Saga úr Síldarfirði segir frá Sigga sem 12 ára gamall flyst ásamt fjölskyldu sinni til Siglufjarðar í upphafi síðustu aldar. Þar bíður ný framtíð þeirra sem áður sáu ekki aðra leið út úr ógöngunum og sárri fátækt en að flytja til Vesturheims í von um betra líf. Tilvera Sigga tekur stakkaskiptum - en það er ekki auðvelt að byrja upp á nýtt á ókunnum stað. Þessi örlagasaga byggir á raunverulegum atburðum.