HEIMILISPÓSTURINN Heimilisblað Grundar, Áss og Markar 54. árgangur
júlí 2018
2. tölublað
Efnisyfirlit Göngugarpur og ræðusnillingur......................................................... 3 Mikill áhugi á fótbolta í húsinu.............................................................. 4 Finna fyrir öryggi í svona garði............................................................ 6 Gleði og söngur....................................................................................... 8 Nemendur og heimilismenn settu niður sumarblóm og kartöflur.10 Hjólað um Laugardal og farið á kaffihús........................................... 12 Elskar kindur og gamalt fólk.............................................................. 14 Heimilisfólk velur sumarblóm.............................................................. 19 Húni fær athygli allra........................................................................... 20 Giftust báðar prestum.......................................................................... 22 Heimiliskonur með tískusýningu........................................................... 24 Dreypt á sérrí og sagðar sögur.......................................................... 26 Handanudd um allt hús.......................................................................... 28 Fyrrum félagi söng með........................................................................ 30 Vinkonur í ljúfum dansi......................................................................... 31 Bökuðu kleinur og seldu...................................................................... 32 Gekk til altaris og læknaðist............................................................... 34 Bauð upp á tónleika í minningu konunnar sinnar............................... 36 Tvö hundruð manns á biðlista............................................................... 38 Hænunum fagnað í Bæjarási................................................................. 40 Sýnir sjaldgæft Kórónusafn og hlaut verðlaun nýlega................ 42 Vortónleikar í Grindavík....................................................................... 44 Ingunn blómakona gróðursetur.......................................................... 46 Ekki biðja mig að muna............................................................................ 47 Kryddjurtir og jarðarber.................................................................... 48
Forsíðumyndin: Fanney Björg Karlsdóttir iðjuþjálfi og Karl Stefánsson heimilismaður með Stroku hænunni í Bæjarási. Ritstjóri: Guðbjörg R. Guðmundsdóttir. Hönnun og uppsetning: Írena Dögg McCabe. Prentun: GuðjónÓ. Upplag: 1600. 2 Heimilispósturinn
Aldursforsetar á Grund
Göngugarpur og ræðusnillingur
Þ
að er ekki oft sem fleiri en einn heimilismaður ná hundrað ára aldri en nú búa tveir á Grund, Ágústa Gísladóttir og Geir Reynir Tómasson. Ágústa sem býr á Litlu Grund varð hundrað ára þann 4. apríl síðastliðinn og Geir Reynir sem býr á Minni Grund varð 102 ára 24 júní sl. Ágústa hefur alltaf gengið mikið og heldur því áfram á Grund og fer daglega út í göngutúra. Þá má til gaman geta þess að Geir Reynir fékk nýlega sóknarnefnd Dómkirkjunnar í óvænta heimsókn, en þar sat hann í stjórn í um sjötíu ár. Við það tækifæri gerði hann sér lítið fyrir og flutti óundirbúið ræðu og fór létt með það.
Ágústa og Geir Reynir eru þokkalega ern þrátt fyrir háan aldur.
Heimilispósturinn
3
Áfram Ísland í Mörk
Mikill áhugi á fótbolta í húsinu
Þ
að var góð stemmningin á Mörk þegar landsliðið okkar var að spila í Rússlandi. Vel var mætt á leikina, íslenski fáninn á öllum borðum og boðið upp á léttar veitingar að hætti Valda í eldhúsinu. Þessar myndir voru teknar á fyrstu hæðinni en auðvitað var verið að horfa á boltann allsstaðar í húsinu.
Egidijus húsvörður var mjög spenntur eins og sjá má, en hann stendur aftast.
4
Heimilispósturinn
Áfram Ísland í Mörk
Valdi bauð upp á léttar veitingar til að gæða sér á yfir leiknum.
Íslenski fáninn var uppi víða um húsið.
Heimilispósturinn
5
Skynjunargarður á Ási
Finna fyrir öryggi í svona garði
H
afinn er undirbúningur að uppbyggingu skynjunargarðs í Ási en verkefnið er í samvinnu iðjuþjálfunar og garðrykjudeildarinnar.
Heilabilun felur í sér aukna erfiðleika við að túlka umhverfið, eiga samskipti og stundum einnig skilning á eigin hugsunum og reynslu. Á sama tíma minnkar getan til að hugsa óhlutbundið. Þá getur verið gott að geta átt góða stund í skemmtilegu og rólegu umhverfi utandyra. Virkja skynfærin; sjón, ilm, heyrn og skyn. Gerðar hafa verið rannsóknir um gildi svokallaðra skynjunargarða. Yvonne Westerberg iðjuþjálfi í Stokkhólmi gerði eina slíka. Hún tók viðtöl við fólk með heilabilun sem heimsótti skynjunargarðinn við Sabbatsbergs sjúkrahúsið í Stokkhólmi. Helstu niðurstöður voru þær að viðmælendurnir fundu fyrir öryggi í garðinum, þeir upplifðu sig frjálsa og náðu því að vera í augnablikinu. Þau tjáðu sig einnig um aukna hæfni og framtíðardrauma. Draumarnir geta verið árstíðabundnir og geta til dæmis verið tilhlökkunin við að sjá kirsuberjatrén blómstra næsta sumar. Yvonne fullyrðir að garðurinn veiti þeim eldri aukin lífsgæði. Þau hafi oftast fleiri minningar tengdar sveitinni og nátturinni en við gerum í dag. Skynjunargarðurinn veiti þeim tíma og rúm til að minnast liðins tíma. Blómstrandi plöntur og gosbrunnur Hugmyndin með skynjunargarði er að skapa afmarkað svæði þar sem plöntuval og skipulag er sérstaklega miðað að því að örva skynfæri okkar. Í því skyni er sóst eftir að velja í garðinn blómstrandi plöntur til að fá liti og ilm, einnig er hægt að setja plöntur sem hafa ákveðna áferð þannig að þær henti til snertingar fyrir þá sem hafa skerta sjón. Plöntur sem bera ávöxt laða að fugla og annað dýralíf. Í skynjunargarði er tilvalið
6
Heimilispósturinn
Skynjunargarður á Ási að koma fyrir gosbrunni eða tjörn og rennandi vatn. Listaverk og jafnvel lítil útisvæði til tónlistarflutnings henta einstaklega vel í svona garð. Garðurinn þarf að vera aðgengilegur fyrir alla þannig að áhersla er lögð á að þeir sem eru í hjólastólum eða eiga erfitt um gang eigi greiða leið um garðinn. Hönnun skiptir miklu máli í svona garði. Það þarf að gera ráð fyrir tilgangi hvers svæðis fyrir sig þannig að hægt sé að vinna markvisst með ákveðin verkefni varðandi skynjun. Stígar þurfa að leiða þann sem heimsækir garðinn áfram á milli svæða sem hvert veitir ólíka upplifun. Hægt er að skilja svæði að með gróðri eða girðingum. Mikilvægt er að hafa starfsfólk sem hefur þekkingu, bæði á plöntum og hvernig vinna skal með svona garð. Notagildi skynjunargarðs er margþætt. Ekki eingöngu að hann sé nýttur sem partur af meðferðarúrræðum innan heimilis eins og Áss, heldur má gefa sér að hann nýtist til kennslu fyrir skóla og að almenningur muni hafa gaman af því að heimsækja hann og skoða.
Fanney Björg Karlsdóttir iðjuþjálfi og Pétur Reynisson skrúðgarðyrkjumeistari.
Heimilispósturinn
7
Sólskinsklúbburinn á Grund
Í
Gleði og söngur
nokkur ár hafa heimilismenn verið í Sólskinsklúbb sem er sérsniðinn fyrir þá sem eru með minnisskerðingu. Unnið er útfrá hugmyndafræði sem heitir Lífsneisti en höfundur er Jan Verity iðjuþjálfi og fjölskylduráðgjafi. Hver hópur kemur saman í átta skipti og í hverjum hóp eru 6-8 manns. Í klúbbnum er leitast við að vekja upp og draga fram persónuleika hvers og eins með gleði, söng, leikjum og spjalli. Litrík föt eru einkennandi, fylgihlutir eins og skrautlegar slæður og hattar og lagt uppúr hafa stundina sem notalegasta.
Lagt er uppúr því að hafa kaffiborðið litríkt og notalegt.
8
Heimilispósturinn
Sólskinsklúbburinn á Grund
Ragnheiður Haraldsdóttir og Guðlaug Sigurgeirsdóttir njóta stundarinnar.
Heimiliskonurnar Ásta Kristjánsdóttir og Borghildur Thors.
Heimilispósturinn
9
Samvinnuverkefni í Bæjarási
Nemendur og heimilismenn settu niður sumarblóm og kartöflur
S
ú hefð hefur skapast að nemendur í sjöunda bekk grunnskólans í Hveragerði koma á vorin og aðstoða heimilismenn í Bæjarási við að setja niður kartöflur og sumarblóm. Heimsókn krakkanna er ávallt tilhlökkunarefni og heimilismenn skipuleggja hana og taka á móti ungmennunum. Eftir að heimilismenn og nemendur hafa hjálpast að við garðverkin er boðið upp á grillaðar pylsur og tilheyrandi.
Börn úr 7. bekk gunnskólans aðstoða við að gróðursetja í Bæjarási.
10
Heimilispósturinn
Samvinnuverkefni í Bæjarási
Og auðvitað voru grillaðar pylsur þegar útiverkum var lokið.
Heimilispósturinn
11
Hjólað óháð aldri
Hjólað um Laugardal og farið á kaffihús
N
ýlega var farið í hjólaferð á vegum verkefnisins „Hjólað óháð aldri“ og farið var frá Mörk hjúkrunarheimili. Þáttakendur voru níu og lagt var af stað uppúr hádegi. Ferðin gekk vel og heimiliskonurnar Sif, Gréta og Hulda voru allar ánægðar með hjólatúrinn. Hjólað var í Laugardalinn og í gegnum Grasagarðinn og Húsdýragarðinn. Vel var tekið á móti hópnum og allir ánægðir. Endað var í kaffi hjá Bakarameistaranum í Glæsibæ. Sesselja hjólastjóri hjá „Hjólað óháð aldri“ stýrði för og Heiðrún sjúkraþjálfari var tengiliður við Mörk. Stefnt er að annari hjólaferð seinna í sumar.
Hópurinn að leggja af stað í leiðangurinn.
12
Heimilispósturinn
Hjólað óháð aldri
Það er frábært að fara út og njóta nærumhverfisins.
Fylgst með selunum en hjólað var gegnum Fjölskyldu og húsdýragarðin.
Heimilispósturinn
13
Prjónaði „tuttlara“ og gaf á Vegamót
E
Elskar kindur og gamalt fólk
inn morguninn birtist Elsa Rut Jóhönnudóttir með fangið fullt af svolítið sérstökum grifflum eða „tuttlurum“ sem hún gaf Grund. Þær eru handgerðar af henni og með öngum hér og þar og allskonar útúrdúrum. Grifflurnar eru sérstaklega fyrir fólk með minnissjúkdóma. Elsa Rut Jóhönnudóttir vinnur á næturvöktum á Litlu og Minni Grund og samstarfsfélagarnir gera stundum grín að því þegar hún mætir með stóru hannyrðatöskuna sína en taskan fylgir henni hvert sem hún fer. „Ég fæ iðulega að heyra hvort ég sé að flytja þegar ég mæti með hana en málið er að ég þarf alltaf að hafa eitthvað milli handanna ef ég á lausa stund. Þá líður mér vel.“
Elsa á sínum uppáhaldsstað í sveitinni.
14
Heimilispósturinn
Prjónaði „tuttlara“ og gaf á Vegamót Lærði að prjóna fimm ára Elsa rakst á hugmynd að þessum „tuttlurum“ á netinu og hún átti fullt af afgangsgarni svo hún ákvað að prófa. Auk þess sem hún prjónar heilmikið, þá heklar hún líka og spinnur. „Ég lærði að prjóna þegar ég var fjögurra eða fimm ára og fyrstu verkin voru ílangir treflar sem ég prjónaði handa frændum mínum. Amma mín var mikið fyrir útsaum og ég fékk aukagarnið og prjónaði treflana með garðaprjóni.“ Alin upp hjá ömmu og afa Þó Elsa sé uppalin í Kópavoginum þá er hún sveitastelpa í anda. Hún byrjaði að fara á Strandirnar þegar hún var fimm ára því þar á hún skáfrænda eins og hún orðar það, í Árneshreppi. Þangað fer hún ávallt í sauðburð og leitir. „Ég vinn líka næturvaktir í sauðburði eins og ég vinn á næturna á Grund, það á bara langbest við mig. Það er þessi stóíska ró sem hvílir yfir öllu á nóttunni, kyrrðin sem mér finnst svo notaleg. Og að vera með kindunum er frábært. Ég er næturrotta.“ Kindur líkar mannfólkinu Kindur eru í miklu uppáhaldi hjá henni. „Þær eru bara eitthvað svo steiktar og líkar okkur mannfólkinu. Þær eru gráðugar, frekar, miklir eiginhagsmunaseggir og gera nákvæmlega það sem þeim dettur í hug. Ef maður segir þeim að gera eitthvað getur maður verið viss um að þær geri eitthvað annað.“ Elsa á kindina Elsu og svo hefur hún skírt kind í höfuðið á ömmu sinni Grétu því hún skilur ekki þessa rolluáráttu Elsu. Kindin Gréta er hinsvegar ekki lengur á meðal oss, segir Elsa. En stofninn hefur verið að stækka. Nýlega bættust við tvær lambgimbrar og hún segist líka hafa eignað sér eitt lamb í viðbót. Heimilispósturinn
15
Prjónaði „tuttlara“ og gaf á Vegamót Handspunnið band af mínum kindum Elsa prjónar á vini og vandamenn og svo hefur hún selt húfur úr handspunnu garni uppi í sveit og líka handspunnið garn. „Mér finnst mjög gaman að spinna gróft og á tröllarokki. Ég er einmitt að safna mér fyrir slíkum rokk. Útlendingar eru voða hrifnir af tröllahúfunum mínum. Það væri óskastaða að geta selt handspunnið band frá mínum kindum og látið fylgja með miða með fróðleik um kindina í leiðinni. Kannski næ ég að gera það einn daginn.“ Eldar á mánudögum fyrir vikuna Þegar ég spyr hana hvort áhugamálin séu fleiri og hvort hún hafi t.d. gaman af því að elda fer hún að skellihlæja. „Nei mér finnst hryllilega leiðinlegt að elda og tímafrekt. Ég elda á mánudögum og þá fyrir vikuna. Ég eldaði t.d. á mánudaginn hakk og svo borða ég það í tortillum alla vikuna. Það er bara einn réttur sem mér finnst gaman að elda og það er pastauppskrift sem ég fékk hjá mömmu.“ Og við sleppum Elsu auðvitað ekkert með þetta og fölumst eftir uppskriftinni sem er ekkert mál. Hún fylgir með hér aftast. Elsa segist reyndar alltaf þrefalda eða fjórfalda uppskriftina svo hún endilst sér fram í vikuna. Búvísindi og drullubolti En hún áhugamál fyrir utan prjónaskapinn, handavinnuna og kindurnar. Henni finnst rosalega gaman að taka þátt í drullubolta um verslunarmannahelgina í Ásneshreppi. „Mitt lið hefur unnið búningakeppnina tvö ár í röð og við ætlum að halda því áfram.“ Hún segist vera stórskrítin, elska kindur og gamalt fólk og hafa gaman af prjónaskap og drullubolta. En það er er ekki eins og hún láti þar við sitja því meðfram vinnunni stundar hún nám í búvísindum frá Hvanneyri. „Ég útskrifaðist sem búfræðingur frá Hvanneyri árið 2011 og svo ákvað ég að læra búvísindi líka. Ég fer mér þó hægt og tek námið eins og ég get með öðru sem ég er að gera. En ég er líklega hálfnuð núna.“ 16
Heimilispósturinn
Prjónaði „tuttlara“ og gaf á Vegamót
Ætlaði að vinna í sex mánuði en er hér enn Ætlar þú svo að verða bóndi einn daginn? „Þegar ég var lítil var ég harð ákveðin í því en svo varð ég raunsærri. Ætli ég verði ekki landbúnaðarráðunautur eða vinni við eitthvað í þá veru þegar að því kemur. Þá horfi ég á aðra gera það sem mig langar í raun til að gera í lífinu.“ Og svo kemur sígilda spurningin um hvernig þér líki í vinnunni á Grund? „Upphaflega kom ég og ætlaði að vinna á Grund í sex mánuði en hér er ég enn nokkrum árum síðar. Segir það ekki allt sem segja þarf?“
Heimilispósturinn
17
Prjónaði „fiktgrifflur“ og gaf á Vegamót Fjölskyldupastað hennar Elsu 1-2 laukar niðurskornir 1 bréf skinka 1 dós niðursoðnir tómatar 1 stór dós af tómatpúrra ½ l rjómi Svartur pipar Hvítlauksduft Oregano Timian Tagiatelle 12-14 hreiður Laukurinn er mýktur á pönnu, skinka skorin í bita og sett út á pönnuna og síðan tómatarnir, púrran og rjóminn. Kryddað eftir smekk. Pastað soðið. Pastað sett í eldfast mót, sósan yfir og ostur efst. Bakað í ofni við 180 gráður uns rétturinn er orðinn fallega brúnn eða í um hálftíma. Borið fram með hvítlauksbrauði og kóki en það er lykilatriði segir Elsa.
18
Heimilispósturinn
Blómskrúð á Ási
Í
Heimilisfólk velur sumarblóm
gróðurhúsum Áss eru ræktuð sumarblóm fyrir Grund, Mörk og Ás og þegar sumarblómin koma breytir allt um lit. Heimilisfólkið kemur og velur sér blóm til að gróðursetja við húsin sín og það er auðvitað misjafnt hvað hverjum og einum finnst fallegt. Sumir vilja hafa litskrúðugt á meðan aðrir kjósa að hafa potta eða beð stílhrein. Það er einmitt svo skemmtilegt að leyfa fjölbreytninni að njóta sín. Snorri, Una og Bragi.
Garðyrkjumeistarinn Pétur aðstoðar Hjördísi.
Heimilispósturinn
19
Skemmtilegar heimsóknir í Mörk
Þ
Húni fær athygli allra
að vekur alltaf mikla kátínu þegar eigendur koma með hundana sína til vinnu, svo ekki sé nú talað um ef það eru hvolpar. Hún Barbara Ösp Ómarsdóttir, sem vinnur á 2. hæð, kíkir stundum með Skellu í vinnuna sem bróðir hennar á. Skella hefur auðsjáanlega mikinn áhuga á tónlist því þegar það var verið að syngja á 1. hæðinni um daginn ákvað Skella að skella skollaeyrum þegar Barbara vildi fara aftur upp á 2. hæð og hún sat sem fastast og hlýddi andaktug á það sem fram fór. Sjálf á Barbara lítinn maltese hvolp, Húna, sem er þriggja mánaða. Hann er nýlega farinn að koma í vinnuna með henni. Hvolpurinn fær mikla athygli hvar sem hann kemur og stefnan er að hann fái fasta vinnu með tímanum í Mörk.
Sigríður Thors heimiliskona á Miðbæ naut stundarinnar með vini sínum.
20
Heimilispósturinn
Skemmtilegar heimsóknir í Mörk
Barbara kynnir Húna fyrir S. Huldu Þorkelsdóttur heimiliskonu á Réttarholti.
Skella hlustaði andaktug á sönginn og lét eins og hún heyrði ekki þegar kallað var á hana.
Heimilispósturinn
21
Systur úr Svarfaðardal búa á Grund
S
Giftust báðar prestum
ysturnar Dagbjört G. Stephensen og Jóna M. Snævarr eru fæddar á Sökku í Svarfaðardal, Jóna árið 1925 og Dagbjört árið 1927. Þær segjast þakklátar fyrir æskuna, ólust upp hjá yndislegum foreldrum, Gunnlaugi Gíslasyni og Rósu Þorgilsdóttur og komu úr fimm systkina hópi. Þorgils bróðir þeirra er á lífi og býr á Sökku en tvíburasystir Dagbjartar, Halldóra er látin og fósturbróðir þeirra, Halldór, einnig. Þær segja það forréttindi að hafa fengið að alast upp á Sökku og eiga fallegar og góðar minningar þaðan.
Jóna og Dagbjört segja ekki undan neinu að kvarta á Grund.
Jóna flutti að heiman þegar hún giftist eiginmanni sínum sr. Stefáni Snævarr og hann var þjónandi prestur á Völlum. Einn daginn kom þangað í læri til Stefáns nemi í guðfræðideild, Þórir Stephensen. Dagbjört kom í heimsókn til systur sinnar og unga fólkið kynntist. Þórir varð síðar eiginmaður Dagbjartar. Systurnar 22
Heimilispósturinn
Systur úr Svarfaðardal búa á Grund eru því báðar prestfrúr. Árin liðu og systurnar bjuggu hvort í sínum landshlutanum en héldu alltaf sambandi eins og vera ber. Búa á sama gangi Síðari ár hafa þær verið í meira sambandi en þegar þær voru yngri og nú búa þær báðar á Grund, í herbergjum á sama gangi. Þær spila saman vist á fimmtudögum og sitja ávallt saman til borðs á matmálstímum. Þær kíma þegar ég spyr hvort aldrei slettist upp á vinskapinn eins og stundum gerist á bestu bæjum. Hvorug vill kannast við það, þær segjast lifa í sátt og samlyndi. Og þeim líkar vel að búa á Grund, eru sammála um að þar sé ekki undan neinu að kvarta.
Systurnar spila saman alla fimmtudaga.
Heimilispósturinn
23
Konukvöld á Ási
Heimiliskonur með tískusýningu
K
onukvöld var haldið í fyrsta sinn á Ási nú fyrir nokkru og er óhætt að segja að það hafi slegið í gegn. Fullt var út að dyrum af glæsilegum konum úr hópi heimilismanna og starfsmanna. Boðið var upp á fordrykk við innganginn og svo rak hver viðburðurinn annan. Heimiliskonur og starfskonur sýndu saman fatnað úr verslun Áss undir kynningu Kristínar Aðalsteinsdóttur. Unnur Birna Björnsdóttir, sem er barnabarn Unnar Baldvinsdóttur heitinnar heimiliskonu, og unnusti hennar Sigurgeir Skapti Flosason fluttu nokkur lög og spiluðu á fiðlu og gítar. Þá söng Berglind María Ólafsdóttir nokkur lög en hún er dóttir Steinunnar Gísladóttur heimilisstýru í Bæjarási. Að lokum stjórnuðu hjónin Ingunn María Guðjónsdóttir og Guðleifur W. Guðmundsson fjöldasöng af mikilli röggsemi. Fanney Björg Karlsdóttir, iðjuþjálfi á Ási, segir að án efa verði konukvöld sem þetta að árlegum viðburði en nú sé hinsvegar næsta skref að halda karlakvöld og er verið að leita að sjálfboðaliðum til að skipuleggja það. Arnfríður Gunnarsdóttir var meðal þeirra sem tóku þátt í tískusýningunni.
24
Heimilispósturinn
Konukvöld á Ási
Guðrún Hallgrímsdóttir heimiliskona sýnir nýjan fatnað úr versluninni.
Elísabet og Ólöf Fríða skála fyrir konukvöldinu.
Heimilispósturinn
25
Sólardagar nýttir vel í Mörk
Dreypt á sérrí og sagðar sögur
S
ólardagarnir fram til þessa hafa ekki verið margir en þegar sólin hefur náð að brjóta sér leið hefur heimilisfólk og starfsfólk nýtt tækifærið og verið sem mest utandyra. Þessar myndir voru teknar einn slíkan dag í Mörk. Þá voru sólhattar dregnir fram, sérríflaska opnuð og boðið upp á ís og allskonar fínheit.
G. Kolbrún Jónsdóttir heimiliskona á Hugheimum naut sín í sólinni.
26
Heimilispósturinn
Sólardagar nýttir vel í Mörk
Sigurlaug, Davíð, Helga J. Hulda, Helga Þ, Lára og Ingunn kunnu að meta sólina.
Kristín og Sigríður gæða sér á sérrístaupi með kaffinu, svona í tilefni dagsins.
Heimilispósturinn
27
Nýjung á Grund
N
Handanudd um allt hús
ýlega fór starfsfólk Grundar á námskeið hjá nuddurunum Guðleifu Ellerts og Veru Blouir sem leiðbeindu hvernig hægt er að skapa notalega stund með einföldu handanuddi og ilmolíum. Starfsfólkið á Grund hreifst af nuddinu og fjárfest var í ilmolíulömpum og fleiru sem þarf til að búa til svona stundir. Heimilisfólk kann svo sannarlega að meta nuddið og starfsfólkið nýtur stundanna ekkert síður.
Þórður Örn Sigurðsson heimilismaður fær notalegt handanudd frá Supannee starfsmanni á A2.
28
Heimilispósturinn
Nýjung á Grund
Jónas Ásmundsson lætur sér líða vel í nuddi hjá Elsu.
Shalee nuddar hér Þórarinn Indriðason heimilismann.
Heimilispósturinn
29
Fóstbræður sungu fyrir fullum sal
Í
Fyrrum félagi söng með
áraraðir hafa Fóstbræður haft fyrir sið að koma á Grund og halda tónleika. Þegar þeir komu fyrir nokkru bar svo við að heimilismaðurinn Geir Tómas Reynisson var á tónleikunum en hann söng með Fóstbræðrum hér á árum áður. Kórstjórinn og kórfélagar vildu endilega fá hann til liðs við sig í hátíðasalnum og söng Geir Tómas með kórnum en hann var tæplega 102 ára þegar tónleikarnir voru haldnir. Það þarf vart að taka fram að hátíðasalurinn var stappfullur og stemningin engu lík en allt húsið ómaði af þessum frábæru karlaröddum sem kórinn skipa.
Hér er Geir Tómas Reynisson fyrir miðju að syngja með Fóstbræðrum.
30
Heimilispósturinn
Gleði og kærleikur í Mörk
R
Vinkonur í ljúfum dansi
eglulega kemur Markarbandið og heldur dansleik í Mörk og þá er dansað við ljúfa harmonikkutóna. Hér er hún G. Lilja Benediktsdóttir leiðbeinandi að dansa við Sigurvaldísi G. Lárusdóttur heimiliskonu á Miðbæ.
Vinkonurnar Guðrún Lilja Benjamínsdóttir og Sigurvaldís G. Lárusdóttir.
Heimilispósturinn
31
Safnað fyrir hjóli
S
Bökuðu kleinur og seldu
tarfsmenn og heimilismenn á Ási hafa tekið höndum saman og og hrundið af stað söfnun til að geta fest kaup á svokölluðu „Christaniabikes“ og komast þannig í hópinn „Hjólað óháð aldri.“ Verkefnið byggir á því að rjúfa einangrun og auka lífsgleði heimilismanna á hjúkrunarheimilum með því að gefa þeim kost á að fara út að hjóla.
Heimilisfólk var spennt fyrir verkefninu eins og mátti sjá á afrakstri bakstursins.
Á Ási er stemmning fyrir þessu verkefni og margir til í að leggja sitt af mörkum til að þetta geti orðið að veruleika. Þannig varð kleinudagurinn til. Stór hópur heimilismanna kom saman í Vesturási og allir hjálpuðust að við að fletja út, skera og snúa í kleinur. Það var aldeilis handagangur í öskjunni og einn heimilismanna hafði að orði að stemningin hafð verið eins og á síldarplönunum í gamla daga. Kleinurnar voru síðan seldar á opnu húsi sem hópurinn efndi til. 32
Heimilispósturinn
Safnað fyrir hjóli Svanur Þorsteinsson, hjólari úr Kópavogi, heiðraði Ás með nærveru sinni og fræddi um það hvernig hjólið hafði nýst á hjúkrunarheimilum víða um land. Mörk hafði lánað hjólið austur og bauð Svanur systkinunum Aldísi og Valdimar Hafsteinsbörnum í prufutúr um bæinn. Það er gaman að segja frá því að margir hafa lagt söfnuninni lið og lagt inn á reikning. Sem dæmi má nefna að Hveragerðisbær styrkti söfnunina um 100.000 kr. Kvenfélagið í Hveragerði gaf 200.000 kr. í söfnunina og Pétur Reynisson garðyrkjustjóri á Ási gaf tvær ljósmyndir sem Elfa Dögg í Frosti og Funa keypti á 30.000 krónur. Að auki styrkti fyrirtækið Arnverk söfnunina um 25.000 kr. og Lionskonur um 50.000 krónur.
Svanur Þorsteinsson hjólagarpur bauð systkinunum Aldísi og Valdimar í prufutúr um bæinn.
Heimilispósturinn
33
Molar úr fortíðinni
Á
Gekk til altaris og læknaðist
rið 1945 varð það blaðamál þegar Gísli Gíslason frá Hjalla, heimilismaður á Grund, fékk lækningu meina sinna eftir að hafa hlýtt á ræðu í útvarpsmessu og einnig gengið til altaris fyrr um morgunin hjá heimilispresti Grundar, Sigurbirni Ástvaldi Gíslasyni. Gísli hafði gengið við hækju og staf á þriðja tug ára og varð alheill. Fingur sem höfðu verið krepptir inn í lófann réttust. Í grein Morgunblaðsins segir að læknar sem hafi skoðað gamla manninn eftir að hann varð heill kunni engar skýringar á þessu undarlega fyrirbrigði.
Í fundargerðarbók elliheimilisins frá 11. nóvember 1945 segir svo: „Þá skýrði forstjóri ennfremur frá lækningu Gísla Gíslasonar frá Hjalla í Ölfusi sem gerðist 7. Fyrra mánaðar með svo skyndilegum hætti. Þessi maður hefur gengið við hækjur árum saman, hafði tvo kreppta fingur inn í lófa og sár (exem) á fæti. Þessi örkuml mannsins hurfu skyndilega sunnudaginn 7. október er hann hlýddi á úvarpsmessu séra Árna Sigurðssonar, en Gísli hafði einnig verið til altaris hjá séra Sigurbirni Ástvaldi 34
Heimilispósturinn
Molar úr fortíðinni Gíslasyni um morguninn. Ennfremur brá svo við eftir þetta að sjón hans, sem verið hafði lengi döpur lagaðist mjög og lesnú Gísli gleraugnalaust mjög auðveldlega, en áður hafði hann notað gleraugu.“ Gísli var lengi ökumaður hjá þvottahúsinu Geysi og gekk við hækju og staf eftir að hann fékk berkla í mjöðmina fyrir þá rúmlega tuttugu árum. Hann hafði lengi verið heimilismaður á Grund og átt bágt með gang. Í Morgunblaðinu segir að eftir að hann læknaðist gangi hann hækju og staflaus en stingur örlítið við þar sem annar fóturinn er styttri en hinn. Það var eins og fyrr kom fram séra Árni Sigurðsson sem messaði þann 7. október í útvarpinu. Blindur maður var herbergisfélagi Gísla og þeir voru að hlýða á messuna. Sá blindi bað Gísla að hækka í útvarpinu og Gísli staulaðist til að hækka og heyrir hann þá að presturinn er að tala um að Jesú hafi læknað lamaða. Vissi Gísli ekki fyrr til en hann gekk óstuddur og gat rétt úr krepptu fingrunum á vinstri hendi. Í Morgunblaðinu stendur að liðinn sé mánuður frá atburðinum og Gísli hafi það gott. Það eina sem menn vita segir þar er að maðurinn var lamaður en er nú alheill.
Heimilispósturinn
35
Hátíðasalurinn á Grund
Bauð upp á tónleika í minningu konunnar sinnar
Þ
að var stappað útúr dyrum í hátíðasal heimilisins fyrir skömmu þegar heimilismaðurinn Kristján A.S. Jónsson bauð til tónleika til minningar um eiginkonu sína Eyþóru Elíasdóttur sem lést á Grund árið 2017. Það voru stórsöngvararnir Sigrún Hjálmtýsdóttir, Bergþór Pálsson og Gissur Páll Gissurarson sem sungu við undirleik Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur píanóleikara og húsið ómaði af þessum dásamlega söng á aðra klukkustund. Takk, hjartanlega fyrir tónleikana, Kristján.
Kröftugur söngurinn ómaði um allt húsið.
36
Heimilispósturinn
Hátíðasalurinn á Grund
Diddú og Bergþór fóru á kostum og skemmtu sér líka vel.
Í lokin þakkaði Kristján söngfólkinu og undirleikara fyrir frábæra stund.
Heimilispósturinn
37
Sala íbúða gengur mjög vel
Tvö hundruð manns á biðlista
U
ndanfarnar vikur hafa nýjar íbúðir við Suðurlandsbraut 68 – 70 rokið út eins og heitar lummur. Nú er svo komið að búið er að selja 73 af 74 íbúðum og þegar er flutt inn í um það bil 40 íbúðir. Þó að búið sé að úthluta 73 íbúðum þá eru enn rúmlega 200 manns á biðlista eftir íbúð. Að sögn Gísla Páls Pálssonar framkvæmdastjóra ÍEB ehf í Mörkinni stendur lokafrágangur seinni hluta framkvæmdanna yfir og verða íbúðir við Suðurlandsbraut 70 afhentar frá og með 10. júlí næstkomandi. Tengigangur, veitingaaðstaða og félagsrými verður tilbúið í byrjun ágúst mánaðar. Frágangur á garði er á lokastigi og unnið verður að mótun hljóðmanar og þökulögn hennar á næstu vikum, það er að segja þegar og ef það minnkar eitthvað úrkoman. Gísli Páll segir að framkvæmdin hafi í alla staði gengið mjög vel og verktakinn, ÞG verk ehf, hafi staðið sig framúrskarandi vel. Sama má segja um hönnuði en aðalhönnuðir eru arkitektar Glámu Kím ehf. Stefnt er að formlegri vígslu nýju íbúðanna og tengdri aðstöðu fimmtudaginn 16. ágúst.
38
Baðherbergin eru mjög rúmgóð.
Heimilispósturinn
Sala íbúða gengur mjög vel
Íbúðirnar í Mörkinni eru mismunandi að stærð.
Heimilispósturinn
39
Hafa veturseti í Ásahreppi
Hænunum fagnað í Bæjarási
Þ
egar vorar mæta hænurnar í Bæjarás. Þær hafa nefnilega vetursetu í Ásahreppi en um leið og dag tekur að lengja koma þær heim í hænsnahöllina í Bæjarási. Heimilisfólk hefur gaman af því að fylgjast með lífinu í hænsnahöllinni og sjá hversu mörg eggin eru þegar farið er að vitja þeirra.
Allir vildu fá að klappa hænunni Stroku þegar hún kom heim.
40
Heimilispósturinn
Hafa veturseti í Ásahreppi
Sóley Rós, Fanney og Karl Stefánsson taka á móti hænunum.
Heimilispósturinn
41
Hjalti A. Jóhannesson íbúi í GM
Í
Sýnir sjaldgæft Kórónusafn og hlaut verðlaun nýlega
sumar var haldin samnorræn frímerkjasýning Nordia í Garðabæ. Einn af þeim sem var með á sýningunni var Hjalti Auðunn Jóhannesson sem býr í þjónustuíbúðum Grundar Markarinnar. Hann hlaut verðlaun fyrir ramma sína af stimplum á frímerkjum og uppsetningu þeirra.
Fallegir stimplar og sjaldgæfir Hjalti byrjaði að safna í kringum 1980. „Þá fór ég að kaupa og safna póststimplum og nokkrum árum síðar fór ég að sýna þáverandi safnið mitt. Ég fékk leyfi sem lærlingur og sýndi fyrsta árið fimm sinnum, á Húsavík, í Chicago, Færeyjum, Stokkhólmi og Ósló. Árið 1988 öðlaðist ég svo réttindi til að sýna á heimsvísu.“ Hann segir að það sé fokdýrt að kaupa stimplana og sýna víðsvegar um heim. En allar götur frá því hann hlaut réttindi hefur hann farið og sýnt víða um heim. En hversvegna er hann að þessu? „Þetta er annað safnið mitt sem ég á núna, allt sjaldgæfir íslenskir kórónustimplar. Þetta eru fallegir stimplar, kóróna með póstlúðri og bæjarnafni fyrir ofan í 42
Heimilispósturinn
Hjalti A. Jóhannesson íbúi í GM boga. Það eru allir sem hrífast af þeim. Svo eru þeir sjaldgæfir þessir stimplar. Það eru margir sem byrja að safna þeim en gefast upp því það er svo erfitt að fá inn í safnið. Ég hélt ég myndi aldrei ná í svokallaðan ramma en nú á ég fimm ramma sem þýðir um 80 blöð og mörg hundruð merki. Ég á til dæmis 47 póstsendingar, bréf, kort og eina póstskýrslu frá Djúpinu, frá Unaðsdal innst í Djúpi við Kaldalón. Kórónustimplarnir voru teknir í notkun hér á landi árið 1894 og voru mest notaðir til ársins 1903 en þá komu tölustimplar.“ Fyrsta safnið sem Hjalti eignaðist var svokallað Postal history safn en það seldi hann þegar hann byrjaði að safna kórónustimplunum. Tekur þetta mikinn tíma? „Já það verð ég að viðurkenna. Hér áður fyrr, á meðan ég var í fullri vinnu, tók þetta allan tíma sem ég átti aukalega. Í dag stússast ég eitthvað í þessu daglega og er núna að fá aðstoð við að þýða upplýsingarnar yfir á ensku. En þetta er bara svo gaman.“
Kórónustimplarnir eru mjög sjaldgæfir og margir sem gefast upp á að safna þeim.
Heimilispósturinn
43
Grundarkór á faraldsfæti
Á
Vortónleikar í Grindavík
vordögum hélt Grundarkórinn í kórferðalag til Grindavíkur þar sem dvalarheimilið Víðhlíð var heimsótt og þar hélt kórinn tónleika fyrir fullum sal af fólki. Að tónleikum loknum var boðið upp á kaffi og meðlæti sem allir gerðu góð skil og á meðan var spjallað við heimilisfólkið í Víðihlíð. Það er skemmtilegt að segja frá því að þarna hitti Erna Sigurbaldursdóttir, kórfélagi, mágkonu sína sem býr í Víðihlíð. Farin var Krísuvíkurleiðin til baka og að sögn kórfélaga var gaman að sjá Kleifarvatn. Það hittist þannig á, að þegar hópurinn átti þar leið hjá, var verið að taka upp kvikmynd. Síðast en ekki síst þá var það Valdís Viðarsdóttir sem sá svo hópnum fyrir fróðleik á meðan á akstrinum stóð. Hún rakti sögu Grindavíkur, spjallaði um Tyrkjaránið og um einsetumanninn í Krísuvík.
Grundarkórinn söng fyrir heimilisfólk í Víðihlíð.
44
Heimilispósturinn
Grundarkór á faraldsfæti
Guðlaug Pétursdóttir, Áslaug Ásmundsdóttir, Ólöf Hafsteinsdóttir aðstandandi, Guðrún (Dúna) Eyjólfsdóttir, Elín Björnsdóttir aðstandandi og starfsmaður Grundar og Guðrún Hulda Guðmundsdóttir.
Jóna Kristjánsdóttir, Sigurður Jóhann Kristjánsson, Hjördís Ólafsdóttir og Sigmundur Indriði Júlíusson.
Heimilispósturinn
45
Blóm á svalir í Mörk
Ingunn blómakona gróðursetur
S
umir heimilismenn bíða þess með óþreyju að fá sumarblómin frá Ási í Mörk og heimiliskonan Ingunn Eyjólfsdóttir er mikil blómakona. Hún nýtur þess að stússast í moldinni og gera svalirnar á Langholti fallegar með blómskrúði.
Ingunn Eyjólfsdóttir er með græna fingur og nýtur þess að gróðursetja.
46
Heimilispósturinn
Til umhugsunar
Ekki biðja mig að muna Ekki biðja mig að muna, Móða hylur ævi langa. Í hvíld og ró vil hjá þér una Með hönd í lófa og koss á vanga. Veikin þyngri en tárum taki, Týnd og döpurm, horfið minni. Bæn mín er að börn mín vaki Blessi mig með nálægð sinni. Andleg veiki alla þreytir; ekki skammast, gráta, blóta. Örlögunum enginn breytir, Enn er hægt að lifa og njóta. Munið hversu mjög ég þrái Mildi ykkar, ást og hlýju, Þar til Drottinn himinhái Heim mig flytur enn að nýju. Þýðing Hörður Björgvinsson
Heimilispósturinn
47
Gróðurkassi við Litlu Grund
S
Kryddjurtir og jarðarber
vanhvít Hannesdóttir, heimiliskona á Litlu Grund, hefur gaman af því að vinna að vinna í moldinni. Hér er hún við gróðurkassann sem stendur við Litlu Grund að setja niður myntu og sítrónumelissu. Nú eru í kassanum nokkrar aðrar kryddplöntur líka sem og jarðarber. Heimilismenn fylgjast með vextinum í sólarleysinu og einhverjir læða upp í sig laufi af og til til að smakka og sjá hvernig bragðast.
Svanhvít Hannesdóttir heimiliskona að hugsa um kryddjurtirnar á Litlu Grund.
48
Heimilispósturinn