Jólin 2025
Jólablað Keflavíkur – íþrótta- og ungmennafélags
2
© Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag 2025 Umsjón með útgáfu: Jóhann Páll Kristbjörnsson Forsíðumynd: Fótbolti.net Myndir: Keflavík/JPK, Tryggvi Rúnarsson og úr safni viðmælenda.
GLEÐILEGA HÁTÍÐ Við óskum starfsfólki okkar, viðskiptavinum, samstarfsaðilum og landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári.
Jólapistill formanns 2025
Keflavíkurfjölskyldan er stór og sterk
4
Jólablað Keflavíkur 2025
Tölvuþjónusta á Suðurnesjum
Fyrirtækjaþjónusta og ráðgjöf Verslun með farsíma og fylgihluti, tölvubúnað, rekstrarvörur og raftæki
422-2200
www.byxa.is
Hafnargata 40
hallo@byxa.is
„Traustur leiðtogi, hlýr félagi og orðstír hans afar góður“ Einar Haraldsson sæmdur æðstu heiðursviðurkenningu UMFÍ Á sambandsþingi UMFÍ sem var haldið í Stykkishólmi í haust var fyrrum formaður og framkvæmdarstjóri Keflavíkur sæmdur heiðursfélagakrossi UMFÍ fyrir áralangt og ómetanlegt starf fyrir íþróttahreyfinguna en það er æðsta viðurkenning Ungmennafélags Íslands.
6
Jólablað Keflavíkur 2025
Aukakrónur koma sér vel um jólin Landsbankinn.is
Við getum kennt ýmisleg fleira í
gegnum fótboltann heldur en fótbolta
Sólrún Sigvaldadóttir er yfirþjálfari hjá Keflavík og RKVN og þjálfar auk þess tvo flokka, fimmta flokk RKVN og sjötta flokk Keflavíkur. „Ég kom hingað til Keflavíkur fyrir sléttum sex árum síðan frá Víkingi. Ég var að þjálfa hjá Víkingi í tíu ár áður en ég kom hingað. Flutti svo hingað og færði mig til Keflavíkur. Varð svo yfirþjálfari fyrir fjórum árum síðan og starfið mitt snýst að mestu leyti bara um að skipuleggja allt starfið í deildinni, halda svolítið utan um starfið, skipuleggja æfingatöflu, leiki, allt svoleiðis, styðja við þjálfarana okkar, aðstoða þá eftir bestu getu við að sinna sínu starfi og svo auðvitað líka bara þjálfa og slíkt.“ – Hvernig er staðan á yngri flokka starfinu í Keflavík? „Yngri flokkarnir hjá okkur hafa bara vaxið mjög mikið síðustu ár og það er fjölgun í yngri flokkunum – og
8
það hefur kannski orðið mesta fjölgun kvennamegin eftir að ég kom. Þar má kannski nefna okkar góða samstarf sem hefur verið í gangi núna í mjög mörg ár, fyrst RKV [Reynir, Keflavík, Víðir] og svo núna síðustu tvö árin RKVN [Reynir, Keflavík, Víðir, Njarðvík] og það hefur blómstrað bara gríðarlega vel, þetta samstarf,“ segir Sólrún og bætir við að fjöldinn af stelpum á svæðinu sem eru að æfa hefur aukist mikið og er nú á pari við það sem þekkist hjá fjölmennustu félögum landsins. Fjörugt samstarf „RKVN-samstarfið hefur gengið bara frábærlega eftir að við byrjuðum með það og það sýnir sig bæði í því að við
Jólablað Keflavíkur 2025
erum á pari við fjölmennustu félög landsins í fjölda, sem er frábært og við leggjum mikla áherslu á það að hafa margar stelpur hjá okkur. Árangurinn hefur heldur ekki látið á sér standa. Við vorum að spila úrslitaleik í Íslandsmótinu í fimmta flokki kvenna, við vorum að spila úrslitaleik í bikarkeppninni í fjórða flokki kvenna. Við erum að spila í A-riðlum í þessum flokkum þannig að við erum að keppa við bestu lið landsins, sem er frábært.“ Sólrún er annar tveggja yfirþjálfara hjá Keflavík en Freyr Sverrisson gegnir stöðu yfirþjálfara með henni. „Við erum í rauninni ekki karla- og kvennamegin heldur skiptum með okkur verkum, höfum ákveðin hlutverk innan félagsins sem að við sinnum – og við bara hjálpumst að eftir bestu getu og allt svoleiðis. Þannig að við erum bæði að sinna báðum hliðum, karla og kvenna. Svo er ég líka til viðbótar í rauninni yfir RKVN-samstarfinu, sem er þetta fjörugasta samstarf – og ég er í rauninni ein yfir því en samt sem áður í samstarfi við yfirþjálfara hjá Njarðvík og í góðu sambandi við starfsmenn og þjálfara hjá Reyni og Víði líka.“ Stór hluti af starfi Sólrúnar er að sinna mótahaldi og hún er nýbúin að skipuleggja einstaklega skemmtilegt mót sem að heitir Ljósaboltamótið. „Það er mót þar sem er sem sagt fyrst spilaður venjulegur fótbolti og svo er
spilaður svona ljósafótbolti. Þá eru ljós á mörkunum þannig að þau sjáist. Það eru sem sagt slökkt ljós í salnum og ljós á boltanum. Allir leikmenn fá svona ljósaarmband og svo er spilað í myrkri. Liðin þekkjast af því að leikmenn eru með eins lituð ljósarmbönd. Þannig að þetta er svona svolítið óhefðbundið mót, svolítið skemmtilegt fyrir yngstu krakkana, sem sagt sjötta, sjöunda flokk karla og kvenna. Og, mér finnst það mjög skemmtilegt mót. Þetta er auðvitað stór fjáröflun fyrir félagið og mér finnst bara skemmtilegt að gera eitthvað svona aðeins öðruvísi, óhefðbundið mót. Það er fullt, fullt af mótum í boði. Og við erum að reyna að gera eitthvað aðeins öðruvísi, eitthvað aðeins skemmtilegra.“ Sólrún segir að henni finnist það stundum gleymast hjá þessum yngstu í fótbolta, að leggja áherslu á skemmtunina. „Við erum svolítið mikið að keppa – keppa, keppa og vinna, vinna – en áherslan á auðvitað meira að vera það að hafa gaman og elska fótbolta og mæta af því að manni finnst það
Ljósaboltamótið fer fram í myrkri en boltarnir eru upplýstir og leikmenn með lýsandi armbönd til að þekkjast í sundur. Hér ræðast tveir dómarar við á milli leikja. svo ógeðslega skemmtilegt. Og þetta er svona svolítið þannig mót, að mæta
til þess að hafa gaman og og hlaupa og berjast og djöflast í myrkrinu.“
Jólablað Keflavíkur 2025
9
Brennur fyrir fótboltanum Starf Sólrúnar er viðamikið og tekur sinn tíma frá hefðbundnu fjölskyldulífi. „Maður væri náttúrulega ekki í þessu starfi nema af því að manni finnst þetta ótrúlega skemmtilegt og maður bara gjörsamlega brennur fyrir þessu. Að sjá börn og unglinga einhvern veginn kvikna af ástríðunni fyrir fótboltanum og ég legg mikið í það. Við getum kennt ýmisleg fleira í gegnum fótboltann heldur en fótbolta. Við getum kennt aga, við getum kennt sjálfstraust, við getum kennt samheldni, samvinnu, liðsheild. Það er svo margt sem við getum gert í fótboltanum sem að er ekki bara fótbolti. Þannig að ég legg mikla áherslu á að gera það líka vel.“
10
Jólablað Keflavíkur 2025
Allt viðtalið við Sólrúnu má sjá í spilaranum
Smelltu hér til að horfa
Gleðilega hátíð Sendum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól & farsæld á nýju ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Jólablað Keflavíkur 2025
11
Atli Þorsteinsson, formaður taekwondodeildar Keflavíkur, er ánægður með árangur og þróun deildarinnar en taekwondo-deildin fagnaði 25 ára afmæli í ár.
Eignuðust fjölda af nýjum Íslandsmeisturum „Þetta var gríðarlega stórt og skemmtilegt ár hjá taekwondodeildinni núna sem er að líða. Deildin var náttúrulega 25 ára og við héldum áfram þessari sigurgöngu sem við höfum verið á undanfarin fimm eða sex ár, það er að segja við verðum Íslandsmeistarar og bikarmeistarar í bardaga og eignumst fjöldann af nýjum Íslandsmeisturum. Eins unnum við núna til gullverðlauna á tveimur, þremur alþjóðlegum mótum. Þannig að þetta var rosalega gott ár hjá taekwondo-deildinni.“
Líður vel í Bardagahöllinni „Deildin var stofnuð um 2000 af Sigursteini Snorrasyni og hún sem sagt hefur verið að flakka á milli húsnæða núna í ansi langan tíma. Við erum búin að vera hér í Bardagahöllinni ásamt boxinu og júdóinu síðan 2020, erum að klára fimmta árið okkar hér og hér líður okkar gríðarlega vel. Þetta hefur kannski verið akkilesarhæll deildarinnar að við höfum aldrei verið með neitt svona fast húsnæði – en hérna erum við alveg gríðarlega ánægð og okkur líður vel hérna. Það sem
Smelltu hér til að horfa 12
Jólablað Keflavíkur 2025
kannski háir deildinni er að við eigum náttúrulega ekkert keppnishúsnæði þannig að við erum svolítið á flakki þegar við erum að halda á móti. Það er nú ekkert sem er ekki hægt að redda. Deildin vex hægt og örugglega. Ég held að við höfum sett okkur markmið að það séu svona um það bil 5 til 10% aukning á ári, það er að ganga eftir. Við erum sérstaklega stolt af því hvað margir iðkendur okkar eru með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn. Það er að segja eru að
koma alls staðar að, þannig að það er töluvert mikið af tungumálum sem er talað hérna á æfingum. Þannig að við erum gríðarlega stolt af því að hérna greinilega líður öllum vel. Við höfum haft það að leiðarljósi að vera með æfingagjöldin eins lág og mögulegt er. Þannig að allir hafi tækifæri til þess að mæta. Það sem hins vegar háir okkur er að keppnisliðið okkar. sem er að fara erlendis að
keppa, það er að borga rosalega mikið úr eigin vasa. Þannig að næstu stóru verkefni hjá okkur verður að finna styrktaraðila fyrir keppni. Við förum með keppnishópinn þrisvar til fjórum sinnum erlendis á ári, þannig að þetta safnast fljótt upp þegar þessar ferðir eru. Reykjanesbær styrkir hvern iðkenda um 40.000 krónur þegar um landsliðsverkefni er að ræða, sem er frábær viðbót. Þetta
dugar fyrir yfirleitt keppnisgjöldunum en flugfar og gistingar eru allt sem okkar iðkendur eru að borga sjálfir. Það er okkar draumur að geta búið til umhverfi þannig að iðkendur þurfa ekki alltaf að borga allt sjálfir. Það verður verkefni næstu stjórnar að finna styrktaraðila fyrir deildina. Finna einhvers konar samstarf.“
Á afmælisárinu eignaðist taekwondodeild Keflavíkur fullkominn keppnisbúnað sem telur stig keppenda með rafrænum hætti. Þetta er mikil bragarbót fyrir iðkendur sem geta nú æft sig með samskonar búnaði og er notaður í mótum. Samstarfið lyftistöng fyrir deildin Taekwondo-deildin hefur séð um að selja iðkendum æfinga- og keppnisbúnað og því hefur fylgt talsvert álag auk vandamála í sambandi við að þurfa að eiga vörur á lager. Nú hefur deildin hins vegar gert samstarfssamning við fyrirtækið Tusah Ísland og fengið það til að sjá um þennan þátt. „Okkur er sönn ánægja að segja frá því að við gerðum samstarfssamning núna við Tusah Ísland, sem flytur inn bardagabúnað og -galla. Þannig að okkar iðkendur geta keypt af þeim á sambærilegu verði og við vorum að bjóða upp á. Tusah Ísland mun síðan sjá deildinni í raun og veru fyrir öllum æfingabúnaði sem þarf. Það var gríðarleg lyftistöng fyrir bardagaíþróttir að gera þennan samstarfssamning – og helst myndum við vilja gera fleiri samsstarfssamninga við önnur fyrirtæki á svæðinu.“
Jólablað Keflavíkur 2025
13
Taekwondo-deild Keflavíkur 25 ára afmælissýning
14
Jólablað Keflavíkur 2025
Ljósmyndir: Tryggvi Rúnarsson
Jólablað Keflavíkur 2025
15
Hefur eitt stórt markmið og önnur minni
Sundgarpurinn Daði Rafn Falsson stefnir langt í sundíþróttinni Klukkan er að verða sex að morgni þegar Daði Rafn Falsson og fleiri sundkappar mæta á fyrri sundæfingu dagsins í sundmiðstöðinni Vatnaveröld. Það þarf mikinn sjálfsaga til að ná langt í sundíþróttinni og Daði Rafn er tilbúinn að færa fórnir til að ná markmiðum sínum.
Við fylgdumst með Daða Rafni á æfingu og spjölluðum saman að henni lokinni. Við byrjuðum á að bjóða góðan daginn og sundgarpurinn svaraði í sömu mynt með bros á vör. – Klukkan er rétt að ganga átta og þú búinn með eina æfingu. Hvenær byrjarðu eiginlega á morgnana? „Núna í þessari megaviku, eins og við köllum það, þá byrjum við klukkan sex alla daga og tökum tvær æfingar á dag.“ – En er þetta svona allt árið? Eruð þið að mæta eldsnemma á morgnana? „Sko, við erum vanalega á þremur morgunæfingum á viku. Núna er smá undantekning af því að við erum að fara að taka jólafrí – erum að vinna upp fyrir fríið.“ – En hvernig hvernig er árið búið að vera hjá þér, ísundinu þá? „Það er bara búið að vera fínt, mjög krefjandi en mjög gaman,“ segir Daði en hann náði ágætis árangri í mótum á árinu. – Hvað finnst þér standa upp úr á árinu? „Ég varð unglingameistari á Íslandsmeistaramótinu en svo náði ég líka á Norðurlandamótið í fyrsta skipti, sem að
16
Jólablað Keflavíkur 2025
var mjög gaman því að það er búið að vera langtímamarkmið.“ Þó Daði sé búinn að ná þessu langtímamarkmiði þá er hann hvergi hættur og stefnir lengra í sundinu enda einungis sautján ára gamall. „Þetta er rétt að byrja.“ – Hvernig er svo dagurinn hjá svona afreksmanni í sundi eins og þér? „Svona venjulegur dagur með skóla er bara; vaknað og farið á æfingu. Svo
er farið í skólann, borðað, farið á aðra æfingu og að sofa. Ekkert mikið meira.“ Miðað við hversu dagskráin er stíf þá hefur Daði Rafn ekki mikinn tíma fyrir félagslíf og hann tekur undir það en segir að það sé góðan félagsskap að hafa í sundinu. „Svo er maður fólki sem hefur sama áhugamál og þú og það er geggjað.“
Markmiðið fyrir framtíðina „Ég er að stefna á EM, Evrópumeistaramót unglinga, á næsta sumri og Ólympíuleikarnir eru náttúrulega það sem mann langar að fara á – en svo þarf maður að vera raunsær og stefna styttra fram í tímann. Ég er með eitt stórt markmið og svo lítil, svona minni markmið sem að ég er að tékka af listanum á meðan.“
Jólablað Keflavíkur 2025
17
Smelltu hér til að horfa
Gleðilega hátíð Þökkum viðskiptin á liðnu ári Jóna Birna, Linda, Sigrún og Eva
18
Jólablað Keflavíkur 2025
– Og hvernig sérðu næsta ár fyrir þér? „Sko, ég get bara séð það vel fyrir mér. Á Íslandsmeistaramótinu ætla ég að reyna að ná á Evrópumeistaramótið – og svo veit ég ekki alveg hvað ég er að fara að gera.“ – Þú ert líka í landsliðinu, þannig að það eru væntanlega þá einhver verkefni framundan í þeim hópum. „Já, ég er að fara til að keppa á Írlandi í febrúar með landsliðinu.“ – Og hvernig fer ungur skólakrakki okkar að því að að fjármagna þessar ferðir? „Það eru bara mamma og pabbi. Svo að styrkja landsliðið eitthvað smá.“ – Eru þetta margar utanlandsferðir sem þú ert að fara á ári? „Þær eru alveg nokkrar. Ég gæti farið í hvað, fimm á ári, en það fer bara eftir hvað ég næ inn á. Hversu hraður ég verð.“ – Sem sundmaður, hver er sterkasta grein þín? „Það er 400 metra fjórsund.“ – Þannig að þú ert jafnvígur á öllum vígstöðvum. „Já, þú mættir segja þetta. Ég hef flugsund sem varaaðalgrein.“ – Hvað finnst þér skemmtilegast? „Flugsundið, maður flýgur bara það í gegn,“ sagði Daði Rafn en allt viðtalið við hann má sjá í spilaranum hér að ofan og á keflavik.is.
Jólablað Keflavíkur 2025
19
Fimleikastjörnur Fimleikadeild Keflavíkur sló botninn í fertugasta ár deildarinnar með magnaðri jólasýningu þar sem iðkendur á öllum aldri sýndu listir sínar. Fimleikadeild Keflavíkur fagnaði 40 ára afmæli á árinu sem er að líða. Deildin hefur sjaldan eða aldrei verið jafn fjölmenn og nú og sést vel að fimleikar eru sívinsæl íþróttagrein. Hér á opnunni má sjá brot af glæsilegum tilþrifum sem sáust á jólasýningu deildarinnar þar sem allir skemmtu sér konunglega, iðkendur jafnt sem áhorfendur. Fleiri tilþrif má sjá með því að smella á tengilinn hér á opnunni.
20
Jólablað Keflavíkur 2025
framtíðarinnar
Jólablað Keflavíkur 2025
21
Skoruðum hæst af notendum Abler á síðasta ári Hjördís Baldursdóttir hefur starfað sem íþróttastjóri Keflavíkur frá árinu 2020, í rúm fimm og hálft ár. Starf íþróttastjóra var fyrsta launaða stöðugildið á skrifstofu félagsins fyrir utan stöðu framkvæmdastjóra félagsins. „Ég hef nú samt verið viðloðandi Keflavík síðan árið 2004, meira og minna, sem sjálfboðaliði og í stjórn knattspyrnudeildar. Þannig að ég þekki félagið bara mjög vel. Já, ég er íþróttastjóri Keflavíkur og er búin að starfa síðan árið 2020, í rúm fimm og hálft ár og að verða sjötta ár síðan ég byrjaði. Þetta var eiginlega fyrsta staðan á skrifstofunni, fyrir utan framkvæmdastjóra félagsins, sem var ráðið hérna inn í og nú er sem sagt kominn líka fjármálastjóri hérna á skrifstofuna, sem er bara klár viðbót og hefur bara hjálpað félaginu mikið og lyft því upp. Þannig að það er lykilatriði að það sé gott starfsfólk á skrifstofum með utanumhald yfir reksturinn til að aðstoða deildir. Ég sé alfarið um Abler fyrir deildir félagsins, sem er skráningar- og greiðslukerfi æfingagjalda. Það er mikið utanumhald í því fyrir allar deildir og það gengur bara vel. Þess má geta að við skoruðum hæst af notendum Abler á síðasta ári í innheimtu. Það skilar sér mjög vel inn til okkar. Þannig að við erum
22
að nota þetta kerfi mjög vel og þetta er algjört lykilatriði í skipulagi á öllu íþróttastarfi, að vera með gott utanumhald og gott kerfi fyrir þetta.“ – Hefur kerfið sem sagt bætt innheimtu? „Já, ég myndi segja að Abler-kerfið hafi bætt innheimtu frá því sem áður var. Þegar ég byrjaði var verið að notast við gamalt kerfi hérna sem var kallað Nóri og var ekkert mjög skilvirkt. Þannig að þetta er bara að lyfta öllu á hærra plan hérna eftir að við tókum inn Abler, sem er náttúrulega notað hjá flestum íþróttafélögum landsins, myndi ég halda.“ Hjördís segir að notkun Abler hafi bætt allt utanumhald og auðveldað samskipti foreldra og þjálfara sem geta spjallað við sína flokka og sína iðkendur. Þar að auki er allt leikjautanumhald þarna inni í öllum deildum, leikir og mót og þess háttar. – Þú heldur utan um Keflavíkurbúðina líka. „Heyrðu, já. Vð í Keflavík erum líka með litla vefverslun sem við köllum
Jólablað Keflavíkur 2025
Smelltu hér til að horfa Keflavíkurbúðina og hún er undir keflavikurbudin.is. Þar erum við með ýmsar vörur til sölu. Okkur langar alltaf eitthvað að reyna að bæta aðeins í það vöruúrval þar líka en það er bara þó nokkur sala inni á þessari vefverslun. Það er frábært að geta selt vörur á svona léttan og auðveldan hátt, að nýta svona vefverslun. Þannig að þetta er eitthvað sem okkur langar að þróa áfram. Fólk hefur tekið vel í þessa vefverslun.“
KEFLAVÍKURBÚÐIN AL LT FYR I R KE F LV ÍKI NGINN
KEFLAVIKURBUDIN.IS
„Hún er bara mjög skemmtileg, Keflavíkurfjölskyldan“
Guðmundur Steinarsson, einn ástsælasti knattspyrnumaður Keflavíkur, var heiðraður á árinu með gullmerki knattspyrnudeildarinnar fyrir framlag hans til deildarinnar og félagsins alls. Gummi er marka- og leikjahæsti leikmaður Keflavíkur í efstu deild karla. Gummi elst upp við fótboltann. „Maður var alltaf í fótbolta, elti pabba mikið. Hann var að þjálfa, bæði yngri flokka og svo einhvern meistaraflokkinn til skamms tíma, og ég held ég hafi nánast farið með honum á allar æfingar. Maður var aðallega að sækja bolta og svo fékk maður stundum að taka eitt og eitt skot. Svo var maður náttúrulega mikið að leika sér í fótbolta þess á milli.“ Gummi æfði með Keflavík alla yngri flokkana og upp í meistaraflokk. Er eitthvað minnisstætt frá þessum tíma? „Já, við vorum alveg hérna þokkalegur árgangur þegar við vorum yngri og náðum að gera nokkuð skemmtileg
Vinir við veginn Við óskum Suðurnesjafólki gleðilegra jóla og þökkum frábærar móttökur við þjónustustöð Olís, Grill 66 og Lemon Mini á Fitjum í Reykjanesbæ á árinu.
24
Jólablað Keflavíkur 2025
mót, bæði úti í Eyjum, þegar það hét þá Tommamótið eða Shell-mótið, og eins á Akureyri, sem er sennilega stærsta mótið í dag – og í yngri flokkunum fórum við í úrslitaleik í Íslandsmótinu í fimmta flokki, í þriðja flokki, bikarúrslit í öðrum flokki. Það var mjög gaman og maður hefur spilað marga þrælskemmtilega leiki sem maður man eftir.“ Gummi segir að margir þeirra sem hann hafi veið að æfa með séu góðir félagar hans enn í dag. „Maður hittir suma oftar en aðra en það hefur alveg haldist tenging og ef maður hittir þá, bæði gegnum vinnu eða bara á leikjum eða bara, bara úti í bæ, þá er alltaf stoppað og spjallað. Það er, tengingin hefur haldist. – En svo kemst þú upp í meistaraflokk og byrjaðir þú strax að gera góða hluti þar? „Það verða aðrir að dæma um það – en við vorum þrír, fjórir sem fáum tækifæri svolítið ungir. Bara nánast beint í kringum sautján ára og í rauninni á fyrsta árinu mínu sem ég er viðloðandi meistaraflokk af einhverju viti. Við förum
í bikarúrslit ‘97 og um mitt tímabilið er ég kominn inn í byrjunarlið.“ Þarna lék Gummi sem kantmaður en eitthvað hlýtur hanna að hafa verið að gera rétt þó hann segi að tölfræðin frá þeim tíma hafi sennilega ekki verið merkileg. „Við vorum svolítið varnarsinnað liðið á þessum tíma, þannig að það var ekki mikið um mörk eða mikinn sóknarleik – meira svona skyndisóknir. Við vorum með Hauk Inga [Guðnason] á þeim tíma, mjög fljótan framherja, og stóðum okkar ágætlega – alla vega urðum við bikarmeistarar þannig að eitthvað gerðum við rétt. Fyrsta árið var svolítið verið að róta liðinu og maður var annar hvort fremstur, jafnvel úti á kanti og svo var jafnvel skipt í miðjum leik og annað og þannig að þetta eftir því sem að við urðum kannski örlítið betri, þá urðu þessir kantmenn hjá okkur eiginlega bara sóknarmenn líka. Þannig að það má eiginlega segja að við fjölguðum í rauninni sóknarmönnunum, þannig að það voru fleiri sem tóku þátt.“ – Þannig að þið fórum úr því að vera varnarsinnað lið í sóknarlið. „Já, það má eiginlega segja það.“ Sóknarleikurinn varð okkar aðalsmerki „2002 föllum við og hérna, svo þegar þeir komu upp þá byrjuðu þeir í rauninni á verður svona, verðum við meira svona sóknar, sóknarþenkjandi lið og svona kannski sóknarleikurinn varð svona meira aðalsmerki heldur en það sem hafði verið á undan. Við vorum mjög sterkt varnarlið en sóknarleikurinn var búinn að bætast við,
þannig að við vorum orðnir bara ansi öflugir á þessum tíma.“ – Og þið urðuð nánast Íslandsmeistarar 2008? „Hársbreidd frá því. Við erum nýliðar 2004 og verðum bikarmeistarar þá. Við komumst í Evrópukeppni 2005, við erum bikarmeistarar aftur 2006, komumst ekki í Evrópukeppnina 2007 en svo endum við þarna í öðru sæti, þannig að titillinn rann frá okkur í lokaumferðinni 2008 en komumst í Evrópukeppni engu að síður. En þetta voru um leið nokkuð öflug ár, mikið af Evrópureisum og alltaf nóg að gera á tímabilinu. Mjög skemmtilegur tími. Svo er alveg hægt að segja að, að tímabilið 2008 var hrikalega skemmtilegt, þótt það hafi endað eins og það endaði, en tímabilið sjálft var náttúrulega mjög öflugt hjá okkur. Okkur var ekki spáð góðu gengi fyrir tímabilið en við afsönnuðum þær spár og tímabilið í heild sinni var náttúrulega alveg bara geggjað. Við spiluðum skemmtilegan fótbolta þá. Það var fullt af fólki alltaf á leikjunum hjá okkur. Ég held að það hafi aldrei farið undir þúsund manns á leik og oft bara yfir tvö þúsund manns, þannig að stemmningin og bara það sumar var bara hrikalega skemmtilegt, svona þegar maður tekur heildina, þótt það endaði eins og það endaði.“ – Þessi þátttaka stuðningsmanna, hún hlýtur að vega stórt í svona. „Já, ekki spurning – og mér finnst það alltaf hérna í Keflavík að þegar liðin sem maður þekkir mest, fótbolti og karfa, þegar að þeim gengur vel og er einhvern veginn spila heillandi fyrir bæjarbúa, að þá hérna eru þeir tilbúnir að mæta og styðja. Við náðum því þarna 2008. Við vorum að spila skemmtilegan fótbolta. Allavegana fólk mætti og það var alveg gaman að hérna, það var komin öflug hérna stuðningsmannasveit sem að fylgdi okkur hvert sem er. Þetta voru einhvern veginn, það voru allir með og það var alveg hrikalega gaman.“ – En svona ef við snúum okkur aftur að þínu ferli. Þú varst nú meira og minna hérna hjá Keflavík. Fyrir utan, tókst einhver smá hliðarskref. „Já, ég byrja á því að fara árið 1999 í eitt tímabil í KA. Samt var ég búinn að vera að spila alveg reglulega hérna en ég var samt að leita eftir öruggari spilatíma. Kem aftur eftir tímabilið hingað í Keflavík og svo flytjum við konan út til Danmerkur. Hún fór í nám og þá fór ég að spila þar í fyrstu deildinni í Danmörku, reyndar bara yfir veturinn. Kem seint og fer snemma, því ég fór í hálft tímabil 2003 og svo er ég kominn í Keflavík aftur og er í rauninni út ferilinn, fyrir utan að ég fór þarna hálft tímabil til Liechtenstein – en svo enda ég ferilinn í Njarðvík.“ – En þið lifið og hrærist svolítið í boltanum og í kringum íþróttir, fjölskyldan öll. „Já, það má nú eiginlega segja það. Við erum svona, einhvern veginn alltaf eitthvað viðloðandi eða einhvers staðar nálægt og ég held að maður losni aldrei við það. Ekki það að maður sé að reyna eitthvað að losna við það. Það er bara hrikalega gaman að hérna, vera einhvern veginn svona í kringum þetta og og maður reynir eins og maður getur og hefur tíma til.“ – Eruð bara hluti af þessari Keflavíkurfjölskyldu. „Já, í rauninni sko. Hún er bara mjög skemmtileg, Jólablað Keflavíkur 2025
25
Guðmundur Steinarsson á vítapunktinum. Uppi í stúku má sjá eiginkonu hans, Önnu Pálu Magnúsdóttur, við það að fara á taugum, snúa baki að vellinum og ekki að þora að horfa á spyrnuna – auðvitað skoraði Gummi úr vítinu.
Keflavíkurfjölskyldan, þegar hún er að störfum eins og maður segir. Þá er hún alveg mjög skemmtileg, mikið að gerast.“ – Fyrr á þessu ári var þér afhent gullmerki. Það var nú kannski kominn tími til, er það ekki? „Jú, það kom og það var bara mikill heiður að fá það hérna. Ég veit ekkert af hverju tímapunkturinn var núna en ekki fyrr, eða hvernig sem það átti að vera, en það er alltaf heiður að fá viðurkenningu.“ – Nokkur mörk sem þú hefur skorað á þínum ferli, manstu hvað þau eru mörg? „Nei, ég man ekki í hverju þau enda. Ég man bara að ég var alltaf að eltast við metið hans pabba, sem var 72 mörk. Ég held ég hafi endað í 75 eða eitthvað svoleiðis. Held að ég hafi rétt skriðið yfir hann.“ – Hvernig spáirðu að Keflavíkurliðinu gangi í efstu deild á næsta ári? „Ég held að þetta geti orðið strembið. Þannig að ég held að þeir nái að halda sæti sínu. Ég held að það verði náttúrulega bara aðalmarkmiðið, að ná að halda sæti sínu í deildinni og svo náttúrulega bara að byggja ofan á það. Þú veist, maður sá bara í rauninni eins og með Vestra. Þú veist, þetta er svona, þeir eru að fara niður eftir tvö tímabil og og hérna, Aftureldingar eru að fara beint niður, þótt þeir runnu í þau lið sem þeir eru, voru þarna einu og tveimur árum á undan okkur að fara að hérna. Þannig að, þú veist, við þurfum ekki að blekkja, aðeins bara, aðeins að
26
Jólablað Keflavíkur 2025
Böðvar Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur, afhenti Guðmundi gullmerkið á aðalfundi deildarinnar og sagði við tilefnið að nú ætti að veita einum af bestu sonum Keflavíkur heiðursmerkið. læra, heyrðu, hvað þurfum við að gera til þess að hérna, fara ekki sömu leið? Við getum samt að hluta til farið sömu leið og á Vestra. Væri gaman að þeir nái bikartitli þarna. Það væri náttúrulega geðveikt að komast eitthvað áfram með því. En en held að lykillinn er að ná að halda sér uppi og búa til frábæra heild og í rauninni búa til Keflavíkurlið, sem af því að liðum finnst ekkert æðislegt að koma hingað. Það fannst það ekki og bara ef við náum því aftur, þá getur heimavöllurinn talið vel. Ég hef alveg trú á okkar mönnum sem eru hérna í brúnni hjá okkur að ná að búa þetta til.“
Smelltu hér til að horfa
Gleðileg jól og farsælt komandi ár
Jólablað Keflavíkur 2025
27
Ég skora mjög mikið af mörkum – segir Ólafur Frosti Brynjarsson sem æfir fótbolta með fjórða flokki Keflavíkur og er mikill markahrókur. Ólafur Frosti tekur sér ýmislegt fleira fyrir hendur og hefur lagt góðu málefni lið en hann hljóp tíu kílómetra og lét áheitin sem söfnuðust renna í Minningarsjóð Ölla. „Ég er búinn að vera í fótbolta bara, alveg frá því í áttunda flokki og búinn að gera alls konar. Fara á fullt af mótum og svona. Læra fullt af þeim. Vera með fullt af andstæðingum, með liðsfélögum og alls konar.
28
Jólablað Keflavíkur 2025
Mér finnst það sem er að standa upp úr er N1 mótið, Íslandsmótið sjálft og svo er það Orkumótið. Orkumótið var í Vestmannaeyjum, N1 var á Akureyri og Íslandsmótið er bara um allt Ísland.“ – Og hérna, svo ert þú búinn að vera að taka þátt í alls konar maraþonkeppnum. Hvernig byrjaði það? „Mamma mín og pabbi voru alltaf að hlaupa í langhlaupum, tíu kílómetra og alls konar, og ég var alltaf að horfa og sjá þau vera að hlaupa. Beið alltaf eftir að ég fengi tækifæri mitt til þess að gera það. Fékk árið 2004 að hlaupa og vildi fá að hlaupa fyrir einhvern einhvern sjóð og ég valdi Minningarsjóð Ölla af því að ég sá fyrir hvað sjóðurinn starfar.“ Ólafur segir að fyrst hafi hann hlaupið með mömmu sinni þar sem hann var of ungur til að hlaupa einn. „Svo hljóp ég í annað sinn og hljóp aftur fyrir sjóðinn og safnaði mest. Fékk þennan hér,“ segir hann og bendir stoltur á glæsilegar verðlaunabikar. – Hvað safnaðirðu miklu? „Ég safnaði 170.000 – ætli það hafi ekki verið.“ – Svo ertu búinn að vera að gera eitthvað fyrir sjóðinn. Ertu ekki einhver svona fulltrúi hans? „Ég er búinn að fara að taka á móti afhendingu frá Blue sem þau eru búin að safna frá góðgerðarfestinu og sjóðurinn fékk tvær milljónir í styrk. Já, ég fór og tók á móti.“ – Þannig að þú ert svona fulltrúi þeirra? „Já, svona. Ég verð beðinn um að koma og taka á móti ef það er eitthvað.“ – Og hvað hljópstu langt í sumar? „Ég hljóp aftur tíu kílómetra. Ég er ekki nógu gamall til þess að hlaupa 21.“ – Hvenær máttu hlaupa 21 kílómetra?
„Ég held að það sé þegar ég verð fjórtán eða fimmtán ára.“ – Var þetta ekkert mál? „Ef þú kannt þetta þá og þú ert að læra og æfa þig. Þá ertu góður í þessu. – Og finnst þér þetta hjálpa þér sem fótboltamanni að stunda langhlaup? „Já, já. Ég get alveg hlaupið lengra í leikjum og svona. Miklu betri að hlaupa og svona.“ – Hvaða stöðu spilarðu í fótboltanum? „Ég spila mest á vinstri kanti eða einhvers staðar frammi.“ – Ertu marksækinn? „Já, ég skora mikið af mörkum. Í síðustu fjórum leikjum er ég búinn að skora ellefu mörk.“ – Það er ekkert lítið. „Nei, alls ekki. Svolítið mikið,“ segir markamaskínan Ólafur Frosti en í spilaranum er allt viðtalið við hann og þar segir Ólafur frá sínum markmiðum og mörgu fleiru.
Smelltu hér til að horfa
Jólablað Keflavíkur 2025
29
Unun að vera á leikjum Magnús Jensson kannast flestir Keflvíkingar við en Maggi er áberandi sjálfboðaliði á körfuboltaleikjum í Blue-höllinni þar sem hann moppar gólfið og ýmislegt annað. Magnús er uppalinn í Laugarnesinu í Reykjavík en flutti til Keflavíkur áramótin 1981/1982. Hann var bæði í fótbolta og handbolta með Fram en kynntist ekki körfuboltanum fyrr en hann flutti til Keflavíkur en það voru gamlir vinir úr Reykjavík sem drógu hann á körfuboltaleik. „Fyrsti leikurinn sem ég sá var Njarðvík Fram í Ljónagryfjunni. Stemmningin alveg svakaleg því þar var staðið þétt upp við hvort annað og ef einn sneri sér þá urðu allir að snúa sér. Krakkarnir mínir, ég á þrjá stráka og eina stelpu, þau voru öll í körfunni og ég fór að fylgja þeim og var dálítið duglegur. Af þessum fjórum, þá var
30
einn að spila í tveimur flokkum og annar í þremur flokkum, svo það voru allar helgar sem fóru í að keyra þetta og þá held ég að stjórnarmenn hérna hafi séð áhugann. Ég var alltaf úti um allt og keyrði alla því ég átti svoleiðis bíl að ég gat tekið tíu manns í bílinn, var oft bara með allt liðið með mér.“ Magnús segir að þáverandi formaður, Skúli Skúlason, hafi komið að máli við sig og spurt hvort hann vildi koma í stjórn. „Og ég var í stjórn í nokkur ár. Svo náttúrulega lognast það út af, komin þreytu í mann og aðrir tóku við – en ég var alltaf viðloðandi eitthvað í körfunni. Ég var alltaf í einhverju.“
Jólablað Keflavíkur 2025
Maggi á moppunni „Svo var ég eiginlega bara að fara að hætta þessu. Þá kemur Covid og þá sá ég mér leik á borði og bauð mig strax fram í sjálfboðaliðastarf. Því þá kæmist ég á leikinn til að horfa á því þá máttu ekki vera nema tuttugu manns á leik – og þá byrja ég á moppunni, sumir kalla þetta kústinn en þetta er nú moppa, og ég er búinn að eiginlega vera fastur á henni síðan,“ segir Magnús en síðan hefur þetta bæst við verkefnalistann og hann hefur verið að hjálpa til ivð uppsetningu fyrir leiki og taka saman eftir leiki. „Svo hef ég alfarið tekið að mér hamborgarasölu, eða hamborgaragerðina hérna. Það er eiginlega orðið fjölskyldufyrirtæki. Við erum níu í því og það eru sjö úr fjölskyldunni – og við skiptum verkefnum okkar á milli, bara eftir því hvað er að gera. Það eru
náttúrulega menn í vaktavinnu og annað – og svoleiðis er það bara. Svo ætlaði ég náttúrulega að hætta núna í haust en það var ráðið hérna nýr rekstrarstjóri, hún Kristín Þorsteins, og hún kom að máli við mig. Ég yrði nú að halda áfram því að hún kynni nú ekkert í þessu. Svo að ég er hérna eitt ár í viðbót, kominn á sjötugsaldurinn, en meðan áhuginn er og og líkaminn er góður og þá ætla ég að halda áfram bara.“ Hvað eru þetta orðin mörg ár og hvað er langt síðan þú varst í stjórn? „Ég var í stjórn frá ‘88. Ég man ekki, ætli þetta hafi gerst fimm, sex ár. Það er að segja í stjórn. Og svo var maður hérna kringum unglingaráðið og þó ég væri ekki í aðalstjórninni þá var ég alltaf að sýsla í kringum eitthvað. En svona í kringum 2015, eitthvað svoleiðis, þá var maður eiginlega alveg hættur í þessu. Fram að, eins og ég segi, fram að Covid – og þá bara kom þetta aftur og bara búið að vera mjög gaman,“ segir Maggi og hlær við. Drottningarnar „Þó þetta hafi náttúrulega ekki alltaf verið dans á rósum, liðin okkar, en þetta er náttúrulega eins og annað, þetta er upp og niður. Nú er þetta upp og maður vonar náttúrulega að það endi bara á toppnum. Ég hef ekki trú á öðru. Og meðan svo er þá er þetta alltaf gaman. Hóparnir, bæði strákarnir og stelpurnar, þetta eru alveg svakalega góðir hópar. Leikgleðin og annað hjá okkur núna – það er bara unun að vera á leikjum.“
Nú hef ég heyrt að þú sért búinn að vera hérna þegar allir titlar koma í hús. „Já!“ Á öllum þessum ferli sem þú ert búinn að vera í kringum þetta, er eitthvað eitt sem stendur upp úr, eitt atvik? Nú andvarpar Maggi og segir: „Nú man ég ekki árið, sko. Ég held að fyrsti Íslandsmeistaratitillinn, ‘90. Þá var rosalega gaman. Sko, ég meina hjá strákunum. Stelpurnar voru nú alltaf eitthvað að skila af sér. Þarna þegar við vorum með gullaldarliðið, Önnu Maríu og Björg og allar hinar. Ég get talið þær allar tíu upp en þær voru alltaf drottningarnar.“ Lengra viðtal við Magnús er í spilaranum hér að neðan.
Smelltu hér til að horfa Jólablað Keflavíkur 2025
31
Forréttindi
að vinna við áhugamálið – segir Kristín Þórarinsdóttir sem tók við starfi rekstrarstjóra körfuknattleiksdeildar í sumar en það er nýtt stöðugildi á skrifstofu Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags. „Ég hérna, byrjaði sem sagt í þessu starfi í sumar, búin að vera hérna síðan í júlí og þetta er ný staða við deildina, eða sem sagt fyrir félagið. Þótt að svo sem þessi störf hafi öll verið unnin áður þá var þeim bara dreift á hendur sjálfboðaliða en ég kem inn sem rekstrarstjóri bæði fyrir meistaraflokkana og einnig fyrir barna- og unglingaráð. Starfið er bara alls konar. Ég fer í þau verkefni sem bæði mér eru falin og finn að það þarf að halda utan um – en ég er líka alveg búin að átta mig á því að það mun taka þetta tímabil í að bara koma mér inn í hlutina og fá svona einhvern veginn fyrsta rennsli á hvernig svona heilt tímabil gengur fyrir sig,“ segir Kristín og bætir við að starfið sé öðruvísi en það sem hún
32
hefur fengist við í gegnum tíðina; „því að þetta er bara ég og svo eru sjálfboðaliðar. Þannig að það er öðruvísi heldur en að maður sé bara í einhverju fyrirtæki þar sem allir fá greidd sín laun og vita nákvæmlega til hvers er ætlast af þeim. Þótt ég hafi verið í kringum deildina frá 1990, að þegar ég var yngri þá bara mætti ég hérna klukkutíma fyrir leik og reimaði á mig skóna og svo hef ég bara komið sem áhorfandi og móðir, en mig bara hefði ekki órað fyrir því hversu margir klukkutímar og gríðarlega mikil vinna er falin í því að halda öllum boltum á lofti. Rekstrarumhverfið er oft gríðarlega erfitt en einhvern veginn tekst þetta með öflugu fólki og hópi sjálfboðaliða, og það eru náttúrulega sjálfboða-
Jólablað Keflavíkur 2025
liðar líka í stjórn. Einhvern veginn náum við að halda þessu gangandi – en á sama tíma og þetta sé gríðarlega erfitt, þá þá er þetta alveg ofboðslega skemmtilegt. Og þetta er í svona fyrsta skipti sem maður fær kannski tækifæri til að vinna við áhugamál sitt, sem eru bara algjör forréttindi.“ Kristín segir að rekstur körfuknattleiksdeildarinnar sé þungur og erfiður en deildin er með marga leikmenn á launaskrá og þarf einnig að greiða til sérsambandsins, KKÍ. „Við erum náttúrulega með gríðarlega öfluga styrktaraðila sem án þess væri ekki hægt að reka deildina. Þannig að þetta er oft stress um hver einustu mánaðamót og það væri óskandi að það væri að koma inn meira fjármagn frá hérna, frá fleiri heldur en
Jólablað Keflavíkur 2025
33
Þykir ofboðslega vænt um félagið og bæinn
Kristín með móður sinni og bræðrum, allt miklir Keflvíkingar. Magnús Þór er fyrrverandi fyrirliði knattspyrnuliðsins og Karl Daníel fyrrverandi framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar. fyrirtækjum, til dæmis frá sveitarfélaginu. Ég get kannski alveg skilið að við erum með hérna að reka meistaraflokkana okkar með fullorðið fólk á launaskrá og það – en við sinnum gríðarlega miklu starfi fyrir ungt fólk í samfélaginu og ég veit það sem iðkandi og sem móðir iðkanda. Í dag er ég 47 ára og allar mínar bestu vinkonur eru stelpurnar sem spiluðu með mér þegar ég var yngri. Þetta hefur
bara svo gríðarlega mikil áhrif, það starf sem við erum að inna hérna af hendi. Ég veit ekki alveg hvar bara Reykjanesbær og foreldrar í þessu bæjarfélagi hefðu verið staddir ef það væru ekki æfingar sem börnin eru að fara á eftir skóla. Þannig að það myndi að sjálfsögðu hjálpa ef það kæmi meiri stuðningur frá sveitarfélaginu.“
Smelltu hér til að horfa
34
Jólablað Keflavíkur 2025
Kristín er fædd og uppalin í Keflavík og fyrir utan níu ár sem hún bjó í Bandaríkjunum, þar sem hún fór í skóla og var að vinna, þá hefur hún verið hér. „Og ég er rosalega mikill Keflvíkingur og þykir mjög vænt um félagið og bara bæinn – og vil bæði félaginu og bænum það allra besta. Ég byrjaði að æfa þegar ég var ung og spilaði upp í meistaraflokk, þannig að ég á nokkra leiki fyrir Keflavík og ég veit ekki hvað. Já og allt mitt líf hefur einhvern veginn snúist að mestum hluta um að vera einhvern veginn bara hluti af þessu samfélagi, fyrir utan það þegar ég var í Bandaríkjunum, og maður finnur það svo hvað þetta er mikil fjölskylda. Þetta er svona kjarni af fólki, sem þekkist vel og er einhvern veginn tilbúið að gera allt til að láta hlutina ganga upp. Þetta er ofboðslega mikilvægt, held ég, að hafa með sér út í lífið. Einhvern veginn að vera með allt þetta fólk þegar öllu er á botninn hvolft þá er þetta fólk sem er svona sannir Keflvíkingar og eru tilbúnir að gera það sem þarf.“ Lengri útgáfa viðtalsins birtist í spilaranum.
GLEÐILEGA HÁTÍÐ Við óskum starfsfólki okkar, viðskiptavinum, samstarfsaðilum og landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári.
Jólakveðja frá badmintondeildinni Árið sem nú er að líða hefur verið nokkuð gott hjá badmintondeildinni. Þátttaka hefur verið að aukast, við erum með okkar aðstöðu í Heiðarskóla eins og áður og eru æfingar á laugardags morgnum. Þær eru öllum opnar jafnt einstaklingum sem og hópum Æfingarnar eru tvískiptar, fyrri tíminn er klukkan 09:00–09:50 og 10:00–10:50. Stundum verðum við að hafa fjóra á hverjum velli til að koma öllum fyrir. Við viljum benda á að badminton er kjörin hreyfing fyrir alla aldurshópa og allir eru velkomnir. Kveðja, badmintondeild Keflavíkur
36
Jólablað Keflavíkur 2025
Jólablað Keflavíkur 2025
37
Smelltu hér til að horfa
„Við eigum líklega eina eða tvær landsliðsstelpur á næsta ári“ Blakíþróttin hefur verið á uppleið í Reykjanesbæ og segir formaðurinn að miklar framfarir sjáist h já iðkendum. Guðrún Jóna Árnadóttir er formaður deildarinnar og við spjölluðum saman um blakið hjá Keflavík. „Árið er búið að vera nokkuð gott ár. Miklar framfarir, miklar getuframfarir. Öll lið eru farin að taka eftir okkur, önnur lið á landinu, þannig að við erum farin að slá okkur í topp fimm sætunum. Þetta er allt að gerast. Það er bara spurning hvenær við förum að vera í toppsætunum.“ – Þetta eru ungir og efnilegir iðkendur sem þið hafið. „Mjög svo, mjög svo. Við eigum
líklega eina eða tvær landsliðsstelpur á næsta ári.“ – Hafa þær verið að banka á landsliðsdyrnar í ár? „Já. Einni var boðið á landsliðsæfingu en var ekki valin í úrtakið – en henni var boðið. Þannig já, við erum að banka á dyrnar.“ – Og eru þetta krakkar sem eru búnir að æfa lengi? „Þetta eru krakkar sem eru búnir að
æfa í svona þrjú ár, þrjú eða minna. Þær eru með mikinn metnað, mikinn vilja.“ – Hvað eru helstu verkefni sem blakdeildin er að fást við á hverju ári? „Það er náttúrulega bara að fara á þessi mót sem er í boði fyrir þau. Við náttúrulega höfum ekki tækifæri til þess að halda mót hér, við fáum ekki aðgengi að húsnæði fyrir það. Þannig að okkur langar að vera með fyrstu deildarlið og við höfum viljað fara af stað með það á næsta ári en við erum ekki að sjá að við fáum aðganginn til þess að halda heimaleiki. Þannig að það verður allt að sitja og það er stefnan að reyna að komast inn í fyrstu deildina til að byrja með og enda svo í úrvalsdeildinni. Þannig að það er svona draumur sem okkur langar að reyna.“ Blak vinsælla hjá stelpum – Er blakið vinsælla hjá stelpum en strákum? „Heilt yfir, já. Yfir landið, já. Það hefur alltaf verið vinsælla hjá stelpum en strákum, sem við skiljum ekki
38
Jólablað Keflavíkur 2025
vegna þess að blak er náttúrulega hvar þú færð að slá bolta eins fast og þú vilt. Bara alltaf. Þó það sé manneskja hinum megin á vellinum, skilurðu? Í fótbolta, körfu og í handbolta, mátti kasta boltanum eða sparka boltanum í næstu manneskju? Nei, en þú mátt reyna. Þú ert náttúrulega ekkert að reyna að hitta þá, þú ætlar að reyna að skora, en þú veist, það er þannig.“ – Þannig að þetta er svolítið eins og skotboltinn. „Skotboltinn? Nei, þetta er miklu meira. Þú ert að koma með miklu meiri hraða og miklu meiri kraft í þessu, þannig að já, þetta er hæð og snarpa. Þetta eru hraðar sóknir og svo er bara rosaleg liðsheild og vinskapur milli liða. Þetta er ekki kontaktíþrótt. Þetta snýst um mikla liðsheild, vináttu og bara stuðning inn á milli. Við bara föðmumst eftir leiki. Það fer enginn í fýlu en neitt svoleiðis.“ – Hvað eru margir sem eru að æfa hjá þér? „Ég er með 25 í yngri flokk, sem er svipuð tala og hefur verið, og með því
meira sem við höfum verið, en það hefur ekki hækkað mikið. Það gengur erfiðlega að fá inn fleiri. Yngsti flokkur okkar, við erum að reyna að ná honum upp aftur. Við vorum með hann stærstan frá upphafi í fyrra. – Hvað eru það gamlir krakkar? „Það er frá þriðja til fimmta bekk – en við erum búin að lækka núna niður aldurinn niður í sex ára. Núna erum við tilbúin að bjóða alveg niður í sex ára, en það voru það margir þar sem færðust upp um hóp, þannig að hann eiginlega beinlínis þurrkaðist út í haust og við erum að reyna að vekja hann, en hann hefur alltaf tekið tíma að koma aftur inn. Svo komum við inn og þetta en við viljum byrja grasrótina fyrr. Við erum með hugmynd að fara í krakkablak á leikskólaaldri, þar sem þau eru bara að koma í snertingu við blakboltann, kasta eða grípa, en við erum ekki viss hvort við fáum aðgengi að húsnæði í ár.“ Guðrún segir að blakdeildin hafi verið með kynningu á blaki í Háaleitisskóla í desember og það hafi
gengið vel. Þó það sé full seint að halda kynningu í desembermánuði þá hafi hún skilað einhverjum á æfingar. Til stendur að fara með kynningar inn í fleiri skóla. – Hvernig fannst þér þetta svo heppnast, að fara inn í þennan skóla? „Mjög vel sko. Við höfum alveg fengið einn, tvo, þrjá [iðkendur] að prófa en svo er það bara fjarlægðin á milli. Það er svolítið og samgöngurnar hérna eru náttúrulega skelfilegar. Samgöngurnar ættu að vera betri fyrir börn sem iðka íþróttir. Sérstaklega er hægt að tengja þetta við frístundina, skólastarfið og deildirnar. Þannig að það sé hægt að bjóða eitthvað fyrir þau.“ – Það er kannski helsti svona akkilesarhællinn, þessar samgöngur? „Það er það. Samgöngurnar eru bara upp til hópa mjög skelfilegar í bænum – það er ekki hægt að skafa af því. Það er bara þannig.“ Allt viðtalið við Guðrúnu má sjá í spilaranum hér á síðunni.
Jólablað Keflavíkur 2025
39
„Ef þú færð þessa bakteríu
þá sleppir hún ekkert af þér tökunum“ – segir heimsmeistarinn Jóhannes Frank Jóhannes Frank keppir fyrir skotdeild Keflavíkur í Benchrest-skotfimi og hefur náð frábærum árangri í greininni en Jóhannes varð heimsmeistari í haust. Við hittum skyttuna á æfingasvæði deildarinnar í Höfnum og ræddum um eitt og annað í sambandi við skotbakteríuna. Jóhannes byrjaði ungur að skjóta en hann tók sér langt hlé frá keppni og æfingum, fimmtán, tuttugu ár, og byrjaði á nýjan leik árið 2017 þegar hann gekk í skotdeild Keflavíkur og byrjaði að keppa í Benchrest aftur – en hvað er Benchrest nákvæmlega? „Benchrest er sem sagt það sem við köllum að skjóta í grúppur, sem sagt fimm skot, 25 sinnum. Það er líka verið að keppa hérna heima og erlendis í svokölluðu Varmint for Score, það er sama byssan, eða svipaðar byssur og sami búnaður, en þar er verið að reyna að hitta punkt fimm sinnum, 25 skipti. En Benchrest er aðallega það sem að ég hef haft áhuga á. Það er sem sagt, hægt að kalla það að grúppuskotfimi. Að reyna að hitta sama skotið. Skjót-
40
um einni kúlu og reynum að hitta hana aftur, fimm sinnum í sama gatið.“ – Og þú hefur náð ágætis tökum á þessu. Þetta ár er búið að ganga mjög vel. Það þarf að skjóta svolítið mikið til að ná tökum á Benchrest, sérstaklega í svona léttum riffli, þetta er svona 4,7 kíló. Það þarf aðeins að leggja meira á sig til að ná þessum til að skjóta vel sko og það er bara búið að ganga nokkuð vel.“ – 4,7 kíló segirðu, frekar léttur. Þetta er ekki eitthvað sem þú myndir fara með á veiðar? „Auðvitað er hægt að veiða með svona riffli en þessi riffill er kannski ekki að henta í veiði sem slíkur. Skothylkið getur hentað í veiði en þetta er fyrst og fremst til að skjóta pappír.“ – Hvaða hlaupvídd er á þessu? „Þetta er sex millimetra, hlaupvídd .243, skothylkið heitir 6PPC og er eiginlega 99% ráðandi í svokallaðri Short Range, eða stuttum færum, Benchrest, 100, 200 og 300 metrum eða yördum.“ – 100, 200 og 300 og það kallast Short Range. Hvað eru menn að skjóta upp í langar vegalengdir? „Sko, Benchrest er skotið alveg upp í 1.000 metra, sem sagt, sem er kallað Benchrest. Það er sama uppsetning, það er ekki þetta kalíber. Það er annað kalíber, stærra. PPC er dómínerandi alveg upp í 300 metra í þessu.“
Jólablað Keflavíkur 2025
– Og það er þá væntanlega mjög flatur skotferill? „Tiltölulega flatur, sko. Það sem þetta snýst um í Benchrest fyrir mig er að ég legg meira upp úr nákvæmni heldur en flötum kalíberum, eða sem sagt Ballistic Coefficient í rauninni, því að það, það er ekkert sem að kemur í staðinn fyrir nákvæman riffil. Alveg hárnákvæman eins og þessar græjur eru og það sem skiptir meira máli er að hafa nógu mörg vindflögg og kunna að lesa þau. Þegar að þú ert búinn að stilla öllu upp, búinn að ná tökum á kalíberinu eða hleðslunni, þá þarftu að geta lesið vindinn sjálfan. Það er hann sem hefur stærstu áhrifin á þetta hvað þú getur gert. Við erum að skjóta það litlum grúppum og keppnir eru unnar á það litlum mun, þetta eru svona þúsundasti partur af tommu sem að keppnir vinnast á.“
– Er Benchrest vinsæl keppnisgrein hérna? „Miðað við sko íbúafjölda þá er er þetta frekar mikið stundað. Það eru margir rifflar til. Það eru svona tíu til tólf manns sem eru að skjóta þessu. Miðað við höfðatölu á Íslandi er það mjög mikið. Það er meira en í Ameríku raunverulega miðað við höfðatölu. Þetta er mjög sérhæft sport og þetta er miklu meira en bara skjóta. Ég get sýnt þér þegar maður er að hlaða skotin, þú ert að hlaða þau og ef þú gerir mistök þar þá fara þau bara í gegnum allt saman og sýna þér á blaðinu, hvað þú hefur gert vitlaust. Og þú þarft að ná tökum á að skjóta jafnvel einu skoti og sjá það strax í gegnum sjónaukanum að hleðslan er ekki í lagi. Þú þarft að komast þangað. Þangað. Ef þú kemst þangað þá ertu í mjög góðum málum.“ Byrjaði ungur að skjóta – Hvernig, hvernig villtist þú inn í þetta sport? „Það er mjög einfalt. Ég var bara að veiða eins og margir aðrir. Fyrst var maðuir náttúrulega að skjóta sjófugl
Smelltu hér til að horfa með haglabyssu. Ég byrjaði mjög ungur að skjóta byssu, pabbi lét mig skjóta úr fyrstu byssunni þegar ég var tólf ára, haglabyssu, og svo var það riffill og svo fékk maður áhuga á stærri rifflum. Um leið og það kom þá byrjaði maður að hugsa, hvernig getur ég fengið þennan riffil til að vera nákvæmari? Og maður byrjaði á þessu, að hlaða í þetta sjálfur, steypa undir lásinn og fría hlaupið frá skeftinu og svoleiðis. Þetta leiddi hvað af öðru út í það að þegar maður fær þessa bakteríu, að reyna að fá skotin til að vera þéttari og þéttari, þá leitar maður alltaf nýrra leiða til að gera það og á end-
anum keypti ég mér Benchrest-riffil. Svo á endanum þá keypti maður sér rennibekk og byrjaði að smíða þetta sjálfur, fyrir 35 eða 40 árum síðan. Þannig að maður smíðaði sína Benchrest-riffla sjálfur á þeim tíma. Reyndar pöntuðum við líka frá Bandaríkjunum og þá var ekkert internet, þá sendir maður bara bréf og pantaði og keypti byssur svoleiðis – en þetta leiddi bara eitt af öðru. Ef þú færð þessa bakteríu þá sleppir hún ekkert af þér tökunum,“ segir Jóhannes Frank en allt viðtalið við hann má sjá í spilaranum hér á síðunni.
Jólablað Keflavíkur 2025
41
Aukakrónur koma sér vel um jólin Landsbankinn.is