HEIMILISPÓSTURINN Heimilisblað Grundar, Áss og Markar 52. árgangur
mars 2016
a g e l i Gleð a k s á p
1. tölublað
Efnisyfirlit Hátíð gleði og fagnaðar.......................................................................... 3 Alltaf troðfullur salur í bingó............................................................. 5 Rækta um 14 þúsund sumarblóm............................................................ 6 Hvattur til að skjóta skötu og kaupa egg álsins................................ 8 Öllum sunnudögum eytt á Fríkirkjuvegi hjá ömmu og afa................11 Dönsuðu samkvæmisdansa fyrir heimilisfólk..................................... 17 Alltaf fundist gaman að syngja........................................................... 18 Blóm, tertur og faðmlög...................................................................... 21 Þjóðlífsmyndir í tengigangi.................................................................. 22 Allskyns furðuverur mættu í heimsókn............................................. 24 Smalinn leystur út með vettlingum, sjúkrakassa og sokkum......... 26 Hlýja og gleði......................................................................................... 27 Lita, prjóna lesa eða rabba saman........................................................ 28 Páskabingó fyrir börn og barnabörn starfsfólks.......................... 30 Íbúar í Mörkinni fengnir til að leika.................................................... 31 Páskaföndur og páskabingó................................................................. 32 Hafliði las frumsamdar smásögur...................................................... 33 Öll vorum við systkinin gerð ábyrg fyrir heimilisstörfum............. 34 Pantanir farnar að berast.................................................................... 40 Sjáum við fegurðina, ástina og gleðina í kringum okkur?............... 42 Furðuverur á sveimi............................................................................... 44 Fjör á hattaballinu................................................................................. 46 Vestfirskar hveitikökur........................................................................ 48
Forsíðumyndina tók Guðbjörg R. Guðmundsdóttir af Guðrúnu Eyjólfsdóttur (Dúnu) og Elínu Finnbogadóttur. Ritstjóri: Guðbjörg R. Guðmundsdóttir Hönnun og uppsetning: Kjartan Örn Júlíusson Prentun: GuðjónÓ Upplag: 1500 2 Heimilispósturinn
Páskahugvekja
F
Hátíð gleði og fagnaðar
ramundan eru páskar. Eftir fjörtíu föstudaga höfum við beint athygli okkar að píslarsögu frelsarans. Margir hafa notað tímann til aðhalds og iðrunar. Páskar, upprisuhátíðin mikla, ber okkur þann boðskap sem er kjarni kristinnar trúar. Jesús Kristur er upprisinn. Staðfesting á því að lífið sigrar dauðann. Kærleikurinn, vonin og traustið vara, en neyð og þjáning verða undan að láta, hið góða sigrar og gefur Fjóla Haraldsdóttir djákni. okkur innsýn og von til framtíðar, von um eilíft líf sem hefst með skírninni. Með skírninni eignumst við hlutdeild í því sem Jesús ávann okkur með krossdauða sínum
Heimilispósturinn
3
Páskahugvekja og upprisu. Hún gefur okkur einnig trú á okkur sjálf. Við erum samverkamenn Krists. Hann kallar okkur til ábyrgðar á okkur sjálfum og allri sköpuninni, sem stjórnast af kærleika. Kristur þekkir leið kærleikans og getur leiðbeint okkur. Leiðbeiningarnar finnum við í trúnni á hinn óeigingjarna frelsara sem reis upp fyrir okkur. Í dæmisögunni um miskunnsama Samverjann má sjá hvernig við eigum að koma fram við náungann í kærleika, sagan er góð til eftirbreytni fyrir okkur sem viljum lifa í samfélagi við Krist. Páskar eru hátíð gleði og fagnaðar. Páskaliljur og túlípanar eru vissulega vorboðar. Páskaeggin eru tákn upprisunnar og lífsins nýja. Páskahaninn er líka tákn upprisunnar, hann boðar að nýr dagur er runninn upp. Nýr dagur fyrir þig og mig að njóta. Kæri lesandi Það styttist í vorið. Að baki er langur og strangur vetur sem víkur smám saman fyrir birtu og yl vorsins. Náttúran losnar úr dvala, lifnar og kviknar, boðar sigur lífsins og vonarinnar. Sumarið er í nánd og brátt verður allt í blóma og birtan ein ríkir. Árstíð tilhlökkunar, vonar og bjartsýni. Tökum þátt í gleðinni og njótum hennar á meðan tækifærin gefast. Gleðilega páska Fjóla Haraldsdóttir Djákni í Mörk
4
Heimilispósturinn
Vinnustofa Grundar
Þ
Alltaf troðfullur salur í bingó
að bregst ekki að þegar bingó er komið á dagskrá fyllist vinnustofan á Grund af áhugasömum bingóspilurum. Það má heyra saumnál detta meðan tölurnar eru lesnar upp, svo mikill er áhuginn. Það eru ýmsir vinningar á boðstólum, í þetta skipti voru það aðallega sætindi. Eftir bingó í vinnustofunni er ávallt boðið upp á veislukaffi.
Dúna var glöð og sæl með sinn vinning. Einbeitingin leynir sér ekki.
Heimilispósturinn
5
Garðyrkjustöðin í Ási
Rækta um 14 þúsund sumarblóm Það er alltaf nóg að gera í garðyrkjustöðinni okkar í Ási. Sumarblómin eru farin að vaxa uppúr moldinni og komin er ný uppskera af gúrkum, tómötum og paprikum. Á einu ári eru ræktuð um 14.000 sumarblóm, 16.000 rósir, um það bil 5.000 kg. af tómötum og 5.000 kg. af agúrkum. Einnig 900 kg. af papriku, 2.200 kg. af koktailtómötum og 6 tonn af gulrótum sem margir telja þær bestu í heimi! Þessar myndir voru teknar nýverið og segja meira en mörg orð um uppskeruna á næstu vikum.
Garðyrkjustöðin í Ási ræktar fyrir Ás, Grund og Mörk.
6
Heimilispósturinn
Garðyrkjustöðin í Ási
Það er ekki leiðinlegt að horfa inn eftir þessum gangi.
Mikið eru þær nú fallegar rósirnar, en árlega eru ræktaðar um 16.000 stykki.
Heimilispósturinn
7
Lestur: leikni og skilningur
É
Hvattur til að skjóta skötu og kaupa egg álsins
g varð snemma læs og man hvorki eftir mér ólæsum né í lestrarnámi. En læsi og skilningur á lesmáli fara ekki saman, og ég man enn ýmislegt, sem ég las en túlkaði á annan hátt en til var ætlast. Faðir minn var skólastjóri Austurbæjarskóla, og starfinu fylgdi íbúð í skólanum, þar sem ég fæddist og bjó fram á unglingsár. Á horni austanverðrar Bergþórugötu og sunnan Barónsstígs var og er enn Örnólfur Thorlacius Sundhöllin. Norðan hennar, handan Barónsstígs, var lengi óbyggð lóð, sem að austan markaðist af glugga- og dyralausum, ófrágengnum steyptum húsgafli, og ljóst var, að eftir ætti að rísa sambyggt hús á lóðinni, eins og nú má sjá. Þótt gaflinn væri ópússaður var máluð á hluta hans gríðarstór auglýsing frá matvöruverslun, J. C. Klein. Hafi ég einhvern tíma vitað, hvar sú verslun var, er ég búinn að gleyma því, en á auglýsingunni stóð meðal annars að þar mætti fá álegg.
Orðið var mér framandi, en ég kannaðist við ála og gerði ráð fyrir, að þarna væru egg þeirra i boði. Trúlega hef ég lesið um ála í bók, sem ég átti snemma, Dýramyndir, eftir Árna Friðriksson. Þar mátti líka sjá á mynd eggjahylki skötu, sem ber sérkennilegt heiti. Undir mynd af slíku mátti lesa: „Pétursskip úr skötu (skjóttu skötu.)˝ − Ég túlkaði lokaorðin, innan sviganna, á þann veg, að lesandinn væri 8
Heimilispósturinn
Lestur: leikni og skilningur hvattur til að skjóta skötu, ef hún yrði á vegi hans. Kvenfyrirlitning í gömlu lestrarbókinni Auk Litlu gulu hænunnar og fleiri kennslubóka í lestri frá ríkisútgáfunni fengu skólabörn í hendur flokk lestrarbóka, sem ég kann ekki lengur að nefna, en var eitt ævintýri í hverri. Í tveimur þeirra, ef ekki fleirum, gætti slíkrar fyrirlitningar á konum, að þær fengjust ekki sýndar í skólum nú, á dögum jafnréttis kynjanna, hvað þá lesnar. Í annarri bókinni, Karlinn frá Hringaríki og kerlingarnar þrjár, ofbýður heimska húsmóðurinnar í Hringaríki eiginmanninum svo mjög, að hann fer að heiman og kveðst ekki snúa aftur fyrr en hann hafi rekist á þrjár konur jafn vitlausar. − Hann skilar sér von bráðar aftur, sáttur við sína konu, sem varð víst að teljast gáfnaljós miðað við þær þrjár, sem greint var frá í sögunni. Spámaðurinn græddi en lét fljótt af störfum Hin karlrembubókin, Stjörnuspámaðurinn, er aftur á móti um einkar freka konu og ráðríka, sem skammar karl sinn í sífellu fyrir að hann skaffi ekki nóg. Í henni er mynd af þeim hjónum, þar sem frúin reiðir yfir manni sínum til höggs, kúst með stuttu skafti, eins og sópað er með upp í fægiskúffu. Undir myndinni er tilvitnun í texta bókarinnar: „Konan var uppi með hroka.˝ − Ég kannaðist ekki við orðið hroki, og hélt að það ætti við sópinn, sem konan óneitanlega „var uppi með˝ á myndinni. Kerling rak karl sinn síðan út á stræti eða torg, þar sem hann átti að auglýsa sig sem stjörnuspámann, enda hefðu slíkir einlægt góðar tekjur. − Karlinn hlýddi að vanda, kom sér fyrir á áberandi stað og hrópaði: „Ég er stjörnuspámaður! Hver sem vill vita hulda dóma, hann komi til mín!˝ Brátt birtist hirðmaður og leiddi spámanninn á fund konungs. Undanfarið hafði talsvert af borðsilfri horfið úr eldhúsi konungshallar, og kóngur fól spámanninum að finna þýfið. Til verksins voru honum ætlaðir þrír dagar. Ef honum tækist það, Heimilispósturinn
9
Lestur: leikni og skilningur fengi hann ríkuleg laun, en að öðrum kosti yrði hann líflátinn. Þjófarnir voru þrír af þjónum konungs. Þeir fréttu af komu spámannsins og leist ekki á blikuna. Ekki var kvíði hins sjálfskipaða spámanns minni. Honum var fengið herbergi til afnota. Að kvöldi hins fyrsta dags laumaðist einn borðsilfurþjófurinn að dyrum spámannsins, sem taldi dagana og mælti: „Þar fór sá fyrsti!˝ Þjófurinn hrökklaðist burt og sagði félögum sínum, að spámanninum væri ekki fisjað saman, hann hefði þekkt sig gegnum luktar dyr. Næsti þjófur var á hleri að kvöldi annars dags og hlýddi skelfdur á spámanninn lýsa yfir, að þar færi annar. Þegar síðasti bísinn þóttist heyra úrskurð spámannsins þriðja kvöldið, gáfu allir þrír sig fram, afhentu spámanninum þýfið og greiddu honum talsvert fé gegn því að hann héldi nöfnum þeirra leyndum. Að morgni næsta dags afhenti stjörnuspámaðurinn konungi allt borðsilfrið en sagði að huldir hæfileikar kæmu í veg fyrir að hann segði til sökudólganna, en þeir myndu aldrei taka nokkurn hlut ófrjálsri hendi framar. − Kóngur tók feginn við silfrinu og greiddi stjörnuspámanninum rausnarleg laun. Heim kominn sýndi karl kerlingu sinni launin en tilkynnti henni af nýfengnum myndugleik að hann hefði endanlega látið af starfi stjörnuspámanns. Örnólfur Thorlacius Höfundur er heimilismaður á Litlu Grund
10
Heimilispósturinn
Hrafnhildur Thors býr í Mörk
Öllum sunnudögum eytt á Fríkirkjuvegi hjá ömmu og afa
H
ún segist hafa kynnst ástríki strax í bernsku, ekki síst hjá afa sínum Thor Jensen og ömmu Margréti Þorbjörgu Kristjánsdóttur, sem bjuggu þá á Fríkirkjuvegi 11. Hrafnhildur Thors, sem er að verða 97 ára, sagði Guðbjörgu R. Guðmundsdóttur að sunnudagsboðin hjá ömmu og afa gleymdust seint. Í lok september árið 1919 fæddist hjónunum Kjartani Thors og Ágústu Björnsdóttur Thors lítil dóttir, Hrafnhildur, en fyrir áttu þau Margréti Louise. Síðar átti Hrafnhildur eftir að eignast bróðurinn Björn og systurina Sigríði. Kjartan og Ágústa höfðu komið sér fyrir við Grundarstíg 24 þar sem Thorsararnir bjuggu nokkrir með fjölskyldur sínar eða þeir Kjartan, Ólafur og Haukur Thors. Bræðurnir stýrðu saman togarafélaginu Kveldúlfi sem þá var eitt stærsta fyrirtæki landsins. Auk Thors bræðranna og fjölskyldna bjuggu líka í húsinu vinnukonur sem störfuðu hjá þeim. Húsið var stórt og mikið og bakvið það stórt hesthús. Afi hennar og amma, Thor Jensen og Margrét Þorbjörg, bjuggu á Fríkirkjuvegi 11 sem var eiginlega á sömu torfu og Grundarstígur 24, svo stutt var og er á milli húsanna. Hlýja og ást Fjölskyldan var fjölmenn því Thor Jensen og Margrét Þorbjörg eignuðust ellefu börn og sambandið afar náið milli þeirra. „Amma og afi áttu stóran þátt í því að við vorum svona náin því alla sunnudaga hittist fjölskyldan á Fríkirkjuveginum Heimilispósturinn
11
Hrafnhildur Thors býr í Mörk og eyddi saman deginum. Fyrst settist fullorðna fólkið til borðs og drakk saman kaffi. Við frændsystkinin lékum okkur um húsið á meðan, ærsluðumst og skemmtum okkur og amma gekk um með konfektskálina og spjallaði við okkur. Þegar fullorðna fólkið var búið að drekka færði það sig inn í gyllta salinn og þá var borðið dekkað fyrir okkur barnabörnin. Svona voru allir sunnudagar og í minningunni svo mikil hlýja og ást sem einkenndi heimsóknirnar til ömmu og afa.“ Henni eru líka mjög minnisstæðar ferðir fjölskyldunnar að Haffjarðará en þar átti stórfjölskyldan griðastað. Þar hittust allir og til dæmis var stundum farið í útreiðartúra og krakkaskarinn settur saman í hestakerru. Þetta voru ljúfar stundir og hún segir mér sögu af því hversu nálægðin var mikil við hestana. „Þeir áttu alveg til í að koma og stinga hausnum inn um eldhúsgluggann hjá okkur og þá í von um að fá kannski brauðsneið.“
Hrafnhildur Thors sem lítil stúlka.
12
Heimilispósturinn
Hrafnhildur Thors býr í Mörk
Við Haffjarðará átti fjölskyldan griðastað. Stundum var farið með krakkaskarann í útreiðartúr og hestakerran ómissandi.
Veiktist af heilabólgu
En Hrafnhildur þurfti ung að kynnast veikindum því þegar hún var sex ára veiktist hún af heilabólgu. „Ég var mjög veik og í mörg ár. Ég hætti að þroskast og þurfti að vera mikið heima. Mamma passaði rosalega vel upp á mig og læknirinn minn Gunnlaugur Claessen sem var giftur systur mömmu, Þórdísi. Hann sendi mig m.a. eitt sumar til Danmerkur til rannsókna og lækninga og þar bjuggu á þessum árum Helgi Pétursson og Soffía systir mömmu minnar. Á hverjum degi þetta sumar fór Helgi með mig til læknis í Kaupmannahöfn. Það var allt gert sem hægt var fyrir mig.“ Ljúfar minningar tengdar stólnum í Mörk „Mamma kenndi mér heima, sat með mig í þessum stól,“ segir Hrafnhildur og bendir á fallegan útskorinn stól sem hún er með hjá sér á heimilinu i Mörk. „Í þessum stól sátum við daglega og mamma las fyrir mig og ég fyrir hana. Ég fór í Æfingadeild Kennaraskólans í fimmta bekk, sem þá var við Laufásveg, rétt
Heimilispósturinn
13
Hrafnhildur Thors býr í Mörk hjá heimili mínu, og síðar í Miðbæjarskólann í einn vetur . En í báðum tilfellum mátti ég bara vera í tvo tíma á dag í skólanum. Að öðru leyti sá mamma um að kenna mér. Ég var orðin 25 ára þegar ég hætti síðan að taka út þroska.“ Þegar Hrafnhildur var níu ára flutti fjölskyldan úr stóra fjölskylduhúsinu við Grundarstíg á Laufásveg í hús sem Gunnlaugur Claessen hafði byggt. Hann ætlaði að hafa þar læknastofu en fékk ekki leyfi til að reka stofuna með yfirlæknisstarfi sínu á Landspítalanum svo foreldrar Hrafnhildar keyptu húsið. Þar bjó fjölskyldan lengi og einnig vinnustúlkur sem voru hjá fjölskyldunni. Þar á meðal var Bettý sem Hrafnhildur talar um með mikilli hlýju. Bettý bjó hjá fjölskyldunni í áratugi „Bettý kom til okkar sem vinnukona þegar ég var tólf ára og þá var hún átján ára. Hún bjó hjá okkur alltaf eftir það og giftist aldrei. Þegar pabbi dó bjó hún með mömmu og systur minni Margréti sem var einhleyp alla tíð. Meira að segja þegar mamma dó þá bjuggu þær saman Margrét systir og Bettý. Bettý varð ein af okkur í fjölskyldunni. Hún var ótrúlega fjölhæf og hún gat einhvern veginn allt. Börnunum mínum þótti hún ströng en hún var alveg einstök kona.“ Hrafnhildur ferðaðist um Bandaríkin á stríðsárunum, var að leika sér eins og hún segir sjálf. „Thor Thors, var á þessum tíma sendiherra í Washington og hann hafði auga með mér, passaði 14
Heimilispósturinn
Hrafnhildur Thors býr í Mörk fyrir mig peningana og svona. Ég ferðaðist með lest yfir þver Bandaríkin með mágkonu minni Helgu Valtýsdóttur og var bara að njóta lífsins.“ Ástin kviknaði á Hótel Borg En svo hittir þú ástina þína? „Já svo gerði ég það. Það var á Borginni. Sigurgeir Jónsson var á fundi á Borginni og kom svo fram á dansleik sem var þar. Hann bauð mér upp og þá var það komið. Ég þurfti ekki annað en að líta á hann og vissi að hann væri sá rétti. Sigurgeir var lögfræðingur, hann var bæjarfógeti í Kópavogi í tæpan aldarfjórðung en starfaði þegar ég hitti hann hjá dómsmálaráðuneytinu. Starfsferilinn endaði hann svo sem hæstaréttardómari. Ákveðin í að eiga 10 börn Við giftum okkur árið 1946. Ég hafði verið ákveðin í að eignast tíu börn. Þau urðu hinsvegar fjögur. Við eignuðumst tvo stráka, þá Kjartan og Jón, og tvær stelpur, Hrefnu og Hrafnhildi. Fjölskyldan kom sér fyrir í embættisbústað í Melgerði og svo byggðum við síðar okkar húsnæði sem var við Skjólbraut í Kópavoginum.“ Það átti vel við hana að vera í móðurhlutverkinu. „Ég ákvað strax að ég ætlaði að helga mig heimilinu og vera heima og passa mín börn. Það er ekkert eins yndislegt og að vera móðir.
Heimilispósturinn
15
Hrafnhildur Thors býr í Mörk
Hrefna, Hrafnhildur, Hrafnhildur, Jón, Sigurgeir og Kjartan.
Við eignuðumst góða vini í næsta húsi í Melgerðinu. Börnin voru á svipuðum aldri og vinskapur þessara fjölskyldna hefur haldist til dagsins í dag því börnin halda enn sambandi.“ Þegar börnin voru vaxin úr grasi og Sigurgeir var sestur í helgan stein ákváðu þau Hrafnhildur og Sigurgeir að breyta til. „Við keyptum okkur garðyrkjustöð í Biskupstungunum og vorum þar í mörg ár yfir sumartímann og stundum á veturna. Þar ræktuðum við gulrætur sem við seldum og svo ræktuðum við líka allskonar grænmeti fyrir okkur og vini og vandamenn.“ Sigurgeir lést árið 2005. Og hvernig fer svo um Hrafnhildi í Mörk? „Ég er heppin að fá að verða svona gömul af því ég á svo góða að. Eitthvert barnanna kemur daglega til mín. Guð ræður því hversu langan tíma maður fær og kannski spilar eitthvað inn í hvað ég þroskaðist seint“, segir hún kímin. „Starfsfólkið er dásamlegt hér í Mörk, herbergið flott. Þetta er yndislegur staður.“ 16
Heimilispósturinn
Sjö ára danspar í heimsókn á Grund
Dönsuðu samkvæmisdansa fyrir heimilisfólk
O
ft fáum við skemmtilega gesti í morgunstund hér á Grund en nýlega fengum við alveg sérstaklega notalega heimsókn. Þá kom til okkar sjö ára danspar, þau Manúela Þrá og Adam Breki sem dönsuðu samkvæmisdansa fyrir heimilismennina. Þau dansa með dansfélaginu Hvönn.
Mikið þótti heimilisfólkinu gaman að horfa á börnin dansa.
Heimilispósturinn
17
Býr í Ási
Alltaf fundist gaman að syngja
G
uðbrandur Valdimarsson er hrókur alls fagnaðar hvert sem hann fer og erum við hér í Ási þakklát að fyrir það að hann býr hjá okkur. Hulda Gísladóttir spjallaði lauslega við hann um leikslistaráhugann og fleira. Guðbrandur er ættaður frá Breiðafirði og ólst upp í eynni Öxney. Eins og tíðkaðist á þessum tíma, var Guðbrandur farinn að vinna fullan vinnudag 10 ára gamall og gerði það allt þar til hann varð 67 ára gamall. Hjónin Guðbrandur og Þóra. „Já, ég var farinn að vinna fullan vinnudag 10 ára gamall“, segir Guðbrandur. „Auðvitað var ég farinn að vinna fyrr, eða fimm ára gamall, þá sótti ég meðal annars kýrnar með systur minni sem var rúmlega ári yngri en ég“ segir hann og brosir. Guðbrandur flutti að heiman 26 ára gamall. Hann fór á vertíð og flutti síðan í Borgarfjörðinn þar sem hann vann sem vinnumaður og bóndi. Eftir fimm ára dvöl þar flutti hann til Reykjavíkur. Námið kom að góðum notum „Ég flutti til Reykjavíkur vorið 1973. Það hafði lengi blundað í mér að læra leiklist“, segir Guðbrandur. Þá um haustið skellti ég mér í SÁL, Samtök áhugamanna um leiklist, sem síðar rann inn í Leiklistarskóla Íslands og útskrifaðist ég þaðan 1977. Það voru engin inntökuskilyrði, en þeir sem áttu ekkert erindi þangað 18
Heimilispósturinn
Býr í Ási voru látnir fara. Það var geysilega gott að fara í þennan skóla og námið hefur nýst mér vel í starfi og leik æ síðan“, segir Guðbrandur. „Ég var til að mynda um tíma trúnaðarmaður hjá Dagsbrún, þá þurfti ég oft að koma fram og halda ræður. Þá kom námið að góðum notum, að geta staðið í pontu, komið fram og verið hreinskilinn, sagt það sem mér fannst“ segir Guðbrandur. Hann hefur alla tíð verið duglegur að taka þátt í félagsstörfum, eða „verið á kafi“ eins og hann orðar það sjálfur og ætíð haft nóg fyrir stafni. „Ég hef verið duglegur að taka þátt í hinum og þessum félagsstörfum“ segir Guðbrandur. „Þó er ég einfari að eðlisfari, finnst stundum gott að vera einn.“
Hér er Guðbrandur ásamt Snorra Ólafssyni að sprella á einni kvöldvökunni.
Spádómurinn rættist Guðbrandur giftist ástinni sinni, Þóru Magnúsdóttur árið 1980. „Systir mín spáði stundum í bolla og var oft sannspá. Ári eða svo áður en ég kynntist Þóru, spáði hún því að ég ætti eftir að hitta dökkhærða konu. Ég tók því nú mátulega trúanlega“, segir Heimilispósturinn
19
Býr í Ási Guðbrandur kíminn. „Þetta gekk nú samt eftir, því um haustið 1979 lágu leiðir okkar Þóru minnar saman.“ það var mikið sungið á heimili Guðbrands í Rúfeyjum. „Mér hefur alltaf fundist gaman að syngja, svo er söngurinn svo gleðivekjandi. Systir mín sagði að ég hefði verið farinn að halda lagi áður en ég gat talað“, segir Guðbrandur og hlær. Hann hefur nóg fyrir stafni í dag og er virkur sem fyrr. Sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum „Eftir að ég kom hingað í Ás, aðstoðaði ég Fanneyju Karlsdóttur iðjuþjálfa í nokkur ár við kvöldvökurnar, en hún sér meðal annars um þær hjá heimilinu. Núna í dag er ég sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum. Það felst meðal annars í því að ég er í sönghóp á þeirra vegum og les einnig nokkrum sinnum í viku fyrir heimilisfólk víða um heimilið. Þá kemur námið mitt enn og aftur að góðum notum þegar kemur að raddbeitingu og framsögn“ segir hann og brosir. „Nú svo tek ég þátt í starfi eldri borgara hér í bænum. Ég er í Hverafuglunum, sem er kór eldri borgara og í bókaklúbbnum sem er með leshring. Svo þú sérð að ég hef nóg fyrir stafni“ segir þessi hressi og lífsglaði maður að lokum.
20
Heimilispósturinn
Hefur unnið á Grund í 40 ár
R
Blóm, tertur og faðmlög
ósa Guðrún Bjarnadóttir var rúmlega þrítug þegar hún hóf störf á Grund fyrir fjörtíu árum. Hún vann í áratugi á þriðju hæð heimilisins en fyrir nokkrum árum flutti hún yfir á Litlu Grund þar sem hún starfar enn í dag. Í tilefni þessa áfanga voru bakaðar tvær flottar tertur og heimilismönnum og starfsfólki boðið til veislu. Rósu voru færð blóm í tilefni dagsins og ekki laust við að hún hafi komist við þegar vinnufélagarnir klöppuðu fyrir henni og föðmuðu.
Rósa Guðrún sem hefur unnið á Grund í 40 ár. Með henni á myndinni er Guðrún Birna Gísladóttir forstjóri Grundar.
Heimilispósturinn
21
Sýning á verkum Sigríðar Kjaran
Þ
Þjóðlífsmyndir í tengigangi
ann 9. febrúar var formlega opnuð sýning á íslenskum þjóðlífsmyndum eftir Sigríði Kjaran í tengigangi Markarinnar. Gísli Páll Pálsson, forstjóri Markar, flutti ávarp við þetta tækifæri og sagði að afi sinn, Gísli Sigurbjörnsson, fyrrum forstjóri Grundar, hefði keypti drjúgan hluta sýningarinnar sem sett var upphaflega upp í Þjóðminjasafni Íslands árið 1990 - 1991. Listaverkin sem eru sextán talsins endurspegla íslenskt þjóðlíf á árum áður. Brúðurnar eru í íslenskum búningum og sýna fólk við hversdagsleg störf í borg og sveit. Sigríður, sem nú er látin, sagði um brúður sínar: „Tilgangur minn er sá að tryggja að vinnubrögð og andi hins liðna gleymist ekki yngri kynslóðum, heldur geti þær í gegnum brúðurnar séð hvernig lifnaðarhættir forfeðra þeirra voru.” Ólafur Pálmason, íbúi í Mörkinni, hafði veitt þessum brúðum athygli í Mörk og lagði til á íbúaráðsfundi Markarinnar að brúðunum yrði safnað á einn stað og þær sýndar áhugasömum. Alda Pálsdóttir sá um uppsetningu sýningarinnar en hún stendur fram yfir páska og er öllum opin.
Gísli Páll Pálsson flutti ávarp við opnun sýningarinnar.
22
Heimilispósturinn
Sýning á verkum Sigríðar Kjaran
Margir íbúar úr þjónustuíbúðum Markarinnar voru viðstaddir opnunina ásamt ættingjum listakonunnar Sigríðar Kjaran.
Eitt af verkum Sigríðar Kjaran sem er á sýningunni.
Heimilispósturinn
23
Öskudagur í Ási
Allskyns furðuverur mættu í heimsókn
Ö
skudagsskemmtun tókst með eindæmum vel í Ási og allskonar furðuverur læddust um ganga. Þar voru á ferð starfsfólk og góðir gestir. Meira að segja ákváðu nokkrir heimilismenn að bregða sér í búning í tilefni dagsins.
Ekki amalegt að fá svona dömu í heimsókn.
24
Heimilispósturinn
Öskudagur í Ási
Margrét Heiðrós sjúkraliði á hjúkrunardeildinni mætti galvösk með börnunum sínum og var þeim til halds og traust.
Þessar verur voru heldur betur heppnar, því „æskulýðsfulltrúi“ heimilisins, Pétur Þorsteinsson, var með tónlistarstund í dagstofunni þennan dag og lék hann undir hjá börnunum.
Heimilispósturinn
25
Sungið fyrir fimmtugan forstjóra
Smalinn leystur út með vettlingum, sjúkrakassa og sokkum
G
ísli Páll Pálsson, forstjóri Markar, varð fimmtugur þann 18. febrúar síðastliðinn. Það kom honum í opna skjöldu þegar vinnufélagarnir risu úr sætum í hádeginu á mánudegi, tóku afmælissönginn, báru fram marsípantertu og færðu honum gjafir. Ragnhildur G. Hjartardóttir hjúkrunarstjóri færði honum hlýja vettlinga og sokka til að hafa þegar hann fer á fjöll að smala eða skjóta og í pakkanum leyndist einnig sjúkrakassi sem hann getur haft með sér þegar hjúkrunarfólkið í Mörk er víðsfjarri góðu gamni. Það var heilmikið púsl að fá forstjórann til að vera við í hádeginu í Mörk þennan dag því hann var á leið úr húsi. Allt hófst þetta nú, ekki síst með aðstoð móður hans, Guðrúnar B. Gísladóttur forstjóra á Grund, sem tilkynnti honum að hún ætlaði að koma til hans í hádegismat þennan dag.
Mæðginin Guðrún Birna Gísladóttir og Gísli Páll Pálsson.
26
Heimilispósturinn
Sannkallaðar gæðastundir
Hlýja og gleði
S
tundum eru uppákomurnar í morgunstund svo dásamlegar að þær verður að festa á filmu og þannig er hægt að gefa öðrum tækifæri til að taka þátt og gleðjast með okkur yfir svona stundum. Þessar tvær myndir eru ólíkar en svo talandi fyrir þær gæðastundir sem oft skapast virka morgna í morgunstund hér á Grund.
Söngvarinn Geir Ólafsson hefur í tvígang komið að undanförnu í sjálfboðavinnu og sungið og dansað með heimilisfólki.
Börnin frá Vesturborg spjalla við heimilismenn.
Heimilispósturinn
27
Ný aðstaða iðjuþjálfunar í Ási
Lita, prjóna lesa eða rabba saman
Þ
að er gaman að sjá hvað ný aðstaða iðjuþjálfunarinnar í Ási er að slá í gegn hjá heimilisfólki. Fólk kemur þar saman til dæmis til að lita, prjóna, lesa, smyrna eða bara til að tala um daginn og veginn. Svo spillir ekki fyrir að alltaf er boðið er upp á kaffi, kakó og gómsætt kaffibrauð áður en haldið er heim á leið aftur. Frábær viðbót við afþreyingu hér í Ási.
Ástríður og Ólöf Fríða saumuðu út á meðan Elísabet prjónaði.
28
Heimilispósturinn
Ný aðstaða iðjuþjálfunar í Ási
Sverrir Gunnarsson var að skera út, að hann minnti tíundu klukkuna.
Einar Þór Jónsson var að lita í spjaldtölvunni sinni.
Heimilispósturinn
29
Hátíðasalurinn á Grund
G
Páskabingó fyrir börn og barnabörn starfsfólks
rund bauð starfsfólki í páskabingó fyrir skömmu. Þangað mætti starfsfólkið með börnin sín eða barnabörn og sumir með litla frændur eða frænkur. Spilað var um stór egg og þó fólk fengi ekki bingóvinning þá var séð til þess að ekkert barn yfirgæfi hátíðasalinn nema hafa með sér heim páskaegg. Notaleg stund og mikil eftirvænting í loftinu hjá yngsta fólkinu.
Kiddi var bingóstjóri á páskabingóinu.
30
Heimilispósturinn
Auglýsing tekin upp í Mörk
Íbúar í Mörkinni fengnir til að leika
Þ
að er alltaf eitthvað um að vera í Mörk. Nýlega var tekinn upp hluti af auglýsingu þar og íbúar í Mörkinni voru beðnir um að taka þátt með leik. Þeir stóðu sig auðvitað vel í því eins og öðru.
Heimilispósturinn
31
Styttist í páskana
Þ
Páskaföndur og páskabingó
essa dagana eru heimilismenn í Mörk að undirbúa komu páskanna með ýmsum hætti. Í vinnustofu iðjuþjálfunar líta kanínur dagsins ljós í öllum litum, páskaegg og túlípanar. Páskabingóið verður svo haldið þriðjudaginn 22. mars klukkan 14:00. Þá verður spilað um fjölda páskaeggja og nánari upplýsingar veittar á upplýsingatöflu.
Inga og Dagmar Vala eru hér að spá í páskaskrautið.
32
Heimilispósturinn
Uppákomur í Mýrinni
Hafliði las frumsamdar smásögur
Þ
að er alltaf gaman í Mýrinni og ýmislegt gert til skemmtunnar. Nýlega kom Hafliði Hjartarson íbúi og íbúaráðsmaður í Mörkinni og las upp smásögu sem hann hafði samið sjálfur. Sagan heitir Össi og var mjög skemmtileg. Hann var að sjálfsögðu klappaður upp og átti þá aðra sögu í pokahorninu sem hann kallar Sveitalógík, ekki var hún síðri. Eftir lesturinn var boðið upp á vöfflur og kaffi.
Heimilispósturinn
33
Þórunn Elísabet heimiliskona á Grund
Öll vorum við systkinin gerð ábyrg fyrir heimilisstörfum
É
g átti yndisleg uppvaxtarár og aldrei liðum við skort, öðru nær, þó við værum fimmtán systkinin sagði Þórunn Elísabet Ingólfsdóttir heimiliskona á Grund þegar Guðbjörg R. Guðmundsdóttir heimsótti hana og spurði um lífið í stórum systkinahóp á Hólsfjöllum. Þórunn Elísabet Ingólfsdóttir eða Elísabet eins og hún er venjulega kölluð er fædd þann 16. september árið 1928 á Grímsstöðum á Hólsfjöllum. Hún er dóttir Ingólfs Kristjánssonar og Katrínar Maríu Magnúsdóttur. Systkinahópurinn var stór, Elísabet er ein af fimmtán systkinum og hún er í miðjunni, númer átta í röðinni. Reyndar hafði móður hennar dreymt fyrir þessum barnaskara þegar hún var bara sextán ára. Þá dreymdi hana að stórt tré yxi af barmi hennar og á því voru fimmtán greinar. Á þeim tíma fannst henni afar ósennilegt að hún myndi eignast fimmtán börn. En draumurinn varð að veruleika og systkinahópurinn er í þessari röð: Kristjana Hrefna, Hörður sem drukknaði sextán ára, Sigurður, Baldur, Ragna Ásdís, Magnús sem varð úti milli Víðihóla og Fagradals sextán ára, Stefán Arnbjörn, svo kom hún sjálf Þórunn Elísabet, Jóhanna Kristveig, Kristján Hörður, Hanna Sæfríður, Karolína Guðný, Birna Svava, Páll og Magnús. „Þetta var ofsalega skemmtilegt, að alast upp í þessum hópi systkina, átta strákar og sjö stelpur og að fá að eyða bernskunni á þessum dásamlega stað, á Hólsfjöllum. Við bjuggum fyrstu árin á Gímsstöðum í þríyftu timburhúsi sem afi
34
Heimilispósturinn
Þórunn Elísabet heimiliskona á Grund minn reisti. Síðar, þegar ég var um átta ára, fluttum við svo á kirkjustaðinn Víðihól á Hólsfjöllum.“ Saumað uppúr gömlum flíkum Elísabet segir að þau systkinin hafi stundum í seinni tíð rætt um það að aldrei hafi þessi stóri hópur liðið skort. „Við höfðum alltaf nóg að borða og hlýjan fatnað til að klæðast. Mamma var einstaklega útsjónarsöm, við vorum með búskap, pabbi var fjárbóndi Þórunn Elísabet, sem alltaf er kölluð og á bænum voru kýr sem Elísabet, með Ingólf son sinn ungan. sáu okkur fyrir mjólk og hænsni sem sáu okkur fyrir eggjum. Við vorum alin upp við íslenskan sveitamat. Mamma lærði herrafatasaum í Reykjavík áður en hún giftist pabba og hún saumaði á okkur allar flíkur, meira að segja yfirhafnir og oft uppúr gömlum flíkum og svo fékk hún líka send efni frá frænku okkar í Reykjavík.“ Börnin gerð ábyrg fyrir heimilisstörfum „Foreldrar mínir kenndu okkur systkinum snemma heimilisstörf og mamma taldi mikilvægt að við hefðum hlutverk og hjálpuðum til. Hún gerði okkur snemma ábyrg fyrir vissum störfum heima eins og þvotti, að leggja á borð og svo framvegis. Hún hafði gott lag á því að deila verkefnunum út milli okkar og jafnt á okkur stelpurnar og strákana og þannig hafðist þetta allt saman á stóru heimili. Það var létt andrúmsloftið heima og á kvöldin voru gjarnan vökur þar sem lesið var, farið með ljóð og sungið.“ Elísabet segir að þau systkinin hafi fengið heimakennslu
Heimilispósturinn
35
Þórunn Elísabet heimiliskona á Grund eins og gjarnan tíðkaðist á þessum tíma en síðan þegar þau urðu eldri var farið í skóla líka. „Þegar við stálpuðumst dreifðumst við á skóla bæði á Akureyri og í Reykjavík. Foreldrar mínir lögðu mikla áherslu á að það yrði eitthvað úr okkur systkinunum. Þau vildu að við legðum okkur fram í hvívetna og hvöttu okkur til að velja nytsamleg störf.“ Fermingardagurinn er henni í fersku minni Elísabet man vel eftir fermingardeginum sínum. „Séra Páll Þorleifsson fermdi Elísabet er blómakona. Þessi kaktus óx okkur saman tvær systur, af litlum afleggjara sem hún fékk. mig og Jóhönnu sem í seinni tíð var ætíð kölluð Hanna Johannessen. Við vorum í nýjum kjólum sem mamma hafði saumað og fengið efni í að sunnan. Þeir voru ekki í sama lit enda við systur eins og svart og hvítt, önnur dökkhærð og hin ljóshærð. Eftir fermingar tíðkaðist það að fólkið í sveitinni kæmi í kaffi og heima var haldin mikil veisla eftir ferminguna okkar. Það var nú ekki mikið um gjafir en við fengum ný föt og nýja skó.“ Elísabet segir að fermingarfræðslan hafi verið skemmtileg. „Páll var skemmtilegur maður. Hann var svo sigldur og sagði skemmtilega frá.“ Hjúkrunarfræði varð fyrir valinu Þegar Elísabet hleypti heimdraganum og flutti til Reykjavíkur vann hún hjá Karli Jónssyni nuddlækni um skeið. Hún ákvað svo að fara í hjúkrunarnám. Hluti af náminu var fólginn í starfsnámi úti á landi. Elísabet fór í starfsnám til Vestmannaeyja 36
Heimilispósturinn
Þórunn Elísabet heimiliskona á Grund
Systkinahópurinn ásamt foreldrunum Ingólfi og Katrínu Maríu.
því þar kynntist hún eiginmanninum, Arnari Jónssyni. „Við hittumst á dansleik en upphafið að kynnum okkar er að ég tók feil á honum og bróður hans. Arnar var matreiðslumeistari. Við fengum saman sextíu ár og eignuðumst soninn Ingólf.“ Sextíu ár er langur tími. Hvernig fer maður að því að búa með sama manninum í sextíu ár Elísabet? „Nú þarf ég að hugsa aðeins“, segir hún, brosir blíðlega og tekur sér góðan tíma. „Jú veistu við áttum ágætlega saman og hjálpuðumst að með allt sem við tókum okkur fyrir hendur. Ég held ég geti fullyrt að við vorum góðir vinir. Arnar var líka mjög mikill fjölskyldumaður, við vorum honum allt, fjölskyldan. Ég var að sumu leyti skipt milli fjölskyldunnar og starfsins. Hjúkrun er þannig starf að maður tekur ástfóstri við sjúklingana sína og er með hugann oft í vinnunni. En Arnar var heimilismaður, hundrað prósent.“ Heimilispósturinn
37
Þórunn Elísabet heimiliskona á Grund Elísabet byrjaði snemma eftir námið að vinna fulla vinnu á Hvíta bandinu og síðar á Borgarspítalanum, Landspítalanum og kenndi við Hjúkrunarskóla Íslands. Ævintýraþrá Þau hjónin ákváðu að flytjast til Bandaríkjanna í nokkur ár. Arnar hafði tengsl vestur um haf, þar bjó systir hans og Elísabetu langaði líka að kynnast hjúkruninni í Bandaríkjunum. „Við bjuggum í San Rafael sem er skammt frá San Francisco. Þar vann ég á dönsku öldrunarheimili Hjónin Elísabet og Arnar. og Arnar líka. Og síðar á sjúkrahúsi þegar ég fékk bráðabirgðaleyfi til að sinna hjúkrun. Þá fékk ég vinnu á öðru hjúkrunarheimili í Oakland sem var verið að byggja upp. Það heimili var á undan sinni samtíð. Þar var áhersla lögð á að fólkið byggi á sínu heimili en ekki stofnun. Þar var lögð áhersla á ræktun líka sem átti við mig því ég hef alltaf haft svo gaman af ræktun. Mjög lærdómsrík dvöl vestra og mér fannst gaman að kynnast nýjum siðum og skoða mig um í heiminum.“ Geðhjúkrun Elísabet og Arnar ákváðu að snúa aftur heim. Elísabet fór fljótlega að kenna aftur í Hjúkrunarskólanum og vinna á Borgarspítalanum. Hún ákvað svo að fara í sérnám í geðhjúkrun, hafði lengi haft áhuga á henni. Ekki ólíklegt telur hún að þáttur í því hafi verið hversu snemma hún kynntist sorginni þegar hún missti tvo bræður sína. „Svo dreif ég 38
Heimilispósturinn
Þórunn Elísabet heimiliskona á Grund mig í þriggja ára nám í hjóna og fjölskylduþerapíu og síðustu starfsárin mín var ég starfandi á Landakoti þar sem ég tók þátt í að setja upp stuðningshóp fyrir fólk sem var að fara í líknandi meðferð.“ Sonur Elísabetar, Ingólfur á þrjá syni og ömmu og afa hlutverkin áttu vel við þau hjónin. „Barnabörnin okkar, Þorlákur, Indriði og Ragnar Steinn voru hjá okkur töluvert á meðan þeir voru að alast upp. Við erum ekki stór, nánasta fjölskyldan, þó ég komi sjálf úr stórri fjölskyldu, en við höfum alltaf verið afskaplega náin.“ Þekkti til Grundar Og nú er hún flutt á Grund. Hvernig skyldi henni líka það: „Ég þekkti nokkuð vel til heimilisins áður en ég kom hingað sjálf. Systir mín, Karólína, var sjúklingur og dvaldi af og til á Grund. Arnar, maðurinn minn var einnig hér um tíma og lést á heimilinu árið 2014, þá 95 ára gamall. Ég hef undan engu að kvarta og hér er hugsað vel um heimilisfólk. Mér finnst gott að vera á Grund en ég er fyrir það að vera útaf fyrir mig og hlakka til að komast í einbýli.“
Heimilispósturinn
39
Gistihúsið Ás
U
Pantanir farnar að berast
m miðjan febrúar var gistiheimilið Ás opnað í Hveragerði en það er í eigu Grundar og stendur við Bláskóga 5. Að sögn Gísla Páls Pálssonar er um að ræða spennandi verkefni sem hefur verið í undirbúningi frá síðasta hausti. Í húsinu eru þrjú tveggja manna herbergi, sameiginlegt baðherbergi og setustofa með eldunaraðstöðu. Sjónvarp og ókeypis þráðlaust net. Bókanir hafa komið í gegnum vefinn booking.com en einnig er hægt að bóka herbergi beint með fyrirspurn á gisli@grund.is. Nú þegar hafa borist all margar pantanir fyrir sumarið og fjölgar þeim dag frá degi. Greinilegt er að mikil fjölgun ferðamanna hingað til lands hefur jákvæð áhrif á eftirspurn eftir gistingu í Hveragerði en einnig hafa nokkrir Íslendingar bókað gistingu í Bláskógunum. Ef rekstur gistiheimilisins gengur vel er allt eins víst að fleiri hús í Ási verði tekin í notkun undir starfsemi sem þessa.
Gistihúsið stendur við Bláskóga 5.
40
Heimilispósturinn
Gistihúsið Ás
Sameiginlegt eldhús er fyrir gesti herbergjanna þriggja.
Þrjú tveggja manna herbergi eru á gistiheimilinu.
Heimilispósturinn
41
Hvað sá maðurinn úti í garði?
Sjáum við fegurðina, ástina og gleðina í kringum okkur?
E
inhverju sinni lágu tveir menn saman á sjúkrastofu. Sá sem var nær dyrunum var svo þétt vafinn í spelkur og snúrur að hann gat sig hvergi hrært. Hinn maðurinn lá út við glugga. Dagarnir voru langir og tilbreytingalitlir fyrir menn sem voru að gróa sára sinna. Þá tók maðurinn við gluggann upp á því að segja hinum manninum frá því sem bæri við fyrir utan gluggann. Hann lýsti garðinum sem hann sá, með blómabeðunum í öllum regnbogans litum. Hann sagði frá því þegar litla telpan lék sér við hundinn og þegar afinn leiddi barnabarnið á milli leiktækjanna. Þannig varð það að hefð hjá mönnunum á sjúkrastofunni að eftir hádegismatinn lýsti sá við gluggann því sem fyrir bar í garðinum. Eftir það fengu þeir sér miðdegisblund. Maðurinn sem aldrei gat horft á annað en sprungið loftið fyrir ofan sig var farinn að finna til tilhlökkunar þegar matmálstíminn nálgaðist
42
Heimilispósturinn
Hvað sá maðurinn úti í garði? af því að hann vissi að eftir á fengi hann að heyra um fallegu túlípanana sem bylgjuðust gulir í vindinum. Hann hlakkaði til að vita hvað gerðist í garðinum þann daginn. Eina nóttina veiktist maðurinn við gluggann hastarlega. Rúmi hans var ekið út úr stofunni og spelkaði maðurinn lá einn eftir í hugsunum sínum. Þegar hjúkrunarkonan kom inn um morguninn spurði maðurinn hvernig manninum liði sem hefði alltaf sagt sér frá því sem gerðist í garðinum. „Hvaða maður var það?“ spurði hjúkrunarfræðingurinn. „Nú maðurinn sem lá hér við hliðina á mér“. „Hann lést því miður í morgun. En hann getur ekki hafa sagt þér hvað gerðist í garðinum, því hann var blindur“. Maðurinn með spelkurnar horfði undrandi fram fyrir sig og spurði: „Hvað ber þá við fyrir utan gluggann minn í dag?“ Hjúkrunarkonan svaraði um hæl: „Heldur lítið, það er grár steinveggur nokkra metra frá glugganum“. Það sem við gerum skiptir máli fyrir náungann. Hvernig við horfum á lífið skiptir svo miklu, það smitar út frá sér. Erum við að sjá fegurðina, ástina, gleðina í kringum okkur – leyfum við okkur að upplifa? Eða erum við kannski föst í því að sjá ekkert nema gráan steinvegginn? Að lifa lífinu er ákvörðun. Að trúa og treysta er reynsla og upplifun en það er líka ákvörðun. Jesús nam staðar. Það skulum við líka gera. Skoðum hug okkar, biðjum um sjón. Sr. Sigrún Óskarsdóttir flutti þessa fallegu sögu í prédikun við messu á Grund fyrir nokkru. Með góðfúslegu leyfi sr. Sigrúnar birtum við hér söguna.
Heimilispósturinn
43
Öskudagur í Mörk
N
Furðuverur á sveimi
ornir, trúðar og allskyns verur sveimuðu um ganga Markar á öskudaginn. Börnin úr Steinahlið komu í heimsókn og glöddu með nærveru sinni. Kötturinn var sleginn úr tunnunni og síðan bauð Valdi kokkur upp á pylsur. Bangsi, hundur forstjórans, tók einnig þátt í gleðinni og klæddist búningi.
Kaþólsku sjúkraliðarnir Guðrún Hreinsdóttir, Sólveig Ragnarsdóttir og Sigurveig Ólafsdóttir.
44
Heimilispósturinn
Öskudagur í Mörk
Jón Lárus og Rósa tóku daginn með stæl og skemmtu sér hið besta.
Margrét, Gunnur, Kristján og Helga voru alveg til í smá sprell á öskudaginn.
Heimilispósturinn
45
Hátíðasalurinn á Grund
S
Fjör á hattaballinu
ú hefð hefur skapast á öskudag að halda hattaball á Grund. Vikuna fyrir ballið er vinnustofan undirlögð af höfuðfötum sem heimilið hefur viðað að sér og þangað kemur heimilisfólk og mátar og skemmtir sér. Sumir taka þetta alla leið og mæta í búningi á ballið. Grundarbandið kom eins og undanfarin ár og hélt uppi stuðinu. Eitt skemmtilegasta ball ársins hér á Grund og allir skemmta sér konunglega.
Og dansinn dunar.
46
Heimilispósturinn
Hátíðasalurinn á Grund
Grundarbandið klikkar ekki og heldur uppi stuði.
Sigurjón og Sallý skemmtu sér vel.
Heimilispósturinn
47
Bakstur í Langholti
Á
Vestfirskar hveitikökur
heimilinu Langholti voru nýlega bakaðar vestfirskar hveitikökur. Út frá þessum bakstri spunnust umræður um hvort aðrir könnuðust við þessar kökur og hafði Ísfirðingurinn á heimilinu aldrei heyrt um þessar kökur fyrr þó uppalinn væri á Ísafirði. Kannski eru þá vestfirsku kökurnar ættaðar frá suðurfjörðunum á vestfjarðakjálkanum. Uppskriftina fengum við frá Sigurveigu starfsmanni sem er frá Patreksfirði. Þetta var svo á boðstólum þann daginn með kaffinu og búið til baunasalat með kökunum en bestar eru þær þó með reyktum laxi, silungi eða hangikjöti.
Sigurveig og Guðrún að baka vestfirskar hveitikökur.