Skip to main content

Heimilispósturinn - október 2018

Page 1

HEIMILISPÓSTURINN Heimilisblað Grundar, Áss og Markar 54. árgangur

október 2018

3. tölublað


Efnisyfirlit Lætur sig ekki muna um að baka 400 lummur........................................ 3 Forsetinn heimsóttur og færðar heimatilbúnar gjafir..................... 4 Tæplega 300 manns á biðlista.................................................................. 6 Kynntu sér nýja nálgun í hugsun um heilabilun................................ 10 Langaði að gefa mynd af konunni Sigríði Önnu.................................. 12 Ungviði, smali og grútskítugt fjórhjól forstjórans...................... 15 Hér á ég mínar bestu stundir............................................................... 16 Veiðimaður sem semur ljóð................................................................... 18 Ekkert eins gott og heimatilbúið rifsberjahlaup............................. 19 Helstu upplýsingar fyrir daginn koma fram á skjánum................... 20 Skóburstun og vaskað upp................................................................... 23 Páll Óskar og Monika í hátíðasal......................................................... 24 Fiskborgarar og líflegar sögur......................................................... 26 Rjúkandi súkkulaði og vöfflur............................................................ 28 Listaverk og ljúfir krakkar.................................................................. 30 Til í að byrja hvern dag á Grund.......................................................... 32 Veggskreytingin tileinkuð árstíðinni.................................................. 34 Sungið og trallað í blíðskaparveðri................................................... 36 Heimilisfólk gleymir sér við að hjóla um íslenskar sveitir............. 38 Heimilismaður tók að sér uppeldið...................................................... 40

Forsíðumyndina tók Stephanie Rósa Bosma af Lilju Helgu Gunnarsdóttur heimiliskonu á Grund og Írisi Ólafsdóttur. Ritstjóri: Guðbjörg R. Guðmundsdóttir. Hönnun og uppsetning: Írena Dögg McCabe. Prentun: GuðjónÓ. Upplag: 1600. 2 Heimilispósturinn


Heimabakstur vinsæll

Lætur sig ekki muna um að baka 400 lummur

S

igrún Gunnlaugsdóttir bakar bestu lummur í heimi sagði, starfsmaður á Grund þegar ilmur frá lummubakstrinum fór að berast um húsið. Heimilisfólk og starfsfólk gæðir sér sem sagt á lummum með kaffinu af og til og heimatilbúinni rabarbarasultu. Það eru ekkert fáar lummur sem hún Sigrún bakar í einu, því oft eru þær um fjögur hundruð talsins.

Heimilispósturinn

3


Sumarferð Áss

Í

Forsetinn heimsóttur og færðar heimatilbúnar gjafir

lok sumars var farið í hina árlegu sumarferð Áss. Í þetta sinn var ferðinni heitið á Bessastaði þar sem heilsað var upp á forsetann, hr. Guðna Th Jóhannesson, og húsakynnin skoðuð. Guðna voru að sjálfsögðu færðar gjafir frá heimilinu, gjafakörfu sem innihélt m.a. grænmeti úr gróðurhúsunum, heimaprjónaða sokka eftir tvær heimiliskonur og ýmislegt fleira. Eftir að hafa kvatt forsetann og þakkað fyrir góðar móttökur lá leiðin í Hafnarfjörð þar sem veitingahúsið Kænan bauð upp á dýrindis kaffihlaðborð. Eins og myndirnar bera með sér var ferðin mjög vel heppnuð.

Hr. Guðni Th. Jóhannesson tók vel á móti heimilisfólkinu frá Ási.

4

Heimilispósturinn


Sumarferð Áss

Forsetanum voru færðar heimatilbúnar gjafir frá Ási.

Slegið á létta strengi á Bessastöðum.

Heimilispósturinn

5


Vígsla 74 þjónustuíbúða í Mörkinni

Tæplega 300 manns á biðlista

Þ

að var fullur salur þegar nýju þjónustuíbúðir Grundar Markarinnar við Suðurlandsbraut 68 - 70 voru vígðar við hátíðlega athöfn þann 19. september síðastliðinn. Með þessum nýju íbúðum eru þjónustuíbúðirnar í Mörkinni orðnar 152 talsins. Allar nýju íbúðirnar eru seldar og eru tæplega 300 manns sem eru á biðlista. Auk íbúðanna var nýr veitingasalur vígður sem og þjónusturými fyrir íbúa. Hinrik Greipsson, stjórnarmaður á Grund, sá um veislustjórn en Júlíus Rafnsson, stjórnarformaður GM , flutti við þessi tímamót ávarp. Gísli Páll Pálsson, forstjóri í Mörk og framkvæmdastjóri GM, flutti einnig ávarp sem og Jóhann J. Ólafsson, stjórnarformaður Grundar og Þorvaldur Gissurarson hjá ÞG verktökum en fyrirtækið sá um byggingu íbúðanna. Það voru svo Guðrún B. Gísladóttir, forstjóri Grundar og Dagur B Eggertsson borgarstjóri, sem klipptu á borða af þessu tilefni. Að lokum flutti Magnús Þór Sigmundsson nokkur lög.

Íbúðirnar eru frá 70 fermetrum að stærð.

6

Heimilispósturinn


Vígsla 74 þjónustuíbúða í Mörkinni

Júlíus Rafnsson stjórnarformaður Íbúða eldri borgara flutti ávarp.

Gísli Páll Pálsson forstjóri í Mörk og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.

Heimilispósturinn

7


Vígsla 74 þjónustuíbúða í Mörkinni

Jóhann J. Ólafsson stjórnarformaður Grundar flutti ávarp.

Boðið var upp á léttar veitingar í hófinu.

8

Heimilispósturinn


Vígsla 74 þjónustuíbúða í Mörkinni

Dagur B. Eggertsson og Guðrún Birna Gísladóttir forstjóri Grundar klipptu á borða

Magnús Þór Sigmundsson söng nokkur lög.

Heimilispósturinn

9


Starfsfólk Grundar, Markar og Áss

Kynntu sér nýja nálgun í hugsun um heilabilun

N

ýlega komu hingað til lands fyrirlesararnir Rayne Stroebel og Carol Ende. Rayne, sem er frá Suður Afríku, hefur undanfarin ár einbeitt sér að heilabilun í námi og starfi og lagt áherslu á hvernig við nálgumst fólk sem er með heilabilun. Hann talar um að fólk þjáist ekki bara af heilabilun heldur kannski ekki síður af því hvernig við, samferðamennirnir og þjóðfélagið, komum fram við það. Hann segir hægt að styðja við þá sem eru með minnissjúkdóma með uppbyggilegum hætti og á námskeiðinu settu þau fram hvernig hægt er að ná fram stuðningi með vissum aðferðum og vellíðunarlyklum. Carol og Rayne héldu námskeið bæði á Akureyri og í Reykjavík.

10

Heimilispósturinn


Starfsfólk Grundar, Markar og Áss

Carol og Rayne héldu námskeið í hátíðasal Grundar.

Í lokin var farið í garð Grundar og farið yfir lærdóm dagsins.

Heimilispósturinn

11


Útbjó lílfssögu fyrir mömmu sína

Langaði að gefa mynd af konunni Sigríði Önnu

Þ

egar minnið er farið að týnast og heimilismenn eru jafnvel komnir með heilabilun er frábært fyrir starfsfólk og aðstandendur að geta verið með lífssögu heimilismanna uppi á vegg. Þá er hægt að nálgast heimilismanninn út frá sögunni, syngja með honum ef tónlist hefur skipað stóran sess í lífi hans, höfða til æskuslóðanna, áhugamála og svo framvegis.

Mæðgurnar Hrönn og Sigríður Anna.

Fletti í gegnum myndaalbúm mömmu sinnar Ein af þeim sem hefur gert lífssögu fyrir mömmu sína er Hrönn Pálmadóttir. Mamma hennar, Sigríður Anna Jóhannsdóttir, er komin með alzheimer og býr á Grund. „Mig 12

Heimilispósturinn


Útbjó lílfssögu fyrir mömmu sína langaði til að gefa mynd af konunni Sigríði Önnu en ekkert endilega af henni sem roskinni konu og ömmu. Mamma á ógrynni af myndaalbúmum og ég settist niður og fletti í gegnum þau. Það er mikill fjársjóður sem liggur í þessum myndum og fyrir mig var þetta ofboðslega gaman og ef ég væri ekki svona upptekin kona hefði ég getað gleymt mér dögum saman í þessum myndum. En sem sagt ég reyndi að gera þetta að hennar sögu.“ Æskuslóðir og styrkleikar Hrönn segir að fyrir það fyrsta hafi hún ákveðið að koma æskuslóðunum á framfæri sem voru Vestmannaeyjar og svo á sumrin dvaldi hún á Núpum undir Eyjafjöllum. „Síðan fannst mér mikilvægt að styrkleikar mömmu kæmu í gegn. Eitt af því sem lifir hvað lengst með henni er tónlistin og hún skipaði alla tíð mjög stóran sess í lífi hennar. Ég fann einmitt mynd af henni í

Heimilispósturinn

13


Útbjó lílfssögu fyrir mömmu sína Vestmannaeyjum þar sem hún er sem ung stúlka að æfa gripin. Mamma var alla tíð í kórum og hún spilaði og söng í veislum og partýum. Núna nýti ég mér þetta og syng með henni, t.d. erum við í Grundarkórnum sem kemur saman á miðvikudögum.“ Les sjálf textann og skoðar veggmyndina Hrönn bendir á að mamma sín hafi einnig alla tíð verið með létta og góða lund og þannig sé það enn. Það vonandi endurspeglast í myndunum. Auk þess sem hún hefur verið í nánu sambandi við okkur börnin og barnabörnin þá á hún líka mjög góða vini og fjölskyldu og ég hafði með myndir af fólki sem er henni kært. Mamma getur enn lesið og við skoðum stundum þessa veggmynd, hún les textann og skoðar myndirnar og hefur mjög gaman af. Þetta gefur ekki bara starfsfólkinu tækifæri til að kynnast henni heldur okkur ættingjunum líka tækifæri til að gera eitthvað með henni.“ Hvernig gerði hún svo veggmyndina? „Ég skannaði myndirnar inn í tölvu og notaðist svo við forrit þar sem ég gat sett texta við myndirnar. Svona forrit er hægt að nálgast á vefnum og eins er hægt að fá fyrirtæki hér heima til að gera svona myndir fyrir sig.“

14

Heimilispósturinn


Réttardagur í Mörk

S

Ungviði, smali og grútskítugt fjórhjól forstjórans

ú hefð hefur skapast að halda réttardag hátíðlegan í Mörk og svo var einnig þetta haustið. Þann 17. september var efnt til réttardags, krakkar frá leikskólanum Steinahlíð komu í heimsókn, sungu og fengu svo pylsur og kakósúpu í hádegismat. Forstjóri Markar og smalinn Gísli Páll Pálsson kom beint úr smalaferð og mætti með skítugt fjórhjólið, smalafötin og allar græjurnar og sagði frá smöluninni í hádeginu en áður höfðu börnin fengið að skoða búnaðinn.

Heimilispósturinn

15


Smíðaverkstæðið í Ási tekið í gegn

Hér á ég mínar bestu stundir

G

uðmundur Einarsson 93 ára heimilismaður í Ási segist eiga sínar bestu stundir á trésmíðaverkstæðinu í Ási en það var nýlega tekið í gegn. Mikil ánægja er meðal heimilismanna með nýju aðstöðuna og fyrir nokkru var efnt til hátíðahalda til að fagna nýjum tólum og tækjum og stærra húsnæði. Fanney Björg Karlsdóttir iðjuþjálfi í Ási segir að litla trésmíðaverkstæðið, sem var fyrir, hafi heldri menn aðallega notað en auðvitað séu konur líka hjartanlega velkomnar. Guðmundur sem segist eiga sínar bestu stundir á verkstæðinu sagði í spjalli við Magnús Hlyn Hreiðarsson sjónvarpsmann Guðmundur Einarsson kampakátur með að það væri yndislegt að sjá nýju aðstöðuna. hvað búið væri að gera fyrir verkstæðið, allar vélar nýjar og borð og skápar fyrir mannskapinn til að geyma verkfærin sín í. „Það sem gert er hér fyrir fólkið í Ási er með ólíkindum, það trúir því bara varla nokkur maður,“ sagði hann alsæll.

16

Heimilispósturinn


Smíðaverkstæðið í Ási tekið í gegn

Nýja verkstæðið er glæsilegt og búið nýjum tækjum.

Fréttamaðurinn Magnús Hlynur, Stefán Gunnarsson og Guðmundur Einarsson.

Heimilispósturinn

17


Heimilismaður í Mörk

Veiðimaður sem semur ljóð

G

arðar Sigurðsson heimilismaður á Miðbæ í Mörk er margt til lista lagt. Hann stundaði fimleika á árum áður og var mikill veiðimaður, svo mikill að um tíma leigði hann Laxá í Dölum. Hann teflir og spilar og hefur gaman af söng. Síðast en ekki síst hefur Garðar gefið út bók með ljóðum sínum. Við fengum góðfúslegt leyfi til að birta tvö þeirra.

Fimmta ljóðið í bókinni hans er hér: Það er gott að sitja hér í nóttinni og finna dásemd þína Drottinn streyma um æðar mínar. Hvers vegna lætur þú ekki mannvit og miskunn stjórna veröldinni? Aftarlega í bókinni er þetta ljóð: Þegar ég horfi til baka sé ég hve ráðalaus ég var í bernskunni. Ef þú sérð ekki veginn sjálfur vísar þér enginn á hann nema kannski móðir þín. Það eiga ekki öll börn móður í tilverunni Þó fæðingin hafi átt sér stað. 18

Heimilispósturinn


Samvinna við sultugerð

Ekkert eins gott og heimatilbúið rifsberjahlaup

H

eimilisfólkið í Bæjarási, þau Kalli og Dúna tíndu rifsber nýlega og Árni hreinsaði síðan berin. Að því loknu var búið til þetta líka dýrindis rifsberjahlaup. það jafnast fátt á við heimatilbúið rifsberjahlaup með ostum eða sunnudagssteikinni.

Heimilispósturinn

19


Memaxi getur hjálpað heimilisfólki

Helstu upplýsingar fyrir daginn koma fram á skjánum

M

emaxi er samskiptakerfi í spjaldtölvu og snjalltækjum sem auðveldar skipulag hjá þeim sem þurfa á aðstoð að halda eins og heimilisfólki sem er farið að tapa minni. Memaxi er sett upp í spjaldtölvu og þar birtist dagskrá daglega fyrir hinn aldraða. Fjölskylda og fagfólk geta bætt inn upplýsingum í snjalltækjum sínum eins og síma eða iPad eða öðrum spjaldtölvum og sá aldraði getur á auðveldan hátt fylgst með daglegri dagskrá sinni og hringt í sinn nánasta aðstandanda með einföldu myndsímtali frá spjaldtölvunni. Höfðum ekki yfirsýnina „Forsagan er sú að í kringum 2011 bjuggum við öll í sama húsi, tengdaforeldrar mínir, við hjónin, systkini mannsins míns, makar þeirra og barnabörn“ segir Ingunn Ingimarsdóttir sem veitir kerfinu Memaxi forstöðu og er einn af hönnuðunum á bakvið forritið. „Við fórum að taka eftir því að tengdaforeldrar mínir, Inga og Ragnar, þurftu sífellt meiri aðstoð þegar fór að halla undan fæti með heilsuna en þau fengu alzheimer og framheilaskaða. Við vorum öll að hlaupa á milli hæða sitt á hvað og eftir því sem aðstoðin varð flóknari misstum við tökin á dagskránni þeirra og það sem er mikilvægara, þau misstu sjálf yfirsýnina og því fylgdi óöryggi.

20

Heimilispósturinn


Memaxi getur hjálpað heimilisfólki Ýmsar leiðir prófaðar Það voru alls konar leiðir prófaðar, gulir miðar límdir á ísskápinn, skrifað í dagatal og jafnvel reynt að fá fyrir þau „gleym mér ei“ klukku og tússtöflu en ekkert af þessu virkaði í raun fyrir okkur. Við fórum svo að hittast á sunnudagskvöldum til að leggja línurnar fyrir vikuna og skipta með okkur verkum en fundum að okkur vantaði eitthvað skipulag sem virkaði vel. Þannig kviknaði eiginlega hugmyndin að Memaxi“, segir Ingunn. „Tengdaforeldrarnir kynntust ekki Memaxi, þeir fluttu bæði á Grund og það var ekki fyrr en síðar að við byrjuðum að kynna þetta forrit“.

Heimilispósturinn

21


Memaxi getur hjálpað heimilisfólki En hvernig virkar svo Memaxi? „Appið er opnað í spjaldtölvu hjá þeim sem þarf á aðstoðinni að halda og þar getur viðmótið verið fast á skjánum fyrir viðkomandi. Þar sést alltaf dagskrá dagsins, klukkan, síminn, veðrið og minnisatriði og fjölskyldan getur bætt inn myndum með texta og skráð í gestabók. Núna erum við að kanna samstarf við hjúkrunarheimili, heimahjúkrun og félagsþjónustu vítt og breitt um landið svo upplýsingar frá þeim komi beint inn á dagskrána ásamt upplýsingum frá fjölskyldu. Þar ber helst að nefna samskiptabók sem auðveldar samskipti þjónustuveitenda á tryggan og öruggan hátt.“ Hægt að hafa viðmótið mjög einfalt Er þetta ekkert of flókið fyrir roskið fólk? „Það hefur ekki verið okkar tilfinning. Það er hægt að einfalda viðmótið á skjánum mjög mikið og hafa bara allra nauðsynlegustu upplýsingar sem hentar hverjum og einum. Svo uppfærist þetta sjálfkrafa á miðnætti, þá kemur upp nýr dagur á skjánum. Sá aldraði þarf ekkert annað að gera en að lesa og skoða, hann þarf ekki að búa yfir neinni tölvuþekkingu.“ Ingunn segir að fram til þessa hafi það aðallega verið í heimahúsum sem Memaxi hefur verið notað en nú sé Memaxi einnig komið í notkun í heimaþjónustu og á hjúkrunarheimilum sem sjái mikil tækifæri í svona samskiptalausn. Allar nánari upplýsingar eru á www.memaxi.is

22

Heimilispósturinn


Molar úr fortíðinni

H

Skóburstun og vaskað upp

eimilisfólk tók til hendinni hér á Grund á árum áður og fékk jafnvel borgað fyrir eitthvað smáræði. Það var oft yngra en það er í dag og yfirleitt betra til heilsunnar. Það hjálpaði til í svokölluðum býtibúrum, vaskaði upp og þurrkaði, tók af borðum og aðstoðaði við að brjóta þvott. Þar fyrir utan sá heimilisfólk um að búa um rúmið sitt og burstaði jafnvel skóna sína. Þessi skemmtilega mynd er tekin á Frúargangi á sjötta áratugnum þar sem heimiliskonur voru að bursta skóna.

Heimilispósturinn

23


Bauð heimilisfólki á tónleika

Páll Óskar og Monika í hátíðasal

F

yrir skömmu ákvað heimiliskonan Ólöf Helga Brekkan að bjóða samferðafólki sínu á Grund að hlýða á fallega tóna. Hún fékk til liðs við sig Pál Óskar og Moniku Abendroth sem komu í heimsókn og spiluðu og sungu í hátíðasal Grundar. Og heimilisfólk og starfsfólk lét ekki segja sér það tvisvar þegar boðið kom, salurinn var fullur af fólki sem hlustaði með athygli á þetta frábæra teymi halda tónleika. Þakka ykkur kærlega fyrir komuna og Ólöf Helga Brekkan, fyrir hönd okkar allra. Kærar þakkir.

Góð saman.

24

Heimilispósturinn


Bauð heimilisfólki á tónleika

Páll Óskar söng af innlifun fyrir gesti í hátíðasal.

Monika, Ólöf Helga og Páll Óskar.

Heimilispósturinn

25


Fiskidagurinn litli

Fiskborgarar og líflegar sögur

F

yrir nokkrum árum hófst samstarf milli forsvarsmanna Fiskidagsins mikla á Dalvík og Markar þannig að skömmu eftir að sá stóri er haldinn fagnar fólk í Mörk þeim litla. Heimilismenn skreyttu húsið fyrir viðburðinn sem var í ágúst og að norðan kom hráefni í fiskisúpu að hætti Dalvíkinga og dýrindis fiskborgara. Júlíus Júlíusson framkvæmdastjóri þess eina og sanna Fiskidags á Dalvík mætti í Mörk sem og Friðrik V. yfirkokkur. Þá söng KK fyrir gesti og sagði sögur. Frábær dagur og allir eru þegar farnir að hlakka til dagsins að ári.

Friðrik, Júlíus og Valdi ásamt ungum aðstoðarkokki.

26

Heimilispósturinn


Fiskidagurinn litli

Heimilisfólk og starfsfólk skreytti salinn.

Salurinn í Mörk var troðfullur þennan daginn.

Heimilispósturinn

27


Bakstur á frúargangi

Rjúkandi súkkulaði og vöfflur

N

ú þegar skammdegið skellur á og kólna fer í veðri er gott að ylja sér með heitu súkkulaði og vöfflum. Einn slíkan dag fyrir skömmu var ákveðið að baka á Frúargangi á Grund. Vöfflurnar bakaði heimiliskonan Lilja Helga Gunnardóttir með dyggri aðstoð Írisar Ólafsdóttur. Aðeins til útskýringar á nafninu Frúargangur. Það er ekki af því að það búi bara konur á þessum austurgangi Grundar heldur bjuggu Gísli Sigurbjörnsson þáverandi forstjóri Grundar og kona hans Helga Björnsdóttir fyrstu tíu búskaparár sín í nokkrum herbergjum á þessum gangi, eða frá árinu 1934. Og af því að frú Helga bjó á þessum gangi festist nafnið við hann.

Lilja Helga við baksturinn.

28

Heimilispósturinn


Bakstur á frúargangi

Heitt súkkulaði var borið fram með vöfflunum.

Lilja Helga og Magdalena gæða sér á þessum ljúffengu veitingum.

Heimilispósturinn

29


Ævintýranámskeið og Bæjarás

Í

Listaverk og ljúfir krakkar

sumar var Bæjarás í Ási í samstarfi við ævintýranámskeiðin í Hveragerði. Námskeiðin vörðu í tvær vikur í senn og hver hópur kom í heimsókn seinni viku námskeiðsins. Krakkarnir spjölluðu um alla heima og geima við heimilisfólk og léku sér og auðvitað var passað uppá að þau færu ekki þyrst og svöng þaðan. Hér koma nokkrar myndir sem sýna stemninguna þegar krakkarnir glöddu heimlisfólk með nærveru sinni sem og þá sem eru í dagdvöl í Bæjarási. Það er óhætt að segja að þetta hafi vakið lukku og lengi á eftir var talað um þessar dásamlegu heimsóknir.

30

Heimilispósturinn


Ævintýranámskeið og Bæjarás

Heimilisfólk hlakkaði býsn til heimsóknanna.

Heimilispósturinn

31


Forsætisráðherra í hátíðasal

Til í að byrja hvern dag á Grund

K

atrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, gaf sér tíma einn morguninn til að koma í morgunstund Grundar og spjalla við heimilisfólk. Hún var létt og kát og sagði að hún væri alveg til í að byrja hvern dag á því að heimsækja þennan góða stað. Katrín ræddi ættfræði, sögu fullveldisins, Vesturbæinn og um fótboltann og HM. Sr. Pétur Þorsteinsson, sem stýrir morgunstund var svo tilbúinn með töfrabrögð sem Katrín tók þátt í með bros á vör. Við bíðum bara eftir að Katrín heiðri okkur aftur með nærveru sinni.

Katrín Jakobsdóttir talaði fyrir fullum sal af fólki.

32

Heimilispósturinn


Forsætisráðherra í hátíðasal

Katrín heilsaði uppá heimilisfólkið og spjallaði um heima og geima.

Sr. Pétur og Katrín sýndu að lokum töfrabragð.

Heimilispósturinn

33


Haustar í Mörk

Þ

Veggskreytingin tileinkuð árstíðinni

að hefur skapast sú hefð hjá heimilisfólki Markar að skreyta vegginn á fyrstu hæð með ýmsum hætti. Stundum hafa skreytingarnar verið tileinkaðar stórhátíðum en líka árstíðum. Undanfarið hefur heimilisfólkið unnið með haustlitina og nú prýða vegginn jarðarlitir og haustlauf.

34

Heimilispósturinn


Haustar í Mörk

Heimilisfólk og starfsfólk skreytti saman vegginn.

Haustið er þema októbermánaðar.

Heimilispósturinn

35


Konurnar í Ási brugðu sér af bæ

Sungið og trallað í blíðskaparveðri

E

inn fallegan dag í ágúst lögðu konurnar úr vinnustofum iðjuþjálfunar í Ási land undir fót. Ferðinni var heitið í Ásahrepp í Rangárvallasýslu þar sem handavinnusýning Jórunnar Eggertsdóttur í Lækjartúni var skoðuð og handverkið hennar dásamað. Síðan lá leiðin að Miðási í Ásahreppi en þar tóku á móti hópnum heiðurshjónin Ásta Begga Ólafsdóttir og Gísli Sveinsson sem buðu upp á dýrindis kaffiveitingar. Eftir kaffið tók Gísli fram harmonikkuna og lék nokkur lög við góðar undirtektir viðstaddra sem að sjálfsögðu sungu með. Þar sem brúin yfir Ölfusá var lokuð þennan dag var keyrt í gegnum Ölfus á leiðinni austur og um Skeiða og Gnúpverjahrepp á leiðinni heim. Ferðin var í alla staði mjög vel heppnuð og skemmtileg eins og myndirnar bera með sér.

Veðrið lék við konurnar þennan dag.

36

Heimilispósturinn


Konurnar í Ási brugðu sér af bæ

Heimilispósturinn

37


Vinsælt að hjóla í sjúkraþjálfun Grundar

Heimilisfólk gleymir sér við að hjóla um íslenskar sveitir

Þ

að er ekki langt síðan þrjú hjól í sjúkraþjálfun Grundar voru sett fyrir framan stóran sjónvarpsskjá sem er með forritinu motiview. Það þýðir að þegar heimilisfólkið kemur í sjúkraþjálfun til að hjóla og liðka líkamann þá þeysist það í leiðinni um íslenskar sveitir og ýmsar heimsborgir.

Jónas Ásmundsson hjólar um götur Brussel og hefur gaman af.

Þetta er sveitin mín „Þetta er mjög skemmtilegt“, segir Helga Vilhjálmsdóttir sjúkraþjálfari Grundar sem hefur fylgt verkefninu úr hlaði fyrir hönd Grundar. Ekki nóg með að fólk sé áhugasamt að prófa að hjóla þegar útsýnið er svona skemmtilegt, heldur gleymir það sér á hjólinu og fyrr en varir er hálftíminn liðinn. Við erum komin með myndbönd af íslenskum sveitum og það kemur iðulega fyrir að skemmtilegar samræður spinnist, t.d. þegar heimilismaður bendir á hús sem hann hefur búið í eða sér æskusveitina sína.“ En Helga segir að það sé ekki bara innanlands sem fólkið 38

Heimilispósturinn


Vinsælt að hjóla í sjúkraþjálfun Grundar er að hjóla heldur getur það líka skoðað heimsborgir á við Kaupmannahöfn, Berlín og Brussel. „Það er ekki nóg með að heimilisfólk gleymi sér á hjólinu og hjóli jafnvel lengur en ella, heldur erum við starfsfólkið líka að standa okkur að því að horfa dolfallin á fallegt landslag og skemmtilegar borgarmyndir þegar fólkið er að hjóla.“

Heimiliskonurnar Jóna Snævarr og Katrín Guðmundsdóttir hjóla í Berlín.

Grund ætlar að taka þátt í heimsmeistarakeppni Það er norskt fyrirtæki sem stendur að baki Motiview og það stóð nýlega að heimsmeistarakeppni þar sem lið kepptu innbyrðis. Meðal keppenda voru lið frá Hlíð á Akureyri og Droplaugarstöðum. „Við hér á Grund erum nýfarin að nota forritið en auðvitað stefnum við á að setja saman lið fyrir næsta ár og taka þátt. Engin spurning.“ Helga segir ennfremur að erlendis séu forritin ekki bara notuð í sjúkraþjálfun hjúkrunarheimila heldur eru þau einnig í setustofum og þá geta ættingjar hjólað með fólkinu sínu og notið þess sem fyrir augu ber.

Heimilispósturinn

39


Snúður er nýfluttur í Bæjarás

Heimilismaður tók að sér uppeldið

S

núður er lítill fressköttur sem Rut Þorsteinsdóttir, dóttir Rúnu Einarsdóttur hjúkrunarfræðings í Ási, gaf heimilisfólkinu í Bæjarási. Heimilismaðurinn Karl Stefánsson hefur alltaf verið mikill kattarmaður og ætlar að sjá um uppeldið á Snúði með dyggri aðstoð starfsfólks og annara heimilismanna í Bæjarási. Karl átti einu sinni kött þegar hann var á sjó og hafði kisa með sér. Þegar Karl fór í land og ætlaði að skilja kisuna eftir þar varð uppi fótur og fit því hún vildi alls ekki yfirgefa sjóinn og tók langan tíma í að jafna sig. En Snúður braggast sem sagt vel í Bæjaási, hann er sannkallaður gleðigjafi og á ekki erfitt með að koma fólki til að brosa.

Rakel og Karl með Snúð litla.

40

Heimilispósturinn


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Heimilispósturinn - október 2018 by Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili - Issuu