Skip to main content

Pallurinn 2026

Page 1


Pallurinn
Pallaefni, hugmyndir og góð ráð

Við erum sterkari í timbri fyrir þig

Timbur síðan 1956: Timbur er okkar kjarnavara.

Leiðandi í nýjungum: Fyrir fagfólk og heimili í 70 ár. Þjónusta um land allt: 13 timbursölur og sérfræðingar.

Sjálfbært timbur: Fyrsta verslunin með FSC/PEFC vottun.

Ráðgjöf og teikningar: Höfum teiknað þúsundir sólpalla í 30 ár.

Timbur í vefverslun: Fyrst með timbur á husa.is.

Timbursala Húsasmiðjunnar

á 13 stöðum um land allt

13

Timbursölur

Fagmannaverslun - Hafnarfirði - Grafarholti

Vestmannaeyjum - Ísafirði - Hvolsvelli

Egilsstöðum - Akureyri - Reykjanesbæ

Selfossi - Akranesi - Borgarnesi - Höfn

Gagnvarin fura

Húsasmiðjan selur eingöngu furu úr sjálfbærum skógum og frá framleiðendum sem nota viðurkennd efni gagnvart umhverfi og heilsu fólks.

Undanfarna áratugi hefur gagnvarin fura verið langvinsælasta pallaefni á Íslandi og ætla má að meirihluti sólpalla sé úr furu. Auðvelt er að vinna með efnið og hefur það reynst vel við íslenskar aðstæður.

Þversnið

Pallurinn eykur lífsgæði

Sólpallur við húsið eða sumarbústaðinn nýtist vel, stækkar íverustað fjölskyldunnar og býður upp á fjölbreytta möguleika auk þess að auka verðgildi fasteignarinnar.

Langvinsælasta efnið sem við seljum í palla og skjólveggi er gagnvarin fura. Húsasmiðjan selur eingöngu efni með viðurkenndri gagnvörn sem endist til fjölda ára en þau eru samkvæmt ströngustu umhverfisreglum. Einnig mælum við með að nota ryðfríar skrúfur, sérstaklega ef pallurinn er nálægt sjó.

Hafa þarf nokkur mikilvæg atriði í huga. Það má t.d. ekki þéttklæða skjólveggina því þá brjóta þeir ekki vindinn heldur kasta honum einfaldlega lengra inn á pallinn. Undirstaðan þarf svo að vera vönduð og sterk og fara niður fyrir frost. Annað hvort er steypt undir pallinn eða settir niður góðir staurar, þannig að pallurinn lyfti sér ekki eða skekkist. Hversu djúpt þarf að grafa er misjafnt og fer eftir því hvar á landinu pallurinn er og hvernig jarðveg er verið að vinna með.

Þumalputtareglan er sú að bera strax á pallinn. Þegar borið er á í fyrsta skipti drekkur viðurinn vel í sig en það þarf að passa að þurrka af alla umframolíu svo pallurinn verði ekki flekkóttur og ljótur.“

Við hvetjum fólk til þess að leita til starfsfólksins í Húsasmiðjunni og vera ófeimið við að spyrja og biðja um leiðbeiningar og góð ráð.

Thermory Fura

Hitameðhöndluð fura

Hitameðhöndluð fura einkennist af fallegum, brúnleitum lit sem minnir á framandi viðartegundir. Sérstaða hitameðhöndlunarinnar felst í að trjákvoða, terpentína og formaldehýð eru fjarlægð úr viðnum án notkunar kemískra efna. Viður verður mun stöðugri eftir hitameðhöndlun og gefur því langa endingu og mikla formfestu.

Þversnið

2 3

PALLAKLÆÐNING THERMO FURA PEFC

• Litur: Hnetubrúnn • Rakastig: Ofnþurrkað

• Mál, mm: 26x115 / 26x140x lengd (nokkrar)

Nr. 828700

Endanótuð Huldar festingar

Sérpöntum aðrar stærðir

Gagnvarið brúnt pallaefni

Gagnvarið brúnt pallaefni 34x145 mm sem gerir pallinn eins stöðugan og bryggjudekk. Hægt að skrúfa með kantskrúfum svo engar skrúfur verða sýnilegar. Annar flöturinn sléttur og hinn rásaður, val um hvort snýr upp.

Þversnið

2 2

PALLAKLÆÐNING BANGKIRAI

• Litur: Brúnn • Rakastig: Ofnþurrkað

• Mál, mm: 21x145x lengd (nokkrar)

Nr. 1876297

Bangkirai

Úr sjálfbærri skógrækt í Asíu kemur hinn glæsilegi viður Bangkirai.

Mikil eftirspurn er eftir þessari viðartegund sakir styrks og formfestu.

Bangkirai hefur fallegan gylltan/brúnan lit og heillandi ljóma. Enga kvista er að finna í viðnum, en árhringir geta verið sýnilegir. Ormagöt geta verið til staðar í litlum mæli. Við kaupum aðeins inn timbur, þar sem ormagöt eru í lágmarki. Önnur hlið klæðningarborðanna er með fræstum rásum og þannig má velja yfirborðsáferð.

Þversnið

Sérpöntun

Jatoba

Þessi ótrúlega fallega og harða viðartegund kemur frá Suður Ameríku.

Hún nefnist einnig „brasilískur kirsuberjaviður“.

Viðurinn hefur hlýjan rauðgulbrúnan eða rauðbrúnan lit. Árhringir eru dökkir og geta verið mjög áberandi, sem gefur viðnum fallega áferð. Önnur hlið klæðningarborðanna er rásuð og þannig má velja yfirborðsáferð.

Rásað

Þversnið

Slétt

3

PALLAKLÆÐNING JATOBA

• Litur: Rauðgulbrúnn

• Rakastig: Ofnþurrkað

• Mál, mm: 21x145x lengd (nokkrar).

600800 2 3

Afar glæsileg og sérstök Suður-amerísk viðartegund. Einstakur gæðaviður með sérlega mikla formfestu og hentar afar vel íslensku veðurfari.

Sérstök unun er að horfa á Ipé viðinn. Hann er kvistalaus og í honum eru náttúruleg litbrigði allt frá dökkbrúnu til ólívugræns. Falleg og sérstaklega sterk pallaklæðning. Klæðningarborðin eru slétthefluð á báðum hliðum, og má snúa þeim á báða vegu.

Þversnið

1 1

PALLAKLÆÐNING IPÉ

• Litur: Brúnn • Rakastig: Ofnþurrkað

• Mál, mm: 21x145x lengd (nokkrar) Nr. 1876102 - Nr. 1876283

Sérpöntun

Rustik eik

Rustik eik er glæsileg og dálítið öðruvísi pallaklæðningarefni. Evrópsk eik hefur gylltan lit og eru áberandi æðar í viðnum. Í Rustik gerðinni er nokkuð um kvista, sem er leyft fyrir þennan efnisflokk. Sé pallur-inn ekki olíuborinn, veðrast eikin og fær á sig fallegan silfurgráan lit. Mikilvægt að hafa í huga er að í eikarviði er að finna nokkuð magn tannínsýru af náttúrunnar hendi. Sé járnsúlfat til staðar, getur hún myndað dökka flekki eða valdið því að allt yfirborðið dökknar. Dökki liturinn dofnar yfirleitt verulega með tímanum.

Þversnið

Sérpöntun

2 3

PALLAKLÆÐNING RUSTIK EIK

• Litur: Gylltur/brúnn • Rakastig: Ofnþurrkað

• Mál, mm: 21x145 / 30x145 x lengd (nokkrar).

Nr. 2061424

1 1

Thermory Askur

Hitameðhöndlaður askur

Hitameðhöndlaður askur er glæsilegur og áferðarfallegur viður. Liturinn er brúnleitur og útlitið minnir á suðræn lönd.

PALLAKLÆÐNING HITAMEÐHÖNDLAÐUR ASKUR

• Litur: Dökkbrúnn • Rakastig: Ofnþurrkað

• Mál, mm: 20x132 og 26cx160 x lengd með endanót. nr. 823000, 823100

Sérpöntum aðrar stærðir

Askurinn fer í gegnum hitameðhöndlun sem eykur þol viðarins gagnvart sveppagróðri og fúa, án notkunar kemískra efna. Hitameðhöndlunin lækkar rakastig viðarins og þar með verður formfesta klæðningarinnar afar mikil.

Þversnið

Gult Cumaru

Gult Cumaru er vel þekkt viðartegund. Viðurinn er upprunninn í Suður Ameríku og einkennist af afar jafnri áferð. Hinn guli litur viðarins kallast „Kampavínsgult“.

Gult Cumaru er formföst viðartegund með gulan, hlýjan lit og inniheldur nokkra olíu af náttúrunnar hendi. Viðurinn getur þó verið nokkuð þurr viðkomu og því mælum við með að bera olíu á yfirborð eftir uppsetningu. Klæðningarborðin eru slétthefluð á báðum hliðum, og má snúa þeim á báða vegu.

Þversnið 1 2

Sérpöntun

PALLAKLÆÐNING GULT CUMARU • Litur: Kampavínsgulur • Rakastig: Ofnþurrkað • Mál, mm: 21x145x lengd (nokkrar). Nr. 2061420

Rautt Cumaru

Vinsæl Suður-amerísk viðartegund með mikla hörku og formfestu.

Rautt Cumaru hefur afar fallegan rauðbrúnan lit, sem getur verið örlítið misrauður. Engir kvistir eru í viðnum. Mikil olía er í þessari viðartegund, sem gerir að verkum að hún hentar afar vel íslenskum aðstæðum. Önnur hlið klæðningarborðanna er rásuð og þannig má velja yfirborðsáferð.

Rásað

Þversnið

Slétt

1 2

PALLAKLÆÐNING RAUTT CUMARU

• Litur: Rauðbrúnn • Rakastig: Ofnþurrkað

• Mál, mm: 21x145x lengd (nokkrar)

Nr. 2047312

Bambus

Bambus er FSC vottaður viður. Hentar vel á pallinn, vegginn eða svalirnar.

Húsasmiðjan er með tvær gerðir á lager, 18x137 og 20x155x1850.

Báðar gerðir eru nótaðar á fjóra vegu og hægt að festa þær niður með huldum festingum. Bambusinn er harður og mjög endingargóður viður sem hentar íslenskum aðstæðum einstaklega vel.

Hentar íslenskum aðstæðum einstaklega vel

Pallahugmyndir

Pallur fyrir meðhöndlun
Pallur eftir meðhöndlun
málaður með Jotun Trebitt pallaolíu, litur Shimmergrå

Svona er pallurinn klæddur

Pallaefni

Fáðu gott tilboð í pallinn

Við minnum á pallareiknivélina á husa.is. Fáðu góð ráð og tilboð hjá sölumanni í síma 525 3000.

Fúga skal vera 6-8 mm þannig að viðurinn geti hreyfst eftir umhverfishita og -rakastigi. Hafið einnig 2-3 mm fúgu við enda/ samsetningar. Hafið 10 mm bil við fasta fleti, t.d. steypta veggi. Notið þvingur eftir þörfum við uppsetningarvinnuna.

RÝRNUN

Gera má ráð fyrir 5-10% efnisrýrnun við uppsetningu.

Harðvið skal ávallt bora fyrir skrúfun, annars slitnar skrúfan. Undirsínkið gatið þannig að skrúfuhausinn sé í yfirborðshæð. Göt skulu vera a.m.k. 25 mm frá brún og/eða enda til forðast að viðurinn klofni.

Notið 15 mm dósarbor. Hér er einnig mikilvægt að götin séu a.m.k. 25 mm frá brún þannig að klæðningin klofni ekki.

• Þær gerðir pallaklæðninga sem fjallað er um í þessum bæklingi, henta ekki vel til notkunar innanhúss.

• Mislitun getur myndast í klæðningu á snertiflötum við sperrur. Hún hverfur yfirleitt 1-2 mánuðum eftir uppsetningu.

• Viðmælum ekki með notkun á földum festingum úr harðvið fyrir pallaklæðningar. Þær hafa ekki nægan styrk og geta orskað vindingu í klæðningarborðunum.

• Pallaklæðning úr harðviði má ekki snerta verkfæri eða annað, sem ekki er gert úr ryðfríum málmi. Það getur myndað svarta bletti, sem verða greinilegri þegar viðurinn vöknar. Blettina má þó fjarlægja með oxalsýru (sjá leiðbeiningar framleiðanda).

Klæðningarborðin skal festa með ryðfríum A4 stálskrúfum. Skrúfurnar skulu vera í beinni línu, séð að ofan. Við mælum með 4,8 x 75 mm skrúfum fyrir 21 mm þykka harðviðarklæðningu.

Fyllið vatnsheldu utahússtrélími í tappagat og rekið tappann í gatið. Tappi skal snúa þannig að æðar í klæðningu og tappa séu samsíða. Yfirborð tappans skal vera örlítið hærra en klæðningarinnar. Þurrkið burt umframlím. Pússið yfirborð tappa niður í rétta hæð. Að lokum ætti að slípa allan pallinn.

Viðhald

Í flestum harðviðartegundum er að finna töluverða olíu, sem verndar viðinn gegn fúa, sveppagróðri og þess háttar. Við mælum með að viðurinn sé olíuborinn við uppsetningu. Athugið þó að viður breytir um útlit af völdum veðra og vinda. Án viðarvarnar verður timbur gráleitt með tímanum, sem getur þó litið glæsilega út.

Við mælum með:

• Berið olíu á báðar hliðar klæðningarborðanna fyrir uppsetningu.

• Berið eftir það 1-2 umferðir á pallinn þannig að háræðar viðarins fyllist. Við það eykst veðrunarþol hans umtalsvert.

• Eftir þetta má láta viðinn grána, sé þess óskað. Eigi viðurinn að halda sínum upprunalega lit, er nauðsynlegt að reglulegt viðhald fari fram, t.d. bera olíu á pallinn vor og haust. Olían ætti að vera gerð fyrir harðvið utandyra. Við þetta eykst ending og stöðugleiki klæðningarinnar.

Hreinsun pallaklæðningar

• Skolið pallinn með hreinu vatni.

• Hreinsið (burstið) yfirborðið með pallahreinsi.

• Skolið með hreinu vatni.

• Fylgið að öðru leyti leiðbeiningum framleiðanda hreinsiefnisins.

Viðarolía borin á

• Veður sé þurrt.

• Gangið úr skugga um að klæðningin sé vel þurr og hrein.

• Berið olíu á með pensli eða litlum bursta.

• Látið olíuna síga inn í viðinn í 10-20 mínútur.

• Þurrkið umframolíu af með klút.

• Endurtakið ef viðurinn getur tekið í sig meiri olíu.

• Olían þornar best, haldist veður þurrt í fáeina daga.

• Fylgið að öðru leyti leiðbeiningum framleiðanda.

Þrjár leiðir til að gera pallinn eins og

nýjan

Viðahald á palli

Gamli liturinn er ennþá í lagi

Þetta á við þegar:

P allurinn er orðinn þreyttur, óhreinn eða mattur

Liturinn er nokkuð jafn

Spúlið pallinn 2

Spúlið svo af með hreinu vatni. Ekki nota háþrýstidælu nálægt viðnum, hún getur skemmt yfirborðið. Látið pallinn þorna, helst í 1-2 daga.

Pallaolían er ekki að flagna mikið

Þrífið pallinn 1

3

Skrúbbið pallinn

Skrúbbið svo létt yfir með mjúkum kústi þannig að efnið dreifist vel. Látið liggja á í 15-20 mín. Gætið að væta flötinn með vatni á meðan svo efnið þorni ekki.

Vætið fyrst flötinn með köldu vatni. Berið Jotun Husvask pallahreinsi óþynnt með rúllu eða pensli á flötinn. Einnig er gott að spreyja með úðabrúsa.

Hrein sun

Hreinsiefni Husvask Hreinsiefni fyrir þrif á utanhúss yfirborði. Er mjög freyðandi þegar það er notað með háþrýstidælum. Skemmir ekki gler og málma. Má nota á húsaklæðningu, verönd og garðhúsgögn. 7158002

Endurnýjun á palli í hvaða lit sem er

Þrif og undirbúningur fyrir endurmálun

Þetta á við þegar:

P allurinn er orðinn þreyttur, óhreinn eða mattur

Liturinn er ójafn

Pallaolían farin að flagna

1

Þrífið pallinn

Vætið fyrst flötinn með köldu vatni. Berið Jotun Kraftvask pallahreinsi óþynnt með rúllu eða pensli á flötinn.

Hreinsun/yfirmálun

Hreinsiefni Kraftvask

Sterkt hreinsiefni fyrir málun á utanhúss yfirborði. Er mjög freyðandi þegar það er notað með háþrýstidælum. Froðan heldur yfirborðinu röku í lengri tíma og hreinsar enn betur. 7158000

2

Spúlið pallinn

Spúlið svo af með hreinu vatni. Ekki nota háþrýstidælu nálægt viðnum, hún getur skemmt yfirborðið. Látið pallinn þorna, helst í 1-2 daga.

Skrúbbið pallinn 3

Skrúbbið svo létt yfir með mjúkum kústi þannig að efnið dreifist vel. Látið liggja á í 15-20 mín. Gætið að væta flötinn með vatni á meðan svo efnið þorni ekki.

Pallaolía

Fáanleg í mörgum fallegum litum. 7049123-137

Pallaolía

Ver pallinn í allt að 3 ár áður en þörf er á að bera aftur á. Mikilvægt er að hreinsa gamla pallolíu af og að pallurinn sé hreinn áður en hafist er handa.

Aðeins þarf að bera eina umferð.

Verður regnþolið á aðeins 1 tíma. Ver gegn sól, regni, fúa og sprungum. Heldur lit og útliti viðarins lengur.

Hægt er að velja úr fjölda fallegra lita fyrir pallinn. 7049308

4

Berið á pallinn

Eftir að viðurinn er orðinn þurr, er hægt að bera á Jotun Treolje eða Jotun Trebitt pallaolíu á pallinn. Málið 2-3 borð í einu en passið að setja ekki of mikið. Trebitt á að fara inn í viðinn, ekki sitja ofan á.

gamla pallaolíu eða skipta um lit

Hreinsa gömlu pallaolíuna alveg af

Þetta á við þegar:

Þú ætlar að skipta um lit

Gamli liturinn er mjög misjafn

Pallaolían er að flagna mikið

Þú vilt hreinsa niður í við

Pallahreinsir

Lýsir upp pallinn, fjarlægir sveppagróður, grillolíu og sót. 7158012

4 ltr.

Vætið fyrst flötinn með köldu vatni. Berið Jotun Trebitt pallahreinsi óþynnt með rúllu eða pensli á flötinn.

Pallaolía

Ver pallinn í allt að 3 ár áður en þörf er á að bera aftur á. Mikilvægt er að hreinsa gamla pallolíu af og að pallurinn sé hreinn áður en hafist er handa. Aðeins þarf að bera eina umferð. Verður regnþolið á aðeins 1 tíma. Ver gegn sól, regni, fúa og sprungum. Heldur lit og útliti viðarins lengur. Hægt er að velja úr fjölda fallegra lita fyrir pallinn. 7049308

Þrífið pallinn

2

Spúlið pallinn

Spúlið svo af með hreinu vatni. Ekki nota háþrýstidælu nálægt viðnum, hún getur skemmt yfirborðið. Látið pallinn þorna, helst í 1-2 daga.

3

Skrúbbið pallinn

Skrúbbið svo létt yfir þannig að efnið dreifist vel. Látið liggja á í 15-20 mín. Gætið að væta flötinn með vatni á meðan svo efnið þorni ekki.

4

Slípið pallinn

Eftir að viðurinn er orðinn þurr má slípa pallinn létt með fínum sandpappír. (ef viðurinn er orðinn hrjúfur.)

5

Berið á pallinn

Eftir að viðurinn er orðinn þurr, er hægt að bera á Jotun Treolje eða Jotun Trebitt pallaolíu á pallinn. Málið 2-3 borð í einu en passið að setja ekki of mikið.Trebitt á að fara inn í viðinn, ekki sitja ofan á.

Pallur teiknaður af Bjarnheiði

Íslenskur pallur úr furu. Litur: Jotun Trebitt Shimmer grå. Veggljós: Philips Bustan.

Pallaráðgjöf og teikning

Pantaðu ráðgjöf á husa.is

Þú færð þrívíddarteikningu, myndband og grunnplan

Hvað þarf helst að hafa í huga áður en farið er af stað í pallasmíðina?

„Það þarf að huga að því hvernig pallurinn verður notaður og hvar hann er staðsettur. Til dæmis þarf að gæta þess að skjólveggur skyggi ekki á besta staðinn á pallinum eða að heiti potturinn lendi í dimmu horni,“ segir Bjarnheiður. „Fólk þarf að huga að því hvernig sólin skín á mismunandi tímum dags, hvaðan vindáttin kemur, hvar grillið, húsgögnin eða heiti potturinn eigi að vera o.fr.v. Þess vegna hvet ég alla til að leita sér ráðgjafar, annað hvort hjá mér eða öðrum starfsmönnum Húsasmiðjunnar.“

Bjarnheiður tekur einnig fram að algeng mistök séu að hafa pallinn of lítinn, þannig að þegar húsgögn eru sett á pallinn komist lítið annað fyrir á pallinum. „Þess vegna hvet ég alla sem eru að huga að pallasmíði að koma til okkar og fá teikningu af pallinum í þrívídd frá ólíkum sjónarhornum ásamt grunnplani. Greiða þerf fyrir það ákveðna upphæð sem fæst endurgreidd við kaup á efni í pallinn. Við gerum einnig verðtilboð í allt efni í pallinn, allt frá undirstöðum niður í smæstu skrúfu, þannig að ekkert á að koma á óvart.“

„Þeir sem vilja fá ráðgjöf hjá mér varðandi pallinn geta einfaldlega hringt í aðalnúmer Húsasmiðjunnar 525 3000 og pantað tíma. Munið að koma með grunnteikningu af húsinu og lóðinni ásamt ljósmyndum af svæðinu til mín“ segir Bjarnheiður að lokum.

Afstaða sólar

Gæta verður þess að planta gróðri á milli skjólveggs og þess svæðis sem nota á til útivistar.

Þetta tryggir minni skugga og meira skjól. Velja þarf saman gróður af kostgæfni til þess að hann veiti skjól án þess að verða of hár.

Skuggi frá 1,8 metra skjólvegg þann 1. maí er kl. 17 um 3 metrar en hann lengist í um 6 metra kl. 19. Skuggi þann 20 júní er orðinn 2 metrar kl 17 en 8,5 metrar kl. 21 um kvöldið.

a. Það skiptir máli að sitja ekki of nálægt skjólvegg til þess að lenda ekki í skugganum. Gróður gefur auk þess meira skjól.

b. Skugginn lengist frá klukkan 13 til kl 21 í byrjun maí.

c. Skuggi frá sama skjólvegg í kring um 20. júní.

Hannað eftir þínu höfði

Notfærðu það sem garðurinn býður upp á og útfærðu pallinn þannig að hann skapi sem mest rými og fái að njóta sín í umhverfinu. Garðurinn getur verið formaður eftir þínu höfði og þarf ekki að vera ferkantaður eða beinn. Mikilvægt er að leggja klæðninguna rétt á pallinn þannig að hann virki stærri en ekki minni. Ef garðurinn er hæðóttur má útfæra pallinn á tveimur eða fleiri hæðum. Húsasmiðjan býður meðal annars upp á ráðgjöf frá garðahönnuði sem vinnur með þér hugmynd að sólpallinum þínum.

Gerðu ráð fyrir húsgögnum

Þegar sólpallur er hannaður þarf að hugsa fyrir því hvernig á að nota hann og gera ráð fyrir plássi fyrir þau húsgögn sem ætlunin er að nota. Mælið upp stærðir borða og stóla og þannig er hægt að sjá hvort þau komast vel fyrir á pallinum.

Gagnvarin fura

Húsasmiðjan selur eingöngu furu úr sjálfbærum skógum og er fyrsta FSC vottaða byggingavörukeðjan á Íslandi. Undanfarna áratugi hefur gagnvarin fura verið lang vinsælasta pallaefnið á Íslandi og ætla má að meirihluti sólpalla sé úr furu. Auðvelt er að vinna með efnið og hefur það reynst vel við íslenskar aðstæður.

Pallasmíði

Leiðbeiningar

Staðurinn undirbúinn

1. Ef gras er þar sem pallurinn á að vera, þarf að fjarlægja það og slétta undirlagið. Byrjað er á því að reka niður hæla þar sem horn pallsins eiga að vera og strengja línu á milli þeirra til að ákveða svæðið. Þegar búið er að fjarlægja grasið eða slétta undirlagið þarf að ganga úr skugga um að jarðvegurinn sé láréttur, þannig að pallurinn standi á jafnsléttu. Valið er eitt hornið sem upphafshorn og fundið út með hallamáli lárétta línu að næsta horni. Línan sem var strengd á milli hælanna sett í rétta hæð og síðan koll af kolli þar til við erum komin hringinn. Þá ætti síðasta línan að vera í sömu hæð og sú sem byrjað var að strengja. Næst er strengd lína í kross á milli hælanna og þannig fundið út hvort miðjan er ekki örugglega líka rétt.

2. Þegar búið er að slétta undirlagið, er lagður jarðvegsdúkur yfir það til að hindra að illgresi eigi greiða leið upp í gegn um pallinn. 4-5 cm lag af sandi eða möl er sett ofan á dúkinn.

3. Ef fyrirsjáanlegt er að mikill raki sé á svæðinu gæti þurft að lyfta pallinum lítið eitt frá jörðu. Það er hægt að gera með því að grafa holur með 1,2 metra millibili allan hringinn, 15x15 cm. Dýptin fer

eftir því hvort um sé að ræða frostfrítt efni undir. Ef um slíkt er að ræða nægir að hafa holurnar 15 til 20 cm djúpar, annars þarf að grafa 60 cm niður, þannig að undirstaða pallsins fari ekki af stað í frostum. Því næst þarf að setja steypu eða forsteyptar undirstöður í holurnar og gæta þess að allar undistöðurnar séu í sömu hæð eins og lýst var hér að framan. Steypu er hægt að blanda á staðnum. Einfaldast er að fá tilbúna þurrefnablöndu í steypuna og blanda hana með vatni á staðnum. Þegar steypan er þurr skerum við út hæfilega stóran bút af tjörupappa og leggjum ofan á hana svo að bitarnir liggi ekki beint á steypunni. Ef við erum viss um að jarðvegurinn þar sem pallurinn á að koma sé þurr og/eða við vitum að hann hreyfist ekki í frostum, getum við sleppt þessum kafla og látið grindina hvíla á mölinni.

Trépallur upp við hús

Undirstöðuteikning

Dregari: 45x145 mm gagnvarin alhefluð fura. Boltaður við sökkul eða vegg húss með múrboltum 10x120 HG.

Bitar: 45x95 mm gagnvarin alhefluð fura, millibil 0,6 m.

Undirstaða: steypt undirstaða, staurasteypa og blikk eða papphólkar.

Kantborð: 21x95 mm gagnvarin alhefluð fura.

Klæðning: 28x95 mm gagnvarin alhefluð fura, bil milli borða 5 mm, fest með ryðfríum A4 tréskrúfum, 4,5x60 TX UZ.

Samtengingar: galvaniseraðar járnfestingar, NKT - þakásankeri 210 B fest með galvaniseruðum skrúfum 5,0x40, 8 stk í hvert járn.

Dregarar: 45x145 mm gagnvarin, alhefluð fura, millibil 1,8 - 2 metrar.

Þegar smíða á sólpall getur margborgað sig að tryggja að öll verkfæri og hlutar til smíðinnar séu til staðar. Eftirfarandi listi getur reynst vel hvað þetta varðar:

Verkfæri

Málband

Lína

Hælar

Hamar

Skófla

Réttskeið

Hallamál

Blýantur

Hanskar

Hlífðargleraugu

Handsög eða vélsög

Andlitsgríma

Borvél

Borar

Skrúfbitar

Skrúfubor með úrsnarara

Skrúfjárn

Toppasett eða lyklar fyrir samsetningarskrúfur

2 þvingur (ef þarf)

Pensill

Efni

Jarðvegsdúkur

Möl

Steypa (sement og sandur) (ef þarf)

Tjörupappi (ef þarf)

Grindarefni, lítill pallur: 48x98 mm, stærri pallur: 48 x 148 mm

Pallaefni: 28x95 mm

Franskar skrúfur til að skrúfa saman hornin (120 mm)

Ryðfríar skrúfur til að festa pallaefnið, 60 mm

Sandpappír

Viðarvörn

Vinklar + kambsaumur/skrúfur

Múrboltar (heitgalv. ef festa á pallinn við vegg)

Borðaboltar (heitgalvaniseraðir) (ef setja þarf saman grindarbita, 110 mm)

Staur steyptur í sand

Staur steyptur í holu

Staur steyptur í hólk

Staur 95x95 mm (695600): Gagnvarin alhefluð fura.

Frostfrí grús: Fjölkorna með mikla þjöppunarmöguleika.

Holtasandur: Með mikla þjöppunareiginleika. Vökvaður og þjappaður í lögum.

Viðarvörn: Gagnvörn A flokkur

Múffurör: Steypt frárennslinsrör

Jarðvegur: Jarðvegur á staðnum.

Staur 95x95 mm (695600): Gagnvarin alhefluð fura.

5% vatnshalli: Veitir vatni frá staurnum

Steypa: Múrblanda (6226040)

Viðarvörn: Gagnvörn A flokkur

Drenmöl: Hleypir vatni í gegnum sig Jarðvegur: Jarðvegur á staðnum.

Staur: 95x95 mm gagnvarin alhefluð fura

Vatnshalli: 5% fráveituhalli.

Grús: Frostfrí fjölkorna grús með mikla þjöppunareiginleika.

Steypumót: Blikk/Pappahólkur H 750, þvermál 200 mm (226920).

Steypa: Staurasteypa (6226040).

Drenmöl: Hleypir vatni í gegnum sig. Jarðvegur á staðnum.

Hattar

Hattar á staura eru til í ýmsum útfærslum. Þeir bæði fegra og vernda staurinn gegn því að regnvatn eigi greiða leið inn í staurinn.

Hattur á staura

Fasaður, 45x120x120 mm 600019

Hattur á staura

mm

Álhattur á staura

Stoðveggir

Hægt er að gera stoðveggi úr ýmsu efni. Þar á meðal má nefna sívala staura, rekavið, gamla símastaura eða annan sveran við. Hægt er að skapa fjölbreytileika með því að hafa staurana af misjafnri lengd.

Timbur: 95x95, áttstrent stoðveggjatimbur eða annað efni sem er til staðar.

Gras/hellur/pallur.

Sandur: Um það bil 10 sm.

Þjöppuð grús: Um það bil 40 sm.

Steypt undirstaða: 30 sm í þvermál, 100 cm á dýpt.

Galvaniserað rör: 1”- 2”. Franskar skrúfur til að festa veggbita við rörið. (gæta þess að rörið fari ekki of hátt, ekki upp fyrir lista).

Skrúfur: 60x150 eða 6” nagli með um það bil 50 cm bili.

Girði með kambsaum.

Möl eða völusteinar.

Plast- eða jarðvegsdúkur.

Trélisti: 10x40 mm, til að festa dúkinn.

Gróðurmold.

Gróður.

Hraunsalli: 5 sem eða möl. Einnig er hægt að nota steina eða kurl.

Byggðu stoðvegg á einfaldan hátt. Hér má sjá eina lausn. Efnið færðu hjá okkur.

Skjólgirðingar

Girðingar þjóna margvíslegum tilgangi. Þær geta veitt skjól fyrir ágangi vinda, manna og dýra, eða skýlt gróðri. Girðing sem skýlir gróðri þarf að vera 0,5 til 0,9 m eða hærri, ef um er að ræða gróður sem þarf meira skjól. Þær þurfa ekki að vera alveg þéttar og má bilið á milli borða vera 10 til 90% af breidd borðanna. Viðkvæmari plöntur þurfa þéttari girðingu.

Skjólgirðingar

Mikið úrval forsmíðaðra skjólgirðinga er í boði. Mismunandi form þeirra gerir það að verkum að hver og einn getur valið sér einingar við hæfi. Einingarnar eru smíðaðar úr gagnvörðu timbri og hægt er að raða þeim saman á margvíslegan hátt sem hæfir garðinum, húsinu, pallinum eða öðru því sem þær eiga að skýla. Einnig er hægt að smíða slíkar girðingar sjálfur.

Gætið vel að vindáttinni

Girðingaeiningar eru tilvaldar til að mynda skjólhorn í görðum, við trépalla, í kring um heita potta og til varnar því að börn hlaupi út á götu. Þegar staðsetja á girðingaeiningar þarf að velja hæð þeirra og útlit með notagildi í huga. Þar sem vindasamara er gæti þurft að velja hærri einingar og staðsetja þær þannig að þær gefi tilætlaðan árangur. Rangt uppsett skjólgirðing getur magnað upp vind með því að breyta vindstreng eða magna upp hvirfla. Því þarf að fylgjast vel með ríkjandi vindátt í garðinum áður en staðsetning er ákveðin og útlit veggjaeininga er valið.

Gæta skal öryggis

Við smíðar á girðingu eða skjólvegg þarf að gæta að öryggis, einkum barnanna vegna. Rimlar eiga allra helst að vera lóðréttir og bil á milli þeirra ekki vera meira en 100 mm, sama á við um önnur bil í girðingu eða handriði. Þetta kemur í veg fyrir að lítil börn geti fest höfuðið á milli rimla. Lóðréttir rimlar koma í veg fyrir að börn nái að klifra upp girðinguna. Sérstaklega er varasamt að hafa lárétta rimla í handriðum eða girðingum, þar sem fallhætta er til staðar.

Smíði og frágangur á girðingu

Í þessari gerð er flétta sett ofan á 48x95 og 34x95 mm. Gætið þess að 5 sm séu frá jörð upp að neðri þverslá.

Mæla og merkja hvar staurar eiga að koma. Grafa holu um það bil 120 cm á dýpt og 30 til 40 cm í þvermál. Setja 15 til 20 cm af möl í botn holunnar. Staðsetjið steypuhólk með minnst 30 sm þvermál í holuna, hæð hans sé á bilinu 100 til 110 cm. Látið staurinn í hólkinn og réttið hann af og festið með tveimur skástífum, þannig að hann standi lóðréttur. Skásagið þann enda staursins, sem fer ofan í hólkinn, og gætið þess að endinn fari ekki í gegn um mölina, því ef hann nær í moldina fúnar hann fyrr. Hellið steypu í hólkinn. Ekki loka staurinn af í steypunni, því ef endi hans nær í gegn um steypuna nær bleytan

2x48x98 cm.

að leka í gegn og minni hætta á fúa. Gætið þess að hafa staurana nægilega háa, frekar að stytta þá í rétta hæð síðar.

Efri endi á staur 7 til 10 fyrir ofan grindverk.

Festa lista 26x26 í hring. Festa klæðningu að lista með skrúfum eða nöglum. Notið ekki klæðningu sem er þynnri en 21 mm á þykkt. Ef lítill vindur er á staðnum má hafa 1,5 cm á milli banda, en ef vindur er meiri er betra að auka bilið í 2 til 2,5 sm á milli banda. Loka hringnum með 26x26 mm. Skrúfa eða negla.

Setja fléttu í efra bilið í girðingu 2a. Sami frágangur og í lið 3.

Dæmi um útfærslu á grindverki 2a

Dæmi um útfærslu á grindverki 2b

Undirstöður

Þegar gera þarf undirstöður fyrir palla og skjólveggi er hægt að velja á milli þess að steypa þær á staðnum, eða nota tilbúnar. Hægt er að fá tilbúnar undirstöður í nokkrum stærðum. Minni gerðirnar eru ætlaðar fyrir sólpalla, smærri garðhús og lægri skjólveggi, en stærri gerðirnar eru ætlaðar fyrir hærri skjólveggi. Einnig eru í boði hólkar, sívalir og ferhyrndir, úr pappa eða plastefni (PVC) til að steypa stöpla og undirstöður. Þegar þess er þörf er úrval festinga í boði til að setja í steypuna.

Steypustöplar fyrir sólpalla og minni garðhús

Tilbúnir steypustöplar með járnum til festingar við tréverk auðvelda uppsetningu á sólpöllum,skjólveggjum og minni garðhúsum.

1. Undirstaða fyrir smáhýsi, hæð 90 cm, kónn 20-50 cm. Vnr. 601340

2. Steyptur 20 cm stöpull, hæð 80 cm. BMF gataplata. Vnr. 601320

3. Steyptur 20cm stöpull, hæð 80 cm. 2 flatjárn. Vnr. 601330

4. Steypt undirstaða fyrir frostfría jörð, hæð 25 cm, kónn 30x30 cm - 20x20 cm. Vnr. 601350

Dvergar

Stólpar fyrir sólpalla, girðingar, smáhýsi, skilti og flaggstangir.

Festingar frá Simpson Strong-Tie

Þegar skeyta þarf saman einingar í sólpalli og skjólgirðingu eru festingar frá SIMPSON Strong-Tie. alltaf með bestu gæði. Til eru festingar sem hæfa margvíslegum samsetningum. Vinklar af ýmsum gerðum, bjálkaskór, samskeytingar, gataplötur, súluskór, staurafestingar, pallahólkar og margt fleira.

SIMPSON Strong-Tie er með öfluga heimasíðu þar sem í boði er hugbúnaður til að velja réttu festinguna: www.strongtie.dk

Með styrkingu, 47 mm vnr. 5722100

Með styrkingu, 70 mm vnr. 5722161

Með styrkingu, 90 mm vnr. 5722192

Með styrkingu, 105 mm vnr. 5722261

Skrúfur og saumur frá SIMPSON Strong-Tie

Við mælum með að nota til þess gerðar skrúfur og saum, í allar festingar frá SIMPSON Strong-Tie. Festingarnar eru með ábyrgð, að því gefnu að notaður sé réttur saumur eða skrúfur frá framleiðanda.

Teikningarnar sýna aðeins nokkur dæmi um not á festingum við smíði á palli og girðingu.

Vinkill
Vinkill
Vinkill
Vinkill

Palla- og garðalýsing

Enn meira úrval má sjá á husa.is og í Skútuvogi

HUE Calla start sett 6166872

HUE Lily start sett 6166870

HUE Nyro útiveggljós 6065299

HUE Appear útiveggljós 6166723

HUE Impress Pedestal 6166825

HUE Resonate útiveggljós 6166720

Við styðjum sjálfbærni

Hjá Húsasmiðjunni eigum við réttu pallaklæðninguna fyrir íslenska veðráttu. Við höfum valið sterka vörulínu í samvinnu við birgja okkar. Viðskiptavinir geta því verið öruggir um mikil gæði og langa endingu, óháð vali á viðartegund.

Við leggjum áherslu á gæðavottað timbur þar sem sjálfbærni er stefna okkar. Því kemur nær allt pallaefnið úr sjálfbærum skógum, sem stuðlar að verndun vist- og lífkerfa.

Pallaefninu okkar er skipt í nokkra flokka í því skyni að auðvelda viðskiptavinum okkar að velja efni sem uppfyllir þarfir þeirra.

Formstöðugleiki

1 Yfirburðastyrkur

2 Mikill styrkur

3 Fullnægjandi styrkur

Evrópustaðall DS/EN 350:2016

Endingarflokkun

1 DC1 – Mjög löng ending

2 DC2 – Góð ending

3 DC3 – Takmörkuð ending

Láttu timbrið brosa

Timbrið á að brosa

Þar sem tré er lifandi efni getur það undið sig með tímanum. Það er því mikilvægt að snúa pallaklæðningunni rétt á pallinum. Við snúm pallaklæðningunni þannig að hún brosi með kjarnahliðina upp, eins og sést á myndinni hér fyrir ofan. Horfðu á æðarnar - þær umlykja kjarnahliðina hringlaga og verða því að sveigjast upp á við.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Pallurinn 2026 by Húsasmiðjan - Issuu