Skip to main content

Embla Tímarit

Page 1

5. TBL. 9. ÁRG

GRAFÍSK MIÐLUN

HAUST 2020

EMBLA


Endurmenntun er

MÁTTUR!

ENDURMENNTUN ÆTTI AÐ HEFJAST STRAX AÐ LOKNU NÁMI AUKIN MENNTUN GEFUR ÞÉR FORSKOT, FJÖLGAR TÆKIFÆRUM OG EYKUR ÖRYGGI ÞITT Á ATVINNUMARKAÐI

-símentun í iðnaði

VATNAGARÐAR 20 | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 590 64 00 | IDAN@IDAN.IS | IDAN.IS


Þetta hafðist!

Embla

Jæja það er komið að því, eftir langa daga og margar kvöldstundir sitjandi fyrir framan tölvu­ skjáinn að reyna fá hugmyndir sem oft á tíðum voru einfaldlega ekki að koma til mín er námið loks að taka enda.

Umbrot og hönnun Hörður Helgi

Nám í grafískri miðlun hefur svo sannarlega komið mér á óvart. Þegar ég lagði af stað í námið var ég ekki að búast við því hversu skemmtilegt og krefjandi það væri, allt frá því að stofna mitt eigið fyrirtæki og hanna fyrir það kennimerki (lógó), auglýsingar og allt því sem tengist yfir í að brjóta um bækur og ganga frá öllum tæknilegum frágangi.

Útgefandi Upplýsingatækniskólinn

Í Emblunni minni mun ég koma með innsýn í sögu Vestmannaeyja staðinn sem ég mun alltaf kalla heim og íslenska náttúru. Þar sem Ísland hefur óteljandi fallega staði um að velja tók ég til nokkra sem mér finnst vera með þeim fallegustu.

Letur Univers Eras Din 2014

Forsíða Hörður Helgi

Nemenda mynd Unnur Karen og Jón Helgi Prentun Tækniskólinn

Í lokin vill ég þakka kennurunum sem hafa lagt mikið á sig til að aðstoða okkur nemendur við námið á þessum skrítnu tímum, heimsfaraldur er ekki nóg til að stoppa þessa heimsklassa kennara og eiga þeir endalaust hrós skilið. Takk fyrir mig.

4

Hörður Helgi

10

Náttúra Suðurlands

6

Vestmannaeyjar

12

Náttúra Vestfjarða


HÖRÐUR HELGI HALLGRÍMSSON Hörður Helgi heiti ég en flestir kalla mig Hödda, ég er 27 ára gamall fæddur og uppalinn á paradísareyju sem ber nafnið Heimaey. Já ég er eyjapeyji sem villtist í borg óttans! Allt frá því að ég man eftir mér ætlaði ég mér að verða kokkur og starfaði lengi við það en eftir örlagaríkt sumar 2014 brann ég yfir og neistinn fyrir matargerð hvarf. Ég vissi ekkert hvað ég átti að gera, allt í einu var draumurinn horfinn sem ég hafði haft frá barnæsku. Ég prófaði ýmis nám en ekkert hentaði mér og fór ég því á hinn almenna vinnumarkað þar sem ég starfaði við allt frá sjómennsku yfir í að vera rekstrarstjóri á litlum hverfisbar og hverfisbúð.

Seint árið 2018 eftir gott spjall við bróðir minn ákvað ég að prófa eitt nám til viðbótar og sjá hvort ég myndi finna mig í því og varð grafísk miðlun fyrir valinu, hann hafði sjálfur útskrifast úr því námið 2017 og hafði ekkert nema gott um það að segja. Ég hóf svo nám í janúar 2019 og sá strax að þarna var eitthvað sem ég hefði svo sannarlega gaman að, ég lærði í grunninn vefsíðu kóðun, myndvinnslu, umbrot og hönnun. Ég hugsaði með mér núna er ég loksins á réttri braut og viti menn það er korter í útskrift! Leiðin að útskriftinni hefur samt ekki verið auðveld og hafa margar hindranir staðið í vegi fyrir mér en með erfiðisvinnu og miklum fórnum er þetta að detta í hús.

EMBLA | HAUSTÖNN 2020 | 5


Vestmannaeyjar Vestmannaeyjar eru eyjaklasi suður af Íslandi. Þær samanstanda af 15 eyjum og 30 skerjum og dröngum. Heimaey er eina byggða eyjan allt árið um kring. Elstu heimildir um Vestmannaeyjar eru í Land­ námu, sem segja frá Ingólfi Arnarsyni, fyrsta land­ námsmanni Íslands. Þegar hann kom til landsins dvaldist hann einn vetur á Ingólfshöfða. Á ferð sinni í leit að öndvegissúlum sínum fann hann bæ Hjörleifs, fósturbróður síns, og var hann þar nýlátinn. Úti af Hjörleifshöfða sá hann báta með hinum írsku þrælum Hjörleifs en bátarnir stefndu að eyjaklasa suður af Landeyjum. Eyjarnar voru þá nefndar eftir þrælunum en Írar voru kallaðir Vestmenn á þessum tíma. Ingólfur elti þrælana uppi og drap þá og eru mörg örnefni á eyjunum gefin eftir þeim, til dæmis er Helgafell nefnt eftir Helga sem var veginn þar og Dufþekja í Heima­ kletti er nefnd eftir Dufþaki, sem sagður er hafa stokkið þar niður til þess að komast hjá því að falla fyrir sverði Ingólfs. Fyrsti landnámsmaður eyjanna er sagður vera

Herjólfur Bárðarson, en hann bjó í Herjólfsdal. Föst búseta í Vestmannaeyjum hófst seint á land­ námsöld, um 920, en eins og segir í Sturlubók „var þar veiðistöð og lítil veturseta eða engin“ fyrir þann tíma. Fram á miðja 12. öld voru eyjarnar í eign bænda. Rétt eftir árið 1400 komust Vestmannaeyjar í einka­eign Noregskonungs og síðar Danakonungs. Eyjarnar voru sérstakt lén og ríktu þar jafnvel önnur lög en á Íslandi. Vestmannaeyjar voru í konungseign út allar miðaldir til ársins 1874 og voru þær alla tíð stærsta tekjulind krúnunnar. Íbúafjöldi Vestmannaeyja hefur tekið þrjár stórar dýfur í gegnum aldirnar. Fyrst var um helm­ings­fækk­un að ræða þegar um þrjú hundruð manns voru numin á brott í Tyrkjaráninu árið 1627. Öðru sinni var vegið að eyj­as ­ keggj­um í ungbarnadauðanum á 18. öld. Svo var það á 20. öldinni í Heimaeyjargosinu árið 1973 þegar á meira en 6 mánaða skeiði bjuggu eingöngu um 200 manns á Heimaey, en þegar gosið hófst voru þeir um 5.100. Nú er bæjarbúar um 4.300. Markaðsstofa Suðurlands. (e.d). Vestmannaeyjabær. Sótt af www.south.is/is/south/town/vestmannaeyjar-westman-islands

6 | EMBLA | HAUSTÖNN 2020


Afþreying Eldheimar

Volcano ATV

Eldheimar er gosminjasýning. Sýningin miðlar fróðleik um eldgosið í Vestmannaeyjum árið 1973, sem án efa telst til stærstu náttúruhamfara Íslandssögunnar. Skyggnst er inn í mannlífið og umhverfið í Vestmannaeyjum fyrir gos og hvernig náttúruhamfarirnar 1973 gripu inn í samfélagið og líf fólksins.

Tilvalin ferð fyrir alla fjölskylduna um söguslóðir Vestmannaeyja á skemmtilegum fjórhjólum. Fjórhjólin eru sjálfskipt og auðveld í akstri og þarf því enga sérstaka reynslu á þau. Öll fjórhjólin eru 2ja manna og þarf ökumaður að hafa meðferðis gilt ökuskírteini, farþegar aftan á fjórhjólunum þurfa að vera 6 ára eða eldri.

Sagnheimar - byggðasafn

Vestmannaeyjar Boat tours

Sagnheimar eru nýtt safn sem byggir á gömlum merg byggðasafnsins. Margmiðlun er nýtt í viðbót við safnmuni til að segja einstaka sögu Vestmannaeyja, má þar nefna: Heimaeyjargosið 1973 Tyrkjaránið 1627 Sjávarútvegur

Njóttu þess að sigla í kringum Heimaey í Vestmannaeyjum og fá náttúruna og söguna okkar beint í æð. Siglingin tekur um 1,5 tíma og á meðan á henni stendur segjum við ykkur frá sögu Vestmannaeyja, um gosið okkar, skemmtisögur úr Eyjum og fleira.

Vertu helvíti flottur um jólin Kölski sér til þess að þú og þínir verða flottir um jólin

GJAFA

Kíktu til okkar og fáðu sér­ saumuð jakkaföt á frábæru verði Gjafabréfin og gjafakassinn eru tilvalin í jólapakkann

BRÉF

Upphæð

Handhafi F.H. Kölska

Þetta gja

fabréf gild

ir eingön

Gildir til:

gu fyrir han

dhafa þes

s.

KOLSKI@KOLSKI.IS | SÍMI 766 6555 | KOLSKI.IS | ÁRMÚLA 40 | 108 REYKJAVÍK


Heimaeyjargosið Heimaeyjargosið hófst 23. janúar 1973 og var því lýst lokið þann 3. júlí sama ár. Gosið er fyrsta eldgos sem hefst í byggð á Íslandi. Giftusamlegri björgun á fólki og stórum hluta af eignum er minnst þegar gosið er rifjað upp. Þó að nú á 21. öldinni rísi upp kyn­ slóð, sem ekki upplifði atburð­ina örlagaríku, eru þeir þó greyptir í hjörtu Eyjamanna. Minning­ arnar lifa og munu fara frá manni til manns. Þannig hefur gosið grópað huga Eyja­manna og er eitt af því sem gerir íbúa Heimaeyjar einstaka. Öfugt við bjartsýni Eyjamanna í byrjun ársins 1973 voru jarðfræðingar ekki bjartsýnir varðandi hið nýja eldgos. Fyrstu dagana var gosið dæmigert sprungugos. Sprungurnar voru 1600 metra langar og röðuðu sér þar 3040 gígar. Hraunflygsur sáust þeytast upp í 600 metra hæð og hraunkúlur flugu að minnsta kosti 2500 metra upp í loftið. Stundum rigndi glóandi flygsum í svo miklu magni og svo títt á ytri veggi eldfjallsins að ýmsir héldu að um hraunstrauma væri að ræða. Hraunkvikan leitaði út í sjó og kom það sér vel fyrir byggðina og innsiglinguna. En það var aðeins fyrstu dagana. Ekki leist mönnum á

blikuna í byrjun febrúar þegar neðansjávar sprunga opnaðist við hafnarmynnið. Frá 4.-20. febrúar var höfninni lokað og umferð bönnuð. Höfnin lokaðist þó ekki en hraunstraumurinn reyndi aftur á taugar manna með straumi í hafnarmynnið frá 9. mars. Þá hafði hraunkælingin sitt að segja. Í lok febrúar safnaðist hraun saman norðan við gígmynnið. Varnargarðar höfðu verið byggðir til varnar bænum og höfninni. Hraunið tók að streyma í tungu frá gígmynninu og ógnaði varnargörðunum. Ekki var hægt að dæla á hrauntunguna sökum þess að vegalengdin frá sjó var of mikil. Þess vegna gerðist það aðfaranótt 18. mars að varnar­ garðurinn brast með þeim afleiðingum að 10 hús fóru undir. Næstu daga fóru enn fleiri hús undir hraun. Verst var áhlaup 300 metra breiðrar tungu fimmtudagskvöldið 22. mars sem fór yfir 70 hús og stöðvaðist niðri á Heimagötu. Ótrúlegt fyrirbæri varð til í marsmánuði, Flakkarinn. Þetta fyrirbæri, risavaxinn hraunklettur, brotnaði úr eld­ keilunni og flaut ofan á hrauninu í átt að höfninni. Flakkarinn, svokallaði, nam staðar áður en hann olli allt of miklum usla. Heimaslóð. (e.d). Heimaeyjargosið. Sótt af http://www.heimaslod.is Myndir eftir Sigurgeir Jónasson

Goslokahátíðin er hátíðleg haldin fyrstu helgina í júlí. Þá er goslokanna á Heimaey minnst með ýmsum hætti, svo sem harmoníkuleik og öðru skralli í krónum í Skvísusundi og Skipasandi. Þessi hátíð er minni í sniðum en Þjóðhátíðin, en mun nánari og fjölskylduvænni. Gamlir Eyjamenn snúa aftur frá meginlandinu til þess að endurnýja gömul kynni, og viðstöðulausri dagskrá er haldið uppi víða um bæinn með málverkasýningum, leikrænum tilburðum og öðrum listrænum gjörningum. Gjarnan eru listaverk vígð á goslokahátíðinni og þau þá annaðhvort gefin bænum eða sýnd tímabundið.


Þjóðhátíð Vestmannaeyja Fyrsta þjóðhátíðin

Þjóðhátíð eins og við þekkjum hana

Fyrsta Þjóðhátíðin var haldin sunnudaginn 2. ágúst árið 1874 í Herjólfsdal. Þá mættu í dalinn um 400 manns um hádegisbilið, reistu tjöld við suðurhlið tjarnarinnar og hlóðu veisluborð úr torfi og grjóti vestan við tjaldbúðirnar. Það sjást enn leifar af því nálægt hringtorginu. Tjöldin og Herjólfsdys voru prýdd fánum og borðum.

Í dag er þjóðhátíðin í Eyjum stór og mikil hátíð þar sem ÍBV - íþróttafélag byggir upp ævintýralega smáborg í Herjólfsdal sem hverfur svo nánast sporlaust fjórum dögum síðar. Þar er boðið upp á tónlistarveislu þar sem vinsælustu hljómsveitir landsins hverju sinni stíga á stokk og gleðja hátíð­ argesti allan sólarhringinn. Flugeldasýning, brenna á Fjósakletti og brekkusöngur er meðal þess sem boðið er upp á. Hin sérstæðu hvítu hústjöld setja líka sterkan svip sinn á dalinn þar sem heimamenn setja upp tjöldin sín á skipulagðan hátt þar sem að hver röð tjalda myndar götu og hvert tjald hefur númer eða nafn. Þar hafast menn við í gegnum allar tegundir veðurs og næra sig á lunda og kjötsúpu. Þar er oft á tíðum dvalið fram í dagrenningu við gítarspil og söng.

Þorsteinn Jónsson flutti minni konungsins, og var eftir það hleypt af 9 fallbyssuskotum, sem bergmáluðu vel í fjöllunum í kring. Að því loknu flutti séra Brynjólfur Jónsson minni Íslands og Þorsteinn Jónsson flutti minni Jóns Sigurðssonar. Borðað var vel og kaffi drukkið, og upp frá því hófst dansleikur undir berum himni með söng og tralli, sem stóð fram undir miðnætti. Ölvun var að sögn viðstaddra lítil, og allt fór vel fram. Eftir þessa þjóðhátíð var hún haldin nokkrum sinnum í viðbót, en þá yfirleitt um miðjan ágúst. Um 1901 hafði hátíðarhaldið þróast á þá leið að kappróður var orðinn einn dagskrárliða. Eftir kappróðurinn var gengin skrúðganga inn í dalinn og hann skreyttur. Flutt var minni konungs, Íslands og Vestmannaeyja, og hófust þá íþróttaviðburðir: glíma, kapphlaup, og fleira. Síðar um kvöld voru kaffiveitingar og sódavatn á boðstólum í tjöldunum, en áfengi stóð ekki til boða. Frá þeirri Þjóðhátíð hefur hún verið haldin nánast óslitið.

Þjóðhátíðarlagið Á hverju ári er sérstakt lag samið til þess að vera einkennislag Þjóðhátíðarinnar það árið. Þessi hefð hefur haldist frá árinu 1933. Oddgeir Kristjánsson samdi lögin fyrstu áratugina en eftir fráfall hans hafa margir komið að því að semja lögin. Mikil eftirvænting er í bæjarbúum og áhugamönnum fyrir afhjúpun lagsins ár hvert. Misjafnar skoðanir eru á lögunum, en flestir eru sammála um ágæti laganna, sérstaklega eftir verslunarmannahelgina.

Heimaslóð. (e.d). Þjóðhátíð. Sótt af http://www.heimaslod.is Myndir eftir Sigurgeir Jónasson og af http://www.heimaslod.is

EMBLA | HAUSTÖNN 2020 | 9


Náttúra Suðurlands Seljalandsfoss Seljalandsfoss er fremsti foss Seljalandsár sem á upptök sín uppi á Hamragarða- og Seljalandsheiði. Fossinn er 65 m. á hæð, fellur fram af fornum sjávarhömrum. Hægt er að ganga í kringum Seljalandsfoss og virða hann fyrir sér frá öllum sjónarhornum. Leiðin getur orðið ansi blaut en þó er alltaf þurrt þegar á bak við fossinn er komið. Beljandi vatnsniðurinn og regnboginn sem ljómar í vatnsflókunum þegar sólin skín á fossinn skapa ógleymanlega upplifun Gljúfrabúi Gljúfrabúi, sem er um 40 metra hár, er í landi eyðijarðarinnar Hamragarða sem Skógræktarfélag Rangæinga fékk að gjöf árið 1962 og er nú í eigu Rangárþings eystra. Ákveðin dulúð er yfir fossinum þar sem hann fellur ofan í djúpa gjá en framan við fossinn er mikill hamraveggur úr móbergi sem lokar fossinn af svo aðeins sést rétt efst í hann. Skógafoss Skógafoss (60m) er talinn meðal fegurstu fossa landsins. Í Skógaá, ofan Skógafoss, eru a.m.k. 20 aðrir fossar, margir fallegir, og það er auðgengt með fram ánni og gljúfrum hennar, hægt er að ganga inn smá gljúfur alveg að hylnum undir fossinum. Skógafoss og áin fyrir ofan og neðan eru friðlýst sem náttúruvætti. Þrasi Þórólfsson var landnámsmaður að Skógum. Hann nam land milli Jökulsár og Kaldaklofsár og var sagður fróður og forn í lund. Jökulsárlón Fyrir 1950 rann Jökulsá á Breiðamerkursandi beint undan jökli u.þ.b. 1½ km leið til sjávar. Síðan hefur jökullinn hörfað og sístækkandi lón myndast. Meðalrennsli árinnar er 250-300 m³/sek. og stórir ísjakar brotna af jökuljaðrinum og eru þeir á floti á vatninu. Lónið er feikidjúpt, a.m.k. 190 m. Áin styttist stöðugt vegna brimrofs og árið 1998 var hún varla meira en 500 m. Farvegur árinnar grefst stöðugt niður, þannig að það gætir sjávarfalla í lóninu. Það þýðir einfaldlega, að hlýrra vatn streymir inn í það á flóði og ísinn bráðnar mun hraðar en fyrrum. Gönguleiðir. (e.d). Seljalandsfoss Sótt af https://www.gonguleidir.is/listing/seljalandsfoss/ Markaðsstofa Suðurlands. Sótt af https://www.south.is Myndir sóttar af https://www.pxfuel.com

10 | EMBLA | HAUSTÖNN 2020


Fjaðrárgljúfur Fjaðrárgljúfur er stórbrotið og hrikalegt, um 100 metra djúpt og um tveir kílómetrar að lengd. Gljúfrið er veggbratt, örlítið hlykkjótt og þröngt. Berggrunnurinn í Fjaðrárgljúfri er að mestu móberg frá kuldaskeiðum ísaldar og telst um tveggja milljóna ára gamalt. Fjaðrá á upptök sín í Geirlandshrauni og fellur fram af heiðarbrúninni í þessu mikilfenglega gljúfri þar til hún skilar sér niður í Skaftá. Fjaðrá er bergvatnsá og ljóst er að hún hefur breyst mikið í tímans rás. Í dag er Fjaðrá oftast frekar vatnslítil og því geta göngumenn hæglega kosið að ganga inn gljúfrið en þá þarf að vaða ánna alloft, innst í gljúfrinu eru fossar svo ganga þarf sömu leið til baka. Flestir velja að ganga eftir göngustíg uppi á gljúfurbarminum og njóta um leið útsýnisins yfir gljúfrið. Fjaðrárgljúfur er á náttúruminjaskrá.

Myndun Fjaðrárgljúfurs Talið er að Fjaðrárgljúfur hafi myndast við lok síðasta jökulskeiðs eða fyrir um níu þúsund árum. Þegar jökullinn hörfaði myndaðist lón í dalnum á bak við bergþröskuld en af­ rennslisvatn úr lóninu rann þar sem nú er Fjaðrárgljúfur. Jökulár frá jaðri jökulsins báru fram mikið af seti í lónið en áin sem rann frá því gróf sig niður í þröskuldinn og ofan í móbergið framan við hann. Þegar vatnsfallið var sem stærst var það öflugt við gljúfurgröftinn. Að því kom að stöðuvatnið fylltist af framburði jökulvatnanna og afl árinnar dvínaði. Þegar stöðuvatnið var orðið fullt hóf áin að grafa sig í setlögin sem hún hafði áður skilið eftir sig í dalnum. Malarhjallar beggja vegna í dalnum segja til um upphaflegu hæð og staðsetningu stöðuvatnsins og djúp rás í móberginu ber þögult vitni um afl náttúrunnar. Örnefnið Fjaðrá hefur oft vafist fyrir mönnum en telja sumir að hér hafi eitt sinn verið fjörður og hafi áin borið nafnið Fjarðará í upphafi.


Náttúra Vestfjarða Dynjandi Dynjandi er mestur fossa á Vestfjörðum. Hann má finna í Dynjandisvogi fyrir botni Arnarfjarðar. Fossinn og umhverfi hans var friðlýst sem náttúru­ vætti árið 1981, enda um einstaka náttúru­perlu að ræða. Dynjandi er í ánni Dynjandi sem rennur ofan af Dynjandisheiði. Hún á upptök sín í nokkrum vötnum á heiðinni sem liggur í jaðri hálendis­ svæðis Glámu. Glámusvæðið einkennist af jökulruðningum og dældum sem smávötn hafa safnast í. Dynjandi fellur niður u.þ.b. 100 metra hátt og bungumyndað berg. Fossastiginn hefur orðið til vegna lagskiptingar bergsins í hraunlög og lausari millilög. Fossberarnir eru hraunlögin en millilögin hefur áin grópað undan þeim. Fossarnir í Dynjanda eru sex. Efst er Fjallfoss, þá Hundafoss, Strokkur, Göngumannafoss, Hrísvaðsfoss og Sjóarfoss. Mynd eftir Diego Delso

12 | EMBLA | HAUSTÖNN 2020

Markaðsstofa Vestfjarða. (ed). Dynjandi Sótt af https://www.westfjords.is/is/westfjords/place/dynjandi


EINSTÖK MATARUPPLIFUN Rauðisandur Rauðisandur er 10 kílómetra löng strandlengja sem einkennist af fallega lituðum rauðum sandi. Liturinn getur verið allt frá því að vera gulur, rauður og allt að því svartur, þetta fer allt eftir birtunni. Sandurinn fær þennan rauða lit líklegast vegna skeljabrota frá Hörpudiskskeljum.

Einsi og hans kokkalið hafa mikla unun af sinni sérhæfingu sem er að töfra fram ljúffenga og framandi rétti

Undirlendið er fremur mjótt og upp frá því rísa fjöll með bröttum hlíðum og háum hömrum. Allmikið sjávarlón, Bæjarvaðall, sker sveitina í sundur og út frá því liggur langt og mjótt lón til vesturs, en framan við það er rif úr rauðgulum skeljasandi og er nokkuð víst að sveitin dregur nafn af sandinum. Tilvalið er að koma á Rauðasand á háfjöru og rölta um sandinn og týna sér í víðáttunni og njóta útsýnisins. Rauðisandur býður upp á frábært útsýni að Snæfellsnesi og þar fær jökullinn að njóta sýn í góðu veðri. Við mælum einnig með því að stoppa á kaffihúsinu!

Markaðsstofa Vestfjarða. (ed). Rauðasandur Sótt af https://www.westfjords.is/is/westfjords/place/raudasandur Myndir eftir Mats Wibe Lund

Vestmannabraut 28 | 900 Vestmannaeyjar | s 481 1514 | einsikaldi.is


Látrabjarg Látrabjarg er fuglabjarg á sunnanverðum Vest­ fjörðum. Það er stærsta sjávarbjarg Evrópu, 14 km langt frá nesoddanum Bjargtöngum í vestri að Keflavík í austri og 441 metra hátt við Heiðnukinn. Látrabjargi er í daglegu tali skipt í fjóra hluta, sem heita Látrabjarg, Bæjarbjarg, Breiðavíkurbjarg og Keflavíkurbjarg. Bjargtangar er vestasti tangi Íslands og líka Evrópu, á 24°32´3" vestlægrar lengdar. Vestari hluti Látrabjargs er að verulegu leyti lóðrétt standberg frá bjargbrún til sjávar. Bjargið er þverskurður af lagskiptum hraun­laga­ stafla Vestfjarða, sem hlóðst upp í síendurteknum

eldgosum fyrir um 13-16 milljónum ára. Síðan hafa roföflin ein ráðið landmótun. Þetta eru elstu jarðlög Íslands. Látrabjarg iðar allt af fugli framan af sumri, hver snös og stallur er setinn svo sem raðað er í jötu. Í bjarginu er stærsta álkubyggð í heimi í Stórurð. Þarna verpa um tíu sjófuglategundir og algengastar eru álka, langvía, stuttnefja, rita, fýll og lundi. Látrabjarg hefur verið nytjað frá landnámstíð. Markaðsstofa Vestfjarða. (ed). Látrabjarg Sótt af https://www.westfjords.is/is/westfjords/index/latrabjarg

Fuglastofn í Látrabjargi Tegund

Árstími

Fjöldi para

Ár

% af isk stofni

Langvía

Varp

225.912

2006-2007

32,7

Álka

Varp

160.968

2006-2007

51,3

Stuttnefja

Varp

118.034

2006-2007

35,8

Fýll

Varp

99.894

2009

8,3

Lundi

Varp

50.000

2000

x

Rita

Varp

32.028

2007

5,5

Toppskarfur

Varp

124

2007

2,5 Heimildir frá Náttúrufræðistofnun


FRÁ HUGMYND AÐ VERULEIKA

–LÁTTU OKKUR UM HANDVERKIÐ FORVINNSLA

PRENTUN

FRÁGANGUR UMHVERFISVÆN PRENTUN

Skemmuvegi 4 Blá Gata 200 Kópavogi Sími 540 1800 litlaprent@litlaprent.is www.litlaprent.is Opið virka daga: 8:00–16.00


GRAFÍA FJÁRFESTIR Í ÞINNI FRAMTÍÐ

GRAFÍA

– KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ

FRÆÐSLUSJÓÐUR NÁM INNANLANDS TÓMSTUNDANÁM NÁM ERLENDIS FERÐASTYRKUR

Fræðslusjóður Grafíu spilar stórt hlutverk í endurmenntun félagsmanna. Með greiðslum úr fræðslusjóði hefur félagsmaður tök á því að auka starfsréttindi sín og afla sér þekkingu sem eykur möguleika hans á vinnumarkaði.

STÓRHÖFÐA 31 | 3.HÆÐ | 110 REYKJAVÍK | SÍMI 540 0100 | GRAFIA@GRAFIA.IS | GRAFIA.IS


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Embla Tímarit by hörður Helgi - Issuu