Skip to main content

Heimilispósturinn - apríl 2017

Page 1

HEIMILISPÓSTURINN Heimilisblað Grundar, Áss og Markar 53. árgangur

apríl 2017

Gleðil ega páska

1. tölublað


Efnisyfirlit Páskakerti og páskaungar...................................................................... 3 Minnisstæðir eru hálfmánarnir með málsháttum................................ 4 Yrkir um lífið og tilveruna..................................................................... 7 Æfðu sig fyrir upplestrarkeppnina...................................................... 8 Saumaklúbbarnir vel sóttir................................................................. 10 Á næturvakt.............................................................................................11 Samviskusamur sendisveinn hjá verslun Haraldar Árnasonar...... 12 Æfingar fyrir mjaðmir, kvið og bak..................................................... 14 Skiptu um vinnustað í viku..................................................................... 15 3 gististaðir nú í Ási............................................................................... 16 Rúsína verður í hvíld í Mörk................................................................. 18 Páskaungar og túlípanar...................................................................... 19 Alltaf fjör á öskudaginn....................................................................... 20 Ganga saman vikulega og njóta útiverunnar og félagsskaparins. 22 Fyrstu íbúðirnar afhentar eftir ár.................................................... 24 Hentugt ef fólk býr úti á landi ........................................................... 26 Færði honum handsmíðaða hringa eftir eiginmanninn....................... 27 Taka sig mátulega alvarlega................................................................. 28 Snúðar sem allir elska.......................................................................... 30 Söngur, glens og hlátur...................................................................... 33 Dásamlegt handverk heimilismanna..................................................... 34 Þarna varð ég vitni að sannri ást........................................................ 36 Gleði og glens........................................................................................ 37 Pálrúnu fannst kominn tími á eitthvað gott með kaffinu................. 38 Haldið í hefðir......................................................................................... 39 Forsetafrúin Eliza Reid í heimsókn...................................................... 40 Sagði íbúum í Mörkinni frá æskuárunum á Grund.............................. 42 Kötturinn sleginn úr tunnunni............................................................ 44 Vill gjarnan gera gagn......................................................................... 46 Mandölur og páskaegg.......................................................................... 47 Bakarameistarinn býður upp á kaffi og sætabrauð.......................... 48 Forsíðumyndina tók Guðbjörg R. Guðmundsóttir þegar Jón Lárus Hjartarson færði forsetafrúnni Elizu Reid blóm í Mörk. Ritstjóri: Guðbjörg R. Guðmundsdóttir. Hönnun og uppsetning: Írena Dögg McCabe. Prentun: GuðjónÓ. Upplag: 1500. 2 Heimilispósturinn


Undirbúningur páska í vinnustofu Grundar

V

Páskakerti og páskaungar

innustofa Grundar ber þess merki þessa dagana að páskar eru í nánd. Heimilisfólk er í gríð og erg að búa til páskakerti og páskaunga og margir vilja líka gjarnan búa til fermingarkerti fyrir barnabörn og barnabarnabörn.

Heimilispósturinn

3


Iðjuþjálfun á Grund

Minnisstæðir eru hálfmánarnir með málsháttum

A

lla þriðjudaga og fimmtudaga stendur heimilismönnum á Grund til boða að fara í vax með hendurnar og fá heitan grjónapúða á axlir. Þetta eru dásamlegar gæðastundir. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir fór í handarvax einn sólríkan morgun í apríl og tók þátt í umræðum við borðið. Það er ljúft að setjast niður með heimilisfólki þennan morgun, hendurnar baðaðar heitu vaxi og síðan innpakkaðar í plast og svo hlýja hanska. Katla Kristvinsdóttir iðjuþjálfi hitar grjónapúða og leggur yfir axlirnar. Ég gæti alveg vanist þessu. Sumir við borðið hafa lokað augum og njóta þannig stundarinnar á meðan við, sem erum málglaðari einstaklingar við þetta borð, byrjum að spjalla.

Frá vinstri Hafsteinn Sigurjónsson, Margrét Bjarnadóttir, Katla Kristvinsdóttir og Sigrún Jóhannsdóttir.

4

Heimilispósturinn


Iðjuþjálfun á Grund Allt skemmtilegt bannað á föstudaginn langa Ég spyr þau hvort föstudagurinn langi hafi verið eins og í minni æsku, svolítið þungur og afskaplega langur dagur. Það mátti ekki elda eða baka, ekki spila og í raun mátti bara ekkert gera. Og svoleiðis var þessi dagur á mínu æskuheimili af því móðuramma mín, hafði lagt þessar reglur á æskuheimili móður minnar. Jú, öll könnuðust þau við þetta nema það var eldaður fiskur á þeirra æskuheimili. Við erum hinsvegar alveg einhuga með þá skoðun að þetta sé betra núna, föstudagurinn langi þurfi alls ekki að vera svona drungalegur og langur. Fólki veiti ekki af góðu fríi um páskana og það eigi bara að njóta þeirra frídaga. Veislumatur og guðsþjónusta Páskarnir eru og hafa samt ætíð verið tilhlökkunarefni, ekki síst af því að á páskadag var og er boðið upp á veislumat og margir fara í messu. Sigrún Jóhannsdóttir bjó sín æskuár fyrir norðan og fór ávallt til messu á páskadag í Möðruvallakirkju í Hörgárdal. Á hennar heimili var svo boðið upp á hangikjöt með uppstúf og sætsúpu á eftir með rúsínum, sveskjum og kanilstöngum. Þó að það væru ekki borðuð páskaegg þá voru bökuð svokölluð umslög og inni í þeim voru málshættir.

Hjónin Víglundur Sigurjónsson og Ragnheiður Hildigerður Hannesdóttir.

Heimilispósturinn

5


Iðjuþjálfun á Grund Þjóð veit þá þrír vita Þegar málshættina og páskaeggin ber á góma sprettur Katla upp og kemur færandi hendi til baka með páskaegg. Við gleðjumst auðvitað sem við borðið sitjum og hún opnar eggið og deilir málshættinum með okkur: Þjóð veit þá þrír vita. Öll þekkjum við þennan málshátt og kunnum vel að meta að hann sé ekki afskræmdur eins og margir málshættir sem eru í eggjum nú til dags. Víglundur Sigurjónsson, sem situr við borðið með okkur, segir að á sínu æskuheimili hafi málshættir verið settir inn í hálfmána. Málshættir eru ómissandi á páskum, um það erum við öll sammála og ættu að vera hefðbundnir en ekki með þessum nýstárlega hætti og stundum jafnvel óskiljanlegir. Dágóður tími fer hjá okkur hér við hringborðið að rifja upp gamla og góða málshætti, tja alveg þangað til það er kominn tími til að standa upp og fara í hádegismat. Þá er bara að losa af sér vaxið og uppskera silkimjúkar hendur. Stirðir fingur eru liðugri fyrir vikið og svo er bara notalegt að fara inn í daginn eftir heitan bakstur og spjall. Takk fyrir mig.

6

Heimilispósturinn


Ljóðskáld á Grund

H

Yrkir um lífið og tilveruna

eimiliskonan Lilja Guðrún Ólafsdóttir er ljóðskáld og hefur samið mörg ljóð hér á Grund. Hér koma nokkur ljóða hennar.

Nöfnurnar Guðrún Birna Gísladóttir og Lilja Guðrún Ólafsdóttir á góðri stund.

Ég yrki ekki vísur ég yrki ljóð um þig sem varst svo ljúf og góð Að þér genginni yrki ég óð , ómar sem af fornri glóð. Ég veit um kaffið og kem þar bráðum, og kaffibolla þar drekk Í náðum. En svo aftur ég skauta kýs Í mína sólríku paradís. Heimilispósturinn

Limrurnar lesið ég hef og langt vil ég gefa þeim nef sem kunna ekki að meta kjötið að éta kannske þeir fá bara kvef. Sorgin er nú sest að mér Sól til viðar hnigin Ljúfan mín því látin er létt til himna stigin. 7


Nemendur í 7. bekk komu í Bæjarás

Æfðu sig fyrir upplestrarkeppnina

K

rakkar í 7. bekk grunnskólans í Hveragerði komu nýlega í Bæjarás og æfðu sig fyrir upplestrarkeppnina. Þau hafa komið af og til í vetur og æft sig með kennaranum sínum Ólafi Jósefssyni og Pálína Snorradóttir sem er í dagþjálfun í Bæjarási og fyrrverandi kennari við grunnskólann hefur hvatt krakkana áfram og leiðbeint þeim.

Á myndinni eru frá vinstri, Pálína, Hannes Geir, María Jóna, Ingibjörg og Ólafur.

8

Heimilispósturinn


Nemendur í 7. bekk komu í Bæjarás

Krökkunum finnst gott að æfa sig fyrir framan heimilisfólkið í Bæjarási.

Hér stendur tíminn í stað þ.e. heimilisfólk hefur nægan tíma til að hlusta.

Heimilispósturinn

9


Blómlegt starf

Á

Saumaklúbbarnir vel sóttir

Litlu- og Minni Grund eru starfræktir tveir saumaklúbbar sem koma saman mánaðarlega í betri stofunni á 5. hæð Minni Grundar. Þar er uppdekkað borð og sér Jóhann kokkur alltaf til þess að koma með eitthvað gott með kaffinu. Klúbbastarfið hefur nú verið í fimm ár og alltaf er jafn glatt á hjalla. Oftar en ekki eru rifjaðir upp gamlir tímar og alltaf eiga konurnar þar saman góða og gleðilega stund. Herrakaffið hefur legið niðri í vetur en nú eftir páska stendur til að kalla saman í herrakaffi.

Vilný, Aldís Eyjólfs sem lést í febrúar og svo Dúna.

10

Heimilispósturinn


Blómlegt starf

Pálína (Stella) Eggertsdóttir, Ólöf Sigríður Sigurðardóttir, Ásta Kristjánsdóttir og Hjörtný Árnadóttir.

Á næturvakt Hljóð líður nóttin við hinstu daga rök heyri ég slögin í tímans djúpu vök. Gamla fólkið sefur, Guð vakir yfir því. Ég gæti þess einnig uns birta fer á ný. Kári Elísson starfsmaður á næturvakt. Heimilispósturinn

11


Molar úr fortíðinni

Samviskusamur sendisveinn hjá verslun Haraldar Árnasonar

G

ísli Sigurbjörnsson, forstjóri Grundar til sextíu ára, fór ungur að hjálpa til heima eins og tíðkaðist á þeim tíma og mamma hans hældi honum mikið fyrir hjálpsemina. Hann fór snemma að vinna og hóf feril sinn sem sendisveinn hjá verslun Haraldar Árnasonar. Hann hjólaði þá með vörur um bæinn til þeirra sem höfðu pantað hjá verslunni. Hann var afar samviskusamur og lét vont veður ekki aftra sér og Haraldur hrósaði honum í hástert fyrir vinnusemina.

Starfsfólk verslunar Haraldar Árnasonar og Gísli sést hér á myndinni, yngstur í fremri röðinni til vinstri.

Í þessu starfi hætti Gísli þegar hann gerðist þingsveinn. Móðir hans skrifar svo í bréfi til móður sinnar: Fyrst dauðleiddist honum á þinginu og var mjög stúrinn, vildi helst að við tækjum hann þaðan strax en svo fór sá stutti að finna púðrið í því og var allur í spani yfir gjörðum þingsins. Hann romsaði upp 12

Heimilispósturinn


Molar úr fortíðinni heilum og hálfum ræðum þingmanna þegar hann kom heim að borða. Það var all rósturssamt þegar þeir voru að rífast um traustsyfirlýsinguna og stundum kom Gísli ekki heim fyrr en klukkan tólf á nóttunni... Sendisveinabragur Gísli Sigurbjörnsson var í félagsskap sendisveina sem hét sendisveinadeild Merkurs. Þeir gáfu út blað sem hét Sendisveinninn og var Gísli um tíma ritstjóri þess. Fyrsti árgangurinn og fyrsta blaðið kom út þann 23. desember árið 1931. Hér kemur Sendisveinabragur sem var tileinkaður Þingvallaför Merkurs sunnudaginn 7. júní árið 1931. Fjelagar framgjarnir frjálsir og kurteysir allir sem einn. Fljótir og fjörugir Fjelags vors minnumst við Samtaka syngjum lag Sendlanna brag. Stjettina styðjum nú Sjerstaklega – jeg og þú Allir sem einn. Með stundvísi og starfsgleði stælist hver aflvöðvi. Samtaka syngjum lag sendlanna brag. Heill allri sveina sveit sverjum vort fjelagsheit allir sem einn. Merkúr er mitt fjelag Merkúr er þitt fjelag Samstilltir syngjum lag sendlanna brag. Heimilispósturinn

13


Léttar leikfimiæfingar

Æfingar fyrir mjaðmir, kvið og bak 1. Hafið hendur niður með síðunum, slakið vel á í öxlum og hálsi, Síðan hallið þið ykkur rólega til vinstri og hægri til skiptis. Reynið að spenna kviðvöðva og hryggvöðva. 2. Sitjið vel á stólnum, haldið með báðum höndum undir stólsetuna. Veltið svo til skiptis á vinstri og hægri rasskinn.

3. Sitjið framarlega á stólnum, spennið kvið- og hryggvöðva (djúp innöndun), hallið ykkur fram með beint bak alveg niður að lærum (útöndun). Rúllið upp lið fyrir lið í upphafsstöðu. 4. Sitjið og hallið ykkur að stólbakinu, spennið kvið- og rassvöðva, lyftið fótum frá gólfi. Saxið með beinum fótum sundur, kross. Hjólið, passið hrygginn, enga fettu. 5. Sitjið framarlega á stól og spennið rasskinnar vel saman og grindarbotnsvöðva, haldið spennunni á augnablik, slakið síðan á. Þessa æfingu er mjög gott að gera þrisvar til fjórum sinnum á dag. Hún er sérlega góð fyrir vöðva endaþarms og blöðruvöðva. 14

Heimilispósturinn


Kokkarnir í Mörk og á Grund

Skiptu um vinnustað í viku

M

atreiðslumeistararnir Jóhann Sveinsson á Grund og Þorvaldur S. Þorvaldsson í Mörk ákváðu að skipta um vinnustað í eina viku í febrúar. Jóhann, sem venjulega eldar ofan í mannskapinn á Grund fór í Mörk og eldaði þar á meðan Þorvaldur fór á gamla vinnustaðinn sinn, Grund, og eyddi vikunni þar. Kokkarnir höfðu gaman af og auðvitað settu þeir sinn svip á vinnustaðinn og elduðu með sínum hætti. Allir ánægðir með tilbreytinguna og vonandi verður framhald á svona uppákomum.

Valdi í essinu sínu á Grund.

Jóhann kom og vann með hinum kokkinum í Mörk sem heitir Hans.

Heimilispósturinn

15


Fleiri íbúðir í leigu til ferðamanna

Í

3 gististaðir nú í Ási

fyrra var ákveðið að taka hús í Bláskógum undir gistihús fyrir ferðamenn. Tilraunin gekk vel, húsið var að mestu bókað allt sumarið og töluvert í vetur. Því var ákveðið að nýta tvær aðrar húseignir sem Ás á í Hveragerði og leigja þær út til ferðamanna. Að þessu sinni bætast húsin við að Varmahlíð 6 og Hverahlíð 8. Í allt er nú hægt að bjóða sextán manns gistingu í Ási, sex geta gist í Bláskógum, fjórir í Hverahlíð og sex í Varmahlíð. Hægt er að panta gistingu á þessum gististöðum á www.booking.com.

Í Varmahlíð er eitt hjónaherbergi og tvö tveggja manna herbergi, eldhús, stofa og borðstofa sem og snyrting og sturta. Stór garður fylgir og verönd með útihúsgögnum og grilli.

16

Heimilispósturinn


Fleiri íbúðir í leigu til ferðamanna

Í Hverahlíð er eitt hjónaherbergi og svefnsófi í stofu. Auk eldhúss er snyrting og sturta í íbúðinni. Garður fylgir með verönd, útihúsgögnum og grili.

Hverahlíð er notalegt hús sem hentar vel tveimur fullorðnum með tvö börn.

Heimilispósturinn

17


Kom með eigandanum í hvíld

Þ

Rúsína verður í hvíld í Mörk

egar ákveðið var að Stig Arne Vadentoft kæmi í hvild í Mörk kom ekki annað til greina en að hundurinn hans, hún Rúsína, fylgdi honum og yrði líka í hvíld. Að sögn Einars Þórs Jónssonar, eiginmanns Stigs, hefur Rúsína algjörlega helgað sig Stig eftir að hann fór að veikjast og fylgir honum hvert fótmál, öllum stundum. Stig er sænskur og starfaði sem sjóliðsforingi en hann og Einar hafa búið bæði í Svíþjóð og á Íslandi undanfarinn aldarfjórðung. Báðum líður þeim bara vel í hvíldinni í Mörk, Stig og Rúsínu og tíkin hún Dimma sem kemur alltaf með eiganda sínum til vinnu á sömu hæð og Rúsína er óðum að venjast samkeppninni.

Stig, Einar og Rúsína fá sér oft göngutúr í nágrenninu.

18

Heimilispósturinn


Föndrað fyrir páskana í Bæjarási

Þ

Páskaungar og túlípanar

essa dagana er verið að föndra fyrir páskana í Bæjarási og búið að gera fallegar túlípanaseríur í gulum lit og páskaunga.

Guðrún Guðmundsdóttir og Hörður Hjartarson að föndra saman.

Falleg páskasería úr þæfðri ull.

Heimilispósturinn

19


Hattaballið á Grund

Þ

Alltaf fjör á öskudaginn

að hefur skapast hefð fyrir því að halda hattaball á öskudag á Grund. Vikuna áður mátar heimilisfólk höfuðföt í húsnæði iðjuþjálfunar og mikil stemmning sem myndast fyrir þessum viðburði. Það er dansað en svo er fólk líka að sýna sig og sjá aðra.

Sólveig forvitin að vita hverju hann Bjarni er að hvísla að henni Hrefnu.

20

Heimilispósturinn


Hattaballið á Grund

Guðrún M. Ólafsdóttir og Aðalheiður K. Þórarinsdóttir sjúkraþjálfari tóku sig vel út.

Artha Rut og Valdís með stút á munni.

Heimilispósturinn

21


Gönguklúbburinn í Ási

Ganga saman vikulega og njóta útiverunnar og félagsskaparins

Á

sgerður Sigurbjörnsdóttir, Ástríður Hjartardóttir og Ólöf Fríða Gísladóttir ganga saman vikulega og hafa gert í nokkur ár eða síðan iðjuþjálfinn, Fanney Björg, hóaði saman áhugasömu heimilisfólki í göngu á fimmtudagsmorgnum. Fanney dró sig smám saman út úr gönguhópnum en þær hafa haldið hópinn síðan þá.

Konurnar hittast á fimmtudögum og taka hring. Hversu stór hringurinn er hverju sinni er algjörlega háð veðri og vindum. Fjöldi göngugarpana rokkar til og frá en kjarninn eru þessar þrjár hressu og skemmtilegu konur. Þær ganga aðallega í kringum og í Ási en fara að sjálfsögðu stöku sinnum inn í íbúahverfin i Hveragerði, sérstaklega á vorin þegar gróðurinn tekur við sér. Í upphafi segjast stöllurnar hafa haft þemu, gengið þá um 22

Heimilispósturinn


Gönguklúbburinn í Ási

götur Hveragerðis og gjarnan að þeim húsum sem konurnar höfðu átt heima á árum áður. Margar skemmtilegar sögur voru þá gjarnan rifjaðar upp. Einu sinni ákvað gönguhópurinn að fara aðeins út fyrir malbikið og ganga meðfram ánni, ekki höfðu þær alveg gert sér grein fyrir því hversu erfitt það var að ganga á ósléttu undirlaginu sem var á göngustígnum, Ásgerður dróst aðeins aftur úr hópnum og á meðan hún klöngraðist niður stíginn, yfir brúna og upp stíginn hinu megin við ána og áleiðis að Garðyrkjuskólanum varð til þessi skemmtilega vísa; Krókóttar kindagötur Við klöngruðumst niður þar Allar í einni bunu Áttræðar kellingar.

Höf. Ásgerður Sigurbjörnsdóttir

Heimilispósturinn

23


Framkvæmdir hafnar við byggingu 74 íbúða

Fyrstu íbúðirnar afhentar eftir ár

E

ftir stjórnarfund Íbúða eldri borgara í Mörk ehf í mars kíktu stjórnarmenn ásamt forstjóra Grundar á framkvæmdir við byggingu 74 nýrra íbúða austan megin hjúkrunarheimilisins, við Suðurlandsbraut 68 og 70. Framkvæmdir ganga vel og verða fyrstu íbúðirnar afhentar nýjum leigjendum eftir eitt ár. Mikil eftirspurn er eftir þessum íbúðum og eru í dag yfir 250 manns á biðlista sem lengist í hverri viku. Verktaki er ÞG verk ehf, öflugur og traustur verktaki og eru vinnubrögð, tímaáætlun og annað tengt í góðu lagi.

Stjórn IEB frá vinstri, Hinrik Greipsson, Elías Skúli Skúlason, Júlíus Rafnsson, Gísli Páll Pálsson og Guðbjörg R. Guðmundsdóttir ásamt forstjóra Grundar Guðrúnu B. Gísladóttur.

24

Heimilispósturinn


Framkvæmdir hafnar við byggingu 74 íbúða

Óskar Gunnarsson byggingastjóri hjá ÞG verk ehf ásamt Gísla Páli Pálssyni forstjóra í Mörk og framkvæmdastjóra Íbúða eldri borgara ehf.

Óskar fór yfir framkvæmdir með stjórnarmönnum og forstjóra Grundar.

Heimilispósturinn

25


Gestaíbúð fyrir aðstandendur

E

Hentugt ef fólk býr úti á landi

in af íbúðunum við Suðurlandsbraut 60 er falleg tveggja herbergja íbúð sem leigð er út til aðstandanda sem búa úti á landi eða í útlöndum. Íbúðin stendur þeim til boða sem eiga fólkið sitt á hjúkrunarheimilunum Grund eða Mörk sem og aðstandendum þeirra er búa í þjónustuíbúðunum við Suðurlandsbraut 58 – 62. Íbúðin er búin öllum þægindum, uppábúnum rúmum, fullbúnu eldhúsi og huggulegri stofu. Í henni er hjónaherbergi og síðan eru tvö aukarúm sem henta fyrir börn og unglinga. Sólarhringsleiga kostar 9.500 krónur. Nánari upplýsingar og pantanir annast Alda Pálsdóttir. Netfangið er alda.pals@grund.is Hægt er að koma til hennar skilaboðum í síma 560 1702.

Gestaíbúðin hentar vel fyrir fjögurra manna fjölskyldu en líka hjón og einstaklinga.

26

Heimilispósturinn


Falleg vinátta

Færði honum handsmíðaða hringa eftir eiginmanninn

Á

sa Ketilsdóttir, ekkja Árna Höskuldssonar gullsmiðs, sem var heimilismaður í Mörk en lést árið 2013, kemur í heimsókn í Mörk að minnsta kosti hálfsmánaðarlega. Erindið er að heimsækja hann Jón Lárus Hjartarson heimilismann en á meðan Árni var á lífi urðu þessi þrjú miklir vinir, Ása, Árni og Jón. Þegar Árni lést lofaði Ása því að hún myndi halda áfram að koma í heimsókn í Mörk og við það hefur hún svo sannarlega staðið. Hún hefur fært Jóni nokkra handsmíðaða hringa sem Árni smíðaði og Jón gengur með þá alla daga. Ef vel er rýnt myndina sjást þessir fallegu handsmíðuðu hringir á fingrum Jóns.

Ása og Jón Lárus hittast gjarnan á kaffihúsinu í Mörk.

Heimilispósturinn

27


Starfsfólk iðjuþjálfunar

F

Taka sig mátulega alvarlega

ólk sem vinnur í iðjuþjálfun Áss, Grundar og Markar þarf að vera ýmislegt til lista lagt og kannski ekki hvað síst að kunna að taka sig mátulega alvarlega. Hér koma nokkrar dásamlegar myndir af starfsfólki iðjuþjálfunar.

Lilja Benjamínsdóttir starfsmaður iðjunnar í Mörk veit hvað það skiptir miklu máli að vera í líflegum litum. Hér er hún í essinu sínu.

28

Heimiliskonan Sigríður Vilborg Guðmundsdóttir í Ási ásamt starfsmönnunum Fanneyju Björgu og Kolbrúnu.

Heimilispósturinn


Starfsfólk iðjuþjálfunar

Katla, Þórhalla og Valdís sem vinna í iðjuþjálfun Grundar kunna svo sannarlega að skemmta sér og þessi mynd er tekin á hattaballinu á öskudag.

Þær taka bóndadaginn með stæl Þórhalla, Valdís og Katla.

Heimilispósturinn

29


Bakað í Langholti í Mörk

I

Snúðar sem allir elska

lmurinn úr eldhúsinu er svo lokkandi á ekki bara við um jólin, heldur allan ársins hring þegar talað er um eldhúsið í Langholti í Mörk. Þar á bæ er oft bakað með kaffinu, kleinur, skonsur og pönnukökur. Nú síðast þegar við runnum á lyktina voru það snúðar sem Sigurveig Jóhanna Ólafsdóttir og Guðrún Hreinsdóttir voru að baka. „Þetta eru rosalega góðir snúðar og heimilismennirnir hérna segja að þeir séu jafnvel betri en úr bakaríi“, segir Guðrún og býður okkur að smakka. Og það er alveg hárrétt hjá henni. Auðvitað báðum við um uppskriftina fyrir ykkur lesendur góðir og hér kemur hún. Guðrún segist hafa fengið hana á síðunni Gulur, rauður, grænn og salt. Það er tilvalið að baka þessa snúða um páskana og ekki skemmir nú fyrir að uppskriftin er vegan líka ef maður notar möndlumjólk í glassúrinn en ekki mjólk.

30

Heimilispósturinn


Bakað í Langholti í Mörk Snúðarnir hennar Guðrúnar 700 g brauðhveiti frá Kornax (í bláum pokum, mæli með því að nota frekar brauðhveiti í gerbakstur) 1 1/2 tsk salt 4 tsk þurrger 80 g sykur 4 dl volgt vatn 1 dl jurtaolía Fylling: 3msk sykur 3msk púðursykur 1 msk kanill 1. Setjið saman þurrefnin í hrærivélaskál og blandið aðeins saman með króknum. Bætið við vökvanum og hnoðið í hrærivélinni, fyrst mjög varlega en aukið svo aðeins hraðann. Hér er lykilatriði að hnoða deigið lengi. 5 mínútur er gott, mæli með því að fylgjast með tímanum, ég tók einmitt úr uppþvottavélinni og fór að raða í hana á meðan! Látið hefast á volgum stað með röku stykki yfir í ca. 30 mín.

Heimilispósturinn

31


Bakað í Langholti í Mörk 2. Takið svo deigið úr skálinni og setjið á hveitistráða borðplötu. Fletið það út í nokkuð góðan ferhyrning og stráið sykur/kanilblöndunni jafnt yfir deigið (Athugið að ég set ekkert smjör undir sykurinn!). Rúllið upp í lengju og lokið kantinum með því að pensla hann með vatni. Skerið lengjuna í hæfilega snúða og raðið á plötu. Nú kemur annað gott trix. Hitið ofninn í 50°C, úðið snúðana og ofninn að inna með volgu vatni og setjið í ofninn. Látið hefast í ofninum í 45mín. Úðið snúðana 1x-2x á tímanum. 3. Takið snúðana út og hitið ofninn í 220°C. Bakið þá í ca. 10-12 mín, fer þó eftir ofnum. Fylgist bara með. 4. Mér finnst best að setja súkkulaðiglassúr, ég slumpa flórsykri, smá kakói og örlítilli slettu af mjólk (má alveg vera vatn til að hafa þá mjólkurlausa) og blanda saman, betra að hafa hann þykkari en þynnri. Set á þá þegar þeir eru orðnir nánast kaldir (svo glassúrinn leki ekki útum allt!) 5. Guðrún segist búa til hefðbundinn glassúr þ.e. sem er aðeins öðruvísi en þessi hér að ofan. Hún blandar saman flórsykri, kakó, vanilludropum, smá kaffi og svo mjólk en í þar að auki bræðir hún svo eina plötu af suðusúkkulaði og hellir í kremið og þá verður þetta eins og hún segir „gordjöss“. Þriðja útgáfan er svo að nota möndlumjólk í staðinn fyrir venjulega mjólk og þá er uppskriftin orðin vegan.

32

Heimilispósturinn


Heimilispóstinum pakkað í iðjuþjálfun

Þ

Söngur, glens og hlátur

egar Heimilispósturinn kemur hingað á Grund úr prentun frá Prentsmiðju Guðjóns Ó tekur heimilisfólkið á Grund við honum og pakkar nokkur hundruð eintökum sem fara í póst. Það ríkir skemmtileg stemmning þá daga sem pökkunin stendur yfir, nokkurskonar vertíðarstemmning og mikið hlegið og gantast og jafnvel sungið líka.

Heimilispósturinn

33


Vinnustofan á Grund

Þ

Dásamlegt handverk heimilismanna

að er ýmislegt sem fólkið í vinnustofu Grundar bjástrar við að búa til og kertin sem heimilisfólk er að búa til núna fyrir páskana eru ótrúlega falleg og þau eru búin til úr kertastubbum sem aðstandendur og velunnarar færa okkur. Þá er starfsfólkið duglegt að nýta allskyns afganga, garn, tölur, krukkur, efni og svo framvegis. Dúkkan Þrúður Á hillu í vinnustofu Grundar hefur um árabil setið falleg prjónuð brúða, sem nýverið var gefið nafnið Þrúður af einni heimiliskonu Grundar. Þrúður hefur glatt og heillað marga, meðal annars hana Magneu. Hún ákvað að prjóna sína eigin Þrúði. Það vill svo til að dóttir Magneu heitir líka Þrúður og jók það á enn frekar á gleðina við prjónaskapinn.

34

Heimilispósturinn


Vinnustofan á Grund Afgangsgarn og hólkur undan efnisstranga Heimilismaðurinn Victor M. Strange hannaði þennan standlampa, með aðstoð Valdísar Viðarsdóttur, starfsmanns í vinnustofunni. Hólkurinn er undan efnisstranga, hann er vafinn með afgangsgarni, fóturinn kemur frá Odda og er undan stóru pappírsrúllunum hjá þeim, hann er prýddur með húsgagnaáklæði og lampaskermurinn kemur úr Góða hirðinum.

Heimilispósturinn

35


Sagt frá minnisstæðu atviki

Þarna varð ég vitni að sannri ást

Þ

að var erilsamur morgun á sjúkrahúsi einu klukkan átta þegar maður á níræðisaldri kom til að láta taka sauma úr þumalputtanum sínum. Hann sagðist vera tímabundinn því hann ætti að vera mættur á annan stað klukkan níu. Ég var hjúkrunarfræðingur á vakt svo ég tók á móti honum og bað hann um að setjast vitandi að það var að minnsta kosti klukkustund í að honum yrði sinnt. Ég sá hann kíkja á úrið sitt með nokkurra mínútna millibili og ákvað sjálf að kíkja á sárið hans. Sárið var vel gróið svo í samráði við lækninn fékk ég að taka saumana og gera að puttanum hans. Við fórum að spjalla og ég spurði hvort hann ætti að vera mættur hjá öðrum lækni klukkan níu. Nei, nei sagði hann, ég þarf að vera kominn á hjúkrunarheimilið þar sem konan mín býr til að borða morgunmat með henni. Ég spurði um hennar heilsu og hann sagði mér að hún væri með heilabilun. Ég innti hann þá eftir því hvort hún yrði óhress með hann ef hann kæmi of seint. Hann sagði mér að hún þekkti hann ekki og hefði ekki gert það síðastliðin fimm ár. En hversvegna lagði hann þá svona mikið uppúr því að mæta til hennar alla morgna fyrst hún þekkti hann ekki. Hann klappaði mér á hendina og sagði hún veit jú ekki hver ég er en ég veit ennþá hver hún er. Ég táraðist og fékk gæsahúð og hugsaði með mér að þarna hefði ég orðið vitni að sannri ást, makinn alltaf við hlið elskunnar sinnar, sáttur við það sem var og verður og líka það sem verður ekki.

36

Heimilispósturinn


Öskudagur í Ási

Þ

Gleði og glens

að hefur um langa hríð verið skemmtilegur andi á öskudaginn í Ási. Börn úr Hveragerði koma gjarnan við á hjúkrunarheimilinu og syngja og bæði heimilismenn og starfsfólk klæðast búningum eða skrautlegum höfuðfötum og dreifa góðgæti til gesta og gangandi.

Sigríður Hermansdóttir og Sunneva Líf voru hressar og kátar.

Sælgætisdreifari dagsinns Jórunn Gottskálksdóttir heimiliskona.

Fjöldi barna kom við í Ási og söng fyrir heimilisfólk í skiptum fyrir sælgæti.

Heimilispósturinn

37


Bakstur í Bæjarási

Pálrúnu fannst kominn tími á eitthvað gott með kaffinu

H

ún Pálrún Hrönn ákvað nýlega að það væri kominn tími á vöfflur með kaffinu í Bæjarási. Ilmurinn barst út á stétt og einhverjir fundu sér tilefni til að kíkja við í von um að fá að smakka á góðgætinu hjá Pallý.

38

Heimilispósturinn


Hlaut Cordon Bleu orðuna

J

Haldið í hefðir

óhann Sveinsson, matreiðslumeistari Grundar, hlaut nýverið Cordon Bleu orðu Klúbbs matreiðslumeistara, en orðan var veitt við hátíðlega athöfn á árshátíð matreiðslumeistara á Hilton. Jóhann var eini matreiðslumeistarinn sem hlaut orðuna þetta árið en hana fékk hann fyrir faglegan dugnað og að lyfta faginu til virðingar og fyrir að viðhalda góðum hefðum. Gaman fyrir Grund að hafa í sínum röðum matreiðslumeistara sem fær slíka viðurkenningu frá „kollegum“ sínum. Til hamingju Jóhann.

Heimilispósturinn

39


Hátíðleg stund í Mörk

Forsetafrúin Eliza Reid í heimsókn

F

orsetafrúin Eliza Reid heimsótti Mörk föstudaginn 10. mars, ásamt Stefáni Helga Stefánssyni og Sesselju Magnúsdóttur, sem standa að Elligleði. Þau hafa síðastliðin sex ár komið með reglulegu millibili í Mörk og Stefán sungið fyrir heimilismenn með minnissjúkdóma. Eftir að Ragnhildur G. Hjartardóttir hjúkrunarstjóri í Mörk hafði fyrir hönd heimilismanna og starfsfólks boðið forsetafrúna velkomna tók heimilismaðurinn Jón Lárus Hjartarson til máls og bauð Elízu velkomna á heimili sitt í Mörk. Hann sagði það einmitt lykilatriði að Mörk væri heimili en ekki stofnun og þar væri svo gott að búa. Síðan gaf hann forsetafrúnni blómvönd. Eftir að Stefán Helgi var búinn að syngja falleg ástarlög hélt Sesselja tölu og færði Elízu gjafir. Elíza heilsaði upp á heimilismenn og síðan var boðið upp á nýbakaðar pönnukökur og kleinur með kaffinu. Yndislegt að fá forsetafrúna í heimsókn og þau Stefán Helga og Sesselju.

Sesselja og Stefán færðu forsetafrúnni Elizu Reid gjafir.

40

Heimilispósturinn


Hátíðleg stund í Mörk

Katrín, Sigurveig og Sólveig sáu um kaffi og meðlæti.

Eliza spjallaði við heimilisfólk og er hér ásamt Maríu Eggertsdóttur.

Heimilispósturinn

41


Forstjóri Grundar

F

Sagði íbúum í Mörkinni frá æskuárunum á Grund

orstjóri Grundar, Guðrún Birna Gísladóttir, heimsótti Mýrina nýverið þar sem hún hélt erindi um heimilið og æskuár sín á Grund. Eftir erindið sýndi hún gestum mynddisk um starfsemi Grundar sem er orðin þó nokkur og felur í sér rekstur heimilanna þriggja Grundar, Áss og Markar sem og þjónustuíbúðanna í Mörkinni og þvottahússins í Heragerði. Gestum var síðan boðið upp á vöfflur með kaffinu.

Guðrún B. Gísladóttir, forstjóri Grundar, sagði frá uppvexti sínum á Grund og rakti sögu heimilisins og sýndi myndband um starfsemina.

42

Heimilispósturinn


Forstjóri Grundar

Fjölmennt var í Mýrinni þegar forstjóri Grundar kom í heimsókn.

Heimilispósturinn

43


Börnin úr Steinahlið heimsækja Mörk

Kötturinn sleginn úr tunnunni

Þ

að er komin hefð fyrir því að börnin frá leikskólanum Steinahlíð mæta í heimsókn í Mörk á öskudag. Þar slá þau köttinn úr sekknum, syngja með heimilisfólki og svo klikkar Valdi kokkur aldrei á því að bjóða upp á pyslur og grjónagraut. Sumir mæta í búningum til að heilla börnin upp úr skónum og aðrir láta sér nægja að koma með skrautlegt höfuðfat. Allir njóta þessara öskudagsmorgna sem eru litríkir og skemmtilegir.

Kristmann Ö. Magnússon og Hjördís Magnúsdóttir tóku þátt í gleðinni á öskudag.

44

Heimilispósturinn


Börnin úr Steinahlið heimsækja Mörk

Börnin í Steinahlíð eru alltaf kát að koma í Mörk, en þó sérstaklega á öskudaginn.

Heimilispósturinn

45


Hjálpar til í gróðurhúsunum í Ási

Á

Vill gjarnan gera gagn

rni Sigurðsson býr í Bæjarási, hann kemur í iðjuþjálfun í Vesturás tvisvar í viku. Fanney Björg Karlsdóttir fylgdist með honum í vinnunni. Það skiptir Árna miklu máli að það sem hann tekur sér fyrir hendur í iðjuþjálfun þjóni einhverjum tilgangi. Hann er ekki mikið fyrir handverk en vill gjarnan hafa eitthvað fyrir stafni og finnst gott að komast að heiman í annað umhverfi og hitta fólk. Sér um að halda tómatkrókum við Eins og flestir vita eru rekin gróðurhús í Ási og þar er ræktað grænmeti fyrir heimilin þrjú, Ás, Grund og Mörk. Það er að mörgu að hyggja þegar rækta á grænmeti og handtökin eru mörg. Árni hefur tekið að sér það hlutverk að sjá til þess að alltaf sé til nóg af svokölluðum tómatkrókum sem notaðir eru til þess að hengja upp tómatplönturnar í gróðurhúsinu. Hann tekur krókana sem hafa verið notaðir, klippir af þeim gamla snærið og vefur nýtt snæri upp á krókana svo hægt sé að nota þá aftur. Það léttir töluvert á starfsfólkinu í gróðurhúsunum að Árni skuli taka þetta verkefni að sér. Frábær samvinna.

46

Heimilispósturinn


Föndrað fyrir páskana í Mörk

U

Mandölur og páskaegg ndanfarið hefur heimilisfólk í Mörk verið að vinna með svokallaðar „mandölur“ en svo kjósa margir að lita páskalegar myndir og þá verða oft páskaegg fyrir valinu.

Það er notalegt að setjast niður og lita.

Í vinnustofu Markar koma margir dag hvern.

Heimilispósturinn

47


Hjólað í hverfi Markar

Bakarameistarinn býður upp á kaffi og sætabrauð.

H

jólað óháð aldri er með samning þar sem starfsfólk eða aðstandendur og heimilisfólk í Mörk fær boðsmiða frá Bakarameistaranum og getur í hjólaferðum komið við og fengið kaffi og sætabrauð gegn framvísun miðans. Miða má nálgast í sjúkraþjálfun Markar. Þegar þær Sigurveig og Guðrún buðu Margréti í hjólatúr fengu þær góðar móttökur en Margréti var boðið í hjólatúr um hverfið í nágrenni Markar sem eru æskustöðvar hennar.

Guðrún, Sigurveig og Margrét endurnærðar.

48

Heimilispósturinn


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Heimilispósturinn - apríl 2017 by Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili - Issuu