Búkolla Karl og kerling bjuggu í koti sínu, þau áttu einn son en þeim þótti ekkert vænt um hann. Þau áttu eina kú sem hét Búkolla. Kýrin var eitt sinn að bera og sat kerlingin yfir henni. Eftir fæðinguna þá fer kerlingin í bæinn en þegar hún kemur til baka var kýrin farin. Karlinn og kerlingin leituðu hennar en fundu hana hvergi. Sendu þau strákinn að leita hennar og mátti hann ekki koma til baka nema með kúnna. Hann var sendur út með nesti og nýja skó og lagði hann af stað út í bláinn. Hann gekk mjög lengi og settist til að borða nesti. Bað hann þá Búkollu um að baula ef hún væri enn á lífi. Heyrir hann þá baul langt, langt í burtu. Gengur hann aftur lengi og kallar aftur á hana og heyrir lágt baul. Þegar hann gengur að háum hamri og fær sér að éta, kallar hann á Búkollu heyrir og Búkollu baula undir fótum sér. Hann klifrar í hamrana og finnur hana inni í helli. Hann leysir hana og ætlar að leiða hana út til að fara heim.
Á heimleiðinni sér hann stóra skessu. Strákurinn spyr Búkollu hvað skal gera og segir hún ,,Taktu hár úr hala mínum og legðu það á jörðina”. Kýrin segir við hárið að það á að verða að mikilli móðu. Þegar skessan kom að móðunni segir hún við minni skessuna að sækja stóra nautið sem faðir hennar átti. Stóra nautið drakk þá upp móðuna. Skessan ætlar þá að taka kúnna og spyr strákurinn aftur Búkollu hvað skal hann gera. Átti hann aftur að leggja hár af henni á jörðu og breytti Búkolla því í stórt bál. Aftur átti minni skessan að koma með nautið sem meig allri móðunni á eldinn.
Skessan ætlar aftur að ná Búkollu og strákurinn biður hana aftur um hjálp. Lagði hann aftur hár af hala hennar á jörðina og breytir hún hárinu í risa stórt fjall sem enginn komst yfir nema fuglinn fljúgandi. Stóra skessan bað þá minni skessuna að sækja borjárn föður hennar. Kemur hún með borjárnið og stóra skessan borar í fjallið. Nær hún að bora í gegn en þegar hún reyndi að troða sér í gegn festist hún. Varð hún þá að steini og stendur þar enn. Strákurinn fer með Búkollu heim og karl og kerling urðu afar ánægð.
Djákninn á Myrká Djákninn á Myrká bauð Guðrúnu nokkri með sér á jólagleði hjá sér og ætlaði að sækja hana til sín á Bægisá á aðfangadag. Úti var mikill snjór og ís og meðan djákninn var hjá Guðrúnu var mikil leysing og árnar stækkuðu mjög. Þegar hann fór frá Bægisá var áin orðin ófær og erfitt reyndist fyrir hann að komast heim. Djákninn fór yfir brú eina sem brast og fór hann og hesturinn hans, Faxi, í ána. Bóndi einn sá þegar Faxi kom upp úr ánni, vesæll og votur. Þóttist bóndinn þá vita hvað hafði gerst. Bóndinn finnur djáknann og var hann þá allur. Djákninn var mjög skaddaður á hnakkanum vegna ísjaka þegar hann fannst. Hann var svo fluttur heim til Myrkár og grafinn viku fyrir jól. Guðrún frétti ekki af dauða djáknans og þegar aðfangadagur rann upp beið hún spennt eftir honum. Seinna um daginn var bankað á dyrnar og fór önnur kona til dyra en sá engan. Guðrún fer þá út og sér djáknann við hestinn sinn. Hún flýtir sér í kápu en hefur ekki tíma til að fara í aðra ermina. Djákninn segir ekkert við Guðrúnu og þau halda af stað. Á leiðinni lyftist hattur djáknans upp og sér þá Guðrún bera höfuðkúpuna. Hann bendir á þetta og kallar hana Garún. Henni brá og sagði ekkert.
Þegar þau komu að Myrká bað hann Guðrúnu að bíða meðan hann gengi frá hestinum. Hún sér þá inn í kirkjugarðinn og tekur eftir opinni gröf. Hún verður hrædd og grípur í klukkustrenginn. Djákninn grípur fast í ermina á kápunni og gat hún smeygt sér úr henni. Djákninn dettur þá í gröfina og sópast moldin yfir. Guðrún hringdi klukkunni stanslaust þar til fólk kom og sótti hana og var hún þá yfir sig komin af hræðslu. Í hálfan mánuð eftir þetta atvik ásótti djákninn Guðrúnu og gat hún aldrei verið ein. Þá var fenginn galdramaður og setti hann drauginn niður með miklum særingum. Eftir það hætti allur draugagangur á Myrká og Guðrún fór að hressast. Hún var þó aldrei söm aftur.
Álfaskartið Á gamlárskvöldi á bæ einum fór allt heimilisfólk til aftansöngs nema ein griðkona sem átti á gæta bæjarins. Þegar leið á kvöldið varð hún var við læti úti og er hún opnaði útihurðina voru þar álfar og huldufólk sem buðu henni í dans. Þau dönsuðu saman út nóttina en þegar fór að renna dagur drápu þeir hana. Ári síðar endurtók sagan sig þar sem að dönsunum loknum var höfuð þeirrar konu höggvið af. Á hinu þriðja gamlárskvöldi, þegar huldumennirnir og álfarnir komu að bænum, þóttist sú griðkona ekkert heyra þegar þeir bönkuðu á dyrnar og einbeitti sér öllu heldur að lestri sínum. Álfarnir og huldufólkið komu inn og reyndu að tæla konuna í dans og buðu henni kistu fulla af gersemum en hún þóttist ekkert heyra. Þeir dönsuðu sjálfir alla nóttina en við sólarupprás stóð griðkonan loks upp og mælti svo: „Guði sé lof, dagur er á loft kominn," og þá hurfu allri álfarnir og huldumennirnir en gersemin urðu eftir fyrir griðkonuna.
Elín Lilja, Freyja, Halla Hrund, Urður, Þórhildur