EYJABLIKKSMÓTIÐ 2.-4. OKTÓBER 2026
5. FLOKKUR KK OG KVK ELDRA ÁR
EYJABLIKK ehf. Blikk og stál er okkar mál!
DAGSKRÁ Föstudagur 2. október 10:45/13:15 14:00 15:00 - 21:40 17:30 - 19:00
Herjólfur - brottför Skólar opna Leikir Kvöldmatur
Laugardagur 3. október 7:00 - 9:00 8:20 - 17:40 11:30 - 13:00 18:00 - 19:00 19:30 - 20:30
Morgunmatur í skólum Leikir Hádegismatur Kvöldmatur Landslið - Pressan, Salur 2 Öll félög fá 1 fulltrúa í leikinn
Sunnudagur 4. október 7:00 - 9:00 8:20 - 13:00 9:00 - 13:00 14:00 12:00/14:30
Morgunamatur í skólum Leikir Nesti afhent hjá mótsstjórn í íþróttahúsi Skólar loka Herjólfur - brottför
MATSEÐILL Mjólkur- og hnetulaus
Föstudagur 2. október 17:30 - 19:00
Píta með buffi, kál, tómatar, agúrka, pítusósa og ofnbakaðir kartöflubátar
Laugardagur 3. október 7:00 - 9:00
Morgunmatur - hafragrautur, morgunkorn, brauð og ávextir
11:30 - 13:00
Tortilluhlaðborð með kjúkling, papriku, agúrku, tómötum, káli, osti og salsasósu
18:00 - 19:00
Kjúklingur, franskar, salat og kokteilsósa
Sunnudagur 4. október 7:00 - 9:00
Morgunmatur - hafragrautur, morgunkorn, brauð og ávextir
9:00 - 13:00
Nesti til að taka með í Herjólf: Flóridana eplasafi, Myllu ostaslaufa og banani - félögin geta sótt til mótsstjórnar í íþróttahúsinu.
Morgunmatur er í skólunum Hádegis- og kvöldmatur er í Höllinni
ÝMSAR UPPLÝSINGAR Klefar Við viljum benda forráðamönnum á að fylgjast vel með klefum sinna liða í Íþróttamiðstöðinni, þar gilda sömu reglur og í skólunum. Ekki skilja nein verðmæti eftir í klefunum. Sund Frítt er í sund fyrir keppendur, þjálfara og einn fararstjóra með hverju liði einu sinni á dag alla mótsdagana. Merkt er við í afgreiðslu sundlaugarinnar. Æskilegt er að ekki sé staldrað lengur við en í eina klukkustund í senn. Þegar farið er í sund skal forráðamaður liðs tilkynna fjölda iðkenda og fullorðinna í afgreiðslu áður en haldið er í klefa. Geymið verðmæti í tösku fjararstjóra eða í plastpoka sem fæst í afgreiðslu. Engin ábyrgð er tekin á verðmætum. Forráðamenn liðs skulu ávallt vera á bakka og fylgjast með krökkunum séu þeir ekki sjálfir í laug. Best er að a.m.k. einn sé á bakka. Matur Morgunmatur, hádegismatur og kvöldmatur verður í skólunum. Ekki verður seldur matur fyrir mótsgesti í skólunum á meðan mótinu stendur. Bendum við fólki á að fara á hina fjölmörgu veitingastaði í Eyjum. Sjúkravörur Hjá mótsstjórn er hægt að nálgast plástur ofl. fyrir minniháttar meiðsli, klaka er hægt að fá í afgreiðslu sundlaugarinnar. Ef grunur er um alvarlega áverka skal alltaf hringja í 112. Tapað/fundið Allir óskilamunir sem verða eftir á mótssvæðinu, meðan á mótinu stendur, enda í afgreiðslunni í íþróttahúsinu/sundlauginni, eins það sem verður eftir í skólunum þegar mótinu er lokið, síminn þar er 488-2400.
Landsleikir Landsleikir eru á laugardagskvöld, spilaðir eru fjórir leikhlutar, 7 mín hver. Þar mætast landslið og pressulið stráka og stelpna, sameiginleg úrslit gilda. Landsliðstilnefningum skal skila til mótsstjórnar eigi síðar en kl. 13:00 á laugardaginn. Vinsamlegast látið börnin ekki vita af tilnefningunum fyrr en eftir kl. 17:00. Mótsstjórn mun hafa samband fyrir kl. 17:00 ef einhverju þarf að breyta. Þeir leikmenn sem spila landsleik mæta kl. 19:15 við sundafgreiðslu. Verðlaun í mótslok Veitt eru verðlaun fyrir 1. sæti í hverri deild. Þau verða afhent að lokinni keppni í hverri deild fyrir sig í rými fyrir framan mótsstjórnarherbergið. Úrslit Ef leiðrétta þarf úrslit þá þarf að koma þeim skilaboðum til mótsstjórnar eins fljótt og auðið. Veitingasala Veitingasala verður í húsinu á vegum félagsins.
UMGENGNISREGLUR Íþróttahús Húsið opnar 30 mín fyrir fyrsta leik. Leikur með bolta er stranglega bannaður á göngum og í búningsklefum. Brjóti keppendur þessa reglu verður bolti tekinn úr umferð til mótsloka. Við viljum benda forráðamönnum á að fylgjast vel með klefum sinna liða í Íþróttamiðstöðinni, þar gilda sömu reglur og í skólunum. Ekki skilja eftir nein verðmæti í klefunum. Æskilegt er að neyta matar á svæði við afgreiðslu. Það er stranglega bannað að vera í fimleikagryfju (í sal 3) á meðan á mótinu stendur! Gryfjusvæðið er mjög viðkvæmt sé ekki rétt gengið um það. Brjóti keppendur þessa reglu verður ströngum viðurlögum beitt. Af gefnu tilefni viljum við minna fararstjóra og þjálfara á að umgengni um gistihúsnæði og íþróttahús er á ykkar ábyrgð. Öll gögn og það sem er á veggjum á að láta ósnert.
Sundlaug Frítt er í sund fyrir keppendur, þjálfara og einn fararstjóra með hverju liði. Merkt er við í afgreiðslu sundlaugarinnar. Æskilegt er að ekki sé staldrað lengur við en í eina klukkustund í senn. Þegar farið er í sund skal forráðamaður liðs tilkynna fjölda iðkenda og fullorðinna í afgreiðslu áður en haldið er í klefa. Geymið verðmæti í tösku fjararstjóra eða í plastpoka sem fæst í afgreiðslu. Engin ábyrgð er tekin á verðmætum. Forráðamenn liðs skulu ávallt vera á bakka og fylgjast með krökkunum séu þeir ekki sjálfir í laug. Best er að a.m.k. einn sé á bakka. Þið fáið auðkenni (armbönd) á ykkar hóp í afgreiðslu til að auðvelda eftirlit með ykkar iðkendum.
Umgengni lýsir innri manni!
GÓÐIR SIÐIR Góðir siðir fyrir iðkendur á Eyjablikksmótinu Ég er stundvís og mæti á réttum tíma í leiki. Ég er jákvæður og í góðu skapi í leikjum, því mérfinnst gaman. Ég mótmæli ekki því sem dómarinn/þjálfarinn segir. Ég kem kurteislega fram við mótherja/samherja, því ég vil að þeir komi vel fram við mig. Ég legg mig alltaf 100 % fram. Ég þarf bæði að kunna að vinna og tapa. Ég hjálpa samherjum eins og ég get á æfingum, í leikjum og hvar sem er. Ég geng vel um búningsklefa, íþróttasali og skólahúsnæði. Ég er í íþróttum fyrir sjálfan mig, af því að það er hollt og skemmtilegt. Ég reyni alltaf að vera félaginu og mínum nánustu til sóma, innan vallar sem utan. Ég ber virðingu fyrir fararstjóra/þjálfara og hlýði fyrirmælum þeirra í keppnisferðum.
Góðir siðir fyrir foreldra á Eyjablikksmótinu Hrósið öllum leikmönnum meðan á leik stendur, ekki aðeins ykkar barni. Hvetjið börnin bæði þegar vel gengur og þegar á móti blæs. Berið virðingu fyrir störfum þjálfarans. Lítið á dómarann sem leiðbeinanda barnanna, ekki gagnrýna ákvarðanir hans. Gerið hóflegar kröfur til barnanna um árangur. Verið félaginu og barni ykkar til sóma. Við erum fyrirmyndir barnanna.
GISTING Barnaskóli - strákar
Hamarsskóli - stelpur
Félag Afturelding FH Fylkir Grótta Haukar HK ÍR KA Selfoss Stjarnan Valur Víkingur
Félag Afturelding FH Fram Fylkir Grótta Haukar HK ÍR KA/Þór Selfoss Stjarnan Valur Víkingur
Stofa 1 34, 35 14 32 2 26, 27 4 33 3 16, 17 15 36, 37
Stofa 15 8 4 2 3 14 6 7 10 13 Salur 9b 9
Skólarnir eru hnetulausir v/bráðaofnæmis Hvert félag fær stofu/stofur til umráða sem það skal sjá um að halda hreinum meðan á mótinu stendur. Verði einhverjar skemmdir ber félagið ábyrgðina. Muna einnig að henda öllu rusli eftir sig út í gáma. Ekki er leyfilegt að vera með samlokugrill inní stofunum þar sem brunakerfi fer þá í gang, nýtið matsalina til að gefa keppendum nesti. Í hverri stofu verður að vera fararstjóri. Keppendur mega aldrei vera einir í stofunum, hvorki að nóttu né degi. Borð, stólar og annar borðbúnaður sem er í stofum, ekki færa hann til. Allt á að vera hljótt í skólum frá klukkan 22:30 Öll hlaup á göngunum eru stranglega bönnuð og boltar eru bannaðir innan dyra.
Fararstjórum skal bent á það að útidyr eru opnanlegar innan frá, keppendur geta því hæglega læst sig úti eftir að skólanum hefur verið lokað á kvöldin. Athugið að hafa allar hliðarhurðar læstar, hurðin að framan er opin til klukkan 23:00. Það er verið að hugsa um öryggi ykkar með því að hafa lokað. Annars er það á ykkar ábyrgð ef eitthvað kemur fyrir. Öllum bílum skal lagt á bílastæði við skólana, ekki á skólalóð. Alla skó skal geyma í anddyri skólanna. Keppendur geta haldið á skónum sínum í stofurnar. Það á enginn að ganga á útiskóm um ganga skólanna. Skólarnir eru aðeins ætlaðir þátttakendum á mótinu. Meðferð áfengis, tóbaks og vape er stranglega bönnuð í skólunum. Ef einhver er úti eftir klukkan 23:00 þarf hann að hringja í fararstjóra og láta hleypa sér inn, ekki húsvörð eða annað gæslufólk. Athugið við brottför að sópa, ganga vel frá stofunum og henda rusli í gáma. Góða ferð heim!