Skip to main content

Sandkorn 2012

Page 1

Júní 2012

Sandkorn 2012 Útskriftarblað Grunnskólans í Sandgerði


bls. 2

S a n d k o r n

Við í fjölmiðlafræði tókum að okkur að sjá um skólablaðið þetta ár. Síðastliðin ár hafa nemendur úr 10. bekk sett blaðið saman og gert það vel. Í vetur höfum við haft mánaðarlega fréttaþætti og hafa viðtöl við nemendur og nemendaráð komið fram í þeim þáttum. Mikil vinna var lögð við gerð þáttanna og lögðu flestir allt sitt fram til þess að gera þættina skemmtilega. Fyrir jól voru fáir í fjölmiðlafræði en eftir jól bættist töluvert við hópinn. Við héldum áfram að gera fréttaþætti eftir áramót en lokaverkið var útgáfa fréttablaðsins Sandkorns. Á valentínusardeginum skreytti fjölmiðlafræði ganginn hjá unglingadeild með hjörtum og blöðrum. Upptaka af því var sýnd í einum þætti hjá okkur :) Í ár verður bara prentað út eintök fyrir 10. bekk en blaðið kemur annars út í rafrænu formi vegna skorts á styrkjum fyrir blaðinu. Blaðið verður í rafrænu formi inná heimasíðu skólans. www.sandgerdisskoli.is Fjölmiðlafræði hópurinn hefur unnið hörðum höndum til að reyna að ná blaðinu saman og safnað efni og tekið viðtöl til þess að setja í blaðið. Við vonum að þið njótið blaðsins og eigið frábært sumar. Með kveðju Fyrir hönd fjölmiðlavalsins Rebekka Jóhönnudóttir Ritstjóri

Nemendur í fjölmiðlavali eru: Almar Hólm Axelsson, Anna María Sigurðardóttir, Bryndís Bridget Smith, Georg Vopni Sigurvinsson, Indíana Huld Ycot, Ingimar Jenni Ingimarsson, Manuel Björn Gomes Jóhannsson, Rebekka Jóhönnudóttir, Samúel Óskar Júlíusson Ajayi, Sandra Dögg Ómarsdóttir, Sigríður Margrét Sigurðardóttir, Sonja Rut Jónsdóttir og Stefán Hlífar Gunnarsson (ljósmyndari) Ábyrgðamaður: Hlynur Þór Valsson


bls.3

Blaðamenn Sandkorns slógu á þráðinn til Jóns Jónssonar, söngvara, knattspyrnumanns og ritstjóra Monitors og spurðu hann spjörunum úr. Hvort finnst þér skemmtilegra að syngja eða vera í íþróttum? Það er skemmtilegra að fá útrás fyrir sköpunargleðinni í tónlistinni en það er almenn útrás í fótboltanum og félagsskapurinn þar mjög skemmtilegur. Hvað er uppáhaldslagið þitt, eftir þig sjálfan? Úff... Maður heldur mismikið upp á lögin, stundum er maður alltaf að spila eitthvað lag svo er maður búinn að spila það svo mikið að það verður að hvíla það í smástund. Þessa stundina held ég mikið upp á lag sem ég er nýbúinn að semja, þið vitið náttúrulega ekkert hvaða lag það er. Þannig að uppáhaldslagið mitt af Wait for faith plötunni er Too her, rólegt ástarsorgarlag. Hver er hjúskaparstaðan þín? Ég er í sambúð með henni Hafdísi Björk, við erum búin að vera saman síðan í nóvember 2002 svo það eru komin tíu ár. Hvað varstu gamall þegar þú fékkst fyrsta kossinn? Ertu þá að meina alvöru koss eða einhvern ABC koss? – Alvöru – Þá hef ég verið svona sautján ára. Hvað vildir þú vera þegar þú varst yngri? Hmm.. þetta er flott spurning. Ég held að mig hafi lengi dreymt um að koma fram, hvort sem það væri í tónlist eða vera leikari... Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Grjónagrautur og slátur. Hvaða lag fær þig til að grenja? Hvaða lag fær mig til að grenja? .. djí... þetta er mjög góð spurning... hmm... Þetta er erfið spurning, ég man ekki eftir að hafa grenjað yfir lagi. Konan mín grét yfir Jessicu Sanches í Idolinu síðastliðin föstudag...svei mér þá..man ekki eftir neinu í augnablikinu. Ertu fatafrík? Ég hef lúmskt gaman af því að versla föt en maður verður að gera það í hófi. Maður verður að muna að það þarf að hafa efni fyrir fötunum. Spara fyrir þeim. Þarna kemur Arion gæijinn upp í mér (Talsmaður sparnaðar fyrir Arion banka) Þegar þú semur lög, er það þá út frá persónlegri reynslu eða gripið úr tómu lofti? Það er misjafnt, fer bara eftir lögunum. Hvað hefur þú gefið út margar plötur? Ég hef bara gefið út eina plötu, Wait for faith. Er von á annarri plötu? Já, Stefnum á að gefa út plötu í haust. Við, hljómsveitin mín, erum búin að vera í stúdío og erum komnir með allavega fimm góð lög. Setjum líklegast út nýtt lag í byrjun júní. Hvernig er að spila með FH? Rosalega gaman. Þetta er skemmtilegur félagsskapur og gaman hvað liðinu gengur vel. Vissulega væri gaman að spila meira en ég held mér í toppformi og er í svaka stuði. Getur Bói (Hólmar Örn) eitthvað í fótbolta? Hehehe.. hann er alltaf eitthvað að væla eða tuða..nei, hann er alger snillingur. Góður í fótbolta og svo er hann líka mjög fyndinn, hann er með sinn eigin orðaforða og segir eitthvað kjaftæði sem er alltaf skemmtilegt. Svo er hann líka svo góður íþróttakennari. Eiga Sandgerðingar von á tónleikum frá Jóni Jónssyni? Já...Hvar er best að spila? – Salurinn í skólanum er fínn – Ef einhver hringir og biður mig um að koma þá finnum við út úr því. En svo er ég líka að spila á Keflavík music festival í sumar. Þannig að ég verð á Suðurnesjunum á næstunni. Viltu segja eitthvað við lesendur að lokum? Allir geta eitthvað, finnið ykkar hæfileika og eyðið tímanum í að rækta hann. Ræktið vini og fjölskyldu því þá verðið þið hamingjusöm og forðist þar af leiðandi alla vitleysu og vegnar vel í lífinu. Við hlökkum til að heyra meira í þér í framtíðinni og takk fyrir okkur. Takk sömuleiðis


bls.4

S a n d k o r n

Vorferðalag 9. bekkjar 2011 Við nemendur í 9.bekk Grunnskólans í Sandgerði, nú í 10.bekk, fórum í æðislega og skemmtilega ferð til skagafjarðar þann 23.maí 2011. Það voru allir mjög hressir og kátir og hlökkuðu mikið til ferðarinnar. Það voru allir orðnir mjög þreyttir eftir allan þennan akstur, enda heilir 5 tímar að keyra þangað. Samt alveg þess virði því við vorum á leiðinni í svaka skemmtilega og ógleymanlega ferð. En allavega við erum mætt í skagafjörðinn og við getum sagt ykkur það að sætu strákarnir eru sko sannarlega geymdir þar.! Við byrjuðum á því að koma okkur fyrir í Árgarði þar sem við gistum alla ferðina. Eftir að við vorum tilbúinn og búinn að klæða okkur í hlýju fötin, var ferðinni haldið í hestaferð og það var svaka stuð. Eftir þessa svakalegu hestaferð var ferðinni haldið í Varmahlíð og þar fengum við að snæða á þessum dýrindis kjúklingum. Dagurinn endaði á hópeflisleikjum og kósý sundkvöldi með flottasta bekknum. Næsta dag áttum við að fara í Drangeyjarferð en það var nú ekki gott í sjóinn þann daginn. Þannig við ákváðum að fara frekar í klettasig sem við áttum að fara í daginn áður en komumst ekki í það. Þetta klettasig var svakalegt adrenlín klikk og Guð minn almáttugur hvað þetta var geðveikt. Eftir þetta frábæra klettasig var ferðinni haldið í Paint ball og það var sko mikið fjör og þar fengu nokkrir marga marbletti. En þá er ferðinni haldið en og aftur í ennþá frábærari hlut RIVER RAFTING!! ÞETTA VAR SKO GEÐVEIKT!. Ángríns þetta var geðveikt mikið fjör og sumir fengu að meira að segja að fara ofan í vatnið. Eftir þetta fórum við bara heim í Árgarðinn okkar og fengum okkur góðan sundsprett og svo fengum við auðvitað eitthvað gott í gogginn. Svo fórum við bara í háttinn og fengum okkur okkar reglulega fegurðarsvefn. Jæja nú var komið að stóra deginum og það var brjálað að gera þennan dag sko! S.s þetta var miðvikudagurinn seinasti dagurinn okkar. Við gerðum margt og mikið þennan dag, við byrjuðum á því að fara á slóðir margra nafntogaðra kappa eins og Kolbeins unga og Gissurar úr liði Ásbirning og Sturlu Sighvatssonar úr liði Sturlunga. Þeir mættust í fjöllmennasta barrdaga á Örlysstöðum árið 1238. Og svo voru fleiri þekktir vígvellir á leiðum okkar. Nú vorum við kominn að Hólum í Hjaltadal, þar er rekinn Landbúnaðarháskóli með sérstaka áherslu á hestarækt, fiskeldi, ferðaþjónustu o.fl. Svo fengum við að skoða mjög fallega kirkju, sem er staðsett þar. Nú var ferðinni haldið í svo kallað „róbótafjós“, þar sem tölvur mjólka kýrnar. Þetta var alveg mögnuð sjón, svo fengum við líka að fara inn fyrir grindverkið hjá litlu sætu kálfunum og fengum aðeins að dekra við þau. Svo var stoppað með okkur á bílasafni og auðvitað fannst strákunum það mjög skemmtilegt, en það kom okkur stelpunum samt á óvart hversu skemmtilegt það var þar. Nú loksins var komið veður í Drangeyjarferðina, þessi ferð var mjög skemmtileg en sumir urðu svolítið mikið sjóveikir. Við urðum öll uppgefin eftir þessa ferð, enda löppuðum við þvílíkt mikið, en þetta var sko alveg þess virði. Það var svo flott útsýnið þarna uppi. Á meðan strákarnir fóru í drangey skelltum við gellurnar okkur útí grettislaug sem er náttúrulaug, síðan fóru strákarnir í hana þegar við fórum í eyjuna. Eftir þessa geggjuðu ferð fórum við á Sauðarkrók og fengum smá leiðsögutúr þar, síðan var stoppað á Ólafhúsi á Sauðarkróki og þar fengum við dýrindispizzur. Nú var ferðinni haldið heim í Árgarðinn í huggulegheit og sumir fóru í sund, svo var bara farið í háttinn. Næsta dag áttum við að fara pakka og gera okkur til fyrir heimferð L En við fórum ekki strax heim, við stoppuðum á Reykjaströnd og fórum í leirdúfuskotfimi og fengum að skjóta úr allskonar byssum. Þetta var án efa skemmtilegasta ferð sem við höfum farið í með bekknum! Algjörlega ógleymanleg. Þeir sem eiga eftir að fara í þessa ferð, ángríns fariði með!! Því þið munið sjá mjög mikið eftir því að fara ekki með í hana. Ástarkveðjur á alla. Sandra Dögg Ómarsdóttir & Alexandra Ýr Auðunsdóttir


bls.5


bls.6

Herra Sandgerðisskóli = Grétar Karlsson Ungfrú Sandgerðisskóli = Sandra Dögg Ómarsdóttir Húmoristi ársins = Sindri Kroppur ársins = Garðar Þór Hlátur ársins = Dagbjört Söngvari ársins = Sædís Jákvæðasta manneskjan = Alexandra Mesti höslerinn = Ágúst Mesti hrakfallabálkurinn = Jón Eðvald Ljóska ársins = Berglind Fallegasta brosið = Elínrós Fallegustu augun = Anna Margrét Klaufi ársins = Einar Theodór Íþróttafrík ársins = Georg Vopni Besti félaginn = Haraldur Snyrtipinni ársins = Ólafía Herra facebook = Víðir Tölvugúru ársins = Manuel Björn Gomes Símafrík ársins = Drífa Bjartasta vonin = Friðrika Ína Krútt ársins = Anna María Blaðrari ársins = Viktor Hár ársins = Birta Rós Góðhjartaðasta manneskjan = Sigurður Bjarki Hjólari ársins = Svavar Þór Dansari ársins = Arna Lára Tónlistarfrík ársins = Prariyet Kennari ársins = Bagga

S a n d k o r n


bls.7

Til 10. bekkjar. Ég man:

þegar þið gátuð ekki setið kyrr í 8. bekk

þegar við fórum í hópefli einn tíma á dag

í

8. bekk

Hvað þið höfðuð gaman þegar við fórum menningarferð til Keflavíkur

Hvernig sviðið leit út eftir kappátið hjá strákunum í 8. bekk

Hvað þið stóðuð ykkur vel í tískusýningunni í 9. bekk

Þegar þið gáfuð mér páskaegg á árshátíðinni

Þegar þið vilduð ekki fara að sofa í vorferðinni

Þegar maðurinn sem sá um kvöldvökuna í vorferðinni fékk ekki hljóð...”KRAKKAR”

Hvað þið voruð flott í sigi og river rafting

hvað þið hlóguð mikið þegar ég elti kennarann frá Egilsstöðum

Hvað þið voruð til mikillar fyrirmyndar í vorferðinni í 9. bekk

Þegar þið voruð að reyna að finna kærasta fyrir Rakel í vorferðinni

Þegar þið komuð mér á óvart þegar ég varð 40 ára. Gleymi því ALDREI!!

Hvað þið voruð glæsileg á 10. bekkjar árshátíðinni

Hvað þið eruð yndislegur og skemmtilegur hópur

Hversu frábær þið eruð hvert og eitt

Hvað það það er búið að vera gaman að kenna ykkur

Eftir ykkur alla tíð. LOVE YOU

í


bls.8

S a n d k o r n

Alexandra Ýr Auðunsdóttir 31. janúar Ertu að grínast? Hann er geðveikt sætur!

Anna Margrét Eyþórsdóttir 3. desember Jesús minn..

Anna María Sigurðardóttir 12. nóvember What the crackers?

Arna Lára Kjartansdóttir 8. júlí What the fuck? WTF

Ágúst Þór Sigfússon 10. ágúst Hey, gaur?


bls.9

Berglind Lára Haraldsóttir 1. maí Þetta stóð ekki á mentor

Birta Rós Ágústsdóttir 26. mars Eða eitthvað...

Dagbjört Ottesen Karlsdóttir 4. mars hahahaha

Drífa Björg Guðnadóttir 11. september Ég er ekki of sein

Einar Theodór Ásgrímsson 10. febrúar ZzZZ...


bls.10

S a n d k o r n

Elínrós Hrund Þórðardóttir 21. apríl Án djóks!

Friðrika Ína Hjartardóttir 4. apríl Ókei

Garðar Þór Stefánsson 22. júní Ég er svo þreyttur

Georg Vopni Sigurvinsson 26. júlí Þegiðu

Grétar Karlsson 22. apríl HÚÚÚMLE!


bls.11

Haraldur Árni Birgisson 2. febrúar Jákei

Jón Eðvald Ríkharsson 21. nóvember jújú

Manuel Björn Gomes Jóhannsson 17. október Viltu heyra svolítið skrýtið?

Ólafía Inga Ástvaldsdóttir 25. nóvember Já, nákvæmlega

Prariyet Pindit 24. október Haaa?


bls.12

S a n d k o r n

Sandra Dögg Ómarsdóttir 4. júní Hann er geðveikt sætur!

Sigurður Bjarki Pálsson 21. janúar ZzZzZz

Sindri Már Guðmundsson 22. september Sko skiluru

Svavar Þór Ásgeirsson 30. júlí Satt

Sædís Björg Sævarsdóttir 2. júní Sko


bls.13

Viktor Patrik Klimaszewski 5. júní Af hverju alltaf ég?

Víðir Jóhannsson 28. desember Ök

Alexandra : Hún mun finna sér vinnu sem einkaspæjari. Hún nýtir völd sín til þess að finna sína sönnu ást. Sanna ást hennar er sú sama og þegar hún var í grunnskóla, poppstjarnan Justin Bieber. Hún finnur hann , rænir honum og neyðir hann til að giftast sér. Hún tekur Angelina Jolie til fyrirmyndar og ættleiðir helling af börnum. Anna Margrét : Hún mun finna sér mann sem ljósmyndari. Þau gifta sig 15 apríl árið 2017. Þau munu eignast 1 strák og hann verður algjört kvennagull hann mun sitja fyrir hjá Dressman. Hún mun vinna í bónus til 25 ára aldurs við góðan orðstír en hættir þá og verður förðunarfræðingur. Hún lifir löngu og friðsælu lífi. Anna María : Hún mun vinna við að hakka sig inní allskonar tæki fyrir „The F.B.I“. Síðan nær hún að góma einn frægan rafbanka þjóf en hann kemst að öllu um hana og hún flýr og byrjar nýtt líf. Hún breytir nafninu sínu í Lísa Lofthæna . Hún flytur til Bandaríkjanna og fer að vinna sem sjávarlíffræðingur. Arna Lára : Hún ákveður að verða ballet dansari í bænum fer þaðan til Frakklands til þess að læra þennan listræna dans og verður fræg í Bretlandi og dansar fyrir drottninguna. Síðar þegar hún er orðin 30 ára með eina litla stelpu, hugsar hún til gamla draumsins síns, sem er að verða leikskóla kennari. Hún hættir í ballet og verður leikskólakennari. Ágúst Þór : Hann fer til útlanda í listaskóla og lærir þar breakdans og söng. Hann verður heimsfrægur country söngvari og break dansari og dansar til dæmis á Dancing with the stars. Hann semur síðan lag um reikistjörnurnar sem verður heimsfrægt . Þó lagi hafi komið honum á toppinn er það lagið sem lætur hann vilja verða stjörnufræðingur en hann setur tónlist og stjörnufræðina saman og fór því að syngja aðeins um reikistjörnurnar og gefur út plötu sem heitir „Shining stars above“.


bls.14

S a n d k o r n

Berglind Lára : Berglind fer í Guðfræðina eftir grunnskólann. það kemur í ljós að ástæðan fyrir því að hún sagði oft „ó jesús“ var vegna þess ad hún var að tilbiðja hann í huga sér en varð einhvern veginn bara að segja suma hluti upphátt . Hún verður prestur í Reykjavík í um 25 ár en lifir því til fullnustu. Birta Rós: Birta mun ferðast um allan heiminn með landsliðinu í fótbolta. hún spilar á móti mörgum heimsfrægum fótboltaliðum. Þegar hún er komin með fjölskyldu til þess að sjá um hættir hún að spila með landsliðinu en verður umboðsmaður knattspyrnumanna í staðinn og lifir frábæru lífi. Dagbjört Ottesen : Dagbjört tekur við unglingastarfi björgunarsveitarinnar af Ósk, systur sinni. Hún mun verða framkvæmdastjóri björgunarsveitarinnar og mun stjórna öllum brennum sem verða í Sandgerði. Dagbjört mun finna sér góðan mann sem er í björgunarsveitinni á Hvammstanga. Þau munu eignast 3 börn, tvíburastelpur og einn strák. Þau flytja á Akureyri og eiga þar gott líf. Drífa Björg : Fer í tæknisskólann og lærir myndlist. Hún býr til teiknimyndaseríu sem tekur hana um það bil 3-4 ár að skrifa enda verður hún heimsfræg. Hún og teiknimyndarserían hennar verða svo fræg að Walt Disney biður hana um að gera kvikmynd fyrir þá um úlfa og þeirra líf. Einar : Einar fer ad vinna í fiski. Svo fær hann ógeð af því og fær vinnu í leikhúsi sem stunt man. Hann fær þó fljótt leið á því líka að vera stunt man og hann hugsar sig um og ákveður að verða sjómaður. Báturinn sem hann kaupir sér nefnist „Yoo momah“ og fer hann útá sjó á honum og siglir á vit ævintýranna. Elínrós Hrund: Elínrós heldur áfram námi eftir grunnskólann. Hún verður sálfræðingur og hjálpar mörgum með sín vandamál og gerir líf þeirra miklu auðveldara. Hún mun verða mjög áhugasöm um starf sitt en hefur samt tíma fyrir fjölskyldu og vini. Hún mun eignast stóra fjölskyldu með manninum sínum og hjálpar þeim eins mikið og hún getur. Fríðrika ína : Ína ákveður það að verður fatahönnuður. Föt hennar verða eitthvað sem enginn hefur áður séð. Fatlínan hennar verður það fræg að stærstu stjörnur bíða í röðum eftir því að fá að kaupa af henni kjóla. Síðan sér hún að það vantar einhvern til að hanna föt fyrir krakkana í Afríku. Hún tekur það að sér að gefa Afríku börnunum nýjar flíkur og verður ekki bara fræg fyrir flott föt heldur líka fyrir það að vera með hlýtt hjarta. Garðar Þór : Hann fer í F.S. til að læra viðskiptafræði og fer svo í Háskóla Íslands til að læra meira. Hann ákveður að hætta í skóla og flytja til Frakklands. Hann finnur flotta, franska stelpu sem kennir honum frönsku. Þau enda saman og eignast eitt barn. Þau ákveða það að ferðast um heiminn og síðasti áfangastaðurinn verður Ísland. Þar búa þau til æviloka. Georg :Hann mun fara í tækniskóla og útskrifast þaðan. Mamma hans verður svo stolt af honum að hún býður honum til Las Vegas. Hann lendir í Las Vegas og verður spilafíkill. Fíknin hans verður svo mikil að hann þarf að fara í rehab. Í rehab hittir hann konu sem er líka spilafíkill, þau hjálpa hvort öðru að komast í gegnum fíknina. Þegar þau útskrifast flytja þau til New York og hann vinnur í tölvuviðgerðarfyrirtæki. Grétar: Hann fer í íþróttafræði en heldur samt áfram í fótboltanum. Hann verður einkaþjálfari. Fólkið sem kemur til hans verður nánast að engu eftir tímana hjá honum. The biggest looser leitar af nýjum þjálfurum og Grétar sækir um að verða þjálfari þar. Hann fær starfið og verður einn þekktasti þjálfari Bandaríkjanna. Haraldur Árni : Hann verður þekkt karlkyns fyrirsæta. Svo vill hann tilbreytingu í lífið. Hann fer í flugnám og gerist flugmaður. Hann fær stöðu hjá Icelandair, hann uppgötvar fljótt að farþegar hlægja alltaf svo mikið þegar hann er að tala í hátalarakerfið að hann hættir sem flugmaður og gerist uppistandari og ferðast um allan heim til að fá fólk til að hlægja.


Jón Eðvald: Jón fér í vélvirkjafræði og fær masters gráðu í því. Hann verður bílvélavirki. Svo notar hann hæfileika sína til að smíða geimflaug og flýgur til tunglsins og verður heimsfrægur því hann uppgötvar nýtt líf á tunglinu. Hann mun eignast 1 barn og konan hans verður fyrirsæta hjá Victoria Secret. Manúel Björn: Snemma á síðasta ári í 10. bekk er tekið eftir því að hann er með sérstaka hæfileika í að búa til allskyns tölvuleiki. Hann heldur áfram í námi og mun verða tölvusérfræðingur. Hann mun stofna nýja samskiptasíðu svipaða og „ Facebook“. Hún mun njóta mikilla vinsælda í heiminum og hann mun því verða milljónamæringur. Hann mun brillera í framtíðinni. Ólafía Inga : Hún fer í tækniskólann til að læra hársnyrtingu. Hún kemur sér á framfæri á „Youtube“ og þar mun fræg stjarna sjá hana og fylgjast með henni á netinu. Stjarnan mun bjóða henni starf við að greiða hárið á helstum stjörnum í Hollywood. Hún fer til útlanda og hefur hendur í hári frægra stjarna eins og Lady Gaga, Kate Perry og mörgum fleiri. Hún verður því moldrík. Prariyet : Hann mun verða heimsfrægur plötusnúður ( DJ ) hann mun koma fram á helstu skemmtistöðum víða í útlöndum, og svo vill hann gera eitthvað meira úr lífi sínum og ákveður því að gerast leiðsögumaður. Hann lærir yfir 10 tungumál. Honum verður boðið að túlka fyrir fyrirtæki og alþingismenn víða um heim. Hann þiggur það starf og heldur því lífi áfram. Hann mun eignast konu og þau eignast 3 börn. Sandra Dögg : Sandra verður módel hjá Victoria Secret. Hún mun svo fara í sálfræðinám sem hún klárar með stæl. Hún mun eignast 3 börn og myndarlegan mann. Börnin hennar munu slá í gegn í kvikmyndabransanum. Húsið hennar verður risastórt, sannkallað draumahús hvers manns og mun það vera staðsett í Californiu. Sigurður Bjarki: Siggi kemur öllum á óvart og opnar litla búð sem mun heita LOL . LOL verður búð sem selur allskonar búninga fyrir fólk á öllum aldri. Hún mun selja brandarabækur (prankbooks) sem eru tilvaldar fyrir 1.apríl svo mun hann líka selja boli með fyndnum texta sem að hann sjálfur hannar. LOL mun slá í gegn og það verða opnar LOL búðir víða um heim. Sindri Már: Hann Sindri fer að læra tölvufræði. Hann mun skapa nýja leikja tölvu. Besta leikjatölva í heimi síðan Game boy var og hét. Hann mun eignast 1 barn og það mun vera stelpa. Konan hans verður ólett mjög snemma í sambandinu og þau munu giftast og lifa hamingjusamu lífi. Sædís Björg : Hún fer í Háskóla Íslands til þess að verða þroskaþjálfi. Henni þykir svo vænt um aðra og vill að þeim líði vel og gerir allt til að hjálpa fólki. Hún mun svo fara að vinna á leikskóla og verður leikskólastjóri, hún mun eignast mann sem verður rafvirki þau eignast 4 börn. Hún mun halda áfram að búa í Sandgerði. Viktor Patrik: Hann klárar FS með stæl , hann fer í vélanám, og vinnur við að gera við fjórhjól og krossara. Hann mun eyða mestum tíma sínum með vinum sínum og á krossara. Áhugamálin hans munu vera þau að vera á krossara alla daga. Hann hittir sæta stelpu og þau byrja saman, þegar þau verða 36 ára þá ákveða þau að giftast og eignast börn. Viktor mun vinna á verkstæði og verður ánægður með vinnuna sína. Þegar hann verður gamall þá verður hann búinn að safna mörgum krossurum og hjólum og geymir þau í geymslu. Svo er honum gert tilboð í hjólin og verður hann moldríkur. Svavar Þór: Svavar fer að fikta við reiðhjólaviðgerðir með bróður sínum og þeir fara að gera við hjól fyrir lítið gjald. Þegar komin er nægur peningur þá stofna þeir lítið fyrirtæki og kalla það „Hjólað í málin“ Allir á Íslandi þekkja fyrirtækið og hann verður svo ríkur að hann flytur fyrirtækið út til Bandaríkjanna. Þar fá þeir fleiri viðskipti og verða alveg moldríkir. Þeir kaupa stórt hús og flytja þangað inn. Fyrirtækjunum fjölgar fljótt og verða þau útum allan heim. Hann selur svo fyrirtækið og kaupir sér eyju í Kyrrahafinu og býr þar til æviloka. Víðir: Víðir fer í framhaldsskóla og útskrifast þaðan. Hann ákveður að verða rithöfundur og skrifar helling af bókum um varúlfa. Hann fer til útlanda og reynir að selja bækurnar sínar þar og þær seljast eins og skot. Kvikmyndafélag vill endilega fá að gera mynd sem er tengd bókunum sem hann skrifar. Hann verður moldríkur og giftist leikkonunni sem leikur í myndinni.


Gleðilegt sumar

Mynd: Drífa Björg Guðnadóttir


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Sandkorn 2012 by Inga Reimarsdóttir - Issuu