Skip to main content

Heimilispósturinn - júlí 2017

Page 1

HEIMILISPÓSTURINN Heimilisblað Grundar, Áss og Markar 53. árgangur

júlí 2017

2. tölublað


Efnisyfirlit Heimiliskona stóð bökunarvaktina með starfsstúlkum...................... 3 Kepptu í boccia.......................................................................................... 4 Ljóðskáld á Grund................................................................................... 5 Hitti ástina sína á Ráðhústorginu ......................................................... 6 Að gleðja eldri kynslóðina................................................................... 10 Hvaða sumarblóm má bjóða þér?.......................................................... 12 Hvalfjörðurinn aldrei fallegri........................................................... 14 Heimalningarnir vöktu kátínu.............................................................. 16 Boðið upp í söng og dans....................................................................... 17 Fátt sem jafnast á við að vasast með hendur í moldinni................... 18 Æfingar fyrir fingur............................................................................. 21 Blöðrur, pylsur og sápukúlur og börnin ljómuðu.......................... 22 Ég hef bara alltaf verið syngjandi...................................................... 24 Kisa og kruðerí vekja kátínu................................................................. 26 Ákveðið að kaupa kýr úr Dölunum....................................................... 28 Elsta konan í hópnum 98 ára................................................................. 30 Sjá um að maturinn sé fallega fram borinn....................................... 32 Hefði verið ómögulegt að skilja Lenu mína eftir............................... 34 Blómarós í Langholti............................................................................. 36 Heimiliskona les fyrir hópinn............................................................... 37 Boðið í grillaðar pylsur eftir púlið.................................................... 38 Fallegt umhverfi og fín hreyfing........................................................ 40

Forsíðumyndina tók Steinunn Svanborg Gísladóttir af Herði Hjartarsyni sem er í dagdvöl í Bæjarási og Gunnari Hlíðdal kennara í Hveragerði. Ritstjóri: Guðbjörg R. Guðmundsdóttir. Hönnun og uppsetning: Írena Dögg McCabe. Prentun: GuðjónÓ. Upplag: 1500. 2 Heimilispósturinn


Vöfflubakstur á Grund

Heimiliskona stóð bökunarvaktina með starfsstúlkum

A

f og til eru bakaðar vöfflur með kaffinu á Grund. Fyrir nokkru var það heimiliskonan Guðlaug sem stóð vaktina og líka þær Marlena, Jóna og Eyrún. Allar sáu þær til þess að heimilisfólk, starfsfólk og gestir á Litlu og Minni Grund gætu gætt sér á rjúkandi vöfflum með sultu og rjóma. Samvinna, samvera og notalegt er það sem kemur upp í hugann þegar horft er á þessa dásamlegu mynd.

Guðlaug, Marlena, Jóna og Eyrún við vöfflubakstur.

Heimilispósturinn

3


Lið frá ási á landsmóti umfí50+

Á

Kepptu í boccia

s sendi eina sveit til að keppa í boccia á Landsmóti UMFÍ 50+, sem haldið var í Hveragerði helgina 23. 25. júní. Sveitina skipuðu Ásgerður Sigurbjörnsdóttir, Árni Guðmundsson, Ævar Halldór Kolbeinsson og Guðrún V. Hallgrímsdóttir. Sveitin mætti fjórum sterkum liðum og nældi í sigur gegn Garðabæ. Stærsti sigurvegarinn er auðvitað sá sem sigrast á sjálfum sér og gefur sig allan í keppnina sem liðsmenn gerðu svo sannarlega. Þau voru öll sammála um að þetta hafi verið skemmtileg reynsla og að þau hafi notið sín í botn, eins og Árni orðar það. Ævar sagði að þátttakan hafi verið meiri virði en árangurinn og þau myndu öll fara aftur ef tækifæri gæfist.

Grétar sjúkraþjálfari, Árni, Ásgerður, Ævar og Rúna.

4

Heimilispósturinn


Lið frá ási á landsmóti umfí50+

Sveitin sem mætti frá Ási mætti fjórum sterkum liðum.

Ljóðskáld á Grund

H

eimiliskonan Guðlaug Pétursdóttir orti eftirfarandi vísu um daginn þegar hún sat með vinum sínum á Grund.

Það er gott að búa á Grund Og hvíla sig um stund. Ég er gömul kona Ja ég segi nú bara svona.

Heimilispósturinn

5


Minni Grund

Hitti ástina sína á Ráðhústorginu

Í

júní árið 1930 fæddist lítið stúlkubarn í Norðfjarðarsveit, Sigrún Jóhanna Þorleifsdóttir. Hún er alin upp á Neskaupsstað en nítján ára lagði hún land undir fót og fór með vinkonum sínum til Noregs að freista gæfunnar. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir heimsótti hana. „Við vorum þrjár vinkonur sem ákváðum að leita á vit ævintýra í Noregi og höfðum samband við sendiráðsritarann í Ósló sem þá var Harald Kröyer. Hann sagði okkur bara að koma og ég fór í vist fyrstu mánuðina til hans og Ragnheiðar konu hans. Guðríður fór á norskt heimili og Anna til Gísla Sveinssonar þáverandi sendiherra Íslands í Noregi. Við vorum í vist og lærðum málið.“ Vann á Grand hótelinu í Ósló

Heimiliskonan Sigrún Jóhanna Þorleifsdóttir.

Eftir nokkra mánuði fóru þær heim til Íslands, Anna og Guðríður, en Sigrún varð eftir. „Jónína Sæborg var búsett í Ósló á þessum árum og bauð okkur unga fólkinu frá Íslandi oft til sín á sunnudögum og öllum bauð hún svo heim 17. júní. Þar kynntist ég íslenskri stelpu, Maddý og við urðum góðar vinkonur. Við fengum vinnu á Grand hótelinu á Karli Jóhanni í Ósló og unnum þar saman í svona hálft ár þangað til við ákváðum að fara til Danmerkur. Mig hafði lengi langað til að fara í skóla og fékk svo inni á lýðháskóla í Danmörku en þurfti að læra dönskuna fyrst. Því héldum við bara til Kaupmannahafnar og fórum að leita okkur að vinnu. Það var lítið að hafa og við lásum reglulega atvinnuauglýsingar í dönsku blöðunum en vorum alltaf aðeins of seinar. Þegar við vorum orðnar verulega blankar þá sjáum við auglýsingu þar sem 6

Heimilispósturinn


Minni Grund starfsfólk vantaði í vinnu á elliheimili í Ordrup sem er í útjaðri Kaupmannahafnar. Við drifum okkur að sækja um og fengum báðar vinnu.“ Heim með Gullfossi „Svo er það einn daginn að Jón Pétursson dýralæknir og vinur Maddýar ákveður að hitta okkur og vin sinn Jóhann Friðjónsson í Kaupmannahöfn. Þar hitti ég Jóhann minn í fyrsta sinn. Hann stundaði nám í arkitektúr við háskólann í Gautaborg en kom semsagt til Kaupmannahafnar að hitta Jón.“ Sigrún og Jóhann skrifuðust á eftir þessi kynni í Kaupmannahöfn og hittust þegar þau gátu tekið sér frí frá náminu því Sigrún var komin í lýðháskóla í Hillerød á Sjálandi. Hún undi hag sínum afskaplega vel í lýðháskólanum. Þar var hún ásamt þremur öðrum íslenskum konum, Svölu Nielsen, Hervöru Hólmjárn og Elsu Grundvig. „Þetta var ógleymanlegt. Þarna vorum við fjórar íslenskar stelpur að læra og skemmta okkur ásamt 150 dönskum stelpum.“ Eftir að sumarskólanum lauk þurfti hún að

Jóhann og Sigrún á góðri stundu.

Heimilispósturinn

7


Minni Grund vinna því nú var hugurinn farinn að leita heim til Íslands. „Ég átti ekki fyrir fargjaldinu heim og fékk því vinnu á radíóverkstæði á meðan ég safnaði fyrir fari með Gullfossi.“ Lífið er stundum undarlegt „Fyrst eftir að ég kom til landsins bjó ég hjá systur minni og svo var ég stundum fyrir austan en þar bjuggu foreldrar mínir. Ég fékk með tímanum vinnu í Austurbæjarapóteki og vann þar í þrjú ár en síðan bauðst mér starf í Reykjavíkurapóteki og þar vann ég lungann af minni starfsævi eða í 41 ár. Það var ómetanlegur vinnustaður, starfsfólkið yndislegt, engin stéttaskipting og ég hætti ekki þar fyrr en ég var komin á aldur.“ Það dró smám saman úr sambandinu við Jóhann þegar Sigrún kom heim til Íslands og eins og hún orðar það svo fallega, „leiðir okkar lágu ekki saman um langan tíma.“ Jóhann gekk í hjónaband í Svíþjóð og eignaðist þar fimm börn með sænskri eiginkonu sinni. Sigrún segist hafa stundað böllin og

Sigrún ásamt vinkonu sinni Hervöru sem hún kynntist í lýðháskólanum í Danmörku og annari vinkonu, Steineyju. Myndin er tekin í skálanum við húsið sem Sigrún og Jóhann bjuggu í.

8

Heimilispósturinn


Minni Grund samkvæmislífið en aldrei hitti hún neinn mann sem jafnaðist á við Jóhann. „Lífið er stundum svo undarlegt,“ segir Sigrún og bætir nú við. „Einn daginn, mörgum árum eftir að leiðir okkar Jóhanns skildu hitti ég hann aftur og þá á Loftleiðum. Hann er þá að flytja heim og skilinn við sænsku eiginkonuna. Það varð ekki aftur snúið hjá okkur og eftir þessa endurfundi vorum við saman upp á hvern dag. Við eignuðumst ekki börn en hann átti auðvitað börn í Svíþjóð sem við vorum í sambandi við.“ Reistu sér hús í Grafarvogi Þau gengu í hjónaband árið 1969 og Sigrún segir að þau hafi átt vel skap saman. Þau leigðu fyrst á Óðinsgötu og keyptu sér íbúð á Hverfisgötu 121 en reistu sér svo látlaust hús í Grafarvoginum að Hesthömrum 10. Jóhann teiknaði húsið fyrir þau og við húsið var falleg sólstofa og þau nostruðu við garðinn. „Við ferðuðumst innanlands og til útlanda, réðum saman krossgátur, spiluðum og lásum fyrir hvort annað. Síðustu árin sem Jóhann var á lífi vorum við virk með Korpúlfunum í Grafarvogi sem er selskapur aldraðra.“ Það reyndist Sigrúnu þungbært þegar Jóhann lést úr krabbameini árið 2005. „Það var hryllilega erfitt en vinir mínir í Korpúlfum héldu vel utan um mig og hvöttu mig til að koma og vera með í félagsstarfinu.“ Hún býr nú á Minni Grund og er sátt með að eyða ævikvöldinu þar. „Það er gott að vera á Grund og starfsfólkið er afskaplega notalegt og hugsar vel um mig. Ég er næstum blind svo úr því sem komið er, er ég alveg sátt á Minni Grund. Systursonur minn, Steinar Logi Hilmarsson, hugsar vel um mig og ég heyri alltaf reglulega í Dísu, dóttur Jóhanns sem býr i Gautaborg og einnig öðrum skyldmennum og vinum.“

Heimilispósturinn

9


Heimsóttu Mörk

U

Að gleðja eldri kynslóðina

rður, Alex, Alda og Íris eru stelpur úr 10. bekk í Langholtsskóla. Þær fengu valfrjálst verkefni í skólanum og ákváðu að gleðja aðra. Úr varð verkefnið: Að gleðja eldri kynslóðina. Þessar fræknu stelpur komu í Mörk í vor, opnar og glaðlegar með kræsingar sem þær höfðu bakað og hefðu alveg eins átt heima í fermingarveislu. Marengsterta, pönnukökur, sjónvarpskaka, skinkuhorn, skúffukaka, muffins og margt fleira. Þær spjölluðu við fólkið á meðan þær sögðu frá sér og fræddust um gamla tíma. Þær tóku síðan stutt viðtöl við tvo einstaklinga. Óhætt er að segja að markmiðið, að gleðja fólkið okkar, hafi svo sannarlega tekist.

Hólmfríður, Davíð, Þóra, Ingunn, Hanna Rún, Birna og Ingþór bragða á bakkelsi.

10

Heimilispósturinn


Heimsóttu Mörk

Hanna Rún, Birna, Urður og Ingþór að spjalla og njóta veitinganna.

Alda, Alex, Ingunn, Davíð, Hólmfríður, Þóra, Íris og Hanna Rún.

Heimilispósturinn

11


Heimilisfólk í Ási

Hvaða sumarblóm má bjóða þér?

U

ndanfarin ár hefur sú hefð skapast á Ási að í byrjun júní hefur fólk tækifæri til að velja sér þau sumarblóm sem það kýs að hafa fyrir utan heimili sín og á tröppunum.

Flestir eiga sín uppáhaldsblóm sem oftar en ekki eru tengd einhverjum minningum, þá er beðið um hádegisblóm, flauelisblóm, stjúpur, fjólur, dalíur o.s.frv. Aðrir þekkja ekki nöfnin á blómunum en nánast allir hafa skoðun á því hvaða blóm þeim þykja fallegust. Þær Kolla og Fanney í iðjuþjálfuninni í Ási segja að ýmist gróðursetji svo fólkið sjálft eða fái aðstoð til þess en allir sjá um að vökva sumarblómin sín. Þetta er skemmtileg hefð sem gert hefur mikla lukku í blómabænum Hveragerði.

Rúna með fallegu blómunum sínum.

12

Heimilispósturinn


Heimilisfólk í Ási

Friðrik og Signý.

Dalía hjá Signýju.

Fallegt blómaker hjá Þóru.

Heimilispósturinn

13


Sumarferð Grundarkórsins

Þ

Hvalfjörðurinn aldrei fallegri

egar vorar ár hvert fara kórfélagar í Grundarkórnum að velta fyrir sér hvert hægt sé að fara í ferðalag. Að þessu sinni nefndu heimilismenn að það væri nú gaman að keyra Hvalfjörðinn, hann væri svo fallegur. Ákveðið var að halda tónleika fyrir heimilismenn á hjúkrunarheimilinu Höfða á Akranesi. Lagt var af stað í hellidembu, í gegnum göngin og upp á Akranes. Eftir tónleika var opnað út og blasti þá við þetta dásamlega veður, sól og blíða. Boðið var upp á dýrindis veitingar og borðuðu sumir utandyra og aðrir inni. Jón Ólafur tók upp harmonikkuna og lék ýmis lög eftir kaffið. Þær Auður Inga og Guðrún Lára gátu ekki á sér setið og dönsuðu á meðan Jón þandi nikkuna. Á heimleiðinni var ekið um Hvalfjörðinn. Voru kórfélagar á einu máli að ekki hefðu þeir áður ekið í öðru eins blíðviðri um fjörðinn góða. Það þarf ekki að taka fram að það var sungið báðar leiðir og andrúmsloftið létt og skemmtilegt.

Hvalfjörðurinn skartaði sínu fegursta.

14

Heimilispósturinn


Sumarferð Grundarkórsins

Kórinn söng ýmis lög fyrir viðstadda.

Heimilisfólkið að Höfða kunni vel að meta tónleikana.

Heimilispósturinn

15


Heimilismenn í Bæjarási fóru í sveitaferð

Heimalningarnir vöktu kátínu

H

ún Aldís Þórunn starfsmaður í Bæjarási ákvað að bjóða nokkrum heimilismönnum í sveitaferð til að njóta góða veðursins á dögunum. Þau stoppuðu á leiðinni og fengu sér ís og síðan var auðvitað verið að dást að þessum yndislegu heimalingum sem voru heimsóttir. Svona dagar eru eðal.

Pálrún (Pallý) með heimalninginn.

Sveitaferðin tókst auðvitað með eindæmum vel.

16

Heimilispósturinn


Lék á píanó fyrir gesti og gangandi

Ó

Boðið upp í söng og dans

lafur Ingimundarson var nýverið í hvíldarinnlögn á 5. hæðinni í Mörk. Hann kom stundum niður á fyrstu hæðina og lék þá gjarnan á píanóið ljúfa tóna fyrir gesti og gangandi. Píanóleikurinn hafði margvísleg áhrif á viðstadda. Til dæmis eitt skiptið þegar hann lék Love me tender sá Ragnhildur G. Hjartardóttir hjúkrunarstjóri sér leik á borði og bauð vinkonu sinni og heimiliskonunni Þórunni Guðnadóttur upp í dans.

Heimilispósturinn

17


Allir með lykil að sólskálanum

Fátt sem jafnast á við að vasast með hendur í moldinni

H

ann er iðulega á stuttbuxunum, með hundinn sinn Dalíu, að vasast við gróðurhúsið í Mörk nú eða heima hjá sér þar sem hann er með lítinn skika og sinnir plöntunum sínum af alúð. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir heimsótti Sigurð Helgason lífefnafræðing sem býr í einni af þjónustuíbúðum Grundar Markarinnar við Suðurlandsbraut. Áhuginn kom smám saman „Ég hef svo gaman af ræktuninni og fátt sem jafnast á við að stinga höndunum í mold, gróðursetja og horfa svo á plönturnar vaxa og dafna. Mér finnst tilfinningin einstök og nýt þess fram í fingurgóma að stússast í þessu.“ En Sigurður segist ekki alltaf hafa haft græna fingur. „Við hjónin bjuggum fyrst á Reykjanesi

Sigurður er með fjölda af plöntum á veröndinni sinni.

18

Heimilispósturinn


Allir með lykil að sólskálanum og þar ræktaði ég nú fátt en þegar við fluttum í bæinn var húsið með ófrágenginni lóð og þá byrjaði ég að bauka við þetta með samþykki annarra íbúa. Þeir sáu um að slá grasið og ég var í beðunum. Það var svo þegar við fluttum á Laugarvatn að ég hafði til umráða gróðurhús og þá kom áhuginn fyrir alvöru.“ Þegar Sigurður flutti í Mörk tók hann eftir því að gróðurhúsið á lóðinni stóð að mestu ónotað. Hann kom að máli við Gísla Pál, forstjóra í Mörk, og spurði hvort Sigurður og Dalía í sólskálanum. hann mætti bauka eitthvað í gróðurhúsinu. Gísli Páll hélt það nú. „Síðan kom Jóhanna Magnúsdóttir með fræðsluerindi um ræktun og gaf okkur góð ráð.“ Sigurður segist ekki einn sinna ræktun og gróðurhúsinu því auk sín séu nokkrar konur mjög áhugasamar og með græna fingur. Ýmsar plöntur fáum við úr Ási „Með tímanum hafa málin þróast þannig að nokkrar konur í þjónustuíbúðunum sjá um upphækkuðu beðin við gróðurhúsið og ég sinni að mestu blómaræktun í gróðurhúsinu. Margt sem hér er ræktað kemur frá Pétri Reynissyni garðyrkjufræðingi sem vinnur hjá heimilunum Ási, Grund og Mörk. Hann gaukar að okkur plöntum og gefur okkur ráð. Ég hef svo sem prófað ýmislegt en í ár er ég bara með litskrúðugar sumarplöntur, ekki ennþá vínvið en við erum nokkur sem látum okkur dreyma um að prófa að vera með okkar eigin vínber. Nú erum við komin með rafmagnshitara og það breytir miklu og veitir okkur möguleika að leika okkur meira með ræktun á veturna líka. “

Heimilispósturinn

19


Allir með lykil að sólskálanum Fékk skika við íbúðina sína En Sigurður lætur sér ekki nægja að vera í gróðurhúsinu að potast. Hann samdi við Gísla Pál um að fá skika við húsið sitt til að rækta plöntur og svo hefur hann sett niður blóm víða um sameignina líka. Konan hans, Guðrún Matthíasdóttir, sem lést fyrir skömmu bjó í liðlega tvö ár á hjúkrunarheimilinu Mörk, nánar tiltekið á heimilinu Álfheimum, og þar var Sigurður daglega og oft bæði morgna og kvölds. „Það má segja að Álfheimar hafi verið annað heimili mitt og starfsfólk og heimilisfólk orðnir vinir mínir. Ég fékk að aðstoða þar við að planta á báðar svalirnar og naut þess að gera það áfram þó konan mín væri látin. Ég kíki líka alltaf af og til í heimsókn í Álfheima þó það sé ekki daglegt brauð eins og var þegar Guðrún var á lífi.“ Sumir koma reglulega og fylgjast með gróðrinum En hvernig er lífið í gróðurhúsinu? Eru íbúar duglegir að kíkja við og fylgjast með þessu fallega blómskrúði? „Sumir koma reglulega en allir íbúar í þjónustuíbúðunum hafa sinn lykil. Fólk sem er að pútta kemur stundum og sest hér niður og svo hafa einhverjir komið og fengið sér einn kaldan hérna inni. Ég mæli eindregið með að íbúarnir komi við hérna og njóti þess að sitja innan um litskrúðugar plönturnar.“

20

Heimilispósturinn


Léttar leikfimiæfingar

Æfingar fyrir fingur 1. Réttið upp og beygið þumalfingur til skiptis.

2. Hristið hendur eins og verið sé að hrista af sér vatn.

3. Þrýstið saman þumalfingri og hinum fingrunum en einum í einu, þ.e. þumalfingri og litlafingri, þumalfingri og baugfingri, þumalfingri og löngutöng og þumalfingri og vísifingri.

4. Teygið handleggi fram, snúið lófum upp og niður á víxl, snúið um úlnlið.

5. Smellið saman fingrum.

Heimilispósturinn

21


Leikskólahátíð í Mörk

Blöðrur, pylsur og sápukúlur og börnin ljómuðu

B

örn frá leikskólanum Steinahlíð komu í Mörk, þann 30. júní á sérstaka leikskólahátíð. Krakkarnir fengu blöðrur sem þau skemmtu sér með heillengi. Það þarf ekki mikið til.

Þau sungu skemmtileg lög eins og Gamli Nói, Dúkkan hennar Dóru, Bátasmiðurinn, Draumahöll, Vertu til og svo mörg mörg fleiri. Þau voru búin að teikna skemmtilegar myndir sem þau gáfu heimilisfólki, einhverjir tóku þær upp á heimili en nokkrar voru hengdar upp í matsalnum á 1. hæð. Að söng loknum bauð Valdi kokkur þeim upp á pylsur og frostpinna í tilefni sumars en þau söknuðu grjónagrautsins –svo vanaföst eru blessuð börnin. Áður en þau fóru fengu þau síðan sápukúlur í sumargjöf.

Börnin fengu pylsur og Kristín Inga heimiliskona fékk sér með þeim.

22

Heimilispósturinn


Leikskólahátíð í Mörk

Gaman saman hjá börnum og íbúum og blöðrurnar vöktu kátínu.

Kristín Inga heimiliskona skemmti sér vel með börnunum.

Heimilispósturinn

23


Söngfugl í sumarvinnu á Grund

Ég hef bara alltaf verið syngjandi

J

ökull Sindri Gunnarsson vinnur í sumar við umönnun í austurhúsinu á Grund og hann er sannkallaður söngfugl. Frá því hann var lítill gutti hefur hann elskað að syngja. Það fréttist fljótt í vinnunni að það væri kominn söngmaður á svæðið og hann var fenginn til að syngja við messu í hátíðasal heimilisins nú í júní. Forstjóri heimilisins, Guðrún B. Gísladóttir, hlýddi á hann syngja við guðsþjónustuna og bað hann að lokinni messu að syngja á afmælishátíð heimilisins, en þann 29 október næstkomandi fagnar Grund 95 ára afmæli.

Fetað í fótspor föðurins En hefur Jökull sungið frá því hann man eftir sér? „Ég var í Drengjakór Reykjavíkur frá því ég var sjö ára og þangað til ég lauk grunnskólanáminu. Undanfarin fimm ár hef ég svo verið að læra söng í Söngskóla Sigurðar Demetz og verið í óperukór skólans en faðir minn Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari 24

Heimilispósturinn


Söngfugl í sumarvinnu á Grund er skólastjóri skólans.“ Jökull hefur því ekki langt að sækja söngáhugann og hann segir að móðir sín, Ólöf Hulda Breiðfjörð, hafi ekki lært söng en sé einnig með fallega rödd. „Ég á tvo bræður, yngri og eldri en þeir hafa ekki þennan brennandi áhuga á söng. Hjá mér var þetta eitthvað sem kom að sjálfu sér, ég hef bara alltaf verið að syngja.“ Erfitt en gefandi starf En hvernig líkar þér að vinna á Grund? „Mér finnst umönnun mjög erfitt starf en það er líka gefandi og þegar ég fer heim í lok dags þá finnst mér ég hafa gert gagn. Á þessum stutta tíma sem ég hef unnið hér hef ég líka lært mjög mikið. Ég hef verið að kynnast heimilisfólkinu betur, spila t.d. oft við heimiliskonuna Elísabetu þegar ég á lausa stund. En ég er ekkert flinkur við allt í umönnuninni, er t.d. frekar slakur í að aðstoða karlana við rakstur en það eru allir þolinmóðir Jökull og Sigurjón heimilismaður á góðri stund. og ég er að læra þetta.“ Taugasálfræði eða læknisfræði? Jökull er búinn með þrjú ár í MH og segir að eins og staðan er núna höfði taugasálfræði eða læknisfræði til hans. „Ég hef mjög mikinn áhuga á heilastarfseminni og finnst mjög gaman að lesa mér til um taugasálfræði. Ef það verður áfram áhugamál prófa ég kannski að fikra mig áfram í þá átt þegar ég er búinn að ljúka stúdentsprófinu.“

Heimilispósturinn

25


Leikjanámskeið í samstarf við Bæjarás

B

Kisa og kruðerí vekja kátínu

æjarás er í sumar í samstarfi við leikjanámskeið kallað ævintýranámskeið sem er á vegum Hveragerðisbæjar. Börnin koma í heimsókn annað slagið í sumar. Hörður Hjartarson hefur tekið að sér að gefa þeim eitthvað gott í gogginn. Árni Guðmundsson sem er í dagdvöl í Bæjarási hitti langafastrákinn sinn þegar börnin komu síðast í heimsókn og þá var nú kátt í höllinni.

Árni Guðmundsson hitti langafastrákinn sinn.

26

Heimilispósturinn


Leikjanámskeið í samstarf við Bæjarás

Kisa vekur alltaf lukku hjá börnunum.

Hörður Hjartarson býður uppá góðgæti.

Heimilispósturinn

27


Molar úr fortíðinni úr fundargerðum

Ákveðið að kaupa kýr úr Dölunum 29. mars 1925 - 21. fundur Rætt var um að kaupa kýr handa Elliheimilinu og hefur það mál áður borið á góma. Formaður skýrði frá að hann vissi um kýr er stæðu til boða vestur í Dalasýslu og var honum falið að grennslast nánar um verð þeirra og gæði. Talað um hænsnahald fyrir heimilið. 19. apríl 1925 - 22. fundur Formaður skýrði frá kúakaupamálinu og lét þess getið að kýrnar kostuðu um 500 krónur hver, komnar til Borgarness og myndu verða fluttar í júní ef Elliheimilið gengi að þessum kjörum og greiddi andvirði við móttöku. Nefndin fól formanni að fastráða kúakaup þessi. Rætt var um að byggja eða leigja fjós ef til kæmi og um útvegun á heyi handa kúnum án þess að nokkur ákvörðun væri tekin til fullnustu. 6. júní 1925 - 23. fundur Formaður skýrði frá að kýrnar yrðu fluttar til Borgarness í veg fyrir SS suðurland þann 23. Þ.m. Ráðgert var að einhver nefndarmanna færi upp í Borgarnes með skipinu til að sjá um flutning þeirra suður og greiðslu andvirðisins. Buðust þeir til þess gjaldkeri og ritari. 6. september 1925 - 26. fundur Gjaldkeri skýrði frá heykaupum sem þegar væru gerð og gjöra þyrfti. Þá var talað um fjósbyggingu eða að leigja fjós og varð sú niðurstaða að leigja fyrst um sinn hjá frk. Hólmfríði Gísladóttir fyrir kýrnar. 15. apríl 1923 - 6. fundur Hinn 15. apríl 1923 hélt stjórnarnefndin fund í Ási heimili Sigurbjörns. Allir nefndarmenn voru á fundi, líka Páll Jónsson 28

Heimilispósturinn


Molar úr fortíðinni úr fundargerðum sem hafði verið fjarverandi fra 26. okt. f.ár. Þessar samþykktir voru gjörðar. 1. Að útvega bifreið handa þeim gamalmennum sem vilja fara til kirkju á sumardaginn fyrsta. 2. Haraldi Sigurðssyni falið að útvega Harmonium hið fyrsta, eins ódýrt og hægt er. 3. Kaupa tvo samskotabauka hjá dansk P. handel í Kbh, annan á 20 krónur og hinn á 40 krónur Var Haraldi Sigurðssyni falið að panta þá. 4. Að breyta nafni hælisins og kalla það „elliheimilið Grund“. Fundargerðin upp lesin, fundi slitið. S. Á. Gíslason, Har. Sigurðsson, Júl. Árnason, Flosi Sigurðsson og Páll Jónsson.

Heimilispósturinn

29


Kvennahlaup í Ási

Elsta konan í hópnum 98 ára

N

ýlega var efnt til kvennahlaups í Ási. Það er gaman að segja frá því að fremst í flokki í því hlaupi gekk hún Kristrún Sigurfinnsdóttir og hún er jafnframt elsta konan sem fór ,,kirkjuhringinn“, 98 ára gömul. Eftir upphitun var klappað og sungið fyrir utan hjúkrunarheimilið og svo var farinn hinn sígildi kirkjuhringur og til baka. Eftir afhendingu verðlaunapeninga bauð Eyjólfur matreiðslusnillingur upp á ís.

Upphitun, Guðrún Lilja, Steinunn, Steinunn Gísla og Minný.

30

Heimilispósturinn


Kvennahlaup í Ási

Sigrún hjúkka, Rúna og Fríða.

Hópurinn sem tók þátt í kvennahlaupinu í Ási.

Heimilispósturinn

31


Sumarstarfsfólk

Sjá um að maturinn sé fallega fram borinn

M

orgunstund er samverustund fyrir heimilismenn Grundar sem haldin er í hátíðasal alla virka morgna. Þangað koma yfirleitt einhverjir gestir með fyrirlestra, fræðslu, hljóðfæraleik, söng eða glens. Einn morgun í júní voru það ungar konur sem komu í heimsókn og tróðu upp. Önnur lék á píanó og hin söng. Þetta voru stöllurnar Laufey Snorradóttir og Rakel Guðjónsdóttir. Þær eru sumarstarfsmenn á Litlu og Minni Grund.

Stöllurnar Rakel og Laufey undirbúa kaffið.

Finnst gaman að koma fram „Við höfum verið vinkonur frá því við vorum á leikskóla og búum í Grafarholti“, segir Laufey en þær fréttu af vinnunni á Grund í gegnum móður hennar, Rósu Einarsdóttur, sem er deildarstjóri á Grund. Rakel hefur æft á píanó frá því hún var 32

Heimilispósturinn


Sumarstarfsfólk sex ára og Laufey verið í nokkrum söngskólum. Þær hafa skemmt með skólunum sínum og komið fram sem vinkonur líka. Þegar það fréttist að þær kæmu fram saman var hann Pétur Þorsteinsson prestur og umsjónarmaður morgunstundarinnar ekki lengi að biðja þær um að syngja og spila í morgunstund. Heimilisfólk svo þakklátt og jákvætt Þær eru bara hressar með sumarstarfið, segja heimilisfólkið svo jákvætt, þakklátt og notalegt. „Við reynum að breyta til og hafa morgunverðarhlaðborðið og kaffiborðið freistandi“ segir Rakel. „Þetta er bara skemmtileg vinna og við setjumst svo niður með fólkinu þegar við fáum tíma til og spjöllum og bjóðum því jafnvel í stutta göngutúra með okkur eða út á bekk til að spjalla.“

Laufey, Bjarni heimilismaður og Rakel.

Heimilispósturinn

33


Kisa flutti með heimiliskonu í Mörk

Hefði verið ómögulegt að skilja Lenu mína eftir

Þ

egar heimiliskonan Guðbjörg Jakobsdóttir flutti í Mörk fyrir skömmu flutti kisan hennar þangað líka. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir heimsótti þær.

Guðbjörg Jakobsdóttir fékk upp í hendurnar lítinn kettling fyrir fimmtán árum, hana Lenu. Þær hafa síðan búið saman tvær í Breiðholtinu og unað hag sínum vel. Fyrir skömmu var komið að því að Guðbjörg þyrfti að flytja á hjúkrunarheimili vegna veikinda og þá var spurningin hvað yrði um Lenu. „Ég gat ekki hugsað mér að skilja hana eftir og kannaði hvort eitthvert hjúkrunarheimili myndi vilja taka við okkur báðum.“ Í Mörk var þeim tekið opnum örmum. „Ég hefði orðið alveg ómöguleg ef hún hefði ekki getað flutt með mér.“ Kúrir til fóta Þær eru sáttar með nýja heimilið sitt og Guðbjörg segir að auðvitað líði Lenu best inni á herberginu þeirra en hún fari líka fram og kanni þar nánasta umhverfið. Á nóttunni kúrir hún svo ávallt til fóta hjá Guðbjörgu. Hún segir starfsfólkið hugsa mjög vel um kisu, hreinsa eftir hana úr sandinum án þess að hún þurfi nokkrum sinnum að nefna það og svo veit Lena ekkert betra en að fá soðinn fisk og það er auðsótt mál. Starfaði við umönnun

Guðbjörg starfaði lengi við umönnun, lengst í Skógarbæ en líka í Seljahlið. Hún þekkir því vel til þeirra verka sem starfsfólkið í Mörk þarf að inna af hendi. „Starfsfólkið hér er mjög gott og sinnir sínu starfi afskaplega vel. Það er létt og kátt andrúmsloftið 34

Heimilispósturinn


Kisa flutti með heimiliskonu í Mörk hér á heimilinu og mér líður bara mjög vel og okkur báðum.“ Dæturnar búsettar í Bandaríkjunum Guðbjörg á tvær dætur, Margréti og Rakel, sem báðar eru búsettar í Bandaríkjunum. „Margrét býr með sinni fjölskyldu rétt fyrir utan Boston og þar rekur hún kaffihús. Rakel býr aftur á móti í Virginiu og hefur aðallega verið í því að ala upp börn.“ Guðbjörg segir að þær komi stundum í heimsókn hingað til lands og jafnvel stundum eitthvert barnabarnanna með þeim en þau eru orðin fimm talsins. „Ég sakna þeirra auðvitað en svona er lífið bara.“

Lena er sátt með nýja heimilið sitt í Mörk.

Heimilispósturinn

35


Gróðursett á svölum í Mörk

Á

Blómarós í Langholti

sumrin fáum við fullt af fallegum blómum úr gróðurhúsum okkar í Ási til að setja í ker og potta á svölum og við húsið. Það er alltaf gaman þegar heimilisfólk er með í að gera fallegt á svölum heimilianna. Hér eru myndir af heimiliskonunni Ingunni Eyjólfsdóttur sem sá um að setja blómin í potta á heimilinu Langholti, sem er á fjórðu hæðinni í Mörk.

Ingunn Eyjólfsdóttir sem býr í Langholti í Mörk aðstoðaði við gróðursetninguna.

36

Heimilispósturinn


Upplestur í Ási

Heimiliskona les fyrir hópinn

H

ún Pálína Snorradóttir les stundum fyrir þá sem koma í vinnustofuna í Ásbyrgi. Hvað er notalegra en að hlusta á skemmtilegan upplestur og dunda sér í leiðinni við að gera eitthvað í höndunum? Svo taka þau sér auðvitað pásu og fá sér kaffi og köku.

Heimiliskonan Pálína Snorradóttir les fyrir gesti og gangandi í Ásbyrgi.

Heimilispósturinn

37


Nemendur aðstoða við vorverkin

Boðið í grillaðar pylsur eftir púlið

Á

hverju vori koma nemendur frá grunnskólanum í Hveragerði og aðstoða heimilisfólk með að setja niður grænmeti og sumarblóm. Í þetta sinn voru það nemendur úr 7. bekk sem mættu og aðstoðuðu við vorverkin. Á eftir var boðið upp á grillaðar pylsur og stóð Hörður Hjartarson vakt við grillið en hann er í dagdvöl í Bæjarási. Samstarfið hefur ætíð gengið vel þessi ár sem krakkarnir hafa komið og bæði nemendur og heimilisfólk notið stundarinnar.

Heimilisfólk, nemendur og starfsfólk hjálpuðust að með gróðursetninguna.

38

Heimilispósturinn


Nemendur aðstoða við vorverkin

Hér undirbúa heimilismenn jarðveginn.

Eftir allt puðið buðu heimilismenn í pylsupartý.

Heimilispósturinn

39


Púttvöllurinn í Mörk

Fallegt umhverfi og fín hreyfing

H

eimiliskonan Ólöf Ragnarsdóttir var úti á velli að pútta þegar okkur bar að garði rétt fyrir hádegið einn sólríkan sunnudag nú fyrir skömmu. Hún kvaðst vera að ljúka við annan hringinn sinn en furðaði sig á því að fleiri skyldu ekki vera á púttvellinum að njóta veðurblíðunnar þennan morguninn. Systir hennar, Bára Ragnarsdóttir, sem býr í þjónustuíbúðunum, fer stundum með henni hring. Ólöf segir þetta góða hreyfingu og að það sé nauðsynlegt að komast sem oftast út undir bert loft.

Ólöf Ragnarsdóttir á púttvelli Grundar - Markarinnar.

40

Heimilispósturinn


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Heimilispósturinn - júlí 2017 by Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili - Issuu