HEIMILISPÓSTURINN Heimilisblað Grundar, Áss og Markar 53. árgangur
október 2017
3. tölublað
Grund - 95 ára og Ás - 65 ára
Efnisyfirlit Samverjinn og stofnun Grundar........................................................... 3 Fljótshlíðin fagra varð fyrir valinu................................................... 16 Epli og ber............................................................................................... 18 Fjórir prestar iðulega í húsinu............................................................ 20 Heimilisfólkið rifjaði upp dönskuna.................................................... 21 Næst ætlum við að búa til beikonsultu............................................... 22 Góða veðrið nýtt fyrir hópastarf....................................................... 23 Smalinn mætti á fjórhjólinu................................................................. 24 Slátrið dugar í tíu máltíðir................................................................... 26 Fullur salur hlýddi á Diddú og Gissur Pál.......................................................................................... 28 Saumaklúbbssystur í 65 ár................................................................... 29 Fiskborgarar og „filsur“...................................................................... 30 Handmálaðir álfar og útsaumur.......................................................... 32 Tengigangurinn notaður í ýmislegt..................................................... 35 Ljóðabálkurinn vakti undrun og mikil gleði........................................................................................... 36 Ekki amalegt að koma í hvíld í Ás.......................................................... 38 Smökkun á berjadrykkjum.................................................................... 39 Vinsæl bombuterta................................................................................. 40 Kennarar á spjalli.................................................................................. 42 Það sem máli skiptir............................................................................... 43 Pylsur, bjórfræðsla og bíó................................................................. 44 Aukin orka og vellíðan markmiðið........................................................ 46 Má bjóða þér upp í dans?....................................................................... 48
Forsíðumyndin er tekin af fyrstu heimilismönnum Grundar fyrir 95 árum. Ritstjóri: Guðbjörg R. Guðmundsdóttir. Hönnun og uppsetning: Írena Dögg McCabe. Prentun: GuðjónÓ. Upplag: 1500. 2
Heimilispósturinn
Grund 95 ára og Ás 65 ára
Samverjinn og stofnun Grundar
Á
rið 1914 hittust nokkrir góðtemplarar undir forystu Sigurbjörns Á. Gíslasonar og efndu til ókeypis matargjafa fyrir fátæka og var starfsemin kölluð Samverjinn. Matargjafirnar stóðu yfir í átta vetur en sumarið 1921 urðu skil í starfi Samverjans sem ákvað þá að efna til skemmtisamfunda fyrir aldraða en á þessum tíma var aðbúnaður gamals fólks bágborinn í borginni. Skemmtunin var haldin 2. ágúst í tjöldum á túninu við Ás, heimili Sigurbjörns, með ræðuhöldum, söng og veitingum. Sumarið eftir voru tvær skemmtanir haldnar með svipuðu sniði og sóttu þær á fjórða hundrað aldraðir og tvö hundruð aðrir. Var höfð tunna á svæðinu þar sem mátti leggja fram gjafir en enginn þurfti þess né heldur var til þess verulega hvatt. Svo vel var greitt og gefið af viðstöddum sem og af verslunum í bænum að þegar upp var staðið og uppgjöri lokið var 541 króna í afgang þó allir aldraðir og auralausir þægu ókeypis veitingar.
Fyrsta stjórn Grundar. Talið frá vinstri: Flosi Sigurðsson, Haraldur Sigurðsson, Júlíus Árnason, Páll Jónsson og Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason.
Heimilispósturinn
3
Grund 95 ára og Ás 65 ára
Grund var til húsa fyrir vestan Sauðargerðistún.
24 heimilismenn Árið 1922 skrifar Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason, afi minn, grein fyrir hönd líknarsamtakanna Samverjans þar sem hann segir frá gamalmennaskemmtunum sem samtökin hafi staðið fyrir og að ánægjulegt sé að segja frá því að dágóð upphæð hafi safnast sem hægt væri að nota til að flýta fyrir stofnun elliheimilis. Greinin vakti athygli og almenningur gaf peninga til stofnunar heimilis. Ráðist var í að kaupa steinhús fyrir vestan svokallað Sauðagerðistún, skammt frá þar sem Kaplaskjólsvegur er í dag og hét húsið Grund. Fyrstu heimilismennirnir fluttu inn þann 27. október sama ár og tveimur dögum síðar var Grund vígð að viðstöddu fjölmenni. Þarna var pláss fyrir 24 heimilismenn. Þó að þar væri bæði þröngt og fátæklegt, var andrúmsloftið notalegt og fólkið ekki fleira en svo, að stjórnarnefndin gat kynnst sérhverjum sem þar bjó. Of afskekkt? Það kom hinsvegar fljótt í ljós að þetta var aðeins fyrsta skrefið í að leysa húsnæðisvanda aldraðra og að byggja þyrfti 4
Heimilispósturinn
Grund 95 ára og Ás 65 ára mun stærra heimili. Í fyrstu kom til álita að byggja við gamla húsið eða reisa annað við hliðina á því og hugmyndin komst svo langt að stækkun á húsinu var teiknuð upp. Ekki leist nefndarmönnum á að þessi lausn yrði viðunandi til frambúðar. Sumir áhrifamenn þjóðarinnar sögðu við stjórnina að flytja ætti bara elliheimilið á gott sveitabýli, þar sem reka mætti búskap og fá ýmsar heimilisnauðsynjar miklu ódýrari en í Reykjavík. Þessari skoðun var hafnað, enda töldu þeir sem heimilið ráku þá, að það kæmi ekki að fullum notum fyrir Reykjavík, sem var ört vaxandi höfuðstaður, ef það væri úti á landi. Sumum þótti gamla Grund jafnvel vera of afskekkt. „Alla leið fyrir vestan Sauðagerði, þar sem líklega sést aldrei gestur og ófært er fyrir mig og mína líka að sækja kirkju eða heimsækja kunningjana“, var viðkvæðið úr þeirri átt. Og hvað myndi þá, ef heimilið flytti alveg brott úr bænum? Þar að auki væri útilokað að eftirlits- og stjórnunarstarf yrði hjáverkastarf með öllu, eins og nú var háttað, ef farið yrði með bygginguna út á land. Knud Zimsen kemur til hjálpar Þegar óvissan var mest og flestar ráðagerðir sýndust strandaðar eða ófýsilegar kom borgarstjórinn Knud Zimsen til hjálpar og það var ekki í fyrsta né síðasta sinn. Hann hafði fylgst með málinu og hvatti nú til að hætt yrði við að byggja á Sauðagerðistúni eða bæta við gömlu Grund og hann skyldi athuga hvort ekki fyndist heppileg lóð undir nýbyggingu. Gat hann þess að hann hefði í huga ákveðna lóð við Hringbraut, þar sem unnt væri að reisa stórhýsi í áföngum, eftir því sem elliheimilinu yxi fiskur um hrygg. Byggingarsjóður var stofnaður og gjafir bárust frá ýmsum aðilum. Ein gjöfin er minnisstæð því enn í dag minnumst við hennar ár hvert. Sveinn Jónsson kaupmaður í Völundi kom á fund stjórnar heimilisins 10. desember 1925 og tilkynnti að hann og systkini hans gæfu eitt þúsund krónur í húsbyggingarsjóð með því skilyrði einu að jafnan skyldi haldið upp á brúðkaupsdag foreldra þeirra Jóns Helgasonar og Guðrúnar Heimilispósturinn
5
Grund 95 ára og Ás 65 ára Sveinsdóttur frá Steinum undir Eyjafjöllum sem var 26. október. Æ síðan höfum við staðið við loforðið, verið með afmæliskaffi fyrir Grund og í leiðinni minnst brúðkaupsdags hjónanna. Þótti bjartsýni að byggja svo stórt Stjórnin féllst fyrir sitt leyti á uppástungu Knud Zimsen um lóðina við Hringbraut og lét verða sitt fyrsta verk að skrifa bæjarstjórn og sækja um og var þess getið í bréfinu að ætlunin væri að reisa hús fyrir allt að 70 vistmenn. Sumarið árið 1927 samþykkti bæjarstjórn á fundi sínum að úthluta elliheimilinu 6200 fermetra lóð milli Hringbrautar og Brávallagötu. Byggingarleyfi fékkst vorið 1928 og uppgröftur hófst í ágúst það ár. Það þótti mikil bjartsýni að ráðast í svo stóra byggingu á þessum tíma og margir spáðu að henni lyki aldrei og að Grund yrði fljótt gjaldþrota.
Mikill mannfjöldi mætti þegar Grund við Hringbraut var vígð.
6
Heimilispósturinn
Grund 95 ára og Ás 65 ára Stólarnir enn í notkun, 86 árum síðar Í árslok 1928 var borin fram ósk um að byggingu Grundar yrði hraðað eins og mögulegt væri til að hægt yrði að taka á móti Vestur-Íslendingum sem ætluðu að koma á alþingishátíðina árið 1930. Þeir myndu greiða svo rausnarlega fyrir gistinguna að um munaði fyrir heimilið. Stjórnin gekk að þessu tilboði og allt var sett á fulla ferð til að heimilið yrði tilbúið þegar að þessu kæmi. Einn gárunginn á meðal Vestur-Íslendinganna sagði: „Þeir búast ekki við ungu fólki né heilsugóðu héðan að vestan því þeir ætla að koma oss fyrir á elliheimili og sjúkrahúsi strax og vér stígum fæti á gamla landið“, en þetta sama ár var Landspítalinn tekinn í notkun og hluti gestanna dvaldi þar. Það er skemmtilegt að segja frá því að stólar sem voru keyptir fyrir það sem heimilinu áskotnaðist fyrir að hýsa Vestur – Íslendingana, eru enn í notkun á heimilinu, nú 87 árum síðar. Nær ómögulegt að rata út Fyrstu heimilismennirnir fluttu inn í lok sumars árið 1930 en heimilið var vígt 28. september sama ár. Umskiptin voru mikil fyrir heimilisfólk að koma í nýja húsið og mátti oft heyra það á mæli þeirra sem fluttu. Sigurbjörn segir frá: „Vistmaður frá gömlu Grund skoðaði húsið og sagði svo þegar heim kom: Húsið er reisulegt og fjarska fínt, en ég tók samt eftir slæmum galla á húsinu, það er nær ómögulegt að rata þar út.“ Það voru samt fernar dyr á húsinu. Gömul kona gekk um húsið og mælti: „En hvar eigum við að vera?“. Hún varð alveg orðlaus, er henni var sagt að hún mætti kjósa sér herbergi, þar sem hún stóð. Annars voru það fleiri en aldraðir sem töluðu um að húsið væri óþarflega fínt, því ritað var um það í blöðin og m.a. sagt að um væri að ræða eina af merkustu byggingum þessa lands og svo vandaða í alla staði að leitun væri að öðru eins elliheimili, jafnvel meðal stærri og ríkari þjóða. Leigðu út herbergi Fyrstu árin var rekstur heimilisins þungur og illa gekk að láta enda ná saman og greiða afborganir og vexti af lánum. Gripið Heimilispósturinn
7
Grund 95 ára og Ás 65 ára var til þess ráðs að leigja út húsnæði á Grund fyrstu árin því húsið var mjög stórt og heimilismenn fáir í upphafi. Með því að leigja út var hægt að afla auka tekna fyrir heimilið. Málarar fengu til dæmis aðstöðu í rishæð miðálmunnar og Vefnaðarskóli Rögnu Sigurðardóttur leigði rishæð austurálmu frá 1931 og greiddi hundrað krónur á mánuði eða tíu krónur á vefstól. Forstjóri í 60 ár Árið 1934 féll snögglega frá þáverandi forstjóri Grundar, Haraldur Sigurðsson. Stjórn Grundar, bað Gísla, son Sigurbjörns, að taka að sér rekstur heimilisins um stundarsakir, á meðan stjórnin fyndi annan mann til verksins. Það má með sanni segja að það hafi dregist, því faðir minn var forstjóri Grundar í sextíu ár. Móðir mín tók frá upphafi þátt í starfinu með pabba og hennar hlutverk hér á heimilinu má ekki gleymast og verður seint full þakkað. Eins og ég nefndi áðan var verulegt tap á rekstri heimilisins
Pabbi er hér líklega að leggja mér lífsreglurnar.
8
Heimilispósturinn
Grund 95 ára og Ás 65 ára ár eftir ár og erfiðlega gekk að greiða af lánum. Árið 1936 var reksturinn svo þungur að til stóð að bjóða upp heimilið vegna vangoldinna opinberra gjalda upp á 461.15 krónur. Pabbi reiddist svo, að hann reif tilkynninguna í sundur og ég á hana enn til minningar um þessa erfiðu tíma sem þá voru. Með mikilli ráðdeild, sparnaði og útsjónarsemi tókst föður mínum að snúa rekstrinum á betri veg. Fyrstu árin voru heimilismenn 23 talsins en þeim fjölgaði stöðugt allt fram til ársins 1968 er þeir voru 382. Í dag eru heimilismenn 170. Líf mitt samofið Grund Líf mitt hefur ávallt verið samofið Grund. Ég er fædd og alin upp á heimilinu og hef búið við hlið þess mest allt mitt líf. Ég var á öðru ári þegar ég flutti af Frúargangi sem nú heitir A-3. Frúargangur hlaut ekki nafn sitt af því að þar hefðu bara búið konur heldur var mamma mín, Helga Björnsdóttir, oftast kölluð frúin og þannig festist nafnið við ganginn þar sem við bjuggum. Þegar við fluttum af Frúargangi fórum við ekki langt því við fluttum á Blómvallagötu 12 þar sem nú er Minni Grund en var áður starfsmannahús. Það voru forréttindi að alast upp með heimilisfólkinu. Hvorki mín börn né barnabörn hefðu komist upp með það sem við systurnar gátum dundað okkur við. Húsakynnin öll voru leiksvæðið okkar og við eignuðumst auðvitað margar ömmur og afa meðal heimilisfólksins sem spiluðu við okkur og laumaðu að okkur ýmsu góðgæti. Heimiliskonan hún Ásta P. kenndi mér að drekka kaffi þegar ég var sex ára. Ævintýri þegar lyftan og sundlaugin komu Við vorum oft í feluleik um allt hús og það var meiriháttar því felustaðirnir voru margir. Þegar lyftan og sundlaugin komu í húsið í kringum árið 1955 var það heilt ævintýri. Við dvöldum langtímum saman í lyftunni og vorum spenntar að sjá hvort við færum upp eða niður þegar fólk var að panta lyftuna. Sama Heimilispósturinn
9
Grund 95 ára og Ás 65 ára með sundlaugina. Við fengum að fara í sundlaugina um helgar og buðum þá gjarnan vinkonum með okkur og þá var oft glatt á hjalla. Mér eru líka minnisstæð jólin. Eftir guðsþjónustu hjá afa, sr. Sigurbirni Ástvaldi, á aðfangadag fórum við Helga með pabba um húsið og tókum í hendina á öllum heimilismönnum um leið og við óskuðum þeim gleðilegra jóla. Þá voru á Grund yfir 300 heimilismenn. Á þrettándaskemmtuninni sem þá var haldin að kvöldi höfðum við systurnar það hlutverk að pússa rauð epli og afhenda svo fólki að lokinni skemmtuninni. Keypt ljósavél á Grund Rafmagnið fór oft af bænum í gamla daga og okkur systrum fannst það mikið sport og við gengum um allt með kerti. Svo var það einu sinni að pabbi var að koma frá föður sínum í Ási við Sólvallagötu og sá að það logaði ljós allsstaðar í hverfinu nema á Grund. Hann vissi að rafmagnsreikningurinn var ógreiddur þar sem peningar höfðu ekki verið til en þarna ákvað pabbi að það skyldi aldrei aftur vera myrkur á Grund. Það skyldi loga ljós þó rafmagn færi af í bænum. Það var keypt ljósavél okkur systrum til mikilla vonbrigða því þegar rafmagnið fór af borginni fór
Pabbi keypti notaða nagla af krökkunum í hverfinu.
10
Heimilispósturinn
Grund 95 ára og Ás 65 ára ljósavélin í gang og því varð aldrei rafmagnslaust aftur á Grund. Frá því Grund var tekin í notkun hafa verið byggðar álmur við heimilið bæði til austurs og vesturs auk sex annarra viðbygginga. Árið 1947 var Minni Grund, sem stendur við Blómvallagötu, reist og tekin í notkun, fyrst sem starfsmannahús en síðar fyrir heimilisfólk. Ég man að þegar verið var að byggja við þá vorum við Helga systir og krakkar í hverfinu iðin við að tína upp notaða og bogna nagla sem til féllu. Pabbi keypti svo naglana af okkur, lét rétta þá og nota upp á nýtt. Sólin á Litlu Grund Árið 1982 var Litla Grund tekin í notkun og hafa heimilismenn verið þar frá upphafi. Pabbi hafði heilmikinn húmor og þegar Litla - Grund var byggð þá hafði ekkert hús staðið áður á lóðinni. Þegar byrjað var að reisa húsið fóru nágrannarnir að hringja og spyrja hvað það ætti eiginlega að vera hátt. Þeir sögðu að ekki myndi sjást til sólar fyrir húsinu. Þá lét pabbi steypa í vegginn stóreflis sól og mála hana gula. Grund hefur um árin keypt nokkrar íbúðir í verkamannabústöðunum við Brávallagötu og eru þær m.a. nýttar sem þjónustuíbúðir og leigðar starfsfólki. Þann 1. júlí árið 2004 var tekin skóflustunga að tengigangi milli Grundar og Litlu Grundar þannig að innangengt er á milli Grundanna þriggja. Haustið 2014 fluttu skrifstofur heimilisins frá Litlu Grund og í það húsnæði sem hýsti þvottahúsið áður því allur þvottur er nú þveginn í þvottahúsi heimilisins í Ási. Á Litlu Grund þar sem skrifstofurnar voru áður eru nú þrjú rúmgóð hjónaherbergi og fjögur einbýli og eru þau öll með snyrtingu. Grund á tæplega fimmtíu hús í Hveragerði En rekstur heimilisins hefur ekki eingöngu verið bundinn við Reykjavík. Árið 1952 hófst formlega starfsemi að Ási í Hveragerði. Heimilið byrjaði upphaflega í tveimur húsum og vistmenn voru fjórir. Starfsemin fór vel af stað og hún jókst Heimilispósturinn
11
Grund 95 ára og Ás 65 ára
Ás í Hveragerði. Þar búa í dag tæplega 120 heimilismenn.
jafnt og þétt. Faðirinn var framsýnn maður og hreyfði við þeirri hugmynd að skynsamlegt væri að byggja lítil hús í Hveragerði með hæfilegri íbúð handa rosknum hjónum. Í dag á Grund tæplega fimmtíu hús í Hveragerði sem aldraðir búa í. Hann var hugmyndaríkur maður og vildi koma upp góðri vinnuaðstöðu
Fyrstu heimilismennirnir í Ási ásamt starfsfólki.
12
Heimilispósturinn
Grund 95 ára og Ás 65 ára fyrir aldraða og hafði óbilandi trú á möguleikum Hveragerðis sem heilsulindarbæjar. Þá hafði hann á prjónunum áætlanir um nýtingu heita vatnsins til ræktunar á grænmeti og enn þann dag í dag ræktum við í nokkrum gróðurhúsum grænmeti og blóm fyrir öll heimilin þrjú. Í dag búa um 120 heimilismenn í Ási svo starfseminni þar hefur aldeilis vaxið fiskur um hrygg. Byggjum enn frekar í Mörk Í ársbyrjun 2010 festi Grund kaup á 78 þjónustuíbúðum við Suðurlandsbraut 58 – 62. Það er óhætt að segja að það hafi verið gæfuspor því í dag er búið í öllum íbúðunum og langur biðlisti. Til að mæta aukinni þörf er nú verið að byggja 74 þjónustuíbúðir í viðbót sem eru í nokkrum húsum norðanmegin við hjúkrunarheimilið. Þessi starfsemi mun án efa styrkja stoðir Grundar þegar til langs tíma er litið. Fyrir sjö árum tók heimilið einnig að sér rekstur hjúkrunarheimilisins Markar sem er við hlið þjónustuíbúðanna. Þar búa nú 113 einstaklingar á ellefu heimilum. Lagði sig á bekk í sjúkraþjálfuninni Hjá Grund eru starfsmennirnir nú rúmlega þrjú hundruð talsins og margir í hlutastörfum. Margir vinna hjá okkur áratugum saman og sumir hafa kosið að vinna lengur en til sjötugs. Mér er sérstaklega minnistæð hún Anna mín Sveinbjörnsdóttir. Hún hóf störf hjá okkur rétt fyrir sjötugt og hætti störfum þegar hún varð 83 ára. Síðustu árin bjó hún í Keflavík og þá tók hún rútuna í bæinn. Hún var ófáanleg til að taka leigubíl frá BSÍ því hún vildi ekki láta heimilið borga fyrir sig aukalega og það kom fyrir að ef veðurspáin var slæm lagði hún sig yfir nóttina á bekk í sjúkraþjálfuninni svo hún myndi nú örugglega mæta á réttum tíma daginn eftir. Tuttugu fyrrum starfsmenn voru heimilismenn Rekstur Grundar hefur gengið vel þrátt fyrir að utanaðkomandi aðstæður hafi ekki alltaf verið okkur hliðhollar og er það ekki síst að þakka öllu því frábæra starfsfólki sem Heimilispósturinn
13
Grund 95 ára og Ás 65 ára unnið hefur hjá heimilinu í áranna rás og það er gaman að geta þess að fyrir nokkrum árum voru meðal heimilismanna tuttugu fyrrum starfsmenn Grundar. Ég hafði unnið á Grund alltaf af og til um árin en kom fast til starfa 1979 og þegar pabbi lést árið 1994 tók ég við af honum. Skrifborðið hjá pabba var alltaf mjög snyrtilegt en er kannski ekki alveg eins fínt hjá mér. En við eigum það sameiginlegt feðginin að ég tíni upp rusl sem á vegi mínum verður eins og hann gerði ávallt. Hann gekk þó skrefi lengra þegar hann var í Ási. Þá gekk hann með litlar klippur í vasanum og klippti af dauðar greinar sem á vegi hans urðu. Ég hef ekki vanið mig á það ennþá. Pabbi fór í messu alla sunnudaga og helga daga á Grund og fyrir nokkrum árum fékk ég athugasemd um það frá einum heimilismanni að ég ætti að mæta oftar til messu eins og hann gerði og hef ég tekið það föstum tökum. Forréttindi að hafa eytt ævinni á Grund Þó rekstur heimilanna sé ekki alltaf auðveldur þá er það ekkert í samanburði við það sem forystumenn Grundar og síðar faðir minn þurftu að takast á við alveg frá upphafi. Árið 1931 bauðst stjórnin meira að segja til að afhenda bænum Grund en meirihluti bæjarstjórnar hafnaði. Þá voru skuldirnar að sliga heimilið en með Guðs hjálp og góðra manna tókst að snúa rekstrinum á betri veg. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því Grund tók til starfa árið 1922 og uppbygging Grundar hefur verið stöðug og henni er hvergi nærri lokið. Ég tel það forréttindi að hafa eytt stærstum hluta ævinnar á Grund og kynnst öllu þessu yndislega fólki sem þar hefur búið og starfað. Guðrún Birna Gísladóttir, forstjóri.
14
Heimilispósturinn
Rappað í Mörkinni
F
ólkið sem kemur í Mýrina, tómstundamiðstöð íbúanna í Mörkinni, fæst við ýmislegt. Einn daginn fyrir ekki löngu kom fréttamaður Nútímians þar við og spurði íbúa út í rapptónlist. Þeir kunnu bara vel að meta þessa nútíma tónlist og undu sér vel við að hlusta.
Íbúarnir kunnu vel að meta rappið.
Hér er verið að einbeita sér.
Heimilispósturinn
15
Heimilisfólkið í Ási á faraldsfæti
Fljótshlíðin fagra varð fyrir valinu
U
m hundrað heimilismenn úr Ási og tuttugu starfsmenn skelltu sér í ferðalag síðsumars. Ekið var sem leið lá í yndislegu veðri austur í Fljótshlíð og þar var drukkið kaffi hjá staðarhöldurum á Hótel Smáratúni. Veðrið lék við ferðalangana og þó að heimilisfólkið væri orðið lúið í lok dags skipti það í raun litlu því öllu yfirsterkari var gleðin yfir frábærum félagsskap á sólríkum degi í sveitasælu.
Guðrún Hallgrímsdóttir, Kristín Stefánsdóttir og Arnfríður Gunnarsdóttir.
16
Heimilispósturinn
Heimilisfólkið í Ási á faraldsfæti
Um hundrað heimilismenn mættu í ferðina í Fljótshlíð.
Einar Jónsson, Guðmunda Guðmundsdóttir og Sólveig Björgvinsdóttir.
Heimilispósturinn
17
Uppskera í Mörkinni
Í
Epli og ber
búar við Suðurlandsbraut 58 til 62 hafa verið að ná uppskeru úr garðinum við húsin, m.a. ber og kartöflur og í fyrsta skipti gáfu nú eplatré af sér ávöxt. Eplin voru ekki mjög mörg eða stór en þeim leist vel á góðgætið Þorvaldi Þorvaldssyni matreiðslumeistara, Sigurði Helgasyni og Lilju Benediktsdóttur íbúum í Mörkinni þegar þau skoðuðu uppskeruna. Eplin voru notuð í eplaböku sem íbúum bauðst svo að smakka á.
Það var auðvitað búin til eplakaka úr uppskerunni.
18
Heimilispósturinn
Uppskera í Mörkinni
Þorvaldur, Sigurður og Lilja að tína epli í garðinum
Heimilispósturinn
19
Kaffisamsæti á Grund
Fjórir prestar iðulega í húsinu
Þ
að kom nýlega í ljós að á Grund voru að öllu jöfnu fjórir prestar í húsinu, tveir starfandi og tveir heimilismenn. Þótti því tilvalið að slá upp prestakaffi þar sem slegið var á létta strengi. Prestarnir báru saman bækur sínar og ræddu meðal annars þau atvik þar sem þeim hafði orðið á í messunni. Þetta var hin besta stund og spurning hvort leikurinn verði ekki endurtekinn áður en langt um liður.
Prestarnir Pétur Þorsteinsson, Árni Sigurðsson, Auður Inga Einarsdóttir og Bjarni Th. Rögnvaldsson.
20
Heimilispósturinn
Danskur kór í Ási
D
Heimilisfólkið rifjaði upp dönskuna
anski kórinn Chilli Chicks kom í heimsókn í Ás nýlega. Kórinn söng fjörug og skemmtileg lög fyrir fullum sal. Að loknum tónleikum var kórfélögum boðið upp á kaffi með heimilisfólki sem notaði tækifærið og rifjaði upp dönskukunnáttuna. Virkilega skemmtilegur dagur í Ási.
Danski kórinn Chilli Chicks kom og skemmti heimilisfólki.
Þorsteinn, Jón, Guðmunda og Pálína mættu á tónleikana.
Heimilispósturinn
21
Pítsubakstur í Ási
V
Næst ætlum við að búa til beikonsultu
ið Sjöfn Gunnarsdóttir heimiliskona hér í Ási erum miklar vinkonur og höfum nokkrum sinnum rætt saman um hvað það væri gaman að baka pítsu. Það eru hæg heimatökin því Sjöfn rak veitingaþjónustu og vann við matargerð árum saman“, segir Gunnhildur Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur þegar hún er spurð út í nýlegan pítsubakstur í Ási. „Eitt kvöldið ákváðum við að láta verða af því. Ég fór og keypti í matinn og svo slógum við til. Að lokum bauð Sjöfn starfsfólkinu að setjast og borða með okkur. Pítsurnar voru algert lostæti og ekkert vafðist fyrir Sjöfn varðandi baksturinn. Nú söfnum við í uppskriftabanka og ætlum að prófa beikonsultu næst. “
Sjöfn, Margrét og Brynja ánægðar með afraksturinn.
22
Heimilispósturinn
Sólskinshópurinn á Grund
Góða veðrið nýtt fyrir hópastarf
Þ
egar veðrið var sem best síðsumars ákváðu stöllurnar Katla og Sigurlaug að bjóða upp á starf Sólskinshópsins, á Grund, undir berum himni. Mikið var það vel til fundið. Hópastarfið er byggt á hugmyndafræði Lífsneistans sem Jane Verity, danskur iðjuþjálfi þróaði fyrir fólk með heilabilun. Móðir hennar var með heilabilun svo hún þekkir vel til. Leiðbeinendur verða að búa yfir þolinmæði, leikgleði og finna til samkenndar og þurfa að beita ímyndunarafli til að ná sem bestum árangri.
Hópurinn saman í garði Grundar.
Heimilispósturinn
23
Réttardagur í Mörk
Þ
Smalinn mætti á fjórhjólinu
að hefur skapast sá siður að halda réttardag Markar, fagna haustinu. Gísli Páll Pálsson forstjóri í Mörk og smali var nýkominn af fjöllum þegar réttardagurinn var haldinn en hann hefur undanfarin tíu ár smalað á Skaftártunguafrétti. Hann mætti á fjórhjólinu og sagði frá ferðalögum smalans á fjöllum. Boðið var upp á sveitaslátur og sumir skoluðu herlegheitunum niður með brennivínsstaupi og pilsner. Gísli Páll sýndi svo stuttmyndina Réttir eftir Mattia Reiniger og Tom Bolwell en þar er Gísli Páll í aðalhlutverki. Búið var að skreyta fyrstu hæðina í Mörk, börnin frá Steinahlið komu í heimsókn og Markarbandið kom eftir hádegi og lék fyrir dansi.
Forstjórinn og smalinn sýnir börnunum fjórhjólið.
24
Heimilispósturinn
Réttardagur í Mörk
Hjónin Dísa og Hafsteinn mættu í lopapeysunum,
Börnin frá Steinahlíð mættu í grjónagraut og spjölluðu við heimilisfólk
Heimilispósturinn
25
Sláturgerð í Ási
Í
Slátrið dugar í tíu máltíðir
Ási var mikið um að vera fyrstu dagana í október en þá var verið að taka slátur sem er árleg hefð þar á bæ. Í ár voru tekin hundrað slátur að sögn Eyjólfs Kristins Kolbeinssonar matreiðslusnillings. Hundrað slátur passa í tíu máltíðir í Ási og hver máltíð kostar þriðjung af því sem hún vanalega kostar þegar slátrið er heimagert. Auk starfsfólks aðstoðuðu á annan tug heimilismanna við sláturgerðina. Að launum fékk heimilisfólkið tvö gjafabréf, annað í fótsnyrtingu og hitt í hársnyrtingu. Mikil stemmning er í sláturgerðinni, hlátrasköllin heyrast langar leiðir og að sögn Eyjólfs er þessi siður ómissandi á haustin.
Eyjólfur K. Kolbeinsson með starfsfólkinu að vinna í sláturgerðinni.
26
Heimilispósturinn
Sláturgerð í Ási
Jakob, Ólína, Þóra, Sísí, Rúna, Signý og Pallý í sláturgerð.
Ásgerður að sauma vambir.
Heimilispósturinn
Una við saumaskap.
27
Heimilismaður bauð á tónleika
Þ
Fullur salur hlýddi á Diddú og Gissur Pál
að var margmenni í hátíðasal Grundar þegar heimilismaðurinn Kristján A. S. Jónsson bauð heimilisfólki, starfsfólki og aðstandendum þangað á tónleika nú í október. Það voru Sigrún Hjálmtýsdóttir eða Diddú og Gissur Páll Gissurarson sem sungu og spjölluðu milli laga. Virkilega notaleg stund sem Kristján bauð upp á.
Guðrún B. Gísladóttir og Kristján A. S. Jónsson buðu gesti velkomna.
28
Heimilispósturinn
Hittust síðast í Mörk
Þ
Saumaklúbbssystur í 65 ár
að eru 65 ár síðan þessar konur kynntust í Húsmæðraskólanum við Sólvallagötu, veturinn 19521953. María Eggertsdóttir, heimiliskona í Mörk, er í þessum skemmtilega saumaklúbbi og hélt boð fyrir vinkonurnar um daginn á fyrstu hæðinni í Mörk. Dóttir Maríu, Halldóra Ingólfsdóttir, sá um veitingarnar að þessu sinni.
María ásamt saumaklúbbssystrum sínum.
Heimilispósturinn
29
Litli fiskidagurinn í Mörk
F
Fiskborgarar og „filsur“
iskidagurinn litli var haldinn í Mörk í blíðviðri og að venju með aðstoð frá aðstandendum Fiskidagsins mikla á Dalvík sem sendu efni í fiskisúpu og borgara ásamt blöðrum og fánum til að halda partí,“ segir Gísli Páll Pálsson, forstjóri Markar um þennaan stórskemmtilega viðburð sem er orðinn einn af föstu liðunum í Mörk í ágúst. Heimilismenn, starfsfólk og íbúar í þjónustuíbúðum Grundar Markarinnar sem og vinir og ættingjar mættu á Fiskidaginn litla, sem var núna haldinn í þriðja sinn í Mörk þann 17. ágúst síðastliðinn. KK og Friðrik V Um veisluna sáu Thelma Hafþórsdóttir Byrd iðjuþjálfi, Þorvaldur S. Þorvaldsson og Hans G. Häsler, veitingamenn á Hjúkrunarheimilinu Mörk, en þeim innan handar var líka Friðrik Valur Karlsson, kallaður Friðrik V. sem áður rak veitingastaðinn Friðrik V. ásamt eiginkonu sinni. Friðrik er yfirkokkur á Fiskideginum mikla á Dalvík og sagði frá deginum fyrir norðan. Hann upplýsti að fiskborgararnir og „filsurnar“, sem eru pylsur úr fiski, séu eftir hans uppskrift og eingöngu framleidd fyrir þessa viðburði, enda verði hráefnið að vera splunkunýtt og ferskt. KK kom svo í heimsókn, með sína notalegu nærveru, sagði sögur og tók lagið. Punkturinn yfir i-ið var síðan blessuð sólin sem skein inn um gluggana og toppaði þennan frábæra dag.
30
Heimilispósturinn
Litli fiskidagurinn í Mörk
Það var vel mætt á Litla fiskidaginn, enda veitingarnar ekki af verri endanum
KK tók lagið og sagði notalegar sögur milli laga.
Heimilispósturinn
31
Býr í Bæjarási
Handmálaðir álfar og útsaumur
Þ
að eru handmálaðir garðálfar sem taka kumpánlega á móti gestum sem koma í Bæjarás í Ási. Sá sem hefur málað þá er heimilismaðurinn Karl Stefánsson. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir heimsótti listamanninn. Herbergið hans Karls er þakið verkum eftir hann, útsaumsmyndir prýða veggi, handsaumaður dúkur á borði, álfar á gólfi og á borðinu hans er verk sem hann er að skrapa þessa dagana. Það er auðséð að Karl er handlaginn maður Útsaumsmynd í 37 grátóna litum „Ég hef alltaf verið að bjástra við eitthvað í höndum. Ég var innan við fermingu þegar ég lenti á Landakoti með blæðandi magasár. Mamma mín, Lára Steinsdóttir, átti vinkonu sem var að sauma út Hjarðsveininn eftir Bertel Thorvaldsen og þá í 37 mismunandi grátóna litum. Vinkonan gafst upp á saumaskapnum en bað mömmu um að senda mér myndina. Ég kláraði hana og hafði aldrei áður komið nálægt útsaumi. Þetta lá bara einhvern veginn fyrir mér.“ Karl hefur síðan verið að sauma mála eða prjóna þegar stund hefur gefist, eins og hann sjálfur segir: „Mér líður best ef ég er að gera eitthvað.“ Fékk forsetaleyfi til að giftast Unni Karl hefur starfað við ýmislegt um dagana, hann er frá Akureyri en fór eftir fermingu suður til að vinna í sveit hjá
32
Heimilispósturinn
Býr í Bæjarási fólkinu í Langholtsparti í Hraungerðishreppi. Síðan lá leiðin í höfuðstaðinn þar sem hann vann hjá Pétri Péturssyni heildsala og í Framsóknarhúsinu, síðar Glaumbæ. Fyrir tilviljun kynntist hann Ásbirni Sigurjónssyni hjá Álafossi og þar vann hann síðar í nokkur afdrifarík ár því þar kynntist hann eiginkonu sinni Unni Einarsdóttur sem hann hefur verið með allar götur síðan, í yfir sextíu ár. „Hún náði eiginlega í mig“, segir hann kíminn þegar ég spyr hann um ástina í lífi hans. „Hún er frá Vatnsholti í Villingaholtshreppi sem nú heitir Flói og við fengum forsetaleyfi til að ég fengi að giftast henni. Hún er fædd fyrr á árinu svo hún þurfti ekkert leyfi.“ Ungu hjónin leigðu fyrst í bænum og unnu þar en ákváðu síðar að fara norður og prófa að búa saman á Akureyri. Þar urðu árin fimmtiu. „Unnur varð eiginlega meiri Akureyringur en ég, eignaðist fljótt góða vini og fann sig þar.” Dansaði við dúkku Aðallega vann Karl við sjómennsku en hann reyndi líka fyrir sér í skemmtibransanum. Gefum honum orðið: „Ég lærði á sínum tíma hjá Eddu Scheving og Jóni Valgeiri í Reykjavík og byrjaði svo að sýna gríndansa, fyrst bara einn en síðan með dúkku sem var áföst við skóna mína. Það var mjög gaman að vera með dúkkuna því hún var til dæmis mjög klúr en ekki ég sko“, segir hann og brosir breitt við tilhugsunina. Hann sýndi aðallega fyrir norðan á ýmsum stöðum, m.a. í Alþýðuhúsinu, Sjallanum og á KEA. Einu sinni sýndi hann líka fyrir sunnan í Þrastarskógi og þá á útipalli og einu sinni á Hótel Hveragerði. Um skeið starfaði Karl hjá raftækjaverslunni Elektro og þá var hann með horn í búðinni, handavinnuhorn. „Ég las viðtal við Þórunni Franz sem seldi hannyrðavörur og var með námskeið Heimilispósturinn
33
Býr í Bæjarási í flosi og útsaumi. Ég hafði samband við hana og spurði hvort ég mætti fá sýnishorn í búðina fyrir norðan og þannig hófst samstarf okkar og vinátta til fjölda ára. Ég var um tíma að aðstoða hana við námskeiðshald þar sem við kenndum flos og útsaum.“ Kisa kemur stundum og kúrir hjá mér Mamma mín var mikil handavinnukona og Unnur , konan mín, prjónar mjög mikið. Systir mín, Alda Berg, sem býr í Hveragerði er annáluð handverkskona og dæturnar báðar hafa þetta í sér. Þetta er því í fjölskyldunni, að hafa gaman af handavinnu.“ Karl og Unnur bjuggu í hálfa öld á Akureyri en dætur þeirra Inga og Helga búa báðar fyrir sunnan svo þau ákváðu að flytja suður til að vera nær þeim og fjölskyldum þeirra. Í Hveragerði hafa þau síðan búið undanfarin ár og Karl býr nú í Bæjarási því fyrir nokkrum árum lamaðist hann öðru megin og þarf því nokkra aðstoð. Honum líkar vel í Bæjarási. „Það er gott að búa hér, heimilislegt og notalegt og Unnur kemur til Karl málar garðálfa í ýmsum mín daglega. Systir mín, kemur stærðum. líka og svo koma dæturnar og þeirra fjölskyldur í heimsókn. Heimiliskötturinn Hnoðri er tíður gestur inni hjá mér og hann veit að það er ekkert bannað að kúra hjá mér uppi í rúmi.“ 34
Heimilispósturinn
Jafnvægisæfingar í Mörkinni
Tengigangurinn notaður í ýmislegt
Þ
að er óhætt að segja að tengigangurinn milli Markar hjúkrunarheimilis og íbúðabygginganna við Suðurlandsbraut sé nýttur í ýmislegt. Fyrir það fyrsta skýlir hann íbúum sem koma í mat, fólk æfir sig þar að ganga þegar veðrið er vont, þar eru haldnar málverkasýningar, fólk situr með ættingjum í enda gangsins og hefur það huggulegt og svo er hann stundum nýttur fyrir leikfimitíma. Hér eru íbúar við Suðurlandsbraut 58 – 62 að gera jafnvægisæfingar.
Heimilispósturinn
35
Herrakaffi á Grund
Ljóðabálkurinn vakti undrun og mikil gleði
H
errarnir á Litlu-og Minni Grund hittast reglulega í herrakaffi og fyrir skömmu var fyrsta herrakaffi haldið eftir sumarhlé. Var þetta einstaklega ánægjuleg stund þar sem mikið var skrafað og hlegið. Ýmislegt bar á góma og meðal annars fór Helgi Valmundsson með ljóðabálk eftir Hannes Hafstein sem vakti mikla undrun og gleði í hópnum. Helgi er hafsjór af fróðleik þegar kemur að ljóðum og vísum.
Talið frá vinstri: Helgi, Sigmundur, Ólafur, Baldvin og Bjarni.
36
Heimilispósturinn
Herrakaffi á Grund
Þorbjörn, Helgi og Sigmundur ræða lífsins gang og nauðsynjar.
Baldvin, Bjarni, Friðrik og Kristján fengu sér sérrístaup.
Heimilispósturinn
37
Blómstrandi dagar í Hveragerði
Ekki amalegt að koma í hvíld í Ás
F
ólkið í Ási er með góðan húmor, svo mikið er víst eins og sjá má á myndinni sem hér fylgir. Það var blíðviðri á bæjarhátíðinni Blómstrandi dögum sem haldin var í Hveragerði í lok ágúst og auðvitað var skreytt í Ási eins og hjá öðrum bæjarbúum.
38
Heimilispósturinn
Mýrin á sumrin
Á
Smökkun á berjadrykkjum
sumrin er dagskráin í Mýrinni frjálsleg og fólk bara kemur þar við ef það hefur tíma. Oft koma þó margir á miðvikudögum því þá er iðulega eitthvað gott með kaffinu. Það er alltaf eitthvað að spjalla um, sumir sýsla við föndur, prjónaskap, eða púsl og íbúar segja að það sem er skemmtilegast við selskapinn í Mýrinni, er að aldrei hafa orðið nein leiðindi í hópnum. Ýmsar óvæntar uppákomur eru líka og einn daginn þegar fór að hausta kom Sigurður St. Helgason með afrakstur sumarsins af berjum úr garðinum og hófust miklar tilraunir með að gera drykki úr þeim. Það var alveg greinilegt að smekkur manna er misjafn þegar kemur að drykkjum.
Heimilispósturinn
39
Baby Jane í Langholti í Mörk
E
Vinsæl bombuterta
inn vætusaman haustdag stóð Guðrún Hreinsdóttir heimilisstýra í Langholti við eldhúseyjuna og hrærði kókosdeig. Hún sagði Guðbjörgu R. Guðmundsdóttur að hún væri að baka „Baby Jane“ köku og auðvitað urðum við að falast eftir uppskriftinni. „Ég er að baka fyrir erfidrykkjuna hjá Jóni Lárusi heimilismanni sem lést nýverið“, sagði Guðrún Hreinsdóttir heimilisstýra þegar hún er spurð um kökubaksturinn þennan mánudagsmorgun þegar ég kem í heimsókn. „Reyndar ætlum við að baka kleinur líka því þær voru í miklu uppáhaldi hjá Jóni.“ Hvernig er það. Væri mögulegt að fá uppskriftina? Jú það hélt hún nú en sagði að Baby Jane væri blanda af tveimur hefðbundnum kökuuppskriftum, Bounty Köku og Baby Ruth. Svo hér kemur uppskriftin. Neðri botn: Bounty botn 4 eggjahvítur stífþeyttar 200 g sykur 200 g kókosmjöl Sykri og kókosmjöli blandað varlega saman við stífþeyttar eggjahvíturnar. Bakað í ofni við 180 gráður í um 20 mínútur. Krem 4 eggjarauður 60 g flórsykur 50 g bráðið smjörlíki (eða smjör) 100 g suðusúkkulaði Þeytið saman eggjarauður og smjörlíki eða smjör og bætið síðan við bráðnu súkkulaðinu og flórsykrinum. Smyrjið Bounty botninn með kreminu og geymið afganginn Þeytið 1-2 pela af rjóma og setjið næst ofan á kremið
40
Heimilispósturinn
Baby Jane í Langholti í Mörk Efst kemur svo Baby Ruth botn og svo afgangur af súkkulaðikreminu. Baby Ruth botn 3 eggjahvítur 20 saltkexkökur t.d. Ritz 2 ½ dl sykur 2 ½ dl salthnetur 1 tsk. lyftiduft 1 tsk. vanilludropar Þeytið eggjahvítur og bætið síðan restinni saman við hvíturnar. Bakið við 180 - 200°c í 20 mín. í miðjum ofni.
Það slær enginn henni Guðrúnu Hreinsdóttur við þegar kemur að bakstri.
Heimilispósturinn
41
Lífið í Ási
F
Kennarar á spjalli
yrir skömmu náðist þessi skemmtilega mynd af Dagbjörtu og Pálínu í Ási þar sem þær voru í hróka samræðum en þær eru báðar kennarar og hafa eflaust haft ýmislegt fróðlegt að spjalla um.
42
Heimilispósturinn
Lítil saga
K
Það sem máli skiptir
ennari í lífsleikni stóð fyrir framan bekkinn og án þess að mæla orð hóf hann kennsluna á því að taka stóra krukku og fylla hana af grjóti, sneri sér síðan að nemendum sínum og spurði hvort krukkan væri ekki örugglega full. Þau svöruðu játandi. Þá tók hann kassa af litlum steinum og hellti ofan í krukkuna. Hann hristi krukkuna og eðlilega smugu litlu steinarnir inn á milli þeirra stóru. Hann spurði nemendur sína, hvort krukkan væri ennþá full. Aftur svöruðu þau öll játandi. Kennarinn tók þá upp kassa af sandi og hellti ofan í krukkuna. Auðvitað fyllti sandurinn upp í allt. Hann spurði þá nemendur sína, hvort krukkan væri ekki örugglega full. Og nemendur voru allir sammála. Núna langar mig að biðja ykkur um að ímynda ykkur að í þessari krukku sé allt líf ykkar, hélt kennarinn áfram Stóra grjótið eru allir mikilvægu hlutirnir –börnin, makinn, heilsan, foreldrarnir… Hlutir sem standa eftir, þó annað hverfi. Smásteinarnir eru hinu hlutirnir sem skipta máli, en minna máli, eins og vinna, húsið og bíllinn. Sandurinn er svo allt hitt, „litlu hlutirnir“ sem dags daglega eru í lífi okkar. Ef þú setur fyrst sand í krukkuna, þá er ekkert pláss eftir fyrir smásteina og grjót. Sama á við um líf þitt. Ef þú eyðir of miklum tíma og orku í alla þessu „litlu hluti“, þá mun aldrei skapast rými fyrir alla þá hluti sem skipta mestu máli. Heimilispósturinn
43
Októberhátíð í Mörk
Þ
Pylsur, bjórfræðsla og bíó
að var mikið um að vera á Október hátíðinni í Mörk sem haldin var nýverið. Boðið var upp á sýningu á Djöflaeyjunni, Stefán Pálsson var með fræðslu um bjór og auðvitað var boðið upp á pylsur að hætti Þjóðverja. Svei mér þá ef einhverjir voru ekki að jóðla líka. Alltaf eitthvað skemmtilegt um að vera í Mörk
Hafliði Hjartarson er alveg með það á hreinu hvernig maður mætir á hátíðarhöld sem þessi.
44
Heimilispósturinn
Októberhátíð í Mörk
Astrid, Thelma og Heiða voru mjög ánægðar með daginn.
Skálað í pilsner með pylsunum.
Heimilispósturinn
45
Heilsudagar Grundar
Aukin orka og vellíðan markmiðið
U
ndanfarin ár hefur að hausti til verið blásið til heilsudaga á Grund. Jóhann Sveinsson matreiðslumeistari töfraði fram bragðgóða orkudrykki á morgnana sem heimilismenn og starfsfólk kunnu vel að meta. Eldhúsið passaði upp á að úrval af grænmeti og ávöxtum væri aukið og síðan var skipulögð sameiginleg gönguferð. Sjúkraþjálfun bauð æfingaplan fyrir þá sem vildu og vilja komast í form og iðjuþjálfunin bauð í dekurstund. Starfsmannafélagið bauð í ár upp á dansfitness í hátíðasalnum og síðan var hægt að fara í heilsufarsmælingar, fá mældan blóðsykur og blóðþrýsting svo dæmi séu tekin.
Jóhann með einn af heilsudrykkjunum.
Heitt vax á hendur og grjónapúði á axlir.
46
Heimilispósturinn
Heilsudagar Grundar
Mússa og Kiddi voru alveg með þetta í Dansfitness.
Það var tjúttað af innlifun í hátíðasalnum.
Heimilispósturinn
47
Sjúkraþjálfun í Mörk
S
Má bjóða þér upp í dans?
tarfsfólk á öllum heimilunum þremur fer oft óhefðbundnar leiðir í vinnu sinni og sjúkraþjálfun getur til dæmis verið með ýmsu móti. Stundum þegar boðið er upp á dansleiki í Mörk tekur starfsfólk sjúkraþjálfunar þátt og býður upp í dans. Hér er það Hlynur sjúkraþjálfari sem ákvað að bjóða heimiliskonunni Hólmfríði upp og taka með henni nokkur spor. Það þarf vart að taka fram að það var Markarbandið okkar vinsæla sem lék undir dansi á þessum dansleik sem og öðrum sem haldnir eru á heimilinu.
48
Heimilispósturinn