HEIMILISPÓSTURINN Heimilisblað Grundar, Áss og Markar 54. árgangur
desember 2018
g e l i ð e Gl ól j
4. tölublað
Efnisyfirlit Eftirvænting liggur í loftinu ................................................................ 3 Pólitík, hlátrasköll og önnur skemmtilegheit.................................... 5 Heimiliskonur og starfsfólk útbjuggu margar gjafir...................... 6 Ég hef séð um að skreyta frá því ég var barn . ................................... 8 Jólalögin og heitt súkkulaði................................................................ 13 Spesíur og engifer kökur..................................................................... 14 Kom sér vel þegar vantaði nýja grjónapúða...................................... 16 Unnið með steina, pappír, blek og veggfóðurslím............................. 18 Harðangur og klaustursaumur í uppáhaldi....................................... 20 Samvera á jólaföstu.............................................................................. 23 Handsmíðuð jólatré og heimareykt hangikjöt.................................. 24 Kiddi reddar öllu................................................................................... 27 Samvinnuverkefni að skreyta vegginn í Mörk.................................... 28 Styttist í aldarafmæli heimilisins........................................................ 30 Jólaminningar rifjaðar upp og skipst á uppskriftum....................... 32 Hátíðleg stund í aðdraganda jóla....................................................... 34 Forseti Íslands ræddi við gesti og Sóley söng................................. 36 Skreytt fyrir jólin................................................................................. 38 Heitt súkkulaði vakti mikla hrifningu.................................................. 40 Jólahugvekja og glerlistaverk............................................................ 41 Bernskujól og jólasálmar................................................................... 42 Börn og heimilisfólk skreyta saman jólatréð................................... 44 Heklað, prjónað eða bara spjallað og púslað................................... 46 Fær alla til að brosa.............................................................................. 48
Forsíðumyndina tók Steinunn Agnarsdóttir af Guðrúnu, Sólveigu og Sigurveigu sem vinna á heimilinu Langholti í Mörk. Ritstjóri: Guðbjörg R. Guðmundsdóttir. Hönnun og uppsetning: Írena Dögg McCabe. Prentun: GuðjónÓ. Upplag: 1600. 2 Heimilispósturinn
Jólahugvekja 2018
Eftirvænting liggur í loftinu Guð er eilíf ást, engu hjarta‘ er hætt. Ríkir eilíf ást, sérhvert böl skal bætt. Lofið Guð, sem gaf, þakkið hjálp og hlíf. Tæmt er húmsins haf, allt er ljós og líf.
S
vo kveður Sigvaldi Kaldalóns í sálminum Gleð þig særða sál. Þessi fallegi jólasálmur hefur snert hjörtu margra Íslendinga í gegnum tíðina og er sunginn á aðfangadegi jóla í kirkjum landsins. Guð er eilíf ást, er kjarnaboðskapur kristinnar trúar og er aldrei jafn áþreifanlegur og nú þegar við undirbúum okkur fyrir fæðingu frelsarans. Jesús kom til eignar sinnar á jólum til þess að við mættum þekkja hinn kærleiksfulla Guð sem lætur sér annt um sköpun sína. Já, Guð er eilíf ást, engu hjarta er hætt. Á jólum sópar hann burt sortans svið og við tekur hið eilífa ljós, ljós lífsins sem er andstæða alls þess sem mætir okkur í hinum miskunnarlausa heimi. Kristur er ljósið sem skín í myrkrinu og gefur vonina, ljósið sem skín í myrkrinu. Þegar allt virðist vonlaust er gott að setja traust sitt á góðan Guð sem gefur okkur vonina. Aðventan er yndislegur tími, svo fullur af lífi og spennu. Alls staðar er fólk á ferli að undibúa jólin. Dimmasta tímabil ársins er baðað jólaljósum í öllum regnbogans litum. Á hverju heimili er um þessar mundir, búið að skreyta og setja upp gamalt skraut og nýtt. Jólin er tími hefða, hvað varðar bæði skraut og mat. Eftirvæntingin liggur í loftinu og tilhlökkun mikil bæði hjá börnum og fullorðnum, af ólíkum ástæðum þó. Börnin hlakka Heimilispósturinn
3
Jólahugvekja 2018 til gjafanna á meðan við sem eldri erum tökum inn tónlistina, ilminn og stemmninguna sem liggur í loftinu. Við minnumst liðinna jóla og þeirra sem við deildum jólunum með hér á árum áður. Þökkum það sem þegið hefur verið frá almættinu. Gleymum ekki að aðventan er tími undirbúnings, tími íhugunar. Gleymum ekki boðskapi jólanna, fæðingu frelsarans sem kom til eignar sinnar. Kristur er að koma með sinn kærleika og frið, frið sem fyllir heimili okkar þegar ró færist yfir á jólanótt. Í dag er glatt í döprum hjörtum, því Drottins ljómar jól. í sorta lífsins kemur ljós heimsins. Hið sanna ljós, sem upplýsir hvern mann, kom nú í heiminn, segir í jólaguðspjalli Jóhannesar. Jólin snerta marga strengi hjá okkur öllum. Sumir geyma barnið innra með sér og hlakka til jóla, á meðan aðrir fara með blendnum tilfinningum inn í jólahátíðina. Sumir eiga slæmar minningar frá jólum fyrri ára og kvíða jólanna. Á jólum minnumst við liðinna ára og eflaust eru það einhverjir sem syrgja það sem var og getur aldrei orðið aftur. Þá er gott að líta til baka og leyfa minningunum björtu og fögru að ylja okkur. Hverjar sem aðstæður okkar kunna að vera þá vill Kristur deila jólunum með okkur. Með birtu sinni og yl getur hann glatt hin döprustu hjörtu ef við opnum gáttina og hleypum honum inn. Guð gefi þér og ástvinum þínum gleði og friðar jól. Auður Inga Einarsdóttir heimilisprestur Grundar. 4
Heimilispósturinn
Herrarnir á Grund hittast
Á
Pólitík, hlátrasköll og önnur skemmtilegheit
Grund er blómlegt klúbbastarf og auk saumaklúbba er herrakaffið mjög vinsælt. Þá hittast karlarnir og skeggræða allt milli himins og jarðar. Tvær konur fá náðarsamlegast að vera með í selskapnum, þær Katla Kristvinsdóttir iðjuþjálfi og sr. Auður Inga Einarsdóttir heimilisprestur. Þær skipuleggja uppákomurnar og halda utanum selskapinn. Síðast þegar heimilismenn hittust var umræðuefnið síðari heimsstyrjöldin og aðdragandi fullveldisins. En það var líka slegið á létta strengi, hlegið og gantast.
Heimilispósturinn
5
Ás tók þátt í verkefninu Jól í skókassa
H
Heimiliskonur og starfsfólk útbjuggu margar gjafir
eimiliskonur í Ási og starfsfólk iðjuþjálfunar lögðust á eitt við að fylla 17 skókassa og útbúa þannig jólagjafir fyrir verkefnið Jól í skókassa. Gjafirnar fá börn í Úkraínu í janúar en þá er haldið upp á jólin þar í landi. Þetta er í fyrsta skipti sem Ás tekur þátt í þessu verkefni og það ríkti mikil stemmning þegar verið var að finna til og raða í kassana. Þegar búið var að fara með skókassana í Selfosskirkju, var farið til Almars bakara í Sunnumörk og „skálað” í kaffi.
Glaðbeittur hópur með jólagjafirnar.
6
Heimilispósturinn
Ás tók þátt í verkefninu Jól í skókassa
Alls voru útbúnir sautján jólakassar í Ási.
Þegar búið var að skila skókössunum skelltu stöllurnar sér á kaffihús.
Heimilispósturinn
7
Jólabarnið Sigvaldi Friðgeirsson
Ég hef séð um að skreyta frá því ég var barn
Þ
að fer ekkert á milli mála hvaða hátíð er í vændum þegar litið er upp í gluggann hjá Sigvalda Friðgeirssyni lögfræðingi sem býr í þjónustuíbúð á Suðurlandsbraut 60. Hann kemur kankvís í jólapeysunni til dyra þegar Guðbjörg R. Guðmundsdóttir bankar upp á til að skoða hvernig hann skreytir fyrir jólin. Það er óhætt að segja að allt sé skreytt hátt og lágt því auk þess sem ljósaseríur eru í gluggum eru jóladúkar á borðum og jólasveinarnir, Grýla og Leppalúði, hafa komið sér fyrir á ýmsum stöðum í íbúðinni. Þetta er sannkallað jólaland og Sigvaldi segir hvatann hafa verið að setja þetta upp fyrir barnabörnin en seinni konan hans Hólmfríður Þorvaldsdóttir átti fjögur börn þegar þau kynntust og börnin þeirra hafa kunnað að meta jólaskrautið í áranna rás. Dætur Sigvalda frá fyrra hjónabandi og barnabörnin búa í Bandaríkjunum.
Öll íbúðin hans Sigvalda er skreytt.
8
Heimilispósturinn
Jólabarnið Sigvaldi Friðgeirsson
Allt jólaskrautið á vísum stað Hann er meðal annars með skraut frá sínu bernskuheimili og svo eitthvað sem hefur safnast upp um árin eins og hann orðar það. Yngri dóttir hans í Bandaríkjunum hefur verið dugleg að senda á pabba sinn ef hún hefur rekist á eitthvað sniðugt jólaskraut. En er þetta ekki óhemju vinna, að setja upp allt þetta skraut og jólaljósin? „Nei, það get ég nú ekki sagt. Þegar ég flutti hingað 2011 var þetta kannski pínulítil vinna, spurning um að skipuleggja hvernig þetta ætti að vera, setja up krækjur og króka fyrir seríur og síðan geng ég vel frá skrautinu að jólum loknum og geng að öllu vísu þegar aðventan gengur í garð á ný. Ég er ekkert að flýta mér við þetta heldur dunda mér fyrsta hálfa mánuðinn af aðventunni við að koma þessu upp. Síðast skreyti ég svo jólatréð sem ég hef í sólstofunni.“ Heimilispósturinn
9
Jólabarnið Sigvaldi Friðgeirsson
Þessir þrír eru frá æskuheimili Sigvalda.
Knoll og Tott eiga sinn vísa stað En hefur Sigvaldi alltaf haft áhuga á jólaskreytingum? „Það má kannski segja það. Strax sem barn fór ég að taka að mér að setja upp skraut á mínu æskuheimili og seinna meir að laga seríur og halda skrautinu við. Ég er einmitt með þrjár jólastyttur hérna hjá mér núna sem voru á mínu æskuheimili, Gamli Nói og Knoll og Tott. Það skraut er örugglega jafn gamalt mér“, segir hann en í febrúar verður Sigvaldi áttræður. Hann er ættleiddur af föðurbróður sínum Friðgeiri Björnssyni og konu hans Soffíu Ingólfsdóttur því foreldrar hans dóu þegar hann var nokkurra ára. Hann var eina barn Friðgeirs og Soffíu sem voru komin af léttasta skeiði þegar þau ættleiddu hann. Fjölskyldan bjó á Hringbraut alla tíð þar sem Sigvaldi bjó reyndar í meira en hálfa öld. „Þetta var fjölskylduhús, foreldrar mínir áttu þar þrjár íbúðir 10
Heimilispósturinn
Jólabarnið Sigvaldi Friðgeirsson
Í raun alls óviðkomandi jólaviðtali en við urðum bara að birta þessa mynd líka. Hér er Sigvaldi við 28 ára gamlan bíl sinn sem bilar aldrei og fer með hann um land allt, hvernig sem viðrar. Þetta er Ford Econoline en lengi voru þetta mjög vinsælir bílar í ferðalög. Sigvaldi veit fátt skemmtilegra en fara á honum á fjöll og í ófærð t.d. að skrönglast yfir óbrúaðar ár. Bílinn útbjó hann að innan sem húsbíl og þar getur hann sofið og eldað á ferðum sínum.
og þar bjuggum við öll, amma og afi og ég þegar ég byrjaði að búa og jafnvel skyldmenni sem þurftu íbúð í stuttan tíma“. En Sigvaldi bjó ekki bara lengi á sama stað hans ævistarf var líka á einum og sama staðnum, hjá tollinum. Þar starfaði hann sem skrifstofustjóri og staðgengill tollstjóra í fjörtíu ár. Er jólahaldið hefðbundið? „Í dag er það á rólegum nótum. Ég fer í jólaboð og stundum borða ég jólamat í Mörk líka. Barnabörnin eru orðin stálpuð og Heimilispósturinn
11
Jólabarnið Sigvaldi Friðgeirsson koma ekki eins mikið og áður, svona eins og gengur og gerist og ég er orðinn latur að bjóða fólki heim. En ég er jólabarn og hef alltaf verið svo lengi sem ég man eftir mér.“
Þennan jólalega viðgerðarkall fékk Sigvaldi að gjöf enda sjálfur þúsund þjala smiður.
12
Heimilispósturinn
Gangasöngur á aðventunni
Þ
Jólalögin og heitt súkkulaði
að er áralöng hefð í Grunnskólanum í Hveragerði að vera með gangasöng á aðventunni og það er alltaf svo hátíðlegt þegar nemendur og gestir koma saman og syngja jólalögin. Nemendur skólans héldu líka góðgerðardag og seldu ýmsar afurðir sem unnar höfðu verið á góðgerðardögum skólans. Í ár var safnað fyrir samtökin Birtu. Það eru félagasamtök fyrir foreldra sem hafa misst barn í slysi eða veikindum. Heimiliskonan Guðrún Sveinsdóttir, Dúna, skellti sér á opna gangasönginn með Kolbrúnu félagsliða.
Heimilispósturinn
13
Jólabakstur á Litlu og Minni Grund
E
Spesíur og engifer kökur
inn morgunn fyrir skömmu ómaði jólatónlist úr matsalnum á Litlu Grund og bakstursilm lagði um húsið. Heimilismenn og starfsfólk sat við að baka smákökur til að hafa með kaffinu þann daginn. Það er Katla Kristvinsdóttir iðjuþjálfi sem kemur með færanlegan bakstursofn á deildar heimilisins fyrir jólin og stendur fyrir þessum jólalegu stundum. Það er ekki bara að það sé gaman að baka saman heldur líka að deila baksturssögum og uppskriftum. Það bætast svo alltaf fleiri við um leið og kökurnar koma úr ofninum til að smakka nýbökuðu spesíurnar og engiferkökurnar.
Anna og Hjörtný að baka engiferkökur.
14
Heimilispósturinn
Jólabakstur á Litlu og Minni Grund
Bakstursilm leggur um húsið og bestar eru kökurnar nýbakaðar.
Valborg, Guðlaug og Stefanía stilltu sér upp fyrir myndatöku.
Heimilispósturinn
15
rúmlega hálfrar aldar gömul saumavél
Kom sér vel þegar vantaði nýja grjónapúða
Þ
egar farið var að sjá verulega á grjónabökstrunum í iðjuþjálfuninni í Mörk, gerðu þær Ása L. Axelsdóttir og G. Lilja Benjamínsdóttir sér lítið fyrir og saumuðu nýja, og ekki þar í kot vísað því Ása er kjólameistari að mennt. Til verksins var auðvitað notuð saumavélin sem heimilinu áskotnaðist nýlega. Vélin er gjöf frá Gróu Guðnadóttur kjólameistara sem býr í þjónustuíbúðum Markarinnar. Vélin hefur verið í eigu Gróu frá árinu 1963 og er enn í fínu lagi. Þegar hún fór að ræða um það við Kristmann Magnússon, sem býr líka í þjónustuíbúð Markarinnar, að hún hefði ekki þörf lengur fyrir vélina góðu lagði Kristmann til að hún gæfi iðjuþjálfun gripinn. Og nú kom þessi góða gjöf sér aldeilis vel þegar grjónapúða var farið að vanta á heimilið.
Gróa að segja frá saumavélinni.
16
Heimilispósturinn
rúmlega hálfrar aldar gömul saumavél
Kristmann Magnússon eigandi Pfaff hélt tölu við tækifærið.
Það var boðið í kaffi eftir afhendingu saumavélarinnar.
Heimilispósturinn
17
Listasmiðja fyrir heimilismenn í Ási
Unnið með steina, pappír, blek og veggfóðurslím
Í
byrjun nóvember buðu indversku hjónin, Baniprosono og Putul, heimilisfólki Áss að taka þátt í listasmiðju. Hjónin eru Sunnlendingum að góðu kunn enda er þetta í níunda skipti sem þau sækja landið heim. Oft hafa þau boðið íbúum Hveragerðis upp á skemmtilegar listasmiðjur og nú voru það heimilismenn í Ási sem voru svo heppnir að fá að njóta. Unnið var með steina, pappír, blek og veggfóðurslím. Það var greinilegt að fólk naut þess að taka þátt í þessari sköpunarvinnu. Svona til gamans má í lokin geta þess að Baniprosono er 86 ára og kona hans 80 ára.
Þorsteinn Karlsson við vinnu í listasmiðjunni.
18
Heimilispósturinn
Listasmiðja fyrir heimilismenn í Ási
Putul og Ásgerður Sigurbjörnsdóttir að bjastra.
Hér eru hjónin að kveðja heimilisfólki.
Heimilispósturinn
19
Hún er 98 ára og enn að alla daga
Harðangur og klaustursaumur í uppáhaldi
K
ristjana Jónsdóttir mætir daglega á vinnustofu Grundar og segir að sér líði vel þegar hún er að vinna eitthvað í höndunum. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir skoðaði undursamlega nálapúða, falleg barnateppi og handunnar jólagjafir sem bíða innpakkaðar uppi í skáp. „Ég hef alltaf verið fyrir handavinnu og saumað, prjónað og heklað um árin. Núna eftir að ég kom á Grund hekla ég gjarnan og svo átti ég efni til að vinna nálapúða úr harðangri og klaustri svo það er ég líka að fást við núna“, segir hún og brosir blíðlega þegar ég inni hana eftir handavinnunni. Hún flutti á Grund á þessu ári en segist hafa verið kunn heimilinu því bæði amma hennar og systir voru þar heimiliskonur. En hvar er hún alin upp? „Við bjuggum í minni æsku á Bjargarstígnum. Við systkinin voru fimm og pabbi minn, Jón Kristjánsson, dó ungur af slysförum, svo mamma mín, Jóna Jónsdóttir, vann myrkra á milli við fiskvinnslu til að láta hlutina ganga upp. Elsta systir mín, Anna Svava, sem bjó síðustu árin sín á Grund, sá um okkur sem yngri vorum. Hún gerði það einstaklega vel og í raun fórnaði hún sinni skólagöngu fyrir okkur systkini sín.“
20
Heimilispósturinn
Hún er 98 ára og enn að alla daga Fékk volgar kleinur á Grund á Sauðagerðistúninu. Kristjana segir að jólin í bernsku hafi verið góð. „Það var nægur matur á borðum og bakað til jólanna og alltaf séð til þess að við fengum einhverja pakka“, segir hún og síðan var dansað í kringum jólatré og sungið. „Á jóladag fórum við svo öll í mat til föðursystur minnar, sem var okkur alla tíð góð.“ Hún lætur líka almennt vel af æsku sinni og minnist m.a. í spjalli okkar á að hún hafi á sínum tíma komið á Grund þegar heimilið var á Sauðagerðistúni við Kaplaskjólsveg. „Þá var það frænka vinkonu minnar sem sá um matseldina þar og við skottuðumst þetta frá Bjargarstígnum og vestur á Kaplaskjólsveg. Þar var tekið afskaplega vel á móti okkur og ég man sérstaklega eftir því þegar okkur voru boðnar volgar kleinur.“ Heimavinnandi með fimm gaura Þegar Kristjana giftist flutti hún í Skerjafjörð. Hún eignaðist fimm stráka með eiginmanni sínum Ólafi B. Finnbogasyni og það var oft fjör á heimilinu. Hún segist hafa verið heima með þá þegar þeir voru litlir en fór svo að vinna við hlið eiginmannsins en þau stofnuðu og ráku Pennaviðgerðina sem var fyrst til húsa í Vonarstræti og síðan í Ingólfsstræti og margir muna eflaust eftir. Þau hjónin fluttu síðan á Seltjarnarnesið, fyrst á Kirkjubraut og síðan í Eiðismýrina. „Ég uni mér vel hér á Grund. Það er hugsað vel um fólkið hérna, maturinn er góður og ég hef nóg við að vera.“ Heimilispósturinn
21
Hún er 98 ára og enn að alla daga En hvernig ferðu nú að því að halda þér svona unglegri, 98 ára gömul. Þetta finnst henni fyndin spurning en eftir smá umhugsun segir hún: Ég hef ekkert sérstakt gert en það er þá kannski helst að ég synti töluvert hér áður fyrr. Það er það eina sem mér dettur í hug.“
Stóll sem Kristjana saumaði út.
Harðangur og klaustur nálapúði.
22
Heimilispósturinn
Jólaföndur
Í
Samvera á jólaföstu
aðdraganda aðventunnar fara heimilismenn að föndra fyrir heimilin í Mörk og fyrir þessa aðventu voru það til dæmis bjöllur og körfur sem búið var til. Það fylgir því alltaf notaleg stemmning að sitja og föndra, hlusta á jólalög en ekki síður að segja frá jólasiðum í uppvexti og á fullorðinsárum, rifja upp gamlar og góðar minningar sem ylja í skammdeginu.
Heimilispósturinn
23
Mín bernskujól
Handsmíðuð jólatré og heimareykt hangikjöt
Ó
lafur Guðbjörn Pétursson óst upp við að fá vettlinga eða sokka í jólagjöf og heimareykt hangikjöt var jólamaturinn. Kolbrún Ósk Guðmundsdóttir spjallaði við Óla bónda eins og hann er jafnan kallaður í Hveragerði og spurði út í æskujólin hans. Óli er fæddur snemma sumars 1929 og hefur reynt ýmislegt á langri ævi. Hann ólst upp á bæ sem heitir Stóra Tunga á Fellsströnd á kreppuárunum. Hvernig var að alast upp á þessum árum? „Við krakkarnir vissum eiginlega ekkert að því. Það var alltaf til nóg að borða en mamma var hálf óánægð því hún átti ekki aðrar buxur til að klæða mig í á sunnudögum. Sem dæmi um tíðarandann þá voru eitt sinn gömul hjón sem komu til tengdadóttur sinnar, hún var ein því maðurinn hennar var látinn. Þar var lítil stelpa sem var bara klædd í pils og átti engar buxur. Gömlu hjónin fóru heim og prjónuðu sitt hvora skálmina á buxur á barnið og settu þær síðan saman og fóru svo með buxurnar og færðu barnið í. Svona var þetta. Það var samheldnin sem hélt þessu fólki gangandi.“ Hrís og lyng í reykinguna Óli segir að aðventan hafi verið með öðruvísi sniði en nú þekkist. „Það var ekki eins mikið gert úr jólunum eins og er í dag því það var ekki til mikið á þessum árum. Þetta voru kreppuárin. Fólk fékk nýja sokka eða vettlinga og jafnvel nýja peysu í jólagjöf, allt prjónað heima. Jólamaturinn var heimareykt hangikjöt. Í reykinguna heima var oft notaður hrís og lyng og 24
Heimilispósturinn
Mín bernskujól það gaf góðan reyk. Það var opinn eldur í miðjum kofanum og svo var sett járnplata yfir eldinn þá logaði ekki uppúr en reykurinn kom undan plötunni.“ Jólin á Ytrafelli Honum eru sérstaklega minnisstæð jólin árið 1936. „Þann 14.desember 1935 þá ferst bóndinn frá Ytrafelli og tveir uppeldissynir hans. Ytrafell var slægjulítil jörð og þegar þeir tóku hrútana frá á haustin fóru þeir með þá út í eyjar. Þann 14. desember voru þeir að sækja hrútana og það gerði á norðan áhlaup og þeir fundust aldrei en báturinn fannst. Og þá fór Guðmundur föðurbróðir minn að Ytrafelli um vorið og Inga systir hans og Þorsteinn bróðir minn. Svo fór ég um haustið. Þá hafði Guðmundur föðurbróðir minn farið út í hólm og hann smitaðist af einhverri pest, hvort það voru mislingar og þá gat ég ekki farið heim og var þarna um jólin.“ Jólatrésskemmtun í samkomuhúsinu Jólatré var ekki til á heimili Ólafs þegar hann var lítill en svo var farið að smíða jólatré og setja kerti og skrautpappír á þegar hann varð eldri. „Þessi jólatré, sem voru smíðuð, voru bara lítil og sett á borð en ekki svona stór eins og er í dag. Þau eru í dag óþarflega stór. Það var ekkert dansað í kringum jólatréð heima en það var alltaf haldin jólatréskemmtun í samkomuhúsinu eftir árið 1950.“ Óli gekk í hjónaband 17. júní 1965. Eiginkona hans var Jóna Erla Ásgeirsdóttir, sem gekk alltaf undir nafninu Erla. Hún átti þrjú börn frá fyrra hjónabandi, Magnús Kjartan, Hólmfríði og Önnu Elínu. Óli og Erla eignuðust tvö börn, Pétur og Evu Maríu. Þau voru svo með sumarstrák sem heitir Helgi B. Ingólfsson sem Óli segir að sé uppeldissonur þeirra hjóna, því hann var hjá þeim ellefu sumur. Þau bjuggu á Stóru Tungu þangað til þau fluttu í Hveragerði í kringum síðustu aldamót. Þá var verðið á einbýlishúsi svipað og blokkaríbúð í bænum. Erla lést í fyrra og þá hóf Óli að koma í dagdvöl í Bæjarás og flutti svo á Ás á þessu ári. Heimilispósturinn
25
Mín bernskujól Jólahald með hefðbundnum hætti Hann segir að jólahaldið hafi verið með hefðbundnu sniði hjá fjölskyldunni þegar þau bjuggu á Stóru Tungu. Við höfðum alltaf heimareykt hangikjöt og svo stundum nýtt kjöt í matinn á jólunum. Og eitthvað var bakað af smákökum. Stundum voru þau með gervijólatré og stundum lifandi en yfirbragð jólanna var rólegt. Í lokin get ég ekki á mér setið og spyr Óla af hverju hann sé alltaf kallaður Óli bóndi hér í Hveragerði? ,,Það var Jónas Birgisson, systursonur þeirra Steina og Eddu sem byrjaði að kalla mig Óla bónda og það festist við mig þannig að það þekkja mig margir sem Óla bónda og mér finnst það bara allt í lagi“.
Óli og Erla á góðri stund.
26
Heimilispósturinn
Lífið á Grund
A
Kiddi reddar öllu
llir sem búa á Grund eða þar starfa þekkja Kidda. Hann er sannkallaður reddari hér á heimilinu. Einn daginn var ekki nógu gott lag á endurvinnslutunnunum og rusl ekki ratað á réttan stað. Kiddi kunni ráð við því. Sumum brá hinsvegar þegar hann stökk uppúr grænu tunnunni.
Heimilispósturinn
27
Föndrað fyrir jólin
Samvinnuverkefni að skreyta vegginn í Mörk
S
ú hefð hefur skapast í Mörk að heimilisfólkið skreytir vegginn á fyrstu hæð heimilisins. Oft ráða árstíðirnar ríkjum þegar verið er að skreyta eða stórhátíðir. Nú fyrir aðventuna ákváðu heimilismenn og starfsfólk vinnustofunnar að stórt jólatré skyldi prýða vegginn. Í nokkrar vikur stóð yfir undirbúningur í vinnustofunni. Það er svo alltaf sérstök stemmning þegar verið er að koma listaverkunum upp á vegg.
28
Heimilispósturinn
Föndrað fyrir jólin
Hópurinn sem stóð að eða fylgdist með uppsetningunni.
Heimilispósturinn
29
Foreldra- og afmæliskaffi í hátíðasal
Styttist í aldarafmæli heimilisins
G
rund fagnaði 96 ára afmæli sínu þann 29. október sl. Upp á það var haldið í hátíðasal heimilisins fyrir skömmu. Forstjóri heimilisins, Guðrún B. Gísladóttir flutti ávarp, Grundarkórinn söng nokkur lög og Una Dóra Þorbjörnsdóttir söng einsöng. Í afmæliskaffinu var að venju minnst brúðkaupsdags hjónanna Guðrúnar Sveinsdóttur og Jóns Helgasonar frá Steinum. Forsagan að því er að árið 1924 kom Sveinn Jónsson að máli við stjórn Grundar og tjáði að hann og systkini hans vildu gefa eitt þúsund krónur í byggingarsjóð Grundar en í staðinn yrði ávallt haldið upp á brúðkaupsdag Guðrún B. Gísladóttir, forstjóri foreldra þeirra. Grund heldur Grundar flutti ávarp. gjarnan í gamlar hefðir ef þær eru skemmtilegar og þetta er ein þeirra sem enn í dag er við lýði.
Grundarkórinn söng nokkur lög.
30
Heimilispósturinn
Foreldra- og afmæliskaffi í hátíðasal
Heimiliskonurnar Jóhanna Guðrún Pétursdóttir og Herdís Tryggvadóttir.
Una Dóra Þorbjörnsdóttir söng einsöng en hún er dóttir Valdísar Viðarsdóttur sem starfar í vinnustofu Grundar.
Heimilispósturinn
31
Jólabakstur í Ási
Jólaminningar rifjaðar upp og skipst á uppskriftum
E
ins og á öllum betri heimilum eru bakaðar smákökur fyrir jólin í Ási. Stemmningin er alltaf notaleg þegar verið er að baka og heimilifólk rifjar upp jólaminningar og smákökur sem það bakaði eða voru bakaðar á heimili þess. Svo skiptist fólk auðvitað á uppskriftum. Að þessu sinni voru það súkkulaðibitakökur, kókostoppar, spesíur, engiferkökur og rúsínukókoskökur sem voru bakaðar. Þær sem þóttu bestar voru súkkulaðibitakökurnar og við stóðumst ekki mátið að fá uppskriftina.
32
Guðrún Sveinsdóttir og Perla.
Heimilispósturinn
Jólabakstur í Ási Heimsins bestu súkkulaðibitakökur uppskrift frá Love Taza 1 bolli smjör 1 bolli sykur 1 bolli púðusykur 2 stk egg 1 tsk vanilludropar 1 tsk matarsódi 2 tsk lyftiduft ½ tsk salt 3 ¼ bollar hveiti 1 bolli ( eða meira) súkkulaðibitar Hrærið smjörið mjúkt og kremkennt. Hrærið sykri og púðursykri saman við. Hrærið eggjum og vanilludropum saman við. Blandið þurrefnunum saman og hrærið þeim smátt og smátt saman við smjör/sykur blönduna. Hrærið súkkulaðibitum að lokum í deigið. Skiptið deiginum í um 30-35 bita og raðið á bökunarpappírsklædda bökunarplötu, bakið við 175°¨ í 8 – 10 mín.
Hjördís Elinorsdóttir, Una Runólfsdóttir og Árni Kolbrúnarson.
Heimilispósturinn
33
Aðventuhátíð í Mörk
Hátíðleg stund í aðdraganda jóla
Þ
að var hátíðlegt í Mörk þegar árlega aðventuhátíðin var haldin í byrjun desember. Búið var að skreyta sameiginleg rými og á heimilunum ellefu líka. Eftir að Gísli Páll Pálsson forstjóri hafði sett hátíðina hlýddu gestir á jólahugvekju Fjólu Haraldsdóttur djákna. Barnakór Varmárskóla söng jólalögin undir stjórn Guðmundar Ómars Óskarssonar og að hátíð lokinni var aðstandendakaffi á öllum heimilunum með tilheyrandi kræsingum.
Barnakór Varmárskóla söng jólalög.
34
Heimilispósturinn
Aðventuhátíð í Mörk
Gísli Páll Pálsson forstjóri í Mörk flutti ávarp í upphafi aðventuhátíðar.
Á heimilunum buðu heimilismenn, starfsfólk og aðstandendur í kaffi.
Heimilispósturinn
35
Iceland Airwaves á Grund
Forseti Íslands ræddi við gesti og Sóley söng
U
pphafsatriði Iceland Airwaves hátíðarinnar í nóvember fór að venju fram á Grund, í morgunstund heimilisins sem sr. Pétur Þorsteinsson stýrir. Margir gestir lögðu leið sína á heimilið til að vera viðstaddir þennan viðburð en heimilismenn og starfsfólk mætti líka. Eftir að Ísleifur Þórhallsson hafði sagt nokkur orð í upphafi stundarinnar tók forseti Íslands, hr. Guðni Jóhannesson, við og ræddi um mikilvægi tónlistar í daglegu lífi fólks. Það var svo tónlistarmaðurinn Sóley sem endaði þennan notalega morgun í hátíðasalnum með því að syngja og spila nokkur lög.
Hátíðasalurinn var troðfullur og hér er það sr. Pétur sem stjórnar morgunleikfiminni.
36
Heimilispósturinn
Iceland Airwaves á Grund
Forseti Íslands hr. Guðni Th. Jóhannesson flutti ávarp og ræddi mikilvægi tónlistar.
Sóley söng á sinn ljúfa hátt nokkur lög.
Heimilispósturinn
37
Jólalegt í Ási
Í
Skreytt fyrir jólin
byrjun aðventu er farið að skreyta og undirbúa komu jólanna í Ási, búa til aðventukransa og setja upp jólaseríur og strauja dúka og gardínur. Við fengum aðeins að kíkja á suma sem voru önnum kafnir við undirbúninginn.
Linda að strauja jólagardínur og dúka.
38
Heimilispósturinn
Jólalegt í Ási
Linda, Fanney og Kiddi skreyta allt hátt og lágt.
Kiddi leysir úr flækjunum.
Heimilispósturinn
39
Aðstandendur í Mörk bjóða í aðventukaffi
Þ
Heitt súkkulaði vakti mikla hrifningu
að er notalegt þegar aðstandendur koma og bjóða upp á eitthvað sem gleður og kætir. Dætur heimilismannsins Guðmundar Þorleifssonar, Guðrún Erla og Harpa, ákváðu að bjóða heimilisfólki í Langholti í aðventukaffi. Þær bökuðu vöfflur og hituðu súkkulaði við mikla ánægju heimilisfólksins. Svona stundir lífga upp á hversdaginn og eru gefandi fyrir alla, bæði aðstandendur og heimilisfólkið.
Erla, Harpa og Birgitta Heiða bökuðu vöfflur handa heimilismönnum.
40
Heimilispósturinn
Jólagleði í Mýrinni
Jólahugvekja og glerlistaverk
Þ
að hefur skapast hefð fyrir jólagleði í Mýrinni sem haldin var að þessu sinni í byrjun desember. Íbúar gæddu sér á góðum veitingum og Lilja Benjamínsdóttir flutti ljóð og Hafliði Hjartarson íbúaráðsmaður flutti jólahugvekju. Flutt var upptaka af kórsöng í sjónvarpinu og glerlistaverk afhjúpað. Það er Guðrún Steingrímsdóttir, sem býr í Mörkinni, sem gaf verkið sem nefnist Dropasteinar.
Dropasteinar, verkið sem Guðrún Steingrímsdóttir, gaf í Mýrina.
Heimilispósturinn
41
Aðventuhátíð á Grund
Í
Bernskujól og jólasálmar
upphafi aðventu hefur skapast sú hefð á Grund að vera með aðventuhátíð. Rúmlega hundrað manns mættu í hátíðasalinn og hlýddu á Halldór Blöndal flytja jólahugvekju þar sem hann rifjaði upp sín bernskujól fyrir norðan. Hrefna Björnsdóttir flutti jólasögu eftir Selmu Lagerlöf og Grundarkórinn söng jólasálma undir stjórn Kristínar Waage organista. Sr. Auður Inga Einarsdóttir fjallaði um aðventuna og sögu aðventukertanna á aðventustjakanum en kveikt var á fyrsta kertinu þennan fyrsta sunnudag aðventu.
Sr. Auður Inga Einarsdóttir heimilisprestur þjónaði fyrir altari og meðhjálpari var Kristinn Ómarsson.
Grundarkórinn söng jólasálma en stjórnandi kórsins er Kristín Waage organisti.
42
Heimilispósturinn
Aðventuhátíð á Grund
Hrefna Björnsdóttir las hugljúfa jólasögu.
Halldór Blöndal flutti hugvekju og rifjaði meðal annars upp sín bernskujól.
Heimilispósturinn
43
Kynslóðabilið brúað í Mörk
Þ
Börn og heimilisfólk skreyta saman jólatréð
að er ekki að sökum að spyrja að þegar litlar hendur og stórar hjálpast að verður útkoman yndisleg. Börnin í Steinahlið koma alltaf og skreyta með heimilisfólki jólatréð á fyrstu hæð Markar. Þau syngja, lita, skreyta og svo eru þau nærð með pylsum, mandarínum og grjónagraut. Allir sælir og saddir, ungir sem aldnir.
Bæði börnin úr Steinahlíð og heimilisfólkið njóta samverustundana.
44
Heimilispósturinn
Kynslóðabilið brúað í Mörk
Þegar búið var að skreyta tréð voru sungin jólalög.
Jólatréð í Mörk er dálítið öðruvísi skreytt því skrautið er aðallega neðarlega á trénu, eða þangað sem litlar hendur ná.
Heimilispósturinn
45
Vinnustofa Grundar
Heklað, prjónað eða bara spjallað og púslað
Þ
að styttir daginn að hafa eitthvað skemmtilegt fyrir stafni og heimilisfólki stendur til boða að koma í vinnustofu heimilisins alla virka daga. Sumir hafa gaman af handverki á meðan aðrir vilja frekar fletta blöðum, púsla eða spjalla. Eitt er víst að fólk nýtur samverunnar.
Valborg með myndina sem hún er að sauma út.
46
Heimilispósturinn
Vinnustofa Grundar
Ingibjörg Kristjánsdóttir elskar að púsla.
Það eru margar áhugaverðar bækur að glugga í fyrir áhugasama.
Heimilispósturinn
47
Starfsmaður í Mörk
S
Fær alla til að brosa
umir taka gleði á aðventu alla leið og það er ekki hægt annað en að brosa út að eyrum þegar Sarot Ananphiboon, starfsmaður í Mörk verður á vegi manns þessa dagana. Það meira að segja heyrist í skónum hans langa leið.
Hann er svo sannarlega jólalegur í vinnunni.
48
Heimilispósturinn