Skip to main content

Heimilispósturinn - apríl 2019

Page 1

HEIMILISPÓSTURINN Heimilisblað Grundar, Áss og Markar 55. árgangur

apríl 2019

a g e l i ð Gle páska

1. tölublað


Efnisyfirlit Lífið á Litlu Grund.................................................................................... 3 Virkar vinkonur........................................................................................ 4 Sundlaug, nudd og gufur....................................................................... 6 Heimilismenn hjálpast að við baksturinn.............................................. 9 Hátíðleg stund á heimilinu..................................................................... 10 Kötturinn sleginn úr tunnunni og boðið í pylsupartí...................... 12 Árin í Grímsey eftirminnileg................................................................. 14 Skrafað um allt sem máli skiptir.......................................................... 18 Fiðlukonsert fyrir heimilismenn.......................................................... 20 Útsaumaður stóll sem fer í minningastofu heimilisins.................... 21 Allskonar furðufígúrur á sveimi......................................................... 22 Hippar og hamingja á dansgólfinu....................................................... 24 Vinsæl kryddkaka með kaffinu............................................................. 27 Undirbúa komu páskanna....................................................................... 28 Dúkkuæði í vinnustofunni...................................................................... 32 Spjallað yfir húsverkunum.................................................................. 35 Guðsþjónustur í setustofu.................................................................. 36 Ég hef svo gaman af lífinu.................................................................... 38 Bændur borguðu með eggjum.............................................................. 43 Gjöf til minningar um heimiliskonu...................................................... 44 Ilmolía, handarnudd og ljúfir tónar.................................................. 46 Æft fyrir upplestrarkeppni................................................................. 48

Forsíðumyndina tók Guðbjörg R. Guðmundsdóttir af þeim Sigurði, Þorvaldi, Sjöfn, Lilju og Atla í heita potti heilsulindar Markar. Ritstjóri: Guðbjörg R. Guðmundsdóttir. Hönnun og uppsetning: Írena Dögg McCabe. Prentun: GuðjónÓ. Upplag: 1500. 2 Heimilispósturinn


Notaleg samverustund

Þ

Lífið á Litlu Grund

að er notalegt þegar gleðigjafinn hann Jón Ólafur Þorsteinsson tekur upp harmonikkuna og byrjar að spila öllum að óvörum. Enginn aðdragandi, bara notaleg stund sem verður allt í einu til og það kemur fyrir að einhver lagviss heimilismaður byrjar að syngja með og smitar aðra. Það eru oft stundir sem þessar sem eru lang bestar.

Heimilispósturinn

3


Hannyrðarkonur í Ási

A

Virkar vinkonur

rnfríður Gunnarsdóttir, Ásgerður Sigbjörnsdóttir og Guðrún Hallgrímsdóttir búa allar á Ási í Hveragerði. Þær eru miklar hannyrðarkonur, eru óhræddar við að fara út fyrir þægindaramman í verkefnavali og hafa oft hellt sér út í smá tilraunastarfsemi. Þær mæta á vinnustofu Iðjuþjálfunar í Ásbyrgi alla virka daga og segja að það sé ómissandi þáttur í daglegri rútínu. Í nokkur ár hafa þessar vinkonur lagt hvert púsluspilið á fætur öðru og þá er ekkert verið að velja auðveldustu púslin. Þær eru sammála um að púslið hafi hjálpað til við að skerpa hugann og auka einbeitingu og úthald. Oft eru þær með púsluspil liggjandi heima en Guðrún segist vera hætt því þar sem hún átti það til að vaka fram undir morgun yfir skemmtilegu púsluspili. Stöllurnar eru mjög virkar í sínu daglega lífi. Ásgerður og Guðrún spila t.d bocchia tvisvar í viku í Vesturási. Arnfríður hefur verið mjög virk í starfi félags eldri borgara í Hveragerði, sótt þar námskeið af ýmsum toga, zumba námskeið svo eitthvað sé nefnt. Hún hefur einnig verið mjög dugleg að ferðast með félaginu. Guðrún reynir að fara a.m.k einu sinni í viku að spila með eldri borgurunum og finnst það mjög gaman. Ásgerður og Guðrún eru báðar með tölvur heima hjá sér. Ásgerður hefur haft tölvuna sína í nokkur ár, í henni skoðar hún myndir, horfir á bíómyndir og leggur kapal. Guðrún hefur nýlega fengið sér spjaldtölvu og er að stíga fyrstu skrefin í tölvuheimum. Henni finnst td gaman að leggja kapal og leggja púsl í spjaldtölvunni.

4

Heimilispósturinn


Hannyrðarkonur í Ási

Arnfríður, Ásgerður og Guðrún með aðeins brot af vinnu sinni.

Ásgerður innan um handverkið sitt.

Heimilispósturinn

5


Heilsulind Markar

Í

Sundlaug, nudd og gufur

all nokkur ár hefur verið í byggingu sundlaug og líkamsræktaraðstaða við Suðurlandsbraut 64, rétt austan við íbúðirnar númer 58 – 62. Tilkoma laugarinnar kemur til af tvennu segir Gísli Páll Pálsson forstjóri í Mörk. „Í fyrsta lagi þurfti að byggja ramp fyrir slökkvibíla til að geta keyrt austan megin við húsin og bjargað fólki úr eldsvoða ef til þess kæmi. Og þar með varð til heilmikið rými, undir rampinum, sem ekki var vitað til hvers ætti að nota. Í öðru lagi vann með mér góður maður í þessum íbúðamálum og hann lagði til að byggja þarna sundlaug en ekki einhvern leiðinda veislusal, eins og mig minnir að hann hafi orðað það. Við veltum vöngum yfir þessu í all nokkurn tíma og á endanum var ákveðið að byggja sundlaug og líkamsræktaraðstöðu í þessu rými, sunnan tengigangsins. Norðan megin er svo tómstundaaðstaða fyrir íbúana, Mýrin auk skrifstofu og fundarherbergis.”

Á meðfylgjandi mynd eru Laila Arnþórsdóttir og Daði Hreinsson sem leigja heilsulindina og munu reka hana, Jóhann J. Ólafsson, stjórnarformaður Grundar, Gísli Páll Pálsson forstjóri í Mörk og Júlíus Rafnsson stjórnarformaður GM og ÍEB.

6

Heimilispósturinn


Heilsulind Markar

Sigrún, Sigurður og Haraldur mæta næstum daglega í tækjasalinn.

Hann segir að byggingarframkvæmdir hafi tekið lengri tíma en áætlað var, og kostað meira. „Við höfum þó ekki þurft að leita eftir utanaðkomandi lánsfjármagni til að ljúka framkvæmdunum. Allur frágangur er hinn vandaðasti og það er gaman að koma inn í salina og sjá hversu vel hefur tekist til. Sundlaugin er 12,5 x 5 metrar, heitur pottur, þurrgufa og blautgufa, infrarauður klefi auk líkamsræktarsalar. Hvíldarherbergi og aðstaða til sjúkraþjálfunar, aðstaða fyrir nuddara auk búningsklefa.”

Margir komu í heimsókn þegar heilsulindin var formlega tekin í notkun.

Heimilispósturinn

7


Heilsulind Markar Rekstur svæðisins hefur verið leigður til nýs einkahlutafélags sem heitir Mörkin heilsulind ehf. Að því félagi standa Daði Hreinsson og Laila Arnþórsdóttir. Íbúar íbúðanna við númer 58 – 62 og 68 – 70 greiða mánaðarlegt gjald og verður aðstaðan opin þeim alla virka daga frá 8.30 til 10.30 og frá 16 til 18 og að auki á laugardögum frá 10.00 – 13.00. Aðstaðan verður einnig opin heimilismönnum í hjúkrunarheimilinu og greiða þeir sérstaklega fyrir hvert skipti sem þeir koma. Þá verða Daði og Laila með sérstök námskeið og munu íbúar íbúðanna fá afslátt af því gjaldi sem rukkað er á hverju námskeiði fyrir sig.

Ekki amalegt að fá sér sundsprett í nýju lauginni.

8

Heimilispósturinn


Vöfflubakstur í Ási

Heimilismenn hjálpast að við baksturinn

Þ

að eru allir glaðir þegar ákveðið er að baka vöfflur og þannig var það líka um daginn þegar nokkrar heimiliskonur á Ási ákváðu að baka saman með kaffinu. Uppátækið vakti mikla hrifningu og það átti við í þessu tilfelli málshátturinn, margar hendur vinna létt verk.

Guðrún hræri í áður en farið er að baka.

Erla og Berglind.

Heimilispósturinn

Freyja.

9


Biskup Íslands heimsótti Grund

Þ

Hátíðleg stund á heimilinu

að var fjölmenni við guðsþjónustu á Grund þegar biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, prédikaði við messu í hátíðasal fyrir nokkru. Sr. Auður Inga Einarsdóttir, heimilisprestur, þjónaði fyrir altari ásamt sr. Helgu Soffíu Konráðsdóttur prófasti og sr. Þorvaldi Víðissyni biskupsritara. Grundarkórinn leiddi söng en einsöngvari var Jökull Sindri Gunnarsson og organisti Kristín Waage.

Sr. Auður Inga Einarsdóttir ásamt frú Agnesi M. Sigurðardóttur biskup.

Fjölmenni var við guðsþjónustuna í hátíðasal.

10

Heimilispósturinn


Biskup Íslands heimsótti Grund

Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir predikaði.

Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prófastur les úr ritningunni.

Heimilispósturinn

11


Öskudagsgleði í Mörk

Kötturinn sleginn úr tunnunni og boðið í pylsupartí

Þ

að eru ekki bara börnin í Steinahlið sem hlakka til að koma og slá köttinn úr tunnunni í Mörk, heldur bíður heimilisfólkið líka spennt eftir að sjá leikskólabörnin sem koma oft klædd sem furðufígúrur eins og fylgir öskudagsgleði. Þegar loksins er búið að ná innihaldi tunnunnar á gólfið bíða kokkarnir með eitthvað góðgæti eins og pylsur eða grjónagraut. Frábær hefð og ungir sem aldnir kunna svo sannarlega að meta þessa skemmtilegu samverustund.

12

Heimilispósturinn


Öskudagsgleði í Mörk

Alveg að koma gæti þessi verið að hugsa.

Komið, eða næstum því.

Heimilispósturinn

13


Heimiliskona í Ási

Árin í Grímsey eftirminnileg

Ó

lina Sigurbjörg Guðmundsdóttir bjó lengi í syðsta húsinu í Grímsey, var þar með skepnuhald og sinnti börnum og búi en maðurinn hennar var sjómaður. Fanney Björg Karlsdóttir ræddi við hana um lífshlaupið og sá að þegar talið barst að tímanum í Grímsey ljómaði Ólína enda í minningunni dásamleg ár sem hún átti þar. Ólína Sigurbjört Guðmundsdóttir fæddist þann 11. september 1941 að Breiðuvík í Barðastrandasýslu. Foreldrar hennar voru Guðmundur Kristjánsson bóndi og sjómaður og Unnur Erlendsdóttir húsmóðir. Ólína var þriðja í röðinni af sex systkinum. Hún ólst upp í Breiðuvík til 8 ára aldurs. Faðir hennar var í verbúð, sótti sjóinn og kom heim einu sinni í viku. Móðirin var þá heima og sá um börn og bú. Á bænum voru kýr og kindur og því nóg að gera á stóru og barnmörgu heimili. Þegar Ólína var 8 ára fluttist fjölskyldan í Vatnsdalinn þar sem foreldrar hennar höfðu fest kaup á jörð. Þar voru þau með 100 kindur, 4 kýr og 2 hesta. Ólína minnist æskuárana með bros á vör og segir það hafa verið góðan tíma. Hún minnist þess að hafa oft setið á hestbaki þegar flytja átti hey í vagni í hlöðuna. Frostrósir á einföldu glerinu Skólaganga Ólínu var ekki löng, þegar hún var 9 ára var hún send til föðurbróður síns, Júlíusar Kristjánssonar, í nokkrar vikur, þar sem hún lærði að lesa, skrifa og reikna. Hún segist hafa notið þess að fá að læra og fannst þetta skemmtilegur tími. Það fengu ekki öll systkinin að fara til frænda að fá að læra. Hún var uppáhald segir Ólína og brosir. Hún segir að

14

Heimilispósturinn


Heimiliskona í Ási

Ólína ásamt eiginmanni sínum, tengdamóður og börnum.

tíminn í Vatnsdalnum hafi verið góður og hún á margar góðar og skemmtilegar minningar þaðan. En það var oft erfitt, hún tók þátt í bústörfunum eins og gengur og gerist í sveitum. Það var ekkert rafmagn á bænum og því oft mjög kalt á morgnana, frostrósir á einföldu glerinu og loftið rakt. Móðir hennar fór alltaf fyrst á fætur til að kveikja á gasluktinni til að fá smá týru og smá hita í kotið. Þrettán manns og einn hundur um borð Þegar Óína var 18 ára vann hún um skeið á drengjaheimilinu á Breiðuvík, hún segir að það hafi verið ágæt vinna en oft dáldið erfið. Á síldarárunum réðu Ólína og systir hennar sig sem kokka á 101 tonna síldarbát. Hún segist hafa verið sjókveik fyrstu vikuna en svo hafi allt gengið eins og í sögu. Í áhöfninni voru 13 manns og einn hundur. Þær systur elduðu allan mat og bökuðu allt brauð og allar kökur. Góður andi var um borð og mikil og góð samvinna. Eftir löndun tóku þær Heimilispósturinn

Ólína ásamt bróðir sínum, Erlendi, en hann lést af slysförum aðeins 21 árs.

15


Heimiliskona í Ási systurnar sig til og þvoðu áhafnarmeðlimum um hárið. Ólína segir að þetta hafi verið skemmtileg lífsreynsla, þetta hafi verið mikil vinna en launin hafi verið góð. Þegar síldarvertíðinni lauk lá leiðin til Reykjavíkur þar sem hýrunni var eytt. Hún hafði ekki mikinn áhuga á höfuðborginni og lagði leið sína til Grímseyjar þar sem hún bjó næstu 36 árin. Þriggja barna móðir Ólína eignaðist tvo drengi með fyrri manni sínum, Erlend Hilmar sem er fæddur 1963 og Guðmund Gíslia fæddan 1965. Seinni manni sínum, Sæmundi Traustasyni, kynntist hún í Grímsey, hann ól upp drengina sem þeir væru hans og saman eignuðust þau eina dóttur, Halldóru sem er fædd 1972. Sæmundur lést úr krabbameini 1983 þá 61 árs. Þau hjónin voru með búskap í Grímsey, 30 kindur og hesta. Eiginmaður Ólínu var sjómaður og var því oft að heiman. Sjálf segist Ólína hafa verið „venjuleg“ húsmóðir sem sá um börnin og sinnti skepnunum. Hún plokkaði mikið af fugli, lunda og svartfugli sem veiddur var í háf. Ólína vandist því að borða saltaða fílsunga og finnst það herramannsmatur.

Bræðurninr Erlendur Hilmar og Guðmundur Gísli.

16

Heimilispósturinn


Heimiliskona í Ási

Íbúðarhúsið í Grímsey.

Lífið í eynni dásamlegt Fjölskyldan bjó í syðsta húsinu á eynni, það var mikill gestagangur og því nóg að gera í sambandi við bakstur og annað sem tilheyrir því að taka á móti gestum. Hún segir að lífið í eynni hafi verið dásamlegt og ljómar öll þegar hún rifjar upp þessi ár. Hún var virk í kvenfélaginu og oft voru haldin böll í eynni, þá var dansað langt fram á nótt við dunandi harmonikkuleik og mikið fjör. Erfiðast fannst henni þegar börnin fóru að heiman í heimavistaskóla. Börnin voru í skóla í Grímsey frá 6 – 11 ára en 12 ára gömul þurftu börnin aða fara í heimavistaskóla að Laugum eða á Dalvík. Þau voru burtu allan veturinn en komu heim í jólafrí. Hún segir að það hafi verið erfitt enda börnin ung. Ráðskona Árið 2000 gerðist Ólína ráðskona að Vestara Hóli í Fljótum. Hún sinnti aðallega skepnum, kindum og hænsnum. Hún segir að sér hafi liðið vel þar. Eftir ráðskonuárin flutti Ólína til Siglufjarðar og bjó þar þangað til hún flutti í Ás í Hveragerði 2016. Í Ási líður Ólínu vel, hún mætir í vinnustofuna í Ásbyrgi alla virka daga og stundar sjúkraþjálfun hjá Grétari af kappi. Henni finnst gott að vera komin í Hveragerði ekki síst vegna þessa að nú hittir hún börnin sín miklu oftar enda komin nær höfuðborginni. Heimilispósturinn

17


Saumaklúbbarnir á Grund

Skrafað um allt sem máli skiptir

M

argar konur hafa verið áratugum saman í sumaklúbbi og halda því að sjálfsögðu áfram eftir að flutt er á hjúkrunarheimili. Á Grund eru líka starfræktir nokkrir saumaklúbbar þar sem heimiliskonur koma saman og skrafa um allt milli himins og jarðar. Eins og gjarnan er siður í saumaklúbbum er boðið upp á eitthvað kruðerí með kaffinu og yfirleitt er skálað í sérrí. Eins og konur vita sem eru í selskap eins og saumaklúbbum þá er það alls ekki skilyrði að hafa með sér handavinnu, það nægir bara að koma og taka virkan þátt í samræðum og samverustundinni.

Fínustu veitingar. Nýbakaðar lummur, kaffi og sérrí.

18

Heimilispósturinn


Saumaklúbbarnir á Grund

Saumaklúbbs systurnar Þórunn Árnadóttir, Katrín Guðmundsdóttir, Edda Bergmann og Stefanía Júníusdóttir.

Ingibjörg Kristjánsdóttir, Anna Steinbjörnsdóttir og Ásdís Hafliðadóttir.

Heimilispósturinn

19


Tónleikar í iðju Markar

Fiðlukonsert fyrir heimilismenn

F

iðluleikarinn Bjargey Birgisdóttir vann árlega einleikarakeppni sem haldin er í Hörpunni og heitir Nótan. Að launum fékk hún að leika einleik með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna. Þegar hún kom í Mörk lék hún þrjú stutt verk, kafla úr konsert eftir Vieuxtemps, karla úr konsert eftir Wienawski og Pólska Caprice eftir Bacewicz. Frábær stund og heimilisfólkið í Mörk vonar að hún heimsæki heimilið sem oftast

20

Heimilispósturinn


Gjafir til Grundar

S

Útsaumaður stóll sem fer í minningastofu heimilisins

tundum berast gjafir til heimilanna frá heimilismönnum og nýlega fékk Grund að gjöf þennan fallega útsaumaða stól frá heimiliskonunni Jóhönnu Bjarnadóttur. Útsaumurinn á stólnum er eftir hana sjálfa og stólar sem þessir gengu jafnan undir nafninu rennibraut. Stóllinn fer í minningastofu Grundar þar sem gamlir munir eru sem nýtast í minningavinnu. Jóhönnu er kærlega þakkað fyrir gjöfina. Brúða á Frúargang Nýlega fékk Grund þessa brúðu að gjöf fyrir Frúargang en brúða eins og þessi nýtist mjög vel í starfi með heimlisfólki, sérstaklega þeim sem eru með minnissjúkdóma. Einnig fylgdu með gjöfinni nokkrar tertur og ilmkerti. Það voru aðstandendur Jónbjargar Sigfinnsdóttur sem komu færandi hendi og er þeim kærlega þakkað fyrir.

Heimilispósturinn

21


Öskudagur í Ási

Allskonar furðufígúrur á sveimi

Þ

au kunna svo sannarlega að halda upp á öskudaginn í Ási en þar er hefð fyrir því að taka á móti ungmennum með allskonar furðufígúrum og skemmtilegheitum. Heimilisfólk og starfsfólk leggur metnað í að vera í litríkum fatnaði og bera skrautleg höfuðföt. Gleðin er allsráðandi.

Elísabet Mjöll, Ása Snæbjörnsdóttir og Unnur Sigurbjörnsdóttir.

Heimilisfólk fékk að heyra ótal lög þennan daginn.

22

Heimilispósturinn


Öskudagur í Ási

Þuríður og Elísabet Mjöll.

Árný Freyja í essinu sínu.

Hvaða lag ætli þessar ungu dömur hafi sungið?

Heimilispósturinn

23


Hattaball á Grund

Hippar og hamingja á dansgólfinu

U

ndanfarin ár hefur starfsfólkið í iðjuþjálfun Grundar tekið á móti höfuðfötum sem starfsfólk, aðstandendur og aðrir velunnarar Grundar hafa komð með færandi hendi. Söfnun hattanna er auðvitað hugsuð fyrir árlegt hattaball sem alltaf er haldið í hátíðasal á öskudag. Það ríkir alltaf eftirvænting fyrir dansleikinn því viku áður er hægt að fara að skoða hatta og máta höfuðföt fyrir ballið. Sumir taka þetta allt leið og mæta í búningi á dansgólfið.

Þórhalla, Alexandra, Valdís, Rósa og Katla sáu um dansleikinn og tóku hlutverk sitt alvarlega.

24

Heimilispósturinn


Hattaball á Grund

Þessir mætu menn sjá oft um að gleðja fólkið á Grund.

Og það var auðvitað stiginn dans.

Heimilispósturinn

25


Hattaball á Grund

Margir mættu á dansleikinn og það voru fáir sem ekki settu upp höfuðfat í tilefni dagsins

Grundarbandið lék fyrir dansi.

26

Heimilispósturinn


Bakstursilmur í Bæjaási

Í

Vinsæl kryddkaka með kaffinu

Bæjarási er oft bakað með kaffinu og einn daginn varð svokölluð súrmjólkur kryddkaka fyrir valinu en hún er vinsæl þar á bæ. Eins og svo oft í eldhúsinu þar hjálpast að starfsfólk og þeir sem þar búa, eða eru í dagdvöl. Hér er það Súsí sem er að stússast í bakstrinum. Við fengum uppskriftina að þessari góðu köku. Súrmjólkurkaka með kryddi 7.5 dl súrmjólk 6 dl sykur 3 tsk kanill 3. tsk negull 1 msk natrón 3 msk sulta 150 g brætt smjörlíki 9-10 dl hveiti Öllu blandað saman og sett í ofnskúffu. Bakað við 200 gráðu hita í 25 til 30 mínútur.

Heimilispósturinn

27


Vinnustofan í Mörk

Þ

Undirbúa komu páskanna

að er páskalegt um að litast í iðjunni þessa dagana en þar voru heimiliskonur í óðaönn að útbúa páskablóm og blómavasa þegar okkur bar að garði. Þá var einnig verið að útbúa veggskreytingu fyrir páskana til að hafa í anddyri heimilisins.

Erla og Kolla klippa út gul blóm í vasa.

Eggjabakkar fá nýtt líf.

28

Heimilispósturinn


Vinnustofan í Mörk

Blómaskreytingarnar munu prýða borð um allt hús í Mörk.

Þóra og Birna taka þátt í að skreyta fyrir páskana.

Heimilispósturinn

29


Vinnustofan í Mörk

Könglar eru ekki bara notaðir í jólaskreytingar.

Páska ungi að fæðast.

30

Heimilispósturinn


Vinnustofan í Mörk

Á meðan verið er að föndra er hlustað á ljúfa tóna og spjallað.

Heimilispósturinn

31


Prjónað í gríð og erg

Þ

Dúkkuæði í vinnustofunni

að er draumur að vera með dáta og dansa fram á nótt ómar úr vinnustofu Grundar og þarna sitja þær á annan tug heimiliskvenna og skeggræða um prjónaskap enda hafa þær flestar prjónað mikið um dagana. Nokkrar skellihlæja þegar þær eru spurðar hvort þær hafi lengi prjónað og ein segir að hún hafi alltaf verið með eitthvað á prjónunum þegar börnin voru lítil. Nú hefur gripið um sig dúkkuæði í vinnustofunni, heimiliskonurnar eru að prjóna bangsa og dúkkur handa langömmu eða langalangömmu börnunum sínum. Brúðurnar hafa allar sinn karakter, sumar eru skrautlegar og aðrar nokkuð hlutlausar. Sumar eru með krullað hár og aðrar slétt. Mestur er spenningurinn þó þegar það er saumað á þær andlit. Þá kemur persónuleikinn virkilega í ljós. Nokkrar konur hafa prjónað fleiri en eina dúkku og segja kátínuna mikla hjá ungviðinu þegar þau fá sína handprjónuðu dúkku.

Nú er bara að sjá hvernig karakter þessi brúða verður og kemur það í ljós þegar andlitið verður saumað á hana

32

Heimilispósturinn


Prjónað í gríð og erg

Valdís útskýrir fyrir Valborgu uppskrift að þessari kisu.

Svanhildi og Stefaníu líður vel í félagsskapnum í vinnustofunni.

Heimilispósturinn

33


Prjónað í gríð og erg

Valborg, Magnea og Ásdís eru fastagestir í vinnustofunni og Þórhalla aðstoðar þær hér við prjónaskapinn.

34

Heimilispósturinn


Lífið í Ási

Þ

Spjallað yfir húsverkunum

að er í mörgu að snúast á stóru heimili og þær stöllur Jaqueline Mendoza og Guðrún Sveinsdóttir hjálpast oft að við að brjóta saman borðtuskurnar fyrir hjúkrunarheimilið í Ási og spjalla þá um lífið og tilveruna í leiðinni.

Heimilispósturinn

35


Molar úr fortíðinni

S

Guðsþjónustur í setustofu

r. Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason stjórnarformaður Grundar, var vígður sem heimilisprestur á Grund 23. ágúst árið 1942, þá 66 ára gamall. Hann lauk námi í guðfræði frá Prestaskólanum aldamótaárið og með hárri einkunn. Þegar hann hóf störf sem heimilisprestur á Grund voru guðsþjónustur haldnar alla sunnudaga klukkan tíu í setustofunni á þriðju hæð. Hann var þó fyrr farinn að vera með morgunbænir í setustofunni fyrir heimilisfólkið. Messuhaldið var í setustofunni allt fram að þeim tíma er það færðist í hátíðasalinn árið 1952. Salurinn var síðan vígður árið 1955.

Hér er sr. Sigurbjörn Ástvaldur með morgunbæn eða helgistund.

36

Heimilispósturinn


Molar úr fortíðinni

Við guðsþjónustu í setustofu 3. hæð.

Heimilispósturinn

37


Tónskáldin kynnt í Mýrinni

Á

Ég hef svo gaman af lífinu

fimmtudögum berast sígildir tónar úr tómstundarýminu Mýrinni sem er fyrir þá sem búa í ibúðum fyrir 60+ í Mörkinni. Þorvaldur S. Þorvaldsson arkitekt og Kristján Engilbertsson verkfræðingur bjóða þá upp á tónlistarstundir. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir hitti Þorvald einn morguninn þegar hann var að koma úr sundi í Mörk og komst þá að ýmsu skemmtilegu.

Valið stóð milli arkitektúrs og tónlistar Frá unga aldri hefur tónlist fylgt Þorvaldi S. Þorvaldssyni arkitekt og hann hefur fylgt Sinfóníuhljómsveit Íslands frá stofnun árið 1950 og lengi verið í Vinafélagi óperunnar. Sem ungur maður lærði hann tónfræði hjá Ragnari Björnssyni og var farinn að leika ungur á píanó. Svo ríkan þátt átti tónlistin í lífi hans að þegar hann eftir MR stóð frammi fyrir því að velja sér starfsframa stóð valið milli þess að nema arkitektúr eða velja tónlistina. Nám í arkitektúr varð fyrir valinu en tónlistin hefur engu að síður ávallt skipan stóran sess í lífi hans. Tónarnir mýkri og dýpri á vínilplötum „Ég hlusta mikið á tónlist, bæði heima og síðan fer ég auðvitað á tónleika bæði hér heima og fór áður líka til útlanda í þeim tilgangi, minna undanfarið.” Þegar hann flutti í Mörk síðastliðið haust passaði hann að græjurnar frá Bang og Olufsen sem hann fékk að gjöf fyrir 35 árum flyttu með enda hægt að spila vinylplötur og segulbandsspólur í þeim græjum. 38

Heimilispósturinn


Tónskáldin kynnt í Mýrinni „Tónarnir eru mýkri og dýpri þegar tónlistin er leikin af vinilplötum”, segir hann sannfærandi. Tónlist í gróðurhúsinu En hvernig stóð á því að hann fór að bjóða upp á tónstundirnar í Mörk? „Ég hitti Kristján Engilsbertsson í gróðurhúsinu hér á lóð Markar þar sem hann sat og hlustaði að tónlist sem hann setti úr símanum sínum í lítinn Bang og Olufsen hátalara sem hann var með. Við tókum tal og ég áttaði mig á því að hann hafði mikinn áuga á tónlist og kunni á tæknina. Við ákváðum í framhaldi að bjóða í samvinnu upp á svona tónstundir og kanna hvort einhverjir hefðu áhuga á að hlusta með okkur og fræðast aðeins í leiðinni. Við byrjuðum smár hópur en þetta hefur verið að vinda upp á sig.“ Tekur tíma að finna réttu upptökuna Kristján og Þorvaldur hittast tvisvar í viku og fara yfir það sem þeir ætla að bjóða upp á, en það er töluverð vinna að setja þetta allt saman. „Það þarf að finna góðar upptökur og ég hlusta oft á margar upptökur þangað til ég finn þá réttu“, upplýsir hann. „En ég hef býsna gaman að þessu og ég er að rifja upp í leiðinni og hef þá eitthvað fyrir stafni“, segir þessi lífsglaði maður 86 ára. „Mér fannst til dæmis mjög gaman um daginn þegar ég fann hátiðarupptöku á verkinu Finlandiu eftir Sibelíus frá árinu 2011. Tónleikarnir voru í nýju tónlistarhúsi í Helsingfors og það var í leiðinni mjög fróðlegt og gaman að sjá þessa skemmtilegu byggingu.“ Hver stund hefur sinn tíma Þegar hann flutti í Mörk hafði Þorvaldur búið í sama húsinu í tæpa hálfa öld, húsi sem hann teiknaði sjálfur fyrir fjölskyldu sína í Hábæ í Árbæ. „Það er efiðara að teikna hús fyrir sig en aðra því þegar þú teiknar fyrir aðra færðu að heyra allskonar óskir og sjónarmið en þegar þú teiknar fyrir þig og þína þá er þetta bara allt öðruvísi. En það tókst vel og var gott að búa í því. Heimilispósturinn

39


Tónskáldin kynnt í Mýrinni Staðurinn líka frábær, í Elliðaárdalnum við ána.“ Var ekkert erfitt að flytja úr húsinu? „Nú verð ég að vitna í biblíuna en þar segir að hver stund eigi sinn tíma og þannig var það bara. Það var komið að því að taka þetta skref. Og það fer afskaplega vel um okkur hjónin hérna í Mörk,“ en eiginkona hans er Steinunn Jónsdóttir. Byrjuðu saman í Flensborg „Sameiginleg lífsganga okkar Steinunnar er orðin nokkuð löng, við vorum saman í Flensborg í Hafnarfirði og þar blómstraði rómantíkin þegar við vorum fjórtán eða fimmtán ára. Síðan höfum við verið saman, sátum á á aftasta bekk í strætó í fjögur ár þegar við vorum í MR og svo höfum við átt samleið, eignast þrjú börn, sex barnabörn og fimm barnabarnabörn.“ Tvö af þremur börnum Þorvaldar hafa fetað í fótspor föður síns, Jón Þór er arkitekt eins og pabbi sinn og Þorvaldur Bjarni stórnar tónlistaruppákomum í menningarhúsinu Hofi og er

Húsið sem Þorvaldur teiknaði og bjó í um hálfa öld með fjölskyldu sinni.

40

Heimilispósturinn


Tónskáldin kynnt í Mýrinni

Steinunn og Þorvaldur á yngri árum en þau eru samstúdentar frá MR.

framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. „Dóttir okkar, Herdís Sif landfræðingur og með enskar bókmenntir sem hliðarfag fór eigin leiðir og starfar sem flugfreyja.“ Rússneskt tónskáld í uppáhaldi En aftur að tónlistinni. Áttu þér uppáhalds tónskáld? Hann hikar augnablik við þessa spurningu en segir svo að líklega verði fyrir valinu rússneski tónsmiðurinn Dmitriy Dmitrievich Shostakovich. „Hann lifði langt fram á 20. öldina. Fyrri verkin hans voru samin undir áhrifum frá klassísku bylgjunni í Vínarborg frá 19. öld en seinni verkin frá nýjum tímum“. Hann segir að þeir félagar eigi eftir að fjalla um hann í tónstundunum en um þessar mundir eru þeir komnir að Tchaikovsky. „Ég hef einnig töluvert lengi verið að kynna mér hvenær Beethoven fór að hugsa um stefið Óður til gleðinnar í 9. sinfóníu. Hann var byrjuður strax á tvítugsaldri að nota það, um Heimilispósturinn

41


Tónskáldin kynnt í Mýrinni

Þorvaldur, að fræða þátttakendur um tónverk.

það bil þegar hann var að hefja nám í Vínarborg. Þetta er eitt stórbrotnasta verk sem við þekkjum fyrir stóran kór, hljómsveit og einsöngvara. Það hefur veitt mér mikla gleði að velta þessu fyrir mér.“ Mikilvægi hreyfingar Nú ertu 86 ára og það geislar af þér lífsgleðin og hreystin. Hvernig ferðu að þessu? „Ég hef svo gaman af því að lifa. Ég er lífsglaður að upplagi og hef utan starfsins haft gaman af ýmsum félagsskap, verið í Norræna félaginu, sinnt skógrækt og skipt mér af hinu og þessu. Ég gerði mér líka snemma grein fyrir mikilvægi hreyfingar og hef stundað hana reglubundið. Ég syndi töluvert, stunda leikfimi og geng mér til ánægju og heilsubótar. Þegar við bjuggum í Árbænum gengum við mikið í Elliðaárdalnum en nú er ég að kynna mér gönguleiðir hér í nágrenni við Mörk. Þegar hálkan var sem mest í vetur gengum við Steinunn innanhúss, stunduðum gangagöngu. Vissir þú að það er um 1.5 km ganga að fara frá minni íbúð og yfir í sundið og allt innangengt.“ 42

Heimilispósturinn


Tónskáldin kynnt í Mýrinni Þorvaldur segir að þeim líði afskaplega vel í Mörk. Hann er búinn að planta krókusum í grasið við sólstofuna hjá sér, segist vera að blanda sér í félagsskapinn sem kemur að gróðurhúsinu og svo mætir hann í sundið í Mörk. „Við Steinunn borðum líka í hádeginu með íbúum og erum með hverri vikunni sem líður að komast betur og betur inn í hvernig allt virkar. Og það er allt til fyrirmyndar, vel að öllu staðið“, segir þessi lífsglaði viðmælandi. „Þegar við vorum að skoða íbúðina síðastliðið sumar þá vorum við þrír ættliðir arkitekta saman, ég, Jón Þór sonur minn og dóttir hans Steinunn Jónsdóttir. Þegar við vorum búin að skoða og spjalla horfðum við hvert á annað og sögðumst ekki sjálf hafa getað hannað þetta betur.“ Ég hef tekið viðtöl í áratugi, lengst af fyrir Morgunblaðið en síðustu ár hér á síðum Heimilispóstsins og Þorvaldur S. Þorvaldsson verður án efa einn af þessum minnistæðu viðmælendum sem maður gleymir ekki svo glatt.

Bændur borguðu með eggjum

Á

miðöldum urðu bændur að borga eigendum landsins sem þeir bjuggu á skatt. Í löndum Evrópu var algengt að skatturinn væri greiddur í eggjum um páska. Á þessum árstíma var nóg til af þeim og þau voru líka eftirsótt af því að það var bannað að borða egg á föstunni fyrir páska. Eggin sem greidd voru í skatt voru oft kölluð páskaegg og landeigendur gáfu fátækum hluta af þeim. Svona urðu páskarnir eiginlega þessi mikla eggjahátíð sem þau eru enn þann dag í dag. Með tímanum þróaðist sá siður að börn leituðu eggja og seinna voru eggin myndskreytt og skilaboð, yfirleitt trúarleg, látin fylgja þeim. Það var svo á 19. öld að framleiðsla hófst á sælgætiseggjum með málsháttum, heilræðum eða skilaboðum. Heimilispósturinn

43


Gaf rafskutlur í Ás

Gjöf til minningar um heimiliskonu

E

rlendur Guðmundsson gaf Ási tvær rafskutlur á dögunum til minningar um eiginkonu sína Guðlaugu Hróbjartsdóttur. Önnur rafskutlan er tveggja sæta og hugsuð þannig að starfsmaður og heimilismaður geti farið saman í hjólatúr. Hin er fyrir einn og getur hentað vel fyrir starfsmenn þegar komast þarf á milli staða á stóru heimili. Guðlaug bjó á Ási um fimm ára skeið en hún féll frá í maí á þessu ári. Erlendur heldur enn tryggð við heimilið og kemur nær daglega í heimsókn. Guðlaug og Erlendur hófu sinn búskap fyrir ríflega 60 árum á Njálsgötunni í Reykjavík. Hann var ofan af Kjalarnesi en hún var alin upp í miðbæ Reykjavíkur. Þau eignuðust einn son og fjögur barnabörn. Guðlaug starfaði lengst af sem skrifstofumaður, meðal annars hjá Almenna byggingarfélaginu og þar kynntust þau Erlendur því hann starfaði þá þar sem vélamaður. Guðlaug hafði mikið yndi af hvers kyns tónlist og söng bæði í kirkjukór Laugarneskirkju og Árnesingakórnum. Þau hjón höfðu gaman af því að ferðast og fóru oft til útlanda bæði á eigin vegum og eins með kórfélögum Guðlaugar. Eftir að þau festu kaup á húsi í Hveragerði fyrir um 10 árum keyptu þau einnig húsbíl og ferðuðust mikið á honum. Erlendur segir Guðlaugu hafa verið einstaklega skemmtilegan ferðafélaga, bæði á eiginlegum ferðalögum og eins í gegnum lífið sjálft. Erlendur vill með gjöfinni þakka fyrir þá umönnun sem Guðlaug fékk á Ási og segir hana hafa verið svo hamingjusama þessi síðustu ár sín. Erlendi er þakkað kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf sem muna koma sér afskaplega vel.

44

Heimilispósturinn


Gaf rafskutlur í Ás

Heimilispósturinn

45


Notalegur morgun á Grund

Ilmolía, handarnudd og ljúfir tónar

E

inn morguninn ilmaði frúargangur svo vel og þegar betur var að gáð kom í ljós að það var kósístund hjá heimilisfólki og starfsfólkinu. Mildir tónar ómuðu um setustofuna og fólk lá með flísteppi eða sat bara í stól og andaði að sér ljúfum ilmi. Starfsfólk og heimiliskonur nudduðu síðan hendur hvers annars og nutu stundarinnar.

Sannkölluð kósístund. Kristín knúsar Magneu á meðan Sherill nuddar.

46

Heimilispósturinn


Notalegur morgun á Grund

Einstakir morgnar þegar þeir hefjast með þessum hætti á frúargangi.

Ásdís Hanna fær hér nudd frá Jónu M. Snævarr heimiliskonu.

Heimilispósturinn

47


Lífið í Bæjarási

Þ

Æft fyrir upplestrarkeppni

að er lykilatriði að æfa sig vel áður en farið er að taka þátt í upplestrarkeppni og líklega eru fáir sem eru betri hlustendur en þeir sem eru í dagdvöl eða búa í Bæjarási. Þeir hafa nægan tíma og áhuga á að hlusta og meta lesturinn. Nemendur í 7. bekk grunnskólans í Hveragerði komu því fyrir skömmu í Bæjarás og æfðu sig og fengu viðbrögð.

48

Heimilispósturinn


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Heimilispósturinn - apríl 2019 by Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili - Issuu