Útivistaparadís umvafin fjöllum og hafi
Lúxus · Ævintýri · Vellíðan
Hvanndalir Lodge er sjö herbergja lúxushótel, staðsett í hjarta Ólafsfjarðar og umvafið fallegu landslagi. Herbergin skiptast niður í eina master svítu, eina junior svítu, eitt fjölskylduherbergi og fjögur standard herbergi. Gestir geta notið vandaðrar matargerðar í hlýlegu umhverfi, ásamt vönduðu úrvali vína úr vínherberginu. Í heilsulindinni eru meðferðarherbergi, heitur pottur, kaldur pottur, sauna, infrarauð sauna og slökunarsvæði.
reception@hvanndalir.is
+354 466 1003
HeliAir Iceland býður upp á ógleymanlegar þyrluferðir yfir stórbrotna náttúru Íslands. Hvort sem þú leitar eftir útsýnisflugi, sérsniðinni einkaferð eða ógleymanlegu þyrluskíðaævintýri þá tryggjum við örugga, þægilega og einstaka upplifun!
info@heliair.is
+354 5465600
Kaffi Klara er notalegt kaffihús og gistiheimili í hjarta Ólafsfjarðar. Gistiheimilið er nýlega endurnýjað og býður upp á fimm herbergi af mismunandi stærðum, með sameiginlegum baðherbergjum og eldhúsi þar sem gestir geta notið morgunverðar. Einnig er til staðar fundarherbergi sem hentar vel fyrir smærri samkomur eða vinnustofur. Kaffi Klara er í göngufæri frá Hvanndölum Lodge.
kaffiklara@gmail.com +354 8673857