Orkumótsblaðið 2021

Page 1


Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja

Velkomin til Eyja!

Ágæti gestur Við hjá Vestmanneyjabæ, eins og Eyjamenn allir, erum alltaf jafn stolt og glöð þegar ÍBV íþróttafélag heldur sín knattspyrnumót á hverju sumri. Þetta eru stórverkefni sumarsins á íþróttasviðinu: TM mótið og Orkumótið í Eyjum. Mikil vinna og undirbúningur liggur að baki hjá félaginu, sem og öllum þeim þátttakendum sem mótin sækja. Enda eru þessi mót í flestum tilvikum hápunkturinn á sumrinu hjá þeim iðkendum og þjálfurum sem sækja okkur heim. Þetta árið hefur undirbúningurinni verið með öðrum hætti, annað árið í röð hjá

öllum vegna Covid-19. Það er þó mikið gleðiefni fyrir alla þessa fjölmörgu iðkendur að mótin fari fram eins og í fyrra og hefur ÍBV lagt sig allt fram við það að fylga öllum þeim leiðbeyningum og reglum sem einkenna lífið okkar í dag. Sem betur fer horfir nú til betri vegar í þeim efnum. Eyjamenn eru þekktir fyrir að taka vel á móti gestum og það er alltaf sérstök upplifun fyrir krakkana, nánast eins og að fara til útlanda, þegar farið er um borð í Herjólf og siglt til Eyja. ÍBV leggur alltaf mikinn metnað í að mótin gangi vel fyrir sig og með samstilltu átaki allra þeirra sem koma beint eða óbeint að mótunum hefur þetta gengið ótrúlega vel. Í raun má segja að bæjarbúar allir séu virkir þátttakendur í mótunum. TM mótið fer fram í 32. sinn í ár og þátttakendur hafa aldrei verið fleiri en nú. Félagið heldur nú 38. Orkumótið, sem var fyrirmynd annarra sumarmóta. Jákvæð upplifun af Eyjum, ásamt leikgleði og hæfilegu keppnisskapi, er það sem gerir mótin að minningum sem fyrnast seint og eru alltaf svo verðmætar.

Orkumótsblaðið 2021 Útgefandi: ÍBV Íþróttafélag Ábyrgðarmaður: Sigríður Inga Kristmannsdóttir Ritstjóri: Guðmundur Tómas Sigfússon Ljósmyndir: Sigfús Gunnar Guðmundsson Hafliði Breiðfjörð

Fyrir okkur hér í Eyjum eru þetta tvær af stærstu ferðamannahelgum sumarins, enda foreldrar og fjölskyldur dugleg að fylgja krökkunum sínum til leiks. Þetta er einmitt stór hluti af töfrum mótanna: það er ekki síður skemmtilegt að vera foreldri eða fylgdarmaður og sjá og upplifa gleðina sem skín úr hverju andliti. Þetta sumar verður öðruvísi hjá okkur öllum en það er jákvætt að börnin geta stundað sína íþrótt og keppni. Eftir erfiðan vetur er það tilhlökkunarefni. Vestmannaeyjar hafa upp á margt að bjóða fyrir mótsgesti og ég efast ekki um að þú, sem og aðrir gestir mótanna, eigið góðar stundir framundan á okkar fallegu eyju. Hafðu í huga að þetta er upplifun og þetta er ævintýri sem vert er að njóta. Verum til fyrirmyndar innan sem utan vallar og förum að fyrimælum. Munum að virða þær sóttvarnareglur sem eru í gildi, við erum öll almannavarnir. Góða skemmtun! Íris Róbertsdóttir Bæjarstjóri

Mótsnefnd: Sigríður Inga Kristmannsdóttir, mótsstjóri siggainga@ibv.is / 869-4295 Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri ÍBV haraldur@ibv.is / 899-7996 Sigfús Gunnar Guðmundsson, gjaldkeri sigfus@ibv.is / 481-2060 Guðmundur Tómas Sigfússon mot@ibv.is / 857-2498 Daníel Geir Moritz, dómaramál danielgeirmoritz@gmail.com / 868-5460



ÝMSAR UPPLÝSINGAR Bátsferð Öllum þátttakendum er boðið í bátsferð með bátnum Halkíon frá Rib-Safari. Brottför er frá sömu bryggju og Herjólfur leggst að, nema austan megin, við hliðina á Tanganum. Báturinn hefur nokkuð stífa áætlun, þannig að hópar þurfa að vera tilbúnir á bryggju tímanlega áður en ferð hefst. Bátsferðin tekur ca. 30 mín, farin er ferð út í Klettshelli.

Kæligámur Þau félög sem þurfa meira kælirými en það sem býðst í gistingu er bent á að við erum með kæligám á bryggjunni merktan með ÍBV merki. Gámurinn er fjórði gámur, frá hliði Eimskips. Hann er læstur með talnalás, lykilnúmerið fyrir lásinn er 2861

Bílastæði Fá bílastæði eru á mótssvæðinu en einnig er hægt að leggja bílum við íþróttahús og Þórsheimili. Mikilvægt er að halda akstursleiðum á stæðunum í kringum vellina opnum til að sjúkrabíll eigi greiðan aðgang. Lögregla hefur eftirlit með svæðinu og grípur til þeirra úrræða sem þeir kjósa ef bílum er ólöglega lagt, skapa hættu eða loka mikilvægum leiðum.

Landsleikir Landsleikir eru á föstudagskvöld kl. 18:30 á Hásteinsvelli, spilaðir eru tveir leikir á sama tíma og gilda samanlögð úrslit úr báðum leikjum. Þjálfari tilnefnir fulltrúa síns félags og tilkynnir mótsstjórn, tveim tímum fyrir leik lætur þjálfari leikmann vita um þátttöku. Miðað er við að hvert félag eigi sinn fulltrúa í leiknum. Leikmenn keppa í sérstökum “Landsliðs” og “Pressuliðs” búningum sem eru gerðir sérstaklega fyrir þennan leik. Að leik loknum mega leikmenn eiga búningana sína.

Félagsfáni Öll félög mæta með félagsfána síns félags og flagga honum sjálf á fánastangir við Týsvöll, og taka hann síðan niður áður en haldið er heim á leið.

Matur Allar máltíðir, morgunmatur, hádegismatur og kvöldmatur verða í Höllinni við Strembugötu nema grillveislan á laugardagskvöldi verður fyrir utan Týsheimilið.

Rútuferðir Rútuferðir verða frá bryggju í gistingu á miðvikudag og frá gistingu á bryggju laugardag fyrir þá sem hafa óskað eftir því, rúturnar byrja að ganga klukkutíma fyrir brottför Herjólfs á laugardag. Reglulegar rútuferðir verða á matartíma. Frá Íþróttamiðstöð (fánastöngum við Illugagötu) upp í Höll og til baka aftur. Rútan mun ganga stanslaust þennan hring á matmálstímum.

Verðlaun í mótslok Á laugardegi keppa lið í 8 liða mótum. Sigurlið í hverju móti fá afhentan bikar og leikmenn gullpening. Leikmenn liðs í 2. sæti hvers móts fá afhenta silfurpeninga. Lið mótsins, valdir 10-12 bestu leikmenn mótsins að mati dómara fá sérstaka viðurkenningu. Prúðasta liðið á mótinu utan vallar, fær bikar. Tekið er mið af framkomu hópsins hvarvetna, “hópur” eru allir leikmenn félagsins, þjálfarar, fararstjórar og foreldrar. Háttvísi verðlaun KSÍ, dómarar velja prúðustu liðin í hverjum leik. Allir keppendur fá þátttökupening.

Sjúkravakt Á skrifstofu ÍBV er hægt að nálgast plástur, klaka ofl. fyrir minniháttar meiðsli. Ef grunur er um alvarlega áverka skal alltaf hringja í 112. Tapað/fundið Allir óskilamunir sem verða eftir á mótssvæðinu, meðan á mótinu stendur, enda í íþróttahúsinu/sundlauginni, eins það sem verður eftir í skólunum þegar mótinu er lokið, síminn þar er 488-2400.

Sund Frítt er í sund gegn framvísun þátttökuarmbands þrisvar sinnum yfir mótið. Úrslit Ef leiðrétta þarf úrslit þá þarf að koma þeim skilaboðum til Sigfúsar eins fljótt og auðið er í síma 481-2060 eða sigfus@ibv.is


Karl Kristmanns Umboðs- og heildverslun ehf.

Velkomnir til Vestmannaeyja!

Strákar við óskum ykkur góðs gengis á Orkumótinu

Karl Kristmanns ehf // Ofanleitisvegi 15-19 // 900 Vestmannaeyjum Sími: 481-1971 // GSM: 897-1172 // tölvupóstur hkk@eyjar.is


Gauti Rútsson Orkumótsbikarinn, í pressuliði Orkumótsins og í úrvalsliði mótsins 2019

Það var besta tilfinningin! Hvað var það skemmtilegasta á Orkumótinu sem þú manst eftir? Að vinna mótið og vera í pressuliðinu. Gerði liðið eitthvað annað en að spila fótbolta? Já við fórum í sund og í fótbolta þar sem við vorum að gista. Við vorum allir að gista saman og það var allt rosalega gaman á mótinu. Hvernig var að vinna úrslitaleikinn? Það var besta tilfinningin á mótinu. Var gaman að spila í landsleiknum? Já það var mjög gaman og að hitta fleiri og fleiri úr öðrum liðum. Kynntistu einhverjum strákum úr öðrum liðum á mótinu? Já mjög mörgum og skemmtilegum. Ertu með einhverja rútínu á leikdegi? Fer extra snemma að sofa og borða hollara fyrir leiki. Uppáhalds: Bíómynd: Grown ups 2 Matur: Pizza og fiskur Drykkur: Powerade

Lag: Pop Smoke Samherji: Get ekki gert upp á milli Lið: FH, Liverpool og Barcelona App: Tik Tok

Hvaða 3 hluti gerir þú á hverjum einasta degi? Bursta tennurnar, vera í símanum og æfingar.

Gangi ykkur vel strákar!


Póley gjafavöruverslun Bárustíg

8

.

.

www poley is


AFÞREYING Það er fjölbreytt afþreying í Vestmannaeyjum sem gestir mótsins geta nýtt sér á milli leikja. Eldheimar Eldheimar er gosminjasafn, þar er hægt að fræðast um eldgosið á Heimaey 1973 og Surtseyjargosið 1963. Frítt er fyrir keppendur í fylgd með fullorðnum (fullorðnir borga inn).

Golfvöllur Golfvöllur Vestmannaeyja er 18 holu golfvöllur, hann er talinn einn af óvenjulegustu en jafnframt skemmtilegustu völlum landsins. Herjólfsdalur Skemmtilegt útivistarsvæði með aparólu, tjörn og landnámsbæ.

SEA LIFE Trust Fiskasafn þar sem hægt er að sjá lifandi fiska, Lunda og ýmis sjávardýr ásamt mjöldrunum Litlu hvít og Litlu grá.

Sund Sundlaug Vestmannaeyja er með skemmtilegt útisvæði, klifurvegg, rennibrautir, trampólín rennibraut, heita potta ofl.

Sagnheimar Sagnheimar er byggðasafn, þar sem hægt er að fræðast meðal annars um Tyrkjaránið, Þjóðhátíð, Mormóna ofl. sem tengist sögu Vestmannaeyja. Frítt er fyrir keppendur í fylgd með fullorðnum (fullorðnir borga inn).

Sprangan Sprang er þjóðaríþrótt Vestmannaeyinga. Sprang fellst í því að sveifla sér í kaðli á milli kletta, þeir sem eru óvanir ættu að varast að fara hátt, bara byrja neðst og fara varlega.

Náttúrugripasafnið Einstakt fugla- og steinsafn. Frítt er fyrir keppendur í fylgd með fullorðnum (fullorðnir borga inn). Landlyst Landlyst var byggt árið 1848 og stendur núna í sinni upprunalegu mynd á Skanssvæðinu. Þar hefur verið komið upp læknaminjasafni. Húsið var fyrsta fæðingarheimili á Íslandi byggt árið 1847. Frítt er fyrir keppendur í fylgd með fullorðnum (fullorðnir borga inn). Gönguferðir það er fullt af skemmtilegum gönguleiðum um eyjuna, ef taka á börn með í gönguna þá er auðvelt og skemmtilegt að fara uppá Eldfell og Helgafell. Volcano ATV Skipulagðar fjórhjólaferðir. Brunaðu um eldsvæði Vestmannaeyja með vindinn í hárinu (undir hjálminum), Born to be Wild á lúppu í kollinum og sérfróðan leiðsögumann í eyrunum.

Frisbígolfvöllur Frisbígolfvöllur er 6 holu völlur staðsettur á milli íþróttahússins og Týsheimilisins, skemmtilega krefjandi völlur. Stakkó Stakkó er útivistarsvæði í miðbæ Vestmannaeyja, þar er meðal annars mjög skemmtileg hoppudýna eða svokallaður "ærslabelgur". Kayak & Puffins Það er ekki vitlaust að róa sig niður í kajak og dýfa hausnum, bókstaflega, í fegurð Eyjanna. Sjáðu lunda á klettanöf með fullan gogg af sílum og hlustaðu á sjóinn slá hægan takt á bátshliðinni. Sannkallað zen. Reiðhjólaleiga Leigðu hjól, hjólaðu um á því. Þetta er ekki flókið. Viltu hjóla upp á 120 metra háan höfða eða bara taka túr um bæinn? Leigðu þér hjól og þú ert þinn eigin fararstjóri. Rib Safari Upplifðu Vestmannaeyjar eins á spíttbáti.



Arnar Þór Viðarsson Þjálfari A-landsliðs karla:

Hafa gaman að því að æfa og spila! Hvernig finnst þér hafa gengið síðustu ár að bæta okkur sem fótboltaþjóð í yngri flokkunum? Það hefur verið mjög góður stígandi í yngri flokka starfi á Íslandi undanfarin ár. Flest félög eru með mjög færa þjálfara á yngstu flokkunum og það er mjög mikilvægt þar sem stór hluti af grunnvinnunni er unninn fyrir kynþroska. Bæting á aðstöðu hefur einnig hjálpað okkur að bæta okkur tæknilega. Það er mikill munur fyrir krakka í yngri flokkunum að æfa á góðu gervigrasi eða í höllunum yfir vetrarmánuðina. Að mínu mati getum við bætt okkur hvað mest í afreksþjálfun. Þessi þjálfun þarf að hefjast í kringum 4. flokk það er á þessu sviði sem að félögin geta tekið stór skref á næstu árum. Hvað erum við að gera vel samanborið við önnur knattspyrnusambönd í yngstu flokkunum? Eins og ég sagði hér að ofan þá er mikilvægt að vera með okkar færustu þjálfara á yngstu krökkunum. Þetta er ekki alltaf raunin hjá öðrum knattspyrnufélögum erlendis. Það sem er líka mjög mikilvægt í þjálfun yngstu flokkana á Íslandi er að allir geta æft. Með þessu móti fá allir krakkar möguleika til að þróa sig sem leikmaður. Það er ekki alltaf sá sem er bestur í 6. flokki sem nær að komast í A landsliðið. Erlendis er oft farið í afreksþjálfun með bestu leikmönnunum á unga aldri.

Þetta gefur ekki öllum sömu tækifæri. Við erum lítil þjóð og megum ekki við því að tapa efnilegum leikmönnum af því að þeir eru „afskrifaðir“ of snemma. Það er líka eitt sem oft gleymist að taka tillit til á unga aldri og það er fæðingarmánuður, sem dæmi getur 9 ára krakki sem er fæddur í nóvember verið langt á eftir jafnaldra sínum sem er fæddur í janúar. Þessi munur getur auðveldlega jafnast út með árunum. Á unga aldri geta nokkrir mánuðir munað miklu í hreyfigetu, tækni og þoli. Eru möguleikar fyrir Ísland að halda áfram að búa til knattspyrnumenn í hæsta gæðaflokki? Já ekki spurning. Ég er alveg 100% öruggur á að við munum halda áfram að koma heiminum á óvart með hversu góð við erum í fótbolta

Ég er búinn að koma núna 3 ár í röð á Orkumótið og sé á hverju ári frábæra leikmenn, þjálfara og foreldra. Þetta eru okkar atvinnumenn framtíðarinnar. Eru mót eins og Orkumótið og N1-mótið góður vettvangur fyrir krakka til að bæta sig? Þessi mót eru að mínu mati mjög mikilvæg fyrir krakka til að læra að vinna og tapa. Það hefur enginn leikmaður í sögunni unnið alla leiki á ferlinum. Þess vegna eiga allir að gera sitt besta og þora að reyna hluti í leikjum. Bara með því að þora geta menn bætt sig. Hvernig hefur gengið að komast inn í A-landsliðs þjálfarastarfið? Það hefur gengið mjög vel þrátt fyrir að vera krefjandi. Við vorum að koma núna úr verkefni þar sem


við spiluðum 3 leiki og ég var mjög ánægður með spilamennsku liðsins. Þetta er mjög spennandi starf og ég er rosalega stoltur af því að vera landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu. Á Ísland möguleika að komast inn á næstu stórmót? Já það er alltaf möguleiki á því. Við þurfum að halda áfram að bæta okkur og þróa okkar leik til að ná í góð úrslit. Næsta stórmót er HM í Katar og öll undankeppnin verður spiluð á þessu ári. Við munum gera okkar allra besta til að koma liðinu á lokamótið í Katar. Ertu með góð ráð fyrir unga leikmenn sem vilja komast í Ulandsliðin eða A-landsliðið? Besta ráðið sem ég get gefið leikmönnum er að hafa gaman af því að æfa og spila fótbolta. Ef að maður hefur gaman af því sem maður gerir þá gerir maður það oftar og lengur. Æfingin skapar meistarann og það er enginn fæddur meistari, maður þarf að leggja hart að sér til að verða leikmaður íslenska landsliðsins.

ORKUMÓTIÐ 2020


H1

Herjólfshöll

H2


DAGSKRÁ Miðvikudagur 23. júní 10:45 / 13:15 15:45 / 18:15 18:00 - 20:00

Brottför frá Landeyjahöfn Brottför frá Landeyjahöfn Matur í Höllinni - sjá tímasetningar

Fimmtudagur 24. júní 7:00 - 9:00 8:20 - 12:20 11:30 - 13:30 13:00 - 17:00 16:30 - 18:30

Morgunmatur í Höllinni - sjá tímasetningar Leikir - riðlakeppni Hádegismatur í Höllinni - sjá tímasetningar Leikir - riðlakeppni Kvöldmatur - sjá tímasetningar

Föstudagur 25. júní 7:00 - 9:00 8:20 - 12:20 11:30 - 13:30 13:00 - 17:00 16:30 - 18:30 18:30 - 19:15 19:30 - 20:15

Morgunmatur í Höllinni - sjá tímasetningar Leikir - riðlakeppni Hádegismatur í Höllinni - sjá tímasetningar Leikir - riðlakeppni Kvöldmatur í Höllinni - sjá tímasetningar Landsleikur - Hópur 1 // Kvöldvaka - Hópur 2 Landsleikur - Hópur 2 // Kvöldvaka - Hópur 1

Laugardagur 26. júní 7:00 - 9:00 8:00 - 11:00 11:30 - 14:30 10:15 - 13:00 15:30 - 17:00 17:15 18:00 17:30 - 19:00 20:00 / 22:00 / 23:55

Morgunmatur í Höllinni - sjá tímasetningar Leikir - riðlakeppni Leikir - riðlakeppni Hádegismatur í Höllinni - sjá tímasetningar Jafningjaleikir Bikarúrslitaleikir Úrslitaleikur um TM Mótsbikarinn Grillveisla við Týsheimilið Brottför með Herjólfi Brottför með Herjólfi


LANDSLEIKUR/KVÖLDVAKA HÓPUR 1 Breiðablik Fjölnir ÍA Vestri Haukar KFR Þróttur R. Þróttur V. Tindastóll KF/Dalvík

Hamar Höttur Sindri KR Valur Afturelding Þór Ak. Keflavík Grindavík

HÓPUR 2 FH ÍR ÍBV Stjarnan HK Njarðvík Snæfellsnes Skallagrímur Álftanes

Víkingur Selfoss Fylkir Fram KA Grótta Fjarðabyggð Hvöt Reynir/Víðir



Ásgeir Galdur Guðmundsson Var í Orkumótsliðinu 2015 og 2016

Var mjög happy! Hvað var það skemmtilegasta á Orkumótinu sem þú manst eftir? Að vera valinn í Orkumótsliðið í bæði skiptin. Gerði liðið eitthvað annað en að spila fótbolta? Spiluðum mikið FIFA 16 á milli leikja. Hvernig var að vera valinn í úrvalslið mótsins? Mér leið ógeðslega vel og var mjög happy. Kynntistu einhverjum strákum úr öðrum liðum á mótinu? Já heldur betur, margir af þeim góðir vinir mínir í dag. Ertu með einhverja rútínu á leikdegi? Sofa í 9 tíma, vakna og elda mér hafragraut það er eitthvað sem ég verð að gera. Hvaða 3 hluti gerir þú á hverjum einasta degi? Fara í fótbolta, fylgjast með fótbolta og sofa. Uppáhalds: Bíómynd: Snígillinn Turbo Matur: Grilluð samloka með skinku og osti Drykkur: Blár Powerade Lag: Púlla Upp - Luigi

Gangi ykkur vel strákar!

Samherji: Birkir Björns by far Lið: ÍBV App: Hopp Fótboltamaður: Scott McTominay



UMGENGNISREGLUR 1.

Hvert félag fær stofu/stofur til umráða sem það skal sjá um að halda hreinum meðan á mótinu stendur (þar með talin salerni). Verði einhverjar skemmdir ber félagið ábyrgðina. Muna einnig að henda öllu rusli eftir sig út í gáma.

2.

Í hverri stofu verður að vera fararstjóri. Keppendur mega aldrei vera einir í stofunum, hvorki að nóttu né degi.

3.

Borð, stólar og annar borðbúnaður sem er í stofum, ekki færa hann til.

4.

Allt á að vera hljótt í skólum frá klukkan 22:00

5.

Öll hlaup á göngunum eru stranglega bönnuð og boltar eru bannaðir innan dyra.

6.

Fararstjórum skal bent á það að útidyr eru opnanlegar innan frá, keppendur geta því hæglega læst sig úti eftir að skólanum hefur verið lokað á kvöldin. Athugið að hafa allar hliðarhurðar læstar, hurðin að framan er opin til klukkan 23:00. Það er verið að hugsa um öryggi ykkar með því að hafa lokað. Annars er það á ykkar ábyrgð ef eitthvað kemur fyrir.

7.

Öllum bílum skal lagt á bílastæði við skólana, ekki á skólalóð.

8.

Alla skó skal geyma í anddyri skólanna. Keppendur geta haldið á skónum sínum í stofurnar. Það á enginn að ganga á útiskóm um ganga skólanna.

9.

Skólarnir eru aðeins ætlaðir þátttakendum á mótinu.

10.

Meðferð áfengis, tóbaks og vape er stranglega bönnuð í skólunum. Ef einhver er úti eftir klukkan 23:00 þarf hann að hringja í fararstjóra og láta hleypa sér inn, ekki húsvörð eða annað gæslufólk. Athugið við brottför að sópa, ganga vel frá stofunum og henda rusli í gáma. Góða ferð heim!



MÓTSREGLUR 1.

Keppt er á minivöllum. Leiktími á fimmtudegi og föstudegi er 2x15 mín. Leikhlé er 3 mín. Leiktími á laugardegi er 2x12 mín. Leikhlé er 2 mín.

2.

Dæma skal eftir reglum KSÍ fyrir 5. flokk 7 manna bolta.

3.

Allir leikir skulu hefjast á því að dómari leiði liðin frá marki við girðingu vallarins að miðju vallarins.

Áður en leikur hefst skulu lið, varamenn og þjálfarar safnast saman fyrir aftan markið fjær áhorfendum. Þegar dómarinn gefur merki skulu liðin ganga í röð inn á völlinn að miðlínu. Fyrirliði fyrstur, þá leikmenn og síðast þjálfari. Á miðlínu skulu liðin raða sér í beina röð á móti áhorfendum og veifa. Fyrirliði næst dómara, leikmenn og þjálfari fjærst. Síðan taka fyrirliðar í höndina á hvor öðrum. Eftir að dómari hefur kastað hlutkesti og fyrirliðar valið, þá skal þjálfari sjá um að kalla varamenn út af vellinum í skiptibox.

4.

Dómari skal ekki hefja leik nema þjálfari og varamenn séu á sínum stað. Varamaður og aðstoðarmenn verða að vera á merktu svæði. Dómari hefur heimild til að stöðva leikinn og leiðrétta stöðuna.

Aðeins þjálfari má vera á hliðarlínu leikvallar. Varamenn og liðsstjórar skulu vera á merktu svæði hægra megin fyrir aftan sitt mark.

5.

Í leikjum er aldrei skráður meiri markamunur en 3 mörk.

6.

Röðun liða eftir árangri í riðlum:

7.

Verði liðin jöfn:

8.

Undanúrslitaleikir og úrslit um verðlaunasæti:

1. stig // 2. Fleiri nettó mörk // 3. Færri mörk fengin á sig // 4. Innbyrðis viðureign // 5. hlutkesti

1. Markamismunur // 2. Ef markamunur er jafn, telst það lið ofar sem hefur fengið færri mörk á sig // 3. Innbyrðis viðureignir // 4. Hlutkesti

A. Verði lið jöfn að venjulegum leiktíma loknum (markajafntefli) vinnur það lið sem skoraði eftir stystan leiktíma í fyrri hálfleik eða seinni hálfleik. Dæmi: Lið A skorar í fyrri hálfleik eftir 3 mín og 45 sek. Lið B skorar í seinni hálfleik eftir 2 mín og 10 sek. Endi þessi leikur jafntefli, þá telst lið B sigurvegari. Aðstæður gætu verið óhagstæðar á annað markið, því verður reglan að gilda fyrir hvorn hálfleik. B. Ef leikur endar með markalausu jafntefli fer fram framlenging 2x5 mín. Ef hún endar með markajafntefli þá gildir regla 8a, ef hún endar með markalausu jafntefli þá skal vítakeppni ráða úrslitum, 5 spyrnur á hvort lið, ef enn jafnt er hlutkesti.

9.

Neiti lið að mæta til leiks eða neiti að spila leik getur það átt á hættu að missa stig eða jafnvel verða dæmt úr leik. Mótanefnd hverju sinni ákveður viðurlög við broti sem þessu.



ORKUMÓTIÐ 2020


Eftirtalin bæjarfélög hvetja strákana sína til dáða:

Garðabær

Reykjanesbær

Seltjarnarnes

Múlaþing



Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.