FERÐALAG LITAHÖNNUN FRÁ LADY
Aldarlöng saga
fallegra lita Settu saman liti í litatöflu sem endurspeglar ferðalag þitt
Djúpríkir litir og almatta áferð vekja tilfinningu fyrir heimkynnum
Góður smekkur á það besta skilið
KÁPA, VEGGUR: LADY PURE COLOR 0290 BIRI. LOFT: LADY PERFECTION 0290 BIRI. VEGGUR: LADY ICONIC 8753 YELLOW MEMORIES.
Öld lita Litaferðalag okkar hefst áður en við vitum að við erum lögð af stað. Í rýmunum þar sem við fundum fyrst að við áttum heima. Í litum okkar fyrstu minninga. Við tökum þá með okkur áfram, úr einum kafla í þann næsta, úr einu rými í annað. Veggir eru ekki aðeins litaðir fletir heldur tjáning þess sem við vorum, erum og eigum eftir að verða. Líf okkar er ferðalag um liti.
Litir sem við berum með okkur Guli liturinn sem geymir hlýju bernskunnar. Blái liturinn sem við gleymum aldrei. Djúprauði liturinn sem endurspeglar manneskjuna sem við erum að verða. Með hverri stroku heldur ferðalagið áfram.
1. LADY ICONIC 1627 RETRO 2. LADY PURE COLOR 20118 AMBER RED 3. LADY ICONIC 0290 BIRI 4. LADY PURE COLOR 3343 DUSTY PURPLE 5. LADY ICONIC 4223 SAMA 6. VEGGUR: LADY PURE COLOR 3343 DUSTY PURPLE. LOFT: LADY PERFECTION 4223 SAMA 7. LADY ICONIC 1909 KALKOKER 8. LADY ICONIC 12198 EARTHY
Í 100 ár hefur Jotun hvatt fólk til að nota liti til að skapa eigin sögur á heimilinu. Með því að fullkomna falleg litbrigði og þróa hágæðamálningu sem endist höfum við auðveldað fólki að tjá sig með litum. Litaspjald ársins, Journeys, samanstendur af 24 vandlega völdum litum í þremur ólíkum litatöflum. Fáðu innblástur og finndu liti úr þínum eigin minningum, uppgötvunum og reynslu svo heimilið endurspegli þína persónulegu sögu.
VEGGUR OG STIGI: LADY ICONIC 11364 CENTURY WHITE
VEGGUR: LADY PURE COLOR 20118 AMBER RED
Minningar Litir sem við berum með okkur. Fyrsta skrefið á hverju ferðalagi felst oft í að horfa til baka - til upphafsins, rótanna og staðanna sem lifa með okkur löngu eftir að við höfum haldið áfram. Stigagangur baðaður síðdegisbirtu. Litbrigði sem var eðlilegur hluti hversdagsins. Mjúkir jarðlitir vekja tilfinningu fyrir heimkynnum. Með frísklegum gulum lit og dempuðum grænum skapa hlýir litir á borð við terrakotta og djúpan rauðbrúnan lit tilfinningu um að eiga heima. Litatafla sem leiðir þig heim.
Áferð og svipbrigði. Sjónræn ásýnd litar er aðeins einn hluti upplifunarinnar. Persóna hans kemur fyrst fyllilega í ljós þegar gljástigið er valið. Djúprík, ofurmött málning leyfir litnum að njóta sín og dregur fram fegursta og sanna svip hans.
VEGGUR TIL VINSTRI: LADY PURE COLOR 20118 AMBER RED VEGGUR TIL HÆGRI: LADY PURE COLOR 2993 KILIM
VEGGUR: LADY ICONIC 0290 BIRI
Litatafla sem sækir efnivið í fortíðina vekur heimilislega tilfinningu. Hefðbundnir litir mynda kjörinn bakgrunn fyrir muni og erfðagripi sem minna okkur á augnablikin og fólkið sem hefur mótað okkur. Djúpir, mattir fletir sem drekka í sig birtuna, ásamt fallegum jarð- og terrakottalitum á borð við Roma og Kilim, færa rýminu hlýju og dýpt.
BORÐ: LADY SUPREME FINISH 11364 CENTURY WHITE VEGGUR: LADY ICONIC 0290 BIRI
VEGGUR: LADY ICONIC 0290 BIRI
VEGGUR: LADY PURE COLOR 2087 ROMA VEGGSKOT: LADY PURE COLOR 2993 KILIM
Litirnir voru valdir fyrir hæfileika sinn til að vekja hlýja nostalgíu og eru samofnir sögu Jotun. Þeir tengja okkur við fortíðina, fólkið, staðina og gildin sem hafa mótað fyrirtækið í heila öld. Nostalgískir rauðir og gulir tónar eiga rætur í fyrstu litarefnunum, býli stofnandans og fyrstu verksmiðjunni. Biri, grænn litur frá sjöunda áratugnum sem fannst á ný í safni Jotun, markar þróun okkar. Memories heiðrar hundrað ára listsköpun með litum.
Litir og birta. Litirnir breytast þegar þeir mæta birtunni. Þeir taka breytingum með deginum og skapa nýja stemningu í rýminu. Rými sýnir aðra hlið á morgnana en í ljósaskiptunum. Töfrar litanna verða til í samspilinu við birtuna.
VEGGUR: LADY ICONIC 20256 BALMY PINK
Uppgötvanir Litir sem opna ný sjónarhorn. Staðirnir sem við
heimsækjum og fólkið sem við kynnumst á ferðalagi lífsins hafa áhrif á okkur og veita okkur innblástur, oft án þess að við tökum eftir því. Með hverri uppgötvun verðum við hugrakkari, frjálsari í litavali og leiknari í því sem við könnum. Lyftandi blár tónn í samspili við mjúkan plómulit. Hlýtt og tímalaust gult litbrigði parað við gylltan og leikandi bleikan lit. Þannig rata litirnir inn á heimilin okkar eins og minjagripir úr upplifunum okkar og öllu því sem mótar okkur á leiðinni.
VEGGUR: LADY ICONIC 11365 MORNING GLOW VEGGUR TIL HÆGRI: LADY ICONIC 20256 BALMY PINK GLUGGI: LADY SUPREME FINISH 11365 MORNING GLOW
LOFT: LADY PERFECTION 4223 SAMA VEGGUR: LADY PURE COLOR 3343 DUSTY PURPLE LISTAR: LADY SUPREME FINISH 3343 DUSTY PURPLE GLUGGI: LADY SUPREME FINISH 11364 CENTURY WHITE
Stórar uppgötvanir hefjast oft á því að prófa eitthvað nýtt. Þorðu að velja djarft og setja saman óvænta liti. Dempaður plómulitur með ofurmatta áferð getur aukið dýpt rýmisins, sérstaklega þegar hann mætir djörfum andstæðulit í loftinu.
VEGGUR: LADY ICONIC 40054 NORTH HURÐ, LISTAR, STIGI OG GLUGGI: LADY SUPREME FINISH 11365 MORNING GLOW
Hvert ferðalag víkkar sýn okkar á heiminn og rýmin okkar geta gert hið sama. Tjáningarrík litbrigði með karakter opna rýmið og gefa því orku. Með því að blanda saman ólíkum litum og áferðum geturðu skapað þinn eigin stíl. Ljós og léttur himinblár á móti hlýjum, dempuðum gulum tón. Almatta áferð í samspili við dempaða, silkimatta áferð. Andstæðurnar færa rýminu líf og sérkenni.
LADY ICONIC 2087 ROMA
LADY ICONIC 1627 RETRO
LADY ICONIC 11363 NOSTALGIC WHISPER
LADY ICONIC 0290 BIRI
LADY ICONIC 11364 CENTURY WHITE
LADY ICONIC 8753 YELLOW MEMORIES
- Litina má blanda í LADY Perfection. - Litina má blanda í LADY Minerals kalkmálningu. - Litina má blanda í LADY Minerals Revive.
LADY ICONIC 20118 AMBER RED
LADY ICONIC 2993 KILIM
Minningar
Litir sem við berum með okkur
JOTUN 3570 VELVET PLUM
JOTUN 3343 DUSTY PURPLE
JOTUN 20256 BALMY PINK
LADY ICONIC 11365 MORNING GLOW
LADY ICONIC 12299 BEIGE SHEEN
LADY ICONIC 10966 ALMOND BEIGE
LADY ICONIC 40054 NORTH
LADY ICONIC 4223 SAMA
Uppgötvanir
Litir sem opna ný sjónarhorn
LADY ICONIC 12198 EARTHY
LADY ICONIC 1909 KALKOKER
LADY ICONIC 1799 SPICE BROWN
LADY ICONIC 4638 BYGE
LADY ICONIC 4403 MIDNIGHT BLUE
LADY ICONIC 1281 PERLEBIGE
LADY ICONIC 20162 MELLOW
LADY ICONIC 20185 FRINELY PINK
Upplifun
Litir sem við berum með okkur okkur
Að mótast Kannaðu þitt eigið litaferðalag Når du vet hva som føles som hjemme, kan du skape deg et hjem hvor som helst. Farger er personlige. Prøv deg frem, miks og match disse 24 fargene slik du selv ønsker. De tre temaene er sammensatt av nyanser som passer godt til hverandre. Følg gjerne pilene for gode kombinasjoner, eller lek med fargene og skap din egen, personlige palett.
Þegar þú veist hvað lætur þér líða eins og heima, geturðu skapað þér heimili hvar sem er. Litir eru persónulegir. Prófaðu þig áfram og blandaðu þessum 24 litum saman eins og þú vilt. Litbrigðin í þremur þemunum eru valin þannig að þau fari vel saman. Fylgdu örvunum til að finna góðar samsetningar eða leiktu þér með litina og búðu til þína eigin litatöflu.
Litir sem þú getur treyst
Litirnir okkar eru þróaðir af kostgæfni eftir einstökum uppskriftum sem lagaðar eru að málningu Jotun. Jotun ábyrgist rétta litaendurgjöf eingöngu þegar notaðar eru Jotun-vörur sem blandaðar eru í Jotun Multicolor-litablöndunarkerfinu.
Rétt litaendurgjöf og gæði nást aðeins með LADY eða öðrum Jotun-vörum sem blandaðar eru í Jotun Multicolor-kerfinu. Liturinn getur virst mismunandi eftir birtuskilyrðum, gljáa, áferð og undirlagi.
VEGGUR: LADY NEW ERA 12299 BEIGE SHEEN GLUGGI: LADY SUPREME FINISH 11364 CENTURY WHITE LISTAR: LADY SUPREME FINISH 11364 CENTURY WHITE
Litir mæta birtu. Gefðu rýmunum karakter og gerðu þau að þínum með litum, húsgögnum og smáatriðum sem þú hefur uppgötvað á leiðinni. Ljós litbrigði umhverfis glugga hleypa dagsbirtunni inn og gera rýmið opið og bjart.
VEGGUR: LADY AQUA 3570 VELVET PLUM
VEGGUR: LADY MINERALS 10966 ALMOND BEIGE
VEGGUR: LADY ICONIC 11365 MORNING GLOW
VEGGUR: LADY PURE COLOR 3343 DUSTY PURPLE
Kannaðu þitt eigið litaferðalag Jotun hefur ávallt sótt innblástur um allan heim. Í gegnum áratugina hafa litasöfn okkar orðið til í kynnum við aðra menningarheima og mótast af nýjum hughrifum sem við höfum tekið með okkur heim frá löndunum þar sem við störfum. Þau setja enn svip sinn á litina okkar og heimili um víða veröld. Þannig lifir það sem við sjáum og upplifum áfram í litunum sem við þróum.
VEGGUR: LADY ICONIC 1799 SPICE BROWN LISTAR: LADY SUPREME FINISH 1799 SPICE BROWN LOFT: LADY PERFECTION 1909 KALKOKER SVEFNHERBERGISVEGGUR: LADY ICONIC 4403 MIDNIGHT BLUE
VEGGUR: LADY ICONIC 4403 MIDNIGHT BLUE LISTAR: LADY SUPREME FINISH 4403 MIDNIGHT BLUE
Upplifanir Litir sem verða okkar. Með tímanum
fellur allt á sinn stað. Litirnir sem við höfum með okkur og þeir sem við höfum uppgötvað á leiðinni renna smám saman saman í eitthvað sem okkur finnst við eiga heima í. Reynslan veitir sjálfstraust og öryggi til að velja bæði af innsæi og yfirvegun. Með litatöflu jafnvægisfullra, klassískra litbrigða sem skapa dýpt og samhljóm, eins og miðnæturblár í samspili við gylltan brúnan lit, getum við skapað heimili með afslappaðan glæsileika.
VEGGUR: LADY ICONIC 4638 BYGE LISTAR: LADY SUPREME FINISH 4403 MIDNIGHT BLUE
Sannur munaður þarf ekki að láta mikið fyrir sér fara. Hann birtist í tímalausri hönnun, vönduðum smáatriðum og hágæða húsgögnum. Yfirvegað samspil gefur frá sér þroskaðan glæsileika. Klassískar andstæður, mött áferð og yfirborð með karakter fá að njóta sín í rýmum þar sem heildarmynd og handverk eru í forgrunni.
LOFT: LADY PERFECTION 1909 KALKOKER VEGGUR: LADY ICONIC 1281 PERLEBEIGE LISTAR: LADY SUPREME FINISH 1799 SPICE BROWN
LOFT: LADY PERFECTION 1281 PERLEBEIGE VEGGUR: LADY NEW ERA 20185 FRIENDLY PINK LISTAR: LADY SUPREME FINISH 20185 FRIENDLY PINK
Litbrigði lífs okkar. Veggir heimilisins mynda bakgrunn að lífinu sem við lifum. Þetta eru litir sem fylgja okkur, eiga að standast allt sem hversdagurinn ber í skauti sér og bjóða okkur velkomin í hvert sinn sem við komum heim.
VEGGUR: LADY ICONIC 1909 KALKOKER
VEGGUR: LADY ICONIC 12198 EARTHY LISTAR: LADY SUPREME FINISH 12198 EARTHY
BORÐ: LADY SUPREME FINISH 20162 MELLOW
VEGGUR: LADY ICONIC 1281 PERLEBEIGE
Hundrað ár af sköpunargleði, prófunum og fullkomnun lita og áferða. Hvert einasta litbrigði sem Jotun hefur þróað byggir á reynslu og þekkingu sem hefur safnast upp kynslóð fram af kynslóð. Frá djúpum sjóbláum lit til hlýrra jarðlita byggir þessi litatafla á klassískum litum sem hafa verið enduruppgötvaðir og öðlast nýtt líf. Tímalausir uppáhaldslitir sem hafa aftur og aftur auðgað heimilin okkar og fært þeim fágaðan glæsileika.
Litirnir eru aðeins hálft leyndarmálið ... Hinn helmingurinn býr í málningunni okkar. Hún er þróuð til að endast, sniðin að
daglegu lífi og heldur fegurð sinni með tímanum. Einstakar uppskriftir okkar og mikil gæði skipta sköpum. Rétt áferð verður til með handverki og nákvæmni. Hundrað ára reynsla - í hverri einustu fötu. Kynntu þér nýju LADY Iconic - almattan glæsileika með framúrskarandi slitþoli.
Ný kynslóð LADY-veggmálningar - fallegri, mattari og endingarbetri en nokkru sinni fyrr
NÝTT! LADY Iconic Það besta úr tveimur heimum. Einstaklega almatta áferð og framúrskarandi slitþol - hönnuð til að endast.
LADY Pure Color Skilar fágaðri, ofurmatta áferð. Einstök litaupplifun - án endurkasts.
NÝTT! LADY New Era Þolin gæði sem tryggja fallega matta áferð til frambúðar.
NÝTT! LADY Embrace Auðvelt að ná fallegri, mattri og jafnri áferð.
Hugsaðu um heildina Ekki gleyma loftinu þegar þú skipuleggur litavalið. Dekkra eða ljósara litbrigði í loftinu getur látið það virðast lægra eða hærra. LADY Perfection er sérstaklega þróuð fyrir slétt loft og skilar fullkominni, almatta áferð sem fer vel með möttum veggjum. Auðvelt er að bera málninguna á, án þess að hún leki eða slettist, og hún fæst í fjölbreyttu litaúrvali.
Uppáhald málarans fyrir tréverk Besta málningin á markaðnum fyrir þiljur, lista, hurðir og smáatriði. LADY Supreme Finish hefur framúrskarandi vinnslueiginleika og skilar jafnri og einstaklega slitsterkri áferð. Veldu úr fjórum gljástigum. Pure Matt fer vel með mattri veggmálningu en silkimött, hálfgljáandi og háglansandi áferð skapar spennandi andstæður.
Töfrar steinefnanna LADY Minerals kalkmálning skilar lifandi, kalkmatta áferð sem er notaleg, mjúk og hlý. Dýnamískt litaspil og einstök áferð skapa dýpt og karakter og leggja grunn að tímalausum svip, hvort sem óskað er eftir náttúrulegri og lífrænni eða hrárri og iðnaðarlegri ásýnd.
1. VEGGUR: LADY PURE COLOR 3343 DUSTY PURPLE. LOFT: LADY PERFECTION 4223 SAMA 2. ÞILJUR: LADY SUPREME FINISH 11365 MORNING GLOW. VEGGUR: LADY ICONIC 11365 MORNING GLOW 3. LADY MINERALS 10966 ALMOND BEIGE
Sérhver draumur um fallegt rými hefst oft með litunum, en áferðin gefur rýminu karakter. Frá dempuðum, almöttum veggjum til mattra eða gljáandi smáatriða ræður málningarvalið því hvernig liturinn birtist í rýminu. Úrvals innanhússmálning frá Jotun LADY er þróuð til að tryggja bestu litaupplifunina, góða þekju og mikið slitþol. Rýmið verður ekki aðeins fallegt - það helst þannig um ókomin ár.
Litur verður til Á bak við hvern Jotun-lit er vandað ferli, frá fyrstu hugmynd að fullunninni niðurstöðu á veggnum. Litirnir eru ólíkir en innihaldsefnin eru alltaf þau sömu: hágæða litarefni sem eru sérsniðin að málningunni okkar, óseðjandi sköpunarþrá og öryggið sem fylgir hundrað ára reynslu.
VEGGUR: LADY ICONIC 0290 BIRI