Skip to main content

Hitamenning

Page 1

Hitamenning Bætt orkunýting, vellíðan og sparnaður Við færum þér þægindin heim


Hvað á það að heita vatnið?

Baðherbergi 22 - 24°C

Orka, þægindi og munaður eru orð sem koma upp í hugann. Íslendingar telja heitt vatn til grunnþarfa og heita vatnið er það sannanlega. Heita vatnið er einhver dýrmætasta auðlind okkar Íslendinga. Rúmlega 90% híbýla á Íslandi eru kynt með hitaveitu. Vistvæn, örugg og ódýr orka, notuð til hitunar húsa, í snjóbræðslur, sundlaugar, heita potta og fleira. Sem betur fer þurfa Íslendingar ekki að brenna fleiri tugum tonna af kolum eða brenna tugum tonna af olíu til að hafa hita í híbýlum sínum.

Herbergishiti, mismunandi eftir rými Jafn herbergishiti byggir á þeirri staðreynd að heitt loft er léttara en kalt og því leitar það upp og jafnar hitan í rýminu. Það er sjálfsögð krafa hvers íbúa að innihiti sé sá sem veitir honum besta líðan. Innihiti á ekki að vera háður útihita. Tæki til stjórnunar innihita (ofnkranar, hitastillar) eru einfaldir í notkun og verða að vera í lagi. Misjafn kjörhiti eftir herbergjum: • Svefnherbergi 18 - 20°C • Stofa 20 - 22°C • Baðherbergi 20 - 24°C • Vinnuherbergi 16 - 18°C 2

Hafa í huga Hitanemi má ekki vera lokaður af með gardínum, of stórum sólbekkjum (draga úr jöfnu hitastreymi um herbergið) eða gluggatjöldum. Það er eðlilegt að ofnar séu kaldir ef mikið er af öðrum varmagjöfum inn í herberginu, t.d. sólarljós, raflýsing eða fólk. Gluggatjöld sem liggja yfir lofthitastýrðum ofnkrana gera hann “óvirkan”, kalt loft kemst ekki að honum, sjá mynd.

Stofa 20 - 22°C


Stjórnun innihita

Vatnshitastýrðir ofnlokar

Heitu vatni er dælt inn á hitagrind húsa frá veitunni. Frá hitagrind fer vatnið inn á ofna húsa og þaðan rennur það út af þeim kaldara en það kom inn. Mikilvægt er að bakrásarhiti frá hverjum ofni sé ekki hærri en 30 til 35°C. Ofnlokar eru ýmist lofthitastýrðir, vatnshitastýrðir eða handvirkir. Algengara nú til dags er að valinn sé gólfhiti í stað hefðbundinna ofna, en þá rennur heitt vatn um rör í gólfum.

Lofhitastýrðir ofnlokar Sjálfvirkir ofnlokar sem stjórnast af lofthita eru yfirleitt á efri tengingu við ofn. Þeir eru því góðir til að viðhalda þægilegum hita í viðkomandi rými. Ef lofthiti eykst í rýminu hitnar efni í hitastillihaus lokans, þrýstingur þess eykst og kólfur því tengdu dregur úr aðstreymi heitavatnsins að ofninum. Þegar herbergishiti lækkar dregst efnið hins vegar saman, þrýstingur þess lækkar og innrennsli í ofninn eykst. Ofnlokinn dregur sjálfkrafa úr vatnsrennsli inn á ofn sé mikið af öðrum varmagjöfum (t.d. sólarljós, raflýsing) í rýminu. Þannig skammtar ofnlokinn vatni inn á ofninn í samræmi við hitaþörfina.

Stilling lofthitastýrðra ofnloka Ekki ætti að vera þörf á að breyta stillingu hitastillis á lofthitastýrðum lokum. Ef slíkt er gert ætti að vera nóg að hreyfa hitastillinn um 1/3 af bili á milli talna. 3

Þeir stjórna hitastigi á vatni sem rennur frá ofni og eru alltaf á neðri tengingu ofna. Þeir stuðla að sjálfvirkri stýringu á innihita. Breyta þarf stillingu þessara ofnloka breytist útihiti. Renni heitt vatn um lokann hitnar efni í hitastillihaus sem þenst út og þrýstingur þess eykst og við það dregur úr vatnsrennslinu. Sé vatnið kalt dregst efni í hitastillihaus saman og þrýstingur þess lækkar og lokinn opnar og eykur vatnsrennslið. Nauðsynlegt er að prófa sig áfram með stillingar á vatnshitastýrðum ofnloka. Tölurnar á hausnum tákna ekki hitastig og geta verið mismundi eftir framleiðendum lokanna.

Stilling á vatnshitastýrðum ofnlokum Æskileg stilling á vatnshitastýrðum ofnlokum er háð útihita. Til að ná sem bestri nýtingu úr hitaveituvatni eru viðmiðunarstillingar fyrir mismunandi útihita. Útihiti -10°C -5°C 0°C 5°C 10°C

Stilling 2,8 2,3 2,0 1,6 1,1

Hafa í huga Þegar ofnlokar eru ekki hreyfðir lengi er algengt að stillipílur í þeim festast eða standi á sér. Það er einfalt að liðka þær aftur. Ekki er þörf á að loka fyrir vatnið á meðan það er gert. Fáið leiðsögn og spyrjið t.d. pípulagningarmann hvernig þetta er gert. Ein sýnikennsla ætti að duga til að notandi ráði sjálfur við slík verk í framtíðinni.

Sími 422 5200 www.hsveitur.is hsveitur@hsveitur.is


Handvirkir ofnlokar Slíkir lokar eru yfirleitt á efri tengingu ofns. Þeir eru algjörlega handvirkir eins og kranar og í flestum tilfellum leifar frá olíukyndingartímabilinu. Þeir eru ekki settir á ný kerfi.

Lofthitastýrðir ofnlokar eru yfirleitt á efri tengingu inn á ofn. Lofthitastýrður loki er með innri stillingu en með henni er hægt að takmarka hámarks rennsli inn á viðkomandi ofn.

Gólfhiti Nú um stundir njóta gólfhitakerfi mikilla vinsælda. Gólfhitakerfi gefa jafna og góða hitastigsdreifingu í rýminu. Engar lagnir eru sjáanlegar, engir ofnar, engin tæring í rörum því gólflagnirnar eru plaströr. Kerfin eru einföld í lagningu, þau lögð í hvert rými fyrir sig og því er einfalt að stýra hita sérhvers rýmis allt eftir óskum hvers og eins. Sjálfvirkir lofthitastýrðir nemar eru staðsettir í sérhverju rými, tengdir við loka á gólfventlakistu sem stjórna innrennsli vatns á viðkomandi gólf.

Vatnshitastýrður loki er alltaf á neðri tengingu ofna. Þeir henta betur í rými þar sem loftskipti eru mikil, t.d. í forstofu þar sem úthurð er.

Innri stilling á lofthitastýrðum ofnloka

Innri hemill á lofthitastýrðum ofnloka er notaður til að jafna vatnsrennsli um ofnakerfið. Stillité er notað á þeim enda ofns sem ofnlokar eru ekki og geta gegnt sama hlutverki og innri hemillinn, þ.e. takmarkað rennsli í gegnum ofninn. Þurfi að loka fyrir innrensli á ofn, t.d. vegna leka þarf að loka bæði ofnloka og stillité. Skrúfað lok er losað af stillité og þar fyrir innan er spindill sem unnt er að færa út og inn ýmist með skrúfjárni eða sexkanti.

Handvirkir lokar eru yfirleitt á efri tengingu inn á ofn. Engin sjálfvirkni er í slíkum lokum.

Hafa í huga Séu ofnlokar handvirkir er mælt með að endurnýja þá og setja í staðinn lofthitastýrða ofnloka. Nauðsynlegt að viðskiptavinir geti stjórnað innihita eftir eigin óskum um kjörhita. Breyta þarf stillingum á vatnshitastýrðum ofnlokum eftir því sem útihiti breytist. Þegar búið er að finna þægilegan herbergishita er gott að setja minnispunkt á þá stillingu sem hentar viðkomandi herbergi. 4

Sjálfvirkur ofnloki með innri stillingu

Sjálfvirkur ofnloki og hitanemi


Jafnvægisstilling hitakerfa

Nauðsynlegt er að jafnvægisstilla hitakerfi þ.e.a.s. að einn ofn fái ekki of mikið vatn á meðan annar sveltur. Þannig þjónar það hlutverki sínu best, nýting á hitaveituvatni er í hámarki og heldur kostnaði í lágmarki. Jafnvægisstilling felur í sér að stilla hámarksrennsli inn á hvern ofn fyrir sig þannig að bakrásarhiti frá hverjum ofni sé á bilinu 30 til 35°C. Rennsli til ofna er stillt með innri stillingu á ofnloka eða stillité.

Ójafnvægisstillt hitakerfi Þar sem vatn leitar þá leið þar sem fyrirstaðan er minnst gleypa “léttustu” ofnarnir í hitakerfinu mest af vatninu og hitna því mest. Ofnar sem liggja aftar í ofnakeðjunni fá minna vatn og því getur svo farið að þeir nái ekki að hita upp rýmið.

Jafnvægisstillt hitakerfi Hitakerfi er í jafnvægi þegar búið er að stilla rennsli inn á hvern ofn fyrir sig, léttustu ofnarnir í kerfinu fá ekki meira vatn en þeir þyngstu. Hámarksrennsli er stillt þannig að þeir gefi frá sér nægan varma við verstu veðurskilyrði og að hitastig vatnsins frá öllum ofnum sé áþekkt.

Ójafnvægisstillt hitakerfi, ójafn hiti, orkusóandi og engin þægindi

Rennsli í gegnum ofnloka og mismunaþrýstingur Rennsli í gegnum ofnloka ræðst annars vegar af innri stillingu lokans og hins vegar af mismuninum á inntaks- og bakþrýstingi ofnsins þ.e.a.s. mismunaþrýstingnum. Til að vatn renni greiðlega gegnum hitakerfi þarf að vera mismunur á þrýsting á innrennsli og útrennsli. Það er kallað mismunaþrýstingur og reynt er að hafa hann ekki hærri en þörf krefur. Sé hann of hár er hætta á að heitu vatni verði sóað. Þrýstijafnari í hitagrind stjórnar þessum mismunaþrýstingi. Með því að breyta stillingu á þrýstijafnara getur rennsli um einn ofn, sem stilltur hefur verið á 2 lítra á mínútu aukist um t.d. 10 lítra á mínútu. Mismunaþrýstingur

0,5 metrar

5

Rennsli

2 ltr. mínútu

Mismunaþrýstingur

2,0 metrar

Rennsli

4 ltr. mínútu

Sími 422 5200 www.hsveitur.is hsveitur@hsveitur.is

Jafnvægisstillt hitakerfi, orkusparandi og ríkt af þægindum


Orkueftirlit er nauðsynlegt Góð leið til að tryggja árangur orkusparnaðar er að hafa virkt eftirlit með hitakerfinu í húsinu. Sé eftirlitið reglubundið kemur strax í ljós sé eyðsla óeðlilega mikil eða ef bilanir verða. Til að framkvæma eftirlitið og meta ástand kerfisins verða að vera hita- og þrýstimælar á réttum stöðum í lagnakerfinu. Reglubundinn aflestur af mælunum og samanburður mæligilda frá einum tíma til annars segir svo til um ástand kerfisins. Á skýringarmynd er þetta helst: 1. Inntaksloki heitt vatn: Aðalloki, lokar fyrir allt heitavatnsrennsli inn í húsið. 2. Sía: Síar óhreinindi úr vatni. HS Veitur sjá um að hreinsa síur að beiðni húseigenda. 3. Rennslismælir: Sölumælir HS Veitna. 4. Stútur, ætlaður til þrýstimælinga: HS Veitur leggja ekki til þrýstimæli en húsráðanda er frjálst að setja hann upp. 5. Þjónustuloki: Skilur að húskerfi og inntaksbúnað og er fyrst og fremst nýttur í viðhald og viðgerðum á tækjabúnaði. 6. Stofnloki fyrir heitt neysluvatn: Nauðsynlegur svo unnt sé að loka fyrir neysluvatn. Húsráðandi leggur til lokann. 7. Þrýstijafnari: Lækkar götuþrýsting áður en vatn fer inn á húskerfi. Yfirleitt er nóg að hafa 1 til 1,5 kg/cm2 þrýsting á húskerfinu. 8. Hitamælir: Nauðsynlegt fyrir húsráðendur að setja upp til eftirlits með kerfinu og orkunotkun. 9. Öryggisloki: Nauðsynlegur til að hindra að of mikill þrýstingur fari inn á húskerfi. 10. Tæmiloki: Loki til tæmingar vatns af húskerfi. 11. Þjónustuloki: Fyrir frárennsli frá hitakerfi. 12. Hitastýrður loki: Til innspýtingar á heitu vatni inn á snjóbræðslukerfi. 6

4

2

3 16

4

5

4

7

6

4 8

14

15 1

13 8

4 8

9

11

12

8

10

Heildarmynd af hita- og neysluvatnskerfi og frárennsli

13. Þjónustuloki: Fyrir vatn inn á snjóbræðslukerfi. 14. Þjónustuloki: Opnar fyrir vatn framhjá snjóbræðslukerfi. 15. Þjónustuloki: Fyrir vatn út af snjóbræðslukerfi. 16. Slaufuloki (mótþrýstijafnari): Heldur uppi mótstöðu á hitakerfi hússins.

HS Veitur eiga inntak, síu, rennslismæli og fyrsta þjónustuloka. Starfsmenn HS Veitna þjónusta þann hluta húsgrindar. Annar búnaður í hitakerfinu er í eigu húseiganda.


Notkun á heitu vatni

Nauðsynlegt er að fylgjast með vatnsnotkuninni mánuð fyrir mánuð. Vatnsnotkun er breytileg eftir árstíðum. Áætlað er að um 10% af ársnotkun á heitu vatni fari í neysluvatn en 90% fari til upphitunar húsnæðis. Erfitt er að áætla nákvæma notkun á heitu vatni eftir t.d. stærð húsnæðis. Hús eru misjafnlega mikið einangruð, misjafnt hvað margir búa í húsnæðinu og notkunarmynstur er breytilegt. Notkunin er einnig háð því hvort nýtt sé snjóbræðsla, heitur pottur rekinn ásamt fleiri þáttum. Áætla má að hús sem keypti 2 lítra á mínútu með hemlakerfinu noti um 704 rúmmetra á ári. Notkun er breytileg eftir mánuðum, meiri þegar kalt er en minni yfir sumartímann. Áætla má notkun hvers mánaðar samkvæmt eftirfarandi töflu.

Inn á YouTube rás HS Veitna má finna myndband þar sem farið er yfir hvaða upplýsingar má sjá á skjá heitavatnsmæla Landis & Gyr.

Áætluð vatnsnotkun eftir mánuðum. Janúar

Febrúar

Mars

Apríl

Maí

Júní

Júlí

Ágúst

Sept.

Október

Nóv.

Des.

Samtals ársnotkun

12%

9%

10%

8%

7%

6%

5%

5%

7%

9%

11%

11%

100%

84,48

63,36

70,40

56,32

49,28

42,24

35,20

35,20

49,28

63,36

77,44

77,44

704 rúmmetrar

Orkunotkun utanhúss Mikil þægindi eru í því fólgin að geta nýtt afrennsli ofna til upphitunar á innkeyrslum og gangstéttum við hús. Snjóbræðslukerfi draga úr slysahættu og minnka vinnu við snjómokstur. Vatnið sem kemur frá ofnakerfi húss þ.e. bakrennslið er um 30 - 40 gráðu heitt og því er í því fólgin talsverð orka. Sé bakrennslisvatnið nýtt í snjóbræðslu er nauðsynlegt að skerpa á hitastigi þess með innspýtingu á full heitu vatni beint frá hitagrind til að auka afköst snjóbræðslunnar í vetrarhörkum. Hitastig snjóbræðsluvatnsins þegar það hefur runnið í gegnum snjóbræðslukerfi má ekki vera lægra en 10 til12 gráðum vegna frosthættu í lagnakerfinu. Stór snjóbræðslukerfi eru alla jafna í lokuðu kerfi þ.e.a.s. settur er frostlögur á kerfin og hann hitaður upp með hitaveituvatni í varmaskipti. Hafa skal samband við fagmann við hönnun snjóbræðslukerfa því stærð kerfis er háð stærð hússins, reikna þarf út afköst kerfis o.s.frv. Þá skiptir lagning, þvermál og gerð röranna miklu máli, dýpt á rör, undirlag og fleira. Á mynd til hliðar er sýnd ein útfærsla af mörgum við lagningu snjóbræðsluröra, hringekjuaðferð. 7

Sími 422 5200 www.hsveitur.is hsveitur@hsveitur.is


Heitir pottar

Það færist í aukana að fólk fái sér heitan pott í garðinn, á svalirnar eða við sumarhúsið. Það eru notalegar stundir sem fjölskyldur og vinir eiga saman buslandi í heitum potti. Unnt er að fá heita potta hitaða með heitu vatni eða rafmagni. Mikilvægt er að fólk skoði vel hvor möguleikinn henti því betur. Kosturinn við hitaveitupotta, fyrir utan lágan rekstrarkostnað, er að vatnið er alltaf “nýtt” í pottinum. Í rafmagnspottum er sama vatnið notað vikum saman, keyrt í gegnum hreinsi- og upphitunarbúnað. Framkvæma þarf mælingar á ástandi vatnsins reglulega. Helsti kostur rafmagnspotta er að þá er hægt að nota þar sem hitaveitu nýtur ekki við.

Kostnaður við heita potta Það er ódýrara að reka hitaveitupott heldur en pott hitaðan með rafmagni. Í töflu hér til hliðar er gróf viðmiðun um orkukostnað á heitum potti. Sé hitaveitupottur notaður reglulega, þ.e. þrisvar eða oftar í viku, ætti í flestum tilvikum að vera hagstæðara að hafa sírennsli í honum heldur en að tæma hann og fylla í hvert skipti sem hann er notaður. Sé potturinn notaður oft í viku eða á hverjum degi eykst munurinn á rekstarkostnaði pottsins hitaveitupottinum í vil. Einangrun pottsins, staðsetning hans og frágangur hefur mikil áhrif á rekstrarkostnað. Mikilvægt er að gaumgæfilega sé hugað að öryggi í umgengni við heita potta, sérstaklega hvað varðar hitastig á vatninu og að ætíð sé lok yfir pottinum sé hann ekki í notkun. Nauðsynlegt er að hafa samráð við fagmann varðandi öryggisatriði sem og frágang á heitum pottum. Mælt er með að settar séu umgengnisreglur og farið yfir þær sérstaklega með börnum og unglingum sem umgangast heita potta. Alvarleg slys, m.a. á börnum, hafa orðið hér á landi þegar óvarlega hefur verið farið og öryggisbúnaður ekki í lagi. 8

Forsendur útreikninga 5 til 7 manna útisetulaug með einagruðu loki. 1300 lítra pottur m.v. 39°C hitastig. Rafhitari 3 kW hitar pottinn um 2°C á klst. Lýsing í potti 0,012 kW. Varmatap er miðað við 0,5°C á klst. Hringrásardæla 0,55 kW. Útihiti 0 °C. Vatnsnudd 1,20 kW. Skipt um vatn

Notkun

1x fylltur og tæmdur

1 skipti

3 mánaða fresti

Rafmagn*

Heitt vatn*

727 Kr.

112 Kr.

2 til 3 í viku

114.781 Kr./ári

14.601 Kr./ári

1x mánuði

2 til 3 í viku

120.599 Kr./ári

15.494 Kr./ári

2x mánuði

2 til 3 í viku

129.326 Kr./ári

16.834 Kr./ári

Í hvert skipti

2 til 3 í viku

206.409 Kr./ári

28.664 Kr./ári

2x mánuði

2 til 4 í viku

129.556 Kr./ári

17.064 Kr./ári

Heitt vatn, kostnaður við sturtu og baðkar, forsendur Sturta: Áætluð notkun heitt vatn, 0,15 l/sek. samkvæmt staðli. 0,15 l/sek. x 60 sek/mín. x 1 mín. = 9 lítrar. Baðkar: 150 lítrar = 0,15m3. Viðmiðun 50% heitt vatn. Sturta

Tími

Krónur*

5 mínútur

6,43

7 mínútur

9,00

10 mínútur

12,85

* Verð er miðað við verðskrá í janúar 2019

Baðkar

Nánar 150 lítra baðkar

Krónur* 10,71


Umgangist heitt vatn með varúð Brýnt er að sýna varkárni í umgengni við heitt vatn. Hitastig hitaveituvatns beint úr krana getur verið um eða yfir 70°C. Svo hátt hitastig er nauðsynlegt til að hita upp húsin okkar en veldur bruna á hörundi líkamans. Bruni af völdum heita vatnsins er í engu frábrugðinn bruna af völdum elds. Það tekur 70°C heitt vatn um 1 sekúndu að mynda djúpan 2 stigs bruna. Samkvæmt rannsókn sem Landsspítalinn gerði kemur fram að fjöldi manns á hverju ári þarf að leita aðstoðar með áverka af völdum heita vatnsins. Börnum undir 5 ára aldri er hættast við bruna og hljóta alvarlegustu áverkana. Koma má í veg fyrir slys af völdum heita vatnsins með viðeigandi öryggisráðstöfunum og nauðsynlegu viðhaldi á hitakerfinu. Benda má fólki á að kynna sér byggingarreglugerð nr. 441-1998 og lesa þær kröfur sem settar eru um heitt neysluvatn. Notendur eru hvattir til að vanda vel til alls búnaðar hitakerfisins með öryggi notandans að leiðarljósi. Lágmarkskrafa er að vera með hitastýrð blöndunartæki við alla notkunarstaði þar sem fólk baðar sig. Mikilvægt er að hafa í huga að mismunandi lausnir henta hverju húsi og gott er að hafa samband við fagaðila og fá ráðgjöf varðandi búnað, öryggismál og annað þessu tengdu.

Hafa í huga • Sýna ávalt fyllstu aðgát þegar heitt vatn er annars vegar • Láta renna úr krana í smá stund til að ná réttu hitastigi • Kanna hitastig vatns áður en farið er ofan í bað, heitan pott eða undir sturtu • Tryggja reglubundið eftirlit með búnaði og viðhalda honum • Leita aðstoðar fagmanna við val á lausnum • Gera ráðstafanir strax í dag 9

Sími 422 5200 www.hsveitur.is hsveitur@hsveitur.is


Reikningar verða til með eftirfarandi hætti Með áætlun Reikningar sem byggja á áætlunum eru sendir út mánaðarlega. Áætlun er látin endurspegla sem best raunverulega notkun en stundum kemur upp misræmi. Nauðsynlegt er að notendur fylgist með notkun og beri hana saman við áætlunina. Komi í ljós misræmi er nauðsynlegt að hafa samband við HS Veitur.

Þessi reikningur byggir á raun notkun, þ.e. mælir fyrir heitt vatn og mælir fyrir rafmagn er svokallaðir snjallmælar sem senda daglega inn til upplýsingar um stöðu.

Með mældri raun notkun Reikningar sem byggja á raun notkun eru að verða algengari. Stefna fyrirtækisins er að í framtíðinni byggi engir reikningar á áætlunum eða aflestri, heldur raun notkun með snjallmæli.

Með álestri Venjulega er einungis lesið af mæli einu sinni á ári. Einnig er lesið af mæli við flutning (notendaskipti) og vegna mælaskipta. Rétt er að ítreka að notendur geta alltaf lesið af mæli sjálfir og hringt inn stöðuna á skrifstofu HS Veitna eða skráð hana beint inn í kerfið á heimasíðu fyrirtækisins, www.hsveitur.is.

Með uppgjöri Uppgjörsreikningur er sendur út einu sinni á ári. Hann er byggður á álestri og er um leið uppgjör á þeim áætlunarreikningum sem notendur hafa fengið yfir árið. Uppgjörið miðast við að útsendir áætlunarreikningar séu greiddir. Mismunur á milli álesturs og áætlunar er reiknaður út og þá kemur í ljós hvort notandi hafi notað meiri orku en áætlað var eða minni. Sé hún meiri hækkar uppgjörsreikningurinn um sem mismuninum nemur. Hafi verið notuð minni orka en áætlað var myndast inneign sem er greidd út á næsta reikningi eða reikningum. Sé mismunur á áætlun og álestri (raun notkun) verður til ný áætlun í kerfinu fyrir næsta tímabil (ár). 10

Nauðsynlegt er að tryggja gott aðgengi að mælum t.d. vegna álesturs og einnig auðveldar gott aðgengi allt nauðsynlegt eftirlit með búnaði.


Að fylgjast með orkunotkun sinni Mælt er með því að notandi fylgist grannt með orkunotkun sinni og skrái hana í töflu svipaðri þeirri sem birt er. Bera skal saman áætlaða stöðu útsendra reikninga við raunstöðu mælis. Hafðu samband við skrifstofu HS Veitna hf í síma 422 5200 eða skráðu stöðu beint inn í kerfið í gegnum vefinn, www.hsveitur.is sé áætluð staða ekki í samræmi við raunstöðu.

Mælisnúmer: __________________ Dags:

11

Staða mælis

Áætluð staða

Dags:

Staða mælis

Áætluð staða

Dags:

Sími 422 5200 www.hsveitur.is hsveitur@hsveitur.is

Staða mælis

Áætluð staða


HS Veitur urðu til við uppskiptingu Hitaveitu Suðurnesja hf þann 1. desember 2008

Eigendur félagsins: Reykjanesbæjar 50,1% HSV eignarhaldsfélag slhf 34,4% Hafnarfjarðarbæjar 15,4% Sandgerðisbær á 0,1%

Félagið á og rekur vatns- og rafdreifikerfin á Suðurnesjum og í Vestmannaeyjum og dreifikerfi rafmagns í Hafnarfirði og í Árborg. Félagið selur heitt og kalt vatn og sér um dreifingu raforku sem Landsnet afhendir inn á dreifikerfið

Þjónustufulltrúar svara í síma virka daga frá 08:15 til 16:00. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið hsveitur@hsveitur.is. Starfsmenn þjónustudeilda vatns og rafmagns starfa til kl.17:00 mánudaga til fimmtudaga en til kl. 13:00 á föstudögum. Alla daga ársins eru starfræktar bakvaktir eftir hefðbundinn opnunartíma í öllum deildum sem annast neyðarþjónustu komi til bilana í dreifikerfum

Félagið rekur fjórar starfsstöðvar: Brekkustíg 36 í Reykjanesbæ Bæjarhrauni 14 Hafnarfirði Eyravegi 53 Selfossi Tangagötu 1 Vestmannaeyjum Hjá félaginu starfar metnaðfullt starfsfólk sem kappkostar að veita góða þjónustu Frekari upplýsingar og ýmsa þjónustu má finna inn á heimasíðu félagsins

HS VEITUR - Brekkustíg 36 260 Reykjanesbæ Sími 422 5200 hsveitur.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Hitamenning by HS Veitur hf. - Issuu