Skip to main content

Heimilispósturinn - mars 2018

Page 1

HEIMILISPÓSTURINN Heimilisblað Grundar, Áss og Markar 54. árgangur

mars 2018

ga e l i ð e l G páska

1. tölublað


Efnisyfirlit Sungu fyrir ömmu og heimilisfólkið...................................................... 3 Kósístund í Mörk...................................................................................... 4 Samvinnuverkefni að koma stólnum í lag............................................. 5 Gulur dagur á Grund.............................................................................. 6 Fyrstu íbúðirnar afhentar í apríl.......................................................... 8 Skapa notalega stund með handanuddi............................................... 10 Eplakaka með rjóma vinsæl....................................................................11 Spilað um tugi eggja.............................................................................. 12 Vantaði brauðbakka í Bæjarás.............................................................. 14 Hádegismatur á veitingahúsinu hjá Valda og Hansa.......................... 15 Alltaf stemmning á öskudag................................................................. 16 Stórkostlegir tónleikar...................................................................... 18 Gáfu heimilinu sethjól........................................................................... 20 Sól á glugga............................................................................................ 21 Dansinn dunar í Ási................................................................................. 22 Þar sem tíminn stendur í stað.............................................................. 24 Smyrill vildi þröst, ekki smjör............................................................. 30 Starfsfólk fræðist um Eden................................................................ 31 Sagði frá uppvexti sínum á Grund........................................................ 32 Hálfrar aldar gömul hrærivél sem enn er í fullri notkun............. 34 Mættu á stóru upplestrarkeppnina í Þorlákshöfn.......................... 36 Systkini sem búa tímabundið á Grund.................................................. 37 Bauð heimiliskonunni í handsnyrtingu................................................ 38 Finnst gott að taka til hendinni........................................................... 39 Bauð ömmustelpunni sinni í hjólatúr.................................................. 40 Æfir sig á íslensku og syngur á króatísku........................................ 42 Páskaeggin sem verða að veggmynd.................................................... 44 Þetta er ég.............................................................................................. 46 Íslenskir fuglar málaðir á flísar........................................................ 48 Forsíðumyndin er tekin á hattaballi í Ási af þeim stöllum Fjólu Ólafsdóttur og Gunnhildi Þormundsdóttur. Ritstjóri: Guðbjörg R. Guðmundsdóttir. Hönnun og uppsetning: Írena Dögg McCabe. Prentun: GuðjónÓ. Upplag: 1500. 2 Heimilispósturinn


Skemmtileg heimsókn á Grund

Í

Sungu fyrir ömmu og heimilisfólkið

bljúgri bæn ómaði svo fallega úr hátíðasalnum þegar þau Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Davíð Sigurgeirsson voru gestir í morgunstund Grundar fyrir skömmu. Parið tók hvert lagið á fætur öðru, allt lög sem heimilisfólk kannaðist við. Heimiliskonan Guðlaug Sigurgeirsdóttir hlýddi á með mikilli athygli enda ömmustrákurinn hennar Davíð Sigurgeirsson sem kom þarna fram með konunni sinni Jóhönnu Guðrúnu Jónsdóttur. Það er alltaf sérstaklega gaman þegar aðstandendur koma fram í hátíðasalnum, syngja, lesa, halda fyrirlestra eða gleðja heimilisfólkið og stytta því stundir með einhverjum hætti. Allt sjálfboðaliðastarf er vel þegið og endilega hafið samband við deildarstjóra ef þið viljið gleðja með þessum hætti eða sr. Auði Ingu Einarsdóttur sem heldur almennt utan um sjálfboðaliðastarfið í húsinu. Netfangið er audur@grund.is

Davíð Sigurgeirsson ásamt ömmu sinni, heimiliskonunni Guðlaugu Sigurgeirsdóttur og konunni sinni Jóhönnu Guðrúnu Jónsdóttur.

Heimilispósturinn

3


Fræðsla um þorra og bóndadag

H

Kósístund í Mörk

ver er sagan á bak við þorrahefðirnar og eitthvað er dularfullur uppruni bóndadagsins. Stefán Pálsson sagnfræðingur kom nýlega í heimsókn í Mörk og upplýsti áhugasama um þessa hluti og aðra sem snerta þorrann. Það voru hátt í hundrað manns sem létu sig ekki vanta á fyrirlesturinn enda Stefán skemmtilegur sagnamaður og fróður um þessi mál. Viðburðurinn var kallaður Kósístund enda bauð eldhúsið upp á heitt súkkulaði og kruðerí sem borið var fram á meðan fólk hlustaði.

4

Heimilispósturinn


Fólk hjálpast að í Bæjarási

S

Samvinnuverkefni að koma stólnum í lag

teinunn Svanborg Gísladóttir bústýra í Bæjarási hirti upp úr stofugólfinu skrúfu og ró einn morguninn og áttar sig á því skömmu síðar að einn hvíldarstólinn er allur skakkur. Karlarnir á heimilinu voru fljótir að tengja að skrúfan kæmi úr stólnum en Steinunn hélt hinsvegar fram að hún kæmi úr einhverju af hjálpartækjunum. Herramennirnir gáfust ekki upp fyrr en hún velti stólnum og skoðaði. Jakob Guðnason sem kemur í Bæjarás í dagdvöl tvisvar í viku bauðst til að laga stólinn en fékk hjálp frá Hjördísi Hörpu Guðlaugsdóttir hjúkrunarnema og Karli Stefánssyni heimilismanni sem er eigandi stólsins.

Jakob, Hjördís Harpa og Karl löguðu saman stólinn hans Karls.

Heimilispósturinn

5


Hækkandi sól og páskar í nánd

Þ

Gulur dagur á Grund

egar páskar nálgast og sól fer að hækka á lofti er haldinn gulur dagur á Grund. Heimilismenn og starfsfólk, sem eiga gula flík, skarta henni þennan dag og einhverjir fá lánað gult skart. Það var meira að segja gult krem á sætabrauðinu þennan dag.

Heiðurshjónin Helgi og Svanhvít.

6

Heimilispósturinn


Hækkandi sól og páskar í nánd

Rósa, Auður, Valdís, Þórhalla og Pétur mættu öll í gulu.

Agnes og Valborg. Takið eftir hálsfestinni sem Valborg bjó til.

Heimilispósturinn

7


Nýjar þjónustuíbúðir í Mörkinni

Fyrstu íbúðirnar afhentar í apríl

V

ikulegir kynningarfundir hafa skilað þeim árangri að rúmlega helmingur þeirra 74 íbúða sem verið er að byggja austan hjúkrunarheimilisins í Mörk hafa þegar verið seldar. Fyrstu íbúðirnar verða afhentar í byrjun apríl, þær sem standa við Suðurlandsbrautina, en þær sem standa við Miklubrautina verða afhentar fyrri hluta júlí mánaðar. Enn á eftir að halda nokkra kynningarfundi og líkur eru á að flestar ef ekki allar íbúðirnar verði seldar að þeim loknum. Það er greinilegt að mikil þörf er fyrir íbúðir sem þessar og hefur Grund þegar sótt um aðra lóð hjá Reykjavíkurborg til að byggja fleiri slíkar ásamt hjúkrunarheimili á sama stað.

Nánari upplýsingar veitir Alda Pálsdóttir í síma 5601719, alda@grund.is. Sjá einnig á www.morkin.is 8

Heimilispósturinn


Nýjar þjónustuíbúðir í Mörkinni

Alls er verið að byggja 74 nýjar þjónustuíbúðir í Mörkinni.

Heimilispósturinn

9


Starfsfólk Grundar á námskeiði

N

Skapa notalega stund með handanuddi

uddararnir Guðleif Anna Ellerts og Vera S. Blouir komu nýlega í heimsókn á Grund í þeim tilgangi að kynna fyrir starfsfólki hvernig hægt er að skapa notalega stund með einföldu handanuddi og með notkun ilmkjarnaolía. Skemmst er frá því að segja að starfsfólkið var mjög hrifið af olíunum og nuddinu og eflaust líður ekki á löngu þar til heimilismönnum verður boðið upp á svona dekurstund.

Eins og sést á myndinni nýtur Elsa handanuddsins sem Sigríður er að veita.

10

Heimilispósturinn


Kaffihús á laugardögum

Á

Eplakaka með rjóma vinsæl

laugardögum verður andrúmsloftið við Boggubúð í Mörk aðeins öðruvísi því þá er þar rekið kaffihús. Gestum býðst að kaupa nýlagað kaffi, cappucino, latte eða espresso og gæða sér á tertusneið með rjóma. Það er gjarnan margt um manninn og oft eru öll borðin upptekin bæði við verslunina og sum í tengigangi. Heimilisfólk kann að meta tilbreytnina og finnst gott að geta boðið fólkinu sínu á kaffihús nú eða aðstandendur glaðir að geta boðið heimilisfólki. Oft er íspinna gaukað að smáfólkinu og þarna á fólk saman notalega stund.

Kaffihúsið er opið frá eitt til fimm alla laugardaga og kostar kaffi og tertusneið með rjóma 750 kr.

Heimilispósturinn

11


Páskaeggjabingó á Grund

Þ

Spilað um tugi eggja

að var mjög vel mætt í páskaeggjabingó Grundar sem haldið var nýlega í hátíðasal heimilisins. Allir voru leystir út með litlum eggjum í lokin en mesta spennan var þegar spilað var um þrjú stærstu eggin. Stærsta eggið vann heimiliskonan Sigríður Kristjánsdóttir.

Sigríður Kristjánsdóttir með stóra eggið.

Inga, Birta og Katla tilbúnar í bingóið.

12

Heimilispósturinn


Páskaeggjabingó á Grund

Það var góð mæting í páskabingóið og mikil spenna í loftinu.

Áslaug og Hrefna spá í tölurnar.

Heimilispósturinn

13


Handlaginn heimilismaður

Vantaði brauðbakka í Bæjarás

Á

rni Sigurðsson heimilismaður í Bæjarási er þessa dagana að búa til brauðbakka í iðjuþjálfun sem hann ætlar svo að gefa Bæjarási enda lengi vantað fallegan brauðbakka þar. Hann er handlaginn maður og vinnusamur og sinnir ýmsum störfum heima, straujar, tekur upp grænmeti, vökvar og vinnur bara við það sem til fellur á heimilinu.

Flottur brauðbakkinn sem mun enda í Bæjarási.

14

Heimilispósturinn


Heimilifólk í Langholti

Hádegismatur á veitingahúsinu hjá Valda og Hansa

H

eimilisfólkið í Mörk þarf ekkert endilega að fara langt til að fá tilbreytingu. Starfsfólkið í eldhúsinu hvetur heimilismenn til að koma niður í matsal á fyrstu hæð og borða þar af og til. Þá dúka kokkarnir borð og setja blóm í vasa. Þessi mynd var tekin þegar heimilisfólkið, sem býr í Langholti, mætti á „veitingahús Valda og Hansa" og snæddi saman.

Heimilispósturinn

15


Hattaball á Grund

Á

Alltaf stemmning á öskudag

öskudag hefur skapast sú hefð að vera með hattaball á Grund. Um árin hefur heimilinu tekist að sanka að sér úrvali höfuðfata og heimilisfólkið velur svo úr safninu hatt við hæfi. Margir taka hattaballið með trompi og leggja uppúr að með því að mæta í búningi. Undanfarin ár hefur Grundarbandið leikið fyrir dansi og svo var einnig að þessu sinni.

Ásdís mætti sem Rauðhetta.

Magdalena og Guðrún Margot heimiliskona tóku saman nokkur spor.

16

Heimilispósturinn


Hattaball á Grund

Ingibjörg Gunnlaugsdóttir og Ásgrímur fylgjast með fólkinu á dansgólfinu.

Guðrún Marteinsdóttir og Sigrún dönsuðu saman.

Heimilispósturinn

17


Karlakórinn Heimir í Mörk

E

Stórkostlegir tónleikar

inn bjartan laugardag í mars komu stormandi inn um dyrnar í Mörk tugir herramanna klæddir í vínrauða jakka og héldu beint í matsalinn. Þar voru komnir félagar í Karlakórnum Heimi sem buðu heimilismönnum Markar sem og íbúum í þjónustuíbúðum GM upp á stórkostlega tónleika. Söngurinn barst upp á hæðir og félagarnir tóku hvert lagið á fætur öðru sem flestir könnuðust vel við. Stjórnandi kórsins er Stefán R. Gíslason og undirleikarar Tómas R. Higgerson og Valmar Valjaots. Óskar Pétursson söng einsöng og aukatvísöng tóku þeir Óskar og Pétur Péturssynir. Kvartettinn skipuðu Birgir Þórðarson, Pétur Pétursson, Einar Valur Valgarðsson og Pétur Stefánsson. Eftir þessa frábæru tónleika bauð Þorvaldur Þorvaldsson matreiðslumeistari og hans fólk í eldhúsinu upp á randalínu og kaffi og gaukaði að kórfélögum brennivínsstaupi og hákarlsbitum.

Óneitanlega mjög hátíðlegt að sjá þegar allir þessir herramenn stormuðu í salinn.

18

Heimilispósturinn


Karlakórinn Heimir í Mörk

Fjöldi manns mætti til að hlýða á kórinn.

Valdi stóð vaktina og bauð kórfélögum upp á hressingu að loknum tónleikum.

Heimilispósturinn

19


Komu færandi hendi

O

Gáfu heimilinu sethjól

ddfellow stúkan Ari fróði færði hjúkrunarheimilinu Mörk rausnarlega gjöf á dögunum. Um er að ræða sethjól af gerðinni Tunturi Platinum Pro. Tækið nýtist flestum og geta hjólað sitjandi. Hjólið gefur góðan stuðning við bakið og er stillanlegt á marga vegu. Einnig er hægt að hafa mismunandi erfiðleikastuðla á æfingum auk þess að mæla púls þess sem er að hjóla. Gísli Páll Pálsson, forstjóri í Mörk, segir mikilvægt að eiga góða að eins og stúkuna Ara fróða sem færir nú heimilinu þessa gagnlegu og góðu gjöf og þakkar kærlega fyrir hönd heimilisins.

Hjólið mun koma sér vel í sjúkraþjálfun Markar.

20

Heimilispósturinn


Ljóðið

Sól á glugga Það er sólskin á glugga bernsku minnar, birtan hlý og mild kartöflur í skál klaufalega lagt á borðið. Að verki loknu sest ég við gluggann og horfi út á róló meðan mamma færir upp fiskinn. Hvers vegna er sól á glugga og sorg svo fjarri? Bernskuár eru ekki bara birta og gleði, barnið svo hjálparvana, varnarlaust. Nú sit ég við gluggann Horfi á bernskumynd öldruðum augum. Bernska og elli mesta prófraun mannkyns. En er ekki þetta varnarleysi helsta uppspretta gleði barnsins? Af því að það felur það allt móður sinni: Sjáðu! Nútíð, fortíð, framtíð – allt safnast í einu augliti, sem er bros. Móðurbros sem er skuggi Guðs. Ljóðið er eftir sr. Karl Sigurbjörnsson og birt með góðfúslegu leyfi hans

Heimilispósturinn

21


Skrautleg höfuðföt

Þ

Dansinn dunar í Ási

að er beðið með eftirvæntingu eftir hattaballinu í Ási sem iðulega er haldið í kringum öskudag. Birgir Hartman lék að þessu sinni fyrir dansi. Það er skemmtilegt að segja frá því að flestir hattarnir eru í eigu konu sem býr í Ási, Guðmundu Helgadóttur. Vegna plássleysis þar sem hún býr, eru höfuðfötin geymd á hillum í iðjuþjálfun. Heimilismenn njóta góðs af og fá lánaða hatta fyrir dansleikinn.

Systurnar Steinunn og Una Runólfsdætur létu sig ekki vanta á dansleikinn.

22

Heimilispósturinn


Skrautleg höfuðföt

Birgir Hartmans harmonikkuleikari.

Elínborg Guðmundsdóttir og Kristína Sigurþórsdóttir

Hjónin Guðjón og Ása tóku sig vel út með skrautlega hatta.

Heimilispósturinn

23


Hún stofnaði Mokka fyrir sextíu árum

Þar sem tíminn stendur í stað

G

uðný Guðjónsdóttir fær stundum sendan til sín á Grund einn millisvartan eða espressó frá Mokka enda vön góðum ítölskum kaffibolla. Hún sagði Guðbjörgu R. Guðmundsdóttur að fyrir sextíu árum þegar hún stóð við nýju ítölsku kaffivélina á Mokka og bauð upp á expresso eða cappucino vissu fáir hvað hún var að tala um. Vangadans í Feneyjum Eiginmaður Guðnýjar, Guðmundur Baldvinsson, hafði verið um árabil í Napólí og Róm á Ítalíu þar sem hann nam söng. Þegar hann flutti heim sá hann fyrir sér hvað það væri gaman að geta boðið upp á ekta ítalskan kaffibolla hér heima. Á þessum tíma var unga Reykjavíkurmærin Guðný Guðjónsdóttir ekki komin í líf hans. Það var á hinn bóginn ekki langt í það því þegar hann ásamt vini sínum Thor Vilhjálmssyni var fararstjóri í ferð frá Kaupmannahöfn og niður til Ítalíu var þessi unga fallega stúlka í hópnum, Guðný Guðjónsdóttir. Hún fer aðeins hjá sér þegar ég spyr út í ferðina og spyr hvort hún eigi nokkuð að segja frá þessari afdrifaríku ferð, bætir þó við að hún og Guðmundur hafi vangað í Feneyjum og þar með hafi örlög þeirra verið ráðin. Kaffibolli á fimm krónur Guðný og Guðmundur fóru að búa og ákváðu að opna saman 24

Heimilispósturinn


Hún stofnaði Mokka fyrir sextíu árum

Mokka – Kaffi á Skólavörðustíg. Þau tóku lán og keyptu rándýra kaffivél frá Ítalíu. „Þetta var heilmikið fyrirtæki fyrir okkur. Hugmyndin var að reka kaffihúsið með öðru. Guðmundur var að reyna fyrir sér sem söngvari og ég hafði verið í frábæru starfi hjá prentsmiðjunni Eddu. Þar vann ég sem bókari og gjaldkeri og vil gjarnan að það komi fram að þar fékk ég borgað nákvæmlega sömu laun og karlmennirnir sem var nú nokkuð sérstakt á þessum árum. “ Varð strax vinsæll staður „En við opnuðum sem sagt Mokka 24 maí árið 1958 og það varð strax vinsæll staður. Það má segja að Mokka hafi alveg gleypt okkur. Við höfðum ekki tíma til að sinna öðru. Fólk hafði aldrei áður kynnst espresso, cappucino eða latte og það var alveg forviða yfir því að fá ekki áfyllingu á kaffibollann sinn eins og það var vant annars staðar. Því þótti líka svolítið skrýtið að borga svona mikið fyrir „lítinn“ kaffibolla. Þá tíðkaðist bara að vera með uppáhelling á könnum.“ Heimilispósturinn

25


Hún stofnaði Mokka fyrir sextíu árum Í upphafi kostaði kaffibollinn fimm krónur og dóttir Guðnýjar, Oddný, skýtur inn í að í dag kosti hann 580 krónur. Kaffivélarnar hafa þau pantað að utan og núna er það fimmta kaffivélin sem er í notkun. Mikill annatími Ári eftir að Mokka opnaði fæðist síðan frumburður þeirra hjóna, Oddný. Tveimur árum síðar kemur Sesselja í heiminn og þriðja barnið, Örn fæðist svo þremur árum síðar. Á fimm árum eru Guðný og Guðmundur komin með þrjú börn. „Þetta var annatími hjá okkur, mikið puð en gaman líka“, segir hún og gjóar augunum á Oddnýju sem situr með okkur og segir að líklega hafi þetta bitnað dálítið á börnunum. Hún er þó fljót að bæta við að börnin hafi samt ekki beðið tjón af, þau séu yndislegar manneskjur sem hafi farnast vel og það sé fyrir öllu. Þau bjuggu fyrstu búskaparárin á Kleppsvegi en svo bauðst þeim árið 1976 að kaupa íbúð fyrir ofan Mokka á Skólavörðustígnum og það breytti miklu. „Það munaði mjög miklu fyrir okkur að búa fyrir ofan Mokka. Ég gat sett upp matinn eða sett í þvottavél og farið svo niður aftur og börnin komu heim eftir skóla og við vorum alltaf á staðnum.“

Guðný ásamt börnum sínum og fjölskyldum þeirra.

26

Heimilispósturinn


Hún stofnaði Mokka fyrir sextíu árum

Eitt sem ekki breytist Mokka hefur verið fasti punkturinn í tilverunni hjá mörgum í áratugi og þeir kunna að meta íhaldsemina sem þar ræður ríkjum. Á meðan miðbærinn hefur tekið miklum breytingum hefur Mokka verið óbreytt. Fastagestirnir koma alls staðar frá, menntskælingar eiga þar fast athvarf, einstaklingar og vinir sem eru á rölti um Skólavörðustíginn, rithöfundar, myndlistarmenn, ferðamenn. Landsfrægir menn hafa haldið til á Mokka, Dagur Sigurðsson var nánast daglegur gestur um árabil, Stefán frá Möðrudal kom mikið á Mokka, Erró, Þorsteinn frá Hamri, Tómas Guðmundsson, Jökull Jakobsson og Júlíana Sveinsdóttir svo dæmi séu tekin. Enda hefur Mokka ratað bæði í skáldsögur og ljóðabækur. En það hefur aldrei verið hægt að kaupa vínveitingar á Mokka, þar er engin tónlist sem glymur í eyrum og alltaf eitthvað fyrir augu að njóta, því allan ársins hring eru þar

Heimilispósturinn

27


Hún stofnaði Mokka fyrir sextíu árum myndlistarsýningar. „Strax í upphafi buðum við upp á myndlistarsýningar og fyrsta sýningin okkar var samsýning og þar sýndu verk sín Bragi Ásgeirsson, Bjarni Jónssson, Barbara Árnason, Benedikt Gunnarsson og Jón Benediktsson. Enn í dag er alltaf í gangi einhver sýning hjá okkur. Guðmundur hélt Hjónin Guðný og Guðmundur. utan um sýningarnar til ársins 1991 en þá tók tengdasonur okkar, Hannes Sigurðsson listfræðingur, við sýningarhaldinu. Framkvæmdastjóri Mokka er Oddný, eldri dóttir mín, og maðurinn hennar Gunnar Rúnar Kristinsson, sem er grafískur hönnuður, hefur séð um sýningarhaldið frá 2007.“ Vöffluuppskriftin leyndarmál Margir segja að vöfflurnar ykkar séu þær bestu í bænum. Er ekki hægt að falast eftir uppskriftinni fyrir lesendur Heimilispóstsins? Mægðurnar horfa kimnar hvor á aðra en eru sammála um að uppskriftin fáist ekki upp gefin. „Hún er viðskipta leyndarmál og starfsfólkið fær ekki einu sinni að vita hvað fer í vöffludeigið”, segir Oddný. „Það er alltaf einhver í fjölskyldunni sem hrærir deigið í vöfflurnar og undanfarið hefur það verið barnabarn mömmu, Stefán, sonur minn, sem sér um það“ upplýsir Oddný. Barnabörnin hafa öll unnið eða eru að vinna á staðnum. 28

Heimilispósturinn


Hún stofnaði Mokka fyrir sextíu árum Ekkert að breyta því sem vel gengur Hvað haldið þið að skýri vinsældir Mokka í áranna rás? „Í upphafi var það kannski nýja brumið,“ segir Guðný „að fá sér kaffi sem ekki fékkst annars staðar. Síðan er það sambland af ýmsu en kannski fyrst og fremst að það er ró hjá okkur og fólk veit að hverju það gengur, við erum ekkert að breyta því sem vel gengur. Við höfum alltaf sagt við starfsfólkið okkar að viðskiptavininn á að láta í friði.“

Guðný hlýtur hér þakkarviðurkenningu FKA. Hér er hún á mynd með frú Vigdísi Finnbogadóttur, Guðbjörgu Magneu sem hlaut FKA viðurkenningu sama ár og Maríu Rúnarsdóttur sem hlaut hvatningarverðlaunin.

Ætlar að ganga um æskuslóðir í sumar Hvernig var fyrir þig að flytja hingað á Grund af Skólavörðustígnum. „Þegar ég sá fram á að geta ekki lengur verið á Skólavörðustígnum þar sem stigarnir voru farnir að vera mér erfiðir kom fátt annað til greina en flytja á Grund. Ég lít á mig sem Vesturbæing, bjó lengi á Ásvallagötunni. Mér líður afskaplega vel á heimilinu og nú hlakka ég bara til í sumar að ganga um fornar slóðir og rifja upp góðar minningar úr æsku.“ Heimilispósturinn

29


Lífið er ekki alltaf dans á rósum

Í

Smyrill vildi þröst, ekki smjör

vetur hafa íbúar fylgst með fuglalífinu út um glugga matsalarins á fyrstu hæð heimilisins í Mörk því kokkarnir hafa af rausnarskap sínum ekki bara hugsað um mannfólkið heldur líka fuglana þegar frostið hefur bitið. Þeir hafa gefið þeim smjör og afganga við mikla gleði fuglanna. Einn fuglinn var lang frekastur ef svo má segja því hann rak alltaf aðra fugla í burtu á meðan hann gæddi sér á smjörinu. Svo kom óvæntur gestur að matborðinu og það var ekki smjörið sem vakti áhuga hans heldur smjörfyllti þrösturinn sem var orðinn vel pattaralegur. Smyrillinn gæddi sér á fuglinum en lét sig svo hverfa og hefur ekki sést síðan

30

Heimilispósturinn


Eden námskeið í Ási

T

Starfsfólk fræðist um Eden

ugir starfsmanna mættu á Eden námskeið sem haldið var nýlega í Ási en stefnt er að því að fá alþjóðlega Eden viðurkenningu fyrir Ás á þessu ári. Eitt skilyrðið er að sem flestir starfsmenn taki þátt í námskeiði sem stendur yfir í þrjá daga.

Rannveig Guðnadóttir, verkefnastjóri Eden á Íslandi leiðbeinir á þriggja daga námskeiðinu en fær til sín góða gesti líka sem koma með innlegg.

Heimilispósturinn

31


Gestir frá Dómkirkjunni

Sagði frá uppvexti sínum á Grund

Þ

að var fjölmennt í hátíðasal Grundar þegar gestir frá Dómkirkjunni komu í heimsókn og áttu góða stund með heimiilisfólki. Guðrún B. Gísladóttir, forstjóri heimilisins, rakti sögu Grundar og sagði frá uppvexti sínum á heimilinu, sýnt var myndband um starfsemi Grundar og Jón Ólafur Þorsteinsson lék á harmonikku. Að stundinni lokinni var boðið upp á kaffi og meðlæti.

Guðrún B. Gísladóttir í pontu að segja frá æsku sinni á heimilinu.

32

Heimilispósturinn


Gestir frá Dómkirkjunni

Auk gesta frá dómkirkju fjölmennti heimilisfólk í salinn.

Heimilispósturinn

33


Molar úr fortíðinni

Hálfrar aldar gömul hrærivél sem enn er í fullri notkun

Á

rið 1941 ákvað Grund að kaupa nýtísku hrærivél fyrir heimilið og varð fyrir valinu Hobart vél frá Bandaríkjunum. Vegna stríðsins kom hún ekki til landsins fyrr en fjórum árum síðar. Á þessum árum sá Steinunn Helgadóttir um baksturinn að mestu en þó aðrir starfsmenn líka þegar hún var ekki að vinna því það var bakað nánast daglega með kaffinu. Hrærivélin hefur verið í fullri notkun frá árinu 1945 og er enn aðal hrærivélin á Grund. Toddi, málarinn okkar, sér um að hressa upp á útlit hennar reglulega. Í dag er Kristján Þ. Sigmundsson bakari á Grund og hann hrærir að sjálfsögðu í kökurnar í þessari góðu vél.

Kristján bakari við hrærivélina sem hann notar í viku hverri.

34

Heimilispósturinn


Molar úr fortíðinni

Sigríður er hér fyrir einhverjum áratugum að hræra í góðar kökur með kaffinu.

Heimilispósturinn

35


Æfðu sig fyrir heimilisfólk

Mættu á stóru upplestrarkeppnina í Þorlákshöfn

K

rakkar í 7. bekk grunnskólans í Hveragerði hafa verið að æfa sig fyrir stóru upplestrarkeppnina með því að lesa fyrir heimilisfólk í Bæjarási. Þegar kom svo að stóra deginum, sjálfri keppninni, kom ekki annað til greina en þiggja boð um að vera viðstödd. Heimilismennirnir Karl Stefánsson og Einar Jónsson þáðu boðið og fór ásamt Steinuni Svanborgu Gísladóttur bússtýru og Dagbjörtu Kristjánsdóttur sem kemur í dagdvöl í Bæjarás og er íslenskukennari. Keppt var í ráðhúsi Ölfusinga í Þorlákshöfn.

Karl og Einar mættu á stóru upplestrarkeppnina í Þorlákshöfn.

36

Heimilispósturinn


Ný andlit í vinnustofu

Systkini sem búa tímabundið á Grund.

E

kki amaleg þessi fallegu börn sem búa nú um stundarsakir á vinnustofu Grundar, þökk sé myndarskap heimiliskonunnar Magneu Sigurhansdóttur. Hún prjónaði þessi systkini og fékk smá aðstoð með andlitið og hárið. Þetta verður gjöf til heppinna barnabarnabarna. Þessi myndarlegu systkini fengu nöfnin Dísa og Halli og var þá verið að vísa til þeirra starfsmanna sem þar vinna, Valdísar og Þórhöllu. Það er gaman að fylgjast með starfinu í vinnustofunni sem er fjölbreytt og notalegt.

Dísa og Halli í vinnustofunni en brátt verða þau gefin langömmubörnum.

Heimilispósturinn

37


Dekurstund í Mörk

S

Bauð heimiliskonunni í handsnyrtingu

umar stundir eru bara dýrmætari en aðrar og þannig var það með þessa hér í Mörk. Þegar starfsmaðurinn, Sarot Ananphiboon, átti lausa stund bauð hann heimiliskonunni Margréti Magnúsdóttur í handardekur sem hún þáði samstundis. Ekki amalegt að hafa svona starfsfólk á heimilinu.

Margrét kunni vel að meta handsnyrtingunna.

38

Heimilispósturinn


Eldhússtörfin í Ási

Finnst gott að taka til hendinni

H

eimiliskonan Sólveig Erla Brynjólfsdóttir er vön að hafa mikið að gera enda fyrrum bóndi og mikil hestakona. Hún vill því gjarnan taka til hendinni þegar færi gefst og aðstoðar þá Elitu í eldhúsinu í Ási og nýtur þess virkilega.

Sólveig Erla elskar að hafa eitthvað fyrir stafni og aðstoðar gjarnan í eldhúsinu.

Heimilispósturinn

39


Vorboðinn í Mörk

Bauð ömmustelpunni í hjólatúr

F

ólki fannst bara eins og vorið væri komið þegar það rakst á Guðrúnu Hreinsdóttur heimilisstýru í Langholti í Mörk sem ákvað að skella sér í hjólatúr í blíðunni með Möggu og Emmu ömmustelpu.

40

Heimilispósturinn


Vorboðinn í Mörk

Gréta Finnbogadóttir og Snati fengu boð um að skella sér í hjólatúr nýlega. Þau voru ekki lengi að þiggja það.

Heimilispósturinn

41


Sjálfboðaliði frá Króatíu á Grund

Æfir sig á íslensku og syngur á króatísku

U

ndanfarna mánuði hefur, Sandra Juzbašić verið að vinna sem sjálfboðaliði á Grund. Hún er frá Čakovec, sem er lítill bær í norðuhluta Króatíu. Sandra unir vel sínum hag á Grund og hefur verið að æfa sig að tala íslensku með aðstoð heimilisfólksins. Hún stefnir hinsvegar á að læra íslensku við Háskóla Íslands í haust. Sandra sinnir ýmsum störfum á heimilinu, aðstoðar í morgunstund, sér um boccia með heimilisfólki og býður fólki í gönguferðir. Heimilismenn hafa kynnst Króatíu með komu Söndru á heimilið því hún hefur verið að sýna myndir frá heimalandinu í morgunstund, syngja lög frá sínu landi og Jóhann Sveinsson yfirmatreiðslumaður Grundar fékk hjá henni uppskrift að króatískum svínakjötsrétti sem hann bauð upp á einn miðvikudaginn í mars. Við spurðum Söndru auðvitað hvort við gætum ekki fengið uppskriftina fyrir lesendur okkar og það var auðsótt mál. Svínakjöt með súrkáli og baunum 2 laukar 100 g beikon, 500 g surkál, 500 g baunir, 2 tsk paprikuduft salt og pipar, króatískt krydd, Vegeta. Saxið lauk og hitið í olíu, Skerið beikonið í litla bita og bætið á pönnuna með lauknum. Látið malla í fimm mínútur. Bætið súrkáli saman við og saltið og piprið. Eldið áfram á pönnu í 5 – 10 mínútur. Bætið nú við vatni þannig að rétt fljóti yfir og bætið við paprikudufti og króatíska kryddinu. Látið malla í aðrar 10-15 mínútur. Borið fram með ofnbökuðum svínakótilettum. 42

Heimilispósturinn


Sjálfboðaliði frá Króatíu á Grund

Sandra syngur hér á króatísku fyrir heimilisfólk.

Sandra og Guðlaug Pétursdóttir í morgunstund.

Heimilispósturinn

43


Páskaverkefni í Mörk

U

Páskaeggin sem verða að veggmynd

ndanfarnar vikur hafa heimilismenn sem koma í iðjuþjálfun tekið þátt í páskaverkefni Markar, sem er að búa til veggmynd úr lituðum páskaeggjum. Það hefur myndast góð stemning í iðjunni og páskasiðir ræddir fram og til baka um leið og fólk hefur verið að mála og leggja sitt af mörkum í veggmyndina.

Hulda og Helga að mála páskaegg í stóru myndina.

44

Heimilispósturinn


Páskaverkefni í Mörk

Miðjuskrautið í veggmyndina.

Verið að undirbúa stóra páskaeggið.

Heimilispósturinn

45


Lífssagan

S

Þetta er ég

igríður Heimisdóttir heimiliskona er ættuð frá Hólmavík og kom úr stórum systkinahóp. Hún fór í Húsmæðraskólann á Laugum og kenndi við Laugarnesskólann og var alltaf mjög virk í Oddfellow. Sigríður átti alltaf kisu og hún er listræn og elskaði að sauma út og syngja í Pólýfonkórnum. Hún er sannkölluð B manneskja, finnst frábært að kúra á morgnana og horfa á sjónvarp á kvöldin. Hún hlustar mikið á tónlist og heldur upp á Ellý Vilhjálms og Hljóma. Börnin hennar eru þrjú og afkomendur orðnir margir. Maðurinn hennar lést ungur.

Gott að þekkja bakgrunn heimilisfólks Þetta er tilbúið dæmi og ekki ítarlegar upplýsingar en segja heilmikið. Þegar fólk kemur á hjúkrunarheimili er nefnilega ekki nóg að hafa bara sjúkrasögu. Það er svo gott að vita eitthvað um bakgrunn fólks. Þeir sem eru að aðstoða heimilisfólk dags daglega geta skilið margt betur ef þeir þekkja bakgrunn fólksins og þá er líka auðveldara að efna til samræðna og jafnvel finna einhvern úr sömu sveit eða sama þorpi til að hitta.

46

Heimilispósturinn


Lífssagan Myndabækur Í móttökumöppum sem heimilismenn fá afhenta þegar þeir flytja á hjúkrunarheimili er form til að fylla út svokallað æviágrip. Við biðjum aðstandendur að aðstoða heimilismenn við að fylla það út. Einhverjir hafa útbúið bækur með myndum af heimilismanni í leik og starfi og oft fjölskyldunni líka. Slíkar bækur eru algjörlega frábærar og ófá skipti sem hægt er að fletta þeim með heimilismönnum og kynnast þeim betur í leiðinni. Ýmsir aðilar selja svona bækur á rafrænu formi, fólk fyllir þá inn í blaðsíðurnar á netinu með ljósmyndum og texta og svo eru búnar til bækur Þá eru jafnvel einhverjir sem bjóðast til að gera svona bækur fyrir fólk. Lífssaga er grundvöllur þess að hægt sé að stunda minningavinnu með öldruðum einstaklingum. Rannsóknir sýna að vinna í minningavinnuhópum gefst vel til að mæta grunnþörfum og finnur fólk til andlegrar vellíðunar eftir slíka vinnu og hún eflir virkni. Minningavinna getur farið fram í daglegri umönnun og geta allir sem að henni koma, þ.e. starfsfólk, heimilismenn og fjölskyldur þeirra eða aðrir aðstandendur, verið þátttakendur.

Heimilispósturinn

47


Sýning í tengigangi Grundar Markarinnar

Íslenskir fuglar málaðir á flísar

N

ú stendur yfir sýning á málverkum, sem máluð eru á flísar, í sýningarsal Grundar - Markarinnar við Suðurlandsbraut 64. Það er Hafsteinn Steinsson sem sýnir en myndirnar eru flestar af íslenskum fuglum. Myndirnar hefur hann unnið heima á síðustu fjórum árum en áður fyrr naut hann leiðsagnar hjá Sheena Gunnarsson í Þjónustumiðstöð Vesturbæjar. Sýningin stendur til 31. mars næstkomandi og er opin alla daga. Allir hjartanlega velkomnir.

Hjónin Hafsteinn Steinsson og Þórdís Davíðsdóttir á sýningunni.

48

Heimilispósturinn


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Heimilispósturinn - mars 2018 by Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili - Issuu