Jólablað Keflavíkur 2022

Page 1

Jólin 2022 51. árgangur

Fréttir af félaginu 2022

Íþróttakarl og -kona Keflavíkur 2021

Hóf var haldið þriðjudaginn 28. desember þar sem íþróttakarl og íþróttakona Keflavíkur 2021 voru útnefnd. Það voru þau Hörður Axel Vil hjálmsson og Eva Margrét Falsdóttir. Einnig fengu íþróttakarl og íþróttakona hverrar deildar viður kenningar. Hverjir verða það í ár ?????

Viðurkenningar veittar á aðalfundi félagsins 2022

Starfsbikar Keflavíkur var veittur Þorgerði Hall dórsdóttur.

Starfsmerki UMFÍ voru veitt Elísabetu Lovísu Björnsdóttur, Kristínu Blöndal, Sigurði Markúsi Grétarssyni og Sigurgeiri R. Jóhannssyni.

Viðurkenningar veittar á aðalfundum deilda 2022

Silfurmerki var veitt Elísabetu Lovísu Björns dóttur, Kristínu Blöndal, Sigurði Markúsi Grét arssyni og Sigurgeiri R. Jóhannssyni. Silfurmerki Keflavíkur er veitt fyrir 10 ára stjórnarsetu.

Bronsmerki voru veitt þeim Eðvarði E. Loftssyni, Einari Snorrasyni, Ewu Wydru, Guðrúnu Guðna dóttur, Gunnlaugu Olsen, Heiðari Róberti Birnu syni, Helenu Rut Borgarsdóttur, Herdísi Halldórs dóttur, Sigurbjörgu Ásdísi Snjólfsdóttur, Sigurði Hilmarssyni, Svavari Kjartanssyni, Sveini Björns syni, Sylvíu Þóru Færseth, Sæunni Ríkarðsdóttur, Völu May Mason og Vernu Friðriksdóttur. Brons merki Keflavíkur er veitt fyrir 5 ára stjórnarsetu.

Íþróttastjóri Keflavíkur

Að hafa íþróttastjóra skiptir svo miklu máli fyr ir Keflavík. Samskipti við deildir félagsins verða markvissari og getur stjórnarfólk fengið meiri stuðning við það sem þarf. Íþróttastjóri hefur um sjón með skráningarkerfinu Sportabler sem eykur skilvirkni í innheimtu. Starfið vex stöðugt og hef ur félagið tekið að sér ýmis verkefni. Til dæmis verkefnin „Allir með“ sem Reykjanesbær er aðili að í samvinnu við mennta- og menningarmála ráðuneytið og „Börn með sérþarfir“ í samstarfi við Njarðvík og Íþróttasamband fatlaða. Starf íþróttastjóra er fjármagnað af Reykjanesbæ. Takk Reykjanesbær.

Fjármálastjóri Keflavíkur ?

Eitt af því sem aðalstjórn Keflavíkur er að vinna að er að fá Reykjanesbæ til að koma með fleiri stöðugildi inn til félagsins. Erum við þá að tala um fjármálastjóra sem okkur bráðvantar og hefur aðalstjórn sett vinnu í það mál. Einnig er á listan um að geta ráðið inn viðburðastjóra.

Keflavík fyrirmyndarfélag / deild ÍSÍ

Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag fékk viður kenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ í Blue höllinni í Keflavík fimmtudaginn 3. nóvember síðastliðinn. Það var Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ sem afhenti formanni félagsins Einari Haraldssyni og fulltrúum 8 deilda viðurkenningar fyrir leik Keflavíkur og Hauka í Subway deild karla. Félagið fékk viðurkenninguna fyrst árið 2003 og var fyrsta félagið sem fékk þessa viðurkenningu frá ÍSÍ.

Kórónuveiran eða það sem er kallað Covid19

Þessi vágestur hélt áfram að hrella okkur í byrjun ársins og hefur komið illa við okkur eins og flest alla þjóðina og allan heiminn. Íþróttastarf hefur farið úr skorðum bæði fjárhagslega og íþróttalega auk margra nýrra áskoranna. Flest allar deildir hafa þurft að fresta skipulögðum mótum og orðið fyrir miklum tekjumissi vegna þess. Þorrablótinu var breytt í Keflavíkurblótið og haldið 20. apríl. Stjórnarfólk, þjálfarar og iðkendur Keflavíkur ásamt foreldrum iðkenda eiga mikið hrós skilið fyrir hvernig þeir hafa tekið á þessu öllu saman. Það er ekki að finna nein merki þess að verið sé að slaka eitthvað á heldur er fólk bjartsýnt og hefur sýnt mikla ráðdeild í öllu starfinu og horfir björt um augum til framtíðar. Mér er efst í huga þakk læti til allra þessara aðila fyrir hvernig þeim hefur tekist að fara í gegnum þetta allt saman og ekki má gleyma sjálfboðaliðunum.

Sportabler

Sportabler er skráningarkerfi sem Keflavík notar. Aðalstjórn er með samning við Sportabler. Allar deildir félagsins hafa aðgang að kerfinu og for eldrar að appinu. Íþróttastjóri Keflavíkur er um sjónaraðili með kerfinu.

44. Sambandsráðsfundur UMFÍ

Fertugasta og fjórða Sambandsþing UMFÍ var haldið þann 15. október á Höfn í Hornafirði. Keflavík átti einn fulltrúa á fundinum. Einar Har aldsson formaður Keflavíkur sat fundinn.

Vefverslun

Keflavík er með vefverslun og er hana að finna á heimasíðu Keflavíkur. Hvetjum við alla til að not færa sér hana, sérstaklega núna fyrir jólin.

Heimasíða Keflavíkur

Komin er ný heimasíða fyrir Keflavík og var það Dacoda sem sá um að gera hana. http://www. keflavik.is

Hægt að styðja Keflavík og deildir þess og fá skattafrádrátt Ný lög um skattalega hvata til almannaheillastarf semi tóku gildi 1. nóvember 2021. Lögin fela í sér nýja heimild fyrir einstaklinga til að draga allt að 350 þúsund krónur á ári frá skattskyldum tekjum sínum utan atvinnurekstrar vegna framlaga til al mannaheillastarfsemi. Auk þess er kveðið á um tvöföldun á hlutfalli sem atvinnurekstraraðilar mega draga frá skattskyldum tekjum vegna slíkra framlaga og fer það úr 0,75% í 1,5%.

Markmið breytinganna er að hvetja einstak linga og fyrirtæki til að styðja við almannaheilla starfsemi milliliðalaust, auk þess að styrkja stöðu lögaðila sem starfa til almannaheilla.

Facebook síða Keflavíkur

Keflavík er með Facebooksíðu fyrir félagið í heild sinni sem ber nafnið „Keflavík íþrótta- og ung mennafélag“. Þar eru fréttir og viðburðir settir inn.

Aðalstjórn Keflavíkur íþrótta- og ungmennafé lags sendir öllum bæjarbúum, félagsmönnum og öðrum velunnurum félagsins óskir um gleðileg jól og farsældar á komandi ári um leið og við þökkum öllum sem lagt hafa félaginu lið á liðnum árum.

Áfram Keflavík

Einar Haraldsson formaður Keflavíkur

2 Jólablað 2022
Útgefandi: Keflavík íþrótta- og ungmennafélag Ábyrgðarmaður: Einar Haraldsson • keflavik@keflavik.is, 421 3044 Forsíðumynd: Katla Rún Garðarsdóttir og Anna Ingunn Svansdóttir
Umbrot og prentun: Stapaprent ehf. •
421 4388
Ljósmynd: Víkurfréttir.
stapaprent@stapaprent.is, sími
Aðalstjórn Keflavíkur 2022. Aftari röð frá vinstri: Björg Hafsteinsdóttir, Birgir Már Bragason, Garðar Newman og Sveinbjörg Sigurðardóttir. Fremri röð frá vinstri: Jónína Steinunn Helgadóttir, Einar Haraldsson, Kári Gunnlaugsson og Eva Björk Sveinsdóttir. Ljósm.: Oddgeir Karlsson.
Jólablað 2022 3 Allt fyrir jólin í Nettó 20 verslanir um land allt Jólabækurnar í ár Veislumatur á jólaborðið Gjafavara í úrvali Jóladagatöl Jólasælgæti fyrir sælkera Leikföng fyrir alla aldurshópa

Lokahóf yngri flokka Knattspyrnudeilda r Keflavíkur og afhending Ellabikarins

Laugardaginn 15.október 2022 hittust iðk endur yngri flokka knattspyrnudeildar Keflavíkur 2021-2022 á Nettóvellinum fyrir heimaleik meistaraflokks Keflavíkur gegn FH. Á tímabilinu voru iðkendur um 600 talsins, drengir og stúlkur frá 3.flokki og niður í 8.flokk. Allir iðkendur stóðu sig mjög vel á tímabilinu, voru félaginu til sóma innan vallar sem utan og sýnt það og sannað að þau eru „Sannir Keflvík ingar“.

Landsliðs viðurkenningar Á nýliðnu tímabili voru þrír Keflvíkingar sem spiluðu landsleik og voru þeir heiðraðir sérstak lega. Þetta voru þau Anna Arnarsdóttir, Alma Rós Magnúsdóttir og Mihajlo Rajakovac en þau eru öll fædd árið 2008 og tóku þátt í UEFA Development móti nú í október 2022 fyrir Íslands hönd.

Ellabikarinn

Eins og síðustu ár voru okkar afar kæru og mik ilvægu verðlaun, Ellabikarinn, veitt til minningar um Elis Kristjánsson heitinn sem starfaði sem

þjálfari hjá Keflavík í mörg ár. Ellabikarinn er veittur þeim iðkanda sem skarað hefur fram úr á einn eða annan hátt. Hann er „Sannur Keflvíking ur“ og sýnt hefur fyrirmyndar dugnað og vinnu semi á tímabilinu jafnvel þó að viðkomandi hafi lent í mótlæti eða öðrum áskorunum. Í ár hlaut Alma Rós Magnúsdóttir Ellabikarinn en hún hefur stundað knattspyrnu frá því hún var 4 ára og æft hjá Keflavík frá því hún var 6 ára. Alma Rós er mikil íþróttakona, frábær félagsmaður og sannarlega Sannur Keflvíkingur. Alma Rós hefur á árinu sýnt framúrskarandi árangur á fótboltavellinum var valin í úrtakshópa hjá KSÍ og endaði svo tímabil ið á því að fara með U15 ára landsliðinu á UEFA Development mót í Póllandi þar sem hún spilaði frábærlega og var meðal annars fyrirliði liðsins í síðasta leiknum þar sem hún skoraði einnig mark. Nú síðast var hún valin á U16 æfingar í nóvember 2022. Því framar er Alma einstaklega jákvæð og drífandi og lætur ekkert á sig fá þó að móti blási. Hafdís Helgadóttir kona Ella heitins afhenti Ölmu Rós bikarinn.

4 Jólablað 2022
Jólablað 2022 5 G leðileg jól gott og farsælt komandi ár með þökk fyrir samstarfið á árinu sem er að líða Verkfræðistofa Suðurnesja ehf. Víkurbraut 13, 230 Reykjanesbæ Sími 420 0100 / vss.is / vs@vss.is Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða. Grófin 14a, 230 Reykjanesbæ, sími 4216901 Viðurkennt þjónustuverkstæði Sendum viðskiptavinum og landsmönnum
Umhverfisvæn orkuframleiðsla í 40 ár Njótið jólana í birtu og yl frá umhverfisvænni framleiðslu
www.hsorka.is

Taekwondo:

Iðkendafjöldinn eykst jafnt og þétt

Á

árinu 2022 hefur verið unnið einstak lega gott starf hjá taekwondodeild Keflavíkur. Deildin er að ná sambæri legum styrk síðan fyrir covid. Iðkendafjöldinn eykst jafnt og þétt og biðlistar eru í sumum hópum. Á vormánuðum var eingöngu eitt mót á vegum taekwondosambands Íslands og það var Bikarmót í tækni. Þar unnu Keflvíkingar til tvennra gullverðlauna og fjögurra bronsverð launa. Þrátt fyrir þetta voru önnur minni mót unnin í samvinnu við önnur félög. Haldin til að þjálfa iðkendur í keppni og þótti takast vel til. Í lok vors var svartbeltispróf þar sem Jón Steinar Mikaelsson og Jón Ágúst Jónsson stóðust próf fyrir 1.dan svartbeltisgráðu og Andri Sævar Arnarsson stóðst próf fyrir 3. dan.

Í byrjun sumars fóru Jón Ágúst Jónsson, Andri Sævar Arnarsson og Helgi Rafn Guðmunds son ásamt fleiri Íslendingum úr öðrum félögum á Norðurlandamótið sem haldið var í Svíþjóð. Mótinu hafði verið frestað vegna Covid en var nú á dagskrá í fyrsta sinn í rúm 2 ár. Helgi Rafn vann til gullverðlauna á mótinu.

Sumarnámskeiðin gengu líka vel en fjöldi iðk enda á öllum aldri sótti æfingar yfir sumarið. Eftir viðburðarríkt sumar fór haustið af stað með miklum krafti. Hóparnir fylltust hratt og margir nýjir iðkendur létu sjá sig á æfingum. Nýju svart beltingarnir okkar tóku að sér þjálfun ásamt þeim sem áður hafa verið. Tveir iðkendur deildarinnar, Jón Ágúst og Þorsteinn Helgi komust inn í lands liðið hjá nýjum landsliðsþjálfara og stefna langt í íþróttinni. Taekwondo sambandið hélt tæknimót fyrir yngri iðkendur og svo Bikarmót í Bardaga.

Keflvíkingar unnu til 19 gullverðlauna, 16 silfur verðlauna og 9 bronsverðlauna á þessum mótum. Íslandsmótunum í nóvember fengu Keflvíkingar 8 gull, 11 silfur og 3 brons ásamt því að Kristmund ur Gíslason fékk viðurkenninguna “Karl mótsins”.

Framundan hjá deildinni eru vinamót, jóla mót, æfingabúðir og eftir áramót stefnir hópur frá deildinni á erlenda grundu. Við erum mjög þakklát öllum þeim sem standa við bakið á okkur og hlökkum til að halda áfram að styrkja stoðir félagsins og bjóða upp á fjölbreytta þjálfun fyrir allan aldur.

6 Jólablað 2022
Jólablað 2022 7 Minnum á dagskrá kirkjunn ar um aðventu og jól Sjá nánar www.keflavikurkirkja.is þar sem einnig eru upplýsingar Kirkjuvegi 25 • 230 Keflavík • Sími 420 4300 • www.keflavikurkirkja.is Hugheilar óskir um gleðiríka jólahátíð og farsæld á nýju ári

Æfingarferð 4.fl RKV til Salou

heitt þessa viku, eða ca. 28-33 gráður meðan æf ingar fóru fram.

Liðið æfði alla morgna og tók aukaæfingar á ströndinni nokkrum sinnum. Stundum var hitinn ekki alveg að vinna með liðinu enda stelpurnar meira vanar að æfa í láréttri rigningu. ��

Haldið var af stað í viku æfingaferð til Salou á Spáni föstudaginn 1.júlí. Hópurinn samanstóð af 44 frábærum fótboltastelpum sem fóru í fylgd tveggja þjálf ara og sex fararstjóra úr hópi foreldra.

Ferðalagið byrjaði ekki alveg eins og við hefð um viljað. Vélin var yfirbókuð og færri komust að en vildu úr okkar hópi. Starfsmenn Play kipptu snarlega tveimur fótboltastelpum af vélinni við lítinn fögnuð fararstjóra og þjálfara. Málin leystu st þó á endanum þannig að fararstjórinn okkar frá TA sport tók á sig að sitja eftir og bíða til morguns eftir næstu vél.

Það voru þreytulegir ferðalangar sem mættu á fyrstu æfinguna morguninn eftir á æfingarsvæði Salou. Þær hresstust þó fljótt enda aðstaðan til fyrirmyndar, sólin hátt á lofti og allar spenntar fyrir komandi viku. Æfingin tók vel á, enda ansi

Allar stóðu þær sig þó vel í hitanum, þrátt fyr ir blöðrur á fótum, smá svima og annað sem hit inn hefur áhrif á. Fararstjórar stóðu vaktina með vatnsflöskur í annarri og plástra í hinni og sinntu blöðru- og brunaþjónustu þess á milli. Hópurinn nýtti tækifærið og gerði ýmislegt skemmtilegt saman á þessari vikudvöl. Farið var í vatnsrennibrautagarðinn Caribe Aquatic og einnig í rússíbanagarðinn Portaventura. Garðarn ir voru báðir frábærir og allir skemmtu sér vel þó sumar hafi vissulega verið kjarkmeiri en aðrar í rússíbönunum!

Öll kvöld var boðið upp á skemmtun í hótel garðinum og stelpurnar tóku virkan þátt í dag skránni. Svo virkan að líklega fá þær jólakort frá hótelstjóranum sem eflaust saknar þeirra ennþá! Þær áttu sviðið öll kvöld og náðu að draga þjálf ara og farastjóra með upp á svið í eitt og annað. Svo sátu þær auðvitað á fremsta bekk og hlógu að tilþrifunum. Stelpurnar tóku líka virkan þátt í öllu sem fram fór í lauginni á daginn, hvort sem það var limbó, blak eða eitthvað. Þar spilaði auð vitað inn í sundlaugarvörðurinn bráðmyndarlegi Rodrico, en miðað við vinsældir hans má ætla að þar fari næsti tengdasonur Íslands!

Ferðin endaði svo á skoðunarferð um Camp Nou,

heimavöll Barcelona liðsins. Það var mikil upplif un fyrir knattspyrnuáhugamenn. Margar fjárfestu í Barcelona fótboltabúningi og líklega eignaðist félagið töluvert af stuðningsmönnum þann dag.

Ferðin var í heild sinni virkilega vel heppnuð. Hópurinn náði vel saman, æfði vel og naut veð urblíðunnar......sérstaklega þá daga sem rigndi heima á Íslandi.

Það skal engan undra að þær voru að sjálfsögðu sjálfum sér og okkur hinum til sóma alla ferðina.

Takk fyrir okkur Fararstjórar og þjálfarar

3. flokkur karla

Enn eitt frábæra árið að enda hjá Keflavík. Við strákarnir í 3. flokki viljum þakka öllum þeim sem hafa styrkt okkur í gegn um tíðina.

Við viljum þakka styrktaraðilum, foreldrum og þjálfurum fyrir frábært samstarf og góðan stuðn ing. Þetta ár var æðislegt og án ykkar hefði það svo sannarlega ekki verið eins frábært og það var. Öll okkar lið stóðu sig gríðarlega vel í ár en A,

B og C lið voru öll í toppbaráttunni í sínum riðli í Íslandsmótinu. Einnig gekk okkur vel á Gothia Cup í Svíþjóð. Eldra árið vann sinn riðil en duttu naumlega út á móti KA í 32 liða úrslitum og Yngra árið komst í 16 liða úrslit í B-úrslitum en duttu út í vítaspyrnukeppni á móti Mårsta IK frá Sví þjóð. Svíþjóðar ferðin var geggjuð þar sem all ir skemmtu sér konunglega og stóðu sig eins og hetjur. Ég vil þakka fararstjórum og þjálfurum

kærlega fyrir skemmtilega ferð. Ferðin var mjög skemmtileg og minningarnar sem skapaðar voru þarna úti munu fylgja okkur til æviloka.

Síðast en ekki síst vil ég óska ykkur gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári.

Fyrir hönd 3. Flokks karla 2021-2022

Andrés Kristinn Haraldsson

Jólablað 2022 9

Stökkmótaröð í atrennulausum stökkum fyrir 30+

Eins og kunnugt er hefur ekki verið mik ið um æfingar og keppni í frjálsíþróttum hér um slóðir um langt árabil utan þess að nokkrir félagar í Keflavík og UMFN hafa tekið þátt í keppni eldri íþróttafólks í flokk um 30+. Þar má nefna þátttöku í landsmótum UMFÍ í 50+, Íslandsamótum FRÍ í 30+. Undir ritaður hefur síðan keppt á nokkrum mótum erlendis fyrir eldra frjálsíþróttafólk. Þau mót eru að jafnaði mjög fjölmenn og voru m.a. um 4600 þátttakendur í HM sem fór frá í Tampere í Finnlandi s.l. sumar.

Vonandi kemur að því að hér í bæ verði í fram tíðinni byggð upp aðstaða til æfinga og keppni í þessari skemmtilegu íþróttagrein, íþróttagrein sem er bæði mjög fjölbreytt og hentar vel fyrir fólk á öllum aldri. Sem dæmi um það má nefna að árið 2021 hljóp ameríska konan Diane Friedman eitt hundrað metra á 36, 71 sekúndu en þá var hún slétt eitthundrað ára gömul. Árið áður hljóp jap aninn Yosdhimitsu Miyauchi áttahundruð metra á 5:38,88 mínútum. Hann var þá 96 ára gamall. Í tengslum við íþróttamót aldraðra á heimsvísu er haldin úti afrekaskrá á internetinu sem nefn ist Master Ranking og er mjög fróðlegt að skoða hana.

Nú er í gangi verkefni sem Keflavík ýtti úr vör á síðasta ári. Haldið var mót í Keflavík þann 5. júní 2021 í atrennulausum stökkum og hástökki

með atrennu og mættu þar keppendur frá fimm íþróttafélögum sem kepptu í fjórum aldursflokk um og náðu prýðisgóðum árangri. Eftir þetta mót ákvað Ungmennafélagið Smári í Varmahlíð að halda stökkmót þar en íþróttakennarinn Karl Lúðvíksson frá Varmahlíð var einn þátttakend anna í mótinu í Keflavík. Það mót var haldið þann 23. apríl 2022 og var það í fyrsta skipti sem slíkt mót var haldið þar. Í mótinu tóku þátt nokkrir heimamenn ásamt undirrituðum. Var þetta hið skemmtilegasta mót.

Þegar hér var komið sögu vaknaði sú hugmynd að stofna til sérstakrar stökkmótaraðar yfir vetr artímann því þá eru alls ekki svo mörg mót í gangi fyrir hópinn 30+. Þetta tókst og munu fjög ur íþróttafélög sjá um eftirfarandi mót í vetur og verður dagskráin sem hér segir:

• Fjölnir - október

• HSK – nóvember

• Smári – apríl

• Keflavík – maí

Fyrsta mótið í Stökkmótaröðinni fór fram á vegum Fjölnis þann 27. október í frjálsíþróttahöll inni í Laugardal. Úrslit mótsins má sjá á mótavef FRÍ. Þegar fyrsta stökkmótið var haldið í Keflavík var tekinn saman listi yfir bestu afrekin í hverj um flokki í öllum fjórum greinunum. Þá kom í ljóst að sérstaklega hjá konunum vantaði árangur í mörgum aldursflokkunum. Í Fjölnismótinu var

fyllt upp í götin í tveimur aldursflokkum kvenna því meðal þátttakenda voru Guðrún Harðardótt ir úr ÍR í flokki 55-59 ára og Hilma Hólm úr Keflavík í flokki 50-54 ára. Guðrún stökk 1,82 m í langstökki án atrennu og 4,77 m í þrístökki án atrennu. Hilma stökk einnig 1,82 m í lang stökkinu og 5,73 m í þrístökkinu. Árangur þeirra beggja eru því Íslandsmet. Svo skemmtilega vildi til að meðal áhorfenda var Flosi Jónsson sem árið 1993 setti Íslandsmet í langstökki án atrennu með stökki upp á 3,45 m. Var það þá og er enn einn albesti árangur í heiminum.

Þann 26. nóvember fór annað mótið í Stökk mótaröðinni fram í Selfosshöllinni í umsjá Ólafs Guðmundssonar hjá HSK. Þátttaka var framar öll um vonum því sex konur og átta karlar mættu til leiks frá sex íþróttafélögum. Árangur var góður og setti m.a. Þuríður Ingvarsdóttir í flokki 50-54 ára þrjú Íslandsmet. Einnig settu Bryndís Eva Óskars dóttir í flokki 35-39 ára og Helgi Hólm í flokki 80-84 ára sitt hvort metið. Árangur á mótinu verður birtur á mótavef FRÍ. Næsta mót verður í vor í Varmahlíð og er vitað að í fyrsta sinn er von á hópi keppenda frá Akureyri. Margir aðrir hafa einnig lýst yfir áhuga á að mæta til mótsins. Ég er því vongóður um að Stökkmótaröðin í atrennu lausum stökkum og hástökki með atrennu fyrir 30+ verði á dagskrá næstu árin.

10 Jólablað 2022

Aldursflokkamet í atrennulausum stökkum og hástökki með atrennu innanhúss miðað við 27. nóvember 2022

Langstökk án atrennu

Fl Stökklengd Nafn Aldur

30-34 2,77 m Helga Halldórsdóttir 32 35-39 2,52 m Ásthildur Sveinsdóttir 38 40-44 2,55 m Unnur Stefánsdóttir 41 45-49 2,51 m Unnur Stefánsdóttir 45 50-54 2,39 m Þuríður Ingvarsdóttir 50 55-59 1,82 m Guðrún Harðardóttir 56

30-34 3,37 m Unnar Garðarsson 32 35-39 3,45 m Flosi Jónsson 39 40-44 3,23 m Flosi Jónsson 40 45-49 2,95 m Trausti Sveinbjörnsson 45

50-54 2,92 m Jón Þórður Ólafsson 51

55-59 2,87 m Valbjörn Þorláksson 56

60-64 2,48 m Kristófer Snæland Jónasson 60 65-69 2,56 m Kristófer Snæland Jónasson 65 70-74 2,40 m Karl Torfason 71 75-79 2,22 m Jóhann Jónsson 76 80-84 1,98 m Helgi Hólm 80 85-89 1,44 m Haraldur Þórðarson 85

Þrístökk án atrennu

Fl Stökklengd Nafn Aldur

30-34 8,25 m Helga Halldórsdóttir 33 35-39 7,28 m Þuríður Ingvarsdóttir 35 40-44 7,25 m Unnur Stefánsdóttir 41 45-49 7,74 m Unnur Stefánsdóttir 45 50-54 6,44 m Þuríður Ingvarsdóttir 50 55-59 4,77 m Guðrún Harðardóttir 56

30-34 9,32 m Ólafur Guðmundsson 31 35-39 9,64 m Aðalsteinn Bernharðsson 36 40-44 9,80 m Aðalsteinn Bernharðsson 40 45-49 8,86 m Páll Ólafsson 48 50-54 8,09 m Valbjörn Þorláksson 53 55-59 7,99 m Valbjörn Þorláksson 56 60-64 7,68 m Valbjörn Þorláksson 61 65-69 7,16 m Kristófer Snæland Jónasson 65 70-74 6,77 m Karl Torfason 71 75-79 6,27 m Jóhann Jónsson 76 80-84 5,19 m Helgi Hólm 81

Hástökk án atrennu

Fl Stökklengd Nafn Aldur 30-34 1,30 m Íris Grönfeldt 30 35-39 1,15 m Bryndís Eva Óskarsdóttir 37 40-44 1,10 m Sigríður Anna Guðjónsd 41 50-54 1,15 m Þuríður Ingvarsdóttir 50

30-34 1,69 m Sigurður Matthíasson 33 35-39 1,63 m Friðrik Þór Óskarsson 36 40-44 1,55 m Ólafur Guðmundsson 40 45-49 1,55 m Ólafur Guðmundsson 47 50-54 1,53 m Valbjörn Þorláksson 53 55-59 1,57 m Valbjörn Þorláksson 58 60-64 1,52 m Valbjörn Þorláksson 61 65-69 1,30 m Kristján Gissurason 66 70-74 1,25 m Helgi Hólm 70 75-79 80-84 1,10 m Helgi Hólm 81

Hástökk innanhúss með atrennu

Fl Stökklengd Nafn Aldur

30-34 1,86 m Þórdís Lilja Gísladóttir 32 35-39 1,83 m Þórdís Lilja Gísladóttir 36 40-44 1,40 m Vigdís Sif Hrafnkelsdóttir 44 45-49 1,50 m Þórdís Lilja Gísladóttir 46 50-54 1,40 m Kristjana Sigurgeirsdóttir 51 55-59 1,20 m Anna Sofia Rappich 55 60-64 1,05 m Anna Eðvaldsdóttir 60

30-34 2,05 m

Jón Arnar Magnússon 32 35-39 2,00 m Jón Arnar Magnússon 35 40-44 1,80 m Valbjörn Þorláksson 42 45-49 1,75 m Ólafur Guðmundsson 45 50-54 1,65 m Jón Þórður Ólafsson 51 55-59 1,57 m Stefán Hallgrímsson 58 60-64 1,51 m Stefán Hallgrímsson 64 65-69 1,45 m Helgi Hólm 67 70-74 1,37 m Helgi Hólm 71 75-79 1,34 m Helgi Hólm 76 80-84 1,22 m Helgi Hólm 80

85-89 0,95 m Benedikt Bjarnason 85

Jólablað 2022 11
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða. Óskum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. Sérmerktur bros.is Með þínu merki Smiðjuvöllum 6 • 230 Keflavík • Sími 421 3500 • www.retting.is ÞORVALDUR H. BRAGASON TANNLÆKNIR ÞÓRIR HANNESSON TANNLÆKNIR Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða. 12 Jólablað 2022 Óskum viðskiptavinum okkar, sem og Suðurnesjamönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða Vinur við veginn

Óskum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.

Lærdómsríkt tímabil

Eftir erfitt en lærdómsríkt tímabil 2020/2021 tók 2. flokkur kvk í Keflavík aftur þátt tímabilið 2022/2023. Að þessu sinni var farið í samstarf við Grinda vík en þær stelpur sem fóru upp í 2. flokk höfðu æft og spilað með jafnöldrum sínum í Keflavík þar sem 3. flokkur kvk hafði líka verið sameinaður.

Aðal markmiðið var að ungu stelpurnar okkar fengju verkefni við hæfi, fleiri mín útur á vellinum og að gera betur en tímabil ið á undan.

Miklar breytingar áttu sér stað hjá KSÍ varðandi 2. flokk kvk og heitir þessi aldurs flokkur U20 í dag. Þær sem eru fæddar 2002 og hefðu að öllu óbreyttu átt að ganga upp úr flokknum voru áfram gjaldgengar auk þess sem núna er leyfilegt að nota fjór ar eldri stelpur sem ekki byrjuðu síðasta meistaraflokksleik. Áður var það þannig að nota mátti þrjár svo lengi sem þær spiluðu ekkert síðasta meistaraflokksleik á undan. Mörg lið voru dugleg að nýta sér þetta og fengu því ungu stelpurnar okkar oft að kljást við virkilega góða og reynda leik

menn, sem dæmi þá spiluðu þær leik við ÍBV þar sem Sandra Voitane, atvinnumaður meistaraflokksliðs ÍBV byrjaði þar sem hún hafði verið í banni meistaraflokksleikinn á undan. En að sama skapi þá fengum við að nota Erin (fjórði leikmaður meistara flokks Keflavíkur utan EES), Elínu Helenu lánsmann frá Breiðabliki og Caroline Van Slambrouck. Mikil reynsla þar á ferð og frábært tækifæri fyrir ungu stelpurnar að þroskast sem leikmenn.

Óhætt er að segja að sumarið hafi ver ið nokkuð gott, 24 stig á móti 7 stigum tímabilinu á undan, þar af átta sigurleikir á móti tveimur síðast. Markaskorun gekk vel og áttum við þriðja markahæsta leikmann deildarinnar, Anitu Bergrán.

Flestar þær sem spiluðu stórt hlutverk hjá 2. flokki á tímabilinu voru á bekk hjá meist araflokki í sumar auk þess að byrja stundum inn á. Með því að byggja upp gott 2. flokks lið þá erum við að stíga skref í áttina að gera Keflavík að enn betra meistaraflokksliði.

Hilmar, þjálfari.

Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.

Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.

Jólablað 2022 13
20 • Sími
• studlaberg.is
Hafnargata
420 4000
Fitjabraut 30, 260 Reykjanesbær - www.bilnet.is - Sími 420 0040
Irma fyrirliði og Gyða Brassameistari

Æfingaferð 4.flokks drengja til Vildbjerg

Haustið 2021 var ákveðið að fara með 4.flokk drengja í æfingaferð til Vildbjerg í Danmörku 3.-10.júní 2022. Allir lögð ust á eitt í fjáröflunum, bæði í sölu og vinnufram lagi við hin ýmsu verk. Við þökkum vinum og vandamönnum og þeim fyrirtækjum sem studdu flokkinn kærlega fyrir. Úr varð að strákarnir komust í draumaferð strax í lok skólaárs.

Farið var af stað daginn sem skólaslit flestra skóla var. Ferðinni var heitið til Vildbjerg eins og áður sagði, en bærinn telur um 4.000 íbúa og gistum við á Vildbjerg Sportcenter hótelinu þar sem voru topp aðstæður til fótboltaiðkunar. Á svæðinu eru t.a.m. yfir 20 fótboltavellir. Sundlaug í sama húsi, íþrótta salur, matsalur og allt til alls. Strákarnir gistu 3-4 saman í herbergi og fór keppnin snyrtilegasta her bergið strax í gang. Strákarnir voru í fæði á hót elinu allan daginn og tók starfsmenn þess fyrstu dagana að átta sig á hversu stóra skammta þurfti að útbúa fyrir þessa öflugu, íslensku peyja. Einnig virtist koma starfsfólkinu á óvart hversu fiskurinn var vinsæll. Allir dagar ferðarinnar voru þétt skip aðir. Dæmigerður dagur var vaknað, morgun matur, morgunæfing, hádegismatur, fyrirlestur/ hópefli/frjáls tími, seinnipartsæfing, kvöldmatur, sund/sturta og svo var gleði saman á kvöldin, kvöldkaffi og svefn.

Strákarnir æfðu tvisvar á dag flesta daga og voru æfingarnar mjög fjölbreyttar og skemmtilegar. Frábært að æfa eins og atvinnumenn og einmitt á meðan við dvöldum á hótelinu komu leikmenn norska úrvalsdeildarliðsins Bodø/Glimt og vakti það mikla lukku drengjanna.

Mikið var lagt upp úr því í ferðinni að drengirnir sýndu ábyrgð, t.d. með því að stilla sjálfir vekjara klukkur, mæta á réttum tíma, halda herbergjum hreinum, hengja upp blautan þvottinn og ganga frá og passa upp á peningaeyðslu. Strákarnir fengu út hlutaðan ákveðnum fjölda danskra króna á hverj

14 Jólablað 2022
Keflavík: 4. flokkur drengja

um degi og var gaman að fylgjast með þeim reikna út hverju þeir hefðu efni á og hverju ekki í búðar ferðunum. Eftir fyrirlestur um mikilvægi góðs undirbúnings og næringar íþróttamanna mátti glöggt sjá breytingu á verslun hjá sumum, meira um ávexti en nammipoka og orkudrykki. Á hverri æfingu þurfti að taka saman búnað fyrir hverja æf ingu og flytja á þá velli sem við áttum hvern dag og svo að ganga frá að æfingu lokinni. Veðrið var flott og þurfti suma daga að maka á sig sólarvörn en það gekk misvel að fá drengina í svoleiðis vinnu og kom aloe vera gelið sér vel nokkur kvöld. Liðsheildin var líka í fyrirrúmi í ferðinni og var það mat okkar fararstjóra og þjálfara að sjá mátti þvílíka breytingu á hópnum hvað varðar samskipti, vinskap og gleði. Strákarnir lærðu að samgleðjast og hvetja í stað þess að kenna hver öðrum um eða skammast. Upphitunarskokk hverrar æfingar var leitt með samsöng og fannst þeim það vandræða legt í byrjun en í lokin var þetta eins og þeir hefðu alltaf gert þetta, heldur betur búið að þétta hópinn.

Við eyddum einum degi í skemmtigarðinum Djurs Sommerland. Strákarnir þeyttust á milli tækja og þeir máttu varla vera að því að fá sér pizzu saman í hádeginu. Við fararstjórarnir og þjálfarar skelltum okkur í besta og hraðskreiðasta rússíban ann að mati strákanna, „fjórhjólin“. Skemmst er frá því að segja að fleiri urðu rússíbanaferðir okkar fararstjóranna ekki enda tók þessi alveg nógu mik ið á okkur. Þegar tilbaka var komið var matur og bingó með Frey og Skúla þar sem aðalvinningur

inn var mjög flott Blackpool treyja frá Daníeli Leó landsliðsmanni og tengdasyni Freys. Elvar Ingi datt í lukkupottinn og vann treyjuna.

Í ferðinni átti Benedikt Bóas 13 ára afmæli og þann dag var fyrri æfing dagsins létt og skemmti leg, fótboltamylla, klappleikur og fleira enda æf ingaleikur þann dag. Strákunum var skipt í tvo hópa og spilaði helmingur hvors hóps einn hálf leik. Þeir gerðu sér lítið fyrir og unnu báða leikina. Algjörlega frábært og strákarnir reynslunni ríkari og ekki síst höfðu mjög gaman að. Eftir leikinn voru danskar píur mættar á völlinn (enda agalega myndarlegir drengir sem við eigum) og hljóp æði á suma aðrir héldu sig í fjarlægð og enn aðrir hurfu inn. Stelpurnar vildu fá snapchat hjá einhverjum og svona, agalega spennandi að mati sumra. Þegar strákarnir náðu loks að komast undan skvísun um var pizzuveisla í seinni kvöldmat og svo var Evrópukeppni spilastokka (spil með fótboltaívafi í boði Freys og Skúla) klárað eftir undanriðla fyrr um daginn og stóð Guðmundur Snær uppi sem sigurvegari eftir æsispennandi og oft á tíðum til finningaþrungna keppni. Við kláruðum kvöldið með því að syngja aftur fyrir Benedikt Bóas þar sem hann blés á kerti á ekta danskri afmælisköku, kagemand. Flestum fannst hún bara nokkuð góð.

Í lok ferðar voru strákarnir sannarlega að njóta og meðvitaðir um að ferðinni væri að ljúka. Enn á ný voru Freyr og Skúli með skemmtilegar uppá komur og var Kahoot spurningakeppni daginn fyr ir heimferð þar sem Brynjar Björn vann og í 2.sæti

var Matthías Bjarndal og hlutu þeir spil í verðlaun. Við fararstjórarnir komumst ekki á pall.. Þjálfar ar voru frábærir í ferðinni, fóru með strákunum í sund og alls konar leiki fyrir utan skemmtilegar og góðar æfingar. Í kvöldkaffinu síðasta kvöldið var komið að verðlaunaafhendingu fyrir snyrtilegasta herbergið í ferðinni og var það herbergi 5 sem hlaut sigur úr býtum. Samkvæmt þjálfurum var baráttan hörð milli 3ja herbergja en snyrtimennin Arnar Bergmann, Aron Freyr, Guðjón Leifur og Magnús hlutu verðlaunin, Keflavíkurtreyju hver. Herbergin þeirra heima hljóta að vera hrein og fín alla daga.

Heimferðardaginn fórum við í skemmti- og sundlaugargarðinn Lalandia sem er rétt við flug völlinn í Billund. Drengjunum fannst svakalega gaman að þeysast í rennibrautunum með Frey og Skúla. Síðustu krónunum var svo eytt í ýmsum tækjum í Lalandia. Svo var haldið í flugstöðina og allir glaðir eftir frábæra ferð.

Við fararstjórar og þjálfarar, erum svo lukkuleg með þessa ferð. Svo ótal frábærar minningar sem sköpuðust og mörg skondin og eftirminnileg atvik sem seint gleymast. Þvílíkur lærdómur líka ekki bara fótboltalega. Heim komu drengir sem höfðu þroskast og lært svo mikið, allir vinir og sannir Keflvíkingar. Algjörlega dásamlegt að fá að kynnast og eyða tíma með þessum yndislegu drengjum, frá bær hópur með alls konar karakterum.

F.h. fararstjóra, Elísabet Lovísa Björnsdóttir

Jólablað 2022 15

Keflavík er klúbburinn

Keflavík er klúbburinn okkar. Á bakvið þessa yfirlýsingu er ástríða sem á sér djúpar rætur og teygir anga sína víða inn í samfélagið okkar. Jafnvel víðar en við ger um okkur grein fyrir! En getur það verið, að okkur hætti stundum til, að líta á það sem við gerum og stöndum fyrir, sem of sjálfsagðan hlut og horfum þess vegna fram hjá því hvers vegna við elskum þennan klúbb?

Þátttaka í íþróttum dregur fram það allra besta í okkur, sérstaklega þegar okkur tekst að sam einast um sömu gildi. Tökum dæmi af gildum í stefnumótun Reykjanesbæjar sem eiga að ein kennast af orðunum „virðing, eldmóður og fram sækni“. Þessi sömu gildi eru í raun hornsteinninn í framtíðarsýn knattspyrnudeildar Keflavíkur sem stefnir að því að verða í fremstu röð knattspyrnu liða á Íslandi. Í stefnuyfirlýsingu okkar felst bæði eldmóður og stöðug framsækni, en þangað komumst við ekki nema að bera virðingu fyrir félaginu okkar, bænum okkar og andstæðingum. Þannig eigum við íþróttafélögin samleið með bæjaryfirvöldum sem í sinni framtíðarsýn vilja verða „fjölskylduvænn bær sem þroskar og nær ir hæfileika allra í gegnum öflugt skóla-, íþróttaog menningarstarf“. Ég held því fram, að ekkert annað sjálfboðaliðafélag en Keflavík, gegni rík ara hlutverki við að „stuðla að hamingju og heil brigði einstaklinganna, svo að þeir nái að þroska hæfileika sína, eigi sterka sjálfsmynd og láti drauma sína rætast“, eins og segir í stefnumótun Reykjanesbæjar. Af þessum árangri í þágu fram tíðarsýnar Reykjanesbæjar, höfum við Keflvík ingar ríka ástæðu til að vera stoltir.

16 Jólablað 2022
Keflavík: Sigurður Garðarsson

En stoltið af því að vera sannir Keflvíkingar á fyrst og fremst rætur að rekja til árangursins sem starf félagsins leiðir af sér. Sá árangur nær miklu lengra og dýpra en að skila titlum og sigr um í einstökum kappleikjum eða keppnum. Hann felst aðallega í því að betrumbæta okkur sjálf svo við náum að verða betri manneskjur og þar með betri borgarar í samfélaginu. Það er árangurinn sem gerir okkur stolt. Það er það sem starfsemi íþróttafélagana stendur fyrir.

Keflavík er stórt og sigursælt íþróttafélag á ís lenskan mælikvarða. Það eru t.d. örfá félög sem geta státað sig af jafn miklum árangri og afrek um eins og Keflavík getur gert með því öfluga sjálfboðaliðastarfi sem þar fer fram. Geri aðrir betur, en að eiga ár eftir ár lið í meistaraflokki, sem etja kappi í efstu deildum karla og kvenna í tveimur af vinsælustu íþróttagreinunum landsins, knattspyrnu og körfubolta.

Ég er stoltur af því að vera Keflvíkingur og um leið þakklátur fyrir það að hafa fengið tækifæri til að iðka íþróttir í Keflavík. Ástríða mín á íþrótt um er drifin áfram af því að sjá árangurinn sem þær skapa, eins og t.d. öllu fyrirmyndar fólkinu sem íþróttafélögin hafa alið af sér og eiga í dag svo ríkan þátt í að gera bæinn okkar betri. Við Keflvíkingar getum verið stolt af framlagi okkar til bæjarins og samfélagsins.

Á lokahófi Knattspyrnudeildar fór ég nokkrum orðum um það sem við getum verið stolt af og hvers vegna ég sé „Keflavík sem klúbbinn“. Hér eru nokkrar ástæður frá sjón arhorni knattspyrnudeildarinnar, en þær eru miklu fleiri ef við horfum til annarra deilda og jafnvel annarra íþróttafélaga í bænum okkar: Keflavík er klúbburinn sem fóstrar yfir 600 börn og unglinga og kennir þeim ekki aðeins að spila fótbolta, heldur hjálpar þeim að skilja samhengið á milli ástundunar og árangurs.

Keflavík er klúbburinn sem kennir okkur að virkja kraftinn í vonbrigðum tapleikja og umbreyta því yfir í orku til að leggja okkur meira fram í þeirri von að það gangi betur næst!

Keflavík er klúbburinn sem skapar uppbyggi legan vettvang fyrir börnin okkar til að stunda heilsusamlegt líf og forða þeim frá því að reika of oft á ranga leið.

Keflavík er klúbburinn sem tekur á móti sjálf boðnum bæjarbúum sem vilja láta gott af sér leiða í jákvæðu, metnaðarfullu og uppbyggilegu umhverfi.

Keflavík er klúbburinn sem gefur fagfólki við þjálfun tækifæri til að vaxa og þroskast í íþrótta starfinu sem þau hafa ástríðu fyrir.

Keflavík er klúbburinn sem býr til góðar fyrir myndir og veitir ungu afreksfólki tækifæri til að láta drauma sína rætast.

Keflavík er klúbburinn sem heldur fjölmennustu menningarsamkomur bæjarins. Þar með talið eru allar okkar stóru skemmtanir, mótahald og kapp leikir allt árið um kring.

Við skulum áfram vera stolt af því að vera sannir Keflavíkingar og höldum áfram að vera bænum okkar til sóma.

Jólablað 2022 17
Sigurður Garðarsson Formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur

Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.

Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.

Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.

Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.

Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.

Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.

Óskum viðskiptavinum okkar, sem og Suðurnesjamönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

18 Jólablað 2022 SÖLUUMBOÐ ÖSKJU Á REYKJANESI Sími 420 5000 Knattspyrnudeildar Keflavíkur OPNUM 28.DESEMBER Við treystum á íbúa Reykjanesbæjar að styðja vel við bakið á okkur. Allur hagnaður deilist á milli karla,kvenna og unglingadeilda knattspyrnudeildar Keflavíkur SALAFLUGELDA SALAFLUGELDA OPIÐ 28., 29. & 30.DESEMBER FRÁ KL.10.00-22.00 OPIÐ GAMLÁRSDAG FRÁ KL.10.00-16.00 HRINGBRAUT 108 K-HÚSIÐ
Hafnargata 36, 230 Reykjanesbæ • Sími 440 2450

Jólalukka

SEX ÞÚSUND VINNINGAR!

Þú færð Jólalukku VF í Nettó og tuttugu öðrum verslunum og fyrirtækjum á Suðurnesjum. Skilið vinningslausum miðum í Nettó verslanir. Drögum fleiri flotta vinninga þrisvar í desember.

Jólablað 2022 19
Skafmiðaleikur Víkurfrétta 2022
Það er gaman
að skafa!

Það verður spennandi að fylgjast með stelpunum okkar næsta sumar í deild hinna bestu Á

rið 2022 var okkar annað ár í efstu deild sem heitir því skemmtilega nafni Besta deildin! Við erum þess fullviss að nú séum við búinn að tryggja okkur sess þar til framtíðar eftir smá hik 2019.

Fyrir þetta tímabil voru flestir sem spáðu okkur falli en við létum það ekki á okkur fá og fórum inní undirbúningstímabilið af krafti.

Eftir tvö sumur þar sem covid setti mark sitt á tímabilið einkenndist þetta fótboltasumar af löng um hléum vegna verkefna A-landsliðsins. Í lok júní voru teknar heilar 6 vikur á meðan EM stóð yfir og svo um 2 vikur í ágúst þar sem landsliðið var að berjast um sæti á HM.

Boltinn í sumar var að venju upp og niður en eftir 2 umferðir vorum við efstar í deildinni sem var skemmtilegt m.v. spár. Niðurstaða sumarsins var 8. sæti með 16 stig einu stigi færra en liðið í 7 sæti.

Í íþróttafélögum er starf sjálfboðaliða mikil vægt ásamt þeim sem sinna stjórnarhlutverkum fyrir félagið. Kvennaráð skipar mikilvægt hlut verk að vinna að umgjörð kvennaboltans og gæta hagsmuna stelpnanna og vellíðan. Mikill árang ur hefur náðst síðastliðin ár en enn er unnið að framgangi kvennaknattspyrnunnar bæði innan félagsins sem utan. Á síðasta aðalfundi fjölgaði í kvennaráði en mikilvægt er að fá inn nýtt fólk með nýja sýn og skoðanir til að vinna að veg ferðinni. Eitt af afrakstri sumarsins til að kynna kvennaknattspyrnuna og vonandi að fá fleiri að boltanum var að stofna hóp með fyrrverandi leikmönnum Keflavíkur sem fékk það stóra nafn „Hefðakonur Keflavíkur“. Kvennaráð stóð fyrir viðburði fyrir hópinn snemma í sumar fyrir leik

þar sem starfið var kynnt og þeim boðið á leikinn. Stefnan er að nýta þennan vettvang til að vinna að enn meiri framgangi kvenna í íþróttum.

Til marks um hvað mikil gróska er í gangi í samfélaginu í tengslum við kvennaknattspyrnuna voru endurvakin. Hagsmunasamtök knattspyrnu kvenna í sumar sem stofnuð voru 1990. Markmið þeirra er að auka samstöðu, sýnileika, jafnrétti og virðingu kvenna innan íþróttarinnar. Samtökin eru hugsuð sem sameiningarafl í jafnréttisbarátt unni, jafnt innan knattspyrnufélaganna, sem og hreyfingarinnar. Þess má geta að 10 nefndir eru starfræktar innan samtakanna.

Eins og kom fram í pistlinum í fyrra voru margar ungar og efnilegar stelpur að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki og komu þær enn sterkari inn í sumar. Við höfum verið stolt af því að í gegn

um árin að spila með kjarna af stelpum sem eru uppaldar í Keflavík og hafa verið fyrirmynd yngri stúlkna. Í þessum kjarna eru afar sterkir einstak lingar og er liðsheildin einstök sem skilaði sér vel í sumar þar sem hópurinn var ekki stór.

Undirbúningstímabilið er hafið með nokkrum breytingum, nýr þjálfari hefur hafið störf og unnið er að frekari styrkingu í þjálfara- og leikmanna málum. Fráfarandi teymi er þakkað kærlega fyrir sitt framlag að vinna að kvennaknattspyrnunni í gegnum árin og þeim árangri sem hefur náðst. Það verður spennandi að fylgjast með stelpunum okkar næsta sumar í deild hinna bestu, þær eru einfaldlega bestar.

20 Jólablað 2022 Kvennaknattspyrnan í Keflavík:
Marki

Markasumarið mikla!

Meistaraflokkur karla hjá Keflavík steig stórt skref fram á við í sumar í Bestu deildinni þrátt fyrir að hafa verið spáð falli fyrir upphaf mótsins. Liðið endaði í 7.sæti deildarinnar og vann neðri hluta úrslitakeppn innar í lok sumars með talsverðum yfirburðum. Liðið spilaði mjög skemmtilegan, kraftmikinn og hraðan sóknarfótbolta og var að auki mjög sterkt í skyndisóknum og í föstum leikatriðum.

Keflavík hefur aldrei skorað jafn mörg mörk í sögu efstu deildar eins og í sumar alls 56 mörk. Þessi 56 mörk skoruð í sumar, eru í 6.sæti yfir mestu markaskorun nokkurs félags á einu keppn istímabili í efstu deild karla frá upphafi. Breiða blik er eina liðið utan Keflavíkur sem skapaði sér betri marktækifæri í sumar. Valur, sumarið 2020, er svo eina liðið í sögu efstu deildar sem hefur skorað fleiri mörk á útivelli en Keflavík gerði í sumar. Keflavík voru sérlega erfiðir mótherjar á útivelli og því fengu liðin í Bestu deildinni svo sannarlega að kynnast eins og þegar liðið pakkaði Val saman á útivelli 0-3 og útisigrar gegn Fram 4-8 og sigur gegn Leikni 1-7, sem sendi þá niður um deild, svo eitthvað sé nefnt. Stærsti heima sigurinn í sumar var gegn Fram 4-0. Mótið var 27 leikir í fyrsta skipti í stað 22 leikja, sem hefur að sjálfsögðu áhrif á tölfræðisamanburð. 2 leikmenn Keflavíkur voru valdir í A-landsliðs hóp Íslands í haust gegn Saudi Arabíu og Suður -Kóreu, þeir Rúnar Þór Sigurgeirsson og Sindri Kristinn Ólafsson. Auk þess sem Adam Ægir Páls son var valinn til vara. Patrik Johannesson var valinn ítrekað í A-landslið Færeyja á árinu. Ás geir Orri hinn ungi og bráðefnilegi markvörður okkar var svo valinn í U19 ára landslið Íslands í haust. Allir þessir landsliðsmenn eiga að baki leiki með 2.flokki Keflavíkur. Við erum stolt af lands liðsmönnunum okkar og óskum þeim öllum til hamingju. Þeir sýna okkur hinum að allt er hægt og næsta kynslóð okkar lítur upp til þeirra allra.

Adam Ægir Pálsson jafnaði stoðsendingamet Bestu deildarinnar en hann gaf 13 stoðsendingar í sumar ásamt því að skora 7 mörk. Patrik var markahæstur í liðinu okkar með 12 mörk en alls skoruðu 6 leikmenn okkar 5 mörk eða fleiri. All ir leikmennirnir okkar eiga hrós skilið fyrir flotta liðsheild og gott sumar. Margir leikmenn bættu sig mikið í sumar og liðið bætti sig jafnt og þétt. Það er ljóst að Rúnar Þór Sigurgeirsson hverfur

á braut í atvinnumennsku eftir tímabilið til Sví þjóðar. Við óskum honum innilega til hamingju með það og fylgjumst stolt með hans framgangi. Það er ljóst að árangur, leikstíll og spilamennska liðsins í sumar hefur hlotið athygli. Leikmenn liðsins eru orðnir eftirsóttir af öðrum liðum í Bestu deildinni og víðar. Þannig hafa borist nokkur tilboð í Patrik Johannesen frá bestu liðum landsins. Auk þess ríkir óvissa um nokkra af nú verandi leikmönnum liðsins um hvort þeir muni leika með liðinu næsta tímabil.

Það er jákvætt að 2.flokkurinn stóð sig mjög vel í sumar, unnu B-riðil og leika því meðal þeirra bestu næsta sumar. Léku einnig bikarúr slitaleik sem var frábær reynsla fyrir þá. Það eru 5-6 efnilegir strákar úr 2.flokki að æfa reglulega með meistaraflokki og Valur, Axel, Guðjón og Stefán Jón spiluðu allir fyrstu mínúturnar sín ar í Bestu deildinni í sumar. Þetta ætti að hvetja ungu strákana okkar til frekari góðra verka. Það er ekki auðvelt að komast í Keflavíkurliðið enda liðið orðið mjög sterkt og samkeppnin mikil. Við væntum mikils af ungu strákunum okkar í vetur og sjáum vonandi liðið okkar halda áfram að bæta sig. Grundvöllur þess er að okkur takist að halda saman leikmannahópnum okkar og vonandi bæta við hann líkt og flest lið stefna á. Til þess þurfum

við góðan stuðning úr umhverfinu svo okkur tak ist að halda áfram að bæta liðið okkar og leikmenn. Ég vil nota tækifærið til að þakka þjálfarateym inu, stuðningsteyminu, sjúkraþjálfarateyminu, framkvæmdastjóra, yfirmanni knattspyrnumála, stjórn, styrktaraðilum og stuðningsmönnum fyrir skemmtilegt knattspyrnusumar. Við getum verið stolt af liðinu okkar og leikmönnum þess.

Áfram Keflavík! Siggi Raggi, þjálfari meistaraflokks karla.

Meistaraflokkur karla sumarið 2022

Þetta snýst um að hjálpast að

- segir Benedikta S. Benediktsdóttir, oftast kölluð Benný og stundum „mamma Keflavíkur“, ekki að ástæðulausu

Benný hefur verið formaður kvennaráðs Keflavíkur í ellefu ár og sér um nánast allt sem fer fram á bakvið tjöldin fyr ir kvennalið Keflavíkur í fótbolta. „Mamma Keflavíkur“ á svo sannarlega vel við þegar Benný er annars vegar. Þá hefur hún helgað miklum tíma í að hjálpa til við allt milli himins og jarðar í kvenna- og karlaboltanum; þvo bún inga, setja upp klefana, gera leikmannasamn inga og elda frægu kjúklingasúpuna sína, svo eitthvað sé nefnt. Svo mikil mamma er hún fyrir leikmenn Keflavíkur að þegar erlenda leikmenn hefur vantað húsnæði hefur hún boðið þeim griðarstað á sínu heimili og að eigin sögn finnst henni það „bara sjálfsagt“.

En hver er Benný og hvernig endaði hún sem „mamma“ Keflavíkur?

„Við erum fjögur systkinin, þrjár systur og einn bróðir. Ég var svolítill flækingur á yngri árum en ég bjó í Garðinum í fimmtán ár. Þar var mjög notalegt og rólegt, ég á náttúrulega góðar og slæmar minningar frá þessum tímum en ég kynnt

ist yndislegu fólki í Garðinum. Ég ætla ekkert að fara að telja upp þetta neikvæða,“ segir Benný en þeir sem hana þekkja vita að hún er einstaklega jákvæð og með gott viðmót. Þegar hún horfir til baka segir hún árin hennar í Garðinum einkenn ast af gleði og þá, eins og nú, var alltaf nóg að gera. „Í Garðinum var ég í kvenfélaginu Gefn í mörg ár og þá var bakað alveg af sér rassgatið,“ segir Benný og flissar. „Ég og æskuvinkona mín fórum í það saman, þar var alltaf góður félagsskapur og mikið um að vera og mikið að gera. Við vorum til dæmis að baka fyrir erfidrykkjur og svoleiðis. Ég hef alltaf notið þess að hafa nóg að gera og vera virk allstaðar og það hefur ekkert breyst.“

„Að vera og gera“

Það er varla hægt að tala um Benný án þess að minnast á Bjögga, eiginmann hennar, því oftar en ekki koma þau sem hálfgerður „pakkadíll“. Þau eru dugleg að fara í veiði saman, finnst fátt skemmtilegra en að fara í útilegu á ameríska húsbílnum sínum og njóta þess að vera með fjöl skyldunni. Þau eru rík af börnum, tengda börn

22 Jólablað 2022
Fermingarmynd af Benný. „Mamma Keflavíkur“ á heimavelli. ljósmynd. Thelma Hrund Hermannsdóttir.

um og barnabörnum og Benný segist elska „allt það umstang sem fylgir því“. Dætur Bennýjar og Bjögga voru í fótbolta og fylgdu þau þeim eftir í því eins og öðru. „Stelpurnar mínar voru í fótbolta í Garðinum, maður fylgdi þeim í því öllu, fór á alla leiki og slíkt. Tvær af þeim héldu áfram hér í Keflavík og svo datt ein út og yngsta var alltaf í meiðslum svo hún hætti líka en ég gat ekki hætt og er enn í þessu ellefu árum síðar,“ segir Benný.

Benný segist deila þessari ástríðu fyrir boltan um með Bjögga og að þau sinni þessu áhugamáli til hins ýtrasta en þau eru dugleg að mæta á leiki, hvort sem það er á kvenna- eða karlaleiki í fót bolta og körfubolta. „Við eigum okkar sæti líka á körfuboltaleikjunum, þegar tímabilið í fótboltan um klárast er gott að hafa eitthvað. Það er jafnvel stundum verið að horfa á leik í sjónvarpinu (heima hjá mér) og annar leikur í gangi í tölvunni, til að missa alveg örugglega ekki af ef maður kemst ekki á leik. Það er bara svo gaman að hitta fólk og vera í þessari skemmtilegu íþróttastemmningu,“ segir Benný og bætir við: „Þetta er rosaleg ástríða hjá okkur hjónunum að vera í kringum kvenna- og karlaboltann. Við fylgjum því alveg svakalega eftir og við erum kannski örlítið öfga í því. Þegar við fluttum var lítil geymsla í nýja húsinu sem við hönnuðum með liðsbúningana í huga, svo þeir kæmust fyrir. Öllu öðru var ráðstafað í kringum það. Það hefur líka orðið þannig, ef erlenda leik menn vantar húsnæði þar hafa þær búið heima hjá okkur. Eitt skiptið voru þær tvær í einu. Vissulega

„lúffar“ þetta heimilinu en mér fannst þetta bara svo sjálfsagt.“ Aðspurð hvers vegna henni finnist það sjálfsagt segir hún: „Því ástríðan er svo mikil, þetta voru leikmenn hjá mér og það var ekki til húsnæði svo það eina sem var í stöðunni var að redda því. Ég hugsa að þetta snúist um að hjálpast að, sama hvað um ræðir; að setja upp Þorrablót, setja upp lokahóf eða hvaðeina, ég er alltaf mætt ust. Þetta er einhver sýki - að vera og gera.“

Benný - hvar á ég eiginlega að byrja? Hún er engri lík og án hennar væri kvennaboltinn í Keflavík ekki á þeim stað sem hann er í dag. Benný hefur unnið sleitulaust við uppbyggingu kvennaboltans og það sem hún er tilbúin að gera fyrir okkur er ómetanlegt. Benný er alltaf til staðar og tilbúin redda málunum sama hvar hún er stödd. Hún lífgar upp allt í kring um sig með sinni jákvæðni, hlýju og það er alltaf stutt í húmorinn. Benný, ég á engin orð til að lýsa þakklæti mínu til þín og allt sem þú gerir og hefur gert fyrir okkur stelpurnar. Takk fyrir allt!

- Kristrún Ýr Holm

Jólablað 2022 23
Benný og Bjöggi deila mörgum áhugamálum, þau hafa meðal annars gaman af því að veiða. Aðspurð hverju Benný er stoltust af í lífinu segir hún „börnunum mínum“, án þess að hika.

Benný er bara æði! Hún er alltaf jákvæð og hress og til í að gera allt og redda öllu fyrir mann. Það má segja að hún sé mamma númer tvö hjá okkur öllum í meistaraflokki. Svo er Mexíkó kjúklingasúpan sem hún gerir ein besta súpa sem hægt er að fá og hefur hún ósjaldan eldað svoleiðis fyrir okkur þegar við biðjum um hana daginn fyrir leik.

- Arndís Snjólaug Ingvarsdóttir

„Að vera og gera“ er eitthvað sem Benný hefur svo sannarlega tileinkað sér þegar kemur að fótboltastarfinu í Keflavík en hvenær byrjaði hún að sinna þessu að alvöru og hvað stendur helst upp úr hjá henni eftir allan þennan tíma?

„Ég er búin að dýfa mér í þetta alveg frá upphafi. Kvennaráðið sem var þá var að flosna upp og það var ein kona eftir, hún Hrafnhildur. Ég spyr hvort ég geti ekki aðstoðað hana eitthvað svo hún væri nú ekki ein í þessu öllu. Ég gerði það og upp úr því stofnuðum við þétt kvennaráð. Síðan þá höf um við verið sex til átta í kvennaráði. Þegar ég byrjaði var kvennaboltinn í Keflavík í rauninni ekki neitt neitt. Það var ekki eins og þetta er í dag, þegar ég byrjaði fengum við, kvennabolt inn, gömlu búningana frá körlunum. Við gerðum einmitt grín að því á einu lokahófinu, við tók um upp myndband þar sem við fórum út á völl með saumavélar og vorum að sauma búninga úr rúmfötum,“ segir Benný og hlær. „Það var gert til að gera grín að því að við værum bara “left overs” í þessu. Því við fengum gömlu búningana, gömlu boltana og okkur fannst þetta bara mjög lágkúrulegt. Í dag er þetta allt allt annað, það er

bara allt eins. Það er ekki gert upp á milli lið anna, sem er bara gott en þetta er búið að vera barningur og ógeðslega mikil vinna en það er svo gaman að sjá hvað þetta er mikið stökk á þessum 11 árum. Við erum að sjá svo miklar breytingarjákvæðar breytingar.“

Tólfti maðurinn í stúkunni

Að mati Bennýjar hefur mikið breyst til hins betra en, segir jafnframt að bæjarbúar mættu vera duglegri að mæta á leiki og styðja við liðin. „Mér finnst bæjarbúar þurfa að vera virkari gagnvart boltanum, sérstaklega kvennaboltanum en líka karla. Ég hvet alla til að vera duglegri að mæta á leikina, það hefur verið eiginlega skömmustulega léleg mæting á leikina. Mér finnst við þurfa að virkja það svolítið, maður upplifir það á kvenna leikjunum í körfunni núna að það er ógeðslega gaman því það koma svo margir. Það þarf ekki að vera með brjálaðan áhuga, þó að þú elskir karla boltann þá þýðir mikið fyrir kvennaliðið að sýna því líka stuðning. Bæði liðin eru í Pepsi deildinni og við viljum bara vera þar en við þurfum líka tólfta manninn í stúkuna til að hjálpa okkur,“ segir Benný. Aðspurð hvort hún sé með lausn í

24 Jólablað 2022

huga til að fá bæjarbúa til að vera duglegri að mæta á kvennaleiki segir hún: „Ég veit ekki hvort að fólk hugsi að karlaboltinn sé hraðari eða hvort þetta sé eitthvert ákveðið hugarfar. Við vitum að karla og kvennabolt inn er svart og hvítt og verður alltaf þannig, eins og í öllum öðrum íþróttum. Ég held að við sem bæjarbúar getum gert betur þegar kemur að því að standa við bakið á þeim, það þarf ekkert að vera mikið, bara sýna stuðning.“

Benný segir það skemmtilegasta við verkefni hennar með Keflavík vera að sjá fótbolta stelpurnar glaðar. „Um leið og þær eru glað ar þá líður mér vel. Þetta er svolítið spes tilfinning, maður eiginlega dettur líka niður með þeim ef þær eru ekki í góðum gír og fer sjálfur niður.“ Benný segist vera stoltur Keflvíkingur, stolt af liðunum en umfram allt er hún stolt af Sveindísi Jane Jónsdóttur. „Ég held það sé bara toppurinn af öllu að hún sé Keflvíkingur. Pabbi hennar mætir á alla leiki úti og heima, hann skutlar liðinu okkar út á land og svo mætir mamma henn ar líka á leiki og Sveindís sjálf mætir þegar

Benný er alltaf til staðar ef það vantar eitthvað, eins og fatnað eða dót í sjúkratöskuna. Það er alltaf hægt að treysta á að hún taki á móti hugmyndum okkar leikmanna um snið á fatnaði eða litum á fyrirliða bandið. Hún er alltaf í góðu skapi og góð í að smita því frá sér.

- Aníta Lind Daníelsdóttir

Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.

Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.

Við Suðurnesjamenn í Rafholti óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.

Jólablað 2022 25
Iðavöllum 3
• 230 Keflavík • Sími 420 2020
Benedikt Jónsson
Theódór Friðjónsson og starfsfólk tannlækningastofunnar Tjarnargötu 2

Benný er fallegasta sál heims. Hún vill öllum vel og getur alltaf komið manni í gott skap. Benný er toppeintak af konu og hefur hún fleytt kvennaboltanum í Keflavík svo langt áfram. Ég get sko sagt það að án hennar væri Keflavík ekki á þeim stað sem félagið er á í dag, í bestu deildinni. Mér finnst ég vera ótrúlega heppin að hafa kynnst henni og ég þekki ekki eina manneskju sem hefur eitthvað slæmt um hana að segja, það segir svo ótrúlega mikið um þá mann eskju sem hún hefur að geyma. Falleg að innan sem utan.

P.s. Benný þú gerir bestu kjúllasúpu í heimi og ég sakna hennar svo mikið. Ég elska þig Benný.

hún getur. Mér finnst það sýna svo mikið, þrátt fyrir að dóttirin sé farin erlendis mæta þau samt á leiki hjá Keflavík. Þau mættu líka á leiki hér þegar hún var að spila með Breiðablik. Þetta setur svo

Ég hef verið að velta þessari spurningu fyrir mér undanfarin ár. Að mínu mati er íþróttafélag sem heldur úti skipulögðu íþróttastafi fyrir börn og unglinga einn af mátt arstólpum sveitarfélagsins. Börn og unglingar þurfa hreyfingu og það er mikilvægt að geta boðið upp á skipulagt íþróttastarf hjá fyrir myndarfélagi sem tekur þátt í að efla lýðheilsu einstaklinga.

Íþróttafélag þarf að starfa eftir lögum sem sam þykkt hafa verið af ÍSÍ, vera aðili að íþróttahéraði og vera með stjórn. Hver deild ásamt aðalstjórn þarf að vera með reglulega stjórnarfundi og halda aðalfund árlega. Skipuleggja þarf æfingar, gera samninga og ráða menntaða þjálfara ýmist í hlutastarf eða fullt starf ásamt öllu því sem fylgir því að halda úti félagi eða deild.

Alla jafna eru það sjálfboðaliðar sem halda utan um allt starfið í hreyfingunni. Hvort sem er í stjórn um eða foreldrafélögum. Stærð deilda er mjög mis jöfn, við erum með deild sem veltir um 700.000 kr. á ári allt upp í deild sem er með veltu upp á 305.000.000 kr. Utanumhald er í sjálfboðavinnu eða viðkomandi starfsmaður á launum hjá viðkomandi deild eða félagi.

Það má ekki gleyma því að íþróttafélögin eru með stærstu menningarviðburðina í sveitarfélaginu. Sem dæmi má nefna þorrablót sem haldið hefur verið

árlega og um átta hundruð manns sækja. Í ár er upp selt á viðburðinn og margir á biðlista. Íþróttafélögin halda líka árlega fjölmenn íþróttamót og má þar sem dæmi nefna Nettómót körfunnar þar sem þátttak endur eru um og yfir tólfhundruð börn.

Það er óhætt að segja að íþróttafélagið sé stór þátt takandi í uppeldisstarfi líkt og skólarnir. Í gegnum íþróttastarfið læra börnin samvinnu, sjálfsaga, að bera virðingu fyrir öðrum og koma vel fram við félagana. Rannsóknir hafa sýnt fram á að krakkar sem stunda skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf inn an íþróttafélaga gengur yfirleit betur í námi og eru heilsuhraustari en önnur börn. Þannig að íþrótta hreyfingin leggur sitt að mörkum við að reyna að skila frá sér sterkum, hraustum og öguðum einstak lingum út í samfélagið.

Innan Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags eru starfandi níu deildir auk aðalstjórnar félagsins og eru að jafnaði átta stjórnarmenn í hverri stjórn sem eru áttatíu sjálfboðaliðar einungis í stjórnunarstarfi . Í knattspyrnu- og körfuknattleiksdeild erum við með meistaraflokksráð kvenna og barna- og unglingaráð ásamt foreldrafélögum sem eru starfandi í hverjum flokki. Þegar allt er tekið til þá eru þetta á annað hund rað manns sem eru sjálfboðaliðar hjá félaginu.

Iðkendur í barna- og unglingastarfi hjá okkur eru 2.208 og skiptast þannig drengir 1.090 og stúlkur 1.118.

Rekstur á svona félagi er töluverður og mikil

ábyrgð sett á sjálfboðaliðann. Því skiptir samvinnan við sveitarfélagið miklu máli. Sveitarfélagið leggur til aðstöðuna og hefur gert samstarfssamning við félögin sem vonandi á eftir að stækka.

Mig langar að færa sjálfboðaliðum innan íþrótta hreyfingarinnar okkar bestu þakkir fyrir óeig ingjarnt starf í þágu íþróttanna hér í Reykjanesbæ. Án ykkar væri þetta ekki gerlegt.

Fyrir þá sem vilja fræðast meira um peningalegar stærðir þá er samstæðureikningur Keflavíkur inn á heimasíðu félagsins.

26 Jólablað 2022
gott fordæmi og þau eru dæmi um alvöru stuðn ingsmenn. Við getum ekki annað en verið stolt, þetta er okkar stærsti sigur, hvað við sköpuðum.“ Thelma Hrund Hermannsdóttir
þýðingu
íþróttafélag fyrir viðkomandi sveitarfélag?
Hvaða
hefur
Jólablað 2022 27 Hafnargata 40 - Sími: 422 2200 REYKJANESBÆ Fartölvur Borðtölvur Spjaldtölvur Snjallsímar Heimilistæki Sjónvörp Heyrnatól Hátalarar Verið velkomin í Omnis

Gleðilega hátíð

farsælt
SÆVAR REYNISSON VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR BÓKHALDSÞJÓNUSTAN Hafnargötu 27 - Sími 421 1420 & 894 3837 Rafverktaki VÍSIR Félag skipstjórnarmanna á Suðurnesjum Tækniþjónusta SÁ ehf. Keflavík íþróttaog ungmennafélag Dacoda StapaPrent Síðan 1984 / Sími 421 4388 stapaprent@stapaprent.is
Gleðileg jól
komandi ár, þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Við óskum viðskiptavinum okkar, samstarfsaðilum og landsmönnum öllum, gleðilegra og ánægjulegra stunda yfir hátíðarnar.
28 Jólablað 2022

Rafíþróttadeild Keflavíkur

afíþróttadeild Keflavíkur hóf starf semi sína fyrri hluta ársins 2021 og eru eins og mörg önnur íþrótta- og ungmennafélög að feta sín fyrstu skref í því að móta uppbyggilegt starf rafíþrótta fyrir börn og ungmenni.Þetta er ánægjuleg þróun sem ber að fagna, en á síðustu árum hefur orðræða um tölvuleiki í auknu mæli snúist um að varpa ljósi á jákvæða ávinninga fyrir iðkendur sem fá tækifæri til að nálgast áhugamálið sitt á uppörvandi hátt í heilbrigðu og jákvæðu umhverfi. Það er mikilvægt að skipulagt raf íþróttastarf á vegum íþrótta- og ungmenna félaga leggi ríka áherslu á forvarnargildi og ávinninga þess að viðurkenna tölvuleiki sem gilt áhugamál og skapa umgjörð sem ýtir undir félagslega samveru, samskiptahæfni og heilbrigða spilun iðkenda. Ef vandað er til verka þá ætti skipulagt rafíþróttastarf að draga úr áhættuhegðun og félagslegri ein angrun barna- og ungmenna sem hafa áhuga á tölvuleikjum og styðja við þau uppeldislegu gildi sem íþrótta- og ungmennafélög standa fyrir. Deildin flutti inn á “heimavöll” í haust og hefur það verið frábært fyrir iðkendur deildarinnar í alla staði. Á nýja staðnum er bæði töluvert meira svæði fyrir krakkana sem nýtist frábærlega fyrir hreyfingu, sem er mikilvægur þáttur rafíþróttastarfsins. Nýja húsnæðið gefur deildinni líka möguleika á að stækka þar sem hægt er að bæta við fleiri tölvum. Rafík var með foreldrafund í sept ember í nýju aðstöðunni þar sem Alexander Aron, yfirþjálfari fór yfir æfingatímabilið, hvernig æfingar fara fram og hvaða markmið hann hefur sett sér sem þjálfari. Við fengum frábæran fyrirlestur frá Aroni Ólafssyni, framkvæmdastjóra RÍSÍ en hann var með foreldrafræðslu um rafíþróttir á Íslandi. Eftir fundinn sköpuðust miklar og skemmtilegar umræður milli foreldra og þeirra sem sjá um starfið í Rafík. Stjórn Rafík leggur kapp á að byggja upp gott og öflugt starf í samvinnu við iðkendur og foreldra þeirra, sem mun skila sér í betra umhverfi fyrir alla þá sem að því koma.

Við hjá Rafík þökkum kærlega fyrir árið!

Óskum íþróttafólki svo og öðru Suðurnesjafólki gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

Óskum félagsmönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

4a - Sími 421 5777

Jólablað 2022 29
Krossmóa 4a - Sími 540 0112
VERÐLAUNAGRIPIR Krossmóa
Sími
Óskum félagsmönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. Bolafæti 3, 260 Reykjanesbæ, sími 421 4117
588 3244 - isspor.is
R

Ferðasaga 9. flokkur stúlkna

Vaskur hópur stúlkna mætti á Keflavíkur flugvöll um hádegisbil þriðjudaginn 31. maí 2022. Stefnan var sett á körfubolta upplifun í Valencia í 10 daga ferð sem stúlkurnar voru búnar að safna fyrir, já og fá vænan styrk frá foreldrum. Lítil rúta kom og sótti okkur á flug völlinn í Alicante. Við náðum að sannfæra bíl stjórann um að það væri góð hugmynd að stoppa á leiðinni til að borða og þá helst á eðal matsölu staðnum McDonald´s. Þegar allir voru orðnir saddir héldum við áleiðis til Valencia. Við komum á gististaðinn okkar eftir tveggja tíma akstur þar sem við hittum Lidiu þjálfara sem hafði skipulagt ferðina fyrir okkur. Eftir smá skordýrafælni og þess háttar fóru allar inn á herbergi til að ná ein hverjum svefni eftir skemmtilegt ferðalag.

Fyrsti morgunnmaturinn var áskorun fyrir sumar stúlkurnar þó ýmislegt góðgæti væri á boðstólnum en eftir tveggja daga þjálfun í mötuneytinu urðu fleiri og fleiri sáttari við matinn sem boðið var upp á. Fyrsta daginn fengu stúlkurnar tækifæri til að liggja í sólinni við sundlaugarbakkann og skoða strákana á svæðinu. Kannski var það ekki besta hugmyndin þar sem margar urðu vel rauðar og áttu aldeilis eftir að finna fyrir því á æfingum og í leikjum næstu daga.

Dagarnir liðu hver af öðrum með æfingum og leikjum. Eftir æfingu í Valencia fengum við lands liðsmanninn Martin Hermannsson í heimsókn, sem kom stúlkunum á óvart. Hann var nýbúinn að slíta krossband og var á leið í aðgerð í vikunni á eft ir. Hann upplýsti þær um ýmislegt sem er öðruvísi þegar fólk spilar í öðru landi. Okkar stúlkur spiluðu við lið í Valencia og Paterna á þeirra aldri og unnu þá leiki. Þær spiluðu líka við U17 lið í Paterna þar sem

Rannveig úr Njarðvík er að spila en töpuðu þeim leik eftir að hafa lagt allt í leikinn. Einnig prófuðu þær að spila þrír á þrjá þar sem þjálfararnir blönduðu okk ar stelpum og þeim spænsku saman í lið og héldu keppni. Þetta var mjög skemmtilegt og ný upplifun fyrir okkar dömur.

Á milli æfinga og leikja höfðum við tíma fyrir ým islegt, dag á ströndinni, heimsókn í dýragarð (ger um það kannski ekki aftur), verslunarmiðstöðvar og

góður tími til að hanga við sundlaugina. Fimmtu daginn 9. júní var kominn tími til að halda heim á leið. Fararstjórum gekk frekar illa að koma stúlkun um upp í rútuna þar sem þær vildu vera lengur, bæði við íþróttaiðkun og ekki síður að spjalla meira við strákana. Heimferðin gekk mjög vel og komu allir glaðir og reynslunni ríkari heim.

Elínborg Herbertsdóttir.

Keflavík íþrótta- og ungmennafélag endurnýjaði viðurkenninguna sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ

Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag fékk viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ í Blue höllinni í Keflavík fimmtu daginn 3. nóvember síðastliðinn í fimmta sinn. Það var Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ sem afhenti formanni félagsins Einari Haralds syni og fulltrúum 8 deilda viðurkenningarnar rétt fyrir leik Keflavíkur og Hauka í Subway deild karla. Félagið fékk viðurkenninguna fyrst árið 2003 og var fyrsta félagið sem fékk þessa viðurkenningu frá ÍSÍ. Á myndinni má sjá Einar Haraldsson, formaður félagsins, lengst til hægri ásamt fulltrúum deilda félagsins og iðkendum með viðurkenningarnar og fána Fyrirmyndar félaga.

Handbækur félagsins og deildanna veita okkur ákveðið aðhald svo sem hvað varðar verkferla og stefnur sem skipta okkur miklu máli og eflir starf ið í alla staði.  Þetta segir foreldrum, styrktaraðil um, sjálfboðaliðum og ekki síst bæjaryfirvöldum að það sé verið að vinna faglegt starf innan félags ins á öllum sviðum.

Áfram Keflavík

Einar Haraldsson formaður Keflavíkur

30 Jólablað 2022 Körfuknattleiksdeild: KKDK:

Yngriflokkastarf Keflavíkur

Yngri flokkar Keflavíkur eru á fullu um þessar mundir og er góður gangur í öll um flokkum.

Starfið saman stendur af 270 iðkendum og 19 þjálfurum ásamt nokkrum ungum framtíðar þjálfurum. Deildin er með keppnislið í öllum flokkum frá 1.-2. bekk og upp í ungmennaflokk, í mörgum flokkum er deildin að keppa með fleiri en eitt lið. Deildin heldur einnig úti leik skólahóp á laugardögum kl 11:15 í Heiðarskóla.

Að vera með keppnislið í öllum flokkum og fleiri en eitt í mörgum þeirra er alls ekki sjálfsgefið og sýnir okkur hvað körfuboltinn á mikið í bæjarbú um og er frábært hvað margir krakkar æfa körfu.

Utan umhaldið er mikið eins og gefur að skila en að því koma 2 yfirþjálfarar ásamt barna og ung lingaráði sem saman stendur af 7 einstaklingum.

Er umfangið það mikið að við getum sagt að um sé að ræða 3 full stöðugildi sem unnið er af 7 sjálf boðaliðum og 2 yfirþjálfurum.

Keflavík er með 10 æfingar á dag að meðaltali, ofan á þessar æfingar koma svo afreksæfingar á morgnana og styrktaræfingar. Keflavík bíður einnig upp á opnar morgunæfingar fyrir iðkendur. Keflavík heldur fjölliðamót í flestum umferðum Ís landsmótsins í yngri flokkum eða ca 10-12 helgar yfir veturinn og ofan á það erum við að halda utan um fjöldann allan af stökum leikjum á virkum dög um sem elstu krakkarnir okkar spila.

Ekki má gleyma einu stærsta móti sem haldið er

ár hvert á Íslandi, Nettómótið en það fer ávallt fram fyrstu helgina í mars.

Til þess að halda þessu öllu úti þarf mög margt fólk til að manna dómgæslu og ritaraborð. Við búum svo vel hér í Keflavík að við eigum ótrúlega marga sem eru tilbúnir að leggja hönd á plóg helgi eftir helgi og dag eftir dag.

Það er ótrúlega gaman hvað margir koma að því að hjálpa til og gera okkur kleift að keyra þetta áfram af eins miklum myndarskap og raun ber vitni.

En betur má ef duga skal og nú fyrir þetta tímabil voru ráðnir 2 yfirþjálfarar sem skipta með sér verk um og eru að vinna í að móta stefnu klúbbsins til næstu ára.

Þetta er risastórt verkefni og mjög krefjandi, það að móta stefnu svona félags eins og Keflavíkur með þá hefð og þann stórkostlega árangur í gegnum tíð ina , er ekkert grín.

En þegar harðnar á dalnum þá þarf bara að spýta í og gera betur og það er nákvæmlega það sem við ætlum að gera. Við ætlum að móta stefnu sem færir okkur aftur í að verða einn sigursælasta körfuknattleiksdeild barna og unglina landsins og um leið ein eftirsóknarverðasta til að æfa hjá.

Framtíðin er björt og hlökkum við til að vinna að því að gera klúbbinn okkar enn betri í framtíðinni.

Kveðja Jonni og Siddi Yfirþjálfarar Barna- og unglingaráðs Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur

Jólablað 2022 31 Yngriflokkastarf :

Viðurkenningar

Lokahóf Barna- og ung lingadeilda var haldið fyrir 7.flokk og upp úr. Boðið var upp á pylsur og með því eins og hefðin segir til um.

Einstaklingsviðurkenningar voru veittar iðkendum í 7.flokki og eldri Verðlaunað var fyrir mestu fram farir, besta varnarmanninn og besta leikmanninn. Að auki voru veitt sérstök verðlaun fyrir það að vera „ Sannur Keflvíkingur“. Þessi verðlaun voru veitt þeim einstaklingum sem hafa lagt mikið af mörkum til félags ins. Eru ávallt tilbúnir að koma og aðstoða þegar á þarf að halda. Mæta vel á æfingar, eru góðir liðsfélagar, hjálpa til á ritaraborði og við dóm gæslu í leikjum og á mótum. Þetta eru einstaklingar sem eru sannar fyrirmyndir.

7.flokkur stúlkna

Þjálfari: Lidia Villar/ Elvar Guðjónsson Mestar framfarir: Sara Lilja Sveinsdóttir Besti varnarmaðurinn: Sigurlaug Eva Jónasdóttir Besti leikmaðurinn: Ásdís Freyja Georgsdóttir

7.flokkur drengja

Þjálfari: Ricardo Gonzalez/ Arnór Daði Jónsson

Mestar framfarir: Birgir Freyr Benediktsson Besti varnarmaðurinn: Ari Berg Ómarsson Besti leikmaðurinn: Birnir Ingi Ólafsson

8.flokkur stúlkna

Þjálfari: Lidia Mirchandani Villar/ Elvar Guðjónsson Mestar framfarir: Sigurbjörg Diljá Gunnarsdóttir Besti varnarmaðurinn: Ásdís Lilja F. Guðjónsdóttir Besti leikmaðurinn: Alma Rós Magnúsdóttir

8.flokkur drengja

Þjálfari: Ricardo González/ Arnór Daði Jónsson

Mestar framfarir: Ómar Helgi Kárason Besti varnarmaðurinn: Alexander Falkvard Grétarsson Besti leikmaðurinn: Bóas Orri Unnarsson

32 Jólablað 2022 7. flokkur drengja. 9. flokkur drengja. 8. flokkur drengja. 10. flokkur drengja. Stúlknaflokkur. Drengjaflokkur. Sannir Keflvíkingar. 8. flokkur stúlkna. 7. flokkur stúlkna. 10. flokkur stúlkna. 9. flokkur stúlkna. Lokahóf yngri flokka2022
Barna- og unglingaráð Körfuknattleiksdeildar:

Óskum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.

9.flokkur stúlkna

Þjálfari: Lidia Mirchandani Villar/ Elvar Guðjónsson

Mestar framfarir: Stella María Reynisdóttir Besti varnarmaðurinn: Kamilla Anísa Aref Besti leikmaðurinn: Hanna Gróa Halldórsdóttir

9.flokkur drengja

Þjálfari: Magnús Gunnarsson / Ricardo González

Mestar framfarir: Viktor Magni Sigurðsson Besti varnarmaðurinn: Einar Örvar Gíslason Besti leikmaðurinn: Daniel Eric Ottesen Clark

10.flokkur stúlkna

Þjálfari: Lidia Mirchandani Villar/ Elvar Guðjónsson

Mestar framfarir: Kristín Embla Magnúsdóttir Besti varnarmaðurinn: Fjóla Dís F. Guðjónsdóttir Besti leikmaðurinn: Erna Ósk Snorradóttir

10.flokkur

drengja

Þjálfari: Magnús Þór Gunnarsson / Ricardo Gonzàlez

Mestar framfarir: Björn Ólafur Valgeirsson Besti varnarmaðurinn: Bragi Pétursson

Besti leikmaðurinn: Jakob Máni Magnússon

Stúlknaflokkur

Þjálfari: Hörður Axel Vilhjálmsson

Mestar framfarir: Gígja Guðjónsdóttir Besti varnarmaðurinn:

Anna Þrúður Auðunsdóttir

Besti leikmaðurinn: Agnes María Svansdóttir

Drengjaflokkur

Þjálfari: Valur Orri Valsson

Mestar framfarir: Finnbogi Páll Benonýsson

Besti varnarmaðurinn: Grétar Snær Haraldsson

Besti leikmaðurinn: Frosti Sigurðarson

Unglingaflokkur karla

Þjálfari: Gunnar Stefánsson

Mestar framfarir: Stefán Júlían Sigurðsson

Besti varnarmaðurinn: Stefán Júlían Sigurðsson Besti leikmaðurinn: *Magnús Fallegastur Pétursson

Sannir Keflvíkingar

Bjarki Freyr Einarsson

Magnús Fallegastur Pétursson

Ásthildur Eva Olsen

Bergþóra Óladóttir

Birnir Ingi Ólafsson

Hrund Helgadóttir

Sóldís Lilja Þorkelsdóttir

Bjarni Ívar Ragnarsson

Ásdís Lilja F. Guðjónsdóttir

Aron Trausti Svansson

Stella María Reynisdóttir

Almar Örn Arnarson

Kristín Embla Magnúsdóttir

Erna Ósk Snorradóttir

Óskum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

TSA
ehf. Brekkustíg 38 • 260 Reykjanesbær • tsa.is
Njarðarbraut 11a - 260 Njarðvík Njarðarbraut 11a - 260 Njarðvík - Sími 421 1118
TJÓNASKOÐUN • RÉTTING • SPRAUTUN
Jólablað 2022 33
Unglingaflokkur karla.

Evrópumeistaramót í hópfimleikum

Lúxemborg 14.-17. september

Það er óhætt að segja að árið 2022 hafi verið ævintýra ár fyrir þá Heiðar Geir Hallsson og Leonard Ben Evertsson, fimleikastráka hjá Keflavík. Báðir búnir að æfa áhaldafimleika frá því þeir voru litlir strákar með góðum árangri. Þeirra ævintýrasaga hefst í janúar 2022 en með röð um atvika þá eru þeir ásamt tveimur öðrum farnir úr áhaldafimleikum yfir í hópfimleika hjá fimleika deild Keflavíkur.

Þeir fara af stað frekar feimnir og hafa litla trú á sér í dansinum, já þeir þurftu að læra hópdans með mörgum sporum, vera í takt, vera samtaka og brosa.

Með aðstoð stúlknanna sem voru í H1 hópfim leika hópnum gekk það bara nokkuð vel en þeir voru mættir á hópfimleikamót tæpum mánuði seinna. Þjálfari hópsins stillti upp blönduðu liði en það var í fyrsta skipti í langan tíma sem Fim leikadeild Keflavíkur skráði mix lið í keppni. Þessi hópur keppti á þremur mótum á fyrstu þremur mánuðum ársins.

Þjálfarinn skráir svo nokkra krakka á úrtaksæf ingu þann 2.apríl hjá Fimleikasambandinu fyrir EM í hópfimleikum. Heiðar og Leonard voru í þeim hópi. Þeir komast áfram í æfingahóp ásamt þremur öðrum krökkum úr Keflavík, sem æfði stíft frá 19.júní. Það var svo 27.júlí að keppn ishópurinn var tilkynntur og voru okkar menn þar. Æfði landsliðs hópurinn saman 4x í viku í Mosfellsbæ og Garðabæ þrjá tíma í senn fram að 10.september.

Það var svo loksins komið að ferðinni þann 12. september, mæting var í Smáran í Kópavogi um klukkan 03:30 og þá er nú gott að búa í Keflavík, því fengu okkar drengir að sofa lengur. Fimleika sambandið var að senda fimm lið á Evrópumótið að þessu sinni, karlalið, kvennalið, drengjalið, stúlknalið og blandað lið unglinga. Það var því stór og myndarlegur hópur að halda til Lúxem borgar. Mjög vel var haldið utan um íslensku liðin og á Fimleikasambandið hrós skilið fyrir það. Liðin voru öll saman á flottu hóteli.

Fyrsti dagurinn fór allur í ferðalag. Þegar kom ið var til Lúxemborgar var haldið í keppnishöll ina þar sem hópurinn fékk kvöldmat. Höllin var skoðuð og síðan var haldið á hótelið, komið sér fyrir og farið að sofa.

34 Jólablað 2022

Dagur tvö byrjaði snemma, okkar drengir voru mættir í keppnishöllina og tekin æfing. Restin af deginum var svo frjáls þar sem sumir nýttu til að skoða sig um eða skoða verslanir.

Dagur þrjú var stór dagur en þá voru undanúr slit hjá ungmennaliðunum. Drengjaliðið byrjaði og Ísland var fyrsta liðið á gólfið. Þetta var virki lega mikilvægt fyrir ungt lið Íslands, full höll af áhorfendum sem allir voru samtaka í að hvetja allar þjóðir. Dansinn gekk vel þó með minnihátt ar stress hnökrum. Næst var það trampólín sem gekk vel en eins og í dansinum þá mátti sjá stress. Þeir enduðu svo á dýnu, þar voru drengirnir búnir að hrista af sér mesta stressið og stóðu sig mjög vel. Samanlögð einkunn var 35.350 og vissu all ir að bara væri hægt að bæta þennan árangur í úrslitunum. Öll Íslensku ungmennaliðin komust áfram í úrslitin eftir viðburðaríkan dag.

Dagur þrjú var hvíldardagur hjá okkar drengj um, þeir fengu frjálsan fyrri part sem var nýttur til að rölta um nágrennið og skoða. Seinni part var svo mætt í höllina til að horfa á og hvetja karla og kvenna liðið í undanúrslitum sem einnig komust bæði áfram í úrslit.

Dagur fjögur var úrslitadagurinn. Liðið var vel stefnt og þeir voru ákveðnir í að bæta fyrri árangur og nú var bara að njóta. Líkt og í und anúrslitum byrjar Ísland á gólfi, enn fleiri áhorf endur voru mættir í höllina. Þegar liðið skokkar á sitt fyrsta áhald þá hljómar í höllinni “larí larí lei” lagið sem fékk áhorfendur til að taka undir og gæsahúð foreldra í stúkunni var mikil.

Dansinn gekk mun betur en í undanúrslitunum og hækkaði liðið um 2,750 í einkunn. Flottur ár angur þar og greinilegt að drengirnir voru komnir til að gera sitt besta og njóta.

Áhald tvö var trampólín og var þar eins að sjá bætingu eða um 2,400 stig.

Lokaáhaldið var svo dýna, þar mátti einnig sjá bætingu og líka bara afslöppun hjá liðinu, allir voru eitthvað svo léttir á því, fögnuðu hvor öðr um fengu áhorfendur með sér í lið og bara mikil gleði. Bætingu upp á 0,300 stig. Samanlögð stig í úrslitunum 40.800 eða bæting um 5,450 stig frá undanúrslitunum, mjög flottur árangur.

Þessir ungu strákar gengu stoltir út af gólf inu og máttu þeir sko vera það. Mikil reynsla og upplifun sem þeir náðu sér í, sem bara ýtir undir áframhaldandi hvatningu að halda áfram og bæta ofan á.

Hvað hefur þú æft fimleika lengi? 11 mánuði hópfimleika 7 ár áhaldafimleika

Af hverju ákvaðst þú að skipta yfir í hópfimleika? Því allir strákarnir allir skiptu yfir og stelpurnar í hópfimleikum þurftu hjálp.

Hvað stóð upp úr í ferðinni? Keppnissalurinn hann var flottur

Hvað er uppáhalds stökkið þitt? Araba flikk Full full (araba flikk, tvöfalt heljarstökk með tvöfaldri skrúfu)

Hvað eru þín markmið í fimleikum?

Fara á EM 2024 og þá í karla landsliðinu

Er eitthvað stökk sem þið langar að ná? Þrefalt heljarstökk með hálfri skrúfu á trampólíni og á dýnu er það araba flikk full full straight (tvöfalt heljarstökk með beinum líkama og tvöfaldri skrúfu)

Hvað hefur þú æft fimleika lengi? 11 mánuði hópfimleika 10 ár áhaldafimleika

Af hverju ákvaðst þú að skipta yfir í hópfimleika? Ég skipti yfir í hópfimleika því að ég vildi prófa

Hvað stóð upp úr í ferðinni? Það sem stóð upp úr ferðinni var að keppa.

Hvað er uppáhalds stökkið þitt? Tvöfalt heljarstökk með hálfum.

Hvað eru þín markmið í fimleikum? Markmiðin mín eru að vera góður í fimleikum

Er eitthvert stökk sem þig langar að ná? Mig langar að reyna full hálf (tvöfalt heljarstökk með einni og hálfri skrúfu)

Jólablað 2022 35
Heiðar Geir Hallsson Leonard Ben Evertsson
Fimleikar:

Skotdeild Keflavíkur telur hátt í 1.000 meðlimi

Skotdeild Keflavíkur telur hátt í 1.000 meðlimi. Það eru ríflega 700 manns sem borguðu fé lagsgjöldin í ár. Við höfum tamið okkur þann sið að henda út úr félagatalinu okkar fólki sem ekki borgar í 2 ár í röð, þar sem árferðið hefur ekki verið eðlilegt undanfarin þrjú ár. 2022 er að ljúka og var hefur verið rólegt ár heilt yfir. Það virðist vera að skotíþróttafólk sé enn að koma sér í gírinn eftir þann erfiða tíma sem heims faraldurinn var.

Í lok ágúst áttu sér skelfilegir atburðir stað á Blönduósi og hugsuðum við hlýlega til félaga okkar í Skotfélaginu Markviss á Blönduósi og allra þeirra sem áttu um sárt að binda vegna þessara atburða í kjölfar ið. Þegar svona gerist í okkar litla samfélagi vill það til að félög líkt og okkar eru dregin inn í umræðuna á einn eða annan hátt. Svo fyrir stuttu var talað um okkar deild í fjölmiðlum þar sem félagsmenn með svokölluð safnaraleyfi eru að skjóta úr vélbyssum á svæðinu okkar. Svo því sé alveg haldið til haga, þá er hvergi tekið fram að það megi skjóta úr þessum verkfærum á svæðinu okkar og enginn af stjórn Skot deildarinnar gefið leyfi til þess. Enda ekkert skylt með þessum verkfærum og íþróttum né veiði ef út í það er farið. Með stöðugu rýni og uppfærslum á öryggis og umgengisreglum á okkar svæðum er hægt að sporna við því og minnka hættuna á því að slys og ómenning ríki á okkar svæðum. Við viljum tryggja almannaheill og að allir félagsmenn geti komið að skjóta og notið sín án þess að líða illa og finnast þeir óöruggir.

Annað árið í röð varð Jóhannes Frank Jóhannesson í Skotdeild Keflavíkur Íslandsmeistari í Bench rest. Jói skoraði fullt hús stiga á 100m með 23x. Það er besta 100m skor sem skotið hefur verið á Íslandi fram að þessu. Á 200m skoraði hann 248 stig með 7x, saman lagt var skorið því 498stig og 30x. Jói er margfaldur Íslandsmeistari og hefur margoft keppt fyrir Íslands hönd á erlendri grundu.

Sigurgeir Máni keppti í loftskammbyssu á landsmóti STÍ í Kópavogi og hlaut 2. verðlaun í ung lingaflokki á skorinu 346 stig. Mjög flottur árangur í hans fyrsta móti.

Í maí var haldið landsmót í leirdúfuskotfimi (SKEET) á vellinum okkar á Hafnarheiðinni.

Okkur langar að þakka öllum fyrir sitt framlag í sjálfboðavinnu fyrir deildina og félagið sem var að hljóta endurnýjun á Fyrirmyndastimpli ÍSÍ á dögun um. Áfram Keflavík.

36 Jólablað 2022
Skotdeild Keflavíkur:

Allt að verða komið í eðlilegt horf

Allt að verða komið í eðlilegt horf og áhrif Covid-19 minnkað á blakdeildina. Frá síðasta tölublaði jólablaðsins var blakdeild Keflavíkur enn undir áhrifum Covid þar sem fjöldi smita var vaxandi í kringum há tíðarnar.

Í desember var Gunnar Trausti Ægisson aftur valinn í landsliðsverkefni og nú með U18 lands liðinu fyrir EM sem var haldið í Danmörku. Þetta er besti árangur sem leikmaður úr yngri flokka starfi blakdeildar Keflavíkur hefur náð. Í des ember útnefndi blakdeild Keflavíkur einnig Val dísi Guðmundsdóttur og Gunnar Trausta Ægis son blakkonu og blakkarl ársins 2021. Þau voru einnig valin blakkona og blakkarl Reykjanesbæjar 2021. Vegna smita í landinu voru athafnirnar hjá Ungmennafélagi Keflavíkur og Íþróttabanda lagi Reykjanesbæjar með breyttu sniði vegna samkomuhindrana.

Mörg smit voru í landinu og takmarkanir höfðu áhrif á æfingar í janúar ásamt því að 2. umferð Ís landsmóts í janúar var frestað. Ánægjulegt var að fá þær fréttir að það ætti að létta á takmörkunum í seinni hluta febrúar og 2. umferð Íslandsmóts gat því farið fram síðustu helgi febrúar. Þriðja og síðasta umferðin fór svo fram seinnipart mars mánaðar. Einungis eitt kvennalið kláraði síðustu umferðina en draga þurfti B-liðið úr leik og einnig karlana vegna Covid veikinda.

Blakdeild Keflavíkur ákvað að senda eitt kvennalið í Kjörís bikarinn. Vegna dræmrar þátt töku annarra liða voru þær sjálfkrafa komnar í 8 liða úrslit. Drógust þær á móti Álftanesi og átti Blakdeild Keflavíkur heimaleik. Leikurinn fór 0-3 fyrir Álftanes en stelpurnar okkar úr Keflavík komu reynslunni ríkari og ánægðar með 8. sæti í Kjörís bikarnum.

Þar sem búið var að draga úr fjöldatakmörkun um og allt komið í eðlilegt horf þá var Öldunga mótið í blaki loksins haldið sem bar að þessu sinni nafnið Stuðboltinn 2022. Þrjú ár voru liðin frá síðasta Öldungamóti sem einmitt var haldið í Reykjanesbæ. Mikil tilhlökkun var fyr ir þessu móti en eitt kvennalið mætti til leiks og einn karlkyns leikmaður sem keppti með vinaliði Keflavíkur. Metnaður var settur í búninga og að hafa gaman saman og spila blak. Það að þetta mót var haldið gaf sterk merki um að allt væri komið í eðlilegt horf aftur frá Covid áhrifum á lífið.

Fjórar konur úr kvennaliðinu skelltu sér á nokkur strandblaks mót í sumar. Þetta var allt al veg nýtt fyrir þær þó að þetta sé svipuð íþrótt þá er hún í senn allt öðruvísi. Þær tóku þátt í Stiga mótinu og í Kvennadeildinni en þær höfnuðu í 3. sæti í 4. deild í kvennadeildinni. Aldrei að vita hvort fleiri feti ekki í fótspor þeirra á næsta ári og lengja blak tímabilið yfir í allt árið í stað einungis yfir vetrartímann.

Haustið byrjaði aðeins seinna í ár hjá okkur en Blakdeild Keflavíkur var í leit á nýjum þjálfara eftir að hafa ákveðið ekki gera nýjan samning við Ingólf Dan Guðjónsson. Í lok ágúst kom það svo lokins á hreint að Einar Snorrason myndi taka við að þjálfa kvennaliðið og Guðrún Jóna Árnadóttir ásamt Valeriu Drumea myndu þjálfa yngri flokk ana. Einnig þjálfar Guðrún öldunga og áhuga hópinn. Þegar þjálfaramálin voru loksins komin á hreint fóru æfingarnar strax á fullt. Nokkuð stöðugur hópur er í kvennaflokknum af fyrri iðk endum. Á meðan þó nokkur breyting hefur orðið í yngri flokka starfinu, um 90% breyting á iðk endum og því mikið af byrjendum. Það er mjög

ánægjulegt því það sýnir okkur að fleiri og fleiri eru að uppgötva blakíþróttina hér í bæ. Þann 2. nóvember fór fram viðburðurinn skólablak í Reykjaneshöll sem Blaksambandið heldur í samstarfi við CEV, ÍSÍ, UMFÍ, BeActive og blakdeild Keflavíkur. Þetta mót er gríðalega mikilvægt fyrir okkur, það eru strax komnir nýj

ir krakkar að prófa og fjölmargar fyrirspurnir að berast um æfingarnar hjá okkur. Þrátt fyrir að í ár hafi heldur færri skólar tekið þátt, þá er blakdeild Keflavíkur mjög vongóð um að þátttakan verði meiri að ári.

Covid er ekki lengur að hafa áhrif á blak íþróttina og aðrar íþróttir sem er ánægjuefni. Hraðmótin eru farin aftur af stað og Íslandsmótin halda sínum dagsetningum. Þegar þessi grein er skrifuð eru um tvær vikur liðnar frá því að Íslands mót yngri flokka var haldið. Blakdeild Keflavíkur átti ekkert yngri flokka lið, að þessu sinni, á því móti en stefnir á sem flest mót á næsta ári með þann hóp. Einnig fór 1. umferð Íslandsmóts neðri deilda fram um síðustu helgi og blakdeildin á eitt kvennalið á því móti. Þann 3. nóvember síðast liðinn hlaut blakdeild Keflavíkur viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ í annað sinn á þeim níu árum sem deildin hefur verið starfandi. Það er ekki hægt annað en að hlakka til komandi blak tímabils og verður mikið um að vera hjá deildinni á komandi mánuðum og árum.

Fyrir hönd Blakdeildar Keflavíkur Guðrún Jóna Árnadóttir

Jólablað 2022 37 Blakdeild Keflavíkur:

Sunddeild Keflavíkur og Sunddeild Njarðvíkur starfa náið saman eins og undanfarin ár og synda undir merkjum Sundráðs ÍRB. Saman eigum við eitt fremsta sundlið landsins og eigum við stóran hóp af sundmönnum í landsliðsverkefnum bæði hjá unglingum og fullorðnum. Árið 2022 var afar gott ár fyrir sunddeildina og loksins var hægt að æfa óhindrað allt árið um kring og halda mót án takmarkana. Á árinu komu margir nýir og efnilegir sundmenn fram á sviðið og var stærsti hópur ÍRB frá upphafi valinn í Fram tíðarhóp SSÍ. Mikið var um landsliðsverkefni og æfingaferðir þar sem sundfólkið okkar spreytti sig á erlendri grundu. Slík verkefni eru afar mikilvæg fyrir efnilega sundfólkið okkar sem kemur heim reynslunni ríkari. Á ár inu sigraði ÍRB einnig Aldursflokkameistara mótið í sundi með miklum yfirburðum. Þetta er í þrettánda skiptið sem ÍRB vinnur AMÍ en félagið var stofnað árið 2001 þegar sunddeild ir Njarðvíkur og Keflavíkur hófu samstarf. Þessum flotta árangri getum við þakkað þeim sem koma að þjálfuninni, aðstandendum og íþróttaþjálfara. Sunddeildin byggir á öflugum grunni og samstilltri vinnu reyndra og öflugra þjálfara sem með reynslu sinni glæða sundiðk endur keppnisanda og byggja upp sjálfsörugga og sterka einstaklinga. Við hjá ÍRB erum afar stolt af okkar flotta þjálfarateymi og þökkum fyrir þá góðu samvinnu sem við höfum átt í gegnum árin.

Mörg verðlaun á Lyngby Open Í byrjun árs hélt sundfólk ÍRB í keppnisferð til Danmerkur. Þar kepptu þau á Lyngby Open og uppskeran var sjö gullverðlaun, fimm silfurverð laun og tvenn bronsverðlaun. Mjög sterkt að byrja keppnistímabilið í 50m lauginni með svo kröftugum hætti. Sérlega gott fyrir sundfólkið, bæði keppnislega og andlega að geta keppt á erlendri grundu, eftir frekar fátæklegt mótahald sl. tvö ár.

Eva Margrét Falsdóttir vann þrjú gull og eitt

silfur, Sunneva Bergmann Ásbjörnsdóttir vann tvö gull og eitt brons, Elísabet Jóhannesdóttir vann eitt silfur, Katla María Brynjarsdóttir vann eitt silfur, Guðmundur Leo Rafnsson vann eitt silfur, Aron Fannar Kristínarson vann eitt brons, Kári Snær Halldórsson vann eitt gull og Fannar Snævar Hauksson vann eitt gull og eitt brons.

Sjö gull á RIG 2022

Sundfólkið gerði það reglulega gott í lauginni á Reykjarvíkurleikunum. Liðið vann alls sjö gull í opnum flokki, fjölmörg verðlaun í unglingaflokki,

38 Jólablað 2022
sundár
Farsælt
2022
Kári Snær Halldórsson Flottur framtíðarhópur ÍRB ásamt Landsliðsþjálfara ÍRB sigurvegarar á AMÍ 2022 Haldið til Lyngby á Covidtímum

mörg góð sund og nokkur innanfélagsmet. Sterkir keppendur frá Danmörku mættu til leiks í ár og veittu okkar sundmönnum hvatningu til frekari afreka. Eva Margrét Falsdóttir vann 4 gull, en hún sigraði allar sínar greinar með miklum yfirburð um, 400m fjórsund, 200m fjórsund, 200m bringu sund og 100m bringusund.

Fannar Snævar Hauksson vann 2 gull en hann sigraði bæði 50m og 100m baksund með með miklum yfirburðum. Freydís Lilja Bergþórsdótt ir vann 1 gull í 200m flugsundi þegar hún vann greinina með talsverðum yfirburðum. Ástrós Lovisa Hauksdóttir fékk síðan verðlaun í lok móts fyrir að vera í öðru sæti yfir bestu afrek í ung lingaflokki.

Góð byrjun á keppnistímabilinu í 50m lauginni. Fjöldi gullverðlauna á mótinu. 1. Danmörk 8 gull 2. SH 7 gull 3. IRB 7 gull

Þrír sundmenn ÍRB í æfingabúðum á Tenerife með landsliði SSÍ.

Sundmennirnir Fannar Snævar Hauksson, Katla María Brynjarsdóttir og Sunneva Bergmann Ás björnsdóttir voru í æfingabúðum á Tenerife dag ana 2. -12. febrúar með landsliðshóp Sundsam bands Íslands. Ferðin var í alla staði vel heppnuð og gaf sundmönnunum tækifæri á að æfa og hvíl ast vel við flottar aðstæður. Það að geta brotið upp skammdegið, farið í sumar og sól, unnið með bestu sundmönnum landsins, eykur þekkingu og dugnað sundmanna okkar, gefur þeim einnig aukinn kraft og einbeitingu.

Eva Margrét Falsdóttir átti einnig að fara með í ferðina en hún varð fyrir þeim leiðindum að Covid þurfti að heimsækja hana að loknum Reykjavíkur leikunum, þannig að ekkert varð úr hennar ferð. Flott framtak hjá SSÍ sem styrkir sundstarf á Íslandi. 10 sundmenn valdir í Framtíðarhóp SSÍ 10 sundmenn úr Framtíðarhópi ÍRB voru valdir og tóku þátt í æfingabúðum Framtíðarhóps SSÍ dagana 26.-27. febrúar. Mikil dagskrá var þessa helgi, þrjár æfingar ásamt mælingum, fyrirlestr um, keila og foreldrafræðsla. Covid setti smá strik í þátttöku og einn sundmaður hjá okkur komst ekki vegna Covid.

Okkar fólk í þessum 10 manna hóp voru: Adriana Agnes Derti, Árni Þór Pálmason, Ástrós Lovísa Hauksdóttir, Daði Rafn Falsson, Denas Kazulis, Elísabet Arnoddsdóttir, Freydís Lilja Bergþórsdóttir, Gabija Marija Savickaite, Gísli Kristján Traustason, Nikolai Leo Jónsson.Reglu lega skemmtilegt og velheppnuð helgi hjá SSÍ.

Ásvallamótið

Okkar fólk var glimrandi flott á Ásvallamóti SH. Margar bætingar, góðir tímar, innanfélagsmet, lágmark EMU og önnur landsliðsverkefni. Árni Þór Pálmason náði lágmörkum inní landsliðsver kefni, Ástrós Lovísa Haukdóttir setti tvö innanfé lagsmet og var rétt hjá landsliðlágmarki og í 800m skriðsundi var Katla María Brynjarsdóttir um hálfa sek frá NÆM lágmarki og Eva Margrét Falsdóttir náði EMU lágmarki í sömu grein og bætti um leið tvö innanfélagsmet.

Sex titlar og afar góður árangur á Íslandsmótinu í 50 metra laug.

Sundmenn ÍRB færðu sex íslandsmeistaratitla heim til Reykjanesbæjar eftir Íslandsmótið í sundi í 50 m

laug. Þar var Eva Margrét Falsdóttir fremst í flokki en hún vann til fjögurra titla. Við erum afar stolt af okkar fólki eftir frábæra helgi Íslandsmeistarar ÍRB á ÍM 50 2022

Eva Margrét Falsdóttir: Varð Íslandsmeistari í 200m bringusundií, 400m fjórsundií, 100m bringusundi og 200m fjórsundi, einnig vann hún silfur í 100m flugsundi.

Alexander Logi Jónsson: Varð Íslandsmeistari í 200m flugsundi.

Fannar Snævar Hauksson: Varð íslandsmeistari í 100 baksund og einnig vann hann silfur í 100m flug sundi, 50m baksundi og 100m skriðsundi.

Aðrir verðlaunahafar: Katla María Brynjarsdóttir brons í 1500m skriðsundi, Guðmundur Leo Rafns

Jólablað 2022 39
Fannar Snævar Alexander Logi Sunneva Bergmann
ÍM 50

son silfur í 200m baksundi. Sunneva Bergmann Ás björnsdóttir: 400m fjórsund silfur, 800m skriðsund brons og NÆM lágmark.

Aron Fannar Kristínarson: 200m baksund brons, 200m fjórsund silfur, 400m fjórsund silfur.

Elísabet Arnoddsdóttir: 200m flugsund silfur.

Ástrós Lovísa Hauksdóttir: 100m baksund brons, 200m baksund silfur og lágmark í landsliðsverkefni Framtíðarhóps SSÍ.

Lágmörki í sumarverkefni SSÍ sem náðust um helgina.

Katla María Brynjarsdóttir: Lágmark á NÆM í 800m skriðsundi.

Sunneva Bergmann Ásbjörnsdóttir lágmark á NÆM í 400m skriðsundi.

Að loknu móti þá tilkynnti SSÍ landsliðshópa og þar eigum við tólf einstaklinga.

Sjö sundmenn í verkefni

Framtíðarhópslandsliði SSÍ:

Daði Rafn Falsson

Árni Þór Pálmason

Nikolai Leo Jónsson

Denas Kazulis

Elisabet Arnoddsdóttir

Freydís Lilja Berþórsdóttir

Ástrós Lovísa Hauksdóttir

Fimm sundmenn í verkefni

Unglingalandsliðshópi SSÍ:

Sunneva Bergmann Ásbjörnsdóttir

Katla María Brynjarsdóttir

Eva Margrét Falsdóttir

Fannar Snævar Hauksson Kári Snær Halldórsson

Sjö sundmenn úr ÍRB keppa á Taastrup Open í Danmörku

Dagana 19. – 22. maí 2022 kepptu sjö sundmenn úr ÍRB á Taastrup Open í Danmörku með 15 manna hóp Framtíðarhóps SSÍ. Með þeim í för og yfirþjálf ari í ferðinni var okkar maður úr ÍRB, Eðvarð Þór Eðvarðsson. Á mótinu náðist flottur árángur hjá unga fólkinu okkar sem náði að bæta sig talsvert og nokkrir unnu til verðlauna.

Elísabet Arnoddsdóttir vann eitt gull og tvö brons. Daði Rafn Falsson vann tvö brons. Ástrós Lovís Hauksdóttir vann eitt brons. Nikolai Leo Jónsson vann eitt brons. Denas Kazulis vann eitt brons.

Jafnframt voru þau Freydís Lilja Bergþórsdóttir og Árni Þór Pálmason ansi nálægt verðlaunasætum, en þau náðu náðu bæði 4. sæti í einu eða fleiri sundum.

Glasgow Open

Fimm sundmenn ÍRB kepptu á Glasgow Open síð ustu helgina í maí með landsliði SSÍ. Mótið var tals vert stórt og margir góðir sundmenn á mótinu og fer þessi helgi í reynslubankann hjá okkar fólki. Sund mennirnir kepptu í fimmtán sundum og komust í

úrslit í tólf. Við fengum bætingar í fimm af þessum sundum og hin voru oftast alveg við besta tíma. Fannar Snævar Hauksson átti mjög gott 50 m flugsund, bætti sinn fyrri tíma og endaði eingöngu 3/100 frá lágmarki á Evrópumeistaramót Unglinga.

Landsbankamót ÍRB 2022

Landsbankamót ÍRB fór fram dagana 13.-15. maí. Um 350 keppendur frá fjórtán félögum tóku þátt. Alls voru sett átta ný Landsbankamótsmet. Hinn vinsæli sjóræningjaleikur og Eurovision stemming voru til staðar eins og venjulega. Flott mót hjá okkur sem verður bara betra þegar aðstaðan fyrir áhorf endur batnar.

Akranesleikar

Sundmenn úr Háhyrningum, Sverðfiskum og Flug fiskum kepptu á Akranesleikunum 3.-5. júní. Það var mjög gaman hjá okkar fólki. Topp veður og glimr andi gleði. Hópurinn var til mikillar fyrirmyndar og skemmti sér vel saman á kvöldin að loknu móti. Mikið fyrirmyndarfólk.

Áheitasund fyrir æfingaferð

Sundfólkið okkar synti 12 tíma áheitasund dagana 3.- 4.júní. Tilgangur var að safna áheitum fyrir æf ingarferð til Spánar í júlí. Byrjað var að synda kl. 14:00 á föstudeginum og stoppað kl. 02:00 á laugar deginum. Það var því gríðarlegt stuð langt fram á nótt og hreint ótrúlegur kraftur í þessu unga fólki.

Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.

Sundráð vill þakka öllum þeim sem styrktu sund fólkið okkar.

Aldursflokkameistarar 2022

ÍRB náði þeim merkilega árangri að verða Aldurs flokkameistarar í sundi árið 2022. Keppnin var gríðarlega spennandi allan tímann og alltaf þegar sótt var að okkur svöruðu sundmenn með frábærri keppnishörku og að lokum var þetta yfirburðarsigur með frábærum lokahluta.

Þetta er búið að vera markmið okkar frá síðasta AMÍ og okkur tókst það. Að baki liggur ómæld vinna í lauginni og þreksalnum sem skilar þessum geggjaða árangri. Frábært lið. Áfram ÍRB!

Þetta er annað árið í röð sem liðið okkar ÍRB fær þetta sæmdarheiti og í 13. skipti alls síðan 2001 þegar sunddeildir Keflavíkur og Njarðvíkur sam einuðu krafta sína.

Til hamingju stjórn og foreldrar með frábæra framkvæmd á þessu stóra móti, afar vel heppnað og til fyrirmyndar.

En eins og kom fram á heimasíðu Sundsambands Íslands: Aldursflokkameistarar í sundi árið 2022 er Íþróttabandalag Reykjanesbæjar, þetta er annað árið í röð sem ÍRB fær þetta sæmdarheiti.

ÍRB hlaut 790 stig, í öðru sæti með 737 stig var Sundfélag Hafnarfjarðar og í þriðja sæti með 353 stig var Sunddeild Breiðabliks.

Mótið fór fram í Vatnaveröld í Reykjanesbæ og alls tóku um 200 keppendur þátt í mótinu frá 13 fé

Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.

40 Jólablað 2022
Flottur hópur á Glasgow open Flottur sundhópur að áheitasundi klukkan 2 um nótt

lögum víðs vegar um landið.

Að móti loknu eru veitt Aldursflokkaverðlaun einstaklinga, þau eru veitt þeim keppendum sem ná bestum samanlögðum árangri samkvæmt stigatöflu FINA í eftirfarandi aldursflokkum. Þar áttum við tvo af þeim fjórum sem valdir voru.

Stigahæsti strákur í flokki 12 -13 var Árni Þór Pálmason ÍRB en hann fékk samtals 1175 stig.

Stigahæsta stelpa í flokki 11-12 ára var einnig frá okkur en það var Adriana Agnes Derti en hún fékk samtals 1148 stig.

Æfingaferð til Calella á Spáni Afreks- og Framtíðarhópur byrjuðu tímabilið í lok júlí með geggjaðri tíu daga æfingaferð til Calella á Spáni. Ferðin heppnaðist mjög vel og alltaf ljúft að vera á þessum stað. Krakkarnir voru til fyrirmyndar í alla staði. Það var æft vel, farið á ströndina, kíkt í bæinn, farið í Vatnsleikjagarð og æfingaferðin endaði á því að kíkja á Barcelona borg, labba um Römbluna og versla smá. Einfaldlega frábær ferð. Sundkonur í landsliðsverkefnum Þrjá sundkonur frá ÍRB kepptu á stórmótum erlendis í sumar með landsliðum SSÍ

Eva Margrét Falsdóttir keppti á Evrópumeistara móti unglinga í Búkarest í Rúmeníu dagana 5.-10. júlí og þær Katla María Brynjarsdóttir og Sunneva Bergmann Ásbjörnsdóttir kepptu á Norðurlandamóti Æskunnar í Tallinn í Eistlandi dagana 9.-10. júlí.

Ein bæting var í þessum verkefnum en það var Katla María Brynjarsdóttir í 200m skriðsundi. Besta árangrinum náði svo Sunneva Bergmann Ásbjörns dóttir þegar hún hafnaði í fjórða sæti í 400m fjór sundi.

Góður árangur á Extramóti SH

Extramót SH fór fram um síðustu helgina október í Ásvallalaug. Sundfólk ÍRB tók þátt og má með sanni segja að árangur hópsins hafi verið góður. Mjög mikið bestu tímar og mörg verðlaun. Í heildina unnum við 68 verðlaun í þeim aldursflokkum sem keppt var í.

Alls, 23 gull, 26 silfur og 19 bronsverðlaun.

Jafnframt áttum við þrjá sundmenn sem voru í topp átta yfir stigahæstu sundmenn mótsins. Sunn eva Bergmann Ásbjörnsdóttir varð í fjórða sæti og Eva Margrét Falsdóttir varð í 6. sæti yfir stigahæstu konurnar og Fannar Snævar Hauksson varð síðan fimmti stigahæsti karlinn.

Sunneva Bergmann Ásbjörnsdóttir fékk einnig verðlaun fyrir mestu bætingu á milli móta í 800m skriðsundi.

Þrír sundmenn syntu undir NM lágmörkum.

Sunneva Bergmann Ásbjörnsdóttir náði A-lág marki í 800m skriðsundi og B- lágmarki í 400m skriðsundi.

Eva Margrét Falsdóttir náði B- lágmarki í 400m og 200m fjórsundi.

Fannar Snævar Hauksson náði B- lágmarki í 50m flugsundi.

Þrír sundmenn bættust inn í landsliðshópa SSÍ.

Katla María Brynjarsdóttir náði lágmörkum inn í unglingahóp SSÍ og Árni Þór Pálmason og Elísabet Arnoddsdóttir náðu inn í Framtíðarhóp SSÍ. Á þess um tímapunkti eigum við nú átta sundmenn í hin um ýmsu hópum SSÍ.

Speedo mót ÍRB

Speedo mót ÍRB fór fram fyrstu helgina í nóvem ber og heppnaðist frábærlega. Margir sundmenn að stíga sín fyrstu skref og aðrir að bæta tíma sína. Okkur langar að þakka öllum sem hjálpuðu til við framkvæmd mótsins.

Átta Íslandsmeistaratitlar of fjórir á NM í sundi Íslandsmeistaramótið í sundi í 25m laug fór fram

í Ásvallalaug um síðustu helgi. Sundfólkið okkar stóð sig gríðarlega vel á mótinu en liðið vann til átta Íslandsmeistaratitla og í heildina til 35 verðlauna. Fjórir sundmenn syntu sig inn í landsliðshópinn fyrir NM og kvennasveit ÍRB sló unglingametið í 4 x 50m fjórsunds boðsundi.

Sundfólkið var ekki bara að vinna marga titla heldur voru gæði sundanna mjög sterk á alþjóð legan mælikvarða.

Að loknu Íslandsmóti þá eigum við fjóra full trúa í landsliði SSÍ sem keppir á í desember á Norðurlandamótinu í Bergen. Það eru þau Eva Margrét Falsdóttir, Fannar Snævar Hauksson, Guðmundur Leo Rafnsson og Sunneva Bergmann Ásbjörnsdóttir.

Til marks um mikil gæði þá féllu alls fjörutíu og fjögur innanfélagsmet, en það elsta var frá 2001.

Þeir sem urðu Íslandsmeistarar á ÍM 25 2022.

Eva Margrét Falsdóttir varð Íslandsmeistari í fimm greinum, 100m fjórsundi, 200m bringu sundi, 400mfjórsundi, 100m bringusundi og 200m fjórsundi.

Fannar Snævar Haukson varð Íslandsmeist ari í tveimur greinum, 50m baksundi og 100m baksundi.

Guðmundur Leo Rafnsson varð Íslandsmeist ari í 200m baksundi.

Þeir sem urðu unglingameistarar á ÍM 25 2022.

Eva Margrét Falsdóttir varð unglingameistari í sjö greinum, 100m fjórsundi, 200m bringusundi, 400mfjórsundi, 100m bringusundi, 100m flugs undi 50m bringusundi og 200m fjórsundi.

Fannar Snævar Haukson varð unglingameist ari í fimm greinum 100m flugsundi, 50m skrið sundi, 50m baksundi, 100m skriðsundi og 100m baksundi.

Guðmundur Leo Rafnsson varð unglinga meistari í 200m baksundi.

Elísabet Arnoddsdóttir varð unglingameistari í 200m flugsundi.

Alexander Logi Jónsson varð unglingameistari í 200m flugsundi.

Met í boðsundum

Kvennasveitin setti unglingamet í 4 x 50m fjór sundi og bætti um leið bæði innanfélagsmet ung linga og fullorðinna. Í 4 x 100m fjórsundi bætti sama sveit innanfélagsmet unglinga.

Sveitina skipuðu: Ástrós Lovísa Hauksdóttir, Eva Margrét Falsdóttir, Elísabet Arnoddsdóttir og Sunneva Bergmann Ásbjörnsdóttir.

Karlasveitin bætti innanfélagsmet karla í 4 x 50m fjórsundi en gamli tíminn var gildandi ís landmet um tíma.

Sveitina skipuðu: Fannar Snævar Hauksson, Kári Snær Halldórsson, Guðmundur Leo Rafns son og Stefán Elías Berman.

Drengsveitin keppti í 4 x 50m fjórsundi, 4 x 200m skriðsundi, 4 x 100m skriðsundi og 4 x 100m fjórsundi og bætti innanfélagsmetin all verulega í þeim öllum.

Sveitina skipuðu: Árni Þór Pálmason, Nikolai Leo Jónsson, Daði Rafn Falsson og Denas Kazulis.

Yfirdómari: Deildin eignaðist nýjan yfirdómara á ÍM 25 sem við gleðjumst mikið yfir. Þá kláraði Bergþór Hólmarsson þann áfanga í náminu og telst því fullgildur yfirdómari

Það er mikil vinna að halda úti þessu öfluga starfi. Bæði hvað varðar rekstur á félaginu, vinnu á sundmótum og aðrar uppákomur sem félagið stendur fyrir. Vert er að þakka því góða fólki sem í mörg ár hefur unnið ötult starf fyrir félagið og stendur sína plikt með sóma. Við viljum þakka þeim ásamt starfsfólki Vatnaveraldar og okk ar helstu styrktaraðilum, Landsbankanum, HS Orku, HS Veitum, Reykjanesbæ, Nettó, Speedo og Sigurjóni í Sigurjónsbakaríi fyrir veittan stuðn ing. Það eru forréttindi að fá að taka þátt í þessu öfluga og kraftmikla starfi sem sunddeildin er.

Framtíðin er Björt.

Formaður Sunddeildar Keflavíkur Hanna Björg Konráðsdóttir

Árni Þór stigahæsti strákur flokki 12 – 13 ára og Adríana Agnes stigahæst stúlkna í flokki 11 – 12 ára

Jólablað 2022 41
Drengjasveit ÍRB með nýtt innanfélagsmet

Nýtt ár og miklar væntingar

Alltaf verða menn að fagna nýju ári og leggja allt sitt traust á að flestar hremm ingar séu að baki en ekki er það sjálfgefið að fá allar sínar óskir upp fylltar svona í hvert sinn sem maður óskar þess. En maður má alltaf vona. Árið 2022 byrjaði eins og 2021 lauk, að ekki tókst okkur þrátt fyrir heljarmiklar sprengingar um áramót að sprengja Covid drauginn í loft upp. Hann hangir enn á öllum þeim

stöðum þar sem fólk kemur saman og svei. Við hjá badmintondeildinni eins og aðrar stjórnir , full af bjart sýni um að við gætum farið á fullt skrið (óskhyggja) með æfingar. Ekki var liðið langt á árið þegar nánast öll stjórn deildarinnar lagðist í rúmið vegna tapaðrar glímu við áður nefnd an draug. En það bara tafði en kom ekki í veg fyrir að við næðum að ljúka æfingum fyrir vorið þó að hópur inn væri heldur þynnri en venjulega.

Stokkið inn í vorið og sumarið og kröftum safnað fyrir haustið.

Haustið kom og æfingar hófust í september að venju og viti menn heldur hafði fjölgað í hópnum hjá okkur. En taka skal fram að aldurinn á hópnum færðist svolítið upp á við, en það er ekki um neitt að kvarta í þeim efnum. Badminton er jú íþrótt sem hentar öllum aldurshópum og hingað eru allir velkomnir.

Okkur hefur gengið einstaklega

vel þetta haustið að vera með mjög góða nýtingu á þeim völlum sem við höfum yfir að ráða . Við erum þakk lát fyrir þann stuðning sem við fáum frá stjórn , framkvæmdastjóra og starfsmönnum þar á bæ sem og auð vitað Reykjanesbæ með sinn stuðning með að hafa okkur í Heiðarskóla.

Það er ekki sjálfgefið að litlum deildum sé gefin kostur á að halda uppi starfsemi sem kannski væru óarðbærar ef horft er í krónur og aura.

Við hjá badmintondeildinni erum þess fullviss að á einhverjum tíma punkti muni þessi íþrótt ná vinsæld um eins og þeim sem hún nýtur til að mynda í Danmörku. Að þessi Bad mintondeild verði aftur fjölmenn eins og hún var á árum áður. Með þá trú í farteskinu höldum við ótrauð áfram að starfa og horfa fram á veginn.

Við ítrekum svo þakkir til Starfs manna og stjórnar Keflavíkur íþrótta og Ungmennafélags fyrir þann stuðn ing og velvild sem okkur er sýnd.

Sendum við svo öllum bæjarbúum í Reykjanesbæ bestu óskir um Gleðileg jól og gæfu á nýju ári.

Með bestu kveðju Íslandi allt Dagbjört Ýr Gylfadóttir Gjaldkeri Badmintondeildar Keflavíkur

42 Jólablað 2022 Badmintondeild:
hsveitur.is

Skemmtun fyrir alla fjölskylduna

OPIÐ: 6:45 - 20:00 virka daga, 8:00 - 18:00 um helgar frítt fyrir börn

Opnunartími: Mánud. - föstud. 6.30 - 21.30 Laugard. og sunnud. 9.00 -18.00 Sími: 420 1500

fjölskyldusundlaug

Jólablað 2022 43
BÍLAKJARNINN G leðileg jól og farsælt komandi ár Þökkum ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða G leðileg jól og farsælt komandi ár Þökkum ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða

Gjafakort Landsbankans

Með gjafakortinu er ekkert mál að velja réttu jólagjöfina. Þú ákveður upphæðina og sá sem þiggur velur gjöfina. Þú færð gjafakort í næsta útibúi eða á landsbankinn.is.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.