HEIMILISPÓSTURINN Heimilisblað Grundar, Áss og Markar 52. árgangur
g e l i ð e Gl jól
desember 2016
4. tölublað
Efnisyfirlit Náungakærleikur á jólum....................................................................... 3 Gamlar vinkonur hittast á ný................................................................. 5 Hefð í áratugi............................................................................................ 6 Hægt að gera reyfarakaup..................................................................... 8 Ömmu boðið upp í dans........................................................................... 10 Gleymi aldrei skautunum sem mamma og pabbi gáfu mér.................. 12 Zumba og salat........................................................................................ 16 Heimiliskona lánaði hakkavélina sína og uppskriftina...................... 17 Jólatréð í smíðum................................................................................... 18 Segjast eyða deginum í að blaðra um afkomendur sína.................... 20 Föndrað fyrir jólin............................................................................... 23 Raggi Bjarna, Las Vegas og nýbakaðar pönnukökur....................... 24 Jólapeysudagur í Ási.............................................................................. 27 Heimasmíðað jólatré.............................................................................. 28 Jólapeysur og jólatónar...................................................................... 32 Margir mættu í jólabingó..................................................................... 34 Jólasvuntuna þarf að strauja.............................................................. 35 Súkkulaðibitakökur og spesíur............................................................ 36 Hljóðfæraleikur, söngur og spil........................................................ 38 Heimagerðar skreytingar í Ási............................................................. 40 Æfingar fyrir háls og höfuð............................................................... 42 Rómantík, söngur og umhyggjusemi................................................... 43 Kisan sem vill kúra hjá Magnúsi........................................................... 46 Miði í hálsólinni....................................................................................... 47 Heimilispósturinn er kominn út............................................................ 48
Forsíðumyndina tók Kolbrún Guðmundsdóttir af Sjöfn Gunnarsdóttur heimiliskonu í Ási með krans sem þær gerðu saman. Ritstjóri: Guðbjörg R. Guðmundsdóttir. Hönnun og uppsetning: Kjartan Örn Júlíusson og Írena Dögg McCabe. Prentun: GuðjónÓ. Upplag: 1500. 2 Heimilispósturinn
Hugvekja um jól
Þ
Náungakærleikur á jólum
að fer að styttast í jólin – þau eru á næsta leyti. Við sjáum hvernig bærinn lýsist upp, dag frá degi, þrátt fyrir myrkasta skammdegið. Það er eins og ástandið í landinu hafi bein áhrif á magn jólaljósanna í bænum og tímasetningu hvað varðar uppsetningu þeirra. Sumum finnst blessuð ljósin vera sett upp allt of snemma á meðan aðrir fagna því að fá þau sem fyrst. Sú var tíðin að jólaljósin í bænum voru tendruð örfáum dögum fyrir jól. Á æskuheimili mínu mátti ekki kveikja á jólaljósum, hvort heldur var úti eða inni fyrr en á Þorláksmessu og var svo víða. Þá var beðið í spenningi eftir jólunum og jólafastan var sannarlega föstutími. Gjafirnar voru smærri í sniðum en þær eru í dag og skreytingar færri og látlausari. Jólabakstur var stór þáttur undirbúnings hátíðarinnar og konfektgerð alls konar. Ég man eftir því þegar ég var barn að jólakökurnar og kræsingarnar voru innsiglaðar í box og ekki snert á þeim fyrr en hátíðin var gengin í garð. Á aðfangadagskvöld var svo dýrðin opnuð og ilmurinn lá um allt húsið. Í dag erum við byrjuð að njóta kræsinganna áður en hátíðin gengur í raun í garð. Rétt eins og það sé búið að opna pakkana áður en jólin koma. Aðventan er yndislegur tími, tími undirbúnings, eftirvæntingar og umhugsunar. Umhugsunar um kraftaverkið sem gerðist á jólum. „Í myrkrum ljómar lífsins sól“. Þegar ljósið eilífa kom inn í heiminn sem skín í myrkrinu. „Ljósið skín í myrkrinu en myrkrið tók ekki á móti því“ , segir í Jóhannesarguðspjalli. Kristur kom í þennan heim til að frelsa okkur frá myrkrinu en æ fleiri telja sig ekki þurfa á neinni frelsun að halda. Hvað er myrkrið? Myrkrið er að lifa án Guðs. Lifa án þess að eiga nokkurt samband við hann. Hið andlega myrkur.
Heimilispósturinn
3
Hugvekja um jól Jólin eru tími kraftaverka. Náungakærleikurinn nær föstum tökum á okkur einmitt á þessum árstíma. Aldrei erum við jafn næm fyrir heilögum anda og einmitt á aðventu og jólum. Það er yndislegt að sjá hversu margir gefa til hjálparsamtaka einmitt fyrir jólin. Það er eitthvað sérstakt sem gerist innra með okkur þegar jólin nálgast. Það er eins og við lýsumst öll upp að innan og hið sanna ljós Jesú Krists ljómar sterkt innra með okkur. Við viljum að allir hafi það gott yfir jólin, þá sérstaklega þeir sem minna mega sín. Jólin eru hátíð ljóss og friðar enda Jesús Kristur friðarhöfðinginn sjálfur. Við minnumst þeirra sem koma til með að eiga erfið jól og reynum að rétta fram hjálparhönd, hvort heldur það er í formi peningagjafa, matargjafa eða að vera vinur í raun. Við viljum að allir hafi það gott. Æ fleiri gleyma því að aðventan á að vera undirbúningur andans fyrir jólahátíðina. Ekki bara verklegur undirbúningur heldur undirbúningur hugans. Aðventan heitir líka jólafasta sem minnir okkur á aðhald. Jólafastan minnir okkur á að það er ekkert sjálfsagt í þessu lífi. Minnir okkur á að vera auðmjúk og þakklát fyrir allar góðar gjafir Guðs, sem við þiggjum á hverjum degi. Það er mikilvægt að við höfum það rólegt og afslappað á aðventunni. Reynum helst að vera búin að versla jólagjafirnar og baka það helsta. Jólaþrif geta vel beðið fram á vor. Njótum aðventunnar í ár. Hlustum á fallega tónlist, skreytum híbýli okkar og kyrrum hugann. Yfirskrift aðventunnar er „Sjá konungur þinn kemur til þín.“ (Sak 9.9.) Hugsum um það að enn á ný kemur frelsarinn okkar Jesús Kristur og boðar frið á jörðu. Yfirskrift aðventunnar er einnig, Sjá, ég stend við dyrnar og kný á. Ef einhver heyrir raust mína og lýkur upp dyrunum, þá mun ég fara inn til hans og neyta kvöldverðar með honum og hann með mér.(Opb. 3.20) Hann knýr á hjá þér og mér og vill neyta með okkur kvöldverðar. Opnum hjörtu okkar fyrir ljósinu og bægjum myrkrinu burt. 4
Guð gefi þér og fjölskyldu þinni gleðileg jól, Sr. Auður Inga Einarsdóttir Heimilispósturinn
Fagnaðarfundir í Mörk
Þ
Gamlar vinkonur hittast á ný
að urðu fagnaðarfundir þegar Ingveldur Filippusdóttir og Ingunn Sveinsdóttir hittust í iðjuþjálfun Markar nú fyrir skömmu. Ingveldur er heimiliskona í Mörk en Ingunn í hvíld um skamma stund. Þær hafa þekkst í fjölda ára en vissu ekki af hvor annarri í húsinu. Hér á árum áður voru þær saman í saumaklúbb og skemmtu sér á Selfossi þegar þær bjuggu í Biskupstungunum. Þær hafa brallað saman ýmislegt um árin og eiga ljúfar minningar. Það var óvænt en afar skemmtilegt þegar þær rákust á ný á hvor aðra. Svona er heimurinn lítill.
Vinkonurnar Ingveldur Filippusdóttir og Ingunn Sveinsdóttir.
Heimilispósturinn
5
Afmælis- og foreldrakaffi á Grund
Í
Hefð í áratugi
lok október ár hvert eru dúkar dregnir fram og hátíðasalurinn skreyttur kertum og blómum. Tilefnið er að fagna afmæli heimilisins sem að þessu sinni átti 94 ára afmæli þann 29. október. En það var einnig annað tilefni til umræddra hátíðahalda. Sveinn Jónsson kaupmaður kom á fund stjórnar heimilisins árið 1924 og tilkynnti að hann og systkini hans gæfu eitt þúsund krónur í húsbyggingarsjóð gegn því að jafnan skyldi haldið upp á brúðkaupsdag foreldra þeirra Jóns Helgasonar og Guðrúnar Sveinsdóttur frá Steinum undir Eyjafjöllum. Brúðkaupsdagur þeirra var 26. október. Æ síðan, eða frá árinu 1925, höfum við staðið við loforðið, verið með afmæliskaffi fyrir Grund og minnst brúðkaupsdags hjónanna.
Dúkuð borð, blóm, heitt súkkulaði og hnallþórur.
6
Heimilispósturinn
Afmælis- og foreldrakaffi á Grund
Árlega afmælis kaffiboðið sækja fjölmargir.
Í kaffinu söng Guðrún Brjánsdóttir við undirleik Herdísar Kristjánsdóttur Linnet.
Heimilispósturinn
7
Fatamarkaður í Mörk
N
Hægt að gera reyfarakaup
ú á aðventu var ákveðið að bjóða óskilamuni og bækur til sölu í Mörk áður en farið væri með góssið til Rauða krossins. Margir komu að skoða og keyptu sér bók eða flík. Þarna var hægt að gera reyfarakaup. Kristrún Gestsdóttir kemur stundum í heimsókn í sjálfboðavinnu og það er nú engin betri sölukona en hún, þar er hún á heimavelli.
Kristrún í essinu sínu með peningabaukinn.
8
Heimilispósturinn
Fatamarkaður í Mörk
Það má alltaf á sig blómum bæta og á markaðnum mátti finna ýmislegt.
Nú fyrir jólin kemur fólk oft með varning til að selja. Þennan dag sem markaðurinn var haldinn voru það meðal annars snyrtivörur sem verið var að kynna.
Heimilispósturinn
9
Dansleikur á Grund
Þ
Ömmu boðið upp í dans
að er oft dansað við harmonikkuleik í hátíðasal Grundar og nýlega mætti Jóhann Ingi Árnason í hátíðasalinn á slíka uppákomu og skimaði eftir ömmu sinni Sjöfn Guðmundsdóttur. Hann heilsaði henni fallega og bauð svo upp í dans. Amman þáði boðið en þegar kom að því að hún þurfti að hvíla sig bauð ungi pilturinn bara næstu hefðarfrú upp í dans. Falleg sjón og fallegt samband ömmu og barnabarns.
Jóhann Ingi bauð ömmu sinni, Sjöfn Guðmundsdóttir upp í dans.
10
Heimilispósturinn
Dansleikur á Grund
Og það var dansað og dansað.
Heimilisfólk og starfsfólk dansar saman.
Heimilispósturinn
11
Eftirminnileg jól
Gleymi aldrei skautunum sem mamma og pabbi gáfu mér
F
yrsta minning Hönnu Rúnar Guðmundsdóttur heimiliskonu í Mörk frá jólum er þegar pabbi hennar hljóp út með brennandi jólatré úr íbúðinni þeirra á Barónstígnum. Þá var hún ekki nema nokkurra ára og lifandi kertaljós á trénu hafði ollið þessu óhappi. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir hitti Hönnu og spurði út jólasiði hennar. „Þessi fyrsta minning mín af Barónstígnum er örugglega komin til af því að þetta var áfall að horfa á jólatréð brenna. Við flytjum svo af Barónstíg þegar ég er fimm ára og á Langholtsveg.“ Foreldrar Hönnu voru Guðbjörg Þórðardóttir og Guðmundur Jónasson málarameistari. Hanna var eina dóttirin en hún á tvo yngri bræður Birgi og Jónas Þór. „Mér fannst allt svo fallegt heima og mamma svo dugleg og myndarleg. Hún sá um heimilið og á aðventu var mikið um að vera. Mamma var elst af níu systkinum og mikill gestagangur heima. Hún var í minningunni alltaf að baka og elda og sauma á okkur systkinin. Ilmurinn af nýbökuðum smákökum og jólamatnum situr ferskur í minni og ég man hvað mér fannst heimatilbúna sælgætið gott sem hún bjó til fyrir jólin. Það voru nokkurskonar kókoskúlur. Heimilið var skreytt með ljósum og pappírsskrauti eins og jólapokum og músastigum.“ Er kjóllinn þinn úr príslista? Hanna segir að mamma sín hafi saumað rosalega fallega kjóla á sig og ekki óalgengt að hún væri spurð hvort þeir væru úr „príslista“ og „það var toppurinn“ segir hún. Ömmusystir 12
Heimilispósturinn
Eftirminnileg jól
Hanna með dætrum sínum á góðri stund.
Hönnu, Jóhanna, vann hjá verslun Marteins Einarssonar, sem var vefnaðarverslun á Laugavegi og kom með allskonar punt á kjólana til mömmu hennar. Reyndar var sú kona, Jóhanna og hálfsystir hennar Sigurlaug, alltaf heima hjá Hönnu á jólunum. Báðar voru þær ógiftar og barnlausar. „Þær komu hlaðnar af pökkum til okkar systkinanna og ég man að það var alltaf eldað sérstaklega fyrir aðra þeirra sem borðaði ekki svínabóg eins og við. Hún fékk alltaf lambahrygg og sagðist hlakka til allt árið að koma til okkar í jólamatinn. Ég heiti í höfuðið á annarri þeirra, Jóhönnu ömmusystur minni.“ Öddu bækurnar vinsælar Þegar ég spyr Hönnu út í jólagjafir segist hún aðallega muna eftir bókum og hvað hún var sérstaklega spennt að fá nýjustu Öddu bókina. Þær voru alltaf nokkurskonar framhald af þeim fyrri og hún hlakkaði til að fá nýjustu bókina í hendur. En eftirminnilegust er jólagjöf frá foreldrum hennar. Það voru hvítir skautar. „Ég fór oft á skauta niður á tjörn og eins á Melavöllinn þegar hann var gerður að skautasvelli. Ég gleymi aldrei þegar ég opnaði þennan jólapakka og hvítu skautarnir blöstu við.“ Heimilispósturinn
13
Eftirminnileg jól Aldrei eins hrædd á aðfangadag Þegar ég spyr Hönnu hvort einhver jól séu minnisstæðari en önnur brosir hún og segir að einu sinni hafi hún orðið verulega smeyk á aðfangadag. „Ég var kannski sex, sjö eða átta ára og var send með jólapakka á Karlagötu og tók strætó frá Langholtsveginum. Mamma og pabbi harðbönnuðu mér að ganga yfir Skólavörðuholtið því þar voru hermenn oft með skotæfingar. Að fara yfir holtið stytti verulega þá leið sem ég þurfti að ganga niður á torg til að taka strætó heim. Þennan dag hafði ég miklar áhyggjur af því að missa af jólunum og því stalst ég til að hlaupa yfir holtið og var alveg ofboðslega hrædd. Þetta situr í minni. En ég náði strætó og missti ekki af jólunum“ bætir hún við og brosir.
Dæturnar Ragnheiður, Þórdís og Guðbjörg.
Dásamlegt að halda jólin með dætrunum Þegar þú fórst sjálf að búa. Hélstu sömu jólasiðum? „Já ég gerði það, maður mótast af því sem maður kynnist í æsku. Maðurinn minn hét Þórir og við bjuggum fyrstu árin okkar
14
Heimilispósturinn
Eftirminnileg jól á Meistaravöllunum. Þá buðum við foreldrum okkar í jólamat og svo eignuðumst við þrjár stelpur, Guðbjörgu, Ragnheiði og Þórdísi og það var dásamlegt að halda jólin með þeim. Þegar við stækkuðum við okkur húsnæðið fluttum við í Garðabæ.“ Þáttaskil Þegar elsta dóttir hennar Guðbjörg var að verða sex ára urðu þáttaskil hjá Hönnu því hún fékk heilablæðingu og var þá um þrítugt. „Það var erfiður tími, tók mig um hálft ár að komast aftur Hanna á sínum yngri árum. heim og hef verið öryrki eftir það. Þetta hálfa ár sem ég var að ná mér til að komast heim til þeirra voru systurnar hjá mömmu minni og svilkonu. Í kjölfar þessara hremminga skildum við Þórir. Þá seldum við húsið í Garðabæ og ég leigði í risinu hjá mömmu og pabba á Langholtsveginum og keypti þá íbúð svo þegar frá leið. Þar vorum við allar í skjóli foreldra minna, ég og dæturnar.“ Hanna segir að stelpurnar sínar hafi allar verið afskaplega duglegar og þær gengu í hverfisskólann og útskrifuðust allar frá Menntaskólanum við Sund. „Jólin okkar með mömmu og pabba á Langholtsveginum voru því með svipuðu sniði og í minni æsku og ljúfar minningar sem við eigum þaðan.“ Í dag eru dætur hennar uppkomnar og eiga orðið sínar fjölskyldur. Barnabörnin eru orðin fimm. „Ég er heppin með dæturnar mínar.“ Hanna býr nú í Mörk. Hún brotnaði á báðum fótum og segir að sér finnist hún helst til ung að vera komin á hjúkrunarheimili en unir hag sínum engu að síður vel. „Miðað við að þurfa þá aðstoð sem ég þarf er ég á besta stað hér í Mörk.“ Heimilispósturinn
15
Heilsudagar á Grund
Á
Zumba og salat
heilsudögum sem haldnir voru nýverið á vegum Grundar ákvað Starfsmannafélagið að taka þátt og bjóða öllu starfsfólki og heimilisfólki í zumba. Jói og Thea mættu í hátíðasalinn og héldu uppi fullu fjöri í hálftíma. Þeir heimilismenn sem mættu gáfu ekkert eftir og dönsuðu allan tímann.
Heimilisfólkið sem mætti dansaði allan tímann.
16
Heimilispósturinn
Bakað fyrir jólin í Mörk
Heimiliskona lánaði hakkavélina sína og uppskriftina
Á
aðventu er verið að baka smákökur og annað bakkelsi fyrir jólin á öllum hæðum Markar. Nýlega voru bakaðir vanilluhringir á fjórðu hæðinni en Þorvaldur matreiðslumaður skellti í deig. Hakkavélina á María Eggertsdóttir heimiliskona í Langholti en hún lánaði heimilinu hana líka í fyrra og geymdi hana inni í skáp hjá sér þangað til núna að hún spurði hvort það yrðu ekki bakaðir vanilluhringir á ný. Uppskriftin að vanilluhringjunum er líka frá henni. Fengu gefins hakkavél Guðrún Hreinsdóttir heimilisstýra segir að heimilið hafi nýlega fengið að gjöf hakkavél því einn aðstandenda á tvær vélar og gaf Langholti aðra þeirra. Guðrún segir að vélin verði til útláns á önnur heimili þó hún tilheyri Langholti. Eftir baksturinn um daginn gæddi heimilisfólk sér að sjálfsögðu á góðgætinu og svo verða vanilluhringirnir með kaffinu á meðan þeir endast.
Notaleg stund í Langholti nú á aðventu.
Heimilispósturinn
17
Ás sér um einn gluggann í jóladagatalinu
J
Jólatréð í smíðum
óladagatal Hveragerðis saman stendur af 24 gluggum víða um bæinn en hver gluggi fjallar um eitt af jólatáknunum. Þeir opna hver á fætur öðrum frá 1. til 24. desember.
Dvalar- og hjukrunarheimilið Ás hefur tekið þátt í þessum skemmtilega viðburði síðastliðin 5 ár. Undanfarin ár hefur jólakötturinn verið þemað hjá Ási. Þá voru það Sverrir heimilismaður, Pétur garðyrkjumaður og Fanney iðjuþjálfi sem unnu í sameiningu að útliti og uppsetningu gluggans. Í ár er þemað jólatré. Margir hafa komið að undirbúningi þessa verkefnis. Fanney fann hugmynd á netinu og hefur fengið í lið með sér valinkunna einstaklinga til að koma hugmyndinni í verk. Vignir Bjarnason smiður útbjó rammann sem myndar tréð og þeir Einar Þór og Eðvarð hafa svo séð um að mála það og pússa. Endanleg mynd er ekki komin á verkið en þegar það er tilbúið mun mynd birtast á heimasíðu Áss.
Heimilismennirnir Eðvarð Guðmundsson og Einar Þór Jónsson, en þeir eiga heiðurinn af jólaglugganum í ár ásamt Vigni Bjarnasyni.
18
Heimilispósturinn
Ás sér um einn gluggann í jóladagatalinu
Jólatréð pússað og málað.
Vignir Bjarnason smiður.
Heimilispósturinn
Jólaköttur prýddi jólagluggann í fyrra.
19
Bestu vinkonur á Grund
Segjast eyða deginum í að blaðra um afkomendur sína
N
ýlega birtist viðtal við Helgu Hobbs og Guðrúnu Eyjólfsdóttur í Fréttatímanum, viðtalið tók Halla Harðardóttir. Þær kynntust á tíræðisaldri hér á Grund og eru bestu vinkonur. „Ég var nú bara sett við hlið Guðrúnar í matsalnum og þannig kynntumst við,“ segir Helga Hobbs. Helga er 97 ára og hefur búið á Grund í eitt og hálft ár.
Ljósmynd: Hari
„Við byrjuðum að spjalla enda er ég þekkt fyrir að hætta ekki að tala. Kannski er ég þannig því ég er alin upp í svo miklum félagsskap,“ segir Guðrún Eyjólfsdóttir, en hún ólst upp í hópi níu systkina með foreldrum sínum og ömmu í pínulitlu húsi við Fálkagötu. Hún varð 91 árs í vikunni og hefur búið á Grund í hálft ár. „Ég giftist líka inn í stóra barnafjölskyldu á Seltjarnarnesi og bjó með mágkonum mínum og þeirra fjölskyldum í litlu húsi 20
Heimilispósturinn
Bestu vinkonur á Grund sem var kallað Þristurinn. Svo það hefur alltaf verið mikið líf og fjör í kringum mig. Við mágkonurnar urðum mjög góðar vinkonur og mínar vinkonur úr skólanum kynntust svo þeirra vinkonum og úr þessu varð til saumaklúbbur sem var starfandi þar til fyrir tveimur árum. Við vorum níu í klúbbnum en fyrir viku síðan fylgdi ég þremur þeirra til grafar og nú erum við bara tvær eftir. En það gerir ekkert til því ég á svo mikla vináttu í fjölskyldunni.“ „Saumaklúbburinn minn varð 60 ára en nú eru þær allar dánar nema ég,“ segir Helga. „Við vorum skólasystur úr Verslunarskólanum og héldum alltaf sambandinu. Ég var svo heppin að hafa ráð á því að vera heima með börnin, ég var mjög fegin því, en það var samt svo gott að komast stundum úr húsi og hitta vinkonurnar.“ „Það komst svolítið í tísku eftir stríð að stofna saumaklúbba, konur vildu hittast fyrir utan heimilið. Maður var auðvitað að sækja í vinskap og samveru með þessum saumaklúbbum, án þess að vera með börnin með sér. Það var svooo gaman að saumaklúbbum!!,“ segir Guðrún. „Maður var samt alltaf með handavinnu, annað hefði verið hneyksli,“ segir Helga. „Já, já, maður var alltaf með eitthvað í höndunum. En þegar strákarnir komu að sækja kellingarnar sínar þá var það bara brandari. Mesta fjörið var samt í strætó á leiðinni heim, jiiii hvað það var hlegið. Við fylgdum einni okkar alla leið í Kópavog og það var svo gaman hjá okkur að strætóbílstjórinn spurði oft hvort við kæmum ekki örugglega aftur,“ segir Guðrún. Vinkonurnar segjast eyða öllum dögum saman og flestir fari þeir í að tala um börnin, barnabörnin og barnabarnabörnin. „Við hittumst alltaf í morgunmatnum og svo fáum við okkur hádegismat. Og við hættum ekki að tala. Mest erum við í því að segja frægðarsögur af okkur sjálfum,“ segir Guðrún sem fær Helgu til að skella rækilega upp úr. „Við blöðrum allan daginn um afkomendurna. Ég á fimm Heimilispósturinn
21
Bestu vinkonur á Grund börn og Helga fjögur og þetta er bestu börnin sem hafa fæðst í Reykjavík. Þau eru skemmtilegasta fólkið sem kemur hér í heimsókn og best við okkur af öllum börnum.“ „Við erum mjög heppnar,“ segir Helga. „Auðvitað erum við orðnar fúaspýtur svona gamlar konur en maður hefur samt þennan mannkærleika í sér að vera stoltur af afkomendum sínum og á meðan maður getur spjallað um það við vin þá líður manni svo vel í sálartetrinu. Það er nóg að tala um börnin og hæla þeim. Það þarf ekkert að tala um náungann,“ segir Guðrún. „Nei, við tölum aldrei um náungann, við nennum því ekki. Svo er skemmtilegt að nú eru börnin okkar orðin málkunnug því við sitjum stundum öll saman hér í kaffitímanum,“ segir Helga. „Já, því þau eru svo heppin að eiga svona skemmtilegar mæður,“ segir Guðrún og Helga skellir aftur upp úr. „Það væri ekki hægt að lifa án vinskapar,“ segir hún svo. „Okkur finnst gaman að blaðra enda eiga þeir sem ekki nenna að tala bara að vera í málleysingjakórnum,“ segir Guðrún. „Á kvöldin förum við svo hvor til síns heima, liggjum undir teppi og horfum á sjónvarpið þar til við siglum í draumalandið.“ „Og svo hittumst við aftur við morgunverðarborðið,“ segir Helga, „og þá byrjar allt upp á nýtt.“ Fréttatíminn veitti okkur góðfúslegt leyfi til að birta hér viðtalið við þær stöllur.
22
Heimilispósturinn
Alltaf eitthvað um að vera í Mýrinni
Þ
Föndrað fyrir jólin
að er alltaf líf og fjör í Mýrinni, þjónustumiðstöð fyrir íbúa sem búa að Suðurlandsbraut 58-62. Nú er fólk farið að föndra fyrir jólin og mikil stemning að myndast í kringum það. Það er hún Lilja Benediktsdóttir sem er að stússast með fólkinu í að útbúa eitthvað skemmtilegt fyrir hátíðina og eins og hann Hafliði Hjartarson í íbúaráðinu orðaði svo skemmtilega. „Það verða pappírsjólatré í öllum íbúðunum í ár.“
Heimilispósturinn
23
1. desember á Grund
Þ
Raggi Bjarna, Las Vegas og nýbakaðar pönnukökur
að er komin hefð fyrir því að 1. desember ár hvert mætir Raggi Bjarna í húsið og skemmtir heimilismönnum og starfsmönnum með söng og glens. Á því var engin undantekning í ár. Og af því tilefni byrjuðum við fyrir nokkrum árum að klæðast einhverju jólalegu, rauðum fötum eða jólafatnaði þegar hann mætir í heimsókn. Fyrr um daginn mætti fegurðardrottningin Arna Ýr Jónsdóttir og sagði frá eftirminnilegri ferð sinni til Las Vegas í máli og myndum. Það er líka komin hefð fyrir því að baka pönnukökur þennan dag og bjóða í eftirmat. Sem sagt skemmtilegur dagur.
Raggi Bjarna hefur komið í heimsókn 1. desember í mörg ár.
24
Heimilispósturinn
1. desember á Grund
Bogga og Kristín taka sig vel út í jólapeysum.
Arna Ýr Jónsdóttir fegurðardrottning sagði frá eftirminnilegri ferð til Las Vegas.
Heimilispósturinn
25
1. desember á Grund
Katla, Kristín Bjarnadóttir og Auður Inga allar í rauðu.
Árni Tómas yfirlæknir Grundar ásamt Kristínu Karlsdóttur íþróttakennara.
26
Heimilispósturinn
Jólin eru að koma
Þ
Jólapeysudagur í Ási
að var skrautlegt í Ási daginn sem jólapeysudagurinn var haldinn þar nú í desember og enginn maður með mönnum nema vera í einhverju sem minnti á hátíðina sem framundan er.
Birna Sif Atladóttir, Pálína Sigurjónsdóttir, Elberg Þorvaldsson , Grétar Halldórsson og Kolbrún Guðmundsdóttir. Fyrir framan situr Jórunn Gottskálksdóttir.
Heimilispósturinn
27
Jólahald á Stokkseyri
Í
Heimasmíðað jólatré
febrúar árið 1923 fæddist drengur á Stokkseyri, Jóhannes Guðmundsson. Hann fagnar því 93. jólunum sínum núna í desember. Smákökubakstur mömmu hans og skreytta jólatéð sem pabbi hans smíðaði kemur í hugann þegar horft er til baka. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir heimsótti Jóhannes sem nú býr á Grund.
Foreldrar mínir voru þau Guðmundur Sigurjónsson og Guðríður Adolfína Jónsdóttir. Faðir minn var báta- og húsasmíðameistari og vann við þá iðn alla tíð. Auk þess átti hann 10 tonna trébát með bræðrum sínum og frændum sem þeir gerðu út um allnokkra hríð. Foreldrar mínir höfðu það nokkuð gott þar sem þau bjuggu á Stokkseyri með okkur systkinin en við vorum fjögur. Ég var annar í röðinni en elstur var Sigurður, þá ég og síðan Guðrún og Jón.“ Þau eru nú öll látin nema Jóhannes en systir hans dó aðeins 25 ára úr hvítblæði. Á þeim tíma þegar Jóhannes var að alast upp bjuggu á milli 500 og 600 manns á Stokkseyri og töluverð útgerð var
28
Heimilispósturinn
Jólahald á Stokkseyri á þessum tíma í þorpinu. Þar voru þrjár verslanir og flestir bjuggu í ágætum timburhúsum. Lítið var um einkabíla, fólk notaði reiðhjól og hesta og síðan gekk rúta frá leigubílastöðinni Steindóri til Stokkseyrar frá Reykjavík. „Mamma mín var heimavinnandi og sinnti börnum og búi og við gengum í barnaskólann á Stokkseyri. Það voru tvær stofur í skólanum, yngri börnin í annarri og þau eldri í hinni.“ Jóhannes segir æsku sína hafa verið nokkuð áhyggjulausa og hefðbundna fyrir barn í sjávarþorpi og svo hafi einnig verið um jólahald. Það var í föstum og hefðbundnum skorðum.
Æskustöðvar Jóhannesar prýða nú vegginn í herberginu hans á Grund.
Kerti og spil „Við systkinin ólumst upp við það að mamma undirbjó jólahaldið. Hún bakaði á aðventunni smákökur og randalínur, þreif húsið og saumaði á okkur systkinin jólaföt. Það kom klæðskeri einu sinni á ári á Eyrarbakka og þá fékk pabbi sér stundum jakkaföt en við börnin vorum alltaf í fötum sem mamma saumaði á okkur. Jólatréð var heimasmíðað af pabba og skreytt Heimilispósturinn
29
Jólahald í sjávarþorpinu Stokkseyri með skrautpappír og kúlum og það var tilhlökkun í loftinu því jólin voru hátíðleg og mikil tilbreytni í mesta skammdeginu.“ Gjafirnar segir Jóhannes að hafi ekki verið margar eða tilkomumiklar, stundum einhver föt en aðallega kerti og spil. Hangikjöt var á borðum og stundum steik. Það voru þrjár kirkjur í sókninni og því messað þriðja hvern sunnudag á Stokkseyri. Fjölskylda Jóhannesar fór þá til guðsþjónustu og alltaf á jólum. Pabbi hans las einnig jólaguðsspjallið á aðfangadag áður en gengið var í kringum jólatréð.
Jóhannes og Anna Jónína ásamt börnum sínum.
Lýðveldishátíðin á Þingvöllum 1944 Jóhannes ákvað að feta í fótspor föður síns og leggja fyrir sig húsasmíði. Hann þurfti í tengslum við það að sækja skóla í samkomuhúsið á Eyrarbakka veturna sem hann var 14 og 15 ára. Hann bjó á Stokkseyri fram til ársins 1944. Þá starfaði hann hjá Stoð sem sá um að gera allt tilbúið fyrir lýðveldishátíðina á Þingvöllum árið 1944. Þegar því starfi lauk þá flutti Jóhannes til Reykjavíkur. „Mér fannst fínt að koma til Reykjavíkur. Ég hitti
30
Heimilispósturinn
Jólahald í sjávarþorpinu Stokkseyri konuna mína fljótlega, Önnu Jónínu Þórarinsdóttur sem var frá Fljótsbakka í Eiðaþinghá og við giftum okkur árið 1948.“ Hún lést í mars árið 2012 svo árin sem þau fengu saman urðu mörg. Jóhannes vann alla tíð við smíðar og annað tilfallandi og segir að Anna hafi verið heima að hugsa um heimilið. Þau eignuðust fimm börn, Guðríði, Jóhönnu, Guðmund, Þórarinn og Óskar og barnabörnin og barnabarnabörnin skipta tugum. Lét konuna ráða jólahaldinu Þegar talið berst að jólahaldi hans á fullorðinsárum segir hann að það hafi komið í hlut Önnu að sjá um undirbúning og skipuleggja með hvaða hætti það væri. „Við bjuggum í nokkur ár á Flókagötu en svo byggði ég hús í Bólstaðarhlíð og þar bjuggum við í meira en hálfa öld. Jólin okkar þar voru með svipuðum hætti alla tíð og Anna hefur eflaust komið með siði frá sínu bernskuheimili en við borðuðum alltaf hangikjöt á jóladag og hamborgarhrygg á aðfangadag. Það var farið til messu á jólum og síðan var jólahaldið bara í föstum skorðum, engir sérstakir siðir sem ég kom með af mínu bernskuheimili.“ Síðustu árin hefur Jóhannes verið hjá börnunum sínum um jólin en hann veit ekki hvernig það verður í ár. Hann er kominn í hjólastól og segir það aðeins meira mál að fara milli húsa og því óvíst hvernig þetta verði með jólahaldið núna. Jóhannes segir í lokin að það fari vel um sig á Grund, þar sé vistlegt og hreint og starfsfólkið alúðlegt og ekkert nema gott um heimilið að segja.
Heimilispósturinn
31
Jólahlaðborð í Mörk
Þ
Jólapeysur og jólatónar
að var jólalegt í Mörk þann 8. desember þegar snillingar í eldhúsi Markar buðu upp á jólahlaðborð og haldinn var jólafatadagur á heimilinu. Jólatónlist ómaði um húsið og kertaljós voru í stjökum. Sumir tóku daginn alveg með trompi á meðan aðrir létu nægja að mæta með jólasveinahúfu eða setja upp rauðan varalit.
Gunnur Róbertsdóttir, Bryndís Garðarsdóttir og Guðrún Hreinsdóttir mættu auðvitað í jólapeysum.
32
Heimilispósturinn
Jólahlaðborð í Mörk
Flottur og jólalegur hópur.
Búið var að skreyta matsalinn hátt og lágt.
Heimilispósturinn
33
Hátíðasalur Grundar
S
Margir mættu í jólabingó
tarfsmannafélag Grundar gekkst fyrir jólabingói nú í desember. Á sjötta tug starfsmanna mættu enda vinningarnir flottir og næstum jafn margir og þátttakendur. Sumir voru heppnari en aðrir en það var þó ekki annað að sjá en flestir færu heim í lokin með bros á vör.
Stjórn starfsmannafélagsins að pukrast með vinningana.
Þeir sem þekkja frú Sigríði fræðslustjóra á myndinni sjá strax á svipbrigðum hennar að þessi bingó vinningur er alveg sérstakur.
34
Heimilispósturinn
Jólaundirbúningur í Bæjarási
E
Jólasvuntuna þarf að strauja
ins og annars staðar er verið að undirbúa komu jólanna í Bæjarási og hann Árni Sigurðsson heimilismaður situr sjaldan auðum höndum. Hann hefur búið í Bæjarási um árabil og að sögn Steinunnar S. Gísladóttur heimilisstýru er hann afar iðinn og hjálplegur við öll heimilisstörf enda ávallt búið einn og hefur því þurft að sjá um sitt heimili sjálfur alla tíð. Þegar kom að því að strauja jólasvuntuna fannst honum það lítið mál að sjá um það og þá smelltum við af honum einni mynd við verkið.
Árni Sigurðsson að strauja jólasvuntuna.
Heimilispósturinn
35
Jólabakstur í Ási
Súkkulaðibitakökur og spesíur
Þ
að sköpuðust mjög skemmtilegar umræður í Ási um smákökubakstur þegar fjórar vinkonur bökuðu saman súkkulaðibitakökur og spesíur nýlega. Þetta voru þær Bryndís Ármannsdóttir, Elísabet Þorgeirsdóttir, Ólöf Fríða Gísladóttir og Una Sighvatsdóttir. Fanney Björg Karlsdóttir, iðjuþjálfi í Ási, bakaði með þeim og rifjaði upp gamla tíma. Jól í torfbæ
Una sagðist muna eftir jólum í torfbæ. Hún hafði orð á því hversu hátíðlegt henni hafi fundist það, lifandi kerti út um allt og svo hugguleg stemning. Þau voru 14 systkinin en samt var alltaf nóg pláss, alltaf húslestur á aðventunni og á aðfangadagskvöld var mikið sungið og alltaf dansað í kringum jólatréð.
Þessar dömur eru ekki að baka smákökur í fyrsta skipti. Þær Bryndís Ármannsdóttir, Fríða Gísladóttir og Elísabet Þorgeirsdóttir sýndu að þær hafa engu gleymt. Berglind Helgadóttir var þeim innan handar.
36
Heimilispósturinn
Jólabakstur í Ási
Bryndís Ármannsdóttir, Fríða Gísladóttir og Rósa Guðmundsdóttir og skáluðu í sérríi að bakstrinum loknum.
Heitt súkkulaði áður en farið var í fjósið Bryndís sagði að þegar hún var barn fékk heimilisfólkið alltaf heitt súkkulaði og smákökur klukkan 18.00 áður en farið var í fjósið. Þegar bústörfum var lokið og allir komnir í jólafötin var borið á borð hangikjöt með öllu tilheyrandi. Níu dúkkur og bollastell Lísa sagði frá því að jólin þegar hún var 4 ára fékk hún hvorki meira né minna en 9 dúkkur og lítið fallegt bollastell í jólagjöf. Móðurbróðir hennar hafði haft orð á því að þessar dúkkur yrðu að heita eitthvað og í kjölfarið var haldin skírnarveisla þar sem hann gengdi hlutverki prestsins. Eftir baksturinn var boðið upp á kaffi og sérrí og auðvitað smakkað á þessum dásamlega smákökubakstri. Heimilispósturinn
37
Samstarf Vogaskóla og Markar
Hljóðfæraleikur, söngur og spil
N
emendur úr fjórða bekk í Vogaskóla komu í heimsókn til okkar í Mörk í vikunni. Þetta voru frábærir krakkar og kennarar. Þau byrjuðu á að syngja nokkur lög og ein stúlkan gerði sér lítið fyrir og lék á klarinett fyrir okkur. Einn nemendanna á ömmu í Mörk og notaði auðvitað tækifærið og átti góða stund með henni. Svo var tekið í spil og spjallað. Samstarfið notalegt og gefandi fyrir báða hópa, heimilisfólk og nemendur.
Nemendur í Vogaskóla áttu notalega stund með heimilisfólki.
38
Heimilispósturinn
Samstarf Vogaskรณla og Markar
Krakkarnir spjรถlluรฐu um heima og geima.
Heimilispรณsturinn
39
Jólaundirbúningur í Ási
Heimagerðar skreytingar í Ási
Þ
að fer ekkert á milli mála hvaða tími er í nánd þegar maður finnur ilm af smákökum og öðru bakkelsi. Starfsfólkið í eldhúsinu hefur staðið í ströngu undanfarið við jólabaksturinn og töfrað fram hverja sortina á fætur annarri og ilmurinn dásamlegur. En það er í mörg horn að líta á stóru heimili, margt sem þarf að gera. Heimagerðar jólaskreytingar eru ómissandi hluti af jólahaldinu og hefð hjá mörgum fjölskyldum. Þau Magnús Thorberg, Ólína Guðmundsdóttir og Helga Baldvina Ásgrímsdóttir tóku sig til og bjuggu til fallega og jólalega skreytingu sem mun prýða setustofuna í Ásbyrgi yfir hátíðina.
Magnús Thorberg og Ólína Guðmundsdóttir með kransinn sem þau gerðu ásamt Helgu Baldvinu Ásgrímsdóttur.
40
Heimilispósturinn
Jólaundirbúningur í Ási
Magnús Thorberg og sveinki.
Jólakransinn tilbúinn á borðstofuborðið.
Heimilispósturinn
41
Léttar leikfimiæfingar
Þ
Æfingar fyrir háls og höfuð
að er gott að gera hreyfingar heima sem stuðla að bættum liðleika og aukinni hreyfigetu. Í næstu Heimilispóstum bendum við á nokkrar æfingar fyrir heimilisfólk til að gera sjálft. Fyrst koma í þessu jólablaði æfingar fyrir háls og höfuð.
42
Heimilispósturinn
Vetrarmorgunn á Grund
S
Rómantík, söngur og umhyggjusemi
umir morgnar hér á Grund eru pínulítið dásamlegri en aðrir. Í upphafi aðventu var svoleiðis morgunn, fullur af hlýju og kærleika. Ástfangið fólk, umhyggjusamur eiginmaður, englaraddir ómuðu í hátíðasal, Unnur María sýndi húllalistir og Megas, Magga Stína og Margrét Blöndal sungu af innlifun. Þvílík forréttindi að fá að vera í morgunstundinni hjá Sr. Pétri Þorsteinssyni þennan daginn.
Sr. Pétur Þorsteinsson leikur hér á gítar en hann hefur umsjón með morgunstund. Eiríkur smellir hér kossi á Sigríði konu sína.
Heimilispósturinn
43
Vetrarmorgunn á Grund
Unnur María sýndi listir sínar og húllaði snilldarlega.
Hrefna Björnsdóttir og Unnur María tóku saman tal eftir sýninguna.
44
Heimilispósturinn
Vetrarmorgunn á Grund
Magga Stína, Megas og Margrét Blöndal sungu af innlifun.
Hilmar Ö. Agnarsson leikur undir hjá bresku söngkonunni Helois frá Glastonbury.
Heimilispósturinn
45
Vinátta í Ási
Kisan sem vill kúra hjá Magnúsi
Þ
au eru miklir mátar, Magnús Thorberg og læðan hún „Mömmu sinnar kisu skott“ og njóta þess að eyða saman tíma. Við náðum mynd frá slíkri gæðastund.
46
Heimilispósturinn
Ókunnugur hundur í heimsókn
D
Miði í hálsólinni
ag einn fór gamall golden retriever hundur að venja komur sínar heim til eldri konu sem býr í Bandaríkjunum. Hann birtist við útidyr hennar og var bæði rólegur og glaður og hún hleypti honum inn. Hann gekk rólegur inn og fann sér fljótt horn í stofunni og lagðist þar niður og fór að sofa. Svona gekk þetta dag eftir dag, hundurinn kom og heilsaði konunni og fór síðan í hornið sitt og lagðist til svefns. Konan spáði mikið í hver ætti hundinn og hvaðan hann kæmi og af hverju hann kæmi heim til hennar til að fá sér nokkurra klukkustunda blund dag hvern. Þegar hann vaknaði kvaddi hann konuna og rölti aftur af stað. Í umfjöllun Newsner um málið segir að eftir nokkrar vikur hafi konan sett miða í hálsól hundsins en á honum stóð: „Ég vil gjarnan komast að því hver á þennan frábæra hund og hvort eigandinn veit að hundurinn kemur heim til mín nánast hvern dag til að fá sér blund.“ Daginn eftir kom hundurinn aftur að vanda og tók konan eftir að í hálsólinni var lítill miði. Hún tók hann af og las en á honum stóð: „Hann býr á heimili þar sem eru sex börn, þar af tvö undir þriggja ára aldri. Hann er því að reyna að fá einhvern svefn. Má hann koma aftur á morgun?“
Heimilispósturinn
47
Heimilisfólkið í Bæjarási
Heimilispósturinn er kominn út
V
ið fengum senda þessar dásamlegu myndir úr Bæjarási. Þær eru teknar rétt eftir að síðasta tölublaðið okkar kom út í október. Heimilisfólkið búið að fá Heimilispóstinn sinn í hendurnar. Mikið er þetta notaleg sjón.
48
Heimilispósturinn