HEIMILISPÓSTURINN Heimilisblað Grundar, Áss og Markar 53. árgangur
g e l i ð e Gl ól j
desember 2017
4. tölublað
Efnisyfirlit Heimatilbúið jólaskraut ......................................................................... 3 Fyrsta Eden hjúkrunarheimilið á höfuðborgarsvæðinu.................... 4 Raggi Bjarna og rauður dagur.............................................................. 6 Tugir starfsmanna fengu viðurkenningu............................................. 8 Theódóra og Helgi bregða á leik..........................................................11 Engiferkökur og spesíur bakaðar fyrir þessi jól............................ 12 Hundruðir aðstandenda mættu ........................................................... 14 Lagtertur og vanilluhringir................................................................ 16 Aðventukransinn búinn til.................................................................... 18 Komið í ljós hverjir voru á myndinni................................................... 19 Kynning á nýjum íbúðum......................................................................... 20 Notaleg samverustund.......................................................................... 22 Fólk kunni að meta handgerða muni til jólagjafa............................. 23 Samstúdentar frá MR fyrir 78 árum................................................... 24 Fylgst er náið með fuglunum úr matsal Markar............................... 25 Reyktur selur í staðinn fyrir hangikjöt............................................ 26 Engin jól nema hafa möndlugraut....................................................... 32 Kynslóðir mætast................................................................................... 37 Afmælis- og foreldrakaffi................................................................... 38 Mæðgurnar fóru með Gunnarshólma................................................. 40 Feðgarnir Ásgeir Trausti og Einar Georg fóru á kostum.............. 41 Ás er yndislegur staður....................................................................... 42 Níræðar pjattrófur............................................................................... 44 Ný lyfta tekin í notkun........................................................................... 47 Skreytt í „kósíhorninu“......................................................................... 48
Forsíðumyndina tók Guðbjörg R. Guðmundsdóttir af Guðrúnu Hreinsdóttur og Sigurveigu Ólafsdóttur á heimilinu Langholti í Mörk. Ritstjóri: Guðbjörg R. Guðmundsdóttir. Hönnun og uppsetning:Írena Dögg McCabe. Prentun: GuðjónÓ. Upplag: 1500. 2 Heimilispósturinn
Jólaföndur á Mörk
M
Heimatilbúið jólaskraut
örk hefur á undanförnum vikum tekið á sig jólalegan blæ, búið er að skreyta hvern krók og kima, hengja skraut í glugga og búa til aðventukransa. Heimilisfólk hefur verið að búa til jólaskraut undanfarið, mála á kertakrúsir og gera pappírsjólatré úr afgangs jólapappír samkvæmt japönsku origami aðferðinni.
Jólatrén eru búin til úr afgangs jólapappír.
Heimilispósturinn
3
Mörk hlýtur alþjóðlega viðurkenningu
Fyrsta Eden hjúkrunarheimilið á höfuðborgarsvæðinu
M
örk hjúkrunarheimili við Suðurlandsbraut 66 hefur nú hlotið alþjóðlega viðurkenningu sem Eden heimili og er það fyrsta heimilið sunnan heiða sem hlýtur þessa alþjóðlegu viðurkenningu. Vottunin gildir í tvö ár í senn og þurfti heimilið að standast ítarlega úttekt á ýmsum þáttum starfseminnar til að fá þennan gæðastimpil. Eden Alternative er alþjóðleg hugmyndafræði sem hjúkrunarheimili víða um heim vinna eftir. Þegar heimilið var tekið í notkun árið 2010 var ákveðið að Mörk skyldi rekið í anda Eden hugmyndafræðinnar og hefur innleiðingarferlið staðið yfir síðan með markvissri þjálfun og fræðslu. Reglulega er starfsfólki boðið upp á Eden fræðslu og námskeið til að styrkja sig í leik og starfi og kunna skil á því í hverju það felst að vinna í anda hugmyndafræðinnar. Starfsfólk leitast við að styrkja sjálfræði heimilismanna og vinna gegn einmanaleika, vanmáttarkennd og leiða. Í Mörk eru ellefu vel út búin heimili þar sem tíu til ellefu heimilismenn búa saman á hverju þeirra. Heimilið er gætt lífi með reglulegum heimsóknum barna og ungmenna, gæludýr eru velkomin í Mörk og sjálfboðaliðar og velunnarar koma í heimsókn reglulega og stytta fólki stundir með ýmsum hætti. Mikið er lagt upp úr góðu og þéttu samstarfi við aðstandendur og þeir eru ávallt velkomnir í Mörk, því enginn kemur í staðinn fyrir þá.
4
Heimilispósturinn
Mörk hlýtur alþjóðlega viðurkenningu
Rannveig Guðnadóttir verkefnastjóri Eden alternative samtakana á Íslandi afhendir hér heimiliskonunni Birnu Björgvinsdóttur og Gísla Páli Pálssyni, Eden viðurkenninguna.
Gísli Páll Pálsson, forstjóri Markar, fór á öll heimilin ellefu í Mörk með viðurkenningarskjöl.
Heimilispósturinn
5
Pönnukökur og kótilettur
Raggi Bjarna og rauður dagur
R
aggi Bjarna kemur ávallt 1. desember á Grund og heldur tónleika í hátíðasal og allir hlakka til þegar þessi dagur nálgast. Þennan dag hefur einnig skapast sú hefð að klæðast rauðu, auðvitað til að fagna komu Ragga Bjarna og því að aðventan er að koma. Sannkallaður hátíðisdagur og eldhúsið toppar svo allt saman með því að bjóða uppá lambakótilettur og rjómapönnukökur í eftirmat.
Katla Kristvinsdóttir sem skipuleggur árlega heimsókn söngvarans er hér með Ragga Bjarna.
6
Heimilispósturinn
Pönnukökur og kótilettur
Það elska allir Ragga Bjarna, heimilisfólk og starfsfólk.
Hátíðasalurinn er alltaf troðfullur 1. desember þegar sá eini sanni mætir í heimsókn.
Heimilispósturinn
7
Starfsmannakvöld
S
Tugir starfsmanna fengu viðurkenningu
tarfsmannakvöld eru fastur liður hjá öllum heimilunum þremur Ási, Grund og Mörk og yfirleitt eru kvöldin haldin seinnihluta októbermánaðar. Upphafið má rekja til Grundar en þar hafa starfsmannakvöldin verið haldin í 82 ár eða allt frá árinu 1935. Það ár ákváðu stjórnarmenn og forstjórinn að hafa samkomu eða samsæti til að kynnast öllu starfsfólkinu og til að starsfólkið kynntist innbyrðis. Auðvitað eru starfsmannakvöldin með misjöfnu sniði á hverju heimili en á öllum heimilunum er þó alltaf spilað bingó, bornar fram glæsilegar veitingar og veittar starfsviðurkenningar fyrir 5, 10, 15, 20 ár í starfi og svo framvegis.
Að þessu sinni var met aðsókn á starfsmannakvöld Grundar.
8
Heimilispósturinn
Starfsmannakvöld
Hópurinn á Grund sem hlaut viðurkenningu fyrir 5 ára starf á heimilinu.
Gísli Páll Pálsson, forstjóri Markar veitir tveimur starfsmönnum Markar glæsileg bingóverðlaun.
Heimilispósturinn
9
Starfsmannakvöld
Hópurinn sem hlaut starfsviðurkenningar í Ási þetta árið.
Gísli Páll ásamt Arnfríði K. Ólafsdóttur og Heimi Konráðssyni sem létu af störfum á árinu.
10
Heimilispósturinn
Léttleikinn svífur yfir vötnum í Mörk
Theódóra og Helgi bregða á leik
T
heódóra Ólafsdóttir sem býr á heimilinu Álfheimum í Mörk þurfti að fá aðstoð hjá Guðmundi Helga Jónssyni, eða Helga eins og hann er alltaf kallaður, þegar aflbúnaður hafði gefið sig á stólnum hennar. Lilja Benjamínsdóttir, sem tók myndina, hafði á orði að Helgi væri alveg kolfallinn fyrir Dóru þar sem hann sat á gólfinu hjá henni og Dóra kunni bara vel að meta það.
Theódóra ásamt Guðmundi Helga Jónssyni.
Heimilispósturinn
11
Smákökubakstur á Grund
Engiferkökur og spesíur bakaðar fyrir þessi jól
Þ
að er ilmur af spesíum og engiferkökum sem berst um húsakynni Grundar þessa dagana enda heimilisfólk á öllum deildum sem er í gríð og erg að baka með starfsfólki vinnustofunnar. Og karlarnir eru engir eftirbátar kvennanna ef einhverjum skyldi þetta það í hug, þeir hafa gaman af bakstrinum og kunna sögur af kökugerðinni fyrir jólin í þeirra ungdæmi rétt eins og konurnar. Kökurnar eru svo með kaffinu nú á aðventunni.
Hjónin Skarphéðinn Pálmason og Kirstín O. Pálmason.
12
Heimilispósturinn
Smákökubakstur á Grund
Félagarnir Sigurjón Hreiðar Gestsson og Jónas Ásmundsson.
Guðný Guðjónsdóttir heimiliskona ásamt Ólöfu Selmu Bárðardóttur.
Heimilispósturinn
13
Opið hús á Grund
Í
Hundruðir aðstandenda mættu
nóvember var opið hús á Grund þar sem aðstandendum var boðið að koma og kynna sér það öfluga starf sem unnið er á heimilinu. Boðið var upp á kaffi, konfekt og nýbakaðar kleinur og þess má til gamans geta að kleinurnar sem voru bakaðar þennan morgun á Grund voru tvö þúsund talsins. Tónlistarsnillingarnir Dýri og Jón Ólafur gengu um húsið og léku á harmonikku og gítar. Hundruðir gesta mættu þennan dag í heimsókn og kynntu sér starfsemina. Frábær dagur sem tókst í alla staði vel. Takk fyrir komuna.
Margir heimsóttu sjúkraþjálfunina og skoðuðu þá meðal annars sundlaugina.
14
Heimilispósturinn
Opið hús á Grund
Jón Ólafur í essinu sínu.
Gestir kynntu sér iðjuþjálfun og skoðuðu vinnustofuna.
Heimilispósturinn
15
Alvöru bakstursdagur í Mörk
Þ
Lagtertur og vanilluhringir
að er óhætt að segja að allir hafi getað gengið á ilminn á fjórðu hæð Markar einn daginn í upphafi aðventu. Þar eru þrjú heimili, Réttarholt, Álfholt og Langholt sem ákváðu að hafa sameiginlegan bökunardag og var skellt í vanilluhringi. Heimiliskonan María, sem býr á Langholti á hakkavél sem hún lánaði í baksturinn og svo færði aðstandandi einu heimilinu hakkavél í fyrra sem kom að góðum notum núna enda var ekki lengi verið að vinna úr þrefaldri uppskrift. Heimilisfólk bakaði í Langholti en það voru þær Sigurbjörg Hildur, Erla, Ingunn og Magnea sem sáu um að búa til hringi. Á meðan bakaðir voru hringir var Marta að baka lagtertubotna og eftir hádegi var hrært í krem á öllum heimilum og botnarnir settir saman.
Samvinna hjá Sigurveigu og Sólveigu.
16
Heimilispósturinn
Alvöru bakstursdagur í Mörk
Hér hjálpast allir að við gerð vanilluhringja.
Jólalegt bakkelsi með vanilluhringjum og randalín.
Heimilispósturinn
17
Undirbúningur aðventu í Ási
Á
Aðventukransinn búinn til
ður en fyrsti sunnudagur í aðventu rann upp kannaði Fanney Björg Karlsdóttir iðjuþjálfi í Ási hvort heimilisfólk væri ekki til í að gera aðventukransa fyrir heimilið. Viðbrögðin voru bara jákvæð og góð og svo var hafist handa.
Aðventuskreyting í iðjuþjálfun Vesturási.
Arnheiður Magnúsdóttir og Helga Ásgrímsdóttir með krans sem þær gerðu.
18
Heimilispósturinn
Forsíða Heimilispóstsins
F
Komið í ljós hverjir voru á myndinni
orsíðumyndin á síðasta tölublaði Heimilispóstsins var af þremur heimilismönnum. Þá höfðum við ekki öll nöfnin. Í kjölfar útkomu blaðsins fengum við ábendingar sem leiddu til þess að nú vitum við nöfn allra þriggja. Þau heita Pjetur Illugason, Elín Aradóttir og Margrjet Sigvaldadóttir. Þegar myndin var tekin höfðu þau verið 10-13 ár á Grund en myndin birtist í Morgunblaðinu, sunnudaginn 29. sept. 1935 á fimm ára afmæli nýju Grundar við Hringbraut 50 sem þá var Hringbraut 150. Heimilismennirnir höfðu þá áður búið á Grund við Sauðagerðistún.
Heimilispósturinn
19
Íbúðir eldri borgara í Mörk
U
Kynning á nýjum íbúðum
pp úr miðjum janúar verða sýndar og kynntar nýjar íbúðir sem Íbúðir eldri borgara í Mörk ehf er að byggja, austan Markar, hjúkrunarheimilis að Suðurlandsbraut 68 - 70. Íbúðirnar eru frá 74 og upp í 102 fermetrar. Allar íbúðir eru með geymslu innan íbúðar og yfirbyggðar svalir. Fallegur og afgirtur garður verður í miðju húsanna og veitingaaðstaða vestan megin, rétt við tengiganginn yfir í hjúkrunarheimilið. Innangengt er úr öllum íbúðunum yfir í hjúkrunarheimilið með sambærilegum hætti og við eldri íbúðirnar. Þessar íbúðir verða seldar að 30% hlut, sem ÍEB ehf kaupir svo aftur af viðkomandi þegar hann flytur út að lokinni dvöl. Svipað fyrirkomulag og í eldri íbúðunum. Leigan verður frá 170 þúsund á mánuði auk hússjóðs sem verður um það bil 20 þúsund á mánuði. Bílastæði í bílskýli kemur til með að kosta rúmlega 13 þúsund á mánuði. Allir þeir sem eru á biðlistanum í dag, rúmlega 250 manns, verður boðið á þessar kynningar og í framhaldi geta síðan einstaklingar tryggt sér íbúð með greiðslu hluta ofangreinds kaupverðs.
20
Heimilispósturinn
Íbúðir eldri borgara í Mörk
Heimilispósturinn
21
Bakað í Ási
S
Notaleg samverustund
umum finnst jólin vera á næsta leyti þegar smákökuilmur fer að berast að vitum. Í Ási var nýverið verið að baka súkkulaðibitakökur og spjalla um daginn og veginn. Notaleg stund á aðventu. Súkkulaðibitakökur 100 g smjörlíki 100 g sykur 85 g púðursykur 1 egg 200 g hveiti 1 tsk . hjartasalt ¼ tsk. salt 100 gr suðusúkkulaði, saxað ½ bolli heslihnetur eða kókosmjöl ( bæði ef vill ) Öllu hnoðað saman og bakað við 200 gráðu hita í 10 – 12 mín
Smákökubakstur á hjúkrun. Erna Hannesdóttir og Unnur Baldvinsdóttir.
22
Heimilispósturinn
Jólabasar á Grund
Í
Fólk kunni að meta handgerða muni til jólagjafa
áratugi hefur verið haldinn jólabasar á Grund og svo var einnig nú í ár. Það var úrval handgerðra muna sem voru á boðstólum og vikurnar á undan voru heimilismenn að undirbúa með því að gera jólakerti, hekla tuskur, prjóna sokka og vettlinga og sauma út púða. Á basarinn mættu fjölmargir heimilismenn, starfsfólk, aðstandendur og velunnarar. Í tilefni 95 ára afmælisins var öllum boðið upp á kaffi og nýbakaðar vöfflur og að sögn Jóhanns Sveinssonar yfir matreiðslumanns heimilisins voru bakaðar á fjórða hundrað vöfflur þennan dag.
Hér eru heimiliskonur í vinnustofunni.
Heimilispósturinn
23
Vinátta á Grund
Samstúdentar frá MR fyrir 78 árum
Þ
að eru 78 ár síðan Hildigunnur Hjálmarsdóttir og Áslaug Ásmundsdóttir luku stúdentsprófi frá máladeild Menntaskólans í Reykjavík. Alls voru það um 50 nemendur sem útskrifuðust saman árið 1939, 28 af málabraut og 22 af stærðfræðibraut. Af stelpunum á málabraut eru þær tvær enn á lífi og ein önnur bekkjarsystir. Þegar þær luku stúdentsprófi stofnuðu bekkjarsysturnar saumaklúbb og því hafa Áslaug og Hildigunnur verið saman í saumaklúbbi í um 78 ár. Þær segjast reyndar ekkert sauma lengur en góðar vinkonur eru þær enn og sitja gjarnan saman hér á Grund og spjalla.
Vinkonurnar Hildigunnur Hjálmarsdóttir og Áslaug Ásmundsdóttir.
24
Heimilispósturinn
Hugsað um smáfuglana
Fylgst er náið með fuglunum úr matsal Markar
S
tarfsfólkið í eldhúsinu á Mörk hugsar ekki bara vel um heimilisfólk, starfsfólkið og íbúana í þjónustuíbúðum Grundar Markarinnar heldur hugsar það líka til smáfuglanna. Einn þröstur er búinn að eigna sér svæðið og rekur alla í burtu sem nálgast smjörstykkið hans. Það er gaman að fylgjast með smáfuglunum út um gluggann á matsal Markar á fyrstu hæðinni og sjá hvernig baráttan um smjörstykkið gengur fyrir sig.
Þessi er feitur og pattaralegur og rekur alla aðra fugla á brott.
Heimilispósturinn
25
Þrír heimilismenn ræða lífið og tilveruna
E
Reyktur selur í staðinn fyrir hangikjöt
infaldleiki, hlýjar minningar og stundum fátækt einkenndi jólahald hjá þessum herramönnum sem spjalla hér um daginn og veginn við Guðrúnu Lilju Jóhannsdóttur og Evu Björk Birgisdóttur.
Þessir eru hressir og alveg til í að setja upp jólaleg höfuðföt.
Okkur langaði svolítið til að byrja á því að spyrja ykkur hvar á landinu og hvenær þið fæddust? Guðjón J: „Ég er fæddur 1925 austur á Reyðarfirði í stóru og merkilegu húsi sem heitir Valhöll, og þess vegna er ég sjálfstæðismaður.“ Guðbrandur: „Ég er fæddur í Rúfeyjum á Breiðarfirði árið 1940 og átti fátæka foreldra og þess vegna er ég kommúnisti.“ 26
Heimilispósturinn
Þrír heimilismenn ræða lífið og tilveruna Ólafur: „Ég er fæddur í Reykjavík árið 1936 á Landspítalanum og þegar fram liðu stundir eignaðist ég fjölskyldu og fylgdist mikið með þjóðfélagsmálum og þess vegna hef ég tilheyrt sömu stjórnmálaskoðunum og hann Guðbrandur“ (mikil hlátrasköll viðstaddra). Moldargólf í eldhúsinu og pottur á hlóðum Áttuð þið heima í torfbæ eða steinhúsi? Guðbrandur: „Ég fæddist í torfbæ og átti heima þar til svona þriggja ára aldurs, þá fluttum við í timburhús. Alveg djöfulsins hjall.“ Guðjón J: „Maður er bæði nútímamaður og fornmaður“(mikil hlátrasköll viðstaddra og allir sammála). Guðjón J: „Ég fæddist ekki í torfbæ en ég bjó samt lengi í torfbæ. En þetta hús sem ég fæddist í var flott timburhús vestur á Reyðarfirði. Og svo fluttum við í sveit og þar sópaði maður moldargólfið í eldhúsinu og potturinn hékk í keðju yfir hlóðunum þar sem allur matur var soðinn.“ En þú Ólafur?: „Ég fæddist í glæsilegu steinhúsi, nýbyggðum Landspítalanum. Ólst ég svo upp í timburhúsi og eftir það alltaf í steinhúsum. En ég var í sveit á sumrin og það var torfbær.“ Vöfðum lyngi utan um spýtur En hvernig var með hefðir á ykkar heimili, eins og t.d. jólin? Guðjón J: „Jú maður fékk epli og appelsínur og kerti og spil. Svo höfðum við rjúpur á aðfangadag og hangikjöt á jóladag. En þegar ég flutti upp á Fljótsdalshérað þá var búið til spýtujólatré og við krakkarnir fórum út í skóg og týndum lyng og vöfðum utan um spýturnar og svo voru settar klemmur á spýturnar sem við settum kerti í og við kveiktum bara á þessu á aðfangadagskvöld, en þetta var nú mjög hættulegt og ekki haft kveikt á þessu mjög lengi. Svo var það til siðs að við fórum til skiptis á næsta bæ og þau komu til okkar á annan dag jóla og þá var spilað það sem kallað var púkk og svo var drukkið Heimilispósturinn
27
Þrír heimilismenn ræða lífið og tilveruna súkkulaði og borðuð randalín á eftir.“ Fjórtán börn á leigujörð Guðbrandur: Það voru nú svo margir krakkar heima því móðir mín átti 14 börn og jörðin var leigujörð og búskapurinn lítill, ekki nema 3 kýr og milli 30 og 40 kindur og það varð að lifa mest á sjávarfangi og hluninndum, en hlunnindi er fugl, allur dúnn fór í landsskuld en dugði oft ekki til og þá varð að nota selskinn upp í skuldina. En í sambandi við jólin þá var ekki hægt að hafa mikið við því þau voru svo fátæk, en það var reynt að hafa betri mat og eitt af því var reyktur selur sem kom í staðinn fyrir hangikjöt, og mér finnst reyktur selur eitt það albesta sem ég fæ. EB: „Reyktur selur, það hef ég nú bara aldrei heyrt um né smakkað.“ Guðjón J: En höfðuð þið ekki hangikjöt? Guðbrandur: „Stundum, en það var nú ekki alltaf til því þetta var svo lítið bú og það varð að leggja inn það sem hægt var, en náttúrulega var allt nýtt sem hægt var.“ Guðjón J: „Það var nú ekki alltaf kirkja nálægt og oft erfitt veðurfar til að fara til kirkju á þessum árstíma.“ En hjá þér Ólafur, hvernig voru jólin? „Ég ólst nú fyrst upp hjá afa mínum og mömmu og svo seinna mömmu og stjúpa mínum og það var nú ekki neinn munur þar á. Það var alltaf allt eins, jólagjafir af allskonar tagi þó helst leikföng. En ég hef sennilega verið svona um 10 ára gamall og upp frá því að ég fékk stafla af bókum í jólagjöf. En í mat var nú þetta venjulega, steikt kjöt á aðfangadag og hangikjöt á jóladag og ég man nú ekki alveg hvað var haft í eftirmat.“ Á ennþá jólagjöfina sem hann fékk 4. ára EB: Hangikjöt á jóladag er greinileg mjög gömul hefð? Allir viðmælendur eru sammála um það. Guðbrandur: Fyrsta jólagjöfin sem ég man eftir, þá hef ég verið 4 ára og ég á hana enn. Það eru jólavísur eftir Jóhannes 28
Heimilispósturinn
Þrír heimilismenn ræða lífið og tilveruna úr Kötlum. Ólafur : „Hún hefur verið endurútgefin aftur og aftur og ég hef alltaf séð um að barnabörnin mín eigi þessa bók.“ EB: „Hún er til á mínu heimili.“ Ísinn gaf sig og vinurinn faldi sig inni í skáp En er einhver æskuminning sem stendur upp úr? Guðjón J: Við vorum að leika okkur á skíðasleða út á firðinum en það var búið að vara okkur við að vera mikð á ísnum því hann væri ekki tryggur, nógu frosinn. En hvað um það við fórum tveir saman, ég og annar strákur sem var nú skæruliðinn í þorpinu og við förum þarna hjá kaupfélagsbryggjunni og ég var kominn dálítið langt út á fjörðinn því ég var nú svolítill glanni og vildi vita hvað ég kæmist langt á sleðanum. En þegar ég er komin dálítið langt út þá byrjar ísinn að sveiflast. Ég hef verið svona 11-12 ára gamall og hafði ekki vit á því að taka bara stóran hring til að snúa við heldur stoppa ég og ætla að snúa við en þá dúndrar allur ísinn niður. Ég man alltaf eftir þessu eins og það væri að ske í dag. Skæruliðinn sem var með mér var nú dálítið langt fyrir aftan og hann varð svo hræddur þegar hann sá mig hverfa að hann hljóp heim og faldi sig inn í skáp (mikil hlátrasköll viðstaddra). Það vildi svo vel til að þetta var um hádegisbilið, gott veður og mjög hljóðbært og nokkrir menn eru að koma inn í kaupfélag úr mat og þeir sjá að það er ekki allt með felldu og heyra hróp út á firði. Einn karlinn var með árabát og þeir komast með hann eftir ísnum út að vökinni og ég man eftir því að ég var alltaf að grípa í brúnina og gleypti sjó og sökk á milli. Ég man að mér leið voða vel áður en ég missti meðvitund. Að lokum komust þeir að mér og einn karlinn náði að teygja sig og grípa í húfuna mína sem var alpahúfa með svona eyrnaleppum og bundin undir hökunni og hann náði að toga mig upp í bátinn til þeirra. Þeir reyndu að dæla upp úr mér sjó á leiðinni í land og fóru svo með mig upp á kontór í kaupfélaginu og hringdu í lækninn sem var á Eskifirði. Heimilispósturinn
29
Þrír heimilismenn ræða lífið og tilveruna „Hann leiðbeindi þeim hvað ætti að gera við mig því ekki var mikið um að menn kynnu lífgunartilraunir á þessum tíma.“ Sá tófu í fyrsta sinn En þú Óli? „Það sem helst stendur upp úr er þegar ég var að reka kýrnar í Vogum í Mývatnssveit, þær voru reknar á svokallaðar Auðnir og þar sá ég tófu í fyrsta skipti. Ég vissi að það væri alltaf tófa þarna á ferli, svo ég hljóp í hendingskasti heim á bæinn til að segja frá en hún náðist náttúrulega ekkert. Svo er mér eitt annað minniststætt líka úr Reykjavík þegar ég var peyi og bjó með mömmu minni, áður en hún giftist stjúpa mínum þeim ágæta manni sem var smiður. Mamma vann við að sauma og sníða og hélt námskeið fyrir konur, hún bjó til stór og mikil munstur og mót úr pappír og var mjög vinsæl. Hún var kölluð Ína Björns. Ætli ég hafi ekki verið svona 10 ára þá sendi hún mig oft niður í Austurstræti til Jacobssen með litla tösku og ég átti að kaupa tvinna. Þetta var oft skemmtilegt.“ Yfirnáttúrulegt og ótrúlegt Guðbrandur: „Það er ein minning sem er mér ákaflega minnisstæð. Ég átti mjög erfitt með að sofna á kvöldin en þegar ég sofnaði þá sofnaði ég svo fast að það var eiginlega ógerningur að vekja mig. Þegar ég var um 9 ára gamall fór móðir mín suður til Reykjavíkur til lækninga og fóstri minn ákveður að fara að veggfóðra. Hann færir okkur krakkana, við vorum 5, yfir í annað herbergi og til að hafa ekki alveg myrkur hjá okkur, var höfð lítil týra. Það var tóbakskrukka sem gert var gat á lokið og kopar rör lá niður í krukkuna og kveikur gegnum rörið og það logaði á þessu svona eins og kerti. Í næsta rúmi við mig var strákur sem lét mjög ófriðlega í svefni, þó nokkuð mikil læti í honum en ég varð nú aldrei neitt var við það því ég svaf svo fast. Svo allt í einu eina nóttina þá bara vakna ég, bara glaðvakna og það kom aldrei fyrir. Þá hafði strákurinn velt týrunni um koll og hún var komin alveg rétt í veggfóðrið og það var byrjað að svíða það og ef þetta hefði fengið að loga 30
Heimilispósturinn
Þrír heimilismenn ræða lífið og tilveruna áfram þá hefðum við kannski öll brunnið inni. Af hverju vaknaði ég? Ég er trúaður og mér er sagt það að þegar ég var lítill hafi verið gamall maður sem passaði mig og hann hafi alltaf verið í kringum mig.“ EB: „Þetta er ótrúlegt, yfirnáttúrulegt alveg hreint.“
Vinirnir Guðjón Jónsson, Guðmundur Pálsson og Guðbrandur Valdimarsson. Á myndina vantar Ólaf Th. Ólafsson.
Viðtal við herramennina sem birtist hér er brot úr viðtölum sem Guðrún Lilja Jóhannsdóttir og Eva Björk Birgisdóttir tóku við heimilismenn í Ási í tengslum við verkefni sem þær unnu fyrir nám sitt í iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri.
Heimilispósturinn
31
Bakaði alltaf fyrir jólin
Engin jól nema hafa möndlugraut
R
andalínur, vanilluhringi og gyðingakökur bakaði Sigrún Pétursdóttir alltaf fyrir jólin og stundum urðu tegundirnar fleiri, alveg upp í sjö ef því var að skipta. Hún var ráðskona á Bessastöðum í 22 ár og þá var nú oft og mikið bakað fyrir jólin. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir heimsótti Sigrúnu sem býr á Litlu Grund og forvitnaðist um jólasiði í bernsku og á hennar fullorðinsárum. Hún er kvik í hreyfingum, brosmild og lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri en áttræð. En Sigrún Pétursdóttir er 97 ára gömul og flutti af heimilinu sínu á Víðimel yfir á Grund fyrir nokkrum vikum. „Ég er fædd 31. ágúst árið 1920 á Mel í Skagafirði en þegar ég var þriggja ára flutti fjölskyldan á Sauðárkrók. Faðir minn, Pétur Sigurðsson, vann við húsbyggingar og byggði brýr og fékk vinnu á Sauðárkróki svo við fluttum þangað. Hann var líka söngstjóri og tónskáld. Móðir mín var Kristjana Sigfúsdóttir. Ég var önnur í röðinni af systkinunum en átti semsagt þrjá Sigrún Pétursdóttir. bræður sem allir eru nú látnir. Einn þeirra ólst upp að Fjalli í Sæmundarhlíð því mamma mín veiktist hastarlega í kjölfar þess að hann fæddist.“ Pabbi spilaði á orgelið í jólamessu „Við vorum ekki efnuð en alin upp engu að síður við öryggi fyrstu tíu árin mín því pabbi hafði alltaf vinnu. Jólin voru með hefðbundnum hætti, mamma var mjög myndarleg og bakaði og eldaði fyrir jólin og þreif allt hátt og lágt. Pabbi spilaði á orgel við jólamessuna svo fjölskyldan var öll við messu á aðfangadagskvöld og svo var farið heim og borðaður jólamatur 32
Heimilispósturinn
Bakaði alltaf fyrir jólin og við systkinin fengum eitthvað smávegis í jólagjöf og heitt súkkulaði, randalínur og smákökur. Svo dundi reiðarslag yfir fjölskylduna þegar ég var tíu ára. Pabbi minn veiktist illa af lungnabólgu og lést, 31 árs. Mamma vildi allt til þess vinna að þurfa ekki að segja sig til sveitar eins og það var kallað og þegar hvítasunnusöfnuðurinn byrjaði á Sauðárkróki fór hún af fullum krafti í starfið þar og fékk mikla aðstoð. Þrátt fyrir erfið veikindi sem hún átti við að stríða frá því bróðir minn fæddist þá náði hún að lifa fram undir sextugt“. Örlagaríkt símtal Sigrún starfaði sjálf við hitt og þetta um árin eins og hún orðar það og hún eignaðist þrjú börn, Pétur, Sigrúnu og Sigurjón. Hún segir að sér séu minnisstæð sex sumur sem hún rak hótel á Grundarfirði. Það var einmitt einn daginn þar, á Grundarfirði, sem hún fékk örlagaríkt símtal. „Besta vinkona mín, Steinunn Hafstað, hringir í mig og segir: Langar þig að vinna á Bessastöðum?“ Við göntuðumst oft og Sigrún árið 1948. ég tók þessu mátulega alvarlega en segi engu að síður, já auðvitað en nefni líka að ég hafi ekki verið í kokkaskóla. Svo höldum við áfram að spjalla um daginn og veginn en í lok símtalsins bryddar hún aftur upp á Bessastöðum og spyr hvort ég hafi svona í alvöru talað áhuga. Á þessum tíma var Kristján Eldjárn að taka við embætti forseta og Steinunn tengdist hjónunum Kristjáni og Halldóru. Það verður úr að ég skelli mér suður daginn eftir og spjalla við forsetahjónin og er ráðin í starfið.“ Heimilispósturinn
33
Bakaði alltaf fyrir jólin
Með forsetahjónunum Halldóru og Kristjáni Eldjárn eftir stóra veislu á Bessastöðum.
Ráðskona á Bessastöðum Með henni á Bessastaði flutti yngsti sonurinn, Sigurjón, sem þá var þrettán ára. „Á Bessastöðum vann ég sem ráðskona í 22 ár, alla forsetatíð Kristjáns og tíu ár hjá Vigdísi Finnbogadóttur þegar hún tók við sem forseti Íslands. Þetta voru góð ár, starfið erilsamt á köflum en gott.“ Til er frásögn af fyrsta kaffiboðinu á Bessastöðum eftir vígslu Kristjáns. Haldin var hátíðarmessa á Bessastöðum í tilefni vígslu nýs forseta. Við undirbúninginn á forsetasetrinu var gert ráð fyrir að 50-70 manns kæmu þangað eftir messuna. Þegar messan hófst kom frú Halldóra að máli við Sigrúnu og tjáði henni að það væru miklu fleiri gestir en þau hefðu gert ráð fyrir. „Ég reyndi bara að gera gott úr því og sagðist bera fram allt sem ég ætti til og það hlyti að duga, sem það og gerði. Þetta er einmitt ágætt dæmi um hluti sem ráðskona á Bessastöðum þarf að vera búin undir. Það var svo ýmsu breytt þegar Vigdís tók við sem forseti og þá komu utanaðkomandi kokkar oft inn til að sjá um veislurnar því boðin urðu stærri og viðameiri.“ Þegar Sigrún varð sjötug hætti hún á Bessastöðum. 34
Heimilispósturinn
Bakaði alltaf fyrir jólin
Stund milli stríða í eldhúsinu á Bessastöðum.
Á leiksvið eftir sjötugt „Og þegar ég var hætt að vinna þá spurði ég mig. Hvað nú? Ég fullfrísk konan. Fyrir tilviljun sá ég auglýst eftir leikurum hjá Leikfélagi eldri borgara. Ég sótti um og viku seinna var ég komin á sviðið í Iðnó og marga vetur lékum við síðan í Hveragerði vikulega í nokkra mánuði. Og ég var í tuttugu ár að leika. Þangað til ég ákvað að hætta níræð. Síðasta stykkið sem ég lék í var eftir Dario Fo Nakinn maður og annar í kjólfötum.“ Sigrún segir þessi ár hafa verið mjög skemmtilegan kafla í sínu lífi. Alltaf sammála um alla hluti En nú er hún flutt á Grund. Hvernig á lífið þar við hana? „Bara ljómandi vel. Ég er að bíða eftir einbýli en þangað til deili ég herbergi með dásamlegri konu. Við erum alltaf sammála um alla hluti og þetta gæti bara ekki verið betra.“ Á bloggsíðu Alberts Eiríkssonar www.alberteldar.com er nýlega vitnað í Sigrúnu og tertu sem hún bakaði við hátíðleg tækifæri í forsetatíð Kristjáns Eldjárn á Bessastöðum. Með góðfúslegu leyfi hans fengum við að birta mynd af tertunni og uppskriftina.
Heimilispósturinn
35
Bakaði alltaf fyrir jólin Bessastaðaterta
Svampbotn: 4 egg 2 dl sykur 1 ½ dl hveiti ½ dl kartöflumjöl ½ tsk lyftiduft
Egg og sykur þeytt létt og ljóst, restin sett útí. Bakað í stóru móti (34 cm) 175-200°C í 10-15 mín. Brúnt krem: 3 eggjarauður 2 msk sykur 100 gr. súkkulaði, brætt og kælt og hrært í á meðan. 1 peli (2 ½ dl) þeyttur rjómi Rauður og sykur þeytt mjög vel þar til létt og ljóst. Bráðnu súkkulaði er hellt gætilega útí. Eggjasósu og þeyttum rjóma er svo blandað gætilega saman. Marengsbotn: 250 gr. sykur 5 eggjahvítur 1 ½ tsk lyftiduft þeytt mjög vel og bakað við 130 °C í 60 mín Þeyttur rjómi (3-4 dl svo hann nái að þekja marengsinn vel) Krem yfir: 3 eggjarauður 1 msk sykur 50 gr. súkkulaði 1 msk þeyttur rjómi Kremi (nr 2) er smurt á tertubotninn. Marengsinn settur þar ofan á og yfir hann er smurt lagi af þeyttum rjóma (gert daginn áður). Að lokum er krem (nr 5) sett ofan á rjómann. Á hliðar tertunnar er sprautað þeyttum rjóma. Þar að auki má auðvitað skreyta að vild.
36
Heimilispósturinn
Börn velkomin í Mörk
Þ
Kynslóðir mætast
að var starfsdagur á leikskólanum hennar Freydísar Sóleyjar Stefánsdóttur um daginn, dóttur Guðlaugar Óskar Pétursdóttur starfsmanns iðjuþjálfunar. Hún tók hana því með sér í vinnunna. Ekki amaleg heimsókn og heimiliskonan Ingunn Eyjólfsdóttir á heimilinu Langholti tók að sér að aðstoða litlu dömuna með kubbana sína.
Ingunn Eyjólfsdóttir heimilismaður á Langholti ásamt Freydísi Sóleyu Pétursdóttur.
Heimilispósturinn
37
Grund fagnaði 95 ára afmæli
G
Afmælis- og foreldrakaffi
rund fagnaði 95 ára afmæli þann 29. október síðastliðinn og af því tilefni var í tvo daga boðið í afmæliskaffi í hátíðasal heimilisins. Borð voru dúkuð og blóm sett í vasa. Eftir að forstjóri heimilisins, Guðrún B. Gísladóttir, hafði flutt ávarp söng Jökull Gunnarsson nokkur lög og Grundarkórinn kom fram og söng undir stjórn Kristínar Waage kórstjóra. Sveinn í Völundi gaf í húsbyggingarsjóð Frá árinu 1924 hefur um leið og haldið hefur verið upp á afmæli Grundar verið fagnað á brúðkaupsdegi hjónanna Jóns Helgasonar og Guðrúnar Sveinsdóttir frá Steinum undir Eyjafjöllum. Forsagan er sú að Sveinn Jónsson kaupmaður í Völundi kom á fund stjórnar heimilisins árið 1924 og tilkynnti, að hann og systkini hans, gæfu þúsund krónur í húsbyggingarsjóð með því skilyrði einu að jafnan skyldi haldið upp á brúðkaupsdag foreldra þeirra 26. október. Stjórn heimilisins mat gjöfina mikils frá systkinunum og æ síðan, eða frá árinu 1925, hefur verið staðið við loforðið, í afmæliskaffi Grundar er minnst brúðkaupsdags hjónanna. Það er ánægjulegt að geta þess að yfirleitt alltaf hefur fulltrúi afkomenda hjónanna mætt í afmæliskaffið og þannig var það einnig í ár en Bergljót Sveinsdóttir barnabarn Sveins í Völundi var að þessu sinni fulltrúi afkomendanna.
38
Heimilispósturinn
Grund fagnaði 95 ára afmæli
Dúkuð borð og blóm í vasa, hljóðfæraleikur og einsöngur.
Heimilisfólki var boðið uppá heitt súkkulaði og allskonar kruðerí.
Heimilispósturinn
39
Dagur íslenskrar tungu í Mörk
Á
Mæðgurnar fóru með Gunnarshólma
degi íslenskrar tungu um miðjan nóvember sl. fóru þær mæðgur Hallveig Ólafsdóttir 92 ára og dóttir hennar Jónína Óskarsdóttir með ljóðið Gunnarshólmi eftir Jónas Hallgrímsson á heimili þeirrar fyrrnefndu í Mörk. Þær kunna allt ljóðið utanbókar en Hallveig var ung þegar hún lærði það. Þá var hún úti í kartöflukofa að brjóta spírur af kartöflum, og að hennar sögn var það alleiðinlegasta verk sem hún þurfti að sinna. Hún hljóp því reglulega inn og las þá tvær ljóðlínur sem hún lærði svo utanbókar. Þegar það var komið hljóp hún aftur og lærði næstu tvær og svo koll af kolli þar til hún kunni allt ljóðið utanbókar. Í dag fara þær mæðgur reglulega með ljóðið þegar þær hittast. Allir heimilismenn höfðu gaman af þessari skemmtilegu uppákomu og í kjölfarið á upplestrinum fóru aðrir að rifja upp ljóð sem þeir lærðu ungir. Hafðu kæra þökk fyrir frumkvæðið að þessu, Jónína Óskarsdóttir.
Mæðgurnar Hallveig Ólafsdóttir og Jónína Óskarsdóttir.
40
Heimilispósturinn
Iceland Airwaves á Grund
Feðgarnir Ásgeir Trausti og Einar Georg fóru á kostum
T
ónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti hélt heldur óvenjulega tónleika á Grund nú í vetur en hann spilaði þar ásamt föður sínum, Einari Georg Einarssyni.
Tónleikarnir voru svokallaðir „off venue“-tónleikar á Airwaveshátíðinni, en það er orðin árleg hefð að heimilið taki þátt í viðburðinum.
Feðgarnir Ásgeir Trausti og Einar Georg.
Heimilispósturinn
41
Sagan mín
G
Ás er yndislegur staður
uðrún Anna hefur búið í Ási sl. fimm ár og nýlega stóð hún upp á Eden samráðsdegi í Ási og sagði sína sögu. Við fengum góðfúslegt leyfi hjá henni að birta frásögn hennar. „Ég vil deila sögu minni til að koma á framfæri hvað Dvalarheimilið Ás hefur gert fyrir mig og hve mikla þýðingu það hefur að hafa öruggt skjól þar sem komið er fram við mann af virðingu og ást. Ég lendi í miklu ofbeldi frá Guðrún Anna Jóhannesdóttir. 10 ára aldri og fram til 16 ára aldurs en þá flutti ég að heiman. Ég gifti mig þegar ég var 17 ára og allt gekk vel og hjónabandið var gott þangað til ég var um 25 ára en þá hófst annað ofbeldistímabil í mínu lífi og nú var það eignmaður minn sem beitti mig ofbeldi. Við áttum saman 2 börn, dreng og stúlku. Eftir þriggja ára tímabil sem einkenndist af miklu ofbeldi skildum við og ég flutti til Reykjavíkur með drenginn minn sem þá var tveggja ára en stelpan mín, þriggja ára, varð eftir hjá pabba sínum. Ég fékk ekki að sjá dóttur mína mikið eftir skilnaðinn. Þegar ég var 33 ára veiktist ég af þunglyndi og ofsakvíða og var mikið inn á sjúkrahúsi. Þegar drengurinn minn var 14 ára neyddist ég til að senda hann til pabba síns. Mér fannst þetta mjög erfitt því við vorum mjög náin, samband okkar breyttist eftir að hann flutti til pabba síns og hann hætti að hafa samband við mig. Ég hef ekki heyrt í börnunum mínum síðan 2011. Það er erfitt að fá ekki að sjá 42
Heimilispósturinn
Sagan mín börnin sín ….. en svona er þetta stundum. Árið 2012 gifti ég mig aftur. Það var ást við fyrstu sýn …. En sú sæla stóð ekki lengi yfir, sá maður beitti mig líka ofbeldi og við skildum árið 2013. Eins og áður hefur komið fram flutti ég hingað að Ási árið 2013. Ás hefur breytt lífi mínu til hins betra. Hér eru allir svo góðir við mig. Hér hef ég hlutverk og hér get ég gert gagn, get látið gott af mér leiða. Ég hjálpa til við ýmislegt hér á heimilinu, t.d. aðstoða ég konu sem býr í húsinu með mér, ég aðstoða líka í iðjuþjálfun, ef fólki vantar að drekka og hjálpa til við að bera fram kaffi. Ás er yndislegur staður, hér á ég góða vini og ég lít á fólkið hér sem fjölskyldu mína…. Mér hefur aldrei liðið betur .“ Takk fyrir mig Guðrún Anna
Guðrún Anna afhendir Baldvinu Ýr deildarstjóra á hjúkrun, trefla sem hún prjónaði og gaf heimilinu.
Heimilispósturinn
43
Fermingarsystur sem búa báðar á Mörkinni
Þ
Níræðar pjattrófur
að er ómetanlegt að eiga góða vini og það hafa þær svo sannarlega reynt Ólína Þorleifsdóttir og Inga Benediktsdóttir sem hafa verið bestu vinkonur alla tíð. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir kíkti í kaffi til Ólínu sem býr í þjónustuíbúðum Grundar Markarinnar.
Níræðar og enn haldast þær í hendur þessar fallegu vinkonur.
„Við fermdumst saman á Norðfirði og það má segja að það marki upphafið að vináttu okkar“, segir Ólína. „Við erum bara svo líkar í okkur, höfum svipuð viðhorf til lífsins og erum miklar vinkonur. Þó að við höfum ekki alltaf verið nálægt hvor annarri svona eins og gengur þá höfum við alltaf heyrst í hverri viku, hringdum þá bara oftar í hvor aðra ef við vorum ekki í næsta nágrenni.“ Báðar giftust þær svo mönnum frá Eyrarbakka sem voru vinir. „Maðurinn minn, Björgvin Jónsson, var frá Eyrarbakka og þegar við giftum okkur bauð hann besta vini sínum í brúðkaupið, Garðari Sigurðssyni sem líka var frá Eyrarbakka. Í brúðkaupinu segir hann okkur að vegna vinnunnar þurfi 44
Heimilispósturinn
Fermingarsystur sem búa báðar á Mörkinni
Hér eru þær sextugar Ólína og Inga.
hann að fara í ár á Norðfjörð. Ég sagði að það væri nú ekki í kot vísað, þar væri svo mikið af fallegum stelpum og ein, Inga Benediktsdóttir, væri alveg sérstaklega sæt. Eftir árið var hann trúlofaður Ingu vinkonu minni“, segir Ólína og brosir blítt.
Sjötugar bestu vinkonur.
Heimilispósturinn
45
Sátu saman í stjórn Inga og Ólína voru ekki bara bestu vinkonur heldur sátu þær báðar í stjórn Félags austfiskra kvenna og önnur var ritari félagsins og hin gjaldkeri. Þær voru svo báðar gerðar að heiðursfélögum. Ólína eignaðist sjö börn en Inga fjögur. Börnin þekkjast auðvitað vel og fjölskyldurnar hittust oft. „Svo fóru Garðar og Björgvin að veiða saman og auðvitað brölluðum við fjögur saman ýmislegt.“ Þegar ég spyr Ólinu hvort þær hafi átt sameiginleg áhugamál segir hún að þær hafi báðar stundað jóga og Inga kennt jóga um tíma. „Við dönsuðum mikið saman, höfum hvorugar reykt og okkur fannst mjög gaman að kíkja saman í bæinn og skoða í búðir, kunnum báðar vel að meta vandaða hluti.“ Við erum báðar pjattaðar og oft lánuðum við hvor annari föt ef svo bar undir.“ Þegar við förum svo að skoða myndir af þeim kemur í ljós að Ólína gat áttað sig á því hvenær myndirnar voru teknar með því að skoða fötin. „Já ég get fundið út aldurinn með því að skoða hvernig við vorum klæddar. Okkur fannst gaman að vera fínar og finnst enn,“ segir hún kankvís.
Áttræðar vinkonur í afmæli Ólínu.
46
Heimilispósturinn
Framkvæmdir á Grund
Í
Ný lyfta tekin í notkun
lok október var tekin í notkun ný lyfta á Litlu Grund en hún er mun fljótari milli hæða en sú sem var fyrir og er töluvert stærri. Nokkuð mæddi á heimilisfólki og starfsfólki, mánuðina á undan, á meðan framkvæmdir stóðu yfir og mikil ánægja er með að það skuli vera komin ró í húsið á ný og allir alsælir með nýju lyftuna.
Margir heimilismenn biðu spenntir eftir að prófa nýju lyftuna.
Heimiliskonan Ruth Þorvaldsson klippir hér á borða og nýtur aðstoðar Guðrúnar forstjóra og Huldu hjúkrunarfræðings.
Heimilispósturinn
47
Koma jólanna undirbúin í Bæjarási
Í
Skreytt í „kósíhorninu“
Bæjarási er ekki bara skreytt innandyra heldur líka í „kósíhorninu“ fyrir utan heimilið. Þar sitja gjarnan einhverjir og hafa það notalegt, jafnvel þó snjói og blási því það er veggur sem skýlir fyrir veðri og vindum. Hér eru það heimilismaðurinn Karl Stefánsson og Steinunn Svanborg Gísladóttir bústýra sem fundu grein og hengdu svo seríu og jólakúlur á hana til að gera hornið svolítið jólalegt.
Steinunn Svanborg og Karl að skreyta fyrir utan Bæjarás.
48
Heimilispósturinn