Jólin 2021 50. árgangur
Fréttir af félaginu 2021 Íþróttakarl og -kona Keflavíkur 2020 Í ár var ekki haldið hóf vegna covid takmarkanna. Ákveðið var að útnefna ekki íþróttakarl og -konu Keflavíkur fyrir árið 2020 þar sem þetta var afar skrítið ár heldur að heiðra þá aðila sem voru útnefndir af sinni deild. Farið var heim til flestra og viðurkenningin veitt viðkomandi. Íþróttakarl og -kona hverrar deildar sendu frá sér stuttmynd og þökkuðu fyrir heiðurinn. Stefnt að því að halda hóf þar sem íþróttakarl og – kona Keflavíkur verða útnefnd ásamt íþróttakarli og -konu hverrar deildar. Hverjir verða það í ár ?????
Viðurkenningar veittar á aðalfundi félagsins 2021 Starfsbikar Keflavíkur var veittur Einari Skaftasyni. Gullmerki UMFÍ var veitt Bjarneyju S. Snævarsdóttur og Sveini Adolfssyni. Starfsmerki UMFÍ var veitt Hilmari Erni Jónassyni, Guðnýju Magnúsdóttur og Jónasi Andréssyni.
Viðurkenningar veittar á aðalfundum deilda 2021 Silfurmerki var veitt Guðnýju Magnúsdóttur, Hilmari Erni Jónassyni og Jónasi Andréssyni. Silfurmerki Keflavíkur er veitt fyrir 10 ára stjórnarsetu. Bronsmerki voru veitt þeim Gunnari Oddssyni, Karli Finnbogasyni, Þorleifi Björnssyni, Margeiri Vilhjálmssyni, Agli Sigmundssyni, Petru Lind Einarsdóttur, Einari Birgi Bjarkasyni, Einari Hannessyni, Kristjáni Jóhannssyni, Ágústi Þór Guðmundssyni og Ragnari Sigurðssyni. Bronsmerki Keflavíkur er veitt fyrir 5 ára stjórnarsetu.
Íþróttastjóri Keflavíkur Staða íþróttastjóra skiptir miklu máli hvað varðar starfið, að allt verður markvissara. Með tilkomu íþróttastjóra Hjördísar Baldursdóttur, hefur starfið vaxið. Félagið hefur tekið að sér ýmis verkefni til dæmis verkefnin, „Allir með“ sem Reykjanesbær er aðili að í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið og „Börn með sérþarfir“ í samstarfi við Njarðvík og Íþróttasamband fatlaðra. Keflavík og Njarðvík fengu Hvatningarverðlaun á þingi UMFÍ fyrir verkefnið. Hjördís sér einnig um samskipti við deildir félagsins og er með umsjón með skráningarkerfinu Sport abler. Starf íþróttastjóra er fjármagnað af Reykjanesbæ. Takk Reykjanesbær
Kórónuveiran eða það sem er kallað Covid19 Þessi vágestur heldur áfram og hefur komið illa við okkur eins og flest alla þjóðina og allan heiminn. Íþróttastarf hefur farið úr skorðum bæði fjárhagslega og íþróttalega auk margra nýrra áskoranna. Flest allar deildir hafa þurft að fresta skipulögðum mótum og orðið fyrir miklum tekjumissi vegna þess. Nettómótinu var frestað enn og aftur um ár. Umhverfisdagur Keflavíkur sem fyrirhugaður var í maí var frestað. Stjórnarfólk, þjálfarar og iðkendur Keflavíkur einnig foreldrar iðkenda eiga mikið hrós skilið fyrir hvernig þeir hafa tekið á þessu öllu saman. Það er ekki að finna nein merki þess að verið sé að slaka eitthvað
Aðalstjórn Keflavíkur 2021 - 2022. Aftari röð frá vinstri: Björg Hafsteinsdóttir, Birgir Már Bragason, Garðar Newman og Sveinbjörg Sigurðardóttir. Fremri röð frá vinstri: Jónína Steinunn Helgadóttir, Einar Haraldsson, Kári Gunnlaugsson og Eva Björk Sveinsdóttir. Ljósm.: Oddgeir Karlsson. á heldur eru menn bjartsýnir og hafa sýnt mikla ráðdeild í öllu starfinu og horft með björtum augum til framtíðar. Mér er efst í huga þakklæti til allra þessara aðila fyrir hvernig þeim hefur tekist að fara í gegnum þetta allt saman og ekki má gleyma sjálfboðaliðunum.
Nori/Sportabler Breyting hefur orðið á skráningarkerfinu. Sport abler hefur keypt Nora kerfið og hefur Aðalstjórn gert samninga við Sportabler og nú hafa allar deildir félagsins aðgang að kerfinu og foreldrar að appinu.
52. Sambandsþing UMFÍ. 52. Sambandsþing UMFÍ var haldið þann 15.-17. október á Húsavík. Allir þingfulltrúar þurftu að framvísa neikvæðu PCR prófi. Keflavík átti sjö þingfulltrúa á þinginu og sjö stjórnarmenn mættu. Nýr formaður Jóhann Steinar Ingimundarson var kjörinn en Haukur Valtýsson gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Einar Haraldsson var kjörinn í kjörnefnd. Keflavík hlaut Hvatningarverðlaun UMFÍ ásamt vinum okkar Njarðvíkingum fyrir verkefnið „Börn með sérþarfir.“
Vefverslun Keflavík er með vefverslun og er hana að finna á heimasíðunni. Hvetjum við alla til að notfæra sér hana, sérstaklega núna fyrir jólin.
Ný Heimasíða Keflavíkur Ný heimasíða er komin og var það Dacoda sem sá um að gera hana. http://www.keflavik.is
Hægt að styðja Keflavík og deildir þess og fá skattafrádrátt Ný lög um skattalega hvata til almannaheillastarfsemi tóku gildi 1. nóvember.
Lögin fela í sér nýja heimild fyrir einstaklinga til að draga allt að 350 þúsund krónur á ári frá skattskyldum tekjum sínum utan atvinnurekstrar vegna framlaga til almannaheillastarfsemi. Auk þess er kveðið á um tvöföldun á hlutfalli sem atvinnurekstraraðilar mega draga frá skattskyldum tekjum vegna slíkra framlaga og fer það úr 0,75% í 1,5%. Markmið breytinganna er að hvetja einstaklinga og fyrirtæki til að styðja við almannaheillastarfsemi milliliðalaust, auk þess að styrkja stöðu lögaðila sem starfa til almannaheilla.
Facebook síða Keflavíkur Keflavík er með Facebook síðu fyrir félagið í heild sinni sem ber nafnið Keflavík íþrótta- og ungmennafélag, en þar eru fréttir og viðburðir settir inn. Áfram Keflavík Einar Haraldsson formaður Keflavíkur
Aðalstjórn Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags sendir öllum bæjarbúum, félagsmönnum og öðrum velunnurum félagsins óskir um gleðileg jól og farsældar á komandi ári um leið og við þökkum öllum sem lagt hafa félaginu lið á liðnum árum.
Útgefandi: Keflavík íþrótta- og ungmennafélag Ábyrgðarmaður: Einar Haraldsson • keflavik@keflavik.is, 421 3044 • Forsíðumynd: Sveindís Jane Jónsdóttir í landsleik. Ljósmynd: Eiríkur Jónsson. Umbrot og prentun: Stapaprent ehf. • stapaprent@stapaprent.is, sími 421 4388
2
Jólablað 2021
Úrbeinaður hamborgarhryggur
Allt í jólamatinn í Nettó Hangigrís úr hnakka
Fylltur grísabógur
Úrbeinaður hangiframpartur
Úrbeinað hangilæri
Jólablað 2021
3
L
okahóf yngri flokka var haldið með óhefðbundnum hætti fyrir síðasta heimaleik meistaraflokks karla. Iðkendur í 3.-8. flokki karla og kvenna gengu inn á völlinn í skrúðgöngu með Keflavíkurfánann í fararbroddi. Iðkendur félagsins hafa verið félaginu til sóma innan vallar sem utan og sýnt það og sannað að þau eru Sannir Keflvíkingar. Stúkan klappaði vel fyrir þessum flottu krökkum og var þeim svo boðið uppá pizzur og svala. Í ár var ákveðið að endurskoða þá hefð sem hefur verið viðhöfð í mörg ár að veita einstaklingsverðlaun fyrir góða frammistöðu á vellinum. Fótbolti er liðsíþrótt og snýst að miklu leyti um samvinnu og liðsheild og slík gildi viljum við leggja áherslu á. Ein verðlaun eru okkur þó ómissandi en það er Ella-bikarinn en hann er veittur til minningar um Elís Kristjánsson heitinn sem starfaði sem þjálfari hjá Keflavík í mörg ár. Ella Bikarinn er veittur til þess iðkanda sem er Sannur Keflvíkingur og sýnt hefur fyrirmyndar dugnað og vinnusemi á tímabilinu jafnvel þó viðkomandi hafi lent í mótlæti. Að þessu sinni hlaut Gabríela Þórunn Gísladóttir Ellabikarinn en hún hefur stundað knattspyrnu með Keflavík frá því hún var 5 ára. Gabríela er frábær félagsmaður og svo sannarlega Sannur Keflvíkingur. Hún lenti í slæmum meiðslum á tímabilinu og missti af stærstum hluta undirbúningstímabilsins en sýndi mikla þrautseigju og vann sig aftur inn í liðið. Gabríela er einnig með framúrskarandi æfingasókn og er alltaf hægt að leita til hennar ef vantar aðstoð við hin ýmsu verkefni innan félagsins. Hún hefur einnig sinnt aðstoðarþjálfun síðustu 2 árin og staðið sig virkilega vel.
4
Jólablað 2021
Gabríela Þórunn Gísladóttir og Sigurbergur Elísson
Gleðileg jól gott og farsælt komandi ár með þökk fyrir samstarfið á árinu sem er að líða
Verkfræðistofa Suðurnesja ehf. Víkurbraut 13, 230 Reykjanesbæ Sími 420 0100 / vss.is / vs@vss.is
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.
Viðurkennt þjónustuverkstæði
Grófin 14a, 230 Reykjanesbæ, sími 4216901
Sendum viðskiptavinum og landsmönnum öllum hugheilar jóla- og nýárskveðjur
Umhverfisvæn orkuframleiðsla í 40 ár Njótið jólana í birtu og yl frá umhverfisvænni framleiðslu www.hsorka.is
Jólablað 2021
5
Taekwondo:
Íþróttalífið vaknar á ný
Þ
að hefur ekki farið framhjá neinum að síðustu tvö ár hafa verið erfið fyrir alla heimsbyggðina. Íþróttalífið var þar engin undantekning. Síðustu mánuðir hafa þó sýnt okkur að það er bjart framundan og möguleiki á að halda íþróttastarfinu áfram. Eftir að hafa þurft að aðlaga æfingar og mót að heimsfaraldr-
6
Jólablað 2021
inum á vormánuðum fóru hlutirnir að horfa til bjartari vega í haust. Þrjú mót voru á dagskrá taekwondosambands Íslands árið 2021. Bikarmót í febrúar 2021 en þar sigruðu Keflvíkingar mótið og unnu því Bikarmeistaratilinn 2021. Margir keppendur voru að stíga sín fyrstu skref á mótum ásamt eldri og
reyndari keppendum. Keflvíkingar fengu 17 gull, 13 silfur og 9 brons. Öðrum mótum á vormánuðum var frestað vegna Covid. Um vorið skrifaði taekwondosambandið (TKÍ) undir samning við Helga Rafn Guðmundsson, yfirþjálfara taekwondo deildar Keflavíkur um að búa til efni fyrir þjálfaranám TKÍ. Það mun að vera mik-
il lyftistöng fyrir íþróttina að fá loksins viðurkennt þjálfaranám fyrir taekwondo þjálfara. Sumarið var vel sótt hjá taekwondo deildinni. Boðið var upp á fjölda námskeiða fyrir allan aldur og voru þau vinsæl eins og síðustu ár. Fjöldi nýrra iðkenda komu til deildarinnar, sem er alltaf að stækka og styrkjast. Haustið byrjaði mjög vel. Með tilkomu frístundarakstursins var auðveldara fyrir iðkendur að komast á æfingar hjá deildinni. Allir hópar fylltust í byrjun hausts og verður gaman að sjá hvernig gengur hjá nýjum iðkendum á næstu mánuðum. Um haustið var úrtaka fyrir nýtt landslið Íslands í bardaga og það komust 12 Keflvíkingar í landslið eða unglingalandslið Íslands. Fyrstu mót liðsins eru á dagskrá eftir áramót og verður spennandi að sjá hvernig til tekst hjá þessu unga og efnilega liði. Í október var keppt á Íslandsmótinu í poomsae (tækni) og áttu Keflvíkingar þar góðan hóp keppanda sem náði góðum árangri, 7 gull, 7 silfur og 8 brons. Í nóvember var keppt á Íslandsmótinu í kyorugi (bardaga). Keflvíkingar sendu 11 keppendur á mótið sem unnu allir til verðlauna. Ekki nóg með það heldur unnu Keflvíkingar alla flokka og bardaga sem þeir kepptu í á mótinu og enduðu í 3. sæti yfir heildarárangur allra liða á mótinu.
Minnum á dagskrá kirkjunnar um aðventu og jól Sjá nánar www.keflavikurkirkja.is
þar sem einnig eru upplýsingar um annað starf í kirkjunni.
Hugheilar óskir um gleðiríka jólahátíð og farsæld á nýju ári Kirkjuvegi 25 • 230 Keflavík • Sími 420 4300 • www.keflavikurkirkja.is
Jólablað 2021
7
A L Ó J L L I M R U K LEI ver h n ó j l l i m a a heil n n i v r a r a l i 25 sp
Vertu með í Milljólaleiknum. Það eina sem þú þarft að gera til að komast í pottinn er að vera með áskrift eða kaupa 10 raðir eða meira í Lottó, Vikinglotto eða Eurojackpot. Þannig gæti jóladagur orðið þinn milljóladagur því þá vinna 25 heppnir spilarar heila milljón hver! Nánar á lotto.is
DREGIÐ 25. DES 8
Jólablað 2021
RKVG gerði frábæra hluti á Rey Cup í sumar
Í
sumar fór sameiginlegt lið RKV og Grindavíkur á ReyCup þar sem 19 stelpur skráðu sig til leiks. Ekki alveg nógu margar til að manna tvö lið, en þó það margar að nánast var spilað á tveimur mismunandi liðum hvorn hálfleikinn. Þó það sé gríðarlegur metnaður í flestum stelpum liðsins þá skildu þær stöðuna og gerðu sér að góðu að fá að spila bara hálfleik í hvert skipti í stað þess að fá að spila heilan leik eins og þær eru vanar. Þjálfararnir fundu strax í fyrsta leik góða blöndu með álíka sterkum liðum í hvorum hálfleik og stelpurnar voru tilbúnar frá fyrstu mínútu. Eftir gott gengi þá var komið að leik gegn heimastúlkum í Þrótti Reykjavík. Miðað við önnur úrslit þá var nokkuð ljóst, að þessi leikur myndi ráða því, hvort liðið myndi vinna riðilinn og spila um gullið. Frábær leikur hjá stelpunum og dagurinn endaði á sigri og efsta sæti riðilsins áður en farið var í lokadaginn. Önnur úrslit komu á óvart og byrjaði RKVG lokadaginn þannig að þær þurftu sigur í síðasta leiknum. Jafntefli hefði geta þýtt að liðið gæti dottið niður í þriðja sæti riðilsins og alveg niður í fjórða sæti ef þær töpuðu. En stelpurnar létu ekki taugarnar fara með sig og unnu síðasta leik riðislins gegn Aftureldingu nokkuð örugglega. Við tók úrslitaleikur gegn Þór/KA seinna um daginn.
RKVG hafði tekið þátt í Stefnumóti KA á undirbúningstímabilinu og tapað þar gegn Þór/KA í undanúrslitum. Stelpurnar voru því meðvitaðar um að þetta yrði ekki auðveldur leikur og mátti skynja stress í stúlkunum fyrir leik. Ákveðið var því að taka smá slökun fyrir leik og góða hugleiðingu. Þetta útspil virtist virka vel því stelpurn-
ar sýndu það strax í upphafi leiks að þær ætluðu að sigra þennan leik sem þær gerðu. RKVG vann því bikarinn 2021 og mega svo sannarlega vera stoltar af árangrinum. S. Hilmar Guðjónsson Þjálfari
19 stúlkur skráðu sig til æfinga
S
íðasta tímabil þá var ákveðið að endurvekja 2. fl félagsins kvenna megin. Það hefur verið algjör sprenging í fjölda iðkenda þeim megin og fullt af stelpum sem hefðu fengið fá verkefni ef ekki hefði verið tekin þessi ákvörðun. Hilmar, sem hafði verið að aðstoða í 2. fl karla, var fenginn til að leiða þetta verkefni og samið var við Reyni og Víði til að bjóða stelpum þaðan að vera með. Það varð fljótt ljóst að þetta var þarft verkefni þar sem 19 stúlkur skráðu sig til æfinga og hófst alvaran strax. Vel var tekið á því á æfingum, þó gleðin hafi fengið að ráða að mestu. Stelpurnar tóku þátt í Faxaflóamótinu sem var fljótlega slaufað vegna Covid en Íslandsmótið fékk að standa. Samhliða því að hafa gaman og njóta þess að
spila fótbolta þá var farið í nokkur ferðalög. Fyrsta ferðalagið var til Vestmannaeyja, uppstigningardaginn, 13. maí. Sáum fyrir okkur geggjaða dagsferð, en þegar til eyjarinnar var komið þá var auð-
vitað frídagur þar eins og á meginlandinu og flest allt lokað. Önnur ferð sem var farið í og stendur uppúr, hvað varðar lélegt skipulag var ferðin til Ísafjarðar. Hún endaði á því að einhverjar keyrðu, sumar gistu, aðrar flugu og svo á leikdegi, þá var leikurinn færður á Bolungarvík þar sem við fengum eflaust að keppa á lélegasta grasvelli landsins. Það sem stendur uppúr eftir þetta fyrsta tímabil er samheldnin og hversu duglegar stelpurnar voru að aðstoða hverja aðra. Þó tímabilið hafi verið erfitt og því miður nokkur slæm töp þá fengu stelpurnar fullt af mínutum í reynslubankann og 2. fl kvk hjá Keflavík kominn til að vera. Sigurður Hilmar Guðjónsson Þjálfari 2. fl kvk
Jólablað 2021
9
Óskum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
ÞORVALDUR H. BRAGASON ÞÓRIR HANNESSON TANNLÆKNAR OG STARFSFÓLK S K Ó L AV E G I 1 0 • 2 3 0 K E F L AV Í K
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.
Smiðjuvöllum 6 • 230 Keflavík • Sími 421 3500 • www.retting.is
Skoðaðu okkar tillögur að góðum jólagjöfum á bros.is
Norðlingabraut 14 Sími 569 9000
Óskum Suðurnesjamönnum
Óskum viðskiptavinum okkar, sem og Suðurnesjamönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.
Vinur við veginn 10
Jólablað 2021
Þökkum árið sem er að líða.
Stofnað 1971
Óskum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Fitjabraut 30, 260 Reykjanesbær - www.bilnet.is - Sími 420 0040
Reycup fótboltamótið
Þ
rjátíu og fimm drengir í 3 flokk frá Keflavík tóku þátt á Reycup í sumar og var þetta 20 ára afmælismót. Reycup fótboltamótið er haldið á vegum Þróttar Reykjavík. Hópnum var skipt niður í 2 lið og var leikið á mörgum völlum í Laugardalnum og eins á Víkingssvæðinu. Keflavíkingar fengu úthlutað gistingu í frístundarheimilinu Laugarseli við Laugarnesskóla og fór vel um allan hópinn þar. Foreldrar og þjálfarar tóku virkan þátt í undirbúningi og skipulagningu við mótið. Að vera í Laugardalnum í júlí er frábært þó svo að við hefðum fengið allar tegundir af veðri. Þá var
ýmislegt í boði á mótinu en því miður setti Covid svip sinn á dagskrá mótsins. Í boði var t.d. sundlaugarpartý, ball og grill. En að sjálfsögðu skipar fótboltinn stærsta hlutann í dagskránni. Gekk liðunum okkar misvel bæði sætir sigrar og erfið töp. Gleðin var samt aldrei langt undan hjá flottum hópi drengja fæddum 2005 og 2006. Það má segja að leigu-hlaupahjólin hafi slegið í gegn á mótinu því þau voru notuð óspart til að koma sér á milli staða á frábærum göngustígum í Laugardalnum. Áfram Keflavík.
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.
KJG
KEÓ
Kristín Geirmundsdóttir og Kristín Erla Ólafsdóttir, tannlæknar og starfsfólk Hafnargata 45 • Sími 421 8686
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.
Fyrir hönd hópsins Ragnhildur Ingólfsdóttir, fararstjóri
Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Haf narg ata 20 • Sími 4 20 4000 • studlaberg.i s
Jólablað 2021
11
Meistaraflokkur: Meistaraflokkur karla:
„Við erum Keflavík“ R
étt áður en árið 2021 hófst skrifaði Sveindís Jane Jónsdóttir leikmaður Keflavíkur undir atvinnumannasamning við Wolfsburg næstbesta félagslið í heimi í knattspyrnu kvenna. Í viðtali við undirskriftina í flugeldasölunni í K-húsinu þegar Sveindís var spurð af blaðamanni hver framtíðarmarkmiðin hennar væru horfði hún beint í augu fréttamannsins og sagði stolt: „Ég ætla að verða besti leikmaður í heimi“. Ekki láta það koma þér á óvart ef það tekst. Hvar lærði hún að setja markið hátt? Sveindís er Keflavík. Árið 2018 var strákur í 2.flokki hjá Keflavík sem fékk að spila 4 fyrstu leikina sína með meistaraflokki. Hann þótti stundum erfiður og hefur þurft að taka út sinn skerf af meiðslum. Einn daginn tók hann þá ákvörðun, að taka fótboltann miklu fastari tökum, mataræði, svefn o.s.frv. og ákvað að leggja sig 100% fram í að ná langt í íþróttinni. Hann hafði aldrei spilað yngri lands-
12
Jólablað 2021
leik og líkurnar á að ná langt í fótbolta eru töluvert minni ef þú hefur ekki náð því. Um miðjan maí á þessu ári hringdi hann í mig og tilkynnti svo ótrúlega glaður og stoltur, „Siggi Raggi! Arnar Viðarsson landsliðsþjálfari var að hringja í mig það er búið að velja mig í A-landsliðið gegn Mexíkó!“. Ég fékk þvílíka gæsahúð í gegnum símann. Vinnusemi og dugnaður borgar sig. Rúnar Þór er Keflavík. Fyrir nokkru kom sóknarmaður til reynslu hjá okkur sem hafði nær eingöngu spilað í neðri deildum. Fáir höfðu trú á honum en vera hans ílengdist vegna Covid og hann var duglegur og tók framförum og að lokum vann hann sér inn samning. Hann var oft varamaður í Lengjudeildinni en skoraði 4 mörk og hjálpaði liðinu okkar upp í fyrrasumar. Í sumar þurfti hann að bíða lengi eftir tækifæri, samkeppnin hafði aukist. Hann var síðasti maður heim af æfingasvæðinu eftir hverja einustu æfingu í sumar, hljóp alltaf aukalega og æfði sig að klára færi, vera tilbúinn þegar kallið kæmi og var ekki að vorkenna sjálfum sér. Að lokum byrjaði hann inná gegn Breiðablik í bikarnum í sumar. Á 114. mínútu í framlengingunni þegar leikmenn Breiðabliks voru orðnir dauðþreyttir hljóp Helgi Þór þindarlaus inn fyrir vörnina þeirra og skoraði. Við slógum með því Breiðablik út úr bikarnum. Fyrirsagnir miðlanna eftir leikinn voru Helgi Þór hljóp 16 kílómetra gegn Breiðablik. Vá flott hugarfar! Helgi Þór þú átt alla mína virðingu. Helgi Þór er Keflavík. Keflavík seldi leikmenn í atvinnumennsku á árinu bæði karla og kvennamegin, við héldum báðum liðunum okkar uppi í PepsíMax deildinni, undanúrslit í Mjólkurbikar, undanúrslit í Lengjubikar, Keflvíkingar spiluðu A-landsleiki á árinu og við áttum leikmann í U21 landsliðshópnum og Keflvíkingar spiluðu U19 ára landsleiki karla og kvenna. Við byrjuðum með 8.flokk kvenna. Þetta var árið sem við náðum loksins að ráða reynsluboltaþjálfararann Frey Sverrisson inn í barna og unglingastarfið okkar Við buðum upp á fótboltanámskeið fyrir börn af erlendum uppruna. Kjarni meistaraflokkanna eru uppaldir leikmenn. 250 manns tóku þátt í árgangamótinu, 1000 manns komu á síðasta heimaleikinn í sumar, um 25 leikmenn útskrifuðust úr yngri flokka
starfinu okkar í haust, við opnuðum nýjan gervigrasvöll og rákum félagið af skynsemi. Allt er þetta einhver mælikvarði á árangur. Við samgleðjumst og erum stolt af þeim sem skara fram úr en við getum verið alveg jafn stolt af öllum þeim sem tilheyra félaginu okkar þó þau séu ekki landsliðsfólk eða atvinnumenn. Með
háleitum markmiðum (Sveindís), dugnaði (Rúnar) og réttu hugarfari (Helgi Þór) eru okkur allir vegir færir. Við skrifum söguna okkar saman! Við erum Keflavík. Siggi Raggi Höfundur er yfirmaður knattspyrnumála og þjálfari meistaraflokks karla
Jólablað 2021
13
Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár,
Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Hafnargata 36, 230 Reykjanesbæ • Sími 440 2450
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.
Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.
A D L E G U FL
Óskum viðskiptavinum okkar, sem og Suðurnesjamönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
SALA
8 UT 10 GBRA
IÐ
K-HÚS
HRIN
r
u Keflavík
OPNUM 28.DESEMBER OPIÐ 28., 29. & 30.DESEMBER FRÁ KL.10.00-22.00 OPIÐ GAMLÁRSDAG FRÁ KL.10.00-16.00 Við treystum á íbúa Reykjanesbæjar að styðja vel við bakið á okkur. Allur hagnaður deilist á milli karla,kvenna og unglingadeilda knattspyrnudeildar Keflavíkur
SÖLUUMBOÐ ÖSKJU Á REYKJANESI Sími 420 5000 14
Jólablað 2021
r
udeilda
pyrn Knatts
Gerðu heimilið snjallt og öruggt fyrir jólin með Snjallöryggi Kynntu þér snjallara öryggiskerfi á snjalloryggi.is eða í síma 570 2400
a k k u l 2021 Jóla Skafmiðaleikur Víkurfrétta og verslana á Suðurnesjum
Það er gaman að skafa!
SEX ÞÚSUND VINNINGAR! Þú færð Jólalukku VF í nettó og tuttugu öðrum verslunum og fyrirtækjum á Suðurnesjum. Skilið vinningslausum miðum í nettó verslanir. Drögum fleiri flotta vinninga þrisvar í desember.
Jólablað 2021
15
Kvennaknattspyrnan í Keflavík:
Fimmti flokkur kvenna stóð sig frábærlega
F
immti flokkur kvenna RKV stóð sig frábærlega á liðnu tímabili. Flokkurinn var fjölmennasti flokkur félagsins með um 75 stelpur í heildina sem æfðu yfir tímabilið. Flokkurinn sendi 8 lið til keppni í Íslandsmóti, næstflest lið allra félaga í þessum aldursflokki. Stelpurnar tóku einnig þátt í TM mótinu í Vestmannaeyjum og á Símamótinu í Kópavogi. Á Símamótinu spilaði lið RKV1 frábærlega og end-
16
Jólablað 2021
aði á að spila úrslitaleik Símamótsins í efsta styrkleika á Kópavogsvelli. Lauk leiknum með 1-0 sigri RKV og unnu þær því sjálfan Símamótsbikarinn. Íslandsmótið gekk einnig mjög vel hjá öllum liðum en við spiluðum í A-riðli sem er sterkasti riðillinn. Í lok sumars voru það C1-liðið og D1liðið sem komust í úrslitakeppnina og unnu bæði lið sína undanúrslitaleiki og komust þar með í úrslitaleik Íslandsmótsins í C og D liðum. C-liðið
Marki fagnað gegn Þór Akureyri.
stóð uppi sem sigurvegari og því Íslandsmeistari C-liða en D-liðið tapaði naumlega og þurfti að sætta sig við silfrið. Í heildina litið stóðu stelpurnar sig virkilega vel, þær voru duglegar að mæta á æfingar, lögðu sig fram og skemmtu sér vel saman á æfingum og mótum. Sólrún Sigvaldadóttir Yfirþjálfari yngri flokka
Kvennaknattspyrnan í Keflavík:
Sterkir einstaklingar sem hafa myndað einstaka liðsheild og láta ekkert stoppa sig
H
austið 2015 tók undirritaður að sér mjög spennandi, en jafnframt krefjandi verkefni, sem þjálfari meistaraflokks Keflavíkur með Elis heitinn Kristjánsson mér við hlið. Verkefnið var sérstaklega krefjandi þar sem hlutskipti liðsins sumarið 2015 var botnsætið í neðstu deild. Fyrsta tímabilið var sannkallað ævintýri þar sem liðið var aðeins einu marki frá því að tryggja sér sæti í efstu deild eftir stórkostlegt úrslitaeinvígi gegn Haukum. Þrátt fyrir tap í einvíginu verður þessi leikur lengi í minnum hafður; rútuferðir frá Keflavík, full stúka, trommur og læti, flóðljós og geggjað haustveður. Þessi leikur markaði það sem koma skyldi. Eftir úrslitaeinvígið gegn Haukum tóku við tvö ár í toppbaráttu 1. deildar sem skilaði sæti í Pepsi deildinni keppnistímabilið 2019. Það ár var liðið mjög reynslulítið og endaði í 9. sæti deildarinnar og féll um deild. Þarna tók liðið eitt skref aftur á bak. Stúlkurnar fengu á þessum tíma smjörþefinn af því að spila á meðal þeirra bestu og stóðu þétt saman að því að koma liðinu aftur í efstu deild. Strax árið á eftir tryggði liðið veru sína í Pepsi deildinni á ný og spilaði þar á nýliðnu tímabili. Það gekk erfiðlega í upphafi móts og upplifðu stelpurnar töluvert mótlæti í leikjum sínum þar sem heilladísirnar voru sannarlega ekki á þeirra bandi. Þegar fimm umferðir voru eftir var búið að dæma liðið niður um deild, liðið sat í neðsta sæti deildarinnar og virtist eiga litla von um að halda sæti sínu í deildinni. Liðið átti eftir að ferðast til Vestmannaeyja, Sauðárkróks og Akureyrar og þar á milli áttu tvö bestu lið landins, Valur og Breiðablik, eftir að koma í heimsókn til Keflavíkur. Þetta var vonlaus barátta að flestra mati en stelpurnar voru á allt öðru máli. Þær sýndu gríðarlegan karakter og einstaka liðsheild á endasprettinum og fóru taplausar í gegnum þessar fimm umferðir og náðu með því að tryggja sæti sitt í Pepsi deildinni 2022. Liðið hafði lært mikið af veru sinni í efstu deild 2019 og kom reynslunni ríkari til leiks 2021. Þegar liðið féll 2019 voru aðeins tvö lið (Valur og Breiðablik) sem skoruðu fleiri
mörk en Keflavík og má því segja að varnarleikurinn hafi orðið liðinu að falli. Á nýliðnu tímabili snerist dæmið við, aðeins tvö lið fengu á sig færri mörk en Keflavík (Valur og Þór/KA) og má því segja að varnarleikurinn hafi tryggt veruna í deildinni þetta árið. Uppgangur kvennafótboltans í Keflavík hefur verið mikill á allra síðustu árum og á sama tíma orðið mikil fjölgun í yngri flokkum félagsins. Það hefur verið virkilega gaman að fylgjast með uppvexti yngri flokkana og sjá áhugann hjá stelpunum endurspeglast í gengi meistaraflokks. Það hefur sannast síðustu ár hversu mikilvægt er fyrir yngri iðkendur að hafa fyrirmyndir í elstu flokkunum. Í gegnum árin hafa nokkrar afburðarknattspyrnukonur komið frá Keflavík. Okkar skærasta stjarna í dag er án efa Sveindís Jane Jónsdóttir sem er ein albesta knattspyrnukona landsins. Sveindís spilaði eitt tímabil á láni með Breiðablik áður en hún var seld frá Keflavík til þýska stórliðsins Wolfsburg. Sveindís hefur náð ótrúlega langt í knattspyrnunni, sem er ekki eingöngu vegna færni hennar á knattspyrnuvellinum, heldur líka fyrir einstak-
an persónuleika og þann góða liðsmann sem hún hefur að geyma. Allar ungar knattspyrnukonur í Keflavík horfa upp til Sveindísar og fá hvatningu frá henni sem er ótrúlega mikilvægt fyrir unga iðkendur. Þegar undirritaður tók við liði Keflavíkur haustið 2015 var liðið mjög ungt og margar af þeim stelpum eru reynsluboltarnir í liðinu í dag. Núna eru að koma upp margar ungar og efnilegar stelpur í meistaraflokkinn, stelpur sem eru að stíga sín fyrstu skref og í sömu sporum og reynsluboltarnir okkar voru í árið 2015. Það má því segja að þegar ég fer inn í mitt sjöunda tímabil sem þjálfari liðsins séu ákveðin kynslóðaskipti að eiga sér stað. Framtíðin í kvennaknattspyrnunni í Keflavík er björt og mikilvægt að halda vel utan um yngri iðkendur. Við þurfum að hlúa vel að einstaklingunum og hafa í huga þætti eins og virðingu, gleði, aga og viðhorf. Knattspyrna er liðsíþrótt og mikilvægt að gera iðkendum snemma ljóst að til að ná árangri þarf liðið að vinna saman. Árangur meistaraflokks Keflavíkur s.l. ár er að stórum hluta að þakka afar sterkum einstaklingum sem hafa myndað einstaka liðsheild og láta ekkert stoppa sig í sinni vegferð. Áfram Keflavík Gunnar Magnús Jónsson
Jólablað 2021
17
Óskum viðskiptavinum okkar ánægjulegra stunda yfir hátíðarnar
Gleðileg jól farsælt komandi ár, þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða BÓKHALDSÞJÓNUSTAN SÆVAR REYNISSON VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR
Hafnargötu 27 - Sími 421 1420 & 894 3837
Hjólbarðaþjónusta Reykjaness ehf. Framnesvegur 23 Sími 421 4546
VÍSIR
Félag skipstjórnarmanna á Suðurnesjum
Keflavík íþróttaog ungmennafélag
Tækniþjónusta SÁ ehf.
Rafverktaki
StapaPrent - Síðan 1984 -
18
Jólablað 2021
Óskum íþróttafólki svo og öðru Suðurnesjafólki gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
VERÐLAUNAGRIPIR
S í m i 588 3244 - issp o r.is
Rafíþróttadeild Keflavíkur Í byrjun árs hófst starfið okkar hjá Rafík með glæsibrag. Við byrjuðum á sex æfingahópum og þeir fylltust upp á stuttum tíma. Óhætt er að segja, að áhuginn á rafíþróttum sé gríðarlega mikill og þetta starf er eitthvað sem mun klárlega koma til með að verða stærra og stærra með hverju árinu. Fyrsta árið var nýtt vel í að kynnast starfinu, finna út hvaða aðferðir sé best að notast við og einnig kynnast áhuga krakkanna á þessu
öllu saman. Við erum nú þegar búin að halda nokkur lítil keppnismót innan hópsins. Þau komu vægast sagt vel út, mikil stemning og teljum við foreldrana eiga mikið hrós skilið fyrir hvatningu sína til krakkanna varðandi þetta nýja og stóra íþróttasvið sem við köllum rafíþróttir. Allt hefur gengið hreint út sagt frábærlega og við getum svo sannarlega verið þakklát og sátt við árið sem er að líða. Við hjá Rafík þökkum kærlega fyrir árið!
Óskum félagsmönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Kros s m óa 4a - Sími 5 4 0 0 112
Óskum félagsmönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis Kros s m óa 4a - Sími 4 2 1 5 777
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Bolafæti 3, 260 Reykjanesbæ, sími 421 4117
Jólablað 2021
19
Óhefðbundinn þjálfari af gamla skólanum Í
dag er oft talað um að ákveðnir menn séu „af gamla skólanum“. En hvað er að vera af gamla skólanum? Segja má að „gamli skólinn“ sé nútíma hugtak yfir það sem áður var nefnt „karlmennska“, hugtak sem í dag þykir nokkuð úrelt og lítt í takt við tíðarandann. Fyrir menn sem eru af gamla skólanum er ekkert betra en svart kaffi, þeir setja mikið smjör á brauðið og ekkert meðlæti er með kjötinu annað en kartöflur – soðnar! Fyrir menn af gamla skólanum er lítið mál að ganga í öll verk, ekkert er of erfitt, og ef að á móti blæs gefast menn ekki upp eða væla heldur harka þeir af sér. Í versta falli byrgja menn hlutina inn í sér enda blátt bann við því að bera harm sinn á torg þegar menn eru af gamla skólanum. Líklega eru fáir Keflvíkingar sem teljast meiri táknmyndir yfir gamla skólann en Kjartan Másson – maður sem kallaði svo sannarlega ekki allt ömmu sína og var með munninn langt fyrir neðan nefið. Ætli það sé nokkuð ofsögum sagt að Kjartan hafi verið yfirmeistari gamla skólans?
Eyjapeyjinn Kjartan Másson er fæddur í Vestmannaeyjum 17. apríl 1946. Fyrir unga drengi á þessum árum voru Vestmannaeyjar auðvitað algjör paradís. Samfélagið var gott og léku krakkar sér daglega úti um allar þorpagrundir. Íþróttaáhugi Kjartans var fljótt mikill. Hann æfði bæði fótbolta og handbolta í Eyjum þó fótboltinn hafi ávallt verið númer eitt. „Ég spilaði fótbolta með öllum yngri flokkum í Vestmannaeyjum
20
Jólablað 2021
Kjartan Másson ásamt barnabörnunum, þeim Sigfríði, Þórarni, Kjartani og Huldu Sif. ásamt góðvini mínum og markmanni Palla Pálma heitnum en hann átti síðar eftir að verða aðstoðarmaður minn í þjálfun. Ég var nú ekkert sérstaklega góður, var bakvörður og kannski ekkert sérstaklega
liðlegur sem slíkur. Ég hætti svo upp úr tvítugu enda var ég mikið meiddur. Ég var til að mynda skorinn upp þrisvar á hné og það tók því ekki að skera þetta oftar fyrst gæðin voru ekki meiri“, segir Kjartan og
Kynslóðin sem vann bikartitla Keflavíkur 1997, 2004 og 2006 var kvödd með heiðursleik í október 2017. Að sjálfsögðu var Kjartan fenginn til að stýra liðinu og hélt hann töflufund fyrir leikinn mikilvæga. Menn voru miseinbeittir. að Kjartan fór að þjálfa handbolta? „Ég var að kenna í Stýrimannaskólanum og þar bjuggum við til handboltalið. Við fengum að kalla það ÍBV en liðið samanstóð einungis af strákum úr Stýrimannaskólanum. Þetta var líklega fyrsta handboltalið ÍBV en við vorum alls ekki góðir svo það sé nú sagt“. Gosið í Heimaey hófst árið 1973, þegar Kjartan var 27 ára gamall. Kjartan kveðst ekki hafa farið frá Vestmannaeyjum þegar byrjaði að gjósa. Hann kaus heldur að vera á staðnum og hjálpa til en ótrúleg björgun á fólki og eignum fólks átti eftir að vekja athygli um heim allan en gosið í Heimaey var fyrsta gosið í íbúabyggð á Íslandi. Kjartan segir að fólk hafi almennt ekki viljað fara en auðvitað hafi fólk neyðst til þess í einhverjum tilvikum. „Fólk vildi almennt ekki fara, þá sérstaklega eldri borgarar. Samfélagið var samrýmt en þetta var líka nokkuð sérstakt samfélag. Það voru til dæmist eldri hjón í næsta húsi við mig sem höfðu aldrei farið á þjóðhátíð þó þau hafi búið í Vestmannaeyjum frá tvítugu. Þau vildu til að mynda ekkert yfirgefa eyjuna“.
Nýtt heimili í keflavík
hlær. „Svo tíðkaðist ekkert að hanga í þessu sprikli langt fram eftir. Í kringum tvítugt fóru menn bara að byggja og vesenast og duttu þar að leiðandi út milli 20-25 ára. Maður byrjaði auðvitað snemma að vinna. Ætli það hafi ekki verið um kringum tíu ára aldurinn sem ég byrjaði að slíta humar og svo vann maður í frystihúsum og svona“. Kjartan lauk námi frá Íþróttakennaraháskólanum á Laugarvatni árið 1966. Námið var aðeins átta mánuðir en með honum í náminu voru fimm aðrir strákar og átta stelpur. Á meðan Kjartan stundaði þar nám bjó hann í sumarbústað í grenndinni. Eftir nám þjálfaði Kjartan frjálsar íþróttir, handbolta og síðar fótbolta í Vestmannaeyjum. En hvernig kom það til
Eftir gosið flakkaði Kjartan eitthvað milli lands og Eyja og stoppaði meðal annars við í Færeyjum 1978 þar sem hann þjálfaði Göta. Það var svo árið 1984 sem Kjartan og fjölskylda flytja til Keflavíkur. Kjartan flutti upphaflega til Keflavíkur til að starfa við fiskvinnslu og útgerð en hann og Baldvin Njálsson höfðu á sínum tíma stofnað fiskverkunarfyrirtækið Baldvin og Kjartan sem var undanfari Nesfisks hf. Frá því Kjartan flutti til Keflavíkur rak hann meðal annars frystihús, fiskvinnslu og útgerð í Garði, Sandgerði og Keflavík með góðum árangri. Hann var sem dæmi verkstjóri hjá Miðnesi hf. Þar kynntist hann Óla Baldri Ólafssyni og bræðrum hans en Kjartan segir þá bestu vinnufélaga sem hann hafi haft og Miðnes hafi líklega verið besti vinnustaðurinn sem hann vann á. Eins og með menn af gamla skólanum var Kjartan fylginn sér og duglegur. Svo duglegur að á tímabili starfaði hann við sex störf á sama tíma. „Ég rak netaverkstæðið, rak vélaverkstæði, tvo togarar, einn pöbb í Reykjavík og þjálfaði svo ÍK“. Áður en Kjartan Másson tók við sem þjálfari meistaraflokks Keflavíkur sumarið 1991 hafði hann náð ansi athyglisverðum árangri í þjálfun. Kjartan hóf feril sinn sem meistaraflokksþjálfari í Vestmannaeyjum en hann var þjálfari ásamt Viktori Helgasyni þegar ÍBV varð Íslandsmeistari í fyrsta skipti 1979. Kjartan tók svo einn við ÍBV liðinu 1981 þegar liðið tryggði sér bikarmeistaratitilinn. Fimm árum síðar, eða sumarið 1986, leiddi hann Víði í Garði til síns besta árangurs í efstu deild frá upphafi, 7. sæti. Það voru því talsverðar væntingar gerðar til Kjartans þegar hann tók við Keflavíkurliðinu 1991 en liðið lék þá í næst efstu deild. Það tók Kjartan ekki langan tíma að setja
Kjartan eitur svalur. Gamli skólinn var ekki að flækja hlutina. mark sitt á liðið. Á sínu öðru ári tryggði liðið sér sæti í efstu deild með því að lenda í öðru sæti, þremur stigum á eftir Fylki. Árangur liðsins í efstu deild árið eftir var frábær. Liðið endaði tímabilið í 3. sæti en að því tímabili loknu hætti Kjartan með liðið og tók við Víking í næst efstu deild. Kjartan kom þrisvar sinnum aftur að þjálfun Keflavíkurliðsins eftir þetta. Þetta voru árin 1996 þegar liðið endaði í 8. sæti í efstu deild, 1999 þegar liðið endaði í 8. sæti í efstu deild og loks tímabilin 2001 og 2002 en seinna árið féll liðið úr efstu deild á markatölu. Auk þess að þjálfa ÍBV, Víði og Keflavík þjálfaði Kjartan einnig Víking Reykjavík, ÍK (HK í dag) og Reyni Sandgerði en það var einmitt í Sandgerði, þar sem Kjartan býr ásamt konu sinni í dag, sem hann þjálfaði sinn síðasta leik árið 2012.
Óhefðbundar leiðir í þjálfun Eins og komið var inn á í upphafi kallaði Kjartan Másson svo sannarlega ekki allt ömmu sína. Hann þótti harður í horn að taka, var með munninn fyrir neðan nefið og lét gjarnan í sér heyra ef honum þóttu hlutirnir ekki í lagi. Það sem ein-
Jólablað 2021
21
Kynslóðin sem vann bikartitla Keflavíkur 1997, 2004 og 2006 var kvödd með heiðursleik í október 2017. kenndi þó þjálfarastíl Kjartans einna helst voru hinar óhefðbundnu leiðir sem hann fór í þjálfun. Hvort sem leikmenn voru sendir hlaupandi með vasaljós í myrkrinu til að rata í reiðhöllina til að æfa fótbolta, stunda box til að æfa snerpu, stunda airobick til að fá sprengikraft, hlaupa stigahlaup til að þjálfa upp vöðvaþol í fótum, fara á fimleikaæfingar hjá Stano til að styrkja vöðva sem lítið voru notaðir við fótboltaiðkun eða að senda menn sem voru meiddir í sund til að hlaupa virkuðu allar þessar óhefðbundnu leiðir á sinn hátt. Þær höfðu allar ákveðinn tilgang og markmið að sögn Kjartans. Aðspurður hvort hann hafi tileinkaði sér þessar leiðir úr þjálfarafræðunum eða frá fyrirmyndum í þjálfun sagði Kjartan svo ekki vera. „Nei, nei ég hafði engar fyrirmyndir í þessu. Aldrei. Ég fór bara alltaf mínar eigin leiðir. Það var bara eins og þegar ég lét leikmenn ýta bílunum mínum. Þessa hugmynd fékk ég bara einn daginn í Sandgerði. Þá átti ég einhverja Ford druslu sem fór aldrei í gang og ég var alltaf að ýta honum. Það var djöfullegt og reyndi rosalega á mann. Ég hugsaði þá að þetta gæti verið fín æfing fyrir peyjana, að láta þá ýta bílum. Ég kallaði þar að leiðandi knattspyrnuráðið til á æfingar með bíla og dreifði tveimur leikmönnum á bíl. Svo lét ég þá ýta bílunum bæði upp og niður brekkur en aldrei máttu þeir sleppa. Þetta var bara keppni. Einhverjir vildu nú meina að ég hafi alltaf verið á handbremsunni en ég gef nú ekkert upp um það“, segir Kjartan sposkur á svip. Kjartan var þekktur fyrir að vera alltaf vel til hafður þegar hann stjórnaði sínum liðum. Frægir eru frakkarnir sem hann klæddist gjarnan, svarti „Matrix“ leður frakkinn og frakkinn með bólstraða kraganum. Að sögn Kjartans lagði hann alltaf mikið upp úr klæðaburði enda finnst honum að menn eigi að vera vel til hafðir „en ekki eins og einhverjir drulludelar á hliðarlínunni“ eins og hann kemst svo pent að orði. „Í Vestmannaeyjum fengum við í fyrsta skipti jakkaföt fyrir þjálfara og leikmenn. Fötin voru með ÍBV merkinu saumuðu í. Þetta þótti mjög flott. Það var reyndar útbúin smella yfir merkið. Ástæðan var sú að við vorum svo oft veðurtepptir að við urðum að nota fötin til að fara út á lífið og því var mikilvægt að setja smellu yfir merkið svo ekki sæist að þarna færu íþróttamenn
22
Jólablað 2021
menn mættir í stríð. Heldur þú að Kalla Finnboga og Kobba Jónharðs og þessum nöglum hafi dottið í hug að heilsa andstæðingum sínum eitthvað sérstaklega vingjarnlega fyrir leiki?“.
Tengsl við stjórn og stuðningsmenn
Kjartan dró að sjálfsögðu fram Matrix leðurfrakkann er hann stýrði Keflavíkurliðinu í heiðursleik kynslóðarinnar sem vann bikartitla Keflavíkur 1997, 2004 og 2006. frá ÍBV“. Þegar Kjartan kom til Keflavíkur lagði hann strax áherslu á að menn væru vel til hafðir. „Mér fannst mikilvægt að við færum allir í jakkaföt í leiki svo andstæðingar okkar og stuðningsmenn þeirra sæju að þeir væru að mæta alvöru liði. Maður sá að fólkið í stúkunni tók andköf að sjá þessa flottu peyja, samstillta og flotta til fara en ekki í einhverjum helvítis íþróttalufsum. Þetta var fyrsta skrefið í sálfræðistríðinu. Annað skrefið var svo þegar við löbbuðum út. Keflavíkurliðin mín voru lítið í því að heilsa hinum liðunum með einhverju brosi og vinskap enda vorum
Kjartan segir að þó leikmenn hafi oft á tíðum verið hissa á því sem hann tók upp á hafi mönnum þótt þetta skemmtilegt enda hafi margar æfinganna verið sniðnar að þörfum hvers og eins. „Ég lét menn gera allan andskotann. Ég lét menn líka gera mismunandi hluti eftir því hvað þeir þurftu að bæta. Gunni Odds þurfti til að mynda að auka snerpuna og því sendi ég hann í box. Mér þótti Óli Þór heldur valtur enda var hann mikill í burðum og því lét ég hann bara lyfta á lappir. Ég fékk Stano fimleikaþjálfara til að búa til sér prógramm í fimleikum. Menn voru margir hverjir frábærir í fimleikum eins og Óli Gott. En auðvitað voru æfingarnar alltaf sniðnar eftir því að um væri að ræða fótboltamenn.“ Menn voru auðvitað ekkert alltaf sáttir við þær aðferðir sem Kjartan beitti. Dæmi um slíkt hafi verið þegar Kjartan tók upp á því að senda leikmenn í lyftingar. Sumir hafi ekki viljað lyfta. Kjartan taldi þó lyftingar og aðra líkamsrækt vera það sem koma skildi og því lét hann menn mæta í lyftingarsalinn og merkja við sig. „Ég var ekkert að sjá um þessar æfingar. Ég mætti þó á svæðið og ég merkti við. Svo gerði ég það nú nokkrum sinnum að ég birti mætingalistann í Víkurfréttum. Þeir voru nú ekkert sérstaklega ánægðir með það strákarnir, sér í lagi þeir sem voru ekki mikið fyrir lyftingarnar. Ég sagði þeim hins vegar að fólkið í bænum sem væri að styðja við þá, styrkja þá og borga þeim laun hefðu heimtingu á að vita hvað þeir væru duglegir“. Hér víkur sögunni að því sem Kjartan segir vera akkilesarhæl í íþróttum en það sé skorturinn á tengingu milli leikmanna, þjálfara, stjórnarmanna og loks stuðningsmanna. Honum þykir þessi tenging eigi að vera mikið meiri. Það eigi að vera miklu meiri samheldni og gegnsæi í því sem verið er að gera. Hann segist til að mynda ekki skilja hvernig samband þjálfara og knattspyrnuráðs og stjórna félaganna hafi alla tíð verið háttað. „Ég skil oft á tíðum ekkert í þessu. Þeir ráða þig í vinnu sem þjálfara en svo ræður þú bara öllu. Knattspyrnuráðið fær aldrei að komast
Eyjapeyjar. Það fór vel á með þeim Heimi Hallgrímssyni, fyrrum landsliðsþjálfara, og Kjartani Mássyni þegar þessi mynd var tekin. Hvort Kjartan hafi laumað einhverjum óhefðbundnum þjálfunaraðferðum að Heimi þegar hann þjálfaði landsliðið skal þó ósagt látið. að neinu. Mér finnst þetta alveg út í Hróa hött. Ég hafði það þannig að þeir máttu koma til mín kvöldinu áður og þá myndi ég segja þeim liðið. Bað þá jafnvel í gamni að segja mér hvernig þeir vildu sjá liðið en hafði valið mitt falið undir borði. Mér finnst að þjálfari eigi að geta útskýrt af hverju hann notar ekki þennan eða hinn. Ef hann útskýrir og rökstyður valið fyrir knattspyrnuráðinu fá menn meiri áhuga, þetta verður meira gaman og það myndast meiri samheldni innan teymisins. Ég var í vinnu hjá þeim. Í dag eru stjórnarmenn eins og hundar fyrir þjálfarana og leikmenn út um allar trissur hlaupandi eftir peningum og betlandi en mega ekkert vita. Mér fannst alltaf sjálfsagt að þeir fengju að vera inni í hlutunum þó þeir réðu auðvitað engu um liðsvalið. Það er bara eðlilegt að rökstyðja sínar ákvarðanir.“ Og Kjartan gekk jafnvel lengra því einhver árin fundaði hann með stuðningsmönnum fyrir leiki og gaf þeim jafnvel upplýsingar um liðsuppstillingu á undan leikmönnum sjálfum. „Strákunum í liðinu fannst það óþægilegt og ég skildi það svo sem vel. En ég vildi halda góðu sambandi við stuðningsmenn. Þá hafði ég einstaklega gaman af því að hitta stuðningsmenn rétt fyrir leik og hlusta á nöldrið í þeim. Ég elskaði að hlusta á suma tuða um hitt og þetta og stinga svo upp í þá. Það var algjört æði.“
Íþróttakennarinn Árið 1989 hóf Kjartan störf sem íþróttakennari við Holtaskóla samhliða þjálfun og síðar starfi sem vallarstjóri en í mörg ár sá hann um aðalvöll Keflavíkur við Sunnubraut, gamla malarvöllinn og fótboltavellina að Iðavöllum. „Ég hætti að kenna árið 2015 þegar ég var 69 ára. Það var orðið helvíti erfitt að kenna sund og leikfimi að verða 70 ára. Þetta var eiginlega orðin algjör bilun og svo var þetta auðvitað orðið miklu meira en að kenna börnum orðið, það var ekkert mál. Það voru nú aðallega foreldrarnir. Annars hafði ég alltaf mest gaman að því að kenna villingunum og þeim sem áttu örlítið erfitt innan hins hefðbundna skólakerfis.“ Það er líklega á engan hallað þegar sagt er að Kjartan hafi oft átt auðveldara en aðrir kennarar að ná til krakka sem voru í erfiðleikum, voru af einhverjum sökum utangátta eða náðu illa að máta sig innan hins hefðbundna skólastarfs. „Þegar þessir krakkar komu til mín í íþróttir og voru kannski innan um aðal töffara bekkjarins og mestu íþróttagarpana átti ég til að upphefja
þá á kostnað hinna bara til að sýna þeim að þau væru líka mikils virði. Þegar þessir töffarar voru jafnvel að kasta í þá einhverju eða koma með létta stríðni var ég fljótur til að stoppa það og upphefja þá enn frekar. Enda voru þessir krakkar ekkert síðri oft í íþróttum eða daglegu lífi, þau þurftu oft bara málsvara eða einhvern sem studdi þá“. Kjartan segir að þetta hafi ekki endilega eitthvað sem hann hafi lagt upp með eða eitthvað sem hann meðvitað tileinkað sér heldur hafi þetta einfaldlega verið innbyggt í honum. Honum hafi þótt afskaplega vænt um það þegar gekk vel hjá þessum krökkum og þegar hann sá framfarir hjá þeim. „Ég var til að mynda með eina töluvert fatlaða stelpu í sundinu hjá mér. Hún var það fötluð að hún þurfti aðstoð við að komast í sundlaugina. Þessi stelpa fór síðar meir að keppa í sundi. Þetta þótti mér afskaplega vænt um og þetta eru oft bestu minningarnar“. Í kennslunni eins og í fótboltaþjálfuninni notaðist Kjartan við óhefðbundnar aðferðir sem voru síður en svo viðurkenndar alls staðar. Það kom honum líka oft í vandræði. Til að mynda tók hann upp á því að létta eða þyngja prófin sem leggja átti fyrir nemendurna eftir því hvað hver gat eða jafnvel leggja fyrir þá aðra hluti en honum bar því hann taldi þá liggja betur fyrir krökkunum. Gerði hann þetta sérstaklega þegar krakkar með fötlun áttu í hlut. „Í sundinu létti ég bara prófin ef ég var með krakka sem áttu við mikla erfiðleika að stríða eða voru með skerta hreyfigetu. Ég gaf þeim jafnvel 8-9 í einkunn ef mér þótti sú einkunn endurspegla það sem þau raunverulega gátu framkvæmt. Þá lenti maður oft í veseni og liðið í Reykjavík fór að kvarta og kveina yfir því að maður væri að gefa þeim of háa einkunn miðað við einhver viðmið.
Þú hefur ekkert viljað fara eftir þeim viðmiðum? „Nei, ég fór ekki eftir neinum viðmiðum. Ég sagði þeim bara að eiga sig þarna í Reykjavík og Sigurður skólastjóri var með mér í þessu. Ég fékk send bréf og boð á fundi út af þessu öllu en mér var skítsama – alveg skítsama“. Kjartan fór þannig oft sínar eigin leiðir og þó hann hafi auðvitað hlustað á það sem menn og konur höfðu að segja lét hann það bara ekki ráða för ef hann var því ekki sammála. „Ég fór oft mínar eigin leiðir. En ég passaði alltaf upp á krakkana og það gerði ég líka við peyjana í Keflavíkurliðinu. Það komst enginn upp með það hjá mér að gera lítið úr þessum krökkum eða mínum leikmönnum. Dæmi um þetta er þegar Jóhann Birnir var ungur á kantinum og átti kannski stundum erfitt uppdráttar í leikjum þó yfirleitt hafi hann nú verið frábær. Þá voru oft einhverjir spekingar búnir að raða sér við grindverkið upp við hlaupabrautina við völlinn og voru að henda einhverjum pílum í hann og aðra leikmenn. Þá fór ég bara til þeirra og þrumaði yfir þeim öllum og rak þá upp í stúku. Þeir hunskuðust auðvitað allir upp í stúku enda voru þeir bara að eyðileggja fyrir“.
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.
Benedikt Jónsson Theódór Friðjónsson og starfsfólk tannlækningastofunnar Tjarnargötu 2
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Iðavöllum 3 • 230 Keflavík • Sími 420 2020
Við Suðurnesjamenn í Rafholti óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum árið sem er að líða.
Þú gast verið helvíti grimmur – varstu það við nemendur þína og leikmenn líka? „Nei, nei ekki þannig. En ef menn fóru ekki eftir reglum, sýndu ekki virðingu eða voru með eitthvað múður þá var mér að mæta. Ég skildi til að mynda einn leikmann eftir í Hveragerði fyrir bikarúrslitaleikinn 1981 og sendi hann með flugi til Eyja því hann mótmælti einhverju á liðsfundi daginn fyrir leik. Ég held að þetta
Jólablað 2021
23
Kjartan ásamt dóttur sinni Bryndís á Anfield. Kjartan er mikill Liverpool aðdáandi og horfir á alla leiki liðsins í 65“ sjónvarpinu sínu.
ekki þannig, hvorki hér né í Eyjum. Menn voru ekkert að fara neitt þegar ég var með liðið í gamla daga og að þjálfa Kalla, Kobba, Kidda og þessa stráka. Engir smá harðjaxlar. Þeir voru allir jafnir. Góðir sem lið en ekki nógu afgerandi sem einstaklingar. Ég var auðvitað glerharður og lét menn svoleiðis puða, hoppa og hlaupa og þegar maður horfir til baka skilur maður ekki hvernig þessir peyjar gátu þetta. Þeir voru svo harðir af sér! Þeir reyndust mér allir rosalega vel og voru æðislegir. Hvað ég hef haft það gott og hvað þeir taka mér alltaf vel þrátt fyrir að ég hafi nú verið duglegur að taka þá í gegn. Kannski er það þessi óttablandna virðing sem þeir höfðu fyrir manni og hafa enn. Ætli þeir séu ekki meðvitaðir um það að þó ég væri harður og væri að ætlast til mikils af þeim að þá var það með þeirra hagsmuni í huga og hagsmuni liðsins.“ Þrátt fyrir að fara lítið á völlinn reynir Kjartan að horfa á alla fótboltaleiki sem hann kemst yfir í sjónvarpi. „Ég keypti tvö 65“ sjónvarpstæki og setti annað í stofuna og hitt í svefnherbergið. Ef það er leikur fer ég í náttfötin og upp í rúm, sama hvað klukkan er, loka öllum hurðum og horfi á fótboltann eða körfuboltann. Ég hef rosalega gaman af því að horfa á leiki í sjónvarpi því þá er allt endursýnt sem maður kann að hafa misst af. Svo finnst mér allir þessir greiningarþættir einstaklega skemmtilegir. Öll rökræða og vangaveltur er svo skemmtileg. Þetta hefur orðið til þess að ég hef líklega meira vit á þessu í dag en þegar ég var að þjálfa. Mér finnst þó vanta að það sé sýnt meira af íslenskum íþróttum og leikjum.“
En hvað er þessi maður af gamla skólanum að gera í dag – hefur hann nóg fyrir stafni?
Kjartan Másson var heiðraður með Gullheiðursmerki Keflavíkur 2015. Einar Haraldssyni, formaður Keflavíkur heiðraði hann. „Já, já það er nóg að gera. Í sjálfu sér hefur aldrei verið eins mikið að gera hjá mér og í dag. Ég er ekkert að vinna, ekkert að gera en samt er allt vitlaust að gera – við að gera ekki neitt. Ég er bara að njóta lífsins.“ Ætli sé ekki við hæfi að láta þetta vera lokaorð þjálfarans og yfirmeistara gamla skólans. Við látum þetta að minnsta kosti duga þar til hinum óhefðbundnu aðferðum kappans og spreng hlægilegum sögum frá þjálfara- og íþróttakennaraferli Kjartans Mássonar verða gerð frekari skil í bókinni „Minningar af Másson“ sem áætlað er að komi út fyrir jólin 2022. Þangað til þá... Sævar Sævarsson
NOKKRAR SNARPAR? Kjartan og Gunnheiður dóttir hans á góðri stund. hafi orðið til þess að hinir tóku eftir því og reyndu ekki að mótmæla mínum aðferðum.“
Horft til baka og fram á við Á sínum ferli þjálfaði Kjartan Másson 149 opinbera KSÍ leiki í meistaraflokki, þar af 79 í efstu deild, 46 í næst efstu deild, 13 í þriðju efstu deild og 11 í bikar en hann var á ferli sínum með 58 sigra, 35 jafntefli og 56 töp. Líkt og áður hefur komið fram þjálfaði Kjartan stóran hluta síns ferils í Keflavík, bæði meistaraflokk og 2. flokk en síðasta ár hans í þjálfun fyrir Keflavík var árið 2002. Árið 2015 var Kjartan heiðraður með gullheiðursmerki Keflavíkur fyrir starf sitt fyrir félagið. Þegar hann er beðinn að rýna í baksýnisspegilinn og spurður hvað hafi staðið upp úr á þjálfaraferli hans hjá Keflavík segir Kjartan að auðvitað sé af mörgu að taka. „Auðvitað eru kynni manns á fólkinu í kringum klúbbinn það sem stendur upp úr, hvort sem það eru leikmenn, fólkið í kringum klúbbinn eða stuðningsmenn. Við náðum oft ágætum árangri og margir leikjanna eru eftirminnilegir. Það var nú heldur betur eftirminnilegt þegar ég setti Þórarinn Brynjar Kristjánsson kornungan inn á gegn ÍBV og hann skoraði sigurmarkið í blálokin og bjargaði okkur frá falli. Þeir voru nú ekki beint glaðir eldri gæjarnir á bekknum þegar ég kallaði nafnið hans. En þetta þurfti ég oft að gera til að hrista upp í hlutunum. Setja menn inn á sem voru öðruvísi en þeir sem voru fyrir og prófa jafnvel hluti sem enginn bjóst við.“ Kjartan segist lítið fara á völlinn í dag en fylgist þó alveg með sínu gamla liði. Hann er ekki hrifinn af því hvernig gengur þó liðið sé ágætt. „Það er alltaf verið að tala um að það þurfi að ala upp leikmenn. En hvað? Það er ekkert að koma upp. Svo um leið og einhver er nógu góður er hann keyptur, til dæmis eins og Arnór Ingvi, Elías Már, Ísak og Samúel Kári. Verstu mánuðirnir í þjálfun eru desember, janúar og febrúar þegar það er hætta á því að missa menn. En það var
24
Jólablað 2021
Kjartan Másson þjálfaði á sínum tíma marga af bestu leikmönnum Keflavíkur sem margir hverjir voru ansi líflegir karakterar. Það er því ekki úr vegi að fá hann til að svara nokkrum snörpum spurningum um hverjir stóðu upp úr á hinum ýmsu sviðum. Besti leikmaðurinn sem þú þjálfaðir? Það er ekki séns að vinna úr því. Nema kannski þá Óli Gott. Hann var rosalega hæfileikaríkur og hefði getað náð alla leið. Besti markmaðurinn? Ólafur Gottskálksson. Besti varnarmaðurinn? Þú ert með menn eins og Karl Finnbogason, Jakob Jónharðsson, Kristinn Guðbrandsson og svo í seinni tíð Harald Frey Guðmundsson. Ég get bara ekki valið á milli þeirra allra. Ekki glæta! Besti miðjumaðurinn? Gunnar Oddsson er þar ofarlega og svo auðvitað Sigurður Björgvinsson. Besti sóknarmaðurinn? Haukur Ingi Guðnason og Óli Þór Magnússon. Ég sagði nú við Óla Þór í lokin að hann kæmi ekki aftar á völlinn en fremsti hluti miðjuhringsins því hann var nú hættur að geta hlaupið. En hann var svo sterkur og gat haldið boltanum tímanum saman á meðan hinir voru að koma fram. Svo var hann auðvitað frábær skallamaður. Hvaða leikmaður telur þú að hefði getað náð lengst/lengra ? Haukur Ingi Guðnason. Hann var bara svo afskaplega mikið meiddur, enda mátti hann ekki lyfta. Hver er sá leikmaður sem náði lengra en þú bjóst við? Kiddi Guðbrands. Hann náði bara á toppinn
Hvaða leikmaður er vanmetnastur? Georg Birgisson. Frábær skallamaður miðað við hvað hann var lágvaxinn. Þegar þú hugsar um orðið „fyrirliði“ hvaða leikmaður kemur fyrst í hugann? Sigurður Björgvinsson. Hann keyrði menn áfram. Þá var nú meira öskrað menn áfram og keyrt á þá. Hver var erfiðasti leikmaðurinn að þjálfa? Ég átti ekki í vandræðum með einn einasta leikmann. Var auðvitað með sérstök lið og margir karakterar og gaman að vera með þá. Þú vissir oft ekkert upp á hverju þeir tækju, voru duglegir en það reddaði okkur alltaf að menn voru jafnir og engin prímadonna. Hver var bestur í klefanum? Eysteinn Hauksson. Leikmenn kunnu vel við hann og hann var flottur strákur. Sat stundum með honum eftir leiki því hann var svo dómharður á sjálfan sig. Hver var skemmtilegastur/fyndnastur? Þetta voru nú frekar þungir gaurar sko hahaha Hvaða leikmaður var í besta líkamlega standinu? Jóhann B Magnússon. Hann var alltaf eins, grannur og flottur. Einhver sem er sérstaklega eftirminnilegur? Kannski einna helst Kristinn Guðbrandsson. Því ég reiknaði ekki með honum í upphafi. Þegar ég tek hann inn þá hafði hann ekkert verið að spila með 2. flokknum að mig minnir og var ekkert mikið nafn. Hann átti rosalega erfitt með tæknina en ég var mikið í skallatennis sem er leikur sem ætti að vera miklu meira notaður af liðum. Hann var svo duglegur og harður við sjálfan sig og puðaði endalaust.
REYKJANESBÆ Hafnargata 40 - Sími: 422 2200
Jólablað 2021
25
Körfuknattleiksdeild: KKDK
Pistill formanns KKDK Tímabilið 2020-2021
Þ
að væri lygi ef ég skrifaði það hér í þessum árlega pistli formanns Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur að það sé ekkert mál að rifja upp tímabilið sem kláraðist í júní og koma því í orð. Eins og flestir vita og muna þá var niðurstaðan silfur eftir hörku viðureign við mjög svo öflugt lið Þórs frá Þorlákshöfn. Eftir langt og strangt tímabil þá hefði það vissulega verið kærkomið að lyfta bikarnum. En svona er þessi bransi einfaldlega og allir sem lögðu svo mikið á sig síðasta tímabil verða einfaldlega að nýta þessu reynslu og læra af þessu. Hörður Axel var valinn besti leikmaðurinn að loknu tímabilinu sem og besti varnarmaðurinn. Deane Williams var kosinn besti erlendi leikmaðurinn. Kvennaliðið okkar náði sér ekki á flug í úrslitakeppninni og tapaði viðureign sinni á móti Haukum í undanúrslitum. Daniela Wallen var kosinn besti erlendi leikmaðurinn að loknu tímabilinu. En tímabilið 2021-2022 er komið á flug og þar ætlum við okkar stóra hluti. Deildin ber nú heitið Subwaydeildin og það er klárlega okkar markmið að gera vel í bæði kvenna- og karlaboltanum. Liðin fara bæði ágætlega af stað, vissulega pláss fyrir betrumbætur en það vinnur enginn neitt fyrr en á vormánuðum. Liðin hafa tekið þó nokkrum breytingum frá því í fyrra og það tekur oft smá tíma að slípa hluti
26
Jólablað 2021
Ólafur Örvar Ólafsson formaður KKDK. saman. Í karlaliðinu fór Deane Williams til Frakklands en í staðinn eru þeir Halldór Garðar Hermannsson, Jaka Brodnik og David Okeke komnir í okkar raðir. Kvennamegin sáum við á eftir þeim Eddu Karlsdóttur, Söru Lind Kristjánsdóttur,
Ernu Hákonardóttur sem og Emelíu Gunnarsdóttur sem fór í nám. Tunde Kilin bættist svo í hópinn ásamt Eygló Kristínu Óskarsdóttur. Ungir leikmenn halda áfram að setja svip sinn á okkar lið, þá sérstaklega kvennamegin sem er mikið gleðiefni og vonandi mun sú þróun halda áfram næstu ár. Ég vil fyrir hönd Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur þakka öllum leikmönnum, stjórnarmönnum, stuðningsmönnum, styrktaraðilum og öllum þeim sem á einn eða annan hátt gera okkur kleift að halda úti þessu starfi okkar kærlega fyrir árið sem er að líða. Við sem stöndum í fremstu víglínu í þessari skemmtilegu baráttu höldum ótrauð áfram inn í nýtt ár.
Gleðileg jól og megi 2022 vera ár okkar Keflvíkinga.
Meistarflokkur vs. Minnibolti Á vordögum fengu drengirnir í minnibolta 10 og 11 ára frábæra heimsókn þegar hetjurnar þeirra í meistaraflokki félagsins mættu óvænt á æfingu hjá þeim og skoruðu á strákana í leik. Óhætt er að segja að uppátækið hafi vakið mikla kátínu á meðal drengjanna sem létu vel finna fyrir sér og gáfu mönnum eins og Dominikas Milka, Deane Williams, Herði Axel Vilhjálmssyni, Val Orra Valssyni, Arnóri Sveinssyni og Ágústi Orra-
syni lítið eftir í baráttunni um hvern lausan bolta. Sáust ófáar troðslurnar, varðir boltar og þá hreinlega rigndi þristunum í íþróttahúsi Heiðarskóla á meðan á leikum stóð. Leikmenn meistaraflokks gáfu þarna upprennandi leikmönnum félagsins dýrmætt veganesti inn í framtíðina og sýndu af sér sannan félagsanda. Drengirnir í 5. og 6. bekk hafa verið fastagestir á leikjum meistaraflokkana á liðnum tímabilum og er draumurinn að sjálfsögðu að fá að klæðast Keflavíkurbúningnum í
meistaraflokki einhvern daginn sjálfir. Þennan dag fengu þeir smjörþefinn af því hvernig það er að etja kappi við marga af þeim bestu á Íslandi. Hægt er að sjá myndband af æfingunni á youtube með því að slá inn leitarorðin „Meistaraflokkur vs. minnibolti“. Sjón er sögu ríkari! Þjálfarar drengjanna eru þeir Sigurður Friðrik Gunnarsson og Sindri Kristinn Ólafsson.
Jólablað 2021
27
Barna- og unglingaráð Körfuknattleiksdeildar:
Lokahóf yngri flokka 2021 Viðurkenningar
L
okahóf Barna- og unglingadeilda hélt sama sniði og í fyrra sökum Covid og var eingöngu haldið lokahóf fyrir 7.flokk og upp úr. Boðið var upp á pylsur og með því eins og hefðin segir til um. Einstaklingsviðurkenningar voru veittar iðkendum í 7.flokki og eldri Verðlaunað var fyrir mestu framfarir, besta varnarmanninn og besta leikmanninn. En að auki voru veitt sérstök verðlaun fyrir það að vera „Sannur Keflvíkingur“. Þessi verðlaun voru veitt þeim einstaklingum sem hafa lagt mikið af mörkum til félagsins. Eru ávallt tilbúin að koma og aðstoða þegar á þarf að halda. Mæta vel á æfingar, eru góðir liðsfélagar, hjálpa til á ritaraborði og við dómgæslu í leikjum og á mótum. Þetta eru einstaklingar sem eru sannar fyrirmyndir.
7. flokkur stúlkna.
7. flokkur drengja.
8. flokkur stúlkna.
8. flokkur drengja.
9. flokkur stúlkna.
9. flokkur drengja.
10. flokkur stúlkna.
10. flokkur drengja.
Stúlknaflokkur.
7.flokkur stúlkna Þjálfari: Lidia Mirchandani Villar Mestar framfarir: Drífa Magnúsdóttir Besti varnarmaðurinn: Ásdís Lilja Færseth Guðjónsdóttir Besti leikmaðurinn: Alma Rós Magnúsdóttir Sannur Keflvíkingur: Katla og Ásdís
7.flokkur drengja Þjálfari: Sigurður Ingimundason og Arnór Daði Jónsson Mestar framfarir: Bóas Orri Unnarsson Besti varnarmaðurinn: Alexander Falkvard Grétarsson Besti leikmaðurinn: Tómas Logi Jónsson
8.flokkur stúlkna Þjálfari: Lidia Mirchandani Villar Mestar framfarir: Stella María Reynisdóttir Besti varnarmaðurinn: Kamilla Anísa Aref Besti leikmaðurinn: Hanna Gróa Halldórsdóttir Sannur Keflvíkingur: Hrönn, Sigrún og Helena
8.flokkur drengja Þjálfari: Sigurður Ingimundason og Arnór Daði Jónsson Mestar framfarir: Daniel Eric Ottesen Clarke Besti varnarmaðurinn: Dagur Stefán Örvarsson Besti leikmaðurinn: Jóhann Elí Kristjánsson
28
Jólablað 2021
Drengjaflokkur.
Sannir Keflvíkingar.
Óskum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
TSA
ehf.
Brekkustíg 38 • 260 Reykjanesbær • tsa.is Sannir Keflvíkingar.
Sannir Keflvíkingar.
Sannur Keflvíkingur: Aron Örn Þorleifsson, Jóhann Elí Kristjánsson og Daniel Eric Ottesen Clarke
Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.
9.flokkur stúlkna Þjálfari: Lidia Mirchandani Villar Mestar framfarir: Erna Ósk Snorradóttir Besti varnarmaðurinn: Fjóla Dís Færseth Guðjónsdóttir Besti leikmaðurinn: Dzana Crnac Sannur Keflvíkingur: Erna Ósk og Ragnheiður
9.flokkur drengja Þjálfari: Magnús Þór Gunnarsson og Ricardo Gonzàlez Mestar framfarir: Bragi Valur Pétursson Besti varnarmaðurinn: Jökull Eyfjörð Ingvarsson Besti leikmaðurinn: Jakob Máni Magnússon Sannur Keflvíkingur: Almar Örn Arnarsson
Óskum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Unglingaflokkur karla.
10.flokkur stúlkna Þjálfari: Lidia Mirchandani Villar Mestar framfarir: Helga Guðrún Jónsdóttir Besti varnarmaðurinn: Brynja Hólm Gísladóttir Besti leikmaðurinn: Brynja Hólm Gísladóttir Sannur Keflvíkingur: Bergþóra Ólafsdóttir
10.flokkur drengja Þjálfari: Magnús Þór Gunnarsson og Ricardo Gonzàlez Mestar framfarir: Frosti Sigurðarson Besti varnarmaðurinn: Aríel Gauti Gunnarsson Besti leikmaðurinn: Grétar Snær Haraldsson
Stúlknaflokkur Þjálfari: Hörður Axel Vilhjálmsson Mestar framfarir: Ásthildur Eva Hólmarsd.Olsen Besti varnarmaðurinn: Hjördís Lilja Traustadóttir
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Besti leikmaðurinn: Agnes María Svansdóttir Sannur Keflvíkingur: Ásthildur Eva Hólmarsd.Olsen
Drengjaflokkur Þjálfari: Finnur Jónsson Mestar framfarir: Logi Ágústsson Besti varnarmaðurinn: Einar Gunnarsson Besti leikmaðurinn: Stefán Sigurðarson
Unglingaflokkur karla
Njarðarbraut 11a - 260 11a Njarðvík - Sími 421 1118 Njarðarbraut - 260 Njarðvík
TJÓNASKOÐUN • RÉTTING • SPRAUTUN
Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsæls árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Þjálfari: Finnur Jónsson Mestar framfarir: Magnús Pétursson Besti varnarmaðurinn: Andri Tryggvason Besti leikmaðurinn: Arnór Sveinsson Sannur Keflvíkingur: Bjarki Freyr Einarsson
Jólablað 2021
29
Fimleikar:
Emma Jónsdóttir hefur verið valin í lokalandsliðshóp blandaðs liðs unglinga Við hjá Fimleikadeildinni erum ofsalega stolt af Emmu og óskum henni innilega til hamingju með frábæran árangur. Margir þekkja hana Emmu okkar enda var hún valin Fimleikakona Keflavíkur árið 2019 og 2020 og var viðtal við hana í jólablaðinu okkar í fyrra. En við vildum heyra í Emmu hvernig hún heldur árangri og nær að bæta sig á covid19 tímum. Hvernig var tilfinningin að vera valin í lokalandsliðshóp í blandað lið unglinga? Bara ótrúlega skemmtileg og góð tilfinning. Kom það þér á óvart að vera valin? Já ! Það kom á óvart af því ég datt óvænt inn í lokahópinn sem var ótrúlega skemmtilegt. Eftir að þú fórst að æfa með landsliðshópnum, ertu búin að eignast nýja vini/vinkonu? Já, ég er búin að kynnast mjög mörgum. Hefur þú æft og keppt erlendis? Neibbs. Hversu oft hefur þú keppt á þessu ári? Þrisvar sinnum. Æfir þú meira fyrir keppni en venjulega? Nei, æfi yfirleitt alltaf jafnmikið en æfingarnar breytast í kringum mót. Kvíðir þú fyrir keppni? Já er alltaf kvíðin fyrir mót. Ertu tapsár? Svona já og nei. Ég er ekki tapsár þegar við keppum sem lið en þegar við erum í keppnisleikjum á æfingu get ég verið mjög tapsár. Hvaða áhald finnst þér skemmtilegast? Mér finnst fiberinn skemmtilegastur. En leiðinlegast? Klárlega dans. Meiðir þú þig aldrei? Jújú, ég er mjög oft meidd.
30
Jólablað 2021
Finnst þér covid19 hafa haft áhrif á fimleikana þína? Já, þegar það mátti ekki mæta á æfingar þá eru fimleikar ekki íþrótt sem þú getur gert heima. Þá var áherslan í heimaæfingum meira á teygjur og styrk. Hver er kúnstin við að ná árangri á covid tímum? Að gefast ekki upp og leggja á sig meiri vinnu. Ertu með eitthvað mottó? Þetta reddast ! Nú er mikið talað um hvað svefn er mikilvægur til að ná árangri. Ertu dugleg að passa upp á svefninn? Ef já hvernig?
Já, reyni að fara snemma að sofa og passa að fá nægan svefn. Ertu með æfingadagbók/ Markmiðablað? Ef já Ertu að setja þér markmið – mánaðarlega, hálfsárslega eða einu sinni á ári? Já, í byrjun hvers tímabils setjum við í liðinu mínu okkur allar markmið sem við reynum að vinna að. Að hverju stefnir þú sem fimleikakona? Mig langar að keppa á stórmóti. En í lífinu? Það veit ég nú ekki. Er ekki komin það langt.
Hvaða ráð getur þú gefið krökkum sem æfa fimleika til að ná svona góðum árangri eins og þú? Að gefast ekki upp þótt eitthvað sé erfitt og muna að hafa gaman á æfingu. Það skiptir líka máli að vera jákvæður því hugarfarið skiptir svo miklu máli. Að lokum hver er uppáhalds jólasveinninn þinn? Af hverju? Kertasníkir, af því hann gefur alltaf bestu pakkana.
Hef æft fimleika frá því ég man eftir mér Margrét Júlía Jóhannsdóttir er 14 ára fimleikastúlka í Fimleikadeild Keflavíkur. Hún hefur æft fimleika frá unga aldri og klifið fimleikastigann undanfarin ár. Hún er nú komin í frjálsar æfingar en síðasta vor varð hún Íslandsmeistari í 1. þrepi og lauk því keppni í þrepum með glæsibrag. Undanfarin misseri hefur hún reglulega sótt úrvalsæfingar á vegum FSÍ, fékk svo tækifæri til að spreyta sig í landsliðsúrtaki og var loks valin í unglingalandslið Íslands. Með því tók hún þátt í Norðurlandamótinu í lok október og Gymnova Cup í Belgíu um miðjan nóvember. Kæru lesendur okkur langaði að leyfa ykkur og okkur að kynnast þessari mögnuðu fimleikaskvísu betur og spurðum hana nokkurra spurninga. Hvenær byrjaðir þú að æfa fimleika? Ég byrjaði í krakkafimleikunum þegar ég var þriggja ára en var fimm ára þegar ég fór í venjulegan fimleikahóp. Eftir áramót í 1. bekk bauðst mér að fara í keppnishóp hjá hjónunum Dima og Natali. Ég hef því eiginlega æft fimleika síðan ég man eftir mér. Hvers vegna fórstu að æfa fimleika? Það er góð spurning! Ætli mamma hafi ekki kynnt mér þá, því hún var sjálf í fimleikum. Ég var mikið að sprella heima, dansa og gera alls konar kúnstir og mamma tók örugglega eftir því að fimleikar gætu átt vel við mig. Hve mikið æfir þú og hvernig er hefðbundinn dagur í lífi fimleikastúlku? Ég æfi sex sinnum í viku í þrjá klukkutíma. Æfingar reyna yfirleitt mikið á og þess vegna verð ég að passa að bæði borða vel og hvíla mig vel. Ég er svo heppin að æfa með góðum vinkonum sem er gott því ég
hef ekki mikinn frítíma. Æfir þú aðrar íþróttir? Nei. Bitnar það ekki á náminu? Nei, það gerir það ekki. Ég nýti tímann í skólanum vel og skipulegg mig. Bitnar það ekki á að hitti vini eða vinkonur? Jú, það gerir það en ég samt heppin að æfa með góðum vinkonum. Gerir þú aukaæfingar heima? Ég æfi mikið svo ég geri það ekki venjulega en ef mér finnst ég þurfa að hreyfa mig meira þá geri ég það. Hvað lærir maður í fimleikum? Maður lærir náttúrulega alls konar fimleikaæfingar, þrek og hvernig líkaminn virkar. Líka ýmislegt sem tengist hugarfari og vinnubrögðum. Hve gamlir eru krakkarnir sem eru með þér í hóp?
Í hópnum mínum K1 erum við á aldrinum 11 - 18 ára. Bætist við kunnáttuna eftir því sem maður er lengur í fimleikum? Já, auðvitað. Æfa vinir þínir fimleika? Já, nokkrar vinkonur mínar. Meiðir þú þig aldrei? Ég hef meiðst en aldrei alvarlega, sem betur. Ég sloppið vel við meiðsli, 7-9-13. Finnst þér covid-19 hafa haft áhrif á fimleikana þína? Já, það hafði áhrif og var erfitt þegar við gátum ekki æft en ég hef líka bara lagt meira á mig til þess að ná mér á strik. Hefur þú alltaf æft áhaldafimleika? Já. Áttu þér uppáhalds áhald? Það er misjafnt en í dag er gólf mitt uppáhalds áhald. Það má samt kannski segja að jafnvægissláin hafi verið mitt sterkasta áhald í gegnum tíðina.
Hverjar hafa verið þínar helstu fyrirmyndir? Í dag lít ég upp til Sunisu Lee, sem er bandarísk landsliðskona. Svo eru foreldrar mínir og bróðir líka góðar fyrirmyndir en þau hafa öll stutt mig mikið í fimleikunum og hjálpað mér þegar ég hef þurft á því að halda. Það er ekki alltaf dans á rósum í fimleikunum. Bróðir minn og pabbi hafa verið mjög framarlega í sinni íþrótt, fótboltanum, verið í landsliðum og svona þannig að mér finnst oft mjög gott að tala við þá, bæði þegar gengur vel og illa. Hve oft hefur þú keppt á þessu ári? Ég hef keppt á 7 mótum. Æfir þú meira fyrir keppni en venjulega? Já, maður þarf að vera tilbúinn fyrir mót. Kvíðir þú fyrir keppni? Já, það geri ég en ég reyni að róa mig. Ertu tapsár? Nei, ég hef aldrei verið neitt sérstaklega tapsár.
Margrét Júlía í landsliðinu
M
argrét Júlía Jóhannsdóttir var á dögunum valin í unglingalandslið Íslands í áhaldafimleikum. Liðið keppti á
rafrænu Norðurlandamóti í Björkunum laugardaginn 30. október. Þar þreyttu stúlkurnar frumraun sína í keppni með landsliði sem
reyndist vera góður undirbúningur fyrir hið alþjóðlega mòt, Gymnova Cup í Belgíu sem fram fór helgina 13. - 14. nóvember. Þar kepptu stúlkur frá 11 Evrópulöndum auk Kanada. Íslenska liðið keppti í junior flokki en keppendur voru 30 talsins. Margrét Júlía átti mjög góðan keppnisdag og frammistaða hennar skilaði henni 6. sæti í samanlögðum einkunnum og 4. sæti á jafnvægisslá. Gaf það henni sæti í úrslitum á jafnvægisslá daginn eftir en hún var önnur tveggja íslenskra stúlkna sem fékk að reyna fyrir sér í úrslitum. Þar öttu kappi 10 stúlkur á hverju áhaldi þvert á aldursflokka; youth, junior og senior. Ekki gekk eins vel og daginn áður en Margrét Júlía öðlaðist þarna dýrmæta reynslu. Áfram Ísland Áfram Keflavík
Jólablað 2021
31
Fimleikar: Varstu hissa þegar þú varst valin í unglingalandsliðið? Já, ég var svolítið hissa.
lið Íslands, Svíþjóðar, Danmörku og Finnlands hvert í sínu landi í beinni rafrænni útsendingu. Það var mjög sérstakt en gekk alveg vel. Mér gekk vel og var t.d. í 5. sæti á gólfi. Liðið okkar lenti í 4. sæti. Við vorum ánægðar með sumt en vitum að við getum gert betur í öðru. Það var síðan mjög gaman að fara í fyrsta skiptið til útlanda með landsliði.
Ertu búin að eignast nýja vinkonu eftir að þú fórst að æfa með unglingalandsliðinu? Já, við erum allar mjög góðar vinkonur og í hópnum er mjög góður liðsandi.
Hvað er framundan hjá þér í fimleikunum? Halda áfram á sömu braut, æfa vel og reyna að hafa gaman. Ég er búin með fimleikastigann svo nú ætla ég bara að reyna að standa mig eins vel og ég get í frjálsum æfingum. Það væri gaman að fá fleiri landsliðstækifæri.
Áttu lukkugrip? Já, það er lítið lukkutröll sem vinkona mín gaf mér. Núna eru komin eru komin nokkur ný áhöld hjá fimleikadeildinni, finnur þú mun á að æfa á þeim? Já ég finn mun. Það er gott að fá ný áhöld, sérstaklega af því að gömlu áhöldin voru orðin léleg. Hvað er það sem þarf til að ná árangri í jafn krefjandi íþrótt og áhaldafimleikum? Það þarf hugrekki, andlegan og líkamlegan styrk og jákvætt hugarfar. Maður þarf að mæta vel, leggja sig fram á æfingum og gera eins vel og maður getur. Ég hef haft góða þjálfara en Dima og Natali hafa þjálfað mig frá því að ég var lítil stelpa. Dima er ekki að þjálfa okkur lengur en hann kenndi mér mjög margt og ég er mjög þakklát fyrir þann tíma sem hann þjálfaði okkur. Nik tók við af Dima og hefur hann reynst mér mjög vel og við höfum líka haft aðra góða þjálfara til stuðnings. Hver eru þín helstu afrek í fimleikunum? Mér hefur yfirleitt gengið nokkuð vel frá því að ég byrjaði að keppa. Mín
En í lífinu? Ég er ekki alveg viss. Ég ætla í framhaldsnám og það væri gaman að gera það í útlöndum. Ég hef áhuga á ýmsu sem tengist hönnun.
helstu afrek hafa örugglega verið þau að ég var í 1. sæti samanlagt í mínum aldursflokki á Íslandsmótinu í 3. þrepi, þá 11 ára og svo varð ég Íslandsmeistari í 1. þrepi í vor. Mér finnst það líka mikið afrek að hafa verið valin í landsliðið. Mér fannst reyndar bara mjög merkilegt að vera
Stefán Lee Keilen Aldur: 7 ára Hvað er skemmtilegast að gera á fimleikaæfingu: Trampólínið og klifra kaðal En leiðinlegast: Að gera skrúfugang Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn: Kertasníkir og Hurðaskellir Afhverju: Kertasníkir, því ég fæ pakka frá honum og Hurðaskellir af því ég get heyrt þegar hann skellir
Einar Steinn Einarsson
Aldur: 7 ára Hvað er skemmtilegast að gera á fimleikaæfingu: Trampólín og Armbeygjur En leiðinlegast: Að gera heljarstökk Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn: Skyrgámur Afhverju: Því hann gefur mér skyr í gluggann, ég elska skyr
Aldur: 9 ára Hvað er skemmtilegast að gera á fimleikaæfingu: Trampólín og Gryfjan En leiðinlegast: Teygjur því ég ýti mér svo langt niður Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn: Kertasníkir Afhverju: Því hann sníkir kerti, hver gerir það!
Dagur Ernir Sveinsson
Aldur: 4 ára Hvað er skemmtilegast að gera á fimleikaæfingu: Í regnboganum Þekkir þú einhvern sem er að æfa fimleika? Já Harpa, Jórunn og engan annan. Jú Margréti Júlíu og hún er best. Ertu búin að læra eitthvað í fimleikum? Handahlaup, kollhnís og svona með fótinn upp uu hestinn eða handstöðu já. Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn: Ég get ekki valið, má segja tvo? Hurðaskellir og Skyrgámur.
Aldur: 4 ára Hvað er skemmtilegast að gera á fimleikaæfingu: Fara í göngin Ertu búin að læra eitthvað í fimleikum: Kollhnís Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn: Kertasníkir
Jólablað 2021
Hvernig gekk svo í landsliðsverkefnunum? Á Norðurlandamótinu kepptu lands-
Að lokum, hver er uppáhalds jólasveinninn þinn? Hvers vegna? Stúfur, því hann er lágvaxinn eins og ég :)
Ari Hjörvar Arason
Steinunn Björk Axelsdóttir
32
valin í æfingahóp og átti eiginlega ekki von á því að verða valin í lokahópinn. Það er svolítið margt búið að gerast á þessu fimleikaári hjá mér.
Hvaða ráð getur þú gefið krökkum sem æfa fimleika til að ná svona góðum árangri eins og þú? Maður þarf að mæta vel, leggja sig fram á æfingum og gera eins vel og maður getur. Maður þarf að sýna hugrekki, hafa andlegan og líkamlegan styrk, þolinmæði og jákvætt hugarfar. Svo þarf að hafa gaman og muna að fimleikar eru bara íþrótt.
Sölvi Snær Ólafsson Aldur: 4 ára Hvað er skemmtilegast að gera á fimleikaæfingu: Ekkert Þekkir þú einhvern í fimleikum: Já Kristínu Hvað kanntu að gera í fimleikum: Kollhnís og hestinn Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn: Stekkjastaur því hann er fyrstur
Skotdeild Keflavíkur:
Skotárið 2021 nokkuð gott
S
kotárið 2021 var nokkuð gott þrátt fyrir að takmarkanir og sóttvarnarreglur yfirvalda og ÍSÍ hafi sett stórt strik í æfingar í keppnisgreinunum öllum. Við opnuðum fljótlega eftir áramót, en það dugði skammt þar til við urðum að loka aftur í lok mars. En svo höfum við haft allt opið síðan um miðjan apríl. Félagsmenn hafa með eindæmum stutt við bakið á okkur og veitt okkur skilning á þessu óvanalegu tímum. Leirdúfuæfingar voru vel sóttar í sumar. Við tókum þá ákvörðun að banna blýhögl af umhverfissjónarmiðum. Að vísu er ekki mikið hægt að kaupa nema stálhögl í leirdúfuskotum hvort eð er í dag. Reynir Þór Reynisson dustaði rykið af haglabyssunni og tók þátt í Landsmóti sem átti að vera hjá Skotdeild Keflavíkur á Hafnarheiðinni en sökum bilanna í vélbúnaði hjá okkur var mótið haldið í Hafnarfirði þar sem hann sigraði sinn flokk. Við héldum bæði landsmót og Íslandsmót í 300m liggjandi skotfimi á Hafnarheiðinni í sumar og tók lið Skotdeildar Keflavíkur gullið í liðakeppninni. Liðið skipaði Theodór Kjartansson, Guðmundur Óskarsson og Bjarni Sigurðsson. Skotdeildin eignaðist líka Íslandsmeistara í Bech Rest þar sem Jóhannes Frank Jóhannesson fór með sigur af hólmi með samanlögðu skori á 100 og 200 metra færi upp á 498 stig og 22 x-um. Annað sætið var einnig með sama stigafjölda en bara með 12 x-ur. Við eigum þar af leiðandi 4 Íslandsmeistara. Bjarni Sigurðsson hlaut brons í Íslandsmótinu í loftskammbyssu í 2. flokki. Við vígðum svínabrautina okkar í BigBore Hraðmótinu í ágúst. Þátttaka var með eindæmum góð og skutu 14 keppendur á hlaupandi svín á 50 metrum. Þetta mót er það fyrsta sinnar tegundar hérlendis á flunkunýjum velli á Hafnarheiðinni. Við hlökkum til að takast á við næsta skotár og vonum að allt verði komið í eðlilegt horf og skotíþróttafólk verði farið að stunda sínar æfingar af fullu kappi. Við hlökkum til að sjá ykkur. Jóla og skotíþróttakveðja frá Stjórn Skotdeildar Keflavíkur.
Jólablað 2021
33
Sundstarfið blómstraði á liðnu ári
S
undstarfið blómstraði á liðnu ári og getum við með stolti sagt að árangur Sunddeildar Keflavíkur og Sunddeildar Njarðvíkur undir merkjum Sundráðs ÍRB hafi verið afar góður þrátt fyrir miklar takmarkanir vegna Covid – 19. Líkt og aðrar íþróttir þá hefur sundið fengið sinn skerf af Covid takmörkunum. Oft hefur þurft að byrja upp á nýtt og endurhugsa æfingar þegar sundlaugum var lokað og hafa sundmenn þurft að finna aðrar leiðir til að halda sér í formi þegar æfingar duttu niður í sundlauginni. Mikil óvissa var um Íslandsmeistaramótið en því var frestað um þrjár vikur vegna nýrra sóttvarnarreglna í mars á árinu. Það tókst þó að halda Íslandsmeistaramót helgina 23. – 25. apríl og fór okkar sundfólk á kostum. Á árinu vann ÍRB Aldursflokkameistaramótið í sundi með miklum yfirburðum en þetta er í tólfta skiptið sem ÍRB vinnur AMÍ en félagið var stofnað árið 2001 þegar sunddeildir Njarðvíkur og Keflavíkur hófu samstarf. Samstarf Sunddeildanna tveggja er forsenda fyrir þeim góða árangri sem liðið er að ná. Með þessu samstarfi skapast tækifæri fyrir iðkendur sem annars væru ekki til staðar. Við getum með þessu móti boðið upp á þjálfun eins og hún gerist best hér á landi og þótt víðar væri leitað. Að baki þessum árangri liggur mikil vinna þeirra sem koma að þjálfuninni, aðstandenda og íþróttaþjálfara. Því miður voru þó nokkrar sviptingar í þjálfarateyminu okkar. Helena Hrund þjálfari yngri flokka hætti hjá okkur í desember á síðasta ári en hún flutti á höfuðborgarsvæðið. Mikil eftirsjá er eftir Helenu enda var hún einstakur gleðigjafi og frábær þjálfari fyrir yngri krakkana. Þröstur Bjarnason tók við hennar starfi og stóð sig með miklum sóma og átti stóran þátt í þeim góða árangri sem náðist á AMÍ en ákvað að hverfa til annarra starfa á haustmánuðum. Til að brúa þetta bil höfum við ráðið eldri sundmenn til að sjá um þjálfun yngri sundmanna og hefur það gengið vel. Margir efnilegir sundmenn eru að koma inn í elstu hópana okkar og er sérstaklega gaman að sjá hve strákahópurinn er flottur. Við höfum ekki verið með svona marga stráka í afrekshóp lengi. Með tilkomu Stapaskóla kemur ný sundlaug og vonumst við til að geta fjölgað iðkendum í þeim hluta bæjarins. Aðstaða til sundiðkunar í Reykjanesbæ er mjög góð og æfingaaðstaðan sem við höfum í Vatnaveröldinni er með því
34
Jólablað 2021
betra sem gerist hér á landi. Við hjá ÍRB viljum þakka Reykjanesbæ fyrir þann stuðning sem hann hefur sýnt Sunddeildinni í gegnum tíðina. Þó að Covid-19 hafi sett strik í okkar starf þá höfum við reynt að halda okkar striki eins og hægt er. Við höfum haldið áfram að gefa út fréttabréfið okkar og setjum inn allar upplýsingar um starfsemina á heimasíðu okkar www.keflavik.is/sund. Í byrjun árs voru Reykjavíkurleikarnir haldnir
sem var fyrsta opna sundmótið í meira en 8 mánuði og var mikill kraftur í okkar fólki. Miklar bætingar og stórgóður árangur hjá sundfólkinu. Fannar Snævar Hauksson vann sigur í 200m og 100m flugsundi. Þar náði hann lágmörkum inn í unglingalandsliðshóp SSÍ. Katla María Brynjarsdóttir náði lágmörkun inn í framtíðarhóp SSÍ í 800m skriðsundi. Bestum árangri náðu þau Már Gunnarsson og Eva Margrét Falsdóttir. Már setti þrjú Íslands-
met um helgina, eitt í 50m baksundi og tvö í 200m baksundi. Eva Margrét Falsdóttir kom langfyrst í mark í tveimur greinum, 400m fjórsundi og 200m bringusundi og í þeim greinum náði hún lágmörkum á Evrópumeistaramót unglinga (EMU). Evu Margréti Falsdóttur sundkonu úr ÍRB var boðið með í æfingabúðir úrvalshóps SSÍ sem fór fram dagana 19. – 23. febrúar. Þar var æft tvisvar á dag með landsliðsþjálfara og öllum bestu sundmönnum landsins. Dagana 27. – 28. febrúar var haldið febrúarmót ÍRB. Sundmennirnir, bæði yngri og eldri, stóðu sig afar vel á öllum sviðum. Yngri hópurinn fór á kostum og voru sundmennirnir að bæta tíma sína verulega. Denas Kazulis náði lágmörkum á ÍM 50 í 800m skriðsundi og Ástrós Lovísa Hauksdóttir í 200m baksundi. Þrír sundmenn náðu lágmörkum á AMÍ en það voru þau Helgi Matthías Guðjónsson, Eydís Jóhannesdóttir og Viktor Bergmann Arnarson. Katla María Brynjarsdóttir synti 1500 m skriðsund undir lágmörkum inn í Framtíðarhóp SSÍ og síðan setti Eva Margrét Falsdóttir innanfélagsmet í 1500 m skriðsundi. Þann 5. mars kíkti landsliðsþjálfarinn til okkar og við áttum afar góðan dag með honum þar sem hann veitti sundmönnum okkar ráðgjöf. Helgina 21. – 22. mars fór fram Ásvallamót SH. Á því móti voru margar góðar bætingar og miklar framfarir hjá okkar fólki. Fannar Snævar Hauksson sló tvö innanfélagsmet og ansi markverðir tímar skutust upp hjá nokkrum sundmönnum. Eva Margrét Falsdóttir gerði afar góða hluti á mótinu en hún hafnaði í þriðja sæti yfir stigahæstu sundkonur mótsins. Sunneva Bergmann Ásbjörnsdóttir náði lágmörkum í Framtíðarhóp SSÍ í 1500m, 400m og 200m skriðsundi. Hápunktur helgarinnar var þó þegar Katla María Brynjarsdóttir náði lágmörkum fyrir Norðurlandamót Æskunnar í 800 m skriðsundi. Þann 24. mars voru sóttvarnarreglur hertar á ný og allt íþróttastarf lamaðist eftir tilmælin. Þetta voru krefjandi tímar enda afar stutt í Íslandsmeistaramót. Þann 13. apríl var hægt að hefja sundæfingar að nýju en með takmörkunum. Þann 23. – 25. apríl var svo komið að Íslandsmeistaramótinu í 50m laug. Okkar sundfólk fór á kostum og sópaði inn verðlaunum, metum og lágmörkum. Alls náðust sjö met, ellefu titlar, lágmörk og fjölmörg verðlaun á mótinu. Sunneva Bergmann
Ásbjörnsdóttir átti frábæra helgi og náði lágmarki fyrir NÆM með frábæru sundi í 400m skriðsundi. Sunneva vann til bronsverðlauna í 400m skriðsundi, 200m skriðsundi og 1500m skriðsundi Fannar Snævar Hauksson varð Íslandsmeistari í 100m flugsundi og bætti um leið 21 árs gamalt piltamet í greininni. Fannar Snævar bætti einnig 21 árs gamalt piltamet í 50m flugsundi þegar hann hafnaði í öðru sæti í greininni , eingöngu 14/100 frá EMU lágmarki. Karen Mist Arngeirsdóttir átti mjög góða helgi og synti á sínum besta tíma þegar hún varð Íslandsmeistari í 50m bringusundi og 100m bringusundi og vann til silfurverðlauna í 200m bringusundi. Már Gunnarsson varð Íslandsmeistari í 100m skriðsundi, 50m baksundi, 100m baksundi og 200m baksundi í flokki S11 og gerði sér lítið fyrir og bætti 29 ára gamalt heimsmet í greininni. Eva Margrét Falsdóttir varð Íslandsmeistari í 200m bringusundi á sínum besta tíma, 100m flugsundi, 400m fjórsundi og 200m fjórsundi en það sund var jafnframt undir lágmarki á Evrópumeistaramót Unglinga. Í lok mótsins fékk Eva Margrét afhentan Sigurðarbikarinn fyrir besta afrek í bringusundi. Kári Snær Halldórsson átti frábært sund í 50m bringusundi og náði lágmörkum í landsliðshóp SSÍ. Aron Fannar Kristínarson vann til bronsverðlauna í 200m fjórsundi og 400m
fjórsundi. Alexander Logi Jónsson vann til bronsverðlauna í 200m bringusundi á sínum besta tíma. Kvennasveit ÍRB vann síðan til silfurverðlauna í 4 x 200m skriðsundi. Í sveitinni voru þær Elísabet Jóhannesdóttir, Sunneva Bergmann Ásbjörnsdóttir, Katla María Brynjarsdóttir og Eva Margrét Falsdóttir. Helgina 17. – 19. maí fór fram okkar árlega Landsbankamót í Vatnaveröld. Mótið var með nokkuð minna sniði en venjulega vegna Covid takmarkanna og aðeins var fáum liðum sem ekki hafa aðstöðu til að halda mót boðið. Mótið gekk í alla staði mjög vel og heilt yfir náðist mjög góður árangur. Eitt ÍRB met féll á mótinu en þar var að verki Fannar Snævar Hauksson í 50m baksundi pilta 15 – 17 ára. Í lok maí keppti okkar maður Már Gunnarsson á EM í Portúgal. Hann komst í úrslit í þremur af fimm greinum og stóð sig afar vel. Bestum árangri náði hann í 100m flugsundi þar sem hann lenti í fjórða sæti, 200m fjórsundi þar sem hann lenti einnig í fjórða sæti og í 100m baksundi þar sem hann lenti í fimmta sæti. Jafnframt setti hann þrjú Íslandsmet á mótinu. Þann 7. júní var haldið námskeið á vegum KVAN þar sem unnið var með að byggja upp sjálfstraustið og sjálfsmyndina hjá sundfólkinu okkar. Unnið var með hugræna styrkingu íþróttafólksins til að efla andlegan styrk sundmanna ÍRB. Námskeiðið var styrkt af Erasmus + og var hluti af evrópskri ungmennaviku. Við erum afar stolt af þessu verkefni og þakklát fyrir þann styrk sem deildin fékk. Helgina 6. – 7. júní var haldið sumarmót SSÍ. Þar náðist ágætis árangur en markverðasta árangri helgarinnar náði Elísabet Jóhannesdóttir þegar hún náði lágmörkum í 800m skriðsundi fyrir Norðurlandamót Æskunnar sem er eitt af landsliðsverkefnum SSÍ. Þau Eva Margrét Falsdóttir og Fannar Snævar Hauksson voru síðan í þriðja sæti yfir stigahæstu sund ungmenna á mótinu. Helgina 3. – 5. júlí var AMÍ 2021 haldið á Akureyri. Liðið okkar náði þeim frábæra árangri að verða aldursflokkameistarar árið 2021 eftir geggjaða frammistöðu. Frábær árangur hjá okkar fólki, hvatning, samstaða, gleði og keppnisharka til einstakrar fyrirmyndar. Árni Þór Pálmason varð stigahæstur í sveinaflokki 11 – 12 ára. Sunneva Bergmann Ásbjörnsdóttir varð stigahæst í telpnaflokki 13 – 14 ára og hún hlaut einnig Ólafsbikarinn fyrir bestan árangur í langsundum. Þetta er í 12. skiptið sem ÍRB vinnur AMÍ (ÍRB var stofnað árið 2001) og hefur liðið aldrei verið neðar en í öðru sæti. Hvatningin, fjörið, umgengni og hegðun hjá okkar fólki var jafnframt til fyrirmyndar og við sem félag erum afar stolt af sundfólkinu okkar.
Jólablað 2021
35
Að baki svona árangri liggur mikil vinna þeirra sem koma að þjálfuninni, aðstandenda og íþróttamanna. Við viljum þakka foreldrum, fararstjórunum og öðrum þeim sem lögðu til hjálparhönd fyrir þeirra framlag. ÍRB getur verið afar stolt af okkar fólki. Takk fyrir frábæra AMÍ helgi kæru sundmenn fararstjórar og foreldrar. Í júlí héldu þær Sunneva Bergmann Ásbjörnsdóttir og Eva Margrét Falsdóttir erlendis með landsliði SSÍ. Eva Margrét Falsdóttir keppti á Evrópumeistaramóti unglinga í Róm og var hún rétt við sinn tíma í öllum sínum greinum. Sunneva Bergmann keppti á Norðurlandamóti Æskunnar í Litháen og bætti sig í báðum greinum. Jafnframt keppti hún í þremur boðsundum. Þetta var mögnuð reynsla fyrir sundkonurnar okkar sem nýta þessa reynslu til enn fleiri afreka í lauginni. Þjálfarar úr ÍRB tóku þátt í þessum verkefnum með SSÍ. Það voru þeir Eðvarð Þór Eðvarðsson sem fór sem þjálfari á NÆM og Steindór Gunnarsson sem fór sem þjálfari á EMU. Dagana 27. ágúst til 3. september var svo komið að Ólympíuleikum fatlaðra í sundi þar sem okkar maður Már Gunnarsson átti sviðið. Honum tókst mjög vel til á móti og náði bestum árangri í 100 m baksundi þar sem hann lenti í 5. sæti eftir æsispennandi sund á nýju Íslandsmeti. Haustmót Ármanns 2021 var haldið dagana 25. – 26. september í Laugardalslaug. Afar flottur árangur náðist hjá sundfólki ÍRB og einkenndi góð stemning og góður liðsandi sundkrakkana okkar. Sá sundmaður ÍRB sem vakti mesta athygli þessa helgi var Elísabet Arnoddsdóttir sem sló sextán ára gamalt aldursflokkamet meyja í 50 m flugsundi og var jafnframt eingöngu 2/10 frá aldursflokkametinu í 100m flugsundi. Um leið sló hún fjögur innanfélagsmet í greinunum. Jafnframt náðu sex sundmenn lágmörkum fyrir mót í Lyngby, Danmörku, sem félagið stefnir að fara á. Þann 2. október var Speedomót ÍRB haldið í Vatnaveröld. Mikill fjöldi var á mótinu og oft þröngt á þingi en 250 sundmenn voru skráðir til keppni og margir að stíga sín fyrstu skref. Mót þetta hefur verið afar vinsælt í gegnum tíðina því það er eingöngu einn dagur og er mótið því bæði barna og foreldravænt. Elísabet Arnoddsdóttir náði frábærum árangri á mótinu þegar hún sló 28 ára gamalt aldursflokkamet í 100 m flugsundi og verður gaman að fylgjast með þessari öflugu ungu sundkonu í framtíðinni. ÍM 25 var síðan haldið helgina 12. – 14. nóvember sl. Árangurinn var sérstaklega góður og í heildina vann sundfólkið okkar sjö Íslandsmeist-
aratitla, sjö silfurverðlaun og tíu brons. Eva Margrét Falsdóttir fór á kostum þessa helgi og varð Íslandsmeistari í 400m fjórsundi, í 100m bringusundi, 50 m bringusundi, 100m fjórsundi á nýju
Sendum öllum Suðurnesjamönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.
36
Jólablað 2021
innanfélagsmeti, 200m fjórsundi og 200m bringusundi þar sem hún náði jafnframt lágmarki á Norðurlandamótið. Eva keppti í sjö einstaklingsgreinum og vann sex af þeim á frábærum tímum. Alexander Logi Jónsson vann sigur í 200m flugsundi á frábærum tíma, til bronsverðlauna í 50 m og 400 m fjórsundi, til bronsverðlauna í 200m baksundi og til silfurverðlauna í 200 m bringusundi. Athena Líf Þrastardóttir vann til bronsverðlauna í 200 m baksundi. Sunneva Bergmann náði lágmörkum á Norðurlandamót unglinga þegar hún vann til silfurverðlauna í 800m skriðsundi á frábærum tíma. Hún vann einnig til bronsverðlauna í 1500m skriðsundi og til bronsverðlauna í 400m skriðsundi. Fannar Snævar Hauksson setti piltamet í 50m flugsundi í undanrásunum. Aron Fannar vann til silfurverðlauna í 100m fjórsundi og til bronsverðlauna í 200m fjórsundi á mjög flottum tíma. Kvennasveit ÍRB vann til bronsverðlauna í 4 x 100m fjórsundi og 4 x 100 m skriðsundi en í sveitinni voru: Elísabet Jóhannesdóttir, Eva Margrét Falsdóttir, Elísabet Arnoddsdóttir og Sunneva Bergmann Ásbjörnsdóttir. Karlasveit ÍRB vann til silfurverðlauna í 4 x 100 m skriðsundi og til bronsverðlauna í 4 x 100m fjórsundi, en í sveitinni voru: Alexander Logi Jónsson, Aron Fannar Kristínarson, Fannar Snævar Hauksson og Stefán Elías Berman. Einkar góður árangur hjá okkar fólki um helgina á einu af sterkari Íslandsmótum sl. ára en bæting var í nánast hverju sundi. Síðan unnu bæði karla-og kvennaboðsundssveitir ÍRB til silfurverðlauna í 4 x 200m skriðsundi. Í kvennasveitinni voru þær: Sunneva Bergmann Ásbjörnsdóttir, Elísabet Jóhannesdóttir, Katla María Brynjarsdóttir og Eva Margrét Falsdóttir. Í karlasveitinni voru: Fannar Snævar Hauksson, Stefán Elías Berman, Aron Fannar Kristínarson og Alexander Logi Jónsson. Þetta ár hefur Covid-19 sett stórt strik í okkar starf eins og annara íþróttadeilda hér á landi. Við viljum þakka Landsbankanum, HS Orku, HS Veitum, Reykjanesbæ, Nettó, Speedo og Sigurjóni í Sigurjónsbakaríi, starfsfólki Vatnaveraldar og öllum öðrum sem lögðu hönd á plóg á þessum skrítnu tímum. Ykkar framlag er ómetanlegt. Formaður Sunddeildar Keflavíkur Hanna Björg Konráðsdóttir
Óskum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Áhrif Covid-19 á Blakdeildina heldur áfram en þó batnandi
E
nn hélt saga Covid áfram og hafði þessi faraldur áfram áhrif á starf okkar frá síðasta tölublaði jólablaðsins. Það fór samt aðeins að birta til hjá okkur og eru nokkur atriði sem stóðu upp úr veturinn 2020-2021. Í desember útnefndi Blakdeild Keflavíkur Jóhönnu Kristínu Hauksdóttur og Kristinn Rafn Sveinsson blakkonu og blakkarl ársins 2020. Voru þau einnig valin blakkona og blakkarl Reykjanesbæjar 2020 við verlaunaafhendingu ÍRB á síðasta degi ársins. Æfingar voru komnar í fastar skorður í byrjun árs og allir hópar farnir að æfa á fullu. En í byrjun árs hefði 2. umferð Íslandsmóts átt að fara fram og svo 3. umferð í mars. Mikil óvissa var um hvort hægt væri að halda Íslandsmótið að einhverju leyti þar sem faraldurinn blossaði alltaf upp aftur. Blaksambandið kom með þá hugmynd að hafa deildarbikarkeppni neðri deilda sem mundi rúmast innan sóttvarnarlaga. Var sú keppni landshlutaskipt þar sem liðin myndu spila heima og/eða að heiman. Vel var tekið í þetta og var spiluð deildarbikarkeppni í öllum landshlutum. Blakdeild Keflavíkur var með eitt kvennalið í þessari keppni og spiluðu í Suðvestur landshlutanum. Alls spiluðu þær 4 leiki og höfnuðu í öðru sæti í riðlinum. Helgina 19. – 21. Febrúar fór fram Bikarmót BLÍ fyrir yngri flokka á Akureyri og átti Blakdeildin í fyrsta sinn lið á þessu móti og ekki bara eitt lið heldur tvö eða samtals 16 krakkar úr yngri flokka starfinu. Eitt U16 kvenna og svo eitt U15 blandað báðum kynum. Þarna voru krakkarnir okkar að spreyta sig í fyrsta sinn í keppni í blaki og stóðu þau sig frábærlega. Mikil reynsla og minning sem þau hafa í farteskinu og stefnt er að endurtaka þetta að ári. Ekki voru fleiri mót eftir þessar tvær keppnir hjá bæði konum og yngri flokkum. En Íslandsmótinu í Mars var aflýst, ásamt öldungarmóti BLÍ og öðrum hraðmótum. Blakdeildin gat ekki haldið sitt sívinsæla Fjölskyldu- og fyrirtækjamót eins og hefur verið gert undafarin ár. Svo það má segja að Covid hafði töluverð áhrif á starf deildarinnar. Gaman er að segja samt frá því að þrátt fyrir Covid þá fjölgaði iðkendum hjá okkur, ótrúlegt en satt. Blakdeildin fór svo einnig af stað með nýjan hóp um haustið sem heitir Öldungar og áhugasamir blakarar. Mikill áhugi var á þessum hópi þar sem æfingarnar eru fyrir þá sem vilja bara koma og spila og hafa gaman. En þegar mest var voru um 25 konur sem mættu á þessar æfingar. Það er allt of stór hópur fyrir deild sem er aðeins með einn völl á æfingu en bara gaman að sjá hve mikill áhugi blakið er orðið. Blakdeild Keflavíkur gerði ekki nýjan samning við þjálfarann McKenzey Wiliams. Blakdeildin gat ekki verið í þeirri óvissu hvort hún yrði í eitt ár í viðbót eða ekki. Einnig þar sem áhugasamur þjálfari var búinn að sýna áhuga á að gera samning til 3 ára. Var ekki annað í stöðunni fyrir deildina en að taka því tilboði. Ljóst var að Kenzey yrði sárt saknað en hún var búin ná góðum árangri með kvennaliðinu og í barnastarfinu þann tíma sem hún þjálfaði hjá Blakdeild Keflavíkur. Blakdeildin gerði 3 ára samning við reynsluboltann Erlu Bjarný Jónsdóttur. En rétt áður en æfingarnar hófust um haustið þá veikist hún og í september þá var það sameiginleg ákvörðun, bæði hjá Blakdeildinni og Erlu að rifta samningi þar sem óvíst hvort hún gæti þjálfað til fulls meðan hún væri að takast á við sín veikindi. Hófst þá leitin að þjálfara en ekki þurftum við bíða of lengi þar sem annar reynslubolti hafði samband um áhuga á að þjálfa hjá okkur og var gerður samningur við Ingólf
Dan Guðjónsson og hóf hann þjálfum í byrjun október. Þann 14. Október fór fram viðburðurinn skólablak í Reykjaneshöll sem Blaksambandið heldur í samstarfi við CEV, ÍSÍ, UMFÍ, Beactive og Blakdeild Keflavíkur. Markmiðið er að auka þátttöku krakka í blaki á landsvísu. Leikreglurnar eru einfaldar og þægilegar fyrir alla svo þau ráði við leikinn ásamt því að búa til skemmtilegan viðburð fyrir grunnskólakrakka. Íþróttakennarar fóru greinilega á fullt að kenna blak í íþróttatímum og má segja að það hafi skilaði sér inn í Reykjaneshöllina. En þetta voru alls 260 krakkar úr 7 skólum frá Reykjanesinu sem tóku þátt og alls 17 íþróttakennarar. Mikil ánægja var meðal grunnskólabarna og íþróttakennara og mikil tilhlökkun að endurtaka þetta að ári. Þetta mót hafði mikla þýðingu fyrir Blakdeild Keflavíkur en það hefur orðið algjör sprenging á aukningu iðkenda hjá okkur og bætist nýr iðkandi við vikulega. Blakdeild Keflavíkur átti einn landsliðsmann í unglingalandsliðinu U17 karla, Gunnar Trausti Ægisson. Hann var valinn í lokahópinn fyrir NEVZA mótið sem fór fram í Ikast í Danmörku 18. – 20. Október. U17 ára liðið drengja hafnaði í fjórða sæti á því móti eftir góðan leik gegn Færeyingum. Loksins, loksins eru mót og þá Íslandsmót. En tvö Íslandsmót fóru fram í enda október og í byrjun
nóvember. Byrjað var á Íslandsmóti yngri flokka og við sendum eitt stúlknalið, U17 á þetta Íslandsmót sem var haldið í íþróttahúsinu við Varmá helgina 30.-31. Október. Stelpunum gekk nokkuð vel á þessu móti og fengu nýjar að spreyta sig og keppa í blaki í fyrsta sinn. Helgina eftir, 6.-7. nóvember var komið að 1. umferð í Íslandsmóti neðri deilda og fóru þrjú lið frá Blakdeild Keflavíkur, tvö kvenna lið og eitt karlalið. Gengið var nokkuð brösugt hjá öllum liðum en ekki eitthvað sem hægt er að vinna með og er þjálfarinn komið með plan fram að 2. umferð Íslandsmóts neðri deilda. Nú er staðan sú hjá Blakdeildinni að hún er gjörsamlega sprungin með yngri flokka starfið og erum við með of fáa tíma og of lítið húsnæði fyrir þann flokk. Við erum með 33 börn á aldrinum 6-18 ára og er æskilegt að það séu aðeins hámark 12 iðkendur á æfingu. Þetta ættu að vera allavega 3 hópar. Blakdeildin er búin senda neyðarkall til Íþrótta- og tómstundarfulltrúa í Reykjanesbæ. Vonum við svo innilega að það verði hlustað á okkur og á næsta tímabili verði okkur gefin aðgangur að fleiri tímum og eða að húsnæði, sem býður upp á fleiri en einn völl. Fyrir hönd Blakdeildar Keflavíkur Guðrún Jóna Árnadóttir
Jólablað 2021
37
Badmintondeild:
Árið undarlega
Þ
að má með sanni segja að þetta ár 2021 verði skráð í sögubækurnar sem eitt það undarlegasta í okkar veraldar sögu. Það á við í öllum þáttum mannlífs og mannlegra samskipta. Fjöldatakmarkanir, bólusetningar og
önnur höft á samkomum og öllum viðburðum sem áður voru öllum opnir. Sama hvað það var, íþróttir, tónleikar, heimsóknir á sjúkrahús, elliheimili, ferðalög og svo má lengi telja. Hafði þetta, sem gefur að skilja, áhrif á allt okkar líf og störf,
mismikil þó allt eftir aðstæðum. Hjá okkur í Badmintondeildinni þýddi þetta nánast algjöra lokun á starfseminni, það hættu flestir að koma á æfingar. Þetta átti eflaust við hjá fleiri deildum að iðkun fór minnkandi en þó eflaust misjafnt.
Þetta hefur eflaust haft mest að segja fyrir fámennustu hópana. Við tókum ákvörðun um að slá æfingar af þegar við sáum í hvað stefndi og setja stefnuna á haustið sem við og gerðum. Mæting hefur verið með ágætum og vonum við að sem flestir komi aftur. Stjórn deildarinnar er allavega full bjartsýni á að okkur takist enn eitt árið að halda þessari skemmtilegu og fjölskylduvænu íþróttagrein í hópi þeirra íþróttagreina sem Keflavík, Íþrótta og ungmennafélagið býður bæjarbúum uppá . Að þessu sögðu vill stjórn Badmintondeildarinnar þakka stjórn Keflavíkur, Íþrótta og Ungmennafélags ásamt framkvæmdastjóra og starfsmanna velvilja í okkar garð, sem og öllum áhugasömum iðkendum okkar. Viljum við nota þetta tækifæri og senda öllum bæjarbúum okkar innilegustu jóla og áramóta kveðjur með ósk um að allir getið notið komandi árs í sátt og samlyndi á öllum þeim sviðum sem mannlegur máttur ræður yfir. Með bestu kveðju, Íslandi allt Dagbjört Ýr Gylfadóttir Gjaldkeri Badmintondeildar Keflavíkur
Gleðilega hátíð hsveitur.is 38
Jólablað 2021
Skemmtun fyrir alla fjölskylduna Opnunartími: OPIÐ: 6:45 - 20:006.30 virka- 21.30 daga, 8:00 - 18:00 um helgar Mánud. - föstud. Laugard. og sunnud. 9.00 -18.00 Sími: 420 1500
frítt fyrir börn
fjölskyldusundlaug
Gleðileg jól og farsælt komandi ár Þökkum ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða
BÍLAKJARNINN Jólablað 2021
39
Gjafakort Landsbankans Með gjafakortinu er ekkert mál að velja réttu jólagjöfina. Þú ákveður upphæðina og sá sem þiggur velur gjöfina. Þú færð gjafakort í næsta útibúi eða á landsbankinn.is.