Ljúffengar bollur Fyrir þig og þína
Vatnsdeigsbollur Vatnsdeigsbollur 10-12 stk. 100 g smjör 2 dl vatn 110 g hveiti 3 stór egg Aðferð: Hitið ofninn í 200°C (blástur). Setjið vatn og smjör í pott og látið suðuna koma upp. Sjóðið í tvær mínútur. Setjið hveitið út í og blandið vel saman þar til deigið er orðið mjúkt. Leyfið deiginu að kólna í nokkrar mínútur. Þið megið færa deigið yfir í hrærivélarskál á þessu stigi eða hræra áfram með höndunum. Bætið eggjunum saman við, einu í einu, og þeytið vel á milli. Setjið deigið í sprautupoka og sprautið bollunum á pappírsklædda bökunarplötu en það má auðvitað nota skeiðar til þess að forma bollurnar. Bakið við 200°C í 25 mínútur. Það er mikilvægt að opna ekki ofninn fyrstu 15 mínúturnar af bökunartímanum svo að bollurnar falli ekki. Kælið mjög vel áður en þær eru fylltar með gómsætum fyllingum.
Uppskrift eftir Evu Laufeyju
Vatnsdeigsbollur með Oreo Oreo fylling: 500 ml rjómi 2 msk kakó 1 tsk vanilludropar 80 g mulið Oreo Aðferð: Setjið öll hráefnin í hrærivélaskál og þeytið þar til rjóminn er stífþeyttur. Setjið rjóma í sprautupoka, skerið bollurnar í tvennt og fyllið með ljúffengri rjómafyllingu. Glassúr 4 dl flórsykur 1 tsk vanilludropar 3 – 4 msk mjólk Mulið Oreo til skrauts Aðferð: Setjið öll hráefnin saman í skál og hrærið saman, bætið mjólkinni saman við i nokkrum skömmtum. Þið viljið ekki að glassúrinn sé of þunnur og þess vegna gott að byrja að setja minna en meira af mjólkinni. Smyrjið lokið á bollunum með glassúr og sáldrið Oreo mulningi yfir.
Uppskrift eftir Evu Laufeyju
Nutella bollur
með ljúffengri rjómafyllingu
Nutella fylling 500 ml rjómi 3 msk nutella + meiri Nutella sem er smurt á hverja bollu, magn eftir smekk. 1 msk sykur
Aðferð
Setjið öll hráefnin í hrærivélaskál og þeytið þar til rjóminn er stífþeyttur. Setjið rjóma í sprautupoka, skerið bollurnar í tvennt, smyrjið bollurnar með Nutella og fyllið með ljúffengri rjómafyllingu.
Glassúr
4 dl flórsykur 3 msk kakó 1 tsk vanilludropar 3 – 4 msk mjólk Mulið Snickers til skrauts.
Aðferð
Setjið öll hráefnin saman í skál og hrærið saman, bætið mjólkinni saman við i nokkrum skömmtum. Þið viljið ekki að glassúrinn sé of þunnur og þess vegna gott að byrja að setja minna en meira af mjólkinni. Smyrjið lokið á bollunum með glassúr og sáldrið smátt söxuðu Snickers yfir.
Uppskrift eftir Evu Laufeyju
Lúxus rjómabollur með hindberjafyllingu
Hindberjafylling 500 ml rjómi 100 g fersk hindber 2 msk sykur Berjasulta sem er smurð á bollurnarw , magn eftir smekk.
Aðferð Setjið öll hráefnin í hrærivélaskál og þeytið þar til rjóminn er stífþeyttur. Setjið rjóma í sprautupoka, skerið bollurnar í tvennt, smyrjið bollurnar með sultu og fyllið með ljúffengri rjómafyllingu.
Glassúr 4 dl flórsykur 3 msk kakó 1 tsk vanilludropar 3 – 4 msk mjólk Fersk ber til skrauts, til dæmis jarðarber, hindber og rifsber.
Aðferð Setjið öll hráefnin saman í skál og hrærið saman, bætið mjólkinni saman við i nokkrum skömmtum. Þið viljið ekki að glassúrinn sé of þunnur og þess vegna gott að byrja að setja minna en meira af mjólkinni. Smyrjið lokið á bollunum með glassúr og skreytið með smátt skornum ávöxtum.
Uppskrift eftir Evu Laufeyju
Karamelludraumur í bolluformi Karamellufylling 500 ml rjómi 2 msk söltuð karamellusósa að eigin vali 1 tsk vanilludropar 1 pakki Royal búðingur, söltuð karamellusósa
Aðferð Setjið öll hráefnin í hrærivélaskál og þeytið þar til rjóminn er stífþeyttur. Útbúið Royal búðinginn samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. Setjið rjóma í sprautupoka, skerið bollurnar í tvennt og smyrjið bollurnar með vel af karamellubúðing. Magn eftir smekk og fyllið með ljúffengri rjómafyllingu.
Glassúr 4 dl flórsykur 3 msk söltuð karamellusósa að eigin vali 1 tsk vanilludropar 1 – 2 msk mjólk. Fersk jarðaber til skrauts. Smá flórsykur til að sáldra yfir.
Uppskrift eftir Evu Laufeyju
Vatndeigshringur með æðislegri karamellufyllingu Uppskrift 1 hringur 100 g smjör 2 dl vatn 110 g hveiti 3 stór egg Aðferð Hitið ofninn í 200°C (blástur). Setjið vatn og smjör í pott og látið suðuna koma upp. Sjóðið í tvær mínútur. Setjið hveitið út í og blandið vel saman þar til deigið er orðið mjúkt. Leyfið deiginu að kólna í nokkrar mínútur. Þið megið færa deigið yfir í hrærivélarskál á þessu stigi eða hræra áfram með höndunum. Bætið eggjunum saman við, einu í einu, og þeytið vel á milli. Setjið deigið í sprautupoka og sprautið hring á pappírsklædda ofnplötu. Bakið við 200°C í 25 mínútur. Það er mikilvægt að opna ekki ofninn fyrstu 15 mínúturnar af bökunartímanum svo hringurinn falli ekki. Kælið mjög vel áður en þið fyllið með gómsætri fyllingu. Karamellufylling 500 ml rjómi 2 msk karamellusósa að eigin vali, sjá uppskrift hér að neðan 100 g karamellukurl
Uppskrift eftir Evu Laufeyju Framhald á næstu síðu
Aðferð Setjið rjóma og karamellusósu saman í skál og þeytið þar til rjóminn er stífþeyttur. Bætið karamellukurli saman við með sleikju í lokin. Skerið hringinn í tvennt, smyrjið sultu að eigin vali í botninn á hringnum og fyllið síðan með ljúffengri rjómafyllingu. Glassúr 4 dl flórsykur 3 msk söltuð karamellusósa að eigin vali 1 tsk vanilludropar 1 – 2 msk mjólk. Fersk ber til skrauts, til dæmis rifsber, hindber og jarðarber. Aðferð: Setjið öll hráefnin saman í skál og hrærið saman, bætið mjólkinni saman við i nokkrum skömmtum. Þið viljið ekki að glassúrinn sé of þunnur og þess vegna gott að byrja að setja minna en meira af mjólkinni. Smyrjið lokið á hringnum með glassúr og skreytið með smátt skornum berjum. Söltuð karamellusósa: 200 g sykur 4 msk smjör 1 dl rjómi ½ tsk sjávarsalt Aðferð: Bræðið sykurinn á pönnu án þess að hreyfa við honum, þegar sykurinn er allur bráðinn bætið þið smjörinu út á pönnuna og hrærið stanslaust. Ágætt að lækka hitann á hellunni í miðlungshita. Hellið rjómanum því næst saman við og hrærið áfram þar til karamellusósan er orðin slétt og fín. Saltið sósuna í lokin. Hellið sósunni í skál/krukku og leyfið henni að kólna alveg, hún þykknar um leið og hún kólnar.
Nammibolla af bestu gerð Nammifylling 500 ml rjómi 2 msk sykur
80 g mulið Nóa Kropp
Súkkulaðiglassúr, magn eftir smekk Aðferð Setjið rjóma og sykur í hrærivélaskál og þeytið þar til rjóminn er stífþeyttur. Myljið Nóa Kropp og vefjið saman við rjómann með sleikju. Setjið rjóma í sprautupoka, skerið bollurnar í tvennt, smyrjið bollurnar með glassúr og fyllið með ljúffengri rjómafyllingu. Glassúr 4 dl flórsykur 3 msk kakó 1 tsk vanilludropar 3 – 4 msk mjólk Muldar litríkar súkkulaðiperlur til skrauts, magn eftir smekk Aðferð Setjið öll hráefnin saman í skál og hrærið saman, bætið mjólkinni saman við i nokkrum skömmtum. Þið viljið ekki að glassúrinn sé of þunnur og þess vegna gott að byrja að setja minna en meira af mjólkinni. Smyrjið lokið á bollunum með glassúr og skreytið með með muldum litríkum súkkulaðiperlum.
Uppskrift eftir Evu Laufeyju
Churros bollur með sætum vanillurjóma og Dulce de Leche Churros deig 500 ml vatn
110 g ósaltað smjör 2 msk sykur ½ tsk salt
280 g hveiti 2 stór egg
1 tsk vanilluextract eða vanilludropar 1,5 líter grænmetisolía
Sykur til að velta upp úr 1/2 bolli sykur 1 msk kanill
Á milli
500 ml rjómi
1 tsk flórsykur
1 tsk vanilla extract eða vanilludropar
1 krukka af Dulce de Leche frá Stonewall Kitchen Byrjið á að hræra saman sykurinn og kanilinn sem á að fara utan á og látið á disk.
Nú byrjum við á sjálfu churrosinu.
Uppskrift eftir Mariu Gomez uppskrift síðan 2021 Framhald á næstu síðu
Vatn, smjör og sykur er sett saman í pott og hitað að suðu, lækkið þá hitann niður í miðlungshita.
Bætið svo hveitinu út í pottinn smátt og smátt og hrærið vel í á meðan, þar til myndast eins og filma í botninn og deigið er orðið falleg kúla.
Færið nú deigið yfir í skál og látið kólna í 5-10 mínútur við opinn glugga.
Bætið vanillu og eggi við í skálina og byrjið strax að þeyta með handþeytara, þar til deigið er orðið silkimjúkt og vel þjappað saman í kúlu.
Setjið deigið í sprautupoka með stjörnustút (best að setja smá af deigi í einu).
Sprautið svo deigi á smjörpappír í hringi og klippið í kringum hvern hring svo hver og einn fái sinn pappír.
Hitið nú olíuna á djúpri pönnu og setjið smá deig út á til að vita hvort hún sé heit.
Setjið svo aðeins þrjá hringi í einu með smjörpappírnum á
út í olíuna og takið pappírinn strax af með töng. Það er mjög
þægilegt að gera þetta svona svo það slettist ekki á mann olía. Steikið þar til churrosið er orðið vel gullinbrúnt og passið að
hafa þá nógu lengi í vel heitri olíunni svo þeir verði ekki hráir inní.
Setjið þá svo ofan á disk með eldhúspappír á til að taka alla auka olíu af.
Að lokum er annari hliðinni sem snýr út velt upp úr kanilsykurblöndunni og leyft að kólna.
Þeytið rjóma með flórsykrinum og vanilludropunum.
Setjið Dulce de Leche á neðri helming á churros og þeyttan rjóma ofan á. Lokið með öðrum helming af churros.
Uppskrift eftir Mariu Gomez uppskrift síðan 2021
Púnsgerbolla með rommkúlurjóma og rifsberjahlaupi Gerbollur 9 stk
2,5 dl ylvolg nýmjólk 25 g pressuger ½ dl sykur 1 egg
½ tsk kardimommudropar 1 tsk vanilludropar 1 tsk fínt borðsalt 1 tsk lyftiduft 420 g hveiti
100 g smjör við stofuhita 1 egg til að pensla bollurnar með saman við 1 msk af nýmjólk
(má sleppa). Velgið mjólkina í örbylgju þar til hún er ylvolg. Setjið sykur og ger út í og hrærið vel.
Látið standa í 5 mínútur á borði.
Setjið hveiti, salt og lyftiduft í hrærivélaskál og hrærið létt sa-
man með króknum. Bætið kardimommu og vaniludropum út í mjólkurgerblönduna ásamt egginu og hrærið vel saman með písk.
Kveikjið nú á hrærivél á hnoð og bætið mjólkuger- blöndunni varlega saman við meðan hún hnoðar.
Setjið svo smjörið í að lokum og hnoðið þar til deigið er búið að hringa sig um krókinn.
Uppskrift eftir Mariu Gomez uppskrift síðan 2021 Framhald á næstu síðu
Leggið viskastykki yfir skálina og látið hefast á volgum stað. Takið svo hefaða deigið og skiptið því upp í 9 parta, ekki hnoða það neitt áður. Gerið kúlur úr hverjum parti og raðið á ofnplötu með bökunarpappa. Leggið viskastykki yfir bollurnar og látið hefast í 30 mínútur. Kveikið á ofninum á 220°C og bakið í 8-10 mínútur eða þar til þær eru orðnar fallega gylltar.
Púns rjómi með rommkúlum
½ líter af rjóma 50 g flórsykur 180 g rommkúlur frá Casali Þeytið rjómann ásamt flórsykri þar til hann er orðin vel stífur. Setjið rommkúlur í poka (ágætt að nota 2 poka einn yfir annan) og berjið á þær með kökukefli þar til þær eru alveg orðnar vel molnaðar. Bætið næst rommkúlumylsnunni varlega saman við rjómann og hrærið varlega með sleikju þar til allt er vel blandað saman.
Ofan á og á milli 2 msk flórsykur
Rifsberjagel frá Den Gamle Fabrik
Bollusamsetning
Skerið bollurnar í sundur og setjið rifsberjagel á botninn (Ef þið
viljið má taka smá brauð innan úr bollunni svo hún verði minna massív).
Setjið rommrjómann ofan á sultuna og lokið bollunni með efra laginu.
Sáldrið þunnu lagi af flórsykri yfir lokið.
Uppskrift eftir Mariu Gomez uppskrift síðan 2021
Ketó vatnsdeigsbollur
KETÓ
250 ml vatn
125 g smjör 2 egg
50 g kókoshveiti 2 tsk lyftiduft
10 g Xantan gum Byrjið á því að sjóða saman vatn og smjör í potti í nokkrar
mínútur. Lækkið undir og bætið þurrefnum útí. Hrærið vel þar til áferðin minnir á kartöflumús.
Leyfið blöndunni að kólna svolítið og setjið svo yfir í hrærivél með spaða. Bætið einu eggi útí í einu og hrærið á um 70% hraða.
Sprautið deiginu í passlegar bollur á bökunarpappír og bakið við
180 °C á blæstri í um 20-25 mínútur. Það er afar mikilvægt að opna ekki ofninn fyrstu 20 mínúturnar þar sem þær geta fallið.
Leyfið bollunum að kólna alveg áður en þið skerið og fyllið eftir smekk.
Glassúr ofaná bollurnar:
1 plata Nicks dark chocolate plata 2 tsk kókosolía
Hitið í örbylgju eða potti þar til súkkulaðið er bráðnað. Setjið ofan á bollurnar og leyfið glassúrnum að harðna.
Uppskrift eftir Hönnu Þóru uppskrift síðan 2021
KETÓ
Karamellu bollur Þeyttur rjómi
Crunchy caramel frá Nicks skorið smátt
Karamellusósa sykurlaus 50 g smjör
50 g sykurlaust gold sýróp Örlítið salt
Aðferð
Sjóðið allt saman í potti á miðlungshita þar til sósan
þykknar. Leyfið henni að kólna áður en þið setjið hana á bollurnar.
Uppskrift eftir Hönnu Þóru uppskrift síðan 2021
KETÓ
Súkkulaði bollur með súkkulaðimús Súkkulaðimús 2 dl rjómi
1 plata Milk chocolate frá Nicks, 3 msk sykurlaust sýróp
Aðferð
Hitið saman í potti þar til súkkulaðið er bráðnað og blandan farin að þykkna.
Kælið blönduna alveg áður en hluta af henni er varlega blandað út í þeyttan rjóma. Restina má nota yfir eða á milli sem sósu.
Nicks peanut and fudge stykkið smátt skorið og hægt að hafa inní eða ofaná bollunum.
Uppskrift eftir Hönnu Þóru uppskrift síðan 2021
KETÓ
Ketó bollur með jarðarberjarjóma Þeytið rjóma í skál og bætið útí 2-3 msk af sykurlausri jarðarberjasultu frá GoodGood.
Smá matarlitur er smekksatriði en gefur fallegan lit.
Skerið 1 jarðarber smátt niður og leggið ofaná rjómann.
Súkkulaðisósan sem við notum í súkkulaðimúsina passar einnig fullkomlega með þessari bollu.
Uppskrift eftir Hönnu Þóru uppskrift síðan 2021
Makkarónubollur Bollur 3 stk egg 300 ml vatn 160 g hveiti 150 g smjör
Aðferð Hitið ofninn í 180° Setjið vatn og smjör í pott. Þegar suðan er komin upp er
potturinn tekinn af hitanum og hveitinu hrært saman við þar til deigið hættir að festast við hliðarnar og myndar hálfgerða kúlu.
Deigið er næst sett í hrærivélaskál og hrært þar til kólnar. Þegar deigið hefur kólnað bætum við 1 eggi saman við í einu þar til þau hafa blandast vel saman við deigið.
Mótið bollur með sprautupoka (líka hægt að nota skeið) á bökunarpappír og bakið við 180° í um það bil 25 mínútur.
Passið að opna ekki ofnin á meðan bollurnar eru að bakast.
Uppskrift eftir Silvíu Haukdal uppskrift 2023 Framhald á næstu síðu
Fylling 300ml Millac rjómi 300 ml Rjómi 200g makkarónur (þessar gömlu góðu) Hindber Joe&Seph’s saltkaramella Vid byrjum á því að mylja niður makkarónurnar. Næst stífþeytum við millac rjómann og rjómann og hrærum makkarónunum varlega saman við.
Sprautum rjómann í hring á bolluna og setjum saltkaramelluna í miðjuna.
Setjum smá rjóma ofaná og röðum svo hindberjum í rjómann. Setjum flórsykur yfir bollurnar og skreytum eftir smekk.
Vatnsdeigsbollur 15-18 stykki 180 g smjör 360 ml vatn 200 g hveiti 1 tsk. lyftiduft ¼ tsk. salt 3-4 egg (160 g) Hitið ofninn í 180°C. Hrærið saman hveiti, lyftidufti og salti í skál og geymið. Hitið saman vatn og smjör í potti þar til smjörið er bráðið og blandan vel heit og takið þá af hellunni. Hellið hveitiblöndunni saman við smjörblönduna og hrærið/vefjið saman við með sleif þar til allir kekkir eru horfnir og blandan losnar auðveldlega frá köntum pottsins. Flytjið blönduna yfir í hrærivélaskálina og hrærið á lægsta hraða með K-inu og leyfið hitanum þannig að rjúka aðeins úr blöndunni. Pískið eggin saman í skál og setjið þau saman við í litlum skömmtum og skafið niður á milli. Best er að vigta blönduna því egg eru misstór og nota aðeins 160 g henni til þess að deigið verði ekki of þunnt. Setjið bökunarpappír á ofnplötur og hver bolla má vera um 2 matskeiðar af deigi (ein vel kúpt matskeið). Bakið í 27-30 mínútur, bollurnar eiga að vera orðnar vel gylltar og botninn líka, ekki opna þó ofninn fyrr en í fyrsta lagi eftir 25 mínútur til að kíkja undir eina. Helstu mistök sem fólk gerir er að baka bollurnar ekki nógu lengi og þá geta þær fallið.
Uppskrift eftir Berglindi Hreiðarsdóttur uppskrift síðan 2021
Daim bollur Jarðarberjarjómi
Hráefni dugar fyrir 15-18 bollur Fylling
600 ml þeyttur rjómi
250 g maukuð jarðarber 120 g saxað Daim
Blandið rjóma og jarðarberjum saman og vefjið síðan Daim varlega saman við með sleif.
Fyllið bollurnar og útbúið súkkulaðibráðina.
Bleik súkkulaðibráð og skraut 100 g bleikt hjúpsúkkulaði 60 ml rjómi Daimkurl
Saxið hjúpsúkkulaðið smátt niður.
Hitið rjómann að suðu og hellið yfir súkkulaðið, pískið saman þar til slétt súkkulaðibráð hefur myndast.
Leyfið henni aðeins að þykkna og smyrjið henni síðan yfir bollurnar. Skreytið með Daimkurli og ferskum blómum.
Uppskrift eftir Berglindi Hreiðarsdóttur uppskrift síðan 2021
Bollur að sænskum sið
VEGAN
2 dl plöntumjólk (ég notaði haframjólk) 50 gr smjörlíki 2 tsk þurrger + 1 tsk sykur örlítið salt 1/2 tsk vanilludropar 1 tsk mulin kardimomma 50 gr sykur 250 gr hveiti Smá jurtamjólk til að pensla með Aðferð Hitið mjólk og smjörlíki saman í potti þar til smjörlíkið hefur
bráðnað og hrærið í á meðan. Hellið blöndunni svo í skál og
leyfið að standa þar til hún er við líkamshita, eða um 37°c. Stráið
þurrgerinu yfir ásamt 1 tsk sykri og leyfið að standa í 10 mínútur. Blandið restinni af hráefnunum út í og hrærið saman. Ef deigið
er of blautt blandið við það smá meira hveiti á meðan þið hnoðið þar til þið fáið rétta áferð. Deigið á að vera svolítið blautt, en þó
auðvelt að að meðhöndla án þess að það sé festist við fingurna. Hnoðið deigið þar til það verður slétt og sprungulaust.
Leyfið deiginu að hefast í skál með hreinu viskustykki yfir í allavega klukkutíma áður en litlar kúlur eru myndaðar og settar á bökunarplötu. Passið að hafa bollurnar ekki of stórar þar sem þær stækka vel í ofninum. það komu 10 bollur úr uppskriftinni
Uppskrift eftir Veganistur uppskrift 2023
hjá mér í dag, en þær voru svona meðalstórar. Ég gerði aðeins minni bollur í fyrra og þá komu alveg 14 bollur hjá mér. Leyfið bollunum að hefast á plötunni í allavega hálftíma í viðbót, penslið þær svo með plöntumjólk og bakið í 15 mínútur við 180°C. Möndlumassi 5 dl möndlumjöl 3 dl flórsykur 5 msk aquafaba (það er vökvinn sem fylgir með kjúklingabaunum í dós) 2-3 msk plöntumjólk eða vegan rjómi Pínu möndludropar. Ég setti í litlu kryddskeiðina mína sem er 1 ml Aðferð Hellið öllu í matvinnsluvél eða góðan blandara og blandið þar til mjúkt. Þetta á að vera þykkt, en þó auðvelt að meðhöndla. Leyfið að standa við stofuhita. Ég setti þetta strax í sprautupoka sem gerði það auðvelt að fylla bollurnar. Bollan sett saman Bollurnar Möndlumassinn 1 ferna vegan þeytirjómi Flórsykur Til að setja saman bollurnar klippti ég þríhyrning úr lokinu og tók aðeins innan úr. Svo sprautaði ég möndlumassa inn í, sprautaði svo þreyttum rjóma yfir, lagði lokið á og sigtaði flórsykri yfir. Það er að sjálfsögðu líka hægt að skera þær í tvennt, en svona gera Svíarnir þetta svo ég ákvað að slá til, mest upp á lúkkið.
Uppskrift eftir Veganistur uppskrift 2023
Gerdeigsbollur 12-14 bollur 80 g smjör 250 ml mjólk 12 g þurrger 40 g sykur ½ tsk salt 1 tsk lyftiduft egg 1 tsk vanilludropar 300-400 g hveiti Aðferð Bræðið smjör og hrærið mjólkinni saman við. Athugið að blandan á að vera ylvolg eða um 37°C. Bætið þurrgeri og sykri út í blönduna. Setjið blönduna í hrærivélaskál og hrærið lyftidufti, helmingnum af hveitinu, salti og vanilludropum vel saman við. Þegar öll hráefnin hafa blandast vel saman er hálfu eggi (munið að setja hinn helminginn til hliðar) og restinni af hveitinu blandað saman við þar til deigið er aðeins blautt. Hnoðið í að minnsta kosti 5 mínútur í hrærivél eða 10 mínútur með höndum. Látið deigið hefast á volgum stað í 30-45 mínútur. Búið til 10-12 bollur úr deiginu og látið hefast í aðrar 30-45 mínútur. Penslið bollurnar með hinum helmingnum af egginu og bakið í um 8-10 mínútur.
Gerdeigsbollur með sultu og rjóma
VEGAN
1 3/4 dl plöntumjólk (ég notaði haframjólk) 50 gr plöntusmjör 2 tsk þurrger + 1 tsk sykur örlítið salt 1/2 tsk vanilludropar 50 gr sykur 250 gr hveiti
Aðferð
Setjið mjólkina og smjörið í pott og hitið þar til smjörið er bráðnar. Hrærið stanslaust í á meðan. Hellið blöndunni í skál og leyfið henni að kólna þar til hún er við líkamshita (sirka 37°C). Stráið þurrgerinu yfir mjólkina og einni teskeið af sykri og leyfið þessu að standa í tíu mínútur. Setjið restina af hráefnunum útí og hrærið saman. Hnoðið deigið í dágóða stund annað hvort í höndunum eða í hrærivél. Deigið á að vera heldur blautt en samt auðvelt að meðhöndla með höndunum. Leyfið deiginu að hefast í skál með hreinu viskustykki í sirka klukkutíma áður en litlar kúlur eru myndaðar og settar á plötu. Það koma u.þ.b. 12-14 bollur úr deiginu. Leyfið bollunum að hefast á plötunni í 20–30 mínútur mínútur í viðbót áður en þær eru bakaðar í 15 mínútur við 180°C.
Súkkulaði glassúr 1 dl flórsykur 1 msk kakó vatn Aðferð Blandið saman flórsykri og kakó í skál. Bætið við vatni eftir þörfum sirka 1 msk í einu.
Uppskrift eftir Veganistur uppskrift 2023
Vegan bollur að hætti Sollu
með jarðarberjum og jurtarjóma
Lífrænar spelt bollur 475 ml jurtamjólk 50 g kókosolía eða vegan smjör 3 msk hlynsíróp 1 pakki (11g) þurrger 1 tsk vanilla ½ tsk sjávarsalt 600 g fínt spelt, lífrænt frá Himneskt Skerið jurtasmjörið í litla bita og bræðið í potti ásamt jurtamjólkinni, hlynsírópinu og vanillu. Hrærið í pottinum á meðan blandan bráðnar, takið svo pottinn af hellunni og kælið. Þegar blandan hefur kólnað niður í um það bil 37°C, hellið henni í hrærivélaskál, stráið þurrgerinu yfir og látið standa í um 15 mínútur. Blandið speltinu og saltinu út í og hrærið saman. Látið viskustykki yfir skálina og látið standa á hlýjum stað svo deigið geti hefast í um 20–30 mín. Þar sem þetta deig er klístrað er gott að nota ískúluskeið til að móta bollurnar sem eru settar á bökunarpappír á ofnplötu. Uppskriftin gefur um 15 bollur.
Uppskrift eftir Sollu uppskrift 2021
Framhald á næstu síðu
Látið bollurnar hefast aftur í um það bil 20 mín á plötunni áður en þær eru settar í ofninn. Bakið við 190°C í um 20 mínútur.
Fylling Lífrænt eplamauk frá Himneskt Marsípan, rifið Fersk jarðarber, niðurskorin Hafrarjómi frá, þeyttur Flórsykur til að strá yfir
Aðferð Skerið bollurnar í tvennt. Setjið skeið af eplamauki á botninn, stráið rifnu marzipani yfir. Raðið jarðarberjum á botninn og setjið skeið af þeyttum hafrarjóma yfir. Lokið bollunum og stráið flórsykri yfir lokin með sigti.
Vegan bollur að hætti Sollu
með súkkulaði og saltri karamellu 3 dl volgt vatn, u.þ.b. 37/40°C 50g pressuger 100g jurtasmjör/smjörlíki 3 msk lífrænn hrásykur 1 tsk vanilla ½ tsk sjávarsaltflögur ½ kg fínt spelt Skerið pressugerið í bita og setjið út í vatnið ásamt sykri og vanillu, hrærið svo þetta leysist upp. Bræðið jurtasmjörið/smjörlíkið við vægan hita og kælið aðeins áður en þið hellið því út í gerblönduna. Bætið speltinu út í smám saman, hnoðið vel. Setjið deigið í skálina og látið hefast á volgum stað í um 30 mín. Takið deigið úr skálinni og hnoðið aftur. Formið um 18 miðlungs stórar bollur, setjið þær á bökunarplötu og látið hefast aftur í um 20/30 mín. Bakið við 200°C í 15 mínútur.
Sölt karamella
4 msk möndlu- eða hnetusmjör (eða 50/50 möndlu og hnetusmjör) 2/3 dl kókosolía 1 ¼ dl hlynsíróp 6 döðlur, smátt saxaðar 1 tsk sjávarsaltflögur Setjið allt í blandara eða matvinnsluvél og blandið vel saman.
Uppskrift eftir Sollu uppskrift 2021
Framhald á næstu síðu
Rjómi 1 peli jurtarjómi 50g 71% súkkulaði frá Himneskt, brætt yfir vatnsbaði
Aðferð Þeytið jurtarjómann. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Kælið súkkulaðið í smá stund og hrærið síðan saman við rjómann.
Glassúr 50g jurtasmjör/jurtasmjörlíki 150g flórsykur 3 msk kakóduft – má líka nota 3 msk brætt 71% súkkulaði ½ tsk vanilla ½ tsk sjávarsaltflögur
Aðferð
Bræðið jurtasmjörið og hrærið restinni af hráefnunum út í. Skerið nú hverja bollu í tvennt, smyrjið karamellu á neðri helminginn, setjið væna skeið af súkkulaðirjóma og smyrjið glassúr á lokið.