HEIMILISPÓSTURINN Heimilisblað Grundar, Áss og Markar 56. árgangur
desember 2019
l ó j g e l i ð e l G
3. tölublað
Efnisyfirlit Fæðing frelsarans á jólanótt .................................................................................. 3 Heitir bakstrar og handavinna ................................................................................ 5 Fastur liður á aðventu ............................................................................................. 6 Engin jól án randalínu ............................................................................................. 8 Gleðistund í Mörk ....................................................................................................9 Prúðbúnir heimilismenn og góðir gestir ................................................................ 10 Starfsfólk getur aldrei komið í stað ástvina ............................................................12 Hreyfispjöldin notuð við æfingar ........................................................................... 15 Grund lenti í 24 sæti af 194 ...................................................................................16 Prúðbúnir gestir og jólasöngvar .............................................................................17 Fyrsti í aðventu ......................................................................................................18 Hjaltalín og forsetinn í hátíðasal ........................................................................... 20 Bakað fyrir jólin ......................................................................................................22 Margir bíða eftir að komast á basarinn ................................................................. 23 Jólin jólin ............................................................................................................... 24 Skóhorn, jólaskraut og nýbakaðar vöfflur ..............................................................26 Algengt að jólaskeiðum væri safnað..................................................................... 28 Elliheimilisliðið framlengdi samninga í hátíðasal .................................................. 30 Samvinna heimilisfólks og starfsfólks ................................................................... 31 Íslensku þjóðina setti hljóða.................................................................................. 32 La Traviata féll í góðan jarðveg ............................................................................ 38 Kertaljós og jólalegar veitingar ............................................................................. 40 Þykir vænst um fjölskyldumyndirnar ..................................................................... 42 Fyrsta skáldsagan gefin út fyrir jólin ..................................................................... 46 Það besta verður hvort sem er ekki sagt .............................................................. 50 Lifi í vellystingum á Grund .................................................................................... 55
Forsíðumyndin er tekin á tónleikum Ragga Bjarna á Grund í upphafi aðventu. Ritstjóri: Guðbjörg R. Guðmundsdóttir Hönnun og uppsetning: Sigrún Jóna Leifsdóttir Prentun: GuðjónÓ Upplag: 1600
2
Heimilispósturinn
JólahugvekJa 2019 Fæðing frelsarans á jólanótt
N
ú líður að jólum, stærstu hátíð Íslendinga. Jólaundirbúningur inn stendur sem hæst þar sem við búum okkur undir að eiga heilög jól. Þegar litið er til baka til jóla og aðventu liðinna ára þá er það oft undirbúningur hátíðarinnar sem lifir sterkast í hjörtum okkar. Við vitum að í góðri sögu þá er það mikilvægt að byggja upp spennu og eftirvæntingu áður en hápunkti er náð. Eins er það með blessuð jólin. Það skiptir okkur miklu að eiga góð jól, en það skiptir líka máli að landsmenn allir fái að njóta jólahátíðarinnar. Við viljum að börn og fullorðnir eigi gleðiríka jólahátíð. Ýmsir siðir hafa þróast meðal þjóðarinnar við að safna fyrir bágstadda fyrir jólin. Íslendingar eru duglegir að gefa bæði peninga- og matargafir, allt í anda jólanna sem boða frið og fögnuð. Við erum rausnarleg þjóð og saman lyftum við Grettistaki ef við einsetjum okkur að hjálpa náungum í neyð. Afar mikilvægt er að undirbúa jólin og íhuga hvað hátíðin helga gengur út á. Jólin hafa í gegnum tíðina markast af mikilli efnishyggju og boðskapur jólanna hefur viljað gleymast. Einn er sá sem alltaf stendur okkur við hlið og býður okkur til andlegrar jólaveislu, en það er frelsarinn okkar Jesús Kristur. Yfirskrift aðventunnar er: Sjá ég stend við dyrnar og kný á. Ef einhver heyrir raust mína og lýkur upp dyrunum, þá mun ég fara inn til hans og neyta kvöldverðar með honum og hann með mér (Opb. 3.20)
Heimilispósturinn
3
JólahugvekJa 2019 Siðir og venjur tengjast jólum og aðventu sterkum böndum. Það finnum við svo vel hvað varðar jólaskraut og bakstur svo dæmi séu tekin. Jólaskraut gengur jafnvel í erfðir og flest skraut á sinn stað á heimilinu. Samt breytast siðir með árunum. Það sem tíðk aðist á tímum forfeðra okkar þætti okkur sjálfsagt ekki merkilegt í dag. Jólasveinarnir og saga þeirra hefur fylgt þjóðinni í alda raðir en jafnvel þeir hafa breyst. Klæðast þeir nú rauðum klæðnaði að amerískum sið. Þó svo að jólasveinarnir 13 setji sinn svip á jólin þá er það samt rauði þráðurinn sem hefur haldist í aldanna rás, fæðing frelsarans sem kom í heiminn á jólanótt til þess að gæta eignar sinnar. Frelsarinn sem kom í heiminn til þess að bera vitni um kærleiksríkan Guð sem lætur sér annt um sköpun sína, velferð okkar. Yfirskrift aðventunnar er einnig Sjá konungur þinn kemur til þín. Jesús knýr á dyr okkar og kemur til hvers og eins okkar. Hann kemur til þín. Það er því mikilvægt á aðventu í öllum jólaundirbún ingnum að gleyma ekki Jesúbarninu og búa okkur undir að taka á móti hinni stærstu gjöf, Jesú Kristi. Megi algóður Guð færa þér og ástvinum þínum frið og fögnuð á helgri jólahátíð. Auður Inga Einarsdóttir heimilisprestur á Grund
4
Heimilispósturinn
JólahugvekJa aðventan í M2019 örk Heitir bakstrar og handavinna
Þ
að er ýmislegt haft fyrir stafni í vinnustofu Markar á 1. hæð inni og undanfarið hefur handverkið sem fólk er að vinna við borið þess merki að jólin eru á næsta leiti. Heimiliskonurnar Helga og Svava eru hér með heita bakstra, alveg örugglega að njóta lífsins og eitthvað skemmtilegt eru þær í samvinnu að búa til.
Ekki amalegt að mæta í vinnustofu Markar, fá heitan bakstur og föndra saman.
Heimilispósturinn
5
Fastur JólahugvekJa liður á aðventu 2019 Jólabingó í Ási
Þ
að er alltaf vel mætt í jólabingóið í Ási enda til mikils að vinna og glæsileg ir bingóvinningarnir. Yfirleitt má heyra saumnál detta milli þess sem tölurnar eru lesnar upp, einbeitingin skín úr hverju andliti. Það var að þessu sinni Fanney Björg Karls dóttir iðjuþjálfi sem las upp bingótölurnar.
Einbeitingin skín úr andlitum þátttakenda.
6
Heimilispósturinn
Fastur JólahugvekJa liður á aðventu 2019
Það er alltaf vel mætt í jólabingóið í Ási.
Hér er Fanney að lesa upp tölurnar.
Heimilispósturinn
7
ÚtbJuggu Jlista ólahugvekJa og svo hóFst 2019baksturinn Engin jól án randalínu
H
eimilisfólk og starfsfólk í Bæjarási ákvað að baka randa línu fyrir fyrsta sunnudag í aðventu. Dagrún Inga, sem er starfsmaður á heimilinu, skellti sér í baksturinn undir dyggri handleiðslu heimiliskvenna. Uppskriftin var gömul og góð og allir sammála um að baka brúna randalínu með smjörkremi. Þetta var í fyrsta sinn sem Dagrún Inga bakaði randalínu og tókst líka svona ljómandi vel. Afgangurinn af randalínunni fór í frysti til jóla. Að sögn Steinunnar Svanborgar Gísladóttur heimilisstýru er búið að baka ýmislegt í Bæjarási þessa aðventuna og heimilisfólk og starfsfólk útbjó bökunarlista. Þar á meðal voru engiferkökur, mömmukök ur, hálfmánar með rabarbarasultu, spesíur og súkkulaðibitakök ur. Sigurður, sem er í dagdvöl í Bæjarási, kom síðan með lakk rístoppa og kornflexbitakökur. Það verður aldeilis gaman að koma í jólakaffi á þetta heimili.
Dagrún Inga bakaði randalínuna með dyggri aðstoð heimiliskvenna.
8
Heimilispósturinn
Jk ólahugvekJa ynslóðir Mætast 2019 Gleðistund í Mörk
Þ
að er fátt sem vekur jafn mikla kátínu í Mörk og þegar ungviðið kemur í heimsókn. Einn morguninn var alveg ljóst að það voru mörg börn í húsinu og því sannkölluð gleði stund. Anddyri heimilisins var fullt af litríkum skófatnaði og útigöllum. Notalegt andrúms loft þegar inn var komið, kertaljós, jólalögin ómuðu úr matsalnum og ilmur af nýlöguðu súkkulaði og kökubakstri barst um húsið.
Það er alltaf skemmtilegt þegar börn koma í heimsókn.
Heimilispósturinn
9
aFMælis JólahugvekJa - og ForeldrakaFFi 2019 Prúðbúnir heimilismenn og góðir gestir
Á
rlega er haldið upp á afmæli Grundar í lok október og í leiðinni boðið í svokallað foreldrakaffi. Sagan á bakvið for eldrakaffið er svolítið skemmtileg. Þegar stóð til að byggja Grund kom á fund stjórnar heimilisins Sveinn Jónsson kaupmað ur í Völundi. Hann tilkynnti að hann og systkini sín gæfu í hús byggingarsjóð þúsund krónur gegn því að jafnan yrði haldið upp á brúðkaupsdag foreldranna Jóns Helgasonar og Guðrúnar Sveins dóttur frá Steinum undir Eyjafjöllum. Æ síðan, frá árinu 1925, hefur verið staðið við loforðið og haldið upp á dag þeirra hjóna samhliða afmæli heimilisins. Að þessu sinni flutti Gísli Páll Pálsson, forstjóri Grundar, ávarp og síðan sungu stórsöngvararnir Geir Ólafsson og Kristján Jóhannsson við undirleik Þóris Baldurssonar.
Hátíðasalurinn var þétt setinn í hófinu.
Heimilisfólk og starfsfólk söng með fullum hálsi.
10
Heimilispósturinn
aFMælis JólahugvekJa - og ForeldrakaFFi 2019
Geir Ólafsson söng af mikilli innlifun.
Gisli Páll Pálsson forstjóri flutti ávarp í upphafi.
Kristján Jóhannsson vissi hvernig heilla átti heimilskonurnar.
Heimilispósturinn
11
aðventuhátíð JólahugvekJa og aðstandendakaFFi 2019
í
Mörk
Starfsfólk getur aldrei komið í stað ástvina
S
ú hefð hefur skapast í Mörk að halda aðventuhátíð í upp hafi aðventu og bjóða aðstandendum að koma og gleðjast með fólkinu sínu. Ættingjar koma með veitingar á hlaðborð og starfsfólk í Mörk leggur líka til veitingar á borðið og eldhúsið á fyrstu hæð. Að þessu sinni hófst hátíðin á því að Ragnhildur G. Hjartardóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri Markar flutti ávarp. Þar ræddi hún einmitt um hversu miklu nærvera aðstandenda skipt ir og benti svo réttilega á að starfsfólk getur aldrei komið í stað ástvina. Hún ræddi einnig um Eden hugmyndafræðina sem við vinnum eftir í Mörk og fellur svo vel að gildum heimilisins sem er vellíðan, virðing og vinátta.
Vellíðan Virðing Vinátta
Ragnhildur G. Hjartardóttir.
12
Heimilispósturinn
aðventuhátíð JólahugvekJa og aðstandendakaFFi 2019
í
Mörk
Heimilsfólk bauð aðstendendum á hátíðina.
Hjónin Margrét og Birgir kunnu vel að meta heitt súkkulaði og kruðerí.
Ættingjar koma margir hverjir með rétt á hlaðborðið.
Heimilispósturinn
13
aðventuhátíð JólahugvekJa og aðstandendakaFFi 2019
í
Mörk
Hvenær hættum við að þroskast? „Eden er engin geimvísindi heldur snýst hún um þessa litlu hvers dagslegu hluti sem skipta okkur máli, sjálfsagða hluti eins og að fá ristað brauð og velja fatnað dagsins. Að skapa heimilislegt um hverfi og vinnustað þar sem fólki líður vel og að hvetja menningu sem er hlý og mannúðleg. Að sýna tillitssemi og virðingu, að knýja á dyr, spyrja og tala saman.“ Ragnhildur sagði Mörk eiga að vera heimili þar sem hinn aldraði er virkur þátttakandi og fær tækifæri til að tjá óskir sínar og langanir. „Heimili þar sem einstaklingur inn heldur áfram að vaxa og þroskast þrátt fyrir að vera kominn á hjúkrunarheimili, því hvenær hættum við að þroskast, er það þegar við verðum 20 ára – 30 ára – 60 ára? Það er til dæmis mik ið þroskaferli að flytja inn á hjúkrunarheimili. Það fer ekki framhjá okkur sem hér störfum að aðstandendur eru afar mikilvægir í lífi heimilismanna, við komum aldrei í staðinn fyrir ástvini. Við leggj um áherslu á að aðstandendur eru hjartanlega velkomnir, bæði í heimsóknir og sem þátttakendur í daglegu lífi, við erum í raun umönnunarfélagar. Því skiptir miklu máli að aðstandendur upplifi sig velkomna“. Fjóla Haraldsdóttir djákni flutti síðan hugvekju og í lokin söng Barnakór Varmárskóla í Mosfellsbæ jólalögin.
Sólveig, Guðrún, Sigurveig og Pálmi voru að undirbúa boðið á heimilinu.
14
Heimilispósturinn
JhólahugvekJa eilsulind Markar 2019 Hreyfispjöldin notuð við æfingar
Í
þrótta og heilsufræðingarnir Anna Björg Björnsdóttir og Gerður Jónsdóttir fengu áhuga á heilsueflingu eldri borgara í námi sínu og í kjölfarið kviknaði hugmynd að hreyfispjöldum. Spjöldin eru komin út og eru að sögn Lailu Arnþórsdóttur framkvæmdastjóra Heilsulindarinnar stundum notuð þegar íbúar eru í sundleikfimi.
Íbúar í Íbúðum 60+ mæta oft í sundleikfimi.
Heimilispósturinn
15
heiMilisMenn JólahugvekJa hJóla uM2019 allan heiM Grund lenti í 34 sæti af 194
H
eimilismenn á Grund tóku í ár þátt í hjólakeppninni Pedal On Road Worlds For Seniors. Keppnin er norsk að uppruna og þátttakendur geta ferðast um allan heim á meðan þeir hjóla þ.e. horft á myndbönd hvaðanæva að. Grund lenti í 32 sæti í keppninni af 194 hjúkrunarheimilum víðsvegar um heim sem tóku þátt. Í fyrsta sæti í karlaflokki á Grund varð Ólafur Björgúlfsson, í fyrsta sæti í kvennaflokki Sigrún Jóhannsdóttir og í öðru sæti í kvennaflokki Kristín Guðmundsdóttir. Frábær árangur.
Það er gaman að hjóla í góðum félagsskap og ekki skemmir fyrir að geta hjólað um víða veröld.
16
Heimilispósturinn
Jólaglögg JólahugvekJa á kaFFi 2019 Mörk Prúðbúnir gestir og jólasöngvar
Í
búar í Íbúðum 60+ í Mörkinni kunna svo sannarlega að gera sér glaðan dag. Í upphafi aðventu var haldin jólaglögg á Kaffi Mörk og það var fullur salur af prúðbúnum íbúum sem mætti í gleðskapinn. Búið var að skreyta kaffihúsið, kveikja á kertum og hátíðleikinn allsráðandi. Anna Sigríður Helgadóttir söngkona kom í heimsókn og söng m.a. jólalögin. Það fóru allir heim með yl á sál og líkama eftir þessa notalegu stund.
Þessar hlustuðu af innlifun.
Anna Sigríður Helgadóttir.
Fjölmargir mættu í jólaglögg íbúa í byrjun aðventu.
Heimilispósturinn
17
aJðventuhátíð ólahugvekJa á 2019 grund Fyrsti í aðventu
F
yrsta sunnudag í aðventu var guðsþjónustan með öðru sniði en venjulega, boðið var á aðventuhátíð. Gerður G. Bjarklind er aðstandandi og flutti hún hugvekju. Kveikt var á fyrsta aðventukertinu og Valdís Viðarsdóttir starfsmaður á vinnustofu Grundar sagði jólasögu. Það var sr. Auður Inga Einarsdóttir heim ilisprestur sem þjónaði fyrir altari og Grundarkórinn söng jólalögin undir stjórn Kristínar Waage kórstjóra og organista.
Sr. Auður Inga Einarsdóttir þjónaði fyrir altari.
18
Heimilispósturinn
aJðventuhátíð ólahugvekJa á 2019 grund
Gerður G. Bjarklind flutti jólahugvekju.
Grundarkórinn söng jólasálma undir stjórn Kristínar Waage.
Heimilispósturinn
19
iceland aJirwaves ólahugvekJa hátíðin2019 sett á grund Hjaltalín og forsetinn í hátíðasal
Þ
að hefur skapast hefð fyrir því að hafa setningarhátíð Iceland Airwaves á Grund og svo var einnig þetta árið, í byrjun nóvember. Það var hljómsveitin Hjaltalín sem reið á vaðið með hálftíma tónleika eftir að Ísleifur B. Þórhallsson hjá Senu Live hafði opnað formlega hátíðina og forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, flutt ávarp. Áður en hátíðin hófst fylgdust gestir með daglegri morgunstund í umsjón sr. Péturs Þorsteinssonar þar sem gerðar voru leikfimiæfingar, lesið upp og sungið. Leikskóla börn komu í heimsókn, heimilisfólk fjölmennti og gestir Iceland Airwaves á meðan húsrúm leyfði. Heimilisfólkið á Grund er þegar farið að hlakka til að ári.
Kiddi og Nikulás stóðu vaktina sem dyraverðir.
20
Heimilispósturinn
iceland aJirwaves ólahugvekJa hátíðin2019 sett á grund
Pétur lét gesti hátíðarinnar gera leikfimiæfingar.
Sigríður Thorlacius söng eins og engill.
Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson hlýddi á Hjaltalín.
Heimilispósturinn
21
JJólabakstur ólahugvekJa ág 2019 rund Bakað fyrir jólin
H
ér áður fyrr voru bakaðar tíu til fimmtán smákökusortir á hverju heimili en líklega eru þau fá heimilin í dag þar sem slík fyrirhöfn er viðhöfð. Starfsfólk í iðjuþjálfun Grundar er með færanlegan bökunarofn og fer um heimilið og bakar með heimilisfólki engiferkökur, spesíur og súkkulaðibitakökur svo dæmi séu tekin. Húsakynnin ilma af nýbökuðum kökum, jólalögin óma og boðið er upp á jólaöl með ylvolgum smákökum. Dásamlegar stundir.
Alveg að verða búið að fylla þessa plötu.
Spesíurnar eru allaf góðar.
22
Heimilispósturinn
JólahugvekJa Jólabasar í á 2019 si Margir bíða eftir að komast á basarinn
Þ
að kennir ýmissa grasa á jólabasarnum í Ási sem haldinn er ár hvert. Margir birgja sig upp af vettlingum og sokkum fyrir veturinn og svo eru aðrir sem kaupa jólagjafirnar á kosta kjörum. Einhverjir koma líka bara til að fá sér vöfflukaffi og sýna sig og sjá aðra. Það voru þær stöllur Gunnhildur Þórmundsdóttir og Guðrún Hallgrímsdóttir sem sáu um vöfflubaksturinn eins og undanfarin ár.
Guðrún og Gunnhildur sáu um vöflukaffið.
Signý skoðar úrvalið með dætrum sínum.
Heimilispósturinn
23
sMákökubaksturinn JólahugvekJa 2019 í ási Jólin jólin
V
íða í Ási er verið að baka smákökur fyrir jólin og þessi mynd var tekin á hjúkrunarheimilinu einn fallegan desemberdag þegar þessar líka himnesku smákökur voru bakaðar.
Það var mikið líf og fjör enda er alltaf gaman að hittast og baka saman. Uppskriftin að himnesku smákökunum var fundin á vef síðunni www.grgs.is
Himnesku smákökurnar Hér er 1 bolli = 240 ml 1 bolli hveiti ½ tsk lyftiduft ½ tsk kanill ¼ tsk salt 10 msk smjör, við stofuhita ½ bolli sykur ½ bolli púðusykur 1 egg 1 tsk vanilludropar 1 bolli haframjöl ½ bolli ljósir súkkulaðidropar ½ bolli hvítir súkkulaðidropar 1 bolli trönuber, gróflega söxuð 24
Heimilispósturinn
sMákökubaksturinn JólahugvekJa 2019 í ási 1. Hitið ofninn í 180 gráður. Blandið saman í skál, hveiti, lyftidufti, salti og haframjöli. 2. Þeytið saman í hrærivél smjöri og sykrinum og bætið svo við egginu og vanilludropunum. Hrærið svo hveitiblöndunni útí. 3. Blandið trönuberjunum og súkkulaðidropunum varlega saman. 4. Rúllið deiginu í litlar kúlur (ca. kúfuð teskeið). Setjið á bökunar pappírsklædda ofnplötu og passið að þær séu ekki of nálægt hvor annarri þar sem þær dreifa úr sér í ofninum. Bakið í heit um ofninum í um 16 mín. 5. Látið kólna áður en teknar af plötunni. Njótið, njótið, njótið.
Allir nutu stundarinnar.
Heimilispósturinn
25
JólahugvekJa ólabasar á g2019 rund Skóhorn, jólaskraut og nýbakaðar vöfflur
S
kóhorn, sokkar, hálsmen, jólaskraut og margt fleira var selt á árlegum jólabasar Grundar sem haldinn var í lok nóvember. Varningurinn er unnin af heimilisfólki Grundar en einnig var selt handverk frá heimilisfólki í Ási í Hveragerði. Basarinn, sem undanfarin ár hefur verið í hátíðsal er einnig aðventukaffi þ.e.a.s. heimilismenn og ættingjar gátu keypt vöfflur á vægu verði á kaffi húsi sem sett var upp í tilefni dagsins. Fjölmargir mættu og gerðu góð kaup og gæddu sér á nýbökuðum vöfflum.
Handprjónaðir sokkar og vettligar, húfur og peysur voru til sölu.
26
Heimilispósturinn
JólahugvekJa ólabasar á g2019 rund
Margir keyptu jólagjafir á basarnum.
Vöfflukaffið var vinsælt hjá fólkinu.
Heimilispósturinn
27
Jólaskeiðar JólahugvekJa til uMræðu2019 í Minningahópi Algengt að jólaskeiðum væri safnað
S
aga jólaskeiðanna hófst þegar Guðlaugur A. Magnússon gullsmiður lét hanna fyrstu skeiðina árið 1946 og var með hana til sölu í búðinni sinni. Næsta skeið var svo smíðuð árið 1948 og æ síðan hefur jólaskeið komið út ár hvert. Tveir gullsmiðir létu síðar hanna jólaskeiðar, Magnús E. Baldvinsson og Gull og silfursmiðjan Erna. Katla Kristvinsdóttir iðjuþjálfi Grundar er með hópa í minningavinnu og nú í desember ákvað hún að mæta með jólaskeiðar frá Guðlaugi A. Magnússyni og rifja upp með heimiliskonum hvernig það var þegar enginn var maður með mönnum nema safna jólaskeiðum. Það var algengt að foreldrar gáfu börnum og barnabörnum svona skeiðar í jólagjöf og á mörg um heimilum eru enn í dag til tólf til átján jólaskeiðar sem notaðar eru á hátíðisdögum. Vinsældir jólaskeiðanna duttu niður um tíma en í dag eru þær eftirsóttar og ekki síst eldri skeiðar sem ganga kaupum og sölum á samfélagsmiðlum. Ein heimiliskona, sem tók þátt í umræðum í minningahópnum, átti þrjátíu jólaskeiðar. Sumar skeiðarnar eru bara úr silfri, aðrar með gyllingu á og enn aðrar skreyttar með jólaskrauti í litum. Þeir sem hafa safnað jólaskeið um frá GAM frá upphafi eiga þá sjötíu skeiðar núna.
28
Heimilispósturinn
Jólaskeiðar JólahugvekJa til uMræðu2019 í Minningahópi
Heimiliskonurnar nutu þess að skoða jólaskeiðarnar.
Ein í hópnum átti þrjátíu jólaskeiðar.
Heimilispósturinn
29
kr-Jingar ólahugvekJa Funduðu 2019 á grund Elliheimilisliðið framlengdi samninga í hátíðasal
K
Ringar komu í hátíða sal Grundar síðastliðið haust þar sem Pálmi Rafn Pálmason og Aron Bjarki Jóspesson framlengdu samninga sína við nýkrýnda Íslandsmeistara KR. Það var Gísli Páll Pálsson forstjóri Grundar sem tók á móti KR ingunum og færði þeim Sögu Grundar og Grundarspil svo þeir gætu kynnt sér söguna á framtíðarheimilinu sínu og tekið í spil til að æfa sig fyr ir hin kappsfullu spilakvöld Grundar. Forsagan er sú að margir höfðu haft orð á því að meðalaldur liðsins væri of hár og talað um liðið sem elli heimilið Grund í hlaðvarps þáttum hér á landi. KRingar ákváðu því að halda fund á Grund þar sem samningar voru framlengdir.
30
Gísli Páll tekur við áritaðri treyju.
Heimilispósturinn
Jólaskreyting JólahugvekJa í anddyri 2019 Markar Samvinna heimilisfólks og starfsfólks
M
eð reglulegu millibili taka heimilisfólk og starfsfólks sig saman og búa til skreytingu á vegginn í anddyri Markar við hlið Boggubúðar. Skreytingin tengist árstímanum og að þessu sinni var það jólaskreyting sem sett var upp. Undirbún ingur hefur staðið yfir í nokkrar vikur og árangurinn ótrúlega flottur.
Jólaskrautið í vinnslu.
Ása og Lilja við listaverkið.
Tilbúið og meira að segja pakkar undir trjánum.
Heimilispósturinn
31
saga guðrÚnar JólahugvekJa lárusdóttur 2019 tengist grund Íslensku þjóðina setti hljóða
M
eðal bókanna sem eru að koma út nú fyrir jólin er En tíminn skundaði burt..., saga Guðrúnar Lárusdóttur al þingismanns og rithöfundar eftir Málfríði Finnbogadóttur. Guðrún tengist Grund. Hún var eiginkona Sigurbjörns Ástvalds Gíslasonar sem var einn af stofnendum heimilisins, stjórnarfor maður þess og heimilisprestur. Guðrún var móðir Gísla Sigurbjörnssonar, sem var forstjóri Grund ar til sextíu ára. Hún lét til sín taka hvað varðar ýmis mál sem voru ofarlega á baugi, kosningaréttur kvenna var henni hugleikinn, hún lét sig varða málefni fátækra og vann ötullega fyrir kirkjuna. En með hvaða hætti kom hún að stofnun Grundar?
Heimsótti heimilismenn sem voru ekki allra Málfríður lagði mikla vinnu í heimildavinnu fyrir bókina og segir að hún hafi sérstaklega leitað eftir því með hvaða hætti Guðrún Lár usdóttir kom að stofnun Grundar á sínum tíma. Þeirri spurningu segir hún að hafi ekki verið auðvelt að svara. „Í afmælisriti sem gefið var út á 75 ára afmæli Grundar er ekkert minnst á þetta. Þegar Guðrún Gísladóttir, þáverandi forstjóri Grundar, var spurð hvort Gísli, faðir hennar, hafi nefnt þátt Guðrúnar móður sinnar í upphafi Grundar kom í ljós að svo hafi ekki verið. Mér fannst ákveðið svar fundið þegar bréf Guðrúnar Lárusdóttur voru skoðuð. Þá kom í ljós að í febrúar 1912 var hún að velta fyrir sér elliheimili: ,,Alltaf brenn ég í bjórnum að leigja Hof fyrir ellihæli, en hvernig ætli því yrði best hagað? Fyrst þarf að stofna hælið, áður en farið er fram á styrk af bænum og reka það um hríð á eigin kostnað, við höfum aldrei talað neitt um þetta við Önnu…” Ég tók eftir að hún segir ég og síðar við þannig að ég ályktaði að 32
Heimilispósturinn
saga guðrÚnar JólahugvekJa lárusdóttur 2019 tengist grund þetta hafi verið umræða á heimilinu í Ási og þá hafi það verið sam ræður hjónanna Guðrúnar og Sigurbjörns því börnin eru þarna enn nokkuð ung. Ljóst er að gamalmennaskemmtanirnar sem voru eins konar upp taktur að stofnun elliheimilisins fóru stundum fram á túninu við Ás. Þar hlýtur Guðrún að hafa verið samþykk þessari ráðstöfun. Einnig talaði hún eða las upp á skemmtunum sem þessum. Síðar sjáum við í kveðjuorðum til heimiliskonu á Grund að Guðrún venur komur sínar til heimilismanna og ræðir við þá og sinnir ekki síst þeim sem eru ekki allra.“ Sigurbjörn lýsir vel samstarfi þeirra hjóna: ,,Í starfi út á við og í ýmsum erfiðleikum fannst okkur hvoru um sig hitt vera ómissandi. Aðaláhugamálin voru þau sömu, og skoðanir í þjóðmálum svo lík ar, að við brostum stundum að því. Þó held ég, að mér sé óhætt að fullyrða, að við vorum ekkert bergmál hvort af öðru, og hugsuð um ekki hvort fyrir annað heldur hvort með öðru.“
Málfríður með bókina.
Heimilispósturinn
Sigrún V. afhendir Gísla Páli fyrsta eintakið.
33
saga guðrÚnar JólahugvekJa lárusdóttur 2019 tengist grund Áræðni vakti athygli höfundar Varðst þú einhvers vísari um Grund í heimildaleit þinni? „Vafalaust var það ekkert nýtt sem ég sá og heyrði. Athygli mína vöktu þó hvatvísin eða áræðnin sem sýnd var í upphafi t.d. það að nota fjármunina strax og kaupa fyrsta húsið. Annað var staðsetningin á heimilinu sem var í jaðri bæjarins á þeim tíma. Þriðja var hvernig Alþingishátíðin 1930 og gestafjöldinn erlendis frá í tengslum við hana hjálpaði uppá síðasta hjallann í nýja húsinu við Hringbraut þar sem gestir fengu inni. Það mun hafa verið að frum kvæði VesturÍslendinga sem ætl uðu að taka þátt í hátíðinni sem létu vita af því með fyrirvara að þeir myndu greiða gistinguna svo rausnarlega að um munaði fyrir heimilið. Að lokum var það sú virðing sem borin var fyrir gamla fólkinu og síðast en ekki síst þegar hafin var ræktun grænmetis og blóma þannig að heimilismenn fengu ferskt grænmeti og umhverfið gert hlýlegt með blómum og trjám.“
Átakanlegur atburður Upphaf bókarinnar er sorglegt en þar er greint frá því þegar Guð rún lést ásamt dætrum sínum tveimur í Tungufljóti í ágúst árið 1938. Með góðfúslegu leyfi höfundar grípum við hér niður í upphaf bókarinnar þar sem lýsingin er á því þegar sá vofveiflegi atburður gerðist og elstu menn muna eflaust ennþá eftir: „Þögnin var alger 34
Heimilispósturinn
saga guðrÚnar JólahugvekJa lárusdóttur 2019 tengist grund sorg ríkti á meðal fólksins, íslensku þjóðina setti hljóða. Það var frétt um bílslys í Tungufljóti sem hálflamaði þjóðina. Guðrún Lár usdóttir alþingismaður og tvær dætur hennar, Guðrún Valgerður og Sigrún Kristín, höfðu drukknað. Holskefla hafði riðið yfir Ás heimilið í Reykjavík. Það var þögn, það var skuggi, það var hlut tekning og alvara í andlitum fólks, það voru fánar í hálfa stöng og mikill mannfjöldi sem allt setti svip sinn á útfarardaginn, 27. ágúst 1938. Almenningur tók þátt í sorginni. Umferðin var nánast engin önnur en sú sem tengdist jarðarförinni. Fánar blöktu um allan bæ. Enn í dag, 80 árum síðar, man fólk sem þá var á barns og ung lingsaldri þessa atburði og hvar það var statt þegar fréttin barst. Að þess tíma sið fór húskveðja fram frá heimili þeirra í Ási, Sól vallagötu 23. Hún hófst kl. 2 og hafði mannfjöldi safnast saman þar. Fjöldinn var slíkur að ekki komst nema lítill hluti fólksins inn í húsið. Fólk safnaðist saman í kringum Ás, á túninu sunnan við húsið, á götunum kringum Ás og Hof, Sólvallagötu 25. Í húsa sundinu milli Áss og Hofs var komið fyrir hátalara – fólkið gat því fylgst með öllu sem fram fór inni. Fyrir húskveðjuna lék Lúðrasveit Reykjavíkur sálmalag...“
Í útgáfuhófi las Málfríður Finnbogadóttir uppúr bók sinni.
Heimilispósturinn
35
saga guðrÚnar JólahugvekJa lárusdóttur 2019 tengist grund
Frá húskveðju. Séð frá götu norðan megin við Ás og Hof.
Mannfjöldinn við Ás og Hof. Ljósmynd / Vigfús Sigurgeirsson.
Flutti minningarorð við gröfina Nokkrum blaðsíðum lengra í bókinni er frásögn þegar Sigurbjörn Ástvaldur heldur ræðu við gröfina: Öllum að óvörum flutti Sigur björn Ástvaldur Gíslason stutta ræðu við gröfina. Kyrrt og bjart veður var og heyrðist vel til hans út yfir hinn mikla mannfjölda. En allir sem orð hans heyrðu, urðu snortnir af trúarstyrk hans og há tíðleik þessarar stundar...Meðal annars sagði hann í ræðu sinni: ... 36
Heimilispósturinn
saga guðrÚnar JólahugvekJa lárusdóttur 2019 tengist grund Ég var með þeim niðri í Tungufljóti. Ég hélt að ég myndi líka deyja. Ég hafði ráðrúm til þess að biðja fyrir mér þarna niðri í fljótinu. Eins er ég viss um, að þær hafa haft ráðrúm til þess. Ég fól Guði sál mína og gerði það með fullkominni ró. En svo var mér bjargað. Og ógnir mínar byrjuðu ekki fyrr en ég stóð á bakkanum og vissi af þeim niðri í djúpinu. Það var ógurleg stund. Eitt sinn ekki fyrir löngu dreymdi mig þann draum, að ég hefði misst konuna mína, misst Guðrúnu Lárusdóttur frá mér. Ég vaknaði við það grátandi. Þá sagði ég við hana. Það held ég að ég missi vitið, ef ég missi þig Guðrún mín. Þá sagði hún. Nei, vertu öruggur, það kemur ekki fyrir. Þvert á móti. Þú færð styrk til þess að vitna um boðskap Jesú Krists við gröf mína. Og ég hefi, Guði sé lof, fengið styrk til þess að flytja ykkur öllum, bæði þeim sem standa mér fjær og þeim sem standa mér nær, skilaboð hennar um hugboð hennar, að andlát hennar gerði boðun fagnaðarerindisins meira gagn en hún sjálf Guðrún Lárusdóttir, gat gert í lifanda lífi. Guð blessi ykkur öll.“ GRG
Sigurbjörn Ástvaldur flutti ávarp við opna gröfina.
Heimilispósturinn
37
einstakar JólahugvekJa tónstundir2019 í Mörkinni La Traviata féll í góðan jarðveg
E
itt af því vinsælasta sem íbúar í Íbúðum 60+ sækja í Mörk eru vikulegar tón stundir í umsjá Þorvaldar S Þor valdssonar og Kristjáns Eng ilbertssonar. Nú hefur Þorvaldur ákveðið að bjóða upp á tónstundir á Kaffi Mörk síðasta föstudags kvöld hvers mánaðar fram á vor og kynna þar til leiks stærri verk og sýna heilar upptökur. Fyrsta föstudagskvöldið í lok nóvember lukkaðist mjög vel. Þær leiddi hann gesti í allan sannleika um La Traviata, óperu eftir Giuseppi Verdi. Mögnuð ópera sem fjallar um lífsgleðina, frelsið og forboðna ást. Verkið var frumflutt í Feneyjum árið 1853. Sýnd var upptaka af verkinu eftir kynningu.
Þorvaldur er hér við tölvuna að setja af stað upptökuna.
38
Heimilispósturinn
einstakar JólahugvekJa tónstundir2019 í Mörkinni
Tónstundirnar eru allaf vel sóttar.
Úr einni af uppfærslum La Traviata.
Heimilispósturinn
39
kJaFFihÚsið ólahugvekJa á aðventu 2019 Kertaljós og jólalegar veitingar
K
affi Mörk er opið á aðventu eins og á öðrum tíma ársins og þar er orðið jólalegt, bæði búið að skreyta allt hátt og lágt en einnig bera veitingarnar þess vitni að jólin eru á næsta leyti.
Í hádeginu frá þriðjudögum til föstudags er boðið upp á súpu, brauð og salatbar á 880 krónur. Þar fyrir utan eru daglega á boðstólum allskonar kökur og smurt brauð og um helgar eru annaðhvort til vöfflur eða pönnukökur og brauðtertur. Nú á aðventunni er á fimmtudögum og föstudög um boðið upp á smurt brauð með síld og tilvalið að fá sér heitt súkkulaði og smákökur. Allir velkomnir. Opnunartími um jólin: Þorláksmessa: 14-17 Aðfangadagur: Lokað Jóladagur: Lokað Annar í jólum: Lokað Gamlársdagur: Lokað Nýársdagur: Lokað Venjulegur opnunartími: Mánudaga: lokað Þri-fös: 12-17 Helgar: 13-17
40
Heimilispósturinn
kJaFFihÚsið ólahugvekJa á aðventu 2019
Heimilispósturinn
41
MJ álverkasýning ólahugvekJa 2019 í Mörk Þykir vænst um fjölskyldumyndirnar
Ó
venju grípandi andlitsmyndir, fallegar landslagsmyndir og málverk af sauðfé hafa að undanförnu verið á veggjum tengigangsins milli sundlaugar og hjúkrunarheimilisins í Mörkinni en þar eru haldnar ýmsar sýningar með reglulegu milli bili. Í þetta sinn er það myndlistarmaðurinn og íbúi í Íbúðum 60+ sem á listaverkin, Sjöfn Eggertsdóttir.
Sjöfn við eitt verka sinna, mynd af dóttur hennar Guðbjörgu.
42
Heimilispósturinn
MJ álverkasýning ólahugvekJa 2019 í Mörk Sverrir Haraldsson hafði áhrif á listsköpunina „Ég man ekki eftir mér öðruvísi en að vera að teikna eða skissa eitthvað og ég held að það sé ekki til sú námsbók mín síðan í æsku sem er ekki myndskreytt“, sagði Sjöfn þegar Guðbjörg R. Guð mundsdóttir hitti hana á sýningunni. „Ég kem úr sex systkina hópi sem öll höfðu gaman af að teikna. Þegar kom fram á fullorðinsár sótti ég ýmis myndlistarnámskeið s.s í Myndlistaskóla Reykjavík ur og við Listaskólann Myndsýn sem Einar Hákonarson stjórnaði. Auk þess var ég í nokkur ár undir leiðsögn Sverris Haraldssonar listmálara sem hafði mikil áhrif á mig í listsköpuninni. Árið 1982 hóf ég nám við Myndlista og handíðaskóla Íslands og útskrifaðist úr málaradeild 1986.“ Eftir að námi lauk málaði Sjöfn nær ein göngu myndir af kind um og varði það tímabil um þrjú ár. „Þá var ég að prófa mig áfram með liti, pensilskrift og form. Kindamyndirnar eru flestar löngu farn ar frá mér en þetta var skemmtilegur og lær dómsríkur tími. Þegar þessu tímabili lauk urðu verkin mín markvissari og ég fór að mála meira landslag og portrett. Einnig gerði ég mikið af krítar og blýantsteikn ingum á þessu tímabili.“ Spánska konan
Heimilispósturinn
43
MJ álverkasýning ólahugvekJa 2019 í Mörk Skissurnar urðu til í bílnum „Við bjuggum á Egilsstöðum í 24 ár. Á þessum árum ókum við oft á milli landshluta og var ég ávallt með skissuubókina og penna við hönd og teiknaði það sem fyrir augu bar. Þessar skissur voru síð an oft á tíðum efni í málverkin á vinnustofunni minni. Mér fannst ekki skipta öllu máli hvað fjallið, fossinn eða lækurinn hét held ur var það formið og landslagið sem heillaði.“ Sjöfn hefur haldið ótal sýningar um árin og sumar eftirminnilegri en aðrar. Eitt sinn tók hún þátt í samsýningu á Egilsstöðum þar sem hún sýndi stór landslagsverk sem héldu svo áfram á kjólum sem vinkona hennar kjólameistari og hönnuður Halla Ormarsdóttir sýndi. „ Ég málaði semsagt listaverk á kjólana. Flest af þeim verkum sem ég hef mál að og teiknað um ævina eru farin frá mér og það er bara ánægju legt, þó að dæturnar séu á annari skoðun,“ segir Sjöfn og brosir. Sjöfn og eiginmaður hennar Guðmundur Davíðsson eignuðust þrjú börn. Dæturnar Guðbjörgu og Ingibjörgu og soninn Davíð sem lést langt fyrir aldur fram árið 2007. Myndir af börnum og eiginmanninum prýða einmitt vegginn í tengigangi Markar þessa dagana. En á hún uppáhaldsverk? „Já, ég held auðvitað mikið upp á mynd irnar af fjölskyldunni og svo þykir mér ákaflega vænt um kindurn ar mínar “, segir hún. En málar hún ennþá? „Nei, eiginlega ekk ert. Ég hélt síðustu sýninguna mína árið 2010 og síðan þá hefur heilsufar, þar á meðal gigt, verið að gera mér lífið leitt svo ég hef lagt pensilinn á hilluna, allavega um tíma.“ Þegar ég í lokin spyr hana hvernig þeim hjónum líki að búa í Mörkinni segir hún að það fari dásamlega um þau. Þjónusta og viðmót starfsmanna og íbúa sé alveg frábært.
44
Heimilispósturinn
MJ álverkasýning ólahugvekJa 2019 í Mörk
Rollurnar hennar Sjafnar.
Ingibjörg, dóttir Sjafnar, er viðfangsefnið á þessari mynd.
Heimilispósturinn
45
rithöFundur á vakt í Mörk Fyrsta skáldsagan gefin út fyrir jólin
D
íana Sjöfn Jóhannsdóttir vinnur við umönnun á þriðju hæð inni í Mörk og nú fyrir jólin er hún að gefa út sína fyrstu skáldsögu, Ólyfjan. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir settist niður með henni. „Mér hefur fundist skemmtilegt að skrifa frá því ég var lítil stelpa og man að þegar var í fimmta bekk þá handskrifaði ég skáldsögu í litla stílabók sem ég átti og var þá ákveðin í að verða rithöfund ur,” segir Díana Sjöfn brosandi þegar ég hitti hana einn morgun inn í Mörk. Áhuginn á skriftum óx með henni og þegar hún var í bókmenntafræði í Háskólanum valdi hún ritlist sem aukafag. Þar dafnaði líka áhugi á ljóðum, sérstaklega eftir ljóðaáfanga sem hún tók hjá Aðalsteini Ingólfssyni. Þegar bókaforlagið Partus Press auglýsti eftir ljóðahandritum frá ljóðskáldum sem hefðu ekki gefið út ljóðin sín áður ákvað Díana að taka áhættuna og senda inn. Forsvarsmenn þar höfðu þá hugsað sér að gefa út í ljóðabókaser íu eftir glænýja höfunda. Hennar ljóð voru valin í bók sem kom út í fyrra en ljóðabók hennar ber titilinn Freyja.
Díana kann vel við að vinna með fólki.
46
Heimilispósturinn
rithöFundur JólahugvekJa á vakt 2019 í Mörk Ádeila á eitraða karlmennsku En um hvað fjallar svo bókin þín Ólyfjan? „Pabbi minn, Jóhann Sigfússon, var á sjó þegar ég var lítil og áður en ég fæddist og áður en hann kynntist mömmu ferðaðist hann um heiminn og naut lífsins. Hann sagði mér ýmsar sögur af ferð um sínum og ævintýrum og þannig kviknaði áhuginn á að skrifa bók og nota kannski eitthvað af því sem hann sagði mér í bókina. Honum datt líka ýmislegt í hug sem kannski var ekki beint úthugs að eins og að taka leigubíl á útihátíð og kaupa sér rándýr jakkaföt hjá Sævari Karli og eyðileggja þau fyrsta kvöldið. Bókin fjallar um Snæja, sem er ungur maður sem vinnur á frystitogara en hann er í fríi og skellir sér á útihátíð með leigubíl. En það er ekki þar með sagt að Snæi líkist pabba mínum á nokkurn hátt, þvert á móti. Að vissu leyti er sagan ádeila á eitraða karlmennsku og á samfélags gerðina. Snæi er mjög týndur í lífinu.”
Með bókina sína Ólyfjan.
Heimilispósturinn
47
rithöFundur JólahugvekJa á vakt 2019 í Mörk Æltar kannski að lesa Ólyfjan fyrir heimilisfólkið Þegar ég spyr Díönu hvort hún sé farin að lesa Ólyfjan fyrir heim ilisfólkið á þriðju hæð segir hún að það geri hún kannski bráðum, sér lítist bara vel á það. Hún segist oft spjalla við heimilisfólk þegar tími gefst til og telur alls ekki fráleitt að lesa líka fyrir það úr bókinni. Hún segist vera sátt við að hafa fengið bókina sína útgefna hjá Sölku, nú þegar það er metár í fjölda titla og vonar að lesendur taki henni vel. En er hún farin að huga að næstu bók? „Já ég er alveg farin að hugsa”, segir hún og bætir við að kannski verði næsta bók smásögur. „Ég fékk úthlutaðri rithöfundadvöl á hótelinu í Stykkishólmi á næsta ári og þangað fer ég í mars til að skrifa. Þá væntanlega kemur í ljós hvað úr þessum pælingum mínum verður.”
48
Heimilispósturinn
rithöFundur JólahugvekJa á vakt 2019 í Mörk Hugnast vel að vinna með fólki Afhverju fór bókmenntafræðingurinn að vinna við umönnun á hjúkrunarheimili? „Mér hugnast vel að vinna með fólki og vann áður með börnum og ungmennum með fatlanir í Reykjadal og langaði svo að prófa að vinna með öldruðum. Mér finnst það gaman, bæði vinn ég með skemmtilegu fólki og svo er heimilisfólkið líka mjög gott við mig. Ég starfa reyndar líka sem verkefnastjóri hjá Félagi fólks með þroskahömlun. Ég verð að vinna mikið núna því ég var að kaupa mér íbúð í Norðlingaholti með kærastanum mínum Ægi Benediktssyni og því hef ég kannski ekki eins mikinn tíma og ég hefði viljað núna til að skrifa. En það kemur að því einn daginn.“
Spjallað um heima og geima.
Heimilispósturinn
49
eJyvindur ólahugvekJa erlendsson 2019 Það besta verður hvort sem er ekki sagt
E
yvindur Erlendsson er heimilismaður á Ási í Hveragerði. Jónína Sigurjóns dóttir hitti hann þar og þau ákváðu að tala saman úti á stétt. Það var dálítið kalt en síðustu geislar sólarinnar yljuðu á þessum fallega haustdegi. „Margir segja að elliheimili séu biðsalir dauðans,“ sagði Eyvindur um leið og hann kom sér fyrir á garðstól við borðið. „En ég segi nú bara að þetta sé helvíti góð upp finning. Hér fær maður öll þægindi og aðstoð við hvaðeina en er leystur undan öllum skyldum. Er hægt að biðja um meira?“
Túnamaðurinn Eyvindur er Tungnamaður frá Dalsmynni í Biskupstungum fæddur 14 febrúar 1937, annar í röðinni af fimm systkinum. „Það var alveg ágætt að alast upp í Tungunum alltaf gott að éta. Pabbi var duglegur að koma upp birgðum og mamma að vinna úr þessu. Hún var með skrúðgarð. Hún bjó til rjómaís ein jólin, kom pottinum fyrir uppi á fjósþaki í frostinu og þar komst Mósi í hann og át hann allan. Mósi var ofdekrað folald sem varð ólánstrunta en ágætur ferðahestur. Hann át líka allt úr skrúðgarðinum.“ Eyvindur sagðist hafa verið alvörugefinn sem ungur drengur, menntað sjálfan sig með því að hlusta á útvarpið sem væri sann ur lýðháskóli. Hann minntist þess sérstaklega að hafa hlustað af andakt á DonKósakkakórinn og hver veit nema kórinn og gamla gufan hafi lagt línurnar fyrir lífshlaup Eyvindar. 50
Heimilispósturinn
eJyvindur ólahugvekJa erlendsson 2019 „Ég man vel eftir fyrsta leikritinu sem ég sá. Ég var um 10 ára gamall. Mikið ægilega var ég hræddur. Gísli Sigurðsson í Úthlíð málaði tjöldin og ég vissi það vel en þau voru alveg eins og raun verulegt landslag og ég vissi líka að Rúna í Austurhlíð lék tröllið, en mikið ægilega varð ég hræddur.“ Á verkstæði Kaupfélags Árnessinga lærði Eyvindur trésmíði. Og í búð í plássinu hitti hann Sjöfn eiginkonu sína fyrst. Hún var að vinna í verslun og honum trésmíðanemanum, vantaði skó sem Sjöfn seldi honum. Sjöfn og Eyvindur byrjuðu sinn búskap í Reykjavík en um sjö ára skeið bjuggu þau félagsbúi að Heiðabæ í Villingaholtshreppi ásamt foreldrum Sjafnar en fluttu síðar að Há túni í Ölfussi. Þau eignuðust fimm börn og barnabörnin eru orðin átta. Sjöfn starfaði lengi sem ráðskona hjá Vegagerðinni en setti síðar upp blómabúðina Sjafnarblóm á Selfossi, sem enn er til.
Rússland En Eyvindur staldraði ekki lengi við í trésmíðinni þó kunnáttan hafi vissulega nýst til praktískra og skapandi starfa allar götur síð an. Hann hélt til Rússlands og hóf nám í leikstjórn. Því námi lauk hann 1967. Lokaverkefni hans var að setja upp verkið „Söngurinn um sorgarkrána“ eftir Edvard Albee en það verk gekk fyrir fullu húsi í 18 ár í uppfærslu Eyvindar. „Jú við héldum jól í Rússlandi. Það var lítið um rússnesk jól þetta voru íslensk jól. Byrjuðum á að senda segulbandsupptöku til Ís lands með jólakveðju sem var svo spiluð í útvarpinu. Við vorum þarna um tuttugu Íslendingar og svo sendiráðsfólkið. Það var jóla boð í sendiráðinu og svo var einhver drykkjuskapur til viðbótar við þetta. Í Rússlandi er haldið mikið upp á áramótin ég held að það sé vegna þess að þegar kommúnistinn tók völdin af kristindómn um þá hættu menn að halda jólin en héldu áramótahátíð í staðinn. Heimilispósturinn
51
eJyvindur ólahugvekJa erlendsson 2019 Það var mikið sem gekk á um áramótin. En jólin eru núna um 6. janúar, þessar dagsetningar eru eitthvað á reiki.“ Til að hafa gagn af náminu og halda í við skólafélagana varð Ey vindur að vera snöggur að læra rússneskuna. Hann sagðist hafa lagt mikið á sig til að læra málið fljótt og vel, meðal annars fóru hann og herbergisfélagi hans sem var frá Kýpur í enskubindindi töluðu bara rússnesku þó þeir kynnu hana ekki. Hann lét vel af dvölinni í Rússlandi byrjaði á að kaupa sér góðan vetrarfrakka því veturnir voru ansi kaldir og ekki þýddi að ganga um á skyrtunni innandyra eins og hann var vanur heima á Íslandi.
Þýðandinn og túlkurinn Eyvindur hefur alltaf verið maður orðsins, víðlesinn og þekkir vel bæði íslenskar og sovéskar bókmenntir. Hann hefur skrifað greinar í blöð og tímarit auk þess sem hann hefur þýtt bækur úr rússnesku. Má þar nefna „Börn sólarinnar“ eftir Maxim Gorkí og „Kirsuberjagarðinn“ eftir Tsjekhof. Um tíma vann hann við að þýða rússneskt tímarit. Í því voru mest fréttir af framförum í Sovétríkjum og fróðleikur um vísindalega hluti.
Eyvindur á góðri stund.
52
Heimilispósturinn
eJyvindur ólahugvekJa erlendsson 2019 „En svo var ég stundum túlkur, var kallaður til fyrir lögregluna. Ég veit ekki hversu góður túlkur ég var, vorkenndi þessum greyjum, þetta voru nú engir glæpamenn, bara villtir ungir menn. Einn kom í kirkjuna á Selfossi, þar hitti hann Kristinn Ágústsson sem skyldi það eitt að maðurinn var í vanda og hringdi í mig. Þetta var stroku maður af rannsóknarskipi, í raun hermaður svo hann var liðhlaupi. Hann var eitthvað áttavilltur hélt að hann væri kristinnar trúar en það var hann ekki, hann vildi komast til Lýbíu og kenna þeim þar að berjast með sérstökum rifflum sem eru í raun einskonar vélbys sur. Við hjálpuðum honum að semja við skipstjórann um að hon um yrði ekki refsað fyrir þetta liðhlaup og það stóðst. Kristinn fékk kort frá honum tvisvar sinnum og það var allt í lagi með hann.“
Leikstjórinn Ári eftir að Eyvindur kom heim frá Rússlandi stofnaði hann Leiksmiðjuna ásamt Arnari Jónssyni, Þórhildi Þorleifsdóttur, Karli Guðmundssyni, Níelsi Óskarssyni og fleiru góðu fólki. „ Þarna var allskonar fólk“ sagði Eyvindur „Handverksmenn, meist arar, sveinar og lærlingar. Markmiðið var að búa til alíslenskt leik hús sem byggi til leikverk eins og raunveruleikinn var. Það vantaði bara höfunda en þeir eru aðalatriðið.“ „Við settum samt upp „Galdra-Loft“ og „Litla prinsinn“ og fórum í ferðalög með þau verk. En frægasta stykkið var „Frísir kalla“ soð ið upp úr eldgömlu kvæði eftir Árna Böðvarsson, það fjallaði um tvo kalla sem fóru í kaupstað til að kaupa sér brennivín og lentu í allskonar hremmingum. Á leiðinni hittu þeir álfa og tröll og hvað eina. Þetta var sýnt í sal sem Verkalýðsfélagið Dagsbrún átti við Lindagötu minnir mig.“ „En eftirminnilegasta verk sem ég hef sett upp var hljóðritun á „Sóleyjarkvæði“ eftir Jóhannes frá Kötlum með tónlist eftir Pétur Pálsson. Fyrsta verkefnið mitt. Þetta var flutningur kórs og ein Heimilispósturinn
53
eJyvindur ólahugvekJa erlendsson 2019 leikara, fólk úr Æskulýðsfylkingunni. Mjög metnaðarfullt þrátt fyrir kunnáttuleysið, innblásið af heilagri andgift, það lang besta sem ég hef gert um ævina. Það eina góða.“
Allskonar Það má vel segja að Eyvindur hafi komið víða við á sínum ferli. Hann var leikhússtjóri á Akureyri um nokkurra ára bil, setti upp leiksýningar víða um land, hefur leikið á sviði og í kvikmyndum og jafnframt þessu fengist við myndlist og eftir hann liggur töluvert af málverkum og smíðagripum. Eyvindur hefur verið viðloðandi Leiklistarskólann allan sinn feril og hafa margir af okkar snjöllustu leikurum notið tilsagnar hans. Hann minnist á Spaugstofukallana og Baltasar en er samt ekki í vafa um hver var hans uppáhald. „Edda Heiðrún hún hafði þetta allt, þvílíkir hæfileikar og þvílík manneskja.“ Það var orðið kalt á stéttinni, sólin farin fyrir húshornið, kaffibrauð að verða klárt í matsalnum. Ég ákvað að kveðja, þakkaði fyrir spjallið og skemmtilega stund á stéttinni. „Já já þetta var ágætt ég fékk nú samt ekki þá ró með pípuni minni sem ég hafði vænst. En ekki vera hrædd við mig þó ekki verði allt satt og rétt eftir haft ég er aðeins farinn að ryðga held ég. Það besta verður hvort sem er aldrei sagt.“
54
Heimilispósturinn
tJeiknar ólahugvekJa heiMilisMenn 2019
H
Lifi í vellystingum á Grund
eimilismaðurinn Sigfús H. Thorarensen er snill ingur að teikna manna myndir og heimilismenn Grund ar njóta góðs af. Þegar hann sér gott mótíf tekur hann upp blýant og byrjar að teikna. Myndirnar gefur hann svo heimilismönn um svo hann hefur enga tölu á þeim myndum sem hann hef ur teiknað síðan hann flutti á Grund sl. sumar. „Lífsstarfið mitt voru tannlækningar og tann smíði en þegar tími gafst til var ég að teikna, alveg frá því að ég var lítill strákur. Ég man í raun ekki eftir mér öðruvísi en að vera með blýantinn nálægt mér.“ Sig fús segist svo líka hafa farið að læra höggmyndagerð og þegar eiginkona hans Jóhanna Ólafs dóttir lést árið 2008 fór hann að venja komur sínar á Aflagranda þar sem hann skar út.
Sigfús H. Thorarensen
Viðmót allra elskulegt Sigfús er sannkallaður lista maður, um það bera verk hans glöggt vitni, bæði lítil höggmynd Heimilispósturinn
55
Jólabasarinn í ási á borðinu hans og teikningar sem hann er að vinna um þessar mundir. „Ég er hamingjusamur með að kalla Grund heimili mitt og hafa tækifæri til að teikna áfram. Viðmót allra er svo elskulegt og ég fer bæði í morgunstundina, messur og á sumar uppákomur og finnst það dásamlegt. Hér eru listamenn eins og Jón Ólafur Þor steinsson harmonikkuleikari og Sigmundur Júlíusson píanóleikari sem lífga upp á tilveruna og eru algjörir snillingar. Þar að auki býr hann líka hér golffélagi minn til margra ára Baldvin Ársæls son. Það eru fleiri sem létta mér lífið, sessunautarnir í matsalnum Sigrún, Sigurdís og Ingibjörg og ekki má gleyma Brynjólfi tækni ráðgjafa mínum. Ég lifi í vellystingum á Grund, milli þess sem ég teikna þá raða ég í mig kræsingum og slaka á.“
Ingibjörg Kristjánsdóttir með mynd af sér eftir Sigfús
56
Heimilispósturinn