Skip to main content

Heimilispósturinn - júní 2016

Page 1

HEIMILISPÓSTURINN Heimilisblað Grundar, Áss og Markar 52. árgangur

júlí 2016

2. tölublað


Efnisyfirlit Ekkert voðalega hress með snyrtinguna............................................. 3 Gáfu Grund tvær spjaldtölvur............................................................. 4 Fannst gaman að kynna sér útskurð hjá heimilismanni...................... 5 Maturinn vinsælasta umræðuefnið........................................................ 6 EM stofan í Mörkinni................................................................................ 7 Barnabörn stofnandans tóku fyrstu skóflustunguna..................... 8 Við eignuðumst fjölskyldu á Grund.................................................... 10 Spjallið í vinnunni leiddi til brúðkaups............................................... 14 Herrarnir skeggræða lífsins gang og njóta sólarinnar................ 15 Börnin alltaf velkomin.......................................................................... 16 Hafa haldið skátafundi í meira en sjötíu ár........................................ 18 Hjónin skruppu í Grasagarðinn........................................................... 20 Heimiliskonan Gréta reddaði klippingunni hennar Lilju................... 21 Skilti við gróður í garði Grundar - Markarinnar............................. 22 Rölt á kaffihús........................................................................................ 23 Gáfu Grund heimili sitt.......................................................................... 24 Vinnustaðurinn farinn að smitast inn í ljóðagerðina........................ 25 Kaffisamsæti og kórsöngur................................................................. 26 Elskaði að vera heimavinnandi og hugsa um börnin.......................... 28 Hafa spilað félagsvist í áratugi........................................................... 32 Heimiliskonur sáu um eldamennskuna................................................. 34 Priklað í stærri potta............................................................................ 35 Keypti slá en gleymdi kaffinu............................................................... 36 Guðjón með sveinsstykkið sitt............................................................. 38 Vökvað í sumarblíðunni.......................................................................... 39 Starfsfólk og heimiliskonur í Ási tóku þátt...................................... 40 Fögnuðu 70 ára brúðkaupsafmæli....................................................... 41 Stundum er lífið óútreiknanlegt......................................................... 42 Ilmandi timian og sítrónumelissa í garði Grundar............................ 45 Gengu saman Leggjabrjót.................................................................... 46 Vetur kvaddur........................................................................................ 48 Forsíðumyndina tók Steinunn Svanborg Gísladóttir af heimiliskonunni Súsönnu Vilhjálmsdóttur í Bæjarási sem er að knúsa hann Kút. Ritstjóri: Guðbjörg R. Guðmundsdóttir Hönnun og uppsetning: Kjartan Örn Júlíusson Prentun: GuðjónÓ Upplag: 1500 2 Heimilispósturinn


Hnoðri fer til dýralæknis

H

Ekkert voðalega hress með snyrtinguna

noðri, heimiliskötturinn í Bæjarási, þurfti að heimsækja dýraspítalann á dögunum. Fyrir utan venjubundið eftirlit, þá var feldurinn á honum kominn í flækju og því þurfti að snyrta hann. Hnoðri var ekki glaður með þessa aðgerð, enda ekki svipur hjá sjón á eftir eins og sést á myndunum.

Heimilispósturinn

3


Heimilismenn læra á iPad

Gáfu Grund tvær spjaldtölvur

R

ebekkustúka númer 1, Bergþóra innan Oddfellowreglunnar gaf Grund nýlega tvær spjaldtölvur sem notaðar verða með margvíslegum hætti í starfi með heimilisfólki. Nú er hægt að sýna heimilisfólki myndir frá heimahögunum, fara á netið og gera fólki kleyft að fylgjast með fólkinu sínu á síðum samfélagsmiðla, eins og facebook, instagram og twitter. Þá er hægt að kenna fólki að leggja kapal í spjaldtölvu og starfsfólk hefur nú möguleika á að afla sér fróðleiks um hin ólíklegustu efni og nota í minningavinnu og við spurningar og spjall. Oddfellowstúkunni, Rebekkustúku númer 1, eru færðar bestu þakkir fyrir gjöfina.

Ekki amalegt að vera í handavaxi og horfa á ljósmyndir í spjaldtölvunni.

4

Heimilispósturinn


Börn starfsmanna tíðir gestir í Ási

Þ

Fannst gaman að kynna sér útskurð hjá heimilismanni

eir félagar, Árni Vikar Sigurðsson og Hrafnkell Barkarson, segja að þeir séu heppnir að mega koma í heimsókn í Ás, á vinnustað móður Árna Vikars. Í einni heimsókninni hittu þeir á Sverri Gunnarsson þar sem hann sat við útskurð og vakti það áhuga hjá þeim. Sverrir er mikill listamaður og er lipur með hnífinn. Hann leyfði litlu félögunum að prófa að skera út og það fannst þeim ekki leiðinlegt.

Hér á myndinni er það eiginkona Sverris, hún Ólöf Fríða Gísladóttir, sem sýnir þeim hest sem Sverrir skar einu sinni út.

Heimilispósturinn

5


Heimilisráðin á Grund og í Mörk

Maturinn vinsælasta umræðuefnið

Þ

að er oft talað um að matur sé mannsins megin og það má til sanns vegar færa þegar horft er til funda hjá heimilisráði Grundar og Markar. Í ráðunum sitja heimilismenn og ræða allt milli himins og jarðar sem snertir búsetu þeirra á Grund eða í Mörk. Rætt er um viðhald, starfsfólk og áhugamál en lang vinsælast er að ræða um matinn. Sumir koma með óskir um eitthvað sem þeir sakna að fá ekki. Stundum er hægt að bregðast við óskunum en ekki alltaf. Einu sinni bað heimilismaður um að fá oftar harðfisk og þá var brugðið á það ráð að bjóða hann til sölu í verslunum heimilanna. Margir eru alsælir með matinn og svo eru þeir sem minnast t.d. úr æsku rétta sem þeir væru alveg til í að fá á matseðilinn á ný. Það eru Auður Inga Einarsdóttir og Katla Kristvinsdóttir sem halda utan um fundina á Grund og Fjóla Haraldsdóttir sem gerir það í Mörk. Eftir fundina er athugasemdum komið á framfæri og leitast er við á næsta fundi að lesa upp svör við þeim athugasemdum eða spurningum sem bárust.

Heimilisráðið á Grund hittist nýlega í hátíðasal heimilisins.

6

Heimilispósturinn


Stemmning í húsinu

H

EM stofan í Mörkinni

eimilismenn og starfsfólk hafa verið spennt fyrir fótboltaleikjunum á EM og ekki síst þegar landsliðið okkar var að spila. Á neðstu hæðinni var búið að koma fyrir stórum sjónvarpsskjá og kokkarnir Þorvaldur og Hans buðu upp á veitingar. Á heimilunum ellefu uppi á hæðunum var líka mikið um dýrðir við þetta tilefni.

Snillingarnir í eldhúsinu buðu stundum upp á veitingar með leikjunum.

Heimilispósturinn

7


Enn stækkar þorpið okkar í Mörkinni

Barnabörn stofnandans tóku fyrstu skóflustunguna

U

m þessar mundir eru að hefjast framkvæmdir við byggingu 74 þjónustuíbúða við Suðurlandsbraut 68 til 70 í Mörk. Það er Grund sem stendur að framkvæmdunum og þegar heimilið mun taka í notkun þessar nýju þjónustuíbúðir snemma árs 2018 verða nokkur ár í að Grund hafi sinnt öldruðum í heila öld. Það var sumarið 1921 að Samverjinn með sr. Sigurbjörn Ástvald Gíslason í forsvari fór að halda skemmtisamfundi fyrir aldraða til að safna upp í byggingu fyrir aldraða og 29. október árið 1922 sem Grund, fyrir vestan Sauðagerðistún, var vígt sem elliheimili að viðstöddu fjölmenni.

Nöfnurnar Guðrún Lárusdóttir og Guðrún Gísladóttir tóku fyrstu skóflustunguna.

8

Heimilispósturinn


Enn stækkar þorpið okkar í Mörkinni

Eftir skóflustunguna var gestum boðið upp á veitingar.

Tvö af barnabörnum Sigurbjörns, Guðrún B. Gísladóttir, forstjóri Grundar og Guðrún Lárusdóttir, einn aðaleigandi Stálskips, tóku saman fyrstu skóflustunguna þann 15. júlí sl. Gestum var boðið upp á léttar veitingar og bæði Gísli Páll Pálsson, forstjóri í Mörk og Júlíus Rafnsson, stjórnarformaður Grundar Markarinnar héldu tölu við þetta skemmtilega tilefni. Hjónin Guðrún Lárusdóttir og Ágúst Sigurðsson munu í gegnum fjárfestingafyrirtæki sitt, Stálskip, lána Grund um það bil þriðjung þess fjármagns sem þarf í að reisa byggingarnar. Grund hefur verið rekið af sömu fjölskyldunni frá upphafi, fyrst var Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason í forsvari fyrir heimilið, þá var sonur hans Gísli Sigurbjörnsson forstjóri Grundar í um sextíu ár og dóttir hans, Guðrún B. Gísladóttir er í dag forstjóri Grundar. Sonur Guðrúnar, Gísli Páll Pálsson er forstjóri í Mörk og í dag starfa margir úr fimmta ættlið á hjúkrunarheimilunum þremur. Heimilispósturinn

9


Agnieszka og Thomasz Ciebien kveðja

Við eignuðumst fjölskyldu á Grund

Þ

ann 10 júlí 2007 lentu Agnieszka og Thomasz Ciebien á Keflavíkurflugvelli. Þau voru hingað komin frá Póllandi til að vinna og freista gæfunnar. Agnieszka var að verða 18 ára og Thomasz 23 ára. Níu árum síðar og með sex ára dóttur með sér, kveðja þau Ísland. Þau sögðu Guðbjörgu R. Guðmundsdóttur að það bærðust með þeim blendnar tilfinningar nú þegar komið væri að flutningunum.

Hjónin Agnieszka og Thomasz ásamt dóttur sinni Nicole.

Skrítin lykt af vatninu Thomasz segist hafa þurft að bíða eftir Agnieszku því hún fékk ekki leyfi til að fara svona langt fyrr hún yrði átján ára. Fyrst um sinn fengu að búa hjá Danutu, frænku Thomaszar sem starfaði á Grund. „Í byrjun var allt svo framandi“, segja þau. „Í raun var bara flest öðruvísi en við áttum að venjast. Við skildum ekki orð, töluðum hvorki ensku né íslensku, það var vond lykt af íslenska vatninu og það var svo hryllilega kalt“ halda þau áfram. Danuta útvegaði Agnieszku vinnu við ræstingar á heimilinu. 10

Heimilispósturinn


Agnieszka og Thomasz Ciebien kveðja

Hér er Thomasz að kenna konunni sinni bogfimi.

Missti af strætó og mætti of seint „Ég man svo vel eftir fyrsta deginum“, segir Agnieszka. „Ég vissi ekkert hvernig ég átti að fara að því að koma mér á Grund, missti af strætisvagninum og mætti klukkutíma of seint.“ Thomasz fór að vinna í byggingavinnu fyrst um sinn en fékk svo starf frá B&L þar sem hann vann við að hreinsa bíla sem voru að koma nýir til landsins. Smám saman fór Íslandsdvölin að verða þeim auðveldari enda þau bæði ákveðin í að læra málið og aðlagast íslensku samfélagi. Svo var það 5. febrúar 2009 að fjölgaði hjá unga parinu, þau eignuðust dótturina Nicole. Árið 2010 kom Thomasz svo að vinna á Grund eftir að Ingvar Helgason og B&L sameinuðust og hann missti vinnuna. „Árin okkar á Grund hafa verið frábær. Við fengum leigða íbúð sem heimilið á og unnum mikið, bæði við ræstingar og ég einnig við umönnun“, segir Agnieszka. „Í raun varð Grund meira en vinnustaðurinn okkar. Þar eignuðust við vini og eiginlega fjölskyldu líka.“ Heimilispósturinn

11


Agnieszka og Thomasz Ciebien kveðja Byggðu sér hús í Póllandi Þegar þau voru búin að vinna saman á Grund í á annað ár ákvað unga parið að byggja sér hús í Póllandi enda komin með litla dóttur og þau ákveðin í að einn daginn færu þau aftur til Póllands. „Pabbi hennar Agnieszku gaf okkur lóð sem afi hennar hafði átt og þarna hafði verið kartöflugarður fjölskyldunnar“, segir Thomasz. „Lóðin er í bænum Czarna sem er í um 100 km fjarlægð frá Kraká. Við byrjuðum á sækja um byggingarleyfi og það tók langan tíma.“ Á meðan leituðu þau að teikningum á netinu. „Þegar við vorum komin með hús sem okkur leist á fengum við arkitekt til að laga það til fyrir okkur, færa veggi, hækka þakið og svo framvegis“ bætir Agneieszka við. Húsið er á tveimur hæðum og Thomasz hefur unnið baki brotnu í húsinu þegar þau hafa tekið sér frí frá Grund. Þau hafa náð að safna fríinu sínu saman og fara yfir sumartímann til Póllands og þá

Þessi mynd er tekin af húsinu þeirra fyrir nokkrum árum þegar það var í byggingu.

hefur verið tekin skorpuvinna við húsið. Þegar framkvæmdum lýkur verður það um 200 fermetrar. Neðri hæðin er næstum tilbúin en efri hæðina eiga þau eftir að klára. Núna var rétti tíminn Og nú er komið að því að flytja til Póllands á ný. „Þetta eru blendnar tilfinningar“, segir Agnieszka og ekkert auðvelt. „Hér heima á Íslandi eigum við orðið svo góða vini sem við munum 12

Heimilispósturinn


Agnieszka og Thomasz Ciebien kveðja sakna og svo var okkur boðið að hafa yfirumsjón með öllum ræstingum á Grund. En núna var rétti tíminn fyrir okkur að fara því Nicole er að byrja í skóla og neðri hæðin í nýja húsinu eiginlega tilbúin. Mamma mín er farin til Íslands og er nú að vinna á Grund og hún býr hjá systur minni sem vinnur líka á Íslandi. Ef til vill fer pabbi líka í haust til Íslands. Enn er samt stór hluti fjölskyldunnar úti og það verður gott að tengjast fólkinu sínu á ný. Fyrstu vikurnar búum við í húsi foreldra minna á meðan við erum að parketleggja og mála. Stefnan er að flytja á neðri hæðina í júlí eða ágúst. Thomas hefur þegar ráðið sig í vinnu í september og mun keyra flutningabíl sem ferðast milli landa í Evrópusambandinu.“ Agnieszka stefnir að því að skrá sig í hjúkrunarnám í haust og segir að vonandi stækki svo litla fjölskyldan þeirra með tíð og tíma. „Tomasz tók meirapróf hér á Íslandi og hann hefur verið að læra ensku á meðan rússnesku stelpurnar sem vinna á Grund hafa verið að kenna mér rússnesku.“ Kaupum okkur nýja búslóð Taka þau búslóðina með sér út? „Nei eiginlega ekkert. Mamma og systir mín fengu það sem var heillegast en við höfum nú keypt mest í Góða hirðinum og það fer bara þangað aftur. Við erum svo heppin að koma heim til Póllands skuldlaus og erum búin að byggja okkur hús og þar að auki höfum við náð að spara talsvert. Meiningin er að kaupa nýja búslóð þegar við flytjum inn í húsið okkar. Það er allt töluvert ódýrara í Póllandi en hér í Reykjavík.“ Komum reglulega í heimsókn til Íslands Þau eru sammála um að þau eigi eftir að koma reglulega í heimsókn til Íslands, ekki síst vegna þess að þar er hluti fjölskyldunnar bæði frá Póllandi og Íslendingar sem þau hafa kynnst og kalla fjölskyldu. Þar að auki eiga þau marga góða vini á Íslandi og svo er Nicole fædd hér. „Ef okkur líkar ekki að búa í Póllandi þá bara flytjum við aftur til Íslands. Nú tölum við málið og vitum að það er frábært að vera hérna.“ Heimilispósturinn

13


Lífið á Grund

Þ

Spjallið í vinnunni leiddi til brúðkaups

órhalla Þórisdóttir starfsmaður á Grund og sambýlismaður hennar til áratuga Ívar Andersen fengu sr. Auði Ingu Einarsdóttur heimilisprest til að gefa sig saman þann 2. júni síðastliðinn. „Þetta hafði staðið til í mörg ár en við höfðum aldrei látið verða af þessu. Hvorugt okkar var mikið fyrir umstang og svona en þegar Auður Inga fer að segja mér í vinnunni frá brúðkaupi sonar síns heima í stofu greip ég hugmyndina á lofti og bar undir sambýlismanninn. Okkur leist báðum vel á þessa hugmynd, að fá sr. Auði Ingu heim í stofu til okkar með allra allra nánasta fólkinu okkar og biðja hana um að gefa okkur saman þar.“ Þórhalla segir að stundin hafi verið yndisleg og á eftir hafi gestirnir stormað á Hótel Sögu og gert sér glaðan dag. Tja, það er með ýmsu móti sem vinnustaðurinn og samstarfsfólkið hefur áhrif á líf okkar. Hjartans hamingjuóskir Þórhalla og Ívar.

14

Heimilispósturinn


Svalirnar í Mörk

Herrarnir skeggræða lífsins gang og njóta sólarinnar

H

eimilismennirnir Magnús, Theodór og Jón Þorsteinn, sem allir búa á heimilinu Hugheimum í Mörk, sitja gjarnan saman á matmálstímum. Einn góðviðrisdaginn nýlega ákváðu herramennirnir að færa sig út á svalir til að lesa blöðin, fá sér kaffibolla og halda áfram að ræða um daginn og veginn. Hundurinn Bangsi veitti þeim selskap. Það er frábært að fylgjast með því hvað svalirnar eru að nýtast vel í Mörk og ekki óalgengt að á sólríkum dögum verði þær að útikaffihúsi.

Heimilismennirnir Magnús, Theodór og Jón Þorsteinn njóta svo sannarlega veðurblíðunnar.

Heimilispósturinn

15


Heimsókn í Mörk

B

Börnin alltaf velkomin

örn af ungbarnaleikskólanum Ársól komu nýlega í heimsókn í Mörk. Og þvílík sæla að fá alla þessa litlu gullmola í húsið. Meðan beðið var eftir heimilisfólki fór skarinn út í fallega garðinn, kíkti á púttvöllinn og henti litlum steinum í tjörnina. Flest börnin voru á þriðja ári og komu líka í heimsókn í fyrra. Fyrir utan þessa heimsókn má geta þess að reglulega koma svo alltaf börn frá Steinahlið hingað í Mörk. Svona heimsóknir eru yndislegar.

Allir njóta þess að fá börn í heimsókn.

16

Heimilispósturinn


Heimsókn í Mörk

Börnunum finnst gaman að kasta steinum í tjörnina.

Svo prófuðu allir að pútta á fína púttvellinum okkar í Mörk.

Heimilispósturinn

17


Héldu 795. skátafundinn á Minni Grund

Hafa haldið skátafundi í meira en sjötíu ár

Þ

að eru næstum 74 ár síðan tíu ungir menn héldu að Veghúsastíg 4 í Reykjavík til að stofna skátaflokkinn Útlaga. Þeir höfðu verið í skátafélaginu Faxa í Vestmannaeyjum og bundist skátahugsjóninni sterkum böndum. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir mætti á 795. fund skátanna sem haldinn var á Grund og spjallaði við skátann, Berent Th. Sveinsson. „Á þennan fund hér í turni Minni Grundar eru mættir þeir sem eftir lifa“, segir Berent, fimm sprækir heiðursmenn sem komnir eru á níræðis- og tíræðisaldur og fyrirlesari dagsins, Árni Sigurðsson. Berent kom í nokkurra vikna hvíldarinnlögn á Grund og hóaði vinunum saman á skátafund þangað, bauð upp á pítsur og frábært útsýni yfir vesturbæinn. „Ég var tólf ára þegar ég byrjaði í skátunum í Vestmannaeyjum en það mátti ekki byrja fyrr og þá var ég í skátafélaginu Faxa. Þorsteinn Einarsson, fyrsti íþróttafulltrúi ríkisins, var frá Vestmannaeyjum og var félagsforingi Faxa til nokkurra ára. Það var hann sem stakk upp á því að við brottfluttir ungir strákar úr Vestmannaeyjum myndum stofna skátahóp í Reykjavík og til að byrja með var flokkurinn okkar Útlaginn flokkur í Faxa en svo urðum við sjálfstæðir með tímanum.“ Ævintýri sem endaði á botni Reykjavíkurhafnar „Við fræddumst um allt milli himins og jarðar á fundunum, lærðum að stoppa í sokka, binda hnúta og elda ofan í okkur og að sjálfsögðu lögðum við stund á skátafræði en líka menningarmál. Við skemmtum okkur líka saman. Eitt sinn

18

Heimilispósturinn


Héldu 795. skátafundinn á Minni Grund

Arnbjörn Kristinsson, Magnús Kristinsson, Óskar Þór Sigurðsson, Berent Th. Sveinsson og Eiríkur Haraldsson.

keyptum við okkur bíl til ferðalaga og stofnuðum bílsjóð. Fjármögnunin gekk þó ekki sem skyldi svo við skiptum bílnum út fyrir 30 feta skemmtibát, Útlagann sem sigldi með okkur um sundin blá.“ Ævintýrið segir Berent þó að hafi endað sorglega fljótt á botni Reykjavíkurhafnar. Fyrirlestrar og ferðalög Fyrstu ár Útlagans segir Berent að þeir hafi fengið til liðs við sig merka menn til að flytja erindi. Þarna komu við sögu Helgi Tómasson, Gylfi Þ. Gíslason, Jónas frá Hriflu, Jón Auðuns og Björn Th. Björnsson svo einhverjir sé nefndir. Stundum brugðu þeir sér saman til að skoða fyrirtæki og svo ferðaðist hópurinn saman, jafnvel með maka eða fjölskyldurnar. Perluvinir í meira en sjötíu ár Nú eru félagarnir fimm eftir og þeir halda áfram að hittast þó komnir séu á níræðis og tíræðisaldur. Á árum áður hittumst félagarnir vikulega en nú eru fundir haldnir á 4. vikna fresti til skiptis heima hjá þeim. Eftir svona langan tíma segir Berent að þetta sé miklu meira en skátaflokkur, flokkurinn sé orðinn hluti af þeim. Þessir fimm herramenn sem eftir lifa þekkjast náið, kosti og galla hvers og eins og meta og virða hvor annan.

Heimilispósturinn

19


Hjólið í Mörk

Hjónin skruppu í Grasagarðinn

M

aría Jóhanna Lárusdóttir og Ólafur H. Ragnarsson ákváðu að skella sér í hjólaferð einn sumardaginn fyrir skömmu en Hanna Maja eins og hún er kölluð býr nú í Mörk. Ferðinni var heitið í Grasagarðinn til að heimsækja þar kaffihúsið Café Flóruna. Þetta var jómfrúarferð þeirra hjóna á hjólinu en Ólafur hefur sótt námskeið í að stjórna farartækinu og farið í æfingaferðir. þessi fyrsta hjónaferð tókst ljómandi vel.

María Jóhanna eða Hanna Maja eins og hún er kölluð skrapp með eiginmanni sínum Ólafi H. Ragnarssyni í hjólatúr.

20

Heimilispósturinn


Hársnyrting í Mörk

Heimiliskonan Gréta reddaði klippingunni hennar Lilju „Við Gréta förum stundum út að ganga og nýlega þegar við vorum á labbinu að spjalla fer ég að segja henni að ég hafi verið að klippa mig sjálf“, segir Lilja Benediktsdóttir starfsmaður iðjuþjálfunar í Mörk. Árangurinn segir Lilja að hafi verið frekar misheppnaður hjá sér, enda hún bráðlát, skipti hárinu í tvennt tók skæri og klippti. „Heimiliskonan Gréta, sem reyndar heitir Margrét Jónsdóttir, horfir á mig drykklanga stund og ég spyr hvort hún treysti sér í að laga hárið á mér að aftan. Hún er alveg til í að prófa. Við drifum okkur inn og upp á heimilið hennar þar sem skærin voru dregin fram. Lilja heimilisstýra var okkur innanhandar og einnig hún Lýdía sem hefur lært hárskurð. Nú get ég tekið hárið úr tagli og spókað mig um fín og flott.“

Gréta klippti Lilju eins og ekkert væri.

Heimilispósturinn

21


Hvað heita plönturnar

Skilti við gróður í garði Grundar Markarinnar

N

ýlega voru sett upp skilti við plönturnar í garði Grundar Markarinnar. Nú eiga íbúar og gestir í garðinum að geta séð tegundaheitin þegar gengið er framhjá gróðrinum. Það voru snillingarnir hjá Fjarðarstáli sem smíðuðu skiltin, Pétur Reynisson garðyrkjustjóri sem sá um að merkja plönturnar og hin fjölhæfa Írena McCabe á Grund sem hannaði útlitið. Vel lukkað og skemmtilegt að hafa þessi skilti við jurtirnar.

22

Heimilispósturinn


Blíða í Ási

Þ

Rölt á kaffihús

ó svo að ekki sjáist til sólar alla daga þá finnur maður ylinn af henni i gegnum skýin. Heimilisfólkið í Bæjarási naut nýverið veðurblíðunnar og skellti sér, ásamt starfsfólki, á kaffihúsið hjá Skyrgerðinni, sem er í næsta nágrenni við heimilið. Flestir fengu sér nýbakaðar vöfflur sem runnu ljúflega niður með dásamlegum kaffibolla. Bestu þakkir til Skyrgerðarinnar fyrir hlýjar móttökur.

Heimilispósturinn

23


Systkini frá Skógum á Fellsströnd

S

Gáfu Grund heimili sitt

ystkinin Solveig, Jón og Jóhanna Jóhannsbörn voru einhleyp og bjuggu saman að Kambsvegi 31 í Reykjavík. Þau ákváðu að heimili þeirra yrði selt að þeim látnum og andvirðið að frádregnum kostnaði yrði gefið til Grundar. Skilyrði sem fylgdi gjöfinni var að andvirðið yrði notað til að bæta og auka aðstöðu fyrir þá sem væru sjúkir og aldraðir. Jón var heimilismaður á Grund um tíma en hann lést árið 2005 og Solveig systir hans lést á heimilinu þann 1. júní sl. Nokkru áður en hún lést Jón Jóhannsson gekk hún frá sölu hússins og gjafabréfi til Grundar. Þá ánafnaði hún Félagi langveikra barna öllum þeim fjármunum sem yrðu eftir þegar greiddur hefði verið kostnaður við útför hennar. Frá þessu mátti ekki segja fyrr en að henni látinni. Forsvarsmenn Grundar þakka af alhug þessa hugulsömu og höfðinglegu gjöf.

Systurnar Solveig og Jóhanna Jóhannsdætur.

24

Heimilispósturinn


Systkini frá Skógum á Fellsströnd

Æskuslóðir systkinanna Skógar á Fellsströnd.

Vinnustaðurinn farinn að smitast inn í ljóðagerðina Tryggvi V. Líndal ljóðskáld, menningarmannfræðingur og starfsmaður Grundar yrkir talsvert af ljóðum og nýlega birtist grein eftir hann í Morgunblaðinu sem bar yfirskriftina: Að vinna á elliheimili. Þar segir hann m.a. að vinnustaðurinn sinn sé farinn að smitast í ljóðagerðina og bendir á ljóð sem var innblásið af einni samstarfskonu hans. Ljóðið heitir Náttfiðrildi. Þar segir m.a.: Ég er einsog nóttin, segir hún, því hún mun verða þá á næturvakt: og bregður aðeins fyrir okkur ella. En þakkar mér nú bjartri röddu. Mér gæti þótt enn vænna um hana: en við erum víst ávallt dæmd til að hittast helst í hálfrökkrinu hérna á elliheimilinu, meðan heilsan leyfir. Heimilispósturinn

25


Grundarkórinn með vortónleika í Ási

Þ

Kaffisamsæti og kórsöngur

að er komin hefð fyrir því að Grundarkórinn bregði sér af bæ þegar sumarið nálgast og kórfélagar fara í sumarfrí frá æfingum. Að þessu sinni var farið með rútu í Ás í Hveragerði þar sem kórfélagar sungu fyrir heimilismenn og starfsfólk. Í Grundarkórnum eru heimilismenn, starfsmenn og aðrir velunnarar heimilisins. Eftir vel heppnaða og fjölsótta tónleika var boðið í kaffisamsæti í Ási sem var veglegt eins og við var að búast.

Hér er Grundarkórinn kominn í Ás.

26

Heimilispósturinn


Grundarkórinn með vortónleika í Ási

Bæði heimilisfólk og starfsfólk sótti tónleikana.

Á eftir var öllum boðið í glæsilegt kaffisamsæti.

Heimilispósturinn

27


Heimiliskona í Mörk

Elskaði að vera heimavinnandi og hugsa um börnin

Þ

að er gefandi að hitta fólk sem hefur jákvæðnina að leiðarljósi. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir heimsótti Björgu Jónsdóttur, heimiliskonu í Mörk, sem segir að lífið hafi farið mjúkum höndum um sig og hún geti bara ekki mögulega kvartað yfir neinu. „Ég er fædd í Bergen í Noregi og fyrstu árin bjó ég þar með foreldrum mínum Jóni Eyþórssyni og Kristínu Vigfúsdóttur en faðir minn var að læra veðurfræði, fyrst í Danmörku og svo í Noregi.“ Þegar Björg var þriggja ára flutti litla fjölskyldan heim og á Njálsgötuna. Fjölskyldan stækkaði ört og systkinin urðu sex. Húsnæðið á Njálsgötu var of lítið og foreldrar hennar byggðu ásamt Sveinbirni Jónssyni hæstaréttarlögmanni hús að Marargötu 3. „Það var gott að búa á Marargötunni og síðan vorum við með sumarbústað á Kleppsholtinu sem er núna Dyngjuvegur 14. Sumarbústaðurinn stækkaður í íbúðarhús „Við fluttum svo í sumarbústaðinn þegar ég var á ellefta ári og þar var byggt hús fyrir þessa átta manna fjölskyldu. Mér fannst dásamlegt að búa á Dyngjuveginum. Mikið var óbyggt og urð og grjót hvarvetna sem við krakkarnir vorum frjáls að leika okkur í. Ég átti áhyggjulausa bernsku og yndislega. Mér finnst einmitt gaman af því að einn af sonum mínum keypti nýlega húsið við hliðina á húsinu okkar við Dyngjuveginn.“ Uppúr þeim tíma sem Björg og fjölskylda fluttu á Dyngjuveginn fór strætó að ganga á hálftíma fresti og Björg fór

28

Heimilispósturinn


Heimiliskona í Mörk með honum í skólann en hún gekk í Austurbæjarskóla og síðar Verslunarskólann. „Mér gekk bara vel í skóla og skólagangan gekk bara eins og gengur.“ Þegar Björg var rétt komin yfir tvítugt urðu þáttaskil í hennar lífi.

Björg og Svavar með börnin fjögur Kristínu Ingibjörgu, Svavar, Jón Pétur og Halldór Trausta.

Kynntist yndislegum manni „Ég fór í ferðalag með Farfuglunum og þar tók ég eftir þessum myndarlega manni sem tók ekki þátt í því að klæmast með hinum piltunum í ferðalaginu og sýndi af sér svo góðan þokka. Ég hafði aldrei ætlað mér að giftast en þarna breyttist allt. Svavar Halldórsson var yndislegur maður og við fengum fimmtíu ár saman en hann lést árið 1997. Við giftum okkur heima hjá séra Garðari Svavarssyni og eignuðumst fjögur börn, Kristínu Ingibjörgu, Svavar, Jón Pétur og Halldór Trausta. Í dag á ég stóran hóp af afkomendum og mikið afskaplega er ég heppin með hópinn minn.“ Heimilispósturinn

29


Heimiliskona í Mörk

Hjónin Björg og Svavar á góðri stund.

Naut þess að vera heima með börnin „Svavar minn var dulur en mikið var hann mér góður, elsku kallinn minn“, segir hún og það er ekki laust við að röddin gefi sig aðeins þegar hún hugsar til hans. „Hann var alveg sérstakur maður, svo hlýr og umhyggjusamur og sá vel fyrir sínum. Hann gerði mér það kleyft að geta verið heima með börnin og þess naut ég. Ég var í 29 ár heimavinnandi og sé ekki eftir einni mínútu. Það var alltaf svo gaman hjá okkur.“ Svavar og Björg keyptu æskuheimili hennar á Dyngjuveginum og þar ólu þau börnin sín fjögur upp. Svavar starfaði hjá Garðari Gíslasyni í aldarfjórðung og vann svo hjá Sambandinu. Þegar börnin voru lítil var ferðast um landið þegar færi gafst. Þegar þau fóru að stálpast og voru farin að heiman fóru Björg og Svavar að ferðast meira til útlanda. 30

Heimilispósturinn


Heimiliskona í Mörk

Börnin fjögur orðin fullorðin og eru hér í heimsókn hjá Björgu þegar hún var fyrir nokkru á sjúkrahúsi.

Gott að vera á Spáni „Við fórum í áraraðir til Spánar og dvöldum þá jafnvel í mánuð í senn. Loftslagið átti vel við okkur og við nutum þess að vera í sólinni.“ Nú eru bráðum 20 ár síðan Svavar lést og þó hún sakni hans þá áttu þau saman fimmtíu yndisleg ár og fyrir það er hún þakklát. En hver er lykillinn að því að vera hamingjusamur með sama manninum í fimmtíu ár. Jú, það stendur ekki á svarinu. „Það hefur allt að segja að sýna hvort öðru tryggð. En hann Svavar var líka svo einstakur maður.“ Hvernig á svo við þig að vera hér í Mörk? Mér finnst dásamlegt að eiga heima hér í Mörk og það er allt til fyrirmyndar. Ég get bara ekki kvartað yfir neinu.“ Heimilispósturinn

31


Starfsmenn Grundar

Hafa spilað félagsvist í áratugi

Þ

að ríkti sannkölluð gleði þegar áttunda og jafnframt síðasta spilakvöld vetrarins var haldið í sumarbyrjun á Grund. Það er svo sannarlega komin hefð fyrir spilakvöldunum á Grund því upphafið má rekja aftur meira en þrjá áratugi. Þá var það Guðrún B. Gísladóttir forstjóri sem hafði forgöngu um spilakvöldin. „Ég lærði sem barn að spila félagsvist í Ási og hefur alla tíð fundist mjög gaman að spila“, segir Guðrún þegar hún er innt eftir tilurð spilakvöldanna. „ Mér fannst tilvalið að kanna það meðal starfsfólksins hvort við ættum ekki að hafa spilakvöld og það var vel tekið í hugmyndina. Yfirleitt spiluðum við sex sinnum á vetri en nú eru kvöldin orðin átta. Í vetur höfum við verið að spila á átta til níu borðum og það sitja fjórir við hvert borð.“ Fyrrum starfsmenn duglegir að mæta Spilakvöldin eru ætluð starfsmönnum Grundar en einnig fyrrverandi starfsfólki. Guðrún segir að það sé gaman að sjá hversu margir sem hættir eru störfum hafa gaman af því að halda tengslum með því að koma og spila. „Tryggasti hópurinn er starfsfólk sem hefur hætt fyrir aldurs sakir. Því finnst gott að halda áfram að koma á heimilið og hitta fyrrum starfsfélaga og koma bara inn á gamla vinnustaðinn sinn.“ Pönnukökurnar hennar Nönnu „Einn slíkur starfsmaður, Nanna Hansdóttir, kemur alltaf með nýbakaðar, upprúllaðar pönnukökur með sér og það er orðið ómissandi hluti af stemningunni“, segir Guðrún. Á hverju kvöldi fá tveir efstu, sem spila karl og konu, verðlaun og svo eru veitt „heiðursverðlaun“ en þau hljóta þeir sem hafa ekki verið neitt sérstaklega heppnir í spilunum það kvöldið. Í lok vetrar fá svo tveir efstu yfir allan veturinn veglegri verðlaun en tíðkast alla jafna. Að þessu var það Nanna Hansdóttir, fyrrum starfsmaður,

32

Heimilispósturinn


Starfsmenn Grundar sem hlaut fyrstu verðlaun fyrir veturinn og Björn Friðriksson, sem starfar á Grund, önnur verðlaun. Fyrir áttunda spilakvöld vetrarins hlutu Hrefna Björnsdóttir og Sigríður Margrét Steingrímsdóttir fyrrum starfsmenn verðlaunin og „heiðursverðlaunin“ fengu Ester Antonsdóttir og Helga Marteinsdóttir.

Hrefna Björnsdóttir, Nanna Hansdóttir, Björn Friðriksson, Ester Antonsdóttir, Helga Marteinsdóttir og Sigríður Margrét Steingrímsdóttir.

Heimilispósturinn

33


Iðjuþjálfun í Ási

G

Heimiliskonur sáu um eldamennskuna

uðrún Anna Jóhannesdóttir og Lissa Mary Blandon sáu um matseldina í eldhúshóp iðjuþjálfunar í Ási fyrir skömmu. Þar var hollustan í fyrirrúmi og veisluföngin ekki af verri endanum. Stöllurnar elduðu kjúklingabringur sem þær báru fram með blönduðu ofnbökuðu grænmeti og salati. Ekki amalegt að vera boðið í svona hollan og góðan mat.

Búið að elda og þá er bara að njóta.

34

Heimilispósturinn


Í sólinni í Mörk

Í

Priklað í stærri potta

góðu veðri er afar skjólgott fyrir utan þar sem iðjuþjálfunin í Mörk er til húsa. Þar opnar starfsfólkið iðulega út og heimilisfólk er drifið út í sólina. Þessi mynd var tekin einn slíkan dag í byrjun sumars þegar verið var að prikla, umpotta og setja niður grænmeti. Grænmetið er sett út í beð og jafnvel í ræktunarkassa sem eru á sumum svölum heimilisins.

Það er skjólgott við heimilið í Mörk.

Heimilispósturinn

35


Konunglegar móttökur í Glæsibæ

L

Keypti slá en gleymdi kaffinu

ilja Benjamínsdóttir, starfsmaður í iðjuþjálfun í Mörk, fer stundum með heimilisfólki í gönguferðir og einn daginn skelltu hún og Anna Bergmann sér í Glæsibæ. Fyrst stóð til að fá sér kaffibolla í rólegheitum en það var svo gaman að kíkja í búðir að kaffihúsið gleymdist alveg. Í versluninni NO NAME stöldruðu þær stöllur lengi við enda afreiðslustúlkan, hún Lára Björnsdóttir, alveg einstök. Hún mátaði flíkur fyrir Önnu og af þjónustunni að dæma var engu líkara en eðalbornir gestir væru á ferð. Anna stóðst ekki fallega slá sem hönnuð er af eiganda búðarinnar Grétu Hafsteinsdóttur og keypti sér hana.

Lára Björnsdóttir og Gréta Hafsteinsdóttir ásamt Önnu Bergmann sem er í nýju slánni sem hún keypti í NO NAME.

Færði henni hálsmen að gjöf Viku síðar ákváðu þær stöllur Lilja og Anna að skella sér aftur í Glæsibæ og nú á kaffihúsið. Þær fengu sér Swiss Mocca

36

Heimilispósturinn


Konunglegar móttökur í Glæsibæ

Lilja og Anna fengu sér Swiss Mocca og höfðu það notalegt á kaffihúsinu.

í rólegheitunum en kíktu við í NO NAME til að fá mynd af afgreiðslukonunni henni Láru. Hún var ekki að vinna en býr á Álftanesi. Þegar hún frétti að Anna væri komin í heimsókn og vildi fá mynd af þeim var hún mætt innan skamms. Hún kom líka færandi hendi, færði Önnu fallegt hálsmenn sem hún hannaði en Lára endurnýtir gamla skartgripi og býr til nýja undir nafninu Krákan.

Heimilispósturinn

37


Skorið út í Ási

Guðjón með sveinsstykkið sitt

G

uðjón Jónsson, heimilismaður í Ási, var glaður þegar hann lauk við að skera út fyrsta stykkið sitt, þessa flottu klukku. Það er gaman að sjá heimilismenn skera út hvert listaverkið á fætur öðru. Snillingar í Ási.

38

Heimilispósturinn


Ræktun í Mörkinni

Þ

Vökvað í sumarblíðunni

jónustuíbúðum Grundar - Markarinnar fylgir gróðurskáli, glæsilegur púttvöllur og beð til að rækta í grænmeti og blóm. Það er gaman að fylgjast með íbúum sem hafa verið að setja niður kryddjurtir og kartöflur ásamt sumarblómum. Á góðum degi er ekki amalegt að vökva aðeins og skella sér svo á púttvöllinn. Þegar sundlaugin verður svo tekin í notkun, heiti potturinn og gufan er hægt að fullkomna daginn með því að skella sér í laugina eftir útiveruna. Já, lífið er dásamlegt í Mörkinni enda hátt á annað hundrað manns sem nú eru á biðlista eftir íbúð á þessum stað.

Þóranna Eiríksdóttir og Bára S. Ragnarsdóttir eru með græna fingur og iðulega að vökva og hlúa að gróðrinum í Mörk.

Heimilispósturinn

39


Kvennahlaupið

Starfsfólk og heimiliskonur í Ási tóku þátt

H

ópur kvenna í Ási tók forskot á Kvennahlaup ÍSÍ og gekk á sínum hraða í blíðviðrinu enda er hreyfing lykillinn að góðri heilsu og nærir líkama og sál.

40

Heimilispósturinn


Hjón á Grund

Fögnuðu 70 ára brúðkaupsafmæli

H

jónin Tómas Árni Jónasson og Anna Jóhannesdóttir fögnuðu sjötiu ára brúðkaupsafmælinu sínu á Grund þann 14. júlí síðastliðinn. Börnin þeirra efndu til veislu á Grund þar sem stórfjölskyldan skálaði fyrir þessum merka áfanga. Þennan sama dag komu afkomendur þeirra Tómasar og Önnu fram í morgunstund og léku á hljóðfæri.

Heimilispósturinn

41


Kristín Stefánsdóttir býr í Ási

Stundum er lífið óútreiknanlegt

Þ

að var mikið lán að koma í Ás og bara eins og við hjónin hefðum verið leidd hingað“ segir Kristín Stefánsdóttir, en hún og Hulda Gísladóttir áttu stutt spjall saman um lífið og tilveruna.

„Já, hvar skal byrja“ segir Kristín og heldur áfram. „Ég er frá Sauðárkróki, fædd þar þann 12. júní 1927 og ólst þar upp. Ég fór ekki að heiman fyrr en ég var 18 ára gömul, en þá fluttist ég suður til Reykjavíkur því ég hafði ráðið mig þar í vist. Ég var einungis í vistinni fram á vor 1946.“ Kristín og Gunnar Davíðsson gengu í hjónaband árið 1946. Þau eignuðust fimm börn, fjögur þeirra komust á legg og búa þau í næstu bæjarfélögum, Kristínu til mikillar gleði. Við fluttumst á Skagaströnd þá um sumarið 1946 og bjuggum 42

Heimilispósturinn


Kristín Stefánsdóttir býr í Ási á Skagaströnd í tæp fimm ár, en þaðan fluttum við síðan á Akranes. Eftir að hafa búið í 16 ár á Akranesi fluttum við til Hafnarfjarðar og bjuggum þar til ársins 1980“, segir hún. Ráku byggingavöruverslun í Hveragerði „Lífið er stundum svo skrítið og bara eins og maður sé leiddur áfram. Þegar hér var komið sáum við auglýst hús í Hveragerði sem við ákváðum að kaupa og því er ég hér í dag“ segir Kristín og brosir. „Við vorum ekkert að fara að flytja, það var hreinlega eins og okkur hafi verið stjórnað, en svona er lífið.“ Eftir að Kristín og Gunnar fluttust til Hveragerðis starfaði hún í þrjú ár hjá Heilsustofnun N.L.F.Í. „Þá æxlaðist það nú bara þannig að við Gunnar minn opnuðum litla byggingavöruverslun við Austurmörk sem hét Byggingavöruverslun Hveragerðis. Við rákum þessa verslun í ein 14 ár. Til að byrja með voru seldar hjá okkur almennar byggingavörur, en fljótlega jókst vöruúrvalið. Við bættist álnavara og ýmislegt annað sem okkur fannst að þyrfti að vera aðgengilegt fyrir bæjarbúa. Nú, ef að einhvern vantaði eitthvað þá renndi hann Gunnar hreinlega eftir því til Reykjavíkur“ segir Kristín og brosir. „Þetta var mikil vinna og við vorum að mestu ein, en síðustu árin var yngsti sonur okkar, Stefán, með okkur. Við ákváðum að hætta verslunarrekstrinum árið 1997 og þegar þarna var komið var Gunnar minn orðinn lélegur í bakinu og orðinn 77 ára gamall. Við hættum á hárréttum tíma og sáum ekki eftir neinu, vorum sátt“ segir Kristín. Hjónaíbúð í Ási „En eins og ég segi, þá er lífið stundum óútreiknanlegt. Þannig var að þáverandi verkstjóri í Ási, Ingólfur Pálsson heitinn, benti okkur á að sækja um hjónaíbúð hjá heimilinu. Hann dásamaði heimilið mikið, sagði að allt væri svo fínt þarna. Fyrst fannst mér það asnalegt að vera að hugsa um að sækja um á elliheimili, enda vorum við svo sem ekki í þeim hugleiðingum. En það varð úr, við sóttum um. Það var mikið lán að koma í Ás, það er lúxus að vera hér. Það er bara eins og við Heimilispósturinn

43


Kristín Stefánsdóttir býr í Ási hjónin hefðum verið leidd hingað,“ segir Kristín glöð í bragði. Borðar ekki grænmeti „Gunnar fékk til að mynda aðstöðu á litlu verkstæði þar sem hann gat smíðað hitt og þetta, en hann var menntaður húsasmiður.“ Gunnar lést fimm árum eftir að þau fluttu í Ás. Þá flutti Kristín í Ásflöt, sem er í neðri byggðinni í Ási. „ Allt hefur heppnast og gengið vel. Mér finnst gaman að lifa. Ég ákvað að hætta að keyra síðastliðið haust, enda er ég að verða níræð á næsta ári. En ég er hraust og frísk og þó borða ég ekki grænmeti“ segir hún og hlær dátt.

Kristín og Gunnar ásamt börnum sínum.

44

Heimilispósturinn


Kryddjurtir úr Ási

Ilmandi timian og sítrónumelissa í garði Grundar

Þ

að var dásamlegt að fylgjast með þeim stöllum Hönnu Cörlu Proppé og Elísabetu Sigmundsdóttur þegar þær settu niður kryddplöntur í grænmetiskassann okkar hér á Grund. Katla Kristvinsdóttir iðjuþjálfi heimilisins, var þeim innan handar við sáninguna en annars var lítil þörf á aðstoð því konurnar voru þaulvanar og kunnu handbrögðin. Plönturnar koma úr Ási og fá öll heimilin þrjú að njóta góðs af, Grund, Mörk og Ás.

Hér eru heimiliskonurnar Hanna Carla Proppé og Elísabet Sigmundsdóttir að hlú að kryddjurtunum sem eru í garði Grundar.

Heimilispósturinn

45


Starfsmenn Áss, Grundar og Markar

Þ

Gengu saman Leggjabrjót

að var um þrjátíu manna vel útbúinn hópur starfsmanna frá Ási, Grund og Mörk sem mætti í göngu Útivistar á Leggjabrjót í júní síðastliðnum. Farið var í gönguna frá BSÍ, keyrt að Þingvöllum og gengið um nóttina yfir í Hvalfjörð. Þótt það væri rigning á köflum og þoka þá var ferðin dásamleg. Að öllum öðrum ólöstuðum þá var það hann Andrés Magnússon rafvirki heimilanna sem vakti aðdáun okkar. Hann gekk leiðina og blés ekki úr nös orðinn 77 ára. Geri aðrir betur.

Andrés Magnússon 77 ára og lét sig ekki muna um að ganga þessa leið.

46

Heimilispósturinn


Starfsmenn Áss, Grundar og Markar

Komið að seinni hluta göngunnar og klukkan að ganga fimm.

Þessi hópur var glaðvær og naut samverunnar í þokunni.

Heimilispósturinn

47


Matsalurinn í Mörk

E

Vetur kvaddur

inn bjartan daginn þegar kokkarnir voru á ráðstefnu stóð forstjórinn í Mörk vaktina í eldhúsinu. Við það tilefni setti Hafliði Hjartarson, íbúi í þjónustuíbúðum Grundar Markarinnar, saman þessar vísur. Íbúarnir sem voru í mat þann daginn tóku lagið og sungu þennan texta við lagið Það liggur svo makalaust ljómandi á mér. Við komum hér saman, því feikn erum svöng, Og syngjum til forstjórans fagnaðar söng. Já mikill er máttur hins gjafmilda manns, Því maturinn kemur úr garðinum hans. Æ, Gísli Páll, Gísli Páll, Gísli Páll minn, æ, Gísli Páll, Gísli Páll, Gísli Páll minn. Nú grasið þú reytir og raðar á disk, En raun er það okkur að fá ekki fisk. Á morgun svo mæta aftur höfðingjar tveir, Þeir Valdi og Hansi, já það heita þeir. Því kokkur þú verður víst bara í dag, Svo aftur kemst vonandi melting í lag. Já, Gísli Páll, Gísli Páll, Gísli Páll minn, Já, Gísli Páll, Gísli Páll, Gísli Páll minn. Nú veturinn kveður, með kulda og byl. Kom sumar á morgun, með sólskin og yl.

Hafliði Hjartarson og Gísli Páll Pálsson í matsalnum.

48

Heimilispósturinn


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Heimilispósturinn - júní 2016 by Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili - Issuu