Jólin 2014
Keflavík íþrótta- og ungmennafélag 43. árgangur
Aðalstjórn Íþróttamaður Keflavíkur 2013 Í fyrsta skiptið í sögu félagsins voru útnefnd íþróttakona og íþróttakarl Keflavíkur. Í hófi aðalstjórnar, í félagsheimili félagsins, þann 30. desember 2013 voru íþróttamenn deilda heiðraðir, íþróttakona og íþróttakarl Keflavíkur 2013 útnefnd. Ástrós Brynjarsdóttir er íþróttakona og Kristmundur Gíslason íþróttakarl Keflavíkur 2013. Hver verða það í ár ?????
Viðurkenningar veittar á aðalfundi félagsins 2014 Þrjú gullmerki voru veitt þeim Birgi Má Bragasyni knattsp/körfuknattleiksdeild, Dagbjörtu Ýr Gylfadóttur badmintondeild og Sveini Adolfssyni aðalstjórn. Gullmerki Keflavíkur er veitt fyrir 15 ára stjórnarsetu. Þrjú silfurmerki voru veitt þeim Einari Helga Aðalbjörnssyni og Oddi Sæmundssyni knattspyrnudeild og Kristjáni Þór Karlssyni badmintondeild. Silfurmerki Keflavíkur er veitt fyrir 10 ára stjórnarsetu. Tvö bronsmerki voru veitt þeim Andrési Eyjólfssyni fimleikadeild og Stefaníu S. Kristjánsdóttur badminton. Bronsmerki Keflavíkur er veitt fyrir 5 ára stjórnarsetu. Starfsbikar félagsins var veittur Hreini Steinþórssyni. Tvö heiðursmerki úr gulli voru veitt þeim Guðna Kjartanssyni og Sigurvini Guðfinnssyni. Gullmerki UMFÍ var veitt Einari Haraldssyni. Starfsmerki UMFÍ var veitt þeim Jóni Ben Einarssyni körfuknattleiksdeild og Hjörleifi Stefánssyni knattspyrnudeild.
Umhverfisdagur Keflavíkur Keflavík stóð fyrir umhverfisdegi þriðjudaginn 29. apríl. Yfir sextíu manns tóku þátt í deginum sem var frábær. Eftir að búið var að fara yfir svæðin og týna upp rusl var endað með grilli í félagsheimili okkar. Aðalstjórn vill þakka öllum þeim sem tóku þátt í þessu verkefni, einnig þökkum við okkar samstarfsaðilum fyrir gott samstarf, en það voru Samkaup/Nettó, Víkurfréttir og Reykjanesbær. Hreint land fagurt land.
17. Unglingalandsmót UMFÍ Sauðárkróki 2014 17. Unglingalandsmót UMFÍ var haldið á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Mikill hugur var hjá mótshöldurum og margar uppákomur í gangi. Mótið heppnaðist vel í alla staði. Keppnishópur okkar taldi 66 keppendur og stóðu þeir sig allir vel. Aðalstjórn vill þakka keppendum og sérstaklega unglingalandsmótsnefnd fyrir hennar framlag. Vel að verki staðið.
Vorfundur UMFÍ í Grindavík 2014 Vorfundur UMFÍ var haldinn í Grindavík 10. maí 2014. Einar Haraldsson sótti fundinn af hálfu Keflavíkur.
18. Unglingalandsmót á Akureyri 2015 Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Akureyri um verslunarmannahelgina. Unglingalandsmótin, sem eru ein af skrautfjöðrum Ungmennafélagshreyfingarinnar eru haldin árlega og ætíð um verslunarmannahelgina. Unglingalandsmótin eru fyrst og síðast íþrótta- og fjölskylduhátíð þar sem unglingarnir eru í fyrirrúmi en þátttakendur eru á aldrinum 11 – 18 ára. Ýmiskonar verkefni eru einnig í boði fyrir yngri sem eldri þannig að engum ætti að
Stjórn Keflavíkur íþrótta- og ungmennfélags 2014. Efri röð frá vinstri: Birgir Ingibergsson, Birgir Már Bragason, Þórður M. Kjartansson og Guðjón Axelsson. Fremri röð frá vinstri: Sveinn Adólfsson, Einar Haraldsson, Kári Gunnlaugsson og Bjarney S. Snævarsdóttir.
leiðast á unglingalandsmóti. Fyrir þá sem velja unglingalandsmótið er það tryggt að þeir koma í vímuefnalaust umhverfi. Aðalstjórn félagsins hvetur okkar fólk til að taka þátt í mótinu. Undanfarin ár hefur aðalstjórn greitt þátttökugjöldin fyrir okkar iðkendur.
5.Landsmót UMFÍ 50+ Blönduósi 5. Landsmót UMFÍ 50+ verður á Blönduósi í júní 2015. Mótið er sérstaklega ætlað fólki 50 ára og eldra. Framkvæmd mótsins er í höndum Ungmennafélags Íslands og Ungmennasambands Austur Húnvetninga (USAH) . Landsmót UMFÍ 50+ er tilvalinn vettvangur til að hittast, etja kappi og eiga góða stund saman.
Forvarnardagurinn Forvarnardagurinn er haldinn 1. október, með 9. bekk grunnskólanna, að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Verkefnið er stutt af Actavis. Keflavík hefur tekið fullan þátt í þessu verkefni frá upphafi. Fulltrúi Keflavíkur, Einar Haraldsson, fór í Heiðarskóla.
Keflavíkurdagurinn. Keflavíkurdagurinn var haldinn í fyrsta skiptið 11. október. Á þessum degi eru deildir félagsins að kynna bæjarbúum það frábæra og metnaðarfulla íþróttastarf sem er í boði innan Keflavíkur og unnið nánast allt í sjálfboðaliðavinnu. (Opið hús var í íþróttahúsinu við Sunnubraut á milli 13:00 – 15:00. Vel tókst til og voru gestir leystir út með grilluðum pylsum og ávaxtasafa. Friðrik Dór kom og spilaði fyrir gesti. Aðalstjórn bauð svo stjórnarfólki deilda félagsins til samsætis um kvöldið.) Þökkum öllum þeim sem komu með einum eða öðrum hætti að Keflavíkurdeginum.
Sambandsráðsfundur UMFÍ Sambandsráðsfundur Ungmennafélags Íslands var haldinn í Stjörnuheimilinu 11. október. Einar Haraldsson var fulltrúi Keflavíkur.
Betra félag / Betri deild Keflavík íþrótta- og ungmennafélag varð fyrst allra fjölgreinafélaga til að hljóta viðurkenningu ÍSÍ sem fyrirmyndarfélag. Allar deildir félagsins hafa hlotið gæðaviðurkenningu ÍSÍ. Þessi viðurkenning er mikils virði fyrir hverja deild og félagið í heild sinni. Það full-
Útgefandi: Keflavík íþrótta- og ungmennafélag Ábyrgðarmaður: Einar Haraldsson • keflavik@keflavik.is, 421 3044 Umbrot og prentun: Stapaprent ehf. • stapaprent@simnet.is, 421 4388
2
Jólablað 2014
vissar foreldra, styrktaraðila og bæjaryfirvöld um að íþróttastarfið innan Keflavíkur sé rekið eftir ákveðnum gæðakröfum, sem er gott fyrir okkur foreldra sem eigum börn sem stunda íþróttir innan Keflavíkur.
Innheimtu og skráningarkerfi Keflavík býður upp á innheimtu og skráningarkerfi sem heitir Nori og er það að finna á heimsíðu okkar. Öllum deildum félagsins stendur til boða að nýta sér kerfið og eru flestar deildir að nota Norakerfið. Með tilkomu þessa nýja innheimtu- og skráningarkerfis þá eru skil á greiðslum og skráningum að skila sér betur.
Heimasíða Keflavíkur Keflavík heldur úti heimasíðu í samstarfi við Dacoda. Á síðunni er dagatal og þar getur fólk fylgst með því sem er að gerast í félaginu hverju sinni. Einnig er þar að finna allar deildir félagsins og upplýsingar um þær. Fréttir frá deildum birtast á forsíðunni og einnig inni á svæði viðkomandi deildar. Undir aðalstjórn er hægt að fylgjast með starfi aðalstjórnar. Fundargerðir eru settar þar inn ásamt öðrum upplýsingum. Slóðin er http:// www.keflavik.is Tölvupósturinn er vistaður hjá Símafélaginu og póstfangið er keflavik@keflavik.is
Breytt þjóðfélag og forsendur til reksturs íþróttafélaga og deilda Efnahagsástandið hér á landi að undanförnu hefur komið við okkur sem erum að halda úti íþróttastarfi hér í bæ eins og aðra. Tekjur frá stuðningsaðilum okkar hafa minnkað og færri fyrirtæki hafa séð sér fært að styrkja íþróttastarfsemi. Deildir okkar hafa brugðist við með því að skera niður kostnað. Ekki stendur til að skera niður í yngriflokka starfinu því það er jú mikilvægt að halda því þjónustustigi sem verið hefur og jafnvel að efla það enn frekar. Nú skiptir máli að standa saman og standa með sínu félagi. Í raun er undravert hversu sjálfboðaliðum í stjórnum deilda félagsins hefur tekist vel að bregðast við breyttu rekstrarumhverfi á undanförnum árum. Almennt er mjög vel staðið að rekstri einstakra deilda félagsins sem hafa sjálfstæðan fjárhag undir yfirstjórn aðalstjórnar. Aðalstjórn félagsins leggur sig fram við að halda fjármálum alls félagsins í góðu horfi og reynir að hindra að eytt sé umfram tekjur. Aðalstjórn Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags sendir öllum bæjarbúum, félagsmönnum og öðrum velunnurum félagsins óskir um gleðileg jól og farsældar á komandi ári um leið og við þökkum öllum sem lagt hafa félaginu lið á liðnum árum. Áfram Keflavík Einar Haraldsson formaður Keflavíkur
Allt til jólanna
í jólaskapi Jólablað 2014
3
Lokahóf Barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar 2014
L
okahóf yngri flokka Keflavíkur var haldið í Íþróttahúsinu við Sunnubraut laugardaginn 21. september. Þar mættu iðkendur og foreldrar þeirra til að gera upp sumarið. Veitt voru verðlaun fyrir árangur og ástundun og að venju voru það leikmenn meistaraflokka karla og kvenna sem afhentu verðlaunin. Hér að neðan má sjá lista yfir alla verðlaunahafa þetta sumarið
Piltar 7. Flokkur yngri Besta mæting Rúnar Leó Hólmarsson 96,88% Mætingarverðlaun Tómas Logi Jónsson,Viktor Árni Traustason
7. Flokkur eldri Besta mæting Tómas Tómasson 100% Mætingarverðlaun Brynjar Ólafsson,Gabríel Aron Sævarsson,Gabríel Máni Sævarsson, Halldór Örn Jóhannsson
6. Flokkur yngri Besta mæting Guðmundur Páll Jónsson,Óskar Örn Ólafsson 92,21% Mætingarverðlaun Bjarki Fannar Bergþórsson,Mikael Orri Emilsson
6. Flokkur eldri Besta mæting Axel Ingi Jóhannesson,Róbert Ingi Njarðarson 100% Mætingarverðlaun Alexander Aron Smárason,Aron Gauti Kristinsson,Óliver Andri Einarsson,Stefán Jón Friðriksson,Sæþór Elí Bjarnason,Tómas Ingi Magnússon
5. Flokkur yngri Mestu framfarir Guðmundur Rúnar Júlíusson
4
Jólablað 2014
Alexander Pálmi Ólafsson Besta mæting Birkir Freyr Andrason Hafþór Bjartur Sveinsson Besti félaginn Sigurður Orri Ingimarsson Leikmaður ársins Jökull Máni Jakobsson
5. Flokkur eldri Mestu framfarir Haukur Sveinsson Elvar Snær Þorvaldsson Besta mæting Sævar Ingi Örlygsson Viðar Már Ragnarsson Besti félaginn Andri Snær Henningsson Leikmaður ársins Helgi Hermannson
4. Flokkur yngri Mestu framfarir Árni Ágúst Daníelsson. Besta mæting Óli Þór Örlygsson Besti félaginn Ólafur Þór Gunnarsson Leikmaður ársins Andri þór Ágústsson og Gunnólfur Björgvin Guðlaugsson
4. Flokkur eldri Mestu framfarir Aðalsteinn Einar Björnsson Eyþór Vilmundur Arnarsson Besta mæting Edon Osmani, Ingimundur Arngrímsson og Stefán Pétursson Besti félaginn Axel Ingi Auðunsson Leikmaður ársins Ísak Óli Ólafsson og Eyþór Atli Aðalsteinsson
3. Flokkur yngri Mestu framfarir Júlíus Davíð Júlíusson Ajayi Besta mæting Þröstur Ingi Smárason Besti félaginn
Magnús Magnússon Leikmaður ársins Ólafur Ingi Jóhannson
3. Flokkur eldri Mestu framfarir Brynjar Þór Hansson Besta mæting Elvar Unndór Sveinsson Besti félaginn Atli Haukur Brynleifsson Leikmaður ársins Samúel Þór Traustason og Jón Arnór Sverrisson
ALLIR FLOKKAR Mestu framfarir Jón Ásgeirsson Besti félaginn Björn Grétar Sveinsson Besti markvörður Andri Már Ingvarsson Besti varnarmaður Sigurbergur Bjarnason Besti miðjumaður Ingimundur Aron Guðnason Besti sóknarmaður Stefan Alexander Ljubicic Besti leikmaðurinn Tómas Óskarsson Landsleikir Sigurbergur Bjarnason Hilmar Andrew Mcshane Samúel Þór Traustasson
Stúlkur 7. Flokkur Besta mæting Watan Fidudóttir 92% Mætingarverðlaun
6. Flokkur Besta mæting Kamilla Jensdóttir og Saga Ingólfsdóttir 95% Mætingarverðlaun Hjördís Jónsdóttir 92% Helga Guðjónsd.90% Anna Vignisd.92% Sigrún Sigurgestd. 90%
5. Flokkur Mestu framfarir Helena Aradóttir Besta mæting Berglind Rún Þorsteinsdóttir Besti félaginn Sigrún Björk Sigurðardóttir Leikmaður ársins Elísabet Þórdís Hauksdóttir
4. Flokkur RKV Mestu framfarir Helga Árnadóttir og Íris Þórðardóttir Besta mæting Sveindís Jónsdóttir, Árdís Þórðardóttir og Viktoría Sævarsdóttir 92% Besti félaginn Álfrún Árnadóttir Leikmaður ársins Viktoría Sævarsdóttir og Katla Þórðardóttir
3. Flokkur RKV Mestu framfarir Bára Kristín Þórisdóttir Besta mæting eldri Sveinborg Ólafía Sveinsdóttir 94,49% Besta mæting yngri Sigríður Eva Tryggvadóttir 100% Besti félaginn Margrét Hulda Þorsteinsdóttir Leikmaður ársins Anita Lind Daníelsdóttir
ALLIR FLOKKAR Mestu framfarir Árdís Inga Þórðardóttir 4.fl Besti félaginn Elva Margrét Sverrisdóttir 4.fl Besti markvörður Auður Guðmundsdóttir 3.fl Besti varnarmaður Þóra Kristín Klemenzdóttir 3.fl Besti miðjumaður Stígheiður Sól Einarsdóttir 3.fl Besti sóknarmaður Birgitta Hallgrímsdóttir 3.fl Besti leikmaðurinn Una Margrét Einarsdóttir 3.fl
Óskum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða Mætingarverðlaun í 7. flokki.
Verðlaunahafar í kvenna flokkum.
TSA
ehf.
Brekkustíg 38 • 260 Reykjanesbær • tsa.is
Helgi Hermannsson og Jóhann B. Guðmundsson.
6.fl. drengja.
Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár
TOYOTA
Reykjanesbæ Njarðarbraut 19 • 260 Reykjanesbær Sími 420 6600 • Fax 421 1488
3.fl. kvenna RKV.
Óskum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Njarðarbraut 11a - 260 11a Njarðvík - Sími 421 1118 Njarðarbraut - 260 Njarðvík
TJÓNASKOÐUN • RÉTTING • SPRAUTUN Verðlaunahafar í karla- og kvenna flokkum.
Getraunir 1x2 Stöndum vörð um Íslenskar Getraunir!
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls árs.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Munum að styðja við okkar félag með að merkja við 230
Þeir sem tippa hjá Íslenskum Getraunum og merkja við 230 eru um leið að styðja við bakið á barna og unglingastarfi Knattspyrnudeildar Keflavíkur.
Tippað á netinu Mestur hluti seldra raða fer fram á netinu. Slóðin er 1x2.is. Þar spila fjölmargir, annaðhvort einir eða sem hópur. Við hvetjum þá auðvitað til að merkja við 230. Barna & unglingaráð Knattspyrnudeildar Keflavíkur
Jólablað 2014
5
Árið 2014 var gott fyrir Taekwondo deild Keflavíkur
Ágústa og Victoría á RIG.
Á
rangur Keflavíkur í taekwondo var afar góður á árinu og félagið náði mörgum merkum áföngum. Taekwondoæfingar eru nú víða á Suðurnesjum t.d. í Sandgerði, Vogum og Grindavík og hafa Keflvíkingar sinnt miklu útbreiðslustarfi fyrir íþróttina. Hér verður tæpt á því helsta sem einkenndi árið hjá deildinni.
og fjölhæfur íþróttamaður hún er. Ástrós var á meðal 22 bestu keppenda heims sem höfðu unnið sér inn keppnisrétt á mótinu. Keppa þurfti í fjórðungsúrslitum, undanúrslitum og úrslitum og var fækkað í hópnum eftir hverja umferð. Eftir fjórðungsúrslit var Ástrós með 4. hæstu stigin og leit vel út. Í undanúrslitum gekk ekki eins vel og Ástrós var þar í 10. sæti en þurfti að vera í því 8. til að komast í úrslit. Hvað sem því líður, þá er árangur hennar einstaklega góður á hennar fyrsta heimsmeistaramóti í tækni. Þriðja árið í röð fór Keflavíkurdeildin með lið á opna mótið í taekwondo í Skotlandi. Alls tóku 18 keflvískir keppendur þátt. Þegar þessi orð eru skrifuð er mótið nýhafið og þegar hafa Keflvíkingar unnið til margra verðlauna. Ekki er þó endanlega ljóst hver uppskeran verður.
Heimsmeistaramót Ástrós Brynjarsdóttir, Karel Bergmann Gunnarsson og Sverrir Elefsen voru valin til að keppa á Heimsmeistaramóti unglinga í bardaga sem haldið var í Tævan í mars. Þar var einnig haldið úrtökumót fyrir Ólympíuleika æskunnar sem Sverrir og Karel kepptu á. Þessi mót veita ungum keppendum ómetanlega reynslu og þrátt fyrir að þau skyldu ekki komast áfram stóðu þau sig með miklum sóma. Þau börðust vel, sýndu góða takta og tóku af öll tvímæli um að þau eiga vel heima á stóru móti sem þessu. Ástrós keppti m.a. við heimsmeistarann frá Serbíu og gaf henni ekkert eftir. Kristmundur Gíslason, íþróttamaður Keflavíkur var valinn til að keppa á Evrópumótinu fyrir Íslands hönd. Mótið var haldið í Austurríki í september. Kristmundur keppti við erfiðan andstæðing frá Rússlandi og tapaði naumlega.
Á Scottish open 2014.
Norðurlandameistarar 2014. Ástrós Brynjarsdóttir, íþróttakona Keflavíkur var valin til að keppa á heimsmeistaramótinu í tækni sem haldið var í Mexíkó, en það er önnur keppnisgrein taekwondo. Í raun eru greinarnar tvær mjög ólíkar og mætti líkja við ólíkar greinar í frjálsum íþróttum. Ástrós er fyrsti og eini Íslendingurinn til að keppa á Evrópu- og heimsmeistaramóti í báðum greinum sem segir sitt um hversu hæfileikaríkur
Íslandsmeistaramót og bikarmót Eins og endranær tók Keflavíkurliðið þátt á öllum mótum innanlands. Ármenningar unnu annað bikarmótið á tímabilinu og var það í fyrsta skiptið síðan 2006 sem Keflvíkingar vinna ekki slíkt mót. Það var því mjög jafnt um hverjir myndu vinna sjálfa bikarkeppnina en þar er tekið mið af samanlögðum árangri þriggja móta. Spennan var rafmögnuð á síðasta bikarmótinu og þar kom í ljós að Keflvíkingar myndu halda titlinum. Það var sjötti bikarmeistaratitill Keflavíkur. Nýtt tímabil í bikarkeppninni hefst á hverju hausti og sigruðu Keflvíkingar fyrsta bikarmótið örugglega. Keflvíkingar voru með gott lið á Íslandsmótinu í mars þótt 5 sterkir keppendur og Íslandsmeistarar félagsins væru staddir í Tævan á heimsmeistaramóti unglinga. Mótið var haldið á Selfossi og leit út fyrir að Selfyssingar myndu sigra mótið. Þegar stigin voru talin saman, kom í ljós að Keflvíkingar höfðu unnið titilinn, fimmta árið í röð, og ætlaði allt um koll að keyra í höllinni af fagnaðarlátum! Íslandsmótið í tækni var haldið í Reykjanesbæ í lok nóvember. Keflvíkingar höfðu þar titil að verja og það var til mikils að vinna. Á þessari stundu er ekki ljóst hver árangurinn verður.
Norðurlandamót Norðurlandamótið í taekwondo var haldið í Sunnubrautinni í Reykjanesbæ í maí. Þar skörtuðu
6
Jólablað 2014
Á Scottish open 2014.
Verðlaunahafar á Scottish open 2014. Íslendingar stóru liði og flestir voru keppendur úr Keflavík. Í fyrsta sinn í sögunni vann Ísland liðakeppnina á Norðurlandamótinu. Keflvíkingar unnu til 9 gullverðlauna, 13 silfurverðlauna og 11 bronsverðlauna. Það gefur auga leið að árangur félagsmanna úr Keflavík skipti þar sköpum.
Guðmundur og Davíð á Íslandsmóti. 2014. Frá sýningu í Krossmóa.
Scottish open Árangur íslenska liðsins var 21 gull, 12 silfur og 10 brons. Einnig fékk liðið heildarstigabikarinn heim til Íslands. Á þessu ári hefur íslenska liðið bæði verið Scottish open meistari í liðakeppni og Norðurlandameistari liða. Íslenska liðið var með besta heildar árangur liða í mótinu.
Aðrir viðburðir Í október þreyttu fjórir Keflvíkingar svartbeltispróf. Það eru þau Daniel Arnar Ragnarsson (1.poom), Ólafur Þorsteinn Skúlason (1.dan), Ægir Már Baldvinsson (1.dan) og Helgi Rafn Guðmundsson (4.dan). Þetta er að vonum stór áfangi fyrir þessa íþróttamenn og félagið. Valið var í landsliðin í byrjun hausts. Eins og síðustu ár náðu Keflvíkingar um þriðjungi sætanna í landsliðinu. Edina og Lisa Lents voru ráðnir nýir landsliðsþjálfarar í tækni. Þær eru heimsþekktir þjálfarar og dómarar í tækni og var Edina m.a.
valin besti dómarinn á síðasta heimsmeistaramóti. Landsliðsþjálfari í bardaga er Meisam Rafiei, afreksmaður í taekwondo sem er m.a. þrefaldur heimsmeistari. Ástrós Brynjarsdóttir og Kolbrún Guðjónsdóttir tóku þátt á æfingabúðum í Danmörku ásamt öðrum Íslendingum í undirbúning fyrir Heimsmeistaramótið. Þar voru þær undir handleiðslu margra bestu þjálfara heims og þar á meðal Ky Tu Dang sem er einn besti tækni keppandi allra tíma.
DYNAMO REYKJAVÍK
Óskum
Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða. Sími 420 2500
www.skolamatur.is
Skólamatur ehf. | Iðavellir 1 | 230 Reykjanesbær
Óskum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Fiskbúð Keflavíkur Hringbraut 92 • Sími 421 4747
Birgitta og Margrét á Íslandsmóti. 2014. Taekwondo deildin stendur fyrir kynningu og gestakennslu út um allt land. Einnig fara reglulega fram sýningar m.a. á Ljósanótt, Sandgerðisdögum, Sjóaranum síkáta og má auk þess nefna dömu- og herrakvöld í Krossmóanum. Deildin og iðkendur eru sífellt með fjáröflun til að fjármagna ferðir. Iðkendur ganga í hús og selja, eru með bása á viðburðum og selja á netinu til að reyna að komast á sem flest mót erlendis, en kostnaður vegna mótanna er mikill. Metnaður deildarinnar er að vera með sem bestu keppendur landsins hverju sinni ásamt því að bjóða upp á fjölbreyttar og skemmtilegar æfingar fyrir alla aldurshópa. Meðal þess sem boðið er upp á eru námskeið fyrir leikskólakrakka þar sem þau mæta með foreldrum sínum einu sinni í viku. Þessi nýlunda hefur vakið mikla ánægju. Þá eru einnig hópar fyrir fullorðna byrjendur en margir foreldrar fá með því tækifæri til að æfa samhliða börnum sínum. Framundan eru spennandi tímar fyrir deildina og verður gaman að fylgjast með vexti og framgangi þeirra sem hafa stundað æfingar af kappi. Þeir munu uppskera vel. Stjórn Taekwondo.
Óskum viðskiptavinum okkar, sem og Suðurnesjamönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða Vinur við veginn Jólablað 2014
7
VÍS óskar landsmönnum gleðilegra jóla FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ Í FRIÐI OG RÓ
ENNEMM / SÍA / NM60088
Um leið og við þökkum viðskiptavinum okkar samfylgdina á árinu óskum við öllum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Sýnum alúð og aðgát um hátíðirnar og pössum vel hvert upp á annað. VÍS - þar sem tryggingar snúast um fólk.
VÍS | Hafnargötu 57 | 230 REYKJANESBÆ | SÍMI 560 5000 | VIS.IS
Kertaljós og skreytingar þarf að umgangast með varúð Reykskynjarar, slökkvitæki og eldvarnarpakkar í miklu úrvali.
Eldvarnarpakki 1
Slökkvitæki, léttvatn 6 l
Eldvarnarteppi, 1,1x1,1 m
Reykskynjari, optískur
Skyndihjálparpúði
Tilboðsverð í vefverslun
Tilboðsverð í vefverslun
Tilboðsverð í vefverslun
Tilboðsverð í vefverslun
Tilboðsverð í vefverslun
14.526 kr.
8.972 kr.
2.917 kr.
1.403 kr.
8.242 kr.
Brunavarnir Verslanir
8
|
Askalind 1, Kópavogi
Jólablað 2014
|
Vefverslun með öryggisvörur á oryggi.is
Njarðanesi 1, Akureyri
|
Sími 570 2400
|
oryggi.is
VERKFRÆÐISTOFA SUÐURNESJA
Verkfræðistofa Suðurnesja óskar Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.
Viðurkennt þjónustuverkstæði
Grófin 14a, 230 Reykjanesbæ, sími 4216901
Sendum viðskiptavinum og landsmönnum öllum hugheilar jóla- og nýárskveðjur
Umhverfisvæn orkuframleiðsla í 40 ár Njótið jólana í birtu og yl frá umhverfisvænni framleiðslu www.hsorka.is
Jólablað 2014
9
Viðburðaríkt ár hjá Knattspyrnudeildinni
Á
rið var viðburðaríkt hjá Knattspyrnudeild enda teflir deildin fram á þriðja tug liða í 17 flokkum karla og kvenna og iðkendur eru hátt í 600. Hér er stiklað á stóru um það helsta sem gerðist hjá deildinni þetta árið.
Meistaraflokkur karla Meistaraflokkur karla lék í Pepsi-deildinni og lék þar með í efstu deild ellefta árið í röð. Kristján Guðmundsson hélt áfram með liðið eftir að hafa tekið við því um mitt sumarið á undan og Gunnar Magnús Jónsson tók við sem aðstoðarþjálfari. Að öðru leyti var liðsstjórnin óbreytt en hana skipuðu Sævar Júlíusson markmannsþjálfari, Falur Daðason sjúkraþjálfari, Jón Örvar Arason liðsstjóri, Þórólfur Þorsteinsson og Jón Ólafsson búningastjórar ásamt Björgvini Björgvinssyni, sérlegum aðstoðarmanni. Þar er á ferðinni öflugur og samstilltur hópur sem hefur starfað saman í mörg ár. Að venju urðu breytingar á leikmannahópnum en þær voru ekki margar að þessu sinni og áfram var að mestu byggt á heimamönnum. Eftir að ljóst varð að Ómar Jóhannsson gæti ekki varið markið vegna meiðsla var sænski markvörðurinn Jonas Sandqvist fenginn til liðsins. Paul McShane bættist einnig í hópinn og Sindri Snær Magnússon
Keflavík í æfingaferð á Spáni.
10
Jólablað 2014
Hressir Keflavíkurstrákar Pollamótsmeistarar í 6. flokki. kom frá Breiðabliki en hann reyndist liðinu mikill happafengur og var eini leikmaðurinn sem lék alla leikina í deildinni. Um mitt sumar bættust þrír ungir leikmenn í hópinn, þeir Aron Grétar Jafetsson, Aron Rúnarsson Heiðdal og Hilmar Þór Hilmarsson en þeir komu allir frá Stjörnunni.
Hilmar Andrew McShane og Sigurbergur Bjarnason með bronsverðlaun á Ólympíuleikum æskunnar í Kína. Fyrsta mót ársins var Fótbolti.net-mótið í upphafi árs og þar gekk ágætlega. Síðan tók deildarbikarinn við en þar féll liðið úr leik í 8 liða úrslitum eftir vítaspyrnukeppni. Hópurinn undirbjó sig af kostgæfni fyrir átök sumarsins og fór í vel heppnaða æfingaferð til í San Pedro del Pinatar í nágrenni Alicante á Spáni. Þar var æft við bestu aðstæður og í kjörhita. Liðið byrjaði af krafti í Pepsi-deildinni og halaði inn fjölda stiga í fyrstu umferðunum. Fljótlega fór þó að halla undan fæti og hægðist á stigasöfnuninni. Upp úr miðju mótinu tókst liðinu ekki með nokkru móti að landa sigri og missti unna leiki niður í jafntefli. Þessi kafli varð til þess að liðið sogaðist í fallbaráttuna en tryggði sæti sitt í deildinni með góðum endaspretti. Liðið varð í 8. sæti, einu sæti ofar en tvö síðustu ár. Hafi gengið í deildinni verið misjafnt var allt annað upp á teningnum í bikarkeppninni. Þar unnust öruggir sigrar á neðri deildar liðum í fyrstu tveimur umferðunum þar sem margir af yngri leikmönnum fengu að spreyta sig. Síðan vannst góður útisigur á Fram og í kjölfarið fylgdi dramatískur heimasigur gegn Víkingi í undanúrslitum. Þar réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni þar sem Sandqvist markvörður var betri en enginn og fyrirliðinn
Óskum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls árs.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
www.bilnet.is - Sími 420 0040
Meistaraflokksstúlkur á æfingu í Reykjaneshöll. Haraldur Freyr tryggði svo sigurinn. Liðið lék því til úrslita um bikarinn gegn KR en úrslitaleikurinn fór fram um miðjan ágúst. KRingar fóru þar með sigur af hólmi og gerðu sigurmarkið í blálokin. Bikarúrslitadagurinn var þó hinn skemmtilegasti og stuðningsmenn Keflavíkur fjölmenntu og stóðu sig með afbrigðum vel í stúkunni. Að tímabilinu loknu var fyrirliðinn Haraldur Freyr Guðmundsson valinn leikmaður ársins en hann átti gott tímabil í hjarta varnarinnar sem fékk á sig mun færri mörk en árið áður. Elías Már Ómarsson var kosinn efnilegasti leikmaður liðsins en hann vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína. Elías var svo valinn efnilegasti leikmaður Pepsideildarinnar af leikmönnum deildarinnar og fylgdi þannig í fótspor Arnórs Ingva Traustasonar sem hlaut þann titil árið áður. Elías Már vann sér sæti í U-21 árs landsliði Íslands með haustinu og lék sinn fyrsta leik með liðinu. Fljótlega eftir að keppnistímabilinu lauk var gengið frá því að Kristján héldi áfram með liðið. Einnig framlengdu nokkrir af reynslumestu leikmönnum samninga sína. Þegar var hafist handa við að styrkja liðið og fyrsta skrefið í þá átt var tekið þegar Hólmar Örn Rúnarsson og Guðjón Árni Antoníusson sneru aftur til félagsins eftir að hafa leikið með FH undanfarin ár. Það er því ljóst að Keflavík mun áfram fyrst og fremst treysta á heimamenn.
skipað heimastúlkum sem hafa komið upp í gegnum yngri flokka félagsins eða nágrannafélaga. Liðið lék í Faxaflóamóti og deildarbikarnum á undirbúningstímabilinu og átti þar misjöfnu gengi að fagna. Frammistaða liðsins á Íslandsmótinu var framar vonum og það sýndi miklar framfarir frá árinu á undan. Liðið endaði reyndar í neðsta sæti riðilsins en rétt á eftir næstu liðum. Margir leikir töpuðust með minnsta mun og liðið sýndi ágætan leik í þeim flestum. Liðið tók einnig þátt í bikarkeppninni en féll þar út í fyrstu umferð. Eins og hjá karlaliðinu var það fyrirliði kvennaliðsins sem hlaut nafnbótina leikmaður ársins. Anna Rún Jóhannsdóttir stóð sig enda með prýði en hún lék í marki liðsins fyrri hluta sumars en í vörninni seinni hlutann. Reynsla hennar nýttist einnig vel í svo ungu liði. Sólveig Lind Magnúsdóttir var valin efnilegust og Sigurrós Eir Guðmundsdóttir besti félaginn. Eins og áður sagði hefur meistaraflokkur kvenna nær eingöngu verið skipaður heimastúlkum undanfarin ár og áhersla verið lögð á að gefa ungum leikmönnum tækifæri. Þær framfarir sem liðið sýndi milli ára gefa vonandi fyrirheit um að þessi stefna sé að bera árangur. Heiðar þjálfari ákvað í lok tímabilsins að skipta um vettvang og fara til starfa í Noregi og var Gunnlaugur Kárason ráðinn í hans stað.
Meistaraflokkur kvenna
2. flokkur
Meistaraflokkur kvenna lék í 1. deild sem er næstefsta deild í kvennaknattspyrnunni og skiptist í tvo riðla. Þetta var fimmta árið í röð sem liðið leikur í 1. deildinni. Liðið átti erfitt uppdráttar árið áður enda að mestu skipað ungum og óreyndum leikmönnum. Heiðar Birnir Torleifsson tók við þjálfun liðsins og honum til aðstoðar var Jóhannes Hleiðar Gíslason. Liðið var áfram eingöngu
Í 2. flokki karla tefldu Keflavík og Njarðvík fram sameiginlegu liði annað árið í röð. Þetta fyrirkomulag hefur reynst vel og samstarf félaganna verið gott. Helgi Arnarson og Ingi Þór Þórisson tóku við þjálfun liðsins. Liðið lék í B-deild þetta sumarið og var stefnan sett á að komast upp í A-deild að ári. Það tókst með glæsibrag og liðið fór með sigur af hólmi í deildinni og tryggði sér
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.
KJG
KEÓ
Kristín Geirmundsdóttir og Kristín Erla Ólafsdóttir, tannlæknar og starfsfólk Hafnargata 45 • Sími 421 8686
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.
Hafnargata 35, 230 - Stórhöfði 23, 105 - Sími 415-1500
Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár
– með þínu merki
Kanna “Joy”
Kanna “Anna”
Staupglas “Gin”
Staupglas “Skot”
Hvít kanna, 250 ml. Umhverfisvænn kostur á nýju ári.
Hvít kanna, 300 ml. Merkt með þínu merki.
Staupglas 3 cl. Tilvalið í þorrablótið.
Staupglas 3.4 cl. Mest selda staupglasið okkar.
919 kr.
689 kr.
179 kr.
199 kr.
Haf narg ata 20 • Sími 4 20 4000 • studlaberg.i s
Jólablað 2014
11
Gleðin í fyrirrúmi hjá stelpum og strákum í 8. flokki. sæti í efstu deild næsta sumar. B-liðið vann sinn riðil en tapaði síðan í undanúrslitum B-deildarinnar. Liðið átti einnig góðu gengi að fagna í bikarkeppni 2. flokks og komst þar í undanúrslit. Þess má geta að fjórir leikmenn flokksins léku með Keflavík í Pepsi-deildinni og sex til viðbótar með Njarðvík í 2. deildinni. Hróður leikmanna barst víðar því fjórir leikmenn 2. flokks voru í U-19 ára landsliði Íslands sem lék í undankeppni Evrópumótsins í Króatíu í október. Þetta voru Keflvíkingarnir Sindri Kristinn Ólafsson og Ari Steinn Guðmundsson, Njarðvíkingurinn Ari Már Andrésson og Aron Freyr Róbertsson sem er samningsbundinn Keflavík en lék sem lánsmaður með Njarðvík í sumar. Að tímabilinu loknu var Leonard Sigurðsson kosinn leikmaður ársins en Fannar Orri Sævarsson efnilegastur. Adam Sigurðsson var besti félaginn. Keflavík tefldi ekki fram liði í 2. flokki kvenna þetta árið. Flokkurinn tók þó þátt í bikarkeppninni og féll þar út í fyrstu umferð. Þess má geta að níu leikmenn sem léku með meistaraflokki kvenna í 1. deildinni voru gjaldgengar í 2. flokki og þrjár til viðbótar í 3. flokki.
mynda alla leið í fjögurra liða úrslit sem er frábær árangur á svo stóru móti. Sú reynsla að spila mikilvæga leiki á stóru fótboltamóti er ómetanleg fyrir strákana og fer í reynslubankann. Þjálfari 4. flokks er Jóhann B. Guðmundsson og aðstoðarþjálfarar þeir Arngrímur J. Ingimundarson og Arnþór Ingi Guðjónsson. Um 40 drengir æfðu með 5. flokki. Yfirleitt tóku fjögur lið þátt í mótum sumarsins og náðu prýðilegum árangri. Öll liðin stóðu sig vel í Íslandsmótinu, tvö þeirra komust í úrslitakeppni og A-liðið fór alla leið í undanúrslit. Flokkurinn komst upp úr B-riðli og spilar því meðal þeirra bestu á næsta ári. Þjálfari er Einar Lars Jónsson. Iðkendur í 6. flokki voru 45. Flokkurinn tók þátt í nokkrum mótum þetta sumarið en langstærst þeirra er Shellmótið í Vestmannaeyjum en þangað fóru fjögur lið sem stóðu sig með prýði. Í Pollamóti KSÍ komust fimm lið af átta í úrslitakeppnina og þar varð Keflavík Pollamótsmeistarar í keppni og A- og C-liða.
Þjálfarar eru Elis Kristjánsson og Einar Lars Jónsson. Hjá 7. flokki voru 52 drengir við æfingar og keppni á liðnu tímabili. Flokkurinn tók þátt í nokkrum mótum en einnig var farið í heimsóknir til annarra félaga. Stærsta mót ársins var Norðurálsmótið á Akranesi en þar stóðu drengirnir sig mjög vel og voru í lok móts valdir prúðasta lið mótsins. Piltarnir stóðu sig gríðarlega vel í öllum þeim mótum sem þeir tóku þátt í og voru félagi sínu og foreldrum til sóma. Elis Kristjánsson og Einar Lars Jónsson þjálfa 7. flokk. Í 8. flokki æfa stúlkur og drengir saman og eru æfingar í námskeiðsformi. Þetta árið voru iðkendur alls um 100. Flokkurinn keppti á tveimur mótum, Keflavíkurmóti í nóvember og Arionbankamóti Víkings í sumar. Þjálfarar flokksins eru íþróttafræðingarnir Gunnar Magnús Jónsson og Ragnar Steinarsson en auk þeirra komu fjölmargir aðstoðarþjálfarar við sögu hjá flokknum.
Yngri flokkar kvenna Í 3. flokki kvenna tefldu Keflavík, Reynir S. og Víðir fram sameiginlegu liði undir merkjum RKV. Flokkurinn tefldi fram A- og B-liðum og lék í efstu deild Íslandsmótsins. A-liðið komst í úrslitakeppnina og varð í 3.-4. sæti sem er frábær árangur. B-liðið stóð sig einnig með prýði og endaði um miðja deild. Þess má geta að Birgitta Hallgrímsdóttir varð markadrottning Íslandsmótsins með 20 mörk. Í byrjun júlí skellti flokkurinn sér í skemmtilega ferð til Benidorm á Costa Blanca Cup. Liðið náði að komast í A-úrslit en tapaði þar í átta liða úrslitum eftir vítakeppni gegn ekki lakara liði en Atletico Madrid. Þrír leikmenn 3. flokks léku með meistaraflokki í sumar þær Birgitta Hallgrímsdóttir, Anita Lind Daníelsdóttir og Una Margrét Einarsdóttir. Una Margrét Einarsdóttir lék sex landsleiki með U-17 landsliðinu, skoraði tvö mörk og bar fyrir-
Yngri flokkar karla Hjá 3. flokki karla æfðu 32 piltar en flokkurinn tefldi fram A- og B-liði sem bæði léku í efstu deild. Liðið komst í 8 liða úrslit í bikarkeppninni. Samúel Þór Traustason lék með U-17 ára landsliði Íslands á árinu og Sigurbergur Bjarnason og Hilmar Andrew McShane fóru með U-16 ára landsliðinu á Ólympíuleika æskunnar í Kína þar sem liðið fékk bronsverðlaun. Þjálfarar flokksins eru Zoran Daníel Ljubicic og Haukur Benediktsson. Mikill fjöldi tók þátt hjá 4. flokki en þar æfðu um 60 piltar. Enda var flokkurinn með fjögur lið í Íslandsmótinu þar sem A-liðið komst í úrslitakeppnina og endaði í 3.-4. sæti. Um mitt sumar var farið á Norway Cup sem er næst fjölmennasta unglingamót í heimi. Þangað fóru 40 strákar sem skiptust í fjögur lið, þrjú 11 manna lið og eitt sjö manna. Öll liðin stóðu sig mjög vel og komst A-liðið til að
Þriðja sæti á Norway Cup, lið 4. flokks karla.
Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða
Óskum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls árs.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Iðavöllum 6 • Sími 421 4700 • www.vikuras.is
12
Jólablað 2014
liðabandið í tveimur leikjum. Þjálfari flokksins er Elis Kristjánsson. Keflavík var einnig í samstarfi við Reyni og Víði í 4. flokki. Hópurinn var fámennur og margar stúlkur á yngra ári en þrátt fyrir það gekk liðinu vel í þeim mótum sem það tók þátt í. Í lok júní fóru níu stúlkur til Hjörring í Danmörku og kepptu í vinabæjamóti ásamt liðum frá öllum Norðurlöndunum. Í því móti var spiluð tvöföld umferð og stóð okkar lið uppi sem sigurvegari í stelpnakeppninni sem er frábær árangur. Liðið spilaði í A-riðli Íslandsmótsins og þó stúlkurnar hafi flestar verið á yngra ári sýndu þær og sönnuðu að þær áttu heima meðal þeirra bestu en liðið endaði í 7. sæti. Þjálfari 4. flokks er Arngrímur J. Ingimundarson. Um 20 stúlkur æfðu með 5. flokki sem lék undir merkjum RKV. Liðið tók þátt í nokkrum mótum og átti frekar erfitt uppdráttar. Flokkurinn lék í A-riðli á Íslandsmótinu og var ljóst frá byrjun að þar yrði á brattann að sækja og niðurstaðan varð að flokkurinn leikur í B-riðli næsta sumar. Hápunktar sumarsins voru þátttaka í Pæjumótinu í Eyjum og Símamótinu í Kópavogi en þar fengu leikmenn verkefni við hæfi. Þrátt fyrir misjafnt gengi gáfust stúlkurnar aldrei upp og gerðu ávallt sitt besta, bæði í leikjum og á æfingum. Þjálfari flokksins er Ragnar Steinarsson. Það voru fremur fáar stúlkur sem hófu æfingar hjá 6. og 7. flokkum kvenna. Síðan smáfjölgaði í hópnum og í lok sumars voru 38 stúlkur að æfa, 20 í 6. flokki og 18 í 7. flokki. Flokkarnir fóru saman á ýmis mót yfir sumarið og tefldu þá fram nokkrum liðum. Tvö lið frá 6. flokki tóku síðan þátt í Hnátumóti KSÍ. Arngrímur J. Ingimundarson þjálfar þessa tvo flokka og honum til aðstoðar er Sigurrós Eir Guðmundsdóttir.
Aðstaða Í upphafi Íslandsmótsins var mest fjallað um ástand leikvalla landsins sem komu misvel undan vetri. Rysjótt veður varð til þess að í fyrstu umferðunum var fjöldi leikja færður á gervigrasvelli og félög skiptu á heimaleikjum. Þetta var svo sannarlega ekki raunin í Keflavík en heimavöllur okkar, Nettó-völlurinn, var leikfær frá fyrstu umferð. Þar var leikið við toppaðstæður allt sumarið en fyrsti leikurinn á vellinum fór fram 4. maí og sá síðasti 4. október. Þetta sýnir hve vel tókst til við endurgerð vallarins árið 2010 og það góða starf sem vallarstjórinn Sævar Leifsson og starfsmenn hans hafa unnið. Fyrir utan Nettó-völlinn rekur Knattspyrnudeildin æfingasvæði fyrir aftan Reykjaneshöllina og þá hafa leikir yngri flokka farið fram á vellinum við Iðavelli. Auk þess hefur deildin að sjálfsögðu aðgang að Reykjaneshöllinni yfir veturinn. Knattspyrnufólk í Keflavík er því nokkuð vel sett varðandi knattspyrnuvelli en enn vantar mikið upp á aðstöðuna. Þar er nú fyrst og fremst horft til þess að koma upp búningsklefum og annarri aðstöðu á æfingasvæðinu við Reykjaneshöllina. Einnig þarf að bæta aðstöðuna við aðalvöllinn og þar hefur verið stefnt að því að byggja nýja stúku í nánustu framtíð.
Keflavíkurliðið fyrir bikarúrslitaleikinn gegn KR. og var vinsæl hjá stuðningsmönnum Keflavíkur sem klæddust henni óspart. Reyndar vakti treyjan athygli víðar og var búningurinn almennt talinn sá fallegasti í Pepsi-deildinni þetta árið og því var það einn titill sem skilaði sér í Keflavík. Meistaraafmælisins var einnig minnst með stóru skilti á heimavelli okkar þar sem Keflavíkurmerkið blasti við, fyrir neðan stóð 1964 og fyrir ofan Fyrsti Íslandsmeistaratitillinn. Þessi áletrun var einnig við merkið á treyjunum. Síðast en ekki síst voru leikmenn liðsins árið 1964 heiðursgestir á bikarúrslitaleiknum og voru kallaðir fram á völlinn fyrir leik ásamt leikmönnum bikarmeistara KR árið 1964. Undanfarin ár hefur Keflavík staðið fyrir mótum fyrir yngri flokka í Reykjaneshöllinni. Mótin hafa farið fram í október og nóvember og verið mjög vinsæl. Áhersla hefur verið lögð á að mótin gangi hratt fyrir sig og tímasetningar standist og hafa forsvarsmenn liða og foreldrar verið afar ánægðir með mótin. Það er Gunnar Magnús Jónsson sem hefur haft veg og vanda af skipulagi þessara haustmóta og hefur þar unnið frábært starf. Þó að daglegt starf Knattspyrnudeildar snúist um æfingar og leiki er félagslegi þátturinn ekki síður mikilvægur. Þar koma til herrakvöld og
konukvöld, grill fyrir heimaleiki og margt fleira. Leikur sem fór fram í Reykjaneshöllinni síðasta vetur fellur í þennan flokk en þá mætti meistaraflokkur karla liði íþróttafélagsins Nes. Það var við hæfi að þessi ágætu félög mættust enda eru margir leikmenn Nes meðal dyggustu stuðningsmanna Keflavíkur. Leikurinn var fyrst og fremst til gamans og leikmenn beggja liða skemmtu sér líka konunglega. Úrslitin voru því ekki aðalmálið að þessu sinni en lokatölur urðu 10-7 fyrir Nes.
Af deildinni Aðalfundur Knattspyrnudeildar var haldinn þann 30. janúar í félagsheimilinu. Vel var mætt á fundinn og voru umræður fjörlegar. Ein breyting varð á stjórn deildarinnar, Hrafnhildur Ólafsdóttir gekk úr stjórn en sæti hennar tók Jón G. Benediktsson. Stjórnina skipa Þorsteinn Magnússon formaður, Kjartan Steinarsson varaformaður, Matthías Magnússon gjaldkeri, Einar H. Aðalbjörnsson ritari og Ólafur Birgir Bjarnason meðstjórnandi en varamenn eru Hjördís Baldursdóttir, Hjörleifur Stefánsson, Jón G. Benediktsson, Jón Ólafsson og Oddur Sæmundsson.
Óskum viðskipavinum okkar, sem og Suðurnesjamönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Annað Fyrir tímabilið gerði Knattspyrnudeild þriggja ára samning við Icepharma um að allir flokkar Keflavíkur spili í Nike-búningum en Keflavík lék áður í Nike á árunum 1999 til 2003. Með þessum nýja samningi lauk tíu ára samstarfi við Puma en deildin átti þann tíma gott samstarf við heildverslunina Tótem en fyrirtækið ákvað að hætta með Puma vörur. Á árinu var þess minnst með ýmsum hætti að 50 ár voru liðin frá fyrsta Íslandsmeistaratitli Keflavíkur árið 1964. Af því tilefni lék meistaraflokkur karla í svörtum og hvítum peysum líkt og fyrsta meistaraliðið. Treyjan vakti mikla athygli
SÖLUUBOÐ ÖSKJU Á REYKJANESI Sími 420 5000 Jólablað 2014
13
Keflavíkurtreyjan lék stórt hlutverk
K
omið þið öll hjartanlega sæl kæru Keflvíkingar. Í byrjun sumars stigum við enn og aftur fæti inn á okkar fagra völl í leit að nýjum ævintýrum og áskorunum, þar sem okkar gullfallega Keflavíkurtreyja lék stórt hlutverk og vakti mikla athygli landsmanna í sumar enda virkilega æsandi fagur búningur þar á ferð. Menn fóru með ákveðnar væntingar inn í sumarið, ungt & efnilegt lið í bland við góða reynslubolta, sterkur þjálfari og teymi með honum og áhorfendur ferskir að vanda með meistara Má Gunnars fremstan í flokki. Ég sjálfur persónulega var ráðinn í nýtt hlutverk á vellinum í sumar, kjuðarnir voru loks settir upp í hillu og hafa einungis verið teknir fram fyrir Tólfuna og öll okkar ævintýri þar síðastliðin misseri. Vallarþulur Nettóvallarins var það heillin og var ég mjög spenntur fyrir þessu nýja verkefni. Mig langaði strax í upphafi að reyna að taka það góða starf sem minn maður Oddur Gunnars. var búinn að skila og reyna að bæta aðeins meira djúsi í það og fékk þá hugmyndirnar af því að vera með Lagakeppnina fyrir hvern heimaleik og svo langaði mig að reyna að virkja áhorfendur & stuðningsmenn beggja liða með einhverjum skemmtilegheitum í hálfleik. Þá varð sláarkeppnin a.k.a Langbest-Skotið til og mældist það vel fyrir í leikjum sumarsins. Hugmyndin var að fá einn aðila úr sitthvoru stuðningsliðinu á öllum leikjum sumarsins og myndu þeir spreyta sig í hálfleik og sá skotvissari myndi vinna sér inn pizzuveislu á Langbest og það sem meira er ætti möguleika á að vinna sér inn eitt stykki utanlandsferð í lok sumars! Mér fannst það pínu sexý að hugsa til þess að ef eitthvað af toppliðunum væri í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í lokaleiknum að einn harður frá þeim myndi þurfa að velja á milli þess að peppa liðið sitt alla leið að titlinum eða mæta til Sunny Kef og reyna að næla sér í utanlandsferð. Sú staða kom einmitt svo skemmtilega upp núna í sumar, en í eina skiptið sem þessir snillingar úr Keflavík unnu ekki Langbest-Skotið var einmitt þegar ég var fjarri góðu gamni og hann Konni Silfurskeiðarmaður með meiru tók þetta fyrir hönd Stjörnunnar. Hann sagði margoft við mig að hann væri alveg harður á því að koma til Kef og ætlaði að hirða þessa ferð þó svo að fyrir lægi risa úrslitaleikur FH-Stjörnunnar, en svo loks kvöldið fyrir daginn stóra þá sagðist hann bara ómögulega geta misst úr mínútu með Skeiðinni og skildi maður það auðvitað fullkomlega. Enda sá hann nú ekki eftir því kappinn, þvílík veisla í Krikanum..! En í lokaleiknum gegn Víkingum sem við unnum 2-0, þá komu nokkrir öflugir Keflvíkingar út á völl í hálfleik og reyndu fyrir sér að næla í utanlandsferðina og var það hinn ungi & bráðhressi piltur Stefan Alexander Ljubicic nokkur sem gerði sér lítið fyrir og vann ferðina og hugsar sér eflaust til hreyfings til Spánar eða Tyrklands í vetur þegar að skammdegisþunglyndið skellur á okkur hérna á klakanum. Í “búrinu” í sumar reyndi ég að hafa skemmtilega tónlist í fínu samráði við leikmenn, hafði þetta góða blöndu af upphitunarpeppi, Keflavíkurlögum og almennum slögurum og reyndi svo bara að vera hressi hnyttni gæjinn á mæknum og af því sem ég hef heyrt þá kom þetta bara mjög vel út í sumar og almenn ánægja með strákinn. Það er eitthvað verið að biðja mann um að tækla aftur næsta sumar þannig að það er aldrei að vita nema maður bara taki aftur slaginn, enda hef ég sjálfur virkilega gaman af þessu og er að finna mig nokkuð vel þarna. Svo verður það ekki leiðinlegt að sjá okkar gömlu hetjur stíga aftur inn á Nettóvöllinn þá Hólmar Örn
14
Jólablað 2014
sem við auðvitað þekkjum öll bara sem Bóa og Guðjón Árna harðhaus. Ég er sjálfur búinn að bíða lengi eftir því að þeir sjái villu vega sinna og snúi aftur heim til fyrirheitna landsins og nú hafa þeir tekið það gáfulega skref og býð ég þá hjartanlega velkomna aftur í Sunny Kef! Hann Frans okkar Elvars var eitthvað að hugsa sér til hreyfings áður en hann krotaði undir nýjan 2 ára samning, en þegar þú ert með Olsen hérna í Kef og komið í nýtt húsnæði nær vellinum þá auðvitað er ekkert vit í því að ætla eitthvað að skipta um lið, þannig að þarna sýndi Fransvélin mikil gáfumerki og leikskilning. Þegar þetta er skrifað núna 11.11.14 eru augljóslega ekki öll kurl komin til grafar og vænta má einhverra fleiri tíðinda og verður bara spennandi að sjá hvernig hópurinn okkar mun líta út næsta sumar. Ég rétt eins og þið kæru Keflvíkingar bíð bara spenntur eftir næsta sumri, finnst það frábært move
að fá hann Mána minn aftur til liðs við okkur, algjörlega frábær karakter og þú færð ekki betri peppara fyrir strákana. Máni er svo sannarlega með munninn fyrir neðan nefið og það er bara einhver svona ára yfir honum sem fær mann til þess að vilja gera betur, við sjáum nú hvað hann gerði fyrir Ólaf Karl Finnsen Stjörnumann og hvar hann er í dag. Stjáni og Máni mynda frábært team og ekki skemmir hvað þetta combo rímar svona skemmtilega. Stjáni og Máni sóla sig á Spáni. Þar liggur gullfallegur Keflavíkurfáni. Ekki vera illi og eintómur bjáni. Að biðja Mána sífellt um bjórseðla að láni. Á þessum fögru ljóðalínum óska ég ykkur öllum gleðilegra jóla og vel séðra jólapakka, farsæls komandi árs og glæsilegra áramóta og við sjáumst hress með ekkert stress í stúkunni næsta sumar ! Með bestu peppkveðjum Jóhann D Bianco
Norway-Cup Osló 25. júlí-2. ágúst 2014
F
erðalagið hófst að morgni föstudagsins 25. júlí með mætingu kl 6:00 uppi í flugstöð en þar voru mættir 44 spenntir 4.flokksdrengir á aldrinum 13 og 14 ára ásamt 5 fararstjórum, 2 þjálfurum og 8 öðrum foreldrum sem fylgdu með í för. Ferðinni var heitið til Osló þar sem keppa átti í Norway-Cup sem haldið er á 6 stórum keppnissvæðum í Osló. Eftir að hafa eytt smá tíma í flugstöðinni var haldið af stað í þetta magnaða ævintýri sem mun vera í minnum drengjanna í langan tíma. Þegar komið var út tóku á móti okkur 2 stærðarinnar lúxusrútur á 2 hæðum vegna stærðar hópsins en þetta er stærsti hópur sem ferðaskrifstofan hefur sent frá sér í eina keppnisferð. Fyrsti dagurinn fór í að koma sér fyrir í Bakkelget-skólanum en þar gistu öll liðin okkar ásamt öðrum liðum frá Evrópu. Þar var hvert lið með sína eigin stofu. Eftir það var skoðað sig um á aðalsvæðinu Ekeberg-slette. Daginn eftir var farið á ströndina nálægt skólanum sem gist var í og eyddum við stórum hluta af deginum þar við mikla skemmtun drengjanna. Mótið byrjaði svo á sunnudeginum. Norwaycup er annað stærsta alþjóðlega knattspyrnumótið sem haldið er í heiminum, um 32.000 þátttakendur frá öllum heimsálfum en yfir 2000 lið taka þátt í mótinu á aldrinum 10-18 ára. Á aðalsvæðinu eru 36 knattspyrnuvellir. Við sendum frá okkur 4 lið til leiks, 3 lið í U-14 keppnina (2x11 manna og 1x7 manna lið) og eitt lið í U-13. Öllum liðum gekk vel
á mótinu, liðið sem komst lengst endaði í 3. sæti af 148 liðum í sínum aldursflokki. Sem er besti árangur drengjaliðs frá Íslandi á þessu stóra móti. Fyrstu 5 mótsdagana spiluðu öll liðin að lágmarki einn leik yfir daginn. Þegar drengirnir voru ekki að keppa sína leiki eyddu þeir dögunum og kvöldunum í því sem var í boði á svæðinu eða í kringum skólann. Þar var margt skemmtilegt í boði á aðalsvæðinu, þar var stórt svið með lifandi tónlist og skemmtiatriðum nánast allan daginn og á kvöldin, einnig var hægt að fara þar í lítið Tívoli. Þar var hægt að taka þátt í knattþrautum á vegum skóla frá Manchester United og ýmsum uppákomum eins og bubblebolta á daginn, minigolfvöllur var líka á svæðinu. Farið var líka niður í miðbæ og skoðað sig um og eitthvað kíkt í verslanir. Einn daginn var farið í Tusendfryed skemmtileikjagarð um 40 mín. rútuferð frá Osló. Eftir margra daga ferðalag kom svo að heimför en haldið var af stað um morguninn eftir að drengirnir voru búnir að ganga frá eftir sig í skólanum, seinnipartinn var svo lent heima á Íslandi en þar tóku glaðir foreldrar á móti sínum drengjum þreyttum og ánægðum eftir ferðalagið. Knattspyrnukveðja 4.flokkur drengja Keflavík Jóhann Birnir Guðmundsson Arngrímur Jóhann Ingimundarson.
Sigurvegarar úr K-Steinarsson Skeet mótinu.
Allt í
jólapakkann hjá Omnis
Spjaldtölvur - með Android, Windows eða Apple iOs stýrikerfi
Farsímar - frá LG, Samsung, Nokia og Apple
Fartölvur og borðtölvur - frá öllum helstu framleiðendum
Myndavélar - frá Canon, Sony og Nikon
Prentarar og fjölnotatæki
Sjónvörp
- frá HP og Canon
- í öllum stærðum og gerðum Akranesi Dalbraut 1
Borgarnesi Borgarbraut 61
Reykjanesbæ Hafnargötu 40
www.omnis.is
www.dacoda.is
Jólakötturinn mælir með CMS
Jólablað 2014
15
3.fl. kv. RKV. á Costa Blanca Cup 2014 Laugardagur 5.júlí Við áttum allar að hittast í flugstöðinni um kl.14:00 og innrita okkur,nú skyldi haldið á Costa Blanca Cup á Benidorm. Kvöddum við fjölskyldur okkar og tekin var hópmynd svo fórum við í fríhöfnina og keyptum okkur nammi og sitthvað fleira. Þá var fengið sér að borða og rölt um flugstöðina áður en kallað var út í flugvél. Það voru ekki neinir sjónvarpsskjáir í sætisbökum í þessari vél, þannig að sumar spiluðu á spil eða spjölluðu og aðrar sofnuðu. Þegar við vorum lent tók við bið eftir að töskurnar okkar kæmu. Eftir að við stelpurnar og
farastjórarnir voru búin að fá sínar töskur kom í ljós að einn farþeginn hafði tekið töskuna hans Ella þjálfara(hahah)en hann fékk hana þó aftur eftir smá eltingarleik við þann sem hafði tekið töskuna. Rútan sem keyrði okkur á hótelið keyrð ansi hratt og stóð ekki öllum á sama. Gróttu strákarnir voru með okkur í rútu, þeir voru í svaka stuði og byrjuðu að syngja, þetta kveikti í okkur og við fórum að taka undir í söngnum, þetta var eins og í (Pitch Perfect). Þegar á hótelið var komið þurftum við að bíða nokkuð eftir að fá lyklana okkar að herbergjunum en við vorum fjórar saman í íbúð með tveim
svefnherbergjum.Þetta var orðin ansi langur dagur og því kærkomið að henda sér í svefn því vaknað skyldi snemma næsta dag.
Sunnudagur 6.júlí Við vöknuðum um 8 leitið og fórum í morgunmat, það var mikið úrval og misjafnt hvað okkur fannst um matinn, sumum fannst hann vondur og öðrum góður. Eftir morgunmatinn var lagst í sólbað og skellt sér í sund fram að hádegismat. Eftir hann fórum við á ströndina og í búð þar keypti Egill fótbolta svo við gætum leikið okkur því að
Vinabæjarmót í Hjörring 23.-27. júní 2014
Á
r hvert koma Vinabæirnir á Norðurlöndunum saman en þar hittast fulltrúar bæjanna, með í för eru svo unglingar á 13.-14. aldursári (4.fl) sem keppa svo í einhverri íþrótt. Í ár var keppt í knattspyrnu og fórum við með 9 Keflavíkurstúlkur ásamt fararstjóra og þjálfara á það mót. Mótið var að þessu sinni haldið í Hjörring Danmörku, gist og keppt var á Dana-Cup Sportcenter sem er í Hjörring. Aðstaðan þar var frábær, þar gistu stelpurnar 3-4 saman í herbergi. Ferðalagið byrjaði snemma á mánudeginum kl. 6:00 með mætingu upp í flugstöð, þar var skoðað sig um þar til flugið okkar fór. Flogið var til Billund og tók þar við um 90 mín. rútuferð til Hjörring. Þegar við komum svo á leiðarenda byrjuðum við á að koma okkur fyrir í herbergjum okkar svo tók við þétt dagskrá sem byrjaði á móttökukvöld-
16
Jólablað 2014
verði og kynningu mótsins þar sem allir vinabæirnir kynntu sinn bæ. Eftir hann var haldið niður í bæ í gönguferð en það var hátíð í bænum við Svanelund Park þar var lifandi tónlist ásamt ýmsu skemmtilegu að gera. Daginn eftir byrjaði morguninn snemma með glæsilegu morgunverðahlaðborði þar sem hlaðið var í orku fyrir daginn þar sem spiluð yrði ein umferð í knattspyrnumótinu. Það tók allan daginn að spila mótið þar sem það þurfti að fresta hluta af því til seinna um daginn vegna veðurs (27°C grenjandi rigning og þrumuveður sem var komið frekar nálægt keppnisstaðnum). Vinabæirnir Kerava (Finnlandi), Trollhattan (Svíþjóð), Kristiansand (Noreg), Hjörring (Danmörk) og svo Reykjanesbær voru öll með lið í mótinu og keppt var í 7 manna bolta. Miðvikudagur: Byrjaði á morgunverði svo var farið útá keppnissvæði en þar tók við okkur Flemming Nielsen þjálfari og fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu sem var með æfingar ásamt starfsfólki sportcenter sem kláruðust um hádegið. Eftir góðan hádegismat var haldið af stað í 30 mín. rútuferð í Farup Sommerland sem er vatnsleikja og tækjagarður þar eyddum við deginum fram að kveldi. Dagurinn endaði svo á kvöldmat og frjálsum tíma sem var notaður til að skoða sig um í bænum. Fimmtudagur. Byrjað var snemma, eftir morgunmat var tekin önnur umferð í mótinu, eftir mótið var haldið niður í bæ í Ráðhúsið þar sem haldin var lokaathöfn, þar voru veittar viðurkenningar fyrir þátttöku. Eftir athöfnina var aðeins kíkt í verslanir. Endaði dagurinn á sundlauga-
partýi fyrir þá sem vildu. Aðrir voru saman uppá Sportcenter og fóru í leiki úti eða voru inni þar sem ýmislegt skemmtilegt var að gera. Stúlkurnar stóðu sig frábærlega á mótinu unnu alla sína leiki nema einn og stóðu uppi sem sigurvegarar í stúlknakeppninni. Föstudagsmorgun fór svo í að græja sig fyrir heimferð og haldið var af stað snemma í flug heim til Íslands. Knattspyrnukveðja 4.flokkur kvenna Keflavík Arngrímur Jóhann Ingimundarson.
það var smá sparkvöllur í hótelgarðinum. Magga tók þrumu skot á markið og boltinn hátt yfir markið í trjárunna sem var þar fyrir aftan og aldrei fannst boltinn “hahaha” stutt gaman það. Það sem eftir lifði dags var legið í sólbaði og sundlauginni. Eftir kvöldmat var fundur og síðan smá chill þangað til að farið var að sofa.
Mánudagur 7.júlí
Fyrsti leikdagur og því vaknað snemma eða kl.7 og allt gert klárt áður en farið var í morgunmat, rúta flutti okkur á keppnisstað (La Nucia)en það tók um 15 mín. að aka þangað. Svæðið þar sem við lékum okkar leiki á var mjög flott, tveir stórir vellir annar með alvöru grasi og þvílíkt sléttur og hinn gervigras, einnig voru margir minni vellir og var spilað á öllum þessum völlum. Við lékum fyrsta leikinn okkar gegn Villena.FC á gervigrasinu, við sigruðum leikinn 5-0 og allar gríðalega sáttar með startið á mótinu. Eftir leik var haldið á hótelið í sturtu og hádegismat. Eftir hann fórum við í supermarkað að versla eitthvað til að eiga inn á herbergjunum okkar. Auður keypti nýjan fótbolta, restina af deginum eyddu sumar á ströndinni aðrar á sundlaugarbakkanum. Eftir kvöldmat var farið á Levante ströndina,en þaðan var gengið fylgtu liði ásamt nokkuð hundruð öðrum keppendum á þann stað þar sem sjálf opnunarhátíðin á mótinu fór fram, henni lauk með flottri flugeldasýningu. Eftir hana var haldið á hótelið og farið snemma að sofa,leikur næsta morgun.
Þriðjudagur 8.júlí Við vöknuðum aftur kl.7 og gerðum okkur klárar í að mæta Atletico Madrid, aftur var leikið á gervigrasinu og unnum við leikinn sem var nokkuð erfiður 3-1, byrjunin flott sigrar í tveim fyrstu leikjunum. Eftir leik var haldið á hótelið og gert klárt til að fara í mollið, okkur var skutlað þangað. Eftir að hafa verslað og komið við á Mc Donalds vorum við sóttar og skutlað aftur á hótelið. Þegar þangað var komið keyptu flestar sér WIFI því ekki er hægt að lifa svona ferð af nema komast á netið og þá sérstaklega FB. Um kvöldið var rölt á ströndina og farið í strandblak með strákunum frá Grindavík sem einnig voru að spila á mótinu. Eftir að við vorum komin í okkar herbergi og að fara að leggja okkur þá byrjuðu þessir drengir sem við höfðum verið að leika við að trufla okkur með símhringingum og dinglandi bjöllum á herbergjum okkar, þetta hætti þó fljótt og gátum við því farið að hvílast eftir langan og erfiðan dag því við áttum að vakna snemma næsta morgun.
Miðvikudagur 9.júlí Vöknuðum snemma og gerðum okkur klárar í morgunmat og síðan farið í síðasta leikinn í riðlinum. Nú var leikið á þessum flotta grasvelli gegn Elche FC og er skemmst frá því að segja að við unnum leikinn 6-0 og tryggðum okkur fyrsta sætið í riðlinum og komnar í átta liða úrslit í A grúbbu. Um kvöldið var svo farið á útimarkað sem var við ströndina. Síðan var haldinn fundur eftir að allar voru búnar að skila sér á hótelið varðandi leikinn daginn eftir og farið yfir önnur mál.
Fimmtudagur 10.júlí Vaknað á sama tíma og allt gert klárt fyrir stórleikinn sem var framundan. Aftur var spilað við Atletico Madrid, var þetta sama lið og við höfðum unnið í riðlakeppninni
en þær voru þó búnar að breyta því eitthvað enda var þessi klúbbur með mörg lið í þessari keppni. Eftir venjulegan leiktíma var staðan 0-0, við klaufar að vera ekki búnar að afgreiða þennan leik, ekki var framlengt heldur farið beint í vítakeppni. Þær sem áttu að taka vítin voru mjög kvíðnar og hræddar um að klikka, svo fór að við töpuðum 4-3 eftir að hafa brennt af tveim spyrnum. Þetta þýddi að við vorum dottnar úr keppni og var það mjög sárt, sérstaklega af því að við vorum miklu betra liðið og áttum að klára þetta, en svona er boltinn. Við vorum þó fljótar að jafna okkur á þessu og skelltum okkur aftur í mollið. Þegar á hótelið var komið vorum við allar í því að skoða hjá hvor annarri hvað hafði verið keypt. Um kvöldið var svo farið í keilu.
Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár
Föstudagur 11.júlí
Við fengum að sofa út þannig að við vöknuðum kl.10, tókum okkur til og fórum í morgunmat. Síðan var fundur hjá okkur þar sem við fengum að vita að þetta væri frjáls dagur, við máttum ráða hvernig við eyddum deginum. Sumar hentu sér á sundlaugarbakkann í sólbað, sumar fóru í að að pakka dótinu sínu saman og aðrar í súpermarkaðinn að versla. Seinna um daginn fórum við á keppnisvöllinn að horfa á lið Sindra Hornafirði spila í B úrslitum, það voru stelpur frá okkur sem spiluðu með þeim sem lánsmenn í þessu móti, það fór svo að þær töpuðu leiknum eftir vítaspyrnukeppni. Það sem vakti athygli okkar í kvöldmatnum að það var hægt að fá sykurpúða, hlaup og sleikjó með, “hahah”. Kvöldinu eyddum við bara á hótelinu og skemmtum okkur með öðrum krökkum frá Íslandi sem gistu á sama hóteli.
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.
hópferðir • áætlun
G r ó f i n 2 - 4 • S í m i 4 2 0 6 0 0 0 • w w w. s b k . i s
Laugardagrdagur 12.júlí Við vöknuðum kl.9 og sá dagur runninn upp að við færum heim um kvöldið. Allar fóru í það að pakka í töskur, sumar þó búnar, því við þurftum að tæma herbergin fyrir hádegi. Við fengum þó að halda eftir einu herbergi til að geyma allan farangur. Eftir hádegi var haldið í Aqualandia, vatnsrennubrautagarð og vorum þar í fjóra tíma. Það var mjög gaman þarna og við fórum í mörg tæki en það var saltvatn í garðinum þannig að þegar maður fór í tæki fékk maður það allt upp í sig sem var ekki gott. Fljótlega eftir kvöldmat var haldið í flugstöðina, eftir innritun fengum við að spóka okkur um bygginguna, sumar versluðu eitthvað aðrar á Starbucks og einhverjar á Burger King. Eftir að flugvélin var komin í loftið og kveikt hafði verið á bíómyndinni sem var sýnd fór ferðaþreytan að segja til sín, flestar okkar sofnuðu fljótt en þær sem ekki það gerðu spjölluðu bara saman og borðuðu nammi. Það voru þreyttar en mjög ánægðar stelpur sem gengu frá borði kl.02:00 um nótt og fegnar að vera komnar heim til foreldra. Þessi ferð var í alla staði alveg frábær, viljum við þakka Petru herforingja og Dísu en þær voru farastjórar og Ella þjálfara fyrir samfylgdina, einnig viljum við þakka Agli og Gauju sem voru með í þessari ferð fyrir alla hjálpina.
Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár
Hafnargata 36 • 230 Reykjanesbæ • Sími 440 2450
Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár
3.fl. kv. RKV.
Jólablað 2014
17
og farsældar á nýju ári
ÍS-SPOR
kr .
0
Þorrablót
8 90 ð:
gleðilegra jóla
M iða ve r
Óskum íþróttafólki svo og öðru Suðurnesjafólki
Keflavíkur TM-Höllin
VERÐLAUNAGRIPIR
S ími 5 8 8 3 2 4 4 - i s s p o r. i s
Óskum félagsmönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsæls komandi árs
17.01.15
Keflavíkurannáll, brekkkusöngur, dansleikur o.fl.
Ekki vera sauður!
Þú veist að þetta verður gegg jað!
Kr ossmóa 4 a - S í m i 5 3 5 6 0 2 5
Óskum félagsmönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsæls komandi árs
Áhugasamir geta keypt miða með því að hafa samband við Guðmund Steinarsson - 899-4636 eða Jón Norðdal Hafsteinsson 868-1708 eða með því að senda póst á midi@keflavik.is
Flugeldasala Knattspyrnudeildar Keflavíkur
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis
Hringbraut 108, K-húsið
Kr ossmóa 4 a - S í m i 4 2 1 5 7 7 7
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls árs.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Nýjar og spennandi vörur
Opnum 28. desember Opið 28., 29. og 30 desember milli kl. 10:00 og 22:00 Opið gamlársdag milli 10:00 og 16:00
Við treystum á Íbúa Reykjanesbæjar að styðja vel við bakið á okkur
Bolafæti 3, 260 Reykjanesbæ, sími 421 4117
18
Jólablað 2014
Flugeldasala Knattspyrnudeildar Keflavíkur Hringbraut 108, K-húsið
Skotdeild Keflavíkur Á
rið 2014 fer nú að ljúka og munum við halda upp á það með innanfélgasmóti Skotdeildarinnar í Skeet eins og vant er á gamlársdag. Æfingar eru búnar að vera á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 18:00 til 20:00 eða lengur ef til þurfti, frá apríl fram í október. Aðsókn á æfingar voru heldur meiri en á síðasta ári og er veðrið búið að vera heldur skárra en á því síðasta. Við áttum að vera með mót í Skeet innan Skotsambands Íslands, en sökum úttektar á vélunum var ákveðið að fella það niður og gefa það frá okkur. Þess má geta að í beinu framhaldi af því var ákveðið að endurnýja þessar vélar á Skeet vellinum og þær eldri munu svo nýtast á sportingvellinum okkar. Þó nokkur innanfélagsmót hafa einnig verið haldin á árinu í 300 metra riffil og benchrest. Við héldum Íslandsmótið í 300 metra riffil í nýreistri viðbót við riffilhúsið. Þess má geta að við erum búnir að einangra og klæða þessa nýju viðbót og næst á dagskrá er að koma í þetta lýsingu og rafmagni. Með bættri aðstöðu, bætum við árangur íþróttamanna okkar sem vinna hörðum höndum að því að bæta sig. Theodór Kjartansson varði Íslandsmeistaratitilinn sinn með hæsta skor á Íslandsmeistaramótinu sem haldið var hjá okkur og lið Skotdeildar Keflavíkur hafnaði einnig í 2. sæti í liðakeppninni. Þess má geta að Theodór á einnig Íslandsmet í greininni síðan í júlí á síðasta ári þar sem hann skoraði 572 stig af 600 mögulegum. Einnig má þess geta að hann Alfreð Fannar í Skotdeild Keflavíkur varð í 3. sæti í Íslandsmótinu í Benchrest, hann var með sama skor og annað sæti eða 481 stig en með 3 færri af x10. Enskur riffill eða 60 metra prone eins og það hefur ýmist verið kallað er grein sem er að koma virkilega sterk inn þar sem skotið er liggjandi með 22. cal riffil. Félegar í Skotdeild Keflavíkur hafa eignast þó nokkra keppendur sem æfa þessa grein. Við höfum verið með lið í síðustu 4 mótum í þessari grein og er stutt í að við förum að senda tvö lið til keppni í henni. Áætlað var að halda hjá okkur
Verðlaunahafar í 300m liggjandi riffli. Arnfinnur Jónsson skotfélagi Kópavogs annað sæti, Theodór Kjartansson skotdeild Keflavíkur fyrsta sæti og Hannes Halldórsson skotfélagi Kópavogs þriðja sæti. mót úti í þessari grein en við fengum að halda það inni í Digranesi í Kópavogi hjá vinum okkar í Skotfélagi Kópavogs og viljum við þakka þeim einstaklega vel fyrir það. En þarna vantar okkur inniaðstöðu til að æfa þessa grein og ef þú veist um húsnæði þar sem við getum verið í til að þjálfa tilvonandi Íslandsmeistara í þessari grein og fleirum, mátt þú setja þig í samband við okkur í Skotdeild Keflavíkur, en því miður þó við séum búnir að ýta á ýmsa aðila vegna viðunandi inniaðstöðu fyrir Skotdeild Keflavíkur er það oft eins og að tala fyrir daufum eyrum. Okkur vantar góða inniaðstöðu þar sem við getum sameinað allar innigreinarnar okkar og byggt upp fleiri góða skotmenn, komið unglingastarfinu á enn betra skrið, en þess má geta að unglingar æfa frítt hjá okkur. Engin félagsgjöld fyrir unglinga né æfingagjöld. Við sköffum skot í loftgreinarnar á föstum æfingum. Ef þú hefur áhuga þá ertu velkominn. Mikil aðsókn hefur verið í riffilskotfimina á þessu ári eins og síðustu ár og er það ljóst að það þarf eins og öll ár að byrja vorið á því að taka bakstoppin og græja þau fyrir komandi kúlnahríð. Félagsgjöldin eru 8.000 kr og 2.000 kr lykilgjald, sem er mjög gott verð fyrir frábæra aðstöðu til riffil- og haglabyssuskotfimi. Unglingastarfi hefur verið hrint af stað og eru æfingar hafnar annan hvern fimmtudag í sundmiðstöðinni á sunnubraut í loftaðstöðunni okkar frá kl. 19:00 til 21:00 sem
60 skot liggjandi enskur riffill. Theodór Kjartansson er með yfirumsjón á. Við settum nýjar öryggisreglur á svæðinu þar sem enginn fer út á riffilbrautina nema í vestum sem við keyptum og eru bæði með endurskini og eru skærgræn á litin þannig að enginn ætti að fara óséður fram hjá neinum árið 2013 og höfum við bætt við að menn verði að merkja við sig á leiðinni út og setja vælu í gang ef maður er úti. Flest allir félagsmenn hafa tekið vel í þessar breytingar og hefur verið lítið kvartað. Við erum með ákall til ykkar sem hafa áhuga á að starfa með okkur að láta í ykkur heyra, okkur vantar fólk í allar nefndir, við getum þetta auðvitað ekki án ykkar. Riffilnefnd, haglabyssunefnd, skammbyssunefnd og svo væri gott að gera fleiri nefndir fyrir ýmislegt annað t.d. unglingastarfsemina. Góðir hlutir gerast hægt segja þeir og erum við orðnir næststærsta skotíþróttafélag á landinu, nú viljum við fara láta til okkar taka í mótunum og við þurfum að hlúa að unglingunum ef við ætlum að byggja upp góða skotíþróttamenn. Gleðileg jól, gott og farsælt komandi íþróttaár, Áfram Keflavík. Fyrir hönd skotdeildar Keflavíkur Bjarni Sigurðsson Formaður Skotdeildar Keflavíkur.
Jólablað 2014
19
Viðtal: Halldór Leví Börnsson
Á myndinni: Brynja Ingólfsdóttir, Jóhann, Birna, Ebba Ósk og Sindri.
Er tölfræðinörd -rætt við Jóhann B. Magnússon fyrrverandi formann Íþróttabandalags Reykjanesbæjar
Þ
ú finnur það fljótlega þegar þú sest niður með Jóhanni B. Magnússyni að þar fer maður með sterkar skoðanir og ástríðu fyrir þeim hlutum sem hann tekur sér fyrir hendur. Í þrettán ár gengdi hann formennsku í Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar og mótaði um margt starf þess. Verkefnið fyrirmyndarfélag var sett af stað, og þeir sem störfuðu á þessum árum muna hversu mikil vinna var lögð í það af ÍRB, að öll félög og allar deildir settu upp slíka áætlun og skipulag. Í tilefni af því að Jóhann steig niður sem formaður Íþróttabandalags Reykjanesbæjar á síðasta aðalfundi þótti við hæfi að fræðast um einstaklinginn Jóhann B. Magnússon, sem flestir ef ekki allir innan íþróttahreyfingarinnar vita hver er en kannski vita minna um. Ekki er hægt að segja að hann hafi mikið látið fara fyrir sér og baðað sig í sviðsljósinu. Hann hefur verið meira maðurinn á bak við tjöldin eins og sagt er. Tíðindamaður blaðsins mætli sér mót við hann kvöld eitt í nóvember og við settumst niður með Jóhanni á heimili hans við Melaveg. Þar býr hann ásamt eiginkonu sinni Brynju Ingólfsdóttur og þremur börnum þeirra. Jóhann keppti um árabil með Keflavíkurliðinu í knattspyrnu, starfaði sem kennari og starfar nú á Landsspítalanum. En hver er maðurinn Jóhann B. Magnússon.
20
Jólablað 2014
„Ég er Keflvíkingur og ólst upp á Birkiteignum. Já og ég byrjaði mjög snemma að æfa íþróttir, aðallega knattspyrnu en prófaði einnig aðrar íþróttir t.d.júdó og handbolta. Ég var alltaf í íþróttum, spilaði auk þess handbolta á veturnar. Við Óli Þór bróðir minn vorum að oft berjast út í bílskúr á Birkiteignum enda sáust þess vel merki! Já handbolti var stundaður hér á þessum árum og þar voru meðal annars fótboltastrákar sem stunduðu þá íþrótt til að halda sér í æfingu á veturnar. 17 ára keppti ég minn fyrsta meistaraflokksleik fyrir Keflavík og spilaði til þrítugs. Ég varð fyrir miklum meiðslum, sleit meðal annars hásinar og þegar ég var farinn að spila deyfður þá sá ég að þetta var komið gott.“ Jóhann lék á miðjunni í Keflavíkurliðinu og segist hafa verið verið úthaldsgóður vinnuhestur líkt og miðjumenn verða að vera.
„Við viljum að börnin okkar hafi aðgang að góðu og skipulögðu íþróttastarfi“
Hleyp stundum tvö hálf-maraþon á viku! „Ég hef alltaf hlaupið mikið og geri enn. Alltaf á hlaupum! Þetta hjálpaði mér mikið í boltanum og hjálpar mér enn. Ég er búinn að hlaupa megnið af Reykjanesinu, Preststíginn sem liggur frá Grindavík til Hafna og frá Reykjanestá inn í Voga. Á sumrin hleyp ég stundum tvö hálfmaraþon á viku en tek styttri vegalendir á veturna“ -Hefurðu þá tekið þátt í hlaupum það er að segja skipulögðum maraþonhlaupum? „Nei, það hef ég ekki gert. Ég er að hlaupa fyrir sjálfan mig og til að halda mér í þjálfun. Þannig hleyp ég t.d. í hádeginu í vinnunni. Þá er maður einn með sjálfum sér og getur hugsað um allt mögulegt. Hef alltaf æft mikið og geri enn. Þá hef ég hitt gamla félaga úr knattspyrnunni í Old boys og við spilum spilum saman fótbolta. Það er frábært að hitta þessa gömlu félaga og mér þykir vænt um þennan félagsskap.“
Fyrsti framkvæmdastjóri aðalstjórnar Keflavíkur Jóhann er, meðal annars menntaður, kennari og hóf kennslu í Holtaskóla. Þar kenndi hann líffræði, eðlisfræði og efnafræði. „Ég menntaði mig til kennslu í þessum fögum og fannst æðislega gaman að kenna. Það er mjög
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.
Jón Björn Sigtryggsson, Sturla Þórðarson, Benedikt Jónsson, Stefán Pálmason og starfsfólk tannlækningastofunnar Tjarnargötu 2, 230 Keflavík
Jóhann á vinnustað sínum, Landspítalanum.
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls árs.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Þessi mynd er tekin á þjóðarleikvangi Ísraels, þegar Keflavík spilaði gegn Maccabi Tel Aviv í evrópukeppni árið 1994. Á myndinni með Jóhanni er Óli Þór Magnússon, bróðir Jóhanns sem einnig spilaði með Keflavík. gaman að vekja áhuga hjá nemendum fyrir þeim fögum sem ég kenndi og þykja nú ekki spennandi hjá unglingum. En það gefur mikið að sjá og finna áhuga vakna á nemendum. Hvers vegna hætti ég kennslu? Ég fékk leið á því að hlusta á sjálfan mig og aðra í kringum mig nöldra yfir laununum alla daga. Ég tók reyndar að mér samhliða kennslunni að vera framkvæmdastjóri aðalstjórnar Keflavíkur og starfaði við skipulagningu leikjanámskeiða, útgáfu á þessu blaði og fleira sem fylgir því starfi. Þetta var mjög skemmtilegur en um leið annasamur tími. Stuttu áður höfðu nokkur félög í Keflavík, m.a. UMFK og KFK sameinst undir merkjum Keflavíkur. Þannig vinnudagurinn gat verið langur. Tveimur árum síðar tók ég að mér, samhliða kennslunni verkefnið Reykjanesbær á réttu róli ásamt Frey Sverrissyni. Hjálmar Árnason fékk mig til að sinna því verkefni og vinnutíminn var þá stundum frá 08:00 til 24:00 á kvöldin. Mjög gaman að vinna þetta verkefni og fá að starfa með fjölda fólks sem kom að því og tók þátt. Þá ákvað ég að hætta í kennslunni og skipta um vettvang. Ég réði mig til Kögunnar og starfaði þar í átta ár. Þá byggði einnig húsið hér á Melaveginum, með aðstoð vina og vandamanna. Ég vann alla þá vinnu sjálfur sem ég gat. Tengdafaðir minn, Ingólfur heitinn Bárðarson, var byggingarstjóri á húsinu og vinkona okkar útfærði teikningarnar. Húsið byggðum við á 10 mánuðum. Eftir það fór ég í nám með vinnu, framhalds-
nám og lauk prófi í stjórnun menntastofnana. Ég þarf að hafa nóg að gera.“
Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár
-Starfar hjá Landsspítanum Hjá Kögun starfaði ég sem gæðastjóri auk þess sem að sjá um kennslumál hjá fyrirtækinu. 2006 fór ég að starfa inn í Reykjavík vann um tíma fyrir sparisjóðina m.a. Spron og Byr en starfa nú hjá Landspítanum sem gæða- og öryggisstjóri Heilbrigðis og upplýsingartæknideilar. Sú starfsemi sér um tölvur, tölvukerfi og lækningatæki spítalans.“ -Það hlýtur að vera nokkuð starf að halda utan lækningatæki -og tölvukerfi Landsspítalans? „Já það er það. Spítalinn á um 10 þúsund lækningatæki og á spítalanum notum við á annað hundrað tölvukerfi. Það eru um 250 deildir og starfsmenn er um 4.500. Á annað þúsund aðrir heilbrigðisstarfsmenn nota einnig kerfin okkar auk um 1200 nema. Ætli umfang tölvumála hjá Landspítalanum sé ekki svipað og alls bankakerfisins, en þeir hafa sennilega úr 16 sinnum meira fjármangi að spila! Lækningatækin eru síðan sér kapítuli út af fyrir sig. En það hefur tekist vel að halda utan um þetta, sérstaklega síðustu ár þegar lítið hefur verið um peninga. Það má segja að við höfum lært að nýta peninga vel. Redda og halda öllu gangandi. Við erum alla vega að gera góða hluti. Þú vilt nefnilega að lækingatækið eða tölvukerfið virki þegar það er
ELDVARNIR EHF. Slökkvitækjaþjónusta Suðurnesja
Iðavöllum 3 • 230 Keflavík • Sími 421 4676
Við Suðurnesjamenn í Rafholti óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Jólablað 2014
21
Jóhann með góðum vinum og oldboys félögum, Gunnari Magnúsi Jónssyni og Frey Sverrissyni. verið að nota það! Það er skemmtilegra. Starfið sem hefur mikið byggst á því að slökkva elda, en smátt og smátt höfum við náð að beina kröftum okkar í fyrirbyggjandi vinnu og byggt upp enn skilvirkari viðbragðsáætlanir fyrir hin ýmsu kerfi og tæki spítalans. Ég hef lært mikið á því að vinna með fólkinu þarna, en að sama skapi fengið að leiða og taka þátt í margvíslegum og skemmtilegum verkefnum. Ég er almennt þannig þenkjandi, að þegar einhver bendir á vandamál sé ég oftast bara spennandi verkefni. Í
þessu starfi má segja að seigla og úthald skipti máli og það lærði ég í íþróttunum að kæmi manni langt. Annað sem ég hef lært í gegnum árin og með starfi mínu innan íþróttahreyfingarinnar er að mér finnst ég fljótt geta séð hvort fólk hefur stundað íþróttir og jafnvel hvort það hefur stundað einstaklingsíþróttir. Hvernig? Ég bara sé það.“ En Jóhann var ekki hættur að mennta sig, fór MBA nám með vinnu og lauk MBA prófi 2010. Hann segist lesa mikið af fræðibókum og grein-
REYKJANESBÆR
Sendir öllum bæjarbúum hugheilar óskir um gleðileg jól, gott og farsælt nýtt ár
Minnum á dagskrá kirkjunnar um aðventu og jól. Sjá nánar www.keflavikurkirkja.is
þar sem einnig eru upplýsingar um annað starf í kirkjunni. Kirkjuvegi 25 • 230 Keflavík • Sími 420 4300 • Fax 420 4305 • www.keflavikurkirkja.is
22
Jólablað 2014
„Starfið sem hefur mikið byggst á því að slökkva elda, en smátt og smátt höfum við náð að beina kröftum okkar í fyrirbyggjandi vinnu“ ingum m.a. varðandi íþróttir, stjórnun, sögu og menntamál. Þeir sem starfað hafa með Jóhanni innan íþróttarhreyfingarinnar vita þetta og hann hefur kynnt sé gífurlegan fjölda rannsókna sem snerta íþróttastarfsemi og sérstaklega áhrif þess á börn og unglinga. Og hann hefur tölfræði varðandi hinar ýmsu rannsóknir og greiningar á hreinu. Jóhann segist vera tölfræðinörd og svo mikið er víst að fáir koma að tómum kofanum varðandi tölfræði tengdri íþróttastarfi hjá Jóhann B. Magnússyni.
Unnum að góðum verkefnum -Nú gengdir þú starfi formanns í Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar í 13 ár. Hvað kom til að þú tókst það starf að þér? Það var ítrekað verið að biðja mig um eða hvetja mig til þess að taka að mér ýmis verkefni, eitt af því var þetta embætti. Á þessum þrettán árum unnum við að ýmsum góðum verkefnum. Skúli Skúlason fyrsti formaður Keflavíkur benti mér t.d. á verkefni sem hafi verið samþykkt á ÍSÍ þingi 1998 og enginn hafði byrjað á, en það var Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Og við innan ÍRB ákváðum að vinna að verkefninu og vorum fyrst til að vinna verkefni að þessu tagi hérlendis. Fólkið innan heyfingarinnar hérna í Reykjanesbæ vann að þessu verkefni að miklum krafti og ég held að öll félögin og allar deildir sem hafi lagt í þessa vegferð hafi náð að verða Fyrirmyndarfélag eða deild. Fólkið í deildunum og stjórnum félaganna lagði gífurlega vinnu á sig til að ná þessum markmiðum. Það var einstaklega gaman að vinna með þessu fólki og finna og sjá áhugan og metnaði fyrir starfinu. Annað feikilega gott verkefni sem við unnum að á þessum árum var fræðsluherferð og viðbragðsáætlun sem við unnum í samstarfi Reykjanesbæ, lögregluna og ÍSÍ. Þetta verkefni gekk út á fræða þjálfara og stjórnarmenn um ýmis mál sem gætu komið upp innan íþróttarhreyfingarinnar, m.a. hvernig ætti að vinna ef upp kæmu atvik innan hreyfingarinnar, sem bregðast þyrfi við. Það má t.d. nefna, einelti, fíkniefnanotkun, lyfjanotkun o.fl. Það fékkst styrkur vegna þessa verkefnis, og unnin var áætlun sem er til. Vonandi þarf sjaldan að nota þessa áætlun.“
-Nú hefur því verið haldið fram að íþróttir séu forvörn? „Skipulagt íþróttastarf getur skipt sköpum fyrir marga. Nýleg rannsókn bendir t.d. á að skipulagt íþróttastarf getur haft afgerandi áhrif varðandi 17-18 ára drengi sem eiga undir högg að sækja í samfélaginu, en það verður að vera skipulagt starf. Íþróttir hafa mikið forvarnargildi og ég get auðveldlega vísað fjölmargar rannsóknir. Við þurfum þó að vanda okkur við að reka þetta starf svo það hafi sem mest forvarnagildi. Íþróttastarf er alltaf fjársvelt en við skulum gera okkur grein fyrir því að þeim fjármunum er vel varið. Ég byggi ekki hér í bæjarfélaginu ef hér væri ekki öflugt íþróttastarf, svo á við um mjög marga á mínum aldri. Við viljum að börnin okkar hafi aðgang að góðu og skipulögðu íþróttastarfi. Auðvitað kostar þetta – við erum t.d. að setja um 20 mkr. í þjálfunarstyrki, sem fara í laun menntaðra þjálfara. Hér í bænum hefur verið byggð upp íþróttaaðstaða sem er með því besta á landinu. Reykjaneshöllin, sem dæmi, er í mikilli notkun. 100 eldri borgarar stunda þar göngu og hreyfingu á hverjum degi. Hún er síðan seinnihluta dagsins notuð til æfinga í knattspyrnu. Þetta er frábært. -Nú fara töluverðir fjármuni í gegnum hreyfinguna „Já það er alveg rétt. Ég held að fáir gera sér grein fyrir því að hreyfingin hér í Reykjanesbæ er að velta um 500 mkr. á ári. Eitt af því sem ég vildi að lögð yrði meiri áhersla á var að bæjarfélagið kæmi að því að ráða íþróttafulltrúa fyrir félögin. Slíkur starfsmaður hefði nýst vel til skipulagningar á starfi og svo margt fleira. Við skulum gera okkur grein fyrir því að starf stjórnarmanna í deildunum gengur mest allt út á að afla peninga til starfsins, og það er í raun takmörk fyrir hvað við getum ætlast til af fólki sem er flest að vinna þessi störf launlaust, í sjálfboðaliðsstarfi. Við þessa fjáröflun bætast síðan við margvísleg verkefni, s.s. mótahald, samvinna með foreldrum ofl. Ég held að við í íþróttahreyfinunni gefum okkur, almennt ekki nægan tíma til að setjast niður og vinna að markmiðasetningu, hvert við erum að stefna til framtíðar, setja stefnu og mæla árangur út frá stefnu og markmiðum sem við höfum sett okkur. Markmiðin eiga líka ekki að bara snúast bara um fjölda verðlauna, heldur einnig margvíslegt annað s.s. um fjölda iðkenda og takmörkun brottfalls. Til þess er yfirleitt ekki nægur tími hjá sjálfboðaliðunum. Megin starf íþróttahreyfingarinnar fer í raun fram í barna – og unglingastarfi, þar eru langflestir iðkendur, stundum allt að 90% af starfsins en í sumum tilfellum minni hluti af fjármunum. Það er þó mismunandi eftir félögum, deildum og greinum. Það er einnig kostur að bæði í knattspyrnunni og körfunni þar sem fjárhagslega velta er mikil, að fjárhagur barna og unglingastarfi er aðskilin meistaraflokkum. Meistaraflokkar þessara greina er annar heimur og í mörgum tilfellum rekin og starfsræktur á öðrum forsendum en barna og unglingastarfið. Hvorugt getur þó án hins verið og í raun styðja þau hvort annað. Aðspurður hvort íþróttir í meistaraflokki séu ekki orðinn atvinnumennska, segist Jóhann endurtaka það að meistaraflokkur hópíþróttanna sé annar heimur, ekki endilega atvinnumennska, en það sé algjörlega nauðsynlegt að aðskilja þennan þátt frá barna- og unglingastarfi fjárhagslega. Hann leggur áherslu á að barna- og unglingstarf sé undirstaða alls þess sem á eftir komi. Því verði félögin að hlúa að því starfi og byggja upp. Það hafa félögin hér gert og hér sé mjög gróskumikið starfa í yngri flokkunum. Jóhann lagði einnig áherslu á það að hér fer fram mikið starf í öðrum íþróttum en knattspyrnu og körfuknattleik. „Hér öflugt starf í sundi, fimleikum, taekwondo, júdó, hestaíþróttum, fimleikum, golfi, hjá fötluðum og öðrum greinum. Við megum ekki gleyma því að íþróttastarf innan Reykjanesbæjar er mjög fjölbreytt og metnaðarfullt. Og bæjarbúar geta verið stolti af
Lárus Blöndal forseti ÍSÍ sæmir Jóhann B. Magnúson gullmerki ÍSÍ. sínu íþróttafólki sem hefur verið að gera frábæra hluti. Það er því mjög mikilvægt að stutt sé vel við þetta starf. Það skilar sér.“
„Við megum ekki gleyma því að íþróttastarf innan Reykjanesbæjar er mjög fjölbreytt og metnaðarfullt“ Leit á mig sem þjón -En í hverju felst starf formanns Íþróttabandalags Reykjanesbæjar? „Við skulum gera okkur grein fyrir að það eru félögin sem ráða ferðinni og stefnunni sem við byggjum starfið á, ég leit frekar á mig sem þjón þessara félaga. Ég hef alltaf litið þannig á, að starf mitt sem formaður Íþróttabandalags Reykjanesbæjar snerist að miklu leiti um að peppa eða hvetja aðra til starfa. Ég fór yfirleitt á alla aðalfundi og ég held að ég hafi haldið rúmlega 70 ræður á þessum fundum. Með útnefningu íþróttamanns Reykjanesbæjar og öðrum viðburðum eru þessar ræður hvatningaræður
örugglega vel yfir 100 talsins. Íþróttir eiga að snúast um ánægju. Starfið verður að snúast um ánægju, ástríðu og skipulag. Þú verður að hafa ánægju af því sem þú er að gera. Móttóið mitt á meðan að ég kenndi var, að þú verður að ná að kveikja áhuga og það verður að vera skemmtilegt. Í starfi mínu sem formaður ÍRB reyndi ég að vinna með þetta í huga. Kveikja áhuga og að hlutirnir væru skemmtilegir. Ég verð að hafa ástríður fyrir því sem ég tek mér fyrir hendur“. Þegar Jóhann lét af formennsku ÍRB ákvað ÍSÍ að sæma hann gullmerki samstakanna fyrir starf hans fyrir íþróttahreyfinguna. „Sú viðurkenning á starfi manns er mikils virði, og mér þótti mjög vænt um þessa viðurkenningu. Oft held ég að starf fólk innan íþróttahreyfingarinnar sé ekki metið að verðleikum. Fólk leggur mikið starf á sig t.d. í deildum félaganna launalaust, bara fyrir ánægjuna. Og það sem stendur upp úr er að hafa fengið að starfa með öllum þessu góða fólki. Ég hef reynt að læra af fólki og finnst mjög gaman að vinna með fólki.“ Jóhann segir að þrátt fyrir að hann hafi látið af starfi formanns Íþróttabandalags Reykjanesbæjar eigi hann eftir að koma aftur til starfa þar sem hann telur að hann geti gert gagn. „Ég er alltaf til í að vinna að skemmtilegum verkefnum!“
Gjafakort Íslandsbanka
Gjöf sem er alltaf efst á óskalistanum Gjöf sem þú getur verið viss um að hittir í mark Gjafakort Íslandsbanka er gjöf með endalausa möguleika. Kortið gildir eins og önnur greiðslukort jafnt í verslunum um allan heim og á netinu. Þú færð gjafakortið í fallegum umbúðum í næsta útibúi Íslandsbanka
islandsbanki.is
Netspjall
Sími 440 4000
Jólablað 2014
23
Gleðileg jól
farsælt komandi ár, þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða BÓKHALDSÞJÓNUSTAN SÆVAR REYNISSON VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR
Hafnargötu 27 - Sími 421 1420 & 894 3837
Brautarnesti Rafverktaki
VÍSIR
Félag skipstjórnarmanna á Suðurnesjum
Hringbraut 93b
Hafnargötu 62 - Sími 421 4457
stapaprent
Guesthouse www.alex.is
Tækniþjónusta SÁ ehf.
Prentþjónusta í 30 ár
Grófin 13c • 230 Reykjanesbær • Sími 421 4388 • Netfang stapaprent@simnet.is
Keflvískir afreksmenn í 80 ár
Jólagjöf
íþróttamannsins
Ítarleg umfjöllun um íþróttalífið í Keflavík prýdd fjölda mynda Fáanleg í Félagsheimili Keflavíkur Sunnubraut 34
- Sími 421 3044 & 897 5204
Iðkendur Keflavíkur munu ganga í hús og bjóða bókina til sölu. Takið vel á móti sölufólki okkar, verð aðeins kr 2500,-
24
Jólablað 2014
Mikið að gerast hjá
Blakdeild Keflavíkur
S
tarfið í blakdeildinni fer hægt en vel af stað. Fyrsti aðalfundur félagsins var haldinn á árinu. Fullorðinsflokkar skelltu sér á nokkur mót. Fyrsta mót ársins var Þorramót Aftureldingar þar sem kvennaflokkur keppti í 3. deild í fyrsta sinn og gerði sér lítið fyrir og sigraði mótið. Bæði karlalið og kvennalið tóku svo þátt í hinu árlega öldungamóti en árangurinn þar var ekki alveg eins góður enda forfölluðust nokkrir á síðustu stundu og þurfti að fá lánaða liðsmenn annars staðar frá til að geta tekið þátt og átt möguleika á að halda okkur í okkar deild. Blakdeildin hélt einnig nokkur mót sjálf. Á heilsudögum í Sandgerði skipulagði deildin blakmót fyrir bæjarfélagið. Um sumarið sá hún um Strandblaksmótið í Garði og í lok árs setti deildin upp fyrirtækjamót í blaki. Öll þessi mót vöktu mikla lukku og var mikið fjör. Ætlunin er að halda fleiri fyrirtækjamót eftir áramót. Fyrir jól keppti starfsfólk grunnskólanna, gaman væri að sjá litla keppni til dæmis milli starfsmanna leikskóla, milli deilda og sviða bæjarins, fyrirtækja bæjarins svo sem Isavia og HS veitna svo eitthvað sé nefnt. Áhugasamir geta svo farið inná Facebooksíðu mótsins: FYRIRTÆKJAMÓT BLAKDEILDAR KEFLAVÍKUR. Þar sem helstu upplýsingar koma fram eða fylgst með tilkynningum inná www.keflavik.is/blak. Í vetur hófum við barnastarf hjá deildinni í fyrsta sinn. Æfingar voru auglýstar bæði í prentmiðlum og netmiðlum, auk þess sem auglýsingum var dreift í helstu skóla og íþróttahús bæjarins. Ákveðið var að byrja á því að bjóða uppá æfingar fyrir krakka í 3.-10. bekk og hafa æfingar tvískiptar, önnur æfingin væri fyrir 3.-6. bekk og hin fyrir 7.-10. bekk. Svandís Þorsteinsdóttir var fengin til að þjálfa þessa tvo flokka og voru fáir að æfa til að byrja með en nú erum við farin að sjá aukningu með hverri vikunni. Góður iðkendafjöldi er að myndast í yngri flokknum en ennþá er frekar fámennt í þeim eldri og eru stelpur meirihluti iðkenda. Æfingarnar eru fríar og var áætlun að iðkendur greiddu árgjald frá og með 1. nóvember. Þegar nóvember nálgaðist duttu hins vegar einhverjir
Öldungamótið Kaleikur - kvennaflokkurinn. iðkendur út og teljum við það vera vegna þess að það var að nálgast greiðslu á árgjaldinu. Þannig að rukkun árgjalds var felld niður þetta árið þar sem við erum enn að reyna að efla og stækka deildina með því að fá fleiri iðkendur inn. Æfingar í blakinu verða því fríar í allan vetur og lengur ef þurfa þykir. Til að standa undir launakostnaði og boltakaupum höfum við verið að sækja um styrki sem ættu að dekka þau útgjöld og eins og áður sagði, þá setti deildin upp fyrirtækjamót sem hluti af fjáröflun fyrir krakkablakið. Börnin sem æfa krakkablakið hjá okkur eru enn að læra grunninn en framfarir eru sjánlegar með hverri æfingunni. Við gerum ákveðnar upphitunaræfingar sem að er að gera þeim gott að hafa smá rútínu á hverri æfingu. Svo bætum við einhverjum skemmtilegum æfingum/leikjum allt eftir því hvað okkur langar að gera. Svo er
farið aðeins í spil og lært hvernig það virkar. Við höfum ekki farið með krakkana sem eru að æfa á mót þar sem við viljum að þau nái grunninum betur. Þess í stað er áætlað að hópa okkur saman og horfa á eitt mót til að krakkarnir skilji betur hvernig blakið virkar. Krökkunum sem eru að æfa finnst blakið skemmtilegt og bíða alltaf spennt eftir því að fá að spila, það eru flottir blakarar sem eru að mæta og þau eiga eftir að verða mjög góð í framtíðinni. Vonandi láta fleiri krakkar sjá sig og koma og prófa. Keflavíkurdagurinn var haldinn í fyrsta sinn hjá félaginu í ár og heppnaðist bara ágætlega. Blakdeildin tók sinn þátt í að kynna sína íþrótt og voru margir áhugasamir og mikið af fólki sem kom og fékk að prufa að spila. Þó nokkrir eyddu stórum hluta af deginum á okkar svæði og spiluðu sumir blak í hátt í klukkutíma svo mikill var áhuginn. Þarna voru margir sem sýndu mikinn áhuga á að mæta á æfingar en því miður stangaðist æfingatíminn hjá okkur oft á við aðrar greinar sem viðkomandi var að æfa. Við erum full bjartsýni á að deildin nái að stækka og dafna. Við höfum jafnframt lært að það tekur tíma að koma blakíþróttinni á kortið í bæjarfélagi þar sem lítil sem engin hefð hefur verið í blaki.
Við minnum á að allir geta komið og æft frítt hjá okkur Æfingar fara fram í íþróttahúsi Heiðarskóla á eftirtöldum tíma: • Karlaflokkur - þriðjudaga kl: 17-18:30 • Kvennaflokkur - miðvikudaga kl: 20:00-21:30 • blönduð æfing - föstudaga kl: 19:10-20:40 og sunnudaga kl: 11:00-12:30 • 3.- 6. bekkur - miðvikudaga kl: 14:50-16 og 7.10.bekkur kl:16-17:10. Fyrir hönd blakdeildar Keflavíkur Heiðrún B. Sigmarsdóttir Svandís Þorsteinsdóttir. Mikil barátta á blakmóti á Sólstöðuhátíð Garðsins.
Jólablað 2014
25
9. flokkur drengja, silfur á Íslandsmóti og silfur í bikar.
8. flokkur stúlkna, Íslandsmeistarar.
Unglingaflokkur karla, Íslandsmeistarar.
Unglingaflokkur kvenna, Íslands- og bikarmeistarar.
Barna- og unglingaráð Körfuknattleiksdeildar Annáll og uppskera keppnistímabilið 2013-2014
S
tarf barna- og unglingaráðs var með miklum ágætum keppnistímabilið 2013-14 og víða í starfinu náðist frábær árangur. Hópurinn á bak við starfið samanstendur af stjórnarfólki, þjálfurum, iðkendum og foreldrum sem halda starfinu blómlegu af bestu getu.
Árangur keppnisliða 20132014 Keflavík sendi lið til keppni í öllum aldursflokkum á afstöðnu Íslandsmóti yngri flokka, eða 15 flokka alls. Í bikarkeppni KKÍ sendi Keflavík lið í öllum aldursflokkum eða 9 alls, en þátttökurétt eiga 9. flokkur og eldri. Árangur á Íslandsmóti og bikarkeppni yngri flokka var frábær þetta tímabilið og fer í flokk bestu keppnistímabila frá upphafi. Af 24 titlum sem keppt var um í yngri flokkunum vann Keflavík 10. Keflvíkingar eru jafnframt það félag í körfubolta á Íslandi sem hefur unnið til flestra verðlauna í yngri flokkunum eða 207 Íslands- og bikarmeistaratitla alls. Í kvennaboltanum hélt Keflavík uppteknum hætti og sópaði inn titlum. Stelpurnar unnu 5 Íslandsmeistaratitla af 7 mögulegum og 3 bikarmeistara-
26
Jólablað 2014
titla af 4 mögulegum. Þar sem Keflavík náði ekki að vinna gull í yngri flokkunum vannst silfur, eða næstbesti árangur. Drengjamegin sáum við ágætan árangur. Keflavík varð Íslandsmeistari í tveimur aldursflokkum, minnibolta 11 ára drengja og í unglingaflokki karla, auk þess sem silfurverðlaun náðust í 9. flokki drengja. Ekki náðist að landa bikar hjá drengjunum þetta árið en 10. flokkur drengja lék til úrslita í sínum flokki. Iðkendur í 1.-5. bekk keppa ekki á Íslandsmóti en þeir hafa verið duglegir að sækja önnur mót sem í boði eru fyrir þennan aldurshóp. Meðal móta sem voru sótt voru Orkumót KR, Actavismót Hauka, Sambíómót Fjölnis, Jólamót Nettó&ÍR og Póstmót Breiðabliks. Öll fóru þau að sjálfsögðu á Nettómótið sem er mót mótanna.
Unglingalandsliðsfólk Körfuknattleiksdeildar 2014 Fjórar stúlkur úr Keflavík voru valdar til að keppa með U16 á Norðurlandamóti yngri landsliða sem fór fram í Solna í Svíþjóð í byrjun maí og er þeirri frægðarför gerð frekari skil í annarri grein í blaðinu.
Einnig voru fjórar stúlkur valdar til að keppa með U18 á sama Norðurlandamóti yngri landsliða en það voru þær Bríet Sif Hinriksdóttir, Elínóra Guðlaug Einarsdóttir, Sandra Lind Þrastardóttir og Sara Rún Hinriksdóttir sem einnig var valin í 5 manna úrvalslið mótsins. Sömu stúlkur léku einnig með U18 ára landsliðinu á EM í Rúmeníu í júlí þar sem þær stóðu sig vel og höfnuðu í 15. sæti. Fimm stúlkur úr Keflavík voru valdar í 12 manna landsliðshóp U15 sem tók þátt í Copenhangen Invitational í júní, Andrea Dögg Einarsdóttir, Birna Valgerður Benónýsdóttir, Birta Rós Davíðsdóttir, Katla Rún Garðarsdóttir og Þóranna Kika Hodge-Carr. Tveir drengir frá Keflavík voru valdar í 12 manna landsliðshóp U15 sem tók þátt í sama móti en það voru þeir Stefan Alexander Ljubicic og Þorbjörn Óskar Arnmundsson. Skemmst er frá því að segja að strákunum gekk vel á mótinu og höfnuðu í öðru sæti eftir úrslitaleik gegn Svíum og var okkar maður Þorbjörn Óskar valinn í úrvalslið mótsins. Valur Orri Valsson og Eysteinn Ævarsson sem gekk til liðs við Keflavík frá Hetti s.l. sumar, voru að lokum valdir í
U20 ára landsliðshópinn sem tók þátt í NM í Helsingi í júní þar sem íslenska liðið hafnaði í 3. sæti.
Aukaæfingin & afreksstarf Áfram var boðið upp á morgun- og afreksæfingar 2 skipti í viku frá október til apríl fyrir áhugasama iðkendur í 8. bekk og eldri. Voru þær vel sóttar og er ljóst að þessar æfingar eru komnar til að vera. Valinn var afrekshópur til sumaræfinga úr 9. og 10. bekk sem var gefinn kostur á að æfa körfubolta á morgnanna í 8 vikur samhliða vinnuskólanum, þar sem fléttað var saman körfubolta, sumarvinnu og aðstoð við störf unglingaráðs á 17. júní og Ljósanótt. Allir þessir hópar æfðu undir handleiðslu Einars Einarssonar, yfirþjálfara yngri flokka körfuknattleiksdeildar.
Lokahóf yngri flokka í maí 2014 Lokahóf yngri flokka var haldið um miðjan maí að venju í TM höllinni. Veittar voru viðurkenningar og tímabilinu lokið með þeim hætti sem hæfir vorkomunni, þ.e. að tendra á grillinu og blása til veislu. Iðkendur 1.-5. bekkjar fengu allir viðurkenningarskjal fyrir iðni og góða
9. flokkur stúlkna, Íslands- og bikarmeistarar.
10. flokkur stúlkna, Íslandsmeistarar.
7. flokkur stúlkna, Íslandsmeistarar.
Minnibolti drengja, Íslandsmeistarar.
ástundun. Þjálfarar þeirra voru eftirfarandi: 1.-4. bekkur stúlkna Þjálfari: Helena Jónsdóttir 1.-4. bekkur drengja Þjálfari: Einar Einarsson 5. bekkur stúlkna Þjálfari: Jón Guðmundsson 5. bekkur drengja Þjálfari: Björn Einarsson Einstaklingsviðurkenningar voru veittar iðkendum 11 ára og eldri:
Minnibolti 11 ára drengja Þjálfari: Björn Einarsson Mestar framfarir: Bjarki Freyr Einarsson Besti varnarmaðurinn: Helgi Bergmann Hermannsson Besti leikmaðurinn: Davíð Snær Jóhannsson
Minnibolti 11 ára stúlkna Þjálfari: Jón Guðmundsson Mestar framfarir: Guðrún Hanna Jónsdóttir Besti varnarmaðurinn: Eva María Davíðsdóttir Besti leikmaðurinn: Edda Karlsdóttir
7. flokkur drengja Þjálfari: Sigurður Ingimundarson
Mestar framfarir: Sigurður Hólm Brynjarsson Besti varnarmaðurinn: Nói Sigurðarson Besti leikmaðurinn: Andri Þór Tryggvason
7. flokkur stúlkna Þjálfari: Björn Einarsson Mestar framfarir: Eygló Rún Árnadóttir Besti varnarmaðurinn: Þorbjörg Birta Jónsdóttir Besti leikmaðurinn: Þorbjörg Birta Jónsdóttir
8. flokkur drengja Þjálfari: Sigurður Ingimundarson Mestar framfarir: Vilhjálmur Páll Thorarensen Besti varnarmaðurinn: Elvar Snær Guðjónsson Besti leikmaðurinn: Arnór Sveinsson
8. flokkur stúlkna Þjálfari: Björn Einarsson Mestar framfarir: Eva María Lúðvíksdóttir Besti varnarmaðurinn: Elsa Albertsdóttir Besti leikmaðurinn: Birna Valgerður Benonýsdóttir
9. flokkur drengja Þjálfari: Guðmundur Ingi Skúlason Mestar framfarir: Þorbjörn Óskar Arnmundsson
Besti varnarmaðurinn: Árni Geir Rúnarsson Besti leikmaðurinn: Stefan Alexander Ljubicic
9. flokkur stúlkna Þjálfari: Þröstur Leó Jóhannsson Mestar framfarir: Andrea Einarsdóttir Besti varnarmaðurinn: Þóranna Kika Hodge-Carr Besti leikmaðurinn: Katla Rún Garðarsdóttir
10. flokkur karla Þjálfari: Guðmundur Ingi Skúlason Mestu framfarir: Marvin Harrý Guðmundsson Besti varnarmaðurinn: Brynjar Bergmann Björnsson Besti leikmaðurinn: Arnór Ingi Ingvason
10. flokkur stúlkna Þjálfari: Þröstur Leó Jóhannsson Mestar framfarir: Emelía Ósk Gunnarsdóttir Besti varnarmaðurinn: Tinna Björk Gunnarsdóttir Besti leikmaðurinn: Thelma Dís Ágústsdóttir
11. flokkur drengja Þjálfari: Jón Norðdal Hafsteinsson Mestu framfarir: Knútur Eyfjörð Besti varnarmaðurinn: Tryggvi Ólafsson
Besti leikmaðurinn: Sigurþór Ingi Sigurþórsson
Stúlknaflokkur Þjálfari: Reaggie Dupree Mestu framfarir: Írena Sól Jónsdóttir Besti varnarmaðurinn: Emelía Ósk Gunnarsdóttir Besti leikmaðurinn: Sara Rún Hinriksdóttir
Drengjaflokkur Þjálfari: Jón Norðdal Hafsteinsson Mestu framfarir: Birkir Örn Skúlason Besti varnarmaðurinn: Aron Freyr Kristjánsson Besti leikmaðurinn: Sigurþór Ingi Sigurþórsson
Lokaorð Við í barna- og unglingaráði viljum að lokum þakka öllum þjálfurum sem störfuðu fyrir félagið í vetur fyrir frábært starf auk fjölmargra foreldra sem lögðu hönd á plóginn með óeigingjörnu framlagi í þágu unga fólksins. Áfram Keflavík. F.h. barna og unglingaráðs Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur Jón Ben Einarsson.
Jólablað 2014
27
Í aftari röð frá vinstri: Jón Guðmundsson þjálfari er fyrstur og Thelma Dís Ágústsdóttir er áttunda (nr 10). Í fremri röð frá vinstri: Svanhvít Ósk Snorradóttir er fjórða, Emilía Ósk Gunnarsdóttir er fimmta og á endanum er Elfa Falsdóttir ( nr. 5).
U16 Norðurlandameistari 2014
- fyrsti NM titill kvenna í 10 ár
F
jórar stúlkur úr Keflavík voru valdar til að keppa með U16 á Norðurlandamóti yngri landsliða sem fór fram í Solna í Svíþjóð í byrjun maí en það voru Elfa Falsdóttir, Emelía Ósk Gunnarsdóttir, Svanhvít Ósk Snorradóttir og Thelma Dís Ágústsdóttir. Auk þess kom þjálfari liðsins úr yngri flokka starfi Keflavíkur, Jón Guðmundsson sem einnig
hefur getið sér gott orðspor sem einn fremsti körfuknattleiksdómari landsins, en Jón hefur þjálfað í áraraðir hjá Keflavík og á drjúgan þátt í uppbyggingu kvennastarfsins á undanförnum árum. Þegar uppi var staðið reyndist þetta hin mesta frægðarför því stelpurnar gerðu sér lítið fyrir og urðu Norðurlandameistarar með glæsibrag og unnu alla sína leiki. Er þetta fyrsti Norðurlanda-
Óskum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.
meistaratitill Íslands í kvennaflokki síðan árið 2004 þegar U16 hampaði titlinum, en meðal leikmanna í því liði voru Bryndís Guðmundsdóttir, María Ben Erlingsdóttir og Helena Sverrisdóttir. Emelía Ósk Gunnarsdóttir Keflavík var jafnframt valin í 5 manna úrvalslið mótsins.
Óskum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.
ÞORVALDUR H. BRAGASON EINAR MAGNÚSSON ÞÓRIR HANNESSON OG STARFSFÓLK
S K Ó L AV E G I 1 0 • 2 3 0 K E F L AV Í K
28
Jólablað 2014
Lloret de Mar V
ið, leikmenn meistaraflokks Keflavíkur í körfubolta, héldum af stað til Spánar með yndislegu kvennaráði og þjálfurum þann 8. september. Leiðinni var heitið til strandbæjarins Lloret de Mar þar sem undirbúningstímabilið hófst. Við vorum komnar á hótelið um miðnætti en það stoppaði okkur ekki að kíkja á aðstæður þar sem við vorum með nokkra reynslubolta í för sem höfðu verið þarna á æfingamóti fjórum árum áður. Morguninn eftir byrjaði harkan, strax tvær erfiðar æfingar og dregið fyrir sólu þegar við loksins komumst á ströndina. Við vorum ekki lengi að jafna okkur á því þar sem við dönsuðum það af okkur seinna um kvöldið á Tropics, þar sem þeir sannfærðu okkur um að staðurinn væri fullur af fólki og við mikilvægustu manneskjurnar á svæðinu. Við æfðum mjög vel, tvisvar á dag, alla daga og allir lögðu sig 100% fram. Þetta var einmitt það sem liðið þurfti fyrir komandi átök. Gaf okkur ákveðið forskot á undirbúningstímabilið hérna heima, þar sem við komum sterkar inn og unnum Lengju-
bikarinn. Allt hrós fer nú samt til kvennaráðsins þar sem prógrammið þeirra var mjög stíft og tækluðu þær það með glæsibrag og nokkrum svellköldum. Þann 11. september gerðum við okkur dagamun og kíktum á menninguna í Barcelona. Þar ætluðum við margar að versla á Römblunni, en annað kom á daginn. Þjóðhátíðardagur Katalóníumanna er sem sagt þann 11. september og því var öllum búðum lokað. Það var þó í lagi því
við enduðum daginn á undanúrslitaleik heimsmeistaramótsins í körfubolta sem var á milli Bandaríkjanna og Litháen. Þar fengum við að sjá margar stórstjörnur úr NBA deildinni spila fallegan körfubolta, en þeir stóðu uppi sem heimsmeistarar nokkrum dögum síðar. Meðal áhorfenda voru Neymar Jr., Dani Alves og Gerard Piqué, en tvær galvaskar úr kvennaráði voru sannfærðar um að Neymar Jr. hefði vinkað okkur. Ótrú-
legt þykir að þær tvær voru þær einu sem urðu vitni að þessu. Þá voru nokkrir dagar eftir og síðustu droparnir nýttir í æfingar, vatnsrennibrautagarð og sólbað. Frábær ferð í alla staði sem vonandi verður árleg héðan í frá! Þakkir frá okkur stelpunum til besta kvennaráðs í heimi. Áfram Keflavík! Lovísa Falsdóttir og Sandra Lind Þrastardóttir.
Camp Pass It On 2014 Tveir af efnilegustu leikmönnum körfuknattleiksdeildar Keflavíkur, Birna Valgerður Benonýsdóttir og Arnór Sveinsson, héldu s.l. sumar á vit ævintýranna til Istanbúl í Tyrklandi þar sem þau dvöldu 11.-17. ágúst í boði tyrkneska körfuknattleikssambandsins. Um er að ræða metnaðarfullt félagslegt körfuboltaverkefni sem kallast Camp Pass It On þar sem tveim leikmönnum, strák og stelpu sem eru 14 ára, ásamt efnilegum þjálfara, er boðið að taka þátt allstaðar að úr heiminum. Á hverjum degi eru körfuboltaæfingar, hópavinna og fræðsla fyrir leikmenn auk þess sem þjálfarar sækja fyrirlestra og fræðslu og stýra svo æfingum hjá hópi leikmanna. Einnig er lögð áhersla á að krakkarnir kynnist félagslega og beri virðingu fyrir hvort öðru og þessu tengdu eru ýmsar uppákomur og skoðunarferðir sem gera þetta verkefni að frábærri upplifun. Búðirnar hafa verið haldnar einu sinni áður, 2010 en þá var Keflvíkingurinn Bríet Sif Hinriksdóttir annar af tveimur leikmönnum frá Íslandi. Það er Körfuknattleikssamband Íslands sem tilnefnir okkar þátttakendur og mikill heiður fyrir okkar efnilega afreksfólk að hafa orðið fyrir valinu.
Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár
Smiðjuvöllum 6 • 230 Keflavík • Sími 421 3500 • www.retting.is
Jólablað 2014
29
Mótanefndin endaði Nettómótið 2014 með myndatöku og ungmennafélagsbrosi
Nettómótið hefur verið farsælt og stendur á tímamótum 25 ára afmæli á næsta ári
B
arna- og unglingaráð Körfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur stóðu að venju í farsælu samstarfi að framkvæmd Nettómótsins 1.-2. mars 2014. Mótið sem hefur fyrir löngu markað sér sess sem stærsta körfuboltamót á Íslandi og er jafnframt stærsti einstaki íþróttaviðburðurinn sem haldinn er í Reykjanesbæ ár hvert. Það sýnir hverju hægt er að fá áorkað, þegar jafnvel hörðustu andstæðingar á vellinum eru tilbúnir að snúa bökum saman og vinna að jafn mikilvægu hagsmunamáli og þetta farsæla mótahald hefur reynst fyrir félögin og bæjarfélagið. Engin breyting varð á velgengni mótsins þetta árið og enn eitt þátttökumetið var slegið. Á endanum reyndust keppnisliðin vera 206, leiknir voru 488 leikir á 13 völlum í fimm íþróttahúsum en 1.255 keppendur léku á mótinu á aldrinum 5 – 11 ára. U.þ.b. 1.000 manns gistu í skólamannvirkjum bæjarfélagsins þessa helgi sem voru öll nýtt til hins ítrasta og gríðarlegur fjöldi foreldra og barna skellti sér í Vatnaveröld eða tæplega 3.000 manns. Mótið í ár markar ákveðin tímamót þar sem tekin hefur verið sú ákvörðun að hætta með elsta árganginn á mótinu sem eru krakkar í 6. bekk, enda er mótið komið að þolmörkum í stærð og umfangi. Þannig að Nettómótið 2015, sem verður 25 ára afmælismót, verður í fyrsta sinn haldið fyrir 10 ára og yngri, þ.e. 5. bekk. Barna- og unglingaráð Körfuknattleiksdeildarinnar vilja færa öllum körfuboltavíkingum þessa bæjarfélags bestu þakkir fyrir óeigingjarnt framlag þessa helgi í þágu körfunnar og félagsins, enda útilokað að standa að slíkri stórframkvæmd án breiðrar þátttöku þar sem allir leggjast á eitt.
30
Jólablað 2014
Einnig fá öll þau fyrirtæki og stofnanir sem lögðu mótinu lið miklar þakkir. Þar ber sérstaklega að nefna tvo aðila sem eru annars vegar Samkaup, rekstraraðili Nettó, en þeir hafa verið aðal bakhjarlar mótsins í áraraðir og hins vegar Reykjanesbær, sem styður mótahaldið með margvíslegum og ómetanlegum hætti. Fjölmargir aðrir aðilar og fyrirtæki koma einnig gríðarlega sterkir inn í þetta með okkur og án allra þessara aðila yrðu gæði mótsins ekki með sama hætti og verið hefur. Verið hjartanlega velkomin á 25 ára afmælismótið þann 7.-8. mars n.k. Það mót mun verða eins og fyrri mót, mikil körfubolta- og fjölskylduhátíð þar sem allir eru sigurvegarar. F.h. barna og unglingaráðs Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur Jón Ben Einarsson.
2014
Skafmiðaleikur Víkurfrétta og verslana á Suðurnesjum
2014
Sími 421 4777
Óskar Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
2014
og farsældar á komandi ári
ÞAÐ GETUR FYLGT ÞVÍ MIKIL LUKKA AÐ GERA JÓLAINNKAUPIN Á SUÐURNESJUM Jólablað 2014 2014 Jólablað
31
Eurogym í Helsingborg
L
oksins var komið að þessu. Laugardagurinn 13. júlí rann upp bjartur og fagur og haldið var af stað upp í Flugstöð. Þar hittumst við öll, 26 iðkendur Fimleikadeildar Keflavíkur, tveir þjálfarar, fararstjórar og foreldrar. Við flugum til Kaupmannahafnar og tókum þaðan rútu til Helsingborgar í Svíþjóð. Framundan var fimleikahátíðin Eurogym sem haldin var í Helsingborg dagana 13. – 18. júlí. Fyrirkomulagið var þannig að það var stórglæsileg opnunarhátíð á sunnudeginum og vinnubúðir fyrir iðkendur næstu daga. Það voru tvær vinnubúðir á dag og hátíðin endaði á frábærri lokahátíð sem sýndi allt það besta sem fimleikafólkið hafði afrekað þessa daga. Fyrirkomulagið var til fyrirmyndar á hátíðinni. Hópurinn æfði saman í 6 vikur fyrir ferðina. Hulda Sif Gunnarsdóttir og Brynja Rúnarsdóttir sömdu dansinn og atriðið í heild sinni og kunnum við þeim góðar þakkir. Við gistum í skóla ásamt þremur öðrum íslenskum liðum. Hann var vel staðsettur (komumst að því þegar við vorum farin að rata um svæðið) og það var rólegt og gott að vera þar. Stutt var í Arena sem var miðstöð allra samskipta, opnunar- og lokunarhátíðin var haldin þar og við hliðina var skautahöllin þar sem maturinn var framreiddur. Það var mikið ævintýri að fara að borða. Um 4000 aðrir fimleikaiðkendur voru að borða á svipuðum tíma og það var ótrúlegt að sjá hvað þetta gekk vel fyrir sig. Ekki voru allir sáttir með það sem var á boðstólum en sem betur fer voru nokkrir McDonald´s staðir í kringum okkur þannig að það var hægt að sefa hungrið. Vinnubúðirnar voru alltaf á morgnana og sýningarnar eftir hádegi. Þær vinnubúðir sem farið var í var: streetdans, trampólín, reaggy dans og hefðbundna sænska leiki. Dagskráin var þétt allan daginn en vel skipulögð og skemmtileg. Þegar eiginlegri dagskrá var lokið þá gátu krakkarnir farið í Gym Zone og leikið sér í vatnaleikjum, fótbolta, farið á diskótek og fleira. Félagið okkar sýndi atriði tvisvar sinnum á sviðum sem voru dreifð um bæinn. Atriði þeirra var algjörlega frábært og þau stóðu sig mjög vel fyrir framan hóp af fólki sem klappaði mikið fyrir þeim. Íslendingar voru mjög fjölmennir á hátíðinni, tæplega 400 manns. Við vorum annað fjölmennasta landið sem tók þátt, en í heildina voru þarna um 4000 fimleikaiðkendur.
32
Jólablað 2014
Við gengum mjög mikið í þessari ferð. Fram og til baka úr skólanum, út um allan bæ, m.a. í ratleik, og við vorum farin að þekkja miðbæinn mjög vel sem og strætósamgöngurnar. Mörg skemmtileg gullkorn féllu í ferðinni og í tengslum við allt labbið þá kom þetta: „Ég er marin á hælunum eftir allt labbið“. Krakkarnir voru ótrúlega dugleg og hlýðin og æðisleg upp til hópa í ferðinni. Ákveðið var að halda snemma af stað til Kaupmannahafnar morguninn 18. júlí en við flugum heim um kvöldið. Ástæðan var sú að deginum átti að eyða í Tívolí. Þessi dagur var æðislegur. Veðrið var meiriháttar, krakkarnir fengu útrás í tækjunum og allir nutu sín þessar síðustu klukkustundir sem eftir voru þrátt fyrir lítinn svefn nóttina áður. Heimferðin gekk vel miðað við bilað lestarkerfi og bilun í bókunarkerfi en við lentum heil á höldnu að kvöldi 18. júlí í Keflavík eftir frábæra viku saman. Kurteisi og hjálpsemi íbúa Helsingborgar var aðdáunarverð. Margt týndist í strætóferðum hvort sem það var hjá okkur eða öðrum Íslendingum og það skilaði sér allt og skipti það ekki máli hvort að það var aðgangspassinn, peysur, töskur eða myndavélar. Það skilaði sér allt til okkar aftur. Við þökkum fyrir allan stuðninginn sem við fengum í formi áheita og styrkja. Án ykkar hefði ferðin ekki verið möguleg. Takk aftur. Við sem fórum sem fararstjórar og foreldrar í ferðina erum þakklát fyrir að hafa fengið að fara í þessa ferð með þessum frábæru krökkum. Þetta gekk mjög vel og allir sáttir við sitt. Fyrir hönd fararstjóra og foreldra, Anna Kristjana Egilsdóttir.
Krakkafimleikar Y ngstu iðkendurnir hjá fimleikadeildinni eru í hópum sem kallast Krakkafimleikar og eru þeir á laugardagsmorgnum. Krakkafimleikar eru fyrir 2ja til 4 ára börn. Haustið 2014 eru 96 skráðir í þremur hópum. Þjálfari krakkafimleikana er Linda Hlín Heiðarsdóttir og er hún með fjórar fimleikastúlkur sér til
aðstoðar, þær Brynju, Ölmu, Kötlu og Andreu Dögg. Í tímunum er unnið með alhliða hreyfiþroska og líkamsmeðvitund barnanna með fimleikaáherslu. Börnin læra á líkamann, þekkja sitt hugrekki og sína færni og einnig læra þau að umgangast áhöldin í salnum og salinn sjálfan. Í tímunum er gert ráð fyrir þátttöku foreldra
þannig að foreldri og barn geti notið sín saman. Krakkafimleikar eru frábærir fyrir yngri börnin sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttaiðkun. Allir finna eitthvað við sitt hæfi. Ný skráning hefst 12.desember inni á heimasíðu deildarinnar: www.keflavik.is/fimleikar
Fullorðinsfimleikar F
imleikadeild Keflavíkur býður nú upp á fimleikaæfingar tvisvar í viku fyrir konur og karla. Allir frá 18 upp í 118 ára eru velkomnir að koma og spreyta sig. Þú þarft ekki að vera í heimsmeistaraformi, undir kjörþyngd eða hafa grunn í fimleikum. Fullorðinsfimleikarnir snúast um að „taka á því“ á skemmtilegan og fjölbreytilegan hátt og á þínum eigin hraða. Engum er hent út í djúpu laugina heldur er æft á þeim hraða og erfiðleikaskala sem hver og einn treystir sér
til að æfa á. Þrekið og styrktar æfingarnar eru strembnar en góðar og mikil tilbreyting frá lyftingarsalnum eða öðrum líkamsræktarnámskeiðum. Til mín hefur komið fólk í mjög góðu formi en eftir fullorðinsfimleika sögðu þau að á æfingunni og eftir hana voru þau að finna fyrir vöðvum sem þau vissi ekki einu sinni að væru til staðar. Ég, Viktoría, þjálfari fullorðinsfimleika nýti mér þær kennsluaðferðir og agaþjálfun sem mér var sjálfri kennt er ég æfði fimleika hjá bestu fimleikaþjálfurum
landsins. Hins vegar þurfti ég einnig að ganga í gegnum tvo stóra uppskurði á baki þannig ég hef mikinn skilning á meiðslum og ef fólk þarf að hægja á sér eða getur jafnvel ekki tekið þátt í öllu á æfingunni þá get ég fundið eitthvað annað fyrir þá einstaklinga að gera á æfingunni. Þetta er tilvalið tækifæri til að hrista upp í tilverunni hjá sér og prufa sjálfan sig áfram, hjá okkur í fullorðinsfimleikum er mikið hlegið og skemmt sér. Hvet ÞIG til að mæta!
Jólablað 2014
33
Sundárið 2014
Á
rið 2014 var gott ár hjá sunddeild Keflavíkur. Eins og undanfarin ár vorum við í samstarfi með sunddeild UMFN og saman erum við besta unglingalið landsins og urðum við aldursflokkameistarar á Aldursflokkameistaramóti Íslands (AMÍ) með töluverðum yfirburðum og bikarmeistarar í kvennaflokki. Sundárið hefur verið með svipuðu sniði og undanfarin fjögur ár. Við héldum lokahóf fjórða árið í röð þar sem veitt voru verðlaun fyrir mætingu og árangur ársins 2013 og tókst það mjög vel. Við gefum út fréttabréf einu sinni í mánuði þar sem sundmenn mánaðarins eru valdir í öllum flokkum og í öllum laugum og kemur það út á heimasíðu okkar www.keflavik. is/sund. Að gefa út svona blað er mikil vinna og vil ég þakka þeim sem koma að því kærlega fyrir því þarna er góð leið fyrir foreldra og sundmenn að fylgjast með því mikla starfi sem við höldum úti. Æfingadagarnir voru á sínum stað en þá koma okkar yngstu sundmenn og fá að æfa í Vatnaveröld. Þar fá þau að sjá aðra þjálfara og kynnast því að æfa í stóru lauginni okkar því oft hefur það verið þeim erfitt að koma úr litlu hverfislaugunum okkar og byrja að æfa í stóru lauginni og hafa þessir æfingadagar mælst virkilega vel fyrir. Í nóvember 2013 á Íslandsmótinu í 25 metra laug þá varð Íris Ósk Íslandsmeistari í 400 metra fjórsundi í flokki fullorðinna, Kristófer varð Íslandsmeistari í 200 og 400 metra skriðsundi í 25 metra laug og Baldvin Sigmarsson varð íslandsmeistari í 400 metra fjórsundi. Í desember 2014 fóru þau Íris Ósk, Birta María, Erla, Svanfríður, Baldvin, Þröstur og Kristófer og syntu á Norðurlandamóti unglinga (NMU) sem haldið var í Færeyjum þetta árið. Þar ber helst að nefna að Íris Ósk varð Norðurlandameistari í 200 metra baksundi í 25 metra laug annað árið í röð, frábært hjá henni. Kristófer Sigurðsson var í öðru sæti í 400 m skriðsundi og var í boðsundssveit Íslands sem endaði í 3. sæti í 4x200 metra skriðsundi. Á árlegu hófi sem haldið er um hver áramót voru þau Íris Ósk Hilmarsdóttir og Kristófer Sigurðsson valin sundmenn Keflavíkur og Kristófer var svo valinn sundmaður Reykjanesbæjar. Þau stóðu sig bæði mjög vel á árinu, unnu til fjölda einstaklingsverðlauna og með liði sínu ÍRB á árinu. Íris Ósk var Norðurlandameistari unglinga annað árið í röð.
Ungir sundmenn
Fjör á innanfélagsmóti
34
Jólablað 2014
Á leið til Luxemburg.
Dagana 6.-10. febrúar ferðaðist hópur 19 sundmanna ásamt þjálfara og tveimur fararstjórum til Luxemborgar til þess að taka þátt í Euromeet sundmótinu sem er eitt sterkasta mótið á fyrri hluta sundtímabilsins í Evrópu. Í ár var keppnin á mótinu afar hörð enda margir heimsklassasundmenn að keppa þar eins og til dæmis Katinka Hosszu frá Ungverjalandi og Paul Biederman frá Þýskalandi. Bestum árangri náði Þröstur Bjarnason í 1500 m skriðsundi. Hann var sjötti í sínum aldursflokki og 9. í opnum flokki með 720 FINA stig og náði hann að bæta íslenska piltametið sem Ólympíufarinn Anton Sveinn Mckee úr Ægi átti. Hann bætti tímann úr 16:19 í 16:14 og náði næstum því að bæta 800 m metið í leiðinni. Þessi tími er sá besti í sögu ÍRB en eldra metið átti Sindri Þór Jakobsson sem æfir nú í Noregi. Með þessum tíma náði Þröstur lágmarkinu með íslenska landsliðinu á Evrópumeistaramót unglinga í sumar og er þetta fyrsta Íslandsmetið í einstaklingsgrein sem hann nær. Ferðin var frábær í alla staði, var mjög vel skipulögð. Keppnin var af hæfilegum styrkleika fyrir bestu sundmenn okkar þar sem samkeppnin var mun meiri en hægt er að fá á Íslandi. Það var erfitt en þó möguleiki á að ná verðlaunum og ná í úrslit og þarna gafst dýrmætt tækifæri til þess að fylgjast með þeim bestu í heiminum. Bestu þakkir fá Baldur Sæmundsson og Guðrún Jóna Árnadóttir fyrir framúrskarandi skipulagningu og góða umhyggju fyrir sundmönnunum alla ferðina. ÍRB heldur áfram að bjóða upp á spennandi tækifæri fyrir liðsmenn sína. Í apríl síðastliðinn keppti lið sundmanna frá Keflavík á Íslandsmeistaramótinu í 50 metra laug og stóðu þau sig nokkuð vel en samtals unnu sundmenn ÍRB 35 verðlaun, 5 gull, 16 silfur og 14 brons. Þröstur Bjarnason varð Íslandsmeistari í bæði 800 og 1500 m skriðsundi, Kristófer Sigurðsson í 200 m skriðsundi
Eddi, Ant og Steindór sigurvegarar á AMÍ. og Sylwia Sienkiewicz í 200 metra flugsundi. Á garpamótinu keppti Sigmar Björnsson í 100 metra bringusundi og varð hann þar í fyrsta sæti og tók þar við en einum gullverðlaunum í þessari grein. Við héldum okkar árlega Landsbankamót um miðjan maí. Mótið gekk í alla staði vel og var það með svipuðu sniði og undanfarin ár, þar sem okkar yngstu sundmenn fá að njóta sín í lauginni á föstudeginum og svo er endað í hinum sívinsæla sjóræningjaleik um kvöldið og allir fá sinn þátttökupening. Eldri sundmennirnir kepptu svo á laugardeginum og sunnudeginum og stóðu allir sig mjög vel. Of langt mál er að fara yfir þá sem unnu til verðlauna á þessu móti en hægt er að finna öll úrslit á mótum okkar á heimasíðunni okkar www.keflavik.is/sund. Eins og undanfarin ár kepptu yfir 500 sundmenn á mótinu frá 14 félögum. Eins og áður fóru svo sundmenn í bíó á milli hluta og var mikil og góð stemning á mótinu. Til að halda mót af þessum stærðargráðum er nauðsynlegt að hafa samstilltan hóp foreldra en við hjá sunddeildinni erum heppin að hafa frábært fólk sem
skilar þessari vinnu ár eftir ár með miklum sóma. Við viljum þakka öllum sem lögðu hönd á plóginn; foreldrum, starfsfólki Vatnaveraldar, starfsfólki Holtaskóla, starfsfólki Skólamatar og okkar helstu styrktaraðilum, Landsbankanum, Reykjanesbæ, Nettó og Sigurjóni í Sigurjónsbakaríi. Eftir að móti lauk var svo glæsilegt lokahóf og uppskeruhátíð í hátíðarsal FS. Þangað mættu yfir 200 manns til kvöldverðar og fjölmargar viðurkenningar og verðlaun voru afhent. Veitt voru verðlaun eftir hvatningarkerfi okkar og einnig voru verðlaunaðir sundmenn hvers aldursflokks fyrir sig. Aldursflokkameistaramót Íslands var haldið í Reykjanesbæ um miðjan júní og fór lið ÍRB með sigur af hólmi. Við unnum stigakeppnina með 1069,5 stig. Í öðru sæti var lið Ægis með 536 stig og í þriðja sæti var lið SH með 458 stig. Við áttum stóran hóp verðlaunahafa þar af marga aldursflokkameistara. Á lokahófi ÍRB fengu nokkrir sundmenn sem sköruðu fram úr verðlaun en frá ÍRB voru það Eva Margrét Falsdóttir sem var stigahæsta Hnátan, Diljá Rún Ívarsdóttir sem var stigahæsta Meyjan, Már Gunnarsson fékk svo styrk úr minningarsjóði Ólafs Þórs Gunnlaugssonar. Þökkum öllum sem lögðu hönd á plóg við skipulag, undirbúning, framkvæmd og vinnu á mótinu.Til hamingju sundmenn og þjálfarar með þennan glæsilega árangur! Í kjölfar Aldursflokkameistaramóts Íslands (AMÍ) þar sem sundmenn 15 ára og yngri kepptu og ÍRB vann 159 verðlaun þar af 67 gull, SH 67 verðlaun þar af 22 gull og Ægir 66 verðlaun og 20 gull, hélt unglingalið ÍRB á Unglingameistaramót Íslands (UMÍ) fyrir sundmenn 15-20 ára. ÍRB voru sigurvegarar mótsins með 90 verðlaun og þar af 43 gull. Kristófer Sigurðsson (18-20) og Þröstur Bjarnason (1517) unnu til verðlauna fyrir stigahæstu sund í sínum aldursflokkum. Til hamingju sundmenn og þjálfarar með flottan árangur. Í júlí fóru þau Íris Ósk og Þröstur á Evrópumeistaramót Unglinga sem haldið var í Dordrecht í Hol-
Íris Ósk Hilmarsdóttir. Sundkona Keflavíkur ásamt Kára Gunnlaugssyni. landi. Þau náðu sér ekki á strik á mótinu en reynslan sem sundmenn fá á svona stórum mótum er mikil og mjög mikilvæg og það gengur bara betur næst. Einnig í júlí fór Stefanía Sigurþórsdóttir á Norðurlandameistaramót æskunnar (NÆM) í Danmörku. Stefanía bætti sig vel í 800 skrið, 200 bringu, 400 fjór og var nálægt tíma sínum í 100 fjór, flott hjá Stefaníu. Bikarkeppni SSÍ var haldin í október. Þar stóðu sundmenn okkar sig virkilega vel. Við vorum með lið í 1. deild í karla- og kvennaflokki og svo vorum við með b lið í 2. deild. Stelpurnar í 1. deild sýndu aftur fjölhæfni sína og styrk með því að skara fram úr öðrum liðum og ná að sigra Bikarmótið annað árið í röð. Þær bættu stigaskor sitt og náðu að halda aftur af sterku liði SH. Strákarnir í 1. deild náðu 2. sæti annað árið í röð og það sást að liðið er efnilegt þar sem yngstu sundmennirnir áttu mjög góð sund. Liðið var í öðru sæti á eftir SH eins og í fyrra. Stelpurnar í 2. deild lentu í 2. sæti í ár og voru á eftir nýju sameinuðu liði Reykjavíkurliðanna, Ægis, KR, Ár-
Kristófer Sigurðsson. Sundkarl Keflavíkur og Reykjanesbæjar ásamt Kára Gunnlaugssyni. manns og Fjölnis. Frábær andi í hópnum að berjast fyrir öðru sæti og enda með 4. hæsta stigaskorið yfir báðar kvennadeildirnar! Við tókum einnig þátt í mörgum smærri mótum eins og Gullmóti KR, Stórmóti SH, Ármannsmóti og fleiri mótum þar sem sundmenn okkar komu allstaðar vel fyrir, stóðu sig vel og voru sjálfum sér og félagi okkar til mikillar sóma. Hægt er að sjá úrslit þessara móta hér http://keflavik.is/sund/keppni/urslit/. Það hefur verið mikið fjör í kringum starfið okkar í ár og sundliðið okkar hefur verið að gera virkilega góða hluti í ár. Einnig hefur þeim farið fjölgandi sem hafa verið að synda með unglingalandsliðum okkar og er það merki um það góða starf sem unnið er í deildinni og þeim frábæru þjálfurum sem við höfum í okkar röðum. Óhætt er að segja að við erum með frábæra þjálfara innan okkar raða. Framtíðin er því björt hjá okkur í Sundráði ÍRB. Falur Helgi Daðason Formaður sunddeildar Keflavíkur.
Æfingaferð til Calella á Spáni
F
jörutíu sundmenn og sjö starfsmenn fóru til Calella á Spáni í næstum tvær vikur um mánaðarmótin júlí-ágúst sem var stærsta æfingaferð sem ÍRB hefur farið frá upphafi. Æfingaaðstaðan var í hæsta gæðaflokki, útisundlaug með 10 brautum og gestgjafarnir okkar sýndu mikla gestrisni. Hótelið sem við gistum á framreiddi frábæran mat og var með frábæra aðstöðu fyrir okkur.
Sundmennirnir æfðu tvisvar á dag alla dagana nema tvo en þá var farið í dagsferðir. Sú fyrri var til Barcelona þar sem farið var í skoðunarferð í Ólympíuþorpið, Guerre garðinn, Sagrada Familia og verslað smá. Síðari ferðin var farin í vatnsleikjagarð. Báðar ferðirnar voru mjög ánægjulegar. Hópurinn fékk góðan frítíma í ferðinni á milli æfinga og voru flestir sem eyddu honum annað hvort á ströndinni eða við laugina á
hótelinu. Einnig var margt annað gert eins og t.d. Sund Idolið. Við viljum þakka þjálfurunum Anthony og Edda fyrir að skipuleggja og stjórna ferðinni og einnig þakkir til Gunnars og hans stuðnings alla vikuna. Sérstakar þakkir fá Guðmunda Róbertsdóttir, Gunnrún Theodórsdóttir, Falur Helgi Daðason og Hilmar Örn Jónsson fyrir þeirra gríðarlega miklu vinnu að sjá um krakkana í ferðinni.
Jólablað 2014
35
17. Unglingalandsmót UMFÍ 2014
S
autjánda Unglingalandsmót UMFÍ var haldið á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina 1. til 3. ágúst 2014. Unglingalandsmótið var sett með formlegum hætti föstudaginn 1. ágúst kl 20 að viðstöddu miklu fjölmenni. Setningarathöfn mótsins fer þannig fram að keppendur ganga inn á keppnisvöllinn undir fána félaga sinna, sem hefur mjög hátíðlegan svip. Það voru þær Bríet Lilja Sigurðardóttir og Þórdís Róbertsdóttir sem tendruðu landsmótseldinn að þessu sinni og svo rúllaði dagskráin áfram þar sem leikur og gleði blandast skemmtilega saman, svo til mikillar fyrirmyndar er. Það gengu 66 keppendur frá Keflavík inn á íþróttavöllinn ásamt 1500 öðrum keppendum á aldrinum 11-18 ára. Flestir keppendur á mótinu komu frá Ungmennasambandi Skagafjarðar (UMSS) alls 218 talsins. Frá Ungmennasambandi Kjalarnesþings (UMSK) eru 161 keppandi og 108 koma frá Héraðssambandinu Skarphéðni (HSK). Mótshaldarar áætluðu að 10 þúsund gestir hefðu sótt mótið þessa helgi, 865 þátttakendur voru í knattspyrnu en það er sú íþróttagrein sem hefur alltaf dregið að sér flesta keppendur á unglingalandsmótin undan farin ár, 594 keppendur voru í frjálsum íþróttum og 427 í körfubolta. Alls 29 héraðssambönd og félög í öllum landshlutum eiga
Frá setningu unglingalandsmóts.
Íþrótta- og ungmennafélag
óskar íþróttafólki svo og öðru Suðurnesjafólki gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
36
Jólablað 2014
Með K fánann Elfa Falsdóttir og Katla Rún Garðarsdóttir.
aðild að UMFÍ. Keppt var í 17 keppnisgreinum á mótinu og hafa þær aldrei verið fleiri fram að þessu. Samkvæmt skráningu kepptu iðkendur frá Keflavík í fótbolta, körfubolta, tölvuleik (FIFA), strandblaki og frjálsum íþróttum. Á Unglingalandsmótinu á Sauðárkróki var lögð áhersla á vináttu sem var þema mótsins og var eitt og annað gert til að ítreka mikilvægi vináttu. Vináttuleikur unglingalandsmótsins gekk út á það að dregnir voru einstaklingar úr ólíkum félögum og þurftu þeir að leysa tvær þrautir saman. Í fyrsta skipti á Unglingalandsmóti UMFÍ er keppt í FIFA 14 tölvuleiknum. Leikurinn gengur út á það að tveir keppendur eru saman í liði sem stýra ellefu leikmönnum og spila samkvæmt venjulegum FIFA knattspyrnureglum. Það er mikill áhugi á þessum leik á unglingalandsmótinu en það voru 176 keppendur skráðir til leiks. Af þátttökufjölda að dæma var svo sannarlega þörf að bæta þessari keppnisgrein inn, þátttakendur voru að taka þátt í fleirum greinum og þeir komu inn á hlaupum úr öðrum greinum sem voru úti á keppnissvæðinu. Það er gífurlegur áhugi á þessum leik um allan heim og flestir krakkar sem hafa áhuga á knattspyrnu spila þennan töluvleik. Margt af okkar fremsta íþróttafólki hefur stigið sín fyrstu spor á unglingalandsmóti en þessi mót hafa verið að vaxa með hverju árinu. Fjölskyldufólk fylgir krökkunum sínum eftir þar sem saman fara íþróttir og afþreying. Að sögn Ómars Braga Stefánssonar sem var framkvæmdastjóri mótsins: „er umgjörð mótanna er orðin föst í sessi og við fylgjum henni frá ári til árs. En til þess að fylgja straumi tímans bætum við líka inn nýjum keppnisgreinum auk þess sem afþreyingarþátturinn verður sífellt stærri“. Meðal afþreyingarþátta á unglingalandsmótinu var t.d. útibíó, margskonar smiðjur, hæfileikakeppni, sápukúlublástur, handverk, eggja-kökugerð, myndlistarkynning, boðið var upp á andlitsmálun og farið í fjallgöngu, Íþróttaálfurinn úr Latabæ lék listir sínar og svo mætti áfram telja. Þá voru kvöldvökur og þar komu fram tónlistarmenn eins og Magni Ásgeirsson, Friðrik Dór og Jón Jónsson, Sverrir Bergmann, Þórunn Antonía, hljómsveitin Von og hljómsveit kvöldsins, Dj Jo Jo, Basic House Effect og svo steig Auðunn Blöndal á stokk. Ómar Bragi hefur haldið utan um landsmótshald UMFÍ síðustu ár.
Karfa 14 ára stúlkur með gullverðlaun.
Glaðbeittir strákar á landsmóti.
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.
Karfa 16 ára stúlkur með gullverðlaun. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, sagði í setningaræðu sinni að þau markmið og uppeldislegu gildi unglingalandsmótanna hafa náð að gera öllum börnum og unglingum á aldrinum 11-18 ára kleift að taka þátt þar sem þátttakan er ekki síður mikilvæg heldur en árangurinn. Í ræðu hennar sagði hún orðrétt: ,,Við vitum að árangur í íþróttum er ekki eingöngu mældur í afrekum heldur einnig í því að með þátttökunni felst samvera, heilsuefling, forvörn og skemmtilegur félagsskapur. Hin mikla þátttaka sem hefur verið í mótunum er mælikvarði um að vel hafi tekist til. Við getum því fagnað og verið stolt af því að hafa þróað þetta verkefni saman, ungmennafélagshreyfingin, keppendur, foreldrar, stjórn og styrktaraðilar.“ Á sunndag var Helga Guðrún alsæl með mótið og sagði að mótið hafi gengið virkilega vel í alla staði. Landsmót UMFÍ byggja á langri hefð og sögu sem spannar rúmlega öld. Þar blandast saman íþróttir og ýmis þjóðleg gildi sem einkenna starf ungmennafélagshreyfingarinnar.
Þátttaka í leiknum – en ekki endilega sigur – er hluti þessa og sú verður einmitt raunin á unglingalandsmótinu. Eftir að hafa rætt við foreldra og keppendur voru allir sáttir með mótið og hlakka til næsta móts sem verður á Akureyri 2015 um verslunarmannahelgina eins og undan farin ár. Veðrið lék við okkur alla helgina, sól og nánast logn og um 12 til 15 stiga hiti alla dagana. Það vakna alltaf spurningar hjá foreldrum og iðkendum af hverju það sé ekki hægt að halda Unglingalandsmót í Reykjanesbæ þar sem nánast allt er til staðar til að keppa í öllum íþróttagreinum. Svo að það sé gerlegt að setja svona mót upp þarf að allt að vinna saman Íþróttafélög, UMFÍ, Reykjanesbær, styktaraðilar og sjálfboðaliðar sem ég veit að við eigum nóg af. Ef þetta smellur allt saman er það eina sem við þurfum að gera að sækja um hjá UMFÍ um að halda Unglingalandsmót og ef það kemur jákvætt úr því hefst mikil vinna í c.a. 2 ár.
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.
Stofnað 1971
Verktakar • Ráðgjöf
Sími 421 2884 • rekan@rekan.is
Guðjón M Axelsson.
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.
Jólablað 2014
37
Badmintondeild:
Óvenju góð vorvertíð
Þ
að má nú segja að vorið hjá okkur í badmintondeildinni hafi verið með líflegasta móti. Fjöldi þátttakenda hefði mátt vera meiri, en venjulega var spilað á flestum völlum í Heiðarskóla á laugardögum. Aldursdreifingin var nokkuð víð, sem er jú bara æskileg í svona einstaklings íþrótt. Hópurinn náði vel saman og spilarar frá 8 ára aldri að næstum sextugu æfðu og spiluðu saman. Það voru þó yngri iðkendur sem tóku þátt í mótum en þeir fóru til keppni bæði í höfuðborgina og til Þorlákshafnar og höfðu af mikla skemmtan. Aðalfundur deildarinnar var svo haldinn í febrúar, ekki var hann fjölmennur en góður engu að síður. Forráðamenn Keflavíkur voru með okkur á fundinum og var nærvera þeirra ánægjuleg. Formaður Keflavíkur Einar Haraldsson tók til máls og færði okkur kveðjur stjórnar félagsins. Að þessu sinni urðu smávægilegar breytingar á
stjórn badmintondeildarinnar, Stefán M. Jónasson lét af störfum sem formaður deildarinnar og Ásdís Júlíusdóttir ritari lét einnig af störfum. Við formennsku tók Kristján Þór Karlsson sem verið hafði í varastjórn og við embætti ritara tók Stefanía S. Kristjánsdóttir en hún var meðstjórnandi í síðustu stjórn. Þökkum við þeim sem létu af störfum þeirra framlag en ekki fóru þau nú langt, því þau gegna áfram störfum fyrir deildina. Stjórn skipti með sér verkum, varaformaður er Jónas Þorsteinsson, gjaldkeri Dagbjört Ýr Gylfadóttir, meðstjórnandi Stefán Jónasson og svo eins og áður kom fram ritari Stefanía S. Kristjánsdóttir og formaður Kristján Þór Karlsson. Æfingar héldu svo áfram með sama sniði og áður og stóðu æfingar fram í maímánuð en þá tók deildin sér sumarfrí og var spöðum lagt fram yfir ljósanótt. Þá fórum við að undirbúa síðari lotu þessa árs. Hófst hún með því að nemendum grunn-
skólanna í Reykjanesbæ var boðið að koma í frían tíma í Heiðarskóla til að kynna sér íþróttina. Mæting mætti nú hafa verið betri en við erum þakklát fyrir alla sem komu. Æfingar hafa síðan verið nokkuð vel sóttar og aldursbilið heldur sér enn sem við segjum að sé af hinu góða. Badmintondeildin var svo þátttakandi í kynningardegi Keflavíkur Ungmenna og Íþróttafélags sem haldinn var í fyrsta sinn undir nafninu K-dagur. Þetta var skemmtun sem tókst með eindæmum vel og þótti okkur mjög ánægjulegt hversu margir lögðu leið sína á okkar svæði og fengu að taka í spaða. Þökkum við þeim sem gerðu þennan dag að því sem hann var innilega fyrir og hlökkum til næsta árs og næsta K-dags. Að lokum viljum við þakka öllum sem stutt hafa við bakið á deildinni og gert henni kleyft að halda starfsemi hennar gangandi, og færum við þeim sem og stjórn Keflavíkur Ungmenna og Íþróttafélags sem og bæjarbúum öllum bestu óskir um gleðileg Jól og ánægjulegt nýtt ár. Með kveðju Dagbjört Ýr Gylfadóttir gjaldkeri.
Óskum viðskiptavinum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla
HS Veitur hf www.hsveitur.is og á 38
Jólablað 2014
Ljósadýrð loftin gyllir, lítið hús yndi fyllir. Og hugurinn heimleiðis leitar því æ, man ég þá er hátíð var í bæ.
Skemmtun fyrir alla fjölskylduna OPIÐ: 6.30 - 20.00 virka daga, 8.00 - 18.00 um helgar
OPIÐ: 6:45 - 20:00 virka daga, 8:00 - 18:00 um helgar
frítt fyrir börn fjölskyldusundlaug
Jólablað 2014
39
SÍA
Ekki gefa bara eitthvað, gefðu frekar hvað sem er.
•
jl.is
•
Með gjafakorti Landsbankans er ekkert mál að velja
JÓNSSON & LE’MACKS
réttu jólagjöfina. Þú ákveður upphæðina og sá sem þiggur velur gjöfina. Þú færð gjafakortið í næsta útibúi.
Landsbankinn
landsbankinn.is
410 4000