Skip to main content

Ísland þá og nú

Page 1

Ísland þá og nú


Borgarfjörður Lögberg Mosfell

..

. Tjaldanes


Munaðarnes

. Hvítá

Borg

Knarrarnes .. Álftanes

.

. Hvítárvellir

Raufarnes

Borgarfjörður


Knarrarnes

Knarrarnes (24) Knarrarnes er staðsett á Vesturlandi. Skalla-Grímur nam land á nesinu og byggði þar bú. Knarrarnes er samsett úr orðunum „knörr“ og „nes“. „Knörr“ er skip sem er ætlað til úthafssiglinga.


Munaðarnes

.

Munaðarnes (29) Skalla-Grímur átti bú á Munaðarnesi. Honum þótti beitilandið þar betra vegna þess að þar varð sauðféið feitara. Einnig var góð laxveiði á staðnum. Því er nafnið Munaðarnes afar lýsandi þar sem að munaður merkir lúxus. Í dag er þjónustumiðstöðin Munaðarnes á staðnum og einnig bústaðarsvæði.


Álftanes

.

Álftanes (28 og 30) Skalla-grímur fór með búfénað sinn á nes utan við sjó. Þar voru nokkrar álftir sem hann veiddi. Kallaði hann staðinn Álftanes. Þegar Yngvar mágur Skallagríms flúði Noreg þá gaf Grímur hann Yngvari landið. Í dag er nánast ekkert þarna, aðeins stór tún og sveitabæir.


Borg

.

Borg á Mýrum (30) Kveld-Úlfur dó á leiðinni til Íslands og var settur í kistu sem sett var út í sjó. Hann skipaði áhöfninni að byggja skyldi bæ þar sem kistan hans kæmi að landi. Þar byggði þá Skalla-Grímur bæinn Borg og nefndi fjörðinn sem bærinn er staðsettur í Borgarfjörð. Egill SkallaGrímsson bjó þar eftir dauða föður síns og samdi þar m.a. Sonatorrek en í dag stendur þar stytta eftir Ásmund Sveinsson sem nefnt er eftir verkinu. Snorri Sturluson höfðingi og sagnaritari bjó einnig á Borg á sínum tíma en hann var barnabarn Egils. Á Borg hefur lengi staðið kirkja en í kirkjugarði hennar var Kjartan Ólafsson úr Laxdælu og systursonur Egils látinn liggja.


Brákarsund

.

Brákarsund (40) Vetur einn voru Egill og Þórður að keppa á móti SkallaGrími í knattleik. Það fór svo að Skalla-Grímur hamaðist þegar leið á kvöld og drap Þórð í keppnisskapi sínu en þegar hann sneri sér að syni sínum þá tók Þorgerður brák, fóstra hans, upp á að beina athygli Skalla-Gríms að sér til að bjarga Agli. Hún reyndi að forða sér frá Skalla-Grími og ætlaði að synda yfir sund eitt milli, þar sem nú kallast, Borgarnesar og að lítilli eyju en SkallaGrímur kastaði exi á eftir henni þannig að öxin hitti hana í bakið svo hún sökk. Það sund var þar með kallað Brákarsund og eyjan Brákarey.


. Hvítárvellir

Hvítárvellir (40) Á Hvítárvöllum var lagður fjölmennur knattleikur. Heimamenn Skalla-Gríms fóru á leikana ásamt Þórólfi og Agli, en þá var Egill á sjöunda vetri. Egill keppti þar við strák sem hét Grímur. Hann var aðeins eldri en Egill og eftir langa keppni tapaði Egill. Eftir leikinn fékk Egill öxi hjá vini sínum Þórði Granasyni og notaði hana til að drepa Grím en það var fyrsta víg Egils. Í dag er lítið á Hvítárvöllum nema nokkrir bóndabæir.


.

Lögberg

Lögberg (88) Þing voru haldin á Lögbergi. Egill vildi fara þangað, sá silfri sínu og horfa á men berjast og slást. Tengdasonur hans, Grímur, taldi hann af því og fór Egill ekki til Lögbergs það árið og var hann mjög fúll yfir því. Á árunum 930 til 1262-64 voru þinghöld á Þingvelli og var þá Lögberg miðpunktur þess. Nú í dag er Þingvellir, þ.á.m. Lögberg, þjóðgarður og vinsæll ferðamannastaður.


. Mosfell

Mosfell (88) Egill Skalla-Grímsson bjó við Mosfell með frænku sinni Þórdísi og manni hennar, Grími, þegar hann var orðinn gamall maður. Eitt haustið fékk Egill ekki að fara á þing svo kvöld eitt fór Egill á hesti með kistu fulla af silfri og á að hafa falið það. Ekki var vitað hvar hann faldi silfrið er en þó fundust enskir silfurpeningar í gili við Mosfell. Gætu það hafa verið hluti af silfri Egils. Í dag er Mosfell meðal annars vinsæl gönguleið.


. Raufarnes

Raufarnes (30) Skalla-Grímur var járnsmiður mikill. Hann lét smíða smiðju þar sem heitir Raufarnes. Í dag er til dæmis gistihús á svæðinu.


.

Varmalækur

Varmalækur (29) Stuttu eftir að Skalla-Grímur hafði komið til Borgarfjarðar kom maður, er Ólafur var kallaður hjalti. Hann ætlaði að finna sér bústað á Íslandi. Skalla-Grímur vísaði honum á stað sunnan við hvítá, upp frá Grímsá til Flókadalsár. Ólafur byggði þar bústað og nefndi hann Varmalæk. Í dag er Varmalækur bújörð í borgarbyggð.


.

Tjaldanes

Tjaldanes (88) Þegar Egill var orðinn gamall lést hann af sótt. Grímur, tengdarsonur Egils, lét færa Egil í góð klæði og flytja hann síðan í Tjaldanes þar sem hann var lagður í haug. Tjaldanes er nálægt Mosfelli og er þar í dag lítið fyrir utan gestahús.


Elín Lilja, Freyja, Halla Hrund, Urður, Þórhildur


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Ísland þá og nú by Halla Hrund Ólafsdóttir - Issuu