HEIMILISPÓSTURINN Heimilisblað Grundar, Áss og Markar 55. árgangur
júní 2019
2. tölublað
Efnisyfirlit Grund er samofin mínu lífi..................................................................... 3 Fánavængirnir vekja athygli................................................................. 13 Uppáhaldsblómin við hvert hús............................................................ 14 Sjálfboðaliðar bjóða í hjólatúr.......................................................... 16 Prjónuðu dúkkur handa börnum á Undralandi................................. 18 Heimilisfólk og starfsfólk bakar með kaffinu.................................. 20 Áhugasamir nýta hvert tækifæri sem gefst á vellinum.................... 21 Hver stund nýtt til útiveru.................................................................. 22 Suðræn stemmning í sólinni.................................................................. 24 Jarðarber og mynta............................................................................... 25 Mikil ánægja með nýja kaffihúsið......................................................... 26 Koma árlega og halda tónleika............................................................ 28 Samvinna heimilis, starfsfólks og aðstandenda................................ 30 Alþjóðleg Eden viðurkenning komin í hús.......................................... 32 Tískumódel á tíræðisaldri..................................................................... 34 Starfsmenn bjóða heimilisfólki gjarnan á rúntinn........................... 38 Fjölbreytt tómstundastarf................................................................. 40 Heimilisfólk kemur með ábendingar og óskir.................................... 42 Mætti bara heim og klippti viðskiptavininn.......................................... 43 Settu niður kartöflur og borðuðu svo saman................................. 44 Vel mætt í söngstund á kaffihúsinu.................................................... 48
Forsíðumyndin er af hjónunum Guðrúnu B. Gísladóttur og Júlíusi Rafnssyni 2004 þegar fyrsta skóflustungan var tekin af tengiganginum. Ritstjóri: Guðbjörg R. Guðmundsdóttir. Hönnun og uppsetning: Írena Dögg McCabe. Prentun: GuðjónÓ. Upplag: 1500. 2 Heimilispósturinn
Hún er fædd og uppalin á heimilinu
G
Grund er samofin mínu lífi
uðrún B. Gísladóttir lætur nú af störfum sem forstjóri Grundar þann 1. júlí, sama dag og hún fagnar 75 ára afmæli. Hún er fyrsta konan til að gegna starfi forstjóra á hjúkrunarheimili hér á landi og það sem er einstakt er að hún er líka fædd og uppalin á Grund. Guðbjörg Guðrún og Lilja G. Ólafsdóttir heimiliskona. R. Guðmundsdóttir settist niður með Guðrúnu vegna tímamótanna og fór yfir farinn veg með henni. „Ég er ekkert að yfirgefa Grund þó ég sé að hætta sem forstjóri“, er það fyrsta sem hún segir við mig þegar við byrjum spjallið okkar. „Hér er ég fædd og hef verið hér meira og minna alla mína ævi. Þegar ég var að horfa yfir farinn veg áttaði ég mig á því að af þeim 75 árum sem ég hef nú lifað hef ég verið tengd Grund fyrir utan tvö ár þegar ég bjó í Neskaupsstað. Grund er samofin mínu lífi og ég lít á það sem mína gæfu. Nú þegar ég læt af starfi forstjóra get ég hinsvegar farið að einbeita mér að því sem mér finnst skemmtilegast, að spjalla við og kynnast heimilisfólkinu betur. Mér hefur alla tíð liðið betur með mér eldra fólki.” Guðrún er þriðji ættliðurinn sem fer með stjórn Grundar. Föðurafi hennar, Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason, var einn af stofnendum Grundar á sinni tíð en Sigurbjörn var þjóðkunnur guðfræðingur og kennari. Sigurbirni og vinum hans hraus hugur við aðbúnaði fjölmargra aldraðra hér á öðrum áratug síðustu aldar. Í samvinnu við fáeina hugsjónamenn og kaupmenn í bænum stofnaði hann líknarfélagið Samverjann sem beitti Heimilispósturinn
3
Hún er fædd og uppalin á heimilinu sér fyrir því að unnt væri að festa kaup á húsinu Grund við Kaplaskjólsveg fyrir elliheimili. Afi heimilisprestur á Grund „Afi lauk prófi úr Prestaskólanum aldamótaárið en kenndi svo á veturna stærðfræði og á sumrin ferðaðist hann gjarnan og prédikaði í kirkjum landsins og stofnaði bindindisfélög þar sem hann kom því við.” Sigurbjörn hlaut vígslu 23. ágúst 1942, þá 66 ára gamll og var þá vígður sem heimilisprestur á Grund. Konan hans var Guðrún Lárusdóttir alþingismaður og rithöfundur.
Amma og afi Guðrúnar, sr. Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason og Guðrún Lárusdóttir.
4
Heimilispósturinn
Hún er fædd og uppalin á heimilinu Ómetanlegt veganesti Guðrún er dóttir Gísla Sigurbjörnssonar og Helgu Björnsdóttur en hann var forstjóri heimilisins í sextíu ár. Ráðsmaður heimilisins lést árið 1934 og þá var pabbi hennar beðinn um að koma á skrifstofuna í nokkra daga uns stjórnin hefði fundið nýjan ráðsmann. „Á þessum tíma var pabbi 27 ára gamall. Dagarnir urðu að sextíu árum. Öll störf föður míns á langri starfsævi í þágu aldraðra byggðu á hugsjón. Engan veit ég hér á landi sem hefur komið meiru til leiðar í málefnum aldraðra en föður minn. Gáfur hans, atorka, fjármálavit og viljastyrkur réðu þar mestu. Velferð heimilisins var honum alla tíð hjartans mál. Um það þurfti enginn að efast. Í meira en þrjátíu ár starfaði ég með honum og kynntist vel viðhorfum hans. Það veganesti hefur reynst mér ómetanlegt. Eitt af því sem pabbi brýndi fyrir mér var að muna að vera alltaf góð við gamla fólkið.”
Foreldrar Guðrúnar, Gísli Sigurbjörnsson sem var forstjóri heimilisins í 60 ár og eiginkona hans Helga Björnsdóttir.
Heimilispósturinn
5
Hún er fædd og uppalin á heimilinu Forréttindi að alast upp á Grund Guðrún hefur setið í stjórn heimilisins frá árinu 1979 og tók við starfi forstjóra í ársbyrjun árið 1994. Það er ekki nóg með að Guðrún hafi unnið á Grund nánast alla sína starfsævi eða í 52 ár heldur er hún fædd á heimilinu og bjó þar fyrstu árin áður en fjölskyldan flutti á Blómvallagötu 12, þar sem nú er Minni Grund. En hvernig var að alast upp á Grund? „Ég var þriggja ára þegar við fluttum af Frúargangi sem nú heitir A-3. Frúargangur hlaut ekki nafn sitt af því að þar hefðu bara búið konur heldur var hún mamma, Helga Björnsdóttir, oftast kölluð frúin og þannig festist nafnið við ganginn þar sem við bjuggum.” Guðrún segir það hafa verið forréttindi að alast upp með heimilisfólkinu. „Hvorki mín börn né barnabörn hefðu komist upp með það sem við systurnar gátum dundað okkur við. Húsakynnin öll voru leiksvæðið okkar og við eignuðumst auðvitað margar ömmur og afa meðal heimilisfólksins sem spiluðu við okkur og laumaðu að okkur ýmsu góðgæti. Heimiliskonan hún Ásta P kenndi mér að drekka kaffi þegar ég var sex ára. Við vorum auðvitað oft í feluleik um allt hús og það var meiriháttar því felustaðirnir voru margir. Þegar lyftan og sundlaugin komu í húsið í kringum árið 1955 var það heilt ævintýri. Við dvöldum langtímum saman í lyftunni og vorum spenntar að sjá hvort við færum upp eða niður þegar fólk var að panta lyftuna. Sama með sundlaugina. Við fengum að fara í sundlaugina um helgar og buðum þá gjarnan vinkonum með okkur og þá var oft glatt á hjalla.“ 6
Ásta Pje sem kenndi Guðrúnu að drekka kaffi þegar hún var 6 ára.
Heimilispósturinn
Hún er fædd og uppalin á heimilinu
Systurnar á góðri stund, Helga, Gunna, Mússa og Nína. Myndin er tekin 7. júlí 1973.
Heimilispósturinn
7
Hún er fædd og uppalin á heimilinu Bernskujólin Mér eru líka minnisstæð jólin. Eftir jólaguðsþjónustu hjá afa, sr. Sigurbirni, fórum við Helga systir með pabba um heimilið og tókum í höndina á öllum heimilismönnum og óskuðum þeim gleðilegra jóla. Þá voru á Grund tæplega 400 heimilismenn en til gamans má nefna að í dag eru þeir 175 og Litla Grund hefur bæst við. Á þrettándaskemmtuninni sem þá var haldin að kvöldi höfðum við systurnar það hlutverk að pússa rauð epli og afhenda svo fólki að lokinni skemmtuninni. Rafmagnið fór oft af bænum í gamla daga og eitt skipti var pabbi að koma frá föður sínum í Ási við Sólvallagötu og sá að það logaði ljós allsstaðar í hverfinu nema á Grund. Hann vissi að rafmagnsreikningurinn var ógreiddur þar sem peningar höfðu ekki verið til en þarna ákvað pabbi að það skyldi aldrei aftur vera myrkur á Grund. Það skyldi loga ljós þó rafmagn færi af í bænum. Það var keypt ljósavél okkur systrum til mikilla vonbrigða því þegar rafmagnið fór af borginni fór ljósavélin í gang og því varð aldrei rafmagnslaust aftur á Grund.“
Guðrún, Páll og synirnir Gísli Páll. Þórður Björn og Halldór Gunnar.
8
Heimilispósturinn
Hún er fædd og uppalin á heimilinu Synirnir skírðir í hátíðasalnum „Stóru viðburðirnir í mínu lífi hafa allir tengst Grund. Það kom ekkert annað til greina en að afi myndi gifta okkur Palla í hátíðarsalnum í september árið 1965 og heimilisfólkið var auðvitað velkomið í athöfnina.” Sr. Páll Þórðarson lést aðeins 35 ára gamall árið 1978. Þau eignuðust þrjá syni, Gísla Pál, Þórð Björn og Halldór Gunnar. Seinni maður Guðrúnar er Júlíus Rafnsson, framkvæmdastjóri á Grund til þrjátíu ára sem einnig lætur af störfum á þessum tímamótum. Þau eiga soninn Kjartan Örn en Júlíus átti áður fjögur börn svo alls eru drengirnir sjö og ein stúlka. „Þrír synir mínir og flest barnabörnin hafa verið skírð á Grund en maðurinn minn skírði yngsta son okkar, Halldór Gunnar, þegar hann var þjónandi prestur í Neskaupsstað. Á afmælisdegi afa, nýársdag árið 1968, var næst elsti sonur minn skírður við guðsþjónustu á heimilinu og þá var afi 92 ára. Fyrir nokkrum árum var svo ömmustrákurinn minn, Páll Gíslason, fermdur við guðsþjónustu á Grund. “
Stjórn Grundar árið 2003, Jóhann J. Ólafsson. Gísli Páll Pálsson. Júlíus Rafnsson, Garðar Sigfússon, Guðrún Birna Gísladóttir, sr. Guðmundur Óskar Ólafsson stjórnarformaður og Sigurður Stefánson.
Heimilispósturinn
9
Hún er fædd og uppalin á heimilinu
Guðrún og Júlíus ásamt drengjunum Kjartani, Halldóri, Gísla og Þórði.
Gísli Sigurbjörnsson og nafnar hans Gísli Páll og Gísli Sigurbjörn.
10
Heimilispósturinn
Hún er fædd og uppalin á heimilinu
Guðrún með heimiliskonunni Gunnhildi Viktorsdóttur sem var ráðskona í þvottahúsinu.
Fólkið minnisstæðast Nú þegar þú kveður sem forstjóri og horfir yfir farinn veg, hvað er þér minnisstæðast úr starfinu? „Allt það yndislega fólk sem ég hef kynnst, bæði heimilisfólk og starfsfólk. Án alls þessa góða fólks væri Grund ekki það sem heimilið er í dag.“ Það má með sanni segja að Guðrúnu sé annt um starfsfólkið sitt. Hún prjónar gjarnan þegar degi tekur að halla og ef hún veit að von er á fjölgun í fjölskyldum starfsfólks og heimilisfólks er hún mætt með handprjónaða ungbarnasokka til að gefa þeim. Þetta endurspeglar þá væntumþykju sem hún ber til fólksins sem á Grund býr og starfar. „Þetta hafa verið afar viðburðarrík ár síðan ég tók við sem forstjóri. Það hefur verið byggt við Grund nokkrum sinnum og síðasta viðbyggingin var þegar Grundirnar voru tengdar saman með tengigangi. Hjúkrunarheimilið í Ási var vígt árið 1998 og eitt fullkomnasta þvottahús landsins var byggt og tekið í notkun í Hveragerði 2007. Grund tók að sér rekstur Markar Heimilispósturinn
11
Guðrún Hún er fædd og uppalin á heimilinu hjúkrunarheimilis fyrir ríkið í ágúst árið 2010 og festi kaup á 78 íbúðum fyrir 60 ára og eldri við Suðurlandsbraut 58 – 62 í ársbyrjun 2010. Það reyndist heimilinu gæfuspor því mikil eftirspurn hefur verið eftir íbúðunum. Brugðist var við henni með byggingu 74 íbúða austanmegin við hjúkrunarheimilið. Þær voru allar teknar í notkun á síðasta ári og á fjórða hundrað manns eru enn á biðlista. Guðrún segist halda að það sé kostur að fjölskyldan skuli standa að rekstrinum en heimilið á sig sjálft því það er sjálfseignarstofnun. „Við lítum á Grund sem miklu meira en vinnustað. Ég er alltaf í vinnunni, bý við hliðina á Grund og fer ekki í háttinn nema fara út í glugga og líta yfir, fullvissa mig um að allt sé með ró og spekt. Það gladdi mig mjög þegar pabbi bað Gísla Pál, son minn, um að taka við framkvæmdastjórastöðu í Ási í september árið 1990 og hann gat starfað við hlið afa síns og numið af honum. Það er í mínum huga ómetanlegt. Hann hefur verið forstjóri Markar frá upphafi og nú tekur hann við af mér. Ég get ekki hugsað mér betri mann og er þess fullviss að hann mun sinna starfinu sínu af mikilli alúð með konuna sína Öldu Pálsdóttur sér við hlið.“
Sokkarnir sem Guðrún prjónar og gefur.
12
Heimilispósturinn
17. júní verkefni iðjuþjálfunar í Mörk
Þ
Fánavængirnir vekja athygli
etta er 17. júní verkefnið okkar í ár”, segir Ása Lára Axelsdóttir starfsmaður í iðjunni þegar við spyrjum hana út í listaverkið sem prýðir vegginn á fyrstu hæð Markar við hlið Boggubúðar. „Hugmyndin var upphaflega að gera vængi úr fjöðrum en svo þróaðist hún í að gera fánavængi. Fólk hefur gaman að því að standa í miðjunni og láta mynda sig með vængina“.
Heimiliskonan Sigurbjörg sýnir hérna hvernig hægt er að láta mynda sig á skemmtilegan hátt með vængina sitt hvoru megin.
Heimilispósturinn
13
Gróðursett í Ási
Í
Uppáhaldsblómin við hvert hús
byrjun sumars gefst heimilisfólki í Ási tækifæri á að koma og velja sér blóm til að setja í potta við húsin þar sem það býr. Það er alltaf skemmtilegt andrúmsloftið í kringum gróðursetninguna því heimilisfólk er áhugasamt um að velja sér sínar uppáhaldsplöntur og svo hefur veðrið bara verið svo dásamlegt líka.
Guðbrandur Valdimarsson og Þóra Magnúsdóttir velja sér plöntur í pott.
14
Heimilispósturinn
Gróðursett í Ási
Guðbrandur, Snorri, Arnfríður, Ævar og Ásgerður með sín blóm.
Áhugasamir drengir í garðyrkjudeild Áss.
Heimilispósturinn
15
Í blíðskaparveðri
Í
Sjálfboðaliðar bjóða í hjólatúr
sumar tekur hjúkrunarheimilið Mörk þátt í samvinnuverkefni með „Hjólað óháð aldri", „Létt verk" hjá Landsvirkjun og hjúkrunarheimilinu Sunnuhlið. Á Mörk koma tveir sjálfboðaliðar og bjóða heimilisfólki út að hjóla á farþegahjóli. Verkefnið hefur vakið mikla lukku og er unnið með sjúkraþjálfurum í Mörkinni. Heimilið á eitt hjól en hjólin í verkefninu eru í Mörk eina viku í senn og fara svo yfir í Sunnuhlíð. Það má geta þess að aðstandendur geta fengið leiðsögn og kennslu hafi þeir hug á að bjóða fólkinu sínu út að hjóla á hjóli heimilisins. Áhugasamir snúi sér þá til sjúkraþjálfunarteymisins í Mörk.
Það er stígur í nágrenni Markar þar sem hægt er að hjóla.
16
Heimilispósturinn
Í blíðskaparveðri
Sumum nægir hjólatúr um garðinn, en aðrir fara lengra.
Heimilispósturinn
17
Konur í Ási
Prjónuðu dúkkur handa börnum á Undralandi
K
onurnar í Bæjarási og nokkrar heimiliskonur í vinnustofu Áss hafa undanfarið verið að prjóna litlar dúkkur, karla og kerlingar.
Konurnar í Bæjarási ákváðu að gefa krökkunum á Undralandi dúkkur, en börnin þar hafa komið reglulega á heimilið. Ásta María sem kemur í dagdvöl í Bæjarás hefur haldið utan um verkefnið þar en hún á sonardóttur á leikskólanum sem heitir María og heimiliskonan Pálhildur á langömmustelpu sem heitir Júlía og heimilisstýran Steina á ömmustrák sem heitir Egill Darri. Heimliskonurnar í vinnustofu Áss hafa líka verið iðnar við prjónaskapinn og nýlega afhentu þær sínar dúkkur á bráðamóttöku HSU til að gefa börnum sem þangað koma til aðhlynningar eftir að hafa lent í óhappi. Það verður spennandi að sjá hvar næstu dúkkur lenda sem eru prjónaðar í Ási.
Ásta María og Pálhildur færðu börnunum brúður.
18
Heimilispósturinn
Konur í Ási
Prjónakonurnar Ásgerður, Gunnhildur og Arnfríður.
Hér taka þær Anna María Snorradóttir og Birna Gestsdóttir við brúðum frá Arnfríði.
Heimilispósturinn
19
Kleinuilmur um alla hæð
Heimilisfólk og starfsfólk bakar með kaffinu
A
nna starfsmaður í Mörk er algjör snillingur þegar það kemur að kleinubakstri. Hún var enga stund að skella í deig og hnoða. Heimilisfólk og starfsfólk tóku þátt í að snúa upp á deigið. Gaman að fá smá tilbreytingu í kaffitímanum og tala nú ekki um dásamlegu kleinulyktina sem fannst um alla hæðina.
20
Heimilispósturinn
Púttvöllurinn í Ásbyrgi
Áhugasamir nýta hvert tækifæri sem gefst á vellinum
S
tarfsfólk garðyrkjudeildar Áss sér um allt viðhald á púttvellinum í Ásbyrgi og um leið og hann var tilbúinn nú í sumar mættu áhugasamir púttarar til leiks. Þeir nýta hvert tækifæri til að pútta undir dyggri stjórn Sigríðar Elmu sumarstarfsmanns í sjúkra- og iðjuþjálfun.
Sigríður Elma, Kristín, Stígur og Ásgerður mætt galvösk á völlinn.
Árni Guðmundsson einbeittur.
Heimilispósturinn
21
Sólskin í porti Grundar
Þ
Hver stund nýtt til útiveru
að er óhætt að segja að bekkir séu þétt setnir í portinu á Grund þetta sumarið því þar er oft algjört logn og yndislegt að vera þegar sólin skín.
Þessi mynd var tekin þegar ákveðið var að færa bocciuna út í skólskinið.
Það er auðvelt að vera léttklæddur í porti Grundar.
22
Heimilispósturinn
Sólskin í porti Grundar
Ekki amalegt veðrið þennan daginn.
Heimilisfólk kemur gjarnan og sest við sólstofuna á Litlu Grund.
Heimilispósturinn
23
Sumar í Mörk
Suðræn stemmning í sólinni
Í
þessu blíðskaparveðri sem höfuðborgarbúar hafa notið undanfarnar vikur er hver stund nýtt til útiveru í Mörk. Hér eru nokkrar heimiliskonur að hafa það notalegt í sólinni.
24
Heimilispósturinn
Heimilisfólk Grundar með græna fingur
Þ
Jarðarber og mynta
eir sem hafa yndi af því að rækta vita hvað það er gaman að fylgjast með vexti kryddjurta og grænnmetis og tilfinningin er góð þegar farið er í garðinn að bragða á eigin uppskeru. Heimilisfólk með græna fingur þurfti ekki að spyrja tvisvar þegar kom að því að setja niður kryddjurtir og jarðarberjaplöntur í kassann sem er við Minni Grund. Eitthvað fór fleira af góðmeti í kassann og nú er bara gaman að fylgjast með í sumar og sjá hvernig uppskeran verður.
Stig Arne Vadentoft og Svanhvít Hannesdóttir hjálpast að við að setja niður krydd.
Heimilispósturinn
25
Kaffi Mörk
Mikil ánægja með nýja kaffihúsið
Þ
að er gaman að sjá hvað kaffihúsið Kaffi Mörk er vel sótt en það opnaði í Mörk á vordögum. Að sögn Nínu B. Gunnarsdóttur starfsmanns kaffihússins koma margir og fá sér súpu, salat eða létta rétti í hádeginu og síðdegis koma aðstandendur gjarnan með heimilisfólki eða íbúar með gesti með sér og njóta kaffiveitinga í þessu fallega umhverfi. Nýlega var komið upp aðstöðu fyrir börn sem eru hjartanlega velkomin og ekki er langt síðan útihúsgögnin komu á veröndina. Í góðu veðri er einstakt að sitja úti í logninu sem skapast milli bygginganna og njóta veitinganna þar. Opnunartímar kaffihússins: Mánudag lokað Þriðjudag til föstudag opið frá 12-17 Laugardag og sunnudag opið frá 13-17
Boðið er upp á létta rétti í hádeginu og bakkelsi með kaffinu.
26
Heimilispósturinn
Kaffi Mörk
Börn eru hjartanlega velkomin og sérstakt barnahorn er á kaffihúsinu.
Oft er mikið líf og fjör á kaffihúsinu og stundum óvæntar uppákomur.
Heimilispósturinn
27
Halda tryggð við Grund
Koma árlega og halda tónleika
F
élagar í karlakórnum Fóstbræðrum halda tryggð við heimilið og mæta á ári hverju á vordögum og bjóða upp á stórkostlega tónleika. Þannig var það líka þetta árið. Þeir komu þann 4. maí sl. klæddir kjólfötum og það var óneitanlega hátíðlegt að horfa upp á tugi herramanna marsera í hátíðasalinn með þessum hætti. Allt húsið ómaði, ólýsanleg stund sem allir kunnu svo sannarlega að meta. Takk kærlega Fóstbræður fyrir ræktarsemina og þennan yndislega söng. Það er Árni Harðarson sem stýrir kórnum af sinni alkunnu snilld.
28
Heimilispósturinn
Halda tryggð við Grund
Hátíðasalurinn er alltaf þétt setinn þegar karlakórinn Fóstbræður koma í heimsókn.
Heimilispósturinn
29
Grillveisla í Mörk
Samvinna heimilis, starfsfólks og aðstandenda
Þ
ar sem það hefur viðrað svo vel í sumar hefur verið grillað oftar en í fyrra uppi á heimilunum í Mörk. Nýlega voru heimilin á þriðju hæð með grillveislur og þá voru þessar myndir teknar. Eldhúsið sá um að útvega matinn á grillið en starfsfólk og aðstandendur komu líka færandi hendi með kökur, eftirrétti, gos og bjór svo dæmi séu tekin. Eitt af því sem Eden hugmyndafræðin, sem stuðst er við í Mörk, leggur mikla áherslu á er samstarf við aðstandendur og að þeir finni að þeir eru ávallt velkomnir og allt þeirra framlag mikils metið. Í grillveislunum endurspeglaðist þessi notalega og gefandi samvinna.
Hér er verið að grilla eitthvað gott á einum af svölum þriðju hæðar.
30
Heimilispósturinn
Grillveisla í Mörk
Notaleg samverustund hjá heimilisfólki, aðstandendum og starfsfólki.
Heimilispósturinn
31
Eden hugmyndafræðin í Ási
Í
Alþjóðleg Eden viðurkenning komin í hús
apríl hlaut Ás alþjóðlega viðurkenningu sem Eden heimili. Það var Rannveig Guðnadóttir, verkefnisstjóri Eden á Íslandi, sem veitti Guðbrandi Valdimarssyni heimilismanni vðurkenninguna. Gísli Páll Pálsson, forstjóri í Ási og Birna Sif Atladóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar, fluttu ávörp af þessu tilefni og Magnús Þór Sigmundsson söng nokkur lög. Þá lék Aðalheiður Guðjónsdóttir á fiðlu, börn frá leikskólanum Undralandi kættu alla með nærveru sinni og tveir nemendur sem hafa í vetur æft sig í upplestri í Ási komu og fluttu ljóð. Að lokum voru bornar fram glæsilegar veitingar sem yfirmatreiðslumaðurinn Eyjólfur Kolbeins hafði veg og vanda að ásamt sínu starfsfólki í eldhúsinu.
32
Heimilispósturinn
Eden hugmyndafræðin í Ási
Rannveig Guðnadóttir verkefnastjóri Eden á Íslandi, Steinunn S. Gísladóttir heimilisstýra, Gísli Páll Pálsson forstjóri í Ási, Birna Sif Atladóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar í Ási og heimilismaðurinn Guðbrandur Valdimarsson sem tók við viðurkenningunni.
Hvað er Eden heimili? Í stuttu máli er markmið Eden Alternative hugmyndafræðinnar að bæta lífsgæði aldraðra. Horfið er frá stofnanavæðingu. Hjúkrunarheimili er heimili þeirra sem þar búa. Hugmyndafræðin leggur áherslu á sjálfræði aldraðra. Hún virðir rétt einstaklingsins til að taka ákvarðanir sem varða líf hans. Markvisst er unnið með að útrýma einmanaleika, leiða og vanmáttarkennd. Kærleikur, virðing og vinátta einkennir andrúmsloft á Eden heimili. Áhersla er lögð á virkni aðstandenda. Hvatt er til samstarfs við skóla á öllum stigum og umgengni við gæludýr. Heimilispósturinn
33
Tískusýning á Grund
D
Tískumódel á tíræðisaldri
agurinn var tekinn snemma á Grund einn blíðviðrisdaginn í maí þegar tískusýning stóð fyrir dyrum í hátíðasalnum. Heimilisfólk sem tók að sér að sýna fatnaðinn mætti snemma í hársnyrtingu og konurnar í förðun. Síðan þurfti að máta fatnaðinn sem sýna átti og taka til fylgihluti. Gestir streymdu í hátíðasal til að horfa á tískusýninguna og boðið var upp á veitingar á meðan módelin svifu um salinn, sumir með aðstoð göngugrindar og hjólastólar voru heldur engin fyrirstaða. Módelin sýndu bæði hversdagsfatnað, spariföt og náttföt sem eru á boðstólum í verslun Grundar á fyrstu hæð heimilisins.
Það geislaði af henni Dúnu þegar hún var að sýna fatnaðinn.
34
Heimilispósturinn
Tískusýning á Grund
Ekkert mál að sýna fatnað þó það sé gert úr hjólastól.
Baldvin Ársælsson var glæsilegur þar sem hann gekk um og sýndi fatnað.
Heimilispósturinn
35
Tískusýning á Grund
Guðrún H. Guðmundsdóttir sýndi þennan huggulega hversdagsfatnað.
Áslaug Sigurðardóttir og Álfgrímur Aðalsteinsson skáluðu og skemmtu sér vel.
36
Heimilispósturinn
Tískusýning á Grund
Edda Bergmann sýndi huggulegarn spariklæðnað.
Glæsilegur hópurinn sem stóð að sýningunni.
Heimilispósturinn
37
Fengu rafskutlur að gjöf
Starfsmenn bjóða heimilisfólki gjarnan á rúntinn
Á
s fékk að gjöf tvær rafskutlur á dögunum en það var Erlendur Guðmundsson sem gaf þær til minningar um eiginkonu sína Guðlaugu Hróbjartsdóttur. Önnur er tveggja sæta og hin er fyrir einn. Skutlurnar eru þegar komnar í notkun og nýtast vel. Rafskutlan sem tekur tvo er notuð þannig að starfsmenn bjóða heimlisfóki á rúntinn um götur bæjarins og stundum er hún notuð þegar heimliisfólk þarf að skjótast í banka eða á bókasafnið. Hin nýtist vel þegar starfsfólkið þarf að fara milli staða í Ási. Um leið og Erlendi er kærlega þakkað fyrir þessa rausnarlegu gjöf birtum við þessar myndir af heimilisfólki á rúntinum með starfsfólki.
Guðmunda Helgadóttir og Fanney Björg skruppu á rúntinn.
38
Heimilispósturinn
Fengu rafskutlur að gjöf
Áslaug Arngrímsdóttir og Anna Lilja fóru góðan hring í blíðunni.
Heimilispósturinn
39
Mörkin, íbúðir 60+
Í
Fjölbreytt tómstundastarf
búar sem búa í íbúðum fyrir 60+ í Mörkinni fögnuðu hækkandi sól með vorfagnaði þar sem þeir buðu upp á ljúffengar veitingar og nutu félagsskapar í Mýrinni, tómstundarými þeirra. Annars er tómstundastarfið fjölbreytt hjá íbúum. Spilaklúbbarnir eru ekkert að láta sólina trufla sig og púttvöllurinn er kominn í gagnið. Íbúar með græna fingur eru farnir að láta til sín taka í gróðurskálanum. Í blíðviðrinu sem hefur einkennt höfuðborgina undanfarnar vikur eru íbúar meira að segja farnir að viðra sig úti á sundfatnaði eftir sundsprett í heilsulindinni á morgnana eða síðdegis.
Og það er mikið spjallað þegar íbúar hittast í Mýrinni.
40
Heimilispósturinn
Mörkin, íbúðir 60+
Nokkrum sinnum í viku spila íbúar og stundum flesta daga vikunnar.
Á vorfagnaði voru ýmsar kræsingar í boði.
Heimilispósturinn
41
Heimilisráðsfundir Grundar og Markar
R
Heimilisfólk kemur með ábendingar og óskir
eglulega eru haldnir heimilisráðsfundir bæði á Grund og í Mörk þar sem fulltrúar heimilismanna sitja fundi og koma með ábendingar um hluti sem betur mættu fara og bera fram óskir um ýmislegt sem þeir vilja gjarnan sjá meira af. Yfirleitt er maturinn vinsælasta umræðuefnið og sitt sýnist hverjum um hvað mætti borða oftar eða sjaldnar. Ljóst er þó að fundir sem þessir eru gagnlegir og frábært að fá álit heimilisfólks og ábendingar.
Ýmsar góðar ábendingar koma fram á heimilisráðsfundum.
42
Heimilispósturinn
Færanleg hársnyrtistofa í Mörk
Þ
Mætti bara heim og klippti viðskiptavininn
að er ekki alltaf sem heimilismenn eiga auðvelt með að mæta niður á hársnyrtistofu Markar. En hún Bergljót hársnyrtir lætur það ekki aftra sér frá því að klippa þá sem það kjósa og þá mætir hún bara heim og klippir. Ekki allir sem fara í sporin hennar Beggu.
Heimilispósturinn
43
Sjöundu bekkingar aðstoða heimilisfólk
Settu niður kartöflur og borðuðu svo saman
H
efð hefur skapast fyrir því að á vorin komi sjöundu bekkingar grunnskólans í Hveragerði og aðstoði heimilisfólk í Bæjarási við að setja niður kartöflur. Svo var einnig að þessu sinni. Eftir púlið buðu heimilismenn að venju upp á grillaðar pylsur með tilheyrandi. Veðrið spillti nú ekki fyrir, bongóblíða og skemmtilegheit. Takk fyrir frábæra heimsókn, sjöundu bekkingar, þið eruð velkomin að ári.
Þessar kátu stelpur hjálpuðu til með bros á vör.
44
Heimilispósturinn
Sjöundu bekkingar aðstoða heimilisfólk
Hér er verið að stinga upp og undirbúa beðið.
Komið að grillveislunni.
Heimilispósturinn
45
Sjöundu bekkingar aðstoða heimilisfólk
Það er ekkert verið að slóra og allir hjálpast að.
Svo skemmdi veðurblíðan ekki fyrir þennan daginn.
46
Heimilispósturinn
Sjöundu bekkingar aðstoða heimilisfólk
Hörður Hjartarson grillaði ofan í mannskapinn þegar búið var að setja niður kartöflurnar.
Heimilispósturinn
47
Samsöngur í Mörk
Vel mætt í söngstund á kaffihúsinu
Þ
að er vel mætt á kaffihúsið þegar hún Arnhildur Valgarðsdóttir kemur og stýrir þar samsöng fyrir þá sem búa í íbúðum fyrir sextíu ára og eldri hér í Mörkinni. Yndislegar stundir sem íbúar ættu ekki að láta framhjá sér fara.
48
Heimilispósturinn