurftu að leita að. Hvert barn fékk að eiga einn bolta, sama hvort barnið fann bolta eða ekki. Sami fjársjóður var á báðum námskeiðunum.

hlaupi o.fl.. Lokadagurinn heppnaðist með ágætum en óhætt er að segja að skipst hafi á skin og skúrir. Á lokadegi fyrra námskeiðsins var rjómablíða en á lokadegi seinna námskeiðsins úrhellisrigning. En allt fór vel fram báða dagana.

Slys Smá óhapp var í sundlauginni þegar strákur hljóp á staur og farið var með hann á sjúkrahúsið með stóra kúlu til aðhlynningar.

Þátttaka vinnuskólans Sér til aðstoðar höfðu leiðbeinendurnir unglinga frá Vinnuskóla Reykjanesbæjar sem stóðu sig með ágætum. Það verður að segjast alveg eins og er að án aðstoðar vinnuskólans væri þyngra að reka íþrótta- og leikjaskólann, þar sem hver leiðbeinandi hefur allt að 40 börn á aldrinum 6-11 ára. Vinnuskóli Reykjanesbæjar var mjög liðlegur við útvegun á aðstoðarfólki og á hann bestu þakkir skilið. Starfsfólki Vinnuskólans sendir Keflavík

Útskrift - lokadagur Á lokadegi hvors námskeiðs var haldin glæsileg grillveisla þar sem foreldrum var einnig boðið. Börnin fengu hinar ýmsu gjafir ásamt viðurkenningarskjali með upplýsingum um árangur þeirra í nokkrum greinum s.s. boltakasti, sippi, langstökki,


bestu þakkir fyrir samstarfið og óskar því Gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Samstarfsaðilar Mikið af fólki, fyrirtækjum og stofnunum aðstoðaði Íþrótta- og leikjaskólann á einn eða annan hátt. Fólkið á þessum stöðum var í öllum tilfellum tilbúið að aðstoða okkur á alla mögulega vegu og kann Keflavík íþróttaog ungmennafélag þeim bestu þakkir fyrir. Helstu samstarfsaðilar sumarið 2007 voru: Sundmiðstöðin við Sunnubraut, Íþróttahúsið við Sunnubraut, Vinnuskóli

Reykjanesbæjar, Vífilfell, Fjörheimar, SBK og Reykjanesbær (ÍT) sem styrkti íþrótta- og leikjaskólann auk þess sem hann útvegaði skólanum aðstöðu. Nýja Bakarí hefur látið leikjaskólann hafa pylsubrauð á lokadaginn án gjalds. Myndir Að þessu sinni voru teknar hátt í 450 myndir af þátttakendum við hina ýmsu iðju. Þær voru settar inn á heimasíðu Keflavíkur þar sem hægt er að skoða þær. Slóðin á myndasafnið er: www. keflavik.is/myndir. Einnig er

hægt að sjá skýrslur skólans frá árinu 1999 á heimasíðu félagsins. Teljum við að þetta sé partur af því að gera starfið öflugra með bættu samstarfi forsvarsmanna íþrótta- og leikjaskólans við foreldra/ forráðamenn þátttakenda. Að lokum Undirritaður vill þakka öllum þeim sem komið hafa að starfsemi skólans með einum eða öðrum hætti fyrir gott samstarf. Einar Haraldsson formaður KEFLAVÍKUR

EINAR MAGNÚSSON ÞORVALDUR H. BRAGASON TANNLÆKNIR OG STARFSFÓLK Skólavegi 10, 230 Keflavík

5


Viðburðaríkt ár badmintondeildar

Sesselja Birgisdóttur og Ingunn Gunnlaugsdóttir

Það er ekki hægt að segja annað en að síðasta ár hafi verið viðburðaríkt hjá badmintondeildinni. Sá merki

atburður gerðist á síðasta aðalfundi að breytingar urðu á formennsku í deildinni og var það eitthvað sem engin átti von á, enda lítið verið um mannaskipti. Sesselja Birgisdóttir lét af störfum formanns eftir alllanga setu við

stýrið hjá deildinni og við tók Ingunn Gunnlaugsdóttir, sem er nú ekki ný í snúningum fyrir badmintondeildina. Sesselju voru þökkuð öll árin sem hún starfaði fyrir

6

deildina, með blómum og áletruðum vasa. Ingunn var svo boðin sérstaklega velkomin í stól formanns. Við þessar breytingar kom nýr stjórnarmaður inn en það er Guðmunda Róbertsdóttir og var henni fagnað líka. Annars er allt búið að vera samkvæmt áætlun hjá deildinni þetta starfsárið. Skúli Sigurðsson var þjálfari og fjöldi iðkenda á uppleið. Þó urðu þær breytingar að æfingar deildarinnar færðust af Sunnubraut í Heiðarskóla og Akurskóla, enda mikil fjölgun iðkenda þar með vaxandi byggð. Töluvert fjölgaði iðkendum í fullorðinshópnum

og er það bara gleðiefni, alltaf gott þegar fólk uppgötvar hreyfinguna í badminton og viljum við hvetja sem flesta að nýta sér það. Unglingastarfið gekk samkvæmt venju og var farið

víða til keppni. Svo var það hið glæsilega Sparisjóðsmót sem haldið var í nóvember með um 130 þátttakendum og er eitt hið stærsta sinnar

tegundar. Farið var af stað með sölu tannbursta og fylgihluta til fjáröflunar og gekk það framar vonum og eiga börnin og foreldrar þeirra þakkir skyldar fyrir sitt framlag. Hið árlega fjölskyldumót var á sínum stað og höfðu held ég foreldrar ekki síður ánægju af að sýna listir sínar en börnin, þetta er alltaf mikið fjör og mikill keppnisandi.

Flestir iðkendur í knattspyrnu Nýlega lauk Íþróttabandalag Reykjanesbæjar greiningu á iðkendafjölda 16 ára og yngri hjá íþróttafélögum í Reykjanesbæ á tímabilinu sept 2006 – sept 2007. Skoðaður var iðkendafjöldi hjá þeim félögum sem hlotið hafa viðurkenningu sem fyrirmyndarfélög frá ÍSÍ. Samkvæmt tölum frá íþróttafélögum og deildum, er Fimleikadeild Keflavíkur sú deild sem er með flesta iðkendur 16 ára og yngri. Knattspyrnan er hinsvegar sú grein sem flestir stunda í Reykjanesbæ.

Svo má geta þess að Jónasi Þorsteinssyni var veitt gullmerki fyrir störf sín í þágu badmintoníþróttarinnar. Það var gert í afmælishófi í tilefni 40 ára afmælis

Badmintonsambands Íslands sem haldið var í húsnæði BTR samhliða hinu veglega Iceland Express móti sem fram fór dagana 8. til 11. nóvember, með þátttöku fjölda erlendra gesta. Óskum við Jónasi til hamingju með þessa viðurkenningu. Núverandi stjórn eftir breytingar skipa: Ingunn Gunnlaugsdóttir formaður, Jónas Þor steinsson varaformaður, Dagbjört Ýr Gylfadóttir gjaldkeri, Lilja Karlsdóttir ritari og Guðmunda Róbertsdóttir meðstjórnandi. Að lokum sendum við öllum iðkendum íþrótta og aðstandendum þeirra okkar bestu jóla- og nýárskveðjur, með þeirri von að næsta ár verði gjöfult í garð íþrótta hér í Reykjanesbæ. F.h. Badmintondeildarinnar Dagbjört Ýr Gylfadóttir

Karfan og knattspyrnan eru þær greinar sem bera höfuð og herðar yfir aðrar greinar ef skoðaður er iðkendafjöldi unglinga (13-16 ára).

Keflavík er stærsta íþróttafélagið í Reykjanesbæ, með 1340 iðkendur 16 ára og yngri, eða um 73 % iðkenda. Þar á eftir kemur UMFN með um 20% iðkenda. Öllum þeim sem lagt hafa íþróttahreyfingunni lið í sjálfboðavinnu, með einum eða öðrum hætti vil ég þakka fyrir fórnfúst starf. Sömuleiðis vil ég hvetja bæjarbúa til þess að „klappa á bakið“ á því fólki sem heldur íþróttahreyfingunni gangandi dag frá degi. Stjórnarfólk virðist alltaf vera í því hlutverki að þakka öðrum, þrátt fyrir að þetta sé fólkið sem gefur mest af sér. Öflugum styrktaraðilum vil ég þakka fyrir þeirra stuðning, sem og öflugum þjálfurum sem við virðumst eiga mikið af.

Bestu jólakveðjur Jóhann B. Magnússon Formaður Íþróttabandalags Reykjanesbæjar


V a í t n n i a m v o e k r l öld! e V í Reykjanesbæ PI PAR •

SÍA •

60604

OPIÐ

6:45 - 21:00 virka daga 8:00 - 18:00 um helgar Það er frítt í sund fyrir börn í Reykjanesbæ!

Sími 421 1500 7


Gymneastrada 20 stúlkur úr Fimleikadeild Keflavíkur á Gymneastradasýningunni í Austurríki. Þann 6. júlí sl. fóru 20 stúlkur frá Fimleikadeild Keflavíkur til Austurríkis í 10 daga ferð ásamt tveimur þjálfurum þeim Hildi Maríu Magnúsdóttur og Heiðrúnu Rós Þórðardóttur og tveimur fararstjórum. Þar tóku þær þátt í hinni gríðarstóru fimleikasýningu Gymnaestrada, sem haldin er á 4ra ára fresti og koma þátttakendur alls staðar að úr heiminum. Þar sýndi fimleikafólk í fremstu röð svo og fimleikaáhugamenn og konur á öllum aldri. Stúlkurnar gistu í bænum Schwarzach en sýningarnar fóru fram í Dornbirn. Þeim gekk mjög vel að sýna enda færar fimleikastúlkur þar á ferð en undirbúningur fyrir ferðina var mikill. Fjáröflun hófst í september á síðasta ári og með sölu á ýmsum

vörum, fimleikamaraþoni, vel þegnum styrkjum og öðru náðu þær að safna fyrir allri ferðinni og gjaldeyri. Byrjað var að æfa fimleikaatriðin tvö, sem þær sýndu þrisvar sinnum í Austurríki, í maí og var æft alveg fram á síðasta dag. Verslanir nar heilluðu stelpurnar mjög og fengu þær leyfi til að þræða þær einn daginn. Auk þess fór hópurinn á tónleika með söngkonunni PINK og svo var þeim öllum boðið í mat í heimahúsi en sú heimsókn var þó ekki á ferðaáætluninni. Næturverðir vöktuðu skólann sem hópurinn gisti í og einn þeirra hjálpaði til við að fá miða á tónleikana. Hann var mjög hjálpsamur og indæll og tilkynnti þeim einn daginn að foreldrar hans vildu bjóða þeim öllum í mat. Einni notalegri kvöldstund eyddi því hópurinn með þessari elskulegu austurrísku fjölskyldu

Stúlkurnar og þjálfarar þeirra vilja koma á framfæri sérstökum þökkum til Fimleikadeildar Keflavíkur, Keflavíkur íþróttaog ungmennafélags, Sparisjóðsins í Keflavík, Samkaupa, Reykjanesbæjar, Hitaveitu Suðurnesja,VSFK, Nesprýðar, Atafls, Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvallar, F r í h a f n a r i n n a r, Ungmennafélags Njarðvíkur, Trésmiðju Stefáns og Ara, Ve r s l u n a r m a n n a f é l a g s Suðurnesja og annarra sem veittu þeim kærkomna fjárstyrki fyrir ferðina. Þjálfarar hópsins vilja einnig þakka foreldrum og aðstandendum stúlknanna fyrir góðan stuðning og þolinmæði og að sjálfsögðu stúlkunum fyrir ánægjulega ferð en þær voru sjálfum sér og félagi sínu til mikils sóma. Jólakveðja Hildur María og Heiðrún Rós

Krakkahópur íþróttaskóli fyrir 3 – 5 ára börn

Krakkahópur innan Fimleikadeildarinnar er eins konar íþróttaskóli sem hefur verið starfandi í fjölda ára. Börn sem eru 3 ára koma með foreldrum sínum í tímana, en eldri börnin koma ein. Tímarnir eru í 50 mínútur og er þetta alhliða hreyfing fyrir börnin. Tímarnir eru

mjög fjölbreyttir, farið er í leiki, þrautabrautir settar upp, liðleikaæfingar, æfingar með ýmis áhöld, unnið með fallhlíf og margt fleira. Í tímunum er einnig lögð áhersla á hvernig maður hagar sér í íþróttahúsi. Börnunum er kennt að hlýða fyrirmælum kennara, fara í röð, bíða í klefa og virða hin börnin í salnum. Tímarnir eru kenndir í íþróttahúsinu við Myllubakkaskóla. Salurinn þar hentar mjög vel fyrir kennslu barna á þessum aldri, rýmið er mjög gott og tækjakostur góður. Nýtt námskeið í Krakkahópnum hefst í byrjun janúar. Skráning á námskeiðið verður í K- húsinu við Hringbraut föstudaginn 4. janúar 2008 milli kl. 17:00 og 19:00. Einnig er hægt að hringja í síma 421 3044 á sama tíma.

Styðjum unglingastarf Knattspyrnudeilda Keflavíkur

8


Síðasta fimleikaár fór nokkuð hægt af stað. Erlendur þjálfari frá árinu áður hætti um áramótin og yfirþjálfari áhaldafimleika einnig.

Fimleikar

Yfirþjálfari trompfimleika tók að sér að vera yfirþjálfari og þjálfararnir okkar tóku að sér meiri þjálfun. Á síðasta fimleikaári breyttust þrepin í áhaldafimleikunum

Síðastliðið vor sáum við um Vortrompmótið á vegum FSÍ. Mótinu var skipt í fjóra hluta og fóru fyrstu þrír hlutarnir fram á laugardegi þar sem keppt var í barnaflokki, teamgym, fullorðinsflokki og táningaflokki en síðasti hlutinn fór fram á sunnudegi þar sem keppt var í unglingaflokki. Um 450 keppendur tóku þátt í mótinu á öllum aldri, bæði stúlkur og drengir. Keflavík var með lið í tveimur flokkum, í táninga og unglingaflokki og gekk þeim mjög vel. Táningaflokkurinn var í fyrsta sæti í trampólínæfingum og öðru sæti í dýnuæfingum. Unglingaflokkurinn fékk síðan gull fyrir trampólínæfingar og brons fyrir gólfæfingar. Mótið

og tók það tíma að koma þeim breytingum á. Stelpur frá okkur kepptu því lítið á FSÍ mótum en í staðin voru félaga- og vinamót vel sótt.

gekk mjög vel og var mikil og góð stemning í hópunum. I n n a n f é l a g s m ó t fimleikadeildarinnar var haldið í maí að þessu sinni.

Allir iðkendur deildarinnar á grunnskólaaldri tóku þátt. Á föstudagskvöldi var keppt í hópfimleikum og vann H3 í keppni yngri flokka með 17,6 stig samanlagt. Þjálfari stúlknanna var Ásdís Ólafsdóttir. H1 var hlutskarpastur í hópi eldri flokka með 20,9 stig samanlagt. Þjálfari þeirra var Hildur María Magnúsdóttir. H1 er því innanfélagsmeistari í hópfimleikum 2007. Á laugardegi var síðan keppt í áhaldafimleikum. Hjá yngstu iðkendunum var ekki keppt til verðlauna en allir iðkendur sýndu hvað þeir gátu og í lokin fengu allir verðlaunapening fyrir þátttökuna. Í 6. þrepi B-hópa var Margrét Guðrún Svavarsdóttir í 1. sæti með 57,7 stig samanlagt. Í 2. sæti var Guðrún Eir Jónsdóttir með 56,3 stig samanlag og í 3. sæti var Júlía Svava Tello með 56,05 stig samanlagt. Í 6. þrepi A-hópa var Agnes Sigurþórsdóttir í 1. sæti með 61,3 stig samanlagt, í 2. sæti var Harpa Hrund Einarsdóttir með 60,55 stig samanlagt og í 3. sæti var Berglind Björgvinsdóttir með 60,3 stig samanlagt. Í 5. þrepi fimleikastigans var Ingibjörg Þóra Þórarinsdóttir í 1. sæti með 55,7 stig samanlagt, í 2. sæti var Helena Rós Gunnarsdóttir með 55,6 stig samanlagt og í 3. sæti Eydís Ingadóttir með 54,8 stig samanlagt. Í A1 sem eru 4. 3. og 2. þrep var Selma Kristín Ólafsdóttir í 1. sæti samanlagt með 57,9 stig, Þorgerður Magnúsdóttir var í 2. sæti

með 57,2 stig samanlagt og í 3. sæti var Rakel Halldórsdóttir

með 53,5 stig samanlagt. Selma Kristín Ólafsdóttir er því innanfélagsmeistari í áhaldafimleikum 2007. Í ágúst voru ráðnir 2 nýir þjálfarar í fullt starf hjá deildinni, þau hjónin Cezar og Flórentína. Þau hafa þjálfað hér á landi í 4 ár. Haustönnin hefur farið vel af stað og búa stelpurnar að undirbúningnum sem átti sér stað síðasta vetur. Einnig var ráðinn nýr yfirþjálfari yfir áhaldafimleikunum en það

er Elín Íslaug Kristjánsdóttir. Hildur María Magnúsdóttir er áfram yfirþjálfari yfir trompfimleikunum. Deildin hélt hið árlega Möggumót í október. Þar var keppt í 6. þrepi íslenska fimleikastigans. Um 100 stúlkur tóku þátt í því móti. Fimleikastelpur úr Ármanni og Björkunum tóku þátt í þessu móti og heppnaðist það vel. Allir fengu svitaband og verðlaunapening í lokin. Það sem er svo næst á dagskrá er okkar árlega jólasýning. Hún verður haldin laugardaginn 8. desember og hlökkum við mikið til.

Að lokum viljum við óska iðkendum, þjálfurum og öðrum bæjarbúum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Eva Björk Sveinsdóttir Halldóra B. Guðmundsdóttir Helga Hildur Snorradóttir Herdís Halldórsdóttir Hildur Guðjónsdóttir Íris Dröfn Halldórsdóttir Jónína Steinunn Helgadóttir Sveinbjörg Sigurðardóttir Elín Íslaug Kristjánsdóttir Hildur María Magnúsdóttir

9


Umsvifamikið ár hjá skotdeild Keflavíkur

Árið 2007 var umsvifamikið ár hjá skotdeild Keflavíkur og mikið var lagt upp úr lagfæringum og endurnýjun á búnaði sem og aðstöðu. Það helsta sem var gert á árinu sem er að líða, var að riffilhúsið var mikið endurbætt, meðal annars er verið að setja upp nýja og upphitaða setu- og kaffi aðstöðu. „Trappvöllurinn“ var tekinn í notkun þó aðeins með þremur vélum en búið er að kaupa „Sportingvél“ sem verður staðsett við „trappvöllinn“. Riffilbrautir og bakstopp voru m.a. löguð. Byrjað er að græða svæðið upp og gera það snyrtilegra og gengur það samkvæmt áætlun. Þá er búið að klæða og einangra markið og turninn “leirdúfukastarana” og setja í þá hita þannig að betur fer um búnaðinn og þar af leiðandi er minna um viðhaldskostnað. Skipulagðar æfingar í haglaskotfimi hófust í maí og voru æfingar tvisvar í viku og var stöðug aukning í allt sumar og oftast voru tveir æfingastjórar, einn á „skeetvellinum“ og annar á „trappvellinum“. Æfingar í riffilskotfimi voru

með hefðbundnu sniði, þ.e. menn æfðu sig þegar þeir vildu án afskipta enda flestir félagsmanna með lykil af svæðinu. Skipulagðar æfingar með skammbyssu voru haldnar einu sinni í viku í skotaðstöðu lögreglunnar, en skipaður æfingastjóri er frá lögreglunni Það hefur orðið mikil aukning í þessari grein skot íþróttarinnar. Haldin eru reglulega innanlandsmót í þessum greinum, sem skiptast í frjálsa skotfimi og staðlaða skotfimi. Að vanda var nokkuð um það að utanfélagsmenn komu á svæðið til að æfa enda er stutt í svæðið frá höfuðborgarsvæðinu og ekki mikið um góð æfingasvæði þar um kring. Æfingasvæði og aðstaða deildarinnar er í heiðinni rétt hjá Höfnum u.þ.b. 8 km frá Keflavík. Félagsmenn skotdeildarinnar eru núna um 180 talsins. Félagsgjaldið er aðeins 7000 krónur á ári. Lykill að svæðinu kostar 1000 krónur fyrir félagsmenn.

Frábært sundár Aldur sflokkameistaramót Íslands í sundi var haldið í Reykjanesbæ í fyrra. Eftir þriðja dag mótsins sat ég í heita pottinum í Vatnaveröld og spjallaði við fyrrverandi formann sundfélags á höfuðborgarsvæðinu. Hann hafði orð á því hversu flottum hóp við höfðum á að skipa og þá átti hann ekki einvörðungu við sundmennina, sem greinilega ætluðu sér sigur og þjálfarana sem voru með allt á hreinu, heldur átti hann einnig við breiðan, kröftugan og hressan hóp foreldra sem studdu við bakið á sundmönnum og þjálfurunum og keyrðu mótið áfram af miklum myndarbrag. Mér hefur orðið tíðrætt um þessi ummæli og fleiri af sama tagi, þau eru vísbending um þann anda og þá stemmningu sem einkennir sundstarfið. Með öðrum orðum þá er þetta vísbending um þau gildi sem við höfum tileinkað okkur, metnað, léttleika og samvinnu. Þetta eru ekki bara falleg orð á prenti, heldur eru þessi gildi okkur sannarlega leiðarljós í nútíð og framtíð með stefnu á fleiri og stærri afrek sundlega og félagslega. Svo við víkjum talinu að árinu sem er senn að líða, þá er óhætt að segja að árið 2007 hafi verið einkar farsælt hjá sundmönnum í Reykjanesbæ. Á Íslandsmótinu í 50 metra laug í mars, þá vann okkar fólk til 14 Íslandsmeistaratitla, 10 silfurverðlauna og 11 bronsverðlauna. Á mótinu setti Soffía Klemenzdóttir 3 telpnamet, í 50, 100 og 200 m flugsundi og auk þess átti liðið flesta einstaklinga sem

F.h. Skotdeildar Keflavíkur Ásgeir Svan

Boðssundssveit ÍRB skipuðu þær þær Soffía Klemenzdóttir og Erla Dögg Haraldsdóttir (frá vinstri til hægri í eftir röð) og Marín Hrund Jónsdóttir og Helena Ósk Ívarsdóttir (niðri).

10

náðu inn í unglingalandslið SSÍ, eða 6 alls. Í maí var hið árlega Sparisjóðsmót ÍRB síðan haldið með meiri stæl en nokkru sinni fyrr, þökk sé glæsilegri aðstöðu í Vatnaveröld og frábæru starfi foreldra. Til mótsins mættu 416 sundmenn frá 10 félögum víðsvegar um landið. Sparisjóðurinn gaf veglega farandbikara sem veittir voru þeim sundmönnum sem náðu bestum árangri í sínum aldursflokkum. Bikararnir fóru ekki langt, þar sem okkar sundmenn hrepptu þá alla, Hermann Bjarki Níelsson fyrir 200m skriðsund, Soffía Klemensdóttir fyrir 200m fjórsund, Birkir Már fyrir 200m skriðsund og Erla Dögg fyrir 200m bringusund. Sunddeildin bætti síðan enn einni skrautfjöður í hattinn þegar Bikarkeppni Sundsambands Íslands var haldin í Vatnaveröld í júní, en það er í fyrsta skiptið sem bikarkeppnin er haldin af öðrum aðila en SSÍ. Mótshaldið gekk það vel að ákveðið hefur verið að bikarkeppnin verður haldin aftur að ári í Vatnaveröld. Á mótinu lenti ÍRB í öðru sæti á eftir Ægi, sem er út af fyrir sig ágætis árangur en við viljum meira. Steindór Gunnarsson, yfirþjálfari, lét hafa eftir sér, eftir mótið, að á næstu bikarkeppni ætlum við okkur sigur og ekkert annað. Næsta stóra mót var Aldur sflokkameistaramót Íslands í sundi,AMÍ,sem haldið var á Akureyri í lok júní. Þar sigraði lið Íþróttabandalags Reykjanesbæjar fjórða árið í röð, með 1451 stigi, rúmum 400 stigum á undan næsta liði. Hreint út sagt glæsilegur árangur! Bestum árangri einstaklinga náðu þau Soffía Klemenzdóttir, Hermann Bjarki Níelsson og Kristófer Sigurðsson. Telpurnar settu síðan aldursflokkamet í 4 x 100m boðsundi, en sveitina skipuðu Svandís Þóra Sæmundsdóttir, María Halldórsdóttir, Lilja María Stefánsdóttir og Soffía Klemenzdóttir.

Sundmenn ÍRB kórónuðu síðan glæsilega frammistöðu á árinu með því að sópa til sín verðlaunum á Íslandsmeistaramótinu í 25 metra laug, sem haldið var í Laugardalslaug í nóvember. Lið ÍRB vann þar 20 Íslandsmeistaratitla af 40, sem eru fáheyrðir yfirburðir, auk þess sem Soffía setti fjögur aldursflokkamet og Erla Dögg 4 Íslandsmet. Flesta Íslandsmeistaratitla unnu þau Birkir Már, Erla Dögg og Árni Már. Á lokahófi, eftir mótið, var Steindór Gunnarsson síðan valinn þjálfari ársins. Steindór er einkar vel að titlinum kominn, en hann ásamt Eðvarði Þór Eðvarðssyni hefur byggt upp feikna sterkt lið sem sýnt hefur frábæran árangur undanfarið og hefur svo sannarlega alla burði til að halda áfram á sigurbraut. Eins og allir vita sem þekkja til íþrótta, þá er góður þjálfari gulls ígildi. Þeir Steindór og Eðvarð eru svo sannarlega gullmolar sem hafa unnið að uppgangi sundíþróttarinnar hér í bæ af krafti og hugsjón í mörg ár. Aðspurður um hverju Steindór þakkaði þennan frábæra árangur, þá svaraði hann því til að þetta væri sigur sterkrar liðsheildar sem er skipuð sundmönnum, þjálfurum, foreldrum, stjórn, bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ og fyrirtækjum sem styrkja og styðja starf félagsins. Það er við hæfi að enda þennan pistil á því að hrósa sundfólkinu okkar enn frekar. Íþróttir snúast ekki bara um að vinna titla, heldur ekki síður um að byggja upp kröftuga einstaklinga, líkamlega, andlega og félagslega. Það er gaman að geta þess að sundmenn ÍRB eru rómaðir fyrir góða og skemmtilega framkomu og eru sjálfum sér, foreldrum sínum, félagi og bæ jafnan til mikils sóma hvar sem þau koma. Guðmundur Jón Bjarnason, formaður Sunddeildar Keflavíkur


210x155

Blue Lagoon gjafakort

Bláa lónið

Húðvörur

Spa meðferðir

Veitingar

Gisting

Upplýsingar í síma 420 8832 eða á bluelagoon@bluelagoon.is. 11


Sundnámskeið frá 3 mánaða og uppúr

Sunddeild Keflavíkur býður nú með stolti upp á sundþjálfun frá 3 mánaða aldri. Í vetur býður sunddeildin í fyrsta sinn upp á sundþjálfun fyrir 3 mánaða – 2 ára börn. Áður var boðið upp á þjálfun fyrir börn frá 2 ára aldri og uppúr. Eins og allir vita þá er sund frábær þjálfun fyrir unga sem aldna og ættu allir að hafa tækifæri til að stunda sund reglulega hvort sem það er á vegum sundfélaga eða á sínum eigin vegum í frístundum. Sundið eru líka góð samverustund fyrir foreldra og börn og á námskeiðum er auðvelt að kynnast öðrum börnum og foreldrum. Ungbarnasundnámskeiðin eru haldin í sundlaug Heiðarskóla og sér, undirrituð um þau námskeið. Sundlaugin er sérstaklega hituð upp fyrir ungabörnin en vatnið hjá þeim þarf að vera heitara en vanalega til að halda eðlilegum líkamshita á börnunum. Aðstaða í sundlauginni er mjög góð í alla staði, hlý og björt, góðir klefar og góð skiptiaðstaða fyrir þau litlu. Kennt er á laugardögum og er hvert námskeið í 10 vikur. Fyrstu námskeiðin byrjuðu í september og var mjög góð skráning þannig að hægt var að halda þrjú námskeið, 2 byrjenda- og 1 framhaldsnámskeið. Rúmlega helmingur þeirra sem voru á þeim námskeiðum skráðu sig á framhaldsnámskeið núna í nóvember og var fjöldinn það mikill að nú eru alls fjögur námskeið í gangi. Næstu námskeið hefjast svo í febrúar. Fyrir þá sem ekki hafa heyrt

12

mikið um ungbarnasund þá snýst það aðallega um hreyfingu og aðlögun í vatni fyrir börn á aldrinum 3 mánaða til 2 ára. Hreyfing er margfalt auðveldari í vatni en á landi og aukin hreyfing flýtir fyrir hreyfiþroska. Fyrstu mánuðir af æviskeiði barna eru mikilvægastir hvað þroskaferil varðar. Því fyrr sem börn læra sund því öruggari verða þau með sig í vatninu. Öll börn eru hrifin af vatni þegar þau fæðast, börn geta þó orðið smeyk ef eitthvað hefur komið upp á hvort sem er heima í baði eða í sundi. Þess vegna er mikilvægt að fara varlega í byrjun og fara rólega af stað. Öruggast er að sækja sundnámskeið til að koma í veg fyrir / yfirbuga vatnshræðslu. Þau börn sem hafa fengið sundþjálfun fyrir 1 árs aldur eru yfirleitt mun öruggari í vatni en þau sem ekki hafa hafið sundþjálfun fyrir þann aldur. Stór hluti af sundkennslunni hjá okkur fer í æfingar sem stuðla að því að barninu líði vel í vatninu og aðlagist á ánægjulegan hátt. Farið er rólega af stað í byrjun og ýmislegt gert til að láta barninu líða vel eins og að syngja saman vísur og gera hreyfisöngva. Þó svo stór hluti sundþjálfunarinnar sé að kenna börnunum að halda niðri í sér andanum í kafi þá er köfunin ekki endilega aðalmálið, það er ekki síður mikilvægt að barnið aðlagist vatninu, fái góða líkamlega þjálfun, njóti tímans og hafi gaman að. Af hverju er auðveldara að kenna ungabörnum að kafa heldur en þeim eldri?

Ástæðan er sú að ungabörn fæðast með svokallað „köfunarviðbragð” sem er þeim ósjálfrátt fyrstu mánuði æviskeiðsins. Þetta viðbragð sem er varnarviðbragð lýsir sér m.a. í því að þegar vatn kemur í snertingu við andlit og/öndunarfæri barns þá lokast þau. Við endurteknar köfunaræfingar verður þetta viðbragð ósjálfrátt og þau læra að halda í sér andanum þegar þau vita að köfun er að hefjast. Þess vegna er oftast auðveldara að kenna ungabörnum að kafa heldur en þeim eldri þar sem þau eldri hafa flest misst þetta ósjálfráða viðbragð og því fer meiri tími í þjálfun á þessum viðbrögðum.

upp fyrir höku barnsins. • Áður en byrjað er að þjálfa barnið í köfun er mikilvægt að barninu sé farið að líða vel í vatninu. Barnið þarf að vera orðið rólegt og vant því að vera í sundlauginni með þér. Það þarf að vera búið að fá rétt “köfunarviðbrögð” með því að æfa viðbragðið t.d. með því að láta vatn leka yfir hvirfil barnsins. Gott er að undirbúa barnið með því að telja 1-2-3 og blása framan í það áður en það fær vatnið yfir sig. Ef barnið lokar ekki fyrir öndunarveg þá skal ekki fara með barnið í kaf. • Fara skal reglulega með barnið í sund, ef barnið eru mjög ungt, skuluð þið finna innisundlaugar sem eru sérstaklega hitaðar upp fyrir yngstu börnin. • Byrjið á að fara með þau á þeim tíma sem ekki er háannatími í sundlaugunum. Til fróðleiks þá setti ég niður helstu markmið í hverju námskeiði. Í öllum námskeiðunum notum við einnig mikið af söngvum, hreyfisöngvum og leikjum til að gera sundið skemmtilegra.

Ekki er endilega nauðsynlegt að fara á sérstök námskeið til að þjálfa barnið í sund þó það sé vissulega mun skilvirkara og öruggara. Til að viðhalda sundgetu barnsins þarf að fara reglulega í sund, 1x í viku eða oftar. Ef foreldrar ákveða að fara sjálfir með ungabörn í sund þarf t.d. að hafa eftirfarandi atriði í huga. • Nota stundirnar í baðinu til að sýna þeim hvað það er gaman í vatninu, hreyfa börnin rólega til í vatninu, búa til öldur, syngja, búa til buslugang, gera loftbólur, ausa smá vatni með lófanum/ kreista úr svampi yfir höfuð/ hvirfil barnsins o.s.frv.. • Passið að barnið sé útsofið og vel mett fyrir sundið. Hrósið barninu stöðugt og sýnið aldrei neikvæð viðbrögð ef barnið verður óöruggt. • Þegar farið er með ung börn í fyrsta sinn í sund, reynið þá að halda augnsambandi við barnið allan tímann. Haldið barninu í þægilegri stöðu, þannig að vatnið fari ekki

3-6 mánaða á byrjendanámskeiðum • Mikil áhersla á aðlögun • Börnin æfð í flotæfingum á baki aðallega en einnig á bringu • Börnin læra að halda niðri í sér andanum með smá viðvörun þegar þeim er dýft ofan í vatnið 6-12 mánaða –

framhaldsnámskeið I • Meiri áhersla lögð á flotæfingar á bringu • Börnin læra að halda niðri í sér andanum án viðvörunar • Börnin læra að kafa á milli tveggja fullorðinna og frá bakka 12-18 mánaða – framhaldsnámskeið II - III • Börnin læra að stökkva/ kafa frá bakka • Börnin læra að kafa og synda í nokkrar sekúndur á milli fullorðinna • Börnin læra að “sparka”/ sprikla sér að sjálfdáðum upp að yfirborði eftir köfun 18-24 mánaða – framhaldsnámskeið II - III • Barnið lærir að kafa frá bakka og synda til baka að bakka • Barnið fær grunnþjálfun í helstu sundtökunum og flotæfingum • Meiri áhersla á þjálfun með ýmis sundhjálpartæki svo sem flár, kúta, dýnur o.fl. Ég hvet alla sem sótt hafa ungbarnasundnámskeið sem og önnur sundnámskeið að halda sundgetu barnsins við með því að fara reglulega með börnin í sund. Þeir sem hafa áhuga á að skrá sig á næstu námskeið sem hefjast í febrúar, geta haft samband við mig í síma: 863-2480 eða sent mér tölvupóst á heidrun@ heidberg.is. Heiðrún Björk Sigmarsdóttir Íþróttafræðingur og ungbarnasundkennari.


tar k a v r e v H ili? m i e h t t i þ

I7L6QG:N@?6KÏ@ Q HÏ6 ".%,&)'*

„Það var á dagskrá að fá kerfi“

www.oryggi.is

Öryggismiðstöðin þjónustar Reykjanesbæ Hringdu í 570

2400 og fáðu öryggi í áskrift! 13


Heilir og sælir Keflvíkingar Knattspyrna

Guðjón Árni Antoníusson, Íþróttamaður Keflavíkur 2006, flottastur !

Nú þegar stutt er síðan knattspyrnuvertíðinni lauk, þá er gott að líta aðeins tilbaka og fara yfir tímabilið. Væntingar til liðsins fyrir sumarið voru miklar, það átti að ná í þann stóra, sjálfan Íslandsmeistaratitilinn. Spennustigið var hátt bæði í liðinu og í kringum það. Fyrsti leikur sumarsins nálgaðist óðum, og hvar var betra að byrja, en að eiga fyrsta leik í Vesturbænum gegn KR. Í

Nú! Hann getur brosað kallinn

stuttu máli sagt þá fengum við fljúgandi byrjun á sumrinu og sóttum hin hefðbundu 3 stig gegn KR. Liðið hélt áfram að safna stigum og við vorum að gera fína hluti framan af móti en það var samt enginn glansbragur á liðinu. Við náðum aldrei að stilla upp okkar sterkasta liði sökum meiðsla leikmanna. Það var svona Benitez bragur á þessu

Farnir ! hvaða glott er þetta ? bless, takk fyrir okkur, gangi ykkur vel...

14

hjá okkur, aldrei sama liðið leik eftir leik. Þetta var að gera okkur erfitt fyrir þar sem að hópurinn var lítill og var oft á tíðum fámennt á æfingum. Og ekki hjálpuðu æfingasvæðin okkur við að fá menn tilbaka úr meiðslum, þar sem miklir þurrkar um mitt sumar gerðu æfingasvæðin að grjóti og fleiri menn fóru á meiðslalistann af þeim sökum. Var nú svo komið að þjálfarteymið okkar þurfti að styðjast við að hluta til meidda leikmenn í leikjum. Þetta gerði það að verkum að leikur liðsins varð ekki eins beittur og efni stóðu til, eins fengu þeir leikmenn sem voru meiddir ekki þá hvíld sem þeir þurftu til að jafna sig en það var nú samt aðdáunarvert að sjá hversu vel leikmenn börðust fyrir stigunum en það voru farin að sjást þreytumerki. Þegar þarna var komið við sögu er liðið að sigla inn í Evrópukeppni og mótið að verða hálfnað. Á þessum tímapunkti hefði verið gríðarlega mikilvægt að styrkja liðið um 2-3 leikmenn svo hægt hefði verið að klára verkefnið sem lagt var upp með í byrjun en það gerðist ekki. Næstu verkefni sem liðið fer í er leikurinn frægi upp á Skaga með tilheyrandi ógeðismarki og 2 leikir gegn gríðarlega sterku liði FC Midtjylland í UEFA-Cup. Í Evrópukeppninni skiptust á gleði og sorg. Við unnum frábæran sigur á heimavelli 3-2 eftir að hafa lent 0-2 undir, afrek sem seint verður leikið eftir en leikurinn úti var númeri of stór fyrir þunnskipaðan hópinn, tap 2-1, eftir að hafa leitt í hálfleik 0-1, tveir leikmenn rotaðir og við

fallnir úr keppni á mörkum skoruðum á útivelli. Þá heim aftur, og nú voru hlutir að gerast. Við vorum að spila illa í deildinni og ætluðum sko aldeilis að snúa blaðinu við, en hvernig? Þegar litið var yfir hópinn þá var ekki um auðugan garð að gresja og ekki bætti úr skák þegar 2 af okkar mönnum voru seldir til erlendra liða þegar 4 leikir voru eftir af keppnistímabilinu. Það er óhætt að segja að það hafi verið hálfpartinn tómlegt á æfingum í lokin og var kallað á leikmenn úr hinum efnilega 3.flokki félagsins til þess að bæta ástandið og

topp deildarinnar undanfarin þrjú ár og vera hrósað í

í dag hjá okkur. Ungir strákar hjá félaginu bíða hreinlega í

Boltinn steinliggur inni eftir mark ársins hjá Keflavík í sumar. Símun kemur okkur í 3-2 í seinni hálfleik gegn FCM og Þórarinn fagnar sem aldrei fyrr...

hvívetna í öllum fjölmiðlum hér heima sem erlendis fyrir glæsilega spilamennsku, vera þátttakendur í Evrópukeppnum síðustu þrjú ár með góðum árangri og selja hvern leikmanninn á fætur öðrum út í atvinnumennsku, að eiga ekki almennilega aðstöðu til að stunda þessa frábæru íþrótt og gera þá enn betri hluti í framhaldi. Þegar þetta er skrifað þá er í raun nýtt tímabil hafið,

röðum eftir því að fá tækifæri til þess að sýna hvað í þeim býr og bíður nú allra þeirra sem að liðinu standa verðugt verkefni fyrir komandi átök að temja þessa ungu peyja svo þeir verði nú húsum hæfir næsta sumar. Það er jafnframt hagur allra Keflvíkinga að hafa gott og skemmtilegt Úrvalsdeildarlið í knattspyrnu og ber öllum skylda að standa vörð um hagsmuni liðsins. Það er frábært að sjá hversu

Dói spókar sig á miðjum keppnisvellinum póllrólegur með tebollann fyrir leikinn gegn FCM. Búningarnir á sínum stað og nú getur leikurinn haf ist !!!

varð úr að við Keflvíkingar eignuðumst yngsta leikmann sem leikið hefur í Úrvalsdeild, Sigurberg Elísson. Tímabilið kláraðist án frekari afreka og sæti í kringum miðja deild staðreynd. En hvað situr eftir svona sumar? Jú, það er ansi margt. Vissulega vorum við með flott lið á pappírnum, það er að segja flott byrjunarlið. En þegar meiðsli og álag koma sem alltaf má jú reikna með, þá verður að hafa menn til skiptanna og það höfðum við ekki. Hefði verið hægt að koma í veg fyrir eitthvað af þessum meiðslum? Já, t.d. með betri æfingaaðstöðu. Aðstaðan sem við höfum í dag er skuggaleg. Þess er krafist af liðinu að það sýni árangur og það höfum við gert en nú er svo komið að við krefjumst árangurs af bæjaryfirvöldum okkar. Það er ekki boðlegt fyrir félag í efstu deild í knattspyrnu, sem er búið að skila tveimur stórum titlum á síðustu þremur árum, vera við

Stúkufagn eftir glæstan sigur gegn FCM í UEFA keppninni.

æfingar eru byrjaðar. Liðið er að ganga í gegnum miklar breytingar og hafa einir 6 leikmenn sem spiluðu mikið á síðasta tímbili yfirgefið okkur. Vissulega er mismikill missir af mönnum, en það er þó engan veginn svo að það sé verið að gráta einhvern. Það er nú einu sinni þannig að eins dauði er annars brauð, og það er það sem er að gerast

margir áhorfendur eru farnir að mæta á hvern einasta heimaleik Keflavíkurliðsins sem sýnir þann mikla áhuga sem er fyrir liðinu en við verðum að halda vöku okkar því enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur !

Knattspyrnukveðja Guðmundur Jónsson

Kristján fer yf ir málin með fulltrúa UEFA sem var frá N-Írlandi daginn fyrir leikinn ytra gegn FCM.


Ferðin til Wolverhamton

Sigurbergur og Viktor í búningi Wolverahampton Wanderers.

Eftir Sigurberg Elísson Vel heppnaðri heimsókn til Wolverhampton er lokið. Sigurbergur, Viktor, Valgeir og Kristján eru komnir heim reynslunni ríkari eftir virkilega vel heppnaða heimsókn til hins fornfræga félags Wolverhampton Wanderers. Vel var tekið á móti hópnum og allur aðbúnaður og umgjörð til fyrirmyndar hjá félaginu. Á meðan Sigurbergur og Viktor léku knattspyrnu með ungliðaliðunum funduðu Valgeir og Kristján með stjórnarmönnum Akademíu Wolves annars vegar og stjórnarmönnum félagsins í heild hins vegar. Ljóst er að vilji er hjá báðum félögum um að taka upp samstarf milli félaganna og verður sú vinna þróuð á næstu mánuðum. Eftir 12 tíma ferðalag á laugardeginum tókst hópnum að koma sér upp í heiðurssætin á Molineux, heimavelli Wolves og sjá seinustu 20 mínúturnar í sigurleik þeirra gegn Charlton 2-0 þar sem sigurmarkið var skorað stuttu fyrir leikslok. Eftir stuttan fund á vellinum með yfirmönnum Wolves fór hópurinn á hótelið og lét ferðaþreytuna líða úr sér. Á sunnudeginum var farið upp á æfingasvæði Wolves og fylgst með hörkuleikjum hjá yngri flokkum félagsins en Everton var í heimsókn þennan daginn. Nokkrir framtíðaratvinnumenn

spiluðu skínandi fótbolta, vörðust vel og mokuðu inn mörkum og var virkilega gaman að sjá hversu mikla áherslu liðin lögðu á að spila knettinum með jörðinni, nýta tækni sína til hins ýtrasta og sýna frumkvæði í sóknarleik. Seinni partinn notaði hópurinn til þess að taka út búðirnar í miðbænum og sjá hvar væri hægt að framkvæma bestu kaupin.Á mánudeginum spiluðu Sigurbergur og Viktor tvo innbyrðisleiki með liðum Wolves og stóðu sig feyki vel. Sigurbergur skoraði eitt mark, stöngin inn og lagði upp tvö mörk ogViktor hleypti engum framhjá sér í varnarleiknum og var öryggið uppmálað í fráspilinu. Strákarnir léku að sjálfsögðu í hinum sögufrægu appelsínugulu búningum

Wolves. Um kvöldið var strákunum boðið í bíó og sáu þar myndina Stardust. Á þriðjudeginum var leikur gegn Stoke City. Sigurbergur lék vel fyrstu 30 mínúturnar en varð þá að yfirgefa völlinn vegna bakmeiðsla og Viktor lék í 60 mínútur og stóð sig vel í öruggum sigri Wolves gegn Stoke. Viktor fékk þungt högg á ökklann í leiknum og þurfti á meðferð hjá sjúkraþjálfara að halda. Vegna meiðslanna léku strákarnir ekki fyrirhugaðan leik á miðvikudeginum, fóru samt upp á æfingasvæði og kvöddu meðspilara sína, þjálfara Akademíuliðs Wolves og stjórnarmenn. Meiðslin eru þó ekki alvarleg og Falur verður ekki í vandræðum með að koma strákunum strax í gang á næstu dögum. Því næst var haldið til London með lest, töskunum hent í geymslu og rölt um Hyde Park og farið inn í Kensington hverfið. Þar er hinn frægi ítalski veitingastaður Mario´s (uppáhalds pizzastaður Díönu heitinnar prinsessu) og að sjálfsögðu pöntuð hin flókna flatbaka “Margaríta”, enda drengirnir miklir matmenn!!!

420 4000 • studlaberg.is

Örlítil seinkun varð á brottför flugsins heim en ekkert sem hægt er að kvarta yfir og lentu félagarnir á miðnætti á Íslandi hæstánægðir með ferðina enda ekki hægt annað eftir fádæma gestrisni þeirra félaga hjá Wolverhampton Wanderers.

Strákarnir tilbúnir í slaginn.

15


Út í Eyjum Knattspyrnia

Holtsgötu 52 • 260 Reykjanesbæ • Sími 421 8808 Umboðsaðilar fyrir Ingvar Helgason

16

Árla morguns þriðjudaginn 26. júní var lagt af stað í átt að Fokker 50 flugvél Flugfélags Íslands. Áætlunarstaður var Vestmannaeyjar. Fjölskyldan var að fara á Shell-mót í knattspyrnu þar sem Dagur Funi og hans samherjar ætluðu að etja kappi við jafnaldra sína. Vegna dýrtíðar í Vestmannaeyjum hafði verið ákveðið að gista í tjaldi og var búið að liggja á bæn í marga mánuði, enda margir tjaldbúar farið halloka fyrir veðrum og vindi á þessu móti undanfarin ár. Veðurspáin var jákvæð alla dagana en þegar Vestmannaeyjar eru annars vegar veit maður aldrei. ,,Alltaf brjálað rok í Vestmannaeyjum“ glumdi í eyrum þær 20 mínútur sem tók að fljúga á áfangastað. Flugið var gott enda blíðskaparveður. Við komuna voru gerðar ráðstafanir til að komast inn í bæ en á meðan beðið var eftir leigubílnum keyrði að okkur kona nokkur sem hafði verið að skutla Árna Johnsen á flugvöllinn, teljum hana hafa hugsanlega verið eiginkonu hans, og bauð okkur far. Við afþökkuðum enda nýbúin að panta okkur leigubíl en hún tjáði okkur að það væri alger óþarfi, það væri alltaf einhver á ferðinni og við ættum bara að biðja fólk um far. Sögur af einstakri gestrisni Eyjamanna staðfestar. Við biðum samt eftir leigubílnum sem ók okkur síðan að nýju tjaldsvæði staðarins, en til stóð að loka tjaldsvæðinu í Herjólfsdal. Skrítið að okkur fannst enda er þetta nýja tjaldsvæði, sem stendur við Þórsheimilið, við íbúðabyggð, stendur frekar hátt og er berskjaldað vindi úr öllum áttum. Við vorum pínu

svekkt með þessa tilhögun enda var okkur ráðlagt af kunnugum að tjalda inn í dal. Við tókum þó til við að tjalda og gekk það að óskum enda hið fína veður í Eyjum. Að tjöldun lokinni og smá lúr í glampandi sólskininu, var rölt niður í bæ til skoðunar og mettunar. Þegar snúið var aftur á tjaldsvæðið var okkur hins vegar illa brugðið. Farið var að blása af miklum móð, sterkur vindurinn, sem var gola og stóð aftan á tjaldið þegar því var tjaldað, réðist nú á tjaldið á hlið með miklum og sterkum vindhviðum svo tjaldið lá næstum á hliðinni. ,,Það er alltaf brjálað rok í Eyjum“ stóð nú heldur betur undir sér. Óhætt er að segja að hrollur og ónot hafi farið um ferðalanga. En tjaldið stóð enn staðfast þó áhyggjur væru farnar að vakna um erfiða vökunótt. Þegar líða tók á kvöldið og ekkert benti til að færi að lægja var tekin sú ákvörðun að labba inn í Herjólfsdal. Þegar þangað kom blasti við okkur gleðileg sjón; grös og blóm stóðu teinrétt, það var logn í dalnum. Helv.. að mega ekki tjalda hér. Koma okkar í dalinn varð til þess að undrast enn meir hvers vegna í ósköpunum verið væri að færa tjaldsvæðið. Í dalnum er undurfagurt umhverfi með miklum fuglasöng og augljóslega skjól fyrir einhverjum vindáttum, eitthvað sem ekki var á nýja svæðinu. Eyddum við þar drjúgum tíma en ferðalöngum fór að verða mál og því var haldið inn í þjónustuskálann til að létta á sér. Þar inni hittum við fyrir ungan dreng sem átti eftir að breyta ferð okkar til hins betra. Þarna

var um að ræða tjaldvörð þeirra Eyjamanna og hann tjáði okkur að ekki stæði til að loka fyrir tjöldun í dalnum og okkur væri frjálst að flytja okkur ef við vildum. Við þökkuðum fyrir en ætluðum að sjá til með hvernig staðan væri, enda orðið það hvasst að erfitt yrði að taka tjaldið niður án þess að eiga það á hættu að missa það á sjó út. Ekki varð hins vegar upplitið gott þegar upp á hið nýja tjaldsvæði var komið, enn gekk á með miklum vindhviðum og tók vel í tjaldið sem stóð þó enn. Húsfreyjan lagði til að við myndum flytjast búferlum inn í dal en húsbóndinn var smeykur um að missa tjaldið ef það yrði tekið niður. Freyjan sótti þetta hins vegar fast og benti á að ef þessar hviður héldu áfram yrði ekki mikið um svefn um nóttina. Bóndinn féllst loks á flutninginn og hófst fjölskyldan nú handa við að taka tjaldið niður. Hringt var í leigubíl, drengjunum plantað ofan á vindsængur og töskur svo þær fykju ekki á haf út, tjaldið tekið niður og losað í miðju, pakkað saman og sett í hendur húsbónda sem arkaði með það inn í dal, vegfarendum eflaust til mikillar skemmtunar: ,,er virkilega komin Þjóðhátíð strax?“ hafa þeir eflaust hugsað með sér. En í appelsínugulum regnstakk og með húfuna


vel undir augu lét húsbóndi ekkert trufla einbeitingu sína og hélt ótrauður áfram í átt að fyrirheitna staðnum. Enn var logn í Herjólfsdal þegar þangað var komið. Tók bóndinn við að tjalda á ný, í logninu, og sá sér til hrellingar að stangir tjaldsins höfðu bognað á tveimur stöðum; það var logn í Herjólfsdal. Leigubíll kom síðan með farangur og aðra fjölskyldumeðlimi og lagst var til hvílu við andvara og yndislegan söng ritu og tjalds og eflaust fleiri fugla. Þegar vaknað var morguninn eftir var enn logn í dalnum þó nokkur blástur væri inn í bæ. Frábær ákvörðun að flytja inn í Herjólfsdal og gistum við þar í 6 nætur í blanka logni; það er þá ekki alltaf brjálað rok í Eyjum eftir allt saman, logn í dalnum en tiltölulega léttvægur vindur á keppnisstað. Og það sem meira var, við upplifuðum það meira að segja að vera í logni á Stórhöfða, mesta rokrassgati í heimi, í skoðunarferð með Kalla og Önnu Pálu. Miðvikudagskvöldið var farið niður á bryggju og tekið á móti Keflavíkurliðinu sem sigldi í höfn á Herjólfi er vel var liðið á miðnætti. Að kvöldverði loknum fór hersingin í hús Fjölbrautaskóla Vestmannaeyja þar sem liðið átti að gista og þegar búið var að koma öllum fyrir var lagst til hvílu, enda áttu leikar að hefjast daginn eftir. Af mótinu er það að segja að allir stóðu sig eins og hetjur og höfðu gaman af. Hápunktur mótsins var eflaust þegar liðsmenn í reiptogi rifu utan af sér bolina þegar keppt var til úrslita í þeirri grein við Fylkismenn. Flestir sigldu heim á leið á sunnudeginum, dauðþreyttar mæður tóku forskot á sæluna og fóru að

degi til en flestir fóru síðla kvölds og það verður að segjast að það var magnað að fylgjast með Herjólfsmönnum púsla alla bílana inn í skipið. Pollamót ÍBV og Shell er vel skipulagt og skemmtilegt og var ekki að sjá neina hnökra neins staðar í skipulagningu. Innanhúsmót eru samt orðin tímaskekkja, alla vega fyrir keflvíska drengi því slíkur bolti er ekki spilaður lengur og það sást því drengirnir voru eins og beljur á svelli og vissu hvorki hvað stóð upp né niður. Allt var Vestmannaeyingum annars til mikils sóma og náttúrufegurð eyjanna og viðmót heimamanna gerði þetta að mjög eftirminnilegri ferð. Þeir eru vel meðvitaðir um sögu sína og hafa hlúð vel að ferðamennsku, fjölmörg glæsileg söfn voru heimsótt og kvikmynd frá eldgosinu barin augum. Virkilega vel staðið að þessum þáttum ef frá er talinn starfsmaður í upplýsingaþjónustu fyrir ferðamenn sem hafði meiri áhuga á því sem var í gangi á tölvuskjánum hjá honum og að hlusta á i-belginn sinn en að kynna þann aragrúa áhugaverðra staða og safna sem hægt er að skoða í Vestmannaeyjum. Þrátt fyrir þetta verður þó að segjast að ein svona ferð með árgang er fyllilega nægileg enda mikill kostnaður, á leikmann, að ekki sé talað um ef að heil fjölskylda fylgir með. Samt er ávallt best að koma heim á ný og lögðust ferðalúnir fjölskyldumeðlimir þreyttir en ánægðir til hvílu í sínum eigin rúmum að kveldi mánudagsins 2. júlí eftir mjög skemmtilega og vel heppnaða dvöl í Vestmannaeyjum. Brynjar Harðarson

Getraunir 1x2 230 Þeir sem tippa hjá Íslenskum Getraunum og merkja við 230 eru um leið að styrkja félagið. Barna & unglingastarf Knattspyrnudeildar Keflavíkur fær sölulaun fyrir seldar raðir merkar 230, því hvetjum við alla þá sem spila með að merkja við sitt félag. Hjá söluaðila Þeir sem vilja tippa beint hjá söluaðila geta komið við í K- húsinu við Hringbraut og tippað. Húsið er opið á hverju föstudagskvöldi frá kl. 19-21 og eru allir velkomnir. Á netinu Mestur hluti seldra raða fer fram á netinu, slóðin er 1x2.is. Þar spila fjölmargir, annaðhvort einir eða sem hópur. Við hvetjum þá auðvitað til að merkja við 230. Fyrirtækjaleikurinn Á síðasta keppnistímabili var fyrirtækjaleikurinn háður. 12 fyrirtæki kepptu sín á milli vikulega í 11 vikur. Víkurfréttir birtu vikulega seðilinn hjá þeim fyrirtækjum sem áttu viðureign vikunnar. Vöruhús fríhafnarinnar var sigurvegari keppninnar með 23 stig, þar á eftir kom Hitaveita Suðurnesja og Áfangar með 20 stig í öðru sæti. Spekingarnir hjá Vöruhúsinu slógu þar með út Stuðlaberg sem var sigurvegari frá því í fyrra og hlutu titilinn „Tippari ársins hjá Keflavík” ásamt veglegum eignabikar. Ný keppni fer fljótlega af

stað eftir áramót þar sem Vöruhúsið þarf að verja titilinn. Eftirtalin fyrirtæki tóku þátt: Vöruhús fríhafnar, Hitaveita Suður nesja, Áfangar, Brunavarnir, Sjúkraþjálfun Suðurnesja, Myllubakkaskóli, SpKef,Stuðlaberg,IGS,Glitnir, SBK og Hjalti Guðmundsson ehf. Við viljum þakka þessum fyrirtækjum fyrir skemmtilegan leik og vonum að allir hafi haft gaman af.

Að lokum. Viljum við þakka þeim fjölmörgu sem hafa tippað hjá Íslenskum Getraunum og styrkt Keflavík fyrir sitt framlag og óskum þeim gleðilegra jóla og gæfu á komandi ár. Barna & unglingaráð Knattspyrnudeildar Keflavíkur

Styðjum unglingastarf Knattspyrnudeilda Keflavíkur

Lilja Sigurðardóttir

17


45. Sambandsþing UMFÍ - Nýr formaður UMFÍ Óskum Suðurnesjabúum

gleðilegra jóla og farsældar á komnandi ári. Þökkum viðskiptin á líðandi ári.

Viðskiptalausnir Hólmgarði 2c • 230 Keflavík • Sími 420 9000

Óskum íþróttafólki svo og öðru Suðurnesjafólki

gleðilegra jóla

og farsældar á nýju ári

Kristín Geirmundsdóttir, tannlæknir og starfsfólk Hafnargata 45 • Sími 421 8686

Óskum Suðurnesjabúum

gleðilegra jóla og farsældar á komnandi ári. Þökkum viðskiptin á líðandi ári.

MÁLALAVERKTAKAR ehf.

Sími 421 4769 • GSM 899 8049 • bgmal@simnet.is

18

45. Sambandsþing UMFÍ var haldið 20.-21. október síðastliðinn á Þingvöllum. Dagskráin var með hátíðarblæ þar sem UMFÍ fagnar 100 ára afmæli á þessu ári. Þingsetning fór fram undir berum himni í Almannagjá. Björn B. Jónsson formaður UMFÍ setti þingið. Forseti Íslands herra Ólafur Ragnar Grímsson og Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ fluttu ávörp. Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ veitti Birni B. Jónssyni formanni UMFÍ gullmerki ÍSÍ. Í lok setningarinnar sungu viðstaddir lagið Ísland er land þitt með höfundi þess Magnúsi Þór Sigmundssyni. Nokkur stór mál lágu fyrir þinginu. Meðal þeirra var umsókn ÍBR að samtökunum, breytingar á lottóreglugerðinni og fræðslustefna UMFÍ auk annarra mála. Eins og venja er á þingum er málum vísað í nefndir og þar fjallað um þau, síðan lögð fyrir þing til samþykktar eða synjunar. Miklar umræður urðu í nefndinni um umsókn ÍBR að samtökunum og sitt sýndist hverjum. Ekki náðist sátt í nefndinni. Meirihluti nefndarinnar lagði fram tillögu að ÍBR fengi inngöngu inn í samtökin. Lögð var fram breytingartillaga við áður komna tillögu sem hljóðaði svo: „45. Sambandsþing UMFÍ fagnar áhuga ÍBR að taka þátt í starfi ungmennafélaga. Þingið telur þó ekki forsendur fyrir því að ÍBR fái aðild að UMFÍ. Þingið felur stjórn UMFÍ að taka upp viðræður við ÍSÍ um heildarskipulag ungmennafélags og íþróttahreyfingarinnar þ.á.m. skiptingu lottóágóða.“ Óskað var eftir leynilegri kosningu. Breytingatillagan samþykkt með 47 atkvæðum á móti 45. Einnig urðu miklar umræður um lottóreglugerðina í nefndarstörfum. Sátt náðist í nefndinni og var tillaga nefndarinnar samþykkt. Helstu breytingar snéru að félögum með beina aðild. Fræðslustefna UMFÍ var lögð fram og var samþykkt. Var nú komið að stjórnarkjöri og fyrst skyldi kjósa formann. Björn B. Jónsson formaður UMFÍ síðastliðin sex ár gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Eitt framboð var til formanns UMFÍ. Helga Guðrún Guðjónsdóttir

Helga Guðrún Guðjónsdóttir

varaformaður UMFÍ gaf kost á sér til formanns og var hún einróma kjörin formaður Ungmennafélags Íslands. Er þetta í fyrsta skipti í 100 ára sögu UMFÍ sem kona er formaður í hreyfingunni. Næst fór fram kosning sex stjórnarmanna og svo fjögurra varamanna. Anna R. Möller gaf ekki kosta á sér til stjórnarkjörs, en hún hafi setið í stjórn í tíu ár. Eftirtaldir aðilar voru kosnir:

okkar tóku virkan þátt í þingstörfum. Sem dæmi þá var Kári Gunnlaugsson formaður kjörbréfa- og kjörnefndar, Þórður Magni Kjartansson þingritari og aðrir þingfulltrúar okkar tóku virkan þátt í nefndarstörfum þingsins. Hafið þökk fyrir ykkar framlag. Myndir frá þinginu eru á heimasíðu okkar keflavik.is. Á fyrsta stjórnarfundi nýkjörnar stjórnar skipti stjórnin með sér verkum. Varaformaður Ásdís Helga Bjarnadóttir, gjaldkeri Björn Á. Ólafsson, ritari Örn Guðnason. Meðstjórnendur Hringur Hreinsson, Einar Haraldsson og Björg Jakobsdóttir. Einnig var skipað í framkvæmdastjórn en í henni sitja Helga Guðrún Guðjónsdóttir, Einar

Stjórn UMFÍ 2007-2009

Björn Ármann Ólafsson UIA, Ásdís Helga Bjarnadóttir UMSB, Einar Haraldsson Keflavík, Hringur Hreinsson UMSE, Björg Jakobsdóttir UMSK og Örn Guðnason HSK. Í varastjórn voru kosin: Eyrún Harpa Hlynsdóttir HSV, Haraldur Jóhannsson UMSS, Jóhann Tryggvason UIA og Einar Jón Geirsson UND. Keflavík átti sjö þingfulltrúa og auk þess að vera með einn varamann. Fulltrúar

Haraldsson sem ritari og Björg Jakobsdóttir. Framkvæmdastjórn fundar að jafnaði einu sinni í viku. Ég vil óska nýkjörnum formanni Helgu Guðrúnu Guðjónsdóttur til hamingju með kjörið og óska henni velferðar jafnt í leik sem starfi. Íslandi allt. Einar Haraldsson formaður Keflavíkur

Þingfulltrúar Keflavíkur frá vinstri: Einar Haraldsson, Kári Gunnlaugsson, Birgir Ingibergsson, Sigurvin Guðf innsson, Guðjón Axelsson, Bjarney S. Snævarsdóttir og Þórður Magni Kjartansson. Á myndina vantar Sigurbjörn Gunnarsson.


Knattspyrna – meistaraflokkur kvenna og 2. flokkur kvenna Nýr þjálfari, Salih Heimir Porca, kom til starfa hjá meistaraflokki kvenna og einnig var ráðinn nýr þjálfari fyrir 2. flokk kvenna en það var Elís Kristjánsson sem einnig var til aðstoðar í meistaraflokki. Mikill hugur var í þjálfurum, liði og stjórn í að ná árangri. Fenginn var sjúkraþjálfari til að meta ástand leikmanna og fékk hver leikmaður æfingaprógram sem leikmaðurinn fór síðan eftir því hvar veikleikar hans voru.

og komust ekki áfram. 2. flokkur kvenna tók þátt í Íslandsmótinu og var í B-riðli. Árangurinn hjá stelpunum var mjög góður og urðu þær í 2. sæti í riðlinum eftir að hafa verið í baráttu við ÍBV um efsta sætið. Það var ekki fyrr en í útileiknum á móti ÍBV að ljóst var að það myndi ekki nást þar sem leikurinn tapaðist en Keflavíkurstelpur áttu leikinn en þeim tókst ekki að klára dæmið þó færin væru mörg. 2. flokkur færist upp um riðil á næsta ári og Hópurinn sem fór til Tyrklands í æf ingarferð ásamt Gísla Jóhannssyni dómara

2. flokkur tók einnig þátt í VISA bikar en datt út á móti Fjölni 3-4.

undanriðlum. Frábær árangur hjá stelpunum okkar. Eftir Íslandsmótið innanhúss tók síðan við undirbúningstímabilið fyrir Landsbankadeildina. Við vorum með ungan hóp og vorum í raun með 3 stelpur sem voru á meistaraflokksaldri en við fengum erlenda leikmenn til að styrkja hópinn og vorum síðan með ungar stelpur úr 2. og 3. flokki sem spiluðu líka með meistaraflokki. Landsbankadeild kvenna hófst síðan 21. maí og byrjaði deildin vel hjá stelpunum. Fyrri hluti tímabilsins var betri þar sem við unnum bæði Breiðablik, Stjörnuna, Fjölni, Þór/KA, ÍR og Fylki og áttum góðan fyrri hálfleik á móti Val en gáfum eftir í seinni hálfleik. Í seinni umferðinni gáfum við aðeins eftir og enduðum í 4. sæti deildarinnar sem var jöfnun á besta árangri Keflavíkurliðs.

Meistaraflokkur Meistaraflokkur kvenna byrjaði á því í lok nóvember 2006 að fara á Íslandsmótið innanhúss. Góður árangur náðist á mótinu og voru stelpurnar með KR,Breiðablik og Sindra í riðli. Keflavík var efst í sínum riðli en þær unnu KR, Sindra og gerðu jafntefli við Breiðablik. 2 efstu lið úr riðlinum komust áfram í fjögurra liða úrslit. Keflavík datt út í undanúrslitum á móti Stjörnunni en þær töpuðu 1-2 og Íslandsmeistarar urðu KR en Keflavík sigraði þær í

Stelpurnar tóku einnig þátt í Visabikarnum og stóðu sig mjög vel og komust alla leið í Bikarúrslit. Úrslit Visa -bikarsins voru laugardaginn 22. september síðastliðinn en þá kepptu þær við KR. Keflavíkurstelpur áttu heiður skilið fyrir baráttuna en þær börðust alveg til leiksloka. Jafnræði var fyrsta korterið en þá skorðaði KR fyrsta markið og stuttu síðan eða á 20. mínútu bætti KR öðru marki við og þannig var staðan í hálfleik. Í byrjun seinni hálfleiks skoraði KR þriðja

Eva Kristinsdóttir og Danka Podovac í baráttu við leikmann Stjörnunar í Tyrklandi

Æfingarferð til Tyrklands Meistaraflokkur og 2. flokkur kvenna fóru í æfingaferð til Belek í Tyrklandi þann 4. apríl síðastliðinn. Ferðin var í 10 daga og voru stelpurnar í góðu yfirlæti á Kaya Select Hotel. Æft var stíft en einnig voru spilaðir æfingarleikir við Stjörnuna. Ferðin heppnaðist vel í alla staði og voru stelpurnar félagi sínu til mikils sóma. 2. flokkur Árið hjá 2. flokki hófst á Íslandsmótinu innanhúss í byrjun árs. Stelpurnar voru í riðli með Breiðablik, Fjölni og Þrótti Reykjavík. Ekki gekk keppnin sem skildi en þetta fer allt í reynslubankann og stelpurnar koma reynslunni ríkari í næsta mót en þær lentu í neðsta sæti í riðlinum

spilar því í A-riðli en 2 efstu liðin í riðlinum komast upp um riðil.

markið og vildu margir meina að Hólmfríður leikmaður KR hafi verið rangstæð en hún gaf stoðsendinguna sem skorað var úr. Róðurinn var því orðinn frekar þungur fyrir Keflavíkurstelpur en þær gáfust ekki upp og í góðri skyndisókn þeirra átti Una Harkin gott skot í stöng og var síðan ranglega dæmd rangstæð þegar hún slapp ein inn fyrir vörn KR. Leikur endaði 0-3 KR í vil. Stuðningsmenn Keflavíkur stóðu sig með prýði og studdu liðið með frábærum undirtektum PUMA sveitarinnar. Uppskeruhátíð. U p p s k e r u h á t í ð Knattspyrnudeildar var haldin á Ránni í Keflavík. Eftirtaldir leikmenn fengu viðurkenningar: Fyrstu leikir í meistaraflokki kvenna, Keflavík Agnes Helgadóttir, Björg Magnea Ólafsdóttir, Bryndís Bjarnadóttir, Dúfa Dröfn Ásbjörnsdóttir, Guðrún Ólöf Olsen, Íris Björk Rúnarsdóttir, Jelena Petrovic, Justyna Wróblewska, Rebekka Gísladóttir. Leikmaður sem spilaði landsleiki fyrir hönd Keflavíkur var: Guðný Petrína Þórðardóttir A landslið.

Gunnarsdóttir. Þær eru reynsluboltarnir í liðinu og er Keflavík stolt að hafa þær innanborðs og væntum þess að njóta krafta þeirra næstu árin. 2.flokkur kvenna: Besti félaginn: Bryndís Bjarnadóttir Mestu framfarir: Bryndís Bjarnadóttir Besti leikmaðurinn: Eva Kristinsdóttir Meistaraflokkur kvenna: Gullskórinn: Guðný Petrína Þórðardóttir með 7 mörk í 8 leikjum. Silfurskórinn: Danka Podovac með 7 mörk í 13 leikjum. Mark ársins : Danka Podovac Besti félaginn : Dúfa Ásbjörnsdóttir Mestu framfarir: Anna Rún Jóhannsdóttir Besti leikmaðurinn : Lilja Íris Gunnarsdóttir Að lokum viljum við þakka öllum sem styrktu kvennaknattspyrnuna en einnig viljum við þakka þeim sem störfuðu með okkur Sali Heimir Porca þjálfari Mfl. kvenna, Elfa Sif Sigurðardóttir sjúkraþjálfari, Elís Kristjánsson þjálfari 2. fl. kvenna og Rajko Stanisic markmannsþjálfari og öllum þeim sem komu að starfinu á einhvern hátt sem og öllum okkar styrktaraðilum.

Tímamótaleikir fyrir Keflavík. 50. leikir : Guðný Petrína Þórðardóttir og Lilja Íris

19


Íþróttir ein besta forvörnin

- R Æ T T V I Ð Þ O R S T E I N N E R L I N G S S O N B Æ J A R F U L LT RÚ A O G

AT V I N N U R E K A N DA S E M H E F U R V E R I Ð ÖT U L L S T U Ð N I N G S M A Ð U R Í Þ RÓ T TA Í B Æ J A R F É L AG I N U

Þorsteinn Erlingsson hefur um margra ára skeið verið áberandi stuðningsmaður Keflavíkur, bæði í knattspyrnu og körfuknattleik ásamt því að vera bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ. Jólablaði Keflavíkur fýsti að kynnast manninum nánar og fá að vita hvað hefur á daga hans drifið á rúmlega sex áratuga ævi. Við hittum Þorstein á heimili hans við Hrauntún og ræddum við hann um ævi hans og störf, bæði á sjó og í landi sem og áhuga hans og stuðning við íþróttahreyfinguna.

20

“Ég er fæddur í Garðinum 1943, sonur Erlings Davíðssonar og Guðrúnar Gísladóttur, sem bjuggu þá í Steinshúsum í Garði,” sagði Þorsteinn, þegar hann var spurður að því hvaðan hann væri. Steinshús voru niðri við frystihús og standa enn, reyndar er búið að byggja við þau. Frystihúsið hefur verið mikið endurbyggt og er nú rekið af Nesfisk hf. af miklum myndarbrag að sögn Þorsteins. “Um 50 metrum frá Steinshúsum var Verslun Björns Finnbogasonar sem má segja að hafi verið

helsti samkomastaður okkar í Garðinum. Þar komu bæjarbúar saman og ræddu það sem efst var á baugi hverju sinni.” -Byrjaðir áhugi þinn á íþróttum á þessum árum? “Ég hef alltaf haft áhuga á íþróttum og spilaði með Víði í knattspyrnu. Þar spilaði ég á kantinum og var númer 7. Það héldu allir með Skaganum í Garðinum á þessum árum, nema oddvitinn Björn Finnbogason, hann hélt með KR. Það var oft mikið fjör í búðinni þegar málin voru rædd, hvort sem það voru dægurmál eða íþróttir.”


Hilmir 171

Flutti til Keflavíkur 16 ára Árið 1958 ákveða foreldrar Þorsteins að flytja til Keflavíkur en þau höfðu fest kaup á íbúð að Vatnsnesvegi 30 og þar bjuggu þau upp frá því. “Eftir að við fluttum til Keflavíkur gekk ég í KFK hjá Sigga Steindórs til berjast við Ungó, en þar var við ofurefli að etja.“ En íþróttaiðkunin var ekki til frambúðar þar sem Þorsteinn hafði ákveðið að fara á sjó, en hvers vegna?

“Það var komin ný tækni sem gerði það auðveldara að veiða síldina og þar af leiðandi voru tekjurnar. En síðan lá leiðin í Stýrimannaskólann og þaðan útskrifaðist ég sem stýrimaður. Þá var ég skipstjóri á Freyfaxa og á Erni RE 1, sem við keyptum síðan nokkrum árum seinna. Lengst var ég með Hilmi, sem var á síldarog loðnuveiðum en þannig veiðar stundaði ég mest. Ætli það hafi ekki verið vegna þess að það var mest upp úr þeim að hafa, og eins var mjög spennandi og skemmtilegt að

vera á nótaveiðum. Hilmir tók þá um 550 tonn.” Var ekki tekin áhætta á þessum veiðum? “Að sjálfsögðu. Þegar bátarnir voru ekki yfirbyggðir var erfitt að reikna út veður og vind þegar siglt var frá Faxaflóa austur á firði og siglingin tók upp í fjörtíu tíma. Það var því ótrúleg breyting fyrir sjómenn þegar að bátar urðu yfirbyggðir. Einnig var aðstaða í nótakassanum á bátunum mjög slæm þegar verið var að draga nótina. Ég lét því útbúa hátt rör með neti og girti á þann hátt í kringum nótakassann svo að að öryggi sjómanna væri tryggt. Sjóslysanefnd benti síðan á þennan útbúnað og lét taka hann upp, og varð ég mjög ánægður með það.” Var 35 ár á sjó Upp úr 1972 fara þeir bræður Þorsteinn og Örn í útgerð saman þegar þeir kaupa nótaskipið Örn KE. “Við bræðurnir keyptum Örninn og Örn varð skipstjóri en ég hélt áfram með Hilmi fram til ársins1982. Síðasti Hilmir sem ég var með tók

1400 tonn, og var eitt stærsta nótaskip flotans. Við Örn keyptum annað skip, Seley, sem við skírðum upp og kölluðum Erling. Þetta var minnsta nótaskip flotans, tók 440 tonn. Fyrstu vertíðina fór ég 44 ferðir með skipið á loðnumiðin og náði kvótanum.” Þeir bræðurnir ákveða síðan að lengja Erling KE um 10 metra og var skipið lengt í Skipasmíðastöðinni í Njarðvík. Stykkið sem bætt var við kom frá Danmörku og að sögn Þorsteins var það smíðað upp í sveit.“Burðageta skipsins jókst við þetta og við náðum 840 tonnum mest upp úr Erling KE, og þá var hann hlaðinn!”. Þorsteinn var 35 ár til sjós en árið 1990 fór hann í land og sneri sér bæði að rekstri útgerðarinnar og einnig stjórnmálunum og var í framboði til bæjarstjórnar. Saltver hf. og Sólbakki, fyrirtæki þeirra bræðra, gerði þegar mest var út fjóra báta, Örn KE, Erling KE, Búrfell KE og Hafborgu KE. “Þetta voru tvö nótaskip, einn netabátur og einn snurvoðabátur”.

Alltaf haft áhuga á íþróttum Þorsteinn hefur ávallt verið mikil stuðningsmaður íþrótta í Keflavík og síðar Reykjanesbæ. Saltver hf. hefur verið einn stærsti stuðningsaðili bæði golfs, knattspyrnu og körfuknattleiks í Keflavík í mörg ár. En hvað olli því að Þorsteinn byrjaði að styrkja íþróttirnar fjárhagslega? “Sá stuðningur við íþróttirnar byrjaði þegar Stefán Arnarson, sonur Arnar bróður, fór með flokk drengja á mót í körfuknattleik til Svíþjóðar. Hann fékk hjá okkur styrk til þessarrar farar. Ég hef alltaf talið mikilvægt að unglingar stundi íþróttir, þar sem ég hef talið það mjög góða forvörn. Nú svo fóru dæturnar að stunda íþróttir. Sigríður var í fimleikum um tíma, Guðrún var í handbolta, Björk í knattspyrnu og Erla í körfuknattleik. Erla hefur verið mest í íþróttum af dætrunum. Hún byrjaði í körfubolta í fermingaveislu hjá Erni Arnarsyni og það má segja að hún hafi varla sleppt boltanum síðan!”. Þegar Erla fór að spila körfuknattleik með Keflavík

Erla bikarmeistari og stolti faðirinn

21


Erling KE 45 hlaðinn 850 tonnum

í yngri flokkunum þá komu Þorsteinn og Auður Bjarnadóttir kona hans að starfa með foreldrum m.a. að keyra stelpurnar á leik eins og aðrir foreldrar gerðu. “Við studdum vel við bakið á þeim á þessum árum bæði hjónin. Og ég man að ég lofaði þeim oft að ef þær ynnu leikinn myndu þær fá ís á Skalla í Hafnarfyrði á heimleiðinni. Virkaði það? Já, það svín virkaði.” Öskrandi pabbi á hliðalínunni Líkt og flestir foreldrar þá fylgdist Þorsteinn með dóttur sinni í íþróttunum og segist hafa fylgst með leikjum flokkana sem Erla spilaði með. “Ég man eftir því að á einum af fyrstu leikjunum hennar var hún ekki kát með föður

22

sinn. Þá voru þær að spila leik þar sem þær höfðu góða forystu og þegar þær slökuðu á, þá gekk ég að hliðalínunni og kallaði á þær að halda nú áfram, fulla ferð! Eftir leik kom Erla með snúð á svipinn heim og þegar ég spurði hana hvað væri að, sagði hún það gengi ekki að hafa öskrandi pabba á hliðalínunni. Sigurður Ingimundarson þjálfari hefði sagt þeim að slaka á, þegar ég hafi verið öskrandi á hliðarlínunni og skipað þeim að halda áfram! Hún var ekki hrifin.” Áhugi Þorsteins á íþróttum hefur ekki einskorðast við Ísland heldur er hann eldheitur stuðningsmaður Man. Utd. “Ég hef haldið með liðinu frá því George Best og Bobby Charlton spiluðu með liðinu.

En ég læt það ekki spilla heimilisfriðinum þó þeir tapi leik en enska knattspyrnan skapar umræður og stemmningu meðal Íslendinga í svartasta skammdeginu.” Þá er áhugi þinn á golfi þekktur á Suðurnesjum? “Já, það má segja að ég sé á kafi í golfi. Þegar ég fór í land þá fór ég að stunda golf, tel mig fá út úr því góðar gönguferðir og betri heilsu, auk þess sem þetta er góður félagsskapur. Svo skemmir það ekki fyrir að vinna félagana! Ég vil einnig benda á að Erla er ekki bara góð í körfubolta heldur er hún virkilega góður golfari.” Sameining það besta sem hefur gerst Árið 1994 tók Þorsteinn

sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins við bæjarstjór narkosningar nar í Keflavík. Sjálfstæðismenn unnu þá sigur og náðu fjórum bæjarfulltrúum og mynduðu meirihluta með Framsóknarflokknum. Ellert Eiríksson varð bæjarstjóri og eftir kosningarnar 1994 tók Þorsteinn sæti í bæjarstjórn. En hvers vegna fórstu þú út í stjórnmál? “Þetta er góð spurning. Ég hafði alveg nóg að gera í mínu fyrirtæki, það var mikið atvinnuleysi á svæðinu og því ekki eftirsóknarvert að setjast í bæjarstjórn. Ég var óhræddur við að svara kalli og hef ekki séð eftir því. Ég hef alltaf verið mjög pólitískur. Foreldrar mínir voru mjög pólitísk og voru rétttrúuð,

eldheitir sjálfstæðismenn. Eftir að ég settist í bæjarstjórn hef ég reynt að starfa af bestu getu fyrir bæinn að öllum málum en sérstaklega atvinnumálum og íþróttum. Við skulum gera okkur grein fyrir því að það má aldrei gleyma atvinnumálunum. Með öflugu atvinnulífi batnar bæjarlífið, það styrkir íþóttir og menningu með framlögum. Bæjarstjórarnir báðir sem ég hef starfað með, þeir Ellert Eiríksson og Árni Sigfússon, hafa staðið sig mjög vel og það hefur verið gaman að starfa með þeim báðum.“ Þorsteinn var kosinn í bæjarstjórn Reykjanesbæjar í fyrstu kosningum eftir sameiningu bæjarfélaganna Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna. Um þessa sameiningu voru skiptar skoðanir en Þorsteinn hefur ákveðna skoðun á málinu. “ Ég var fylgjandi sameiningu sveitarfélaganna og tel að sameiningin hafi verið það besta sem kom fyrir samfélagið hér. Með henni varð til sveitarfélag sem var sterkara og betur í stakk búið til að veita borgurunum góða þjónustu sem þeir gera kröfur um.Við viljum veita það besta og því hefur verið unnið að því að byggja hér upp fjölskyldu- og íþróttavænt samfélag. Það hefur komið mér mjög á óvart hversu mikill eiturlyfjavandinn er hér á landi. Og að þetta vandamál fer ekki í manngreinarálit. Ég hef lengi haft þá skoðun að ein besta forvörnin gegn slíkum vágesti væri að unglingarnir færu að stunda


íþróttir og þá hefur einnig verið unnið mjög vel að því að efla hér skólastarf. Okkar stærsta átak í uppbyggingu íþróttamannvirkja var Reykjaneshöllin og bygging á 50m innisundlaug og vatnagarði við Sundmiðstöðina. Mikil uppbygging er framundan á íþróttamannvirkjum hér í sveitarfélaginu á næstu árum”. Atvinnumál eru Þorsteini hugleikin og hann leggur áherslu á að fólk verði að gera sér grein fyrir því að atvinnuleysi sé fljótt að skella á og eftir að starfsemi Varnarliðsins hafi lagst af sé enn brýnna en áður að halda vöku sinni. “Álver er nauðsynlegt fyrir þetta svæði og sá kraftur sem

því mun fylgja. Atvinnulífið er sá kraftur sem knýr annað áfram, það styrkir íþróttastarf og menningalíf.Gott atvinnulíf stuðlar að betra samfélagi. Að vera í bæjarstjórn þegar atvinnumálin eru í lagi er skemmtilegt eins og það getur verið erfitt þegar illa árar og atvinnuleysi er.” Ómetanlegt starf SpKef Eitt þeirra starfa sem Þorsteinn gegnir er að vera stjórnarfor maður Sparisjóðsins í Keflavík, en sú stofnun varð 100 ára í nóvember. “Sparisjóðurinn hefur gegnt mikilvægu hlutverki hér á Suðurnesjum á þessari öld sem hann hefur starfað. Stuðningur hans við íþróttir og menningu hefur verið ómetanlegur og

gífurlega mikilvægur fyrir allt samfélagið.” Þorsteinn sagði það hafa gefið honum mikið að starfa að þeim málum sem honum hefur gefist kostur á. “Það er mjög gaman að hafa fengið tækifæri til að starfa að þeirri uppbyggingu sem hefur orðið í Reykjanesbæ á undanförnum árum og finna hvað bæjarbúar er ánægðir og stoltir af bænum sínum. Þá er það mér ánægjuefni að hafa getað stutt við íþróttastarf hér í bænum á undanförnum árum og það er von mín að hér megi dafna öflugt starf íþróttahreyfingarinnar í framtíðinni. Það skiptir okkur öll máli;” sagði Þorsteinn Erlingsson að lokum.

23


Gleรฐileg jรณl

farsรฆlt komandi รกr, รพรถkkum viรฐskiptin รก รกrimu sem er aรฐ lรญรฐa Hafnargรถtu 51 - 55

Iรฐavรถllum 9a - Sรญmi 421 3598

SMU RS

Sร VAR REYNISSON VIร SKIPTAFRร ร INGUR

HJร LBAR โ น & & โ น Afi Tร Jร RNS fiร Rโ น AR J

A UST ร N

Bร KHALDSร Jร NUSTAN

B

Sรญmi 421 4546

PULSUVAGNINN

VA TN

S N E S V EG

16

Jร Lร US STEINร ร RSSON

Blikksmiรฐja

HAFNARGร TU 55b - KEFLAVร K Sร MI 421 1584

www.ork.is

ร gรบstar Guรฐjรณnssonar 7FTUVSCSBVU t ,FnBWรญk

(Sร รถOOJ C t ,FรธBWร L 4ร NJ

420 7001

)SJOHCSBVU r 4รญmi 421 4747

Brautarnesti Hringbraut 93b

BESTA

Sร MUNDUR Pร LSSON TANNRร TTINGAR TKBSOBHBUB t ,FGMBWร L Sร NJ t TQBMT!JOUFSOFU JT

VERKALร ร S- OG SJร MANNAFร LAG KEFLAVร KUR OG Nร GRENNIS

Sร MI 421 6816 โ ข FAX 421 6826

4รญmar 421 7879, 863 3455

Bร MBCBยงJยง t #SFLLVTUร H BยงLFZSTMB GSร #BLLBTUร H

Fasteignasala

)BGOBSHร UV t ,FรธBWร L 4ร NJ t XXX GBTUFJHO DPN

24

Vร SIR

Fasteignasala G.ร . 421 2200

Hafnargรถtu 27 - Sรญmi 421 1420

Fรฉlag skipstjรณramanna รก Suรฐurnesjum


Í ÆFINGABÚÐUM HJÁ 76ers Köruknattleikur

Það var mikil eftirvænting í loftinu þann 28. júní s.l. þegar 8.fl. kvenna í körfu hélt til fyrirheitna landsins í æfingabúðir á vegum Philadelphia 76ers. Langþráðu takmarki var náð eftir mikla vinnu sem allir höfðu lagt á sig til að gera þennan draum að veruleika. Stelpurnar höfðu nýverið landað með yfirburðum sínum þriðja Íslandsmeistaratitli í röð svo nú var kominn tími á nýjar áskoranir. Hópurinn sem hélt af stað til New York þennan fimmtudagsmorgun samanstóð af 18 stelpum, þjálfara, 2 fararstjórum og nokkrum áhugasömum stuðningsmönnum (foreldrum og systkinum), alls um 29 manns. Þegar hópurinn lenti beið hans rúta sem hélt áleiðis til smábæjarins Stroudsburg í Pennsilvaniu en hann er í næsta nágrenni búðanna. Ekið var ca. hálfa leið en þá var stoppað í “molli” við þjóðveginn þar sem stelpurnar fengu tækifæri til að kanna viðskiptahæfileika sína og ameríska skyndibitaflóru. Nokkrum pokum síðar var haldið af stað á ný og komið á hótelið undir kvöld þar sem farið var í snemma í háttinn eftir heljarinnar pizzu át. Næsti dagur var tileinkaður verslun og viðskiptum og var byrjað á að heimsækja stórt “outlet” í nágrenninu. Þar var hópnum skipt upp í smærri einingar og síðan straujað í gegnum hverja búðarholuna á fætur annarri. Aðdáunarvert var að fylgjast með hversu röggsamar stelpurnar voru í innkaupum og greinilegt að þær eiga sér margar bjarta framtíð í þeim geira. Mörgum pokum síðar var farið á ný í strætó og nú var mollið í Stroudsburg straujað. Til allrar

hamingju var einn pabbinn búinn að leigja sendiferðarbíl þannig að hægt var að hlaða varningnum í hann jafnóðum. Frábærum degi lauk síðan með tískusýningu um kvöldið. Á þriðja degi var bannað að tala um verslanir enda planið að taka það rólega þar sem stelpurnar áttu að mæta í æfingabúðirnar um kvöldið. Eyddum við deginum í flottum vatnsleikjagarði í nágrenninu í blíðskaparveðri. Um kvöldið var síðan komið að kveðjustund þar sem Magga þjálfari og stelpurnar fóru með leigubílum í búðirnar en við sem eftir sátum fórum að tygja okkur til New York þar sem flestir aðstandendur ætluðu að eyða næstu dögum. Í búðunum var afskaplega vel tekið á móti stelpunum og fengu þær sinn eigin bjálkakofa til umráða. Þegar þær voru vaktar kl. 7.30 á morgnanna var ástand kofanna kannað og fékk snyrtilegasti kofinn að fara í morgunmat með starfsfólkinu. Skemmst er frá því að segja að stelpurnar unnu oftast þessa keppni. Í búðunum voru bæði stelpur og strákar á aldrinum 11-17 ára og komu þau m.a. frá Kanada, Portúgal og Ísrael, þó heimamenn hafi verið fjölmennastir. Eftir fyrsta daginn í búðunum var öllum skipt eftir getu í 7-8 manna lið sem fengu sinn eigin þjálfara. Síðan var öllum liðum raðað í deildarkeppni. Æft var í tvo tíma á morgnanna og síðan gefinn frjáls tími fram að hádegismat. Eftir mat komu yfirleitt þekktir þjálfarar eða NBA leikmenn frá 76ers sem héldu fyrirlestur um galdra körfuboltans. Að því loknu var leikið í deildinni og síðan gefinn frjáls tími sem nýttur var til að fara í sundlaugina, út

á bát eða æfa sig í enskunni. Kvöldmatur var borðaður kl. 17.30 og síðan spilað í deildinni á nýjan leik í ca. tvo tíma. Í lok kvölds var farið í ýmsar körfuboltatengdar einstaklingskeppnir og eftir kvöldhressingu voru allir komnir í koju kl. 10.30. Suma morgna var Magga þjálfari búin að rífa stelpurnar upp klukkan sex og búin að taka góða morgunæfingu þegar wakee, wakee Iceland var galað fyrir utan kofann. Á föstudeginum þegar stelpurnar voru búnar að vera sex nætur í búðunum mættum við foreldrar og fararstjórar eftir morgunmat á staðinn og fengum að fylgjast með úrslitaleikjum og uppskeruhátíð þar sem veitt voru margvísleg verðlaun. Okkar stelpur sópuðu til sín fjölmörgum viðurkenningum og allar voru þær leystar út að lokum með vottorði um styrkleikamat á ýmsum þáttum leiksins. Að endingu var öllum boðið í “barbecue” og þegar stelpurnar höfðu hvatt og knúsað alla starfsmenn og nýju félagana, var stigið upp í rútu og stefnan tekin á New York. Þegar þangað var komið eyddum við restinni af deginum á Manhattan þar sem við gengum í halarófu um Times Squere, fórum upp í Empire States og skoðuðum það sem á vegi varð. Það voru örþreyttir, en hamingjusamir ferðalangar sem skriðu inn á hótel þegar farið var að nálgast miðnætti. Frábær ferð var á enda komin og aðeins nóttin og flugið heim sem beið okkar handan við hornið. Að lokum ber að þakka öllum þeim sem gerðu þessa ferð að veruleika. Ber þar fyrst telja Margréti Sturlaugsdóttir þjálfara sem hefur haldið utan um stelpurnar frá upphafi. Framúrskarandi fararstjórum þeim Gerði og Bobbie, frábæru foreldrastarfi allan s.l. vetur og ekki síst stelpunum sjálfum sem voru félaginu og sjálfum sér til sóma. Allir sem styrktu flokkinn til ferðarinnar fá þúsund þakkir fyrir. Með Jóla Körfu Kveðju Jón Ben Einarsson “aðstoðarfararstjóri og stuðningsmaður”

25


Yngri flokkar knattspyrnudeildar Starfið er blómlegt hjá yngri flokkum Knattspyrnudeildar Keflavíkur. Iðkendur eru 423 talsins allt frá 8. flokki til 3. flokks karla og kvenna, iðkendafjöldi hefur farið vaxandi hjá félaginu. Foreldrafélög eru starfandi hjá hverjum flokki sem hafa það markmið að standa vörð um hagsmuni iðkenda, þau eru tenglar á milli foreldra, þjálfara og barna- og unglingaráðs. Hérna koma nokkur góð ráð fyrir foreldra: Verið dugleg að mæta á æfingar og leiki, hvetjið barnið og allt liðið. Hrós er besta leiðin til að byggja upp sjálfstraust, sýndu jákvæðni og stuðning sérstaklega í mótlæti og forðastu að setja pressu á barnið hvað varðar frammistöðu þess á vellinum. Láttu þjálfarann um að þjálfa og dómarann um að dæma. Ekki gagnrýna. Spurðu barnið að lokinni keppni hvort var gaman og hvernig það stóð sig, ekki endilega hvernig fór því úrslitin eru ekki aðalatriði. Verið virk á foreldrafundum og í foreldraráði, þar sem umræður fara fram um þjálfun og markmið, þar er ykkar vettvangur. Verið góð fyrirmynd fyrir börnin með jákvæðri framkomu gagnvar t þjálfaranum, dómaranum og liði andstæðinga. Starfandi eru 6 þjálfarar og aðstoðarþjálfarar sem við erum mjög stolt af, þeir skiptast þannig: Gunnar Magnús Jónsson 8. flokkur

Elís Kristjánsson 7. flokkur pilta. Unnar Sigurðsson til aðstoðar. Unnar Sigurðsson 6. flokkur pilta. Óskar Rúnarsson til aðstoðar. Unnar Sigurðsson 5. flokkur pilta. Óskar Rúnarsson til aðstoðar. Zoran Daníel Ljubicic 4. & 3. flokkur pilta. Haukur Benediktsson 4. & 3. flokkur pilta. Elís Kristjánsson þjálfar einnig alla kvennaflokka. Gunnar Magnús Jónsson var þjálfari 5. flokks pilta en ákvað að söðla um og þjálfa stúlkurnar hjá Grindavík, við óskum honum alls hins besta á nýjum vetfangi. Unnar Sigurðsson tekur að sér 5. flokkinn í staðinn. Þjálfarar okkar vilja samvinnu. Það geta komið upp þær aðstæður þar sem foreldrar eru ekki sáttir við ákvarðanir þjálfara, ef það gerist er best að ræða það beint við þjálfarann í stað þess að velta málunum fyrir sér við aðra aðila. Til umhugsunar: Árangur þjálfunar barna í knattspyrnu á ekki eingöngu að meta út frá því hversu margir titlar eða leikir unnust heldur hversu mikil aukning hefur orðið á fjölda barna sem æfa knattspyrnu, framförum leikmanna og hversu lítið brottfall hefur orðið í flokknum. Knattspyrnuiðkun barna er þroskandi og kostirnir eru fjölmargir: Þú eignast góða vini. Tækifæri til að bæta líkamlega færni og sjálfstraust.

Íris Björk Rúnarsdóttir og Anna Rún Jóhannsdóttir

26

3. flokkur kvenna

Betri hreyfiþroski félagsþroski.

og

Agi og sjálfsagi Það lærist hvernig á að vinna í hóp til að ná sameiginlegum árangri. Þú lærir að taka tillit til annarra og vinna með ólíkum einstaklingum. Skemmtun, gleði, spenna og ánægja bæði fyrir barnið og foreldra. Við bjóðum nýja iðkendur sérstaklega velkomna til okkar. Öllum er frjálst að mæta á æfingu og kanna hvort knattspyrna sé íþróttagrein við hæfi. Ekkert gjald er tekið eftir fyrsta mánuðinn ef viðkomandi kýs að halda ekki áfram. Þann 6. október var lokahóf yngri flokka Knattspyrnudeildar Keflavíkur haldið með hefðbundnum hætti. Farið var yfir starf ársins hjá öllum flokkum og þeir verðlaunaðir sem þóttu skara fram úr hjá 5. 4. og 3. flokki en hjá 6. og 7. flokki fengu þeir viðurkenningu sem höfðu besta mætingu. Allir iðkendur hjá 6. og 7. flokki fengu viðurkenningarskjal. Eftirfarandi viðurkenningar voru veittar:

7. flokkur Besta mæting 7.fl. yngri Axel Fannar Sævarsson 97.12% Guðmundur F. Sigurðsson 97.12% Besta mæting 7.fl. eldri Arnór Snær Sigurðsson 91.73% Eggert Gunnarsson 91.73% Í kvennaflokkum 6. flokkur Besta mæting Íris Ósk Hilmarsdóttir 85.71% 5. flokkur Besta mæting Tinna Björt Guðbjörnsdóttir 93.98% Besti félaginn Ísafold Norðfjörð Agnarsdóttir Mestu framfarir Una Árnadóttir Leikmaður ársins Marta Hrönn Magnúsdóttir 4. flokkur Besta mæting Guðrún Sigmundsdóttir 97.14 % Besti félaginn Birna Helga Jóhannesdóttir Mestu framfarir Ólöf Rún Halldórsdóttir Leikmaður ársins Bryndís Þóra Ásgeirsdóttir 3. flokkur Besta mæting Zohara Kristín 84.35 % Besti félaginn Anna Helga Ólafsdóttir Mestu framfarir Elísa Gunnlaugsdóttir

7. flokkur

Leikmaður ársins Laufey Ósk Andrésdóttir Bestu leikmenn yngri flokka kvenna Félagi ársins Sigríður Sigurðardóttir 4. fl. Framfarir ársins Agnes Helgadóttir 3.fl. Markvörður ársins Zohara Kristín 3.fl. Varnarmaður ársins Marsibil Sveinsdóttir 4.fl. Miðjumaður ársins Sigurrós Eir Guðmundsdóttir 4.fl. Sóknarmaður ársins Guðrún Ólöf Olsen3.fl. Leikmaður ársins Íris Björk Rúnarsdóttir3. fl. Í karlaflokkum 6. flokkur yngri Besta mæting Björgvin T. Hilmarsson 99,3% 6. flokkur eldri Besta mæting Eiður Snær Unnarsson 98,6% 5. flokkur yngri Besta mæting Arnór Smári Friðriksson 97,32% Besti félaginn Vignir Páll Pálsson Mestu framfarir Ari Steinn Guðmundsson Leikmaður ársins Einar Þór Kjartansson Leikmaður ársins Leonard Sigurðarson 5. flokkur eldri Besta mæting Arnar Már Örlygsson 97,32% Besta mæting Björn Elvar Þorleifsson 97,32% Besta mæting Elías Már Ómarsson 97,32% Besti félaginn Brynjar Freyr Garðarsson Mestu framfarir Birkir Freyr Birkisson Leikmaður ársins Axel Pálmi Snorrason 4. flokkur yngri Leikmaður ársins Magnús Brynleifsson


Barna- og unglingaráð skipa Smári Helgason formaður Unnar Stefánsson gjaldkeri Jóhanna Einarsdóttir innheimta æfingagjalda Björn Kristinsson ritari Ómar Ingimarsson meðstjórnandi Ragnheiður Gunnarsdóttir meðstjórnandi Rúnar Magnússon meðstjórnandi Ólafur Gylfason meðstjórnandi Ægir Emilsson meðstjórnandi Valtýr Guðbrandsson meðstjórnandi Barna- og unglingaráð þakkar þjálfurum, dómurum og foreldrum fyrir gott samstarf á síðastliðnu keppnistímabili. Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Unglingalandsmót UMFÍ Höfn

lentum í fyrsta sæti þá. Þegar verðlaunaafhendingunni var lokið var farið upp á tjaldstæði og pakkað saman dótinu og sumir lögðu af stað heim en aðrir fóru á mánudeginum. Okkur fannst þessi ferð mjög vel heppnuð og ætlum við að skella okkur á næsta ári líka en Landsmótið verður

Í sumar fórum við 9. flokkur kvenna í Keflavík á unglingalandsmótið á Höfn í Hornafirði um verslunarmannahelgina 2007. Sumir lögðu af stað á miðvikudegi og stoppuðu í Skaftafelli þar sem nokkrar skvísur úr liðinu komu saman ásamt fjölskyldum þeirra og grilluðu og spjölluðu saman. Á fimmtudeginum komu allir á Höfn og þar var komið sér fyrir á tjaldstæði merkt fyrir Keflavík.Á fimmtudagskvöldið grilluðu fjölskyldurnar saman og svæðið var skoðað og okkur leist bara mjög vel á staðinn. Svo var haft það notalegt um kvöldið. Á föstudeginum áttu bæði liðin tvo leiki og stóðu bæði lið sig vel. Eftir leikina fórum við stelpurnar í sund saman og slökuðum aðeins á. Allir sem tóku þátt í mótinu fengu frítt í sund. Á daginn var yfirleitt „hangið” uppí íþróttahúsi að horfa á leiki hjá hinum liðunum og spilað „pick up” leiki þegar engin lið voru að spila. Oft var líka bara verið að rápa um svæðið og hitta aðra krakka. Um kvöldið fórum við á mótssetninguna þar sem var farið í skrúðgöngu og endað á frjálsíþróttavellinum og forsetinn sjálfur Ólafur Ragnar Grímsson mætti á svæðið og hélt ræðu fyrir viðstadda. Svo var kveikt á landsmótseldinum og hann logaði á meðan mótið fór fram. Eftir mótssetninguna fórum við stelpurnar á kvöldvökuna og dönsuðum út í eitt eða kannski tvö. Eftir kvöldvökuna var labbað upp á tjaldstæði til þess að fara að sofa eftir skemmtilegan dag. Laugardagurinn var bara nokkuð svipaður föstudeginum en við kepptum einnig 2 leiki og fórum í sund og fleira. Við fórum líka á „ball” um kvöldið og það

haldið í Þorlákshöfn þá. Við hvetjum alla til þess að koma og jafnvel þar næsta ár líka en við mælum með þessu móti því það var þvílíkt stuð. Höfundar: Kristjana Vigdís Ingvadóttir, Telma Lind Ásgeirsdóttir og María Ben Jónsdóttir.

var bara skemmt sér alveg hrikalega vel! Þær hljómsveitir sem komu fram þessi kvöld voru alveg hreint geðveikar. Sunnudagurinn var að mestu leyti eins og hinir dagarnir en í lok dagsins, það er að segja þegar allir leikirnir voru búnir og úrslit voru ljós var haldin verðlaunaafhending. Annað Keflavíkurliðið lenti í öðru sæti og hitt í þriðja sæti en í fyrra gekk okkur betur og við

Framtíðarreikningur Glitnis

– fyrir káta krakka með stóra drauma • Bestu vextir sparireikninga bankans • Verðtryggður reikningur • Auðvelt og þægilegt að spara reglulega • Bundinn þar til barnið verður 18 ára

Gefðu inneign á Framtíðarreikning Glitnis og fáðu fallega Latabæjarderhúfu í Latabæjaröskju í kaupbæti.* Framtíðarreikning færðu í næsta útibúi Glitnis. Það er líka sáraeinfalt að ganga frá málinu á www.glitnir.is og fá glaðninginn sendan beint heim.

H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A – 0 7 – 2 0 2 9

Mestu framfarir Þorbjörn Þórðarson Besti félaginn Bergþór Smárason Besta mætingin Emil Ragnar Ægisson 4. flokkur eldri Leikmaður ársins Lukas Malesa Mestu framfarir Eyþór Ingi Einarsson Mestu framfarir Daníel Gylfason Besti félaginn Davíð Guðlaugsson Besti félaginn Aron Ingi Valtýsson Besta mæting Eyþór Ingi Júlíusson 3. flokkur Leikmaður ársins Sigurbergur Elísson Mestu framfarir Magnús Þór Magnússon Mestu framfarir Róbert Örn Ólafsson Besti félaginn Gauti Þormar Besta mæting Kristján Helgi Olsen Bestu leikmenn yngri flokka karla Leikmaður ársins Viktor Gíslason Besti sóknarmaður Elías Már Ómarsson Besti miðjumaður Bojan Stefán Ljubicic Besti varnarmaður Arnþór Ingi Guðjónsson Besti markvörður Árni Freyr Ásgeirsson Félagi ársins Birgir Ólafsson Mestu framfarir Ásgrímur Rúnarsson

* Ef keypt er fyrir 3.000 kr. eða meira. á meðan birgðir endast.

27


25. Landsmót UMFÍ UMSK var mótshaldarinn að þessu sinni og fór mótið fram í Kópavogi dagana 5. - 8. júlí. Ungmennafélag Íslands fagnar 100 ára afmæli sínu á árinu og af því tilefni var landsmótið hluti af afmælishátíðinni með glæsilegri setningarhátíð. Setningarhátíðin var á Kópavogsvelli og var mikið um dýrðir. Kynnir opnunarhátíðar var leikarinn geðþekki, Örn Árnason. Skólahljómsveit Kópavogs lék ásamt kórum Kársnes- og Snælandsskóla. Friðrik Ómar söng með kórunum. Þá sungu tenórsöngvararnir Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Gunnar Guðbjörnsson og Björn Jónsson. Hera Björk, Regína Ósk, Margrét Eir og Heiða Ólafsdóttir þöndu raddböndin og Eiríkur Hauksson kom til landsins af þessu tilefni og tók lagið. Birgitta Haukdal og Jónsi fluttu landsmótslagið sem samið var sérstaklega af Trausta Bjarnasyni fyrir hátíðina. Götuleikhús Kópavogs, leikhópurinn Kærleikur og fjöllistamenn frá Hinu Húsinu komu fram. Einnig ber að nefna glæsilega fimleikasýningu og glímusýningu sem æfðar höfðu verið sérstaklega fyrir hátíðina. Keppt var í 800 metra hlaupi og þátttakendur á mótinu gengu fylktu liði inn á völlinn. Fo r s e t i Íslands, menntamálaráðherra,

bæjarstjóri Kópavogs og formaður UMFÍ heiðruðu samkomuna sem var hin glæsilegasta í alla staði. Lið UMSK fór með sigur í stigakeppni mótsins en liðið hlaut alls 2143 stig. HSK varð í öðru sæti með 1740,7 stig og ÍBR í þriðja sæti með 1539,7 stig. Keflavík endaði í fimmta sæti með 554 stig. Keflavík varð landsmótsmeistari í körfu með 180 stig og

landsmótsmeistarar í sundi með 374 stig. Að þessu sinni tókum við þátt í körfuknattleik karla og kvenna auk 13 sundmanna. Miðað við fjölda þátttakanda frá okkur, en við tókum bara þátt í tveimur greinum, verður þetta að teljast mjög góður árangur. Sundfólkið okkar tók líka öll einstaklingsverðlaunin sem í boði voru. Einar Haraldsson

Verðlaunahafar í sundi með verðlaunin ásamt stigabikar félagsins.

Opnum 28. desember

Flugeldasala Knattspyrnudeildar Keflavíkur

Iðavöllum 7 28


Yngri flokkar knattspyrnu 2006-2007 7.fl. drengja /stúlkna. 40 iðkendur voru í flokknum og var mæting á æfingar heilt yfir nokkuð góð. Eina alvöru mótið sem tekið var þátt í fór fram á Akranesi í sumar. Gist var í tvær nætur og fjögur lið (a,b,c og d) tóku þátt og var árangur góður þó ekki hafi náðst að vinna til verðlauna, enda á það ekki að vera markmiðið í þessum aldursflokki, heldur að hafa gaman af því sem þau eru að gera, allt annað er svo bara plús. 5.fl. kv. Eins og undanfarna vetur þegar skólastarf hefst flykkjast nýjar stúlkur á æfingar og útlitið nokkuð gott með sumarið hvað varðar fjölda iðkenda. En um leið og sólin fer að hækka á lofti og knattspyrnusumarið að hefjast þá hverfa þessir iðkendur og eitthvað annað tekur við t.d. að passa börn og foreldrar að streyma í ferðalög . Ég gerðist nú svo bjartur að skrá tvö lið til keppni á Íslandsmóti en hefði betur gert að skrá eitt, því stundum varð að gefa leiki hjá b-liði þar sem ekki náðist nema rétt svo að manna eitt lið. Stelpurnar stóðu sig bara vel og var gaman að sjá þær yngri sem eiga í raun að vera í 6.fl. spila gegn eldri

stelpum og ekkert gefið eftir. Símamótið í Kópavogi er nú yfirleitt hápunkturinn á sumrinu, þar vorum við með eitt lið. Gist var í þrjár nætur og mikið fjör að gerast fyrir utan knattspyrnuleikina sem spilaðir eru, kvöldvökur og fl.. 4.fl. kv. Fyrir utan Íslandsmótið þá var utanlandsferðin til Liverpool (sjá ferðasögu) hápunkturinn á sumrinu hjá stelpunum. Flokkurinn spilaði í A-riðli á Íslandsmótinu. Fyrirfram þótti sýnt að erfitt gæti reynst að halda sér í þeim riðli þar sem að flestar voru að stíga sín fyrstu skref að spila á stórum velli, en það hafðist og gott betur. Þá fór Sigurrós Eir Guðmundsdóttir í knattspyrnuskóla KSÍ sem haldinn var á Laugarvatni. 3.fl. kv. Flokkurinn spilaði í A-riðli á Íslandsmótinu. Hópurinn var ekki stór en þessi flokkur hefði getað gert það gott og náð langt í sumar ef allar hefðu haldist heima. Það var aldrei hægt að stilla sterkasta liðinu upp í sumar og liðið stundum skipað stelpum úr 4.fl, að meirihluta. Þetta þýddi að í staðinn fyrir að berjast á toppnum þá vorum

við í fallbaráttu allt sumarið. Við náðum þó að halda okkur uppi. Það var ekki fyrr en í lokaleiknum gegn nýkrýndum Íslandsmeisturum Breiðabliks sem hægt var að stilla upp sterkasta liðinu og mátti Breiðablik þakka fyrir að ná jafntefli. Bara þessi úrslit segja hvað hefði getað orðið hjá flokknum. Það er pirrandi að vera allan veturinn að reyna að búa til lið í hvaða flokki sem er og svo er allt ónýtt í þessa tvo mánuði á sumrin sem spilað er Íslandsmót. Margar stelpur spiluðu einnig með 2.fl. og þá léku þær Agnes Helgadóttir, Guðrún Ólöf Olsen og Íris Björk Rúnarsdóttir sína fyrstu leiki með meistaraflokki í Landsbankadeildinni. Fanney Þórunn Kristinsdóttir og Sigurbjörg Auðunsdóttir léku með meistaraflokki í deildarbikarnum í vetur. Ég vil þakka þeim stelpum sem gengu nú upp í 2.fl. fyrir árin sem við unnum saman og óska þeim velfarnaðar á knattspyrnuvellinum. Að lokum vil ég þakka foreldrafélögum flokkanna fyrir mjög svo gott samstarf á þessu tímabili.

BÍLASALA Bolafæti 1 • 260 Reykjanesbær • Sími 421 4444 • www.sgbilar.is

Elis Kristjánsson: Þjálfari

TOYOTA

REYKJANESBÆ

Styðjum unglingastarf Knattspyrnudeilda Keflavíkur

Ármúla 36 • 108 Reykjavík • Sími 588 1560 • www.joiutherji.is

29


U.S.A. Cup

Eftir Hákon Stefánsson og Sigurberg Elísson brjálæðingar því Brasilía voru nýbúnir að sigra Argentínu í Suður-Ameríkubikarnum og náði Gauti nokkur Þormar að láta alla á svæðinu öskra ; Iceland! Iceland sem var alveg magnað. Svo fórum við að sofa bara rétt eftir þetta.

Allir klárir í slaginn

Föstudagurinn 13. júlí Ferðin byrjaði á því að við mættum allir hressir og kátir kl. 14 upp í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Við tókum liðsmynd af okkur öllum og fararstjórunum fjórum. Það er nú varla frásögu færandi að segja hvað við vorum að gera í fríhöfninni, það hljóta nú flestir að vita hvað er gert í fríhöfnum. En alla vega byrjuðum við að labba út að hliði einhverjar mínútur í fimm. Flugið til U.S.A. var rosalega tíðindalítið, flugið heim var meira spennandi, ég ætla ekki að tala um það núna. Við lentum um 6 og tók þá á móti okkur indælis maður að nafni Terry, Terry hafði verið með öll íslensku liðin sem komu á mótið. Við fórum í svona alvöru School bus eins og þetta heitir nú á ensku. Þetta var mjög skemmtileg upplifun þar sem maður sér þetta oft í sjónvarpinu og enginn af okkur hefur verið í school bus áður. En eftir því sem lengra dró á ferðina, þá fannst okkur þetta ekkert spes lengur. Loksins þegar við komum á áfangastað sem hét the University of Minesota, fórum við allir og hentum töskunum inn í herbergin og fórum út að borða. Á þessum veitingastað sem við fórum á fengu nokkrir sér „hot wings“ og gátu þeir ekki klárað né borðað þá vegna þess að þeir voru svo sterkir. Laugardagurinn 14. júlí Næsta dag vöknuðum við kl. 8, fengum okkur morgunmat og fórum beinustu leið

30

í „outletin“. Fólk segir að konur versli mikið, þá hljótum við bara að vera konur. Því hver og einn einasti varð verslunarvitlaus. Það var keypt og það var keypt og það var keypt, 6-8 pokar á mann. Ég hélt svona í byrjun að 8 klukkustunda verslunarferð væri of mikið en það endaði með því að vera rétt mátulegt. Allir búnir að versla yfir sig af fötum, skóm og Guð má vita hvað. Sunnudagurinn 15. júlí Við svo mikið sem skelltum okkur í tívolí þennan dag og þarna held ég að hvað alflestir hafi misst röddina eftir öskrin í tívolíinu, sumir köstuðu upp en sumir rétt sluppu við það. Sumir voru hetjur og fóru í flest öll tækin en sumir þorðu ekki í nein tæki. Það voru tveir drengir sem eyddu “smá” pening í eitt tæki ! Og það voru Birgir og Róbert, þeir eyddu nokkuð miklum pening í þetta eina tæki. Nokkrir aðilar nældu sér í einhverjar amerískar píur en þeir verða ekki nafngreindir að þessu sinni. Þessum degi var mest eytt í tívolíið sjálft! Vorum hátt í 6-7 klst.! Frábær dagur hjá okkur peyjum. Svo var bara farið í „School Bussinn“ og haldið heim á leið í skólann, þar sem margir sofnuðu strax vegna þreytu. Mánudagurinn 16. júlí Jú, við skelltum okkur í víðfræga Mall Of America þar sem jú margir dollarar fuku ! En gallinn var sá að það var ekkert ódýrt þarna. En það

voru sömu aðilar sem eyddu allsvaðalegum pening rétt eins og í Outletinu, þeir Birgir og Viktor Smári. Um kvöldið var sannkölluð opnunarhátíð við leikvang fullum af fólki sem var gargandi og æpandi. Við ætluðum að vera svaka töffarar og koma með flotta innkomu á völlinn en hún misheppnaðist alveg skelfilega og þökkum Guði fyrir að enginn hafi séð það hér á landi! Fagnaðarköllin voru gífurleg þegar Íslensku liðin stigu fæti inná völlinn. Eftir að það var búið að kynna öll liðin ákváðum við að blanda smá geði við hin liðin, við röltum í svona 3-4 hópum og ákváðum að spjalla við einhverjar stelpur, en þá brá okkur í brún, nánast ÖLL stúlknaliðin á þessu móti hópuðust í kringum Íslensku víkingana og vildu ólmar taka mynd af okkur en það voru ekki bara stúlkurnar heldur líka fullorðnir foreldar. Við strákarnir vorum voða sniðugir og grínuðumst aðeins í stelpunum og komum með rosalegar setningar eins og ; “We live in snowhouse’s and we have penguin’s for pets” og þessar Bandarísku stúlkur stóðu fyrir framan okkur með alveg galopinn munninn og gjörsamlega trúðu öllu sem við sögðum! Og þegar við ætluðum að labba að rútunni þá heyrum við: O My God ! There are the Icelandic boys!. Svo þurftum við að taka enn eina myndina. En svo var haldið í skólann og hvílt okkur því næsta dag beið okkar fyrsti leikur sem var

sýndur í beinni útsendingu. Þriðjudagurinn 17. júlí Einn erfiðasti leikur sem við höfum spilað á ævinni okkar vegna hita. Sumir fengu alveg rosalegan sólsting meðan aðrir gátu varla andað vegna þreytu. En leikurinn hafðist með sigri 2-1. Leikmenn andstæðinganna voru ekkert að spara orðin heldur kölluðu hann Hákon okkar ; Big Red eftir tyggjóinu fræga en fyrir þá sem vita ekki er kauði rauðhærður. Um kvöldið þegar við skelltum okkur í sturtu og sumir komnir á brókina heyrum við í sekkjarpípu og í Brössunum á lóðinni fyrir utan. Nokkrir strákar skelltu sér út og þá blasa við þeim Skotar í skotapilsum og Brassar sem sungu eins og

Miðvikudagurinn 18. júlí Unnum leikinn gegn heimaliðinu 4-0. Þessum leik þurfti að hætta þegar 15 mín voru eftir vegna “þrumuveðurs”sem kom svo aldrei, þetta voru rigningardropar eins og við mundum kalla það, þarna kom í ljós ofsóknarbrjálæði Bandaríkjamanna. Gauti náði að lokka til sín stúlkur fyrir þennan leik með því að kalla á þær; Hey girls! Remember me, I’m the guy number 3. Og svo allt í einu skorar hann sitt fyrsta mark fyrir Keflavík og má þess geta að hann keypti sér bol sem á stóð I scored. Um kvöldið var sundlaugarpartý og náðu nokkrir drengir að gabba kanann með því halda því fram að Gauti ætti afmæli og það gekk svo heldur betur upp. Við (Hákon og Sigurbergur) vorum þá á vappi um laugina og heyrum allt í einu; Gúti (eins og kaninn bar það fram) from Iceland has a birthday today ! Þetta var alveg frábært og sprungu margir úr hlátri, svo eftir á heyrist í Gauta: Heyrðu þið þetta strákar, heyrðu þið þetta ?

Allir eld hressir í sundlaugapartíinu


Svo komu nokkrir hópar og sungu afmælissönginn fyrir Gauta. Fimmudagurinn 19. júlí Við þurftum að vakna óvenju snemma þennan dag réttara sagt kl. hálf 7 því að við áttum leik kl. 8. Þessi leikur byrjaði ekki vel fyrir okkur og það tók okkur alveg 40 mín. að fara í gang, en með töfraorðum Zorans náðum við að rétta úr gírnum og eftir að vera undir 2-1 í hálfleik sigruðum við 3-2 og þá var komið í ljós að íslensku víkingarnir hefðu komist í 8 liða úrslit. Föstudagurinn 20. júlí Þetta var sögulegur dagur hjá sumum strákunum. Sumir vöknuðu og voru að deyja úr stressi því að við vorum að fara spila í 8 liða úrslitum og ef við myndum vinna þá færum við í undanúrslit seinna um daginn. Við sigruðum fyrri leikinn 1-0 og þess má geta að það var einn ákveðinn leikmaður andstæðinganna sem var svolítið pirraður eftir tapið hjá sínum mönnum sem var að „representa“ WestCoast eins og hann orðaði það. Merkilegt nokk. Þá var komið að undanúrslitum. Enginn maður þarna á mótinu bjóst við því að litla liðið frá Íslandi væri komið í undanúrslit. En þá var leikurinn hafinn,eftir hetjulega baráttu endaði leikurinn 0-0 og þess vegna þurfti að grípa til framlengingar. Hún endaði líka 0-0 þannig að þá var ljóst að það stefndi í vítaspyrnukeppni. Þar þurftum við að bíða lægri hlut! Töpuðum 5-4 í vítaspyr nukeppninni. Þá getum við strákarnir viðurkennt að tárin hafa ekki streymt niður svona mikið niður kinnarnar í langan tíma. Ballið var eftir leikinn og sumir

nenntu ekkert sérstaklega á það eftir allt þetta. En sumir skemmtu sér konunglega og get ég nefnt 2 unga drengi sem tóku dansgólfið útaf fyrir sig, þeir eru Tómas og Gauti. Þeir voru allsvaðalegir að sjá og var sláttuvéladansinn hans Gauta sem gerði útslagið, hann var alveg frábær. En fyrir þá sem vita ekki hvað það er þá er það alveg afspyrnu kjánalegur dans. Laugardagurinn 21. júlí Þessi dagur fór meira eða minna í andlega leti. Við vorum bara að versla í Target, sumir fóru á úrslitaleikinn og bara gera ekki neitt. Í Target eyddum við okkar seinustu dollurum. Eftir verslunarleiðangurinn fórum við aftur niður í skóla, pökkuðum niður, gengum frá í herbergjum okkar og héldum áleiðis upp á flugvöll. Upp á flugvelli kvöddum við hann Terry. Í fluginu heim kom upp á mjög skemmtilegt/ undarlegt atvik. Var það maður sem nokkrir af okkur blönduðum geði við. En hann hafði verið að drekka og því orðin ansi skrautlegur og þó aðallega þegar hann reif kjaft við flugfreyjurnar. Hann var með eitthvað vesen og eina viðtakan sem hann fékk þegar hann kom heim var frá Lögreglu Suðurnesja. Ég (Sigurbergur) og Hákon viljum þakka fyrir samveruna og einnig öllum sem að þessu komu. En við viljum nota tækifærið og þakka Haukastúlkunum fyrir samveruna og dansinn í lokin.

Að lokum viljum við óska öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Að lokum viljum við óska öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

31


Mikill uppgangur í taekwondo

Árið 2007 reyndist vera mjög viðburðaríkt fyrir taekwondodeild Keflavíkur. Helgi Rafn Guðmundsson, kennari og aðalkeppandi deildarinnar keppti á Norðurlandamótinu í Svíþjóð í janúar. Hann var valinn í A-landsliðið og vann til silfurverðlauna á mótinu eftir harða baráttu í sterkum flokki. Fyrsta taekwondo mót sem haldið hefur

32

verið á Suðurnesjunum, 2. Bikarmót Trésmiðju Snorra Hjaltasonar(TSH), var haldið í febrúar. Mótið var í Íþróttaakademíunni og er skrifað fjölmennasta mót sem haldið hefur verið á Íslandi. 200 keppendur voru á mótinu en það er tvöfalt aðsóknarmet á stærsta mót þar áður sem lýsir mikilli aukningu íþróttarinnar á landsvísu. Stærð Keflavíkurliðsins var

einnig sögulegt, en rúmlega 60 keppendur voru frá 80 manna deildinni. Aron Yngvi Nielsen, Keflvíkingur, var valinn maður mótsins. Mótið var haldið á glænýjum taekwondo dýnum sem deildin fékk í byrjun árs með aðstoð stuðningsaðila. Dýnurnar breyta taekwondo upplifuninni og æfingaaðstöðu algjörlega. Stórar æfingabúðir fyrir öll félög voru haldin í Íþróttaakademíunni í mars og gekk mjög vel. Utanaðkomandi aðilum þykir Keflvíkingar hafa einstaka aðstöðu til að halda mót og æfingabúðir. Kolbrún Guðjónsdóttir, iðkandi og foreldri, stofnaði foreldrafélag sem reyndist vera mikill styrkur fyrir deildina. Í apríl var 3.TSH mótið haldið og á því var Bikarmeistari TSH krýndur. Hinn ungi og gífurlega efnilegi Aron Yngvi Nielsen vann titilinn, en hann var ósigraður á landinu á tímabilinu 2006-2007. Stórt lið Keflvíkinga náði tæpum 30 verðlaunum og þar af 9 gullverðlaunum, en það var langtum besti árangur Keflvíkinga hingað til. Stórt beltapróf var í Íþróttaakademíunni þar sem 55 Keflvíkingar og 22 Grindvíkingar tóku próf og stóðu sig mjög vel. Meistari beggja félaga og 7 annarra íslenskra félaga, Sigursteinn Snorrason var prófdómari og afhenti yfirkennara Keflavíkur, Helga Rafni Guðmundssyni, viðurkenninguna ,,Kennari ársins hjá SsangYongTaeKwon’’ sem eru samtök sem spanna 9 félög, 500 nemendur og á þriðja tug kennara. Fyrsta innanfélagsmót Keflavíkur var haldið í maí. Það bar heitið ,,Sparisjóðsmótið.’’ Rúmlega 60 keppendur voru á mótinu frá bæði Keflavík og Grindavík. Á lokahófi deildarinnar í lok maí var veturinn tekinn saman og veitt voru verðlaun fyrir

nemanda ársins. Nemandi ársins 2006-2007 var Guðmundur Jón Pálmason. Einnig voru veitt sérstök verðlaun fyrir taekwondo fjölskyldu ársins og var það hin þrælduglega fjölskylda Kolbrúnar Guðjónsdóttur og Brynjars Steinarssonar sem hlaut þá viðurkenningu. Helgi Rafn fór til Kóreu í 3 vikur á tímabilinu júlíágúst til að sækja æfingar og kennaranámskeið. Námskeiðið var haldið í Kukkiwon sem eru höfuðstöðvar taekwondo í heiminum. Þar voru 120 kennarar og meistarar frá rúmlega 30 löndum að sækja námskeiðið. Heimsmeistarar, stórmeistarar og stjórnendur taekwondo sambanda í Kóreu sáu um námskeiðið og var mikið um að vera. Helgi hlaut þar 3. stigs kennaragráðu frá Kukkiwon og er annar Íslendingurinn til að fá þá gráðu. Auk þess fékk hann ásamt meistara sínum, Sigursteini Snorrasyni, einkaþjálfun frá heimsmeistara í taekwondo. Í haust færði taekwondodeildin æfingar sínar algjörlega í Íþróttaakademíuna úr Myllubakkaskóla. Aðstaðan batnaði þar til muna þar sem Myllubakkaskóli var orðinn of lítill fyrir ört vaxandi deildina. Einnig voru nú allar æfingar á taekwondo dýnunum sem deildin fékk fyrr á árinu. Rut Sigurðardóttir,1. gráðu svart belti byrjaði að kenna fast hjá deildinni. Rut er farsælasti kvenkeppandi Íslands og mikill styrkur fyrir deildina. Rut og Helgi Rafn sjá nú um þjálfun deildarinnar. Eftir miklar kynningar og auglýsingar varð sprenging í aðsókn og taekwondo deild Keflavíkur varð sú stærsta á landinu um miðjan september. 130 iðkendur frá 5-45 ára aldri æfa nú hjá deildinni. Bætt var við tveimur flokkum en þeir fylltust

nánast samstundis. Deildin tók upp biðlista fyrst allra taekwondodeilda á landinu. Aðsóknin er enn að aukast og áhugi Suðurnesjamanna á taekwondo er greinilega mjög mikill. Keppnisflokkur var stofnaður fyrir efnilegt keppnisfólk og gengur mjög vel með þann hóp. Fyrsta mót vetrarins var TSH mót sem haldið var 20 október. Aron Yngvi, bikarmeistari, vann sinn flokk örugglega á þessu móti og náði sér í tvenn gullverðlaun og ein bronsverðlaun. Jón Steinar Brynjarsson vann tvö gull og var valinn maður mótsins í fullorðinskeppninni. 140 keppendur voru á mótinu þar af 43 frá Keflavík. Keflvíkingar áttu bestan samanlagðan árangur eða 28 verðlaunasæti. Keppnishópurinn æfði mjög stíft þetta haust og í nóvember fóru 8 keppendur frá Keflavík á Scandinavian Open mótið í Horsens, Danmörku. Mótið er eitt stærsta mótið sem haldið er á Norðurlöndunum ár hvert. Rúmlega 200 keppendur voru á þessu móti frá mörgum klúbbum og löndum. Þar voru 7 ungir og efnilegir keppnismenn Keflavíkur að stíga sín fyrstu spor í erlenda taekwondo keppni. Aron Yngvi Nielsen náði sér í bronsverðlaun eftir harða baráttu og Helgi Rafn Guðmundsson vann sér til silfurverðlauna. Auk þess var Helgi valinn bardagamaður mótsins. Framtíðin er vægast sagt björt fyrir íþróttina á Suðurnesjunum. Sér varla fyrir endann á sigurgöngu Keflvíkinga og stefnan er hiklaust sett á áframhaldandi velgengni og stækkun, sem er eingöngu mögulegt með góðum stuðning, metnaði og mikilli vinnu. Meðal hluta á dagskránni er að fara með risalið á næstu tvö mót og að slá enn fleiri met í keppendaog iðkendafjölda ásamt því að bæta árangur á mótum.


ร skum Suรฐurnesjafรณlki gleรฐilegra jรณla og farsรฆldar รก nรฝju รกri

www.iav.is

le

ร slenskir aรฐalverktakar hf., Hรถfรฐabakka 9, 110 Reykjavรญk, sรญmi 530 4200

S m u d u n รฐ e u s r n รฐ i e v sjam g o รถn iรฐ

n

Um

PRENTSMIร JAN

GRร Gร S

um

okkar bestu jรณla- og nรฝรกrskveรฐjur

รพรถkkum viรฐ farsรฆlt samstarf ...STร NDUM SAMAN Aร BLร MSTRANDI BYGGร

4.*ย +67ยฝ--6. t 3&:,+"/&4#ย t 4ยถ.* t HSBHBT!QSFOUTNJEKB JT 33


Velkomin í nýja og glæsilega verslun okkar að Tjarnargötu 7, Reykjanesbæ Jólagjöfina finnur þú hjá okkur: Tölvur t Sjónvarpsflakkarar Aukahlutir t Prentarar Myndavélar t GSM símar Skjáir og sjónvörp

Verið velkomin

Ný tilboð á Jia Jia

Sérréttamatseðill 4a. 4a

Djúpsteiktar j rækjur

kr kr. 1 1.180 180

með súrsætri sósu

Tilboð nr. 2

Tilboð nr. 1 Djúpsteiktar rækjur með súrsætri sósu Steiktar núðlur með kjúklingi, eggi og grænmeti Svínarif (Kong-Tong) Nautakjöt að hætti Jia Jia í ostrusósi

kr. 1.240 á mann

kr. 1.240 á mann

Gildir fyrir tvo eða fleiri

Með öllum tilboðum fylgir hrísgrjón, súrsæt-, súrsterk- og soyasósa.

5 9 2 6 10 3 7 11 4 8 12

1

gildir Stimpilkortið ðum á hádegistilbo og ay take-aw í kvöldmat

Djúpsteiktar rækjur með súrsætri sósu Steiktar núðlur með grænmeti og nautakjöti Kong Paw kjúklingur með Cashew hnetum Lambakjöt Szechwan style Gildir ffyrir tvo eða fleiri

5a. 6a.

Djúpsteiktur kjúklingur

kr. 1.380

Steiktar núðlur

kr. 1.180

8a.

Steikt hrísgrjón

kr. 1.180

9a.

Stökkir og sterkir nautastrimlar

kr. 1.480

7a.

með súrsætri- og súrsterkrisósu

með kjúklingi, svínakjöti, rækjum eggjum og grænmeti með kjúklingi, svínakjöti, rækjum eggjum og grænmeti

10a. Vorrúllur

kr. 680

með kjöti eða grænmeti (3stk)

11a. Svínarif Kong-Tong

kr. 1.080

12a. Karrý svínakjöt

kr. 1.280

með kókoshnetusósu

Barnamatseðill 13a.

Kjúklingabringa

kr. 380

með frönskum og sósu u

Hóp

Tilboð nr. 3

íminn s r a n u t Pön 11

0

er 420 7

Veldu þína 5 rétti af sérréttamatseðli

kr. 1.240

á mann Gildir fyrir fimm eða fleiri

Hádegishlaðborð alla daga milli kl. 11:30 og 14:30

kr. 1.280

með súrsætri- og súrsterkrisósu

Gengið inn frá Hótel Keflavík

Mundu eftir afsláttarkortinu! 34

Djúpsteikt svínakjöt


5. bekkur stúlkna – Íslandsmeistarar í körfubolta 2007 Á síðastliðnum vetri var 5. bekk í fyrsta skipti boðin þátttaka á Íslandsmóti í körfubolta. Mikill fjöldi stúlkna á þessum aldri æfði með Keflavík og voru því tvö lið skráð til keppni. Það er skemmst frá því að segja að bæði liðin stóðu sig með mikilli prýði og góð stemmning var í hópnum. A-liðið var algerlega ósigrandi, vann alla sína leiki með yfirburðum og enduðu sem Íslandsmeistarar. B-liðið vann flesta sína leiki og enduðu í 5. sæti í A riðli. Þjálfari stúlknanna

Einar Einarsson stýrði stúlknahópnum með styrkri hendi og ljóst er að hann á stóran þátt í velgengni þeirra. Það var eftirtektarvert hversu virkur og áhugasamur foreldrahópurinn var og hefur það eflaust átt sinn þátt í að viðhalda og efla áhuga stúlknanna. Það verður allt svo miklu skemmtilegra þegar allir standa saman. Glæsileg frammistaða hjá ykkur öllum - áfram Keflavík!

www.bilasp.is

35


36


Ferðasaga Króatíu Jæja loksins, loksins rann upp 19. september, kaldur og vel blautur! Hópur Keflavíkurkvenna safnaðist saman í bíla út um allan bæ og brunað var upp í FLE. Þarna voru samankomnir 11 leikmenn og 1 stykki coach! klukkan sló 5:40 og allir mættir! Að vanda komust allir nokkuð þægilega í gegnum skoðun og vegabréfseftirlit og farið var í það að rífa upp bónusinn hjá starfsmönnum FLE, með því að fjárfesta i saltpillum (sem by the way voru sætar þetta árið!) og magazinum. Sennilega hefur hópurinn aldrei verið eins fljótur í gegnum fríhöfnina, enda góð skýring á því, því Anna María var ekki með í för, Svo var bara haldið út í rellu og sennilega höfum við aldrei verið eins seinar út í vél, enda engin gargandi finall call um alla flugstöð á okkur. Svo var lent í Köben nokkrum tímum síðar! eftir mismikinn svefn og hrotur (þeir sem sátu nálægt Svave sváfu minna)! Farið var í það strax að ganga frá næstu miðum og svo var bara rölt um og kíkt í búðirnar þarna til að vita hvort það væri ekki ábyggilega hægt að kaupa eitthvað. En tíminn leið og komið var að næsta flugi! Okkar leggjalanga lið passaði ekki eins vel í þessa SAS rellu eins og þá sem á undan var og handfarangur liðsins átti einnig erfitt með að finna pláss! Sama var uppá teningnum í þessu flugi eins og hinu, poddarnir og koddarnir voru teknir upp og haldið var til Milan! Þegar til Milan var komið, beið hópurinn spenntur eftir því hver yrði fyrir því óláni að fá ekki töskurnar sínar... en allar skiluðu sér sem betur fer og þá var farið í að finna bílstjórana okkar!

Þeir fundust svo og hópnum splittað í tvennt (pretty much yngri og eldri að vanda) og lagt af stað! Planið var strax að finna stoppustað til að nærast aðeins. En eftir að hafa keyrt um alla Ítalíu komið við í Slóveníu sást loksins til Croatíu! Spurning hvernig þetta hefur litið út á landamærunum 3 karlmenn með 11 gullfallegar gellur með sér að flakka á milli landamæra! Ja maður spyr sig! En þetta er kannski bara daglegur hlutur því ekki var verið að gera neina athugasemd við þetta! Skilti sem sýndi Porec this way fóru að sjást og spennan var farin að magnast! því jú allar vorum við spenntar að sjá blessað hótelið, því það hefur nú yfirleitt verið hápunktur þessara ferða okkar! Hótelið blasti loks við okkur, svei mér þá ef það var bara ekki eins og á myndinni sem við vorum búnar að fá! En langur stigi beið okkar og enginn „bellboy“! Þetta gat nú ekki verið alveg fullkomið. Eftir að hafa komið sér þokkalega fyrir var bara haldið í háttinn enda klukkan komin langt fram yfir háttatíma! Nýr dagur rann upp bjartur og fagur! Fyrsti leikurinn okkar var við Pula, sem vann 2. deildina þarna úti síðasta tímabil og eitthvað létu þær nú bíða eftir sér og enginn mætti með bolta út! þannig það var brugðið á það ráð að taka nokkrar góðar fimleikaæfingar, sem Roonie og Hlunkurinn stjórnuðu til að hita mannskapinn upp. Hæfileikar liðsins voru misjafnir skulum við bara segja! En svo mætti liðið og það var farið i að vinna þær. En sigur var raunin í skítsæmilegum leik, og eins og við segjum

Styðjum unglingastarf Knattspyrnudeilda Keflavíkur

Karfa

alltaf eftir slaka leiki! það eru bara góð lið sem vinna þrátt fyrir að spila illa! og það var hlaupið heim á hótel til að ná kvöldsólinni! Svo var bara farið í „shower“ og tekið sig til fyrir dinner, sem var bara borðaður heima á Hóteli þetta kvöldið. Þetta fína hlaðborð beið okkar og hefðu allir átt að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi en alltaf eru einhverjir sem þurfa að kvarta en það var bara hlustað minna á það! Eftir matinn var svo gripið í spilið góða en sumir fóru í það að læra, og má skólafólkið eiga það að þær voru nú bara nokkuð samviskusamar! Nýr dagur rann upp bjartur og fagur, mis-snemma hjá fólki. Kannski hægt að segja að tímamismunurinn hafi ruglað fólk. En æfingin hófst og það var skotið villt og galið, og svo að sjálfsögðu drifið sig heim á hótel um leið og æfingin var búin! Jú þennan daginn átti að halda á ströndina, en liðið var fljótt að skila sér á sundlaugarbakkann, því þessi strönd var víst ekki uppá marga fiska! Enn einn dagurinn rann upp bjartur og fagur og jafn snemma hjá öllum! morgunmatur og svo morgunæfing! fín skotæfing, og teygjur, fátt betra til að koma sér í gang fyrir daginn! Svo var það bara sundlaugarbakkinn góði! Þriðji dagurinn í sólinni. Sunnudagurinn rann upp, allir mættir og haldið var niðrá strönd, því jú það hafði víst verið samþykkt að hafa strandblak þessa morgunæfingu og allir að vera með! Yngri á móti eldri að vanda. Ekki þótti hópnum leiðinlegt þegar boltinn endaði útí sjó og Coach þurfti að bjóða sig fram til að ná í hann! Ekki ósennilegt að skjálftamörkin hafi komist upp fyrir 9 á rigter þarna! Mánudagurinn rann upp bjartur og fagur. Spenna ríkti innan hópsins um að fá að vita hvort hugmynd gærdagsins um að hafa bara eina æfingu þennan daginn yrði samþykkt! Haldið var í gymmið og jú svo var raunin, ein æfing með því skilyrði að sjálfsögðu að vel yrði tekið á því! Eitthvað gekk 5 mínútna æfingin illa þennan daginn og fékk

hópurinn að hlaupa duglega fyrir vikið!!!!! En sólin var vel sleikt þennan daginn og allir kepptust við að ná sem mestum lit! ýmsar hugmyndir litu dagsins ljós hvort sem það var að reyna að dvelja lengi í sundlauginni við myndatökur fyrir profile fyrir Americans next top model, eða besta hugmynd ferðarinnar sem var einn stolinn á kantinum, þegar Blikinn okkar tók sig til og stal bekknum hennar Imbu, þar sem hann hlaut að gefa mesta litinn, ef eitthvað var að marka litinn á Imbu! Já ekki er öll vitleysan eins þegar kemur að þessu liði okkar! En það var allavega vel olíuborin hópur sem reyndi að sleikja upp hvern einasta sólargeisla þennan síðasta dag okkar, enda alveg óvíst hvenær sólin skini aftur á þennan hóp! Jæja miðnætti rann svo loksins upp og tími til að halda af stað til baka. Pino var mættur með rútuna og lagt var í hann. Hópurinn kom sér misvel fyrir og sama sagan og venjulega, poddarnir og koddarnir voru teknir upp. Pissu stopp þurfti að sjálfsögðu að tækla á leiðinni! En til Milan komumst við rétt um 7 tímum síðar, merkilegt hvað þetta tók ekki langan tíma! Þar tók við bið á flugvellinum því ekki var

hægt að checka mannskapinn inn strax, spilið góða var tekið upp, skólabækur, koddar og poddar, og tíminn drepinn! Svo tók bara við bið eftir næsta flugi, sem loksins fór í loftið. Það voru blendnar tilfinningar sem fóru um hópinn varðandi heimferð, sumir vildu bara snúa til baka til Cróatíu, aðrir voru fullir tilhlökkunar að komast heim og knúsa mömmu! En heim fórum við, enda ekki annað hægt í stöðunni! Leikur daginn eftir! 24 tímum frá brottför frá Cróó, skreið hópurinn inn um dyrnar heima hjá sér! Langt ferðalag að baki! En ekki annað hægt að segja að það hafi verið skemmtilegt, og gefið fyrirheit um að skemmtilegt tímabil sé framundan. Það fór ekki framhjá neinum að hópurinn þjappaði sér vel saman í þessari ferð, ekki annað hægt þar sem oft var ansi þétt setið á sundlaugarbakkanum ;) Nú er bara að halda samstöðunni í hópnum og byggja ofan á það sem fyrir er ;) Að lokum er rétt að þakka þeim fjölmörgu aðilum sem gerðu þessa ferð að veruleika fyrir okkur, með kaupum á auglýsingum, wc pappír og öðrum nytjavörum.

Opnum 28. desember

Flugeldasala Knattspyrnudeildar Keflavíkur

Iðavöllum 7

37


Ferð 4. flokks kvenna til Liverpool

Það voru 20 hressar stelpur sem mættu upp í Leifsstöð 23. júlí s.l. á leið til Liverpool.Allar voru þær í Keflavíkurgallanum með rauða bakpoka og spennan skein úr hverju andliti. Með þeim í för voru Elli þjálfari og þrjár mömmur sem fararstjórar. Stelpurnar höfðu verið að safna fyrir ferðinni allan veturinn með ýmsu móti. Það hafði verið gefið út dagatal, seldur humar og jólapappír, seld páskalukka, bílar þvegnir, fótboltamaraþon og margt fleira. Allt gekk vel á leiðinni og með okkur í flugvélinni voru strákar úr 4. flokki Fjölnis sem stelpunum leist strax vel á. Þegar til Manchester var komið þurfti að finna rútuna sem átti að flytja okkur til Liverpool. Við eltum bara strákana úr Fjölni sem höfðu fengið leiðbeiningar um hvar rútan væri. Þegar allir voru komnir upp í rútuna kom í ljós að Ella vantaði. Hann hafði orðið viðskila við hópinn en eftir nokkrar hringingar og leiðbeiningar kom Elli og var mikið klappað fyrir honum þegar hann mætti í rútuna. Það var orðið áliðið þegar við komum til Liverpool. Þar gistum við í heimavist háskólans. Herbergin voru betri en við höfðum þorað að vona og engar pöddur sem sumar höfðu verið hræddar um að biðu okkar.Við fengum nestispakka og allir fengu sér eitthvað að borða. Við vöknuðum kl. 8 daginn eftir og fórum í morgunmat og drifum okkur síðan niður á keppnissvæðið með rútu sem gekk þangað frá gististaðnum. Við hliðina á því var stór matvörubúð sem við fórum

38

í og keyptum nesti til þess að borða yfir daginn og til að hafa um kvöldið. Við höfðum þann háttinn á flesta dagana. Fyrsti leikurinn var kl. 12 hjá 11 manna liðinu og kepptu þær við Mossley Hill og töpuðu 3-0. 7 manna liðið keppti við St Annes Rovers Girls og töpuðu 2-0. Þrátt fyri töp voru stelpurnar kátar og glaðar og vöktu þær athygli á svæðinu fyrir skemmtilega framkomu. Þær sungu þegar þær voru að hita upp og þær sem voru utan vallar voru duglegar að hvetja þær sem voru að keppa. Veðrið var líka gott og fullt af sætum strákum. Um kvöldið söfnuðust allir saman á grasflöt við gistiaðstöðuna og þar var nokkur skonar setning. Strákarnir frá Ameríku voru mjög hrifnir af íslensku stelpunum og fannst þeim ekki leiðinlegt hve vinsælar þær voru. Þegar allar voru komnar inn fengum við okkur grillaðar samlokur og djús. Á miðvikudeg inum vöknuðum við snemma. Bæði liðin áttu að keppa. 11 manna liðið keppti við Paris Girls og fór leikurinn 0-0 en 7 manna liðið keppti við Everton Ladies og tapaðist sá leikur 3-0. Um kvöldið var farið til borgarinna Stoke on Trent og þar sáum við leik á milli varaliðs Manchester United og Portvele. Það var mikil upplifun að fara á alvöru stóran fótboltavöll og höfðu allir gaman af. Komið var heim um miðnætti. Á fimmtudagsmorguninn vöknuðum við í rigningu. Við skelltum okkur þá í regngallana og héldum út á keppnissvæðið. Það gekk á

með skúrum allan daginn og vellirnir urðu fljótt illa farnir og sumir drullusvað. 7 manna liðið keppti á gervigrasvelli, fyrst við Marine AFC Girls og vann þær 4-1. Síðan kepptu þær vináttuleik og unnu hann 2-0. 11 manna liðið átti að leika vináttuleik þar sem ekki voru fleiri lið

til að keppa við í mótinu, en vegna þess hversu vellirnir voru orðnir illa farnir var hætt við hann. Við vorum því komnar heim um miðjan dag og eftir sturtu og smá snarl héldum við af stað út á lestarstöð og tókum lest og síðan strætó og enduðum í stærstu verslunarmiðstöðinni á svæðinu. Þar var hópnum skipt í þrennt og var einn fararstjóri með hverjum hóp og þræddum við búðirnar. Allir keyptu eitthvað og á eftir borðuðum við á Pizza Hut. Síðan var haldið heim sömu leið og fannst mörgum það upplifun að koma í fyrsta skipti í lest. Föstudagurinn var frídagur þá fórum við með rútu til Blackpool í risastórt tívolí. Þar var stelpunum sleppt lausum með þeim fyrirmælum að þær mættu aldrei vera einar. Við fararstjórarnir sögðum þeim hvar okkur væri að finna á ákveðnum tímum. Stelpurnar þustu í allar áttir og byrjuðu að prófa tækin en þær voru allar með dagpassa. Í hádeginu

var borðað á Burger King og í lok dags á Pizza Hut. Stelpurnar voru alsælar með daginn og höfðu prófað öll helstu tækin og sumar freistað gæfunnar í skotbökkum til þess að reyna að vinna bangsa. Fararstjórarnir létu hins vegar tækin alveg eiga sig en freistuðu aðeins gæfunnar. Þegar heim var komið fóru fararstjórar að þvo búninga og blogga en steppurnar að “ganga hringinn” ( kíkja á strákana). Um kvöldið var svo kósýkvöld með snakki og nammi. Á laugardagsmorgun var æfing hjá Ella þar sem ekki voru fleiri leikir fyrir okkur. Í hádeginu bauð Arna markmaður í pylsur því hún átti afmæli. Síðan fórum við niður í bæ og á Bítlasafnið en það var mjög áhugavert og eftir það var var farið niður á aðal verslunargötuna. Um kvöldið átti að vera diskótek og var eins og stelpurnar

hefðu ekki komið með nein föt með sér því allar þurftu þær að finna eitthvað fyrir kvöldið og rétt fyri 6 var hlaupið á milli búða til þess að kaupa það sem á vantaði. Þegar heim var komið fóru allar að punta sig og héldu síðan glaðar á diskóið. Þær urðu ekki fyrir vonbrigðum. Mikið stuð var allan tímann og voru þær ekkert hrifnar þegar fararstjórar voru að kíkja inn í danssalinn. Diskóið var til 22 og máttu stelpurnar vera úti til 23 þetta kvöld en önnur kvöld til 22.30

Eftir æfingu á sunnudagsmorgun var haldið með rútu á Anfield leikvanginn. Þar tók á móti okkur mjög hress leiðsögumaður. Hann sýndi okkur um allt á leikvanginum og leyfði stelpunum að opna fyrir sig lása, gaf þeim spjöld ef þær svöruðu ekki rétt hvaða liði þær héldu með og leyfði þeim að skoða búninga leikmanna. Þetta var mjög skemmtileg heimsókn sem endaði í safni og síðan verslun þar sem Liverpool aðdáendur gátu verslað. Þegar heim var komið var tekið til við að pakka niður. Um kvöldið var aftur diskótek og skemmtu stelpurnar sér mjög vel þó að sumir væru farnir heim, en Fjölnisstrákarnir voru eftir og voru þeir nú ennþá vinsælli en áður. Lagt var af stað kl. 8 á mánudagsmorgni til Manchester. Við byrjuðum á að skoða Old Trafford og var það einnig mjög gaman þó leiðsögumaðurinn hafi ekki verið eins hress og á Anfield. Við skoðuðum síðan safnið og ManU aðdáendur gátu síðan verslað í búðinni. Við vorum síðan keyrð í stærðar verslunarmiðstöð þar sem við kíktum í búðir. Við borðuðum síðan saman á Pizza Hut og þar létum við þjónana færa Ella þjálfara afmælisgjöf, mjög fínt úr, en Elli varð fimmtugur nokkrum dögum eftir heimkomuna. Og að sjálfsögðu var sungið fyrir hann. Síðan var haldið út á flugvöll og allt gekk vel á leiðinni heim. Þessi ferð gekk mjög vel í alla staði og vorum við fararstjórarnir mjög ánægðar með stelpurnar. Þeim kom vel saman og framkoma þeirra var góð í alla staði. Þær voru félaginu til sóma. Ragnheiður Gunnarsdóttir


Mikið úrval af Puma vörum HAFNARGÖTU 29 • SÍMI 421 4017

íþróttagallar, stuttbuxur, peysur, skór, fótboltaskór, gervigrasskór, töskur

39


Gleðilega hátíð

Sparisjóðurinn óskar viðskiptavinum sínum og Suðurnesjamönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Sparisjóðurinn í Keflavík | Tjarnargötu 12-14 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 6600 | spkef.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Jólablað 2007 by Keflavik - Issuu