Skip to main content

Heimilispósturinn - október 2016

Page 1

HEIMILISPÓSTURINN Heimilisblað Grundar, Áss og Markar 52. árgangur

október 2016

3. tölublað


Efnisyfirlit Heimilismönnum boðið í tívolí.................................................................. 3 Skoðuðu þorp í Hollandi fyrir fólk með minnissjúkdóma.................. 4 Grasagarðurinn varð fyrir valinu........................................................ 8 Skelltu sér á tónleika............................................................................. 9 Snæfellsnesið heimsótt........................................................................ 10 Gróðursetning og lestur..................................................................... 12 Fór í fótspor langafa síns.................................................................... 15 Heimilismenn boðnir í kaffi í Ás............................................................. 18 Gaman að halda í hefðirnar.................................................................. 20 Vorum með þeim fyrstu sem fengu sjónvarp..................................... 22 Forsetaheimsókn.................................................................................... 27 Söng fyrir ömmu.................................................................................... 28 Þarf ekki að fara langt til að fá tilbreytingu.................................... 29 Skiptir máli að rífast ekki of mikið....................................................... 30 Kartöflur og haustlaukar................................................................... 34 Pylsur, dans og tjútt............................................................................ 36 Bleiki dagurinn tekinn með trompi....................................................... 38 Þetta verður árlegur viðburður......................................................... 40 Ný hverfi og kaffiveitingar.................................................................. 42 Söngurinn gerir kraftaverk................................................................ 44 Stolt móðir sem hlýddi á soninn........................................................... 48

Forsíðumyndin var tekin af Árna Sigurðssyni í Bæjarási í Ási. Ritstjóri: Guðbjörg R. Guðmundsdóttir Hönnun og uppsetning: Kjartan Örn Júlíusson Prentun: GuðjónÓ Upplag: 1500 2 Heimilispósturinn


Molar úr fortíðinni

Heimilismönnum boðið í tívolí

H

inn 4. september 1948 fóru um áttatíu vistmenn í tívolí í boði Árna Hoff Möller framkvæmdastjóra skemmtigarðsins. Var öllum þátttakendum boðið upp á kaffi þar sem hljómsveit skemmti, auk þess sem öll skemmtitæki garðsins voru vistmönnum til boða. Skemmtu vistmenn sér hið besta og eiga forráðamenn garðsins miklar þakkir skilið fyrir þetta rausnarlega og skemmtilega boð. (Úr fundargerðarbók heimilisins)

Heimilispósturinn

3


Starfsfólk Áss, Grundar og Markar

Skoðuðu þorp í Hollandi fyrir fólk með minnissjúkdóma

Á

annan tug starfsmanna heimilanna þriggja Áss, Grundar og Markar hélt til Hollands í september til að skoða all sérstakt heimili sem er sérhannað fyrir fólk með minnissjúkdóma. Þetta er heimilið Hogewyk en þar búa rúmlega 150 heimilismenn sem allir eru með langt gengna heilabilun eða alzheimer. Hogewyk heimilið er hverfi og um það geta heimilismenn gengið eins og þá lystir. Þeir fara út og inn, skreppa á kaffihúsið, taka þátt i klúbbastarfi og fara í matvörubúðina. Aldrei hefur fólkið það á tilfinningunni að það sé lokað inni, hönnun hverfisins er þannig.

Hópurinn frá heimilum Grundar.

4

Heimilispósturinn


Starfsfólk Áss, Grundar og Markar

Hvert heimili er með sínum brag.

Það er langur biðlisti alveg frá því heimilið opnaði árið 2009. Þorpið var að mestu leyti reist fyrir fjármuni frá hollenska ríkinu og kostnaður á hvern heimilismann nemur um það bil milljón á mánuði. Heimilismenn borga sjálfir hluta af því verði en þó aldrei meira en sem nemur 400.000 krónum á mánuði. Það eru engir langir gangar, engar vaktir sjáanlegar eða sérstakir staðir fyrir starfsfólk til að vera á. Heimilisfólk býr í litlum húsum og þá sex til sjö saman. Í allt eru húsin á þriðja tug. Herbergin eru 15-20 fermetrar að stærð og 2 baðherbergi í hverju húsi. Örfá tvíbýli. Fólk sérvalið í húsin Hvert hús hefur sitt sérkenni og fólk er valið af biðlista inn í húsin. Eitt húsið er til dæmis með indónesískum brag því þar búa einvörðungu heimilismenn sem eiga rætur að rekja til Indónesíu. Það er hægt að búa í húsi listamanns en þar býr handlagið fólk eða listamenn. Svo eru þarna hús Heimilispósturinn

5


Starfsfólk Áss, Grundar og Markar

Veitingahús er í hverfinu.

t.d. sjötta áratugarins eða níunda áratugarins og svo framvegis. Þá er hugmyndin að húsið beri keim af því þegar minnið fór að svíkja viðkomandi og hann geti fundið sig heima. Aðstandendur útbúa myndabók og upplýsingar um íbúann fyrir komuna. Fólk borgar sjálft fyrir allt aukalega eins og t.d. að kaupa sér sætindi í búðinni á staðnum. Í hverfinu eru starfræktir 35 mismunandi klúbbar. 6

Úr versluninni.

Heimilispósturinn


Starfsfólk Áss, Grundar og Markar Aðild að einum klúbbi er frí fyrir heimilismann (45 mínútur) en flestir eða 75% eru í 3-4 klúbbum og greiða þá aukalega fyrir það. Um það bil 160 sjálfboðaliðar eru starfandi í hverfinu. Klúbbastarfið fylgir föstum reglum, sami klúbburinn alltaf á sömu dögum og sama tíma. Sjúkraþjálfari er starfandi við heimilið en hann sinnir starfsfólkinu meira heldur en íbúunum. Einungis 5 íbúar voru að fá sjúkraþjálfun. Vegna skipulags hverfisins hreyfa íbúarnir sig mikið enda algerlega frjálsir ferða sinna innan hverfisins. Skoðunarferðir eins og þessar eru afar uppbyggjandi fyrir starfsfólk sem kemur heim með nýjar hugmyndir, víðsýnna en ella og hefur líka náð að slaka aðeins á í öðru umhverfi og hlaða batteríin.

Allt er snyrtilegt og hlýlegt.

Heimilispósturinn

7


Hjólað í Mörk

Grasagarðurinn varð fyrir valinu

H

elga sjúkraþjálfari í Mörk býður stundum heimilisfólki í hjólatúr. Í byrjun hausts bauð hún heimiliskonunum Ragnheiði og Tótu í Grasagarðinn. Veðrið var gott og þeim þótti ferðin alveg yndisleg.

8

Heimilispósturinn


Heimilismenn Grundar brugðu sér af bæ

F

Skelltu sér á tónleika

yrir skömmu voru Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson með tónleika á Kjarvalsstöðum. Sigurlaug Bragadóttir, sem starfar m.a. hjá iðjuþjálfun Grundar, ákvað að bjóða nokkrum heimilismönnum með sér á tónleikana. Hún segir að tónleikarnir hafi verið frábærir enda ekki við öðru að búast og heimilismenn sem geta, heilsu sinnar vegna, farið út í bæ njóti þess virkilega. Tilbreyting gerir öllum gott.

Þórunn Elísabet Ingólfsdóttir, Víglundur Sigurjónsson og eiginkona hans Ragnheiður Hannesdóttir.

Heimilispósturinn

9


Íbúar þjónustuíbúða Grundar-Markarinnar

Í

Snæfellsnesið heimsótt

búar þjónustuíbúða Grundar-Markarinnar fóru í árlega sumarferð í byrjun ágúst og var ferðinni heitið á Snæfellsnesið. Eftir stuttan stans í Borgarnesi var haldið vestur Mýrar um Heydal og Skógarströnd og í Bjarnarhöfn. Í Grundarfirði beið hádegisverður og í Landnámssetrinu í Borgarnesi var farið í kaffi. Frábær ferð og þeim Ólafi Pálmasyni, Atla Björnssyni og Hafliða Hjartarsyni þakkað fyrir skipulagningu og Ólafi sérstaklega þakkað fyrir einstaka leiðsögn.

Íbúar þjónustuíbúðanna voru ánægðir með ferðina á Snæfellsnes.

10

Heimilispósturinn


Íbúar þjónustuíbúða Grundar-Markarinnar

Alltaf gott að setjast niður og fræðast aðeins.

Staldrað var við í Landnámssetrinu í bakaleiðinni og þar var drukkið kaffi.

Heimilispósturinn

11


Bæjarás í samstarf við Grunnskólann

B

Gróðursetning og lestur æjarás í Ási og Grunnskólinn í Hveragerði eru í skemmtilegu samstarfsverkefni. Hulda Gísladóttir forvitnaðist nánar um það.

„Það má segja að það sé komin hefð fyrir þessu verkefni. Skólabörn í 7. bekk koma reglulega í heimsókn til okkar“ segir Steinunn Gísladóttir bússtýra í Bæjarási. „Fyrsta heimsóknin þeirra er um haustið og þá í kringum dag íslenskrar tungu. Börnin lesa fyrir heimilisfólkið og æfa sig í leiðinni fyrir stóru upplestrarkeppnina. Um vorið koma börnin aftur í heimsókn. Þá taka þau til hendinni ásamt heimilisfólki og starfsfólki í Bæjarási, taka til í og hreinsa blómabeðin og grænmetisbeðin. Að því loknu eru sumarblóm gróðursett og kartöfluútsæði sett niður og að lokum er öllum boðið í grill.“

Sigrún Helga Ólafsdóttir skolar af uppskerunni.

12

Heimilispósturinn


Bæjarás í samstarf við Grunnskólann

Árni Sigurðsson og nýja ræktunaraðstaðan hjá Bæjarási.

Smælkið bragðgott Í vor voru gerðar breytingar á grænmetisbeðunum. Pétur Reynisson smíðaði vinnugrindur í mittishæð til að auðvelda heimilisfólkinu störfin. Á grindurnar voru settir plastbalar, í þá sett mold og síðan gróðursett í þá, meðal annars kartöflur. Þegar að kartöfluuppskerunni kom, kom í ljós að þær sem voru teknar upp voru frekar litlar. Miklar vangaveltur voru um ástæðuna fyrir þessu og voru skýringarnar á ýmsa vegu. Ein var til dæmis sú að of mikil mold hafi verið í bölunum og of lítið af sandi. Önnur var að útsæðið hafi verið sett of djúpt niður og sú þriðja að ekki hafi verið vökvað nóg. Að sögn Árna Sigurðssonar heimilismanns í Ási er erfitt að finna eina ástæðu fyrir þessu, en þessar ástæður eru að hans mati líklegastar. Árni er vanur kartöflurækt. Hann er ættaður frá Skammadal í Mýrdal og fjölskyldan var alltaf með kartöflurækt. „Uppskeran dugði Heimilispósturinn

13


Bæjarás í samstarf við Grunnskólann

Þau Súsanna Vilhjálmsdóttir og Teitur Guðmundsson flokka

okkur fram á vor. Þriðja hvert ár urðum við að búa til ný beð því kartöflurnar urðu lélegri með hverju árinu. Fyrstu tvö árin voru í lagi, en eftir þriðja árið stungum við upp ný beð. Kartöflurnar voru síðan geymdar í kulda og myrkri til að þær héldust góðar fram á vor“ sagði Árni. Þrátt fyrir að kartöflurnar væru óttalegt smælki nú í ár hér í Bæjarási þá voru þær gómsætar og fínar. Þær voru hreinsaðar og stærðarflokkaðar og verða síðan nýttar við matseldina hjá heimilinu.

14

Heimilispósturinn


Ljósmyndasýning í tengigangi Markar

É

Fór í fótspor langafa síns

g hef verið að dunda mér í nokkur ár við að mynda á stöðum sem langafi fór á og það var misjafnlega erfitt að komast að þeim til að mynda svo ég næði sama sjónarhorni og hann,“ segir Kjartan Örn Júlíusson tölvunarfræðingur á Grundarheimilunum en hann er um þessar mundir með sýningu í tengigangi þjónustuíbúða Grundar Markarinnar. Á sýningunni eru tuttugu og eitt par af ljósmyndum. Í hverju pari eru myndirnar teknar með áttatíu ára millibili af sama staðnum. Eldri myndirnar tók langafi hans, Björn M. Arnórsson, á árunum 1930 og 1940, en nýju myndirnar tók Kjartan á árunum 2012 til 2015. „Ég reyndi að fara í fótspor langafa og standa á sama stað og hann þegar ég smellti af. En hann þurfti oft að leggja meira

Heimilispósturinn

15


Ljósmyndasýning í tengigangi Markar á sig en ég til að komast á tökustaði, því það var ekki búið að leggja vegi að stöðunum þegar hann var þar á ferð. Hann fór á hestum yfir ófærur þar sem ég gat ekið á bíl, til dæmis til að komast að Slæðufossi, sem er á hálendinu ekki langt frá Kárahnjúkum. Hann hefur líka haft þó nokkuð fyrir því að komast að Svartafossi í Skaftafelli, því þá var Skeiðará óbrúuð.“

Sýningin er í tengigangi Grundar - Markarinnar að Suðurlandsbraut 66. Hún stendur til 7. nóvember og er opin alla daga kl. 08– 20.

Stökk yfir læki Mesta vesenið var að taka mynd af Þrífyssu á Snæfellsnesi, þá þurfti ég líka að ganga góðan spöl og stökkva yfir læki. Kjartan segir að í eitt sinnið þegar hann var að hoppa yfir læki

16

Heimilispósturinn


Ljósmyndasýning í tengigangi Markar í átt að Þrífyssu hafi lækurinn verið það breiður að hann þurfti að koma myndavélatöskunni fyrst yfir og taka svo tilhlaup. „Ég hélt að ég myndi ekki ná yfir en þetta hafðist.“ Ég þurfti að hafa mest fyrir mynd sem ég tók í Bankastræti þar sem langafi myndaði loftfarið Zeppelin fljúgandi yfir. Ég pældi heilmikið í því hvaða svölum hann hefði staðið á til að taka myndina. Ég hafði samband við Icelandair og fékk upplýsingar um á hvaða tíma dags þeir yrðu á flugdeginum á Reykjavíkurflugvelli. Þetta gerði ég til að fá þotu inn á mína mynd á svipuðum stað á himninum og Zeppelin var á mynd langafa. En stundum voru þetta gæðastundir, til dæmis þegar ég fór um miðja nótt að mynda Geysi. Þá var ekki sála á ferð og stemmningin ógleymanleg.“ Kjartan segir að ljósmyndaáhuginn liggi í ættinni því auk langafa hans var Halldór, bróðir Björns, og faðir þeirra bræðra, Arnór Egilsson ljósmyndarar.

Heimilispósturinn

17


Haustlitaferð Markar

Heimilismenn boðnir í kaffi í Ás

H

eimilisfólk í Mörk fór fyrir skömmu í haustlitaferð. Keyrt var á Þingvelli og litirnir í náttúrunni einstakir. Jónína Óskarsdóttir, dóttir Hallveigar Ólafsdóttur, sem býr í Langholti í Mörk tók að sér að vera leiðsögumaður í ferðinni og fræddi um það sem fyrir augu bar. Þegar Hveragerði var í sjónmáli tók séra Pétur Þorsteinsson við að vera „rúturöflarinn" eins og hann kallar það sjálfur og sagði frá helstu kennileitum. Starfsfólkið og heimilisfólk í Ási tók vel á móti gestunum frá systurheimilinu í Mörk og boðið var upp á nýlagað kaffi og kruðerí. Birna Sif Atladóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri í Ási sagði frá helstu starfsemi heimilisins og svo greip sr. Pétur gítarinn og allir tóku lagið. Haldið var svo heim á leið undir regnbogann og auðvitað notuðu margir tækifærið og óskuðu sér.

18

Heimilispósturinn


Haustlitaferð Markar

Heimilisfólk í Mörk og aðstandendur gæddu sér á kaffi og kræsingum í Ási.

Hallveig heimiliskona ásamt dóttur sinni Jónínu Óskarsdóttur sem var fararstjóri í ferðinni.

Heimilispósturinn

19


Sláturgerð í Ási

Á

Gaman að halda í hefðirnar

rlega eru tekin hundrað slátur í Ási. Að sögn Eyjólfs Kristins Kolbeinssonar matreiðslusnillingsins í Ási væri ekki hægt að fara í sláturævintýrið án heimilisfólksins en það saumar allar vambirnar. Að þessu sinni voru um þrettán heimilismenn á fullu í saumaskap þegar flestir voru en að jafnaði um tíu. Þegar heimilisfólkið var spurt hvernig því þætti að taka þátt í sláturgerðinni voru svörin á þessa leið: Frábær félagsskapur, skemmtileg tilbreyting og gaman að halda í hefðirnar. Ein konan sagði að sér fyndist svo gefandi að fá að gera gagn. Við vonum svo sannarlega að þessi árlega sláturgerð verði órjúfanlegur hluti af lífinu í Ási.

Heimiliskonar í Ási sauma allar vambirnar.

20

Heimilispósturinn


Sláturgerð í Ási

Dugnaður, ekkert mál að taka 100 slátur!

Eyjólfur verðlaunar auðvitað harðduglegt fólk í lok sláturgerðar.

Heimilispósturinn

21


Gott að búa í Mörk

Vorum með þeim fyrstu sem fengu sjónvarp

Á

rið 1929 eignuðust hjónin Guðrún Jóhannsdóttir og Þorsteinn Benediktsson dótturina Láru. Þau bjuggu í útjaðri Akureyrar, á nokkurskonar sveitabæ, Litlagarði. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir hitti Láru sem býr nú í Mörk og er komin hátt á níræðisaldur. „Það var yndislegt að alast upp í útjaðri Akureyrar þegar ég hugsa til baka. Ég eignaðist tvær systur sem báðar eru á lífi og búa enn á Akureyri, Þóru sem kom á eftir mér og síðan Jónínu. Við ólumst eiginlega upp í sveit en þó tilheyrðum við Akureyri. Pabbi vann sem múrarameistari en mamma var heima með okkur systurnar og hugsaði um búskapinn. Við gengum í barnaskólann og gagnfræðaskólann og það var töluverður spotti fyrir okkur að ganga, við vorum hátt í klukkustund að komast í skólann. Foreldrar mínir voru með hænsni og kýr og svo var á bænum hundur. Þetta var í rauninni svona dæmigert íslenskt sveitaheimili, mamma strokkaði og bjó til smjör og skyr og það var reykt og saltað í tunnur. Allt heimagert og mamma mikil myndarkona. Bróðir hennar kom stundum og hjálpaði til við heyskapinn.“ Hitti Agnar á gömlu dönsunum Þegar Lára var orðinn unglingur fluttust foreldar hennar á Helgamagrastræti á Akureyri. Lára fór eftir skyldunámið í Húsmæðraskólann á Akureyri og þar segist hún hafa lært heilmargt. Stundum fór hún til Reykjavíkur og var í heimsókn hjá frænku sinni. Í einni af þeim heimsóknum fór hún út að dansa 22

Heimilispósturinn


Gott að búa í Mörk gömlu dansana. Þar hitti hún ungan pilt, Agnar Tryggvason. „Við dönsuðum saman þetta kvöld og það var ekki aftur snúið. Ég var nítján ára þegar frumburðurinn minn kom í heiminn Sverrir. Veistu hann er kominn á eftirlaun“, segir hún, það tístir í henni við tilhugsunina. Hún bætir við að það styttist meira að segja í að dóttir hennar Edda Helga komist á eftirlaun. Henni finnst það skrítin tilhugsun, að börnin hennar eldri séu að komast á lífeyrisaldur. Agnar og Lára giftust í Reykjavík þegar Lára var búin með námið í húsmæðraskólanum og þá var Sverrir orðinn árs gamall. Börnin urðu alls fjögur og tvö yngri börnin heita Tryggvi Þór og Lára Guðrún. Kaus að vera heimavinnandi Lára segir að það hafi aldrei verið spurning í sínum huga, hún vildi vera heima hjá börnunum sínum og bíða með að vinna úti. „Agnar vann á Dettifossi og var því mikið að heiman og mér fannst mjög gott að geta verið heima. Við bjuggum til að byrja með á Smiðjustíg og fluttum síðar á Njálsgötuna.“ Lára naut þess að vera heimavinnandi og hún var strax ánægð í Reykjavík þó henni fyndist vanta trjágróður. „Það var miklu meira um trjágróður á Akureyri og mér fannst allt svo bert í

Heimilispósturinn

23


Gott að búa í Mörk

Reykjavík. En mér leið vel hér fyrir sunnan og það var ekki síst að þakka fjölskyldunni hans Agnars sem tók mér opnum örmum. Hann átti móður sem reyndist mér einstök tengdamóðir og börnunum mínum frábær amma. Við vorum miklar vinkonur.“ Vildi hafa börnin sín heima Lára prjónaði peysur á börnin og prjónaði líka og seldi í Rammagerðina til að hafa aukapeninga eins og hún orðar það. „Ég lagði uppúr því að börnin mín gætu fengið vini sína til okkar og við vorum með þeim fyrstu sem fengu sjónvarp í hverfinu. Það þótti krökkunum spennandi og það var oft þröng á þingi heima hjá okkur. Ég bakaði þá eitthvað gott líka með kaffinu. Mér fannst betra að hafa börnin mín heima og vini þeirra líka, heldur en að vita af þeim einhvers staðar úti í bæ.“ Lára segir að þó þau hafi búið í miðbænum þá hafi hann ekki verið eins og við þekkjum hann núna og miklu öruggara fyrir börn að alast upp þar en nú. „Við vorum á Smiðjustígnum fyrst og þar var mikið autt svæði og lítið um bílaumferð. Þar sem bílastæðahúsið er 24

Heimilispósturinn


Gott að búa í Mörk núna á Hverfisgötunni var til dæmis allt autt og þar um kring. Þetta var svo enn betra fyrir krakkana þegar við fluttum í nýtt hús á Njálsgötunni því þá var stutt í Austurbæjarskólann fyrir þau.

Gott að vinna í Hans Petersen Þegar börnin voru orðin fjögur kom Agnar í land og fór að vinna hjá Áburðarverksmiðjunni og þar starfaði hann þangað til hann hætti að vinna. „Ég fór svo að vinna þegar krakkarnir voru orðnir stálpaðir. Ég byrjaði að vinna hjá sælgætisgerðinni Nóa - Síríus en ég var með sykursýki og þessar eilífu freistingar í vinnunni voru ekki góðar fyrir mig svo ég hætti þar. Albert Guðmundsson var vinur tengdaforeldra minna og hann hjálpaði mér að fá vinnu hjá Hans Petersen í Bankastrætinu og þar vann ég þangað til ég varð sjötug. Það var gott að vinna í Hans Petersen og ég kynntist fjölda fólks í gegnum vinnuna þar.“ Heimilispósturinn

25


Gott að búa í Mörk Nutum lífsins á annan hátt Þegar Agnar og Lára hættu að vinna segir hún að hafi tekið við öðruvísi tímar hjá þeim en afskaplega skemmtilegir. „Við fórum að ferðast miklu meira og nutum þess að fara til Spánar tvisvar á ári og ferðast annað líka, bæði hér innanlands og til útlanda. Við áttum skemmtilegan tíma þangað til Agnar missti heilsuna.“ Fer vel um mig Lára þurfti að bíða í töluverðan tíma á sjúkrahúsi þangað til hún komst að í Mörk. En hún kaus að bíða þar frekar en bíða á Vífilsstöðum. „Mér líður vel hér í Mörk, loksins þegar ég komst hér að. Ég flutti hingað í júní og er þegar komin á kaf í allskonar starf. Ég hef verið að búa til skartgripi í iðjuþjálfun og mála aðeins, ég sit í heimilisráði, fór í skemmtilegt ferðalag um daginn að skoða haustlitina og hef nóg fyrir stafni. Ég las alltaf mikið og prjónaði en get ekki lengur gert það. Sonur minn kom með frábært tæki til mín“, segir hún og sýnir mér netta tónhlöðu. „Í raun hlakka ég núna alltaf til þegar ég fer að sofa á kvöldin. Þá set ég á mig heyrnartólin og kveiki á tækinu. Þar eru ótal bækur, ævisögur og skáldsögur og þá hlusta ég í rólegheitum áður en ég sofna.“ Hún segist vera heppin með börnin sín sem búa öll í Reykjavík og hugsa vel um hana. Þau eru líka komin með sínar fjölskyldur og ég á orðið stóra og góða fjölskyldu. Allt gott fólk.“ Látum það verða síðustu orðin hennar Láru í þessu spjalli.

26

Heimilispósturinn


Molar úr fortíðinni

H

Forsetaheimsókn

inn 26. janúar árið 1953 kom í heimsókn forseti Íslands herra Ásgeir Ásgeirsson og frú. Ávarpaði hann vistmenn í nýja salnum með hlýjum orðum en forstjóri og formaður þökkuðu þeim hjónum fyrir komuna. Á eftir fóru forsetahjónin inn í öll vistherbergi heimilisins og heilsuðu upp á vistfólkið og drukku enn fremur kaffi með stjórninni og forstöðufólki heimilisins. (Úr fundargerðarbók heimilisins)

Heimilispósturinn

27


Sólstofan á Grund

K

Söng fyrir ömmu

ristin Guðmundsdottir, sem var nýverið í hvíldarinnlögn á Grund, fékk dásamlega heimsókn einn daginn. Það var barnabarnið hennar, Jóna G. Kolbrúnardóttir, sem kom í heimsókn, gagngert til að syngja fyrir ömmu sína. Jóna söng ýmis þekkt lög og það var margt um manninn í kaffistofunni á Litlu Grund þennan föstudag svo margir gátu notið söngsins. Jóna er í söngnámi í Vínarborg og auðséð að kært var á milli þeirra, ömmustelpunnar Jónu og Kristínar og vináttan einlæg. Takk Jóna fyrir sönginn og heimsóknina.

28

Heimilispósturinn


Út að borða í Mörk

Þarf ekki að fara langt til að fá tilbreytingu

H

eimilisfólk sem býr á heimilinu Langholti í Mörk fór nýlega saman „út að borða“. Reyndar var ekki farið út í orðsins fyllstu merkingu heldur farið niður á fyrstu hæð þar sem búið var að dekka borð fyrir heimilisfólk og starfsfólk. Mikil ánægja var með uppátækið og í kjölfarið var samið við Þorvald kokk um að framvegis kæmi öll hersingin mánaðarlega í mat á veitingahúsið til Valda. Hann tók því af ljúfmennsku enda lengi verið talsberi þess að heimilisfólk kæmi af og til niður á fyrstu hæð að borða.

Heimilisfólk í Langholti fór saman út að borða.

Heimilispósturinn

29


Hjón sem búa á Grund

Skiptir máli að rífast ekki of mikið

Á

vesturgangi Grundar búa nú hjónin Víglundur Sigurjónsson og Ragnheiður Hildigerður Hannesdóttir en bæði eru komin á tíræðisaldur. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir komst að því að þau eru búin að eiga saman á áttunda áratug og eru bara enn nokkuð sæl og glöð með hvort annað.

Víglundur og Ragnheiður eru bæði fædd og uppalin í sveit, hann fæddur á Þorláksmessu árið 1920 í Geirshlíð en ólst upp í Kirkjuskóg í Miðdölum og hún er hlaupársbarn árið 1924 fædd að Litla-Vatnshorni í Haukadal, bæði í Dalabyggð. Þau segja að það taki um það bil klukkustund að ganga á milli bæjanna. En það var ekki þar sem þau kynntust af alvöru þó þau vissu frá æsku af hvort öðru. „Við kynntumst í Reykjavík, ég var innan við tvítugt og Víglundur nokkrum árum eldri“, segir Ragnheiður. „Þá leigði Víglundur með bróður sínum á Kárastíg og ég með vinkonu minni á Laugavegi 65. Víglundur hafði með vegavinnu náð að safna sér fyrir skólavist á héraðsskólanum í Hrútafirði en var kominn í bæinn að vinna og Ragnheiður sem hafði unnið fyrir sér frá fimmtán ára aldri, var þarna að vinna við 30

Heimilispósturinn


Hjón sem búa á Grund

herrafatasaum hjá Andrési Andréssyni klæðskera. Þau rugluðu saman reitum og Trausti, eldri sonurinn fæddist svo árið 1944 þegar Ragnheiður var tvítug. Hún segir að hann sé núna kominn á eftirlaun og það er ekki laust við að henni finnist það skrítið. Á eftir Trausta kom Stefanía í heiminn og síðast kom sonurinn Ásgeir Sævar. Hátt húsnæðisverð í Reykjavík Þið hafið semsagt byrjað ykkar búskap í Reykjavík? „Já það var litla vinnu að hafa í sveitinni“, segir Víglundur „og með komu hersins streymdi fólk til Reykjavíkur í von um góða atvinnu. Það leiddi af sér að húsnæðisverð var mjög hátt í bænum og mjög erfitt að fá leiguhúsnæði. Til marks um verð þá kostaði fjögurra herbergja íbúð við Kárastíg, í timburhúsi, það sama og glænýtt steinhús í Hörðudal ásamt jörð og öllum hlunnindum.“ Þau keyptu sér íbúð með systur Víglundar Jóhönnu og hennar fjölskyldu á Kárastíg 10. Þegar systir hans og mágur fengu íbúð annars staðar nokkrum árum síðar keyptu þau þeirra hlut. Árið 1950 fluttu þau í Eskihlíð 16 og stöldruðu þar við í sex ár, þegar þau árið 1955 réðust í að byggja Hagamel 34 ásamt vinafólki sínu, Birni Bjarnasyni og fjölskyldu, Heimilispósturinn

31


Hjón sem búa á Grund

og þar áttu þau heima í um hálfa öld. Ragnheiður segir að það hafi verið frábært að búa í Vesturbænum, Melaskólinn í göngu fjarlægð fyrir börnin, Melabúðin á horninu og stutt í sund. Bjó til gúmmískó Víglundur vann í tæp fjörutíu ár hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur og drýgði tekjurnar með því að vinna sem dyravörður á Hótel Sögu. Hann segist oft hafa komið heim í hádeginu til að hvíla sig aðeins fyrir kvöldið. „ Þetta var oft vandasamt, að vera í dyravörslu. Fólk er misjafnlega á sig komið þegar það er undir áhrifum áfengis. En allt blessaðist þetta og ég var ekki einn í dyravörslunni, sem var gott. Það voru langir vinnudagar en þetta er það sem þurfti til að eiga fyrir salti í grautinn“, segir hann. Víglundur gerði fleira til að drýgja tekjurnar. Hann bjó til gúmmískó í mörg ár í kjallaranum á Hagamelnum og seldi til Hvammbergsbræðra á Laugavegi, þetta voru skór sem allir strákar sem fóru í sveit á þeim tíma muna líklega vel eftir. Ragnheiður var heima með börnin þangað til þau voru orðin stálpuð en þá fór hún að vinna við ræstingar, fyrst í Melaskólanum en síðar hjá Háskóla Íslands. Ólafur Ragnar snyrtimenni 32

„Það var gott að vinna hjá háskólanum og ég var til dæmis

Heimilispósturinn


Hjón sem búa á Grund lengi að þrífa hjá prófessorunum sem var fínt. Þetta var upp til hópa vandað fólk og gekk vel um og afar þægilegur vinnustaður. Eftirminnilegur er þó fyrrum forseti okkar, Ólafur Ragnar, hjá honum var hver hlutur á sínum stað og afskaplega vel gengið um og alltaf var hann með mynd af Guðrúnu Katrínu á skrifborðinu. Hann er sannkallað snyrtimenni.“ Þið bjugguð síðustu árin á Sléttuvegi. Hvernig er að vera komin aftur í Vesturbæinn? „Við erum að venjast því. Það er vissulega gott að vera komin í Vesturbæinn en óneitanlega eru það viðbrigði að koma úr íbúð í eitt herbergi. En starfsfólkið er yndislegt og við komin á tíræðisaldur og megum þakka fyrir að vera með heila hugsun þó líkaminn sé farinn að hrörna“ segir Ragnheiður en hún er lögblind og fer sinna ferða í hjólastól. Hægt og hljótt Nú hafið þið fetað saman lífsins veg í meira en sjötíu ár. Hver er leyndardómurinn að löngu og farsælu hjónabandi ykkar? „Ég bara veit það ekki“, segir Víglundur en Ragnheiður hugsar sig um í smá stund og segir svo: „Þetta er einmitt spurning sem ég fékk um daginn frá ungri konu sem er að vinna hér. Ég segi það sama við hana og þig: Hjón þurfa bara að passa sig á að rífast ekki of mikið. Okkar hjónaband hefur verið hægt og hljótt ef svo má segja. Fyrstu árin vorum við eins og svo margir, í fjárhagslegum barningi, en við komumst yfir það og þetta hefur gengið hjá okkur. Við höfum ekki eytt tímanum okkar í rifrildi. Ætli það sé ekki lykillinn að farsælu hjónabandi í okkar tilviki?“ Heimilispósturinn

33


Haustverkin í Mörk

U

Kartöflur og haustlaukar

ndanfarið hefur heimilisfólk verið að puða í garði Markarinnar, fyrst við að taka upp kartöflurnar sem mikil ánægja var með og síðan við að setja niður haustlauka og undirbúa veturinn í garðinum. Allir sem að komu nutu þess virkilega að komast út undir bert loft og handfjatla aðeins moldina.

Kartöflurnar voru kannski ekkert sérstaklega stórar en góðar eru þær.

34

Heimilispósturinn


Haustverkin í Mörk

Niður skulu laukarnir sem keyptir voru í Hollandi.

Heimilispósturinn

35


Októberhátíð í Mörk

Á

Pylsur, dans og tjútt

rleg októberhátíð var haldin í Mörk fyrir nokkru og fagnað með allskonar pylsutegundum og pilsner. Margir mættu uppábúnir og svo var tjúttað fram eftir degi en Markarbandið víðfræga lék auðvitað fyrir dansi. Í raun þarf engin fleiri orð hér, þessar dásamlegu myndir tala sínu máli.

Í Mörkinni er ýmislegt mallað og sumt af því matur er kallað. Og að lifa það af, sem kokkurinn gaf, En meir um það skal ekki fjallað.

En sumrinu senn fer að ljúka og saman upp kokkarnir rjúka. Með október fest, það er sumarsins rest og bjór, sem að gerir oss mjúka.

Tvær vísur af sex sem Hafliði Hjartarson íbúaráðsmaður hjá Grund - Mörkinni samdi í tilefni dagsins.

Verið velkomin á Októberhátíðina.

36

Kokkarnir Valdi og Hans og með þeim er Hafliði íbúaráðsmaður Markarinnar.

Heimilispósturinn


Októberhátíð í Mörk

Gunnur sjúkraþjálfari og Ragnhildur hjúkrunarstjóri tóku þátt af innlifun.

Fjöldi fólks mætti á hátíðahöldin og gæddi sér á allskonar pylsum.

Heimilispósturinn

37


Ás, Grund og Mörk

Bleiki dagurinn tekinn með trompi

F

östudagurinn 14. október var bleikur dagur og öll heimili Grundar tóku þátt, Ás, Grund og Mörk. Heimilisfólk og starfsfólk klæddist bleiku og einn vinnufélaginn á Grund mætti meira að segja með bleika köku í vinnuna. Mikil stemmning og skemmtilegt enda málefnið verðugt að vekja athygli á brjóstakrabbameini og styðja við bakið á átaki Krabbameinsfélagsins í október.

Ásdís mætti í vinnu með bleika köku og Rósa er hér smakka.

Allir sem áttu eitthvað bleikt í Mörk tóku þátt.

38

Heimilispósturinn


Ás, Grund og Mörk

Í Ási var þátttakan frábær.

Elsa bleika.

Heimilispósturinn

Kjartan bleiki.

39


Fiskidagurinn litli í Mörk

Þetta verður árlegur viðburður

F

iskidagurinn litli var haldinn í Mörk síðsumars og mikil stemmning sem fylgdi þeirri uppákomu. Gísli Páll Pálsson, forstjóri Markar sagði að dagurinn væri haldinn í samvinnu við Fiskidaginn mikla á Dalvík en Dalvíkingar gáfu hjúkrunarheimilinu um 300 fiskborgara og allt efni sem þurfti í fiskisúpuna sem var á boðstólum. Hugmyndin kviknaði í eldhúsinu í Mörk og haft var samband við Júlíus Júlíusson framkvæmdastjóra í kjölfarið og borið undir hann hvort Dalvíkingar hefðu áhuga á að vera með í uppákomunni. „Hann tók þessu mjög vel,“ segir Gísli og bætir við að Júlíus hafi verið þeim innan handar í undirbúningi og m.a. fengið Friðrik V matreiðslumeistara til liðs við eldhúsið í Mörk. Eftir matinn var atriði frá Sirkus Íslands og síðan var boðið upp á mini golf og ýmsa leiki og uppákomur á göngunum eins og boccia, blöðrubadmington, fótanudd og fleira. Allir voru sammála um að þetta yrði árlegur viðburður í framtíðinni.

Salurinn í Mörk var troðfullur þennan daginn.

40

Heimilispósturinn


Fiskidagurinn litli í Mörk

Sirkus Íslands kom og skemmti fólki.

Fiskborgarar og fiskisúpa var á boðstólum.

Heimilispósturinn

41


Sumarferð heimilismanna í Ási

Þ

Ný hverfi og kaffiveitingar

að voru kátir ferðalangar sem fóru í árlega sumarferð Áss, en í ár var Mosfellsbær grandskoðaður.

Ekið var framhjá nýja fangelsinu á Hólmsheiði og um Hafravatnsleið inn í Mosfellsbæ og í gegnum Álafoss - kvosina. Kaffisamsæti var í Hlégarði og tóku tvær elskulegar stúlkur á móti ferðalöngunum. Þær buðu upp á dýrindis meðlæti með kaffinu. Í bakaleiðinni var keyrt um Norðlingaholtið og í hópnum voru margir sem höfðu aldei komið inn í hverfið. Þetta var því bæði fróðleg og skemmtileg ferð í alla staði.

Ferðalangarnir voru heppnir með veður, en þessi dagur var mildur og bjartur

42

Heimilispósturinn


Sumarferð heimilismanna í Ási

Berglind Sigurðardóttir og Fjóla Ólafsdóttir.

Þær Borghildur Traustadóttir og Kristín Sigurþórsdóttir eru alltaf svo sætar.

Heimilispósturinn

43


Margrét Sesselja Magnúsdóttir

Söngurinn gerir kraftaverk

É

g sá hvernig rofaði til og fólk sem ég hafði aldrei séð sýna nein viðbrögð fór allt í einu að raula með, dilla sér eða horfa í átt að þeim stað sem söngurinn barst úr. Þetta segir Margrét Sesselja Magnúsdóttir sem hefur í mörg ár skipulagt tónleikahald með Stefáni Helga Stefánssyni á heimilum þar sem fólk með langt gengna minnissjúkdóma býr.

„Mamma mín, Elín Guðjónsdóttir, var með heilabilun. Þegar hún bjó á Hrafnistu og var að verða níræð vildi fjölskyldan gjarnan gera eitthvað fyrir hana á afmælisdaginn. Hún þekkti okkur ekki lengur og var með allt sem hún þurfti. Við vissum að það þýddi ekkert að gefa henni pakka, hún myndi ekkert átta sig á því hvað hún ætti að gera við hann. Þá fékk ég þá hugmynd að fá söngvarana Stefán Helga Stefánsson og Davíð Ólafsson til að syngja á deildinni þar sem mamma bjó. Þá bjuggu þar um tuttugu manns og langflestir í hjólastólum og með langt gengna heilabilun. Ég hafði fylgst með þessu fólki í nokkur ár og ekki náð neinu sambandi. Allt í einu þegar Davíð og Stefán voru búnir að syngja nokkur lög var eins og rofaði til, það dró ský frá sólu. Ég sá fólk dilla sér í takt við músíkina, brosa breitt og jafnvel syngja með. Það er alveg óhætt að segja að ég hafi verið í hálfgerðu áfalli en þó á jákvæðan hátt. Þetta var algjörlega magnað og engu líkt að fá að upplifa. Ég hafði heyrt að ýmislegt væri hægt að gera með tónlistinni en að upplifa þetta er eitthvað sem ekki gleymist. Það urðu einhver skil þarna hjá mér og ég ákvað að eitthvað skyldi ég leggja af mörkum til að veita þeim gleðistundir sem þessa. 44

Heimilispósturinn


Margrét Sesselja Magnúsdóttir

Sesselja og Stefán Helgi á góðri stund.

Stefán Helgi er rétti maðurinn Sesselja kannaðist við Stefán Helga og hringdi í hann og sagði honum frá því hvers hún hafði orðið áskynja þegar þeir félagar sungu fyrir fólkið á deild mömmu hennar. Hann bauðst strax til að koma aftur og þá með undirleik. „Ég var með Stefán undir smásjá þegar við fórum saman og fann fljótt að hann væri rétti maðurinn. Það tók mig nokkurn tíma að safna kjarki til að Heimilispósturinn

45


Margrét Sesselja Magnúsdóttir

Þessa dúka saumar Sesselja en þeir henta vel fólki með heilabilun, því það er hægt að handfjatla mismunandi efni og áferð.

hringja í hann aftur og þá bar ég undir hann þá hugmynd að gera þetta reglulega. Honum fannst þetta dásamleg hugmynd og þakkaði mér fyrir að hafa samband við sig. Fyrst átti þetta bara að vera á deildina hjá mömmu og í dagvistun hjá Drafnarhúsi. Ég borgaði honum smáræði fyrir en hann tók alveg fyrir það og sagði að nú skyldum við stökkva í djúpu laugina og kanna hvort við gætum ekki fengið styrki og farið að syngja fyrir fleiri. Ingibjörg Pétursdóttir á Landakoti aðstoðaði mig og svo var bara tekið upp tólið og hringt. Sungið á 30 stöðum Fyrr en varði var Stefán Helgi farinn að syngja mánaðarlega á um þrjátíu stöðum þar sem fólk með minnissjúkdóma bjó eða dvaldi. Stefanía segir að nú séu þau búin að standa vaktina í sjö ár. Þau hafa um árin fengið styrki en best gekk þó í byrjun að afla fjár. Ýmis líknarfélög hafa styrkt starfið þeirra og Oddfellow 46

Heimilispósturinn


Margrét Sesselja Magnúsdóttir reglan hefur stutt dyggilega við bakið á starfseminni. „Við stefnum að því að halda starfinu okkar áfram og Stefán lætur það ekkert á sig fá þó hann hafi ekki alltaf fengið borgað. Ég hef alltaf haldið utan um þetta starf í sjálfboðavinnu og svo verður áfram. Nýverið kom kona mér til aðstoðar og það er frábært. En auðvitað er stór hluti af mínu sjálfboðastarfi að skrifa bréf og biðja um styrk fyrir þetta verkefni okkar.“ Hvað er það sem knýr ykkur áfram með sönginn þó fjárhagslega sé ávinningurinn lítill sem enginn? „Fyrst og fremst að sjá og skynja hvað þetta hefur mikil áhrif á fólkið þegar Stefán Helgi er að syngja og svo er líka dásamlegt þegar maður finnur þakklæti aðstandenda. Ég hef sjálf verið sjúklingur í þrjátíu ár, verið með bólgur í brisi og glímt við þunglyndi. Það, að hafa eitthvað fyrir stafni, sem er þar að auki svona gefandi starf hefur haldið í mér lífinu ef svo má að orði komast og veitt mér lífsfyllingu.“ Þið eruð alltaf svo fín þegar þið mætið með sönginn og kjólarnir þínir hafa vakið athygli. Prjónaðir þú þessa kjóla sjálf? „Já ég hef prjónað eina sjö kjóla úr eingirni á mig og Stefán mætir alltaf í smóking. Kjólarnir hafa oft vakið athygli og það er bara gaman að því.“ Hægt að fikta endalaust í dúkunum Sesselja er mikil handverkskona og hönnuður. Fyrir utan að sauma, prjóna og hanna á vini og fjölskyldu þá kemur hún færandi hendi þegar þau koma að syngja á heilabilunardeildum og heimilum. „Já þetta eru dúkar sem ég sauma að gamni mínu. Ætli ég hafi ekki saumað um 200 dúka og fært heimilum þar sem fólk með heilabilun býr eða dvelur. Ég rakst á sínum tíma á svipaða mottu á markaði á Selfossi og fór að spá í það í framhaldinu að líklega myndi þetta henta vel heilabiluðum. Ég kosta sáralitlu til nema vinnuframlagi mínu. Oft fæ ég gefins hnappa og efni og rennilása. Mér finnst svo gott að vinna og svo er það sérstaklega gaman þegar það sem ég geri nýtist öðrum. Heimilispósturinn

47


Tónleikar á Grund

Stolt móðir sem hlýddi á soninn

Þ

að var gaman að fylgjast með brosinu sem fór ekki af andliti heimiliskonunnar Helgu Hobbs, þegar sonur hennar Gunnar Kvaran var nýverið með tónleika í hátíðasal ásamt Hauki Guðlaugssyni. Gunnar lék á selló og Haukur á flygil. Á dagskránni voru þekkt sígild verk sem flestir könnuðust vel við. Það voru bæði heimilismenn og starfsfólk sem fylltu hátíðasalinn þennan dag og dásömuðu í bak og fyrir þessa skemmtilegu heimsókn.

Helga Hobbs brosti út að eyrum þegar sonur hennar kom og hélt tónleika.

48

Heimilispósturinn


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Heimilispósturinn - október 2016 by Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili - Issuu