Grillsumarið mikla

Page 1

UPPSKRIFTIR


BBQ-Pizza (uppskriftin miðast við eina 16“ pizzu) • • • • • • • • •

Pizzudeig (keypt eða heimagert) 2 kjúklingabringur frá Rose Poultry ½ rauðlaukur 1 dl maísbaunir ½ dl Hunt´s Original BBQ Sauce 50 g Philadelphia rjómaostur 60 g mozzarella ostur, rifinn 60 g cheddar ostur, rifinn ferskur kóriander

Sósa: Hunt´s Original BBQ Sauce er sett í matvinnsluvél ásamt Philadelphia rjómaosti og unnið vel saman. AÐFERÐ: Grillið er hitað og áleggið á pizzuna er undirbúið. Kjúklingabringurnar eru kryddaðar eftir smekk eða maríneraðar í BBQ-sósu, grillaðar og skornar í þunnar sneiðar. Rauðlaukurinn er skorinn í þunnar sneiðar. Pizzudeigið er flatt út, sett á heitt grillið og grillað þar til botninn er orðinn stökkur (ef grillið er 200° heitt þá tekur það um 3-4 mínútur). Botninum er þá snúið við og álegginu raðað yfir á þann hátt að fyrst er sósan smurð yfir botninn. Þar á eftir er helminginum af ostinum settur yfir, og síðan er kjúklingurinn, rauðlaukurinn og maísbaunirnar settar á pizzubotninn. Að lokum er hinum helminginum af ostinum stráð yfir. Grillinu er síðan lokað og pizzan grilluð áfram þar til osturinn hefur bráðnað. Áður en pizzan er borin fram er kóríander stráð yfir hana. www.ljufmeti.com


BBQ-Hamborgarar með karamelluhúðuðum rauðlauk og hvítmygluosti • • • • • • • • •

2 rauðlaukar 2 msk smjör 1 tsk púðursykur 600 g nautahakk ½ dl Hunt´s Honey Mustard BBQ Sauce 1 msk estragon salt pipar hvítmygluostur

AÐFERÐ: Smjör er brætt á pönnu við miðlungsháan hita. Hökkuðum rauðlauk er bætt á pönnuna og hann látinn malla í smjörinu í 10 mínútur. Púðursykri er þá bætt á pönnuna og laukurinn látinn malla áfram í 10 mínútur. Á meðan er hrært reglulega í lauknum. Ef laukurinn dökknar of hratt þá er hitinn lækkaður. Nautahakkinu er blandað saman við Hunt’s Honey Mustard BBQ Sauce, estragon, salt og pipar og mótaðir eru 5 hamborgarar. Hamborgararnir eru grillaðir á lokuðu grilli í um 3 mínútur, þá er þeim snúið við og ostasneiðar lagðar ofan á. Grillinu er lokað aftur og hamborgararnir grillaðir áfram í um 6 mínútur. Rétt áður en hamborgararnir er tilbúnir er hamborgarabrauðum bætt á grillið og þau hituð. Hamborgararnir eru bornir fram með karamelluhúðaða rauðlauknum, salati, góðri hamborgarasósu og jafnvel líka beikoni og avókadó. www.ljufmeti.com


Kjúklingalundir í Caj P BBQ- kryddsósu fyrir 4 1 pakki (700g) kjúklingalundir frá Rose Poultry 1 dl Caj P BBQ-kryddolía ½ mangó 1 paprika ½ kúrbítur ½ rauðlaukur 2 msk olía salt og pipar nokkur salatblöð AÐFERÐ: Afþíðið kjúklinginn og penslið hann með Caj P-sósunni og látið hann bíða í eina klukkustund. Hitið grillið. Skerið mangó, papriku, kúrbít og rauðlauk smátt niður. Bætið olíu saman við og smakkið til með salti og pipar. Grillið kjúklinginn og penslið með meira af Caj P-sósunni. Berið fram með grænmetinu.


Kjúklingaborgari m/spínati og tómötum fyrir 4 1 pakki (700 g) kjúklingalæri frá Rose Poultry 1 dl Caj P-hvítlaukskryddlögur 4 stór hamborgarabrauð nokkur salatblöð 1-2 msk Hunt´s-salatsósa (sjá uppskrift undir meðlæti) 2 msk olía 150 g spínat 250 g smátómatar salt og pipar AÐFERÐ: Afþíðið kjúklinginn og penslið hann með Caj P sósunni og látið hann bíða í eina klukkustund. Grillið er hitað og kjúklingurinn er grillaður. Hamborgarabrauðin eru síðan hituð á grillinu. Leggið hamborgarann saman með Hunt’s salatsósu (sjá uppskrift undir meðlæti) og salatblaði. Blandið olíu, spínati og tómötum saman og hitið í grillkörfu á grillinu. Smakkið til með salti og pipar og berið fram með hamborgurunum.


Tikka Masala eða Tandoori kjúklingapizza á naanbrauði fyrir 4 700 g kjúklingalundir frá Rose Poultry 1/2 krukka Tandoori paste eða Tikka Masala paste frá Patak’s (ca 220 g) ½ dós grísk jógúrt (ca. 170 g) 1 ½ msk Filippo Berio ólífuolía ½ tsk salt 2 meðalstórir laukar ½ dós Hunt´s niðursoðnir tómatar (ca. 200 g) ½ rauð paprika ca. 200 g rifinn mozzarella ostur 3 Patak´s naan brauð (gjarnan “garlic & coriander”) ólífuolía til að pensla naan brauðin AÐFERÐ: Kjúklingalundirnar eru afþýddar og skornar í hæfilega stóra bita. Tandoori eða tikka masala maukið og gríska jógúrtin eru hrærð saman í skál og kjúklingnum blandað út í. Látið standa við stofuhita á meðan laukurinn er skorinn í sneiðar og paprikan skorin í fremur þunna strimla. Ólífuolía er sett á pönnu eða í pott við meðalhita og lauknum og saltinu bætt út í. Laukurinn er látinn malla við vægan hita í ca 20 mínútur. Lauknum er snúið reglulega, hann á að brúnast en ekki brenna. Olíu er bætt við ef með þarf og jafnvel örlitlu vatni. Á meðan laukurinn mallar er kjúklingurinn í sósunni steiktur upp úr ólífuolíu á pönnu þar til hann er steiktur í gegn. Þá er kjúklingurinn veiddur af pönnunni en eins mikið af sósunni og hægt er, skilin eftir á pönnunni. Tómötunum er bætt út á pönnuna og þeir hrærðir vel saman við sósuna. Sósan er látin malla við meðalhita í nokkrar mínútur þar til hún hefur þykknað dálítið. Naan brauðið er smurt með ólífuolíu á báðum hliðum og sett á grillið í 2-3 mínútur á hvora hlið við góðan hita eða þar til grillrenndur eru komnar í brauðið. Þá er brauðið tekið af grillinu og það er smurt með sósunni. Því næst er sett dálítið af rifnum osti, þá er kjúklingnum dreift yfir, því næst lauki og papriku og endað á rifna ostinum. Naan-bauðið er sett aftur á grillið og slökkt undir þeim brennara sem er beint undir brauðinu en annar og/eða þriðji brennarinn stilltur á fremur háan hita. Grillinu er lokað og naan-pizzan grilluð í um það bil 8-10 mínútur. Fylgast þarf með hitanum og færa bauðið til ef það fer að verða of dökkt. www.eldhussogur.com


Grillaður kjúklingur með epla-tzatziki jógúrtsósu fyrir 4 1 heill kjúklingur frá Rose Poultry 1 flaska Caj P Original olía AÐFERÐ: Það er einfalt að grilla heilan kjúkling jafnt með því að skera hann í svokallað “butterfly”. Það þarf að nota beittan hníf eða góð skæri til þess að fjarlægja hryggjarbeinið. Það er skorið eða klippt sitt hvoru megin við beinið og það fjarlægt ásamt óskabeininu. Þá er hægt að opna fuglinn og leggja hann út flatann. Kjúklingurinn er í því næst lagður í marineringu –Caj P BBQ olíu - í minnst klukkustund en allt að sólarhring. Grillið er hitað vel og kjúklingurinn er lagður á grillið með skinnhliðina niður og hann grillaður í ca 10 mínútur. Þá er kjúklingnum snúið við, slökkt undir brennaranum beint undir kjúklingnum (miðjubrennaranum ef þeir eru þrír) og grillað áfram undir loki við um það bil 200 gráður í 20-25 mínútur eða þar til kjarnhiti fuglsins nær 71°C og hann er eldaður í gegn. Þegar kjúklingurinn er tekinn af grillinu er gott að breiða yfir hann álpappír lauslega og leyfa honum að jafna sig í nokkrar mínútur áður en hann er skorinn. Kjúklingurinn er borinn fram með epla-tzatziki sósu, grilluðu grænmeti og Tilda hrísgrjónum.

Epla-tzatziki jógúrtsósa: 1 stórt grænt epli 1 hvítlauksrif, pressað eða saxað mjög smátt 1 tsk hunang 2,5 dl grísk jógúrt hnífsoddur salt svartur grófmalaður pipar AÐFERÐ: Eplið er flysjað og rifið með rifjárni. Því næst er eplinu blandað saman við jógúrtina, hunangið og hvítlaukinn. Sósan er smökkuð til með salti og pipar. www.eldhussogur.com


Kjúklingasalat með BBQ- dressingu • • • • • • • • • • • •

500 g kjúklingalundir frá Rose Poultry 1 dl Hunt´s Hickory & Brown Sugar BBQ Sauce 70 g furuhnetur 1 msk tamarisósa ½ poki spínat 1 rauð paprika, skorin í strimla 1 gul paprika, skorin í strimla ½ rauðlaukur, skorinn í fína strimla 1 box kokteiltómatar, skornir í tvennt 1 avokadó, skorið í sneiðar 250 gr jarðarber, skorin í tvennt ½ gráðostur

BBQ-dressing: • 1 dl Hunt´s Hickory & Brown Sugar BBQ Sauce • 1 dl matreiðslurjómi AÐFERÐ: Furuhnetur eru þurrristaðar á pönnu við miðlungsháan hita þar til þær eru komnar með gylltan lit. Þá er tamarisósu hellt yfir og steikt áfram í 30 sekúndur (eftir að tamarisósan er komin á pönnuna er hrært stöðugt í hnetunum). Hneturnar eru þá teknar af pönnunni og lagðar til hliðar. Kjúklingalundum og BBQ-sósu er blandað saman í skál og kjúklingurinn látinn marinerast í 30 mínútur. Að því loknu er hann grillaður þar til hann er eldaður í gegn. BBQ-dressing: BBQ-sósu og matreiðslurjóma er blandað saman í potti og hitað að suðu. Látið sjóða við vægan hita í 5 mínútur. SAMSETNING: Spínat, paprikur, rauðlaukur, kokteiltómatar og avókadó er blandað saman og sett í stóra skál eða á fat. Grillaðar kjúklingalundir eru lagðar yfir, þar næst er gráðostur mulinn yfir og að lokum er ristuðum furuhnetum stráð yfir salatið. Salatið er skreytt með jarðarberjum og borið fram með BBQ-dressingunni. www.ljufmeti.com


BBQ-kjúklingavefjur með grískri jógúrtdressingu • • • • • • • •

700 g kjúklingabringur frá Rose Poultry, skornar í teninga 1 ½ dl Hunt´s Honey Hickory BBQ Sauce salat avókadó rauðlaukur rauð paprika tómatar 8 tortillakökur

Grísk jógúrtdressing: • 3 dl grísk jógúrt • safi úr ½ sítrónu (um 4 tsk) • 1 ½ tsk tahini • 15 cm biti agúrka • 2 msk fersk mynta • maldon salt • pipar BBQ-dressing: • 1 dl Hunt´s Hickory & Brown Sugar BBQ Sauce • 1 dl matreiðslurjómi AÐFERÐ: Kjúklingurinn er skorinn í teninga og látinn marínerast í BBQ-sósunni í 30 mínútur. Þar á eftir er hann þræddur á grillteina og grillaður þar til hann er fulleldaður. Salatið er skolað, avókadó er afhýtt og skorið í sneiðar, rauðlaukur afhýddur og skorinn í þunnar sneiðar, paprika fræhreinsuð og skorin í bita og tómatar skornir í bita. Dressing: Agúrkan er afhýdd, fræhreinsuð og rifin á grófu rifjárni. Grískri jógúrt, sítrónusafa, tahini, rifinni agúrku og myntu er blandað vel saman í skál. Smakkað til með salti og pipar. Tortillakökurnar eru hitaðar á grillinu. Gríska jógúrtdressingin er sett yfir miðja tortillakökuna. Síðan er salat, avókadó, rauðlaukur, paprika, tómatar og kjúklingur sett þar yfir og að lokum toppað með smá grískri jógúrtdressingu til viðbótar. www.ljufmeti.com


Grilluð grænmetispizza fyrir 4 Hráefni: 2 msk Filippo Berio ólífuolía 4 tsk Original TABASCO® brand Pepper Sauce ½ tsk salt 1 hvítlauksgeiri, kraminn 1 eggaldin, skorið í 1 cm þykkar sneiðar 1 portabello sveppur 1 kúrbítur, skorinn í 1 cm þykkar sneiðar 1 gul paprika, skorin í 1 cm þykkar sneiðar 1 rauðlaukur, skorinn í 1 cm þykkar sneiðar ½ bolli kirsuberjatómatar, skornir í tvennt ½ bolli fetaostur 2 stk pizzudeig (tilbúin eða heimagerð) AÐFERÐ: Hitið grillið. Blandið saman ólífuolíunni, TABASCO® sósunni, saltinu og hvítlauknum í litla skál. Penslið grænmetið með olíublöndunni. Grillið eggaldinið, sveppinn, kúrbítinn, paprikuna og laukinn í um það bil 5 mínútur, penslið grænmetið og snúið því alla vega einu sinni á grillinu. Takið grænmetið af grillinu og látið kólna. Þegar grænmetið hefur kólnað, skerið það þá í minni bita. Rúllið sitt hvoru pizzudeiginu út í ca 25 cm hring. Setjið pizzudeigin á þar til gerða pizzugrillgrind eða pizzugrillstein. Penslið pizzudeigin með olíublöndunni og setjið grænmetið ofan á. Dreifið fetaostinum yfir grænmetið. Setjið pizzurnar á grillið og grillið þær þar til fetaosturinn er byrjaður að bráðna, þá eru pizzurnar tilbúnar. TABASCO® is a registered trademark for sauces and other goods and services; TABASCO, the TABASCO bottle design and label designs are the exclusive property of McIlhenny Company, Avery Island, Louisiana, USA 70513. www.TABASCO.com


MEÐLÆTI MEÐ GRILLMAT Tikka kartöflubátar með ídýfu 1 kg kartöflur 4 tsk olía 1 tsk hveiti 4 tsk Patak´s Mild Curry Paste AÐFERÐ: Skerið kartöflurnar í báta og sjóðið i 10 mínútur. Blandið síðan olíunni, hveitinu og Patak´s Mild Curry kryddmaukinu saman í skál og setjið kartöflubátana saman við. Setjið síðan kartöflunar í álbakka eða álpappír og setjið á grillið í ca 20 mínútur eða þar til kartöflurnar eru gullbrúnar og stökkar. Ídýfa: 2 dl sýrður rjómi 2 msk niðurskorinn vorlaukur 1 msk sítrónusafi 1 tsk paprikuduft AÐFERÐ: Blandið saman sýrða rjómanum ásamt vorlauknum og paprikuduftinu í skál og hrærið vel saman. Setjið síðan sítrónusafann saman við og berið fram með kartöflunum.

Heit piparsósa

2 dl CaJ P. grillolía original 2 dl matreiðslurjómi 2 tsk grófmalaður pipar AÐFERÐ: Hristið olíuna vel saman og hellið í pott ásamt rjómanum og sjóðið í ca 20 mínútur. Bætið þá piparnum saman við og hitið á háum hita í 2 - 3 mínútur til viðbótar.

Salatsósa með Hunt´s

200 g sýrður rjómi 2 msk Hunt´s Honey Mustard 1-2 tsk grófkorna sinnep Blandið öllu saman og berið fram með öllum grillmat.


Humarspjót með epla- og sellerísultu með trönuberjum 1 spjót og 12 skelflettir humarhalar (Sælkerafiskur) 2 msk hvítlauksolía 2 msk bragðlaus olía 2 græn epli - skræld og skorin í smáa bita 1 stilkur grænt sellerí - smátt skorið 2 msk þurrkuð trönuber 2 msk hrásykur 2 msk eplaedik 1 msk sítrónuolía Salt AÐFERÐ: Þræðið humarinn á spjót og kryddið með salti og hvítlauksolíu. Grillið á snarpheitu grilli. Brúnið sykurinn í víðum potti og bætið eplunum saman við. Leyfið eplunum að brúnast í sykrinum, hellið eplaedikinu yfir og lækkið hitann. Bætið trönuberjum í pottinn og látið malla þar til eplin eru fullelduð. Takið af hitanum og bætið selleríinu út í ásamt sítrónuolíunni og örlitlu salti og berið fram volgt.


Grilluð beikonvafin hörpuskel fyrir 2 12 stk risa hörpuskel (Sælkerafiskur) 12 stk þunnt skorið gott beikon 1 lime-ávöxtur Lehnsgaard hvítlauksolía Salt og pipar Klettasalat og dill AÐFERÐ:Þerrið fiskinn, vefjið beikoni utan um hann og þræðið upp á spjót. Penslið með olíu og grillið á háum hita í 2-3 mín á hvorri hlið. Berið fram með limebátum, klettasalati og dilli.

Grillaðar tígrisrækjur fyrir 2 300 g tígris- eða risarækjur (Sælkerafiskur) ½ meðalstór chilipipar, fræhreinsaður og smátt skorinn 2 cm ferskt engifer, smátt saxað 2 hvítlauksrif, smátt söxuð safi úr hálfum lime-ávexti 1 tsk gróft salt saxaður kóríander (má sleppa) ½ dl Lehnsgaard sítrónuolía

Öllu nema rækjunum er blandað saman í skál. Rækjurnar eru síðan settar út í og þeim velt upp úr maríneringunni. Því næst eru rækjurnar þræddar á spjót og grillaðar í 2 - 3 mínútur, eða þar til þær eru orðnar bleikar.


EFTIRRÉTTIR Á GRILLIÐ Dumle go nuts súkkulaðikaka á grillið • • • • • • •

4 egg 2½ dl sykur 2 tsk Tørsleffs vanillusykur 6 msk Cadbury kakó 3 dl hveiti 200 g smjör, brætt 1 poki Dumle go nuts (175 g)

AÐFERÐ: Smellu- eða silikonform (24 cm) er smurt að innan. Smjörið er brætt og látið kólna dálítið. Egg og sykur er þeytt saman. Því næst er vanillusykri, kakói, bræddu smjöri og hveiti bætt út í og öllu hrært saman. Deiginu er svo hellt í bökunarformið. Dumle go nuts molarnir eru saxaðir gróft og þeim dreift ofan á deigið. Grillið er hitað að 180 gráðum og slökkt á þeim brennara sem er beint fyrir neðan kökuna. Kakan er bökuð á lokuðu útigrilli í um það bil 25 mínútur og þess gætt að grillið haldist í 180 gráðum allan tímann. Kakan á að vera fremur blaut í miðjunni og betra að baka hana í styttri tíma en lengri. Kakan er borin fram volg með þeyttum rjóma eða vanilluís.


Grillaðir bananar með Fazermint súkkulaði og ristuðum pistasíum fyrir 4 • 4 bananar • 1 kassi Fazermint (20 molar) • 1 dl pistasíur frá Ültje • þeyttur rjómi eða vanilluís AÐFERÐ: Bananarnir eru skornir fremur djúpt endilangt og þeim pakkað inn til hálfs í álpappir þannig að þeir standi stöðugir á grillinu. Því næst er Fazermint molunum raðað ofan í raufarnar á banönunum. Bananarnir eru svo grillaðir við meðalhita í 10-15 mínútur eða þar til þeir eru orðnir mjúkir og súkkulaðið hefur bráðnað. Á meðan eru pistasíurnar ristaðar á þurri og heitri pönnu í nokkrar mínútur og þeim snúið oft á meðan. Því næst eru pistasíurnar saxaðar gróft. Þegar bananarnir eru tilbúnir eru þeir bornir strax fram heitir með ristuðum pistasíum og vanilluís eða þeyttum rjóma.


GÆÐI - ENDING - ÁNÆGJA

Q 2200 á fótum

Q 3200 Q 1200

www.weber.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.