Yfir fjöll og firnindi

Page 1

TANNI TRAVEL

Reynsla – Metnaður – Skemmtun Experience – Ambition - Fun

FÉLAG KENNARA Á EFTIRLAUNUM NORÐ - AUSTURLAND Yfir fjöll og firnindi 9.-12. ágúst 2022

Þriðjudagurinn 9. ágúst 2022 Mæting á Reykjavíkurflugvöll kl. 06:45 að morgni. Flogið frá Reykjavík kl. 07:30, lending á Egilsstöðum kl. 08:30. Ekið til Vopnafjarðar, um Hellisheiði ef veður leyfir, annars yfir Vopnafjarðarheiði. Þar heimsækjum við Bustarfell, safn í gömlum fallegum torfbæ sem miðlar breyttum búskapar- og lifnaðarháttum fólks allt frá því um 1770 til þess er hætt var að búa í bænum árið 1966. Við fáum hádegissúpu á Síreksstöðum, sem er bær innst í Vopnafirði, þar sem rekin er gisting og veitingasala. Við ökum um Vopnafjörð til Bakkafjarðar, þar sem við skoðum okkur um. Við endum daginn í Heimsskautsgerði við Raufarhöfn, minnismerki eins og risastórt sólarlag sem miðar að því að ná geislum sólarinnar, varpa skugganum á nákvæma staði og fanga ljósið á milli hliðanna.

Strandgata 14, 735 Eskifjörður, Iceland tel. +354-476-1399, e-mail: tannitravel@tannitravel.is www.tannitravel.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Yfir fjöll og firnindi by Halldór Þórðarson - Issuu